Hlaðvarp up sölu og markaðsmál
Haukur Guðjónsson hjá Sundra í spjalli hjá Óla Jóns. Haukur er frumkvöðull af lífi og sál, í dag er hann með fyrirtækið sitt Sundra sem er tól til notkunar við vinnu myndbanda. Á vef Sundra sundra.io má meðal annars lesa þessa lýsingu "The Video Editors Assistant Sundra automates the most time-consuming parts of editing and gives video editors more time to focus on the creative part".
Auður Ösp Ólafsdóttir átti og rak ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavík í áratug og byggði það upp með persónulegum sögum af landi og þjóð. Þar blandaði hún persónulegum frásögnum, á meistaralegan hátt, saman við fjölbreytileika íslenskrar menningar og náttúru. Nálgun hennar heillaði ekki aðeins ferðamenn alls staðar að úr heiminum heldur gaf hún einyrkjum og minni ferðaþjónustuaðilum von í harðri samkeppni við stærri fyrirtæki.
Í þessum þætti ræðir Óli Jóns við frumkvöðulinn og athafnamanninn Friðrik Guðjónsson stofnanda Feed the Viking. Friðrik er athafnamaður og frumkvöðull og ótal margt til lista lagt. Hann hefur komið víða við á lífsleiðinni. Hann hefur kennt á brimbretti á Hawaii, bjargað fólki úr lífsháska sem meðlimur í björgunarsveit og stofnað nokkur farsæl fyrirtæki, hér segir Friðrik sögu sína og frá hans hugmyndafræði á bak við velgengni. Friðrik vildi verða bankastarfsmaður eftir að hafa orðið fyrir miklum áhrifum af verðbréfamiðlurum Wall street. Hann byrjaði í verkfræði í Hí til að geta farið þaðan að vinna í banka en það var of mikið stökk frá framhaldsskólanum, það átti ekki við Friðrki að sitja í Þjóðarbókhlöðu að diffra. Friðrik segist svo hafa gefist upp á háskólanáminu keypt sér Playstation tölvu og ekki farið út úr húsi í tvær vikur. Friðrik skráði sig í viðskiptafræði 2003 hjá Háskóla Reykjavíkur og hóf nám þar um áramót, uppgvötvaði þar að hann gæti lært. Hafði gaman af að læra þar og kynntist mikið af góðu fólki. Útskrifaðist 2006 og fór í fyrsta atvinnuviðtalið á ævinni, fékk vinnu í banka, svo í verðbréfamiðlun. Friðrik er einnig með fyrirtækið the Optimistic food group sem framleiðir Happyroni eða vegan “pepperóní”. Friðrik var búinn í tvö ár að reyna að koma Fish Jerky til Icelandair án árangurs en þá kom fram á fundi að þau hefðu lengi verið búin að leita að kjötsúpu til að hafa í vélunum. “Við keyptum frostþurrkunarvél og fórum að framleiða frostþurrkaðar súpur meðal annars kjötsúpu sem Icelandair tók í sölu í vélunum sínum” Til varð ný vörulína af frostþurrkuðum mat sem Friðrik þekkti mjög vel áður úr björgunarsveitastarfinu. Eina sem þarf er heitt vatn, hræra og bíða í 8 mín. Að frostþurrka mat er aðferð sem hefur verið notuð frá aldamótunum 1800/1900 og var notuð í fyrri heimstyrjöld og mun meira í seinni heimstyrjöld. Allur matur sem fer í alþjóðlegu geimstöðina og allur hermannamatur er frostþurrkaður, þessi frostþurrkunar aðferð tekur langan tíma og er mjög kostnaðarsöm, en þetta er talin besta aðferð til varðveislu á mat í heiminum í dag. Best til að varan haldi næringargildi sínu. Varan missir rakann, en þegar þú bætir honum við er hún eins og hún var áður, eða ný. Frostþurrkaður matur varðveitist í 20 ár mögulega 50 ár. “Erum komin með 5 máltíðir, pakkaðar fyrir göngufólk og svo til að nota heima eða í vinnu, börn að koma svöng heim úr skóla, þetta á meðal annars að vera heilsusamlegur valkostur við núðlusúpuna.” Hjá Feed The Viking eru einnig framleitt frostþurrkað nammi sem slegið hefur í gegn hér á landi. Regnbogasprengjur sem er frostþurrkað Skittles er fyrsta varan í þeirri línu, þær fást hjá N1, Krónunni og í vefverslun feedtheviking.is.
Gestur minn í þessum þætti er Guðlaugur (Gulli) Aðalsteinsson hjá Cirkus. Við fórum um víðan völl í viðtalinu allt frá hænsnabúum að ÍMARK. Gulli hefur stússað ýmislegt í gegnum tíðina. Hann er alinn upp á hænsnabúi fyrstu ár ævinnar hjá mjög hugmyndaríkum foreldrum, hann hefur alltaf verið að teikna og eitthvað í tónlist, fór í nám í Bournemouth eftir að hafa valið skóla út frá töff brimbrettakappa. Hann hefur unnið á fjölmörgum auglýsingastofum og viðskiptavinir hafa fylgt honum á milli stofa. Hann stofnaði Cirkus ásamt þeim Hauki Viðari Alfreðssyni og Jens Nørgaard-Offersen árið 2020 Það voru settar þrjár reglur þegar Cirkus var stofnuð 1. Ætla ekki að vinna yfirvinnu 2. Taka ekki þátt í pitchum 3. Eftir hádegi á föstudögum eru alltaf frímínútur Þú getur heyrt meira um þessar reglur og önnur Cirkus-trix í spjallinu okkar.
Hörður kom í viðtal hjá Óla Jóns í nóvember 2017 í þætti númer 41. Í þessu viðtali fer Hörður yfir hvað Entravision sem er vottaður sölu- og þjónustuaðili fyrir Meta er, hvað þjónustu þau bjóða upp á osfrv. Hluti af þeim spurningum sem koma svör við í þessu viðtali. Hvað er Entravision? Hvað þjónusta er hjá Entravision? Hvað þarf ég til að vera viðskiptavinur Entravision? Þarf ég að verja lágmarksupphæð í birtingar? Afhverju kostar þjónusta Entravision ekki neitt, fæ ég svo reikning í bakið seinna? Tapa ég einhverju á að vera í viðskiptum við Entravision? Dekkun og tíðni, hvað er það? Á https://entravision-iceland.com/ segir um Entravision að þau séu Vottaðir sölu- og þjónustuaðilar Meta eru hluti af teymi Meta í völdum löndum á heimsvísu. Hjá þeim starfa sérfræðingar sem hafa verið sérstaklega valdir, þjálfaðir og vottaðir af Meta. Sérfræðingar okkar veita fyrirtækjum endurgjaldslausan stuðning og ráðgjöf, allt frá þarfagreiningu til stefnumótandi ráðgjafar. Vottaðir sölu- og þjónustuaðilar Meta hjálpa fyrirtækjum að ná markmiðum sínum, auka hæfni og árangur af markaðsstarfinu. Við Hörður vorum líka með leynigest sem stóð sig virkilega vel og var með mjög sterka innkomu, þökkum Ronju fyrir hennar hlutverk í þessu viðtali.
Margeir Haraldsson Arndal Verkefnastjóri markaðs- og tæknimála hjá Lýðskólanum á Flateyri Í þessu viðtali ræðir Óli Jóns við Margeir Haraldsson Arndal um lífið á landsbyggðinni, um Lýðskólann á Flateyri, um skapandi hugsun, um markaðsmál og margt fleira. Margeir sem býr á Flateyri með sinni fjölskyldu starfar hjá Lýðskólanum á Flateyri við markaðssmál ásamt því að sjá um tæknimál skólans. Margeir er líka með önnur járn í eldinum s.s. framleiðslufyrirtæki með tvíburabróður sínum. Á vef Lýðskólans lydflat.is segir; Hvað er lýðskóli? Nám við lýðskóla er ólíkt því sem við eigum að venjast í hefðbundnum framhaldsskólum. Í lýðskóla fá nemendur og kennarar tækifæri til að vera við leik og störf og prófa sig við ólík viðfangsefni án þess að þurfa að sökkva sér niður í fræðilegar kenningar og skólabækur. Samtöl og samvinna, verklegt nám og vettvangsferðir eru lykilorð. Námsmat og endurgjöf í lýðskólum er ekki fengið með hefðbundnum prófum og einkunnum heldur í gegnum fundi og samtöl. Þetta gefur lýðskólum frelsi til að mennta og þroska nemendur með óhefðbundnum en árangursríkum leiðum.
Inga Hlín Pálsdóttir Framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Inga Hlín kom einnig í viðtal janúar 2021 þar sem við ræddum meðal annars áskoranir ferðaþjónustu fyrirtækja í Covid. Inga Hlín hefur undanfarin ár starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi og fyrirlesari. Helstu verkefni hafa snúið að samstarfi fyrirtækja og opinberra aðila, stefnumótun, markaðssetningu, breytingastjórnun og sjálfbærni í tengslum við svæði og borgir. Hún hefur starfað með ýmsum aðilum í tengslum við ráðgjöf og má þar helst nefna Austurbrú, Reykjavíkurborg og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða starfaði Inga Hlín hjá norrænu ráðgjafarfyrirtæki á sviði þróunar, nýsköpunar og markaðssetningar svæða. Inga Hlín er með B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og M.Sc. próf í alþjóðamarkaðsfræði frá The University of Strathclyde í Skotlandi. Hún starfaði áður í yfir áratug hjá Íslandsstofu og Útflutningsráði, lengst sem forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina. Þar stýrði hún meðal annars kynningar- og markaðsstarfi á áfangastaðnum Íslandi í samstarfi við hagaðila og fór allt markaðsstarf fram undir merkjum Inspired by Iceland. Þá stýrði hún samstarfsverkefnunum Ísland allt árið og Iceland Naturally auk þess sem hún sat í stjórn NATA ferðamálasamstarfsins. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins ses. var stofnuð 3. apríl 2023. Stofnendur stofunnar eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Að undirbúningi stofunnar komu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og atvinnulífið í gegnum Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðinu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu, auk þess sem stjórnvöld studdu við verkefnið. Eitt af hlutverkum Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er að vera áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið. Skilgreining stjórnvalda á áfangastaðastofu er eftirfarandi: „Áfangastaðastofa (e. Destination Management Organisation) [er] svæðisbundin þjónustueining á vegum opinberra aðila og einkaaðila sem hefur það meginhlutverk að styðja við ferðaþjónustu í viðkomandi landshluta og tryggja að hún þróist í takt við vilja heimamanna þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi“.
Halldór Bachmann Halldór hefur frá mörgu áhugaverðu að segja og gerir það í þessu einlæga viðtali. Persónulegar áskoranir í lífi og starfi, hindranir og sigrar. Það er áhugavert að heyra Halldór segja frá vinnu sinni við vörumerki eins og MasterCard, IcelandAir, KEA, Sambandinu, Morgunblaðinu og mörgum fleirum.
Davíð Arnarson hjá Datera spjallar ma. um SEO og Google Analytics.
Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido
Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido
Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido
Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido
Hér eru 5 viðtöl sem Óli Jóns tók á árinu 2022 og fyrir annan hlaðvarpsþátt en eru nú endurbirt hér. Guðrún Þórisdóttir, Gray Line Worldwide Helgi Pjetur, Púls Media Þorgils Sigvaldason, CrankWheel Gísli S Brynjólsson, Icelandair Arnar Gísli Hinriksson, Digido
Ásgeir hefur starfað í ferðaþjónustunni síðan 2007, fyrst í 11 ár í DMC fyrirtæki við skipulagningu hvataferða og viðburða erlendra fyrirtækja til Íslands, þareftir í 2 ár í dagsferðarfyrirtæki sem framleiddi dagsferðir í rútum frá Reykjavík og nú í 4 ár sem framkvæmdastjóri TripCreator. Ásgeir hefur jafnframt 8 ára reynslu af þróun innanhússhugbúnaðar sem notaður var í tilboðs- og leiðarlýsingargerð fyrir DMC fyrirtækið og nýtir þá reynslu í vinnu sinni hjá TripCreator. TripCreator er sölu- og umsjónarkerfi (e. Travel Management Solution) fyrir fagaðila í ferðaþjónustunni (B2B), fyrir þá sem útbúa leiðarlýsingar fyrir sína viðskiptavini, hvort heldur endaviðskiptavini eða aðra samstarfsaðila. Í lausninni er jafnframt reikningagerðarkerfi, rekstrarkerfi, bókunarvél, utanumhald um viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila, og fleira sem leysir dagleg verkefni starfsfólks ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda.
Hans Júlíus Þórðarson hjá Vettvangi ræðir um efnismarkaðssetningu við Óla Jóns
Allt um markaðssetningu vörumerkja eins og Nike og Speedo með Bryndísi Rún hjá Icepharma. Bryndís útskrifaðist með meistaragráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands.
í þessum lokaþætti af Hlaðvarpinu á Jóns farið yfir þessi ár og þessa þetta þætti sem komnir eru í loftið. Virkilega skemmtilegt verkefni sem hefur kennt mér heilmikið, gefið mér fjölmörg tækifæri og síðast en ekki síst allt fólkið sem ég er búinn að kynnast. Þakka öllum sem hafa komið, öllum sem hafa hlustað og öllum sem hafa hjálpað mér að halda þessu gangandi. Þar fer að sjálfsögðu frú Katrín Kjartansdóttir Arndal (aka ljónið) konan mín, á hennar hugsa ég að lokaþáttur hefði verið ca 140 þáttum fyrr.
Í nóvember kíkti ég í heimsókn til Siteimprove í Kaupmannahöfn og hitti þar Guðrúnu Unni Gústafsdóttur og Heiðrúnu Örnu Óttarrsdóttur. Þær sögðu mér frá þeirra lífi og starfi í Danmörku ásamt því að fara yfir hvað Siteimprove.
Í nóvember síðastliðnum hitti ég í ásamt Agnari Frey Gunnarssyni samstarfsfélaga hjá Birtingahúsinu Styrmi Másson á vinnustað hans í Kaupmannahöfn. Styrmir starfar sem "Performance Marketing Lead" hjá Planday. Í þessu spjalli segir Styrmir okkur frá Planday, fyrir hverja það er og hvernig markaðssetningu er háttað. "Planday is a technology company that was born in a Danish bar. We've come a long way since our cofounders first dreamed up a tool that would make scheduling and communicating more straightforward. With over 12 years of experience in the industry, we're well-placed to provide businesses with a solution that meets their unique needs. Powered by some of the smartest people in the world, and driven by a growth-centric business model, we're not only changing the way businesses across the world operate, but also how managers and employees fundamentally interact with each other."
Anna Kristín Magnúsdóttir hjá Kjólum & Konfekt sem kom í hlaðvarpið í nóvember 2016 kom aftur í spjall í október síðastliðnum. Ýmislegt hefur breyst á þessum tíma, m.a annars hefur Anna opnað aðra verslun Rokk & Rómantík sem er á Laugaveginum líkt og Kjólar & Konfekt. Anna hefur auk þess opnað vefverslun og auðvitað gengið í gegnum ýmislegt í sínum rekstri að undanförnum líkt og aðrir.
Tryggvi Hofland Sigurðsson á veitingastaðinn Hofland Eatery í Hveragerði. Í þessu spjalli sem ég átti við Tryggva í oktober síðastliðnum segir Tryggvi okkur frá tilkomu veitingastaðarins og hvernig honum tókst með elju, góðum vinum og fjölskyldu að koma þessum stað upp.
íkt og aðrir sjálfstætt starfandi aðilar þarf tónlistarfólk og aðrir listamenn að huga að sölu og markaðssetningu á sinni vöru og þjónustu. Til að ræða þetta fékk Óli Jóns til sín Stefán Jakobsson eða Stebba Jak söngvara hljómsveitarinnar Dimmu. Stebbi fer yfir ferilinn frá söngkeppni framhaldsskólana til dagsins í dag. Í þessu spjalli er farið yfir víðan völl, kennarstarfið, ferðalögin, samfélagið í Mývatnssveit, framhaldsskólann á Laugum, hljómsveitir eins og Douglas Wilson og Alþingi.
Viðmælandi Óla Jóns í þessum þætti er afrekskonan María Ögn Guðmundsdóttir. Að breyta áhugamálinu sínu í atvinnu er inntakið í þessum þætti þar sem við höldum áfram að huga að litlum fyrirtækjum og einstaklingum.Allt áhugafólk um keppnishjólreiðar þekkir Maríu en hún hefur unnið marga Íslandsmeistaratitla hjólreiðum og varð fyrst kvenna til að keppa fyrir Íslands hönd í hjólreiðum á erlendri grund. María hefur þjálfað mikin fjölda af reiðhjólafólki, farið með hópa erlendis í hjólaferðir ásamt því að stjórna sjálf keppnum líkt og WOW cyclothon og Gullhringnum. Það er virkilega skemmtilegt að heyra sögu Maríu, sem segist vera heppin að vera með hugarfarið að vera galopin fyrir lífinu.
Eva Ruza skemmtikraftur og blómakona er gestur Óla Jóns í þætti 141. Þemað í þessum þætti líkt og í undarförnum þáttum og næstu þremur er markaðssetning lítilla fyrirtækja. Lítil fyrirtæki geta verið og eru oft ein manneskja líkt og í tilfelli Evu. Eva fór yfir það með okkur hvernig vörumerkið Eva Ruza varð til og hvernig það kom til að Eva fór að taka að sér alls konar verkefni. Við ræðum lika hvað þarf til þess að ná þessum árangri sem hún hefur náð, hvað er sérstaklega mikilvægt að hafa gott fólk í kringum sig sem styður mann í þeim verkefnum sem maður tekur sér fyrir hendur. Það kemur örugglega ekki neinum á óvart sem þekkir eitthvað til Evu að þetta spjall er ótrúlega hresst og skemmtilegt, mikið hlegið og mikið gaman. Hvet alla til að fylgjast með Evu hér á Instagram.
Í þessum þætti er umræðuefnið félagasamtök, stofnun þeirra, markaðssetning og almennur rekstur. Þær Anna Margrét Hrólfsdóttir og Vala Karen Viðarsdóttir frá Women Power eru flestum hnútum kunnugar þegar kemur að þessum málum. Þær störfuðu báðar um árabil í hinum ýmsu störfum hjá UNICEF áður en þær gengu til liðs við Women Power.
Ólína Björk Hjartardóttir frumkvöðull, snyrtifræðimeistari og fyrirtækjaeigandi með meiru kíkti til mín í skemmtilegt og fróðlegt spjall þar sem við ræddum meðal annars um hvernig það er að reka fyrirtæki út á landi. En Ólína býr á Sauðarkróki, ásamt manni sínum og börnum, þar sem hún rekur snyrtistofuna og vefverslunina Eftirlæti. Við ræðum um það hvernig hún nær að sjá um flest allar hliðar fyrirtækisins á eigin spítur og hvernig hún snúi sér að markaðsetningu og stefnumótun. Ólína er einnig byrjuð á að flytja inn spennandi og áhugaverð snyrtivörumerki sem ekki hafa verið á markaði hér á landi áður. Skemmtilegt og hvetjandi viðtal svo ekki meira sé sagt.
Í lokaþætti fyrir sumarfrí fékk ég til mín markaðsstjóra BYKO Árna Reyni Alfredsson. Við spjöllum að sjálfsögðu um markaðssmál, um störf og menntun Árna. Árni sem hefur starfað í mörg ár hjá BYKO segir okkur líka frá því hvernig það hefur verið að starfa í verslunargreiranum á Covid tímum, frá störfum sínum hjá ÍMARK og aðaláhugamálinu hestamennsku. Markaðsmál hjá Steypustöðinni og tilkoma MEST ásamt tímanum hjá auglýsingastofunni EXPO, "2008 hrunið" og margt annað í líflegu og skemmtilegu viðtali við einn reynslumesta markaðsstjóra landsins.
Elvar Páll Sigurðsson, stafrænn markaðsstjóri og Vala Einarsdóttir, sérfræðingur í viðskiptaþróun hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Men&Mice settust niður í spjall með Óla Jóns. Men&Mice sérhæfir sig í þróun og sölu hugbúnaðarlausna fyrir alþjóðleg stórfyrirtæki og stofnanir sem reka flókna netinnviði. Um 70% af tekjum fyrirtækisins koma frá Bandaríkjunum og 29% frá Evrópu, en fyrirtækið hefur verið að leggja aukna áherslu á Evrópu og aðra markaði síðastliðina mánuði. Í hópi viðskiptavina þeirra eru fyrirtæki á borð við Microsoft, Xerox, IMF, FedEx, Unilever, Nestle og Harvard Business School. Í þessum hlaðvarpsþætti ræða þau mikilvægi samvinnu á milli sölu- og markaðssdeilar, hvernig það er að markaðssetja vöru sem er með mjög þröngan markhóp, stafræna markaðssetningu, þróun í söluaðferðum, hvað er framundan í hugbúnaðarheiminum og margt fleira.
Anna Signý Guðbjörnsdóttir er ráðgjafi hjá Kolibri. Anna er með cand.it í digital design and communication frá IT háskólanum í Kaupmannahöfn ásamt því að hafa lokið námi í margmiðlunarhönnun og vefþróun. Í þessu viðtali ræðum við mikilvægi viðmótshönnunar, hvað ber að hafa í huga bæði í undirbúning í stafrænum lausnum ss vefsíðum og öppum og eftir að verkefnin eru komin í gagnið.
Ásta Kristín framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans. Í þessu viðtali segir Ásta okkur frá horfum í ferðaþjónustunni, hvað við höfum lært á undanförnum mánuðum í tengslum við Covid, frá Ratsjánni sem er "ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu." ásamt mörgu fleiru
Sveinn býr yfir áratuga reynslu og ástríðu fyrir fræðslu og skemmtun. Hann hefur starfað í 12 ár sem kennari í Bjórskólanum ásamt námskeiðahaldi í heimabókhaldskerfi Meninga. Sveinn hefur haft umsjón með samfélagsmiðlum fyrir Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands í framboðum hans 2016 og 2020. Sveinn bæði meðeigandi, situr í stjórn og starfar sem markaðsstjóri hjá Svarið ehf, sem er fyrirtæki með framúrstefnulega framtíðarsýn. Fyrirtæki sem Sveinn hefur unnið markaðsstörf fyrir eru ólík og reynslan því breið og fjölbreytt. Af fyrirtækjum má nefna Grey Line Iceland, Íslandsstofa - Inspired by Iceland, Meniga, Ölgerðin, 365 Birtingur og Credit info group.
Í þessum þætti fékk ég til mín Agnar Frey Gunnarsson en hann starfar hjá Birtingahúsinu sem sérfræðingur í öllu sem við kemur stafrænni markaðssetningu. Agnar hef mikla reynslu og þekkingu þegar kemur að því að auglýsa á leitarvélum og samfélagsmiðlum. Í þessu viðtali er farið aðeins dýpra í hlutina en oft áður og ræðum við meðal annars mismunandi "attribution model, conversion tracking, click trought rate, targeting" og fleira. Við förum einnig yfir þær breytingar sem framundan eru í heimi stafrænnar markaðssetningar líkt ný uppfærsla IOS 14.5 hjá Apple mun gera eins og lesa má um á vef SocialMediaToday frá 21. apríl Við förum einnig yfir brotthvarf Cookies sem lesa má um í grein Birtingahússins um málið. "Vefkökur (Cookies) munu brátt heyra sögunni til og auglýsendum munu verða settar þrengri skorður varðandi gagnaöflun og notkun á gögnum frá ótengdum aðilum í markaðsstarfi." Agnar fræðir okkur líka um Twitch.tv og þau tækifæri sem liggja í að auglýsa þar.
Gabríela Rún er sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu og starfar hjá Petmark. Gabríela hefur fjölmörg hlutverk hjá Petmark, hún tekur upp myndbönd og klippir, sér um dreifingu ásamt því að vinna að hugmyndavinnu og að áætlunum. Í þessu spjalli ræðir hún hvað henni finnst mikilvægt að huga að í markaðssetningu á stafrænum miðlum svo sem Facebook, Instagram og Youtube. Við ræðum líka "email marketing" birtingaáætlanir og margt fleira.
Guðrún Hafsteinsdóttir sölu og markaðsstjóri Kjörís. Guðrún spjallar við Óla Jóns og lífið og tilveruna, hvernig það kom til að hún var farin að stýra fjölskyldufyrirtækinu Kjörís aðeins 23 ára gömul. VIð ræðum einnig hvernig það er að búa á stað eins og Hveragerði, hvernig var að stýra fyrirtæki í bankahruninu og á covid tímum. Guðrún sem gefur kost á sér í fyrsta sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi ræðir einnig hvers vegna hún ákvað að fara í framboð og hverjar hennar áherslur verða nái hún kjöri. Guðrún er fædd 9. febrúar 1970 og er dóttir hjónanna Laufeyjar Valdimarsdóttur og Hafsteins Kristinssonar. Guðrún er í sambúð með Hans Kristjáni Einarssyni Hagerup, gullsmið og eiga þau samtals sex börn. Hún er með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, B.A gráðu í mannfræði frá HÍ 2008 og þá hefur hún lokið diplóma námi í jafnréttisfræðum einnig frá HÍ. Hún hefur starfað nær allan sinn starfsferil hjá fyrirtæki fjölskyldunnar Kjörís ehf. í Hveragerði. Guðrún hefur alla tíð verið virk í félagsmálum. Hún hefur setið í bæði fræðslunefnd og skipulags- og umhverfisnefnd Hveragerðisbæjar sem fulltrúi D-listans og þá á hún sæti í sóknarnefnd Hveragerðiskirkju. Árið 2004 stofnaði hún Sunddeild Íþróttafélagsins Hamars og var formaður deildarinnar til 2014. Síðastliðinn áratug hefur Guðrún setið í stjórnum margra fyrirtækja og félaga. Hún var kjörin formaður Samtaka iðnaðarins árið 2014 og var þar formaður til 2020. Þá hefur hún einnig átt sæti í stjórn Samtaka atvinnulífsins, Háskóla Reykjavíkur, Bláa Lónsins og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
Þórhildur Laufey bókmenntafræðingur, grafískur hönnuður og brandari er gestur Óla Jóns í þessum páskaþætti. Þórhildur stofnaði fyrirtækið Kúper Blakk fyrir nokkrum árum, um fyrirtækið segir á kuperblakk.is "Hvað er þetta Kúper Blakk? Kúper Blakk er skapandi stofa sem eeeelskar að auka vörumerkjavirði fyrirtækja og færa brandið "heim í hús". Galdurinn liggur í að skapa heilsteypta sögu, einfalda skilaboð og setja sig í spor viðskiptavina. Hvaða sögu segir brandið þitt? Gæti skapandi hugsun verið það sem vantar inn í jöfnuna við að byggja upp metnaðarfullt vörumerki? Knúsum þetta saman - það ber árangur." Þórhildur segir okkur frá hvað kom til að hún lærði bókmenntafræði og síðar grafíska hönnun. Við ræðum líka Branding, markaðsmál, skapandi hugsun og margt fleira. Þórhildur hefur komið að branding verkefnim hjá Krónunni, Íslandsbanka og Orku náttúrunnar svo eitthvað sé nefnt.
Svanhildur Hólm er framkæmdastjóri Viðskiptaráðs sem er líkt og segir á vi.is "Sameiginlegur vettvangur íslensks viðskiptalífs í rúma öld Heildarsamtök fyrirtækja, félaga og einstaklinga í íslensku atvinnulífi sem telja að heilbrigt og kraftmikið atvinnulíf skapi forsendur til framfara og bættra lífskjara hér á landi." Í þessu spjalli segir Svanhildur okkur lítillega frá sér s.s. menntun og fyrri störf en hún lærði lögfræði í eftir menntaskóla. Svanhildur hefur starfað í fjölmiðlum, sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og sem aðstoðamaður Bjarna Benediktssonar. Við ræðum einnig hlutverk og tilgang Viðskiptaráðs, helstu verkefni þess ásamt þeim áskorunum sem Covid hefur haft á starfsemina og aðila inn félagsins. Ferðaþjónusta, eldgos, veitingastaðir og kattarmyndbönd koma einnig við sögu í þessu viðtali.
Þær Sigrún Tinna Gissurardóttir forritari hjá Sendiráðinu og Unnur Sól Ingimarsdóttir forritari hjá ORIGO og stjórnarmeðlimir SVEF kíktu í stutt spjall og ræddu m.a. Iceweb 2021 og Íslensku vefverðlaunin. Á svef.is segir um samtökin "Hvað er SVEF? Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. Samtökin hafa það að markmiði að miðla þekkingu og efla fagleg vinnubrögð í greininni, vera samræðuvettvangur félagsmanna og andlit stéttarinnar út á við. SVEF sér árlega um framkvæmd Vefverðlaunanna, en fyrsta verðlaunaafhendingin var haldin árið 2000. Félagið stendur árlega fyrir ráðstefnunni IceWeb, sem er metnaðarfull alþjóðleg ráðstefna um vefmál, auk fjölda smærri fyrirlestra, umræðufunda og mannfagnaða fyrir félagsmenn. Félagsmenn SVEF eru um 300 talsins en og koma úr ýmsum sviðum vefheima en meðal félagsmanna má m.a. finna vefara, ráðgjafa, forritara, hönnuði, vefstjóra, prófara, markaðsstjóra, framkvæmdastjóra, kennara o.s.frv." Iceweb 2021 verður haldin á netinu þetta árið líkt og vefverðlaunin Dagskrá Iceveb: Mánudagur 22. mars: Valgerður Pétursdóttir – Reykjavíkurborg Þriðjudagur 23. mars: Hjörtur Hilmarsson – 14islands Miðvikudagur: 24. mars: Hjálmar Gísla – Grid Fimmtudagur: 25. mars: Erla María – Hvíta Húsið Föstudagur 26. mars: Pablo Stanley – Fyrrum yfirmaður hjá InVision, hönnuður hjá Lyft og einn stofnanda Blush hönnunartólsins Á svef.is segir um vefverðlaunin „Vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.“ Um viðburðin segir; "Íslensku vefverðlaunin verða haldin með hátíðlegum hætti föstudaginn 26. mars kl 19. Við munum halda viðburðinn á live streymi þetta árið og hvetjum fyrirtæki og einstaklinga til að halda gleðskap (innan takmarkana þó) á meðan viðburði stendur. Við munum bjóða upp á að vera með live vefmyndavélar í samkvæmunum og getum skipt yfir á vinningshafa til að keyra upp stemninguna!Við lofum frábærri skemmtun þótt hún verði með öðrum hætti en áður hefur verið. Spennan er mikil gagnvart verðlaununum og er óhætt að segja að samkeppnin um bestu vefnina hafi sjaldan verið meiri.Sendur verður linkur á viðburðinn og honum streymt á vefnum okkar sem og á facebook.Hlökkum til að sjá þig og fyrirtækið þitt í banastuði."
Hjörvar Hermannsson framkvæmdastjóri Smartmedia Hermann er stúdent frá MK og kláraði síðan viðskiptafræði í HÍ með áherslu á markaðsmál. Eftir HÍ ákvað hann að leggja land undir fót og fór í mastersnám í markaðsfræðum í Gold Coast , Ástralíu. Eftir það nám kom Hermann aftur til Íslands og hóf störf hjá auglýsingastofunni Pipar. Hermann ásamt félaga sínum settur á laggirnar fjaroflun.is sem kveikti áhuga hans á vefverslunum og í framhaldi á því hóf hann störf hjá Smartmedia Um fjaroflun.is segir Með þjónustu okkar viljum við gera einstaklingum og hópum auðveldara fyrir að stofna fjáraflanir ásamt því að auðvelda skipulag og spara útgjöld fyrir vörum. Aðstandendur síðunar hafa starfað umtalsvert að íþrótta og æskulýðrsmálum og þekkja því vel þær raunir sem fylgt geta fjáröflunum af þeim toga. Síðunni er ætlað að koma til móts við þarfir foreldra, kennara, þjálfara og annara sem þekkja til eða vilja styrkja ungt fólk til góðra verka. Um SmartMedia Áratugareynsla í gerð vefverslana SmartMedia hefur frá stofnun byggt upp góð og náin viðskiptasambönd við fjölda fyrirtækja. Í dag þjónustum við 156 íslensk fyrirtæki með sínar netverslanir og fer þeim fjölgandi
Jón Trausti er framkæmdastjóri Öskju, hann ólst upp við bíla á bílasölu sem pabbi hans á svo hann á ekki langt að sækja bílasöluáhugann þrátt fyrir að vera ekki svokallaður bíladellukall. Jón Trausti starfaði sem fararstjóri og var í Portúgal eftir menntaskóla. En mömmu hans fannst hann farinn að vera full mikið í burtu og skráði hann því í skólann á Bifröst. Jón Trausti hóf svo störf hjá Heklu 1998 sem sölustjóri í notuðum bílum og starfaði þar þangað til Askja var stofnuð. Jón segir okkur frá hvernig það er að vinna með þekkt stór alþjóðleg vörumerki líkt og Mercedes Bens, KIA og Honda og hvaða áhrifa Covid hafði á þeirra rekstur. Markaðssmál, mannauðsmál, rútur, rafmagnsbílar og félagsstörf hjá Bílgreinasambandinu bera einnig á góma.
Victor Pálmarsson er einn af stofnendum 1819 og er markaðsstjóri fyrirtækisins, á 1819.is segir um fyritækið; "1819 er upplýsinga og þjónustufyrirtæki sem leitast við að aðstoða einstaklinga sem og fyrirtæki í upplýsingagjöf og aukins sýnileika. 1819 heldur uppi heimasíðu sem líkja má við rafræna símaskra, en í raun er heimasíðan leitarvél þar sem hægt er að finna ýmsar upplýsingar um fyrirtæki, opnunartíma, símanúmer og heimilisföng. Upplýsinganúmer 1819 hefur það markmið að veita hraða, hágæða þjónustu við upplýsingagjöf ásamt því að starfsfólk okkar sérhæfir sig í símsvörun og ritarastörfum fyrir allr stærðir fyrirtækja. Markmið okkar allra hjá 1819 er að auðvelda aðgengi að upplýsingum sem leiða til einfaldari samskipta einstaklinga og fyrirtækja á Íslandi. Okkar hæfileikaríka starfsfólk gerir þitt daglega líf auðveldara." Í þessu spjalli segir Victor okkur frá því hvað kom til að ráðist var í að stofna 1819 og hvaða áskoranir hópurinn stóð fyrir. Victor fer einnig yfir það með okkur hvernig fyrirtækið hefur þróast og hvaða vörur og þjónustu fyrirtækið bíður upp í dag.
Í þessum þætti ræðir Óli Jóns var Baldur Rafn Gylfason hjá Bpro.is Baldur segir okkur frá því hvar hann lærði að vinna á Fellsströnd þar sem hann var vinnumaður í mörg sumur. Við fáum líka að vita hvernig það kom til að smiðssonurinn sem byrjaði að nema smíði í Iðnskólanum útskrifaðist svo af hárgreiðslubraut eða klippari eins og hann segir sjálfur úr sama skóla. Baldur segir okkur líka frá Mojo tímanum hárgreiðslustofu sem hann rak og mörgum "markaðsstöntum" sem hann og félagar hans voru með. Í dag á Baldur með eiginkonu sinni Sigrúnu Bender Bpro en á bpro.is segir um fyrirtækið; Bpro er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað af þeim hjónum Baldri Rafni Gylfasyni og Sigrúnu Bender árið 2010. Bpro er heildverslun með fagvörur fyrir hárgreiðslu- og snyrtistofur og leggjum við mikinn metnað í að bjóða einungis upp á hágæða vörur og setjum fagmennskuna í fyrsta sæti. Baldur telur sérstaklega mikilvægt að byggja upp sterk viðskiptasambönd við sýna viðskiptavini og fer yfir það í þessu viðtali hvernig og afhverju. Skemmtilegt og hressandi viðtal við Baldur svo ekki sé meira sagt.
Í þessum þætti er það Ása Tryggvadóttir segir markaðsstjóri Bestseller okkur frá sinni vegerð. Ása fór í Versló og HR, þar á eftir réð hún sig í markaðsdeild Heklu. Ása sem er Ísfirðingur og mikil útivistarkona vann einnig á Hvíta húsinu sem tengill svo hún þekkir vel til markaðsmála frá flestum hliðum. Í þessu viðtali fyrir Ása yfir það hvernig þau hjá Bestseller markaðssetja sýnar vörur með mikla áherslu á samfélagsmiðla og í samvinnu við markaðsfyrirtækið Digido.
Í þessum þætti höldum við áfram að ræða það þegar fyrirtæki ráðast sjálf í að framleiða sitt markaðssefni. Til þess að ræða það fékk ég til mín Auði Ingu Einarsdóttur hjá Advania. Ég spurði hana meðal annars hvort Advania framleiðið mikið efni innanhúss og þá hvernig efni? Hvernig þau ákveða hvaða efni á að gera s.s. myndbönd, hlaðvörp, "livestream" oþh. Hvernig þau mæla árangur af þeirri vinnu til að sjá hvað á að gera meira af? Við förum einnig í þjálfun starfsfólks, því ekki er sjálfgefið að það sé til starfsfólks sem er til í að tala í myndavél? Ræðum einnig búnað og þekkingu á honum? Advania hélt haustráðstefnu sýna alfarið á netinu 2020 og fer Auður einnig yfir þá vinnu, undirbúning, framkvæmd og eftirfylgnina af þeirri vinnu.
Í þessum þætti ræðir Óli Jóns við Sigurð Hannes Ásgeirsson en hann starfar við efnissköpun hjá Icepharma. Sigurður sem menntaði sig í kvikmyndagerð í New York hefur komið víða við á sínum ferli þar má meðal annars nefna heimildamyndagerð í Afríku, hjá sjónvarpsstöð í Canada ásamt því að hafa starfað hér á landi. Sigurður er eins og hann segir klippari í grunninn en er í starfi sínu í dag jafnt tökum bæði og ljósmyndum og myndböndum ásamt eftirvinnu. Sigurður talar líka um hversu mikilvægt það er fyrir fólk í hans starfi að fá að vera með frá upphafi á mótun hugmynda að markaðsefni eða herferðum. Þetta er að í annað sinn sem Sigurður kemur í þáttinn en hann kom í þátt 17 með Herði félaga sínum sem hann rak með framleiðslufyrirtækið Skuggaland.
Berglind Ósk Ólafsdóttir verkefnastjóri umhverfismála hjá BYKO er gestur Óla Jóns í þessum þætti. Við ræðum meðal annars um hvernig BYKO vinnur að umhverfismálum, hvaða skref hafa verið stigin í átt að sjálfbærni og hver ábyrgð BYKO er í virðiskeðjunni varðandi vistvænt vöruframboð. Við förum einnig yfir Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna en BYKO er í miðri innleiðingu á fjórum kjarnamarkmiðum sem fyrirtækið leggur þungann á og gerir grein fyrir þeim í sinni fyrstu samfélagsskýrslu sem var gefin út vorið 2020 fyrir rekstarárið 2019. Berglind er með B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, með 14 ára stafsreynslu í markaðsmálum og hefur nú snúið sér að verkefnastjórn á viðskiptaþróunarsviði BYKO þar sem hún ber ábyrgð á að fylgja og þróa umhverfisstefnu fyrirtækisins. Berglind situr í stjórn faghóps um loftlags- og umhverfismál hjá Stjórnvísi og situr einnig í stjórn Neistans, félagi hjartveikra barna. Berglind er gift Steini Jóhannssyni, verkefnastjóra hjá fasteignafélaginu Smáragarði og eiga þau þrjá syni.
Inga Hlín Pálsdóttir sjálfstætt starfandi ráðgjafi og fyrrverandi forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu er gestur Óla Jóns í þessum fyrsta þætti ársins 2021. Við ræðum meðal annars vöxt ferðaþjónustunnar 2010 þær áskoranir og tækifæri sem voru þá, hvað gekk vel og hvað ekki. Hvaða áskoranir og hvaða tækifæri blasa við núna á Covid tímum og hvað ferðaþjónustu aðilar þurfa að hafa í huga á næstu misserum. Inga Hlín segir okkur líka frá nýju starfi sem ráðgjafi Inga Hlin Consulting og starfi sínu hjá Future Place Leadership. Linkedin.com segir um Future Place Leadership "We are a Nordic management consultancy specialising in the development, innovation and marketing of places. Á ingahlin.is Inga Hlin Palsdottir has been an integral part of branding and promotion for Iceland for over a decade and has been involved with all aspects of the tourism industry. She led successful changes for the brand Iceland as a place and destination, both in crisis and in times of growth. She is the former director of Visit Iceland and the award winning campaign Inspired by Iceland. In her time the tourism industry in Iceland went from being the third largest revenue generating industry to the largest one. As well as becoming a whole year round destination in all regions. Her main emphasis has been on stakeholders’ engagement, integrated marketing, sustainability and responsibility in the industry. From 2020, she has been advising places and destinations on strategy, branding, stakeholders engagement, integrated marketing and crisis communication. She is also Senior Advisor with Future Place Leadership.
"Er ást í þessu?" Guðmundur Bjarni er stofnandi Kosmos og Kaos og er titlaður í dag CEO / Creative Director. Í þessu viðtali segir Keflvíkingurinn Guðmundur okkur frá Ninjafélagi í Keflavík, BMX braut og stuttum körfuboltaferli. Guðmundur segir okkur einnig frá því hvernig það kom til að hann fór í þann bransa sem hann starfar við í dag. Guðmundur kemur meðal annars inn á skemmtilegan vef sem hann setti í loftið gummisig.com og vakti mikla athygli á sínum tíma. Guðmundur fer inn á þau verkefni sem hans fyrirtæki kemur að í dag og hvað honum finnst mikilvægast að hafa í huga varðandi hönnun og rekstur.
Í þessum þorláksmessuþætti heyrðum við viðtal sem Óli Jóns tók við Gunnlaug Jónsson framkvæmdastjóra Fjártækniklasans. Gunnlaugur segir okkur frá því hvað hann hefur verið að fást við undan farin ár allt frá því að setja upp söngleik ásamt því að koma að ófáum startup fyrirtækjum. Á vef fjártækniklasans segir "Tilgangur Fjártækniklasans er að efla nýsköpun í fjármálum og gera viðskipti af öllu tagi auðveldari og betri. Hann er samfélag þeirra sem starfa við fjártækni og vilja stuðla að aukinni verðmætasköpun, samkeppni og bættum lífskjörum. Við stöndum fyrir margvíslegu starfi auk þess að reka nýsköpunarsetur á 2. hæð í Grósku í Vatnsmýri."
Baldvin Þormóðsson festi nýlega kaup á Íslensku auglýsingastofunni ásamt föður sínum Þormóði Jónssyni og fer þar með hlutverk Hugmyndastjóra. Feðgarnir hafa víðtæka reynslu úr heimi auglýsinga, Þormóður átti og rak auglýsingastofuna Fíton um árabil en þar steig Baldvin einmitt sín fyrstu skref í bransanum. Þaðan lá leið hans til Bretlands þar sem hann stundaði BA-nám í auglýsingagerð við London College of Communication. Síðastliðin tvö ár hefur Baldvin starfað í Kaupmannahöfn hjá dönsku auglýsingastofunni THANK YOU þar sem hann vann meðal annars fyrir alþjóðleg vörumerki á borð við Carlsberg, Ferrari og Royal Copenhagen. Í þættinum ræðir Baldvin breytt landslag auglýsingamarkaðarins og framtíðarsýn hans fyrir Íslensku auglýsingastofuna.
Í þessum þætti kom til mín hin eiturhressa Ósk Heiða Sveinsdóttir markaðsstjóri Póstsins. Á mbl.is sagði þegar hún hóf störf þar; "Ósk Heiða Sveinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsdeildar Íslandspósts og hefur hún þegar hafið störf. Síðast starfaði Ósk sem markaðsstjóri Trackwell, þar á undan var hún markaðsstóri Krónunnar og Íslandshótela. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum. Ósk er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskóla Íslands. Ósk Heiða er gift Magnúsi Frey Smárasyni, rafmagnsverkfræðingi hjá Eflu og eiga þau tvö börn."