POPULARITY
Hvussu hevur tú tað? Ein at síggja til óskyldigur spurningur, ofta settur í vanligum práti millum manna. Men spurningurin kann eisini stinga djúpt. Og hann kann setast breitt. Fyri triðju ferð eru føroyingar - í breiðum høpi - spurdir, hvussu vit hava tað. Fyrstu ferð var í 2015, síðani í 2019 og so aftur í 2023, tá 8.000 fólk í Føroyum blivu spurd. Tveir triðingar svaraðu. Hóast 2023 ljóðar langt síðani, so eru svarini ikki almannakunngjørd fyrr enn nú. Svarini geva eina mynd av føroyska samfelagnum, sum hevur flutt og broytt seg nógv síðstu árini. Og svarini vísa eitt samfelag, har stórir samfelagsbólkar nú hava so mikið stórar, fíggjarligar avbjóðingar, at tað gongur út yvir teirra lív og levnað. Eitt samfelag, har sosiala kontraktin millum ættarliðini er um at skrædna og vit í staðin grava alsamt djúpri gjáir millum fólk í Føroyum. Luttakarar: Heri á Rógvi, búskaparfrøðingur og Sonja Jógvansdóttir, samfelagsfrøðingur. Lagt sendingina til rættis: Sigurjón Einarsson og Jón Brian Hvidtfeldt, redaktørur
Heimurinn er á heljarþröm, fréttirnar uppfullar af stríðum, hnignandi lýðræði og þjóðarmorðum. En maður verður að rækta garðinn sinn, sagði Birtingur í samnefndri skáldsögu, um rétta viðbragðið við hryllingi heimsins. Við tökum orð hans bókstaflega og beinum sjónum okkar að garðrækt í Lestinni í dag. Við heimsækjum Auði Ingibjörgu Ottesen. Við kynnumst líka tónlistarverkefninu Zorza sem er ætlað að tengja saman pólska og íslenska tónlistarsenu. Fyrstu tónleikarnir fara fram í kvöld í Silfurbergi í Hörpu, þegar pólska sveitin Mikromusic og Ari Árelíus stíga á stokk.
Nýjasti AC leikurinn er að fá ágætis móttökur ólíkt því sem anti woke plebbarnir eru búnir að dreifa síðustu misseri. Nýjasti AC leikurinn er ekki að fara að breyta lífinu þínu eins og Forspoken en hann er ansi góður.Arnór Steinn og Gunnar taka gott fyrstu hughrifa spjall um Shadows. Hvernig lúkkar hann, hvernig spilast hann og hvernig hljómar hann.Er Arnór Ubisoft fanboy? Er Gunnar orðinn það líka? Tíminn einn mun skýra það ...Hvað fannst þér um Shadows?Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Jákup á Borg, Oddbjørn Joensen og Tróndur Arge taka saman um fyrsta landsdystin hjá nýggja venjaranum
Sjötti maðurinn var á sínum stað þessa vikuna en í þetta skiptið með tvo rándýra gesti innanborðs í Máté Dalmay og Frikka Beast.Að vanda var farið yfir Bónus Karla en einnig snert mikið á allskonar málefnum úr liðinni viku. Þingið rætt, bikarinn ræddur og dramatíkin í 1. deildinni rædd. Maté með lið og að sjálfsögðu þekktir liðir á sínum stað. Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus deildarinnar, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
Við erum að nálgast miðjan Mottumars, slagorð þessa árlega átaks Krabbameinsfélagsins, gegn krabbameinum hjá körlum, þetta árið er: Ertu að grínast með þinn lífsstíl? Þar er vakin athygli á óheilbrigðum og heilbrigðum lífsvenjum sem við getum haft. Guðni Gíslason, ritstjóri Fjarðarfrétta, kom til okkar í dag og deildi sögu sinni, en hann greindist með blöðruhálskrabbamein nánast fyrir tilviljun fyrir rúmu ári. Með Guðna kom Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Í Hafnarfirði hefur börnum og ungmennum með margvíslegan vanda staðið til boða að fara í músíkmeðferð hjá Ingu Björk Ingadóttur músíkmeðferðarfræðingi. En hvað er músíkmeðferð? Inga segir að hver og einn hafi sinn eigin grunntón, takt, flæði og hraða og þegar unnið sé markvisst með tónlistina sé hún ótrúlega öflug. Meðferðin hentar vel þeim sem eigi erfitt með hefðbundna tjáningu og henti einmitt þar sem samtalsmeðferð geri það ekki. Við ræddum við Ingu Björk í þættinum og sungum með henni lag, sem hún hafði sérstaklega samið texta fyrir okkur og þáttinn. Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja sýnir um þessar mundir í Árnesi gleðileikinn Sex í sveit í leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Fyrstu sýningum hefur verið mjög vel tekið enda fjörmikil sýning og hlutverkin eru auðvitað í höndum fólks úr sveitinni, fólk sem leggur á sig að æfa hvert einasta kvöld í margar vikur eftir fullan vinnudag. Oddrún Ýr Sigurðardóttir er ein þeirra sem leikur í sýningunni, hún er líka garðyrkjubóndi í Garðyrkjustöðinni í Hrunamannahreppi, þroskaþjálfi og reiðkennari. Við heyrðum í Oddrúnu í dag. Tónlist í þættinum í dag: Við viljum lifa / Ríó Tríó (L. Alberto, texti Helgi Pétursson) Lífið er lotterí / Þrjú á palli (höf lags ókunnur, texti Jónas Árnason) Í ró / Inga Björk Ingadóttir (Inga Björk Ingadóttir) Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar mætti í Kalda stúdíóið.Umræðuefni í þættinum:Aðstoðarþjálfarastaðan.Tíminn í Garðabænum so far.Vesturbærinn/KR.Fossvogurinn/Víkingur.Kópavogurinn/Breiðablik.Ferlinum gerð góð skil.Fyrstu skrefin á þjálfaraferlinum.Kalda Karið.Riddaraspurningar.Hraðaspurningar.Þessi þáttur er í boði:Kalda.Autocenter.Serrano - "burritoafterdark" 20 % afsláttur á netinu.Orka Náttúrunnar.Dokobit.TM.Sjöstrand - 15 % afsláttur með kóðanum "CAD"Lengjan.Kontakt fyrirtækjaráðgjöf.Búllan.Subway.Dave&Jons.Bónus.Frumherji.KEMI.Njótið vel kæru hlustendur.
Fyrstu seríunni er lokið af Fótbolta Nördanum en við erum hvergi nærri hættir. Fram að næstu seríu verða aukaþættir með ójöfnu millibili til þess að svala þorstann hjá öllum nördunum í samfélaginu. Í þetta skiptið mættu menn úr geysivinsæla hlaðvarpinu Trivíaleikarnir. Það voru þeir Ingi Eddu Erlingsson og Stefán Geir Sveinsson.
Við ræðum áhrif loftslagsvárinnar á ýmsa innviði, einkum vatns- og fráveitur, við Hildigunni Thorsteinsson, veðurstofustjóra. Sveitarfélög þurfa á næstu árum að ráðast í ýmsar aðgerðir vegna aukinna öfga í veðurfari - en kröfur um slíkt eru í dag af skornum skammti. Hvað ef loftsteinn hefði ekki lent á jörðinni fyrir 65 milljónum ára? Hefði líf á jörðinni verið öðruvísi í dag? Væru enn risaeðlur á vappi? Hvað ef spurningar sem þessar eru vissulega skemmtilegar, en eru þær gagnlegar? Pétur Magnússon heimsótti Arnar Pálsson erfðafræðing í Háskóla Íslands og spurði hann út í hvað ef-fræði og risaeðlur. Við förum svo í tímavél aftur til ársins 1949 - þá urðu mörg stórtíðindi í Reykjavíkurborg - meðal annars komu fyrstu umferðarljósin - sem sumir vildu reyndar kalla götuvita. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, setur okkur inn í þetta og við heyrum brot úr safninu.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn Brenton Birmingham yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Brenton er 52 ára gamall í dag, en skóna lagði hann á hilluna sem leikmaður b liðs Njarðvíkur árið 2016, þá 43 ára gamall. Eiginlegum feril hans með aðalliði í meistaraflokki var þó lokið nokkrum árum áður, árið 2011, en þá var hann leikmaður Njarðvíkur.Brenton kom fyrst til Íslands árið 1998 og lék sem atvinnumaður í 12 tímabil á Íslandi með liðum Njarðvíkur og Grindavíkur. Í þrígang varð hann Íslandsmeistari, vann bikarinn í fjögur skipti og þá var hann valinn leikmaður ársins í þrígang, körfuboltamaður ársins 2006, innlendur leikmaður ársins 2007 og besti erlendi leikmaður ársins árið 2000. Eftir að hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt lék hann einnig fyrir íslenska landsliðið, 19 leiki á árunum 2002 til 2007. Fyrir utan Njarðvík og Grindavík á Íslandi lék hann einnig sem atvinnumaður fyrir Honka í Finnlandi, London Towers í Bretlandi og Rueil í Frakklandi á 16 ára feril sínum sem atvinnumaður.Stjórnandi: Pálmi ÞórssonFyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.
Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs mætti í viðtal í dag, reyndar bæði á RÚV og stöð2. Fyrstu viðtölin að segja má frá því í forsetakosningunum í vor. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana fyrr í dag. Það hefur ekki heyrst mikið í Katrínu síðustu mánuði en það er ekki vegna þess að ekki hafi verið eftir því falast. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman. Bashar al-Assad Sýrlandsforseti flúði land á sunnudaginn, þegar við blasti að sveitir uppreisnarmanna væru að taka öll völd í landinu eftir aðeins nokkurra daga, óvænta leiftursókn. Assad flúði til Rússlands, þar sem honum hefur verið veitt hæli af mannúðarástæðum, eins og nafnlaus heimildarmaður úr rússneska stjórnkerfinu orðaði það við rússnesku fréttatofuna Interfax. Með þessu lauk rúmlega hálfrar aldar valdatíð al-Assad fjölskyldunnar. Ævar Örn Jósepsson stiklar á stóru í valdatíð Bashar al-Assads. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Við ætlum að bjóða upp á ís í samfélaginu í dag, eða samtal um ís; hafís, klakastíflur, freðna jörð jafnvel hláku. Ingibjörg Jónsdóttir, dósent í landfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, þekkir vel til þessarar höfuðskepnu, vatns á föstu formi og hún kemur til okkar hér rétt á eftir. Mannréttindasamtökin Amnesty International komast í nýrri rannsóknarskýrslu að þeirri niðurstöðu að nægilegur grundvöllur sé til þess að halda því fram að Ísraelsríki hafi framið og haldi áfram að fremja þjóðarmorð á Gaza. Ungliðadeild Íslandsdeildar samtakanna stóð fyrir mótmælum á Austurvelli nú í hádeginu. Við heyrum hljóðið í viðstöddum. Við förum svo í okkar reglulegu heimsókn á Þjóðaskjalasafninu. Bára Stefánsdóttir, skjalavörður rýnir með okkur skjöl tengd Þjóðleikhúsinu. Tónlist og stef í þættinum: Beatles, The - Here comes the sun. JÓNAS SIG & ÓMAR GUÐJÓNS - Baráttusöngur uppreisnarklansins (Tónatal 2021). Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). PAUL SIMON - 50 Ways To Leave Your Lover.
Ein var kölluð fíkill þegar hún lýsti óbærilegum líkamlegum kvölum. Síðar voru verkir hennar útskýrðir með kvíða. Önnur var sögð ímyndunarveik. Sú þriðja áhyggjurófa. Dóttir hennar, sem var með ógreint heilaæxli, fékk sama viðurnefni. Sögur þessara kvenna, kvenna sem hafa mætt daufum eyrum innan heilbrigðiskerfisins þegar þær glímdu við alvarlegan heilsubrest, eru sagðar í nýjum hlaðvarpsþáttum Heimildarinnar: Móðursýkiskastinu. Þar birtast einnig viðtöl við lækna og aðra sérfræðinga. Þættirnir verða sex talsins en Heimildin hefur síðan í aprílmánuði tekið á móti sögum kvenna sem hafa verið hundsaðar innan kerfisins, stundum með þeim afleiðingum að þær hafa hlotið varanlegan skaða af. Sögurnar sem bárust voru á þriðja tug og voru margar á sömu leið: „Það var ekki hlustað.“ Fyrstu tveir þættirnir birtast á hlaðvarpsveitum um helgina. Ragnhildur Þrastardóttir hefur umsjón með þáttunum. Halldór Gunnar Pálsson hannaði stef og hljóðheim þáttanna.
Listamenn velta fyrir sér menningarstefnu stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga. Lóa veltir fyrir sér nýjum íbúðum til sölu og fyrir hvernig líf sé pláss inn í þeim. Svo ímyndum við okkur persónu sem situr í hægindastól og les fréttir af spjaldtölvunni sinni um stöðuna á húsnæðismarkaðnum. Um helgina fór fram í Gamla bíó, þemapartý og danstónlistarviðburður helgaður teiknimyndapersónunni Shrek sem birtist fyrst á hvíta tjaldinu árið 2001. Árið 2020 var haldið fyrsta Shrek-reifið í Los Angeles, og síðan þá hefur fyrirbærið breiðst út um allan heim. Og nú um helgina fór fram fyrsta Shrek reifið á Íslandi: “Búðu þig undir að sleppa lausu tröllinu innra með þér í útrúlegasta teiti ársins” segir í kynningatextanum sex klukkutímar af yfirgengilegi skemmtun. Guðrún Úlfarsdóttir fór á reifið og við fengum hana til að segja frá upplifuninni. Við kíkjum á Café Catalina í Hamraborg og fræðumst um tónleikaröðina Kátt á línunni sem fer fram á staðnum þriðja fimmtudag í hverjum mánuði. Fyrstu tónleikarnir fara fram á morgun en þá koma fram BKPM, Juno Paul og Sucks to be you Nigel. Við ræðum við Pétur Eggertsson, skipuleggjanda.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og sérfræðingur Bónus Körfuboltakvölds Ómar Sævarsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Ómar er að upplagi úr ÍR. Árið 2010 söðlaði hann um og gekk til liðs við Grindavík, en með þeim lék hann allt þar til hann lagði skóna á hilluna 39 ára gamall árið 2021. Með Grindavík varð hann í tvígang Íslandsmeistari. Þá lék hann fjóra landsleiki fyrir Íslands hönd árið 2009.Stjórnandi: Pálmi ÞórssonFyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer Íslandsmeistarinn Kristófer Acox yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Síðasta vor varð Kristófer Íslandsmeistari með Val, en titillinn var sá fimmti sem hann hefur unnið síðan hann kom heim úr háskólaboltanum árið 2017 og á þessum tíma hefur hann í þrígang verið valinn besti leikmaður deildarinnar.Kristófer er KR-ingur að upplagi þó svo hann leiki fyrir Val í dag, en ásamt þeim hefur hann einnig leikið fyrir Star Hotshots í Filipseyjum, Denain í Frakklandi og þá var hann með Furman Paladins í bandaríska háskólaboltanum. Þá hefur Kristófer einnig verið mikilvægur hluti af íslenska landsliðinu á síðustu árum, en hann fór meðal annars með þeim á lokamót EuroBasket árið 2017. Í heild hefur hann leikið 51 leik fyrir A landsliðið síðan hann lék sinn fyrsta leik árið 2015. Stjórnandi: Pálmi ÞórssonFyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.
Halldór Árnason gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum síðasta sunnudag eftir úrslitaleik gegn Víkingi í Fossvogi. Halldór var á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari Breiðabliks en hann hafði áður verið aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar með liðið. Halldór mætti í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir frábært tímabil Blika, sem og sína leið í þjálfun.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn Dagur Kár Jónsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Dagur Kár lagði skóna á hilluna á dögunum 29 ára gamall vegna þrálátra meiðsla, en hann er að upplagi úr Stjörnunni. Ásamt þeim hefur hann einnig leikið fyrir KR og Grindavík á Íslandi, Flyers Wels í Austurríki og Ourense á Spáni ásamt því að hafa á sínum tíma verið bandaríska háskólaboltanum með St. Francis skólanum í New York. Þá lék Dagur fjölda landsleikja fyrir yngri landslið Íslands og sex A-landsleiki.Stjórnandi: Pálmi ÞórssonFyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.
Rætt er við þá Benóný Ásgrímsson, Júlíus Ó. Einarsson og Pál Halldórsson en þeir eru höfundar nýrrar bókar sem heitir Til taks – þyrlusaga Landhelgisgæslu Íslands – fyrstu 40 árin. Í þættinum er farið yfir aðdraganda þess að þeir réðust saman í þessi skrif og stiklað á nokkrum þáttum úr efni bókarinnar.
Í dag ræðir Samfélagið við einn fremsta fíknigeðlækni Sviss. Dr. Thilo Beck yfirlæknir hjá Arud, samtökum sem reka stærstu fíknigöngudeild Sviss, ræðir við okkur um lyfjameðferðir við ópíóíðafíkn, skaðaminnkun, og hvað Íslendingar geti gert til að bæta meðferðarúrræðin sem standa til boða hér á landi. Við kíkjum í leynilega skjalageymslu Þjóðskjalasafnsins í ónefndu iðnaðarhverfi í Reykjavík. Þar eru einkum geymd trúnaðarskjöl frá lögreglunni - en við ætlum að rýna í brúna og nokkuð lúna bók frá upphafi bílaaldar á Íslandi með Indriða Svavari Sigurðssyni, skjalaverði. Við kynnumst meðal annars Katrínu Fjeldsted sem var önnur konan á Íslandi til þess að taka bílpróf. Við fjöllum um mataræði og fjölskyldulíf. Hvernig á að halda góðum matarvenjum að börnum - þegar foreldrar eiga kannski nógu erfitt með sjálfa sig? Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur og heilsuráðgjafi ræðir þetta við okkur. Tónlist: boygenius - Cool About It. TRACY CHAPMAN - Fast car. Bergþóra Árnadóttir - Blátt, svo blátt.
Fyrstu - og mögulega einu - kappræður Donalds Trumps og Kamölu Harris fóru fram í nótt. Eins og við var búist voru stóru orðin hvergi spöruð, ásakanir gengu á víxl, þar á meðal um lygar og blekkingar, og töluvert var um persónuárásir - en málefnin fengu líka sitt pláss. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir og Benedikt Jóhannesson ræða kappræðurnar við Ævar Örn Jósepsson. Tuttugu til þrjátíu prósent færri erlendir ferðamenn gistu á Norðurlandi í sumar en áætlað var og munar þar mest um afbókanir ferðaskrifstofa á stórum hópum. Ferðamenn á eigin vegum skiluðu sér hinsvegar vel þó það nái ekki að vega að fullu upp afbókanir. Miklar vonir eru bundnar við að aukið flug erlendra flugfélaga til Akureyrar yfir veturinn minnki árstíðasveiflur í ferðaþjónustunni. Ágúst Ólafsson ræðir við Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Fyrstu leikirnir í Bestu deild kvenna eftir að deildinni var skipt fóru fram í kvöld. Fyrr í dag komu þjálfararnir Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson við á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna í deildinni, lið fyrir lið. Það er mikil spenna í titilbaráttunni og á hinum enda töflunnar er þriggja liða barátta í baráttunni um að halda sér uppi. Einnig var aðeins snert á Lengjudeild kvenna og ævintýri FHL í þættinum.
Gunnar Birgisson og Jói Már með Dr. Football á sunnudegi.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Kjartan Atli Kjartansson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Kjartan Atli er í dag þjálfari Álftaness í Bónusdeild karla, en sem leikmaður lagði hann skóna á hilluna sem leikmaður þeirra árið 2021. Þrátt fyrir að vera upphaflega af Álftanesi, er hann þó líklega af flestum talinn að upplagi úr Stjörnunni, en ásamt þeim lék hann einnig fyrir yngri flokka Hauka. Á nokkuð sigursælum feril sínum var hann hluti af liði Stjörnunnar sem vann sig upp í efstu deild og gerði sig að því sterka úrvalsdeildarliði sem það hefur verið síðustu áratugi. Ásamt Stjörnunni á hann þó einnig leiki fyrir Breiðablik, FSu, Hauka, Hamar, KV og Álftanes í meistaraflokki ásamt því að hafa á sínum tíma leikið með yngri landsliðum Íslands.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og þjálfarinn Logi Gunnarsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Logi er Njarðvíkingur að upplagi og eftir að hafa leikið upp yngri flokka félagsins hóf hann að leika með meistaraflokki þeirra 16 ára gamall árið 1997. Í þrigang varð hann svo Íslandsmeistari með félaginu á þessum fyrstu árum sínum í meistaraflokki og var hann valinn besti leikmaður deildarinnar árið 2001. Árið 2002 hélt hann í atvinnumennskuna á meginlandi Evrópu þar sem hann í yfir 10 ár lék fyrir félög í Finnlandi, Svíþjóð, Frakklandi, Þýskalandi og á Spáni. Árið 2013 kom hann svo aftur heim til Njarðvíkur og lék þar í 10 ár áður en hann lagði skóna á hilluna í fyrra. Meðfram þessum glæsilega feril með félagsliðum lék Logi 147 leiki með landsliði Íslands.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Bónus og Lengjunnar.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer fyrrum leikmaðurinn og sérfræðingur Körfuboltakvölds Hermann Hauksson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Ferill Hermanns í meistaraflokki var frá 1990 til 2002, en á honum lék hann fyrir KR, Njarðvík og Saint Niklas í Belgíu, en árið 1997 var hann valinn besti leikmaður efstu deildar á Íslandi. Þá var hann einnig á þessum tíma, 1994 til 2000 lykilleikmaður í íslenska landsliðinu, en í heild náð hann 64 leikjum fyrir Ísland.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Þeir Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður, og Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður RÚV, eru gestir í fyrsta uppgjörsþættinum á þessu Evrópumóti. Sæbjörn Steinke stýrir þættinum og fer yfir fyrstu vikuna á EM með þeim Lárusi og Óðni. Þjóðverjar hafa farið vel af stað, eitthvað slen er yfir Englendingum og Belgar í brasi. Farið er yfir það helst á mótinu til þessa og spáð í spilin. Þá tók Lárus Orri góða ræðu um VAR en hann vill fá myndbandstæknina til Íslands sem allra fyrst. Þátturinn var tekinn upp fyrir leik Spánar og Ítalíu
Hörður Snævar og Helgi Fannar fara yfir fyrstu umferð EM.
Viðmælandi þáttarins er Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (CCEP). CCEP er leiðandi fyrirtæki í neytendavöru á heimsvísu og er með starfsemi í 30 löndum í Evrópu, Asíu og Eyjaálfu. Starfsmenn fyritækisins eru 45 þúsund og þjónar fyrirtækið yfir 600 milljón neytendum. Anna Regína er fædd árið 1982 og er alin upp í Kópavogi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavogi og kláraði BS próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistarapróf frá DTU í Kaupmannahöfn. Fyrstu árin eftir útskrift vann Anna við arðsemisgreiningar, kostnaðargreiningar og verkefnastjórn í erlendum jarðvarmaverkefnum. Frá árinu 2012 hefur Anna Regína unnið hjá Coca-Cola á Íslandi í hinum ýmsu störfum, m.a. forstöðumaður hagdeildar, framkvæmdastjóri fjármálasviðs og framkvæmdastjóri sölusviðs áður en hún tók við sem forstjóri félagsins árið 2023. Þessi þáttur er kostaður af Skaga, Indó og Taktikal.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer þjálfarinn Arnar Guðjónsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur þjálfað á ferlinum. Eftir margra ára starf sem þjálfari verður Arnar í fyrsta skipti ekki með lið á næstu leiktíð, en hann yfirgaf Stjörnuna nú í lok þessa tímabils og er farinn að vinna fyrir KKÍ. Þrátt fyrir að vera aðeins 37 ára gamall má segja að Arnar hafi þjálfað ansi lengi. Fyrsta starf hans var hjá Sindra 2005, þaðan fór hann svo til FSu 2007, en 2009 lagðist hann í víking til Danmerkur þar sem hann var á mála hjá bæði Aabyhøj og Svendborg þangað til hann kom aftur heim 2018 og tók við Stjörnunni. Þá var hann lengi í þjálfarateymi íslenska landsliðsins og nú síðast 2022-2023 í þjálfarateymi danska landsliðsins.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer KR-ingurinn Páll Kolbeinsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.Páll var á sínum tíma einn besti bakvörður Íslands, en á feril sínum 1981 til 1998 lék hann fyrir tvö lið, KR, Tindastól og University of Wisconsin–Oshkosh Titans í bandaríska háskólaboltanum. Þá lék hann frá 1986 til 1992 43 leiki fyrir íslenska landsliðið. Besta tímabil Páls var líklega 1989-90, en þá var hann valinn leikmaður ársins eftir að hafa leitt sína menn í KR til Íslandsmeistaratitil. Samhliða feril sínum sem leikmaður fór hann einnig að þjálfa, en hjá Tindastóli og KR var hann í nokkur ár þjálfari meistaraflokks.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Arngunnur Árnadóttir er tónlistarkona og rithöfundur. Hún byrjaði snemma að læra á hljóðfæri. Eftir að hafa lokið forskóla Tónmenntaskólans í Reykjavík langaði hana að hefja nám á saxófón en vegna fingralengdar var henni frekar ráðlagt að leggja fyrir sig klarínett. Á unglingsárum sínum kom henni til hugar að hætta hljóðfæranámi en á þeim tíma spilaði hún í fyrsta skipti með sinfóníuhljómsveit og komst hún í tæri við töfra flutningsins. Arngunnur stundaði síðan framhaldsnám í klarínettuleik við Listaháskóla Íslands og við Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín og hefur frá haustinu 2012 gegnt stöðu fyrsta klarínettuleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Samhliða tónlistinni hefur Arngunnur sent frá sér tvær ljóðabækur og eina skáldsögu. Fyrstu ljóðabók sína, Unglingar, byrjaði hún að skrifa í vetrarfríi í Berlín og gaf út í seríu Meðgönguljóða árið 2013. Skáldsagan Að heiman fylgdi þar á eftir og lýsir í meitluðum og stílhreinum prósa tilveru Unnar í Reykjavík og segir frá ferðalagi hennar út á land. Síðast sendi Arngunnur frá sér ljóðabókina Ský til að gleyma, sem fjallar meðal annars um tregablandna eftirsjá eftir tíma og fólki sem rennur ljóðmælanda úr greipum.
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer Hafnfirðingurinn Helena Sverrisdóttir yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hún spilaði með á feril sínum.Helena lagði skóna á hilluna sem leikmaður Hauka í nívember síðastliðnum. Haukar eru hennar uppeldisfélag, en þar hóf hún að leika með meistaraflokki félagsins 12 ára gömul árið 2000. Frá Haukum fór hún 2007 til TCU í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék til 2011. Eftir það tóku við nokkur góð ár í atvinnumennsku á meginlandi Evrópu, þar sem hún lék fyrir sterk lið í Ungverjalandi, Slóvakíu og Póllandi. Eftir að hún kom til baka til Íslands lék hún fyrir Hauka, Val og síðan Hauka aftur, þar sem hún var í nokkur tímabil aðstoðarþjálfari þeirra liða.Helena var í 12 skipti valin körfuknattleikskona Ísland og í 7 skipti besti leikmaður efstu deildar. Á feril sínum á Íslandi vann hún 5 Íslandsmeistaratitla og í 5 skipti bikarkeppnina. Þá varð hún tvisvar slóvaskur meistari og vann bikarkeppnina þar í þrjú skipti.Helena hóf einnig ung að leika fyrir íslenska landsliðið, aðeins 14 ára gömul árið 2002, en í heild lék hún 81 leik fyrir Ísland. Þann síðasta lék hún í nóvember gegn Tyrklandi heima í Ólafssal, en í leiknum á undan hafði hún sett nýtt landsleikjamet með sínum 80. leik.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Aukasendingin fékk Mumma Jones í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, bikarvikuna, úrslitakeppni fyrstu deildar karla, Subway deild karla og margt, margt, margt fleira. Þá er einnig farið yfir hvaða fimm íslensku leikmenn hafa skarað framúr í fyrstu deild karla á tímabilinu.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Bpro - www.bpro.is Aníta Rós Þorsteinsdóttir skaust uppá stjörnuhimininn í Söngvakeppninni í ár með lagið Downfall sem vakti gríðarlega mikla athygli hér heima og erlendis og keppti hún um fyrsta sætið ásamt Bashar í spánum erlendis. Þó að Aníta hafi verið eins og stórstjarna á sviðinu var það útgeislunin almennt sem greip mig algjörlega og var ótrúlega spenntur að fá að kynnast persónunni á bakvið þessa geislandi týpu í sjónvarpinu. Í þættinum fáum við að kynnast henni betur, hvernig ferðalagið í Söngvakeppninni var og hvernig hún peppaði sig í að fara frá núll uppí hundrað sem söngkona. Njótið vel - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer Grundfirðingurinn, leikmaður Stjörnunnar og fyrrum landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur spilað með.Hlynur er einn af þeim eldri sem spila í Subway deildinni á Íslandi í dag, en á sínum tíma var hann einn af þeim yngstu þar sem hann byrjaði aðeins 15 ára að spila í úrvalsdeildinni. Þá átti hann einnig 23 ára langan feril með íslenska landsliðinu, en þar lék hann fyrst árið 2000 og síðast var hann með því í febrúar á síðasta ári, 2023.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Í þessari síðustu útgáfu af Fyrstu fimm fer landsliðsmaðurinn og leikmaður Álftaness Haukur Helgi Briem Pálsson yfir sitt besta byrjunarlið. Haukur hefur verið atvinnumaður í íþróttinni megnið af ævi sinni, en ásamt því að hafa leikið með skólum Montverde og Maryland vestan hafs, átti hann einnig góðan feril á meginlandi Evrópu áður en hann kom aftur til Íslands 2021.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Við kíkjum í bollukaffi til hljómsveitarinnar Cyber og veltum fyrir okkur hvað hefur breyst síðan hljómsvetin var stofnuð í MH, líklega árið 2012. Vinirnir Sigurgeir og Almar bjuggu til nýtt borðspil, sem heitir Á láði og legi, við heyrum allt um það. Og svo hlustum við á nýtt lag með Kim Gordon. Cyber - starry night Cyber - I'm yo new stepmom Cyber - The Event Cyber - PORN STARR Cyber - NO CRY Spilmenn Ríkínís - Strengleikar Spilmenn Ríkínís - Eitt sinn fór ég yfir Rín Spilmenn Ríkínís - Fyrstu vordægur Spilmenn Ríkínís - Syng mín sál Spilmenn Ríkínís - Bóndans dóttirin Spilmenn Ríkínís - Urtagarðurinn Spilmenn Ríkínís - Listhúsakvæði Kim Gordon - Bye Bye Kim Gordon - Paprika Pony Kim Gordon - Sketch Artist
Fyrstu ferð kann vera so nógv. Tað kann vera fyrstu ferð tú mussast, ert ávirkað ella fyrstu ferð tú ert saman við onkrum. Tí kendist tað upplagt at velja hetta evni í ár, sigur Bjørt Lind, næstforkvinna í felagskapinum Kyn, sum skipar fyri viku sex. Hesa vikuna fara 14 seksualundirvísarar at vitja næmingar sum ganga á fyrsta ári á miðnámi fyri at siga teimum um evni, sum eru viðkomandi, tá tú ert í aldrinum, har sex verður aktuelt. Fyrr var tað flóvisligt at tosa um sex, men hvussu er við teimum ungu í dag?
Næst er röðin komin að leikmanni Hamars Ragnari Nathanaelssyni að velja sína fyrstu fimm. Það eru fáir í heiminum jafn hávaxnir og Raggi, en hann hefur spilað með mörgum af bestu leikmönnum sem Ísland hefur alið af sér ásamt því að hafa spilað nokkur ár ár í atvinnumennsku.Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.
Heil og sæl. Í dag er sérstakur aukaþáttur en viðmælandinn er Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik. Ísland mætir Serbíu á föstudag í fyrsta leik á EM í Þýskalandi og í spjalli okkar förum við yfir það helsta. Njótið og takk BK-kjúklingur, Slysalogmenn.is og Marpól. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Sverrir Þór núverandi þjálfari kvennaliðs Keflavíkur mætti í Fyrstu fimm og valdi sitt byrjunarlið af leikmönnum sem hann hefur spilað með. Sverrir er fyrrum leikmaður Snæfells, Keflavíkur, Njarðvíkur og Tindastóls í Körfubolta en einnig á hann leiki í efstu deild með Grindavík í Fótbolta.Gestur: Sverrir Þór SverrissonUmsjón: Pálmi ÞórssonFyrstu fimm er í boði Lengjunnar, Subway, Kristalls, Lykils og Tactica.
Í fyrsta þættinum af Fyrstu fimm fær Pálmi Þórsson fyrrum leikmanninn Finn Atla Magnússon til þess að velja fimm bestu leikmenn sem hann hefur spilað með. Finnur Atli er að upplagi úr KR, en lék á sínum feril með nokkrum liðum í deildinni, í high school og haáskólabolta Bandaríkjanna og 19 leiki fyrir íslenska landsliðið. Gífurlega sigursæll var hann sem leikmaður, en ásamt öðru hampaði hann þeim stóra í þrígang á Íslandi.Gestur: Finnur Atli MagnússonUmsjón: Pálmi ÞórssonFyrstu fimm er í boði Lengjunnar, Subway, Kristalls, Lykils og Tactica.
Fyrstu langreyðar vertíðarinnar hafa verið veiddar. Hvalveiðiskip eru á leiðinni með dýrin til hafnar í Hvalfirði. Óvíst er hvað verður gert með skýrslu um aðbúnað og meðferð á fullorðnu fólki með þroskahömlum og geðrænan vanda. Skýrslan var kláruð í fyrra og ekkert hefur verið aðhafst. Það á að selja Perluna til að reyna að stoppa í skuldir borgarinnar. Stjórnlagadómstóll í Frakkland hefur úrskurðað að stjórnvöldum sé heimilt að banna skólastúlkum að klæðast abaya-kjólum, sem tíðkast hjá múslimum, í ríkisreknum skólum landsins. Það sé í samræmi við lög sem banna öll trúartákn í skólum. Átján prósent íbúa hér á landi eru erlendir ríkisborgarar. Það styttist í að íbúar hér á landi verði fjögur hundruð þúsund. Það væri skynsamlegt að setja framkvæmdir sem eru góðar fyrir umferðina, umhverfið og höfuðborgarsvæðið í heild í forgang og hægja frekar á öðrum verkefnum í samgöngusáttmálanum, segir borgarstjóri. Nú er verið að endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjögurra ára gamalt plagg, sem komið er langt fram úr áætlun - bæði tímaáætlun og fjárhagsáætlun. Hvað verður úr - verða verkefni slegin af, hætt við eitthvað, eða teygt á áætluninni? Hvað er búið að gera og hvað er eftir? Spegillinn skoðar málið. Eftirspurn eftir rafmagni er mikil og margir um hituna. Notkun heimila er ekki stór biti af þeirra köku, um 5%. Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri telur að tryggja verði raforkuöryggi almennings í lögum. Eins verði að vera skýrt að aukist orkuframboð rati það í orkuskiptin. Þau eru flókið verkefni sem stýrist meðal annars af því hve hratt gengur að innleiða tækni. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.
Fyrstu langreyðar vertíðarinnar hafa verið veiddar. Hvalveiðiskip eru á leiðinni með dýrin til hafnar í Hvalfirði. Óvíst er hvað verður gert með skýrslu um aðbúnað og meðferð á fullorðnu fólki með þroskahömlum og geðrænan vanda. Skýrslan var kláruð í fyrra og ekkert hefur verið aðhafst. Það á að selja Perluna til að reyna að stoppa í skuldir borgarinnar. Stjórnlagadómstóll í Frakkland hefur úrskurðað að stjórnvöldum sé heimilt að banna skólastúlkum að klæðast abaya-kjólum, sem tíðkast hjá múslimum, í ríkisreknum skólum landsins. Það sé í samræmi við lög sem banna öll trúartákn í skólum. Átján prósent íbúa hér á landi eru erlendir ríkisborgarar. Það styttist í að íbúar hér á landi verði fjögur hundruð þúsund. Það væri skynsamlegt að setja framkvæmdir sem eru góðar fyrir umferðina, umhverfið og höfuðborgarsvæðið í heild í forgang og hægja frekar á öðrum verkefnum í samgöngusáttmálanum, segir borgarstjóri. Nú er verið að endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjögurra ára gamalt plagg, sem komið er langt fram úr áætlun - bæði tímaáætlun og fjárhagsáætlun. Hvað verður úr - verða verkefni slegin af, hætt við eitthvað, eða teygt á áætluninni? Hvað er búið að gera og hvað er eftir? Spegillinn skoðar málið. Eftirspurn eftir rafmagni er mikil og margir um hituna. Notkun heimila er ekki stór biti af þeirra köku, um 5%. Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri telur að tryggja verði raforkuöryggi almennings í lögum. Eins verði að vera skýrt að aukist orkuframboð rati það í orkuskiptin. Þau eru flókið verkefni sem stýrist meðal annars af því hve hratt gengur að innleiða tækni. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.
Spegillinn 18. ágúst 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stj?+orn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Öllum 27 starfsmönnum Skagans 3X á Ísafirði hefur verið sagt upp og starfsstöðinni verður lokað. Þungbærar fréttir, segir Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri á Ísafirði, í viðtali við Alexander Kristjánsson Jóhannes Sævar Rúnarsson, forstjóri Strætó, er sannfærður um að innleiða þurfi gjaldtöku fyrir akstur í miðborg Reykjavíkur til að draga úr mengun og jafnvel banna umferð bíla sem menga mikið. Ævar Örn Jósepsson talaði við hann. Akurnesingar kvarta yfir óbragði af neysluvatni. Fyrstu niðurstöður úr sýnum sem tekin voru í dreifikerfi Veitna í gær benda til þess að óhætt sé að drekka vatnið. Ísak Regal ræddi við Jón Trausta Kárason, forstöðumann vatns- og fráveitu hjá fyrirtækinu, og Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, íbúa á Skaganum. Slökkviliði tókst aðeins að vinna á bálinu á Tenerife á Spáni í dag. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í borginni Kelowna í Kanada og öllum íbúum bæjarins Yellowknife gert að flýja skógarelda sem brenna á yfir þúsund stöðum í landinu. Ásgeir Tómasson sagði frá. Breski hjúkrunarfræðingurinn Lucy Letby hefur verið sakfelld fyrir að myrða sjö ungabörn og fyrir að reyna að myrða sex til viðbótar. Ísak Regal tók saman. Ákvörðun alþjóðaskáksambandsins, FIDE, um að meina trans konum þátttöku í kvennamótum er skrítin og röng, að mati Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambands Íslands. Ari Páll Karlsson ræddi við hann. Það er mikil áskorun að ná utan um notkun og misnotkun á gervigreind í skólastarfi. Það gildir um allan heim en ekkert þýðir að banna segir Katrín Regína Frímannsdóttir, gæðastjóri Háskóla Íslands. Kötturinn er sloppinn úr sekknum. Um ellefu þúsund hafa skráð sig til leiks í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun, á Menningarnótt. Margir hlaupa til góðs og safna áheitum fyrir málstað sem stendur þeim nærri. Hlauparar hafa nú þegar safnað yfir hundrað fimmtíu og fjórum milljónum króna.
Spegillinn 18. ágúst 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stj?+orn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Öllum 27 starfsmönnum Skagans 3X á Ísafirði hefur verið sagt upp og starfsstöðinni verður lokað. Þungbærar fréttir, segir Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri á Ísafirði, í viðtali við Alexander Kristjánsson Jóhannes Sævar Rúnarsson, forstjóri Strætó, er sannfærður um að innleiða þurfi gjaldtöku fyrir akstur í miðborg Reykjavíkur til að draga úr mengun og jafnvel banna umferð bíla sem menga mikið. Ævar Örn Jósepsson talaði við hann. Akurnesingar kvarta yfir óbragði af neysluvatni. Fyrstu niðurstöður úr sýnum sem tekin voru í dreifikerfi Veitna í gær benda til þess að óhætt sé að drekka vatnið. Ísak Regal ræddi við Jón Trausta Kárason, forstöðumann vatns- og fráveitu hjá fyrirtækinu, og Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, íbúa á Skaganum. Slökkviliði tókst aðeins að vinna á bálinu á Tenerife á Spáni í dag. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í borginni Kelowna í Kanada og öllum íbúum bæjarins Yellowknife gert að flýja skógarelda sem brenna á yfir þúsund stöðum í landinu. Ásgeir Tómasson sagði frá. Breski hjúkrunarfræðingurinn Lucy Letby hefur verið sakfelld fyrir að myrða sjö ungabörn og fyrir að reyna að myrða sex til viðbótar. Ísak Regal tók saman. Ákvörðun alþjóðaskáksambandsins, FIDE, um að meina trans konum þátttöku í kvennamótum er skrítin og röng, að mati Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambands Íslands. Ari Páll Karlsson ræddi við hann. Það er mikil áskorun að ná utan um notkun og misnotkun á gervigreind í skólastarfi. Það gildir um allan heim en ekkert þýðir að banna segir Katrín Regína Frímannsdóttir, gæðastjóri Háskóla Íslands. Kötturinn er sloppinn úr sekknum. Um ellefu þúsund hafa skráð sig til leiks í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun, á Menningarnótt. Margir hlaupa til góðs og safna áheitum fyrir málstað sem stendur þeim nærri. Hlauparar hafa nú þegar safnað yfir hundrað fimmtíu og fjórum milljónum króna.
Fáum meistar Beggu til okkar í þáttinn, tölum um deit, djammið, gamlar hjá svæfur og Fyrstu upplifanir okkar af kynlífi og margt fleira. https://www.patreon.com/Klikkadarkynlifssogurhttps://www.instagram.com/klikkadarkynlifssogur/https://www.tiktok.com/@klikkadarkynlifssogur
Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældarsviðs Barna- og fjölskyldustofu og Elísabet Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur hjá Barna og fjölskyldustofu spjölluðu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur og Önnu Mjöll Guðmundsdóttur frá Fyrstu fimm - hagsmunafélagi foreldra og fagaðila um barnvænna samfélag. „Hvað á að gera þegar barn byrjar að eiga í vanda?“ er meðal þess sem Barna- og fjölskyldustofa einblínir á að leysa úr. Unnið er hörðum höndum að því að skapa vettvang þar sem tengiliður barns í nærumhverfi þess geti leyst úr vanda barnsins með samvinnu við foreldra og eftir atvikum annarra fagaðila með íhlutun eins fljótt og verða má. Stefnan með farsældarlögunum er að taka snemma á málunum og láta hlutina, sem hefur svo lengi verið talað um að þurfi að gera, gerast.Nú þegar er byrjað að útskrifa fjölmarga tengiliði farsældar í sérstöku viðbótardiplómanámi hjá HÍ og styrkja þá í komandi hlutverki. Hins vegar er fyrirséð að innleiðingin, sem nú er á öðru ári, muni taka tíma en kappkostað er við að innleiða stefnuna sem hraðast því það er gríðarlegur sálfræðilegur, efnahagslegur og samfélagslegur kostnaður sem hlýst af vanlíðan barns sem ekki fær tilhlýðilegan stuðning og aðstoð.Margt hefur breyst við tilkomu nýrrar stofnunar Barna- og fjölskyldustofu þar sem farsældarlögin eru rauði þráðurinn og samkvæmt Páli og Elísabetu felst það aðallega í því að stofnunin hefur beinna og skýrara þjónustuhlutverk við samfélagið.Það var því ákaflega áhugavert að heyra Elísabetu og Pál segja okkur frá starfi sínu og gott að heyra að þar fer fólk sem er samhljóma okkur í þessu hlaðvarpi almennt og vill gera kröfu um virðingarríka framkomu við börn, stuðning við þau og foreldra þeirra um leið og vandi byrjar og gerir sér jafnframt grein fyrir að margt er enn óunnið og verður það sjálfsagt alltaf en að það er ekki afsökun fyrir að gera ekki okkar besta fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
Fyrstu umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og það er nóg að ræða. Á Heimavöllinn mæta þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir og fara yfir umferðina ásamt Mist Rúnarsdóttur.