POPULARITY
Á árunum 1959-1962 reis stórhýsi Iðnaðarbankans við Lækjargötu, reisuleg og sérstæð bygging í anda alþjóðlegra framtíðarhugmynda. Hálfri öld síðar fékk byggingin dóm um að víkja. Niðurrif Iðnaðarbankans og jarðsetning hans hefur verið arkitektinum Önnu Maríu Bogadóttur hugleikin. Á síðasta ári var kvikmyndin Jarðsetning frumsýnd á RIFF og í kvöld verður haldið upp á útgáfu nýrrar bókar með sama titil. Bókin er hönnuð af Snæfríði Þorsteins og gefin út af Angústúru. Við hittum höfundinn og arkitektinn Önnu Maríu Bogadóttur á nýju hóteli við Tjarnargötu sem nú er risið þar sem Iðnaðarbankinn stóð áður. Líkamleg nánd, dúfur, konur sem glíma, pepperonipizzur, orkudrykkir og asparlauf eru meðal þess sem kemur fyrir á sýningu Auðar Lóu Guðnadóttur, Be mine í Gallerí Þulu við Hjartartorg. Skúlptúrar Auðar Lóu vísa í söguna og samtímann, hún varpar ljósi á minni úr ólíkum áttum, fundnum jafn á jörðu sem á himni sem á internetinu, og um leið varpar hún ljósi á baksöguna sem flest alþýðuminni geyma. Verkin eru ófullkomin því eins og Auður Lóa bendir á þá er umleikur fullkomleikinn okkur alla daga, og hver hefur svo sem gaman að því. Við hittum Auði Lóu og verkin hennar í þætti dagsins. Við skrifum ekki tónlist fyrir hljóðfæri, heldur fólk, tónlistarfólk sem leikur tónlistina af fágaðri fimi og aga í gegnum hreyfingar lima, andardráttar og raddar. Tónlist er ekkert annað en mannleg samskipti með hljóðum Svo hljóðar upphafið að tónlistarpistli Þráins Hjálmarssonar, sem í dag fjallar um tónlist handan ritunar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Ráðstefnan Reykjavík Global forum - Women leaders hófst í Hörpu í dag en þar koma saman leiðtogar víðsvegar að úr heiminum til að ræða risavaxin málefni á borð við loftslagsbreytingar, heilbrigðismál og frumkvöðlastarf. Hanna Birna Kristjánsdóttir er formaður framkvæmdastjórnar Women Political Leaders sem heldur ráðstefnuna og hún kíkti til okkar til að ræða hvað fer fram á ráðstefnunni. Vísir greindi frá því í gær að hraðamyndavélin á Sæbraut í Reykjavík hafi náð hraðakstri tæplega 4.700 ökumanna á mynd frá ársbyrjun - og sektargreiðslur sem rekja má til vélarinnar hlaupa á tugum milljóna. Við ræddum við Árna Friðleifsson, aðalvarðstjóra hjá umferðadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um sektargreiðslur, umferðaröryggi og vetrarfærðina framundan. Formenn ríkisstjórnarflokkanna eru byrjaðir að skrifa nýjan stjórnarsáttmála en þeir hafa fundað í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðustu daga. Lítið hefur verið gefið upp um efni viðræðanna en fram hefur komið að ný ríkisstjórn verði ekki kynnt fyrr en eftir að niðurstaða undirbúningskjörnefndar liggur fyrir. Við ræddum við Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, um gang viðræðna og hvað Framsókn vill leggja áherslu á næstu árin. Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup treysta einungis 15 prósent landsmanna biskup Íslands, Agnesi M Sigurðardóttur, og þriðjungur Þjóðkirkjunni. Traust til kirkjunnar og starfsfólks hennar hefur dregist verulega saman síðustu tvo áratugi og aldrei hefur minna hlutfall þjóðarinnar verið skráð í kirkjuna. Til okkar kom Sólveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum og staðgengill Agnesar, til að ræða málefni kirkjunnar og þetta mikla vantraust sem blasir við. Lið Árbæjarskóla stóð uppi sem sigurvegari þegar keppt var til úrslita í Skrekk, hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík, í kvöld. Atriði nemendanna úr Árbæjarskóla nefnist Annað viðhorf. Við ræddum við Helgu Hrund Ólafsdóttur og Baldur Björn Arnarsson, fulltrúa Árbæjarskóla. Annan hvern þriðjudag fáum við til okkar Guðmund Jóhannsson til að fara yfir það allra helsta í heimi tækninnar. Sýndarveruleiki Facebook kom við sögu í dag en einnig nýja átakið Reddum málinu. Tónlist: Sunnyroad - Emiliana Torrini Justified - Kacey Musgraves Pleasant ship - Kiriyama family Easy on Me - Adele Segðu mér - Friðrik Dór Midnight Train to Georgia - Gladys Knight Kartöflur - Sigurður Guðmundsson Put your records on - Corinne Bailey Rae Rocky Trail - Kings of Convenience Love Again - Dua Lipa

Hugað er að nýjum lykilbyggingum í þættinum í dag. En hvað eru lykilbyggingar og hvernig er hægt að skilgreina þær? Að mínu viti eru þetta gjarnan byggingar sem gegna áríðandi hlutverki í samfélagi okkar, svo sem Alþingi, Ráðhúsið og Stjórnarráðið o.fl.. En einnig geta þær verið kennileiti í umhverfi sínu, svo sem Perlan og Fríkirkjuvegur 11 og mörg fleiri hús. Nú er ríkið að byggja tvær og sú þriðja er í deiliskipulagi, sem er nýtt Stjórnarráð. Í dag verður fjallað um Hús Íslenskunnar vestur í bæ við Arngrímsgötu, skrifstofur Alþingis á horni Vonarstrætis og Tjarnargötu, og svo er það Landsbakinn sem er að byggja heljarinnar hús við Kalkofnsveg. Heilsað er uppá hönnuði þessara bygginga, spurt um hugmyndir og efnisval, en allar þessar byggingar eiga það sameiginlegt að hafa unnið semkeppni, en þó á mismunandi forsendum. Rætt er við Ögmund Skarphéðinsson arkitekt hjá Hornsteinum, Margréti Harðardóttur arkitekt hjá Studio Granda og Helga Hallgrímsson hjá Arkþing Nordica.

Guðmundur Haraldsson leikari og leiðsögumaður gerði áhugaverðar tilraunir á sjálfum sér fyrir um það bil 5 árum. Hann fastaði meðal annars, fyrst í 8 daga og svo í 40 daga og tók svo mislöng tímabil í að prófa ýmiskonar matarræði, t.d. paleomataræðið. Við Guðrún fengum hann þá reglulega í viðtal í Síðdegisútvarpið á Rás 2 til að fá að fylgjast með hvernig gekk og hvaða áhrif þetta væri að hafa á hann. Guðmundur kom í þáttinn í dag og við fengumum hann til að segja okkur frá þessu ferli, hvað hann lærði af því og hver staðan er í dag. Ýmis forvitnileg verkefni hafa náð að líta dagsins ljós og fengið byr undir báða vængi með hjálp frá Karolina fund. Eitt slíkt er í vinnslu þar, kvikmyndaðir tónleikar þar sem íslensk þjóðlög verða flutt á 6 mögnuðum stöðum. Staðirnir eru; Tjarnargígur í Lakagígum, Akranesviti, Lýsistankur í Djúpavík, Stefánshellir í Hallmundarhrauni, Botnstjörn í Ásbyrgi og Emelíuklappir í Grímsey. Segjum betur frá þessu hér á eftir. Við hringdum í Önnu Jónsdóttur, óperusöngkonu, í þættinum í dag. Erfið tengsl milli barns og foreldra þess getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þroska barnsins. Þekking til að bregðast við slíku ætti að vera til á heilsugæslustöðvum, segir Vilborg Guðnadóttir, geðhjúkrunar- og fjölskyldufræðingur á Barna- og unglingageðdeildinni BUGL. Hún vill að brugðist sé fyrr við börnum með tengslavanda og um leið verði hægt að fækka erfiðustu tilfellunum. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hana á Heilsuvaktinni í dag. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Valgerður Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Tónverkamiðstöðvar Íslands, verður tekin tali um hvernig það gangi að koma tónsmíðum íslenskra tónskálda á framfæri við umheiminn. Anna María Bogadóttir, arkitekt, heimsækir þáttinn og segir frá uppáhalds listaverkinu sínu. Úr verður reyndar trílógía verka, tvær byggingar í tveimur heimsálfum og myndlistarverkefni um arflefð heimsþekkts arkitekts. Gauti Kristmannsson flytur pistil um Berthold Brecht að því tilefni að nú eru þýskir kvikmyndadagar í Reykjavík. Ragnhildur Hólmgeirsdóttir sagnfræðingur krafsar í fortíðina í sínum pistli. Umfjöllunarefni dagsins er heldur betur spennandi: sjóræningar! Í Víðsjá veltum við líka fyrir okkur samfélagsmiðlum framtíðarinnar. Rætt verður við Magnús Sigurbjörnsson, sem stýrir deild stafrænna miðla og greiningar hjá Tjarnargötunni, um samfélagsmiðla árið 2042. Umsjón: Guðni Tómasson og Kristján Guðjónsson.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessu þætti les Ágústa Björnsdóttir úr bréfi Guðrúnar Björnsdóttur til móður sinnar Kristrúnar Eyjólfsdóttur, húsfreyju í Mosfellssveit. Guðrún var búsett á Tjarnargötu 8b ásamt systrum sínum þegar bréfið var skrifað. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Ása Björk Snorradóttir myndmenntakennari og leiðsögumaður úr bréfi sem Kristrún Eyjólfsdóttir, húsfreyja í Gröf, sendi syni sínum, Steindóri Björnssyni leikfimikennara og efnisverði Landsímans árið 1918. Ásta sem talað er um í bréfinu er Þórunn Ástríður Björnsdóttir, sem var nemandi við Kvennaskólann frá hausti 1918 og bjó með systrum sínum að Tjarnargötu 8b. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Nanna Katrín Hannesdóttir, BA nemi í heimspeki, úr bréfi sem Þórunn Ástríður Björnsdóttir, þá búsett á Tjarnargötu 8.b sendi móður sinni Kristrúnu Eyjólfsdóttur, húsfreyju í Gröf. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Hlaðvarpið á jons.is sendir út aukaþátt þessa vikuna í tilefni þess að föstudaginn 10. mars er Ímark dagurinn. Einar Ben hjá Tjarnargötunni og stjórnarmeðlimur í Ímark kom í spjall. Hann segir okkur stuttlega frá framleiðslufyrirtækinu Tjarnargötunni ásamt því að ræða Ímark, Ímark daginn og íslensku auglýsingaverðlaunin Lúðurinn. "ÍMARK dagurinn er að þessu sinni helgaður sköpun; sköpunargleði og árangri af kynningar- og auglýsingastarfi. Hvernig er sambúð skapandi agaðrar hugmyndavinnu og markaðsstarfs sem krefst árangurs sem fyrst? Frummælendur koma úr ýmsum áttum og eiga það sameiginlegt að vera í fremstu röð í heiminum í sínu fagi. Tveir úr heimi stefnumótunar, almannatengill og hugmyndamaður. Öll segja þau sögur af verkefnum sínum, og leggja þær í sameiginlegan pott til að komast að niðurstöðu um sambúð frumlegrar hugsunar og markaðarins. Fyrirlesarar á ÍMARK deginum 2017 eru: Russell Davies , Chief Strategic Officer of BETC. Kevin Chesters, Chief Strategy Officer, Ogilvy & Mather Advertising London Laura Wood, Head of Global PR Brand & Partnerships, Jaguar Land Rover Jeremy Abbett, an American designer, entrepreneur, inspirational speaker, and creative evangelist at Google. Fundarstjóri er: Katrín Olga Jóhannesdóttir, Formaður Viðskiptaráðs og stjórnarformaður Já Húsið opnar kl. 08.15 og dagskrá hefst stundvíslega kl. 09.00. Frjálst sætaval. Dagskrá ÍMARK dagsins: 08.15 – 09.00 Skráning og afhending fundargagna 09.00 – 09.10 Ráðstefnan sett, Katrín Olga Jóhannesdóttir fundarstjóri 09.20 – 10.15 Laura Wood 10.15 – 10.30 Kaffihlé 10.30 – 11.15 Jeremy Abbett 11.15 – 11.30 MMR kynnir niðurstöður markaðskönnunar 11.30 – 13.00 Hádegishlé 13.00 – 13.45 ÁRA – verðlaunaafhending og kynning vinningshafa 13.45 – 14.45 Russell Davies 14.45 – 15.15 Hlé 15.15 – 16.00 Kevin Chesters 16.00 Ráðstefnulok Síðar saman dag verða Íslensku auglýsingaverðlaunin afhent, en þau eru veitt í fjölmörgum flokkum til þeirra sem þótt hafa skarað framúr í auglýsinga- og markaðsmálum árið 2016. Dagskrá Lúðrahátíðar 17.00 – 18.00 Fordrykkur 18.00 – 19.30 Lúðrahátíðin, afhending verðlauna 19.30 – 21.00 Eftirpartý Kynnir er Erpur Eyvindarson