Podcasts about aldrei

  • 84PODCASTS
  • 355EPISODES
  • 1h 15mAVG DURATION
  • 1WEEKLY EPISODE
  • Jun 12, 2026LATEST

POPULARITY

20192020202120222023202420252026


Best podcasts about aldrei

Latest podcast episodes about aldrei

Spegillinn
Friðlýsing landgrunnsins suður af Íslandi, bílastæðagjöld um allt land og varningssala tónlistarmanna.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 12, 2026 20:00


Hafrannsóknastofnun vill friðlýsa tæplega 33.000 ferkílómetra af landgrunninu suður af Íslandi. Þar er að finna hluta af helstu kóralrifum við Ísland sem togveiðar hafa skaðað í gegnum árin. Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir einstakt landslag þarna á hafsbotninum sem fóstrar fjölbreytt lífríki og fjölbreytt búsvæði, kóralla, svampa og fleira. Friðlýsing þýðir veiðibann og allt lífríki sem þrífst þar á hafsbotni fengi algera friðun. Þeir sem ætla í bíltúr í góða veðrinu, sem spáð er víða um helgina, þurfa að hafa varann á sér ef þeir ætla að stoppa einhvers staðar. Aldrei hefur verið rukkað fyrir bílastæði jafnvíða og í ár. Samkvæmt samantekt Félags íslenskra bifreiðaeigenda frá í maí, rukkaði Parka fyrir notkun á 18 bílastæðum einkaaðila í Reykjavík í fyrra, en nú 24. GreenParking rukkaði fyrir 15 stæði, tveimur árum áður voru þau sjö. Í nóvember var rukkað fyrir bílastæði á 43 ferðamannastöðum víða um land, í maí voru þau orðin 54, það er 25 prósenta aukning. Tónlistarbolir og annar varningur sem merktur er hljómsveitum og listamönnum hefur aldrei verið mikilvægari en nú, til að mæta auknum kostnaði við tónleikahald. Þetta mátti meðal annars sjá fyrir stórtónleika Bubba Morthens um síðustu helgi, þegar opnaður var sérstakur vefur með alls konar varningi merktum honum. Varningsborðin eru líka ómissandi á tónlistarhátíðum og þar flykkjst tónleikagestir að og skoða boli, derhúfur, merki til að sauma á boli og annað slíkt, geisladiska, plötur og fleira.

land sing allt reykjav parka aldrei samkv bubba morthens hafranns
Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Úngfrúin góða og Húsið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 10, 2026 53:21


Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga mánaðarins er Úngfrúin góða og Húsið en hún er stutt verk sem Halldór skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til að stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er talin byggð á raunverulegum atburðum sem og upplifunum Halldórs sjálfs þegar hann sigldi ungur til Kaupmannahafnar. Sögumaður verksins er fjarlægur persónunum, samtöl og senur eru fáar og lesandi þarf sífellt að vera að púsla atburðunum saman í gegnum óbeinar upplýsingar héðan og þaðan svo erfitt er að ákveða hverju maður trúir og hverju ekki. Samlesari klúbbsins að þessu sinni er Elínborg Una Einarsdóttir, blaðamaður hjá Morgunblaðinu, sviðshöfundur og samfélagsrýnir. En síðasta haust birti hún grein í Morgunblaðinu með titilinn „Laxness hverfur úr skólum landsins“ og olli hún nokkru fjaðrafoki í samfélaginu og átti sinn þátt í að kveikja á þessum bókaklúbbi. Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður Heimsljós; dagsetning verður nánar auglýst síðar. Grafík; Silvía Sif Ólafsdóttir

Gullkastið á Kop.is
Gullkastið – Tölum Aldrei Um Þetta Aftur

Gullkastið á Kop.is

Play Episode Listen Later May 26, 2026 70:09


Liverpool spilar í Meistaradeild Evrópu næsta vetur þannig að það er óhætt að nota gamla góða Men In Black pennann á þetta tímabil og gleyma því. Tímabilið 2025-26 gerðist ekki. Skoðuðum lokaumferðina, stöðuna á toppliðunum í upphafi leikmannagluggans og hentum í létt uppgjör á tímabilinu Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Ein Pæling
#567 Hallgrimur Helgason - Ég mun aldrei bakka frá vókinu

Ein Pæling

Play Episode Listen Later May 25, 2026 80:15


Þórarinn ræðir við Hallgrím Helgason, einn ástsælasta rithöfund Íslands. Hallgrímur hefur farið mikinn í umræðum um vókið. Hann telur það vera hreyfiafl til góðs og að það sé í raun samnefnari við réttindi minnihlutahópa. Þórarni og Hallgrími greinir á um þessi mál og fer þorri hlaðvarpsins í að ræða það. En auk þess er rætt um listamannalaun, útlendingamál, transmál, hægri bylgjuna og fleira.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25

Ein Pæling
#566 Guðrún Hafsteinsdóttir - Sjálfstæðisflokkur mun aldrei starfa með vinstrimönnum á vakt Guðrúnar

Ein Pæling

Play Episode Listen Later May 24, 2026 79:13


Þórarinn ræðir við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins um stöðu flokksins og hennar sem formanns nú eftir sigur í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum. Fjallað er um landsmálin og hvort að lélegur árangur Samfylkingarinnar sé vísbending um það sem koma skal nú þegar umræður um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið er komið á dagskrá.- Telur Guðrún ríkisstjórnina veika nú eftir sveitarstjórnarkosningar?- Ætlar Guðrún að halda áfram sem formaður á næsta landsfundi?- Mun Sjálfstæðisflokkurinn lækka skatta í 35% fái hann tækifæri?Þessum spurningum er svarað hér.Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:  Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270  Samstarfsaðilar:  Poulsen  Happy Hydrate  Bæjarins Beztu Pylsur  Alvörubón  FiskhúsiðHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur:500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið með því að senda email á Hrafnadalur@proton.meHappy Hydrate kóði: EINPAELING25

gu sj evr vakt aldrei fjalla hafsteinsd samfylkingarinnar
Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Salka Valka

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 13, 2026 56:47


Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Salka Valka sem kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932, og segir verkið sögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, en hún elst upp á Óseyri við Axlarfjörð, á miklum umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar. Samlesari Sölku Völku og sérstakur gestur þáttar er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari. Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður smáskáldsagan Úngfrúin góða og húsið; dagsetning verður nánar auglýst síðar.

halld aldrei salka laxness valka bergur ebbi
Rauða borðið
Rauða borðið 5. maí - Heimurinn, fjölskyldustefna, snýr aldrei aftur, gervigreind og kónguló

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 5, 2026 238:22


Þriðjudagur 5. maí Heimurinn, fjölskyldustefna, snýr aldrei aftur, gervigreind og kónguló Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræðir við Maríu Lilju um stöðu heimsmála. Guðný Eydal, prófessor í félagsráðgjöf og Ásdís Arnalds, lektor í félagsráðgjöf ræða fjölskyldustefnur á Íslandi og hverju er ábótavant í framfylgd hennar og framkvæmd við Laufeyju Líndal. Jón Óðinn Waage sem flutti til Svíþjóðar eftir hrun segir að saga Íslendinga sé saga þjóðar sem elskar eigin mistök. Hann flytur drápu við Rauða borðið í símtali við Björn Þorláks. Gervigreind sem persónulegur aðstoðarmaður gefur þér forskot og sparar þér tíma og fé, segir Fjalar Sigurðarson í viðtali við Ásdísi. Doktor Ingi Agnarsson dýrafræðingur er á leið til Madagaskar með nemendahóp frá HÍ. Hann greinir Birni Þorláks frá sterkasta efni náttúrunnar sem finnst í kónguló.

Víðsjá
Salka: Ástin og dauðinn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 30, 2026 55:31


Í þættinum tökum við örlítið forskot á bókaklúbbinn Aldrei las ég Laxness og ræðum fyrsta hluta Sölku Völku og sýninguna Salka; Ástin og dauðinn, við leikkonuna, leikskáldið og leikstjórann Unni Ösp Stefánsdóttur. Sýningin er einleikur á vegum þjóðleikhússins og Landnámsseturs Íslands, byggður á fyrsta bindi skáldsögunnar og hefur vakið umtalsverða athygli undanfarna mánuði.

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Aldrei verið eins faglegir á föstudegi

Dr. Football

Play Episode Listen Later Apr 24, 2026 87:44


Doc, Gunnar Birgisson og Hjálmar Örn

Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Vefarinn mikli frá Kasmír

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 15, 2026 56:16


Bókaklúbbur Víðsjár heldur áfram: Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins. Í þættinum ræða Tómas og Natasha S., skáld og rithöfundur, bókina sín á milli.

Bylgjan
Reykjavík síðdegis - miðvikudagur 1. apríl 2026

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 1, 2026 66:30


Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir þáttastjórnandi Ískápastríðsins og markaðsstjóri hjá Hagkaup ræðir um matarveisluna um páskana Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um páskaumferðina, Lára Sigrún Steinþórsdóttir þjónustufulltrúi hjá Vegagerðinni og Sigurður Þ. Ragnarsson Siggi Stormur hjá veður ehf um páskaspána Símatími Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra um húsnæðislánakerfið Hörður Finnbogason formaður samtaka skíðasvæða á Íslandi ræðir skíðastemninguna yfir páskana Kristján Freyr Halldórsson rokkstjóri Aldrei fór ég suður Símatími númer 2 þar sem við ræddum við hlustendur um apríl göbb

Mannlegi þátturinn
Helgi Björns og Ísafjörður, Guðmundur Pétursson og blúshátíð og Edda Olgudóttir

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 1, 2026 53:23


Páskahelgin er á næsta leyti og margir sem verða á faraldsfæti. Sumir fara í sumarbústað, aðrir til útlanda og svo eru margir sem fara vestur Ísafjörð, þar sem fram fer skíðavika og auðvitað tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Við töluðum við skíðagarp, frá Ísafirði sem margoft hefur troðið upp á þessari ágætu hátíð fyrir vestan - þó hann hafi sig hægan núna um páskana. Helgi Björnsson tónlistarmaður kom í þáttinn í dag. Blúshátíð í Reykjavík er í gangi yfir páskana eins og undanfarin ár og áratugi. Hátíðin verður í sínum stað á Hilton Reykjavík Nordica og á dagskránni eru bæði erlendar og innlendar blússtjörnur og að lokinni formlegri dagskrá verður Klúbbur Blúshátíðar þar sem tónleikagestir geta notið lifandi tónlistar í afslöppuðu umhverfi. Guðmundur Pétursson kom til okkar í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í lok þáttar í sitt reglubundna vísindaspjall. Hún fjallaði um nýjar rannsóknir á rafrettum og níkótíninntöku. Og okkur skildist að þetta hafi ekki verið alslæmar fréttir sem hún færði okkur í dag. Tónlist í þættinum í dag: Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Allt ljómar / Helgi Björnsson Ég trúi á þig / Múgison og Blúskompaníið UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Undir Helgahnúk

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 18, 2026 54:36


Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar, Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga þáttarins er að þessu sinni Undir Helgahnúk sem kom út árið 1924. En verkið skrifaði Halldór í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið sem er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer því að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur. Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér: https://www.facebook.com/groups/1247768283945537

Heimsglugginn
„...aldrei hefur forseti logið jafn mikið…“

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Feb 26, 2026 22:39


Danska blaðið Politiken sagði í leiðara að aldrei hefði forseti logið jafn mikið og gert jafn mikið til að sundra landi sínu. Þarna var Politiken að fjalla um State of the Union-ræðu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Þetta var til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu einnig við Boga Ágústsson um orð Finnlandsforseta um stríðið í Úkraínu sem sagði Pútín Rússlandsforseta ekki geta unnið stríðið en vildi heldur ekki semja um frið. Þá var rætt um mikilvægar aukakosningar til breska þingsins í dag þar sem þrír flokkar geta unnið. Raving Monster Loony Party er ekki í þeim hópi en hlustendur fengu að heyra í frambjóðanda flokksins sem kallar sig Sir Oink A lot eða Sir Rýta mikið.

Víðsjá
Aldrei las ég Laxness / Barn náttúrunnar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 18, 2026 55:14


Í dag fer af stað bókaklúbbur Víðsjár sem nefnist Aldrei las ég Laxness, sem hefur það markmið að lesa allar skáldsögur nóbelskáldsins Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Við hefjum leika á því að ræða fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelmi Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Undir Helgahnúk en fjallað verður um hana í Víðsjá 18. Mars, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér: https://www.facebook.com/groups/1247768283945537

Víðsjá
Hörður í Gerðarsafni, Dúkkuverksmiðjan, Barn náttúrunnar

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 16, 2026 55:07


Hörður Ágústsson er lykilpersóna í íslenskri menningarsögu. Hann var í framvarðarsveit myndlistar á síðustu öld, leiðandi rödd módernismans og lykilmaður í þróun abstraktsins hér á landi. Hörður var einnig mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar húsagerðalistar og brautryðjandi í bókahönnun og auglýsingagerð. „Í mér eru arkitekt og ljóðskáld, og þeir eru sífellt að rífast,“ sagði hann eitt sinn, en á nýrri sýningu um listamanninn í Gerðarsafni er fókusinn settur á arkitektinn Hörð, og dregin fram verk sem sýna fyrst og fremst nálgun hans á form og litafræði. Sýningarstjórar eru þau Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns og grafísku hönnuðurnir Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir. VIð hittum þau á safninu í þætti dagsins. Einnig rýnir Gauti Kristmannsson í Dúkkuverksmiðjuna eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur og við þjófstörtum Aldrei las ég Laxness bókaklúbbinum.

Steve Dagskrá
Það á aldrei að fara síðustu ferðina.

Steve Dagskrá

Play Episode Listen Later Feb 11, 2026 63:11


Það á aldrei að fara síðustu ferðina. by Steve Dagskrá

Handkastið
Olís deildin aldrei verið jafnari

Handkastið

Play Episode Listen Later Feb 9, 2026 75:25


Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp helgina í handboltanum. Olís deildin hefur aldrei verið jafnari á allt getur gerst bæði á toppi og botni. Haukar féllu á prófinu gegn ÍBV. FH sluppu með skrekkinn fyrir Norðan. Stjarnan eru komnir í alvöru fallbaráttu. Stórleikur í Skógarselinu í kvöld þar sem fallbaráttan gæti ráðist. Olís deild kvenna er engin undantekning og spenna á toppi og botni þar. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Ólga í FH og Lengjudeildin aldrei verið stærri

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Jan 31, 2026


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni frá Suðurlandsbraut. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og Tómas velur sitt landslið úr Bestu deildinni. Baldvin Már Borgarsson sérfræðingur þáttarins opinberar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina og skoðar hvað félögin þar hafa verið að gera í vetur. Skoðað verður hvað Íslendingar voru að gera í Evrópukeppnum og þá er sérstakt handboltahorn þar sem rætt er um frammistöðu íslenska liðsins á EM.

FM957
TRAFFÍKIN #6. JAN. 26 - ALDREI fara í leigubíl aftur

FM957

Play Episode Listen Later Jan 7, 2026 70:10


Endalínan
295. Þáttur - Sauðkrækingar sestir í forsetastólinn?

Endalínan

Play Episode Listen Later Dec 13, 2025 97:37


Aldrei hefur Endalínan mætt eins snemma í upptökur, en þetta var hressandi.Mörg svör og margar spurningar sem kvikna eftir þessa 10. umferð.Er Tindastóll óstöðvandi?Er Valur að verða Valur? En hvar var Valur?Hvað þarf Njarðvík að gera?Hvað ætla Þórsarar að vera?Allt þetta og fleira í boði Comfyballs, Marion herrafataverslun, Hótel Kef, Viking Lite (Léttöl) og Brons!

FantasyGandalf
#178 - Færð til í starfi, ekki hætta að stunda kynlíf og aldrei segja þetta við makan þinn

FantasyGandalf

Play Episode Listen Later Nov 12, 2025 76:27


Það var enginn færður til í starfi við gerð þessa þáttar. Góða skemmtun!

Samfélagið
Slökkviliðsstjórinn í Grindavík, deildastjóri Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu, rófuútskurður í Árbæjarsafni og varnartengd starfsemi

Samfélagið

Play Episode Listen Later Oct 28, 2025 58:59


Aldrei hefur snjóað jafnmikið í Reykjavík í október, en jafnfallinn snjór mældist 27 sentímetrar við Veðurstofuna í dag. Það snjóar enn og breytast gular veðurviðvaranir í appelsínugular þegar líður á daginn. Færðin er í takt við veðrið og má búast við að hún versni enn. Lögreglan á Suðurnesjum mælist til þess að fólk gisti ekki í Grindavík á meðan appelsínugular viðvaranir eru í gildi, en þar er óvissustig almannavarna í gildi vegna jarðhræringa. Við sláum á þráðinn til Grindavíkur og heyrum í Einari Jóni Sveinssyni slökkviliðsstjóra. Við ræddum við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, deildarstjóra Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu, um veður og færð á höfuðborgarsvæðinu. Hrekkjavakan hefur á síðustu árum haldið innreið sína á Íslandi. Siðurinn hefur borist hingað frá Bandaríkjunum, en hátíðin á sér miklu eldri rætur sem má rekja til heiðinnar hausthátíðar sem Írar og Bretar fögnuðu til forna. Það hefur verið hefð að skera út grasker en ekki allir vita að áður en Evrópumenn numu Ameríku og fundu graskerið, voru luktir skornar út úr rófum. Við kíktum í heimsókn á Árbæjarsafnið í gær og fengum að vera viðstödd rófuútskurð. Áhersla á varnarmál hefur aukist mikið undanfarin misseri og ætla íslensk stjórnvöld að verja einu komma fimm prósent af vergri landsframleiðslu í öryggis og varnarmál fyrir árið 2035. Varnartengd starfsemi hér á landi felst meðal annars í að taka á móti liðsafla bandalagsríkja NATÓ, og erum við fær um að hýsa jafnvel þúsundir manna með tiltölulega skömmum fyrirvara. Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir okkur undan og ofan af varnartengdri starfsemi hér á landi. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Tónlist þáttarins: HLJÓMSVEIT ÞORSTEINS GUÐMUNDSSONAR: Snjómokstur RÍÓ TRÍÓ: Dýrið gengur laust PRINS PÓLÓ: Er of seint að fá sér kaffi núna TODMOBILE: Abracadabra

Ekkert að frétta
215 - Lygasaga, gjaldþrot og klukkkur

Ekkert að frétta

Play Episode Listen Later Oct 6, 2025 71:09


Fréttir í dag, fréttir í gær, fréttir á morgun. Aldrei eins, alltaf áhugaverðar. Hvað get ég sagt?

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Eiður Smári og GB fara yfir boltann - Pep aldrei rekinn

Dr. Football

Play Episode Listen Later Sep 12, 2025 71:45


Eiður Smári Guðjohnsen var með Dr. Football og Gunna Birgis.

Handkastið
Olís deildirnar aldrei verið jafnari

Handkastið

Play Episode Listen Later Sep 12, 2025 59:54


Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly fóru yfir vikuna í handboltanum og spáðu í spilin fyrir helgina. Olís deildirnar hafa aldrei verið jafnari og ærið verkefni að spá í spilin fyrir leikina. FH-ingar pökkuðu Valsmönnum saman í gær. Selfyssingar naga sig í handarbökin að vera ekki komnir með fleiri stig og frábær endurkomusigur hjá Mosfellingum. Nóg af handbolta um helgina og allt saman í þráðbeinni á handboltapassanum.

Bylgjan
Sprengisandur 7. september 2025 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Sep 7, 2025 97:36


Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Saga/Akureyri Óskar Þór Halldórsson, rithöfundur og blaðamaður,  Óskar fjallar um nýja bók sína um Akureyrarveikina, dularfullan veirusjúkdóm sem herjaði á Akureyringa fyrir 1950, lagði fjölmarga í rúmið og olli þeim sömu ævilöngum óþægindum. Aldrei hefur fundist skýringa á þessum sjúkdómi og hann veldur mönnum heilabrotum enn í dag.    Atvinnumál Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF.  Halla og Jóhannes ræða hugmyndir ríkisstjórnar um nýja atvinnustefnu, áherslur og framtíðarsýn. Hvert ber að halda, hvernig skapa Íslendingar arðbær störf um leið og réttindi fólks og kjör eru varin?   Stjórnmál/alþjóðamál Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Þorgerður bregst við áskorun fjöldafunda um landið þar sem þess er krafist að ríkisstjórn grípi til raunhæfra aðgerða vegna stríðsins á Gaza, hvað getur ríkisstjórn Íslands gert og hver eru áform hennar?    Stjórnmál/stjórnmálaumræða Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður og Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur. Bryndís og Guðmundur ræða málfrelsi og skoðanaskipti undanfarinna daga, m.a. um akademískt frelsi og tilverurétt transfólks. Er málfrelsi ógnað á Íslandi, ríkir þöggun um tiltekin mál og hvernig birtist hún? 

FantasyGandalf
#165 - Bensínbóar, nakinn á Google og hvernig á að sleikja píku?

FantasyGandalf

Play Episode Listen Later Aug 6, 2025 74:28


Aldrei hlegið jafn mikið. Góða skemmtun!

FM957
TRAFFÍKIN #3. JÚNÍ. 25 - Fer Jóna aldrei í sleik?

FM957

Play Episode Listen Later Jun 4, 2025 61:04


aldrei fer j
Samfélagið
Framtíð Heiðmerkur, níkótínpúðafíkn. strákahljómsveitir, AFÉS og Alzheimer

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 28, 2025 56:42


Aðgengi almennings að Heiðmörk kann að verða takmarkað í framtíðinni. Veitur stefna að því að loka grannsvæði vatnsverndar fyrir almennri bílaumferð. Í dag verður haldið málþing á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur þar sem framtíð Heiðmerkur verður rædd. Auður Kjartansdóttir, framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, kemur og ræðir við okkur um framtíð Heiðmerkur. Síðan fáum við síðasta pakkann af umfjöllunum frá nemendum í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands. Stefanía Silfá Sigurðardóttir fjallar um tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir fjallar um strákahljómsveitir. Þórður Ari Sigurðsson fjallar um níkótínpúðanotkun ungmenna. Og að lokum kíkir Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall og segir okkur frá áhrifum Alzheimers á aðra vefi líkamans.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Ég kem aldrei aftur” -#567

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Apr 28, 2025 69:07


Vivian Ólafsdóttir var gestur okkar í dag en hún er að leika i þáttunum Reykjavík 112 sem eru sýndir í Sjónvarpi Símans. Strákarnir hringdu í Boga Ágústsson sem stýrir sínum síðasta fréttatíma á RÚV í kvöld. Hjálmar hneykslaðist yfir Evu Ruzu í Danmörku. Helgi fékk unga drengi í kakóserimóníu um helgina sem fóru alveg yfir um í leitinni að innri friði og fóru bara.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Lestin
Anna María Tómasdóttir, LucasJoshua, Salóme Katrín á Aldrei

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 16, 2025 55:27


Anna María Tómasdóttir leikstjóri vill hafa húmor í leikhúsi. Það er ekki nauðsynlegt að vera í hláturskasti allan tímann, en það verður að vera eitthvað fyndið. Hún vill sjá fleiri íslensk leikrit, því þau eru það besta, og henni þætti einnig sniðugt ef Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið myndu stilla saman strengi sína. En fyrst og fremst vantar hér leiksvið. LucasJoshua er 17 ára gamall raftónlistarmaður. Hann hlaut verðlaunin Rafheili Músíktilrauna í ár. Þórður Ingi Jónsson sló á þráðinn til hans. Salóme Katrín Magnúsdóttir er í bíl á leiðinni vestur og í dag kom út lagið hennar Always and forever. Una Schram spjallar við Salóme um Aldrei fór ég suður, sem fer fram um páskana á Ísafirði.

magn hann katr aldrei anna mar borgarleikh ingi j
Bylgjan
Bítið - þriðjudagur 15. apríl 2025

Bylgjan

Play Episode Listen Later Apr 15, 2025 112:02


Bítið á Bylgjunni með Lilju, Ómari og Yngva. * Sveinn Runólfsson, fyrrverandi landgræðslustjóri, var á línunni og gagnrýndi kolefnaskógrækt. * Carmen Maja Valencia, klínískur sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd hjá Auðnast, ræddi við okkur um samskipti á vinnustað. * Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, mætti í spjall um stöðu ferðaþjónustunnar. * Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði Íslands, ræddi við okkur um nýja greiningu á húsnæðismarkaði. * Gefur íþróttahreyfingunni handbók til að fjölga áhorfendum. Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir var að klára BA próf í tómstunda- og félagsmálafræði. * Súkkulaðifeðgarnir Atli Einarsson og Patrik Atlason, Prettyboitjokkó, ræddu við okkur um páskaeggin, feðgasambandið og lífið og tilveruna. * Kristján Freyr, rokkstjóri var á línunni og ræddi hátíðina Aldrei fór ég suður.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Er aldrei drama í andlega heiminum?” -#563

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Apr 14, 2025 53:15


Helgi var koma frá Ítalíu þar sem hann upplifði algjöra paradís. Hjálmar lýsti í síðasta þætti hvernig skrifstofu vinna gengur út á fyrir sig og fékk hann mikla gagnrýni á það. Helgi var eltur af vafasömum manni á Ítalíu. Hjálmar lennti í óheppilegu atviki í lúgusjoppu.IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Spegillinn
Ísraelar rjúfa vopnahlé á Gaza, utanríkisráðherra fordæmir árásirnar og meðferðarheimilið sem aldrei reis í Garðabæ

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 18, 2025 20:00


Utanríkisráðherra fordæmir loftárásir Ísraelshers á Gaza í nótt sem bundu enda á tveggja mánaða vopnahlé. Hún tekur undir með Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna, að stríðsrekstur Ísraela á Gaza beri öll einkenni þjóðarmorðs. Nærri þrjú hundruð blaðsíður af gögnum varpa ljósi á hvers vegna nýtt meðferðarheimili fyrir börn hefur enn ekki risið í Garðabæ. Bygging heimilisins virðist hafa verið svæfð þegar Barnaverndarstofa var lögð niður.

Dr. Football
Helgaruppgjör Dr. Football - Vindhanar verða aldrei áttavitar

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jan 26, 2025 74:51


Doc, Jói Már og Viktor Unnar Illugason mættur aftur.

Handkastið
Aldrei vekja mig frammistaða - Ísland með fullt hús stiga í milliriðil

Handkastið

Play Episode Listen Later Jan 20, 2025 56:16


Sérfræðingurinn, Tómas Þór Þórðarson og Gunnar Steinn Jónsson gerðu upp frábæran sigur Íslands á Slóveníu. Spáð var í spilin fyrir komandi leiki Íslands í milliriðli.

Heimsglugginn
Sýrlendingar hafa aldrei ráðið eigin örlögum

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Dec 12, 2024 23:10


Bashar al-Assad hefur hrakist frá völdum í Sýrlandi og óvissa hvað tekur við. Ólíklegt er að almenningur fái ráðið því hverjir taki við stjórn, það hefur aldrei verið lýðræði í Sýrlandi í árþúsunda sögu landsins. Farið var yfir sögu landsins í Heimsglugga vikunnar.

Stundin
Pressa #28: Ræða hækkandi matvöruverð í Pressu

Stundin

Play Episode Listen Later Nov 8, 2024


Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, og Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá stéttarfélaginu Visku, verða gestir Pressu í dag. Þar mun hækkandi matvöruverð vera til umræðu. Aldrei hefur verið meiri hagnaður fólginn í því að selja íslenskum neytendum matvöru.

Fotbolti.net
Rólegi stríðsmaðurinn sem aldrei vék frá Stjörnunni

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Nov 4, 2024


Daníel Laxdal lagði skóna á hilluna á dögunum eftir stórkostlegan feril með Stjörnunni. Daníel lék allan sinn feril í Garðabænum og skilur eftir sig mikla arfleifð hjá félaginu. Mikill stríðsmaður innan vallar en afar rólegur samt sem áður. Þessi mikli Stjörnumaður mætti í hlaðvarp á Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi aðeins um ferilinn, ákvörðunina um að hætta og hvað sé næst.

Flugvarpið
#89 – Umsvif Air Atlanta aldrei meiri - 17 breiðþotur um allan heim – Baldvin Már Hermannsson

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Sep 14, 2024 63:11


Rætt er við Baldvin Má Hermannsson forstjóra Air Atlanta um starfsemi fyrirtækisins og hvernig það hefur vaxið og dafnað á allra síðustu árum. Flugfélagið var eitt fárra sem var á fullu í covid faraldrinum og á undraskömmum tíma tókst að auka vægi fraktflugs mjög hratt þegar botninn datt úr farþegafluginu. Atlanta er í dag með 11 Boeing 747 breiðþotur í fraktflutningum um allan heim og að auki 6 Boeing 777 vélar í farþegaflutningum. Baldvin Már ræðir hér hvernig félagið hefur oft mætt erfiðri samkeppni í gegnum tíðina og hvernig íslensk þekking, reynsla og gæði í flugrekstri hefur fleytt félaginu á þann stað sem það er á í dag.

boeing heim brei meiri aldrei otur hermannsson flugf baldvin
Draugar fortíðar
#204 Fidel Castro

Draugar fortíðar

Play Episode Listen Later Aug 7, 2024 200:46


Þrátt fyrir að vera leiðtogi smáríkis þá kom hann Kúbu ansi langt inn á leikborð alþjóðastjórnmála. Raunar var Kúba miðpunkturinn í deilu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna árið 1962 en þá saup öll veröldin hveljur. Aldrei nokkurn tíma var eins mikil hætta á kjarnorkustríði milli stórveldanna. Fidel Castro er ugglaust einn umdeildasti leiðtogi sögunnar. Hann reif þjóð sína upp úr fátækt og stórbætti heilbrigðis - og menntakerfi. Andóf gegn stjórnvöldum var þó miskunnarlaust barið niður og fjölmiðlun var langt frá því að vera frjáls. Castro hafði mikla útgeislun og vakti athygli hvar sem hann kom. Í raun varð hann fyrirmynd byltingarmanna um allan heim. Hann sýndi öðrum leiðtogum rómönsku Ameríku að hægt var að standa upp í hárinu á Bandaríkjunum og losa landið við arðrán fyrirtækja þeirra og spillingu mafíunnar. Fólki er bent á að þættirnir um Ameríku-skólann (nr. 181) og Fulgencio Batista (nr. 198) tengjast þessu efni mjög. Mælum með að hlusta á þá. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook

illverk
165 Þáttur: Ali Abulaban "The TikTok Star Killer"

illverk

Play Episode Listen Later Jul 6, 2024 66:26


ᴀʟɪ ᴀʙᴜʟᴀʙᴀɴ "ᴛɪᴋ ᴛᴏᴋ sᴛᴀʀ ᴋɪʟʟᴇʀ " ᴛʜᴇ ᴍᴜʀᴅᴇʀ ᴏғ ᴀɴᴀ ᴀʙᴜʟᴀʙᴀɴ Ali & Ana Abulaban voru upprennandi TikTok stjörnur sem áttu framtíðina fyrir sér. Engin vissi þó hvað átti sér stað bakvið luktar dyr & þann 21 október árið 2021 kom í ljós sönn hlið Ali, sem var að sturlast úr öfund. Ef að þið kannist við aðstæðurnar sem ég ræði í þættinum úr ykkar eigin lífi, hvet ég ykkur til að skoða úrræðin hér að neðan. Ég lofa að þú ert aldrei einn/ein/eitt og það er lausn til fyrir þig.   Kvennaathvarfið – Sími: 561-1205 Bjarkahlíð Reykjavík – Sími 553-3000 Bjarmahlíð Akureyri – Sími: 551-2520 Stígamót – sími 562-6868 Heimilisfridur.is 112 - Aldrei hika að hringja! Má bjóða þér að hlusta á fleiri Illverk þætti? Þú getur skráð þig í áskrift & með því fengið aðgang að yfir 300+ aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði & þessa fríu án auglýsinga. Áskriftin kostar 1150,- kr á mánuði & henni fylgir engin binding. Skráðu þig í illverk áskrift inná www.illverk.is Hafðu samband: • illverk@illverk.is • #illverkpodcast ʙᴀᴋʜᴊᴀʀʟᴀʀ ɪʟʟᴠᴇʀᴋ ᴘᴏᴅᴄᴀsᴛ: • sɪxᴛ ʟᴀɴɢᴛɪᴍᴀʟᴇɪɢᴀ.ɪs • ᴋ

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Ég hef aldrei horft á Gísla Martein” -#484

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jul 4, 2024 10:35


Birgitta Líf og Sunneva Einars kíktu til okkar í létt spjall og haldin var spurningakeppni þar sem þær kepptu við hvort annað. Strákarnir eru báðir miklir aðdáendur og höfðu gaman af þessari heimsókn.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Fotbolti.net
Aldrei heim - Horfum ekki á E-riðilinn á EM

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 27, 2024


Lokaþáttur Aldrei heim, markmiðið að komast á EM náðist því miður ekki. Daginn eftir tapið gegn Úkraínu fara Elvar Geir og Sæbjörn Steinke yfir leikinn og niðurstöðuna. Farið er yfir einkunnir íslenskra leikmanna, helstu umræðupunkta og framhaldið hjá liðinu. Við þökkum fyrir hlustunina á hlaðvarpsþætti okkar frá Ungverjalandi og Póllandi. Áfram Ísland!

Fotbolti.net
Aldrei heim - Kjartan Henry fékk góða gjöf frá Úkraínumanni

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 26, 2024


Það er úrslitastund, leikdagur. Úkraína og Ísland mætast í Wroclaw í kvöld og stemningin í borginni eykst. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða við góða menn á leikdegi. Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport og Kjartan Henry Finnbogason sérfræðingur kíktu á hótelbarinn. Rætt er um stemninguna og spennuna í aðraganda leiksins, líklegt byrjunarlið, kynni Kjartans af landsliðsþjálfara Úkraínu og geðþekkan og gjafmildan Úkraínumann.

Fotbolti.net
Aldrei heim - Formaðurinn í takkaskónum

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 25, 2024


Þeir Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke ræddu um atburði dagsins í hlaðvarpsþættinum Aldrei heim. Á morgun fer fram úrslitaleikur milli Íslands og Úkraínu um sæti á EM. Í dag voru fréttamannafundir liðanna og lokaæfingarnar fyrir leikinn. Farið er yfir líklegt byrjunarlið Íslands og það helsta sem kom fram á fréttamannafundunum, Í þættinum er rætt við Þorvald Örlygsson formann KSÍ um landsliðið og fyrstu vikurnar í starfi formanns.

Fotbolti.net
Aldrei heim - Landsliðið komið til Póllands

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 24, 2024


Íslenska landsliðið flaug í dag yfir til Wroclaw í Póllandi en þar verður leikurinn gegn Úkraínu á þriðjudag, úrslitaleikurinn um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru einnig komnir yfir til Póllands og ræddu helstu umræðumálin í aðdraganda leiksins. Ferðalagið til Póllands, íslensku stuðningsmennirnir, styrkleikar úkraínska liðsins, tvífari Trossard, spurningamerki á miðsvæði Íslands, mögulegt byrjunarlið og fleira.

Fotbolti.net
Beint frá Búdapest - Hetjan sem mátti ekki tala

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Mar 22, 2024


Aldrei heim! Ísland gerði sér lítið fyrir og vann 4-1 sigur gegn Ísrael í Búdapest. Eftir ótrúlegan rússíbanaleik er ljóst að það bíður úrslitaleikur gegn Úkraínu sem fram fer í Póllandi á þriðjudaginn. Úrslitaleikur um sæti á EM í Þýskalandi. Eftir langan vinnudag ræddu Elvar Geir og Sæbjörn Steinke við Helga Sigurðsson fréttamann 433.is um þetta skemmtilega kvöld þar sem Albert Guðmundsson stal fyrirsögnunum en mætti ekki í viðtöl.

Normið
238. Halldóra Geirharðs - "Aldrei hætta að vera forvitin"

Normið

Play Episode Listen Later Dec 12, 2023 79:42


*Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Halldóru sjálfri* Halldóra Geirharðs hefur verið á bucketlistanum okkar yfir viðmælendur í langan tíma og því er einstaklega vel við hæfi að hún sé okkar síðasti viðmælandi. Margt fólk sem hefur komið til okkar í Normið hefur haft orð á því hversu mikil fagkona og viskubrunnur hún er. Við erum hjartanlega sammála því. Okkur þótti óendanlega vænt um að fá að kroppa í huga Halldóru - njótið vel kæru hlustendur. Þessi fer á dýptina.