Podcasts about bjarkar gu

  • 8PODCASTS
  • 20EPISODES
  • 1hAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Jan 28, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about bjarkar gu

Latest podcast episodes about bjarkar gu

Lestin
DeepSeek, Gummersbach, Björk Guðmundsdóttir

Lestin

Play Episode Listen Later Jan 28, 2025 56:35

Við ræðum við Róbert Bjarnason, frumkvöðul og sérfræðing í gervigreind, um nýtt gervigreindartól sem kemur frá Kína, DeepSeek. Hver er munurinn á DeepSeek og OpenAi og ChatGPT? Er eitthvað merkilegt við DeepSeek? Hallveig Kristín Eiríksdóttir, sviðslistakona, er hugsi eftir HM í handbolta. Það hafa margir íslendingar spilað með Gummersbach. Hvar er Gummersbach og hvernig bær er það? Kornukópía nefnist tónleika kvikmynd Bjarkar Guðmundsdótttur sem frumsýnd verður 1. febrúar, fyrst á Íslandi, síðar um heim allan. Leikstjóri myndar er Ísold Uggadóttir, framleiðandi Sara Nassim. Myndin byggir að mestu á tónlist af plötu hennar Utopia, þar sem hún kemur inn á mál sem eru henni hugleikin, þar á meðal umhverfismál, jafnrétti og femínisma. Björk sest niður með Önnu Gyðu Sigurgísladóttur í þætti dagsins.

Samfélagið
Leiðtogafundur. Kolefnhlutleysi á kostnað náttúru? Ruslarabb. Pistill.

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 9, 2023

Það styttist í leiðtogafund Evrópuráðsins - hann fer fram í Hörpu 16. til 17. maí næstkomandi og þá koma hingað um 900 erlendir gestir. Leiðtogum 46 ríkja er boðið og auk þeirra hefur fulltrúum frá áheyrnarríkjunum fimm, Bandaríkjunum, Páfagarði, Japan, Kanada og Mexíkó, verið boðið að taka þátt á fundinum. Þá hefur leiðtogum Sameinuðu Þjóðanna, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og Evrópusambandsins verið boðið, auk þess sem æðstu stjórnendur allra helstu stofnana Evrópuráðsins sækja fundinn. Öllu þessu fólki fylgir fjölmennt lið. Nokkur hundruð fjölmiðlamenn verða hér líka til að flytja fréttir af fundinum. Þessum fundi fylgir gríðarleg öryggisgæsla á skala sem við þekkjum ekki hér í okkar fámenna samfélagi. Undirbúningurinn er viðamikill og hvílir að stórum hluta á herðum Ríkislögreglustjóra, Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur. Hún verður gestur okkar rétt á eftir. Við ætlum svo að ræða um kolefnishlutleysi Íslands og þýðingu þeirrar vegferðar fyrir islenska náttúru - þetta er vandrataður stígur þar sem eitt má helst ekki vera á kostnað annars. Hingað kemur forstjóri Náttúrufræðistofnunar Eydís Líndal Finnbogadóttir og Snorri Sigurðsson sviðstjóri náttúruverndar hjá Náttúrufræðistofnun. Ruslarabb um límmiða, plástra og límband. Svo fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.

Samfélagið
Leiðtogafundur. Kolefnhlutleysi á kostnað náttúru? Ruslarabb. Pistill.

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 9, 2023 55:00

Það styttist í leiðtogafund Evrópuráðsins - hann fer fram í Hörpu 16. til 17. maí næstkomandi og þá koma hingað um 900 erlendir gestir. Leiðtogum 46 ríkja er boðið og auk þeirra hefur fulltrúum frá áheyrnarríkjunum fimm, Bandaríkjunum, Páfagarði, Japan, Kanada og Mexíkó, verið boðið að taka þátt á fundinum. Þá hefur leiðtogum Sameinuðu Þjóðanna, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og Evrópusambandsins verið boðið, auk þess sem æðstu stjórnendur allra helstu stofnana Evrópuráðsins sækja fundinn. Öllu þessu fólki fylgir fjölmennt lið. Nokkur hundruð fjölmiðlamenn verða hér líka til að flytja fréttir af fundinum. Þessum fundi fylgir gríðarleg öryggisgæsla á skala sem við þekkjum ekki hér í okkar fámenna samfélagi. Undirbúningurinn er viðamikill og hvílir að stórum hluta á herðum Ríkislögreglustjóra, Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur. Hún verður gestur okkar rétt á eftir. Við ætlum svo að ræða um kolefnishlutleysi Íslands og þýðingu þeirrar vegferðar fyrir islenska náttúru - þetta er vandrataður stígur þar sem eitt má helst ekki vera á kostnað annars. Hingað kemur forstjóri Náttúrufræðistofnunar Eydís Líndal Finnbogadóttir og Snorri Sigurðsson sviðstjóri náttúruverndar hjá Náttúrufræðistofnun. Ruslarabb um límmiða, plástra og límband. Svo fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.

Mannlegi þátturinn
Íslenska glíman, skýrsluvinkill og Margrét lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 17, 2023 50:00

Fyrr á öldum þótti enginn maður með mönnum nema hann væri hlutgengur í glímu. Smalar tóku eina bröndótta sér til hita, glímt var eftir kirkjuferðir og í landlegum vermanna. Glíman telst til þjóðlegra fangbragða en af þeim eru þekktar um 150 tegundir um víða veröld. Glíman sker sig úr öllum öðrum fangbrögðum á þrennan hátt: Upprétt staða, stígandinn og svo níð. Um helgina fór fram 112. Íslandsglíman og keppt var um Grettisbeltið í karlaflokki og Freyjumenið í kvennaflokki en sigurvegararnir hlutu sæmdarheitin Glímukóngur og Glímudrottning Íslands. Margrét Rún Rúnarsdóttir formaður Glímusambands Íslands kom í viðtal í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni skúffuskáldi og þjóðfræðiáhugamanni úr Flóanum. Í dag lagði Guðjón vinkilinn að skýrslum. Að lokum var það lesandi vikunnar, í þetta sinn er það Margrét Bjarnadóttir. Hún er danshöfundur og listakona. Hún vinnur jöfnum höndum með dans- og performanslist, ljósmyndir, myndbandsverk, glerverk, teikningar og skrif. Hún, til dæmis, vann nýlega með Ragnari Kjartanssyni og tónlistarmanninum Bryce Dessner sýninguna No Tomorrow, sem hlaut Grímuverðlaun og ferðaðist víða um heim. Margrét samdi sviðshreyfingar fyrir nýjustu tónleikaferð Bjarkar Guðmundsdóttur, Cornucopia. En við fengum auðvitað að heyra hvaða bækur Margrét hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bækurnar sem Margrét talaðu um voru: Getting Lost, Staðurinn og fleiri bækur eftir Annie Ernaux Líkaminn geymir allt e. Bessel Van Der Kolk My Phantoms e. Gwendoline Riley Tónlist í þættinum í dag: Gamla Kvíabryggja / Sigurður Ólafsson (Svavar Benediktsson og Guðmundur Guðmundarson) Sigtryggur vann / Hinn íslenski þursaflokkur (Egill Ólafsson) Autum leaves / Hljómsveit Björns R. Einarssonar (Joseph Kosma) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Íslenska glíman, skýrsluvinkill og Margrét lesandinn

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 17, 2023

Árið í Lestinni

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 28, 2022 55:00

Við lítum til baka yfir farinn veg í Lestinni í dag og rifjum upp þrjú innslög sem öll eiga það sameiginlegt að vera innlegg í menningarumræðuna. Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir rýndi í raunveruleikaþættina LXS og velti fyrir sér hvort að um branded entertainment, svokallað markað skemmtiefni, væri að ræða. Í apríl bárust fréttir af stolinni bronsstyttu, styttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur og syni hennar Snorra, sem ber heitið Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku. Kristján Guðjónsson hitti listakonurnar Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur og ræddi við þær um verk þeirra fyrsta hvíta móðirin í geimnum. Styttuþjófnaðurinn og verkið voru sennilega með umdeildari listgjörningum á árinu sem er að líða. Davíð Roach flutti pistil í október um Fossora, nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur. Davíð var ekki hrifinn af plötunni og í kjölfarið spruttu upp umræður um tónlistargagnrýni og hvort þetta flokkaðist yfirhöfuð sem slík.

Lestin
Árið í Lestinni

Lestin

Play Episode Listen Later Dec 28, 2022

Wolka, bensínstöðvar, Hvunndagshetjur og Björk Orkestral

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 11, 2021 55:00

Í kvöld fara fram fyrstu tónleikarnir í tónleikaseríu Bjarkar Guðmundsdóttur, Björk Orkestral. Upprunalega áttu tónleikarnir að fara fram í Frakklandi, Englandi, Rússlandi, Finnlandi og Þýskalandi - sumarið 2020. Eðli málsins samkvæmt, varð lítið úr því ferðalagi en þess meiri er ávinningur Íslendinga sem njóta órafmagnaðrar tónlistar Bjarkar í Hörpu, og í beinum útsendingum á Rás 1 og RÚV 2 næstu vikurnar. Viktor Orri Árnason, stjórnar strengjasveit Sinfóníunnar á tónleikum kvöldsins og segir okkur frá því sem í vændum er. Borgarlína, reiðhjólabylting, rafhlaupahjól og rafbílar, samgöngur eru að taka stakkaskiptum. Enn um sinn munum við nýta innviðina sem bensínbílarnir krefjast, götur, hraðbrautir, umferðarfléttur og bílastæði, en þau mannvirki sem munu kannski helst verða gagnslaus á rafbílatímum eru bensínstöðvarnar. Við veltum fyrir okkur sögu og framtíð bensínstöðva í lestinni í dag, við heimsækjum minjastofnun íslands og reiðhjólaverslunina Berlín sem hefur komið sér fyrir í gamalli bensínstöð við Háaleitisbraut. Ásgeir H Ingólfsson rýnir í tvær kvikmyndir á Riff, reykjavík international film festival, sem lauk um helgina. Myndirnar eiga það sameiginlegt að fjalla um konur af erlendum uppruna á Íslandi. Sú fyrri er heimildarmyndin Hvunndagshetjur um fjórar konur sem eiga það sameiginlegt að hafa búið á Íslandi í tuttugu ár. Fæddar í Bosníu, Jamaíku, Póllandi og Tyrklandi og sú seinni er Wolka, síðasta mynd leikstjórans Árna Ólafs Ásgeirssonar sem lést fyrr á árinu, og fyrsta leikna íslenska myndin sem gefur nána innsýn í pólskt samfélag hér á landi.

Lestin
Wolka, bensínstöðvar, Hvunndagshetjur og Björk Orkestral

Lestin

Play Episode Listen Later Oct 11, 2021

Morgunvaktin
Veðrið var hjartsláttur þjóðarinnar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 7, 2021 130:00

Afkoma fjarskiptafyrirtækjanna var til umfjöllunar í spjalli um efnahag og samfélag. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, fór yfir ólíka afkomu þeirra og sölu á ónýttum fjarskiptainnviðum. Hann fór einnig yfir vexti og vaxtaþróun á Íslandi og áhrif þess á afborganir heimila af lánum. Arthúr Björgvin Bollason rýndi í stöðuna í þýskum stjórnmálum en Þjóðverjar ganga að kjörborðinu 26. september. Töluverðar sveiflur hafa orðið á fylgi flokkanna þar í landi síðustu vikurnar. Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur hjá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Ströndum, fjallaði um þjóðtrú og veðurfar í meistararitgerð sinni í þjóðfræði og rannsakaði meðal annars alþýðlegar veðurspár Íslendinga fyrr og nú en veðrið var hjartsláttur þjóðarinnar og er enn þann dag í dag stór hluti af orðræðunni, ekki síst þegar fólk kemur saman og það þarf að brjóta múrinn í spjalli manna á milli. Tónlistin í þættinum: Tondeleyó eftir Sigfús Halldórsson í flutningi Bjarkar Guðmundsdóttur og Tríós Guðmundar Ingólfssonar. Lifes goes one eftir Mikis Theodorakis og Regndropar falla við hvert fet með Engilbert Jensen.

Morgunvaktin
Veðrið var hjartsláttur þjóðarinnar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 7, 2021

Tímaflakk með Bergsson og Blöndal
Tímaflakk með Bergsson og Blöndal 19. apríl 2020

Tímaflakk með Bergsson og Blöndal

Play Episode Listen Later Apr 19, 2020

Bergsson og Blöndal heilsa og bjóða upp á enn eitt tímaflakkið og grúskum í því sem gamalt er og tilheyrir þessari þriðju viku aprílmánaðar. Árin sem urðu fyrir valinu í dag eru: - fæðingarár Sigurðar Sigurjónssonar, Steingríms J Sigfússonar, Sigrúnar Hjálmtýsdóttur - Diddúar, Guðmundar Árna Stefánssonar og Einars Kárasonar sem er þá árið 1955 og þaðan höldum við svo til ársins 1965 sem er t.d. fæðingarár Bjarkar Guðmundsdóttur. Í seinni hluta þáttar eru það svo árin 1975en það er t.d. fæðingarár knattspyrnukappanna Árna Gauts Arasonar og David Beckham - og svo endum við á fæðingarári Halldórs Laxness Halldórssonar, Dóra DNA, 1985 Tímaflakk með Bergsson og Blöndal er alla sunnudaga kl. 15.02 á Rás 2

Sumargjöf Rásar 2
Björk í 50 ár - Árni Matthíasson

Sumargjöf Rásar 2

Play Episode Listen Later Jun 12, 2019

Árni Matthíasson fer yfir tónlistarferil Bjarkar Guðmundsdóttir í tilefni 50 ára afmæli hennar. Seinni þáttur Þátturinn var á dagskrá Rásar 2 árið 2016

matth seinni bjarkar gu
Sumargjöf Rásar 2
Björk í 50 ár - Árni Matthíasson

Sumargjöf Rásar 2

Play Episode Listen Later Jun 12, 2019

Árni Matthíasson fer yfir tónlistarferil Bjarkar Guðmundsdóttir í tilefni 50 ára afmæli hennar. Fyrri þáttur Þátturinn var á dagskrá Rásar 2 árið 2015

matth fyrri bjarkar gu

Björk, Like-takkinn, Listin og listamaðurinn

Lestin

Play Episode Listen Later May 14, 2019 55:00

Í Lestinni í dag er meðal annars fjallað um Cornucopia-tónleikaröð Bjarkar Guðmundsdóttur sem nú stendur yfir í menningarmiðstöðinni The Shed í New York. Hér er á ferðinni mikið sjónarspil sem vakið hefur mikla athygli, sjálf hefur Björk kallað viðburðinn stafrænt leikhús. Fyrstu tónleikarnir fóru fram fyrir viku en þeir síðustu verða 1. júní. Útsendari Lestarinnar, Freyr Eyjólfsson, var í The Shed á mánudagskvöld, og gefur skýrslu í Lestinni í dag. Í þriðju útgáfa veftímaritsins Flóru er að finna 11 greinar, um brennandi og áleitin málefni, allt frá höfuðklútanotkun yfir í núvitund á tímum loftslagsröskunnar. Er hægt að aðskilja list frá listamanni? heitir ein grein útgáfunnar. Þar skrifar Steinunn Ólína Hafliðadóttir um mörk listaverka og listamanna og veltir því fyrir sér hvort hægt sé að njóta listar án tenginga við bakgrunn og athafnir listamannsins sjálfs. Rætt verður við Steinunni í Lestinni í dag. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar um like-takkann.

Grár köttur
Draumórar

Grár köttur

Play Episode Listen Later May 10, 2019

Í Gráum ketti dagsins er fjallað um drauma og draumóra. Við skyggnumst í gamlar sögur af berdreymi, heyrum af draumi um barn og kynnum okkur banvæna hugaróra eltihrellis Bjarkar Guðmundsdóttur. Þátturinn inniheldur atriði sem kunna að valda óhug.

bjarkar gu
Spegillinn
Spegillinn 03.05.2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 3, 2019 30:00

Spegillinn 03.05.2019 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Fjármálaráðherra segir að velta megi fyrir sér hvernig samskipti Isavia ætlar að eiga við skulduga viðskiptamenn í framtíðinni. Hvorki hann né samgönguráðherra gera athugasemdir við afgreiðslu félagsins á skuldum WOW. Rætt við Sigurð Inga Jóhannsson samgönguráðherra Níu hafa fundist látin eftir að báti með flóttafólki hvolfdi undan ströndum Tyrklands. Til stóð að smygla hópnum til grísku eyjarinnar Lesbos. Hreiðar Hermannsson hótelstjóri á Stracta hóteli er hættur við að reyna að stofna íslenskt lágfargjaldaflugfélag. Hann vinnur áfram að því að auka sætaframboð til Íslands. Rætt við Hreiðar Hermannsson, hótelstjóra Valur Lýðsson, bóndi að Gýgjarhóli II í Biskupstungum, var í Landsrétti í dag dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir að verða bróður sínum að bana í fyrravor. Þetta er helmingi þyngri dómur en Valur hlaut í héraði. Rætt við Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að samningur iðnaðarmanna marki tímamót. Hann eigi eftir að auka lífsgæði félagsmanna. Rætt við Kristján Þórð Snæbjarnarson, formann Rafiðnaðarsambandsins. Arnar Páll Hauksson, ræddi við hann. Íslensk stjórnvöld hafa styrkt Hamrahlíðarkórinn um fimm milljónir króna, svo kórinn geti sungið á tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur í New York næsta mánuðinn. Rætt við Lilju Alferðsdóttur, menntamálaráðherra Alvarlegum bifhjólaslysum á þungum bifhjólum hefur fækkað um rúman helming á einum áratug. Sérfræðingur segir ökumenn einfaldlega vera betri en þeir voru. Rætt við Einar Magnús Magnússon, sérfræðingu á öryggis- fræðsludeild Samgöngustofu Jón Kristinsson, íslenskur arkitekt og frumkvöðull í umhverfismálum segir að Reykvíkingar ættu að koma á jarðlestarkerfi í Reykjavík. Jón er þekktur er víða sem faðir sjálfbærrar byggingarlistar. Rætt verður við hann í Speglinum. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hann. Og við heyrum frægt Bítlalag flutt á Mi'kmaq máli - túlkun sem slegið hefur í gegn í Kanada. Hætta er talin á að hátt í 90 prósent tungumála heimsins deyi út fyrir næstu aldamót. Árið 2019 er ár frumbyggjatungumála hjá Sameinuðu þjóðunum. Kristján Sigurjónsson sagði frá