Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.

Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Gíslinn gerður upp og við förum í sjálfskipaða útlegð frá Vestfjörðum.

Kaflar 34-38 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Lokaorustan harðnar. Gísli fer upp á Einhamar og fellur þaðan. Við föllum öll með honum og Ormstungur falla endanlega á prófinu.

Kaflar 31-33 í skólaútgáfuÞáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Njósnar-Helgi fær háðuglega útreið, en ekki verri en Eyjólfur grái þegar feðraveldið fær á snúðinn. Gísla er orðið svo illt í maganum að hann fær sturlaða drauma.

Kaflar 28-30 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Þorkell fellur, ekki fyrir eigin hendi en þó fyrir eigin sverði. Gestur hinn spaki er farinn að toga í spotta. Magaverkir Gísla ágerast og valda honum slæmum draumförum. Hann er þó háll sem áll og ólíklegt að Ormstungur geti nokkurn tímann fangað hann.

Kaflar 25-27 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Njósnar-Helgi sýnir hvers hann er megnugur en Gísli er snjallari. Hann er nú orðinn frægur enda enginn hraustari eða hugrakkari. Ekki er hann þó gæfumaður.

Kaflar 23-24 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Ormstungum hefur ekki tekist að fanga Gísla. Þá er kynntur til sögunnar 007 Íslands, útsendari Eyjólfs gráa, sjálfur Njónsar-Helgi. Gísli reynir enn að fá bróður sinn til að hjálpa sér en Þorkell hafði ekki lesið 152. kafla Njálu og skilur við bróður sinn beran að baki.

Kaflar 20-22 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Ormstungur missa Gísla frá sér og hann hrekst að heiman og fer í leiðinni illa með þrælinn Þórð. Hann er dæmdur sekur og fer að finna fyrir ónotum í maganum.

Kaflar 17-19 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Nefið belgir út nasirnar og hnusar í allar áttir. Það hefur voveiflegar afleiðingar síðar meir en fyrst er Nefinu komið fyrir kattarnef. Þess á milli játar Gísli á sig morð.

Kaflar 14-16 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Þorgrímur reimar skó... já það er merkilegt! Grásíða fær að væta sig blóði í annað sinn og það í höndum manns á nærbuxunum.

Kaflar 11-13 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Allt vitlaust fyrir vestan! Vötn renna öll til Dýrafjarðar, reflar eru gefnir en ekki þegnir og að lokum er framið morð. Síðast en ekki síst mætir Nefið til leiks.

Kaflar 7-10 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Nú dregur til tíðinda. Bræður skipta búi og eftir stendur spurningin: Stendur oft illt af kvennahjali?

Kaflar 4-6 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Vestfirðir 952. Það er súld. Lönd eru keypt, fólk giftist og vinir skera sig á púls. Basic.

Kaflar 1-3 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Eins og allar góðar sögur byrjar Gísla saga í Noregi. Nánar tiltekið í Súrnadal. Stemmningin er eins og nafn dalsins gefur til kynna - súr.

Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026Varúð! Hjalti og Oddur eru komnir til Vestfjarða. Það eru blikur á lofti. Útlaginn sjálfur er á skurðarborðinu og það súrnar í stúdíóinu um leið og krufningin hefst.

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2021 en endurhljóðblandað árið 2026. Flosi Þorgeirsson er sagnfræðingur, tónlistarmaður og sérlegur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Flosi og félagi hans, Baldur Ragnarsson, héldu úti hlaðvarpsþáttunum Draugar Fortíðar sem var eitt vinsælasta íslenska hlaðvarp landsins. Í þáttunum fjölluðu þeir um alls kyns söguleg viðfangsefni allt frá mönnum sem skjóta sér út í geim í garðstól yfir í aðra sem festa sig í holu neðanjarðar. Það vakti athygli Ormstungna þegar Flosi og Baldur gerðu atburði Njáls sögu einstaklega lifandi fyrir hlustendum sínum og gátum við ekki annað en fengið Flosa í smá spjall. Farið var um víðan völl; sannleiksgildi sagnanna, formið sem Íslendingasögurnar eru og kennslu þeirra í skólum.Flosi Þorgeirsson - gjörið þið svo vel!

Hinn margverðlaunaði rithöfundur Brynhildur Þórarinsdóttir hefur legið yfir Íslendingasögunum í gegnum tíðina og miðlað þeim til barna. Hún fór yfir af hverju þessar sagnir eiga erindi enn þann dag í dag, jafnt við unga sem aldna.Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. Einar Kárason er rithöfundur, ljóðskáld og sérstakur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Gerðar hafa verið kvikmyndir og leikverk eftir bókum Einars og ber þar til dæmis nefna Djöflaeyjuna. Einar er einn mesti sérfræðingur okkar í Sturlungu og hefur hann gefið út bækurnar Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld og Skálmöld þar sem hann gefur atburðum Sturlungaaldar skáldlegan blæ.Í spjalli okkar við Einar fórum við víða. Við leituðum af höfundi Íslendingasagnanna, ræddum um sannleiksgildi þeirra og uppáhaldssögu Einars.Hlustið og hlýðið!

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur, kom og fræddi okkur um fornminjar og lifnaðarhætti víkingaaldar. Hvar er silfur Egils, bogi Gunnars og Grásíða? Kannski finnur þú svör við þessum spurningum í þættinum!

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. Ormstungur eru peð á taflborði Íslendingasagnanna en kynna til leiks kónginn til að hefja skákina. Ármann Jakobsson, prófessor í miðaldabókmenntum, tók Ormstungur í stutta kennslustund.Hlustið og hlýðið!

Sagan gerð upp. Farið er yfir hetjuskap og kvarði smíðaður til að meta hann í Íslendingasögunum. Hjalti kveður Odd í kútinn. Hvaða máltíð væri Gunnlaugs saga? Hvaða lag? Stóru spurningunum er svarað í þessum rosalega uppgjörs þætti! Einnig lagðar línur fyrir framtíðina.

Sagan nær hámarki. Draumar og blóð. Stirt er á milli Helgu og Hrafns. Þungt yfir þrátt fyrir partýhald.. Lágskýjað. Ský dregin fyrir sólu. Gulli og Hrafn eiga í basli að finna stað fyrir hólmgöngu því þær hafa verið bannaðar á Íslandi. Af hverju? Rætist draumur Þorsteins? Hverjir munu liggja í valnum? Það er allavega dramatískt lokauppgjör milli Gulla og Hrafns!

Það eru sænskir dagar hjá Gulla. Sem er slæmt því Hjalti er einn helsti áhugamaður um tilvistarkreppu Svía og orðið ,,lagom”. Leikar fara að æsast í sögunni þegar Gulli og Hrafn fara að kveðast á fyrir framan konung.

Gulli slær í gegn en sullur hefur myndast á fæti hans. Ekkert virðist þó geta stöðvað hann í leið sinni til heimsfrægðar. Eða hvað? Áhugaverðar umræður fara á flug um skikkjur og primaloft úlpur.

Gulli Ormstunga stimplar sig inn í söguna ásamt Helgu fögru. Ástin svífur yfir vötnum. Grasið er samt alltaf grænna hinum meginn. Gulli reynir hvað hann getur að komast á vit ævintýranna og sýna hvað í honum býr. Það ætlar þrautinni þyngra að komast af landi.

Persónur sem leggja jarðveginn fyrir aðalpersónur sögunnar seinna meir eru kynntar til leiks. Syni Egils Skallagrímssonar, Þorsteini Egilssyni, dreymir draum og fær Austmann til að ráða. Það boðar ekki gott!

Ormstungur eru alltaf að breyta og bæta. Hér er ein gömul og góð. Enduhljóðblönduð. Gunnlaugs saga sagan hefur allt! Af nógu er að taka; ást, draumar, hetjuskapur, öfund og hefnd. Um þessar mundir er líka söngleikurinn Ormstunga á fjölum Þjóðleikhússins. Um að gera að rifja þessa snilld upp.

Einn gamall og góður í betri hljómgæðum!Benedikt Erlingsson þarf varla að kynna fyrir landsmönnum. Leikari, leikstjóri, leikskáld, sjómaður og sjóbissnessmaður. Þekktastur er hann þó fyrir hlutverk sitt sem Þjóðólfur í Fóstbræðrum.Hann hefur sett á Íslendingasögurnar á svið og miðlað þeim til samtímafólks. Fyrst var það Ormstunga og svo Mr. Skallagrímsson. Við fórum yfir víðan völl, frá manni að nafni Mel yfir í umræður um hvort að það eigi að skrifa barnabækur um sækópata.Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson

Við fengum höfunda söngleiksins Ormstunga, þá Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson í spjall til okkar. Söngleikurinn er sýndur á Stóra sviði Þjóðleikhússins um þessar mundir og er meistaraverk. Þá er vægt til orða tekið. Við ræddum að leika sér með formið sem Íslendingasögurnar eru, söngleikinn sjálfan og svo margt, margt fleira.Nálgast má miða á Ormstungu hér:https://leikhusid.is/syningar/ormstunga/Hlustið og hlýðið!

Víga-Skúta mætir á klakann og hefur bara eitt í huga. Að hefna pabba gamla og nú duga engin vettlingatök, hvorki hjá honum né tungunum. Þessi hluti sögunnar hefur allt: dulargervi, leynibirgi, tilræði á tilræði ofan og mann bundinn nakinn við staur í hólma út á miðju Mývatni. Lifir hann það af? Jah, bölvaðu ekki blessaðri flugunni sagði afi en vargurinn gefur … og vargurinn tekur. Hlustið og hlýðið.Styrktu Ormstungur:https://www.patreon.com/c/ormstungur

Vémundur Fjörleifsson! Hvað er hægt að segja? Geitin í slæmum hugmyndum, skeytingarleysi og forréttindahyggju? Jókerinn? Eða bara ljótur hálfviti? Allavega er maðurinn harðákveðinn í að gera sem mest vesen á þeim blaðsíðum sem hann lifir í sögunni. Og honum er ekkert heilagt hvort sem það eru hvalföng, þingbúðir, nautgripir eða tilvonandi brúðir. Áskell hefur ekki undan að sópa upp eftir hann og tungurinar skilja hvorki upp né niður í þessum gaur. En það er ekkert nýtt. Hlustið og hlýðið.Styrktu Ormstungur:https://www.patreon.com/c/ormstungur

Áskell goði Eyvindarson. Hann hefur líklega séð fyrir sér rólegt líf í allsnægtunum í Reykjadal. Bara eitthvað að rölta meðfram ánni með strá í munni, en ónei. Hann er í yfirvinnu við að skrifa sáttargerðir fyrir systursyni sína og nágranna. Og hann er bara rétt að byrja. Tungurnar sigla nokkuð örugglega af stað en Hjalti lendir þó í vandræðum þegar hann man ekki orðið móðurbróðir. En þetta hefst. Hlustið og hlýðið.Styrktu Ormstungur:https://www.patreon.com/c/ormstungur

Loksins loksins segja einhverjir! Þessir einhverjir eru ættaðir úr dölunum norðan við Mývatnssveit og nágrenni. Tungurnar ráðast nefnilega í Reykdælasögu og Víga-Skútu og hitta fyrir nokkra vel gíraða höfðinga. Því eins og allir vita eru Norðlendingar montnastir Íslendinga, Þingeyingar montnastir Norðlendinga, Mývetningar montnastir Norðlendinga og Suðursveitungar montntastir Mývetningar. Það er því ekki furða að tungurnar lendi fljótt í vandræðum með að hemja menn eins og Vémund Fjörleifsson og Víga - Skútu. Hlustið og hlýðið.Styrktu Ormstungur:https://www.patreon.com/c/ormstungur

Klárum þessa sögu. Sá rammi stendur undir nafni. Það er enn sótt að honum úr öllum áttum. Hann á fleiri óvini en það eru mýflugur eru á Mývatni. En er allt gott sem endar vel?Viltu hjálpa okkur styðja við lestur Íslendingasagnanna? Farðu á Patreon og kláraðu málið: www.patreon.com/ormstungur

Við erum komnir heim. Finnbogi er búinn að vera í stórsókn. Allt búið að ganga upp. Hann á samt óuppgerðar sakir heima fyrir. Nú fara óveðurskýin að hrannast upp. Vandræðin elta okkar mann uppi. Það er kalt á toppnum!Viltu hjálpa okkur að styðja við lestur Íslendingasagnanna? Farðu á Patreon og kláraðu málið: www.patreon.com/ormstungur

Eins og í öllum góðum Íslendingasögum þá höldum við til Noregs. Finnbogi er enn með kattareðlið í sér og með klækjum fær hann að sýna sig og sanna fyrir Jarlinum í Niðarósi. Við förum líka á suðrænni slóðir í fyrsta sinn.Viltu hjálpa okkur aðstyðja við lestur Íslendingasagnanna? Farðu á Patreon og kláraðu málið: www.patreon.com/ormstungur

Kettir eru lúmsk dýr og það eru margir sem skilja þá ekki. Söguhetjan okkar, Urðarköttur, er ekki eins og flest önnur börn. Það er ástæða fyrir því. Við skoðum barnæsku Urðarkattar og fylgjum honum úr bæjarhlaðinu. Viltu hjálpa okkur að styðja við lestur Íslendingasagnanna? Farðu á Patreon og kláraðu málið: www.patreon.com/ormstungur

Velkomin um borð. Langt síðan síðast. Nú leggja Ormstungur á borð fyrir Finnboga sögu ramma. Er höfundur þessarar sögu að gera gys af Íslendingasögunum? Má ekki hafa gaman? Svarið er jú. Fylgið okkur í þessa þeysireið!

Lokaorð Laxdælu hefur skemmt marga og fólk á ekki afturkvæmt í samfélag manna eftir að hafa lesið þessa sögu. Ormstungur gera klára og gera upp söguna. Þeir verða aldrei samir aftur.

Sagan nær hámarki. Tungurnar fara yfir um. Af hverju verður þessi saga bara betri og betri eftir því sem hún er oftar lesin?

Kjartan snýr aftur til Íslands og fær haustlægðina beint í andlitið. Þú vilt ekki reita þennan mann til reiði. Potturinn er byrjaður að glamra all hressilega.

Guðrúnu dreymir fjóra drauma. Þetta er sagan krakkar, takið eftir! Draumarnir eru ráðnir í pottinum í Sælingsdal en Kjartan og Bolli slá í gegn í Noregi. Það sem er hins vegar hættulegt við Noreg er að festast þar og gönguskíða yfir sig. Nú fara leikar að hefjast.

Óli Pá neglir sér til Noregs og leitar upprunans. Spaðagosinn og Spaðaásinn stíga á sviðið ásamt drottningunni. Það byrjar að krauma í pottinum…

Tungurnar reka sig á gat og þurfa að hringja í Vilborgu Davíðsdóttur þegar kemur að hinni miklu Unni Djúpúðgu. Þeir velta sér í heyi með Höskuldi Dala-Kollsyni. Það er ekki annað hægt en að klæja og klóra sér til yfir meðferð hans á Melkorku Mýrkjartansdóttur.

Sem betur fer er ekki nóg að taka Laxdælu einu sinni fyrir. Ormstungur taka söguna aftur fyrir í betri gæðum en síðast og þeir eru betri menn fyrir vikið. Eða hvað?

Þorsteinn Dagur Rafnsson, betur þekktur sem Þústlar á samfélagsmiðlum, kíkti í heimsókn til okkar. Þorsteinn hefur náð miklum vinsældum á samfélagsmiðlum með efni sínu um sögu Íslands og er við mælum með að fylgjast með honum á TikTok, Instagram, Facebook og Youtube. Vinna hans er gífurlega mikilvæg í að framleiða efni á íslensku og er heldur betur farið yfir víðan völl í viðtalinu. Þústlar – gjörið svo vel!

Í þessari tveggja þátta röð leggja tungurnar Ameríku við fót og kanna landfundi Íslendinga í Ameríku! Eiríks saga rauða og Grænlendinga saga gjörið svo vel.

Í þessari tveggja þátta röð leggja tungurnar Ameríku við fót og kanna landfundi Íslendinga í Ameríku! Eiríks saga rauða og Grænlendinga saga gjörið svo vel.

Nú er komið að sögulokum. En komið fyrst með Tungunum til Grænlands. Það hefur ekki klikkað hingað til. Hjalti hefur komið þangað. Þormóður þarf að hefna en það er sýnd veiði en ekki gefin á þessum slóðum.

Þorgeir hefur aldrei opnað kexpakka án þess að klára hann, sest upp í bíl án þess að botna hann og aldrei farið út að hlaupa án þess að klára maraþon. Gjörsamlega hömlulaus. Einhvern tímann segir faðir tími stopp.

Við fáum smá pásu frá drápum og fókusinn fer á Þormóð sem glímir við þunglyndi og einmanaleika. Hann tekst á við það með því að taka upp á því að fífla konur. Það veit ekki á gott.

Var komið nóg af drápum? Ó nei! Þorgeir er holdgervingur vígamennskunnar. Hann gerir hins vegar mistök sem mögulega kunna að bíta hann í rassinn seinna meir. Hjalti veltir svo fyrir sér hvenær ostur er forn eður ei.