POPULARITY
Sólveig er 26 ára stelpa úr Laugardalnum. Hún hefur verið í neyslu í 10 ár og farið í nokkrar meðferðir án árangurs. Hún er komin á endastöð, að eigin sögn og á leið til Danmerkur í meðferð í byrjun desember.
Doc, Sigurður og Viktor Unnar Illugason á þriðjudegi.
Besta deild kvenna hefst á sunnudaginn og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Í sjötta sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið er Þróttur Reykjavík. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og Sæunn Björnsdóttir, leikmenn Þróttar, mættu í heimsókn og fóru yfir stöðuna í Laugardalnum.
Það hefur verið svolítið vont veður undanfarið. Í dag fóru margir fyrr heim úr vinnu vegna veðurs, alla vega hér á skrifstofunni okkar. Veðrið spilar líka stórt hlutverk í lífi Grindvíkinga um þessar mundir; veðrið og færð á vegum. Sævar Andri Sigurðarson, tónlistarmaður, hefur verið að velta fyrir sér tónlistarhátíðinni Secret Solstice sem fór fram í Laugardalnum árin 2014-2019, en á dögunum bárust fréttir af því að bandaríska thrash-metal hljómsveitin Slayer hefði sigrað dómsmál gegn aðstandendum hátíðarinnar. Hafnar.concert series er tónleikaröð sem José Luis Anderson hefur skipulagt í samstarfi við Hafnar.haus og tónleikastaðinn Mengi. Við kynnum okkur málið og kynnumst jafnframt tónlistarkonunni Ronju Jóhannsdóttur. Lagalisti: Slayer - War Ensemble SSSól - Vertu þú sjálfur SOPHIE - Face Shopping Belle & Sebastian - If You're Feeling Sinister Slayer - War Ensemble Andervel - Canción de cuna Knackered - chatbot slang ronja - 240p ronja - fast-feedforward
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD Við tókum upp þráðinn frá Svona var Sumarið og fórum enn dýpra í Fjölnis sögu Þorgeirssonar og ævintýri hans með "Mel krydd". Hefndarklám var sent inn í stuttmyndakeppni á sama tíma og óveðursskýið hlóð upp regni og eldingum yfir Laugardalnum. Eggert Magnússon hélt þó áfram að skrifa undir hina ýmsu samninga. Changing of the guards, farewell to legends og svo gerðum við upp talsetningar á teiknimyndum á 10. áratugnum. Svona var Ísland 96-98. Dæliði inn í Thule hornið!
Víkingur vann FH í framlengdum bikarúrslitaleik og fyrstu fjórir leikirnir eftir tvískiptingu Bestu deildarinnar eru að baki. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir það helsta sem er í gangi í íslenska boltanum í Innkasti vikunnar. Meðal efnis: Lætin í Laugardalnum, Haddi byrjar á sigri fyrir norðan, Blikar miklu betri en Stjörnumenn, sparkað í liggjandi Skagamenn og Fram tók fernuna gegn Leikni.
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Óskar Smári fengu í heimsókn góða gesti frá toppliðunum tveimur. Guðmundur Axel frá Þrótti R. og Maggi Matt frá Njarðvík mættu í spjall þar sem farið var yfir tímabil liðanna í ár, framhaldið og fleira. Guðmundur Axel svaraði fyrir gagnrýni Ástríðunnar undanfarna mánuði auk þess sem hann fór vel yfir hvað er í vændum í Laugardalnum.Maggi Matt mætti með risa tilkynningu í þáttinn, fór yfir breytingar á liðinu á undurbúningstímabilinu, hvaða leikmenn verða áfram með nýjum þjálfara og hvað gerir Bjarna Jó að Bjarna Jó. Lið ársins, besti leikmaður, efnilegastur og þjálfari ársins allt tilkynnt og rætt vel í þættinum. Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.
Dans- og pönkverkið Neind Thing var frumsýnt á fimmtudaginn var í Tjarnarbíó. Verkið er eftir Ingu Huld Hákonardóttur, framið af 3 sviðslistakonum og einum trommara. Snæbjörn Brynjarsson fór á frumsýningu og deilir upplifun sinni með okkur hér á eftir. María Huld Markan Sigfúsdóttir tónskáld verður gestur Víðsjár í dag og segir hlustendum frá viðburðinum Are we ok? sem verður í Hörpu á fimmtudagskvöld en þar er í boði ferðalag um arkítektúr Hörpu í splunkunýju verki Maríu Huldar og bandaríska danshöfundarins Daniels Roberts. Og nú streyma auðvitað bækur til okkar hingað í Víðsjá. Ein þeirra er ljóðabókin Álfheimar eftir Brynjar Jóhannesson. Á bókakápu er ljósmyndaf götuskiltinu úr Álfheimum en inn í kápunni segir að höfundur sé skáld úr Laugardalnum. Duglegasti letingi sinnar kynslóðar sem skilur vel dyggðina að brosa vingjarnlega, gera sitt besta og leggja ekki of mikið á sig. Við tökum Brynjar tali í þætti dagsins. Og við heyrum hvað Gauti Kristmannsson hefur að segja um Merkingu, nýja skáldsögu Fríðu Ísberg.

Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net heimsótti Vöndu Sigurgeirsdóttur á skrifstofu hennar í Laugardalnum. Vanda er tekin við sem formaður KSÍ og er fyrsta konan sem tekur við formennsku í aðildarfélagi hjá UEFA. Í viðtalinu ræðir hún um tiltektina sem framundan er, hvort hún sé komin til að vera, gagnrýni í Podcöstum, stuðningsyfirlýsingu við Arnar, traust framkvæmdastjórans, ímynd KSÍ, yfirmann fótboltamála, Laugardalsvöll, reynsluna frá ferli hennar og "Vanda Sig" brandarana.
Lúðvík Jónasson, Höfðinginn og Dr. Football á föstudegi.
Dr. Football fór yfir landsliðið, Pepsi max karla, kvenna, Harry Kane, Ronaldo, Mbappe.... með Kela og Gunnari Ormslev
Sorry hljóðgæðin, Mike þurfti að rífa upp tólið frá Spáni vegna tæknilega örðuleika. Glænýtt leikrit eftir Guðna Bergsson var frumsýnt í dag í Laugardalnum, spennandi landsliðshópur og Blix geta farið að kæla kampavínið. Til hamingju Valskonur, Lengjan, Evrópa og Enski boltinn fengu svo pláss í lokinn. Mike Show...enginn gerir betur !
Sir Guðjón Þórðarson fór yfir 6 umferðina með Mike. Valur notar disel, gamla FH mætt aftur, KR getur ekki stýrt leikjum. Sanngjarnt jafntefli í Víkinni og Blika lestin komin á teinana. Hver fer til Tottenham og hvert fer Kane ? Þetta og mjööög margt annað fyrir þig og aðeins fyrir þig.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars fræðst um sirkuslistahópinn Hringleik sem vinnur að því að byggja upp og styrkja sirkusmenningu á Íslandi með uppsetningu fjölbreyttra sirkussýninga, námskeiðshaldi og sirkusiðkun fyrir sirkusfólk. Hópurinn frumsýndi í Tjarnarbíói fyrir helgina nýsirkussýninguna Allra veðra von en sýningin er unnin í samstarfi við leikhópinn Miðnætti sem sér um leikstjórn, tónlist, búninga og leikmynd. Karna Sigurðardóttir og Eyrún Ævarsdóttir segja frá sýningunni og starfsemi Hringleiks í Víðsjá í dag. Ásmundarsafn í Laugardalnum verður heimsótt og þar rætt við myndlistarkonuna Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur en á nýrri sýningu sem heitir Ef lýsa ætti myrkri á hún í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar og bygginguna sjálfa. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar um splúnkunýja íslenska skáldsögu, Merki, eftir Sólveigu Johnsen. Og Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi þáttarins fjallar í dag um leikritið Veislu sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu fyrir helgi.

Síðar í vikunni verður frumsýnd heimildarmyndin Góði Hirðirinn eftir Helgu Rakel Rafnsdóttur, mynd sem er tekin á Garðstöðum við Ísafjarðardjúp, þar sem Þorbjörn Steingrímsson hefur sankað að sér hundruðum bílhræja. Við heyrum þriðja innslagið af blaðlauknum frá Jón Torfa Arasyni og Þórdísi Claessen. Í þessum innslögum sínum flysja þau lögin af ýmsum hversdagslegum fyrirbærum, og í dag eru það húsfélög sem þau ætla að fjalla um. Þau ræða við Helga Eirík Eyjólfsson, félagsfræðing sem er formaður í stóru húsfélagi í Laugardalnum. Og við hringjum í Gísla Darra Halldórsson sem er staddur í Los Angeles þar sem hann mætti á Óskarsverðlaunahátíðina en hann var tilnefndur til verðlaunanna fyrir bestu stuttu teiknimyndina.

Dr. Football ræddi við þá Björn Berg og Pál Kristjánsson sem hafa mikinn áhuga á knattspyrnuleikvöngum að ræða nýjan Laugardalsvöll. Þeir sögðu frá því hvernig þeir vilja sjá nýjan völl í Laugardalnum. Og allir erum við sammála um að vilja engan Kleinuhringja-leikvang.
Umsjónarmenn: Sigmar Guðmundsson og Rúnar Róbertsson Naumhyggjulífstíll er hugtak sem ekki margir þekkja. Það er að lifa af eins litlu og hægt er. Sveinn Snorri Sighvatsson er einn þeirra sem hefur tekið uppá þeim lífstíl. Býr núna í miðjum Covid faraldri í hjólhýsi í Laugardalnum ásamt kærustu og hundi. Alla jafna eyðir hann tíma sínum uppá hálendinu sem leiðsögumaður. Rúnar heimsótti hann í Laugardalinn til að forvitnast um naumhyggjulífið og lífið á tjaldsvæðinu í Laugardalnum. Hvernig gekk bóksala á síðasta ári? Hafði faraldurinn áhrif á bókalestur og kaup? Við töluðum við Margréti Jónu Guðbergsdóttur hjá Pennanum Eymundsson en þau reka 16 bókaverslanir um allt land og ættu því að hafa góða yfirsýn yfir markaðinn. Rafmyntin Bitcoin hefur verið í fréttum undanfarið vegna gríðalegrar virðishækkunnar. Margir hafa heyrt um þessar rafmyntir sem eru í gangi en kannski haldið að tímabili þeirra væri lokið. Að þetta hafi verið bóla eða pýramídasvindl. Til að forvitnast um þennan markað heyrðum við í Kjartani Ragnars hjá Rafmyntaráði Íslands sem ætlar að upplýsa okkur betur. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti íslands, var í viðtali hjá okkur en við ræddum við hann um ástandið í bandarískjum stjórnmálum og þjóðlífi eftir að hópur fólks réðst inn í bandarískja þinghúsið fyrir helgi. Við ræddum við hann um aðdragandann að þessu, stöðuna núna og hvað honum fannst líklegast að gerist í framhaldinu. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson af íþróttadeildinni fór yfir mótið framundan hjá handboltalandsliðinu og möguleikana þar. Tónlist: Emilílana Torrini - Big jumps Hjálmar - Manstu Sváfnir Sig ásamt Hildi Völu - Þetta fley er ekki að fara neitt GDRN ásamt Birni - Áður en dagur rís Jet black Joe ásamt Sigríði Guðnadóttur - Freedom Daði Freyr ásamt Ásdísi - Feel the love Tracy Chapman - Fast car

Það var mikið um dýrðir í Laugardalnum í vikunni. Landsliðið okkar bætti 4 mikilvægum stigum í safnið og stefnir ótrautt til Englands. Ungu stelpurnar gripu gæsina og landsliðsfyrirliðinn jafnaði leikjametið.
Fótboltamótið REY Cup stendur nú sem hæst í Laugardalnum og hefur aldrei verið stærra. Hulda leit við í blíðunni í gær og hitti á framkvæmdastjóra mótsins Guðmund Breiðfjörð sem var kampakátur með góða stemmingu og viðtökur. Ólafía Hrönn Jónsdóttir söng- og leikkona var á línunni frá Hveravík en þar er hún á ferð með dularfullum tónlistarflokki sem kallar sig Gertrude and the flowers. Við fengum að vita meira og heyrðum lag. Eyþór Máni Steinarsson, rekstrarstjóri Hopp kom til okkar. Rafskúturnar eru um alla borg en hvernig gengur? Er mikið um skemmdir eða slys og hvernig gengur að tækla þær áskoranir sem upp hafa komið. Eyþór fór yfir þetta með okkur. Ólympíuleikunum í ár var frestað líkt og svo mörgum öðrum stórviðburðum, en það þýðir þó ekki að sjónvarpsáhorfendur fái ekki sinn skammt af olympíu stemmingunni þetta sumarið. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður leit við hjá okkur og sagði okkur frá nýjum sjónvarpsþáttum á RÚV þar sem einstakar Ólympíuminningar eru rifjaðar upp, en fyrsti þáttur er einmitt á dagskrá í kvöld. Tónlist: Bubbi og Hjálmar - Þöggun. Proclaimers - Im on my way. The Weeknd - In your eyes. Harry Nilsson - Everybodys talkin. Beggi Smári - Brostu. Gertrude and the flowers - Umbreyting. Ingó veðurguð - Í kvöld er gigg. Blondie - Call me. Sálin hans Jóns míns - Lestin er að fara. Spandau Ballet - Only when you leave. Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson.

Heimamenn, settust niður og prófuðu að tala um fótbolta á þessum síðustu og verstu. Benedikt Bóas sat í Melgerðinu, Breki Logason sat við Your Day Tours og Jói Alfreð var heima hjá sér í Laugardalnum. Spjall sem fór úr einu í annað. Þetta er tilraun svo bannað að dæma mjög hart en vonandi léttir þetta einhverjum Valsmönnum lundina.
Landsliðs-Innkast beint úr Laugardalnum. Elvar Geir, Tómas Þór, Gunni Birgis og Magnús Már fóru yfir stöðu mála eftir sigurinn gegn Andorra. Farið var yfir leikinn og þýðingu hans. Í þættinum var einnig rætt um nýjustu þjálfaratíðindin í íslenska boltanum.
Stútfull dagskrá í dag. Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín Þróttarana Álfhildi Rósu og Lindu Líf sem flugu upp í Pepsi Max deildina á dögunum. Knattspyrnusérfræðingurinn Daði Rafnsson spáir í landsleikina sem framundan eru og farið verður yfir allt það helsta í Pepsi Max og Inkasso deildunum.
Sveitaböll eru ekkert síðri á mölinni en í sveitinni. Það ætlar Jón Ólafsson að sanna um helgina og heldur ballið í Dalnum, í félagsheimili Þróttar í hjarta Laugardals 17. ágúst. Hann verður með stórskotalið með sér eins og Helga Björns, Hili Völu, Bödda Reynis og Dóra Gylfa. Svefnvandamál geta tengst erfiðri lífsreynslu og draumar haft veruleg áhrif á gæði svefns. Fólk sem hefur ekki náð að vinna úr áföllum í lífinu getur fengið martraðir með jafnvel líkamlegum viðbrögðum á borð við að sparka og öskra í svefni. Edda Björk Þórðardóttir, nýdoktor við Læknadeild Háskóla Ísland, rýnir nú í sögur kvenna sem tóku þátt í átakinu Áfallasaga kvenna og kom í Morgunútvarpið. Hverfisgatan hefur verið sundurgrafin i sumar. Gatan er teppt fyrir viðgerðir en bent hefur verið á hve fáir sjást að verki. Ásmundur Helgason, eigandi kaffihússins Gráa kattarins, gagnrýnir einnig bága upplýsingagjöf til rekstraraðila götunnar. Pólitíkusar virðist geta þvegið hendur sínar af málinu og svarað út í hött. Öldurnar innan Sjálfstæðisflokksins virðast seint ætla að lægja vegna 3. orkupakkans. Flokksforystan og baklandið virðast ekki ætla að ná takti inn í nýjan þingvetur. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands rýndi í stöðu flokkanna fyrir veturinn. Tískuheimurinn horfir til drag-förðunar og hermir eftir. Andlitsskyggingin sem Kardashian-systur nota er til að mynda fengin úr dragi. Þetta þekkir Katla Einarsdóttir förðunarmeistari sem hefur stúderað drag-förðun. Hún var á Drag-Súgi í gærkvöldi þar sem drag-kóngafólk Reykjavíkur fagnaði hinseginleikanum og fjölbreytileikanum. Katla fræddi okkur um þessa eftirtektarverðu förðun.
Black Eyed Peas, Robert Plant, Pusha T og Patti Smith voru meðal þeirra sem komu fram á Secret Solstice tónlistarhátíðinni sem fór fram í Laugardalnum um helgina. Davíð Roach Gunnarsson var útsendari Lestarinnar á hátíðinni og flytur pistil um upplifun sína. Við kynnum okkur hina vaxandi grein kvikmyndaferðamennsku á Íslandi, en á undanförnum árum hafa æ fleiri kvikmyndir og sjónvarpsþættir notast við íslenska náttúru sem sviðsmynd. Rætt verður við Lindu Katrínu Elvarsdóttur sem skrifað hefur lokaritgerð í ferðamálafræði um markaðssetningu, væntingar og upplifun ferðamanna í kvikmyndaferðamennsku á Íslandi. Þann 14. júní síðastliðinn gaf breska skáldið og tónlistarkonan Kate Tempest frá sér plötuna The Book of Traps and Lessons. Tómas Ævar Ólafsson hlustaði á plötuna og segir frá henni í Lestinni í dag. Halldór Armand Ásgeirsson flytur okkur pistil um rándýran náttslopp sem varpar ljósi á hina duldu gæsku hversdagsins. Umsjón: KG og AMC

Dæmi eru um að sjúklingar þurfi að greiða tíu þúsund krónur aukalega fyrir heimsókn til sérfræðilæknis. Þetta aukagjald er ekki niðurgreitt af ríki. Forstjóri Sjúkratrygginga segir þetta sýna að brýnt að ná samningum við sérfræðilækna sem fyrst. Deilur Bandaríkjanna og Íran virðast engan endi ætla að taka. Ásakanir hafa gengið milli í tengslum við njósnadróna sem Íranar skutu niður í fyrrakvöld. Sjötta Secret Solstice-hátíðin var sett í Laugardalnum í dag, eftir mánaðalangar samningaviðræður við Reykjavíkurborg. Fjöldi heimsþekktra tónlistarmanna kemur þar fram. Formaður félags framhaldsskólakennara, segir að trúnaðarbrestur hafi komið upp þegar formaður Kennarasambands Íslands, beitti sér fyrir frumvarpi að nýjum lögum um menntun, hæfni og ráðningu kennara. Íbúar í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit eru almennt jákvæðir gagnvart viðræðum um sameiningu sveitarfélaganna, Í síðari hluta Spegilsins minnumst við þes að í dag eru tíu ár liðin frá því Grænlendingar fengu sjálfstjórn. Þá ríkti mikil bjartsýni um framtíðina en nú telur þáverandi formaður landsstjórnarinnar að leysa þurfi gríðarleg félagsleg vandamál áður en hugsað sé um fullt sjálfstæði. Við fjöllum líka ítarlega um þá kolefnisjöfnunarkosti sem bjóðast á Íslandi og komumst að því að það er hægt að kolefnisjafna í bólu.
Eins og kunnugt er hefur vatnsmagn í ám landsins verið með minna móti síðustu vikur. Hvað gera veiðimenn þá? Þessu ætlar Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins, er forfallinn áhugamaður um veiðimennsku og hann fór yfir þetta með okkur. Vestahafs velta menn því fyrir sér hvort snertiskjáir og breytt áhugamál séu að hafa áhrif á heilsu fólks en á óvæntan hátt; vilja margir meina að nema í skurðlækningum skorti þá fingrafimi sem nauðsynleg er til að sinna starfinu almennilega. Við ræddum við Guðjón Birgisson, sérfræðing í almennum skurðlækningum. Tónlistarhátíðin Secret Solstice hefst í dag í Laugardalnum. Við slógum á þráðinn til Jóns Bjarna Steinssonar hjá Secret Solstice og heyra aðeins af nýjungum og stemmingunni framundan. Fréttir vikunnar voru á sínum stað en gestir okkar að þessu sinni voru Eyrún Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Kjarnans og Gunnar Dofri Ólafsson lögmaður hjá Viðskiptaráði og fyrrverandi blaðamaður. Við dýfðum okkur á bólakaf í hégómavísindahylinn, þar sem Freyr Gígja Gunnarsson ræður ríkjum og heyrðum fréttir af fræga fólkinu. Tónlist: Ellen Kristjáns og Mannakorn - Litla systir. Michael Kiwanuka - One more night. Eric Clapton - Lay down Sally. Warmland - Overboard. Friðrik Dór - Dönsum eins og hálfvitar. Madonna - Papa dont preach. Black Eyed Peas - I gotta feeling.
Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Poppland dagsins var pakkað af allskonar tónlist. Farið var yfir helstu tónlistarfréttir dagsins, komum okkur í Secret Solstice stuð en hátíðin hefst í Laugardalnum á morgun, heyrðum við lög af plötu vikunnar 52 Fjöll sem er í höndum Hjörvars Hafliðasonar og ýmislegt annað skemmtilegt. Dísa - Anniversary Arlo Parks - Super Sad Generation Patti Smith - Because The Night Pusha T - Come Back Baby The Revivalists - Change Foals - In Degrees Bruce Springsteen - Hello Sunshine Babybird - You're Gorgeous Hjörvar Hafliðason - Hvar Hvíla Þín Bein Auður - Enginn Eins Og Þú Smiths - William, It Was Really Nothing Elísabet Ormslev - Heart Beats Ljósin í Bænum - Tunglið Tunglið Taktu Mig Keane - Somewhere Only We Know Led Zeppelin - Wholla Lotta Love Vök - Erase You Jack White - Lazaretto Trabant - The One Ellie Goulding - Sixteen Kaleo - I Walk On Water Bjartmar Guðlaugs - Eyjarós Orville Peck - Turn To Hate Turn Brakes - Mind Over Money Unun - Lög Unga Fólsins David Bowie - Space Oddity Pheonix - Lisztomania John Grant - He's Got His Mothers Hips Hot Chip - Melody Of Love Tom Odell - Can't Pretend Stjórnin - Segðu Já Frank Ocean - Thinking Bout You Dr. Hook - Sharing The Night Together Bubbi Morthens - Fallegur Dagur The Clash - Train In Vain Hjörvar Hjörleifsson - Komdu Með Beach Boys - Good Vibrations Banks - Gimme The Head And The Heart - Missed Connection Nýdönsk - Hversdagsprins Roxy Music - Avalon St. Paul & The Broken Bones - GotitBad Patsy Cline - Crazy Lykke Li - Sex Money Feelings Die Hjálmar - Fyrir Þig Fríða Dís - Baristublús The Stranglers - Skin Deep
Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson og Lovísa Rut Kristjánsdóttir. Poppland dagsins var pakkað af allskonar tónlist, fjallað var um afmælisbarn dagsins Paul McCartney. Svo kíkti Jón Bjarni við, einn skipuleggjanda Secret Solstice hátíðarinnar sem fer fram næstu helgi í Laugardalnum og sagði okkur frá því sem framundan er þar. Kynntum til leiks plötu vikunnar 52 Fjöll sem er í höndum Hjörvars Hafliðasonar. Paul McCartney - My Love Hot Chip - Melody of Love Lana Del Rey - Doin Time U2 - Where the streets have No Name Robert Plant og Alison Krauss - Please Read the Letter The Black Keys - Go Bruce Springsteen - Hello Sunshine The Waterboys - Where The Action is Markús og Alkemistarnir - Seinasta Tegundin Wilco - I Might Múgsefjun - Sendlingur og Sandlóa The Beatles - Golden Slumbers The Beatles - Carry That Weight The Beatles - The End The Beatles - Her Majesty The Raconteurs - Help Me Stranger Marianne Faithful - Gypsy Fairy Queen Stuðmenn - Slá í Gegn Júníus Meyvant - Ain't Gonna Let You Drown Two Door Cinema Club - Satellite Patti Smith - Because The Night Madonna - Medellín Hjörvar Hjörleifs - Fortíðarbörn Sugarhill Gang - Rapper's Delight Morcheeba - Be Yourself Black Eyed Peas - Where Is The Love Love Guru - Lífið Er Ljúft Miley Cyrus - Mother's Daughter Kiss - I Was Made For Loving You Fleetwood Mac - Dreams Stuðmenn - Ofboðslega Frægur Mumford & Sons - Woman Angurværð - Ferðalangur Emilíana Torrini - There Is Something In The Forest Culture Club - Do You Really Want To Hurt Me Boy George, Gladys Knight Auður - Enginn Eins Og Þú Fleetwood Mac - Dreams Bubbi Morthens - Sonnetta Suede - Trash Blondie - Call Me Jónas Sig - Að Lokum John Mayer - Waiting On The World To Change R.E.M. - Losing My Religion
Hulda Líney Magnúsdóttir og Ragnheiður Gísladóttir Mánabergi, vistheimili barna: Vistheimili hverskonar eru oft umdeild innan íbúðabyggðar en nýverið lýsti hluti íbúa Norðlingaholts sig í andstöðu við vistheimili fyrir börn sem átti að opna í hverfinu. Samfélagið heimsækir vistheimili í Laugardalnum og kynnir sér starfsemina þar. Höskuldur Þráinsson: Höskuldur er einn þriggja ritsjóra bókarinnar Sigurtunga sem er safn greina um rannsóknir á erfðamálinu vesturíslensku og menningu og sögu fólks af íslenskum uppruna í Vesturheimi. Skarphéðinn Þórisson, Náttúrustofu Ásuturlands: Rætt við Skarphéðinn um nýja skýrslu þar sem segir að stofnar villtra hreindýra á norðurheimskautssvæðum hafi minnkað um helming á tveimur áratugum.
Talsvert hefur verið rætt um rafbíla og rafbílavæðingu Íslands - en stóra spurningin hlýtur að vera hvort við séum tilbúin fyrir þessar breytingar sem samfélag og hvað þurfi að gerast til að svo sé. Tryggvi M. Þórðarson formaður Aksturíþróttasambands Íslands ræddi þessi mál hjá okkur í dag. Í gær fjölluðum við um banaslys sem varð á Kirkjufelli, en alvarlegum slysum á ferðamönnum hefur fjölgað hér á landi í takt við fjölgun þeirra. Landsbjörg sinnir flestum þeim útköllum er verða í slíkum tilfellum og þeir Jónas Guðmundsson, sem vinnur að slysavörnum ferðamanna og Guðmundur Óli Gunnarsson, undanfari í Hjálparsveit skáta í Garðabæ - sem einmitt tók þátt í björgunaraðgerðunum á Kirkjufelli - komu til okkar og sögðu okkur frá starfseminni og þeim áskorunum sem ferðamannastraumurinn hefur í för með sér fyrir björgunarsveitir í landinu. Íþróttavika Evrópu er framundan og verður hún sett af stað með pompi og prakt hér á landi nk. sunnudag þegar #BeActive dagurinn fer fram í Laugardalnum.. Við slógum á þráðinn til Hrannar Guðmundsdóttur hjá Íþrótta- og Olympíusambandinu. Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, gagnrýndi á dögunum kostnað og tilgang ferðar þingmanna og segist ekki skilja tilgang þess að senda tíu manns á vegum þingsins á fund norðurlandaráðs á Grænlandi. Hann vill hugsa þetta upp á nýtt og nýta peningana í annað. Guðmundur Ingi og Kolbeinn Óttarsson Proppe ræddu þetta hjá okkur en Kolbeinn er ósammála því að ferðin og fundurinn sé tilgangslaust bruðl. Elísabet Margeirsdóttir, hlaupakona, kom til okkar en hún tekur þátt í 400 kílómetra hlaupi eftir fáeina daga við erfiðar aðstæður í Góbí eyðimörkinni. Hlaupin gerast varla erfiðari en hlaupið er upp á tíbesku hásléttuna upp í 4000 metra hæð. Tónlist: Hjálmar - Taktu þessa trommu. Pálmi Gunnars & Ninna Pálma - Vinir vita það. Cardigans - Lovefool. Rósa Guðrún Sveinsdóttir - Tapari. Vök - Autopilot. John Mayer - New light. Elísabet - Magnús Þór & Árstíðir. Sigrid - Strangers.
Druslugangan fer fram á morgun eins og við sögðum frá í gær, en hún verður ekki bara haldin í Reykjavík. Við slógum á þráðinn norður á Akureyri og heyrðum í Emblu Blöndal, einni ungra kvenna sem standa að peppfundi og skiltagerð í kvöld fyrir druslugöngu þar í bæ á morgun. Knattspyrnumótið ReyCup stendur sem hæst í Laugardalnum núna, en þar spila unglingsstrákar og stelpur frá ýmsum þjóðum. Hildur Hafstein framkvæmdastjóri mótsins kíkti til okkar í boltaspjall. Umræða um ágengar, aðfluttar tegundir í náttúrunni, á borð við lúpínu, skógarkerfil og mink, hefur ekki verið nægilega markviss að mati Kristínar Svavarsdóttur plöntuvistfræðings hjá Landgræðslu ríkisins. Nauðsynlegt sé að marka almenna stefnu og verklag í málaflokknum en umræðan virðist oft leiðast út í að ræða kosti og galla einstakra tegunda. Hún kom til okkar. Fréttir vikunnar eru á sínum stað eins og alltaf á föstudögum. Gestir okkar í dag voru fjölmiðlafólkið Felix Bergsson og Lára Ómarsdóttir. Freyr Gígja Gunnarsson sneri aftur eftir sumarfrí og fjallaði um sitthvað forvitnilegt í hégómavísindahorninu sínu, m.a. Kylie Jenner, Frasier og Óskarsverðlaunin. Tónlist: Michael Jackson - Earth song. Ragnhildur Gísladóttir - Draumaprinsinn. Eagles - Tequila sunrise. Coldplay - The scientist. Cornershop - Brimful of asha. Hildur - I'll walk with you. Bryan Ferry - Kiss and tell. Megas - Reykjavíkurnætur. Nick Cave - Bring it on.
Hestamenn á Vestfjörðum hafa lengi glímt við aðstöðuleysi og erfiðar aðstæður til að stunda íþrótt sína. Nú stendur hins vegar til að reisa reiðhöll og við slógum á þráðinn til Marinós Hákonarsonar og heyrðum af þessum framkvæmdum. Matjurtir hafa verið órjúfanlegur hluti umhverfis mannsins í þúsundir ára. Í kvöld leiðir Björk Þorleifsdóttir verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Grasagarðinum göngu um garðinn og segir ýmsar sögur af mat- og kryddjurtum og fjallar um hversu nátengdar menningu okkar þær eru. Björk kom til okkar og veitti okkur smá innsýn í það sem fram fer í kvöld. Stóra stundin er runninn upp fyrir íslenska rokkaðdáendur, en stórsveitin Guns N Roses stígur á svið í Laugardalnum í kvöld. Við heyrðum í okkar manni Andra Frey Viðarssyni þegar tilkynnt var um komu sveitarinnar og nú heyrðum við í honum aftur þegar að þessu er komið. Sauðfjárbændur hafa glímt við mikla rekstrarerfiðleika undanfarin ár og verður ekki við unað að óbreyttu. Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssambands sauðfjárbænda, var á línunni og fór yfir stöðuna. Hljómsveitin Stjórnin fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir með tónleikum víða um land, auk þess að gefa út nýtt lag. Þau Grétar Örvarsson og Sigríður Beinteinsdóttir kíktu til okkar í morgunkaffi. Tónlist: Wings - Mull of Kintyre. Ásgeir Trausti - Myndir. Helgi Björns og reiðmenn vindanna - Ríðum, ríðum, ríðum. UB40 - If it happens again. Mugison - Kletturinn. Mannakorn - Litla systir. Guns 'N Roses - You could be mine. Elvis Costello - Watching the detectives. Grafík - Komdu út. Ingileif - At last. Stjórnin - Allt sem ég þrái. Lenny Kravitz - Low. John Mayer - New light.
Augu heimsins beinast að Rússlandi um þessar mundir. En af nokkrum ástæðum. Margir búast eflaust við að ég tali hér um Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem nú fer fram þar í landi - en aðrir vegna þess að heimsmeistaramótið í breyttum stjórnmálum hefur nú staðið yfir í landinu í 8 ár. Það er að minnsta kosti niðurstaða bandaríska sagnfræðingsins Timothy Snyders en hann gaf á dögunum út nýja bók sem ber nafnið Road to Unfreedom, eða Vegurinn til helsis. Í bókinni fer Snyder, fremur myrkur í máli, djúpt ofan í saumana á alræðistilburðum Rússlands og pólitísk áhrif sem færast frá austri til vestur. Við rýnum í bók Snyders í Lestinni í dag með Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur, doktor í stjórnsýslufræðum við Háskóla Íslands. Tónlistarhátíðin Secret Solstice verður sett í dag í fimmta skiptið. Í Laugardalnum koma fram tugir tónlistarmanna úr ótal áttum næstu fjóra daga og Davíð Roach Gunnarsson stiklar á því stærsta í dagskránni og fjallar um átta atriði sem Lestin mælir sérstaklega með. Tónlistarkonan Katrín Helga Ólafsdóttir, sem kemur fram undir listamannanafninu K.óla vakti áhuga Lestarstjóra þegar hún spilaði á tónleikum á Húrra á dögunum. Berskjaldað og gáskafullt tilraunakennt rafpopp sem má vel mæla með. Katrín Helga tekur sér far með Lestinni í dag.
Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Brynjar Þór Björnsson, fimmfaldan Íslandsmeistara með KR og stofnanda körfuboltaþjálfunar Brynjars. Við ræðum KR og Laugardalinn, streetball með gömlum hetjum og körfuboltaþjálfun Brynjars. Brynjar segir frá hvað honum finnst skipta máli í skotum og hvernig maður verður góður skotmaður. Landsliðið er rætt og við förum gegnum hlutverkaskipti hans frá því að vera eitt helsta sóknarvopn KR yfir í að vera þriggja stiga skytta fyrir landsliðið sem kom af bekknum. Hann segir að lokum frá því að vera reiðubúinn fyrir mómentið og hvernig hann heldur að tilvonandi leikmenn geti undirbúið sig betur í sumar fyrir komandi tímabil. Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson 00:30 – KR-ingurinn Brynjar Þór og uppeldið í Laugardalnum. 05:20 – Körfuboltaþjálfun Brynjars og tilkoma hennar. 10:45 – Hvernig maður verður góð skytta, sama hvernig maður skýtur. 17:10 – Áhrifamesti þjálfarinn sem fæstir vita af („vertu smart“). 22:30 – Æfðu ákveðnar hreyfingar og vertu geggjaður í þeim. 26:20 – Uppáhaldsdrillur Brilla. 30:05 – Að halda einbeitingu í mótlæti: EM 2015 og EM 2017 36:05 – Hlutverkaskipti milli KR og íslenska landsliðsins. 38:30 – Seinasta körfuboltabókin sem Brynjar las. 41:00 – Vertu tilbúinn þegar mómentið kemur: að hrökkva eða stökkva. 46:30 – Lokaskilaboð Brynjars út í sumarið.
Solstice hátíðin er gerð upp þessa vikuna, tími til kominn. Auður Ástráðsdóttir kíkti í heimsókn (á eigið heimili) og ræddi meðal annars náttúruhippa að kúka í kross, Dag B að dúndra í sig rjóma í Hel og hryssingslegan sunnudag í Laugardalnum. Rækjusamlokan er á dagskránni og þar er nautið Gabríel aðallega rætt (RIP Gabríel, our boy). Hverfisgatan er tekin fyrir í Gísla Marteini þáttarins þar sem eldgamla Berlínarhjólið hans Gísla kremur morfínsprautur á leið sinni niður þessa sjarmerandi götu eymdarinnar.
Ísland komst upp að hlið Króatíu á toppi riðilsins með 1-0 sigri í uppgjöri toppliðanna í kvöld. Hörður Björgvin Magnússon skoraði eina markið undir lokin eftir hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur Fótbolta.net, og Magnús Már Einarsson settust niður á Laugardalsvelli eftir leik og fóru yfir leikinn. Í þættinum.... Frábær varnarleikur Íslands, öxlin hans Harðar, likurnar á sæti á HM, betri blanda en malt og appelsín, Modric hvarf og var síðan afklæddur, stemningin í Laugardalnum, fjör í Finnlandi í september og margt fleira!
Tónlistarhátíðin Secret Solstice fer fram núna um helgina í þriðja sinn og Rokkland er á staðnum. Hátíðin hefur stækkað gríðarlega síðan hún var sett á laggirnar árið 2014 og líklega eru gestir Secret Solstice í ár um 15.000. Mestur spenningur var fyrir tónleikum bresku hljómsveitarinnar Radiohead á föstudaginn, en sveitin sem er búin að vera starfandi í rúm 30 ár hefur aldrei áður komið til íslands, amk, ekki til að spila. Ég hitti allskyns fólk í Laugardalnum um helgina og við heyrum af því í þættinum í dag, bæði tónleikagestir aðstandendur. Ég ræddi við fólk fyrir tónleika Radiohead og ræddi líka við tónleikagesti strax að tónleikum loknum. Við heyrum líka upptökur frá hátíðinni með Axel Flóvent t.d. Jack Magnet kemur við sögu, Sister Sledge, Radiohead, Deftones, Biggi í Dimmu, Andri Freyr, Frosti Logason, Jón Ólafsson vatnskóngur, Ósk Gunnarsdóttir, Þorsteinn Stephensen, Kaleo, Danni (í Maus) og margir fleiri.