POPULARITY
Eddie Cole var ungur farin að sýna af sér vafasama hegðun - eitthvað sem í seinni tíð útskýrist af gjörðum móður hans í hans garð. Hann var ungur þegar hann hóf afbrotarferil sinn og í mörg mörg ár komst hann upp með gjörðir sínar Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt inná www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Komdu með á bakvið tjöldin á „Framúrskarandi ráðstefnunni“ í Cannes, þar sem ýmislegt óvænt gerðist á síðustu stundu – allt frá rafmagnsleysi í Portúgal yfir í að leigja einkaflugvél. Ég ræði mikilvægi þess að taka 100% ábyrgð á lífi sínu, hætta að kvarta og velja frekar lausnir, auk þess sem ég deili reynslu minni af því að vinna náið með kærastanum mínum. Þetta er þáttur um ábyrgð og hugrekki til að stíga inn í möguleikana, sama hvað kemur upp á. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMASÍÐA ✔️ LÍFSÞJÁLFASKÓLINN ✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ ✔️ NÁMSKEIÐ ✔️ VÖRUR ✔️ MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis) P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.
Hin 19 ára Lizette hafði nýlega flutt á nýjan stað en þó ekki átt í neinum vandræðum að koma sér inn í samfélagið. Hún kom til með að kynnast strák sem varð að aðeins meira en bara vini, strák sem að flestir töldu að myndi reynast henni vel. Annað átti eftir að koma á daginn Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Kristmundur Axel fer yfir allt það helsta frá barnæsku til dagsins í dag. Hvaða tónlist mótaði hann? Komdu til baka tímabilið og byrjunin á ferlinum. Blár Ópal tímabilið og Söngvakeppni Sjónvarpsins. Neyslan og erfiðu tímarnir. Upprisan og góðu tímarnir. Ný plata í bígerð. Þetta og meira til!
Hin unga móðir, Bonnie Haim hafði verið föst í klóm Michael, eiginmanns síns og barnsföður allt þeirra samband. Sambandið litaðist af mikilli stjórnun að hálfu Michaels sem og ofbeldi og var hún árið 1993 loksins búin að finna kjarkinn til að fara frá honum. Það kom þó ekki til með að takast. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Robert Gleason var farsæll húðflúrari á sínum yngri árum en það var ekki starfsferill sem hann átti eftir að fylgja út lífið. Á einhverjum tímapunkti tók Robert ákvarðanir sem áttu eftir að umturna lífi hans töluvert. Og að lokum koma honum innan veggja fangelsis. Það átti þó ekki eftir að halda honum frá afbrotum og kom hann til með að fremja hin alvarlegustu brot innan veggja fangelsis. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Þegar AJ fæddist var honum komið í öruggar hendur fósturmóður sinnar sem sinnti hlutverki sínu með sóma allt þar til hún neyddist til að láta hann í hendur blóðforeldra sinna, þar sem hún hafði vonast til að hann yrði öruggur. Svo var þó ekki raunin. Saga AJ Freund er skelfileg frá upphafi til enda - hún hefði hinsvegar ekki þurft að vera svona skelfileg hefði hann bara fengið að njóta vafans og yfirvöld hefðu sinnt sínu starfi betur. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Árið 1996 hvarf hin 18 ára Sarah Spiers úr miðbæ Claremont en hún hafði verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim. Ekkert bólaði á rannsókninni og um sex mánuðum síðar hvarf önnur stelpa frá sama svæði, og voru bæjarbúar að upplifa sama áfallið aftur. Rannsókn var á fullu þar sem þeir báðar áttu það sameiginlegt að hafa verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim, og lögreglan fór að velta því fyrir sér hvernig einstaklingurinn væri að nálgast fórnarlömbin sín. Ári seinna, hvarf svo þriðja stelpan sem setti samfélagið á hliðina. Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com
Mark Essex var frá Emporia í Kansas, hafði átt dásamlega góða æsku, lítið fundið fyrir kynþáttahatri og leit á lífið jákvæðum augum. Þegar hann skráði sig í herinn þá breyttist sýn hans á lífinu, enda varð hann fyrir mikilli mismunun, miklum rasisma og var ekki tekið eins og þeim sem voru hvítir. Þetta bjó til mikla reiði innra með Mark sem og sorg og tók hann afdrifaríkar ákvarðanir eftir röð atvika. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Betsy Aardsma var ný byrjuð nám sitt í Penn State háskólanum, skynsöm og klár stelpa með miklar væntingar til sjálfs síns. Það var þess vegna sem hún ákvað að eyða þakkagjörðarhátíðinni inn á bókasafni í stað þess að fara heim til fjölskyldu sinnar yfir skólafríið. Betsy kom til með að vera myrt inn á bókasafni skólans, þar sem margir sátu á meðan ráðist var á hana en enginn var var við neitt. Þátturinn er í boði Define The Line Sport kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Þegar líður að jólum er gott að hugsa til þeirra sem eiga um sárt að binda og Sólveig Guðmundsdóttir leikkona sagði okkur af fimm góðgerðarverkefnum sem hún hvetur okkur til að skoða og taka þátt í. Við kynntumst líka Sólveigu sem ólst upp á Seltjarnarnesi og lærði til leikkonu í London og kom svo heim með skoskan leikstjóra í farteskinu. Þau eiga nú tvær dætur og búa.. já á Seltjarnarnesi! Í síðari hlutanum heyrðum við hluta úr Árið er 2020 en þar var sagt af ævintýrum Daða Freys og Think About Things lagalisti Vilhjálmur Vilhjálmsson - Jólin koma Sniglabandið - Jólahjól Katy Perry - Roar Lous Armstrong - Wonderful World Ragnheiður Gröndal - Jólin með þér Páll Óskar - Mig langar til Lón og Rakel - Hátíðarskap Laufey - Santa Baby Daði - Komdu um jólin Baggalútur - Kósýkvöld í kvöld Bríet - Takk fyrir allt Brunaliðið - Jóla jólasveinn Stefán Hilmarsson og Jón J'onsson - Jólin þau eru á hverju ári Marketa Irglova - Vegurinn heim Dolly Parton - Winter Wonderland
Doc, Gunnar Birgisson og Keli fara yfir helgina í boltanum
Bartholomew fjölskyldan var stór, samanstóð af hjónunum Clifford og Heather og börnum þeirra sjö. Fjölskyldan var alla tíð talin hamingjusöm og hjónaband Cliffords og Heathers með þeim betri, þau voru miklir vinir og samheldin. Það var því eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Clifford tók skelfilega ákvörðun eina nótt í september mánuð árið 1971. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Með kóðanum "morðskúrinn" fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Við höfum verið að fjalla undanfarna mánudaga um það hvað verður á fjölunum í leik- og sviðslistahúsunum í vetur. Í dag var komið að Tjarnarbíói, Snæbjörn Brynjarsson nýráðinn leikhússtjóri þar á bæ kom í þáttinn. Tjarnarbíó hefur verið aðalmiðstöð frjálsu leikhópana hér á höfuðborgarsvæðinu og verður það áfram í vetur með fjölbreytta dagskrá sem Snæbjörn sagði okkur frá henni í þættinum. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn fjallaði vinkillinn um matargerð sem tekur mið af hnattstöðu Íslands og ekki síður árstíðinni, því nú verður spjallað um kjötsúpu. Hvers vegna er kjötsúpan mismunandi á milli heimila og landa? Má allt í kjötsúpugerð, eða verður að fara eftir uppskrift? Eru einhver leyndarmál sem gera súpuna betri á sumum heimilum en öðrum? Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skáld og bóksali. Hún rekur bókabúðina Kanínuholan, sem hefur verið kölluð minnsta bókabúð landsins, en búðin er í bílskúrnum hjá henni. Hún sagði okkur auðvitað frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Móheiður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Mafalda e. Quino, teiknimyndasögur Undir grjótvegg e. Svövu Jakobsdóttur Ariel e. Sylviu Plath (sem Móheiður hefur verið að þýða) Óseldar bækur bóksala e. Shaun Bythell. Things You May Find Hidden in My Ear e. Mosab Abu Toha Og svo talaði hún um bækurnar Mémoire d'une Jeune Fille Rangée / Mémoirs of a Dutiful Daughter og La Femme Rompue / A Woman Destroyed e. Simone de Beauvoir Tónlist í þættinum: Komdu í kvöld / Ragnar Bjarnason (Jón Sigurðsson) Allar mínar götur / Ragnar Bjarnason (Haraldur Reynisson) Barn / Ragnar Bjarnason (Ragnar Bjarnason, ljóð Steinn Steinarr) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Harvey Glatman var mjög ungur þegar hann var farinn að bera merki um að hann yrði sjálfsagt ekki eins og flestir. Foreldrar hans höfðu leitað aðstoðar vegna vanda sem hann sýndi en læknirinn hafði sannfært um að hegðun sem hann sýndi af sér myndi vaxa af honum. Svo var aldeilis ekki, Harvey var ungur farinn að áreita konur og komst svo miklu miklu lengra en hann hefði átt að geta. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn
Árið 2009 fór kona nokkur í gönguferð með hundinn sinn í eyðimörk í úthverfum Albuquerque. Það sem átti að vera góður göngutúr breyttist fljótt í uppgötvun á líkamsleifum. Í kjölfarið kom í ljós að 11 lík voru grafin þar, allt ungar konur sem höfðu verið myrtar nokkrum árum áður. Við tók erfitt verkefni að bera kennsl á líkamsleifarnar sem og finna hver ætti sök á máli. Þátturinn er í boði Define The Line kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Í september mánuð 2006 ákvað hin fjögurra barna móðir Joan að fara út að skokka, eins og hún hafði gert margsinnis áður, en þetta skipti átti eftir að verða hið síðasta. Joan fannst látin tvem dögum síðar, hafði verið myrt. Í kjölfar rannsóknar á morðinu á Joan fóru að koma fleiri upplýsingar í ljós og fleiri mál sem tengdist lífssýni sem hafði fundist á vettvangi. Umrædd mál höfðu áður verið rannsökuð án árangurs en nú átti það eftir að breytast. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% af slátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Full lengd: patreon.com/heimsendirLangar þig að vita hvernig það er að sigla umhverfis Ísland á skemmtiferðaskipi með 150 manns sem kalla þig Steven? Langar þig að fræðast um Flatey og Látrabjarg? Þá er þessi fyrir þig. Komdu með um borð og hlustaðu á ferðasöguna sem og punkta um allt það góða og slæma við núverandi starf mitt á skipinu góða.
Hin tvítuga Anita Taylor var elskandi eiginkona og ástrík móðir 18 mánaða gamals drengs sem fékk nafnið Aaron. Hún átti sér stóra drauma um að eignast sitt eigið heimili og hafði sótt um vinnur með þá von um að getað aðstoðað við útvega féð sem þyrfti í útborgun. Anita fékk starf en tvem vikum síðar var hún látin, hún hafði verið myrt á hrottalegan máta inn á sínu eigin heimili. Aaron hafði orðið fórnarlamb árásaraðilans líka, og því vörum við við lýsingum í þættinum í dag. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Má bjóða þér fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Gareth var ungur, gríðarlega hæfileikaríkur og klár maður. Hann hafði leikið sér að því að klára hverskyns háskólagráður og ungur að aldri vakið athygli fyrir gáfur sínar. Starf hans var óvenjulegt en hann starfaði innan bresku leyniþjónustunnar þar sem hann leysti úr dulkóðum og passaði vel upp á þjóðaröryggi Bretlands. Eftir ansi langan tíma þar bauðst honum starf í MI6 sem hann þáði en eftir ár þar sá hann að hitt hentaði honum töluvert betur. Hann náði þó aldrei að færa sig í sitt gamla starf, því hann fannst látinn undir afar grunsamlegum aðstæðum nokkru áður en hann átti að skipta. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Má bjóða þér fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Sérstakur þáttur um 19. öldina íslensku og endurreisnina á íslenskri menningu sem átti sér þá stað. Ef þetta hræðir þig, stígðu inn í óttann! Komdu og vertu með. Þetta er gott fyrir þig. Aðalpersónur þessarar þáttar eru Jónas Hallgrímsson og Fjölnismenn (Konráð Gíslason, Tómas Sæmundsson og Brynjólfur Pétursson). Við tölum um hugmyndirnar þeirra, hvað þeir vildu og víbrurnar í kringum þá. Allt þetta er gert til þess að komast betur að því hvaða hlutverki þessi gamla endurreisn 19. aldarinnar gegnir árið 2024. Skömmumst við okkur fyrir að vera Íslendingar? Hvert erum við að fara? Er dass af aukinni þjóðrækni svarið?
Vinkonurnar Krystal og Katie voru að gista saman eitt kvöldið þegar maður læddist inn í herbergið þeirra og skar Katie á háls. Á leið sinni út úr herberginu leit hann um öxl og sá Krystal í efri kojunni, sem varð til þess að hún var einnig skorin á háls. Krystal náði samt sem áður að koma sér undan og leita aðstoðar hjá nágranna. Þetta kvöld varð til þess að hinn alræmdi raðmorðingi var handsamaður en skaðinn sem hann hafði ollið síðustu árin var mikill, það mikill að lögreglan er ekki viss um hve mörg fórnarlömb eru. Með kóðanum morðskúrinn færðu 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að skoða myndir frá þeim málum sem við tökum: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Komdu og vertu með í samfélagi sem skiptir máli. Áskrift kostar ekki nema 10$ á mánuði. www.patreon.com/skodanabraedur Góðan daginn kæra bræðralag. Þetta er guðdómlegur þáttur sem tekur á móti ykkur þessa vikuna. Helst er talað um hvernig maður býr til vöru sem nær til venjulegs fólks. Þú gerir það með því að vera skýr. Í þessu samhengi ræðum við um sögur, skáldskap og hvernig hver og einn býr til sinn veruleika. Þarf maður óvin til þess að ná til massans? Hver er óvinurinn í dag? Þessu er svarað.
Lauren McCluskey var 21. árs, hlaupafíkill, harðdugleg, gullfalleg og samviskusöm. Hún hafði leyft hugrekkinu að ráða sem leiddi hana í háskóla í Utah, langt frá heimslóðum sínum en þar átti hún eftir að blómstra. Í september 2018 kynntist hún manni sem henni hafði fundist heillandi, góður og ljúfur - annað átti hinsvegar eftir að koma á daginn og minna en tvem mánuðum síðar var Lauren látin Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn
Doc, Ponza og Jói Már í Doc Xtra.
Páskarnir árið 1975 áttu að vera hátíðlegir og skemmtilegir fyrir alla Ruppert fjölskylduna en það var aldeilis ekki raunin. Einn meðlimur fjölskyldunnar tók afdrifaríka ákvörðun klukkan 16:00 á páskadag og í kjölfarið enduðu 11 einstaklingar látnir þar á meðal 8 börn. Í kjölfarið var gerandinn dreginn til saka en það var ferli sem átti eftir að taka lengri tíma og var töluvert flóknara en fólk gat ímyndað sér. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kíkið á úrvalið af gæðavörum inn á www.definethelinesport.com Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Laugardagurinn 29. apríl 2023 átti að vera hinn eðlilegasti fyrir vinkonurnar Ivy, Brittany og Tiffany en fór alls ekki eins og þær héldu. Þær höfðu planað það að gista saman en á sunnudeginum breyttust plön og ákváðu þær að fara að synda. Þær skiluðu sér svo ekki heim og var lögreglan fengin í málið. Við rannsókn komust þau að afdrifum stúlknanna, en þær reyndust ekki vera einu fórnarlömbin. Þátturinn er í boði Define The Line - skoðaðu úrvalið hér: www.definethelinesport.com Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Skoðaðu myndir frá hverju máli fyrir sig: www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Amie Harwick var 38 ára gömul, átti stórkostlegan starfsferil á sínu sviði í Los Angeles og allt leit út fyrir að hún lifði raunverulegu draumalífi. Raunveruleikinn var hinsvegar sá að hún lifði við stöðugt áreiti, net-einelti og stöðugar áhyggjur sem hún sjálfsagt deildi ekki með öllum í kringum sig. Á valentínusardaginn árið 2020 fór hún og skemmti sér með vinkonum sínum, kom heim til að eiga rólegt kvöld en endaði látin fyrir neðan svalirnar á svefnherberginu sínu. Þátturinn er í boði Hreysti og Define The Line Sport Kóðinn "MSKN" gefur 10% afslátt af öllum fæðubótavörum inn á www.hreysti.is Ekki hika við að kíkja inn á www.definethelinesport.com og versla ykkur geggjaðar flíkur á stórgóðu verði! Viltu hlusta á fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Ari Jónsson syngur lög eftir fjóra lítt þekkta lagasmiði sem komu út á plötum fyrir nokkrum árum. Fyrsta lagið er eftir Siglfirðinginn Leó R. Ólason og heitir Með kveðju til þín. Síðan eru tvö lög eftir Vestfirðinginn og skipherrann Þröst Sigtryggsson sem heita Hafið speglast og Dúra. Þessu næst syngur Ari fjögur lög eftir Strandamanninn Björn Guðna Guðjónsson sem heita Sveitin mín, Ilmandi rós, Beint af augum og Svikalogn. Fjögur síðustu lögin í þættinum eru eftir mjólkurfræðinginn og Skagfirðinginn Snorra Evertsson. Það eru lögin Öræfaför, Kærleiksmolar, Dimmbláu augun og Komdu vina. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Shaye var ung einstæð móðir, með mörg áhugamál, flest þó áhugamál sem aðrir höfðu lítinn áhuga á. Hún kynntist þó Frankie, en hann deildi áhugasviði með Shaye á sumum sviðum - þó alls ekki á öllum. Áhugi Shaye á sakamálum, raðmorðingjum og morðingjum almennt var mjög mikill svo mikill að sumir halda að það hafi hvatt hana til að fremja svæsinn glæp. Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Kaylee Sawyer var 23 ára gömul árið 2016, í sambandi með ástinni í lífi sínum, með drauma um að verða tannlæknir og hefði átt að eiga allt lífið framundan. Það var því miður ekki svo, en eftir stórskemmtilegt kvöld á djamminu með vinkonum sínum kom kærastinn hennar að sækja hana. Kaylee endaði á að rífast við kærasta sinn þetta kvöld, og labba í burtu með þeim tilgangi að kæla sig aðeins niður. Það átti þó eftir að vera það síðasta sem hún gerði, hún sást aldrei aftur á lífi. Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Miya Marcano hafði ákveðið að búa á aðeins fínni háskólagörðum, í fínna og að hún taldi öruggara umhverfi á meðan námi hennar stóð. Hún ætlaði sér að verða sjúkraliði enda með íþróttadellu og mikla ástríðu fyrir að hjálpa fólki. Miya fékk þó aldrei tækifæri til að klára námið sitt, og hún var ekki eins örugg eins og hún hélt, ekki einu sinni inn á sínu eigin heimili. En það var einmitt þaðan sem hún hvarf einn september eftirmiðdag og átti aldrei aftur eftir að sjást á lífi. Langar þig í fleiri þætti? Komdu í áskrift þar sem 120+ þættir bíða þín! ÁSKRIFT www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Tracey var 13 ára gömul þegar hún hvarf sporlaust eftir að hafa gengið heim frá vinkonu sinni eitt kvöld. Það liðu ekki margir dagar þar til lík hennar fannst í um 15km fjarlægðar frá heimilinu hennar, og ljóst að einhver hafi rænt henni og drepið hana. Lögreglan var engu nær og biðluðu til almennings um upplýsingar. Það var svo maður sem hringdi inn tveimur árum síðar með upplýsingar um málið, en til að sanna deili á sér þá gaf hann upp vísbendingar sem enginn ætti að vita nema sá sem hafði drepið hana. Hann gaf einnig upp tölurnar 126040 og sagði lögreglu að muna þessar tölur og hingað til hafa komið ótal kenningar um það hvað þessar tölur gætu þýtt. Þátturinn er í boði PLAY en við minnum á að í dag er síðasti dagurinn til að nýta sér flugfar á 35% afslætti inni á www.flyplay.is Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: @mordskurinn
Nýlega var stofnaður kjarahópur á vegum Félags eldri borgara á Akureyri en hópnum er ætlað að vinna að framgangi kjaramála félagsmanna á Akureyri og hafa áhrif á stefnu Landssambands eldri borgara er varðar réttinda- og kjaramál. Formaður hópsins er Björn Snæbjörnsson, fyrrverandi formaður Starfsgreinasambandsins og fyrrverandi formaður stéttarfélagsins Einingar-Iðju. Björn var gestur Mannlega þáttarins í dag og sagði betur frá markmiðum og tilgangi hópsins. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga, eins og flesta mánudaga. Í dag lagði Guðjón vinkilinn við jeppamenningu og almenningssamgöngur í þéttbýli. Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Fríða Brá Pálsdóttir sjúkraþjálfari. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur eða höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Fríða Brá talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Að telja upp í milljón e. Önnu Hafþórsdóttur Tough Women, adventure stories, ritstj. Jenny Tough A little life e. Hanya Yanagihara The Neurobiology of We e. Daniel Siegel Thru Hiking Will Break Your Heart e. Carrot Quinn Tónlist í þættinum Ennþá man ég hvar / Góss (Andersen & Dam, ísl.texti Bjarni Guðmundsson) Komdu í kvöld / Ragnar Bjarnason (Jón Sigurðsson) Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, Danpa, Sciorilli, Bonagura, ísl. Texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
Nýlega var stofnaður kjarahópur á vegum Félags eldri borgara á Akureyri en hópnum er ætlað að vinna að framgangi kjaramála félagsmanna á Akureyri og hafa áhrif á stefnu Landssambands eldri borgara er varðar réttinda- og kjaramál. Formaður hópsins er Björn Snæbjörnsson, fyrrverandi formaður Starfsgreinasambandsins og fyrrverandi formaður stéttarfélagsins Einingar-Iðju. Björn var gestur Mannlega þáttarins í dag og sagði betur frá markmiðum og tilgangi hópsins. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga, eins og flesta mánudaga. Í dag lagði Guðjón vinkilinn við jeppamenningu og almenningssamgöngur í þéttbýli. Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Fríða Brá Pálsdóttir sjúkraþjálfari. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur eða höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Fríða Brá talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Að telja upp í milljón e. Önnu Hafþórsdóttur Tough Women, adventure stories, ritstj. Jenny Tough A little life e. Hanya Yanagihara The Neurobiology of We e. Daniel Siegel Thru Hiking Will Break Your Heart e. Carrot Quinn Tónlist í þættinum Ennþá man ég hvar / Góss (Andersen & Dam, ísl.texti Bjarni Guðmundsson) Komdu í kvöld / Ragnar Bjarnason (Jón Sigurðsson) Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, Danpa, Sciorilli, Bonagura, ísl. Texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
Tútturnar tala um allt milli himins og jarðar, taka fyrir aðsenda sögu og glugga í gamla kynfræðslubók og margt margt fleira. https://www.patreon.com/Klikkadarkynlifssogurhttps://www.instagram.com/klikkadarkynlifssogur/https://www.tiktok.com/@klikkadarkynlifssogur
Þann 13. desember árið 2020 spjallaði Jason við vin sinn á facetime rétt áður en hann gekk út úr húsinu sínu til þess að fara í þriggja tíma ferðalag heim til foreldra sinna. Hann komst þó ekki á áfangastað, þar sem á miðri leið fannst bíllinn hans allur klesstur en engin merki um Jason sjálfan. Hlutir sem fundust á vettvangi voru verulega skrítnir og margir hafa sett spurningarmerki við það hvað raunverulega varð um Jason Landry. Þátturinn er í boði Scrub Daddy en með kóðanum morðskúrinn getið þið fengið 20% afslátt af öllum vörum inni á www.scrubdaddyisland.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn
Komdu með okkur til Íslands! Vi poddar från övervåningen på vårt oerhört ensligt belägna hus mitt under vår Islands-tripp. Cavan är perfekt, utsikten storslagen och likaså våra känslor inför denna karga och ofattbart vackra ö. Vi pratar om våra nystickade islandströjor, om besöket hos gobitarna på Ístex som fick oss att häpna och vår garnbutiks-jakt...... Continue Reading →
Hverjar eru top 3 leiðirnar til þess að koma kærustunni á óvart í rúminu? Maður skyr sig. Þáttur af gamla mátanum: Komum allir með heilráð, ræðum erfiðu málin og endum þáttinn á CLASSIC 3x3. Njótið!
Komdu með í ferðalag þar sem við rýnum í allt tengt timburmönnum og hvar þeir FINNA ÖLL ÞESSI TRÉ Á ÍSLANDI! GEEZ ÓÞOLANDI!
Málshátturinn sem við lítum á í dag er frá tímum Tang-veldisins, seint á 7. öld, og við sögu kemur sjálf keisaraynjan Wǔ Zétiān. Þetta er sígildur fjögurra tákna málsháttur sem á yfirborðinu virðist hafa fremur óljósa merkingu en á sér forvitnilega baksögu með frekar svæsinn enda. Þátturinn er þýddur og birtur með leyfi Lazlo Montgomery hjá ©Teacup Media.
Komdu og vertu með í Draugasögufjölskyldunni okkar og hlustaðu og HORFÐU á hundruði þátta: HÉRVið bjóðum ykkur velkomin í hinn eina og sanna Yellowstone þjóðgarðinn í Bandaríkjunum. Þó náttúran og dýralífið sé stórkostlegt er þó geysistór bygging sem er ástæðan fyrir því að við erum mætt hingað. Ótímabær andlát eru svo mörg og hrottalegt morðmál skyggir á fegurðina sem blasir við okkur. En í gegnum árin hafa sprottið upp draugasögur sem borist hafa manna á milli og það er alveg góð og gild ástæða fyrir því. Dauðsföllin hafa verið mörg, endalaust vesen hefur verið á byggingunni sjálfri og svo má ekki gleyma því eða þeim sem leynast undir þessu mannvirki. Verið velkomin á Old Faithfull Inn. Skoðaðu myndirnar sem fylgja þættinum inná draugasogur.com
Við tókum stöðuna í Grindavík og á gosstöðvunum með því að heyra í Hjálmari Hallgrímssyni hjá lögreglunni á Suðurnesjum en stríður straumur fólks var að gosstöðvunum í gær þrátt fyrir beiðnir Almannavarna um að fólk færi ekki þangað strax vegna almannahættu. Við slógum á þráðinn til Más Gunnarssonar tónlistarmanns og nú fyrrverandi sundkappa, en Már kveður sundið til að fylgja tónlistargyðjunni eftir og er á leið til náms í Bretlandi. Áður en hann fer ætlar hann að halda þrenna heljarmikla tónleika og svo er hann nýbúinn að gefa út nýtt lag. Við ræddum við Sigríði Kristjánsdóttur náttúruvársérfræðing í gærmorgun, en þá var ekki farið að gjósa, svo við gripum hana aftur á leið heim af næturvakt hjá Veðurstofunni og fengum samantekt á þróun gossins í nótt og spáðum aðeins í framhaldið. Einar Skúlason, sem heldur úti gönguhópnum Vesen og vergangur, gekk 300 km í júlí sl. á fjöllum, þar af 270 km með hópa. Þá er stutt síðan hann kom heim frá Suður-Ameríku en þar gekk hann líka á fjöll. Hann eyddi til að mynda fimm dögum með frumbyggjafjölskyldu við Amazon fljótið og lenti í ýmsum ævintýrum. Einar var á línunni. Umferð um flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur verið gríðarmikil í sumar og í júlí fór þar í gegn metfjöldi. Við veltum fyrir okkur hvernig gengur að höndla fjöldann og hvernig ganga framkvæmdir við stækkun stöðvarinnar? Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta- og þróunar hjá ISAVIA var gestur okkar með nýjustu tölur í farteskinu. Tónlist: KK - Vegbúi. Jackie Wilson - Your love keeps lifting me higher. David Bowie - Wild is the wind. Már Gunnarsson - Yndið mitt yngsta og besta. Hr. Hnetusmjör - Keyra (ft. Þormóður). Flott - Mér er drull. Ásgeir Trausti - Snowblind. ABBA - Dont shut me down. Kate Bush - Running up that hill. Grafík - Komdu út.
Við tókum stöðuna í Grindavík og á gosstöðvunum með því að heyra í Hjálmari Hallgrímssyni hjá lögreglunni á Suðurnesjum en stríður straumur fólks var að gosstöðvunum í gær þrátt fyrir beiðnir Almannavarna um að fólk færi ekki þangað strax vegna almannahættu. Við slógum á þráðinn til Más Gunnarssonar tónlistarmanns og nú fyrrverandi sundkappa, en Már kveður sundið til að fylgja tónlistargyðjunni eftir og er á leið til náms í Bretlandi. Áður en hann fer ætlar hann að halda þrenna heljarmikla tónleika og svo er hann nýbúinn að gefa út nýtt lag. Við ræddum við Sigríði Kristjánsdóttur náttúruvársérfræðing í gærmorgun, en þá var ekki farið að gjósa, svo við gripum hana aftur á leið heim af næturvakt hjá Veðurstofunni og fengum samantekt á þróun gossins í nótt og spáðum aðeins í framhaldið. Einar Skúlason, sem heldur úti gönguhópnum Vesen og vergangur, gekk 300 km í júlí sl. á fjöllum, þar af 270 km með hópa. Þá er stutt síðan hann kom heim frá Suður-Ameríku en þar gekk hann líka á fjöll. Hann eyddi til að mynda fimm dögum með frumbyggjafjölskyldu við Amazon fljótið og lenti í ýmsum ævintýrum. Einar var á línunni. Umferð um flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur verið gríðarmikil í sumar og í júlí fór þar í gegn metfjöldi. Við veltum fyrir okkur hvernig gengur að höndla fjöldann og hvernig ganga framkvæmdir við stækkun stöðvarinnar? Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta- og þróunar hjá ISAVIA var gestur okkar með nýjustu tölur í farteskinu. Tónlist: KK - Vegbúi. Jackie Wilson - Your love keeps lifting me higher. David Bowie - Wild is the wind. Már Gunnarsson - Yndið mitt yngsta og besta. Hr. Hnetusmjör - Keyra (ft. Þormóður). Flott - Mér er drull. Ásgeir Trausti - Snowblind. ABBA - Dont shut me down. Kate Bush - Running up that hill. Grafík - Komdu út.
Nathaniel var ekkert eðlilegasta barnið. Hann var einungis 7 ára gamall þegar hann reyndi að kyrkja nágrannastelpu til dauða, en sem betur fer kom móðir hans að honum. Það var hinsvegar engin refsing og hélt hann ótrauður áfram, þar sem glæpir hans stigmögnuðust. Þegar lögreglan mætti heim til hans einn daginn þá blöstu við þeim sjón sem þeim grunaði bara alls ekki. Nathaniel hafði m.a. boðið nágrönnum sínum í mat og bauð hann upp á mannakjöt í þeirri veislu. Kóðinn 'morðskúrinn' veitir þér 15% afslátt inni á www.scrubdaddyisland.is Komdu í áskrift eða fylgdu okkur á samfélagsmiðlum: www.pardus.is/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn
Dr. Football sat með Gunna Birgis og Sigurði
Hæhæ verður þriggja ára í júní og nú verður haldið Live Show 22. júní, miðar á kakokastalinn@gmail.comEva Ruza er ekki sátt við það að vera ekki innifalinn í 12 on 12 on 50. Hjálmar fór til Ítalíu með 50 pund en hvernig komst hann heim til sín? En hann er líka fyrsti Íslendingurinn til að borða samloku með handáburð.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Í þessum þætti ræði ég við fjölmiðladrottninguna og lögfræðinginn Þórdísi Valsdóttur. Ég kynntist Þórdísi fyrst þegar hún kom til mín í einkaþjálfun og fékk þar innsýn í hennar áhugaverðu sögu. Í þættinum spjöllum við um hvernig fortíð hennar og æskuáföll hafa mótað hana, hvernig hún hefur lært að nota hreyfingu til að umturna andlegri heilsu sinni og vegferðin hennar með kvíða- og þunglyndislyf og fleira. Komdu í áskrift á 360 Heilsa hlaðvarpinu með því að smella hér: www.360heilsa.is/hladvarp Samstarfsaðilar þáttarins: NUUN Electrolytes - fáanlegt í helstu matvöruverslunum, útibúum Lyfju og Heilsuhúsinu Pure Natura (kóði "360heilsa" f. 15% afslátt) - Fáanlegt á purenatura.is, Hagkaup, útibúum Lyfju og Heilsuhúsinu
Komdu í áskrift á www.patreon.com/skodanabraedur - Það er auðveldara en þú heldur. Þú munt græða á því. Hvernig færðu Alþingismann til þess að hætta að vera klámsjúkur lúser? Þú býður honum pening til þess að fara í ayahuasca retreat eða hugleiðslubúðir. Don't nothing move but the money. Spillingarmál síðastliðna vikna rædd og lausnir boðaðar. 50 ára ríkið Ísland. Uppljómun Inc. Will Smith og Elon Musk koma líka við sögu. As-Salaam-Alaikum!