Váfuglinn

Follow Váfuglinn
Share on
Copy link to clipboard

Váfuglinn flýgur hátt, sér langt og rífur málefni líðandi stundar á hol. Fortíð, nútíð og framtíð eru veiðilendur Váfuglsins og þær eru gjöfular. Komdu í ævintýraferð um íslenskan samtíma og ferðastu með um sögulegar slóðir. Síðan eru líka einhver jokes þarna.

Váfuglinn


    • Mar 2, 2021 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 56m AVG DURATION
    • 41 EPISODES


    Search for episodes from Váfuglinn with a specific topic:

    Latest episodes from Váfuglinn

    Íslensk æði

    Play Episode Listen Later Mar 2, 2021 62:20


    Neyslubrjálæði Íslendinga finnur sér reglulega farveg í skrítnum æðum sem ganga yfir land og þjóð. Váfuglinn skoðar hér eftirminnileg æði í íslensku samfélagi í gegnum tíðina. Smelltu þér í fótanudd, stingdu upp í þig snuddu og komdu með Váfuglinum í ferðalag um undralönd íslenskra æða.

    2020 Jólaspecial

    Play Episode Listen Later Dec 21, 2020 61:23


    Eins og hefðin býður þá er hátíðarstund í þessum jólaspecial Váfuglsins. Enn á ný renna jól í garð og Váfuglinn tekur stöðuna. Við veltum fyrir okkur jólahefðum - hvað þarf til að skapa þær og hvernig þær eru rofnar. Við veltum fyrir okkur hvernig jólahlutir vinna sér inn forskeytið "jóla-" og hvað er yfir höfuð jólalegt. Að lokum skoðum við jólagjafir ársins í spennandi yfirferð sem enginn má missa af.

    Íslenskir draumórar

    Play Episode Listen Later Dec 8, 2020 59:29


    Í þessum þætti lítur Váfuglinn nánar á draumóra sem blundað hafa meðal íslensku þjóðarinnar, og birtingarmynd þeirra í íslenskri poppmenningu. Um hvað dreymir Ísland á daginn? Heimsfrægð? Sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna? Geimverur á Snæfellsnesi? Líklega allt þetta og fleira. Fuglinn fær til sín góðan gest að þessu sinni, hann Ara Eldjárn! Hlustendur gætu kannast við Ara, en hann er heimsfrægur grínmaður og svo er hann líka mjög fróður um íslenska poppmenningu. Fylgist með Ara og Váfuglunum yfirbjóða hvor aðra í gestalátum og vitleysisgangi!

    Bílabingóið

    Play Episode Listen Later Oct 13, 2020 49:30


    Váfuglinn tekur í þetta sinn til skoðunar hina einu sönnu ást Íslendinga - bíla. Hrifning Íslendinga á bílum virðist hafa orðið strax við fyrstu kynni, jafnvel þó svo ekkert bensín hafi verið til á landinu til að keyra þá. Í þættinum lærum við um brautryðjendur á sviði ofsaaksturs eins og Snæra-Manga. Blessuð sé minning hans. Við endurnýjum kynnin við Thomsen-bíllinn og heyrum af nýjum heimildum sem benda til þess að Íslendingar hafi fundið upp bensín, einmitt til að keyra bíla. Skelltu nýjum kertum í skrjóðinn og keyrðu þennan Váfugl í gang!

    Íslenzk tízka

    Play Episode Listen Later May 27, 2020 65:05


    Að þessu sinni fjallar Váfuglinn um tískustraumana sem leikið hafa um Ísland undanfarna áratugi og hvernig þeir hafa mótað atferli okkar og stéttarvitund. Hvað er "peysa"? Hvernig vissi fólk hvað var nett fyrir tilkomu internetsins? Afhverju er svona algengt að prenta óskiljanlegar áletranir á boli? Hyldu búk þinn og útlimi með rödd Váfuglsins og gakktu inn í nýjan tískumeðvitaðan heim.

    Djammið vol.2

    Play Episode Listen Later Apr 15, 2020 58:11


    Váfuglinn lætur ekki sjúklegt ástand þjóðfélagsins stöðva sig og setur fram fallega hugvekju um skemmtanalíf Reykvíkinga í gegnum tíðina. Þátturinn er sjálfstætt framhald fyrri umföllunar Váfuglsins um "djammið" sem mæltist vel fyrir hjá hlustendum. Sæktu þér langþráðan djammskammt beint inn á sjúkrabeðið og lærðu um tónlistarflutning og skemmtilíf liðinna alda.

    Cinema Paradiso

    Play Episode Listen Later Mar 10, 2020 60:02


    Váfuglinn tekur út stöðu kvikmyndahúsa á Íslandi í þessum nýjasta þætti. Er bíó ennþá á dagskrá árið 2020? Þarf að endurhugsa það hvernig bíóupplifunin á að vera? Eru kvikmyndasýningar hin nýja ópera? Hér er menningarumfjöllun á hæsta plani með lazer show-i, 3D-gleraugum og orkudrykkjum fyrir allan peninginn - sannkallað Cinéma Vérité! Skelltu þér í bíó með Váfuglinum!

    Sólarlönd

    Play Episode Listen Later Feb 26, 2020 56:44


    Á Spáni er gott að djamma og djúsa söng þjóðskáld okkar Íslendinga, sem nú er því miður látinn. Þannig kjarnaði hann stemminguna sem ríkti, og ríkir enn, í kringum sólarlandaferðir þjóðarinnar. Butterfly hnífar, zippo kveikjarar, ódýr raftæki, adihash peysur og tráma - flestir hafa krækt sér í eitthvað af þessu á Spáni í sumarfríinu. Váfuglinn flýgur suður á bóginn og rennir augunum yfir sólarlandaferði þá og nú, rifjar upp góð augnablik á froðudiskóum og kroppar í gömul sálarsár. Hey!

    Þorrablót

    Play Episode Listen Later Feb 6, 2020 58:23


    Að þessu sinni rýnir Váfuglinn í þjóðlegustu hátíð Íslendinga, Þorrann. Í þættinum veltum við fyrir okkur uppruna þorrablóta og hvað er rétt, satt og ekta í þessum umdeilda málaflokki sem skekur tilfinningar landsmanna á hverju ári. Við förum yfir kræsingarnar sem eru á borð bornar á þessum sælkerasamkomum og skoðum nokkrar mismunandi gerðir þorrablóta. Hlauptu ekki um með buxurnar á hælunum. Láttu Váfuglinn stytta þér stundir á meðan þú þreyir Þorrann.

    Djamm í kvöld

    Play Episode Listen Later Dec 1, 2019 57:40


    Það er djamm. Váfuglinn flýgur á djammið í Reykjavík og tekur út stemminguna á skemmtanalífi Íslendinga fyrr og nú. Hvernig leið sveitamanninum Emil þegar hann kom fyrst inn á búlluna White Star á Laugarvegi árið 1920 eða eitthvað? Hvar er hægt að fá sér steik klukkan 01:00 á laugardagsnótt í Reykjavík í dag? Hver er maður með mönnum nema að hann kaupi sér flöskuborð á Gullöldinni í Grafarvogi? Lærið allt um íslenskt djamm í Váfugli dagsins.

    Gott kaffi

    Play Episode Listen Later Sep 27, 2019 56:41


    Eftir langa og erfiða svipugöngu okkar, stjórnenda Váfuglsins (þið munið, gömlu vinir eyrna ykkar), kemur hér einn rjúkandi ný(lega) uppáheltur þáttur sem er alls ekki búinn að standa á hellunni og fá að sjóða aðeins. Þema þáttarins er, eins og má mögulega merkja af myndmáli þessa texta, kaffi. Yndislega baunasullið sem við elskum öll og dáum. Einn af fáum drykkjum sem persónuleiki fólks snýst um - þvílíkur máttur! Hlustið á þennan sjóðandi uppáhelling fyrir smá vísbendingu um mátt kaffis.

    Rækjusalat

    Play Episode Listen Later Jun 22, 2019 54:04


    Váfuglinn hefur sig til flugs að nýju, með nýtt season af fuglinum góða. Í þessum fyrsta þætti fær rækjusalat og mæjónes að sitja í framsætinu og stjórna okkur eins og leiðtogi sértrúarsafnaðar. Mæjónes hefur fylgt þjóðinni frá því löngu fyrir sjálfstæði - þaðan skreið það eins og löðrandi feitur jökull sem ruddist í gegnum stormasaga sögu þjóðarinnar á tuttugustu öldinni og alveg inn í þá tuttugustu og fyrstu. Á þessum tíma hefur þessi einfalda sósa dansað fram og til baka í stéttarvitund íslendinga: í fyrstu var hún aðeins á borðum þeirra allra ríkustu og veitti dásemdar kræsingum sinn hlaupkennda hjúp, svo var hún orðin fastur liður í öllum helsta skyndibita vor áður en hún gekk í endurnýjun lífdaga með innkomu hipstersins í íslenska menningu.

    Ár svínsins

    Play Episode Listen Later Feb 28, 2019 48:24


    Eftir að hafa legið í leyni og beðið nýs árs hefur Váfuglinn sig aftur á flug og er tilefnið koma árs svínsins. Bílaleigur, vídeóleigur og jafnvel kjólaleigur er allt mjög góður business en eins og kemur fram í exposé rannsóknardeildar þáttarins er þarna ákveðin hula sem hægt er að svipta. Framundan er svo stærsta partí ársins - þriggja daga veisla þar sem öll skilningarvit eru örvuð. Við erum auðvitað að tala um hina heilögu íslensku þrenningu: bakarísdaginn, hrossakjötsdaginn og akureyringadaginn.

    2018 Jóla special

    Play Episode Listen Later Dec 24, 2018 82:01


    Það er hátíðarstund í þessum jólaspecial Váfuglsins. Jólin renna í garð á vel smurðum vagni sem enginn fær stoppað sama hversu mikið er reynt. Þessu fagna Váfuglsmenn enda lítið annað hægt að gera í stöðunni annað en að beygja sig niður og þrífa stígvél jóla-yfirboðaranna með tungunni og þakka bara fyrir 1.500 króna Bluetooth hátalarann. Saga jólakræsinganna verður rekin. Jólabjórinn er aðeins smakkaður og jólahefðir atvinnulífsins eru sérstaklega teknar fyrir, enda nægir ekki lengur að halda jólin einungis í okkar aumu persónulegu lífum. Vá-völvan er á sínum stað og segir okkur hverning vegurinn liggur gegnum árið 2019.

    Grikkir & Gott

    Play Episode Listen Later Nov 15, 2018 62:17


    Váfuglinn vaknar upp úr allsherjarþynnku Hrekkjavökuhátíðarinnar og sendir frá sér spánnýjan og spúkí þátt. Arnaldur, Stefán og Lárus, nýr tæknimaður Váfuglsins, herja miskunnarlaust á samtímann eins og draugar fortíðar. Airwaves hátíðin er sett í samhengi við hreyfiorku sögunnar hvers tannhjól mylja allt á endanum, sérstaklega þá öll áform um anga hátíðarinnar á Akureyri. Eins og venjulega er líka tekið á viðkvæmu (og hörðu) málefnunum - í þetta sinn er það heróínfaraldurinn sem er ræddur á svo rólegum nótum að það mætti halda að við værum stödd í ópíumgreni.

    Leirmaður/Leikmaður feat. Emmsjé Gauti

    Play Episode Listen Later Sep 27, 2018 72:44


    Rapparinn og Siggi Hallinn, Emmsjé Gauti, mætti í heimsókn í Váfugls-stúdíóið til að tala um styttuna Leirfinn, einbýlishúsavegginn í Breiðholti og nasistahamborgara. Sömuleiðis er farið í saumana á því hvernig er best að heilsa óljósu fólki út á götu. Mögulega skemmtilegasti Váfugl ársins. Í seinni hluta þáttarins gerum við tilraunir með minimal elektró-undirspil fyrir ljúfari hlustunarupplifun. Einhverskonar smellir fara þá að heyrast í upptökunni. Eru þetta tæknilegir örðugleikar? Eða eru þetta mögulega bara rimlarnir á stunna shadesunum okkar að rekast í hljóðnemann? Smellið ykkur á nýjan Váfugl.

    Sítrónuuppgjörið

    Play Episode Listen Later Sep 12, 2018 43:55


    Váfuglinn snýr aftur úr lamandi sumarfríi. Arnaldur og Stefán hafa báðir ferðast út fyrir landsteinana og gera grein fyrir menningunni sem þeir fundu á ferðum sínum. Alþjóðlegur áhugi á veðurfyrirbrigðinu sem við köllum rigningu verður skoðaður sérstaklega og hvernig sá sami áhugi hefur frelsað margan manninn frá erfiðum félagslegum aðstæðum. Við ræðum þrúgandi guðsótta færeyskra ungmenna, kaffimenningu á Ítalíu og sítrónutengda glæpastarfsemi þar í landi. Að lokum beinum við augum okkar að þeirri standandi menningarveislu sem finna má í Laugardalshöll allra landsmanna. Hvar annars staðar gæti álfkarl með sílíkoneyru smitað þig af vægum húðsjúkdóm á meðan landsþekktir aðilar humma og flauta slagara með Megasi?

    Gott kakó

    Play Episode Listen Later Jul 18, 2018 66:43


    Váfugl dagsins er óhræddur við að taka á stóru málunum bæði heima fyrir og úti í hinum stóra heimi. Við kynnum okkur úrlausn erfiðra deilumála með aðstoð sýnishorna úr bíómyndum og förum svo rakleiðis í Kaupfélagið á Sauðárkróki. Um leið og vorið heldur loks innreið sína í Vaglaskóg fyrir norðan, skoðum við stöðuna í menningarmálum á Íslandi yfir eldglóandi, hráum kakóbolla. Við ljúkum svo flugferðinni hjá hinni eldhressu Guðrúnu í borg lystisemdanna, Las Vegas. Viva Las Vegas. Glöggir áheyrendur kunna ef til vill stundum að heyra bank í ofnalögnum í bakgrunninum. Eru "laumufarþegar" í kjallaranum á upptökuveri Váfuglsins?

    Börnin í Blesugróf

    Play Episode Listen Later Jun 14, 2018 62:06


    Það vita margir að hið vanskapaða hross Sleipnir steig niður einum af ónáttúrulega mörgum hófum sínum austur á Ásbyrgi. Þar bjó hann til klettavegg sem fólk elskar að tjalda við hliðina á. Það sem færri vita er að annar hryllilegur angi neðan úr þessu "hrossi" kom niður í hjarta Reykjavíkur og skapaði Skeifuna - þaðan kemur nafnið. Í dag er Skeifan merkileg verslunargata, menningarmiðstöð og ráðgáta. En það eru fleiri ráðgátur sem verða á vegi Váfuglsins í þetta sinn. Hvar er „hið raunverulega Ísland“ að finna? Hver býr raunverulega í uppsveitum Skagafjarðar og hvað gerir fólk þar? Hvað varð um Guðmund eftir að hann kom við í hverfissjoppunni sinni í síðasta sinn? Við opnum hjólageymsluna eftir þungbæran vetur og rúllum Gísla Marteini út. Hann fær að flakka alla leið í Blesugróf þar sem hann skröltir um og segir okkur sögu þessa alræmda hverfis. Það er líka rækjusamloka, pube í b0rger og margt, margt fleira.

    Söngur mjaldranna

    Play Episode Listen Later May 18, 2018 52:27


    Nú er þessi dásamlegi tími ársins þegar við göngum öll í einfaldri röð að svignandi hlaðborði lýðræðisins eins og svangir gestir í fermingarveislu. Hvað er okkar rækjusalat? Hvert dýfum við lúkunum? Váfuglinn skoðar sviptingar í sveitarstjórnarmálum landsins. Við skoðum nokkrar (mis)neikvæðar breytingar á borgarlandslaginu og rifjum það upp þegar Arnmjaldur ætlaði að verða pool höstler. Við tökum svo flugið beint norður og veltum fyrir okkur morbid áhuga norðanmanna á því að upplifa sveltandi bóndadurga murka lífið úr hvor öðrum með steinhnullungum í sýndarveruleika. Já, þetta eru sannarlega ótrúlegir tímar sem við lifum á.

    Afmælis special - 1 ár af hamingju!

    Play Episode Listen Later May 2, 2018 52:01


    "Partýbúðin kynnir: Váfuglinn! Nú í beinni útsendingu frá Café Milanó, þar sem hjarta Skeifunnar slær! Mörg erfið mál bera á góma í þetta sinn - ársafmæli Váfuglsins, sveitastjórnakosningar (úff) og Skeifan sjálf. Gæðið ykkur á ylvolgum takes frá Arnaldi og Stefáni!

    Karnival í mottumars

    Play Episode Listen Later Mar 27, 2018 47:26


    Váfuglinn í þetta sinn er helgaður vitundarvakningarátökum og fallegustu helgistund í lífi sérhvers manns, fermingunni. Við skoðum Mottumars og athugum hvort læknastéttin sé raunverulega eitthvað með puttana í þessu átaki. Við förum yfir þá dægradvöl sem stendur Íslendingum til boða nú þegar tekur að vora en pössum okkur samt rækilega á þessum hættulega "carnie" frá Bournmouth. Menn segja að hann sé flinkur með butterfly-kutann. Að lokum fjöllum við um hina guðdómlegu íslensku fermingarveislu með öllum sínum rækjusalötum og aspasréttum. Er kannski kominn tími til að endurnýja heitin?

    er menn mottumars
    Kópverskir draumar

    Play Episode Listen Later Mar 3, 2018 46:06


    Váfuglinn tekur flugið beint inn í Kópavog í þetta sinn þar sem við kynnum okkur framkvæmdagleðina sem virðist einkenna góða menn með reiðufé í íþróttatöskum. Kópavogurinn er fullur af eldhugum í allskyns rekstri en ekki síst er það blómstrandi hótelrekstur. Við kynnum okkur nýjasta glæsihótel Kópavogs sem áður þjónaði stærsta sértrúarsöfnuði landsins. Vetrarólympíuleikarnir eru líka gerðir upp á eftirminnilegan hátt áður en við flögrum aftur á vit minninganna upp á Geitháls. Váfuglinn kannar loks hvernig nýtt eignarhald Fréttatímans gæti gagnast bágstöddum börnum. Váfuglinn - Eini óháði miðill lýðveldisins!

    Hvítur á leik

    Play Episode Listen Later Feb 23, 2018 43:40


    Sannkölluð Góu-gleði gerir nú vart við sig hjá Váfuglinum. Við ræðum mjög svo breytilegan opnunartíma Vínbúða eftir dögum og staðsetningu í bæjarlandinu. Við tökum hús á Skáksambandinu enda alltaf glatt á hjalla á þeim bænum. Rúnturinn endar svo með góðu pube í b0rgerinn við Hlemm þar sem við bjóðum geðstirðum og ofbeldishneigðum strætóbílstjórum upp á sannkallaða veislu af keimlíkum austurlenskum mat.

    Tímamóta tal

    Play Episode Listen Later Jan 24, 2018 48:35


    Váfuglinn er að þessu sinni helgaður hátíðlegustu hátíð allra Íslendinga, Áramótum. Eftir að hafa afplánað nógu lengi í fjölskylduboði í einu af úthverfum borgarinnar er Váfuglinn loksins tilbúinn að keyra þetta djamm í gang. Með kampavín í annarri, viskí í hinni og óþægilega stóran áramótavindil í munninum er árið 2017 gert upp á ógleymanlegan hátt. En Váfuglinn lifir ekki bara í fortíðinni heldur eru línurnar líka lagðar fyrir nýja árið. Biblískur þáttur þar sem við brennum allt og svæfum borgina í svifryki.

    2017 Jóla special

    Play Episode Listen Later Dec 18, 2017 45:05


    Jólapeysur! Jólahlaðborð! Jólaskór! Jólin nálgast óðfluga! Stressið og vinur þess kvíðinn, hríslast um nú bein landsmanna. sem ráfa á milli verslana til að kaupa allt sem augun lenda á í meira en þrjár sekúndur. Allt er þetta í vanstilltri viðleitni til að finna hina einu sönnu gjöf til að færa manneskjunni sem á allt og vantar ekkert. Að þessu tilefni slær Váfuglinn upp í allsherjar Jóla-special þar sem flestir þættir jólanna eru ræddir af mikilli innsýn tveggja reynslubolta. En aðallega er rætt um vinnuveitendur, af einhverri ástæðu.

    Sjoppulegir togarar

    Play Episode Listen Later Nov 22, 2017 56:29


    Váfuglinn er sjanghæaður um borð í rússneskan togara eftir að hafa verið að rúnta niðri við höfnina í alla nótt. Hvar eru reiðhjólin og Lödurnar geymdar? Reiðhjólafarminum er landað í Árbænum þar sem menn kúka og sturta sig á sama tíma og skreppa í sjoppur - en Rækjusamlokan snýr einmitt aftur og hefur aldrei verið eins meta. Váfuglsmenn velta ítarlega fyrir sér hvaðan frummynd sjoppunar kemur. Að lokum fær Gísli Marteinn svo uppreist æru og rúllar niður okkar eigin Las Vegas strip - Bankastrætið.

    las vegas rei hvar bankastr
    Safe space fyrir Zúista

    Play Episode Listen Later Oct 27, 2017 51:49


    Váfuglinn kom saman í litla læsta herberginu sínu þar sem Váfuglsmenn geta tekið upp hugsanir sínar í friði frá gagnrýni og öðru áreiti. Í þetta sinn voru þær um hinn göfuga Facebookhóp "Strákahitting" sem breyttist mjög fljótlega í helsta vígi Hins-hægrisins á íslenska internetinu, trúarbrögð - en það kemur í ljós að trúarskoðanir þáttastjórnenda eru afar ólíkar eins og í "... labba inn á bar" brandara. Að lokum eru almenn öryggismál rædd í mikilli alvöru í kjölfar þess að Ríkislögreglustjóri droppaði flaming hot skýrslu á dögunum.

    2017 Kosninga special

    Play Episode Listen Later Oct 13, 2017 54:36


    Váfuglinn tætir í sig íslensk stjórnmál í aðdraganda komandi kosninga í þessum upplýsandi, gagnsæja kosninga special. Þetta eru hin einu sönnu samræðustjórnmál. Í þættinum verða allir flokkarnir skoðaðir, menn og málefni gerð upp - til þess að ÞÚ þurfir þess ekki. Afhverju myndast Sigmundur Davíð svona illa? Viljum við ekki öll sjá Albaníu-Valda borða stolna hot-wings? Hversu eldfim er íslenska krónan? Váfuglinn svarar öllum spurningum kjósenda um menn og málefni flokkanna sem bítast um völdin á Íslandi árið 2017.

    Líkamshryllingur og skyrglíma?

    Play Episode Listen Later Sep 21, 2017 60:02


    Váfuglinn kemur saman að nýju og vinnur úr uppsafnaðri heift með því að rífa í sig þá pólitísku spillingu sem gegnsýrir landið – eins og skyr. Ríkisstjórnin féll aðeins klukkustund eftir þær afhjúpanir sem þátturinn ber á borð. Við skoðum hópeflistilraunir ónefnds tískurisa og veltum fyrir okkur líkamshryllingi á samfélagsmiðlum. Að lokum tekur Váfuglinn sér varðstöðu um síðustu sjoppurnar í samfélagi mannanna. Hefur þig einhverntíman langað meira í eitthvað en nýjan Váfugl?

    Migos og menning í Mathöllinni

    Play Episode Listen Later Aug 30, 2017 52:47


    Váfuglinn flaug í Höllina á tónleika með rappsveitinni Migos og tók út stemminguna. Hefðu þeir kannski heldur átt að spila í Mat(ar)höllinni á Hlemmi? Í ekkert-svo-fasta liðnum "Það er pube í b0rgerinn minn" var Mathöllin einmitt tekin fyrir miskunnar- og vægðarlaust. Váfuglinn rýndi líka í vandræðaganginn í kringum síkáta sjómannsvegginn en þar verða líklega allir götulistamenn landins mættir samtímis að spreyja andlitismyndir af ráðherrum á eftirlaunum. Að lokum skelltu Váfuglarnir sér svo í sérlega skemmtilegt og hámenningarlegt beikonpartí á Menningarnótt og snéru Subway Hjólinu™

    mat math migos hef menningarn
    Útihátíð á sterum

    Play Episode Listen Later Aug 16, 2017 59:09


    Nú þegar 10. áratugurinn hefur verið vakinn til lífsins með tilheyrandi vandræðagangi og sveitaballarómantík reyna Arnaldur og Stefán að greina hvað fór úrskeiðis. Er áhrifavöldum um að kenna? Eða er áhrifafólk kannski bara leiksoppar í þessum ljóta leik? Váfuglinn miðar hátt og beinir sjóðandi kjarnaoddum í átt að steranotkun í heimi íþróttanna. Ekki einu sinni einkavæddur agile-her gæti stöðvað þennan Váfugl.

    Krónískir meistaraverkir

    Play Episode Listen Later Jul 18, 2017 41:07


    Eftir að hafa baðað sig í skólpi og dömubindum frá Degi borgarstjóra, gerir Váfuglinn upp nýafstaðna Young Thug tónleika, a.k.a. “Kronik Live ásamt fleirri”. Hugmyndafræðilegur ágreiningur skáta, femínista og annarra verður tæklaður auk þess sem við brókum rauðhærðan, bólugrafinn skátaforingja. Síðast en ekki síst skoðum nýjasta framlag Joey Christ til rappsenunnar á Íslandi.

    Byssubófar og bangerar feat. Arnar Freyr

    Play Episode Listen Later Jul 4, 2017 62:31


    Arnar Freyr Frostason úr rapptvíeykinu Úlfur Úlfur er gestur Váfuglsins í þetta sinn. Við ræddum við hann um Kaupfélag Skagfirðinga, froðudiskó og rappvídjó. Þá var einnig uppruni Priksins reyfaður lauslega.

    Sumarsólstöður á Hverfisgötu feat. Auður Ástráðsdóttir

    Play Episode Listen Later Jun 28, 2017 64:31


    Solstice hátíðin er gerð upp þessa vikuna, tími til kominn. Auður Ástráðsdóttir kíkti í heimsókn (á eigið heimili) og ræddi meðal annars náttúruhippa að kúka í kross, Dag B að dúndra í sig rjóma í Hel og hryssingslegan sunnudag í Laugardalnum. Rækjusamlokan er á dagskránni og þar er nautið Gabríel aðallega rætt (RIP Gabríel, our boy). Hverfisgatan er tekin fyrir í Gísla Marteini þáttarins þar sem eldgamla Berlínarhjólið hans Gísla kremur morfínsprautur á leið sinni niður þessa sjarmerandi götu eymdarinnar.

    Kristal Poppin' feat. Júlía Hermannsdóttir

    Play Episode Listen Later Jun 13, 2017 69:55


    Váfuglinn er ekki einn á ferð í þetta sinn - í hljóðverið mætti Júlía Hermannsdóttir og ræddi við okkur um kassettusölu sína í fangelsum landsins, mýtuna um krúttsenuna og hvernig algóriþmar hafa gert henni lífið leitt. Stefán reyndi að lesa Viðskiptablaðið með misjöfnum árangri. Pop a bottle!

    Sumargrill og vídjóveisla hjá tannlækninum

    Play Episode Listen Later Jun 2, 2017 53:12


    Er eðlilegt að horfa á vídjó með tannlækninum sínum? Myndirðu borða gamla mæjónessamloku? Eftir nokkur skakkaföll, eins og springandi endajaxla og gjaldþrot ónefnds Váfugls eftir að hann reyndi að halda Shaggy tónleika í miðju góðæri, er hér kominn enn einn glóðvolgur og ilmandi Váfugl. Í þættinum er meðal annars rætt um hina þunnu línu á milli framburðar á orðunum "klán" og "klám", birtingarmynd fánalitanna í mæjónessalötum, veðrið og gulltennur.

    Grískt sumar á Skólavörðustíg

    Play Episode Listen Later May 18, 2017 46:15


    Gyros, Pizzur, Skólavörðustígur og NES Classic. Hvað eiga þessir hlutir sameiginlegt? Líklega fátt. Stefán ræðir um flóttamenn, ferðamál á Grikklandi og gyros. Staða pizzastaða á landinu er yfirfarin og Skólavörðustígurinn er krufinn til mergjar í nýjum föstum lið. Að lokum ræða Stefán og Arnaldur retro-nördisma og NES Classic.

    Hjálmar, djús og geisladiskar

    Play Episode Listen Later May 3, 2017 53:27


    Váfuglinn hefur sig til flugs á ný eftir stutt hlé. Haukfrán augu Váfuglsins beinast að öryggis- og hlífðarbúnaði barna, hátæknivæddum ávaxtasafa og geisladiskum. Afhverju hatar fólk geisladiska? Getur fólk gerst áskrifendur að sjálfsvirðingu? Kynntur er til leiks nýr liður þar sem eldhús bæjarins eru tekin föstum tökum og krufin til mergjar.

    2017 Páska special

    Play Episode Listen Later Apr 14, 2017 62:10


    Váfuglinn beinir sjónum sínum að páskahátíðinni í þetta sinn og kemst meðal annars að því að páskarnir eru ekki hátíð ljóss og friðar (það eru víst jólin) og að á meðan við liggjum í sykurvímu eftir ómannlegt súkkulaðiát þá á sér stað mikil eymd á öðrum stöðum í heiminum. Váfuglinn fer síðan á eilítið hressari slóðir og ræðir Steven Seagal, en fljótlega nær myrkrið aftur völdum. Gleðilega páska!

    Váfuglinn hefur sig til flugs

    Play Episode Listen Later Apr 8, 2017 64:28


    Váfuglinn flýgur hátt, sér langt og rífur málefni líðandi stundar á hol. Síðan eru einhver jokes þarna.

    Claim Váfuglinn

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel