Podcast Von Ráðgjafar fjallar um samskipti og margt fleirra. Við leitumst við að skoða málin frá mannlegu og fræðilega sjónarmiði.
Von ráðgjöf - Það er til betri leið
Send us a textVon Ráðgjöf: Skilningur á framhjáhaldi – mismunandi birtingarmyndir þess í samböndumÍ þessum þætti ræða Barbara og Baldur, stjórnendur hlaðvarpsins Von ráðgjöf um fjölbreyttar tegundir framhjáhalds í parsamböndum sbr., líkamlegt, tilfinningalegt og andlegt framhjáhald. Hvernig getum við greint þessi form framhjáhalds, og hvaða áhrif hafa þau á parsambandið? Hlustendur fá innsýn í hvernig tilfinningalegt framhjáhald, sem oft byrjar sem saklaus vinátta, getur vaxið í eitthvað miklu dýpra. Sérstaklega áhugavert er hvernig klámnotkun getur skapað tilfinningalega fjarlægð og orðið form af tilfinningalegu og andlegu framhjáhaldi, í þættinum skoða B&B líka hvernig andlegt framhjáhald – þegar einhver verður hugfangin af hugsunum/fantasíum sínum – getur valdið sundrungu í samböndum.Í þættinum verður einnig rýnt í hvernig sambönd geta náð bata eftir framhjáhald og hvernig pör geta unnið saman að því að endurheimta traust og tengsl. Hlustið á þáttinn og fáið innsýn inn í hvort og þá hvernig meðferð getur hjálpað pörum að takast á við þessa erfiðu reynslu.Lykilorð: • Framhjáhald í samböndum • Líkamlegt framhjáhald • Tilfinningalegt framhjáhald • Klám og svik • Andlegt framhjáhald • Traust og nánd • Sambandsráðgjöf
Hér förum við yfir hvernig við getum styrkt parsambandið með uppbyggilegum hætti þrátt fyrir átök. Við lærum að takast á við ágeining – um leið og hann kemur uppVið lærum að meta aðstæður, er þetta eitthvað sem er vert að ræða og leysa?Við lærum að hvað það þýðir að vera vistaddur á meðan á ágreiningi stendurVið lærum að setja grunnreglur í samskiptum á meðan á ágreiningi stendurVið lærum aðferð/ir til að ná okkur niður í hita leiksins og róa okkur niðurVið lærum inn á árangursríka samskiptahæfni – t.d. að nota ég staðhæfingar Við lærum einnig „viðgerð eftir átök“ – „do you wan´t to be right or do you wan´t to be happy? Munið að við erum komin á youtube
í þessum þætti förum við yfir Gildi Vonarinnar. Fjöllum um mikilvægi þess að eiga von, Vonina sem er vogaraflið milli þess mögulega og ómögulega. Við leitumst líka við að svara spurningu sem kom inn frá einum hlustanda. Eigið góða daga framundan.
I þessum þætti ætlum við að ræða um tengsl og ávinning þess að eiga í góðum tengslum við fólk sem að marga ef ekki að allra mati er lífsnauðsynlegur þáttur til að öðlast hamingju. Endilega deilið þessu fyrir okkur! Hérna er meira um píramýda Maslowhttps://www.simplypsychology.org/maslow.html
Í þessum þætti tölum við um gildi Sjálfsmyndar. Hversu mikilvægt það er að eiga heilbrigða og sterka sjálfsmynd og ávinninginn af því að stuðla að heilbrigðri sjálfsmynd. Við vonum að þið njótið vel og þökkum kærlega fyrir hlustunina.
í þessum þætti tölum við aðeins um að hafa stjórn á orðum okkar. Það sem við segjum getur haft ótrúlega sterk og mikil áhrif á fólk í kringum okkur. Annað hvort slæm eða góð. Taumhald er þjálfun sem fæst með stöðugri og samviskulegri ástudnun. Við höfum getuna til að skapa góðar jafnt sem slæmar aðstæður með mættinum sem liggur í orðum okkar. Gættu þess því hvaða orð líða af vörum þínum: Framtíð þín veltur á því!
Í þessum þætti förum við yfir gildið að hlusta og áhrif þess á okkur sem einstaklinga og pör. Getur það haft áhrif á raunveruleika okkar sem og samskipti að læra að hlusta á aðra? Endilega deilið þættinum fyrir okkur og við þökkum ykkur kærlega fyrir að gefa ykkur tíma til að hlusta á okkur.
Í þessum þætti förum við yfir gildi þess að skilja fólk. Við munum ræða um tengslamiðuð samskipti í þessari nýju þáttaröð.
Jæja það hlaut að koma að því að við færum yfir upphafið. Hérna kemur það.Við viljum bjóða hlustendum okkar að versla bókina á https://baldurfreyr.isNotist við afsláttarkóðan von og fáið 10% afslátt og auk þess fáið þið fría heimsendingu. Veljið bara að sækja bókina og sendið okkur póst á baldur@lausnin.isNjótið og deilið :)
Við tölum aðeins um hvað það þýðir að hafa virði, erum við öll jöfn?Hvað hefur áhrif á það hjá mér?Hvernig hafa áföll áhrif á mig og hvað er til ráða :)Njótið
Þessi reiðmenn eru ferlegir!Reiðhestur no 1Gagnrýni, Reiðhestur no 2Vörn Reiðhestur no 3FyrirlitningReiðhestur no 4: Steinveggur
“Áður en leiðir skilja og 6 sek kossinn”Áður en leiðir skilja á morgnanna, verjið 2 mín í að spjalla við maka ykkar til að uppgötva allavega einn áhugaverðan viðburð sem mun eiga sér stað um daginn hjá honum/henni. Munið svo að kveðja hvert annað með kossi sem endist allavega í 6 sekúndur (þekktur sem 6 sek. kossinn). Þetta gerið þið svo alla virka daga. “Aðdáun/ástúð og þakklæti/þakklátssemi”Til að viðhalda innilegu parsambandi þurfum við að gera og tjá ákv. þætti/hluti. Það er ekki nóg að hafa góðar, þekklátar hugsanir um makann, það er mjög mikilvægt að orða þær upphátt og láta hann/hana vita. Regluleg tjáning aðdáun og þakklæti gagnvart maka hjálpar okkur að byggja upp ástargrunn. Hér eru nokkrar aðferðir til þess: · Deildu einhverju karaktereinkenni maka og ákv. atvik þar sem þetta karaktereinkenni kemur sterkt fram: Dæmi: Ég dáist að því hvað þú ert (umhyggjusöm, nærgætin, góð, kröftug, blíð, ljúf og skilningsrík) sérstaklega áðan þegar þú varst að leika við barnið okkar.· Gríptu maka þinn að því að gera eitthvað “rétt” og þakkaðu fyrir það· Sendu tölvupóst/sms eða hringdu yfir daginn og láttu maka þinn vita að þú sért að hugsa til hans/hennar· Stingdu skrifaðri ástarkveðju í bílinn/veskið hennar/hansHeilsaðu maka þínum með kossi þegar þið hittist. Finnið svo tíma þar sem þið getið átt samræður sem losa um streitu í líkamanumÁrangur ykkar til að halda utan um streitu skiptir sköpum fyrir parsambandið. Rannsóknir hafa sýnt að pör sem hafa náð að halda utanaðkomandi streitu frá parsambandinu sínu eins og hægt er gátu viðhaldið jákvæðum breytingum í sambandinu til lengri tíma.
Makinn hlustar ekkert á mig. Við heyrum þessa setningu svo oft og er hun grunnurinn að tengslaleysi. Í þessum þætti skoðum við hvernig ég get orðið góður hlustandi!Æfið ykkur endilega á þessu1Spurningar sem þú getur spurt á meðan þú hlustar: 1. Hvað ertu að upplifa?2. Hvað annað ertu að upplifa?3. Hverjar eru grunnþarfir þínar hérna?4. Hvers óskar þú þér helst?5. Hvernig þróaðist þetta allt?6. Hverjir eru aðal karakterarnir í þessum grunn tilfinningum sem þú ert að tala um? 7. Hvað viltu raunverulega segja hérna? Og við hvern?8. Hvaða tilfinningar eru hér sem þú óttast að tala um?9. Eru einhverjar blandaðar tifinningar hér? Hverjar eru þær?10. Hverjir eru valmöguleikar þínir eins og þú sérð þá?11. Hverjir eru + og - við valmöguleika þína?12. Upplifir þú að þetta hafi haft áhrif á samband þitt (eða önnur sambönd) ef svo, hvernig?13. Er einhver möguleiki á að þú hafir viljað gera hlutina öðruvísi? Ef svo, hvernig?14. Hverjar eru skyldur þínar hér?15. Áttu einhverja möguleika?16. Hvers væntir þú af mér?17. Hvað segja gildi þín þér hérna?18. Hugsaðu um einhver sem þú lítur upp til, hvað myndi hann eða hún gera og hvernig myndi viðkomandi sjá þessar aðstæður? Tjá skilning og samkennd á meðan þú hlustar: 1. Ég get sett mig í þín spor 2. Þú hlýtur að upplifa þessar aðstæður erfiðar/vonlausar3. Þú ert í erfiðum aðstæðum hérna4. Ég get fundið sársauka þinn5. Ég vildi óska að þú þyrftir ekki að upplifa þetta6. Þetta hljómar virkilega illa og hlýtur að taka á7. Þú hlýtur að upplifa þig hjálparlausa/n8. Ég er algjörlega sammála þér9. Þú hljómar virkilega sannfærandi 10. Ég skil mjög vel að þú sért í uppnámi11. Ég held þú hafir rétt fyrir þér hérna12. Ég skil, leyfðu mér að draga þetta saman, það sem þú ert að upplifa hér er... Hlustunar æfing: Skiptist á að spyrja hvert annað þessara spurninga: Notaðu þá listann á undanförnum bls. til að hjálpa þér að verða góður hlustandi Segðu mér hvað í heiminum fær þig til að upplifa þessar tilfinningar: Reiði sorg hrædd/ur/áhyggjufull/ur vonglaða/nHamingjusama/nBjartsýn/nÖrvængingarfull/urStreitufulla/n
Dagleg samskipti okkar við makan stuðla að því að við lærum að tengjast! Þessi samskiptauppskrift heldur okkur frá ágreiningi
Það eru margar leiðir til að læra af átökum sem við eigum í við ástvini okkar. Þessi þáttur fer í að útskýra nokkrar aðferðir
Við þurfum öll að fara í ráðgjöf :)
Mín börn og þín börn!Við leitumst við að skoða þetta aðeins saman.Munum bara að tengsl eru það sem allir þrá!
Við tölum aðeins um tilfinningar og raunveruleika þeirra :)Endilega deilið þessu fyrir okkur :)
Fyrst langar okkur að þakka þér fyrir að deila þessu hlaðvarpi með öðrum! Það er ótrúlega hvetjandi að heyra viðbrögð ykkar allra! Þið megið endilega gefa okkur umsögn á Itunes :)Við svörum spurningu frá hlustanda í þessum þætti og förum vel í það hversu mikilvægt það er að laga samskiptin þegar við erum farin að upplifa að makinn elski okkur ekki lengur.Við minnum á námskeið sem við erum með 18. apríl Haltu mér þétt hægt að kaupa miða á Lausnin.is
Við höldum áfram að tala um gleðina og mikilvægi hennar í okkar daglega lífi. 1. Mikilvægi þess að sýna samkennd eða hjartans meðaumkun og sjá hlutina með hjartasýn okkar.2. Mikilvægi þess að sleppa sjálfshyggjunni sem er andstæða hjartasýnarEndilega deilið þessu fyrir okkur og njótið :)
Við höldum áfram að tala um gleðina. Við tölum hérna um hversu mikilvægt er að vera með orðlaus samskipti sem eru líkamstjáning okkar og raddblær. Við tölum um mikilvægi þess að láta ekki tilfinningarnar okkar ráða og halda okkur í vanlíðan.Hvernig við getum haldið okkar auðkenni þrátt fyrir að upplifa slæmar tilfinningar!
Við höldum áfram að tala um gleðina.Sjá kjarnavirði sársaukans og segja samstillta frásögu eru gildi vikunnar.
Við höldum áfram að dvelja við þetta frábæra viðfangsefni. Gleðin er eitthvað sem við getum þjálfað heilan okkar uppí að læra.Við tölum um að móta tengsl fyrir tvo, skapa umhverfi þakklætis og fjölskyldubönd. Við vonum að þú njótir þess að hlusta á þetta og endilega deila þessu með fólki!
Í þættinum hefjum við nýtt þema: GleðiVið skoðum færni 1-17 sem unnin er af Chris Courseysem er félagsfræðingur og tengir Gleðina við líffræðina. Við óskum ykkur svo gleðilegs árs og þökkum fyrir samfylgdina á liðnu ári. Hlökkum til að takast á við nýtt ár og breiða út boðskapinn.Færni 1Að deila Gleði Færni 2 Að sefa sigEf þið viljið bóka viðtal hjá Baldri eða Barböru eða á námskeið Lausnarinnar farið á Lausnin.is
Við förum aðeins inná heilbrigð mörk og hvað það þýðir að segja nei. Hvernig getum við lifað og haft stjórn á okkur.Við skoðum áhrifin sem val hefur á líf okkar! Við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar!
Hvernig get ég lært að bera virðingu fyrir mér og ástvinum! Þessi þáttur gefur okkur verkfæri til að sjá hvernig við setjum mörk og heiðrum virði þeirra sem í kringum okkur eru!Við erum ótrúlega þakklát fyrir viðbrögðin ykkar við podcastinu og yrðum ykkur ótrúlega þakklát ef þið deilið því með öðrum. Panta tíma hjá BarböruPanta tíma hjá BaldriNámskeið sem lausnin er meðVerkefni!Settu 2-3 hluti sem þú ætlar að gefa forgang til að heiðra það sem er þér mikilvægt Guð/æðri máttur,Maki/Besti vinur,Börnin,Nánir vinir/fjölskylda,Vinnufélagar,Samfélag,Heimur Taktu þér tíma að hugsa og biðja hvar þú átt erfitt með að setja heilbrigð mörk í lífi þínu. Skrifaðu niður það sem kemur til þínSpyrðu 1 eða 2 af þínum nánustu ef þeir sjá einhverjar stillingar sem þurfa að vera gerðar til að samskiptin séu betri?
Við förum vel í það í þessum þætti hvernig við eigum að bregðast við þegar það á sér stað samskiptabrestur eða þegar einhver fer yfir mörkin mín. Hvernig getum við látið það leiða til dýpri tengingar. Það er velmögulegt að lifa í frelsi þegar kemur að tengingu og að leyfa tengingunni að dýpka þegar það koma upp brestir í samskiptum.Við erum afarþakklát fyrir hlustunina og viljum endilega heyra frá ykkur ef þið hafið spurninga eða annað slíkt sem við getum svarað.Linkar:Panta tíma hjá BarböruPanta tíma hjá BaldriNámskeið sem eru framundanVerkefni vikunnarStyrktu kjarna tengsla í kringum þig.Byrjaðu virðingarstamtöl með því að gera skýrt að þér þykir virkilega vænt um að mæta þörfum aðilansSendu og fáðu skýr skilaboðNeitaðu að taka þátt í samtölum sem halda ekki virðingu gagnvart þérVeldu að hafa kveikt á kærleikanum, eyddu óttanum, trúðu því besta um fólk og treystu þeim til að vera ekki samaEf þeim er sama: fyrirgefðu þeim þáFarðu nær þeim serm þú elskar líka þegar það er erfitt!
Við förum aðeins í berskjöldun í þessum þætti. Hvetjum fólk til að eiga betri jól en í fyrra. Við ræðum samskipti út frá meðvirkni og kærleika og hversu mikilvægt það er að hafa kærleikan að leiðarljósi í samskiptum.Við leyfum ekki óttanum að ræna okkur af sannleikanum því þar sem við lærum að tjá sannleikan hvert við annað þá náum við að búa til hring trausts. Þegar við erum í trausti þá lærum við að bregðast rétt við!Við minntum aðeins á námskeið sem eru á lausnin.isPanta tíma hjá BarböruPanta tíma hjá Baldri Verkefni vikunnarHvers þarfnastu í þínum nánu samskiptum?Hvernig getum við verið berskjölduð og heiðarleg í tjáningu á tilfinningum og þörfumHvernig get ég styrkt traustið við þá sem ég elska og deilt með þeim hvernig áhrif þeir eru að hafa á mig bæði gott og slæmt?Talaðu við einhvern í þessari viku og notaðu ég boð, skrifaðu niður hvernig það gengur Ég upplifi (tilfinning) þegar (útskýrðu upplifun) og ég þarf að upplifa (tilfinning)
Við erum að halda áfram með meðvirknina og hvernig við lærum að að lifa frjáls. Við töluðum um samskipta form og stíl sem við notum þegar við erum að tjá okkur út frá ótta.Við viljum leitast við að skilja alla og þurfa þar af leiðandi ekki að skilja við fólk. Það hjálpar okkur ótrúlega mikið að sjá og heyra hvernig við erum að bregðast við og leitast við að skilja hvað er raunverulega að gerast innra með okkur þegar við bregðumst við.Panta tima hjá BarböruPanta tíma hjá BaldriVerkefni vikunnar Taka eftir hvað þú hugsar, upplifir og þarf og ert að búast við og virtu þeirra virðiByrjaðu að gera það sama fyrir annað fólkSkoðaðu þig þegar þér langar að gera lítið úr upplifun einhvers eða hjarta þeirraHlustaðu til að skilja í samtali - sérstaklega til að skilja það sem einstaklingurinn er að finna eða hvers hann þarfnastLeitastu eftir lækningu frá fyrrum reynslum sem hafa leitt þig að því að óttast sannleika hjarta þíns og verða passífur, árasagjarn, passíft árásagjarn. Vertu raunverulegur við þig! Ef þú rennur í gamla stílinn gerðu þá það sem þarf til að gera hlutina rétt.Skrifaðu niður hugsanir þínar, vinnslu og velgengi.Aðeins þeir sem meta og skilja sjálfan sig geta metið og skilið aðra. Finnst þér þú virða og skilja sjálfan þig?Aðeins þeir sem geta sagt heiðarlega við sjálfan sig geta sagt heiðarlega við aðra. Finnst þér þú geta sagt heiðarlega við aðra? Hvað með að segja þarfir þínar til annarra? Útskýrðu
Við höldum áfram að spjalla um meðvirkni á áhrif hennar á samskipti okkar og mikilvægi þess að eiga góð samskipti við fólkið okkar.Við snertum aðeins á því mikilvægi að sýna fólki skilning í stað þess að dæma og hvernig við getum lifað lífinu okkar frjálsari með því að hafa stjórn á okkur sjálfum!Grunnurinn af góðum samskiptum er skilyrðislaus elska og að gefa okkur að fólk vilji okkur alltaf það besta.Svo eru það stólparnir 7 KærleikurHeiðurSjálfsstjórnÁbyrgðSannleikurTrúHugsjónMeð því að byggja svona samkskipti þá lifum við í friði, von og gleði! Smelltu læk á facebook hjá okkurPanta hjá BarböruPanta hjá BaldriMeðvirkninámskeið LausnarinnarVerkefni vikunnar!Myndiru segja að þín nánustu sambönd séu byggð þessum trausta grunni elsku? Afhverju? Afhvejru ekki?Horfandi á þessa sjö stólpa, hverja finnst þér þú hafa sett í sambönd þín nú þegar? Hvar geturu bætt þig?Gefðu mér nokkur dæmi um hvernig á að hafa heiður í samböndum?Hver er hugsjón þínfyrir þín persónulegu sambönd? Á hvaða hátt ertu að vinna þig að þessu?
Við skoðum í þessum þætti óttan og kærleikan út frá meðvirkninni! Við skoðum hversu mikilvægt það er að velja tengsl út frá kærleika í stað þess að velja að trúa því sem óttinn segir við okkur. Við förum aðeins í það að skilja tilfinninguna á bakvið hegðunina er það ótti eða kærleikur.Á góðum degi getum við aðeins stjórnað okkur sjálfum!Námskeið framundanDramalaus samskiptiMeðvirkninámskeið LausnarinnarPanta tíma hjá BarböruPanta tíma hjá BaldriVerkefni vikunnar:Spurðu sjálfa/n þig þessara spurninga. Trúi ég því að ég geti stjórnað öðru fólki? Hvernig stend ég mig í því að hafa stjórn á mér í stað þess að stjórna öðrum?Spurðu nú, hvað get ég gert betur í að stjórna mér? Hvað get ég gert til að vernda tenginguna þegar ég upplifi mig sáran/særða eða hrædda/nSegðu þetta upphátt Það er mitt verk að stjórna mér! Ég á ekki að stjórna öðru fólki. Ég fæ ekki að stjórna öðru fólki! Mitt aðalmarkmið og forgangur í samböndum er að byggja og vernda tenginguna.
Við höldum áfram að spjalla um meðvirkni og hvernig við getum losnað undan áhrifum hennar eða minkað áhrif meðvirkni í líf okkar. Við fengum til okkar góðan gest hann Theodór Francis sem er að halda námskeið ásamt Baldri í Meðvirkni þann 30 nóv. Hægt er að finna námskeið á heimasíðu lausnarinnar. Við leitumst við að vera kraftimikil og berskjölduð til að halda okkur frá meðvirkni!Verkefni vikunnar!Hvert er markmið í þínum nánustu samskiptum, náin tengsl eða örugg fjarlægð? Ertu að byggja tækni til að stjórna fjarlægðinni eða til að færa þig nær þeim og kveikja á kærleikanum sama hvað?Hugsaðu um þrjár manneskjur sem eru þér mikilvægar. Skrifaðu niður einn hlut sem þú getur gert í vikunni til að tala til þeirra á þeirra ástartungumáli og senda skilaboðin; Ég elska þig mjög mikið og þetta samband er mér mjög mikilvægt.Ertu Kraftmikil/l í sað segja frá þínum tilfinningalegu þörfum á skýran hátt í þínum innsta hring? Seturu upp hvernig fólk á að mæta þér? Ef ekki sestu þá niður með þessu fólki og skiptist á að segja ég upplifi mig elskaða þegar!
Við erum að hefja spjall um meðvirkni. Þetta er fyrsti þáttur af átta í þáttaseríu sem fjallar um að læra að tengjast og vera í elsku þegar við tökum ákvarðanir í nánum samböndum sem við erum í við fjölskyldu og vini. Það er ótrúlega mikilvægt að læra að taka rétta á erfiðum málum sem fylgja meðvirkninni.Leitastu við að svara þessum spurningum.Hugsaðu um þrjú mismunandi sambönd í lifi þínu. Myndiru segja að grunnurinn í þeim sé ég vel þig? Afhverju eða afhvejru ekki Í þessum þremur samböndum, hefuru reynt að velja eða stjórna hlið hinnar persónurnnar í sambandinu? Hvernig?Hefuru tekið þátt í vítarhringnum. Ef svo er hver ertu vanalega ? Hvernig gætiru orðið kraftmikil/l í þeim aðstæðumHver er kraftmesta persónan sem þú þekkir. Hvaða karakter einkenni finnst þér bera af í henni eða honum?Hugsaru um sjálfan þig meira sem kraftimikin/kraftmikla eða kraftlausan/kraftlausa? Hvaða skref getur þú tekið til að verða kraftmeiri?Hvað ætlar þú að gera þessa viku til að verða kraftmeiri? Gefðu mér dæmi um kraftmikið tungumál sem þú ætlar að nota og kraftmikla hegðun sem við vilt æfa.Hvernig ertu að hafa stjórn á þér og þínum hluta af sambandinu?Panta tíma hjá BarböruPanta tíma hjá Baldri
Við ætlum að byrja að fjalla um meðvirkni í næstu þáttum snertum aðeins á því í þessum þætti. Við tölum um ástina og fleirra skemmilegt námskeið sem eru framundan hjá okkur! Hvað ef við erum meðvirk og þurfum hjálp til að yfirstíga hana? Hlustið og deilið.
Fengum spurningu frá hlustanda sem við leituðumst við að svara. Afbrýðsemi út í fortíð maka. Það getur verið erfitt að burðast með tilinnnguna afbrýðisemi hún getur grafið undan trausti í parsambandinu. Við ýtum makanum meira frá okkur og oft getur hann upplifað að það sé eitthvað að honum eða upplifað makann með lítið sjálfstraust. Bæði virkar ekki vel á parsambandið. Hvað er til ráða? Tala saman, tengjast tilfinningalega og gefa maka sínum rými til að vinna með óöryggið. Samkennd og skilningur er það sem virkar best hérna.Við fórum einnig inn á umræðuna um stjúptengsl og hvernig við höfum tæklað það á okkar heimili.Það sem virkar best á flestar tegundir af verkefnum / vandamálum í parsambandinu er samkennd og að setja sig í spor maka/fjölskyldumeðlims. Þannig fjarlægjum við spennuna og getum horft á vandamálið sem verkefni sem fjölskyldan er að vinna að saman.Hvað ef þetta er alls ekki persónulegt?
Við viljum stuðla að heilbrigði fjölskyldna að það séu tengsl í fjölskyldum. Áhættuhegðun unglinga er stórt vandamál í samfélaginu okkar og við þurfum að losa okkur við meðvirknina til að geta horfst í augu við vandan og tekið á honum. Við fengum frábæran gest til okkar hana Guðrúnu Ágústu en hjartað hennar brennur fyrir börnum með áhættuhegðun og er okkur sannur heiður að fá að ræða við hana. Guðrún á sér langa sögu í vinnu með unglingum og vann meðal annars uppá Vogi á bangsadeildinni. Námskeið unglingar með áhættuhegðun er framundan og er það hugsað fyrir foreldra með börn í vanda. Panta tímaGuðrún Ágústa Barbara H. Þórðardóttir Baldur EinarssonLinkarInstagram LausnarinnarInstagramVonráðgjöf á facebook Lausnin á facebook
Samskipti er það sem skiptir mestu máli fyrir okkur sem einstaklinga í samfélagi sem er orðið velrænt. Við töluðum um parsambandið, fjölskylduna, tengslavanda og sjálfsmynd. Sameining Lausnarinnar og Von hvað ber það í skauti sér.Við fengum til okkar góðan gest hann Theodór Francis hjónaráðgjafiNámskeiðstenglar:Haltu mér þéttSamskipti og sjálfsmyndPanta tíma í ráðgjöf:Theodór FrancisBarbara H. ÞórðardóttirBaldur Einarsson
Baldur og Barbara fjalla hérna um leyndardóma þess að halda ástinni lifandi út frá vísindum ástarinnar. Samskipti eru svo mikilvæg ekki hvað við segjum endilega meira hvernig við segjum það. Tengsl eru mikilvægasti partur samskipta og það er svo mikilvægt að við leggjum áherslu á þau meira en rétt og rangt. Það skiptir ekki máli hver hefur rétt fyrir sér heldur frekar hver er fyrri til að tengja sig!Panta tíma hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruSpyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"!Heimasíðan okkarhttps://www.instagram.com/vonradgjof.is/
LETS talk about sex!Kynlíf er eitthvað sem er gríðarlega mikilvægur hluti af góðu hjónabandi. Það er talað um að það séu til þrjár mismunandi gerðir af kynlifi sem við ræðum aðeins hérna. Við tölum líka um sjokkerandi staðreyndir eins og "karlmönnum leiðist tengsla laust kynlíf". Við erum opin fyrir umræðunni og spurningum. Njótið og deilið podcastinu okkar að vildMinnum á næsta námskeið þann 5. Október Linkar:Panta tíma hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruSpyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"!Heimasíðan okkarhttps://www.instagram.com/vonradgjof.is/
Þessi þáttur fer í það að skoða hvernig er best að fara til baka og fyrirgefa særindi sem eru í hjarta okkar. Þegar við fyrirgefum þá eigum við heilsusamlegra líf. Við tölum aðeins um það hversu mikilvægt það er til að eiga góða samsipti og hvernig áföll fortíðar geta ennþá verið að hafa áhrifa á parsambandið eða hjónabandið. Njótið og deilið podcastinu okkar að vildMinnum á næsta námskeið þann 14. septemberLinkar:Panta sæti á námskeiðið "Haltu mér þétt" Panta tíma hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruSpyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"!Heimasíðan okkarhttps://www.instagram.com/vonradgjof.is/
Samræður 4. Haltu mer þéttÍ þessum þætti ræðum við um hvernig við eigum að nálgast maka okkar út frá grunnþörf okkar en ekki yfirborðs tilfinningunni. Tjúnnið inn and enjoy :) Njótið og deilið podcastinu okkar að vildMinnum á næsta námskeið þann 14. septemberLinkar:Panta sæti á námskeiðið "Haltu mér þétt" Panta tíma hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruSpyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"!Heimasíðan okkarhttps://www.instagram.com/vonradgjof.is/
Í þessum þætti ætlum við að ræða hvernig við getum farið aftur í erfið augnablik og lagað samskiptin okkar. Það er svo mikilvægt að báðir aðilar upplifi sig örugga í að heimasækja þessi augnablik saman án þess að fara inn í "djöflasamtölin".Njótið og deilið podcastinu okkar að vildMinnum á næsta námskeið þann 14. septemberLinkar:Panta á námskeið "Haltu mér þétt" Panta tíma í ráðgjöf hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruSpurðu okkur spurningu og hentu á okkur "læki"!
Meyru svæðin eru svæðin sem færa samtalið yfir í "djöflasamtalið". Þegar snert er við þeim þá fer ég í að verja mig ef ég er "pursuer" eða sanna fyrir þér að ég sé ekki sökudólgur. Meðan "withdrawer" dregur sig til hlés og frýs því sársaukin segir honum að forða sér. Raunverulega þá eru báðir aðilar að upplifa sársauka og í stað þess að deila honum.Berskjöldun er það sem virkar hérna og við lærum með tímanum ef við veljum að deila okkar tilfinningu án þess að ásaka maka eða kenna honum um að treysta. Við lærum svo saman að standa gegn neikvæða spíralnum og gera hann að andstæðingnum og saman berjast gegn því í stað þess að berjast innbyrðis.Námskeiði Haltu mér þétt verður haldið 14. septemberLinkar:Panta á námskeið "Haltu mér þétt" Panta tíma í ráðgjöf hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruHeimasíðan okkarSpurðu okkur spurningu og hentu á okkur "læki"!
Þessi þáttur flettir ofan af því sem er stærsti óvinur hjónabandsins og parsambandsins. Þessi þáttur kennir okkur að sjá hvar við erum að valda óöryggi. Samskiptin okkar eru lærð hegðun og það tekur tíma að læra nýjar venjur. Mikilvægast er að hjón og pör fari saman í þessa vinnu. Til að panta á námskeið eða í ráðgjöf:https://pantatima.as.me/schedule.php
Ástartungumálin 5 eftir Gary Chapman eru frábært verkefæri til þess að vinna með ástina í hjóna-og parsambandinu. Vandinn í parsambandinu er oft sá að tala ástartungumál sem við skiljum en skiljum svo ekkert í því að maki okkar skilur það ekki. Ástartunugmálin eru fimm og yfirleitt er það eitt sem lætur allt tikka fyrir mokkur. Við höfum svo oft séð að makar reyna að tala ástartungumálið sem hinn makinn skilur ekkert í.Við það myndast vonbrigði þar sem makinn upplifir að það sem hann gerir sé ekki metið. Málið er að það er ekki að makinn meti ekki það sem er gert heldur talar hann ekki þetta tungumál. Svona eins og að reyna að tala íslensku við einhvern í þýskalandi.Lærum hvert er ástartungumál maka okkar svo við getum sýnt maka okkar elsku eins og hann skilur.SnertingUppörvandi oraGjafirGæðastundirÞjónustaTil að panta á námskeið eða í ráðgjöf:Panta á námskeið "Haltu mér þétt" Panta tíma í ráðgjöf hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruTaktu prófið, hvað er þitt astartungumál?Heimasíðan okkarSpurðu okkur spurningu og hentu á okkur "læki"!
Í þessum þætti kynnum við E.F.T aðferðina og hvernig við beitum henni. Dr. Sue Johnson hefur náð gríðarlegum árangri og athygli um allan heim vegna þeirri aðferð sem hún beitir í meðferðarvinnu. Bæði námskeiððin okkar "Sköpuð til Tengsla" og "Haltu mér Þétt" koma úr þessari aðferð. Þetta er líka aðferð sem við beitum til þess að hjálpa hjónum/pörum að tengjast aftur. Námskeiði Haltu mér þétt verður haldið 14. septemberLinkar:Panta á námskeið "Haltu mér þétt" Panta tíma í ráðgjöf hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruHeimasíðan okkarSpurðu okkur spurningu og hentu á okkur "læki"!Heimasíðan hjá Dr. Sue Johnson
Við fjöllum aðeins um reiðmennina fjóra frá Gottman í þessum þætti. Gottman hjónin hafa gert gríðarlega mikið af rannsóknum á hjóna- og parsambandinu. Námskeiði Haltu mér þétt verður haldið 14. septemberLinkar:Panta á námskeið "Haltu mér þétt" Panta tíma í ráðgjöf hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruHeimasíðan okkarSpurðu okkur spurningu og hentu á okkur "læki"!Gottman the four horseman
Ástartungumálin 5 eftir Gary Chapman eru frábært verkefæri til þess að vinna með ástina í hjóna-og parsambandinu. Vandinn í parsambandinu er oft sá að tala ástartungumál sem við skiljum en skiljum svo ekkert í því að maki okkar skilur það ekki. Ástartunugmálin eru fimm og yfirleitt er það eitt sem lætur allt tikka fyrir mokkur. Við höfum svo oft séð að makar reyna að tala ástartungumálið sem hinn makinn skilur ekkert í.Við það myndast vonbrigði þar sem makinn upplifir að það sem hann gerir sé ekki metið. Málið er að það er ekki að makinn meti ekki það sem er gert heldur talar hann ekki þetta tungumál. Svona eins og að reyna að tala íslensku við einhvern í þýskalandi.Lærum hvert er ástartungumál maka okkar svo við getum sýnt maka okkar elsku eins og hann skilur.SnertingUppörvandi oraGjafirGæðastundirÞjónustaTil að panta á námskeið eða í ráðgjöf:https://pantatima.as.me/schedule.phpÁstartunnugmál próf:https://www.5lovelanguages.com/quizzes/