POPULARITY
Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur
Risastór bókagjöf enskrar merkiskonu, May Morris, virðist hafa horfið sporlaust - utan einnar bókar sem Brynjar Karl Óttarsson, sögukennari við Menntaskólann á Akureyri er nokkuð viss um að hafi tilheyrt henni. Hann rannsakar gamlar bækur og skjöl í kjallara Amtsbókasafnsins á Akureyri og hirslum Menntaskólans - og tímafrek yfirlegan hefur skilað nokkrum forvitnilegum uppgötvunum. Við ræðum við Brynjar Karl. Í síðustu viku gekk aftakaveður yfir landið, veður sem kallaði á alls kyns ráðstafanir, meðal annars í innbænum á Akureyri. Á fimmtudaginn var óð ég yfir stórfljót til að hitta Rögnu Gestsdóttur, starfsmann Minjasafns Akureyrar í iðnaðarsafninu á Krókeyri, sem var nær umflotið. Nú er farið að huga í auknum mæli að áhrifum náttúruhamfara á söfn - og söfn farin að gera ýmsar viðbragðsáætlanir og meta áhættu ekki síst eftir að Tækniminjasafn Austurlands eyðilagðist í skriðuföllum á Seyðisfirði árið 2020. Og við höldum okkur við veðurofsann því Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri Rúv, ætlar að rifja upp Fárviðrið svokallaða sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið árið 1981. Tónlist í þættinum: Breabach - Bha Mis Raoir air an arligh. Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
Maríanna Friðjónsdóttir sjónvarpsframleiðandi og leikstjóri hefur haft vetrarsetu í Portúgal síðustu 9 ár með móður sinni Viktóríu Særúnu Gestsdóttur. Yfir sumartímann hefur Marianna farið heim til Danmerkur þar sem hún bjó í 20 ár og mamma hennar verið á Íslandi en núna hefur Marianna flutt alfarið til Portugal. Við slógum á þráðinn til Mariönnu og fengum að vita hvernig lífið gengur fyrir sig hjá þeim mæðgum í litla þorpinu þar sem þær búa. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ágúst Páll Óskarsson, hann er nemi á þriðja ári í Kvennó og vinnur á bókasafni Mosfellsbæjar. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Tónlistin í þættinum Jólin eru hér / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Sigurður Halldór Guðmundsson, texti Bragi Valdimar Skúlason) Er líða fer að jólum / Sigríður Thorlacíus og Sigurður Guðmundsson (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson) Hin fullkomnu jól / Hildur Jónsdóttir og Einar Örn Magnússon (Hidur Jónsdóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Heimsfaraldurinn kollvarpaði tímabundið starfi framhaldsskóla, í mars 2020, þegar samkomubann var sett á var farið að kenna allt í fjarkennslu, um haustið var hert og slakað á víxl og skólastarfið var sífellt að aðlaga sig. Hvaða áhrif hafði þetta á kennara? Nokkrir fræðimenn við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hafa undanfarið rannsakað þetta í þaula og safnað fjölbreyttum gögnum. En stærsta ein stærsta niðurstaðan kom eins og blaut tuska í andlitið á þeim. Súsanna Margrét Gestsdóttir, kennari, sagnfræðingur,lektor við Menntavísindasvið HÍ og ein rannsakendanna kemur til okkar núna rétt á eftir og greinir meðal annars frá ólíkum áhrifum ráðstafananna sem gerðar voru vegna faraldursins á konur og karla í kennarastétt. Síðustu daga og vikur höfum við fengið að heyra innslög frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar, þar sem hún hefur sagt frá dvöl sinni í Cali í Kólumbíu. Hún sótti þangað ráðstefnu aðildarríkja að rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika. Þetta er risastór viðburður þar sem fulltrúar ríkjanna koma saman og setja sér alls konar markmið og gera alls konar áætlanir. En hvernig er það að vera á svona ráðstefnu. Næst einhver raunverulegur árangur? Gera þessar ráðstefnur eitthvað gagn? Við fáum Þorgerði Maríu til okkar í spjall um þetta og margt fleira. Spennan vex vestanhafs. Róbert Jóhannsson, fréttamaður á erlendu deildinni ræðir við okkur um kosningarnar í Bandaríkjunum. Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, spjallar við okkur um tökuorð. Tónlist í þættinum: BEAR THE ANT - Hey!. Höst, Lene, Airana, Miriam - Sanfona Sentida. BSÍ - Lily (hot dog).
Vikulok á kjördegi - umræður um kosningabaráttuna, síðustu kappræður, tungutak frambjóðenda og fleira. Sakfelling Donalds Trump var einnig á dagskrá og mögulegar afleiðingar hennar á feril forsetaframbjóðandans og úrslit kosninga í nóvember. Þá var rætt um mótmæli vegna framgöngu íslenskra stjórnvalda andspænis stríðinu á Gaza. Gestir: Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, Kristín Ólafsdóttir fréttamaður og Stefán Þór Helgason stjórnmálafræðingur Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Forsetakosningar, „kynlaus nýlenska“ og efnahagsástand voru umræðuefni þáttarins þessa viku. Pistill Völu Hafstað um kynjavísanir í íslensku vakti heitar umræður í vikunni en afstaða til málsins virðist skipta þjóðinni í fylkingar. Stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans var einhverjum vonbrigði en vakti með öðrum von, en stýrivextir haldast óbreyttir enn. Katrín Jakobsdóttir og Halla Hrund mælast hnífjafnar í þjóðarpúlsi Gallup og fylgi margra frambjóðenda er á talsverðri heryfingu. Í þessi mál rýndu Aríel Pétursson formaður Sjómannadagsráðs, Brynja Jónbjarnardóttir hagfræðingur og Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður og rithöfundur. Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Límónutréð heimsótti leikskólann Ölduna sem er átta deilda leikskóli á Hvolsvelli. Aldan er í nýju og glæsilegu húsnæði sem tekið var í notkun í ágúst 2023. Þær Sólbjört Sigríður Gestsdóttir, leikskólastjóri, og Valborg Jónsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, sögðu okkur frá leikskólastarfinu í Öldunni og ferlinu sem fólst í því að flytja í nýtt húsnæði.
Víðsjá dagsins er helguð Hreini Friðfinnssyni. Hreinn fæddist á Bæ í Dölum í febrúar 1943. Hann útskrifaðist frá Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1960 og fluttist stuttu síðar til Amsterdam. Hann var einn af stofnendum SÚM hópsins og hefur oft verið kallaður einn af frumkvöðlum hugmyndalistar hér á landi. Hreinn vann með i8 gallerí hér á landi og fleiri galleríum víðsvegar um Evrópu, en hann sýndi reglulega vítt og breitt um heiminn. Hreinn var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1993, árið 2000 voru honum veitt virtustu myndlistarverðlaun Finnlands, Ars Fennica verðlaunin, og fyrr í þessum mánuði féll heiðursviðurkenning Myndlistarráðs í skaut Hreins. Hreinn kvaddi þennan heim á hjúkrunarheimili í Amsterdam þann 6.mars síðastliðinn. Viðmælendur í þættinum eru Hrafnhildur Helgadóttir, Sigurður Guðmundsson, Styrmir Örn Guðmundsson, Ragnheiður Gestsdóttir, Ólöf Kristín Sigurðardóttir, Emma Heiðarsdóttir og Börkur Arnarson. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Norðmenn óttast að Haraldur konungur sé alvarlega veikur þar sem hann liggur á sjúkrahúsi í Malasíu. Hann er þar í fríi frá störfum. Búið er að senda sjúkraþotu á vegum hersins og lið lækna á staðinn en alls er óvíst hvenær konungur verður fluttur heim. Gísli Kristjánsson sagði frá. Gerður Gestsdóttir, ormaður flóttamannanefndar, vonar að hægt verði að að taka við kvótaflóttamönnum í ár en það hefur ekki verið gert frá 2020. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Kristín Snorradóttir, teymisstjóri í Bjarmahlíð, þolendamiðstöð á Akureyri, segist finna fyrir því að þolendur af öllum kynjum verði fyrir alvarlegri brotum en áður. Aðeins einn starfsmaður starfar í miðstöðinni sem stendur þrátt fyrir að hún þjónusti þolendur um allt land. Selma Margrét Sverrisdóttir tók saman.
Ást Fedru eftir breska leikskáldið Söruh Kane er byggt á grísku goðsögninni um drottninguna Fedru sem verður ástfangin af stjúpsyni sínum Hippolítosi með skelfilegum afleiðingum. Leikstjóri verksins, Kolfinna Nikulásdóttir, verður gestur okkar í dag. Í Gallerí Gróttu á Eiðistorgi býður myndlistarkonan Ragnheiður Gestsdóttir gestum inn í veröld þar sem langanir og þrár manneskjunnar eru færðar í pastellituð form úr keramík. Ketilbjöllur, kleinuhringir og klassísk form standa á stöplum og tala til okkar um stéttaskiptingu, gildismat og valdakerfi. Við förum á Eiðistorg í þætti dagsins. Einnig rýnir Eva Halldóra Guðmundsdóttir í Pabbastráka, sem sýnt er í Tjarnarbíói.

Stofnfundur Þróunarfélags Hríseyjar var haldinn í síðustu viku, en þróunarfélaginu er ætlað að vera leiðandi í almennri byggða- og uppbyggingaþróun í Hrísey í samvinnu við íbúa, fyrirtæki og félög í Hrísey ásamt Akureyrarbæ. Við fræddumst nánar um félagið og áform þess í Mannlega þættinum og slógum á þráðinn til Ásrúnar Ýrar Gestsdóttur, verkefnastjóra Áfram Hríseyjar, í þættinum í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn lagði hann vinkilinn að niðursuðudósum og bótúlisma. Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn María Elísabet Bragadóttir rithöfundur. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. María talaði um eftirtaldar bækur: Austan Eden e. John Steinbeck Rúmmálsreikningur I e. Solvej Ball My Body e. Emily Ratajkowski Svo talaði hún um Wuthering Heights e. Emily Bronte, Tove Ditlevsen og ítalska rithöfundinn Nataliu Ginzburg Tónlist í þættinum: Síðan eru liðin mörg ár / Brimkló (Chip Taylor og Þorsteinn Eggertsson) Sjómannavalsinn / Hjaltalín (Svavar Benediktsson og Kristján frá Djúpalæk) Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur, myndhöfundur og kennari er gestur okkar í Svipmynd dagsins. Ragnheiður hefur bæði skrifað og myndskreytt bækur fyrir börn og unglinga auk þess að vera höfundur þriggja glæpasagna. Unglingasögur hennar hafa vakið mikla athygli og hefur Ragnheiður hlotið bæði Norrænu barnabókaverðlaunin og Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir verk sín. Hún hlaut einnig Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, fyrir skáldsöguna Farangur árið 2022. Þann 1. maí fagnaði hún sjötugs afmæli og gaf sama dag út sína fyrstu bók sem hvorki hefur orðin barna, unglinga eða glæpa sem forskeyti. Bókin kallast Steinninn og fjallar um konu sem fær gjöf á tímamótum í lífi sínu sem hrindir af stað atburðarrás sem umbreytir lífi hennar.

The new episode of Out There features the exhibition series The Wheel I - V, represented by Kristín Dagmar Jóhannesdóttir curator of “THE WHEEL V: All is Well”, the last and final iteration of the annual series, and Haraldur Jónsson visual artist and chairman of the exhibition committee of the Reykjavík Association of Sculptors. Becky and Tinna get to know the Association's origin story and past projects. More recently “All is Well” was selected as the Group Show of the Year at the Icelandic Art Prize. The final edition of The Wheel took place in postcodes 101, 102 and 107 in Reykjavík. Eight artists exhibited works in public space, all of whom are members of the Sculpture Association, and Swedish artist Ulrika Sparre, the exhibition's honorary international artist. Artists in The Wheel V included: Emma Heiðarsdóttir, Finnur Arnar, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Ragnheiður Gestsdóttir, Sean Patrick O'Brien, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Ulrika Sparre and Wiola Ujazdowska.
Í þættinum er skautað yfir hátíðir, vígslu og verðlaunaafhendingu sem allt átti sér stað í síðustu viku í Bókmenntaborg UNESCO Reykjavík. Í þessari yfirferð heyrist í Ragnheiði Gestsdóttur, Ástu Kristínu Benediktsdóttur, Guðrúnu Norðdal, Ástu Svavarsdóttur og Einari Fal Ingólfssyni. Þá er í þættinum rætt við Ásdísi Magnúsdóttur sem árið 2019 sendi frá sér ljóðabókina Umskrifuð atriði og árið 2022 ljóðabókina Fangabrögð. Ásdís segir frá og les nokkur ljóð úr báðum þessum bókumÞættinum lýkur svo á fyrsta pistli Kára Tuliníus af fjórum þar sem hann skimar ofan af Móskarðshnúkum yfir bókmenntaborgina Reykjavík en svífur líka ofan og gaumgæfir einstök atriði. Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir

Víðsjá dagsins er tileinkuð þeim listamönnum og sýningum sem hlutu verðlaun á Íslensku myndlistarverðlaunum þann 16.mars síðastliðinn. Við grípum niður í viðtöl við Hrafnkel Sigurðsson sem er myndlistarmaður ársins, Ásgerði Birnu Björnsdóttur sem hlaut hvatningarverðlaunin, Ragnheiði Gestsdóttur sem átti eitt verkanna í samsýningu ársins, Hjólið V: Allt í góðu, og Ragnheiði Jónsdóttur sem hlaut heiðursverðlaun fyrir lífsstarf sitt í þágu íslenskrar myndlistar og menningar. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir

Claus Hjort Fredriksen, fyrrverandi varnarmálaráðherra Danmerkur, hefur verið ákærður fyrir brot á landráðsákvæði danskra hegningarlaga. Claus Hjort staðfesti á sínum tíma frétt um njósnastarfsemi bandarískrar njósnastofnunar í Evrópu. Ákæruefnið hefur ekki verið opinberað og réttarhöld fara fram fyrir luktum dyrum. Gísli Tryggvason lögmaður ræddi um málið. Mikil uppbygging blandaðrar byggðar er áformuð á Keldum og Keldnaholti í Reykjavík. Þar hefur Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði verið starfrækt í hartnær 75 ár og vonast forsvarsmenn hennar til að svo verði áfram. Kristín Kalmansdóttir framkvæmdastjóri sagði frá starfseminni á Keldum. Dregið hefur verið úr sögukennslu í grunn- og framhaldsskólum. Sagnfræðingar telja það mesta óráð og þinguðu um málið í vikunni. Súsanna Margrét Gestsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, ræddi málið. Tónlist: Both sides now - Joni Mitchell, My star - Brainstorm, Du er ikke alene - Sebastian, Ingerlaliinnaleqaagut - Nannook. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson.

Fimmtudagurinn 2. mars Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar kemur til okkar á Rauða borðinu og gerir upp árangur af baráttu undanfarinna mánaða. Hvað náðist og hvað ekki. Haukur Már Helgason rithöfundur hefur gagnrýnt værukærð gagnvart cóvid. Við ræðum við hann um ótalin dauðsföll vegna cóvid í fyrra. Við förum síðan yfir Kastljósviðviðtalið við Bjarna Benediktsson frá í gær með hjá Ásgeirs Brynjars Torfasonar sérfræðings í fjármálum. Og höldum áfram að ræða verðbólguna við Ólaf Margeirsson hagfræðing. Auður Þóra Björgúlfsdóttir formaður Félags sögukennara í framhaldsskólum og Súsanna Margrét Gestsdóttir lektor við menntavísindasvið ræða við okkur um minnkandi sögukennslu í skólum og við ræðum við um sögukennslu Gunnlaug Guðjónsson um skógrækt sem tæki til kolefnisbindingar. Hann er algjörlega ósammála Jóni Gunnar Ottóssyni, sem sagði okkur um daginn að árangurinn af slíku væri stórlega ofmetinn. Og við segjum fréttir dagsins.
Í dag rifjuðum við upp þátt sem var fyrst á dagskrá föstudaginn 4. desember 2020. Föstudagsgestur Mannlega þáttarins þann dag var tónlistarmaðurinn Máni Svavarsson. Hann hefur verið í mörgum hljómsveitum og hefur samið gríðarlegt magn af tónlist, fyrir sjónvarp og auglýsingar. Hann samdi til dæmis tónlistina í Latabæjarþáttunum sem sýndir hafa verið í yfir 100 löndum og hlaut meðal annars tilnefningu til Emmy verðlauna. Hann er sonur Ellýjar Vilhjálms og Svavars Gests og við forvitnuðumst um æsku hans og uppvöxt, tónlistina, ferilinn og ferðalagið í gegnum lífið. Svo rifjuðum við upp matarspjall úr sama þætti, sem sagt frá 4. desember 2020, þar sem við fengum Guðrúnu Sóley Gestsdóttur til að fræða okkur um bakstur, og þá aðallega smákökubakstur og auðvitað veganbakstur, því Guðrún Sóley er auðvitað þekkt meðal annars fyrir vegan matreiðslubækur sínar. Við komum ekki að tómum kofanum hjá Guðrúnu þegar kemur að því að baka sætabrauð, smákökur og konfekt sem er vegan. Það skal svo tekið fram að á þessum tíma, 4.desember 2020, geysaði auðvitað Covid og samkomutakmarkanir voru í fullu gildi, því voru bæði þessi viðtöl tekin í anddyri útvarpshússins í sérútbúnu hljóðveri sem við kölluðum Studio Anddyri. Tónlist í þættinum: Um þig / Ellý Vilhjálms (Luiz Florentino Bonfa og Ólafur Gaukur Þórhallsson) Aleinn um jólin / KK og Stefán Karl Stefánsson (Máni Svavarsson og Halldór Gunnarsson) A Whiter Shade of Pale / Procol Harum (Brooker & Reid) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Gestastjórnandi vikunnar er að þessu sinni dagskrárgerðarkonan Guðrún Sóley Gestsdóttir. Guðrún stýrir áherslum og þemum í spurningum dagsins. Liðin tvö sem keppa er lið Stórveldisins sem mynda þeir Tómas Steindórsson og Snorri Másson en þeir mæta liði Veru Illugadóttur, dagskrárgerðarkonu og Veigu Grétarsdóttur kajakræðara. Meðal þess sem kemur við sögu í þætti dagsins eru söngleikir, sundlaugar á Íslandi, íslensk hlaðvörp og textar í íslenskum rapplögum.
Á útilverka-sýningunni Hjólinu þræða höggmyndir átta listamanna sig um borgarlandslagið, í grennd við hjóla og göngustíga. Þetta er í fimmta sinn sem þessi sumarsýning stendur yfir, en það er Myndhöggvarafélagið í Reykjavík í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Norræna húsið stendur að henni. Yfirskrift Hjólsins þetta árið er ALLT Í GÓÐU en Kristín Dagmar Jóhannesdóttir er sýningarstjóri í ár. Víðsjá skellti sér í hjólatúr í morgun og hitti Kristínu Dagmar og þær Ragnheiði Gestsdóttur og Emmu Heiðarsdóttur. Sending frá óþekktum aðila reynist fyrsta skrefið á slóð sem leiðir fólk í gegnum sögu af mannshvarfi í Kaupmannahöfn, munaðarlausri stúlku sem send er í vist árið 1931, starfsmannapartýi á Sölvhólsgötu við stríðslok og hörmulegu sjóslysi. Framhald í næsta bréfi er óvenjulegt leikhúsferðalag þar sem áskrifendur fá send bréf með reglulegu milli bili, umslag með ljósmyndum, símskeytum og dulkóðuðum skilaboðum í bland við hljóðverk. Allt eru þetta litlar vísbendingar í stærri frásögn, svokölluðu bréfaleikhúsi. Það eru þær Salka Guðmundsdóttir og Aðalbjörg Árnadóttir sem standa að verkinu, Salka er höfundur sögunnar, leikritsins og Aðalbjörg hugmyndasmiðurinn - en vinna auðvitað saman að því að láta þetta ganga upp, að bréfin berist á réttum tíma eins og á góðu og stundvísu pósthúsi. Á djassknæpunni Skuggabaldri við Austurvöll ætlar hljómsveitin ADHD að fagna sumrinu með tónleikum í kvöld og kynna um leið fyrirhugaða residensíu á Skuggabaldri sem fram fer í október á þessu ári. Magnús Trygvason Eliassen trommuleikari ADHD er gestur Víðsjár í dag og segir frá. Umsjón: Halla Harðardóttir og Jóhannes Ólafsson

Í þættinum er leikin upptaka frá afhendingu Blóðdropans, verðlaunum Hins íslenska glæpafélags 23. mars 2022. Foringi félagsins Ævar Örn Jósepsson ávarpar gesti, Helga Birgisdóttir formaður dómnefndar lýsir yfir nýjum handhafa Blóðdropans, sem er Ragnheiður Gestsdóttir. Magnús Guðmundsson ræðir við Ragnheiði um verðlaunabókina Farangur. Þá ræðir Jórunn við Auði Jónsdóttur og Tinnu Hrafnsdóttur um skáldsögu Auðar, Stóri skjálfti frá árinu 2015 og um kvikmynd Tinnu, Skjálfti, sem frumsýnd verður 31. mars 2022. Að lokum flytur Vera Knútsdóttir pistil um inngildingu, nýtt hugtak í bókmenntunum, eiinkum barnabókmenntum. Umsjónarmaður: Jórunn Sigurðardóttir Lesari: Þórhildur Ólafsdóttir

Við hittum Snorra Jóhannesson, ábúanda á Augastöðum, sem man vel jarðskjálftahrinu í Borgarfirði 1974. Þá hittum við Hríseyinginn Ásrúnu Ýr Gestsdóttur í kaupstaðarferð á Akureyri. Og í lok þáttar höldum við að Kirkjubóli í Korpudal í Önundarfirði. Þar er að finna farfuglaheimili en líka nyrstu skrifstofu fyrirtækisins Nox Medical þar sem Stefán Rósinkrans Pálsson starfar. Efni í þáttinn unnu Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Halla Ólafsdóttir. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.

Lestin og Víðsjá slá saman í spjall um menninguna árið 2021. Gestir í fyrri hluta þáttarins eru: Einar Falur Ingólfsson, Gunnar Ragnarsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Halla Helgadóttir. Guðni Tómasson og Kirstján Guðjónsson stýra fyrri hlutanum.
Í vikunni kom út áhugaverð skýrsla á vegum Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins þar sem fjallað er um svæðisbundið hlutverk Akureyrar. Þar er lagt til að Akureyri verði gert að svokallaðri svæðisborg í byggðastefnu stjórnvalda. Til að útskýra þetta aðeins nánar fengum við til okkar Birgi Guðmundsson, formann starfshópsins. Við héldum áfram að hita upp fyrir kjördæmafundina sem haldnir eru hér á Rás 2. Í dag er það forystufólk flokkanna sem bjóða fram í Suðvesturkjöræmi, eða Kraganum, sem mun mætast í hljóðveri hér í Efstaleiti. Fundurinn hefst kl. 17:30 og er sendur út í beinni hér á Rás 2 og kjósendur geta tekið þátt og sent spurningar á netfangið kosning hjá ruv.is. Og til að rýna aðeins í þetta kjördæmi fengum við til okkar stjórnmálafræðinginn Evu Heiðu Önnudóttur, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Við ræddum íslenskt mál við Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunaut og þar var haustið í forgrunni. Haustráðstefna Advania hefst í dag og þar er margt forvitnilegt á dagskrá. Meðal gesta er t.d. breskur innbrotsþjófur, ekki tölvuhakkari, heldur raunverulegur innbrotsþjófur. Þær Þóra Tómasdóttir fjölmiðlakona og Magnea Gestrún Gestsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Advania sögðu okkur meira af þessu. Og við settum í gleðigírinn upp úr hálfníu þegar hin stórskemmtilega og hæfileikaríka Björk Jakobsdóttir leit við. Tilefnið er sýning hennar, Selmu Björnsdóttur og Sölku Sólar Eyfeld í Gaflaraleikhúsinu, Bíddu bara, þar sem þær fjalla um raunveruleika íslenskra kvenna á glettinn hátt og segjast ekkert draga undan, en ljúga töluvert. Tónlist: Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson - Hjarta mitt. Friðrik Dór - Hvílíkur dagur. The Weeknd - Take my breath. Jamiroquai - Virtual insanity. Dansiði - Jónas Sig. Holly Humberstone - The walls are way too thin. Selma Björnsdóttir - Undir stjörnum. Manic Street Preachers - A design for life.
Á Gljúfrasteini, húsi nóbelsskáldsins Halldórs Laxness í Mosfellssveit, stendur nú yfir sýning um næstsíðustu skáldsögu Halldórs, Innansveitarkroniku. Sýningin opnaði í fyrra en sökum heimsfaraldurs og samkomubanns reyndist það ekki beint ár safnaheimsókna og kemur hún því til með að standa áfram um nokkra hríð. Víðsjá hugar í dag að þessari sýningu og ræðir við Guðnýju Dóru Gestsdóttur og Hlíf Unu Bárudóttur. Í dag eru einnig liðin fimmtíu ár frá því að platan Blue, úr smiðju kanadísku tónlistarkonunnar Joni Mitchell kom út og af því tilefni verður þessi ágæta plata rifjuð upp í Víðsjá dagsins. Ný bókaverslun bókaútgáfunnar Sölku verður einnig heimsótt og þar rætt við húsráðendur, Dögg Hjaltalín og Önnu Leu Friðriksdóttur. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar einnig um nýbakaða verðlaunaljóðabók Höllu Þórlaugar Óskarsdóttur, Þagnarbindindi. Umsjón með Víðsjá í dag hafa Guðni Tómasson og Jóhannes Ólafsson.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Hörpu Þórsdóttir, safnstjóra Listasafns Íslands, um nýja samræmda safnastefnu á sviði myndlistar sem nú er komin fyrir almenningssjónir. Fyrir rúmum 100 árum, í litlu fjallaþorpi í Pýrenafjöllunum, tóku tveir listamenn þátt í því að umbylta sýn okkar á nútímalist. Með ekkert að vopni nema frjóan huga, vináttu, samræður, pappír, skæri og lím. Halla Harðardóttir fjallar um klippimyndir í pistli dagsins. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir fjallar í dag um sýninguna ?Veit efnið af andanum?? sem nú stendur yfir í Nýlistasafninu, þar sem þrír ólíkir listamenn, þau Ragnheiður Gestsdóttir, Sigrún Inga Hrólfsdóttir og Sindri Leifsson, sýna verk sín. Verkin endurspegla viðleitni listamannanna til að efnisgera þau ósýnilegu öfl sem móta hegðun okkar og stjórna daglegum athöfnum okkar, en sýningin er einskonar könnunarleiðangur þar sem velt er við steinum, kerfi afhjúpuð og stiklað er á stóru í menningarsögunni. Og líkingar koma við sögu í Víðsjá í dag.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars fjallað um Útskriftarsýningu Ljósmyndaskólans sem opnuð verður í Ljósmyndsafni Reykjavíkur um helgina. Þar sýna þrettán nemendur verk sín og takast á við ólík málefni út frá ólíkum forsendum, mismunandi nálgun, listrænni sýn og fagurfræði. Rætt verður við sýningarstjórann, Katrínu Elvarsdóttur, í Víðsjá í dag. Einnig verður farið í heimsókn í Nýlistasafnið í Marshall-húsinu og sýningin Veit efnið af andanum? skoðuð, en hún verður opnuð í safninu á laugardag. Þar eiga verk Ragnheiður Gestsdóttir, Sigrún Hrólfsdóttir og Sindri Leifsson. Gréta Sigríður Einarsdóttir fjallar um smásögur, kántrítónlist og ánægjuna sem felst í því að skipta um skoðun. Og Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur fjallar í Víðsjá á fimmtudögum um nýbyrjað ár, 2021, Kristrún spáir í strauma, stefnur, og hneigðir á hinum ýmsu sviðum mannlífsins. Í dag talar Kristrún um popúlisma, og spyr meðal annars hvaðan hann kom og hvernig fer hann með lýðræðið og þjóðfélögin. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.
MANNLEGI ÞÁTTURINN - FÖSTUDAGUR 4.DES 2020 UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Máni Svavarsson. Hann hefur verið í mörgum hljómsveitum og hefur samið mikið magn tónlistar, fyrir sjónvarp og auglýsingar. Hann samdi til dæmis tónlistina í Latabæjarþáttunum sem sýndir voru í yfir 100 löndum og hlaut meðal annars tilnefningu til Emmy verðlauna. Hann er sonur Ellýjar Vilhjálms og Svavars Gests og við spurðum hann út í æskuna og uppvöxtinn og ferðalagið í gegnum lífið til dagsins í dag. Við töluðum um smákökur í síðasta matarspjalli enda aðventan gengin í garð og við lögðum áherslu á þessar gömlu góðu uppskriftir en í dag lögðum við áherslu á hvað er hægt að baka þegar maður er vegan. Hvernig sætabrauð, smákökur og konfekt sem margir vilja fá í desember, getur maður útbúið þannig að henti vegan. VeganDrottningin Guðrún Sóley Gestsdóttir var gestur okkar í Matarspjallinu í dag.
Sigrún Valbergsdóttir formaður ferðanefndar Ferðafélags Íslands og GUðrún Sóley Gestsdóttir dagskrárgerðarkona: ferðasumarið framundan - útvivist og fjallgöngur Svanhildur Gunnlaugsdóttir landslagsarkitekt: Gróðurhúsin i Hveragerði og menningarsögulegt gildi þeirra Edda Olgudóttir í vísindahorni dagsins fjallar um möguleg lyf við timburmönnum
Í Víðsjá í dag er meðal annars farið í ,,ímyndað" ferðalag upp á Gljúfrastein, og gengið í huganum um hús skáldsins, Halldórs Laxness. Gljúfrasteinn í þrívídd er nokkuð sem safnið býður upp á þessar vikurnar á tímum samkomubanns. Rætt verður við safnstjórann, Guðnýju Dóru Gestsdóttur ,í Víðsjá í dag. Ágúst Ó. Georgsson, þjóðháttafræðingur og starfsmaður Þjóðminjasafns Íslands, verður tekinn tali um spurningalista „spurningaskrá 128 - Lífið á tímum kórónaveirunnar“ sem safnið er að senda frá sér þessa dagana og biður sem flesta um að taka þátt í. Og bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni er skáldsagan Rotturnar eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur. Um er að ræða spennusögu eða ungmennabók á mörkum vísindaskáldskapar, bók sem kom út árið 2018. Hlustendur heyra í Ragnheiði í Víðsjá í dag. Og þeir heyra líka ljóð fyrir þjóð.
Morgunkaffið var í sumarlegum gír í dag þegar sól skín í heiði á öllu sunnanverðu landinu og rúmlega það. Björg og Gísli Marteinn voru í þrusu-sumargír og drógu fram hvern sumarsmellinn á fætur öðrum til að koma þjóðinni algerlega út í daginn. Gestir þáttarins voru þær Guðrún Sóley Gestsdóttir fjölmiðlakona og Rán Flygering teiknari. Ýmislegt bar á góma; menning, matur, list, kaffi og sitthvað fleira. Ótrúlegt en satt þá eru þær báðar arkitektadætur.
Víðsjá 16.5.2019 Á laugardag, 18. maí, er áratugur frá því að langvinnu og blóðuðu borgarastríði lauk á Srí Lanka. Í Víðsjá í dag ferðumst við til þessarar litlu paradísareyju í Indlandshafi og skoðum hvernig heimamenn minnast stríðslokanna. Skoðaðir verða minnisvarðar um stríðið og því velt upp hvað þeir geta sagt um framtíð landsins. Gígja Hólmgeirsdóttir á útstöð RÚV á Akureyri fer fyrir okkur í Listasafn Akureyrar og ræðir við Hlyn Hallsson, safnstjóra,um vorsýningu safnsins sem opnar um helgina. Halla Þórlaug Óskarsdóttir sendir pistil frá Gautaborg. Að þessu sinni fjallar hún um eyjur, tímaleysi og mikilvægi þess að treysta þ ví sem heimurinn birtir manni á hverri stundu. Auk þess verður rætt við Guðnýju Dóru Gestsdóttur safnakonu og formann Íslandsdeildar Icom um Alþjóðlega safnadaginn sem er á laugardaginn og áskoranir í starfi safna. En fyrst er rætt við Arndísi Björk Ásgeirsdóttur sem er með íslenska tónlist á tónskáldaþinginu Rostrum í Argentínu þessa dagana. Umsjón Guðni Tómasson og Kristján Guðjónsson.
Máttur samfélagsmiðla er mikill, því kynntist María Hjálmarsdóttir á Eskifirði þegar hún ákvað að biðja vini um að deila auglýsingu eftir Au-Pair á Facebook. Umsóknirnar hafa streymt inn og hún endaði í viðtali á danskri útvarpsstöð. Við heyrðum í Maríu. Tuttugu þúsund milljarða fyrirtækið Disney þekkja flestir og framundan er fræðslufundur um þetta fyrirtæki þar sem það verður krufið í bak og fyrir. Björn Berg Gunnarsson, frá Íslandsbanka, sagði okkur frá þessu merkilega fyrirtæki. Bestu ráðin sem ég get gefið fólki í upphafi óþarfavertíðarinnar sem nú fer í hönd er að hætta að taka þátt í þessu rugli. Sniðgöngum verslanir sem auglýsa svartan föstudag. Hættum að gefa leynivinum óþarfa. Komum skilaboðum til jólasveinanna um að hætta að gefa börnum óþarfa í skóinn. Þetta segir Stefán Gíslason, umhverfisstjórnuarfræðingur, í nýlegum pistil sem flaug víða á netinu og var fluttur á Rás 1 á dögunum. Hann kom til okkar og ræddi um neysluhyggju. Guðrún Sóley Gestsdóttir fjölmiðlakona er matgæðingur mikill og vill helst sveittan og djúsí mat eins og hún segir sjálf. Guðrún Sóley lítur þó ekki við kjöti og gerir sína sveittu borgara að Vegan sið. Hún gaf út matreiðslubók á dögunum og kíkti til okkar og sagði okkur betur frá. Tónlist: Guðrún Gunnars - Eilífa tungl. Lay Low - Bye bye troubles. Fleetwood Mac - Gypsy. Keane - Somewhere only we know. Simple Minds - Someone, somewhere in summertime. Kaleo - Way down we go. Svala - Karma. Ultravox - Dancing with tears in my eyes. Jónas Sig. - Dansiði.
Út er komið þriðja bindi af ritsafninu Smásögur heimsins, bindið hefur að geyma sögur frá Asíu og Eyjaálfu. Það eru þau Jón Karl Helgason, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Rúnar Helgi Vignisson sem hafa umsjón með útgáfunni en við ræðum við Rúnar Helga í þætti dagsins. Við heimsækjum Berg Contemporary galleríið við Klapparstíg þar sem bandaríski listmálarinn John Zurier verður tekinn tali en sýning með verkum hans var opnuð í galleríinu um síðustu helgi. Zurier dvelur nokkra mánuði á ári hér á landi og kallar sýningun sína Stundum (yfir mig fjallið). Ragnheiður Gestsdóttir myndlistarkona tekur áskorun vikunnar og velur sitt uppáhalds listaverk og Guðbjörg Jóhannesdóttir umhverfisheimspekingur flytur hlustendum sinn annan pistil. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir. Viðmælendur eru myndlistarmennirnir Sara Riel og Þrándur Þórarinsson. (Áður á dagskrá 28. júlí 2018)
Gestir þáttarins eru Gestur Ólafsson arkitekt og dóttir hans Guðrún Sóley Gestsdóttir fjölmiðlakona, en þau gengu saman á Kilimanjaro. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Gísli Marteinn Baldursson fjallar um hinar vinsælu teiknimyndabækur um blaðamanninn Tinna og höfundinn Hergé. Viðmælandi: Björn Thorarensen. Lesarar: Guðrún Sóley Gestsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson og Einar Þorsteinsson.