Podcasts about vandinn

  • 15PODCASTS
  • 24EPISODES
  • 56mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Aug 21, 2024LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about vandinn

Latest podcast episodes about vandinn

Spegillinn
Stýrivextir, enskir óeirðaseggir og orlofsgreiðslur sveitarstjóra

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 21, 2024 20:00

Seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum, í 9,25 prósentum. Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ segir það vonbrigði að Seðlabankinn skuli ekki hafa þorað að stíga inn í þann spíral sem við erum í. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir marga krafta halda verðbólgunni uppi. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við þau um tíðindi dagsins. Búið er að dæma um fimm hundruð bullur og óeirðaseggi fyrir sinn þátt í óeirðum í Bretlandi í byrjun mánaðarins, og hundruð til viðbótar bíða dóms. Vandinn er að það er ekkert pláss fyrir þá í fangelsum landsins. Uppgjör á orlofi Dags B. Eggertssonar sem borgarstjóra er ekki einsdæmi þegar skoðuð eru starfslok sveitarstjóra í öðrum stórum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Lára V. Júlíusdóttir érfræðingur í vinnumarkaðsrétti segir ekki óalgengt að stjórnendur safni upp orlofi enda sé nánast gert ráð fyrir að þeir séu alltaf á vaktinni. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um málið og ræðir við Láru. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Heimskviður
177 - Höfuðborg í heljargreipum og skuggahliðar netsins

Heimskviður

Play Episode Listen Later Mar 23, 2024 41:21

Við skoðum baksögu óaldarinnar á Haítí sem náði hámarki fyrir nokkrum vikum þegar glæpagengi náðu stjórn í höfuðborginni Port au-Prince. Bjarni Pétur segir okkur einnig sögu valdamesta glæpamanns landsins. Saga Haítí er þyrnum stráð því auk mannskæðra náttúruhamfara hafa landsmenn þurft að greiða Frökkum skuld árum saman eftir að Haítí fékk sjálfstæði. Í síðari hluta þáttarins ætlar Hallgrímur Indriðason að segja okkur frá skuggahliðum netsins. Fjölmörg dæmi eru um að börn sjái óviðeigand og jafnvel skaðlegt efni á samfélagsmiðlum án þess að þau beri sig sérstaklega eftir því. Fjöldi danskra unglinga ræddi notkun sína við danska ríkissjónvarpið nýlega, þar á meðal um efni sem vakti óhug hjá þeim. Vandinn liggur í því hvernig samfélagsmiðlarnir eru forritaðir en forsvarsmenn þeirra er tregir til að breyta því.

Óli Björn - Alltaf til hægri
Vítahringur Evrópusambandsins

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Oct 25, 2022 9:59

Kórónuveirufaraldurinn en þó einkum innrás Rússa í Úkraínu hafa afhjúpað djúpstæða veikleika í efnahagslífi Evrópu. Sú hætta er fyrir hendi að erfitt verði fyrir ríki Evrópusambandsins [ESB] að vinna sig út úr þeim efnahagsþrengingum sem barist er við. Vandinn virðist krónískur. Hættan er sú að forystufólk ESB velji „auðveldu“ leiðina í örvæntingafullri viðleitni til að vinna gegn þrengingum og versnandi lífskjörum. Á Íslandi segjum við að pissa í skóinn.

esb evr vandinn
Poppsálin
Gummi lögga: Týndu börnin og vandinn við afglæpavæðingu vímuefna

Poppsálin

Play Episode Listen Later Jun 6, 2022 57:51

Í þessum þætti er spjallað við lögreglumanninn Guðmund Fylkisson eða Gumma löggu sem er hvað þekktastur fyrir að finna týnd börn og ungmenni. Við ræðum um starf hans og áhyggjur hans af þeirri hugmynd að afglæpavæða vímuefni. Hægt er að styrkja Poppsálina fyrir 5 evrur á mánuði og fá aukaþætti í kaupbæti :)https://www.patreon.com/PoppsalinTHEY'RE NOT SHADOWSSpooky stories of the paranormal, the supernatural and the unexplained with no...Listen on: Apple Podcasts Spotify Leadership SchoolConversations from around the world inspiring you to be an extraordinary leader.Listen on: Apple Podcasts Spotify

Spegillinn
Spegillinn 15.okt 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 15, 2021 9:47

Spegillinn 15.okt 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason Þingmaður breska Íhaldsflokksins var stunginn til bana á stjórnmálafundi í Essex á Englandi í dag. Forsætisráðherra Breta og fyrsti ráðherra skosku heimastjórnarinnar segja að tryggja þurfi betur öryggi þingmanna. Flokkarnir þrír sem ræða myndun nýrrar sambandsstjórnar í Þýskalandi hafa komist að bráðabirgðasamkomulagi um stjórnarmyndun. Norska lögreglan rannskar hvers vegna lögreglan í Kongsberg missti ódæðismanninn sem myrti fimm manns á miðvikudagskvöld úr höndum sér áður en hann lét til skarar skíða. Mjög vel hefur gengið að stýra langflestum ferðamönnum sem lagt hafa leið sína á gosstöðvarnar á Reykjanesskaga frá því gos hófst. Svokallaðir eldfjalladólgar hafa þó gert björgunarsveitarmönnum og lögreglu lífið leitt. Formaður VR segir stjórnvöld eiga að setja reglur um að leiguverð taki mið af ráðstöfunartekjum. Ekki hafi verið staðið við mikilvæg atriði í lífskjarasamningnum. Búist er við mikilli úrkomu á Austurlandi í byrjun næstu viku. Uppsöfnuð úrkoma gæti orðið allt að 120 millimetrar og að mati Almannavarna gæti þurft að rýma hús nærri stóra skriðusárinu ofan byggðarinnar á Seyðisfirði. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNHCR, vill að Norðurlöndin hraði og einfaldi málsmeðferð í málum afganskra flóttamanna sem þegar hafa fengið vernd og vilja fá fjölskyldumeðlimi til sín. Nýjasti landneminn í lífríki Íslands er hnífskel sem nefnist sindraskel. Skelin er flugbeitt og ílöng og talið er að hún hafi borist hingað til lands með kjölvatni skipa. Lengri umfjöllun: Hryðjuverk eða óstjórnlegt æði? Skipulagði Espen Andersen Braaten hryðjuverk í nafni islam eða rann á hann morðæði á miðvikudagskvöldið. Fimm létu þá lífið á Kóngsbergi í Noregi? Af hverju missti lögregan hann úr höndum sér áður en morðin voru framin. Gísli Kristjánsson í Ósló hefur fylgst með framvindunni. Stýring ferðamanna að eldgosinu á Reykjanesskaga hefur gengið vel segir Jónas Guðmundsson verkefnastjóri í slysavörnum hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Hann ræddi í dag árangurinn af stýringunni á ráðstefu Landsbjargar - Slysavarnir 2021 - sem nú stendur yfir í Reykjavík. Talið er að á milli 350 til 400 þúsund manns hafi gengið að gosinu frá því að það hófst þann 19. mars - fyrir tæpum sjö mánuðum. Kristján Sigurjónsson talar við Jónas. Jöfnun aðstöðumunar milli og innan landshluta er stóra loforð Borisar Johnsons forsætisráðherra Breta. Vandinn er bæði að aðstöðumunurinn er mikill og verður ekki jafnaður á einu kjörtímabili. En líka að það er mjö

Spegillinn
Spegillinn 15.okt 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 15, 2021

Samfélagið
Heimilislækningar, uppljóstranagátt, málfar og vísindaspjall með Eddu

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 6, 2021 55:00

Við ætlum að tala um heimilislækningar í þætti dagsins því nú hafa þær jákvæðu fréttir borist að aldrei hafi fleiri stundað sérgreinanám í heimilislækningum. Margrét Ólafía Tómasdóttir er heimilislæknir og á sæti í stjórn félags heimilislækna. Hún ætlar að tala við okkur um fagið, skort á heimilislæknum og þróun heimilislækninga. KSÍ málið og fleiri sambærileg mál hafa beint sjónum okkar að því að mögulega skorti almennilegt utanumhald og vel skilgreind ferli sem umkvartanir, ásakanir og ábendingar fara í; hvort sem er innan stjórnsýslunnar, einkageirans eða á öðrum vettvangi. Vandinn hefur verið sá að oft daga svona mál uppi og þolendur hafa því oft fundið sig knúna til að opinbera hluti á samfélagsmiðlum. En hvernig á að tryggja vernd, friðhelgi og sjá til þess að mál séu sannarlega kláruð á réttan og löglegan hátt? Við setjumst niður með með Einari Bergmundi Þorgerðarsyni Bóassyni, hugbúnaðarsérfræðingi sem hefur skoðað bæði lög, ferla og kerfi sem taka á svona aðstæðum hér heima og erlendis. Edda Olgudóttir spjallar við okkur um vísindi og við fáum eins og eina málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur.

Samfélagið
Heimilislækningar, uppljóstranagátt, málfar og vísindaspjall með Eddu

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 6, 2021

Víðsjá
Grímsey, kínversk ljóðlist, sýndarveruleiki og Eydís Blöndal

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 22, 2021 55:00

Í Víðsjá dagsins verður hugað að Miðgarðskirkju í Grímsey sem brann í nótt og fanga leitað í safni Ríkisútvarpsins um lífið í eyjunni fyrr á tíð. Rætt verður við Hjörleif Sveinbjörnsson þýðanda um bókina Meðal hvítra skýja en hún hefur að geyma vísur frá Tang-tímanum í Kína á árunum 618-907. Hjörleifur hefur þýtt þessar fornu og heillandi vísur en á þessu tímabili náði kínversk ljóðlist áður óþekktum hæðum og teljast ljóðin til bókmenntagersema heimsins. Og einnig verður spurt í Víðsjá: Getur verið að við búum í sýndarveruleika? Það er stór spurning sem fræðingar og heimspekingar hafa velt fyrir sér í þónokkurn tíma en sú hugmynd hefur heldur betur fengið byr undir báða vængi á síðastliðnum árum í tengslum við ofurtölvur og skammtafræðilegar tölvur. Þessi tilteknu fræði verða til umræðu uppi í Háskóla nú á fimmtudaginn. Það verður heimspekingurinn Benjamin B. Olshin heldur fyrirlesturinn Heimspeki veruleikans: Vandinn við hermialheima - við tökum hann tali í þætti um veruleikann dagsins. Og loks fjallar Gauti Kristmannsson um nýja ljóðabók Eydísar Blöndal Ég brotna hundarð prósent niður. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson

gu tang hj umsj getur eyd sveinbj vandinn gauti kristmannsson benjamin b olshin
Víðsjá
Grímsey, kínversk ljóðlist, sýndarveruleiki og Eydís Blöndal

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 22, 2021

Skoðanabræður
#92 Skoðanir Siffa G. (II)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later Nov 20, 2020 119:09

Handbremsa, stopp, beygja til vinstri. Þetta er ekki heillaskref. Raunar stórhættulegt og ætti að banna með umferðarlögum. En þetta eru örlög ófárra skeggjaðra einstaklinga sem einn daginn í sakleysi sínu sjá glitta í ljósið, eins og það heitir. Þeir ákveða að gá betur að því en sjá auðvitað ekki þá að það eru þeirra mestu mistök hingað til, því ljósið gleypir þá og þeim er þaðan af skapað að bera þungan kross um allan aldur. Vandinn er nefnilega sá að sá sem hefur séð ljósið ratar ekki aftur inn í myrkrið. En í myrkrinu líður manni best. Þetta er greinilega ekki spurning um það. Hér er rætt um Twitter, Rómaveldi, bandaríska pólitík, hryðjuverkastarfsemi og lesin upp alvöru tölvupóstsamskipti við Noam Chomsky. Það er sem sagt verið að skrifa söguna. Farið á Patreon! www.patreon.com/skodanabraedur. Útvarp 101.

Spegillinn
Spegillinn 3. nóvember 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 3, 2020 30:00

Spegillinn 3. Nóvember Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Bandaríkjamenn ganga til kosninga í dag og kjósa forseta landsins. Valið stendur á milli Donalds Trumps sitjandi forseta og frambjóðanda repúblikana og Joes Bidens frambjóðanda demókrata. Ingólfur Bjarni Sigfússon talar frá Washington Engar vísbendingar hafi fundist um að ungur maður sem skaut fjóra til bana og særði fjórtán í hryðjuverkaárás í Vínarborg í gærkvöld hafi átt sér vitorðsmenn. Vonskuveðri er spáð á sunnan- og vestanverðu landinu í kvöld og nótt - og á Norðurlandi á morgun. Hlýindi, mikil rigning og leysing fylgir sunnan- og vestanstormi sem gengur yfir landið. Margir sóttu um hlutdeildarlán hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í gær þegar opnað var fyrir umsóknir. Enn er beðið eftir reglugerð. Og Ari Eldjárn uppistandari verður með grín og gaman á streymisveitunni Netflix á næstunni. Lengri umfjallanir: Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Kristján Sigurjónsson ræðir við Ragnheiði Elínu Árnadóttur fyrrverandi þingmann og ráðherra og núverandi stjórnarmann í amerísk íslenska viðskiptaráðinu um kosningarnar, kosningabaráttuna og hvað taki við eftir kosningarnar. SÁÁ, samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, ætla að draga sig út úr Íslandsspilum og hætta þar með rekstri spilakassa. Framkvæmdastjórn SÁÁ bókaði í síðustu viku að hún væri sammála því að samtökin hætti þátttöku í Íslandsspilum og valin yrði útgönguleið sem verði þjónustu við fólk með spilafíkn. Einar Hermannsson formaður SÁ segir þarna ekki vera hlut til að selja, Íslandsspil sé ekki venjulegt fyrirtæki heldur sameignarfélag sem sé úthlutað leyfi til að reka spilakassana. Því þurfi sennilega aðkomu ráðherra og reglugerðarbreytingu þegar samtökin hverfa úr félaginu og afþakka þessa peninga. Framkvæmdastjóri Rauða krossins hefur sagt að hann ætli ekki að hætta rekstri spilakassa. Þór Þorsteinsson formaður Landsbjargar segir að það hafi lengi verið rætt innan félagsins hvort spilakassarnir séu fjáröflun sem standa eigi að. Eigendur Íslandsspila hafi í gegnum árin margoft reifað við dómsmálaráðherra hvernig bregðast megi við spilafíkn og spilavanda heildstætt, til dæmis með því að taka upp spilakort en það hafi ekki borið árangur. Vandinn sé miklu stærri en spilakassar Íslandsspila, Happdrætti háskólans reki líka slíka kassa en vandinn sé ekki síst á netinu, hvorki ríkið né íslensk félagasamtök fái nokkuð fé þaðan. Landsbjörg ætli ekki að hætta rekstri kassanna. Þeir hafa skilað þeim um fjórðungi tekna eða um 180 milljónum króna í fyrra. Anna

Spegillinn
Spegillinn 3. nóvember 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 3, 2020

Podkastalinn
#11 Gúmmírassinn

Podkastalinn

Play Episode Listen Later Oct 8, 2020 57:55

Strákar safna skeggi af því að þeir eru komplexaðir og ljótir, spurðu hvaða skeggjaða mann sem er. Gauti prófar sýndarveruleikagleraugu sem opna dyr inn í veröld sem er mun skemmtilegri en lífið sjálft. Vandinn er hinsvegar einn og aðeins einn, og hann mun verða mannsandanum að falli: Gúmmírassar

str gauti vandinn
Virðing í uppeldi
31. Bókaklúbbur - The Whole Brain Child

Virðing í uppeldi

Play Episode Listen Later May 13, 2020 121:51

Rafrænn bókaklúbbur, svo til óklipptur, fær að flakka í þessum þætti. Bókin er The Whole Brain Child eftir Daniel J. Siegel og Tinu Payne Bryson. Fæst okkar myndu bara standa á öðrum fæti ef við gætum notað báða fætur. En hið furðulega er að mörg okkar – sérstaklega börn – nýta sér ekki mikilvæga hluta heilastarfsemi sinnar án þess þó að það sé meðvitað val. Vandinn er að hlutar heilans þroskast á mismiklum hraða og á ólíkum tímum, svo að barnið þekkir oft ekki heilastarfsemi sína frekar en margt okkar hinna fullorðnu. Þessu hefur verið líkt við tvílyft hús, fyrsta hæðin er neðri heilinn en önnur hæðin sá efri og þróaði en þegar barn fæðist er fyrsta hæðin fullbúin en efri hæðin hjóm eitt. En hvernig getum við leiðbeint barni í áttina að nota allan heilann sinn? Við þurfum að byrja á að nota allan heilann okkar segja höfundar bókarinnar. Og meðfram öllu: Að byrja á að viðurkenna tilfinningar barna okkar. Þær sem mættu og deildu ýmsum hugleiðingum voru Ágústa Margrét Arnardóttir, Arndís Anna Kristínardóttir, Guðrún Birna le Sage, Gyða Björg Sigurðardóttir, Hafdís Ósk Pétursdóttir, Inga Kristín, Sólveig Rós og Guðrún Inga Torfadóttir sem stjórnaði upptökum.

Hlaðan - Hlaðvarp Bændablaðsins
Hlaðvarp Havarí – samtal um lífræna ræktun og framleiðslu – #2 – Kristján Oddsson

Hlaðan - Hlaðvarp Bændablaðsins

Play Episode Listen Later Mar 2, 2020 34:24

Kristján Oddsson, bóndi að Neðra Hálsi í Kjós, er viðmælandi Berglindar Häsler í öðrum þætti af Hlaðvarpi Havarí á Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins. Kristján er frumkvöðull í lífrænni ræktun á Íslandi og einn eiganda fyrirtækisins Bióbú sem sérhæfir sig í vinnslu á lífrænum mjólkurafurðum. Kristján og kona hans, Dóra Ruf, stofnuðu fyrirtækið árið 2003. Í þættinum segir Kristján lífræna ræktun geti skipað stóran sess í baráttunni við loftlagsvána. Vandinn hér á landi sé hins vegar sá að enn sé glímt við ákveðna fordóma í garð lífrænnar ræktunar og að skortur á sveigjanleika hjá eftirlitsaðilum og í regluverkinu sjálfu fæli bændur frá eða verði til þess að þeir missi móðinn. Að mati Kristjáns er mikilvægt að líta á lífræna ræktun sem þróunarverkefni, sér í lagi á meðan hún er að festa sig í sessi. Hlaðvarp Havarí - samtal um lífræna ræktun og framleiðslu er unnið í samvinnu við VOR hagsmunafélag framleiðenda sem stunda lífræna ræktun eða fullvinnslu lífrænna, íslenskra afurða.

Hlaðvarp Kjarnans
Molar – Max-vandinn stigmagnast

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Oct 4, 2019 21:34

Í Molum þessa vikuna er rætt um fréttaflutning Seattle Times af Max-vandanum hjá Boeing, og hvernig staða málsins er nú - ekki síst fyrir Ísland og hagsmunina sem eru undir hjá Icelandair. Þá er fjallað um tollastríð Bandaríkjanna við umheiminn, stöðuna á fasteignamarkaði, og ýmislegt fleira.

Von Ráðgjöf - Það er til betri leið
5. Ástartungumálin eftir Gary Chapman

Von Ráðgjöf - Það er til betri leið

Play Episode Listen Later Jul 21, 2019 46:47

Ástartungumálin 5 eftir Gary Chapman eru frábært verkefæri til þess að vinna með ástina í hjóna-og parsambandinu. Vandinn í parsambandinu er oft sá að tala ástartungumál sem við skiljum en skiljum svo ekkert í því að maki okkar skilur það ekki. Ástartunugmálin eru fimm og yfirleitt er það eitt sem lætur allt tikka fyrir mokkur. Við höfum svo oft séð að makar reyna að tala ástartungumálið sem hinn makinn skilur ekkert í.Við það myndast vonbrigði þar sem makinn upplifir að það sem hann gerir sé ekki metið. Málið er að það er ekki að makinn meti ekki það sem er gert heldur talar hann ekki þetta tungumál. Svona eins og að reyna að tala íslensku við einhvern í þýskalandi.Lærum hvert er ástartungumál maka okkar svo við getum sýnt maka okkar elsku eins og hann skilur.SnertingUppörvandi oraGjafirGæðastundirÞjónustaTil að panta á námskeið eða í ráðgjöf:Panta á námskeið "Haltu mér þétt" Panta tíma í ráðgjöf hjá BaldriPanta tíma hjá BarböruTaktu prófið, hvað er þitt astartungumál?Heimasíðan okkarSpurðu okkur spurningu og hentu á okkur "læki"!

Von Ráðgjöf - Það er til betri leið
6. Ástartungumálin framhald eftir Gary Chapman

Von Ráðgjöf - Það er til betri leið

Play Episode Listen Later Jul 1, 2019 47:20

Ástartungumálin 5 eftir Gary Chapman eru frábært verkefæri til þess að vinna með ástina í hjóna-og parsambandinu. Vandinn í parsambandinu er oft sá að tala ástartungumál sem við skiljum en skiljum svo ekkert í því að maki okkar skilur það ekki. Ástartunugmálin eru fimm og yfirleitt er það eitt sem lætur allt tikka fyrir mokkur. Við höfum svo oft séð að makar reyna að tala ástartungumálið sem hinn makinn skilur ekkert í.Við það myndast vonbrigði þar sem makinn upplifir að það sem hann gerir sé ekki metið. Málið er að það er ekki að makinn meti ekki það sem er gert heldur talar hann ekki þetta tungumál. Svona eins og að reyna að tala íslensku við einhvern í þýskalandi.Lærum hvert er ástartungumál maka okkar svo við getum sýnt maka okkar elsku eins og hann skilur.SnertingUppörvandi oraGjafirGæðastundirÞjónustaTil að panta á námskeið eða í ráðgjöf:https://pantatima.as.me/schedule.phpÁstartunnugmál próf:https://www.5lovelanguages.com/quizzes/

Mannlegi þátturinn
Áföll og fíkn,Menntursjóður Mæðrastyrksnefndar og Umhverfishátíð fjöls

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 9, 2019 50:00

MANNLEGI ÞÁTTURINN FIMMTUDAGUR 9.MAÍ 2019 UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON Áhrif áfalla geta verið margþætt og geta þau haft í för með sér afleiðingar af ýmsu tagi. Ráðstefna um áföll og fíknisjúkdóma verður haldin í Hörpu. „Vandinn getur verið eitthvert djúpstætt áfall sem viðkomandi er að burðast með og hefur jafnvel burðast með alla ævi,“ segir Pétur Einarsson, skipuleggjandi rástefnunnar, en hann verður gestur okkar eftir nokkrar mínútur. Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar hefur ,frá því að hann var stofnaður árið 2012 , veitt yfir 200 styrki til um 150 efnalítilla kvenna og þar með gera þeim kleift að mennta sig. Við forvitnumst betur um sjóðinn hér á eftir og hvernig fjáröflunarátak til að efla hann fór af stað í gær með aðstoð Vigdísar Finnbogadóttur og Lilju Alfreðsdóttur. Hvernig getum við lengt líftíma eigulegra og nauðsynlegra hluta sem eru á heimilinu? Á Umhverfishátíð í Norræna húsinu sem ætluð fyrir alla fjölskylduna, verður lögð áhersla á viðgerðarmenningu og aðferðir til að lengja líftímann á hlutum - allt frá reiðhjólum til buxna og brauðrista! Markmiðið er að vekja athygli á 12. sjálfbærnimarkmiði Sameinuðu þjóðanna, sem hvetur til ábyrgari framleiðslu og neyslu.

Morgunútvarpið
Fuglar, orkupakkinn, samgöngur, Bergið og svarthol

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 9, 2019 130:00

Bandarískir vísindamenn áætla að allt að milljarður fugla drepist á ári hverju við það að fljúga á byggingar þar í landi. Vandinn er stærstur í þeim borgum þar sem farfuglar fara um, m.a. Chicago og New York. Snorri Sigurðsson, líffræðingur hjá Reykjavíkurborg, fór yfir málið með okkur og svaraði því hvort þetta hefur verið skoðað hérlendis. Hinn mjög svo umdeildi þriðji orkupakki hefur verið tekinn til umræðu á Alþingi en sitt sýnist hverjum. Meðal þess sem deilt er um er framsal valdheimilda í andstöðu við stjórnarskrána og mögulegan sæstreng til Evrópu. Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, og Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins, eru á öndverðum meiði í málinu og komu til að útskýra afstöðu sína. Vestmannaeyingar eru orðnir langþreyttir á stöðunni í samgöngumálum, bið hefur orðið á afhendingu nýs Herjólfs og enn er ekki farið að sigla í Landeyjahöfn enda gengur dýpkun hægt. Við slógum á þráðinn til Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra í Eyjum og heyrðum af stöðu mála. Geðhjálp og Bergið standa á föstudaginn fyrir málþingi undir yfirskriftinni Opnar dyr fyrir okkar fólki. Aðalgestur málþingsins verður Patrick McGorry, stofnandi Headspace í Ástralíu, en til stendur að koma á svokallaðri lágþröskuldaþjónustu fyrir ungt fólk hér á landi að forskrift Headspace. Sigurþóra Bergsdóttir, stofnandi Bergsins, fræddi okkur um hugmyndafræðina að baki Headspace. Sævar Helgi Bragason kom til okkar í sitt vikulega vísindaspjall og ræddi svarthol, þar á meðal fyrstu ljósmyndina sem náðst hefur af einu slíku. Tónlist: Bubbi Morthens - Allur lurkum laminn. Dikta - Just getting started. Vök - Autopilot. Mugison - Kletturinn. The Cure - Close to me. Heiða Ólafs - Ekki nema von. Arcade Fire - Baby mine.

Samfélagið
Öldrun þjóðar, eftirlit með félagsþjónustu og Frakkland

Samfélagið

Play Episode Listen Later Dec 18, 2018 55:00

Þórhildur Kristinsdóttir, sérfræðingur í lyflækningum, öldrunar og líknarlækningum: Vandinn sem skapast við öldrun þjóðarinnar, heilbrigðiskerfið er óundirbúið. Sigríður Jónsdóttir, framkvæmdastjóri gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar: tilurð stofnunarinnar, eftirspurn eftir þjónustunni og framtíðarmöguleikar. Friðrik Páll Jónsson: Ástandið í Frakklandi, gulu vestin og Macron.

Spegillinn
Spegillinn 16. ágúst: Hvalveiðar, heilsugæsla og rauð svæði.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 16, 2018 30:00

Fréttir. Lengri umfjallanir: Norskir hvalveiðimenn mega drepa tæplega 1300 hrefnur í ár. Veiðarnar eru óumdeildar í Noregi. Gísli Kristjánsson í Noregi gerir upp vertíðina. Síðastliðin ár hefur fjölgað í hópi þeirra sem stunda sérnám í heimilislækningum. Vandinn sem við blasir er engu að síður stór. Á næsta áratug kemst helmingur starfandi heimilislækna á Íslandi á aldur og nú þegar eru fleiri íbúar á hvern heimilislækni hér á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum. Hvernig má standa vörð um heilsugæsluna til frambúðar? Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi það við Elínborgu Bárðardóttur, kennslustjóra sérnámsins, og Hrafnkel Stefánsson, sérnámslækni. Sem stendur eru sex friðlýst svæði á rauðum lista Umhverfisstofnunar og þrettán á appelsínugulum lista. Rauðu svæðinu eru til dæmis Friðlandið að fjallabaki, Geysir, Skógafoss og Mývatn. Þetta eru allt vinsælir ferðamannastaðir. Ragnhildur Thorlacius forvitnaðist um það hjá Ólafi A. Jónssyni, sviðsstjóra hjá Umhverfisstofnun, hvernig svæðin sem heyra undir stofnunina, komi undan sumri. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.

sem rau kristj hvernig vei umsj noregi geysir vandinn umhverfisstofnun heilsug lengri umhverfisstofnunar
Morgunvaktin
Írski vandinn hindrar Brexit

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 1, 2018 130:00

Við byrjuðum á Selfossi, þar sem stefnt er að uppbyggingu nýs miðbæjar með húsum í gömlum stíl. Kjartan Björnsson, rakari, sem á sæti í bæjarstjórn, lýsti þessu verkefni og áhuga sínum á því að tekinn verði í notkun menningarsalurinn sem bíður ókláraður í hótelbyggingunni við Ölfusá. Mikil vandkvæði blasa við í samningaviðræðum Breta um útgöngu úr Evrópusambandinu, ekki síst vegna ágreinings um landamæri og Norður-Írlands að Írska lýðveldinu. Bogi Ágústsson ræddi stöðuna í Brexit og ágreininginn sem þvælist fyrir. Svo var talað um áhuga Kínverja á Grænlandi. Við höfum heyrt dálítið af vetrarríki á meginlandi Evrópu - í Rómarborg og Kaupmannajöfn. Það er kalt á meginlandinu og snjóað hefur víða. Það fengu íbúar Borgundarhólms, dönsku eyjarinnar í Eystrasalti, líka að reyna. Óli Örn Andreassen, myndatöku- og dagskrárgerðarmaður TV2, býr og starfar á Borgundarhólmi. Hann talaði um veðrið, færðina, mannlífið og matinn á eynni. Marian McPartland og félagar fluttu The Lady is a Tramp. Food og Fun hátíðin er hafin enn eitt árið. Við Íslendingar eigum marga fína matreiðslumeistara en einhverra hluta vegna eru þeir flestir karlar. Ylfa Helgadóttir er ein tiltölulega fárra kvenna í fremstu víglínu; hún á og rekur veitingastaðinn Kopar við gömlu höfnina í Reykjavík og er þjálfari íslenska kokkalandsliðsins. Hún spjallaði um mat og matreiðslu, konur í faginu og Food og Fun.