Podcasts about egill

  • 76PODCASTS
  • 464EPISODES
  • 1h 15mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • Feb 23, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about egill

Show all podcasts related to egill

Latest podcast episodes about egill

Mannlegi þátturinn
Sánusafarí til Eistrasalts, húsmæðraferð frá 1950 og Örn Úlfar lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 23, 2026 52:22


Það virðist vera sem gufu- eða gusuæði sé runnið á Íslendinga. Framundan er ferðalag sem farið verður í maí og þemað í þessari ferð eru sánur og það verður farið til Eistlands, Lettlands og Finlands og þar verða allskonar mismunandi sánumeðferðir, t.d. með nuddi og dekri inni í sánunum. Leifur Wilberg Orrason og Jura Aku hafa verið að gusa saman í Sækoti, þar sem þau hafa haldið sánagusur. Við ræddum um sánur, gusur, fargufur og alla þessa sánumenningu sem er að myndast á Íslandi. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV emur til okkar annan hvern mánudag með gullmola af safni RÚV. Í tilefni þess að í gær var konudagurinn haldinn hátíðlegur dró Helga Lára fram úr safninu stuttan fréttaauka sem var fluttur þann 30.júní árið 1950, eða fyrir 76 árum, þar sem ræddust við tvær merkilegar konur; fréttakonan Margrét Indriðadóttir og Margrét Tryggvadóttir húsmóðir. Þar segir frá orlofsferð húsmæðra úr Vestur Húnavatnssýslu um Suðurland. Svo var Örn Úlfar Sævarsson texta- og hugmyndasmiður og spurningahöfundur, lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Örn Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og/eða höfunda: Jötunsteinn e. Andra Snæ Magnason Vegur allrar veraldar e. Sigríði Hagalín Passíusálmarnir e. Hallgrím Pétursson Tónlist í þættinum í dag Leikur að vonum / Ólafur Þórarinsson (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik) Regndropar falla við hvert fet/ Engilbert Jensen (Burt Bacharah, texti Þorsteinn Eggertsson) 1970 Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

pass finland bj rv gar hann sigur eggert svo sigr margr indri hallgr egill rafer hagal framundan eggertsson tryggvad lettlands leikur valgeir gu
Mannlegi þátturinn
Samfélagsáhrif skapandi greina, að vinna á fordómum og Epstein-Barr veiran

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 11, 2026 53:09


Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina? Á viðburði sem haldinn var í síðustu viku af Rannsóknarsetri skapandi greina var leitast við að svara þessari spurningu. Og hvort hægt sé að rýna í hvernig skapandi starfsemi mótar samfélagslegar breytingar og hvort þær séu mælanlegar og hvert er gildi þeirra í samtímanum? Þorbjörg Daphne Hall, prófessor í tónlistarfræðum við LHÍ, og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina komu í þáttinn og sögðu okkur frá. Hvernig vinnum við á fordómum? Það var yfirskriftin á hádegisfundi sem var í gær á vegum Geðhjálpar þar sem fjallað var um fordóma gagnvart andlegum áskorunum og niðurstöður úr nýrri rannsókn voru kynntar. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, var með erindi á hádegisfundinum kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem þar kom fram. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá hlutverki Epstein-Barr veirunnar í myndun MS sjúkdómsins. Það var vissulega flókið en hún útskýrði það betur fyrir okkur í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Vorkvöld í Reykjavík / Ragnar Bjarnason (Evert Taube, texti Sigurður Þórarinsson) Bíólagið / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

FM957
Brennslan - 10. febrúar 2026

FM957

Play Episode Listen Later Feb 10, 2026 88:54


Egill settur í svitasætið að svara nokkrum ansi erfiðum spurningum. Hvað veit fólk um Vetrar ólympíuleikana? Mjúku spurningarnar extra mjúkar. Sá virti snýr aftur. Þetta og miklu meira til í þætti dagsins.

Mannlegi þátturinn
Magnavita námið, Þórdís Nadia og Tara Sóley og Sigríður á Heilsuvaktin um beinheilsu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Feb 10, 2026 54:01


Við fjölluðum um þriðja æviskeiðið í gær, þá var það út frá jákvæðri sálfræði, en í dag fræddumst við um Magnavita námið hjá Háskólanum í Reykjavík, sem er sérstaklega hannað fyrir fólk á þriðja æviskeiðinu, s.s. 55 til 75 ára. Benedikt Olgeirsson, verkfræðingur er einn af stofnendum Magnavita og Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir kennir í náminu, við fengum þá til að lýsa þessu námi betur fyrir okkur, hvernig fólk lærir að kortleggja þriðja æviskeiðið og hvað annað felst í Magnavita náminu. Leikritið Þegar ég sé þig, sé ég mig er sýnt á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu, leikhópurinn samanstendur af leikurum og listafólki sem flest eiga það sameiginlegt að vera af blönduðum uppruna. Þau segja sögur sínar af öðrun, tengingu, fordómum og samstöðu. Verkið er eftir Ernu Kanemu Mashinkila í samstarfi við leikhópinn. Við fengum þær Þórdísi Nadiu Semichat og Töru Sóleyju Mobee, sem báðar eru í leikhópnum, til að segja okkur betur frá sér og leikritinu í þættinum. Og svo er að Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Beinheilsa er eitthvað sem við hugum ekki að fyrr en á efri árum og oftast þegar beinþynningin er þegar orðin og beinbrotin hafa átt sér stað. Sigríður Björnsdóttir innkirtlasérfræðingur segir mikilvægt að byrja huga að beinheilsu sinni miklu fyrr og stunda forvarnir til að sporna gegn beinþynningu sem byrjar fljótlega eftir fimmtugt hjá konum og körlum. Hún ásamt fleiri fagmönnum hafa opnað heimasíðuna beinheilsa.is í því augnamiði að auka upplýsingaflæði til fólks um beinþynningu og að hvetja til að breytts lífstíls. Það sé hægt að snúa við ógnvænlegri þróun með hollri fæðu, inntöku D- vítamíns ásamt lyftingum og jafnvægisæfingum svo eitthvað sé nefnt. Meira um þetta á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Úr gulli gerð / Salka Sól (Salka Sól Eyfeld Hjálmarsdóttir) Hósen Gósen / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson og Sigurður Bjóla) Hafmeyja / Tara Sóley (Tara Sóley Mobee og Sonny Bouraima) UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

FM957
Brennslan - 29. janúar 2026

FM957

Play Episode Listen Later Jan 29, 2026 80:03


Undanúrslit framundan!! Sérfræðingurinn á línunni og fer yfir möguleika okkar gegn Dönum. Egill fer í svitasætið og svarar nokkrum óþægilegum spurningum Rikka. Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri, mætir í spjall um þættina Hildur sem hefja göngu sína í dag. Þetta og mikið meira til í þætti dagsins.

FM957
Brennslan - 22. janúar 2026

FM957

Play Episode Listen Later Jan 22, 2026 78:37


Rikki G og Bolli fengu lögregluna í heimsókn þar sem farið var yfir alvöru áskorun sem Rikki og Egill tóku þátt í. Einnig mætti Hjálmar Örn á svæðið og síðan var farið í bíómyndir sem fólk grét yfir á sínum tíma.

Mannlegi þátturinn
Perlað fyrir Kraft, Ástvaldur Zen ábóti og glæpahálka í veðurspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 20, 2026 49:47


Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein stendur fyrir vitundarvakningu sem hefst á sunnudaginn í Hörpu þar sem perluarmböndin með áletrunni „lífið er núna“ eru perluð og seld. Sólveig Ása Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krafts, kom í þáttinn en hún þekkir það af eigin raun að berjast við krabbamein. Með henni kom Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Krafts, til að segja okkur betur frá málefninu. Laugardaginn 31. janúar tekur Ástvaldur Zenki Traustason formlega við stöðu ábóta Zen á Íslandi. Ástvaldur Zenki hefur verið nemandi Jakusho Kwong-roshi í hart nær 30 ár og tekur nú við stöðu hans sem ábóti og aðal kennari Zen á Íslandi. Jakusho-roshi er upphafsmaður Zen á Íslandi og kom árlega til Íslands í um 25 ár. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði Einar um veðrið og tíðina hér heima, flughálkuna og af hverju hún myndast þó það sé hiti í lofti. Svo var það veðurspáin framundan, kuldahvirfill Stóri Boli vestan Grænlands sem kemur æðandi yfir N-Ameríku, en virðist síðan ætla hverfa fljótt aftur. Það er kalt í Austur-Evrópu og stríð í Úkraínu. Einar rifjaði upp þrjá óvenjulega kalda vetur 1940-1942 sem höfðu áhrif á gang síðari heimstyrjaldarinnar og Vetrarstíðið í Finnlandi. Þessir þrír vetur voru allir sérlega mildir hér á landi. Tónlist í þættinum: Austurstræti / Laddi (Þórhallur Sigurðsson) Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Sigurður Bjóla Garðarsson, Sveinbjörn Egilsson og Kristján Jónsson) Röndótta mær / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon) Don't Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

kraft bj zen gu gar magn einar boli sigur kristj fyrir svo krafts egill sveinbj egilsson egils tryggvad finnlandi laddi jakob fr austurstr kraftur valgeir gu
FM957
Brennslan - 16. janúar 2026

FM957

Play Episode Listen Later Jan 16, 2026 60:32


Föstudagsstemning á leikdegi! Bolli Már og Gugga í Gúmmíbát í uppgjöri vikunnar. Hringjum í Val Pál Eiríksson og tökum stöðuna fyrir fyrsta leik Íslands á EM. Doctor Victor kynnir heilsubyltingu. Egill fer til Tyrklands á sunnudaginn!

eir egill tyrklands
Mannlegi þátturinn
Að koma sér af stað eftir flensuna, Jónmundur Grétarsson og vatnsleikfimi með Helgu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jan 7, 2026 50:00


Nokkuð skæð flensa hefur verið að ganga yfir frá því í haust og hafa talsvert margir lent í henni. Við fengum nokkrar ábendingar frá hlustendum að þau hefðu verið dálítinn tíma að koma sér í gang aftur eftir flensuna því brugðum við á það ráð að hafa samband við Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfara og hann kom í þáttinn og gaf góð ráð til að koma sér í gang eftir svona glímu við flensu. Við notuðum í leiðinni tækifærið og tókum stöðuna á Gunnari sjálfum, hvernig honum gengur í sinni glímu við langvinnt Covid. En hann kom einmitt í þáttinn á síðasta ári og sagði sína reynslusögu, en hann er ekki enn búinn að jafna sig eftir að hafa fengið Covid um jólin 2020. Svo spjölluðum við við Jónmund Grétarsson leikara, hann steig fyrst á sviðið kornungur í Bugsy Malone sem margir muna eftir í Loftkastalanum. Hann lærði leiklist í San Francisco og er stofnandi leikhópsins Elefants, sem hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar árið 2023 fyrir Íslandsklukkuna. Hann leikur í Bústaðinum, nýju leikriti eftir Þór Tulinius, sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói annað kvöld. Helga Guðrún Gunnarsdóttir lauk BS námi í íþrótta- og heilsufræði árið 2015 frá Háskóla Íslands og fékk skírteinið nánast á 60 ára afmælisdegi sínum. Hún fór strax að þjálfa opinberlega við lok háskólanámsins og stofnaði fljótlega fyrirtækið Ræs ehf. þar sem hún þjálfar fólk í vatni. Hún segir áhrif af vöðvaþjálfun í vatni fjölþætt, aukin vöðvastyrkur, aukin afköst hjarta og æðakerfisins og aukin hreyfigeta vegna minnkandi álags á stoðkerfið. Helga kom til okkar í dag. Tónlist í þættinum: Rólegan æsing / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Listen to the Music / Doobie Brothers (Tom Johnston) Mary don't you weep / The Swan Silvertons Little By Little / Lay Low (Lay Low) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Dr. Football
Helgaruppgjör Dr. Football: Sigurður Egill gæti endað í Víkinni og Arsenal áfram á toppnum

Dr. Football

Play Episode Listen Later Dec 28, 2025 56:32


Jói Már, Sigurður Bond og Ragnar Bragi á sunnudegi

Mannlegi þátturinn
Þörungasmakk með Eydísi, Átak UN Women og jólahlaðborð á Króknum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 26, 2025 53:17


Hvernig má nýta betur matþörunga og aðra ofurfæðu fjörunnar? Flest þekkjum við söl og margir hafa bragðað þau en hvað annað úr fjörunni er hægt að nýta? Á morgun mun Eydís Mary Jónsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur kynna ofurfæðuna sem finna má í fjöruborðinu og gefur gestum að smakka. Eydís kom í þáttinn í dag. UN Women á Íslandi standa fyrir árlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi og í ár er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Fyrir milljónir kvenna og stúlkna hefur sítengdur stafrænn heimur orðið vettvangur ofbeldis, netáreitni, ofsóknum á netinu, misnotkun á persónulegum upplýsingum, dreifingu myndefnis án samþykkis, djúpfalsmynda og upplýsingaóreiðu. Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi kom í þáttinn og sagði frá átakinu. Það eru ekki allir sem eiga þess kost að komast á jólahlaðborð, hvað þá með allri fjölskyldunni. Jólahlaðborð Rótarýklúbbs Sauðárkróks verður haldið næsta laugardag og það er ókeypis fyrir þau sem mæta. Rótarýklúbbur Sauðárkróks er með mörg járn í eldinum en þetta er stærsta einstaka verkefni klúbbsins á hverju ári. Rótarýfélagar sjá um allan undirbúning og framkvæmd sem er býsna mikið verkefni. Við heyrðum í Ómari Braga Stefánssyni frá Rotaryklúbbi Sauðárkróks í dag. Tónlist í þættinum í dag: Í rökkurró / Helena Eyjólfsdóttir (Nevins, Nevins & Dunn, texti Jón Sigurðsson) That's What Friends Are For / Dionne Warwick & Friends (Burt Bacharach, Carole Bayer Sager) Lítill drengur / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Kjartansson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Þórður Árnason og Jakob Frímann Magnússon, texti Þórður Árnason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Nýtt meðferðarúrræði fyrir kvíðaraskanir, Brauðtertudagurinn og narsissismi í mannlegum samskiptum

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 13, 2025 50:00


FLIKK er nýtt meðferðarúrræði fyrir börn með kvíðaraskanir og foreldra þeirra. Úrræðinu er ætlað að veita börnum aðstoð mun fyrr en ella, stytta biðtíma og sömuleiðis minnka kostnað fyrir heilbrigðiskerfið. Um er að ræða internetmeðferð fyrir foreldra barna með kvíðaraskanir. Meðferðin byggir á hugrænni atferlismeðferð (HAM) þar sem foreldrar fá aðstoð frá sálfræðingi í gegnum meðferðina með það að markmiði að þeir læri aðferðir HAM til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíðavanda. Brynjar Halldórsson, dósent við sálfræðideild HR og Anna Sigríður Islind, prófessor við tölvunarfræðideild HR, komu í þáttinn og sögðu frá. Við erum nýbúin að fagna degi kleinunnar en í dag er komið að degi brauðtertunnar. Brauðtertan heldur velli og hefur eiginlega verið á uppleið síðasta áratuginn. Friðrik V Hraunfjörð, eða Friðrik fimmti, eins og hann er oft kallaður, kom í þáttinn í dag og með honum kom Erla Hlynsdóttir frá Brauðtertufélaginu Erlu og Erlu, sem er félag áhugafólks um brauðtertur á Facebook. Valdimar Þór Svavarsson hélt í dag áfram að fara með okkur yfir mannleg samskipti sem geta verið svo flókin. Undanfarna fimmtudaga hefur hann til dæmis frætt okkur um hlutverkin sem fjölskyldumeðlimir falla gjarnan í, samskiptin í ástarsamböndum, af hverju eru sum sambönd langlíf en önnur ekki og margt margt fleira. Í dag fór hann með okkur yfir í narsissisma og níu leiðir til að greina narsissisma. Tónlist í þættinum í dag: Staldraðu við / Stuðmenn (Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson) Hann gat ekki setið kyrr / Rakel Sif Sigurðardóttir(Karl Olgeirsson og Karl Frid, texti Olgeir Kristjónsson) Sykur rjómi / Baggalútur(Bragi Valdimar Skúlason, texti Káinn) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

ham hann fyrir brau egill valdimar anna sigr baggal erlu sykur undanfarna valgeir gu
Mannlegi þátturinn
Þorsteinn J. föstudagsgestur og nostalgískt matarpsjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 7, 2025 52:52


Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn er fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Hann hefur unnið við fjölmiðla frá unglingsaldri, hér á RÚV, á Bylgjunni, Stöð 2 og víðar. Hann rekur eigið framleiðslufyrirtæki og hefur framleitt meðal annars fjölda heimildamynda og sjónvarpsþátta. Nú síðast opnaði hann fjölmiðilinn TV1 Magazin, sem hann segir ekki vera eins manns fjölmiðil. Við fengum Þorstein til að segja okkur betur frá þessum nýja fjölmiðli og ferðuðumst í tíma og rúmi með honum. Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið. Í dag ræddum við mat sem við mögulega borðum þegar okkur líður illa, og þá líka þegar okkur líður vel. Og svo líka mat sem gefur okkur góðar minningar, notsalgískan mat. Tónlist í þættinum í dag: Gegnum holt og hæðir / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Þórarinn Eldjárn) Who Knows Where the Time Goes / Fairport Convention (Sandy Denny) Hvernig ertu? / Úlfur Úlfur og Barði Jóhannsson (Barði Jóhannsson, Helgi Sæmundur Guðmundsson og Arnar Freyr Frostason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Staðan á húsnæðislánamarkaðinum, Steinunn Sara tilnefnd til Kammaprisen og snjóveðurspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 28, 2025 53:51


Óvissan er mikil á húsnæðislánamarkaði, í kjölfar dóms Hæstaréttar Íslands í máli sem höfðað var gegn Íslandsbanka. Stóru viðskiptabankarnir og nokkrir lífeyrissjóðir hafa dregið úr framboði verðtryggðra íbúðalána og í gær sagði Ingólfur Bender aðalhagfræðingur samtaka Iðnaðarins, í samtali við mbl.is, að stjórnvöld yrðu að koma að málinu til að eyða óvissu. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom í þáttinn og fór með okkur yfir stöðuna. Steinunn Sara Helgudóttir, doktor í taugahrörnunarsjúkdómum í Álaborg í Danmörku, er tilnefnd til Kammaprisen 2025, sem eru verðlaun fyrir konur og þeirra störf í nýsköpun og viðskiptum í Danmörku, en hún vinnur við að þróa lyf gegn taugahrörnunarsjúkdómum eins og MND, MS, Parkison og Alsheimer með nýrri aðferðafræði sem vakið hefur mikla athygli. Steinunn sagði okkur betur frá þessu öllu í dag, en hægt er gefa henni atkvæði fyrir Kammaprisen 2025 hér: https://www.facebook.com/kammaprisen Það eru gular og appelsínugular viðvaranir í gangi á suðvestuhorninu og á suðurlandi. Snjórinn var því þema dagsins í veðurspjallinu með Einari Sveinbjörnssyni. Einar fór yfir það í dag og svo talaði hann einnig um einnig um aðdragand snjóflóðsins á Flateyri, veðurstöðuna þá og hvort hugsanlega, eftir á að hyggja, þar hafi verið ein fyrsta birtingarmynd öfgaveðurs sem tengja má við loftslagsbreytingar. Tónlist í þættinum í dag: Dýrð í dauðaþögn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Júlíus Aðalsteinn Róbertsson) Fönn, fönn, fönn / Stuðmenn (Egill Ólafsson, texti Egill Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon) Þótt falli snjór / Jóhann Sigurðarson (Ágúst Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

ms gu ing bender magn einar sigur mnd danm parkison snj egill steinunn trausti alsheimer jakob fr flateyri neytendasamtakanna breki karlsson
FM957
Brennslan - 21. október 2025

FM957

Play Episode Listen Later Oct 21, 2025 81:25


Egill Ploder og Kristmundur Axel í Brennslunni. Herra Hnetusmjör kíkir í heimsókn og kemur sér í Galsabois gírinn. Kristmundur svarar spurningum hlustenda. Jóhann Egill kíkir í spjall með nýtt lag. Hversu gamall nennir maður að verða? Þetta og miklu meira til í þætti dagsins.

egill hversu herra hnetusmj
FM957
Brennslan - 13. október 2025

FM957

Play Episode Listen Later Oct 13, 2025 73:58


Mánudags Brennsla! Birta Líf snýr aftur með slúðrið. Egill funheitur í ákveðnu giski. Hlutir sem fjöldi hefur eyðilagt. Besta roadtrip snackið. Ísland vs Frakkland pælingar. Þetta og mikið meira til.

FM957
ÓLAFUR JÓHANN & ANDRI BJÖRNS - 27. SEPTEMBER - EGILL BREKI, DARRI & GS DRASL COHOST

FM957

Play Episode Listen Later Sep 27, 2025 49:11


Óli í siglingu og GS draslið tekur við tökkunum í hans stað, Andri Björns auðvitað á sínum stað. Egill Breki og Háski með glænýtt lag og tóku frábæra live útgáfu, AB mjólkin og Idol Guðjón voru í sprellinu í dag

Mannlegi þátturinn
Gæludýra- og húsapössun, BragðaGarður og Dávur í Dali

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Sep 24, 2025 54:10


Hunda-, katta- og gæludýraeigendur þekkja það að það getur verið snúið að fá pössun fyrir dýrin ef þau þurfa að fara erlendis eða eitthvað slíkt. Arnrún Bergljótardóttir stofnaði Sporið þar sem hún býður upp á heimapössunarþjónustu fyrir gæludýr og þá í leiðinni heimilin, á meðan eigendurnir eru ekki heima. Þar hugsar hún um allar þarfir dýrsins eða dýranna og nú býður hún líka upp á ummönnun og hreyfingu hesta og fleira. Arnrún kom í þáttinn og sagði okkur aðeins frá Sporinu og hvernig þetta kom til. BragðaGarður er tveggja daga hátíð sem fagnar matarmenningu, sjálfbærni og líffræðilegri fjölbreytni og er haldin í Garðskálanum í Grasagarði Reykjavíkur. Hátíðin er haldin af Slow Food hreyfingunni og býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagskráinn á föstudeginum er sérstaklega sniðin að nemendum á framhaldsskólastigi og nemendur úr matvælagreinum við Menntaskólann í Kópavogi leiða jafningjafræðslu um flest það sem snýr að mat. Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari, kennari og formaður Slow Food á Íslandi kom í þáttinn ásamt Haraldi Sæmundssyni framkvæmdastjóra Hótel- og veitingaskólans í MK. Dávur í Dali er fyndnasti Færeyingurinn á Íslandi, a.m.k. sá eini sem við vitum af sem fæst við uppistand. Hann er núna með uppistand í Tjarnarbíó þar sem hann segir í stuttu máli frá sögu Færeyja á grafalvarlegan hátt. Aðalstarf hans er sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni, það var því um nóg að ræða við hann í dag. Tónlist í þættinum í dag: Af litlum neista / Pálmi Gunnarsson (Guðmundur Ingólfsson og Magnús Haraldsson) Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson) Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson) Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

FM957
Brennslan - 18. september 2025

FM957

Play Episode Listen Later Sep 18, 2025 76:16


Rikki G og Egill Ploder - Veiðferðin tekin fyrir! Hlutir sem karlar gera en er nono fyrir konur samkvæmt netverjum. Keppni við hlustanda í "hvað kemur næst?" Egill aldrei borðað jafn mikið á einum degi eins og í gær. Fyrsti hlustandi dagsins gefur Rikka væna pillu. Þetta og meira til!

FM957
Brennslan - 12. september 2025

FM957

Play Episode Listen Later Sep 12, 2025 83:37


Rúrik Gíslason og Júlíana Sara taka uppgjör vikunnar. Top 10 dýrustu íþróttir/áhugmál á Íslandi. Bylgja og Unnur frá Morðcastinu í spjalli. Leystu úr línunni þar sem Egill keppir við hlustanda. Þetta og miklu meira til í þætti dagsins!

mor egill unnur bylgja
FM957
Brennslan - 19. ágúst 2025

FM957

Play Episode Listen Later Aug 19, 2025 78:27


Egill og Rikki fara yfir 5 "fullkomnustu" rán Íslands samkvæmt gervigreind. Emojiar sem allir eiga að hætta að nota. Hversu marga kodda á að sofa með og það er hægt að tala við gervigreindina á athyglisverðan máta. Þetta og meira til í þætti dagsins.

Jóns
Magnús Magnússon, auglýsingastofunni Peel

Jóns

Play Episode Listen Later Jul 8, 2025 55:39


Magnús Magnússon hjá auglýsingastofunni Peel í spjalli við Óla Jóns. Magnús hefur komið áður í viðtal árið 2017 en þá starfaði hann hjá Íslensku auglýsingastofunni. Magnús byrjar á því að segja frá sínum bakgrunni, sem byrjar í markaðsmálum hjá Símanum, þar sem hann fékk tækifæri til að læra og þróast í starfi. Árið 2013 hóf hann störf hjá Íslensku auglýsingastofunni. Egill Þórðarson vann þar og saman stýrðu þeir digital verkefnum og töldu nauðsynlegt að breyta stefnu stofunnar. Þeir ákváðu því að stofna eigið fyrirtæki, Peel, árið 2018, með áherslu á gögn, tæknilegar lausnir og óhefðbundnar nálganir í auglýsingum og markaðssetningu. Í viðtalinu lýsir Magnús því hvernig þeir vinna með fjölbreyttum samstarfsaðilum og að markmiðið sé að halda fyrirtækinu smáu og sveigjanlegu, frekar en að reyna að fylla öll sætin í fyrirtækinu fyrirfram. Hann leggur áherslu á gildi traustra sambanda, að byggja upp langtímasambönd og að vera opinn fyrir nýjum hugmyndum og aðferðum. Að lokum minnist Magnús þess að starf þeirra sé bæði skapandi og kröfuhart, en að heppni og góð samvinna hafi verið lykilatriði í velgengni þeirra. Hann tekur fram að þeir Egill séu mjög ólíkir, en að þeir deili sameiginlegum gildum og séu sammála um grundvallaratriði í starfinu.

FM957
TRAFFÍKIN! 27. JÚNÍ. 25 - Egill Breki mætir í er þetta framhjáhald

FM957

Play Episode Listen Later Jun 30, 2025 36:42


Mannlegi þátturinn
Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, sumartónleikar í Skálholti og Sigrún lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 23, 2025 51:45


Nú er tími útivista og gönguferða, fólkið í landinu reimar á sig gönguskóna og nýtur fegurðar íslenskrar náttúru. Yfirleitt þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna skemmtilegar gönguleiðir, en það getur þó verið erfitt að vita hvar skal byrja og hvar þær er að finna. Jónas Guðmundsson, gönguleiðsögumaður, landvörður og ferðamálafræðingur hefur varið ótal stundum á fjöllum og á göngu um náttúru landsins og nú hefur hann gefið út nýja bók, Gönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hann fjallar um 30 gönguleiðir einmitt á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Jónas kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessum leiðum og bókinni. Sumartónleikar í Skálholti hafa verið starfandi frá árinu 1975 og staðið fyrir tónleikahaldi í Skálholtskirkju á hverju sumri síðan. Hátíðin er sú elsta og jafnframt stærst sinnar tegundar á landinu og einn stærsti menningarviðburður sem fram fer á Suðurlandi yfir sumartímann. Benedikt Kristjánsson söngvari sagði betur frá hátíðinni í þættinum. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigrún Blöndal, kennari og deildarstjóri. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigrún sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum: Ann Cleves og Shetland seríu hennar og sögupersónunni Veru Stanhope. Lee Child og bækurnar um Jack Reacher Stig Larsson og bækurnar um Lisbeth Salander Det forsömte forår e. Hans Scherfig Fornaldarsögur Norðurlanda Hrólfssaga Kraka Tónlist í þættinum í dag: Sól mín sól / Anna Pálína Árnadóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) Don't Stop Me Now / Philharmonix (Freddie Mercury) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

FM957
TRAFFÍKIN! 11. JÚNÍ. 25 - Egill Ploder mætir í "er þetta framhjáhald?"

FM957

Play Episode Listen Later Jun 12, 2025 81:43


FM957
Brennslan - 5. júní 2025

FM957

Play Episode Listen Later Jun 5, 2025 76:56


Lille fredag! Gummi Tóta kíkir í heimsókn og tala um lífið sem atvinnumaður í Armeníu og hvað sé framundan. Tommi Steindórs mætir í Burning Questions. Hvaða furðulegu hræðslu hafa Egill og Rikki? Hvaða íþróttafélag hefur grætt hvað mest á uppeldisbótum leikmanna? Þetta og mikið meira til í Brennslu dagsins.

Mannlegi þátturinn
Sálræn fyrsta hjálp, Brúðubíllinn með barnabarni Helgu Steffensen og póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Jun 5, 2025 53:00


Allir geta lent í því að koma að fólki sem hefur lent í áfalli, slysi, ofbeldi, náttúruhamförum eða einhverjum öðrum alvarlegum atburðum. Þá geta fyrstu viðbrögð verið mikilvæg og ýmislegt sem ber að varast. Auðvitað ætti fagfólk að veita slíka hjálp en alvarlegir atburðir gera oft ekki boð á undan sér, því getur verið gott að kunna einföld viðbrögð sem geta hjálpað þangað til fagfólk getur komið inn í aðstæðurnar. Belinda Karlsdóttir leiðbeinandi hefur kennt sálræna fyrstu hjálp hjá Rauða krossi Íslands og á næstunni ætlar Rauði krossinn að bjóða almenningi upp á netnámskeið í sálrænni fyrstu hjálp. Belinda ræddi um þetta. Barnabarn Helgu Steffensen, Hörður Bent Steffensen hefur tekið við Brúðubílnum af ömmu sinni eftir nokkurra ára hlé og býður upp á fjölda sýninga í sumar ásamt góðu teymi. Hann er leikari að mennt og var mikill aðdáandi Brúðubílsins alla sína æsku og fékk loks að taka þátt í sýningum á unglingsaldri. Hörður sagði frá sýningum sumarsins og hversu vel amma hans hélt upp á brúðurnar, handritin og leikmyndirnar sem fylgja Brúðubílnum sem á um hálfrar aldar sögu. Póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús er nýkominn til Eyja eftir ferðalag erlendis og lentur í norðanbrælu og kulda. Hann rifjaði upp þegar hann kom fyrst til Eyja fyrir fjórum árum þá var honum sagt að það væri þrennt sem ekki mætti krítisera í Eyjum og hann fer yfir það í póstkortinu. Í seinni hlutanum sagði hann aðeins frá brosinu sem er nánast einstakt í dýraríkinu hér á jörð. Tónlist í þættinum í dag: Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason) Dýrin úti í Afríku / Brúðubíllinn (Helga Steffensen) Sveitastúlkan og sveitapilturinn / Marína og Mikael (Charlie Parker, texti Marína Ósk Þórólfsdóttir) Hafið / Egill Ólafsson (Matti Lauri Kallio, texti Egill Ólafsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

FM957
ÓLAFUR JÓHANN - 3. MAÍ 2025 - EGILL BREKI 2.0

FM957

Play Episode Listen Later May 23, 2025 60:48


Mannlegi þátturinn
Mýrdalshlaupið, nýr veðurvefur á ruv.is og Baugur Bjólfs

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 15, 2025 54:14


Mýrdalshlaupið hefur tryggt sér sess meðal bestu og stærstu utanvegahlaupaviðburða á Íslandi síðustu ár og fer nú fram í 12. skipti þann 31. maí að Vík í Mýrdal. Allt skipulag og utanumhald hlaupsins er í höndum einnar fjölskyldu frá Vík og hlaupið er ræst í fjörunni í Vík og hlaupa allir keppendur upp á Reynisfjall vestan við þorpið þar sem leiðir skilja. Hlaupið er eitt mest krefjandi utanvegahlaup á Íslandi vegna mikillar hækkunar og lækkunar, mikils bratta og fjölbreytts undirlags. Guðni Páll Pálsson, einn af skipuleggjendunum og meðlimur fjölskyldunnar sem stendur að hlaupinu, kom til okkar í dag og með honum var Þorsteinn Roy Jóhannesson sem er einn besti utanvegahlaupari landsins. Veðrið og margbreytileiki er auðvitað fyrirferðamikið í umræðunni, enda hefur það mikil áhrif á okkar daglega líf hér á eyjunni í Norður-Atlantshafi. Nú hefur opnað nýr veðurvefur á ruv.is og er hann síuppfærður með veðurupplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Lögð er áhersla á að greina frá veðurspánni á myndrænan hátt þar sem hægt er að skoða allar veðurstöðvar landsins og nágrenni þeirra og fá langtímaspár og ýmislegt fleira. Við heyrðum í Birgi Þór Harðarsyni vefstjóra ruv.is fengum hann til að segja okkur betur frá þessum nýja vef sem hægt er að finna á www.ruv.is/vedur og á www.vedurspa.is. Í Landnámu er sagt frá landnámsmanninum Bjólfi, sem fyrstur nam Seyðisfjörð. Ekki er mikið meira fjallað um ferðir Bjólfs, en sagan segir að hann sé heygður hátt uppi í fjallinu. Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur sem mun sitja á Bæjarbrún, fyrir neðan Baugstind, þar sem er einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð og í raun til allra átta. Við slógum á þráðinn austur og töluðum við Aðalheiði Borgþórsdóttur, atvinnu- og menningarmálastjóri hjá Múlaþingi og fyrrum sveitarstjóri Seyðisfjarðar, og fengum hana til að segja okkur betur frá þessu verkefni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Sigurður Bjóla Garðarsson, Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson) Perlur og svín / Emilíana Torrini (Ólafur Gaukur Þórhallsson, texti Hallgrímur Helgason) Simple pleasures / Blood harmony (Ösp Eldjárn) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Vinnuvernd og útvarpsþáttaröðin Kaflaskil um menntamálin

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 14, 2025 51:51


Samskipti, streita, fjarvistir og félagsleg sjálfbærni á vinnustöðum er nokkuð sem fyrirtækið Auðnast vinnur með og leggur áherslu á gott umhverfi fyrir starfsfólk og vinnustaði. Ragnhildur Bjarkadóttir sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd kom í þáttinn í dag og við til dæmis veltum fyrir okkur hvað felst í orðinu vinnuvernd, en hér á árum áður þýddi það aðallega gulur hjálmur en í dag svo miklu meira. Svo skoðuðum við menntamálin, nánar tiltekið nýja þáttaröð sem heitir Kaflaskil. Í þeim er farið djúpt ofan í stöðuna í menntamálum, þar sem talað er við kennara, skólastjóra og nemendur. Er A í einum skóla það sama og A í öðrum? Hvernig ná skólarnir að sinna nemendum með fötlun eða nemendum með erlendan bakgrunn? Guðrún Hálfdánardóttir, kollegi okkar hér á Rás 1 og umsjónarmanneskja þáttaraðarinnar, var hjá okkur í dag og fór betur með okkur yfir menntamálin og efni þáttaraðarinnar og við fengum að heyra tvö brot úr þáttunum, úr viðtali Guðrúnar við Sigrúnu Blöndal deildarstjóra í 6.- 10. bekkjar í Egilsstaðaskóla. Hægt er að hlusta á þættina á sunnudögum á Rás 1 og í spilara RÚV á ruv.is Tónlist í þættinum í dag: Nú liggur vel á mér / Lummurnar, útsetning Gunnar Þórðarson (Óðinn G. Þórarinsson, texti Númi Þorbergsson) Nútíminn / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Sigurður Bjóla Garðarsson) Gaggó Vest / Eiríkur Hauksson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

FM957
Brennslan - 12. maí 2025

FM957

Play Episode Listen Later May 12, 2025 75:26


Þarf Egill að láta greina sig hjá sálfræðingi? Eða er Rikki frekar sá sem er sérstakur í þessu máli? Birta Líf fer yfir slúðrið. Top 7 lög sem eiga að veita þér instant vellíðunartilfinningu. Þetta og miklu meira til!

FM957
Brennslan - 7. maí 2025

FM957

Play Episode Listen Later May 7, 2025 56:10


Hvar eru mestu umferðargötur borgarinnar? Top 7 RG listi vikunnar! Leynigestur vikunnar og er Egill orðinn óður í potta og pönnu kaupum?

Segðu mér
Egill Logi Jónasson listamaður

Segðu mér

Play Episode Listen Later May 7, 2025 40:00


Egill Logi er bæjarlistamaður Akureyrarbæjar.

FM957
Hátíðarviðtal FM957 - Egill Ploder spjallar við Kristmund Axel

FM957

Play Episode Listen Later Apr 22, 2025 75:04


Kristmundur Axel fer yfir allt það helsta frá barnæsku til dagsins í dag. Hvaða tónlist mótaði hann? Komdu til baka tímabilið og byrjunin á ferlinum. Blár Ópal tímabilið og Söngvakeppni Sjónvarpsins. Neyslan og erfiðu tímarnir. Upprisan og góðu tímarnir. Ný plata í bígerð. Þetta og meira til!

sj hva egill arvi komdu
Mannlegi þátturinn
Viltu finna milljón, trérennismíði og Spánarpóstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025 52:52


Við héldum áfram að skoða heimilisfjármálin í dag og skoðuðum í dag þætti sem hafa verið í sýningu á Stöð 2 og kallast Viltu finna milljón. Þar taka þrjú pör, eða þrjár fjölskyldur, þátt í að taka í gegn heimilisbókhaldið, þau fá ýmis verkefni og áskoranir með það að markmiði að bæta fjárhag sinn og að búa til venjur til framtíðar þegar kemur að fjármálunum. Í upphafi skoða þau til dæmis tekjur heimilisins og útgjöld og að lokum, eftir fimm mánuði er farið yfir stöðuna og hvaða árangri þau hafa náð í að bæta stöðu heimilisins. Hrefna Björk Sverrisdóttir og Grétar Halldórsson sömdu samnefnda bók og Hrefna, sem er annar stjórnandi þáttanna, kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þáttunum og hversu miklu er hægt að breyta á tiltölulega skömmum tíma. Félag trérennismiða á Íslandi fagnar í ár 30 ára afmæli og heldur af því tilefni sérstakan listviðburð í samstarfi við Hönnun & Handverk (H&H) að Eiðistorgi. Í aprílmánuði mun félagið taka yfir sýningarrými Handverks og hönnunar. Þar munu félagar setja upp fullbúna vinnustofu þar sem þeir vinna svo að trérenniverkum á staðnum og fólk getur komið og skoðað handverkið þegar það verður til. Edda Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar, og Andri Snær Þorvaldsson, formaður Félags trérennismiða á Íslandi komu í þáttinn. Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús er núna staddur á Spáni þar sem hann bjó um hríð fyrir nokkrum árum. Hann segir okkur frá þeirr góðu tíð sem ríkir á Spáni þar sem hagvöxtur er sá mesti í Evrópu. Sem þykir merkilegt því þar stjórna sósíalistar sem hingað til hafa ekki verið taldir snjallir i kapitalisma. Hann segir aðallega frá Alicante, borginni sem hann bjó í á sínum tíma og þykir ennþá vænt um. Tónlist í þættinum í dag: Verðbólgan / Brimkló (Björgvin Halldórsson, texti Kjartan Heiðberg) Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Þórður Árnason, texti Þórður Árnason) Augun mín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Jennifer Juniper / Donovan (Donovan) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

sem ei magn alicante hann finna halld svo evr andri sn egill narp millj sverrisd hrefna jakob fr
FM957
Brennslan - 3. apríl 2025

FM957

Play Episode Listen Later Apr 3, 2025 100:07


Hvað er það erfiðasta við að verða örvhentur? Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóri Elko fer yfir allt það helsta fyrir fermingar. Hversu vel er Egill að sér í dýraríkinu? Hvað þýða Íslensk orðatiltæki? Afhverju fengu allir leikarar í LOTR svona lítið greitt? Þetta og miklu meira til í þætti dagsins

FM957
Brennslan - 2. apríl 2025

FM957

Play Episode Listen Later Apr 2, 2025 80:32


Birnir um tónleikana í Laugardalshöll, Herra Hnetusmjör á Þjóðhátíð 2025, Egill settur á Wobble boardið og Topp 10 listi Rikka G yfir lög með pirrandi pörtum. Þetta og meira til í Brennslunni.

topp wobble egill laugardalsh herra hnetusmj birnir
Lestin
Egill Heiðar Anton Pálsson, Animality eftir Ai Wei Wei

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 52:39


Við fáum leikstjórann Egil Heiðar Anton Pálsson í samtal um leikhúsið, í seríuna um framtíð sviðslista. Tilkynnt var um það á dögunum að Egill Heiðar hefði verið ráðinn Borgarleikhússtjóri. Hann tekur við starfinu í lok mánaðar. En hvers vegna gerir hann leikhús? Og hvað þarf að vera til staðar í samfélaginu til að listalífið blómstri? Katrín Helga Ólafsdóttir flytur okkur pistil um myndina Animality eftir listamanninn Ai Wei Wei, sem hún sá á CPH:DOX, alþjóðlegri heimildamyndahátíð í Kaupmannahöfn.

anton hann ai weiwei katr eftir cph dox egill kaupmannah borgarleikh tilkynnt
FM957
Brennslan - 17. mars 2025

FM957

Play Episode Listen Later Mar 17, 2025 80:32


Leystu úr Lyktinni - Nær Egill fram hefndum? Arnar og Hrefna úr Viltu Finna Milljón, Kleini og morgunrútínan og hvað myndi íslenska leyniþjónustan heita? Maiaa í spjalli um nýtt lag. Hver er hamingjusamasta þjóð heims samkvæmt glænýjum lista?

FM957
Brennslan - 14. mars 2025

FM957

Play Episode Listen Later Mar 14, 2025 75:02


Stútfull föstudags Brennsla! Uppgjör vikunnar með Oddi Ævari og Svövu Kristínu þar sem farið er yfir allt það helsta í liðinni viku á léttu nótunum. Hinn eini sanni Kalli Bjarni í nýjum lið sem ber heitir Hvar Ertu Nú? Ágúst og Klara Einars í spjalli og er Egill með ofnæmi fyrir sundi?

Karfan
Aukasendingin: Egill fer yfir þing helgarinnar, reglur um erlenda leikmenn, fjölgun leikja og margt fleira

Karfan

Play Episode Listen Later Mar 12, 2025 49:40


Aukasendingin fékk formann KR Egil Ástráðsson í heimsókn til þess að kryfja flest þeirra mála sem kosið verður um á körfuknattleiksþingi helgarinnar. Stærst mála eru kannski breytingar á reglum um erlenda leikmenn og fjölgun leikja í efstu deild, en einnig er um fjölda annarra mála að ræða svosem hvaða búningum heimalið geta verið í, hversu margir leikmenn geti farið á venslasamning og hvort taka þurfi tillit til leikdaga liða af landsbyggðinni.Hérna er hægt að lesa þau þingskjöl sem verða til umræðu og kosið verður um á körfuknattleiksþingi helgarinnarAukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Bónus deildarinnar, Lengjunnar og Tactica.

Já elskan
1. Læknamistök

Já elskan

Play Episode Listen Later Mar 11, 2025 34:35


Í þessum fyrsta þætti af Já elskan spjöllum við um læknamistök, misgáfuleg og misfyndin. Instagram: jaelskan Email: jaelskanpodcast@gmail.com Hönnuður á cover mynd: Una María Magnúsdóttir. Jón Egill upprunalegur hugmyndasmiður Þessi þáttur var gefinn út: 28 apríl 2020

Já elskan
2. Pennhurst Asylum

Já elskan

Play Episode Listen Later Mar 11, 2025 65:50


Í þessum öðrum þætti af Já elskan spjöllum við um Pennhurst Asylum, alræmd stofnun í Pennsylvaniu sem var starfræk í 80ár. Í dag eru byggingarnar þekktar sem Haunted House Instagram: jaelskan Email: jaelskanpodcast@gmail.com Hönnuður á cover mynd: Una María Magnúsdóttir Jón Egill upprunalegur hugmyndasmiður   Þessi þáttur var gefinn út: 2. maí 2020

Ólafssynir í Undralandi
AK special X Egill Ploder

Ólafssynir í Undralandi

Play Episode Listen Later Feb 23, 2025 71:00


Þeir Ólafssynir voru á ferð og flugi um helgina ásamt Agli Ploder, góðvini þáttarins. 

Víðsjá
Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 21, 2025 54:13


,,Ég treysti sjálfri mér og hef trú á þessu tæki sem listmeðferðin er. Hún er tæki til að tjá tilfinningar sínar og vinna með og losa sig við erfiðar tilfinningar. Myndsköpunin er þá notuð til að vinna með sig persónulega og til að þroskast í gegnum." - er meðal þess sem haft er eftir myndlistarkonunni og listþerapistanum Sigríði Björnsdóttur í bók þeirra Ágústu Oddsdóttur og Egils Sæbjörnssonar um ævistarf Sigríðar, Art can Heal. Á fimmtudag verður blásið til málþings um listmeðferð til heiðurs Sigríði, á vegum Listasafns Íslands og Myndlistarmiðstöðvar. Þau Ágústa og Egill koma við í hljóðstofu og segja okkur frá eiginleikum listmeðferðar og starfi Sigríðar. Við fáum líka pistil frá Gauta Kristmannssyni, sem að þessu sinni fjallar um ljóðasafn norska stórskáldsins Olav Hauge, Undir eplatrénu. Ljóðasafnið er að mestu fengið úr síðustu þremur bókum Hauges en Gyrðir Elíasson íslenskaði og ritaði formála. Við höldum líka áfram umfjöllun um kvikmyndaleikstjórann David Lynch. Lynch málaði heiminn í sterkum, dulúðugum og súrrealískum litum, sem virðast á stundum koma úr annari vídd, og bjó til andrúmsloft sem hefur einfaldlega verið kallað lynchían. Við ætlum að velta þessari lynchian tilfinningu fyrir okkur í þætti dagsins með Rúnari Rúnarssyni kvikmyndaleikstjóra, Ásgrími Sverrissyni kvikmyndagerðamanni, Hrönn Sveinsdóttur framkvæmdastýru bíó paradís og Evu Rún Snorradóttur rithöfundi og sviðslistakonu. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

art heal bj lynch david lynch lj sigr umsj undir egill sveinsd gyr oddsd snorrad melkorka hauges
Ólafssynir í Undralandi
Egill Ploder í Undralandi: Kviss skandallinn (The men tell all)

Ólafssynir í Undralandi

Play Episode Listen Later Dec 8, 2024 64:14


ATH að þessi þáttur inniheldur upplýsingar um nýjasta Kviss þáttinn á Stöð 2. Egill mætti í Undralandið í sérstakan "The men tell all" þátt þar sem Kviss skandallinn var krufinn til mergjar.

Podcast með Sölva Tryggva
#282 Egill Ólafsson með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Aug 5, 2024 66:09


Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Egill Ólafsson er löngu orðin goðsögn í íslensku menningarlífi. Hann á að baki magnaðan feril sem spannar áratugi í bæði tónlist og leiklist. Egill greindist nýverið með Parkinson sjúkdóminn og ákvað strax að tala um þá baráttu opinberlega. Í þættinum fara Sölvi og Egill yfir feril Egils, baráttuna við Parkinson, íslenskt samfélag, leiðir til að finna þakklæti og hamingju og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/

FM957
ÓLAFUR JÓHANN -20 JÚLÍ - EGILL BREKI

FM957

Play Episode Listen Later Jul 26, 2024 58:03


Screen Nerds Podcast
Quick Screen: Touch

Screen Nerds Podcast

Play Episode Listen Later Jul 12, 2024 11:19


For this "Quick Screen" episode, Michael checked out the brand new theatrical film "Touch". What are some of his thoughts of this dramatic film based on a novel by the same name starring Egill Ólafsson, Kōki, Palmi Kormakur, Masahiro Motoki and Yoko Narahashi? Check it out and see! Be a part of the conversation! E-mail the show at screennerdspodcast@gmail.com Follow the show on Twitter @screennerdspod Like the show on Facebook (Search for Screen Nerds Podcast and find the page there) Follow the show on Instagram and Threads just search screennerdspodcast Check out the show on Bluesky just search screennerdspodcast Be sure to check out the podcast on Apple Podcasts, Spotify, Goodpods, Overcast, Amazon Music or your podcast catcher of choice! (and please share rate and review!) Want to be a guest or share your thoughts on the podcast? Send me an e-mail! Thanks to Frankie Creel for the artwork

Podcast með Sölva Tryggva
#282 Egill Ólafsson með Sölva Tryggva (áskriftarþáttur)

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Jun 10, 2024 20:01


Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Egill Ólafsson er löngu orðin goðsögn í íslensku menningarlífi. Hann á að baki magnaðan feril sem spannar áratugi í bæði tónlist og leiklist. Egill greindist nýverið með Parkinson sjúkdóminn og ákvað strax að tala um þá baráttu opinberlega. Í þættinum fara Sölvi og Egill yfir feril Egils, baráttuna við Parkinson, íslenskt samfélag, leiðir til að finna þakklæti og hamingju og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/ Fiskikóngurinn - https://www.facebook.com/fiskikongurinn.is/?locale=is_IS Heitirpottar.is - https://heitirpottar.is/ Kjötkompaní - https://kjotkompani.is/