Bara þrír "bestu" vinir að tala saman. Alveg eins og mörg önnur podcöst sem gera þetta miklu betur. Okkur finnst þetta bara gaman. Geez get off my back MOM.
Björk Guðmundus og Steiney Skúla kíktu í heimsókn og spjölluðu við okkur um grín.
Þetta er hluti af þætti 200, afmælisþættinum okkar sem var 10 tíma streymi í hljóði og mynd, sem hægt er að nálgast í held sinni á youtube rásinni okkar: Ekkert að frétta. Þetta er fyrsti hluti sem byrjaði kl. 11. Hér ræðum við lyfjapróf, piss og fréttir.
Fréttir undanfarinna daga skoðaðar í stóra og litla samhenginu. Við finnum út greinilegt samhengi milli incel hreyfingarinnar og sósíalista.
Við höfum öll verið í byggingum. Það er eitthvað sem við eigum sameiginlegt, þannig þú ert kannski opin fyrir því að taka þetta samband eitthvað lengra með það í huga.
Fréttir vikunnar eru krufðar í drasl, allt frá bílastæðum í barnamálaráðherraræður.
Okkur dreymir öll, sum bara meira en önnur. Það er ekkert til að skammast sín yfir.
Við tölum um fréttir vikunnar og siðleysi fermingargjafaauglýsinga.
Stefán Ingvar grínisti og pistlahöfundur og hlaðvarpsstjónandi hvaðvarpsinns Ekkert að þakka er gestur í dag og kemur til að verjast ásökunum og ræða sína hlið á fjölmiðlamálinu sem hefur skekið alla þjðóðina.
Við ræðum hvernig er best að sofa og sofna og allt sem tengist svefni.
Fréttir vikunnar skoðaðar í víðara samhengi. Jafn víðu og buxurnar mínar eru eftir 7 vikur á subway kúrnum.
Þetta er annar þáttur í seríunni okkar um búðir og áhrif þeirra á fjölmenningarsamfélag úthverfa og ómanneskjuvæðingu kaupaáráttuhegðunnar.
Ræðum Ingu og vini í ríkisstjórninni mest en líka eitthvað annað.
Hvað er íslenskara en að hoppa upp í pickup bíl, keyra á þjóðvegi 66 strandanna á milli og hlusta á country tónlist á fullum hljóðstyrk? Kannski blóðmör.
Fréttir vikunnar vorum meðal annars titill þáttarinns. Nenni ekki að skrifa meira.
Hvað er matur og hvernig kemst hann inn í mig? Svörum við þessum spurningum í þættinum? Ég held ekki.
Við ræðum helstu fréttir vikunnar. Aðstoðarmenn ráðherra, gervi stéttarfélög, jólagjafir fyrirtækja, sparnaðartillögur og fleira.
Fréttir, manneskjur orð, völva, tilnefningar, þessi þáttur er með þetta allt og svo miklu meira.
Á þessum heilagasta tíma lítum við á kapítalískastaafkima samfélagsins. Jólamyndir. Njótið vel!
Arngrímur Einarsson, Kristjana Benediktsdóttir og Stefán Gunnlaugur Jónsson halda sína árlegu jólatónleika. Njótið vel.
Tökum þátt, sýnum lit, tökum yfir heiminn... en gerum það í sameiningu.
Skoðum farinn veg í fréttum og ekki féttum.
Hvernig losar maður sig við áunna óheppni. Hlustaðu til að komast að því!
Við ræðum Mjá Mjá myndbönd, jólagjafir, Bandaríkin, Ástralíu, bæinn og kennaraverkfall.
Keppni á ÍM, skeggsnyrting, kosningar á Íslandi og í Bandaríkjunum. Vá hvað þetta er spennandi dagskrá!
Hvernig lifir maður þessum bíllausa lífsstíl. Björgvin útskýrir það af eigin reynslu í dag.
Rýnt í fréttir síðustu vikna. Kemur í ljós að Ísland er frekar ógeðslegt land. Heyrn er lestri ríkari!
Guðmundur leysir loks frá skjóðunni og segir okkur frá hinum dularfullu 12 lyklum til að halda gott party.
Í þessum þættir erum við bara við sjálfir, loksins. Bannað að dæma það!
Við hjálpum þér að takast á við erfiðleikana í þínu lífi. Einn þátt í einu, ein mínúta í senn.
Við búum í löndum en hversu mikið vitum við í alvöru um þau?! Þetta er allt sem þau vilja ekki segja þér í 5. bekk í Hofsstaðaskóla
Sci fi er mikilvægasta menningarfyrirbæri síðustu alda og í þættinum förum við yfir af hverju það er...
Við snúum aftur til að ræða aðra ólympíueika og íþróttir. Þeir eru farnir að endurtaka sig!!! OBB OBB OBB.
Gummi segir Stefáni hvað hann er búinn að vera gera, og öfugt, lesum fréttir.
Við skellum okkur í roadtrip út á land að skoða stemninguna í góða veðrinu.
Við ræðum göglu góðu áhyggjulausu tímana þegar við vorum á grunnskólaaldri. Hvað við gerðum á daginn og hvað við töluðum við fáar stelpur.
Þær eru komnar aftur... gríngellurnar úr Eldklárum og eftirsóttum...
Við útskýrum stjórnmálin fyrir þau sem ekki skilja þau.
Það er komið að því sem öll hafa verið að bíða eftir... Óskar podcastana. Verðlaunaafhending Ekkert að frétta.
Hver er besta auglýsing Íslands? Jú auðvitað svala auglýsing Jóns Páls.
VIð gefum 10 bestu ráðin fyrir rækun á öllum helstu heimilisplöntum
Hvernig er best að gera prófíl á Tinder? Við komumst að afgerandi niðurstöðu hér!
Manstu eftir einfaldari tímum þegar það eina sem þú hugsaðir um var hver er til í að koma út að leika og hvernig fylli ég út skattaskýrsluna mína? Hlustaðu þá á þennan þátt og lærðu nákvæmlega ekkert.
Við lesum hegningarlögin, hverja undirgrein fyrir sig.
Stefán er ekki á landinu og strákarnir tóku þátt án hans sem er örugglega mjög leiðinlegur og óáhugaverður. Þeir létu svo Stefán hlaða upp þættinum og skrifa lýsingu á honum. Þátturinn er svipur hjá sjón miðað við þegar Stefán er í þættinum.
Við ætlum að hafa samskipti gegnum tungumál við Ingu.