Ef þig langar að hlusta á eitthvað smá uppbyggilegt en sturlað skemmtilegt þá ertu á réttum stað! Kristjana Benediktsdóttir og Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir leiða ykkur í gegnum allt og ekkert. Instagram: jaelskan Email: jaelskanpodcast@gmail.com Hönnuður á cover mynd: Una María Magnúsdóttir Jón Egill upprunalegur hugmyndasmiður
Síðan árið 2011 hafa 12 manns dáið í Asiu fyrir það eitt að syngja My way með okkar manni Frank Sinatra í karaoke. The my way killings er yfirheiti yfir þau ótal mörgu morð sem að hafa verið framin á saklausu fólki sem hélt að það réði við My way í karaoke. Við mælum með að fara til Asíu og henda í My way.. test your luck
Savant Syndrome er heilkennið sem lætur þig verða Erró (eða Perró) á einni nóttu, kunna alla stærðfræðina sem þú hefur strögglað við alla þína ævi eða verða Mozart bara við það eitt að heyra tónlist. Ert þú kannski með Savant Syndrome? https://www.instagram.com/jaelskan/
fréttastofan er löngu hætt að nenna þessu. Árið 1979 hurfu 18 flugvélar yfir Bermuda en hvarf á engri þeirra var tilkynnt í fréttum. Leyndadómar djúphafsins eru afhjúpaðir í þessum 30. þætti af Já elskan. Við reyndum við eðlisfræði en klipptum það út, heppin. Instagram: jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 23. nóvember 2020
Bára miðill sá Tsunami gerast á undan okkur öllum, hún sá fyrir hryðjuverkaárás á tónleikunum í París og snjóflóð sem gerðist á Íslandi. Fram koma mjög persónulegar lýsingar á okkur sjálfum og viðtöl við framliðna ættingja. Instagram: Jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 16. nóvember 2020
23 and me á DNA úr 23.5% bandarísku þjóðarinnar, hvað eru þau að plotta með Google og Youtube? Afhverju hlustar síminn þinn á þig? Notar ríkið hljóðbylgjur til þess að stjórna okkur? Við erum þrælar, hugsunarlausar dúkkur sem fylgjum bara skipunum yfirvalda. Við reynum okkar allra besta að sannfæra þig í þessum 28unda þætti af Já elskan. Varúð á 57 min þá gætir þú misst heyrnina ef þú ert með of hátt styllt. Instagram: jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 11. nóvember 2020
Katakomburnar í París er stærsta fjöldagröf í heimi. Þar er að finna veitingastaði, rave party og bíóhallir en líka glæpagengi, lík og drauga fólks sem hefur týnst í göngunum. Þú tekur eina ranga beygju og þú gætir týnst að eilífu í þessum 321 km löngu neðanjarðargöngum. Kíktu á instagram fyrir myndir, instagram: jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 3. nóvember 2020
Arnþór upplýsir okkur um leyndardóminn á bak við dáleiðslu í þessum þætti af Já elskan. Þú færð svör við því hvernig í ósköpunum sé hægt að láta hóp af fólki fá fullnægingu og gelta eins og hundar. Sömuleiðis hvernig dáleiðsla getur unnið úr einföldum meinlokum eins og að ná heljarstökki á fimleikaæfingu. Svo vorum við líka dáleiddar á staðnum.. sneakpeak á instagram IG: jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 26. október 2020
Ímyndaðu þér, þú ert að horfa á sjónvarpið - kannski bara American Murder á netflix… og svo skyndilega stækkar sjónvarpið fyrir framan þig. Þú áttar þig á því að allt herbergið sem þú ert í er skyndilega orðið stærra. Þú lítur niður á símann þinn. Allt í einu stækkar síminn og stækkar þangað til hann er orðinn miklu stærri en hausinn á þér. Þú skoðar þá hendurnar þínar og þú ert bara komin með jafn stórar hendur og 2 ára frænka þín. Þú verður mjög hrædd þannig þú stendur upp úr sófanum og þá er allt í einu fjarlægðin í loftið á herberginu orðin 10 metrar og þú ert bara pínulítil vera í risastóru herbergi.... Instagram: jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 12. október 2020
Bruderhof kommúnur, þar sem peningar eru ekki til og særingar eru notaðar til þess að lækna fólk af krabbameini, einhverfu og geðrænum vandamálum. Guð veri með ykkur. Instagram: jáelskan Þessi þáttur var gefinn út: 2. október 2020
Langar þig að endast lengur og njóta betur... þá er Tantra eitthvað sem þú ættir að skoða. Natha YogaCenter bíður upp á frían prufutíma í Sacred Sexuality þann 29. september kl. 20:00 fyrir þig og þinn heittelskaða maka. Þið finnið allt um Tantra á Íslandi hér: https://www.facebook.com/events/670090070267292/ Þessi þáttur var gefinn út: 21. september 2020
Vinsælustu hryllingsmyndirnar á markaðnum eru byggðar á Japönskum mýtum. Ekki ganga ein við lestarteina, ekki fara á salernisbás nr.4, ekki horfa á japanskar djöfla auglýsingar og haltu þér eins langt frá red rooms og þú getur. Instagram: jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 14. september 2020
Blaðamaðurinn David Farrier rakst á undarlega facebook síðu sem varpaði ljósi á heim atvinnukitlara. Þú ert bundinn fastur á meðan ungir karlmenn klæddir í Adidas galla kitla þig. Passaðu þig samt af því að manneskjan sem er á bak við þetta allt saman er ekki sú sem að hún reynist vera. Tékkið á Jane O‘brian media á Facebook, skráið ykkur í Competitive Endurance Tickling og okurþéniði. Viðskiptadíll ársins. #tickling #ticklish #tickle #struggle #restrict #laughter #ticklishlaughter. Instagram: jaelskan less Þessi þáttur var gefinn út: 7. september 2020
Lets djump intú ðe tæm massín bekk tú ven ví fukkt errthing öp.. Instagram: Jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 25. ágúst 2020
Sleep Hollow er sjúkdómur sem kom upp í Kalachi, Kazakhstan árið 2013 og olli því að 152 manns sofnuðu skyndilega, fengu ofsjónir og köstuðu upp. Muldur um ráðgátu sem að hentar vel til þess að dreifa huganum frá djammviskubiti eftir Verslunarmannahelgi. Passaðu bara að sofna ekki Instagram: jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 3. ágúst 2020
Í þessum þætti fjallar Krista María um kynfæralimlestingu kvenna, free bleeding, líkamshár og aðra merka hluti, enda merkileg kona. Hafðu þig hæga/n, kveiktu á kertum og láttu renna í bað því að þetta er bomba. Þessi þáttur var gefinn út 28. júlí 2020
Vísindakirkjan er ekki öll þar sem hún er séð, eiginkona forstöðumannsins er horfin og það kostar 800 dollara að fara í viðtalstíma til að verða "clear".. ha? Listen and you will learn Þessi þáttur var gefinn út: 20. júlí 2020
Mundi er Yogi+Vegan = hann er Yogvan. Sjúkraliði, ljóðskáld og listmálari úr Keflavík sem að hefur alltaf reynt að helga lífi sínu leitinni. Að hverju leitar hann þú spyrð? að því sem að leitin bíður uppá. Til þess gaf hann alla peningana sína og stundar jóga um 4 klst á dag. Hljóðgæðin í okkur er pínu off, en við erum aukahlutverk. Þessi þáttur var gefinn út: 14. júlí 2020
Aghori Sadhus er sértrúarsöfnuður sem drekkur áfengi úr höfuðkúpum, stundar óhefðbundnar kynferðislegar athafnir og borðar mannakjöt... Tveir trúarbragðafræðingar setja viskuna í brunninn, er það ekki? Instagram: jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 6. júlí 2020
One take og óklipptur þáttur aðra vikuna í röð enda extra persónulegur þar sem Kristjana fer yfir þá lífsreynslu að greinast með krabbamein. Instagram: jaelskan Þessi þáttur var gefinn út: 29. júní 2020
Veist þú hvað draugaskip er? nei ekki við heldur, en tvær með gráðu í skipafræðum leiða þig í gegnum grundvallarfræði skipa. Ykkur er svo öllum boðið í útskriftarveislu á laugardaginn hjá okkur í skipafræðaskólanum. Þessi þáttur var gefinn út: 15. júní 2020
Réttindabaráttan á langt í land en nú er tilvalið að rifja upp söguna. Underground Railroad og Harriet Tubman eru vendipunktar í sögu svarts fólks í Bandaríkjunum og umfjöllunarefnið í þessum sjöunda þætti af Já elskan. Þessi þáttur var gefinn út: 8 júní 2020
Genguru, hleypuru, eldaru í svefni? Tvær langt frá því að vera sérfræðingar ræða það hvað gerist í heilanum á okkur þegar við göngum í svefni. Því fylgja nokkrar persónulegar sögur og real life hljóðupptökur af svefngöngu. Svo metum við líka virka piparsveina í Íslensku samfélagi sem bætir við smá spice. Þessi þáttur var gefinn út: 29. maí 2020
"Þú byrjar á því að afklæðast og fara í sturtu. Þaðan ertu færður í klefa, ég var í einangrun í þessum klefa í mánuð virkilega veikur..” Guðmundur Ingi formaður Afstöðu kom til okkar í fimmta þætti af Já elskan og ræddi við okkur um sína reynslu af fangelsisvist og stöðu fanga á Íslandi.
Trúir þú á hið yfirnáttúrulega? Ef ekki þá veðjum við 100kr að þú munir gera það eftir þennan þátt Í þessum fjórða þætti af Já elskan spjöllum við um yfirnáttúrulega atburði. Instagram: jaelskan
Heiðdís Rós er gesturinn okkar í þessum þriðja þætti af Já elskan. David guetta spilar coronavibes á svölunum hliðiná henni og hún fór á einkaþotu á superbowl.. þú vilt ekki missa af þessum! Þið finnið Heiðdísi hér: instagram: hrosmakeup snapchat: hrosmakeup Þessi þáttur var gefinn út: 8. maí 2020
Í þessum öðrum þætti af Já elskan spjöllum við um Pennhurst Asylum, alræmd stofnun í Pennsylvaniu sem var starfræk í 80ár. Í dag eru byggingarnar þekktar sem Haunted House Instagram: jaelskan Email: jaelskanpodcast@gmail.com Hönnuður á cover mynd: Una María Magnúsdóttir Jón Egill upprunalegur hugmyndasmiður Þessi þáttur var gefinn út: 2. maí 2020
Í þessum fyrsta þætti af Já elskan spjöllum við um læknamistök, misgáfuleg og misfyndin. Instagram: jaelskan Email: jaelskanpodcast@gmail.com Hönnuður á cover mynd: Una María Magnúsdóttir. Jón Egill upprunalegur hugmyndasmiður Þessi þáttur var gefinn út: 28 apríl 2020
Á árunum 2000-2010 fengu um 400 íslenskar konur brjóstafyllingar frá framleiðandanum Poly Implant Protése eða PIP brjóstapúðar. Það sem þessar 400 konur áttu sameiginlegt var að þær vissu ekki að notað var iðnaðarsílikon í brjóstapúðana í staðin fyrir læknisfræðilegt sílikon.
Helena Jónsdóttir er mögnuð fyrirmynd sem hefur farið í um 8 verkefni fyrir Lækna án landamæra. Hún vann á spítala í Afganistan þangað til eina nóttina þegar hún fékk tilkynningu um neyðarrýmingu af því að bandaríski herinn var að fara að sprengja spítalann upp. Hún vann í Cairo á viðbragðsmiðstöð fyrir þolendur kynferðisofbeldis og pyntinga. Hún vann í Yemen á ungbarnadeild þar sem hungursneyð varð ungabörnum að falli. Helena lýsir því hvernig þú ert undirbúin áður en þú ferð í verkefni, hvernig Læknar án landamæra virka, hvernig fjölskylda og vinir heima díla við þetta og margt annað. Þið getið fundið hana á Linkedin og fengið ráðleggingar hjá henni ef þið hafið áhuga á að vinna í mannúðar-bransanum. Þið getið líka fundið upplýsingar um fyrirtækið hennar á: https://mentalradgjof.is/
Natan kíkti í heimsókn til mömmu sinnar í nokkra daga. Þau áttu góðan tíma saman, elduðu góðan mat, hlógu og nutu samveru hvors annars. Síðustu nóttina þá upplifði Natan það sem hann þekkti sem Sleep paralysis. En var þetta sleep paralysis eða var þetta eitthvað annað? Endilega túniði inn með okkur stöllum og komiði með okkur í langferð um draugaslóðir. Ps. Sá einhver Kristjönu í Landanum?
Það þurfti bara eitt screenshot af Snap Maps til að vinda ofanaf hrottalegu morði á hjónum í blóma lífsins. Say no more. Myndir á instagram!
Nasubi var tvítugur grínisti frá Japan sem þurfti að þola hræðilega einangrun í 15 mánuði. Hann var nýútskrifaður úr menntaskóla og var að reyna að meika það í skemmtanabransanum, þegar hann fór í prufur fyrir raunveruleikaþátt sem átti eftir að breyta lífi hans. Nasubi þurfti að þola hræðilega kúgun og misrétti, en hinum megin við sjónvarpskjáinn hló og skemmti sér heil þjóð af því að jú, öll Japan fylgdist með honum. Myndir og myndbönd á Instagram!!
Elisabeth Finch var einn af 17 handritshöfundum Greys Anatomy en á meðan hún skrifaði fyrir Greys gekk hún í gegnum mikil veikindi og áföll í persónulega lífinu og notaði þau sem söguþráð í þættina. En var hún dauðvona? Myndir og fleira á instagram!
International Girl watching society var í alvörunni til. Karlmenn hittust, fylgdu ákeðnum reglum og horfðu á stelpur. Það fór svo allt úr böndunum þegar ein super bomba mætti á Wall Street, 21 árs gömul stelpa sem gerði ekkert annað en að labba í vinnuna. Kíkið á instagram fyrir myndir - Já elskan
Ingibjörg er á faraldsfæti eins og vanalega og því er þátturinn símaþáttur en hann er samt ekki af verri endanum; r/LetsNotMeet: A place to read spine-tingling, unusual, terrifyingly true stories about people you never want to meet again.
Colonia Dignidad sem seinna fékk nafnið Bavaria Village var einangruð byggð í Chile sem leit út fyrir að vera paradís en þar sem hryllingur átti sér stað bakvið luktar dyr. Enginn komst þaðan út né inn, börn voru tekin af foreldrum sínum og ofbeldi, pyntingar og morð voru þar daglegt brauð. Maðurinn á bak við þetta var hrottalegur Þjóðverji sem flúði til Chile undan ásökunum um kynferðisofbeldi gegn börnum. Ekki missa af ferðalagi dagsins eða eins og Jón nokkur Ársæll sagði fyrr á dögunum, komiði með okkur.
MK-Ultra Project var verkefni á vegum CIA sem snerist um það að eyða algjörlega huga fólks og endurforrita hann. Meðferðirnar sem notaðar voru voru til dæmis að setja fólk í dá með ofskömmtun lyfja og spila fyrir þau á repeat "mamma þín hatar þig". Fórnarlömbin vissu ekki að þau væru tilraunardýr. Klikkað.
Ewa Wiśnierska var í svifvængjaflugi þegar hún lendir í ómögulegu uppstreymi þrumuskýs. Ewa finnur ísél á stærð við appelsínur dynja á sér og verður naumlega fyrir eldingum. Hún skýst ofar en skýin, missir meðvitund og frýs næstum í hel. Þetta er ótrúlega sagan af Ewu og hvernig hún barðist við að lifa af í skýjunum þar til….. Við stöllur erum mættar aftur á fóninn, í þetta skiptið erum við back for good. Við erum hættar að tjilla á sundlaugarbökkum en segjum frá afdrifaríkum síðastliðnum mánuði, eða frá því að við heyrðumst síðast. Við söknuðum ykkar.
Fyrir rúmu ári síðan, þann 25. febrúar, lentu 5 kafarar í stórslysi þegar þeir voru við störf í Karabískahafinu. Þeir mættu þennan morgunn alsaklausir í vinnuna en aðeins einn komst aftur heim til fjölskyldunnar sinnar. Video á Instagram - Já elskan Við hættum að spjalla á 36 mínútu ef þú nennir ekki að hlusta á ramblið í okkur.
Melissu Highsmith var rænt aðeins 22 mánaðar gamallri. 51 ári síðar eða þann 28. nóvember síðastliðinn fannst hún. Myndir á instagram!
Ingibjörg fer yfir ótrúlegar histeríur í einum stuttum og sykursætum þætti. Það er svo sem ekkert meira um það að segja en þið eruð best takk bæ.
Lastu fyrirsögnina eins og við værum að öskra hana? Það er gott því við erum svona peppaðar að vera mættar aftur eftir langa pásu. Þessi pása var svo atburðarík að við ákváðum að við þyrftum að tileinka heilum þætti í gott spjall um hvað við vorum að bralla. Its good to be back
Sjúkraliði eða hjúkrunarfræðingur? Skiptir ekki máli, hann gerði alltof mikið af hlutum sem hann átti alls ekki að gera og alltof margir frískir sjúklingar enduðu í öndunarstoppi þegar hann var á vakt. Tilviljun?
Hæ hæ stelpur! Þetta erum við stelpurnar í Já elskan. Þátturinn í dag fjallar um Þýska fjölskyldu sem hvarf sporlaust í Death Valley í Californiu árið 1996. 13 árum seinna kom í ljós hvað kom fyrir í raun og veru. Matarsmökkunarmyndband á instagram!
Það er laugardagskvöld. Við stöllur keyptum okkur kínverskan mat, kveiktum á kertum og settumst við micinn. Í þessum þætti af Já elskan hlæjum að misförum hvor annarrar. Today I Fucked Up - okkar edition. Ha, var landsleikur?
Brynhildur Karlsdóttir er höfundur af Já elskan intro laginu, tónlistarkona, sviðslistahöfundur, kjánaprik og reglulegur gestur Já elskan. Þið munið kannski eftir henni í 93 þætti af Já elskan "Flo appið virkar ekki" en þar misstókst henni að nota Flo appið sem getnaðavörn, eins og fleirum reyndar.. Í dag mætir hún til leiks, nú nýbökuð móðir með brjóstaþoku. Brynhildur ræðir jólabrasið (eða skortinn því á) og leggur línurnar fyrir komandi ár.
Klámvísur, klámsjúkrabíll, EmmsjéGautaKlám, klámvírusar, klámbrandarar, klám klám klám en líka jól í þættinum í dag. Happy quismos
Þetta er saga um konu sem heitir Kirat Assi og mann sem heitir Bobby. Sagan fjallar um það hvernig Bobby stjórnaði Kirat í yfir 10 ár, eyðilagði ferilinn hennar, vinasamböndin hennar og möguleikann hennar til að eignast fjölskyldu. Þetta byrjaði sem ástarsaga sem endar í hryllingi. Þetta er stærsta catfish atviki sem að sögur fara af.
Þann 21.nóvember keyrði Darrell Brooks inn í skrúðgöngu eftir að hafa rifist við fyrrverandi kærustu sína með þeim afleiðingum að 6 létu lífið og tæplega 70 slösuðust alvarlega. Myndir og myndbönd á instagramminu - Já elskan
Otto Warmbier var 21 árs gamall nemandi frá Bandaríkjunum sem hafði einstakan áhuga á því að ferðast á staði sem mamma þín vill ekki að þú farir á. Hann fer með vinum sínum til N-Kóreu þar sem ein lítil mistök breyta lífi hans að eilífu