Velkomin í Radio J'adora, í boði íslensku hamborgarafabrikkunnar. Öll fimmtudagskvöld fæ ég til mín mismunandi gesti þar sem fjölbreyttar fagkonur eru í forgrunni. Við spjöllum um allt milli himins og jarðar, frá gildum í lífinu og hvað veitir hamingju til uppáhalds instagram filters. Tune in. Xoxo,…
Hún er skilgreiningin á power lady. Hún er einlæg, kraftmikil, skörp, hjartahlý, klár og skemmtileg og hún er einnig dómsmálaráðherra okkar Íslendinga. Hún er Áslaug Arna og var fertugasti viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, hvernig lífið og hennar eigin heimur hefur breyst undanfarnar vikur eftir að hún tók við þessu stóra embætti, hver hún sem 28 ára kona er, hvenær áhuginn á pólítík kviknaði, hvað hefur mótað hana að þeirri manneskju sem hún er, fyrirmyndir, innblástur, daglegt líf og svo margt fleira áhugavert og skemmtilegt. Brought to you by íslenska hamborgarafabrikkan. TUNE IN. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er legend í leiknum, konan bakvið mic-inn, eldklár og hnyttin, yndisleg og vel gefin og með betri spyrlum okkar Íslendinga, þar sem hún hefur dregið ófáa þekkta og skemmtilega einstaklinga með sér í ræktina með cameru crew-i og fengið þá til þess að opna sig um hin ýmsu mál. Hún er Birna María Másdóttir, betur þekkt sem MC Bibba, og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um tilkomu Gym þáttanna, uppruna nafnsins MC Bibba, hvað veitir gleði, innblástur, fyrirmyndir, sigra, rapp og margt fleira sjúklega skemmtilegt. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. TUNE IN. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er dásamleg manneskja með yndislega rödd og sjarma for dayzzz. Hún er einlæg og mögnuð á sama tíma - enda helst það oft í hendur, opinská með andlega heilsu og mikilvægi þess að opna umræðu um allt tabú sem henni getur fylgt. Hún er Karin Sveinsdóttir, einnig þekkt sem söngkonan Young Karin, og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, væntanlega tónlist, alter ego, Young Karin verkefnið frá byrjun, tísku og listir, innblástur og fyrirmyndir, andleg veikindi og hvað lífið getur breyst stórkostlega við það að leita sér hjálpar þegar þörf er á. Brought to you by íslenska hamborgarafabrikkan. TUNE IN. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er mögnuð söngkona með sjarma og hjartahlýju á öðru leveli. Hún er samfélagsmiðla icon, power babe og legend í leiknum. Hún er Camilla Rut, betur þekkt sem Camy og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um svo margt frábært, mikilvægi þess að vera góður og koma fram við aðra af virðingu, hafa opinn hug, andlega líðan, sjálfsást og kærleik, innblástur, kosti og galla samfélagsmiðla, hvernig það er að vera opinber einstaklingur í íslensku samfélagi, standa með sjálfri sér og missa aldrei svefn yfir áliti annarra, móðurhlutverkið, sönginn og svo margt fleira djúpt og dásamlegt. Brought to you by íslenska hamborgarafabrikkan. TUNE IN. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er fagkona, söngkona, flott kona, activista kona og konan á bakvið instagram síðuna fávitar sem hefur vakið mikla athygli, þar sem ógeðfelld, óumbeðin og óviðeigandi skilaboð á samfélagsmiðlum frá nettröllum eru opinberuð og vandamálin eru tekin fyrir. Hún er Sólborg Guðbrandsdóttir og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um upptök fávita, að standa upp gegn fávitum, me too hreyfinguna, samfélagsmiðla, að standa með sjálfum sér, að syngja sig í gegnum lífið, að njóta þess að vera til, að taka pláss og svo margt fleira uppbyggilegt, powerful og skemmtilegt. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er fyrsta konan til þess að vinna heimsleikana í crossfit tvö ár í röð. Hún er algjör töffari, ultimate power pía, fagkona fram í fingurgóma og instagram vinkona sem ég fæ mikinn innblástur við að fylgjast með. Hún er Annie Mist Þórisdóttir og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um konuna á bakvið legendið sem Annie Mist er, hvernig crossfitið varð að atvinnu og tvöföldum heimsmeistaratitli, keppnisskapið, ólíka sigra, hvernig hún tekst á við vonbrigði og bakslög, að vera í liði með sjálfri sér, það að geta alltaf gengið sáttur burt ef maður gerir sitt besta, innblástur, íslensku sveitina, gleði, hamingju og svo margt inspirational AF. Annie er algjör drottning og það var svo mikill heiður að fá hana til mín í þáttinn. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er fagkona fram í fingurgóma og stórvinkona mín. Hún er áhugakona um ástir, höfundur Makamála pistlanna á Vísi, tískulegend og fyrrum eigandi fatamerkisins Eylands. Hún er Ása Ninna og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um lífið og ástina, deit menninguna á Íslandi, Tinder, eat pray love moment Ásu eftir skilnað, sköpunargleði og það hvernig Makamál þróuðust og urðu að raunveruleika. Það og svo margt fleira fyndið, stundum dramatísk en unfram allt ótrúlega skemmtilegt. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er ein mögnuð lady. Hún er ein ástsælasta söngkona okkar Íslendinga, magnaður karakter með sturlaða rödd og yfirnáttúrulegan sjarma. Hún er Salka Sól og var viðmælandi minn þessa vikuna í Radio J'adora. Við ræddum um sönginn og listina, lífið og tilveruna, einelti sem Salka varð fyrir á yngri árum, mátt þess að geta verið jákvæður og uppbyggilegur áhrifavaldur, innblástur, fyrirmyndir og svo margt fleira magnað og skemmtilegt. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er mögulega skilgreiningin á fagkonu. Hún er læknanemi og stúdentapólítíkus extrordanare, varaborgarfulltrúi, stofnandi og fyrrum stjórnarmeðlimur Hugrúnar geðfræðslufélags háskólans, hjartahlý, eldklár og ótrúlega skemmtileg. Hún er Ragna Sigurðardóttir og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við spjölluðum um uppvaxtarár Rögnu í Bandaríkjunum, pólítík, aðgengilega geðfræðslu, hvernig hugmyndin af geðfræðslufélagi kviknaði og varð að veruleika, hvernig við látum hlutina gerast, hvað það er mikilvægt að trúa á sjálfa sig, innblástur, markmið og svo margt fleira uppbyggilegt og powerful. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er flottasta dragdrottning okkar Íslendinga, super díva og Fjallkonan 2018. Hún er Gógó Starr og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, karakter sköpun og það hvernig alter ego og okkar eigið sjálf þarf ekki að vera aðskilið, innblástur, möntrur, samfélagsmiðla, spennandi verkefni framundan, magnaða mátt dragsins, hvað drag er orðið current og margt fleira. Brought to you by Íslenska Hamborgarafabrikkan. Tune in! Xoxo, DJ Dóra Júlía
,,Líkamsræktin mín er aðallega að dansa uppá borði á Prikinu." Hún er einfaldlega legend. Hún er tískumógúll útaf fyrir sig, ultimate skvísa, lögfræðinemi, vegan activisti, feministi og woke gyal, fyrrum Ungfrú Ísland keppandi og litla systir mín. Hún er Helga Margrét Agnarsdóttir og ég gæti ekki hugsað mér lífið án hennar. Við ræddum um hugtök á borð við sjálfselsku og sjálfsöryggi, mikilvægi þess að þau séu jákvætt hlaðinn, uppbyggingu á sjálfinu, vera í liði með sjálfri sér, the voice within, hafa uppbyggileg áhrif, hætta að tala illa til sín og að sjálfsögðu að njóta. Brought to you by íslenska hamborgarafabrikkan. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía.
Hún er mögnuð kona sem ég lít mjög mikið upp til. Hún er fyrrum verðbréfasali sem ákvað að breyta um stefnu og afla sér jógakennararéttindi og í framhaldi af því stofna Jógastúdíóið Sólir úti á Granda. Hún er Sólveig Þórarinsdóttir og var viðmælandi minn í Radio J'adora þessa vikuna. Við ræddum um hvað það var sem fékk hana til þess að treysta á sjálfa sig og breyta algjörlega um stefnu í lífinu, mikilvægi núvitundar, að vera í flæðinu og ótal kosti þess að stunda jóga. Einnig sagði hún mér frá því þegar hún hélt Ted Talk um daginn þar sem hún lagði áherslu á kraft ástarinnar. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er fjöllistakona, instagram legend og meme queen sem hefur vakið athygli á einkennandi og áberandi stíl bæði sem artisti og einstaklingur. Í vor var hún með sýningu á Feneyjatvíæringnum þar sem hún söng karaoke lög klædd sem trúður. Hún er Ágústa Ýr, betur þekkt sem Ice ice baby spice og var viðmælandi minn í Radio J'adora þessa vikuna. Við ræddum svo margt skemmtilegt, um instagram og samfélagsmiðla, alter ego, list og kúltúr okkar samtíma, ljósmyndanámið hennar í New York, daglegt líf í London þar sem hún er búsett og fleira litness! Tune in! Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er grímuverðlaunahafi, skemmtikraftur, leikkona, bráðfyndin, powergirl og eldklár stelpa. Hún er Vala Kristín og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við spjölluðum um leiklistina, hvernig það er að setja sig í mismunandi hlutverk á trúverðugan hátt og hvernig hvert hlutverk tengist sjálfinu, mikilvægi opinnar umræðu á erfiðum málefnum, átröskun og bataferli, samfélagsmiðla, innblástur og margt fleira magnað. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er superstjarna og lék á sviði í Las Vegas. Hún er leikkona, söngkona, listakona, fyrrum Solla Stirða, mikið legend, LA lady og stórvinkona mín. Unnur Eggerts er viðmælandi minn í Radio J’adora þessa vikuna. Við spjölluðum um allt á milli himins og jarðar, meðal annars um leiklistarnámið í New York, hvernig það er að leggja land undir fót og fara ung út í hinn stóra heim, hvað það er mikilvægt að vera alltaf með sjálfri sér í liði og óþæginlegar áheyrnaprufur þar sem karlmenn reyna að lítillækka konur. Við ræddum einnig um andlega heilsu, mikilvægi núvitundar og sjálfsræktar, samfélagsmiðla, innblástur og að yfirstíga hræðslu. Tune in! Xoxo DJ Dóra Júlía
Hún er hlaupalegend sem var að hlaupa Laugaveginn. Hún er mögnuð og yndisleg og temur sér ótrúlega jákvætt og fallegt lífsviðhorf eftir að hafa gengið í gegnum mikla erfiðleika síðastliðið haust. Hún er Gréta Rut og var viðmælandi minn í Radio J'adora. Við ræddum um hlaupið, innblástur og markmið, hvernig lífið heldur áfram eftir áföll og hvað er mikilvægast við lífið. Enn fremur ræddum við um samtökin Gleymérei sem Gréta ætlar að hlaupa fyrir í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst, en hún og kærastinn hennar Ragnar eignuðust andvana dreng í október síðastliðinn. Segir hún samtökin hafa gert mikið fyrir þau og hjálpað þeim að varðveita fallegar minningar litla Hinriks Leós. Tune in
Hún er dansari sem útskrifaðist frá dansdeild Juilliard í New York, einni bestu dansdeild í heimi, og hefur dansað stanslaust frá þriggja ára aldri. Hún er Lilja Rúriksdóttir og var viðmælandi minn á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna í Radio J'adora. Við spjölluðum um dansinn, fjölbreytt verkefni, New York lífið, þróun á okkur sem einstaklingum, sjálfstæði og að taka af skarið, innblástur, hvað lætur manni líða vel og margt fleira krassandi. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Söngkona, tískumógúll og fyrrum barnastjarna sem aðeins tvítug skrifaði undir risa plötusamning í Hollywood. Svala Björgvins kom til mín í Radio J'adora síðasta fimmtudagskvöld og ræddi um LA lífið, hvernig hún hefur þróast og breyst frá því hún flutti fyrst út í hinn stóra heim, Steed Lord ævintýrið og hversu mikilvægt það er að geta verið frjáls eftir að hafa verið samningsbundin í nokkur ár við plötufyrirtæki sem vildi skapa útgáfu af Svölu sem hún sjálf fékk ekki mikið um að segja. Einnig ræddum við um innblástur, fyrirmyndir, andlega heilsu, möntrur og hvað í lífinu hefur komið henni á óvart! Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Sólrún Diego. Frumkvöðull á sviðum samfélagsmiðla. En hver er Sólrún Diego frá hennar point of view? Hvað veitir henni innblástur og hvernig bregst hún við neikvæðri gagnrýni? Og hvernig komst hún á þann stað að vera einn fremsti áhrifavaldur okkar Íslendinga? Hlustaðu á þáttinn til að fá öllum þessum spurningum svarað og meira til. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er samfélagsmiðla legend með meiru, business babe og stendur fyrir Miss Universe Iceland keppnunum ásamt því að vera hluti af Miss Universe teyminu úti í hinum stóra heimi. Svo er hún líka fellow California Girl, en við kynntumst einmitt í LA þegar við fórum saman í sushi party til Nicole Richie. Ég er að sjálfsögðu að tala um snapchat drottninguna Manúelu Ósk, en hún var gestur minn í Radio J'adora í þessum þætti. Við ræddum um fegurðarsamkeppnir, girlpower, feminisma, samfélagsmiðla, tísku, hönnun, innblástur, hvernig það er að vera áberandi einstaklingur í íslensku samfélagi og svo margt fleira. Tune in! Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er mikill lífskúnstner, dans QUEEN með meiru, creative genius, buisness babe og ein mesta fagkona sem ég þekki. Hún er Stella Rósenkranz. Við ræddum um lífið og dans, lífið án dans, listræna stjórnun og ólíka listmiðla, dansstúdíó World Class, tónlist, fyrirmyndir, innblástur og margt fleira magnað. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Rakel Unnur er eigandi og verslunarstjóri Wasteland Reykjavík, glænýrrar vintage búðar í miðbænum. Ég kynntist henni árið 2015 þegar hún stíliseraði mig fyrir Nostalgíu myndatöku og síðan þá hefur verið magnað að fylgjast með henni blómstra í tískuheiminum. Rakel er gesturinn minn í þessum þætti af Radio J'adora og við ræddum um þetta magnaða menningarfyrirbæri sem tíska er, mikilvægi þess að velja vintage, umhverfisáhrif tískubransans, innblástur, markmið, trú á eigin getu og hvernig það var að taka af skarið og opna sína eigin verslun. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Bryndís Silja er legendary pía. Hún er varaformaður Íslands-Palestínu og hefur talað máli félagsins í mörg ár. Svo er hún búin að vera vinkona mín síðan við vorum saman á leikskóla, gamla góða Örkin hans Nóa. Í þessum þætti ræddum við Bryndís um hið stóra eurovision mál, starf félagsins, hið daglega líf í Palestínu þar sem Bryndís hefur eytt dágóðum tíma ásamt því að ræða ýmislegt milli himins og jarðar þar sem við komum meðal annars að gildum í lífinu, fyrirmyndum, innblæstri og hvað sé mikilvægt að gera til þess að hlúa að sálinni. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún gerði það gott í stærsta íslenska girlbandi allra tíma, starfaði í Bretlandi og Bandaríkjunum, hannaði sína eigin skartgripalínu og vinnur nú sem öflugur manager ásamt því að sitja í stjórn félags kvenna í atvinnulífinu. Hún er Steinunn Camilla og var gestur minn í Radio J'adora. Við ræddum um LA lífið, Me Too bylgjuna, hvernig það var að vera í stelpubandi og grípa þau mögnuðu tækifæri sem gáfust, muninn á því að vera stelpa í dag og að vera stelpa fyrir 10 árum, viðbrögð við hatri og internet tröllum, það að þróast og enduruppgötva sig, hvaðan innblástur kemur og margt fleira. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Telma Huld er ung og upprennandi leikkona og fer með aðal hlutverk í nýrri íslenskri bíómynd sem heitir Eden. Hún var gestur hjá mér í Radio J'adora og spjallaði við mig um leikkonulífið, kvikmyndina Eden, hvernig hún setur sig í mismunandi hlutverk, hvað veitir henni innblástur, draumahlutverk, markmið og þar fram eftir götum. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Hún er framkvæmdarstjóri Lyfju, fagkona og frænka mín. Hún er Sigríður Margrét Oddsdóttir og var viðmælandi vikunnar hjá mér í Radio J'adora. Hún ræddi við mig um lífið sem kona í stjórnunarstöðu, hvernig drifkraftur og markmið hafa veitt henni byr undir báða vængi, hvað veitir henni innblástur ásamt því að luma á nokkrum góðum ráðum fyrir hlustendur. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Mögnuð kona, mikil fyrirmynd mín, jákvæðnis bomba, fyrrum DJ legend og snillingurinn Sóley Kristjánsdóttir, fyrrum þekkt sem DJ Sóley. Hún var gestur hjá mér í Radio J'adora og ræddi við mig um allt milli himins og jarðar, frá því hvernig hún hóf störf sem plötusnúður og hvernig það þróaðist hjá henni yfir í lífið sem hún lifir í dag, hvað veitir henni innblástur, álit á samfélagsmiðlum og meira til. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Sóla Þorsteinsdóttir er eldklár og frábær fagkona sem hefur undanfarið látið í sér heyra hvað varðar loftslagsbreytingar og hefur talað mikið máli loftslagsverkfallsins sem að stúdentar og krakkar allt niður á grunnskólaaldur hafa staðið. Við ræddum um loftslagsbreytingar og hvað þær fela í sér, mikilvægi verkfallanna, hvað þarf að hafa í huga til að sporna við eyðileggingu jarðar, andlega heilsu og innblástur svo eitthvað sé nefnt. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Hún er pía sem er inspiration á svo mörgum levelum, eldklár og dugleg, jarðbundin og á sama tíma full af krafti. Formaður geðfræðslufélagsins Hugrúnar, mastersnemi í klínískri sálfræði og jógakennari svo eitthvað sé nefnt. Hún er Kristín Hulda og var gestur hjá mér í Radio J'adora. Hér ræðum við um starf Hugrúnar, mikilvægi opinnar umræðu á andlegum veikindum, jákvæðar breytingar í samfélaginu, samfélagsmiðla byltingar, kosti og galla samfélagsmiðla, jóga, hugleiðslu, "hamingju" pælinguna og hvað hugtakið hamingja felur í sér og margt fleira spennandi. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Mosha Lundstrom er kanadísk athafnakona, búsett í Miami og á rætur að rekja til Íslands. Mosha rekur tískufyrirtækið Thermakota ásamt systur sinni og móður og leggja þær áherslu á hlýjar og góðar yfirhafnir þar sem litagleði og glimmer getur ráðið ríkjum. Hún er mikill tískumógull og skrifar meðal annars pistla fyrir Vogue - en við kynntust einmitt þegar Mosha gerði umfjöllun um mig og fleiri groovy íslenskar stelpur, Nordic Cool Girls Guide to Reykjavik, fyrir vogue.com sumarið 2017. Við Mosha ræddum um mikilvæga hluti á borð við tísku og kraftinn sem fylgir því að finna sinn eigin stíl, innblástur, fyrirmyndir, samfélagsmiðla, Ísland og hvað væri gott að hafa í huga við að skapa sér tækifæri og láta drauma sína rætast. Tune in. Xoxo, DJ Dóra Júlía
Hún er listakona með meiru sem er líklega þekktust fyrir andlitsteikningar af konum. Algjör töffari, ultimate cool gurl og ótrúlega hlý og klár stelpa. Hún er Rakel Tómasdóttir. Við ræddum um lífið og listina, listina að lifa, hvernig það er að vera freelance listakona og fá nóg af verkefnum, ferðalög og frelsi, innblástur, fyrirmyndir, vald samfélagsmiðla og meira til. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Leikkonan og lífskúnstnerinn, hin yndislega Aníta Briem. Aníta ræddi við mig um lífið í Hollywood, Me Too bylgjuna og hvað varð til þess að hún ákvað að stíga fram, hvernig lífið hefur breyst til hins betra með tilkomu vitundarvakninga og samfélagsmiðlahreyfinga, aðstæðna sem hún þurfti að glíma við í upphafi ferilsins þar sem henni var meðal annars ráðlagt að kaupa stærri brjóstahaldara fyrir áheyrnaprufu, ný verkefni á Íslandi, andlega heilsu og margt fleira magnað! Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Í þessum þætti fékk ég til mín kynlífsfræðarann, listakonuna og activistann Birnu, sem er Íslendingur sem er fædd og uppalin í New York og fór viðtalið fram á ensku í þetta skipti. Birna er ótrúlega áhugaverð og skemmtileg stelpa og undanfarið hefur hún unnið hörðum höndum að því að skipuleggja “The Period Project” sem auðveldar aðgang að túrtöppum, dömubindum og fleiru slíku fyrir konur, sem og að framleiða heimildamynd um sex workers (veit ekki besta íslenska orðið fyrir það?) sem væntanleg er á næstu misserum. Við ræddum mikilvægi þess að opna bæld umræðuefni, samfélagsmiðla sem vettvang fyrir hreyfingar og byltingar, hvað veitir hamingju, innblástur og uppbyggingu á sjálfinu okkar. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Samfélagsmiðla skvísan, tölvuleikjalegendið, vinsælasta stúlkan og leikkonan Donna Cruz. Hún spjallaði við mig um lífið og tilveruna, hvenær hún fór að vekja athygli í íslensku samfélagi, hlutverk í íslenskri bíómynd, hvaða ábyrgð áhrifavaldar hafa gagnvart fylgjendum sínum og andlega heilsu svo eitthvað sé nefnt. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Supermódelið, laganeminn, stórvinkona mín og legendið Kristín Lilja Sigurðardóttir. Módelferill Kristínar Lilju fór á flug fyrir tæpu ári síðan en á þeim tíma hefur hún verið búsett í París, Mílanó og London og labbað fyrir tískurisa á borð við Dior, Kenzo og Ganni ásamt því að vera í fjarnámi í lögfræði við Háskóla Íslands. Þessi powergirl hafði frá mörgu skemmtilegu að segja og ræddum við um daglegt líf í módelheiminum, gildi og viðhorf í lífinu, djammið í Reykjavík, fyrirmyndir, mátt jákvæðninnar og fleira til. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Great Grief, hard core rock hljómsveitin kom í skemmtilegt spjall til mín í Radio J'adora þar sem við ræddum um tónlist, innblástur, tattoo, að fullorðnast og fleira skemmtilegt. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Talentið, töffarinn og söngkonan með seiðandi röddina Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, kom til mín í Radio J'adora á valentínusardaginn sjálfan. Við ræddum meðal annars um tónlist og sköpun, alter ego, innblástur frá öðrum artistum og hvert stefnan er sett. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Ultimate skvísa, Business mogul, og samfélagsmiðlalegend með meiru. Athafnakonan Tanja Ýr var viðmælandi vikunnar í Radio J'adora. Hún ræddi við mig um lífið sem ung business kona og hvernig hlutir þróast frá því að hugmynd kviknar og úr verður fyrirtæki, ásamt því að ræða innblástur, fyrirmyndir, trú á eigin getu og að leyfa sér ekki að efast um sig og aftra sjálfri sér. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Crossfit legend, feministi og instagram queen. Edda Falak var viðmælandi vikunnar hjá mér í Radio J'adora. Við ræddum um mikilvægi þess að trúa á sig, listina að not give a fuck, mátt samfélagsmiðla, daglega lífið í Köben þar sem Edda er búsett og meira til. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía
Fyrsti viðmælandinn í Radio J'adora var fagkonan og snillingurinn Sandra Björg Helgadóttir. Sandra er með Bs gráðu í verkfræði, hefur kennt dans í áratug, tekið að sér alls kyns fjölbreytt og skapandi verkefni og stendur núna fyrir námskeiðunum Absalout Training sem hafa notið gríðarlegra vinsælda. Við ræddum um markmiðasetningar, innblástur, vináttu, samspil sálar og líkama og hvað það var ótrúlega fyndið þegar hún gat ekki skilið hvap Jay Z var að segja þegar hann spurði hana eitt sinn einfaldrar spurningar. Tune in, xoxo DJ Dóra Júlía