POPULARITY
Föstudagurinn 13. október Vikuskammtur: Vika 41 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Borgar Magnason tónskáld, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir sviðslistakona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist stjórnarkreppu, hryðjuverkum, afsögn, átökum og ofbeldi.
Sigríður Soffía Níelsdóttir, eða Sigga Soffía, er danshöfundur og dansari sem hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum frá því hún útskrifaðist sem dansari frá Listaháskóla Íslands 2009. Hún frumsýnir nýtt leikverk í Þjóðleikhúsinu þann 19.apríl, verkið kallast Til hamingju með að vera mannleg og er unnið upp úr samnefndri ljóðabók. Bókina skrifaði Sigga Soffía þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð, sem leið til að takast á við óttann sem fylgdi óvissunni. Hún segir bókina meðal annars vera vitnisburð manneskju sem tekst á við áfall, sjálfstætt starfandi móður sem þarf að horfast í augu við nýja sjálfsmynd í kapítalísku samfélagi þar sem framleiðni virðist oft skipta meira máli en manneskjur. Við ræðum við Siggu Soffíu í þætti dagsins og heyrum nokkur ljóð úr bókinni Til hamingju með að vera mannleg. Einnig verður rætt við Borgar Magnason kontrabassaleikara um nýútkomna sólóplötu hans, Come closer.

Það verður tónlistarslagsíða í Lestarklefanum í dag. Rætt verður um ólíka tónlist frá ólíkum tímum. Nýjan geisladisk þar sem Edda Erlendsdóttir píanóleikari leikur þrjár píanósónötur eftir Franz Schubert, Tónlistarhátíð Rásar eitt sem fram fór í fjórða sinn í Norðurljósasal Hörpu í síðustu viku, en þar voru frumflutt fjögur verk eftir ung tónskáld. Og rifjað verður upp að um þessar mundir eru nákvæmlega fjörutíu ár síðan hljómplatan Geislavirkir með hljómsveitinni Utangarðsmönnum kom út. Gestir þáttarins verða Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Óperustjóri og píanóleikari, Árni Matthíasson menningarblaðamaður og Borgar Magnason, tónskáld og bassaleikari. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson

Við Rauða borðið í kvöld ræðum við hvernig samfélagið okkar er undirbúið undir fólksflutninga á tímum alþjóðavæðingar. Hvað breytist við að 15% landsmanna eru innflytjendur og 20% fólks á vinnumarkaði. Krafan er um að það fólk eigi að aðlagast samfélaginu en þarf samfélagið ekkert að gera til að aðlagast þessari stöðu? Til að ræða þetta setjast við rauða borðið Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur og starfsmaður Alþýðusambandsins, Margrét Valdimarsdóttir félagsfræðingur. Ólafur Páll Jónsson heimspekingur og Borgar Magnason tónlistarmaður og einn þeirra nágranna Bræðraborgarstígsbrunans sem beitti sér í umræðunni þegar sá harmleikur varð.
Við Rauða borðið í kvöld verður rætt um aafleiðingar húsbrunans við Bræðraborgarstíg, stéttaskiptingu, útlendingaandúð, fátækraandúð, hvenær og hvernig fólk mun rísa upp og margt fleira. Við borðið sitja Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona, Borgar Magnason tónskáld og Guðmundur Auðunsson hagfræðingur.
Halli ríkissjóðs á þessu og næsta ári verður 490 milljarðar króna, samkvæmt nýjustu áætlunum, sem nemur um tíu prósentum af landsframleiðslu. Skuldastaða ríkisins var góð fyrir faraldurinn, en ýmis sveitarfélög stóðu verr og þarf að skoða mál þeirra sértækt. Ástandið virðist á heildina litið ekki vera óyfirstíganlegt þó upphæðirnar séu stórar og áfallið líka. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Katrínar Ólafsdóttur hagfræðings og lektors við Háskólann í Reykjavík. Það er útlit fyrir að fjölmörg Evrópuríki opni landamæri sín á ný í sumar og bjóði ferðamenn velkomna. Þó er ekki þar með sagt að vilji fólks til að ferðast sé kominn aftur. Flugfélög eru að bregðast við því, meðal annars með því að bregðast við kröfum um aukið hreinlæti. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, ræddi þessi mál í ferðaspjalli dagsins. Hann talaði líka um tíðindin af því að Wizz Air hyggist hefja flug milli Mílanó og Keflavíkur í sumar, sem komu eins og þruma úr heiðskíru lofti. Borgar Magnason tónlistarmaður kom í þáttinn og talaði um stöðu tónlistarmanna, og annarra í skapandi greinum. Hann vill að stjórnvöld og einyrkjar í skapandi greinum leiði saman hesta sína og nýti þann kraft sem í þessu fólki býr, til að finna leiðir að betra samfélagi. Tónlist: Midnight train to Georgia - Gladys Knight and the Pips, Phoenix - Markéta Irglová

Bresk / bandaríski tónlistarmaðurinn Scott Walker andaðist á föstudag, 76 ára gamall. Walker átti að baki stórbrotinn feril og var einhver merkasti og frumlegasti lagahöfundur síðustu aldar. Breska ríkisútvarpið BBC lýsti honum í gær sem einhverjum dularfyllsta og áhrifamesta tónlistarmanni rokksögunnar. Víst er að ferill hans var einstakur, og þróaðist í mjög athyglisverðar áttir. Gestir Lestarinnar í dag verða tónlistarmennirnir Borgar Magnason og Sigurður Guðmundsson. Við ætlum að tala um þennan mikla meistara, Scott Walker í Lestinni í dag, og segja takk fyrir okkur. Ekki er allt gull sem glóir segir málshátturinn og það er hverju orði sannara. Í gulliðnaðinum í Afríku er víða pottur brotinn, þeir sem grafa það upp starfa oft við ömurlegar aðstæður fyrir lítil sem engin laun og í sumum námum starfa jafnvel ung börn. Gull fengið úr slíkum aðstæðum er auðvitað engu betra en glópagull - fegurðinnar er ekki hægt að njóta ef hugsað er til ósanngirninnar sem að baki býr, braskarar ofar í keðjunni maka krókinn á meðan að gullgrafarnir sitja eftir slippir, snauðir og heilsuveilir. Þess vegna hafa sumir framleiðendur snúið sér að sanngirnisvottuðu gulli. Þeirra á meðal er skartgripahönnuðurinn Maria Ericsson sem kynnir fyrstu línu sína á Hönnunarmars í vikunni en hún segir línuna vera þá fyrstu sinnar tegundar á Íslandi. Lestin leggst í námagröft og ræðir við Maríu í þætti dagsins. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um tvöþúsund ára gamlar rökræður um að banna óæskilega list. Mál sem nokkuð hefur verið rætt að undanförnu, eins og menn þekkja.
Lestin minnist í dag enska tónlistarmannsins Marks Hollis sem andaðist á mánudag, 64ra ára að aldri. Hollis var forsprakki hljómsveitarinnar Talk Talk sem naut mikilla vinsælda en ekki síður virðingar á níunda áratug síðustu aldar. Hljómsveitin var starfrækt í tíu ár og gaf á ferli sínum út fimm plötur, á þeim tíma þróaðist tónlistin frá aðgengilegu synta-poppi til tilraunakenndrar tónlistar þar sem saman komu áhrif úr ýmsum áttum, meðal annars frá jazztónlist og klassískri tónlist. Síðustu tvær plötur hljómsveitarinnar hafa löngum þótt marka upphaf tónlistarstefnu sem kennd er við post-rokk, plöturnar voru lítt til vinsælda fallnar á sínum tíma, en hafa í seinni tíð verið hafnar til skýjanna af tónlistaráhugafólki út um allan heim. Mark Hollis gaf út eina sólóplötu árið 1998, plötu sem margir hafa miklar mætur á, en yfirgaf síðan sviðsljósið. Í Lestinni í dag verður fjallað um feril Marks Hollis og hljómsveitarinnar Talk Talk, gestir þáttarins verða tónlistarmennirnir Borgar Magnason og Úlfur Eldjárn. Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndarýnir fjallar um kvikmyndina Green Book eftir bandaríska kvikmyndaleikstjórann Peter Farrelly, en myndin var valin besta mynd ársins á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór um helgina. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um tilvistina, mannleika og hið ómannlega. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson.
Gestir Lestarklefans eru Borgar Magnason tónlistarmaður, Fríða Rós Valdimarsdóttir formaður Kvenréttindasambands Íslands og Kristína Aðalsteinsdóttir starfsmaður Berg Contemporary gallerísins. Þau velta fyrir sér sýningu íslenska dansflokksins: Um hvað syngjum við, myndlistarsýningunni Beirút í Listasafni Íslands og ræða einnig stuttskífuna Sorry með hljómsveitinni Bagdad Brothers. Umsjón hefur Guðni Tómasson

Í þessum þætti verður lagt á djúpið og kontrabassinn dýpsta hljóðfæri strengjafjölskyldunnar rannsakaður - Rætt verður við bassaleikarana Borgar Magnason og Báru Gísladóttur og einnig hljóma brot út leikritinu Kontrabassinn eftir Patrik Suskind. Lesarar í þættinum eru Einar Örn Jónsson, Gunnar Hansson og Þröstur Helgason.

A unique live cinematic and musical event, Tales from the Gimli Hospital: Reframed pairs acclaimed filmmaker Guy Maddin’s classic first feature film with a live performance—directed by Maddin himself—of a new score created by composer Matthew Patton, a superstar group of Icelandic musicians, acclaimed Seattle-based musical collective Aono Jikken Ensemble, and live electronics engineer Paul Corley. A cult sensation when it was released theatrically in 1988, the original Tales from the Gimli Hospital tells the dreamlike, elliptical story of the jealousy and madness instilled in two men sharing a hospital room in a remote Canadian village. The film first propelled Maddin to international prominence, becoming a success on the midnight movie circuit, and is now being completely transformed by this brand new performance. With dramatic new narration written by Maddin and performed in a mixture of singing and speaking by the bewitching Kristín Anna Valtýsdóttir (formerly of múm, and also known as Kria Brekkan), a hauntingly gorgeous string and vocals score performed by acclaimed Icelandic musicians Gyda Valtýsdóttir (cello), Borgar Magnason (double bass), and Maria Huld Markan Sigfúsdóttir (violin), and ingenious live “Foley” sound effects plus additional musical atmosphere created by the Aono Jikken Ensemble (Willliam Satake Blauvelt, Dean Moore, and Naho Shioya), the new score takes the original Gimli in an entirely new direction, with layers upon layers of music drawn from different sources reflecting the story-within-a-story structure of the film, and an ethereal tone that draws out the darkest and most haunting elements of the film, bringing Maddin’s original artwork to life in a sublime and unexpected new way. Lead curator: Lana Wilson.