POPULARITY
Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem hafa í 35 ár unnið að mannréttindum barna víðs vegar um heiminn. Tótla I. Sæmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Barnaheilla kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá helstu verkefnum samtakanna um þessar mundir, til dæmis á vettvangi í Gaza og Tyrklandi, eftir að stóri jarðskjálftinn reið þar yfir. Hún er nýkomin af fundi framkvæmdastjóra samtakanna í Istanbul þar sem verið var að leggja línurnar fyrir árið og þau verkefni sem samtökin ætla að leggja á og hún sagði okkur frá því í viðtalinu. Ástvaldur Zenki Traustason kom svo í þáttinn og talaði við okkur um heilsuna, Zenbúddisma og tónlist. Hann er með tónleika sem hann nefnir Stefnumót við lífið. Hann sagði okkur betur frá þessu. Að lokum kom til okkar Dr. María Rún Bjarnadóttir, yfirmaður netöryggismála hjá ríkislögreglustjóra, en hún kynnti í gær rannsóknarniðurstöður frá Íslandi, Danmörku og Svíþjóð þar sem varpað var ljósi á gerendur í málum sem snúa að stafrænu kynferðisofbeldi. Gerendur voru kortlagðir út frá aldri, kyni og tengslum þeirra við þolendur og svo voru hvatarnir á bak við brotin skoðuð. María Rún sagði okkur frá helstu niðurstöðunum í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Borð fyrir tvo / Hjálmar (Bragi Valdimar Skúlason) Faðmlag / Kristjana Stefánsdóttir ( Kristjana Stefánsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson) Gleym mér ei / Lay Low (Bubbi Morthens) Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við kynntum okkur starfsemi Gleymmérei styrktarfélags sem er til staðar fyrir þau sem verða fyrir missi á meðgöngu og í eða eftir fæðingu. Félagið er á sínu tíunda starfsári og framundan eru til dæmis samverustundir í Sorgarmiðstöðinni annan hvern fimmtudag nú í haust. Þær Ingunn Sif Höskuldsdóttir, stjórnarformaður Gleymmérei og Hólmfríður Anna Baldursdóttir, sem situr í stjórn félagsins, komu í þáttinn í dag og fræddu okkur um starfsemina, samverustundirnar og árlega minningarstund sem verður haldin 15.október. Við héldum áfram í dag að fara yfir leikveturinn sem er að hefjast. Í þetta sinn kom til okkar Sara Martí Guðmundsdóttir leikhússtjóri í Tjarnarbíói. Hún sagði okkur frá því hvað verður á döfinni í Tjarnarbíói í vetur, þar sem frjálsu leik- og sviðlistahóparnir hafa blómstrað. Og svo að lokum heyrðum við í Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðingi sem í dag var stödd í Malmö í Svíþjóð en þar þinga veðurfræðingar víðs vegar úr heiminum. Þar er til dæmis verið að skoða það nýjasta í veðurtunglum og hvernig þau nýtast veðurfræðingum. Tónlist í þættinum Pólstjarnan / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Ágúst Pétursson og Kristján frá Djúpalæk) Gong-oh / Paolo Conte (Paolo Conte) Che cossè l'amor / Vinicio Caposella (Vinicio Caposella) Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Þórður Árnason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Gleym mér ei er félag sem er til staðar fyrir þá sem verða fyrir missi á meðgöngu eða stuttu eftir fæðingu. Gleym mér ei er styrktarfélag sem styrkir ýmis málefni í tengslum við missi barns á meðgöngu og í/eftir fæðingu. Við fræddumst um starfsemi félagsins í þættinum í dag og þær Þórunn Pálsdóttir, ljósmóðir og ein af stofnendum félagsins, og Árný Heiða Helgadóttir komu í spjall. Við fengum pistil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag eins og undanfarna mánudaga. Hann kallar pistla sína vinkla og í dag bar Guðjón vinkil dagsins við þjóðveginn og sendi örlítinn virðingarvott til afa síns í leiðinni. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Olav Veigar Davíðsson stjórnmálafræðingur og þýðandi hjá utanríkisráðuneytinu. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum í dag: Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Arietta / Dag Arnesen Trio (Edvard Grieg) Harðsnúna Hanna / Ðe lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Næsti þáttur verður þáttur númer 100 og hvernig er eiginlega betra að fagna því en með gjafaleik?? Og svo getum við auðvitað ekki hætt að tala þannig þessi örstutti kynningarþáttur á gjafaleiknum endaði í 45min spjalli. Hvern langar ekki að vera með skærhvítar tennur með glænýjan flottan bakpoka í ferðalagi og koma svo heim og sjá fallegt plakat af Gleym-mér-ei jurtinni? Takk Hrím Hönnunarhús fyrir að taka þátt í þessu með okkur!! Kíkið á okkur á Instagram: Jaelskan - þar förum við yfir reglurnar
Fyrir tveimur árum undrirrituðu fjögur grasrótarfélög á sviði sorgarúrvinnslu viljayfirlýsingu um stofnun Sorgarmiðstöðvar. Félögin eru: Ný dögun, Birta, Ljónshjarta og Gleym mér ei. Fólk var sammála um að bæta þyrfti þjónustu við syrgjendur, því sú aðstoð sem byðist væri of dreifð, ómarkviss og af ýmsu tagi. Æskilegast væri að koma upp miðstöð þar sem syrgjendur og aðrir gætu gengið að upplýsingum og þjónustu á einum stað, með símtali, heimsókn eða á vefsíðu. 12. september 2019 tók Sorgarmiðstöð svo formlega til starfa í Lífsgæðasetri St. Jósepsspítala í Hafnarfirði um leið og heimasíðan var opnuð. Þær Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir og Ína Ólöf Sigurðardóttir komu í þáttinn. Svo var það Heimur ostanna, í dag fengum við fjórða þáttinn í smáþáttaröðinni og í dag fjölluðu þau Svavar Halldórsson og Eirný Sigurðardóttir um Camenbert, Brie og aðra hvítmygluosta. Hvaðan þeir koma, hvað einkennir þá og hvernig er best að njóta þeirra?. Ostaunnendur og sælkerar leggið við hlustir. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Við fengum að vita hvaða bækur eru á náttborðinu hjá henni, hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Hún er hlaupalegend sem var að hlaupa Laugaveginn. Hún er mögnuð og yndisleg og temur sér ótrúlega jákvætt og fallegt lífsviðhorf eftir að hafa gengið í gegnum mikla erfiðleika síðastliðið haust. Hún er Gréta Rut og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um hlaupið, innblástur og markmið, hvernig lífið heldur áfram eftir áföll og hvað er mikilvægast við lífið. Enn fremur ræddum við um samtökin Gleymérei sem Gréta ætlar að hlaupa fyrir í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst, en hún og kærastinn hennar Ragnar eignuðust andvana dreng í október síðastliðinn. Segir hún samtökin hafa gert mikið fyrir þau og hjálpað þeim að varðveita fallegar minningar litla Hinriks Leós. Tune in
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona, hefur starfað í sjónvarpi, útvarpi og nú skrifar hún meðal annars um bíla í Morgunblaðið. Hún segist vera forfallinn tækja- og adrenalínsjúklingur með flugbakteríu á lokastigi. Með tilliti til þess er hún komin nú í draumastöðu þar sem hún hefur tækifæri til að prófa allar týpur af bílum og rýna í kosti þeirra og galla. Ég rak til dæmis augun í grein hennar um nýjan rafmagnsbíl frá Mercedes Benz. Sigríður Elva kom í þátinn í bíladelluspjall um nýjustu rafbílana og sagði okkur aðeins frá fisflugi. Í Reykjavíkurmaraþoninu er hægt, eins og reyndar undanfarin ár, að hlaupa og safna fé fyrir góðan málstað. Anna Sigrún Baldursdóttir ætlar að hlaupa til styrktar Gleym-mér-ei Styrktarfélag, en það félag er með þann tilgang að halda utan um styrktarsjóð sem notaður er til að styrkja ýmis verkefni í tengslum við missi barns á meðgöngu og í/eftir fæðingu. Anna Sigrún kom í þáttinn og sagði sína sögu, en hún missti barn við fæðingu árið 1995. Golfsumarið er í fullum gangi, golfvellir landsins koma einstaklega vel undan vetri og golkylfum er sveiflað af kappi um allt land með það markmið að koma litlu hvítu kúlunni ofan í þar til gerðar holur. Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands kom í þáttinn og fór yfir stöðuna í golfi á Íslandi. UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði æfir íslensk-breski leikhópurinn Rokkur Friggjar nýtt verk. Verkið heitir Forget-Me-Nots eða Gleym-mér-Eyjar og gerist í Hvalfirðinum árið 1940. Leikritið er ástandssaga frá nýju sjónarhorni og sýnir ástarsamband milli tveggja karlmanna. Þessi hlið ástandsins hefur fengið litla sem enga umfjöllun, og hefur leikópurinn lagt sig fram um að gera sína eigin rannsóknarvinnu meðfram æfingum. Í gegnum þá vinnu hafa þau komist í samband við fulltrúa frá breska hernum, en herinn hefur sýnt verkinu mikinn áhuga og bauð hópnum að koma á Edinborgarhátíðina á sínum vegum. Sara Líf Magnúsdóttir, einn af listrænum stjórnendum hópsins kom í þáttinn.
Í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði æfir íslensk-breski leikhópurinn Rokkur Friggjar nýtt verk. Verkið heitir Forget-Me-Nots eða Gleym-mér-Eyjar og gerist í Hvalfirðinum árið 1940. Leikritið er ástandssaga frá nýju sjónarhorni og sýnir ástarsamband milli tveggja karlmanna. Þessi hlið ástandsins hefur fengið litla sem enga umfjöllun, og hefur leikópurinn lagt sig fram um að gera sína eigin rannsóknarvinnu meðfram æfingum. Í gegnum þá vinnu höfum við komist í samband við fulltrúa frá breska hernum, en herinn hefur sýnt verkinu mikinn áhuga og bauð okkur að koma á Edinborgarhátíðina á sínum vegum. Sara Líf Magnúsdóttir, einn af listrænum stjórnendum hópsins kom í þáttinn. Um 370 nemendur á aldrinum 12-16 ára eru sestir á skólabekk í Háskóla unga fólksins í Háskóla Íslands til að m.a. kynnast undrum vísindanna. Um metfjölda nemenda er að ræða. Framboð námskeiða hefur heldur aldrei verið meira í skólanum en nemendur gátu valið úr 58 námskeiðum af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands. Frumkvöðlafræði, hjúkrunarfræði, kvikmyndafræði , ritlist - ritsmiðja, sjálfsmyndarýni og sjúkraþjálfun eru meðal nýrra námskeiða sem í boði verða. Við hringdum í Kristínu Ásu Einarsdóttur, skólastjóra Háskóla unga fólksins í þættinum. Í póstkortinu sem við fengum frá Magnúsi R. Einarssyni í París í dag sagði hann frá sumarhitum og kaffihúsahangsi og þeim óskrifuðu reglum sem gilda um slíkt hangs í borginni. Magnús talaði líka líka um væntingar fransmanna um góðan árangur á heimsmeistaramótinu í Moskvu og ennfremur um hvernig hægt er að sjá fyrir úrslit leikja með því að spá í þjóðsöngva. Að lokum sagði Magnús frá byltingunni sem var gerð 1871, hungursneyðinni sem olli henni og svo víkur frásögninni til vertsins í fimmta hverfi Parísar sem fann ástina sína í Bláa lóninu. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansso
Fyrstu lögin sem Svavar Lárusson tók upp hljóma í þættinum. Þau voru hljóðrituð 1952, 1953 og 1954: Hreðavantsvalsinn, Ég vildi ég væri, Fiskimannaljóð frá Capri, Sólskinið sindrar, Cara Cara Bella, On The Morning of the Mountain, Í Mílanó, Út við hljómskála, Til þín, Svana í Seljadal, Húmsins skip, Gleym mér ei og Sjana síldarkokkur.

Fyrstu lögin sem Svavar Lárusson tók upp hljóma í þættinum. Þau voru hljóðrituð 1952, 1953 og 1954: Hreðavantsvalsinn, Ég vildi ég væri, Fiskimannaljóð frá Capri, Sólskinið sindrar, Cara Cara Bella, On The Morning of the Mountain, Í Mílanó, Út við hljómskála, Til þín, Svana í Seljadal, Húmsins skip, Gleym mér ei og Sjana síldarkokkur. Svavar fæddist 7. maí 1930 á Neskaupsstað og lést 28. júlí 2023. Umsjón: Jónatan Garðarsson.