Podcasts about skarph

  • 32PODCASTS
  • 157EPISODES
  • 1h 4mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • May 7, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about skarph

Latest podcast episodes about skarph

Víðsjá
Hraunmyndanir - framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 7, 2025 53:54

Árið er 2150. Við erum stödd í framtíðarsamfélagi þar sem okkur hefur tekist að beisla hraunrennsli, eins og okkur tókst með gufuaflið á 20. öld. Með framsæknum lausnum nýtum við hraun sem byggingarefni og umbreytum staðbundinni ógn í auðlind. Þetta er í stuttu máli grunnhugmyndin að Hraunmyndunum, framlagi Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr, sem opnar um helgina. Arkitektastofan s.ap arkitektar, þverfagleg rannsóknarstofa með áherslu á tilgátuverkefni framtíðarinnar, eru höfundar Hraunmyndanna. Listrænn stjórnandi verkefnisins er arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir en auk hennar skipa teymið þau Arnar Skarphéðinsson, Björg Skarphéðinsdóttir, Sukanya Mukherjee, Jack Armitage og Andri Snær Magnason. Hópurinn er nú í óða önn við að klára uppsetningu verksins, en þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr. Við tileinkum svipmynd dagsins þessu stórmerkilega verkefni, Hraunmyndunum, og tökum púlsinn á teyminu á lokaprettinum fyrir foropnun íslenska skálans í Feneyjum.

Lestin
Day of the Jackal, hvalatónlist, Persepolis

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 5, 2025 52:59

Spennuþættirnir Day of the Jackal með Eddie Redmayne í aðalhlutverki njóta nokkurra vinsælda um þessar mundir. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina og hefur sterkar skoðanir. Við höldum áfram að velta fyrir okkur risum hafsins, hvölum. Að þessu sinni heyrum við í Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur, tónskáldi, sem hefur unnið tónverk innblásið af hljóðum hvölum. Íranska myndasagan Persepolis kom út í íslenskri þýðingu nú í haust. Lóa ræðir við Kjartan Orra Þórisson Íranssérfræðing um þessa mögnuðu myndasögu.

Víðsjá
Gallery Port / Svipmynd

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 29, 2025 53:08

Þeir Árni Már Þórdísar Viðarsson og Skarphéðinn Bergþóruson stofnuðu Gallery Port í litlu bakhúsi í dimmu porti við Laugaveginn árið 2016. Galleríið hefur fest sig rækilega í sessi á undanförnum árum sem eitt framsæknasta rými borgarinnar, en þar er hlúð að grasrótinni og einblínt á unga og upprennandi listamenn, þó eldri og reyndari listamenn sýni þar líka í bland. Eftir fjögur ár í dimmu skúmaskoti færðu þeir sig í bjartara rými við Laugaveg og í fyrra fluttu þeir svo úr miðbænum og inn í splunkunýtt húsnæði í Laugarneshverfinu. Við ræðum breytingar á húsnæði og breytingar á borginni, málverkið og myndlistarmarkaði, vaxtahækkanir og vináttu og margt fleira við þá félaga í Víðsjá dagsins.

Rauða borðið
Rauða borðið 23. jan - Yfirdráttur, klassík, kjötneysla dýravernd, bómenntir og BNA

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 23, 2025 292:45

Fimmtudagur 23. janúar Yfirdráttur, klassík, kjötneysla dýravernd, bómenntir og BNA Við hefjum leik á Samstöðinni í kvöld með Stefáni Jóni Hafstein sem færir okkur sláandi upplýsingar um umhverfismál. Á morgun, 24. janúar, fer Ísland á ,,yfirdrátt” gagnvart vistkerfunum, það er að segja ef önnur lönd væru með eins stórt vistspor. Við göngum allra ríkja mest á auðlindir. Og rætt verður endurkjör Trump og áhrif þess á umhverfið. Tónlistarnemarnir Sóley Smáradóttir og Sól Björnsdóttir taka því næst á móti Daníel Bjarnasyni tónskáldi og hljómsveitarstjóra og Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur tónskáldi í Klassíkin rokkar. Jóhanna Eyrún Torfadóttir lektor í næringarfræði og Thor Aspelund prófessor í tölfræði koma og ræða um kjötneyslu. Framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands og Katrín Oddsdóttir, mann- og dýraréttindalögfræðingur segja margt bíða nýrrar ríkisstjórnar með tilliti til dýravelferðar sem hafi setið á hakanum vegna vanmáttugs kerfis. Tími sé kominn á að færa Ísland aftur til náttúrunnar en ekki í hendur auðvaldsins og stórfyrirtækja. Vigdís Grímsdóttir og Oddný Eir ræða við skáldkonuna Ásdísi Óladóttur um ljóðabók hennar Rifsberjadalurinn, ljóðlistina, 30 grömmin, geðveikina og sköpunarkraftinn. Við ljúkum þætti kvöldsins með zoom-viðtali við Rósu Guðmunds sem er búsett í L.A. Hún segir okkur frá eldunum sem þar hafa geisað og embættistöku nýs forseta.

Bylgjan
Sprengisandur 20.10.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later Oct 20, 2024 97:46

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins um stjórnmálin.   Sigríður Andersen fyrrverandi ráðherra um stjórnmálin. Össur Skarphéðinsson fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar um pólitíkina. Lilja Alfreðsdóttir alþingismaður um pólitíkina.

Víðsjá
Passía, hamfarir og Fragile Magic

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 26, 2024 52:41

Á föstudaginn langa verður frumflutt í Breiðholtskirkju verkið Passía eftir Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur. Ingibjörg Ýr hefur verið útnefnd sem Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum og í fyrra var verk hennar Fasaskipti tilnefnt sem tónverk ársins. Ingibjörg hefur einnig verið meðlimur í kór Breiðholtskirkju í áratug og er það kveikjan að þessari nýju Passíu sem flutt verður á föstudaginn langa. Við heyrum meira af því í þætti dagsins. Tríó Inga Bjarna Skúlasonar gaf út plötuna Fragile Magic í síðustu viku. Fragile Magic sem mætti þýða sem brothættur eða viðkvæmur galdur hverfist um þá hugmynd að uppsretta tónlistar sé alltumlykjandi ráðgáta og það sé hlutverk tónskálda og tónlistarmanna að reyna að afhjúpa hana. Og þegar vel tekst til í því ferli á sér stað einhver afar viðkvæmur galdur. Við ræðum við Inga Bjarna í þætti dagsins. Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntarýnir, verður einnig með okkur og að þessu sinnu rýnir hún í fræðiritið Hamfarir í bókmenntum og listum eftir Auði Aðalsteinsdóttur.

Flugur
Ari Jónsson syngur lög eftir íslenska lagahöfunda

Flugur

Play Episode Listen Later Mar 25, 2024 44:50

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum. Ari Jónsson syngur lögin Föðurbæn sjómannsins eftir Þórunni Franz, Komum heil af hafi eftir Guðjón Inga Sigurðsson og Mánaskin eftir Hörð G. Ólafsson. Hann syngur einni fjögur lög eftir Halldór Skarphéðinsson, Vina mín, Í sólarátt, Sansibar og Útreiðartúr og þrjú lög eftir Hafstein Reykjalín, Gefðu mér mynd, Ó, þvílíkt að vita og Heppinn ég. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Handkastið
Landsleikirnir í Grikklandi slógu engin áhorfsmet og HSÍ kveður Kempa?

Handkastið

Play Episode Listen Later Mar 18, 2024 60:30

Þátturinn um allt og ekkert. Landsliðsumræða - Olís-deild karla - Olís-deild kvenna og miklu meira til. Hvert fer Bjarni Ófeigur? Hvert fer Skarphéðinn Ívar? Hvert fer Ólafur Ægir? Skolphreinsun Ásgeirs fékk frí í vikunni og ætlar að nýta sér styttingu vinnuvikunnar. Á sama tíma var að koma út nýr BodyFuel drykkur - sem Sérfræðingurinn segir vera þann besta hingað til.

Arctic Circle Podcast
Green Hydrogen: The Energy Future of the North?

Arctic Circle Podcast

Play Episode Listen Later Mar 13, 2024 40:46

Panelists are:H.E. Gillian Martin, Minister for Energy and the Environment, The Scottish GovernmentTove Søvndal Gant, Head of the Greenlandic Representation in ReykjavikFrank Yu, Global Vice President of Envision Energy and Head of Envision HydrogenTryggvi Þór Herbertsson, Head of Hydrogen Strategy and Partnership, Qair GroupThe panel is moderated by Össur Skarphéðinsson, Former Minister for Foreign Affairs, Iceland.

Óli Björn - Alltaf til hægri
Eldar í húsi Samfylkingarinnar

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Feb 29, 2024 15:50

Þegar spurðist út að formaður Samfylkingarinnar telji nauðsynlegt að breyta stefnunni í málefnum hælisleitenda fóru margir af taugum. Stór orð voru látin falla. Svo mikill var pólitíski skjálftinn innan raða Samfylkinga að tveir gamlir formenn töldu sig nauðbeygða til að taka til varna fyrir Kristrúnu. Össur Skarphéðinsson hafnaði því að Kristrún hafi verið að boða stefnubreytingu og í svipaðan streng tók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Kristrún hafi bara verið með „almennar vangaveltur um ýmsar hliðar þessara mála. Ingibjörg Sólrún hafði hins vegar áhyggjur af því að hinar almennu „vangaveltur“ Kristrúnar væru að ala á sundrungu innan flokksins: „Látum ekki siga okkur hverju á annað.“ Stefnubreyting eða ekki stefnubreyting? Kannski skiptir svarið ekki öllu en hitt er augljóst að Kristrún Frostadóttir talar með allt öðrum hætti en þingmenn og frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa gert á undanförnum árum. Og það er lítill samhljómur með orðum Kristrúnar og ályktana flokksins.

Rauða borðið
Helgi-spjall - Magnús Skarphéðinsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 10, 2024 136:47

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Magnús Skarphéðinsson frá lífi sínu og baráttu, uppvexti og mótun, átökum, sigrum og töpum.

Samfélagið
Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 17, 2023

Jarðfallið í Gjerdrum í Noregi er mörgum minnisstætt, þetta var í lok desember 2020, mörg hús gjöreyðilögðust og tíu létust. Þessar hamfarir eru um margt ólíkar þeim sem nú standa yfir í Grindavík - en í báðum tilfellum hafa yfirvöld þurft að bregðast við - tryggja öryggi og afkomu íbúa. Við ræðum viðbrögð yfirvalda hér og í Noregi við náttúruhamförum við Herdísi Sigurgrímsdóttur, stjórnmálafræðing, hún er nýflutt heim frá Noregi og starfaði þar sem sviðsstjóri umhverfis- og loftslagsmálahjá héraðs yfirvöldum í Stafangri. Flestir smitsjúkdómar sem hrjá okkur mannfólkið berast úr dýrum, þannig sjúkdómar eru kallaðir súnur og meðal þeirra er sláturbóla, hvimleið veirusýking sem borist getur úr sauðfé í menn. Þóra Sverrisdóttir, sjúkraliði, rekstrarfræðingur og sauðfjárbóndi á Stóru Giljá í Húnavatnssýslu, sýktist af sláturbólu á dögunum og batinn dróst á langinn vegna þess að læknir sem hún leitaði til skar í bóluna. Fleiri bændur hafa fengið þetta nýverið og deilt myndum af bólum, ýmist á höndum eða andliti. Við ræðum við Þóru um reynslu hennar, en líka við Pétur Skarphéðinsson lækni á eftirlaunum sem oft fékkst við svona sýkingar í gamla daga og Magnús Gottfreðsson, smitsjúkdómalækni. Fugl aldarinnar var á dögunum kosinn á Nýja-Sjálandi og úrslitin óvænt. Vera Illugadóttir segir frá.

Samfélagið
Viðbrögð við hamförum í Noregi, sláturbóla og súnur, dýraspjall

Samfélagið

Play Episode Listen Later Nov 17, 2023 55:00

Ormstungur
5. Njáls saga - Mörður á leik

Ormstungur

Play Episode Listen Later May 18, 2023 50:34

Hundraðasti þátturinn og Tungurnar heyra í kyndlum fyrir utan stúdíóið. Vafasamar kenningar um kristni, hestaát og hlutverk Skarphéðins í sögunni verða til þess að jafnvel sprelllifandi fræðifólk snýr sér við í kumlunum. En einhvern veginn tekst að klára þáttinn og þá er bara eitt eftir - að kveikja í skinninu. Hlustið og hlýðið. Viltu styrkja okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Hérna getur þú nálgast Patreon síðu Ormstungna: https://www.patreon.com/ormstungur 

Morgunvaktin
El niño, fjármál, hús íslenskra fræða og Múhameð 6.

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 19, 2023 130:00

Trausti Jónsson veðurfræðingur fræddi hlustendur Morgunvaktarinnar um fyrirbæri sem hefur mikil áhrif á hitastig heimsins, hlýr Kyrrahafsstraumur sem læðist suður frá miðbaug um jólaleytið. Þessi hlýi straumur ber spænskt heiti - el niño - eða drengurinn og er þar átt við jólabarnið. Ásgeir Brynjar Torfason fjármálasérfræðingur fjallaði um alþjóðleg efnahagsmál. Þar á meðal áhrif vaxtahækkana á þróunarríkin og hvað sé til ráða. Eins hagnað bandarískra banka og áhrif hvala. Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt húss íslenskra fræða gekk um húsið með Guðna Tómassyni útvarpsmanni en í dag verður húsið formlega opnað og nafn þess gert opinbert. Bein útsending verður frá húsi íslenskra fræða á Rás 1 síðdegis. Vera Illugadóttir fór yfir feril Múhameðs 6., konung Marokkó sem hefur ríkt í tæpan aldarfjórðung. Hann hefur umtalsverð völd en mörgum þegnum hans þykir hann sinna skyldum sínum heldur slælega. Tónlist: When a man loves a woman - Percy Sledge, Sunnanvindur - Örvar Kristjánsson og Hjördís Geirsdóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Morgunvaktin
El niño, fjármál, hús íslenskra fræða og Múhameð 6.

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 19, 2023

Trausti Jónsson veðurfræðingur fræddi hlustendur Morgunvaktarinnar um fyrirbæri sem hefur mikil áhrif á hitastig heimsins, hlýr Kyrrahafsstraumur sem læðist suður frá miðbaug um jólaleytið. Þessi hlýi straumur ber spænskt heiti - el niño - eða drengurinn og er þar átt við jólabarnið. Ásgeir Brynjar Torfason fjármálasérfræðingur fjallaði um alþjóðleg efnahagsmál. Þar á meðal áhrif vaxtahækkana á þróunarríkin og hvað sé til ráða. Eins hagnað bandarískra banka og áhrif hvala. Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt húss íslenskra fræða gekk um húsið með Guðna Tómassyni útvarpsmanni en í dag verður húsið formlega opnað og nafn þess gert opinbert. Bein útsending verður frá húsi íslenskra fræða á Rás 1 síðdegis. Vera Illugadóttir fór yfir feril Múhameðs 6., konung Marokkó sem hefur ríkt í tæpan aldarfjórðung. Hann hefur umtalsverð völd en mörgum þegnum hans þykir hann sinna skyldum sínum heldur slælega. Tónlist: When a man loves a woman - Percy Sledge, Sunnanvindur - Örvar Kristjánsson og Hjördís Geirsdóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Mannlegi þátturinn
Hjörtur Jóhann föstudagsgestur og páskalambið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 31, 2023 50:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hjörtur Jóhann Jónsson. Hann hefur á þeim rúma áratug síðan hann útskrifaðist sem leikari leikið fjölmörg hlutverk á leiksviði, í sjónvarpi og kvikmyndum. Hann lék til dæmis Ríkharð III. og MacBeth eftir Shakespeare, Skarphéðinn Njálsson í Njálu og miklu fleiri hlutverk. Hann leikur aðalhlutverkið í nýrri íslenskri kvikmynd, Óráð, sem fer í almenna sýningu í kvöld. Óráð er hrollvekja sem tekin var upp í heimsfaraldrinum og samkvæmt eiginkonu Hjartar er hann mjög hryllingsmyndahræddur. Við töluðum við Hjört um það að leika þessi stóru Shakespeare hlutverk, hjátrú í leikhúsi, að rýna í handritið og svo auðvitað sagði hann okkur frá nýju kvikmyndinni, Óráð, og hvernig það var fyrir hann að leika í sálfræðihrollvekju þrátt fyrir að vera svona hræddur við þess háttar kvikmyndir. Í matarspjalli dagsins, sem var það síðasta fyrir páska, þá notuðum við tækifærið og spjölluðum um lambakjöt, páskalambið. Lambið hefur sterka tengingu við páskahátíðina og við fórum yfir hvernig okkur þykir það best framreitt. Tónlist í þættinum í dag: Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson) Fade Into You / Mazzy Star (Sandoval & Roback) Brotlentur / Valdimar (Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Hjörtur Jóhann föstudagsgestur og páskalambið

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Mar 31, 2023

Flakk
15122022 - Flakk um tvær bókabyggingar

Flakk

Play Episode Listen Later Dec 15, 2022

Verðmætasta bókasafn landsins hefur átt heimili víða í borginni - nú hyllir undir nýtt heimili, því Hús Íslenskunnar er risið við Suðurgötu og verður opnað í vor ef allt gengur eftir. Við fengum að kíkja í heimsókn með arkitektinum Ögmundi Skarphéðinssyni hjá Hornsteinum. Nýlokið er samkeppni um endurbyggingu Borgarbókasafnsins í Grófinni, við heimsækjum safnið og ræðum við Hildi Gunnlaugsdóttur arkitekt hjá JVST og Huldu Aðalsteinsdóttur innanhúsarkitekt. Athyglisvert að heimsækja Hús Íslenskunnar - byggingin er sporyskjulaga og því engin horn víða í húsinu. Vel er vandað til verka og skemmtilegir inni og útigarðar á hæðunum. Alls staðar gluggar bæði inni og úti. Hægt er að skoða verðlaunatillögu endurbyggingar Borgarbókasafnsins í Grófinni, og þar eru einnig hinar fjórar til sýnis til loka desember. Farið er yfir vinningstillögnuna með tveimur úr teyminu.

Ingibjörg H.Bjarnason, Ingibjargir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Dagslátta

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 24, 2022

Í dag eru liðin 100 ár frá því Ingibjörg H. Bjarnason var kjörin fyrst kvenna á Alþingi í landskjörskosningum árið 1922 af sérstökum kvennalista. Af því tilefni stendur Sagnfræðingafélag Íslands fyrir málþingi í Neskirkju í kvöld, undir yfirskriftinni Ingibjörg, stjórnmálin og kvennahreyfingin. Þar flytja fjórir fróðir frummælendur tölur og við fáum tvær þeirra til okkar hér rétt á eftir. Það eru þær Erla Hulda Halldórsdóttir, sem fjallar um Framagjarnar konur og heiðvirðar húsmæður í þverþjóðlegu samhengi og Íris Ellenberger, sem rýnt hefur í bréfaskriftir milli Ingibjargar og annarra kvenna og fjallar um kvennaástir í samhengi við kvennaskóla og kvennahreyfinguna. Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld og þýðandi, hefði orðið áttræð síðastliðinn föstudag. Af því tilefni leituðum við í safn Ríkisútvarpsins þar sem er úr vöndu að velja. Við völdum tvö 20 ára gömul hljóðbrot og rödd Ingibjargar mun því hljóma í þætti dagsins. Hvað það nákvæmlega verður ætlum við að láta koma á óvart hlustendur góðir, þar til um miðbik þáttar. Við hlýðum líka á tónlist við ljóð Ingibjargar, þar á meðal glænýtt lag með tveggja kvenna hljómsveitinni Ingibjargir. Hana skipa þær Ingibjörg Fríða Helgadóttir, söngkona, og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, tónskáld, sem hafa síðustu ár unnið að sönglagabálk við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur. Undantekningin frá Ingibjargarreglu dagsins er bókarýni frá Grétu Sigríði Einarsdóttur, sem að þessu sinni fjallar um ljóðabókina Dagsláttu, eftir Ara Jóhannesson. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Ingibjörg H.Bjarnason, Ingibjargir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Dagslátta

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 24, 2022 55:00

Endalok ástar, fuglalistamaður, ævintýri um missi, samtímatónlist

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 26, 2022

Í síðustu viku opnaði sýning Tilraun-æðarrækt, í Svavarssafni á Höfn í Hornafirði. Þetta er stór og þverfagleg sýning um sjálfbært sambýli æðarfugla og manna. Sýningin var 3 ár í smíðum og var upphaflega var sett upp í Norræna húsinu í vor. Sýningin sem nú hefur flogið á Höfn, er með öðru sniði þar í bæ, dreifir sér um allan bæinn og þar að auki hefur hún fengið áhugaverða viðbót, sem eru verk eftir einn helst fuglalistamann landsins, Höskuld Björnsson. Við ræðum við einn aðstandenda sýningarinnar, Hönnu Dís Whitehead, í þætti dagsins. Næstkomandi miðvikudagskvöld verða upphafstónleikar vetrartónleikaraðar kammerhópsins Nordic Affect í Mengi við Óðinsgötu. Yfirskrift tónleikanna er Ísfrétt og þar munu endalok ástarsambands koma við sögu, með frumflutningi á nýju tónverki Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur við ljóð úr fyrstu ljóðabókar Gerðar Kristnýjar, Ísfrétt. Tónskáldið Ingibjörg Ýr verður gestur Víðsjár hér á eftir og segir okkur frá tilurð tónverksins, sem hún vann upp úr 11 ljóðum úr bókinni. Og í dag flytur tónskáldið Þráinn Hjálmarsson sinn fyrsta pistil um samtímatónlist. Þar tekur hann fyrir afbygginguna á snillingnum og þróunina sem orðið hefur í samtímatónlistarsenunni undanfarin ár í átt að samfélagslegri þátttökulist. - Samtíminn og nýja snilligáfan í pistli Þráins Hjálmarssonar í seinni hluta þáttar hér á eftir. En við byrjum í leikhúsinu. Hið stórfenglega ævintýri um missi, eftir Grímu Kristjánsdóttur, var frumsýnt á fjölum Tjarnarbíós síðastliðinn föstudag. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í verkið.

Play Episode Listen Later Sep 26, 2022 55:00

Reynt að spinna nýjan ESB-þráð

Óli Björn - Alltaf til hægri

Play Episode Listen Later Sep 25, 2022 13:07

Þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata hafa lagt fram þingsályktun um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um að taka „upp þráðinn í aðildarviðræðum við Evrópusambandið“. Fyrsti flutningsmaður er Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar en tillagan er forgangsmál flokksins á þessum þingvetri sem nýlega er hafinn. Logi Einarsson mælti fyrir tillögunni þriðjudaginn 20. september. Ein af þeim spurningum sem hann þurfti að svara en gerði ekki er hvaða þráð eigi að taka upp. Össur Skarphéðinsson, þáverandi utanríkisráðherra og forveri Loga í formannsstóli Samfylkingarinnar, pakkaði aðildarumsókninni ofan í skúffu. Þegar vinstri­stjórn tók við völd­um í fe­brú­ar 2009 fékk Sam­fylk­ing­in al­gjört for­ræði yfir utanríkismálum. Stefn­an var tek­in á Brus­sel. Mik­il­væg hags­muna­mál, þar á meðal ör­ygg­is- og varnarmál, voru sett til hliðar. Allt sner­ist um aðild að ESB. Eft­ir góðan kosn­inga­sig­ur í apríl 2009 herti vinstri­stjórn­in róður­inn. Byggðar voru upp óraun­hæf­ar vænt­ing­ar. Full­yrt var að Ísland fengi sér­staka flýtimeðferð og gæti jafn­vel orðið eitt ríkja Evrópusambands­ins þegar árið 2012. Í stefnuræðu í maí 2009 full­yrti for­sæt­is­ráðherra að aðildarumsókn­in myndi stuðla strax að já­kvæðum áhrif­um á gengi krón­unn­ar og á vexti. Eft­ir því sem aðild­ar­ferl­inu miðaði áfram því meiri yrðu já­kvæðu áhrif­in. Ut­an­rík­is­ráðherra lýsti yfir „diplóma­tísk­um“ sigri eft­ir að ráðherr­aráð ESB samþykkti aðild­ar­um­sókn Íslands í júlí 2009. „Diplómatíski sig­ur­inn“ skilaði engu, allra síst í efna­hags­mál­um og ekkert gekk eftir af þeim fullyrðingum og loforðum sem forsætisráðherra setti fram í stefnuræðunni. 

Spegillinn
Rannsókn kynferðisbrota á Suðurnesjum og ferðamennskan

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 6, 2022

Tímafrekri og flókinni rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum á fleiri kynferðisbrotamálum fjölskylduföður á sextugsaldri er lokið. Hann var fyrr í sumar dæmdur í sex ára fangelsi fyrir brot gegn fimm stúlkum á grunnskólaaldri. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Veiðimaður sem brann illa í morgun þegar stöng hans rakst í háspennulínu á bakkanum við Eystri-Rangá er vanur veiðum og þekkir hættuna við ána segir Gunnar Guðjónsson leiðsögumaður. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir talaði við hann. Liz Truss, nýr forsætisráðherra Bretlands heitir því að skapa öllum landsmönnum þau tækifæri sem þeir verðskulda. Skatta á að lækka og ýta undir vöxt. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Komum skemmtiferðaskipa hefur fjölgað mjög og stefnir í met í ár. Bókanir fyrir næsta ár hafa aukist um þriðjung. Gunnar Tryggvason starfandi hafnarstjóri segir að breyting hafi orðið á skipulagi ferðanna. Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ segir íslensku landsliðskonurnar mjög einbeittar og ákveðnar fyrir leikinn gegn Hollandi. Búið er að skipuleggja hátíðarhöld fyrir Hollendinga á vellinum í Utrecht en Vanda segir þær íslensku ætla að gera sitt allra besta til að skemma það. Starfsemi endurhæfingarstöðvarinnar Ljóssins hefur farið vaxandi á síðustu árum, og fjölgaði komum þar um 24 prósent í fyrra. Í dag hófst herferð til að fjölga ljósavinum sem styrkja starfið og Erna Magnúsdóttir forstöðukona segir mikilvægt að tryggja krabbameinsgreinum endurhæfingu. ------------ Verðbólga og verðhækkanir í Evrópu gætu haft áhrif á komur erlendra ferðamanna en þau hafa enn ekki komið fram að ráði, að mati Skarphéðins Bergs Steinarssonar, ferðamálastjóra. Helst óttast menn að dragi úr haustferðum Breta. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin vill að komið verði upp öryggissvæði við Zaporizhzhia (Saporitsja) kjarnorkuverið í Úkraínu. Grípa verði til aðgerða þegar í stað til að koma í veg fyrir kjarnorkuslys. Ásgeir Tómasson sagði frá. Ungir menn í Osló virðast hafa lagt námsbækurnar frá sér og tekið sér hnífa í hönd. Ef marka má orð borgarstjórans þar í borg setja unglingar hníf í vasann við hliðina á farsímanum. Og fá svo útrás í hnífabardögum við jafnaldra sína. Gísli Kristjánsson, fréttaritari í Osló segir frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Play Episode Listen Later Sep 6, 2022 10:01

Hrun í fylgi VG, meiðyrðamál, aðgangsstýring og almannaréttur

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 3, 2022

Formaður Vinstri grænna segir að flokksmenn þurfi að ræða þá miklu fylgislækkun sem nýr þjóðarpúls Gallups sýnir. Flokkurinn hefur tapað meira en þriðjungi fylgis frá síðustu kosningum. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við Katrínu Jakobsdóttur. Fimmtán prósent grunnskólanema segjast hafa orðið fyrir einelti í fyrra, samkvæmt skólapúlsi sem lagður er fyrir nemendur árlega. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla furðar sig á því að margir skólar vilji ekki birta niðurstöðurnar. Arnar Björnsson talaði við Arnar Sævarsson. Norðlendingar eru ósáttir við úthlutanir úr framkvæmdastjóri ferðamannastaða. Verkefnastjóri samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi óttast að innviðir norðan- og austanlands séu ekki tilbúnir fyrir þann fjölda ferðamanna sem von er á í sumar. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Kristínu Garðarsdóttur. Umræða og deilur um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar eru stormur í vatnsglasi, segir fjármálaráðherra. Hann segir von á miklum halla á ríkissjóði og slæmt ef ráðherrar séu að auka á hallann. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við Bjarna Benediktsson. ---------------------- Meiðyrðamál hafa verið á milli tannanna á fólki síðustu daga. Í vikunni féllu dómar í tveimur meiðyrðamálum sem vöktu talsverða athygli fólks. Annars vegar hér á landi í máli Ingólfs Þórarinssonar gegn Sindra Þór Sigríðarsyni og hins vegar í máli sem fékk öllu meiri athygli, máli Johnnys Depp gegn Amber Heard en hún höfðaði einnig mótsókn gegn honum. Báðir dómarnir þykja óvenjulegir og hafa komið mörgum á óvart. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Hildi Fjólu Antonsdóttur, réttarfélagsfræðing. Horfur eru á að komur erlendra ferðamanna í sumar verði á við það sem var árið 2019, fyrir faraldur. Á meðan honum stóð lögðust margir Íslendingar í ferðalög innanlands enda ekki hægt um vik að fara annað. Á stundum vakna spurningar um hvar megi fara um og hversu ríkur almannarétturinn er, hann tryggir fólki til dæmis að það megi ganga um óræktað land. Geta orðið árekstrar þar sem talið er að það þurfi að stjórna því hve margir fara um vinsæla staði til að verja þá. Það er búist við fjölmörgum útlendingum en hvað um ferðalög okkar innanlands, breyttust venjurnar til frambúðar í kóvíd og dró úr ferðaþorsta til útlanda. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóra.

Play Episode Listen Later Jun 3, 2022 9:04

Krabbameinsfélagið dregur styrk til baka, ferðasumarið og reykingabann

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 1, 2022

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Valgerður Þorsteinsdóttir. Krabbameinsfélagið hefur hætt við að gefa 450 milljónir til nýrrar krabbameinsgöngudeildar á Landspítalanum og segist engin viðbrögð hafa fengið við tilboði sínu. Urður Örlygsdóttir talaði við Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélags íslands. Danir kjósa í dag um hvort þeir eigi að taka þátt í varnarsamstarfi Evrópusambandsins, útgönguspár birtast klukkan sex. Björn Malmquist sagði Önnu Kristínu Jónsdóttur frá. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir mikla hagsmuni í húfi með aðild Finnlands og Svíþjóðar að NATO. Hún mælti fyrir tillögu á Alþingi í dag sem heimilar ríkisstjórninni að staðfesta samninga við NATO um aðildina. Fjöldi landsbyggðarfólks er ósátt við verð og þjónustu í innanlandsflugi eftir að Icelandair tók það yfir af dótturfélagi. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair segir óverulega hækkun hafa orðið á fargjöldum en sveigjanleikinn sé minni en áður var. Urður Örlygsdóttir talaði við Boga. Skipstjóri á Vestmannaey VE, sem er í eigu dótturfélags Síldarvinnslunnar, hefur verið sektaður um 700 þúsund krónur fyrir ólöglegar veiðar á lokuðu svæði. Rúnar Snær Reynisson sagði frá. ------------ Ferðaþjónustan er komin á mikið skrið og gistinætur á hótelum voru fimm sinnum fleiri í apríl en þær voru í fyrra. En þó að viðsnúningurinn virðist skarpur og jafnvel hraðari en búist var við blasir líka við að mönnun getur orðið erfið og miklar hækkanir orðið til dæmis á eldsneyti sem skilar sér beint inn í ferðakostnað, hvort sem er í verði á flugmiðum eða bensíni. Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri, segir að fjöldi ferðamanna sem fara um Keflavíkurflugvöll sé farinn að nálgast það sem var fyrir faraldurinn. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Í Uvalde í Texas, bæ þar sem jarða á ellefu börn sem dóu í skólanum sínum í vikunni eru menn líka farnir að velta því fyrir sér hvað á að gera við skólahúsið sem verður nú alltaf tengt þessum sorgaratburðum. Ásrún Brynja Ingvarsdóttir segir frá. Fimmtán ár eru í dag síðan reykingar voru bannaðar með öllu inni á veitinga- og skemmtistöðum. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Þorgrím Þráinsson, fyrrverandi framvkæmdastjóra Tóbaksvarnarnefndar og Kormák Geirharðsson, veitingamann um bannið.

Play Episode Listen Later Jun 1, 2022 8:51

Skúffuskáld
Barna- og ungmennabækur; Akam, ég og Annika, Bannað að eyðileggja, Meira pönk, meiri hamingja, Nú er nóg komið, Álfheimar, Nornaseiður, Rauð viðvörun, Mr. Einsam

Skúffuskáld

Play Episode Listen Later Jan 23, 2022 73:18

Þessi þáttur er tileinkaður barna - og ungmennabókum og í þættinum reifa 4 börn jafnmargar bækur.  Það eru þau Skarphéðinn Óli, Bergrún Björk, Kamilla Inga og Ronja. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri spjallar einnig um nokkrar bækur við Önnu Margréti.Bækurnar sem voru til umfjöllunar eru Mr. Einsam eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, Rauð viðvörun - Jólin eru á leiðinni eftir Sigrúnu Eldjárn, Nornaseiður eftir Gunnar Theodór Eggertsson, Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason, Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur, Meira pönk, meiri hamingja eftir Gerði Kristnýju, Nú er nóg komið eftir Hildi Knútsdóttur og Þórdísi Gísladóttur og Álfheimar eftir Ármann Jakobsson. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

Spegillinn
Spegillinn 12. janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 12, 2022 9:42

Spegillinn 12.1.2022 Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Mark Eldred. Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar gefur ekkert fyrir áform um endurbætur á kísilverksmiðjunni í Helguvík og ætlar að gera allt sem hann getur til að koma í veg fyrir að hún fari aftur í gang. Lagt er til að slakað verði á sóttvarnareglum í Danmörku um helgina , þrátt fyrir fjölgun smita að undanförnu. Borgarstjórn hefur fallið frá hugmyndum um þéttingu byggðar við Bústaðaveg vegna andstöðu íbúa. Brottfarir erlendra farþega voru 688 þúsund á árinu 2021 sem svipar til fjöldans árið 2012. Eftir dapra mánuði í upphafi árs rættist úr eftir því sem leið á árið. Mikill svartfugladauði virðist hafa orðið undan Austfjörðum nýlega en á þriðja hundrað fuglar fundust dauðir þegar fjörur voru gengnar þar í vikunni. Lengri umfjöllun: Brottfarir erlendra farþega voru 688 þúsund á árinu 2021. Þetta sýna nýjar tölur Ferðamálastofu. Það er viðlíka fjöldi og árið 2012. Þegar mest lét árið 2018 voru brottfarir erlendra ferðamanna rúmlega 2,3 milljónir. Þrátt fyrir þetta mikla hrap var árið 2021 nokkuð gott að mati Skarphéðins Bergs Steinarssonar, ferðamálastjóra. Eftir dapra mánuði í upphafi árs rættist úr eftir því sem leið á árið. Bjarni Rúnarsson ræddi við Skarphéðinn. Metfjöldi covid-tilfella greinist nú í Svíþjóð, þrátt fyrir vonir manna í haust og vetur um að það versta væri loks afstaðið. Samstaða sem ríkt hefur um sóttvarnaraðgerðir yfirvalda virðist vera fyrir bí.Kári Gylfason fjallar um ástandið í Svíþjóð. Kynjaskráning: KK:4 KVK;2

Spegillinn
Spegillinn 12. janúar 2022

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 12, 2022

Greenland in the Arctic: Pele Broberg, Greenland's Minister for Foreign Affairs

Arctic Circle Podcast

Play Episode Listen Later Aug 18, 2021 50:56

This episode marks the launch of a new Arctic Circle Mission Council on Greenland in the Arctic. In this episode Greenland‘s new Minister for Foreign Affairs, H.E. Pele Broberg, discusses Greenland‘s Foreign Policy and answers questions from the audience. The dialogue originally to place on June 7th 2021 on Arctic Circle‘s online media platform, Arctic Circle VIRTUAL. The event was moderated by the co-chairs of the new Mission Council: Össur Skarphéðinsson, former Foreign Minister of Iceland and Sara Olsvig former Vice Premier of Greenland and Minister for Social Affairs, Families, Gender Equality and Justice.

Arctic Circle Podcast
Sweden's New Arctic Policy

Arctic Circle Podcast

Play Episode Listen Later Jul 21, 2021 37:10

In this episode we learn more about Sweden‘s New Arctic Policy and it‘s geopolitical implications. The dialogue originally took place on November 16th 2020 on Arctic Circle‘s online media platform, Arctic Circle VIRTUAL. In this event Sweden‘s Foreign Minister, Ann Linde discusses the groundbreaking Arctic Policy and answers questions from the audience. The event was moderated by Össur Skarphéðinsson, former Foreign Minister of Iceland.

Morgunútvarpið
23. jún - Rafmagn, Kringum, Kadeco, íþróttir og pólitík og sjónvarp

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jun 23, 2021 130:00

Þann 27. júní 1921 varð bylting í lífsgæðum Reykvíkinga þegar rafstöðin í Elliðaárdal var gangsett. Ljós kviknuðu, eldavélar hitnuðu og vélar púluðu af stórauknum krafti. Það er ekki ofsagt að þá hafi nútíminn hafið innreið sína í borgina. Á þessum merku tímamótum býður Orkuveita Reykjavíkur í aldarafmæli rafstöðvarinnar í Elliðaárdal, sunnudaginn 27. júní, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá. Birna Bragadóttir forstöðukona Elliðaárstöðvar hjá Orkuveitu Reykjavíkur sagði okkur hvað verði gert í tilefni þessa. Nýtt smáforrit, eða app, sem heitir Kringum er nú fáanlegt og hentar vel í ferðir um Ísland. Kringum inniheldur yfir 10 þúsund áhugaverðar sögur og staði sem birtast í snjallsímanum þínum þegar þú ferðast um landið. Karl Thoroddsen er höfundur forritsins en hann notaði tímann í Covid faraldrinum til þess að þróa það. Karl kom til okkar. Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar greindi frá því síðustu viku að fimm alþjóðleg teymi sem samanstanda af stórum og virtum fyrirtækjum á sínu sviði komust áfram í hönnunarsamkeppninni félagsins og munu nú vinna áfram sínar tillögur. Lögmaður sem hefur 20 ára reynslu af sambærilegum samkeppnum hefur aldrei séð viðlíka áhuga jafn stórra aðila. Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdarstjóri Kadeco, fór yfir málið með okkur. Dieter Reiter, borgarstjóri München í Þýskalandi, sendi beiðni til Evrópska knattspyrnusambandsins um að fá að lýsa Allianz-leikvanginn upp með regnbogalitunum í kvöld þegar Þýskaland og Ungverjaland mætast á EM karla í fótbolta. Þeirri beiðni var hafnað. UEFA hafnaði beiðninni á þeim forsendum að hún sé pólitísks eðlis og sambandið sé hlutlaus í stjórnmálalegu og trúarlegu tilliti. Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands kom til okkar og ræðir pólitík í íþróttum Evrópusambandið telur óviðeigandi hversu mikið af bresku sjónvarpsefni er í boði í löndum sambandsins eftir Brexit. Yfirburðastaða breskrar sjónvarpsframleiðslu sé ógn við markmið um ?menningarlega fjölbreytni? og sett er spurningarmerki við hvort hægt sé að flokka hana sem evrópska eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Nái nýtt frumvarp menntamálaráðherra fram að ganga gætu þessar áætlanir ESB haft áhrif á það efni sem Íslendingum hefur staðið til boða hjá efnisveitum og VOD-þjónustum. Þeir Skarphéðinn Guðmundsson dagsrkárstjóri RÚV og Ásgrímur Sverrisson ritstjóri klapptré.is komu til okkar. Tónlist: Stjórnin - Þegar sólin skín Philip Oakey og Georgio Moroder - Together in electric dreams Flott - Drull 2Pac - Do for love Hreimur - Gegnum tárin

Morgunútvarpið
26. apr. - Maraþon, skattur, förgunarstöð, ferðamálastjóri og íþróttir

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Apr 26, 2021 130:00

Heilt maraþon var hlaupið í fyrsta sinn í Vestmannaeyjum á laugardaginn þegar þrír hlauparar fóru þá vegalengd. Það þykir krefjandi að hlaupa í Eyjum, en þrátt fyrir það sækja margir í þau hlaup sem þar eru í boði og þann 8. maí nk. fer hið árlega Puffin-Run hlaup fram. Sigurjón Ernir Sturluson er einn þeirra sem kláruðu maraþonið á laugardag og hann var á línunni hjá okkur og sagði okkur af Eyja-maraþoni. Skatturinn hefur valdið litlum fyrirtækjum miklu tjóni með rangri forskráningu í umsóknum um styrki og hafa ekki hlustað á rök þess efnis. Þetta segir Arnar Arinbjarnarson framkvæmdarstjóri Even Labs á Twitter og hann bendir í leiðinni á að Yfirskattanefnd hafi tekið undir þau sjónarmið hans nýlega með úrskurði sínum. Arnar kemur til okkar. Á degi jarðarinnar á fimmtudaginn kynnti íslenska fyrirtækið Carbfix eitt umfangsmesta loftlagsverkefni á Íslandi sem snýr að kolefnisforgunarmiðstöð sem reist verður í Straumsvík og mun þegar hún er tilbúin taka á móti koldíoxíð erlendis frá til förgunar. Um er að ræða nýja atvinnugrein sem getur skapað allt að 600 bein og afleidd störf. Doktor Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir er jarðfræðingur og yfir steinefnageymslu Carbfix. Hún sagði okkur meira um hvað er að ræða. Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri, kom til okkar. Við heyrðum hans mat á því hvort mikið verði af ferðamönnum hér í sumar, hvernig honum leyst á þessar aðgerðir á landamærunum og einnig stýrir hann starfshóp sem ætlað er að koma með tillögur að uppbyggingu eldgosasvæðisins á Reykjanesi. og við fórum yfir íþróttaviðburði helgarinnar með Einari Erni Jónssyni af íþróttadeildinni. Tónlist: Grafík - Prinsessan Nick Cave og Kylie Minogue - Where the wild roses grow Talking heads - Road to nowhere Coldplay - In my place The Proclaimers - I'm gonna be (500 miles) Bruno Mars, Anderson Paak og Silk Sonic - Leave the door open The Clash - Train in vain Silk city ásamt Ellie Goulding - New love

Spegillinn
Farþagar frá 16 löndum verða að fara í sóttkví í sóttvarnahúsi

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 23, 2021 30:00

Samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra, sem tekur gildi á þriðjudaginn, verða farþegar sem koma frá löndum þar sem nýgengi smita er 700 eða meira á hverja 100.000 þúsund íbúa að fara í sóttkví í sóttvarnahúsi. Þetta á nú við um 16 ríki. Rösklega 25 þúsund manns verða bólusett við covid-19 í næstu viku. Fram að þessu hafa ekki svo margir fengið sprautu á einni viku. Tap á rekstri hjúkrunarheimila nam þremur og hálfum milljarði króna árin 2017 til 2019. Önnur bylgja kórónuveirufaraldursins leikur Indverja grátt. Lýst var yfir neyðarástandi á sjúkrahúsum í Delhi í dag þar sem súrefnisbirgðir eru senn á þrotum. Ferðamálastjóri segir að ef allt gengur eftir megi búast við að um þrjú þúsund erlendir ferðamenn leggi leið sína í haust daglega að gosinu í Geldingadölum. Undirbúningur við að bæta aðgengi að gosstað er í fullum gangi. Arnar Páll Hauksson talar við Skarphéðin Berg Steinarsson. Stærsta dagblað Spánar hefur kortlagt og staðfest 306 tilfelli þar sem kennarar og prestar innan kaþólsku kirkjunnar hafa beitt börn kynferðislegu ofbeldi. Blaðið segir að í þessum málum séu 816 fórnarlömb, aðallega drengir, en að ljóst sé að fórnarlömb kirkjunnar manna hlaupi á þúsundum. Flest börn beri harm sinn í hljóði. Jóhann Hlíðar Harðarson segir frá. Undanfarið hefur hvert spillingarmálið, tengt breska Íhaldsflokknum , rekið annað, nú síðast mál tengt forsætisráðherra. Stjórnarandstaðan gerir sér mikinn mat úr þessum málum og í þeim bergmála spillingarmál fyrri áratuga. Í raun oft þannig að það eru líkur á spillingu ef einn flokkur er lengi við stjórn. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.

Spegillinn
Spegillinn 29.mars 2021

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 29, 2021 30:00

Spegillinn 29.mars 2021 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson Herða þarf aðgerðir á landamærunum enn frekar, eigi að takast að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar segir sóttvarnalæknir. Byrjað verður að dreifa bóluefni Janssen gegn COVID-19 nítjánda apríl. Réttarhöld yfir morðingja blökkumannsins George Floyds hófust í Bandaríkjunum í dag. Risaflutningaskipið Ever Given sem strandaði í Súesskurðinum á þriðjudag er komið á flot Hraunflæði úr eldgígunum í Geldingadölum hefur haldist stöðugt síðustu daga, þó ásýnd gíganna hafi tekið stakkaskiptum Bæjarstjórinn á Akureyri segir allt benda til að samningar um yfirtöku á rekstri hjúkrunarheimila í bænum náist í tæka tíð. Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir að niðurstaða eigi að liggja fyrir innan skamms. Settur umboðsmaður Alþingis gerir engar athugasemdir við úrskurð dómsmálaráðuneytisins sem sneri við ákvörðun Þjóðskrár Íslands í máli stúlku sem vildi kenna sig við móður sína en ekki föður. Umboðsmaður segir hagsmuni barns geta vegið þyngra en hagsmuni foreldris sem er andvígt nafnabreytingu. Lengri umfjöllun: Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir að bregðast þurfi hratt við að byggja upp innviði í nágrenni jarðeldanna í Geldingadölum. Útlit er fyrir að staðurinn verði fjölsóttasti ferðamannastaður landsins næstu misserin, óháð því hvort gos haldi þar áfram eða ekki. Aðsóknin og áhuginn meðal Íslendinga sé mjög mikill og hálfgert lán í óláni að erlendir ferðamenn eigi tæplega kost á að sjá gosið um þessar mundir vegna sóttvarnaraðgerða á landamærum. Ferðamálastofa hefur talið hversu margir hafa lagt leið sína fótgangandi að gosstöðvunum undanfarna daga með sérstökum teljurum við gönguleiðina. 5600 manns fóru að jarðeldunum í gær, en um 16000 síðustu sjö daga. Kristján Sigurjónsson talaði við Skarphéðinn. Nýtt stjórnsýslustig - heimastjórnir í hinu nýja Múlaþingi hafa virkað ágætlega að mati tveggja heimastjórnarmanna. Annar hefur þó áhyggjur af auknu flækjustigi í stjórnsýslu og hinn hefði viljað að heimastjórnir hefðu aðeins meiri völd, og svolítið fé til ráðstöfunar. Ragnhildur Thorlacius fjallar um sameiningu sveitarfélaga 3. hluti og talar við Jódísi Skúladóttur, Rúnar Gunnarsson sveitarstjórna- og heimastjórnarfólk í Múlaþingi og Anton Kára Halldórsson formann samstarfsnefndar um sameininguna á Suðurlandi .

Heimsglugginn
Stjórnmál og námugröftur á Grænlandi

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Feb 11, 2021

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var sérstakur gestur Heimsgluggans og Bogi Ágústsson ræddi við hann um grænlensk stjórnmál, námugröft á Grænlandi, sjaldgæfa málma, stórveldapólitík, sveitarstjórnarkosningar og möguleika Ingu Dóru Guðmundsdóttur Markussen að verða borgarstjóri í Nuuk. Sveitastjórnarkosningar verða í landinu í apríl. Ólga er í stjórnmálum á Grænlandi, í síðustu viku fækkaði stjórnarflokkunum úr þremur í tvo er Demakratiit hætti stjórnarþátttöku. Kim Kielsen, formaður Landsstjórnarinnar, er því nú í forystu minnihlutastjórnar. Aðeins 11 af 31 þingmanni styður nú stjórnina. Rætt hefur verið um nýjar kosningar en Össur segir að ekki sé víst að kosið verði að nýju. Össur var formaður nefndar sem gerði skýrsluna ?Samstarf Íslands og Grænlands á nýjum Norðurslóðum? að beiðni Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra. Skýrslunni var skilað í janúar. Í lokin bar afleiðingar Brexit á góma, en viðskipti með verðbréf eru nú meiri í kauphöllinni í Amsterdam en í Lundúnum sem lengi hefur verið miðstöð fjármálaviðskipta í Evrópu. Þetta er afleiðing þess að Brexit-saminngurinn nær ekki til þjónustuviðskipta. Douglas Alexander, fyrrverand Skotlandsmálaráðherra og viðskiptaráðherra í stjórn Verkamannaflokksins, segir að ensk þjóðernishyggja, Íhaldsflokkurinn og Boris Johnson hafi skaðað breska sambandið, UK, meir en skoskir þjóðernissinnar. Alexander sagði um Johnson að brunavargur væri væri jafn mikill brunavargur þó að hann heimsæki Skotland og þykist vera slökkviliðið.

Heimsglugginn
Stjórnmál og námugröftur á Grænlandi

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Feb 11, 2021 19:06

Ekkert verður af rannsókn Pfizer

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 9, 2021 30:00

Ekkert verður af rannsóknarverkefni bandaríska lyfjaframleiðandans Pfizer á virkni kórónuveirubóluefnis, sem rædd var á fundi sóttvarnalæknis, yfirlæknis smitsjúkdómadeildar Landspítala, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar og fulltrúa Pfizer í dag. Þetta sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar eftir fundinn. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það hafi vissulega verið vonbrigði að ekkert yrði af rannsókn Pfizer hér á landi. Niðurstaðan hafi þó ekki komið á óvart. Verulega hefur verið dregið úr leitinni að John Snorra Sigurjónssyni og tveimur göngufélögum hans sem saknað hefur verið frá því á föstudagsmorgun. Veðurspá er slæm næstu sjö daga. Útgerðir landsins eiga að greiða 4,8 milljarða króna í veiðigjald vegna síðasta árs. Kennarasamband Íslands fær vikulega símtöl frá kennurum sem telja sig verða fyrir ofbeldi af hálfu nemenda. Sambandið hvetur skólastjórnendur til þess að gera viðbragðsáætlun vegna ofbeldis. Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins hyggst leggja til að refsiaðgerðir gagnvart Rússlandi verði hertar. Um fjórðungur launafólks á erfitt með að ná endum saman. Staða atvinnulausra er verri en launafólks og staða innflytjenda er talsvert verri en innfæddra. Yfir 40 af hundraði atvinnulausra mælast með slæma andlega heilsu miðað við um fimmtung launafólks. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun Vörðu á stöðu launafólks. Varða er ný rannsóknastofnun vinnumarkaðarins sem ASÍ og BSRB komu á laggirnar. Fjallað var um niðurstöðurnar í Speglinum í gær en í dag var könnunin formlega kynnt. Arnar Páll Talaði við Drífu Snædal og Sonju Ýr Þorbergsdóttur. Ólga er í stjórnmálum á Grænlandi, í síðustu viku fækkaði stjórnarflokkunum úr þremur í tvo er Demakratiit hætti stjórnarþátttöku. Kim Kielsen, formaður Landsstjórnarinnar, er því nú í forystu minnihlutastjórnar. Aðeins 11 af 31 þingmönnum styðja nú stjórnina. Bogi Ágústsson ræddi við Össur Skarphéðinsson.

Morgunútvarpið
8. des. - Tónlist, atvinnulíf, leikur, uppgreiðslugjald og tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Dec 8, 2020 130:00

Á morgun og hinn fara fram fyrirlestrar og vinnusmiðjur í nafni tónlistarhraðalsins Firestarter þar sem áherslan er á áhrif heimsfaraldurs á þá starfssemi sem snýr að lifandi tónlistarflutningi og þá nýju framtíð sem blasir við í kjölfar Covid-19. Við ræddum þessi mál aðeins við Önnu Hildi Hildibrandsdóttur stjórnarformann ÚTÓN um daginn sem sagði nauðsynlegt að sækja fram og við héldum aðeins áfram með þessi mál í dag og slógum á þráðinn til Maríu Rutar Reynisdóttur hjá Tónlistarborginni Reykjavík og spurðum út í Firestarter og framtíð lifandi tónlistarflutnings. Við heyrðum í Davíð Þorlákssyni, hja Samtökum atvinnulífsins, en samtökin kalla eftir skýrri áætlun um það hvenær bólusetningar eigi að hefjast og hvaða fyrirkomulag verður á þeim. Þá kalla þau einnig eftir meiri fyrirsjáanleika í þeim takmörkunum sem gilda eiga á næstunni. Öll þekkjum við alls kyns leiki á samfélagsmiðlum þar sem verið er að gefa hina og þessa vinninga. Nú er hins vegar í gangi leikur þar sem verðlaunin eru notuð bifreið, nánar tiltekið af tegundinni Dacia Duster. Leitað er að einhverjum sem á hann skilið eins og segir í kynningu. Þorsteinn Þorsteinsson framkvæmdastjóri Blue Car bílaleigunnar var á línunni og við forvitnuðumst um leikinn, samfélagsverkefni sem fyrirtækið hefur lagt áherslu á o.fl. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu fyrir helgi að Íbúðalánasjóði hafi ekki verið heimilt að krefja lánþega um að greiða uppgreiðslugjald á árunum 2005 til 2013. Gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir eru undir hjá lántakendum, tugir milljarða jafnvel, og Þórir Skarphéðinsson, lögmaðurinn sem rak málið, sagði í gær við mbl.is að viðbrögðin við dómnum hafi verið ótrúleg og að tugir fyrirspurna hafi borist til hans frá því dómur féll. Við ræddum við hann í þættinum. Við komum við í tæknihorninu í dag og hittum þar fyrir Guðmund Jóhannsson sem sagði okkur frá tölvuleik sem beðið er með óþreyju og mest hummuðu lögunum. Tónlist: Hildur Vala - Komin allt of langt. Pálmi Gunnarsson - Litla húsið. Ásgeir - Hringsól. Stefán Hilmarsson - Ein handa þér. Jólem - Vetrarljósið. Rúnar Júlíusson - Gott er að gefa. Eyþór Ingi og Lay Low - Aftur heim til þín. Baggalútur - Jólin eru okkar (ft. Bríet og Valdimar). The White Stripes - Seven Nation Army.

Spegillinn
Arnaholt rannsakað

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 17, 2020 30:00

Hugsanlegt er að Alþingi þurfi að skipa formlega rannsóknarnefnd sem hefði víðtækari heimildir en nefndir á vegum Reykjavíkurborgar, til þess að skoða málefni Arnarholts. Þetta er bráðabirgðaniðurstaða borgarlögmanns. Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að fara í saumana á málum Arnarholts. Nýtt riðusmit hefur greinst í Skagafirði. Riðuveiki hefur nú verið greind á fimm bæjum. Félagsmálaráðherra segir að ríkisstjórnin kynni á næstunni frekari aðgerðir til að koma til móts við þá sem eru atvinnulausir. Stjórnvöld í Svíþjóð hafa samið við þrjá lyfjaframleiðendur um bóluefni gegn kórónuveirunni. Það á að duga til að bólusetja alla sænsku þjóðina. Færri tilfelli af klamydíu greindust hér á landi í fyrra en árið áður. Ísland er þó enn það land í Evrópu þar sem fjöldi tilkynntra klamydíusýkinga er hlutfallslega mestur. Smitsjúkdómum í Noregi fækkaði um rúman helming síðust tvær vikurnar í október. Vísbendingar eru um að dregið hafi úr dauðsföllum af völdum lungna- og hjartasjúkdóma í Noregi frá því kórónuveirufaraldurinn braust út. Svipuð þróun virðist vera hér á landi. Arnar Páll ræðir við Guðrúnu Aspelund. Fregnir síðustu daga um að góður árangur hafi náðst hjá tveimur stórum lyfjafyrirtækjum í þróun bóluefnis hefur vakið þá von í brjósti margra að það sjái fyrir endann á Covid faraldrinum og að líf komist í eðlilegt horf á vormánuðum. Spegillinn ræddi í dag við Skarphéðinn Berg Steinarsson Ferðamálastjóra um horfurnar í ferðaþjónustunni. Kristján Sigurjónsson talar við Skarphéðinn Berg Steinarsson. Þjóðverjar standa frammi fyrir enn harðari sóttvarnaaðgerðum en hingað til. Illa gengur að ráða niðurlögum kórónuveirufaraldursins þrátt fyrir að þar séu þegar í gildi miklar takmarkanir, allar krár hafi skellt í lás og veitingastaðir séu lokaðir. Rætt er um að biðja fólk um að halda engin einkasamkvæmi fram að jólum, ungt fólk takmarki samgang í frítíma við einn vin, fjölskyldur umgangist í mesta lagi fólk af einu öðru heimili og þeir sem sýni jafnvel minnstu kvefeinkenni verði beðnir um að halda sig til hlés í að minnsta kosti fimm daga. Sýnist sitt hverjum og er ekki alveg ljóst hve langt verður gengið en en nýjar auglýsingar frá þýskum stjórnvöldum sem hampa hetjum baráttunnar við kórónuveiruna hafa vakið sterk viðbrögð. Anna Kristín Jónsdóttir sagði frá.