Jóhann Hlíðar Harðarson, Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Forsetaembættið virðist eftirsótt sem aldrei fyrr. Útlit er fyrir að fleiri verði í framboði en nokkru sinni áður þótt ólíklegt sé að allt það fólk sem nú safnar meðmælum rati á kjörseðilinn þegar þar að kemur. Stóra spurningin er auðvitað hvort forsætisráðherra gefi kost á sér en geri hún það þarf að mynda nýja ríkisstjórn. Við röbbuðum um þessi mál; forsetakosningarnar og stöðuna í stjórnmálunum, upp úr hálf átta - gestir okkar voru Magnús Skjöld, varaþingmaður Samfylkingarinnar, og Hjörtur J. Guðmundsson stjórnmálafræðingur. Við huguðum líka að ferðamálum. Hvernig koma íslensku flugfélögin undan vetri? Við ræddum líka um komu Taylor Swift til Stokkhólms, en tónleikar hennar þar í borg verða mælanlegir í sænska ríkisreikningnum. Kristján Sigurjónsson ferðablaðamaður og ritstjóri FF7 sagði frá þessu. Í síðasta hluta þáttarins huguðum við að sjálfum okkur; sálinni og huganum. Við kynntum okkur hugleiðslu. Þegar allt er á fleygiferð í kringum okkur og við farin að snúast með er gott að leita inn á við og öðlast ró. En hvernig gerum við það? Halla Margrét Jóhannesdóttir leiðir reglulega hugleiðslu í Ásmundarsafni, og hún kom til okkar í síðasta hluta þáttarins. Tónlist: The Edwin Hawkins Singers - Oh happy day. Mannakorn - Brottför kl. 8. Mannakorn - Ferjumaðurinn. Friðrik Karlsson - Fullkomin kyrrð.
75 ár eru í dag síðan Atlantshafssáttmálinn var undirritaður og Atlantshafsbandalagið varð til. Af því tilefni ræddi Bogi Ágústsson við Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, um bandalagið og öryggis- og varnarmál. Fyrir 60 árum áttu Bítlarnir lögin í fimm efstu sætum bandaríska Billboard-vinsældarlistans. Lögin fimm voru leikin. Aðeins lítill hluti þess viðar sem hægt er að vinna úr skógum landsins er nýttur. Arnór Snorrason, skógfræðingur hjá Landi og skógi, segir mikla möguleika felast í skógarnytjum. Ég syng þennan söng - Ari Jónsson, Room full of roses - George Morgan, I can dream, can´t I - Andres sisters, Please please me - The Beatles, I want to hold your hand - The Beatles, She loves you - The Beatles, Twist and shout - The Beatles, Can´t buy me love - The Beatles, Norwegian wood - The Beatles.
Öldrunarráð Íslands eru regnhlífasamtök þeirra sem starfa að hagsmunum aldraðra. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, forstöðumaður Droplaugarstaða, er formaður ráðsins, hún sagði frá hlutverki þess og spjallaði vítt og breitt um málefni aldraðra. Lesið var brot úr viðtali við Meyvant Sigurðsson á Eiði sem birtist í Morgunblaðinu í apríl 1969, fáeinum dögum áður en Meyvant varð 75 ára. Þá var leikið brot út viðtali sem Jónas Jónasson átti við Meyvant í þættinum Um litla stund haustið 1970. Vera Illugadóttir sagði frá Camorra mafínunni á Ítalíu. Einn harðsvíraðasti liðsmaður hennar á árum áður, sem setið hefur bak við lás og slá í 26 ár, hyggst vitna gegn fyrrum félögum sínum. Wish you were gay - Billie Eilish, Green - Stórsveit danska ríkisútvarpsins, Click song - Miriam Makeba, Kung Erik - Walton Grönroos, Little things mean a lot, Il mio amico camorrista - Lisa Castaldi.
Frumvarpi um sölu á eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka var dreift á Alþingi fyrir páskaleyfi. Fjármálaráðherra fer með söluna en ekki Bankasýsla ríkisins sem annaðist síðustu tvö söluútboð. Mögulegt er talið að fá um hundrað milljarða króna fyrir hlutinn. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir málið. Í Berlínarspjalli fjallaði Arthur Björgvin Bollason meðal annars um tímabreytinguna í Þýskalandi og víðast hvar í Evrópu um helgina. Klukkan var færð fram um eina klukkustund eins og jafnan á vorin. Í lok þáttar var fjallað um "undir feldi" sem fólk og fjölmiðlar nota gjarnan í frásögnum af umhugsun eða stórum ákvörðunum sem þarf að taka. I heard it through the grapevine - Marvin Gaye, Strúktúr - Stórsveit Reykjavíkur, Let's get it on - Marvin Gaye, Vindhviður - Stórsveit Reykjavíkur, From heaven to earth - Stórsveit Reykjavíkur.
Páskahátíðin er fram undan og þátturinn tók að nokkru leyti mið af því. Það er orðin hefð hjá okkur að fjalla um passíusálma Hallgríms Péturssonar í aðdraganda páska og í hana höldum við í dag. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur hefur umsjón með flutningi Passíusálmanna í Hallgrímskirkju í Reykjavík á föstudaginn, föstudaginn langa. Steinunn spjallaði um þetta höfuðverk skáldsins og píslargöngu krists. Og svo voru það dönsku málefnin; Borgþór Arngrímsson sagði frá því sem er efst á baugi í Danmörku þessa dagana og rabbaði líka um danskar páskahefðir. Við ræddum líka um hamingju og vellíðan - það er sígilt umhugsunarefni en okkur datt í hug að sniðugt væri að taka með okkur vangaveltur um þau mikilvægu mál inn í páskaleyfið. Við fjölluðum um listina að kunna að njóta þess smáa; að njóta “litlu hlutanna” eins og sagt er. Ingrid Kuhlman sálfræðingur hjálpaði okkur við þetta. Tónlist: Magnús og Jóhann, Magnús Þór Sigmundsson, Jóhann Helgason Tónlistarmaður - Seinna meir. Jón Þorsteinsson, Hörður Áskelsson - Ó Jesú að mér snú. 309. Jón Þorsteinsson, Hörður Áskelsson - Ver hjá mér herra dagur óðum dvín. 426. Kitty Kallen - Little things mean a lot. Ingibjörg Þorbergs - Man ég þinn koss.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, var fyrsti gestur Morgunvaktarinnar í dag og við héldum áfram umfjöllun um áformuð kaup Landsbankans á TM. Síðan Þórður var hér síðast hefur bankaráð Landsbankans birt upplýsingar sem stangast á við upplýsingar Bankasýslunnar. Við fjölluðum líka um kaupmátt ráðstöfunartekna sem heldur áfram að dragast saman, og um það hvað það kostar að bjóða sig fram til forseta Íslands. Berlínarspjall var á sínum stað og Arthúr Björgvin Bollason sagði meðal annars frá nýsamþykktum lögum um kannabisneyslu, óbeit atvinnurekenda á AfD flokknum og svo töluðum við svolítið um fótbolta og áhrif gengis þýska landsliðsins á þjóðarsálina. Nokkur ár eru frá því að tekið var upp styrkjakerfi í námslánum hér á landi og nú stendur til að sníða af vankanta sem komið hafa í ljós, samkvæmt nýju frumvarpi. En stúdentar og fleiri hafa gagnrýnt frumvarpið, ekki síst vegna þess hversu litlu á að breyta. Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur sérstaklega lýst yfir vonbrigðum yfir því hvernig staðið er að málum. Rakel Anna Boulter, forseti Stúdentaráðs HÍ, og Gísli Laufeyjarson Höskuldsson lánasjóðsfulltrúi, komu til okkar. Tónlist: Whiteman, Paul - Mississippi Mud. Brimkló - Herbergið mitt. Reinhard Mey - Über den Wolken. Steve Miller Band - The Joker (bonus track wav).
Forsetakosningar fara hér fram eftir rétt rúma tvo mánuði; fyrsti júní er kjördagur. Óvíst er enn hve margir verða í kjöri en tugir afla meðmæla. Enn er nokkuð í að framboðsfrestur renni út. Við reyndum að átta okkur á tímalínunni í þessu, skilyrðunum og lögunum sem gilda. Hjá okkur var Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar en það er tiltölulega ný nefnd eða stofnun sem hefur yfirumsjón með framkvæmd kosninga í landinu. Björn Malmquist fréttamaður var líka með okkur; hann talaði ekki frá Brussel að þessu sinni heldur Lundúnum og með honum var Sigrún Davíðsdóttir, góðkunningi hlustenda Morgunvaktarinnar. Þau spjölluðu um stöðuna í breskri pólitík en búist er við að kosið verði til þings í Bretlandi á síðari hluta ársins, og líka um konungsfjölskylduna. Samstarfið milli Norðurlanda er elsta svæðisbundna stjórnmálasamstarf í heimi, en það er líka mikið samstarf milli ríkjanna á sviði efnahagsmála og menningar. Stefnt er að því að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og best samþætta svæði heims á næstu árum. Hvað felst í því og hvernig ætli það gangi? Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins á Íslandi, kom til okkar. Tónlist: Mehldau, Brad, Otter, Anne Sofie von - Marcie. Valgeir Guðjónsson - Ég held ég gangi heim. Sunna Gunnlaugsdóttir - Becoming. Malmsten, Ragni, Johansson's, Nacke ensemble, Andersson, Bo - Tillsammans = Together.
Enn gýs í nágrenni Grindavíkur og í gær var hafist handa við að hækka enn frekar varnargarða til reyna að forða því að hraun flæði yfir þá. Grindvíkingar eru margir enn í mikilli óvissu um framtíðina, bæði hvað varðar búsetu og atvinnu. Við ræddum við Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, um málefni Grindvíkinga vítt og breitt. Við fjölluðum um fámennasta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu og það sem hefur hvað mesta sérstöðu. Í Kjósarhreppi búa um 300 manns; landbúnaður er aðalatvinnuvegurinn og náttúrufegurðin mikil. Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri sagði okkur frá lífinu og tilverunni í Kjós. Fátt, ef nokkuð, er betra en góð pylsa – segja pylsuunnendur. Sigurður Haraldsson pylsugerðarmaður í Pylsumeistaranum kann aldeilis tökin á pylsunum; hann varð Kjötmeistari ársins í fagkeppni meistarafélags kjötiðnaðarmanna sem fram fór á dögunum. Sigurður kom til okkar og við spjölluðum um pylsur og pylsugerð. Það á að segja pylsur, ekki pulsur, segir Sigurður. Tónlist: King, Ben E. - Stand by me. Jens Hansson, Haraldur Þorsteinsson, Ásgeir Óskarsson, Björgvin Gíslason, Hjörleifur Valsson Fiðluleikari - Á fálkaslóð. Karlakór Kjósverja - Söngur sáðmannsins. Karlakór Kjósverja - Sumar er í sveitum. Morrison, Van - Moondance.
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og með var honum Magnús Þorkell Bernharðsson, doktor og prófessor í sögu Mið-Austurlanda. Til umræðu var ástandið og átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. 150 ár eru í dag síðan Friðriksgáfa, hús amtmannsins á Möðruvöllum í Hörgárdal, brann. Þetta var hvorki fyrsti né síðasti húsbruninn á prests- og menntasetrinu Möðruvöllum; brunasagan er raunar með miklum ólíkindum. Við hringdum til Möðruvalla og spjölluðum við Odd Bjarna Þorkelsson prest sem þar hefur þjónað í að verða tíu ár. Við töluðum um söguna en líka um lífið og tilveruna, og trúna. Og úr Eyjafirðinum lá leiðin vestur á firði. Hjá Vestfjarðastofu er nú unnið markvisst að kynningu landshlutans til að laða að fjárfestingu sem nýtir gæði og náttúruauðlindir á ábyrgan hátt. Í þessu augnamiði hefur nýjum vef verið hleypt af stokkunum; slóðin er Inwest.is - vaffið er tvöfalt; þetta er leikur að orðum og stöfum. Sigríður Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu, sagði okkur frá þessu en gangi öll áform eftir þarf meðal annars að byggja um eittþúsund íbúðir á næstu árum. Tónlist: Haukur Morthens, Tríó Jörn Grauengård - Suður um höfin. Haukur Heiðar Ingólfsson og félagar - You belong to me. Ljótu hálfvitarnir - Paradísarmissir.
Fyrsti gestur þáttarins var Sigurður Ágúst Sigurðsson, nýkjörinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Einkum var rætt um vöntun á hjúkrunarheimilum en um 250 eru á biðlista. Félagið segir neyðarástand ríkja. Heilbrigðisráðherra hefur lofað uppbyggingu en ljóst er að hún tekur mörg ár. Alþjóðlegi hamingjudagurinn er í dag. Af því tilefni kom Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis, í þáttinn og sagði frá nýjum mælingum á hamingju landsmanna. Fjölgað hefur í hópi hamingjusamra unglinga en minnst er hamingjan meðal fólks á aldrinum 18-24 ára. Yfirvöld í Kólumbíu áforma að hífa af hafsbotni skip sem sökk í byrjun átjándu aldar. Lestir þess voru fullar af gulli, silfri og eðalsteinum. Deilt er um eignarhald á góssinu. Vera Illugadóttir sagði frá. Suður um höfin - Diddi og Reynir, Woman - John Lennon, Højdesyge - Tina Dickow.
Tilkynning um kaup Landsbankans á TM á sunnudag kom flestum á óvart. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir málið og rakti atburðarásina. Arthur Björgvin Bollason fjallaði um stöðu Olafs Scholz, kanslara Þýskalands, sem þykir veik. Hann nýtur lítils stuðnings meðal almennings samkvæmt skoðanakönnunum. Arthur sagði einnig frá Boris Pistorius varnarmálaráðherra sem er rísandi stjarna í þýskum stjórnmálum og þykir líklegur arftaki Scholz. Óveður geisaði á Vestfjörðum í gær og flestir vegir ófærir. Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingmaður og íbúi á Suðureyri sagði frá veðrinu og spjallaði líka um strandveiðar og grásleppu og sitt hvað fleira. I got it bad and that ain't good - Ben Webster, Et nytt møte - Jan Erik Vold, Ku penga penga - Joseph Nangalembe, Love o' love - Nina Simone.
Oft eru vinnubrögðin á Alþingi gagnrýnd, það er gert af ýmsum ástæðum og af misalvarlegu tilefni. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur er einn þeirra sem hefur mikinn áhuga á störfum þingsins, og hann gaf í síðustu viku út nýja bók þar sem hann ber saman íslenska og danska þingið, bæði í fortíð og nútíð, þegar kemur að því að setja lög. Hann sagði okkur frá rannsókn sinni. Svo fórum við til útlanda; fyrst vorum við í Evrópu með Birni Malmquist fréttamanni. Leiðtogar Evrópusambandsins hittast í Brussel síðar í vikunni og við röbbuðum um þann fund og ýmislegt fleira. Í síðasta hluta þáttarins fórum við til Kína, í huganum. Við tókum upp þráðinn þar sem frá var horfið fyrir mánuði þegar við spjölluðum svolítið um Kína við Magnús Björnsson hjá Konfúsíusarstofnuninni í tilefni áramótanna þar í landi. Hagur fólksins og fyrirséð fólksfækkunn voru á dagskrá í dag. Tónlist: Mamas and Papas - Dedicated to the one I love. Anna Sóley - I Just Smile. Sálgæslan Hljómsveit - Hvernig sem fer. Hoff, Jan Gunnar - The years.
Heiða Björg Hilmisdóttir og Íris Róbertsdóttir voru gestir Morgunvaktinnar í dag. Þær sátu í allan gærdag Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga og halda áfram fundarsetum í dag því þá munu sveitarfélög á köldum svæðum á landinu funda um orkumálin. Þó hart hafi verið tekist á um kjarasamningsmál í gær var líka rætt um hamfarir og viðbrögð sveitarfélaganna við þeim. Við ræddum málefni sveitarfélaganna upp úr klukkan hálf átta. Ferðamálin voru líka til umræðu í þætti dagsins. Hugmyndir um að selja flugstöðina í Keflavík koma reglulega upp, eins og Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, ræddi. Hann fór líka yfir breytingar í bókunum á gististöðum og um breytingar á ferðaþjónustu í Kína. Gamla loftskeytastöðin við Suðurgötu í Reykjavík hefur fengið nýtt hlutverk, því síðar í dag opnar þar sýning um ævi og áhrif Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Sigrún Alba Sigurðardóttir sýningarstjóri og sýningarhönnuður, kemur til okkar í síðasta hluta þáttarins og segir okkur frá. Tónlist: Cooke, Sam - Bring it on home to me. Cooke, Sam - Forever. Merrill, Helen, Clark, Jean-Francois Jenny, Humair, Daniel, Kuhn, Joachim, Getz, Stan - Yesterdays. Dickow, Tina - Lykken er....
Í áratugi hefur ríkið Haítí í Karabíska hafinu glímt við mikil vandræði, sem hafa magnast vegna ofbeldis, náttúruhamfara og afskipta annarra ríkja, meðal annars. Löng og sorglega saga Haití var til umfjöllunar þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Við ræddum líka um öryggismál á Norðurlöndunum eftir inngöngu Svía í Atlantshafsbandalagið og um nýjustu vandræði breskra stjórnvalda. Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði var svo gestur Morgunvaktarinnar eftir fréttirnar klukkan átta. Honum hafa lengi verið hugleikin félagsleg samskipti, félagsleg samvist, og ræddi um mikilvægi hennar. Í síðasta hluta þáttarins komu tveir nemendur í Véltækni- og Skipstjórnarskóla Tækniskólans, þær Herdís Ósk Andrésdóttir og Tara Ósk Markúsdóttir. Þær eru tvær þeirra stelpna sem stunda þar nám, stelpur eru í minnihluta þar en við forvitnuðumst um stöðu stelpna í Tækniskólanum og um námið almennt, auk þess sem þær sögðu okkur frá Skrúfudeginum sem haldinn verður í sextugasta sinn á laugardag. Tónlist: Mikael Máni Ásmundsson - Tvær stjörnur. Mikael Máni Ásmundsson - Gratitude. Hilmar Jensson - Undo.
Eftirlit með veitingastöðum hefur verið í deiglunni, en í stóru vinnumansalsmáli sem nú er í rannsókn virðist heimsókn Heilbrigðiseftirlitsins í lager að Sóltúni hafa spilað ákveðið hlutverk í atburðarásinni. Það er fleira en veitingastaðir sem lýtur eftirliti. En hvernig er eftirliti háttað, hvernig eru niðurstöður birtar og hvernig má nálgast þær? Óskar Ísfeld Sigurðsson deildarstjóri matvælaeftirlits hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur ræddi við okkur um þessi mál. Borgþór Arngrímsson fór yfir ýmis dönsk málefni sem eru í deiglunni þessa dagana. Við sögu komu réttarhöld yfir stórtækum skattsvikara, ásókn Þjóðverja í dönsk sumarhús og flugvöllur sem fáir nota. Ný lög um skák líta brátt dagsins ljós nái frumvarp mennta- og barnamálaráðherra fram á ganga. Fyrirkomulagi verður breytt þannig að enginn stórmeistari verður á launum heldur sækja skákmenn árlega um styrk úr afrekssjóði. Breytingarnar hafa verið gagnrýndar og taldar afturför. Til að ræða væntanleg lög um skák komu þau Jóhanna Björg Jóhannsdóttir varaforseti Skáksambandsins og Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari til okkar í síðasta hluta þáttarins. Honeysuckle Rose - Waller, Fats, Taylor, Billy, Sedric, Gene, Coleman, Bill, Casey, Albert, Waller, Fats and his Rhythm, Dial, Harry. Ain't misbehavin' - Waller, Fats, Ashby, Irving, Porter, Gene, Singleton, Zutty, Moore, Alton, Stewart, Leroy, Waller, Fats and his Rhythm, Carter, Benny. Íslendingur í Uluwatu hofi - Stórsveit Reykjavíkur. Into The Blue - KÁRI.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór ítarlega yfir kjarasamningsmál á Morgunvaktinni í dag. Búið er að semja fyrir hönd tugþúsunda, aðrir eru enn eftir, en ríkið hefur sýnt á sín spil. Hið opinbera leggur til 80 milljarða króna pakka, sem þó hefur ekki verið sagt hvernig nákvæmlega verður fjármagnaður. Ræddum einnig um Landsvirkjun og metafkomu fyrirtækisins. Árás var gerð á verksmiðju Tesla bílaframleiðandans fyrir utan Berlín í síðustu viku. Kveikt var í, og bæði verksmiðjan og stór hluti Brandenburgar-fylkis urðu rafmagnslaus með miklum afleiðingum. Arthur Björgvin Bollason sagði okkur frá málinu í Berlínarspjalli eftir morgunfréttirnar klukkan átta. Hann sagði okkur líka frá skólamálum og kröfugöngu á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Katrín prinsessa af Wales kom sér í klandur um helgina þegar hún birti það sem virtist vera sakleysisleg mynd af henni og börnum sínum þremur. Myndin var þó fljótlega tekin úr umferð af helstu fréttaveitum enda talið að átt hefði verið við hana með myndvinnsluforriti og Katrín þurfti síðan að biðjast afsökunar á birtingunni. Við ræddum myndbirtingar og hverju er hægt að treysta við þau Kjartan Þorbjörnsson, Golla, fréttaljósmyndara og Svanhildi Grétu Kristjánsdóttur ráðgjafa og ljósmyndara. Cilla Black - Anyone Who Had a Heart. When sunny gets blue - Kristjana Stefánsdóttir. Ich hab die Schnauze voll von rosa - Suli Puschban
Sænski fáninn verður dreginn að húni við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins eftir nokkrar klukkustundir, eftir að formlega innganga Svíþjóðar í varnarbandalagið gekk í gegn í síðustu viku. Við ræddum um inngöngu Svía, umræðuna þar í landi og stjórnmálin við Gunnhildi Lily Magnúsdóttur stjórnmálafræðing í Malmö. Við ræddum um Evrópuþingskosningarnar í júní við Björn Malmquist fréttamann og Dóru Tynes lögmann. Nú þegar tæpir þrír mánuðir eru í kosningar hafa kannanir sýnt að hægriflokkar og harðlínu-hægriflokkar séu að sækja í sig veðrið. Hvað þýðir það og hvaða áhrif hefði slík sveifla á Evrópusambandið? Og í síðasta hluta þáttarins: Það færist í aukana að alls kyns fólk deili upplýsingum og ráðum um matvæli og mataræði á samfélagsmiðlum, og ráðin eru út og suður. Til dæmis sáu næringarfræðingar sig nýlega knúna til að grípa til varna fyrir hafragrautinn, og það er bara eitt af fjölmörgum dæmum. Ætli sé margt fólk hreinlega farið að upplifa kvíða vegna allra þessara misvísandi upplýsinga um hvað sé hollt og æskilegt og hvað ekki? Við spurðum Heiðdísi Snorradóttur næringarfræðing að því. Tónlist: Prysock, Arthur - The folks who live on the hill. Eilish, Billie - What Was I Made For. Eilish, Billie - No Time To Die. Melchor, Adam - i'm not okay Una Torfadóttir - Um mig og þig.
Málefni útlendinga hafa verið fyrirferðarmikil á Alþingi undanfarnar vikur. Þingkonurnar Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir komu til okkar á Morgunvaktina klukkan hálfátta og við ræddum þau mál en auk þess kjarasamninga og umfangsmikið mansalsmál sem kom upp í vikunni og varðar tugi fórnarlamba. Joe Biden Bandaríkjaforseti hélt í gærkvöldi síðustu stefnuræðu sína á kjörtímabilinu frammi fyrir bandaríska þinginu. Hann fór um víðan völl í langri ræðu, sem sumir segja hafa verið meiri kosningaræðu en ræðu um stöðuna á bandarísku samfélagi. Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi og sérfræðingur um bandarísk stjórnmál var með okkur eftir morgunfréttirnar klukkan átta og fór yfir það markverðasta í ræðunni og því hvernig hún endurspeglar stöðu mála. Happdrætti Háskóla Íslands verður nírætt á sunnudag. Happdrættið hefur fjármagnað nær allar byggingar Háskóla Íslands á þessum tíma og saga þess er merkileg. Happdrættið er þó ekki óumdeilt. Til okkar komu þau Bryndís Hrafnkelsdóttir forstjóri og Stefán Pálsson sagnfræðingur, en hann hefur skrifað sögu Happdrættis Háskóla Íslands. Bryndís og Stefán voru gestir okkar í síðasta hluta þáttarins. Just friends - Vaughan, Sarah, Count Basie and his Orchestra. Cirkeldans - Dickow, Tina.
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann að venju upp úr klukkan hálf átta. Á dögunum var póstsending frá Færeyjum opnuð. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að pakkinn var 214 ára gamall -- meira af því á eftir. Bogi ræddi líka um kosningarnar um helgina í Portúgal og um framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Töluvert er rætt um kynþáttafordóma á Íslandi þessa dagana. Á föstudag hefst Hugvísindaþing í Háskóla Íslands, og meðal þess sem þar verður rætt um eru sögulegar rætur kynþáttahyggju. Kristín Loftsdóttir mannfræðingur er ein þeirra sem hafa rannsakað þessi mál og hún var gestur okkar eftir morgunfréttirnar klukkan átta. Undanfarin ár hafa boðið upp á margar áskoranir fyrir Reykjanesið og ferðaþjónustan hefur fundið fyrir því. Eyþór Sæmundsson verkefnastjóri miðlunar og markaðssetningar hjá Markaðsstofu Reykjaness kom á Morgunvaktina og ræddi um Reykjanesið sem áfangastað fyrir ferðamenn. Ongi orð - Døgg Nónsgjógv. Andakt - Haraldur Þorsteinsson, Björgvin Gíslason, Ásgeir Óskarsson. Farin - Jónas Gaard og Sigríð.
Sniðganga hefur verið töluvert í umræðunni undanfarið, sérstaklega þegar viðkemur málefnum Ísraels og Palestínu. En sniðgönguhreyfingin er ekki ný af nálinni, um sniðgöngu eru þónokkur dæmi í sögunni. Jón Þór Sturluson hagfræðingur var gestur okkar og ræddi um þessi mál. Sextíu læknar útskrifast árlega hér á landi en þyrftu að vera fleiri. Læknadeild Háskóla Íslands hefur samþykkt að fjölga nemum í 75 í haust, en setur nokkra fyrirvara svo sem um nægt fjármagn og aðstöðu. Þórarinn Guðjónsson deildarforseti læknadeildar settist hjá okkur ræddi um hvað þarf svo hægt sé að fjölga læknanemum, og þar með læknum. Á föstudaginn verða tíu ár síðan malasísk farþegaþota hvarf á flugi frá Kuala Lumpur til Beijing með 239 manns innanborðs. Það var 8. mars 2014. Hvarf MH 370 er í dag ein mesta ráðgáta flugsögunnar. Umfangsmikil leit að braki þotunnar á hafi úti skilaði litlu - en nú er útlit fyrir að efnt verði til nýrrar leitar á árinu. Vera Illugadóttir sagði okkur frá þessari ráðgátu í þættinum. They only talk about the weather - Árný Margrét. A Case Of You - Mitchell, Joni. My Old Man - Mitchell, Joni.
Hagvöxtur mældist 4,1% á síðasta ári, en á síðustu mánuðum ársins hægðist á hagkerfinu. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór ítarlega yfir þessar tölur á Morgunvaktinni. Hann ræddi líka um Grindavík og um stöðu kjaraviðræðna. Í síðustu viku birti rússneska ríkissjónvarpið upptöku af samræðum fjögurra háttsettra yfirmanna þýska hersins, þar sem þeir ræða ýmis viðkvæm mál um þátttöku Þjóðverja í stríðinu í Úkraínu. Málið hefur undið upp á sig dag hvern síðan þá, eins og Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur nánar frá í Berlínarspjalli. Fæðingartíðni er víða til umfjöllunar. Færri börn fæðast en áður víða í þróuðum ríkjum, en í Japan er vandinn verulega mikill, þar hafa aldrei fæðst færri börn en í fyrra. Þetta 125 milljóna manna land stendur frammi fyrir miklum vandræðum. Kristín Ingvarsdóttir, lektor í japönskum fræðum, fór yfir þessi mál við okkur í síðasta hluta þáttarins. Why do I love you? - Garcia, Whiting. From heaven to earth - Ólafur Jónsson Tónlistarm., Björn Thoroddsen, Stórsveit Reykjavíkur, Ólafur Jónsson, Gillis, Richard. „Wenn das Wasser im Rhein goldner Wein wäre“ - Willy Schneider.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, kom á Morgunvaktina og ræddi um kröfugerð BSRB í komandi kjarasamningsviðræðum. Samningar á opinberum vinnumarkaði losna í lok mánaðarins. Hún talaði líka um endurmat á virði kvennastarfa og nauðsyn þess að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar. Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, ræddi um komandi kosningar í Portúgal og um þýðu í samskiptum Póllands við Evrópusambandið. Kolfinna Jóhannesdóttir, skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík, ræddi svo um styttingu framhaldsskólanna, sem hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu. Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Simone, Nina - Why must your love well be so dry. Simone, Nina - I Wish I Knew (How It Would Feel To Be Free). Bruni, Carla - Quelqu'un m'a dit Abba - Waterloo.
Endurleikið viðtal við Ágústu Gísladóttur, aðalræðismann Íslands í Þórshöfn, um frændhug Færinga sem lögðu til tíu milljónir króna í söfnun Rauða krossins fyrir Grindvíkinga.
Enn er umtalsverð verðbólga í landinu þótt ekki sé hún jafn mikil og fyrir ári þegar hún fór yfir tíu prósent. Að sama skapi eru vextir háir og hafa verið undanfarin misseri. Allt hefur hækkað í verði; vörur og þjónusta, og ekki síst lánin. Hvernig reiðir fólki af í dýrtíðinni? Við spurðum umboðsmann skuldara; Ástu Sigrúnu Helgadóttur. Færeyingar eru einstök gæðablóð; það sýndi sig enn og aftur á dögunum þegar þeir söfnuðu peningum fyrir Grindvíkinga vegna eldsumbrotanna. Tíu milljónir íslenskra króna söfnuðust á fáeinum dögum í gegnum Rauða krossinn þar í Færeyjum. Við spjölluðum um Færeyjar og Færeyinga við aðalræðismann Íslands í Þórshöfn, Ágústu Gísladóttur. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri vefsins FF7, fór yfir ýmislegt tengt ferðamálum. Flugfélagið Play, ný ferðamálastefna Íslands og fækkun gistinátta hér á landi voru á meðal þess sem Kristján ræddi.
Þáttur dagsins var óvenjulegur, enda hlaupársdagur óvenjulegur. Bogi Ágústsson var engu að síður á sínum stað, en leit ekki út í heim heldur velti fyrir sér söguskilningi okkar Íslendinga. Guðbjörg Bjarnadóttir veitingahúsaeigandi á Maspalomas á Gran Canaria-eyjunni á Kanaríeyjum sagði okkur frá lífinu, tilverunni og Íslendingasamfélaginu þar. Við forvitnuðumst líka um töfra. Gunnar Kr. Sigurjónsson forseti Hins íslenska töframannagildis kom til okkar og ræddi um og sýndi töfrabrögð. Tónlist: Redding, Otis - (Sittin' on) the dock of the bay. Shore, Dinah - You're driving me crazy. Shore, Dinah - Lucky to be me. Örvar Kristjánsson - Sunnanvindur. Chordettes, The - Mr. sandman. Hrekkjusvín - Hvað ætlar þú að verða?.
Snemma í þættinum var umfjöllun um Guðrúnu Á. Símonar. 36 ár eru í dag síðan hún lést og á laugardaginn, 24. febrúar, var öld síðan hún fæddist. Leikið var brot úr viðtali Jökuls Jakobssonar við Guðrúnu frá 1971. Dregið hefur úr sölu rafbíla. Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, rekur samdráttinn til hærra verðs á rafbílum sem stafar af breyttu ívilnanakerfi stjórnvalda. Egill fór yfir sjónarmið sín í spjalli. Borgþór Arngrímsson fór yfir eitt og annað danskt eins og hann gerir á Morgunvaktinni annan hvern miðvikudag. Ásahreppur hefur boðið sveitarfélögunum Rangarþingi ytra og Rangárþingi eystra til skrafs og ráðagerða um sameiningu. Valtýr Valtýsson sveitarstjóri spjallaði um sameningarmál og Ásahrepp. Hlustið góðu vinir - Sigrún Hjálmtýsdóttir, Love is all - Deanna Durbin, Kötturinn Kikki - Guðrún Á. Símonar, Mvundula Madzi - Lucky Stars Band, Middelsmand Bunker - C.V. Jörgensen.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að selja eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka; rúmlega 40 prósent hlutafjár. Stefnt er að því að allir fái að kaupa – ekki sérvalinn hópur eins og síðast. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir söluna. Við ræddum líka um Alvotech sem loksins fær að selja samheitalyf sitt í Bandaríkjunum og fórum yfir stöðu mála í kjaraviðræðunum. Vernd og endurheimt votlendis er eitt af áhersluatriðum í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Á föstudag fengum við til okkar líffræðing sem sagði frá niðurstöðum rannsóknar sem bendir til þess að smærri votlendissvæði hafi ekki síður þýðingu fyrir lífríkið en stór svæði. Við héldum áfram að fjalla um votlendi og til okkar kom Ágústa Helgadóttir líffræðingur og verkefnastjóri endurheimtar votlendis hjá Landi og skógi til okkar. Arthur Björgvin Bollason var með okkur í dag og fjallaði meðal annars um lögleiðingu kannabisneyslu í Þýskalandi, heimspekinginn Kant og áhuga á Íslandi og því sem íslenskt er á Norðursjávarströndum Þýskalands. Hjarta mítt - Eivör Pálsdóttir. Heimaslóð - Alfreð Washington Þórðarson, Eyjaliðið, Gísli Helgason, Arnþór Helgason, Ási í Bæ. Klau og Klaus - An der Nordseekuste. Tarazina - Setona.
Undanfarna daga hefur Morgunvaktin fjallað um Rússland og Úkraínu, í tilefni þess að á laugardag voru tvö ár liðin frá innrás Rússa í Úkraínu. Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, var gestur okkar klukkan hálf átta og við ræddum um stöðuna í Rússlandi - og stöðu Rússlands í alþjóðasamfélaginu. Björn Malmquist fréttamaður í Brussel sagði okkur tíðindi frá Evrópu að loknum fréttum klukkan átta. Við ræddum um stöðuna gagnvart Úkraínu, áhrifin sem innrásin þar hefur haft á varnarmál bæði innan Evrópusambandsins og Atlantshafsbandalagsins – en allt bendir til þess að Svíar verði samþykktir inn í bandalagið síðar í dag af ungverska þinginu, sem er það síðasta til að samþykkja. Örnefni á Reykjanesinu eru til umfjöllunar í síðasta hluta þáttarins. Sesselja G. Guðmundsdóttir hóf að skrásetja örnefni í Vatnsleysustrandarhreppi, sem nú er sveitarfélagið Vogar, fyrir meira en fjórum áratugum en hluti þeirra örnefna sem eru í hennar skráningu þar hafa hlotið landsfrægð eftir að jörð tók að hristast á Reykjanesi. Girl - The Beatles. Monday, Monday - Mamas and Papas. My girl - Mamas and Papas.
Endurleikið viðtal frá þriðjudegi við Hildi Ragnars, forstjóra Þjóðskrár, en Þjóðskrá er ein af stofnunum ársins hjá Sameyki, stéttarfélagi í almannaþjónustu.
Það eru víða stríð og átök í heiminum í dag. Mest fer fyrir hernaði Rússa gegn Úkraínu, og átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Friðarumleitanir hafa ekki borið árangur; ekki enn – en er von? Við fórum yfir stríð og frið í heiminum með Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði. Votlendi sem er stærra en tveir hektarar nýtur sérstakrar verndar í náttúruverndarlögum. Í nýútkominni meistararitgerð úr líffræði frá Háskóla Íslands kemur fram að minni votlendisblettir, þar á meðal blettir vel undir tveimur hekturum, geta gegnt mikilvægu hlutverki fyrir fuglalíf landsins. Aron Alexander Þorvarðarson líffræðingur sagði okkur frá rannsókn sinni á tengslum flatarmáls votlendis og fjölbreytni og þéttleika fugla. Í Grindavík hefur Fisktækniskóli Íslands verið starfræktur um árabil. “Framtíðin felst í hafinu,” segja þau í Fisktækniskólanum: “í fólkinu, tækifærunum, þekkingarsamfélaginu og draumunum.” Ástand mála í Grindavík hefur auðvitað haft áhrif á skólastarfið en það hjálpar til að nú á vorönn eru nemendur í verklegu námi hjá sjávarútvegsfyrirtækjum vítt og breitt um landið. Klemenz Sæmundsson, skólameistari Fisktækniskólans var til viðtals á Morgunvaktinni. Hawaiian hospitality - Iona, Andy and his Islanders, Armstrong, Louis. The spirit – Pops Mohamed. Lívíð er júst tað, sum tað er - Kári Sverrisson. Stingum af - Mugison
Alexei Navalny hefur bæst í hóp andstæðinga Pútíns Rússlandsforseta sem deyja – beint eða óbeint - vegna andstöðunnar við forsetann. Við fórum yfir nokkur dæmi um þessi andlát þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Við ræddum líka um nýja stefnu Grænlands í utanríkis-, öryggis- og varnarmálum þar sem stefnt er að aukinni samvinnu meðal annars við Ísland. Margar spurningar hafa vaknað tengdar virði og mati á fasteignum í tengslum við uppkaup ríkisins á íbúðahúsnæði í Grindavík. Um 600 umsóknir um endurmat á brunabótamati hafa borist vegna eigna í bænum. Tryggvi Már Ingvarsson framkvæmdastjóri fasteigna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnum ræddi við okkur um brunabótamat og umsögn stofnunarinnar um frumvarp um uppkaup fasteigna í Grindavík. Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans ræddi við okkur um nauðsyn þess að efla nýsköpun í bláa hagkerfinu - í sjávarútvegi. Þó margt hafi breyst til hins betra í nýtingu fiskafurða má enn gera betur. Hún sagði okkur líka frá stefnumóti fjárfesta og frumkvöðla hjá Sjávarklasanum og fleiri verkefnum sem miða að því að tengja saman hugmyndir og peninga í bláa hagkerfinu. Bye, bye blackbird - Kristjana Stefánsdóttir Årets gang -Sigurður Flosason, Cathrine Legardh Zaz - Sous le ciel de Paris
Fyrsti gestur þáttarins í dag var Rósa Magnúsdóttir, sagnfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Á laugardag eru tvö ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Langur aðdragandi var að innrásinni; 2014 innlimaði Pútín forseti Krímskaga í Rússland. Ekkert lát er á átökum og margir liggja í valnum. Rósa fó yfir atburðarásina með okkur. Við fjölluðum líka um þær breytingar sem ríkisstjórnin hyggst gera í útlendingamálum. Áformin voru kynnt í gær. Herða á löggjöfina frá því sem nú er, í því augnamiði að fækka því fólki sem hingað kemur og óskar verndar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra var gestur okkar eftir Morgunfréttirnar. Netverjar í Chile hafa undanfarnar vikur herjað stíft á samfélagsmiðla British Museum, með kröfur um að safnið skili tveimur steinhöfðum frá Páskaeyju, en eyjan tilheyrir Chile. Þessi gríðarstóru dularfullu steinlíkneski eru þekktasta tákn Páskeyju, og voru sköpuð löngu áður en Chile lagði eyjuna undir sig. Vera Illugadóttir sagði okkur frá þessari afskekktu eyju Páskaeyju, sögu hennar og styttunum frægu. Tónlist: Víkingur Heiðar Ólafsson - Variatio 1 a 1 Clav.. Víkingur Heiðar Ólafsson - Variatio 30 Quodlibet. a 1 Clav.. Þokkabót - Miðvikudagur. Hooker, John Lee - Wednesday evenin' blues. Nunes, Clara - Ilû ayê (Terra da vida).
Málefni útlendinga eru fyrirferðarmikil í þjóðfélagsumræðunni þessa dagana og hafa reyndar verið um allnokkurt skeið. Umræðan er óneitanlega nokkuð þvæld eins og gjarnan gerist þegar tilfinningar og skoðanir eru í spilinu; þá vilja staðreyndir og lagabókstafur skolast til. Við glugguðum í lögin sem liggja til grundvallar þeim farvegi sem mál fara í; það eru lög um útlendinga; þau eru viðamikil og jafnvel flókin með skýrskotunum til alþjóðasamninga, alþjóðasamstarfs og reglugerða. Hjá okkur, var Jón Sigurðsson lögmaður og formaður félags talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd. Björn Malmquist fréttamaður, sem í dag er staddur í Kaupmannahöfn, ræddi meðal annars við Árna Þór Sigurðsson sendiherra um lífið í Kaupmannahöfn og samfélag Íslendinga í dönsku höfuðborginni. Í síðasta hluta þáttarins forvitnuðumst við um starfsemi Þjóðskrár. Stofnunin sú er ein af stofnunum ársins í vali, eða kosningu Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu, þar um. Flest höfum við sjálfsagt einhverjar hugmyndir um hvað þau hjá Þjóðskrá gera en okkur býður í grun að verkefnin séu jafnvel fleiri og fjölbreyttari en margir ætla. Hildur Ragnars forstjóri kom til okkar. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill drengur. Plant, Robert, Krauss, Alison - Please read the letter. Tatarar hljómsveit - Dimmar rósir.
Heimilislæknar eru hættir að skrifa út tilvísanir vegna barna í þeim tilvikum þar sem þeir sjálfir hafa enga beina aðkomu að málum þeirra. Þeir segja a.m.k. þrjú ársverk fara í það og telja tíma sínum betur varið. Tinna Karen Árnadóttir læknir á heilsugæslunni í Árbæ fór yfir málið. Arthur Björgvin Bollason kom í þáttinn á mánudegi að þessu sinni og við spjöllum m.a. um Íslandsheimsókn hans með þýskum blaðamanni sem undirbýr greinarskrif um Ísland og íslenska menningu, einkum fornsögunnar. Þá var pólitíska ástandið í Þýskalandi til umfjöllunar og stofnun nýs stjórnmálaflokks á hægri vængnum. Nýtt ár gekk í garð í Kína fyrr í febrúar. Árið í ár er ár drekans. Magnús Björnsson, forstöðumaður Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa, sagði frá áramótum í Kína og árinu sem tekur mið af gangi tunglsins. The Sounds of silence - Fílharmóníuhljómsveitin í Prag, The Sounds of silence - Simon & Garfunkel, Nego Maluco - Edu Lobo, Bye bye blackbird - Miles Davis og John Coltrane.
Endurleikið er viðtal frá mánudegi við Viðar Jensson, starfsmann Landlæknisembættisins, um þróun reykinga.
Frumvarp um kaup á heimilum Grindvíkinga er komið inn í þingið og sitt sýnist hverjum. Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, og Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, ræddu við okkur um stöðu íbúa og fyrirtækja í Grindavík. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri FF7, var líka með okkur og flutti tíðindi úr ferðaheiminum. Svo töluðum við um ágæti þess að syngja. “Söngurinn göfgar og glæðir,” segir einhvers staðar. Tilefnið er frétt um nýstofnaðan kór alþingismanna. Inga Sæland hafði forgöngu um stofnun þingmannakórsins og kórstjóri er vitaskuld flokksbróðir hennar Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður. En hvaða áhrif hefur söngurinn á okkur - það að syngja með öðru fólki í kór. Er það rétt að söngurinn göfgi og glæði? Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona og kórstjóri kom á Morgunvaktina. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Shore, Dinah - The nearness of you. Víkingur Heiðar Ólafsson - Variatio 15 Canone alla Quinta. A 1 Clav. Andante. Swift, Taylor - cardigan. Léttsveit Reykjavíkur Kvennakór, Jóhanna V. Þórhallsdóttir, Aðalheiður Þorsteinsdóttir Píanól. - Mas que nada. Lögreglukórinn - Undir Stórasteini.
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og ræddi við Jón Óskar Sólnes sem býr í Washington í Bandaríkjunum og fylgist vel með gangi mála, ekki síst nú fyrir kosningarnar í haust. Bogi ræddi einnig um nýafstaðnar kosningar bæði í Indónesíu og Pakistan. Við heyrum af því reglulega að ein stærsta áskorun þjóðarinnar í heilbrigðismálum er hækkandi aldur og aukin sjúkdómsbyrði elstu hópa samfélagsins. Sífellt er að bætast í þekkingu á heilsusamlegri öldrun, og vöðvavernd er þar mikilvægur þáttur, eins og Anna Björg Jónsdóttir yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum ræddi við okkur. Í síðasta hluta þáttarins ræddum við um málmsuðu - það er kúnst að sjóða saman vatnsleiðslur eins og gert vart á mettíma í Svartsengi um síðustu helgi. Að ekki sé talað um í kulda og myrkri og í kappi við tímann. Þeir sem unnu verkið eru hetjur. Við spjöllum um þetta fag við Víglund Laxdal Sverrisson, skólastjóra véltækniskóla Tækniskólans. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Elly Vilhjálms, Vilhjálmur Vilhjálmsson - Litli tónlistarmaðurinn. Stína Ágústsdóttir - Vorið og tómið. Gerry and The Pacemakers - Ferry cross the Mersey. Páll Rósinkranz - Suður um höfin.
Við fjölluðum um löggæslu í landinu í þættinum í dag. Of fáir lögregluþjónar eru við störf miðað við fólksfjölda og verkefni, samkvæmt flestum eða öllum hlutaðeigandi. Rætt var um fáliðað lögreglulið á Alþingi í síðustu viku og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, kom til okkar. Borgþór Arngrímsson sagði okkur frá því sem er efst á baugi í Danmörku. Í síðasta hluta þáttarins var rætt við Gunnar Inga Hrafnsson, formann Litla leikklúbbsins á Ísafirði sem er eitt af mörgum öflugum áhugamannaleikhúsum í landinu. Uppsetning hans á Fiðlaranum á þakinu hefur slegið í gegn. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Wright, Lizz - Seems I'm never tired lovin' you. Róbert Arnfinnsson - Ef ég væri ríkur. Mark Knopfler - Going home. Bent Fabric - Matador. Bergþór Pálsson - Afadrengur.