POPULARITY
Hlustið í heild á patreon.com/heimsendirÉg hef verið með hluti á heilanum uppá síðkastið - Kosningar í BNA, hnignandi staða Evrópu, fullris Bitcoin. Auk þess er gaman að ræða lífstíl og fallin vígi. Loks eru Heimsfréttirnar á sínum stað.
Hlustið í heild á www.patreon.com/heimsendirLöndun í Grindavík. Heimavinnandi húsfaðir í Hlíðunum. Milljón á mánuði. Og Kamala Harris í vandræðum. Allt þetta og meira í þessum flæðiþætti (sumir kalla það gas). Njótið vel!
Hlustið í heild á patreon.com/heimsendirBjört framtíð? Mögulega. Í þessum þætti fjöllum við um framtíð íslenskrar náttúru og efnahags, fólksþróun, menningu og tungumál, listir og alþjóðamál. Er íslenskan á útleið? Verður stofnaður her á Íslandi? Munu jöklarnir bráðna? Þessar og fleiri verða í brennidepli.
Send us a textVon Ráðgjöf: Skilningur á framhjáhaldi – mismunandi birtingarmyndir þess í samböndumÍ þessum þætti ræða Barbara og Baldur, stjórnendur hlaðvarpsins Von ráðgjöf um fjölbreyttar tegundir framhjáhalds í parsamböndum sbr., líkamlegt, tilfinningalegt og andlegt framhjáhald. Hvernig getum við greint þessi form framhjáhalds, og hvaða áhrif hafa þau á parsambandið? Hlustendur fá innsýn í hvernig tilfinningalegt framhjáhald, sem oft byrjar sem saklaus vinátta, getur vaxið í eitthvað miklu dýpra. Sérstaklega áhugavert er hvernig klámnotkun getur skapað tilfinningalega fjarlægð og orðið form af tilfinningalegu og andlegu framhjáhaldi, í þættinum skoða B&B líka hvernig andlegt framhjáhald – þegar einhver verður hugfangin af hugsunum/fantasíum sínum – getur valdið sundrungu í samböndum.Í þættinum verður einnig rýnt í hvernig sambönd geta náð bata eftir framhjáhald og hvernig pör geta unnið saman að því að endurheimta traust og tengsl. Hlustið á þáttinn og fáið innsýn inn í hvort og þá hvernig meðferð getur hjálpað pörum að takast á við þessa erfiðu reynslu.Lykilorð: • Framhjáhald í samböndum • Líkamlegt framhjáhald • Tilfinningalegt framhjáhald • Klám og svik • Andlegt framhjáhald • Traust og nánd • Sambandsráðgjöf
Langar þig að vera skúrkur í Star Wars heiminum? Það er heldur betur hægt í Outlaws. Arnór Steinn og Gunnar ræða fyrstu hughrif af þessari tilraun Ubisoft til að gera nýjan og öðruvísi Star Wars leik. Sölvi Santos er gestur vikunnar en hann streymir Outlaws á GameTíví rásinni alla miðvikudaga kl 20! Þátturinn hans heitir Skúrkur í skýjunum og er SNILLDAR tilvitnun í þýðingar Tölvuleikjaspjallsins! Eruð þið óviss um Outlaws? Hlustið á þáttinn, kannski náum við að hafa einhver áhrif á skoðunina ykkar. Tjékkið á Sölva, hann er @solvisantos á bæði TikTok og Twitch, og tjékkið að sjálfsögðu á þættinum hans Skúrkur í skýjunum á GameTíví alla miðvikudaga kl 20! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
ÞESSI GÆTI BREYTT LÍFI ÞÍNU. Þátturinn fjallar um bókina Ríkur faðir, fátækur faðir eftir Robert Kiyosaki. Við förum yfir eignir og skuldir, vinnu og viðskipti, eyðslu og sparnað.Hlustið í fullri lengd inni á patreon.com/heimsendir
Helgin síðasta var STÚT full af kynningum fyrir spennandi leiki ársins. Star Wars Outlaws, Lego Horizon, munkabruggleikur og margir fleiri. Arnór Steinn og Gunnar taka best of og það kemur á óvart hvað hver er spenntur fyrir hverju. Er Arnór raunverulega að peppa Assassin´s Creed leik? Er Gunnar að fara að kaupa gæludýra-farming leik á degi eitt? Hlustið og tékkið á því! Þessi og næsti þáttur (209 – Hellblade 2) tengjast því við tókum þá upp einn á eftir öðrum. Þeir koma BÁÐIR út í dag! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Hlustið á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendirGott fólk, það er komið að því. Heimsendir flytur til Íslands og segir skilið við Japan, í bili. Í þættinum lítum við um öxl og gerum upp árin 2 í Japan - hvað lærðist, hvað afrekaðist, hvers mun sakna og hvers ekki.
Snemma í þættinum var umfjöllun um Guðrúnu Á. Símonar. 36 ár eru í dag síðan hún lést og á laugardaginn, 24. febrúar, var öld síðan hún fæddist. Leikið var brot úr viðtali Jökuls Jakobssonar við Guðrúnu frá 1971. Dregið hefur úr sölu rafbíla. Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, rekur samdráttinn til hærra verðs á rafbílum sem stafar af breyttu ívilnanakerfi stjórnvalda. Egill fór yfir sjónarmið sín í spjalli. Borgþór Arngrímsson fór yfir eitt og annað danskt eins og hann gerir á Morgunvaktinni annan hvern miðvikudag. Ásahreppur hefur boðið sveitarfélögunum Rangarþingi ytra og Rangárþingi eystra til skrafs og ráðagerða um sameiningu. Valtýr Valtýsson sveitarstjóri spjallaði um sameningarmál og Ásahrepp. Hlustið góðu vinir - Sigrún Hjálmtýsdóttir, Love is all - Deanna Durbin, Kötturinn Kikki - Guðrún Á. Símonar, Mvundula Madzi - Lucky Stars Band, Middelsmand Bunker - C.V. Jörgensen.
Hlustið á þáttinn í heild sinni á: https://www.patreon.com/heimsendirNýr sjálfshjálparþáttur frá Heimsendi. Þessi fjallar um aðferðafræði þess að verða ríkur, milljón á mánuði eða mánuð á milljón, jafnvægi milli vinnu og persónulegs lífs og margt fleira.
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Þrjúhundraðasti þátturinn, „I keep it 300, like the Romans“ sagði skáldið. Við byrjum á því að fara yfir Jafnréttisstofu (FUERA!) og nýju herferð hennar sem snýst um það að segja fólki hvernig það eigi að hugsa? Spurning. Síðan tölum við um Peter Thiel og nýju ólympíuleikana hans þar sem leyfilegt er að dópa. Mikilvægi testósteróns rætt. Að lokum, og þetta er mikilvægur kafli, er farið yfir þýðingu Bergþórs á lokakafla bókarinnar The Science of Getting Rich. Hlustið á þetta kæra bræðralag og verðið rík, þetta er svona einfalt. Guð blessi ykkur!
Hlustið á þáttinn í heild sinni áhttps://www.patreon.com/heimsendirShabbat kvöldverður, mannanafnanefnd, 1000 kall á tímann, týpískur dagur í mínu lífi, makríll og loðna, vinna og borða. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar!
Grautlina kexið hans Fred Durst er til umfjöllunar í þætti vikunnar. Hlustið ... og brjótið dót.
Arnór Steinn og Gunnar eyða sínum tíma í að drulla yfir aðra leiki. Hvernig er þegar þeir ákveða að búa til sinn eigin? Þið þekkið þetta, hlustendur og áhorfendur kærir. Þemað að þessu sinni er GAME OF THRONES - eða, eins og Arnór væri frekar til í að kalla það - A SONG OF ICE AND FIRE. RPG? RTS? MMO? Hvað velja þeir að búa til? Hlustið og finnið út! Hvernig leik værir þú til í að spila í ASOIAF heiminum? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Það er brjálað að gera hjá Marín þessa dagana. Arnór Steinn spjallar við hana um Skyrim, streymi, Starfield og margt, MARGT fleira. Við fáum líka EXCLUSIVE SKÚBB um ekki bara eitt, heldur TVÖ leyniverkefni sem hún er með í bígerð. Hlustið, horfið og njótið! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Auðunn Blöndal hefur náð þeim fágæta árangri að endurnýja umboð sitt sem helsti skemmtikraftur landsins hjá hverri kynslóð á eftir annarri. Hvaða ekki-tónlistarmaður selur upp tónleika í Laugardalshöll? Hér sest Auddi í ráðuneyti Skoðanabræðra, fer yfir ferilinn, pólitíkina, umræðuna, skítafréttirnar, hlaðvarpið, innblásturinn, föðurhlutverkið, spilavítin, giggin, Þjóðhátíð og ég nenni ekki að skrifa meira. Hlustið! Ný hlið á lykilmanni. P.S. Í þættinum eru athugasemdir hafðar frammi sem gefa upptökutíma hans til kynna, sem sé skömmu fyrir verslunarmannahelgi í ágúst 2023. Þá er þar rætt um að gefa þáttinn út á tíma, sem ekki varð útgáfudagur þáttarins. Misræmi þetta skýrist af ólíkum áherslum þáttastjórnenda og markaðsdeildar fyrirtækisins, en síðarnefnd eining tekur endanlega ákvörðun um öll mál.
Snorri og Bergþór snúa aftur.. 4 þættir á mánuði.. í allt sumar og allt haust og allan vetur! Hlustið á þennan þátt með áskrift inni á www.patreon.com/skodanabraedur
„Kubbinn“ þarf vart að kynna. Ekki bestu plötuna hans heldur. Hlustið bara og njótið.
Sælir kælir hitamæli… komið með slökkvitækið, þetta er búið! Erfiðasta verki Ormstungna lokið. Ekkert á að vera fullkomið og þessi þáttaröð um Njálu er dæmi um það. En þá er gott að eiga í handraðanum nokkra sérfræðinga sem geta dregið okkur að landi og það er á bullandi tali hjá Tungunum í þættinum. Vala Garðars um fornleifar, Einar Kára um höfundinn, Ragnhildur Elísabet um að alast upp með Njálu og Flosi Þorgeirsson um að heita Flosi. Svo er bara spurning hvað Ormstungur taka fyrir næst?! Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Tungurnar stinga sér til sunds í Rangá og synda á móti straumnum allan þáttinn. Þær eru án kúts og korks en á einhvern ótrúlegan hátt ná þær að fara yfir misgáfulegar kenningar um kynlífskúnstir Hrúts og Unnar Marðardóttur, blóðug hjónabönd Hallgerðar og húskarlavíg húsfreyjanna á Bergþórshvoli og Hlíðarenda. Einungis ein spurning stendur eftir: „Hvað í fjandanum þýðir að fjórðungi bregður til fósturs“? Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Gunnar slær sinn síðasta tón á atgítarstrenginn. En tónnin reynist falskur og holur og slitnar að lokum. Þá er nú gott eiga háprúða eiginkonu. Nema auðvitað að maður hafi einhvern tímann gert eitthvað á hennar hlut sem gæti komið manni í koll… karma is a bitch Gunnar! Hvernig höndla Tungurnar þessa ófyrirsjáanlegu framvindu? Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Tungurnar höfðu verið varaðar við, þær vissu örlög þeirra sem reyna að greiða úr hinum mörgu þráðum Njálu. Hlustuðu þær - nei. Það verður til þess að þrátt fyrir gott gengi í Noregsköflunum um Víga Hrapp þá fara þræðir Njálu að herðast um kverkar þeirra eins og Urður, Verðandi og Skuld séu að hengja þá. Tunguknörrinn brotnar í spón á ströndum kaflanna sem fjalla um Höskuldana tvo. Lifa þeir þetta af? Verður annar þáttur? Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Hundraðasti þátturinn og Tungurnar heyra í kyndlum fyrir utan stúdíóið. Vafasamar kenningar um kristni, hestaát og hlutverk Skarphéðins í sögunni verða til þess að jafnvel sprelllifandi fræðifólk snýr sér við í kumlunum. En einhvern veginn tekst að klára þáttinn og þá er bara eitt eftir - að kveikja í skinninu. Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Þetta byrjaði svo vel. Tungurnar höfðu alvöru trú. En svo bregðst krosstré sem viðarásar Bergþórshvols. Það óvæntur gestur sem leggur Tungurnar að velli - Ingjaldur á Keldum! Hver var hann? Hvaðan kom hann? Og hvaða andskotans máli skiptir hann í þessari sögu!? Örvæntið ekki, uppgjörið er eftir. Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur
Söngvakeppnissérfræðingurinn Máni Pétursson mætti til okkar í spjall. Fórum yfir það þegar hann gekk út í miðjum leik, afhverju var það heillaskref fyrir Frikka að lenda í 2. sæti og svo var mjög fagleg yfirferð á öllum lögum söngvakeppninnar í ár. Hlustið á allan þáttinn inn á: www.stevedagskra.is
Eins og í mörgum öðrum óundirbúnum þáttum fara þeir Arnar og Aron um víðan völl í þætti dagsins. Orðið er Illuminati en mikil leynd hvílir yfir þessu fyrirbæri sem á rætur að rekja margar aldir aftur í tímann. Hlustið og þið munuð eflaust vera einhverju fróðari.
Facebook grúppur Íslands. Hvar er mesta gleðin? Hvar er þyngsta orkan? Afhverju eru þessar grúppur til? Við fengum rannsóknarblaðakonuna og Facebook grúppu sjéníið Berglindi Festival með okkur í lið og tókum svokallað “Deepdive” á facebook grúppur landsins. Hlustið á allan þáttinn inn á: www.stevedagskra.is
Í þessum þætti er stór tilkynning. Hlustiði. þáttur er í boði: Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/ Dominos - https://www.dominos.is/ Coolbet merch - https://coolbetmerch.com/ Birta CBD - https://birtacbd.is/ Víking Lite lime léttöl
KISS voru í þokkalegri lægð þarna um miðjan tíunda áratug síðustu aldar, þ.e áður en allt fór af stað á ný í kjölfarið á MTV Unplugged tónleikum þeirra sem fram fóru sumarið 1995. Ári fyrr, eða sumarið 1994 stóðu okkar menn í útgáfu á plötunni KISS MY ASS sem innihélt hina ýmsu KISS slagara í flutningi annara listamanna. S.s ekki mikið að frétta frá okkar mönnum hvað varðar nýtt efni, en þó voru þeir allir samt í fanta formi, veruleg synd. En þetta sama sumar var fyrrum trommari KISS og einn af stofnmeðlimum bandsins einnig í fanta formi. Sjálfur Peter Criss var búinn að setja saman afar vel spilandi band er bar nafnið CRISS. Ekki KISS, heldur CRISS! Það var svo þann 16.ágúst (á útgáfudegi þessa þáttar) sem Peterinn sendi frá sér sína fjórðu sólóplötu sem hann nefndi CAT 1. Platan flaug ekki hátt og vakti einfaldlega litla athygli. Við tökum meira að segja það djúpt í árinni og höldum því fram að margir hlustendur þáttarins hafi hreinlega ekki einu sinni hlustað á þessa plötu eða gefið henni einhvern séns að ráði........þar til nú. CAT 1 er nefnilega þrusuplata og kom hún þáttastjórnendum því sem næst í opna skjöldu. Hlustið og sannfærist um það er við tökum fyrir afmælisbarn dagsins. CAT 1 með Peter Criss síðan 16.ágúst 1994 er plata þáttarins að þessu sinni. Our GDPR privacy policy was updated on August 8, 2022. Visit acast.com/privacy for more information.
Hlustið í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur Pride, Bronze Age Mindset, franska útlendingahersveitin, heróínneysla og The Global Enslavement Project. Þetta, og endalaust annað. Þetta var frábær þáttur, guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Ágústa Kolbrún var með okkur í dag en hún er að hugsa um að kaupa sér sumarbústað. Helgi komst að því að hún er sennilega 92.000 ár að borga bústaðinn. Hjálmar verður að taka til í herberginu sínu í 4 klst á dag. Helgi hringdi í bissneskonu vinkonu sína til að fá það staðfest að fasteignaverð er ekki að fara lækka á næstunni.IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Er Playstation Plus Premium komið í þína tölvu? Tókstu eftir því að við erum ekki með það sem heitir Premium? Í þætti vikunnar kafa Arnór Steinn og Gunnar í Playstation fréttir síðustu vikna. Premium er vissulega farið af stað og slatti af löndum (þar á meðal Kýpur) geta streymt leikjum eins og Fallout: New Vegas í gegnum netþjón. Skítaskerið Ísland getur það hins vegar ekki. Ásamt því að greina frá stöðu Íslands í þessum málum þá tölum við einnig um nýja loyalty kerfið hjá Sony sem á að koma út í ár. Verður hægt að fá inneign í PS Store fyrir að spila tölvuleiki? Mögulega! Hlustið og þið fáið að vita meira ... Þátturinn er í boði Elko Gaming, Hringdu og Yay! Gjafakortaappsins.
Nýr miðvikudagur þýðir nýtt og geggjað viðtal í boði Tölvuleikjaspjallsins! Í þetta skiptið eru það tveir gestir sem skemmta okkur með sögum sínum, Móna Lind og Valla sem eru streymaratvíeykið Queens! Við heyrum hvaðan þær koma tölvuleikjalega séð, hvernig þær kynntust og svo auðvitað hvernig þeim tekst að streyma sirka vikulega þrátt fyrir að allt fari reglulega til fjandans hjá þeim tæknilega séð. Þátturinn heitir ekki The Show Must Go On af ástæðulausu - Móna og Valla hafa bókstaflega streymt í gegnum súrt og sætt. Fársjúkar af COVID og ... öðrum kvillum. Hlustið til að læra meira! Þið getið fylgst með Queens á Twitch rás GameTíví (@gametiviis) en þær eru einnig með sínar eigin rásir, Völlu er hægt að finna á @vallapjalla og Móna er staðsett á @DiamondMynXx. Arnór Steinn og Gunnar þakka þeim kærlega fyrir komuna og fyrir geðveikt skemmtilegan þátt! Þátturinn er í boði Elko Gaming, Hringdu og Yay! Gjafakortaappsins.
Tungurnar leita á náðir uppeldisfræðimenntaða rithöfundarins Brynhildar Þórarinsdóttur til að ná tökum á æsku Egils. Kominn af hálftröllum og alinn upp af háöldruðum var drengurinn afskiptur í æsku en ofvirki ofurvitinn sem hann var líka fékk hann það sem hann vildi. Svona næstum því. Pabbi hans drap að vísu vini hans en hvað eru vinadráp milli vin… feðga? Er hamast? Já það er hamast! Hlustið og hlýðið. Gestur: Brynhildur Þórarinsdóttir Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Tungurnar gera söguna upp og skila henni aftur í skinnhandritið. Auðvitað klúðraðist margt og gleymdist fullt (til dæmis að keyra heim punktinn með að Egils saga er í rauninni ástarsaga þar sem sterkustu viðbrögð Egils eru vegna ástarinnar. Til Þórólfs, til Ásgerðar, til sonar síns og síðast en ekki síst ástarinnar á peningum.) En einhvern veginn blessaðist þetta alveg eins og hjá Agli sjálfum. En hver leikur hann í bíómyndinni? Hver talsetur hann í teiknimyndinni? Og hvar er silfrið? Hlustið og hlýðið. Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Síðasti valsinn stiginn undir tryllingslegum takti! Egill er eins manns hljómsveit með allt vopnabúrið á lofti. Við fáum töfralækninn, bardagamanninn, skyrhatandi uppkastarann, skáldið og elliæra æringjann. Skipinu er siglt í land… já eða strand. Stóra spurningin er þó: Getur Stebbi Jak róað Egil áður en hann eyðileggur partýið? Hlustið og hlýðið. Gestur: Stefán Jakobsson Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Lögmaðurinn Egill sprettur fram og gefur ekkert eftir frekar en fyrri daginn. Honum verður hins vegar lítið ágengt enda aldrei sniðugt að reyna að rukka Norðmann. Þá er bókstaflega ekkert annað í stöðunni en að tryllast, fjöldamyrða og reisa eins og eina níðstöng. Skallagrímur vill silfrið en maður fær ekki allt í lífinu. En við fáum brandara Ármanns þó í þessum þætti. Fatta Tungurnar hann? Hlustið og hlýðið. Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Það er byrjað þar sem allar góðar sögur byrja, í Noregi. Tungurnar lenda harkalega og það kemur sennilega fæstum á óvart að þær eru mjög fljótlega í veseni. Þær þurfa að klóra sig í gegnum nokkrar vel skrollaðar vesturstrandar mállýskur áður en þær geta tæklað skallann á Skallagrími, hárið á Haraldi hárfagra og Finnlandsskattinn. Hvernig fer það? Hlustið og hlýðið. Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Ástsýki og ælur, skyrdrykkja og skærur. Víkingurinn válegi sprettur fram eins og mamma hafði spáð fyrir og heggur mann og annan. Bræður munu berjast, saman að vísu, en það endar samt ekki vel. Ekki frekar en að blanda skyri og öli í mallakút. Egill er leiður en það er ekkert sem silfurkista eða tvær lagar ekki. Eða hvað? Hlustið og hlýðið. Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Ólíkindatólið Egill Skallagrímsson var ekki bara maður óðsins heldur fullkomlega og án efa óður maður. Hvað eru Tungurnar að pæla að glíma við þennan mann? Ef hann var þá maður? Þær þurfa vopn. Þær þurfa verjur. Þær þurfa ráðgjöf. Þær þurfa, Ármann Jakobsson. Eftir að hafa heyrt í honum fyllast þær öryggi. Fölsku öryggi? Hlustið og hlýðið. Gestur: Prófessor Ármann Jakobsson Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Tungurnar hverfa djúpt inn í sjálfhverfuna og taka viðtal við sjálfar sig. Það er að segja Oddur spyr Hjalta spjörunum úr enda stúdíóið gluggalaust og heitasti dagur vorsins. Benni Erlings taldi Hjalta ruglaðan að gera barnabók um Egil Skallagrímsson, sturlaða fyllibyttu og fjöldamorðingja, en er kannski eitthvað við í því? Hlustið og hlýðið á af hverju Hjalti skrifar og af hverju um barnabækur innblásnar af Íslendingasögunum.
Sagan tekur á sig VIRKIlega ævintýralegan blæ. Sem betur fer eru tungurnar vel lærðar í verkfræðinni og fara auðveldlega með að útskýra skurðgröft og vatnsveitur á miðöldum… NOT! Þær eru á útivelli sem aldrei fyrr og gera varla lesið söguna sér til gamans hvað þá gagns. En einhvern veginn klárast nú þátturinn, eða hvað? Hlustið og hlýðið! Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Bragðarefurinn skýtur mönnum ref fyrir rass í síðasta sinn og það í Danmörku af öllum stöðum. Jesu kemur við sögu en hver í fjúkandi fjandanum var Pétur Postuli?! Hvað um það, tungurnar komast upp úr leðjunni og gera söguna upp í leiðinni. Spurning hvort þær leggja í frekari leiðangra eftir þessa krókaleið? (svarið er að sjálfsögðu já) Hlustið og hlýðið! Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Ormstungur halda í enn eina óvissuferðina. Í þetta skiptið er ótroðna slóðin krókótt en eins og tungurnar segja gjarnan er betri krókur en kelda enda engin Íslendingasaga sem heitir Keldu-saga. Það þýðir auðvitað ekki að tungurnar lendi ekki í keldunni. Ójú, eins og kettir út í mýri vaða þeir leðjuna strax í byrjun. Komast þeir af stað? Hlustið og hlýðið! Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Krókurinn hér hvar og hvenær sem er söng Sálin hans Jóns míns en tungurnar eru ekki hvar sem er, þær eru í Kvennabrekku í dölunum. Þar hafa menn löngum haft áhuga á skinnum, enda hundraðkallinn sálugi Árni Magnússon fæddur þar en öfugt við hann hefur okkar maður Refur meiri áhuga á að naga skinn en að skrifa á það. En eins og gjarnan er með fálát börn þá rætist fljótt úr Rebba. Hvernig? Hlustið og hlýðið! Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Refurinn er sigldur frá skítaskerinu Íslandi, tekur land á stærstu eyju heims og gerist stórtækur á Grænlandinu góða. Skreytir sig með rostungstönnum og safnar selum eins og sannkallaður Nanook norðursins. En hómófóbían er víða og Daltonbræður miðaldanna æra óstöðugan með rógburði og ræfilsskap. Endar það vel? Hlustið og hlýðið! Styrktu okkur á https://www.patreon.com/ormstungur Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson
Tölvuleikjaspjallið kafar dýpra í alls konar peningalega hluti í þætti vikunnar. Eftir að hafa rætt áskriftir í þaula fórum við aðeins að pæla meira í NFT. Einhver fyrirtæki á markaðnum eru farin að fikta með þetta torskilda hugtak og við viljum endilega útskýra hvað það þýðir fyrir spilara. Hvað er NFT? Hvernig er verið að blanda þeim í heim tölvuleikja? Við stoppum þó ekki þar. Arnór Steinn og Gunnar fara enn dýpra í sögu peningaplokks innan tölvuleikjaheimsins. Við tökum fyrir örgreiðslur, loot boxes, fjárhættuspil, tíu dollara plottið hjá EA og margt, margt fleira. Hlustið á þáttinn til að læra hvernig tölvuleikjafyrirtæki láta lítið sem ekkert stoppa sig við að hirða af ykkur hverja eina og einustu krónu! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Hringdu.
Eva Laufey Kjaran dagskrágerðarkona, baksturs drottning og samfélagsmiðlastjarna kíkti til mín í spjall. Það er mikil ró og öryggi sem umlykur Evu þegar að hún sest niður á móti mér en það er eitthvað sem hún hefur unnið í að auka síðustu ár og greinilega tekist vel til. Hún sagði mér frá skemmtilegum “passive aggressive” skilaboðum og símtölum sem hún fær reglulega varðandi baksturinn og hvernig hún lærði að setja mörk. Ef að Evu langar í eitthvað þá fer hún eftir því og kýlir á hlutina, en það er hugsunarháttur sem hefur komið henni á þann stað sem hún er á í dag og er eitthvað sem er algjörlega til fyrirmyndar. Mikið er gott að Eva sé oft á skjánum hjá okkur Íslendingum því það þurfa svo sannarlega allir eina Evu Laufey í líf sitt! Hlustið, njótið og endilega subscribeið! IG: @evalaufeykjaran & @katavignis
Matthías Már Magnússon tónlistarstjóri Rásar 2 bauð mér í kaffi til sín upp á Rúv þar sem að við settumst niður í stúdíói og tókum gott spjall. Hann sagði mér frá því hvernig námsmaður hann var og hvernig skólakerfið hentaði honum alls ekki. Samt sem áður þá tókst honum að næla sér í Meistaragráðu án þess að hafa tekið stúdentspróf eða BA gráðu. Matti var sendur í sveit til að vinna fyrst 6 ára gamall og sagði mér frá tímanum sínum þar og hvernig eitt sumarið borðaði hann kjötbollur í öll mál. Matti er nú vanur því að vera maðurinn sem er að spyrja spurninganna í viðtali en það var mjög gaman að fá að heyra hann svara þeim í þetta skiptið. Hlustið og njótið! IG: @mattimar & @katavignis
Þau sögðu að við myndum aldrei ná 50 þáttum. Böddi og Dóri stilltu á level 9000 í bull-mode og Bensi gerði allt sem að hann gat til að halda þeim aftur, verða strákarnir cancelled eftir þennan? Hlustið á þáttinn og sendið á vin ykkar af hverju þeir ættu alls ekki að hlusta á þennan þátt. Í alvöru samt, takk fyrir að hlusta á yfir 50 klt. af okkur strákunum að spjalla saman. We love you! Þessi þáttur er í boði blush.is og Smitten!