POPULARITY
Fyrirtækjaeigandinn Bjarni Thor og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson eru miklir 90's menn og þeir kíktu til Hafsteins í sérstakan 1994 vs. 1999 þátt. Hafsteinn stillti upp 12 kvikmyndum frá 1994 og setti þær á móti 12 kvikmyndum frá 1999. Strákarnir velja síðan í sameiningu einn sigurvegara í hverri lotu og komast að því í lokin hvort árið sé betra kvikmyndaár. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Forrest Gump sé betri en The Green Mile, hvort Ace Ventura sé betri en Office Space og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:12 - 1994 vs. 199907:46 - Pulp Fiction vs. Magnolia15:22 - The Shawshank Redemption vs. American Beauty21:54 - The Lion King vs. The Iron Giant28:04 - Ace Ventura vs. Office Space40:32 - Dumb and Dumber vs. Being John Malkovich53:39 - Leon vs. The Matrix1:08:01 - True Lies vs. Fight Club1:15:36 - Forrest Gump vs. The Green Mile1:25:30 - Once Were Warriors vs. The Insider1:35:01 - The Crow vs. The Sixth Sense1:39:16 - The Legends of the Fall vs. Eyes Wide Shut1:46:51 - Ed Wood vs. Sleepy Hollow1:56:18 - Almennt bíóspjall
Kvikmyndafræðingurinn Birgir Smári Ársælsson er mikill Star Wars áhugamaður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða fjórðu Disney+ Star Wars seríuna, Andor. Birgir og Hafsteinn ræða meðal annars hversu vönduð serían er, hversu sterk persónusköpun er í þáttunum og hvernig serían nær að sýna andspyrnuna í nýju ljósi. Strákarnir fara einnig aðeins út fyrir Andor og ræða Star Wars heiminn í heild sinni, hversu spennandi persóna Thrawn er, hvernig The Clone Wars styrkti prequel þríleikinn, hvort Star Wars eigi frekar heima í kvikmyndahúsum og margt, margt fleira.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Egill Nielsen, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel Hanssen og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon mættu til Hafsteins í Óskarsverðlaunaþátt en Hafsteinn kom þeim fyrst á óvart með stuttri spurningakeppni. Hafsteinn er að vinna í kvikmyndaspurningaspili sem hann ætlar að gefa út fyrir næstu jól og honum datt í hug að prófa nokkrar spurningar á strákunum. Úr varð skemmtileg keppni sem enginn má missa af!
Miðvikudagur 19. febrúar Úkraína, reynsluboltar, spilling, ópera, uppskera og kvóti Tjörvi Schiöth doktorsnemi greinir breytta stöðu í Úkraínu og Evrópu eftir stefnubreytingu ríkisstjórnar Trump í samtali við Gunnar Smára. Karl Garðarsson, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Steingerður Steinarsdóttir ræða málin við Sigurjón Magnúsi. Víða var komið við, í Úkraínu, hér og þar í Evrópu, í Hvíta húsi Trump, í borgarstjórn og ríkisstjórn. Þórður Snær Júlíusson er gestur Björns Þorlákssonar í umræðu um íslenska spillingu. Þórður er sérfræðingur íslensku efnahagslífi og ræðir það sem hann nefnir strokuspillingu. Þórunn Guðmundsdóttir samdi óperuna Hliðarspor til að framlengja söguna sem hófst í Rakaranum frá Sevilla og hélt áfram með Brúðkaupi Fígarós. Hún segir frá Gunnar Smára frá sýningunni með söngfólki: Hafsteinn Þórólfsson, Þórunn Guðmundsdóttir og Guðrún Brjánsdóttir. Uppskeruhátíð. Listakonurnar Kolbrún Dögg Kjartansdóttir og Margrét M. Norðdahl ræða við Oddnýju Eir um mikilvægi uppskeruhátíða í baráttu fyrir betra lífi. Björn Ólafsson, gamall sjómaður með meiru, ræðir fiskveiðiráðgjöf Hafró við nafna sinn Þorláksson með gagnrýnum hætti.
Sylvester Stallone og Arnold Schwarzenegger eru tvær af stærstu hasarstjörnum kvikmyndasögunnar. Þeir hafa báðir leikið í mörgum hasarmyndum sem eru af flestum taldar klassískar myndir í hasargeiranum. Á tímabili var mikil keppni á milli þeirra og Hafsteini fannst því tilvalin hugmynd að láta nokkrar af þeirra myndum keppa sín á milli. Hafsteinn fékk til sín Ísrael og Brynjólf til að hjálpa sér að finna út hvort Stallone eða Schwarzenegger sé með betri myndir. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Cliffhanger, Eraser, True Lies, Rambo II, Kindergarten Cop, Demolition Man, Tango & Cash og margt fleira. 00:00 - Intro 00:15 - Stallone vs. Schwarzenegger 07:24 - Cliffhanger vs. Eraser 23:41 - Tango & Cash vs. Twins 36:40 - Rocky vs. Predator 55:19 - Stop! or my Mom will Shoot vs. Kindergarten Cop 1:12:14 - Cobra vs. Commando 1:25:21 - Lock Up vs. Conan the Barbarian 1:37:50 - Rambo II vs. T2 1:54:33 - Demolition Man vs. True Lies 2:12:34 - Lokaorð
Andrés Ingi Jónsson, fráfarandi þingmaður Pírata, Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, og Hafsteinn Birgir Einarsson, stjórnmálafræðingur, voru gestir Vikulokanna laugardaginn 7. desember. Þau ræddu meðal annars um niðurstöður nýafstaðinna Alþingiskosninga og stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Auk þess þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, starfandi matvælaráðherra, að veita hvalveiðileyfi til fimm ára. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Kvikmyndagerðarmaðurinn Arnar Freyr Tómasson stakk upp á skemmtilegri hugmynd og Hafsteinn var svo sannarlega til í hana. Í þættinum varpa strákarnir fram sínum eigin umdeildum fullyrðingum varðandi eitthvað sem tengist kvikmyndum eða sjónvarpsseríum. Þeir ræða meðal annars hvort Prisoners sé betri en Seven, hvort Stranger Things séu ofmetnustu þættir allra tíma, hvort þessi Nicolas Cage hype lest sé fáránleg, hvort Star Wars sökki og margt, margt fleira.
Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum seinni hluta eru hóparnir ILLSKA (Kidda Svarfdal, Lovísa Lára og Jökull) og HASAR (Óli Bjarki, Máni og Ísrael)
Það er komið að þætti númer 300! Hafsteinn byrjaði með Bíóblaður fyrir fjórum árum síðan og hefur á þeim tíma fengið til sín fjölbreyttan og skemmtilegan hóp af gestum. Sumir af þessum gestum hafa orðið að fastagestum og Hafsteinn ákvað að bjóða 14 slíkum í þennan tímamótaþátt. Gestunum var skipt upp í 5 þriggja manna hópa og fengu allir hóparnir sitt eigið umfjöllunarefni. Í þessum fyrri hluta eru hóparnir DISNEY (Arnar Freyr og Egill Andri), SCI-FI (Kilo, Teitur Magnússon og Snorri) og BLOCKBUSTERS (Bjöggi, Höddi og Blaffi).
Sjónvarpsmaðurinn Hafsteinn Vilhelmsson hefur glatt landsmenn með brosi sínu og hæfileikum í Landanum og Sumarlandanum undanfarin ár auk þess að vinna með krökkunum í Krakkarúv. Hann var gestur Felix í Fimmunni og sagði af fimm manneskjum sem höfðu áhrif á líf hans. Haffi var ættleiddur af foreldrum sínum frá Sri Lanka fyrir 40 árum en bjó við ástríki og gott heimili alla tíð. Hann og kona hans, Gyða Kristjánsdóttir lentu svo í þeirri miklu sorg að missa frumburð sinn eftir erfið veikindi. Haffi sagði sögu sína og fólksins sem bjargaði lífi hans. Í síðari hlutanum sagði Felix af tónleikum Nick Cave og The Bad Seeds í Prag
ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 20. janúar 2023. Sjómaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Anthony Evans Berry er mikill Bíóblaður aðdáandi og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín og spjalla við hann um kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars dönsku myndina Speak No Evil og hversu mikil áhrif hún hafði á þá, hversu léleg Black Adam var, 90's myndir og hversu geggjaðar þær eru, Menace II Society og Boys N' the Hood, Steven Seagal og Out for Justice, hversu skemmtilegar 90's hasarhetjurnar voru og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og framleiðandinn Sandra Barilli byrjuðu með kvikmyndahlaðvarpið Vídjó árið 2021. Í hlaðvarpinu horfa þau saman á eina kvikmynd og spjalla síðan um hana í þætti hjá sér. Hugleikur og Sandra kíktu til Hafsteins og sögðu honum aðeins frá Vídjó og einnig kom Hafsteinn þeim á óvart með skemmtilegum leik. Í þættinum ræða þau meðal annars hvort Rocky sé ofmetin, hversu mikill asni Viddi er í Toy Story seríunni, hvernig Hugleikur og Sandra kynntust, hvort það væri sniðugt að sýna sex ára gömlu barni A Nightmare on Elm Street, hvort Titanic sé hin fullkomna deitmynd og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Ritstjóri hun.is og einn af stjórnendum hlaðvarpsins Fullorðins, Kidda Svarfdal, kíkti til Hafsteins og tók þátt í skemmtilegum leik sem Hafsteinn bjó til. Hafsteinn fann 15 kynæsandi kvikmyndaplaköt sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu og Kidda og Hafsteinn skiptust á að segja hvort þau væru virkilega heit eða ekki. Í þættinum ræða þau meðal annars hvort Jessica Alba sé með góð gen, hvort það sé kynæsandi að sjá Gerard Butler öskra framan á 300 plakatinu, hversu flottur Hugh Jackman er sem Wolverine, hvort Eva Green sé sexy í Sin City 2 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Smash.
Ísrael Daníel Hanssen hefur komið áður til Hafsteins og rætt Óskarsverðlaunin en Ísrael er algjör sérfræðingur þegar kemur að Óskarnum. Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín til að ræða eitthvað annað en Óskarinn og því mætti Ísrael með topp 10 listann sinn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu fullkomin ævintýramynd Jurassic Park er, hversu góður Marlon Brando er í The Godfather, hvort Steve Martin sé bestur í Three Amigos, hversu sturluð 90's tónlistin er í The Rock og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Ivy Björg er áhættuleikari, Parkour iðkandi og loftfimleikalistamaður. Ivy hefur líka gríðarlegan áhuga á kvikmyndum og kvikmyndagerð og Hafsteinn var því spenntur að fá hana til sín í fjölbreytt bíómyndaspjall. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu mikið Ivy elskar James Cameron, hvort hún væri til í að láta kveikja í sér sem áhættuleikari, hversu stórt Blu Ray safn hún á, hversu erfið Dahmer serían var, Cobra-Kai og karate bakgrunnurinn hennar Ivy og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hvaða áhrif Spider-Man 2 hefur á Óla, hversu góð Mána finnst The Silence of the Lambs vera, hversu mikið Hafsteinn elskar Pulp Fiction, hvernig The Fountain er ekki mynd fyrir alla og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu erfitt er að gera svona topp 10 lista, hvort The Rocketeer sé hin fullkomna ævintýramynd, hversu mikið Óli elskar For a Few Dollars More, af hverju Hafsteinn setur Barry Lyndon á listann sinn þrátt fyrir einungis eitt áhorf, Drakúla og hversu góður Bela Lugosi er í hlutverki greifans og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingurinn Hugleikur Dagsson keppir við kvikmyndasérfræðingana Óla Bjarka og Mána Frey í pökkuðum spurningaþætti! Óli og Máni hafa unnið tvær keppnir og virðast vera óstöðvandi og Hafsteinn ákvað því að fá mjög verðugan andstæðing til að keppa við þá. Hugleikur Dagsson er gríðarlega öflugur keppandi og hefur sjálfur unnið nokkrar kvikmyndaspurningakeppnir. Strákarnir skiptast á að svara alls konar kvikmyndaspurningum en þar á meðal eru spurningar um 70's glæpamyndir og 80's grínmyndir, leikstjóraspurningar og plakatspurningar. Þessi þáttur er algjört skylduáhorf fyrir alla kvikmyndaaðdáendur. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Árið er senn á enda og Hafsteinn ákvað að enda það með stæl með því að fá núverandi spurningameistarann, Snorra Guðmundsson, til að koma og verja titilinn sinn í 2023 spurningakeppni. Hafsteinn bauð einum Bíóblaðurs fastagesti, Gumma Sósu, til að keppa við Snorra en Gummi Sósa hefur komið sterkur inn sem þrælskemmtilegur gestur og verðugur andstæðingur. Strákunum var hinsvegar komið á óvart með öðrum keppanda, Oddi Klöts, en Oddur mætti óvænt í miðjum upptökum. Úr varð frábær keppni þar sem strákarnir skiptast á að svara 2023 kvikmynda og sjónvarpsþátta spurningum. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Rapparinn Kilo og leikarinn Villi Neto eru miklir kvikmyndaáhugamenn og grínistar. Strákarnir kíktu til Hafsteins til að keppa í skemmtilegri spurningakeppni. Hafsteinn samdi 60 spurningar sem allar snúast um grínmyndir að einhverju leyti. Í þættinum þurfa strákarnir meðal annars að svara almennum spurningum, flokkaspurningum og plakatspurningum. Hvað ár kom Mean Girls út? Hver var fyrsta myndin sem framleiðslufyrirtækið Happy Madison gaf út? Horfið á þáttinn til að komast að því. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Rappararnir Blaffi og Jói Dagur kíktu til Hafsteins til að fara í skemmtilegan leik. Hafsteinn samdi tíu fullyrðingar sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu. Strákarnir skiptust síðan á því að segja hvort fullyrðingin væri rétt eða röng. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Blaffi myndi lemja Ghostface en myndi líklegast vera stútað af Michael Myers, hversu mikið Jói Dagur elskar The Big Lebowski, hvort Omni-Man gæti drepið Superman, hvort Samuel L. Jackson sé svalari en Denzel Washington og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Rapparinn Kilo er einn af fastagestum Bíóblaðurs og einn sá vinsælasti. Stærri og skemmtilegri persónuleika er erfitt að finna og Hafsteinn var því spenntur að fá hann aftur í heimsókn. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er versta streymisveitan, hvaða mynd strákarnir ættu að horfa á saman í fyrsta commentary þætti Bíóblaðurs, hversu mikil áhrif Erika Eleniak hafði á þá þegar þeir voru unglingar, hvort Invincible sé betri en The Boys, hversu gamlir strákarnir eru orðnir, Blue Eye Samurai og hversu sturluð sú sería er og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Kvikmyndanördarnir Helgi, Haukur og Patrekur eru rosalegir Spider-Man aðdáendur og þeir kíktu til Hafsteins til að ræða þennan merkilega karakter. Í þessum þætti er einblínt á Tobey Maguire Spider-Man myndirnar en Hafsteinn stefnir á að gera sér þætti fyrir Andrew Garfield og Tom Holland. Í þessum þætti ræða strákarnir meðal annars hversu gamall Tobey var þegar hann lék í fyrstu myndinni, hversu frábær Willem Dafoe er sem Green Goblin, hversu vel Spider-Man 2 sýnir hversu stressandi það væri að vera ofurhetja eins og Spider-Man, Alfred Molina og hans frammistöðu sem Doc Ock, hvernig Raimi hefði mögulega getað nýtt Kristen Dunst betur sem Mary Jane, hversu gölluð en skemmtileg Spider-Man 3 er, hvernig Topher Grace stóð sig sem Eddie Brock/Venom og margt, margt fleira. Þátturinn er rétt tæpir 3 klukkutímar. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Hafsteinn Gunnar segir frá nýju kvikmyndinni sinni Northern Comfort og við ræðum flughræðslu og tölum að sjálfsögðu um kvíða.
Hafsteinn Gunnar segir frá nýju kvikmyndinni sinni Northern Comfort og við ræðum flughræðslu og tölum að sjálfsögðu um kvíða.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Ofurhetjusérfræðingarnir Gummi Sósa, Raggi Ólafs, Fannar Gilberts og Ari Ólafs kíktu til Hafsteins til að ræða bardaga upp á líf og dauða milli DC karaktera og Marvel karaktera. Hafsteinn setti saman fimm bardaga þar sem DC karakter keppir við Marvel karakter. Strákarnir reyna síðan í sameiningu að finna út hvor myndi vinna bardagann. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Ultron gæti rústað Brainiac, hvort The Wasp kæmist inn í heilann á Poison Ivy, hvernig Spider-Man myndi ganga á móti Clayface og Cyborg, hvort Aquaman þyrfti aðstoð við að drepa Namor og margt, margt fleira. Þátturinn er 93 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Jason Thompson is a tattoo artist and the owner of Black Kross Tattoo, a tattoo shop in Kópavogur. Jason is originally from Ohio but has lived in Iceland for almost 20 years with his wife and kids. Jason is not only an artist but he is also a self-described “Movie Ninja”. Jason wrote down his ten favorite movies and shared them with Hafsteinn. Among the things the guys talk about is Jason's background, the time when he decided to leave America and move to Iceland, his time living in the deep South, his love for Martin Scorsese, how cool Jason Statham movies are (apart from the Meg), how Joe Pesci is the acting gift that keeps on giving, how Jason doesn't enjoy movies that make him sad or make him think, his love for Quentin Tarantino movies and much, much more. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Við héldum áfram yfirferð okkar um leikhúsin og leikveturinn framundan. Í dag kom til okkar Brynhildur Guðjónsdóttir og hún sagði okkur frá því hvað er á döfinni í vetur í Borgarleikhúsinu. Hafsteinn Pálsson í Miðkoti á Dalvík er einn öflugasti safnari íslenskrar tónlistar á landinu. Hann hefur ekki tölu á þeim plötum,geisladiskum og kasettum sem hann hefur safnað í gegnum tíðina en það eru flestar hirslur á heimilinu fullar af þessum dýrgripum. Heilt herbergi í húsinu hans er til dæmis alveg smekkfullt, allar hillur og skúffur og sér vart í veggina. Guðrún Gunnars fór og heimsótti Hafstein í Miðkot, fyrr í sumar. Tónlist í þætti dagsins: Kósíkvöld í kvöld / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Love for Sale / Ella Fitzgerald (Cole Porter) Sail on / Regína Ósk (Jóhann Helgason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við héldum áfram yfirferð okkar um leikhúsin og leikveturinn framundan. Í dag kom til okkar Brynhildur Guðjónsdóttir og hún sagði okkur frá því hvað er á döfinni í vetur í Borgarleikhúsinu. Hafsteinn Pálsson í Miðkoti á Dalvík er einn öflugasti safnari íslenskrar tónlistar á landinu. Hann hefur ekki tölu á þeim plötum,geisladiskum og kasettum sem hann hefur safnað í gegnum tíðina en það eru flestar hirslur á heimilinu fullar af þessum dýrgripum. Heilt herbergi í húsinu hans er til dæmis alveg smekkfullt, allar hillur og skúffur og sér vart í veggina. Guðrún Gunnars fór og heimsótti Hafstein í Miðkot, fyrr í sumar. Tónlist í þætti dagsins: Kósíkvöld í kvöld / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Love for Sale / Ella Fitzgerald (Cole Porter) Sail on / Regína Ósk (Jóhann Helgason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Ofurhetjusérfræðingarnir Gummi Sósa, Raggi Ólafs, Fannar Gilberts og Ari Ólafs kíktu til Hafsteins til að ræða bardaga upp á líf og dauða milli DC karaktera og Marvel karaktera. Hafsteinn setti saman fimm bardaga þar sem DC karakter keppir við Marvel karakter. Strákarnir reyna síðan í sameiningu að finna út hvor myndi vinna bardagann. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Doomsday myndi vinna Hulk, hvort öskrið hjá Black Canary væri nóg til að rústa Gamora, hvort Bane næði að kremja hausinn á Kraven og margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Hafsteinn Þór Guðjónsson eða Haffi Haff skaust fram á sjónarsviðið eftir vaska framgöngu í undankeppni Eurovision. Síðan þá hefur hann komið fram víða og vakið athygli hvert sem hann fer. Í þættinum fara Sölvi og Haffi yfir feril Haffa, pólariseringu í samfélaginu, trúnna, það að mega vera öðruvísi og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Hafsteinn Númason hefur gengið í gegnum meira en flestir. Hann hefur misst 4 börn, þar af 3 í snjóflóðinu á Súðavík, auk þess að lenda svo sjálfur í alvarlegu slysi. Í þættinum ræða Hafsteinn og Sölvi um atburðina fyrir vestan, þrautseigju, trúna á guð, tilgang og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
Fyrir nokkrum mánuðum stofnuðu Hafsteinn og Jóhann Leplat Ágústsson, í samstarfi við Sambíóin Kringlunni, bíóklúbbinn Bíótöfra. Klúbburinn sýnir eldri og klassískar kvikmyndir einu sinni í mánuði í Sal 1 í Sambíóunum Kringlunni. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvernig þeim fannst þessar fyrstu fimm sýningar hafa gengið, hvað er framundan, hvaða kvikmynd væri þeirra draumakvikmynd að sýna og margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Umsjón: Lovísa Rut Lovísa Rut stýrði Popplandi dagsins, hinseginleiki í hávegum í þessum þætti, Arnar Eggert og Andrea Jóns gerðu upp plötu vikunnar, Góðan Daginn Faggi úr samnefndum söngleik eftir Bjarna Snæbjörnsson. Nýtt lag frá Hipsumhaps, Jungle, Maiaa, Sváfni Sig og fleirum. Hafsteinn Þórólfsson - Ég er eins og ég er (Gay Pride lagið 2003). DIANA ROSS - I'm Coming Out (12' Mix). SAM SMITH FT. KIM PETRAS - Unholy. Bombay Bicycle Club - My Big Day. MUGISON - Stóra stóra ást. PÁLL ÓSKAR - Galið Gott. FRANK OCEAN - Thinkin Bout You. FRANK OCEAN - Bad Religion. Bubbi Morthens - Strákarnir á Borginni. PAUL SIMON - Me And Julio Down By The Schoolyard. Jungle - Back On 74. Unnsteinn Manuel - Lúser. MAIAA - DEE DEE. Bjarni Snæbjörnsson, Axel Ingi Árnason - Góðan daginn, faggi. Bjarni Snæbjörnsson, Axel Ingi Árnason - Skuggalag. Bjarni Snæbjörnsson, Axel Ingi Árnason - Hæhæ II. BJARNI SNÆBJÖRNSSON - Næs (Lag Hinsegin daga 2022). QUEEN - I want to break free. BJÖRK - Army Of Me. Beatles, The - You've got to hide your love away. GENESIS - Land Of Confusion. JESSIE WARE - Pearls. Taylor Swift - Cruel Summer. JÓNAS SIG - Vígin falla. QUEENS OF THE STONE AGE - Paper Machete. T.A.T.U. - All Things She Said. LOU REED - Walk On The Wild Side. Kara Jackson - Pawnshop. Gossip - Heavy Cross. PÍLA - Nobody. Grace Jones - Libertango. JAIN - Makeba. PRINS POLO - Líf ertu að grínast. PEGGY GOU - (It Goes Like) Nanana. KLEMENS HANNIGAN - Spend Some Time on Me Baby. DAVID BOWIE - Boys Keep Swinging. VERA DECAY - Someone Bad. Sváfnir Sigurðarson - Aska & Gull. BRONSKI BEAT - Smalltown Boy. BASSI MARAJ - Pride. LADY GAGA - Born This Way. DUA LIPA - Dance the Night. SISTER SLEDGE - We Are Family. UNA TORFA - Þú ert Stormur.
Umsjón: Lovísa Rut Lovísa Rut stýrði Popplandi dagsins, hinseginleiki í hávegum í þessum þætti, Arnar Eggert og Andrea Jóns gerðu upp plötu vikunnar, Góðan Daginn Faggi úr samnefndum söngleik eftir Bjarna Snæbjörnsson. Nýtt lag frá Hipsumhaps, Jungle, Maiaa, Sváfni Sig og fleirum. Hafsteinn Þórólfsson - Ég er eins og ég er (Gay Pride lagið 2003). DIANA ROSS - I'm Coming Out (12' Mix). SAM SMITH FT. KIM PETRAS - Unholy. Bombay Bicycle Club - My Big Day. MUGISON - Stóra stóra ást. PÁLL ÓSKAR - Galið Gott. FRANK OCEAN - Thinkin Bout You. FRANK OCEAN - Bad Religion. Bubbi Morthens - Strákarnir á Borginni. PAUL SIMON - Me And Julio Down By The Schoolyard. Jungle - Back On 74. Unnsteinn Manuel - Lúser. MAIAA - DEE DEE. Bjarni Snæbjörnsson, Axel Ingi Árnason - Góðan daginn, faggi. Bjarni Snæbjörnsson, Axel Ingi Árnason - Skuggalag. Bjarni Snæbjörnsson, Axel Ingi Árnason - Hæhæ II. BJARNI SNÆBJÖRNSSON - Næs (Lag Hinsegin daga 2022). QUEEN - I want to break free. BJÖRK - Army Of Me. Beatles, The - You've got to hide your love away. GENESIS - Land Of Confusion. JESSIE WARE - Pearls. Taylor Swift - Cruel Summer. JÓNAS SIG - Vígin falla. QUEENS OF THE STONE AGE - Paper Machete. T.A.T.U. - All Things She Said. LOU REED - Walk On The Wild Side. Kara Jackson - Pawnshop. Gossip - Heavy Cross. PÍLA - Nobody. Grace Jones - Libertango. JAIN - Makeba. PRINS POLO - Líf ertu að grínast. PEGGY GOU - (It Goes Like) Nanana. KLEMENS HANNIGAN - Spend Some Time on Me Baby. DAVID BOWIE - Boys Keep Swinging. VERA DECAY - Someone Bad. Sváfnir Sigurðarson - Aska & Gull. BRONSKI BEAT - Smalltown Boy. BASSI MARAJ - Pride. LADY GAGA - Born This Way. DUA LIPA - Dance the Night. SISTER SLEDGE - We Are Family. UNA TORFA - Þú ert Stormur.
Vinkonurnar Stella Björk Guðmundsdóttir og Lára Guðmundsdóttir eru miklir true crime aðdáendur og í kjölfarið byrjuðu þær með hlaðvarp sem kallast Morðaforði. Stelpurnar fjalla þar um alvöru fjöldamorðingja og önnur hryllileg mál. Hafsteinn fékk þær í heimsókn til sín til að ræða kvikmyndamorðingja og fá þeirra álit á þeim. Hafsteinn bjó til leik handa þeim þar sem Stella og Lára þurfa að gefa þekktum kvikmyndamorðingjum einkunn út frá því hversu ógnvekjandi þeim finnst þeir vera. Í þættinum ræða þau einnig Jeffrey Dahmer seríuna, Barbarian, Memories of Murder, Paradise Lost, hversu scary Jason Vorhees er, hvort Stella myndi treysta sér til að eiga Chucky dúkkuna og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Framleiðandinn Björgvin Harðarson kíkti til Hafsteins með sinn topp 10 lista. Bjöggi og Hafsteinn hafa þekkst í 35 ár og Bjöggi er einn af fastagestum Bíóblaðurs. Bjöggi hefur samt aldrei komið í topp 10 þátt áður og Hafsteini fannst alveg tímabært að ræða uppáhalds myndirnar hans Bjögga. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig í ósköpunum Doc Brown og Marty McFly kynntust, hvort Saving Private Ryan sé besta stríðsmynd sem hefur verið gerð, hversu vel Seven eldist, hversu mikið Bjöggi elskar 90's myndir og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) — Star Wars áhugamennirnir Kjartan Rúnarsson, Ægir Líndal og Óðinn Gunnarsson kíktu til Hafsteins í skemmtilegan Rétt eða Rangt: Star Wars leik. Hafsteinn samdi 12 Star Wars fullyrðingar sem strákarnir skiptast á að segja hvort séu réttar eða rangar. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort The Mandalorian sé betri sería en Andor, hvort Rey Skywalker sé betri karakter en Princess Leia, hvort Darth Maul sé svalari en Kylo Ren og margt, margt fleira. Þátturinn er 130 mínútur. Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstjóri stimplaði sig rækilega inn árið 2007, með sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd, Á annan veg. Í kjölfarið komu París norðursins 2014 og Undir trénu 2017 og það styttist í hans nýjustu mynd, sem kallast Northern Comfort. Þar að auki hefur Hafsteinn gert stuttmyndir og heimildamyndir og um páskana verður Afturelding, hans fyrsta þáttasería, frumsýnd hér á RÚV. Hafsteinn Gunnar verður gestur okkar í svipmynd dagsins. En við hefjum þáttinn á leikhúsrýni. Eitt vinsælasta sviðsverk allra tíma var frumsýnt í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. Nína Hjálmarsdóttir sá verkið. Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstjóri stimplaði sig rækilega inn árið 2007, með sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd, Á annan veg. Í kjölfarið komu París norðursins 2014 og Undir trénu 2017 og það styttist í hans nýjustu mynd, sem kallast Northern Comfort. Þar að auki hefur Hafsteinn gert stuttmyndir og heimildamyndir og um páskana verður Afturelding, hans fyrsta þáttasería, frumsýnd hér á RÚV. Hafsteinn Gunnar verður gestur okkar í svipmynd dagsins. En við hefjum þáttinn á leikhúsrýni. Eitt vinsælasta sviðsverk allra tíma var frumsýnt í Borgarleikhúsinu um liðna helgi. Nína Hjálmarsdóttir sá verkið. Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson
Loksins tölum við um allt Don't Worry Darling dramað!! Harry Styles og Olivia Wilde hafa verið á milli tannanna hjá nánast öllum síðan myndin Don't Worry Darling kom út! Við gátum auðvitað ekki rætt þetta bara tvær og þurftum að fá bíomynda SÉRFRÆÐING, þá kom enginn annar en Hafsteinn úr podcastinu Bíoblaður! Ps. ef þú ert ekki búin að sjá myndina þá geturðu hlustað á hálfan þáttinn, þar eru ekki spoilerar! Þátturinn er í boði: Subway - https://subway.is/ Smitten - https://www.smitten.is/SFlt/tebodid Box Magasín - https://box12.is/ Real Techniques Laugar Spa - https://organicskincare.is/
https://solvitryggva.is/ Hafsteinn Þór Guðjónsson eða Haffi Haff skaust fram á sjónarsviðið eftir vaska framgöngu í undankeppni Eurovision. Síðan þá hefur hann komið fram víða og vakið athygli hvert sem hann fer. Í þættinum fara Sölvi og Haffi yfir feril Haffa, pólariseringu í samfélaginu, trúnna, það að mega vera öðruvísi og margt fleira.
https://solvitryggva.is/ Hafsteinn Númason hefur gengið í gegnum meira en flestir. Hann hefur misst 4 börn, þar af 3 í snjóflóðinu á Súðavík, auk þess að lenda svo sjálfur í alvarlegu slysi. Í þættinum ræða Hafsteinn og Sölvi um atburðina fyrir vestan, þrautseigju, trúna á guð, tilgang og margt fleira.
Gestur þáttarins er Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjumaður, sem var að senda frá sér nýja bók. Garðyrkja og grasafræði hafa alla tíð verið hans ær og kýr. Hafsteinn segir að blóm veiti gleði og viðurkennir fúslega að hann talar við þau.
Gestur þáttarins er Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjumaður, sem var að senda frá sér nýja bók. Garðyrkja og grasafræði hafa alla tíð verið hans ær og kýr. Hafsteinn segir að blóm veiti gleði og viðurkennir fúslega að hann talar við þau.
Gestur þáttarins er Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjumaður, sem var að senda frá sér nýja bók. Garðyrkja og grasafræði hafa alla tíð verið hans ær og kýr. Hafsteinn segir að blóm veiti gleði og viðurkennir fúslega að hann talar við þau.
Gestur þáttarins er Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjumaður, sem var að senda frá sér nýja bók. Garðyrkja og grasafræði hafa alla tíð verið hans ær og kýr. Hafsteinn segir að blóm veiti gleði og viðurkennir fúslega að hann talar við þau.
Læknir sem sætir lögreglurannsókn vegna sex andláta á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja starfar áfram á Landspítalanum undir eftirliti sérfræðinga spítalans. Von er á tólf þúsund barnaskömmtum af bóluefni gegn covid fyrir áramót og til skoðunar er að bólusetja börn á aldrinum fimm til ellefu ára, segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, Alma Ómarsdóttir ræddi við hann. Það herðir enn á sigi íshellunnar yfir Grímsvötnum. Hún hefur sigið um rúman metra síðustu tvo sólarhringa. Grunur er um að veira sem veldur blóðþorra í laxi sé í sjókví Laxa fiskeldis í Reyðarfirði. Landssamband veiðifélaga vill að öllum laxinum verði slátrað. Þórgnýr Einar Albertsson ræddi við Jón Helga Björnsson formann landssambandsins og Jens Garðar Helgason frkvstj. Laxa. Frá og með miðnætti verður hægt að framvísa neikvæðu PCR-prófi eða staðfestingu á fyrra kórónuveirusmiti til að komast inn á viðburði. Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri segir þetta til bóta og í takt við ábendingar viðburðahaldara. Anna Lilja Þórisdóttir ræddi við hann. --- Nýtt þaulstökkbreytt afbrigði kórónuveirunnar, kennt við Botswana í Afríku, kann að vera bakslagið sem sérfræðingar hafa óttast í baráttunni við veiruna. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman og ræddi við Magnús Gottfreðsson smitsjúkdómalækni og Mögnu Björk Ólafsdóttur, bráðahjúkrunarfræðing og sérfræðing á COVID-sviði Alþjóðarauðakrossins í Genf í Sviss. Heyrist líka í Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Alþingi samþykkti í gær kjörbréf allra 63 þingmanna. Hafsteinn Þór Hauksson dósent í stjórnskipunarrétti segir að fram hafi komið fram ýmis lagasjónarmið um áhrif annmarka á talningu og meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Hann telur að vel geti komið til þess að málið endi hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Hver sem niðurstaða þess dómstóls yrði sé hún ekki bindandi að landsrétti. Lög þau sem starfandi þing samþykkir gildi. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Björg Guðlaugsdóttir
Rýmingu vegna skriðuhættu hefur verið aflétt í Kinn í Suður-ÞIngeyjarsýslu utan tveggja bæja í Útkinn. Íbúar í 9 húsum sem voru rýmd á Seyðisfirði fá ekki að fara heim fyrr en eftir helgi. Bændur eru ósammála þeirri skoðun fyrrverandi yfirdýralæknis að skera þurfi allt fé í Húna- og Skagahólfi til að uppræta riðu á svæðinu. Unnsteinn Snorri Unnsteinsson verkefnastjóri hjá Bændasamtökunum segir að menn þurfi að meta umfang smitsins áður en gripið sé til aðgerða. Bjarni Rúnarsson ræddi við hann. Offita barna er samfélagsleg áskorun og krefst markvissra aðgerða segir Ása Sjöfn Lórensdóttir, fagstjóri heilsuverndar skólabarna. BRynja Þorgeirsdóttir ræddi við hana og fjallað er um málið í fréttaþættinum Kveik. ARnar Framkvæmdastjóri nokkurra skemmtistaða í miðbæ Reykjavíkur skilur ekki hvers vegna opnunartími veitinga- og skemmtistaða var ekki lengdur í nýjum sóttvarnareglum. Margar krár stefni í þrot. Karl Frímannsson, fræðslustjóri Akureyrarbæjar segir rakningarteymið ganga lengra á Akureyri en reglur um sóttkví segja til um. 80 eru í einangrun og nærri þúsund í sóttkví í bænum. Óðinn Svan Óðinsson ræddi við Karl. Yfirvöld í Danmörku hafa gert yfir fimm hundruð bíla upptæka síðastliðna sex mánuði, þar sem ökumenn þeirra gerðust sekir um háskalegan akstur. Ásgeir Tómasson sagði frá. -------- Það er Alþingis að kveða uppúr um niðurstöður kosninga og gildi kjörbréfa en það hefur ýmsa kosti, segir Hafsteinn Þór Hauksson dósent í lögum og stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands. Ákvörðun um kjörbréf í Norðvesturkjördæmi er ekki endilega eins augljós og margir vilja vera láta. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann. Margar viðvörunarbjöllur klingja vegna aukinnar hættu á skriðuföllum að mati Þorsteins Sæmundssonar jarðfræðings. Hann segir að það þurfi sárlega að mennta fleira fólk til að til að meta hættuna og auka rannsóknir og vöktun á fjallshlíðum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hann. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
Hafsteinn Ægir Geirsson er einn albesti hjólari landsins. Hann hefur unnið Bláa Lóns þrautina í fjallahjólreiðum 11 sinnum og er sömuleiðis margfaldur Íslandsmeistari í götuhjólreiðum. Ekki nóg með að ná langt í hjólreiðum hefur hann farið á tvenna ólympíuleika í allt annarri íþrótt: siglingum. Hafsteinn segir okkur frá því hvernig hann fann sig í siglingunum sem ungur strákur, hætti í menntaskóla eftir lítinn stuðning frá skólastjóra, flutti til Suður-Frakklands, keppti á tvennum ólýmpíuleikum áður en hann yfirgaf íþróttina til að gerast Íslandsmeistari í annarri. Skiptin á milli íþrótta eiga við einhver rök að styðjast þar sem hann tók styrk í löppum, þrautseigju og brjálað keppnisskap með sér milli íþrótta.