POPULARITY
Samtökin '78, Félag íslenskra teiknara og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs standa nú fyrir samkeppni um tákn fyrir kynhlutlaus rými, svo sem salerni, búningsklefa, sturtuaðstöðu o.fl. Fimm ár eru liðin frá því að lög um kynrænt sjálfræði voru samþykkt og Ísland er fremst í flokki hvað varðar lög sem þessi. Hins vegar er vandað og skýrt tákn fyrir kynhlutlaus rými enn ekki til. Samtökin '78 fá margar fyrirspurnir frá fyrirtækjum og stofnunum varðandi táknnotkun, bæði hérlendis og erlendis frá. Anton Jónas Illugason, formaður Félags íslenskra teiknara og Magnús Bjarni Gröndal rekstrarstjóri samtakanna 78 komu í þáttinn í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum, var hjá okkur í dag eins og undanfarna mánudaga með það sem við köllum Fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn ætlar hann að velta fyrir sér fjárhagslegu uppeldi og koma með einhver góð ráð í þeim málum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Birta Björnsdóttir fréttakona, hún setti sér markmið fyrir nokkrum árum að lesa visst margar bækur á ári, en þurfti svo aðeins að endurskoða þau markmið. Við heyrðum betur af því og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Birta talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Líkami okkar, þeirra vígvöllur e. Christinu Lamb Sjö fermetrar með lás e. Jussi Adler Olsen Bókasafn föður míns e. Ragnar Helga Ólafsson Isabel Allende, og Hús andanna Einar Kárason, Óvinafögnuður, Killiansfólkið, Djöflaeyjan og Gulleyjan. Tónlist í þættinum í dag: Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Andrea Gylfadóttir) Svarthvíta hetjan mín / Dúkkulísur (Gréta Jóna Sigurjónsdóttir) Hún ógnar mér / Flott (Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
La pasarela - mirador es parte de las actuaciones que incluyen la consolidación de restos arqueológicos para garantizar su preservación; la colocación de paneles informativos a lo largo del recorrido propuesto para su visita y la iluminación especial para destacar los restos arqueológicos.Este poblado árabe del siglo XI obtuvo, además, casi 3 millones de euros de los fondos Next Generation para el proyecto "Renacer Yakka".
Björn Jón Bragason mætir í settið og ræðir hina ýmsu hluti. Meðal annars mannréttindi, stjórnmálin á Íslandi, hugarfar, hægribylgju ungs fólks, menningarlega afstæðishyggju, vinstri róttækni og Vestræn Gildi.- Fylgja því engar kröfur að gerast íslenskur ríkisborgari?- Er hægribylgja ungs fólks óumflýjanleg?- Er menningarleg afstæðishyggja fyrirlitlegri en aðrar syndir?Þessum spurningum er svarað hér!
Í gær var haldin minningarstund í húsnæði Samtakanna 78. Tilefnið var minningardagur trans fólks sem haldinn er árlega, þann 20. nóvember, þar sem þess trans fólks sem hefur verið myrt eða tekið eigið líf er minnst. Við fórum í heimsókn síðdegis í gær til að fylgjast með undirbúningi athafnarinnar og ræða við skipuleggjendur. Gestabækur geta veitt innsýn inn í skoðanir, viðhorf og tilfinningar þeirra sem í þær skrifa og gildi þeirra sem sagnfræðileg heimild hefur aukist á síðustu árum. Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í sagnafræði, hefur rannsakað gestabækur Hins íslenska reðasafns og hann kíkir í heimsókn og segir okkur frá ýmsu gáfulegu sem birtist í bókunum. Og síðan heyrum við tólfta innslag Þorgerðar Maríu Þorbjarnardóttur, formanns Landverndar, sem er á COP29-ráðstefnunni í Aserbaídjan.
Þórarinn ræðir við Sigríði Margréti Oddsdóttur, framkvæmdarstjóra Samtaka atvinnulífsins um stjórnmálin á Íslandi, skattpíningu, orkumál, framleiðni innan stofnanna hins opinbera, og verðstöðuleika ríkisstjórnarinnar.Hlaðvarpið í heild á www.pardus.is/einpaeling
Á föstudag fjölluðum við um þau tengsl sem fólk myndar við almannarými í borginni. Við ætlum að halda áfram að fjalla um almannarými ýmis konar- skiptistöðin í Mjóddinni hefur verið mikið til umfjöllunar á fundum umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar undanfarna mánuði. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, er einn þeirra sem vilja umbætur og telja skiptistöðina nær óboðlega. Við förum í Mjóddina, ræðum við Kjartan og fleiri gesti sem þar biðu. Fyrir réttu ári var tilkynnt að Kristín Eysteinsdóttir yrði nýr rektor Listaháskóla Íslands. Hún ætlar að ræða við okkur á eftir um starf rektors, stefnumótun, áform um nýtt hús yfir starfsemi skólans, sem nú fer fram á sjö stöðum og sprengingu í aðsókn í skólann í kjölfar þessa að skólagjöld voru felld niður. Við fáum málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunauti, og í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafn Íslands. Fáum að kíkja í nokkrar skjalaöskjur og fletta gömlum heimildum um umfangsmikla undirskriftasöfnun Hins íslenska kvenfélags árið 1895. Tónlist: BENNI HEMM HEMM - Miklabraut.
Þáttur dagsins var óvenjulegur, enda hlaupársdagur óvenjulegur. Bogi Ágústsson var engu að síður á sínum stað, en leit ekki út í heim heldur velti fyrir sér söguskilningi okkar Íslendinga. Guðbjörg Bjarnadóttir veitingahúsaeigandi á Maspalomas á Gran Canaria-eyjunni á Kanaríeyjum sagði okkur frá lífinu, tilverunni og Íslendingasamfélaginu þar. Við forvitnuðumst líka um töfra. Gunnar Kr. Sigurjónsson forseti Hins íslenska töframannagildis kom til okkar og ræddi um og sýndi töfrabrögð. Tónlist: Redding, Otis - (Sittin' on) the dock of the bay. Shore, Dinah - You're driving me crazy. Shore, Dinah - Lucky to be me. Örvar Kristjánsson - Sunnanvindur. Chordettes, The - Mr. sandman. Hrekkjusvín - Hvað ætlar þú að verða?.
5. febrúar 2024 Því er spáð að verðbólgan í Argentínu fari yfir 250 prósent í ár. Lífskjör landsmanna versna stöðugt. Meira en fjórir af hverjum tíu eru undir fátæktarmörkum. Verslun með notuð föt hefur aukist hér á landi undanfarin ár og verslunum með notaðan fatnað fjölgað mikið. Þetta er breyting í anda hringrásarhagkerfisins segir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. Hins vegar er engu minna hent af textíl. Flutt hafa verið út um 2500 tonn af textíl á ári undanfarin sjö ár og virðist það ekki vera að dragast saman. Finnar velja sér forseta 11. febrúar. Það er seinni umferð í kosningunum og valið stendur milli þeirra Alexanders Stubbs og Pekka Haavistos.
Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, var gestur þáttarins í dag. Rætt var um kjaramálin vítt og breitt og ástand og horfur í samfélaginu. 130 ár eru í dag frá stofnun Hins íslenska kvenfélags. Af því tilefni kom Erla Hulda Halldórsson, prófessor í sagnfræði við HÍ, og ræddi um upphaf jafnréttisbaráttunnar og helstu baráttumálin fyrstu árin. Styttan af séra Friðriki var í vikunni færð af stallinum í miðborg Reykjavíkur og sett í geymslu. Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur, ræddi um styttur vítt og breitt. Umsjón í dag Björn Þór og Eyrún. Tónlist: Esjan - Bríet, Bara að hann hangi þurr - Hljómsv. Ingimars Eydal, Í Reykjavíkurborg - Kristjana Stefánsdóttir, Mack the knife - Bobby Darin.
Saga af tveimur æskuvinum frá Króknum sem freistuðu gæfunnar í Kanada Árið 1954 ákváðu tveir ungir menn frá Sauðárkróki að freista gæfunnar í öðru landi. Æskuvinir vildu reyna fyrir sér í Kanada. Annar þeirra var pabbi, Kári Jónsson og hinn Haukur Stefánsson. Fyrir síðustu jól gaf ég út litla bók um þetta ævintýri og leitinni að grænna grasi. Bókin kom út í takmörkuðu upplagi og sendi ég hana ættingjum og nokkrum vinum. Frásögnin – um vonir, væntingar og vonbrigði – byggir á sendibréfum. Annars vegar eru það bréf pabba til foreldra, systur og góðgerðarmanns og bréf þeirra til hans. Hins vegar eru það bréf Hauks til foreldra sinna. Tilgangurinn með skrifunum var að gefa nokkra innsýn í hugarheim og aðstæður ungra manna á sjötta áratug síðustu aldar. Tækifærin á Íslandi voru takmörkuð, atvinnuástand erfitt og þjóðfélagið í fjötrum opinberra afskipta og hafta. Og líkt og svo oft áður heillaði Vesturheimur. Grasið reyndist hins vegar ekki grænna í nýja heiminum. Í næstu hlaðvarpsþáttum ætla ég að segja þessa sögu og nýta bókina að mestu leyti.
Tveir pólitískir skandalar í grannlöndum okkar voru til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson. Annars vegar ráðvillt bresk ríkisstjórn og fálmkennd viðbrögð í upphafi COVID-faraldursins eins og komið hefur fram í vitnaleiðslum nefndar sem falið var að rannsaka viðbrögð breskra stjórnvalda við farsóttinni. Hins vegar njósnamálið í Danmörku þar sem Claus Hjort Frederiksen, fyrrverandi varnarmálaráðherra; Lars Findsen, sem var yfirmaður leyniþjónustunnar; og fleiri voru ákærðir fyrir landráð. Ákæruvaldið hefur fellt málið niður og Mette Frederiksen og ráðherrar í stjórnum hennar mega sitja undir mjög harðri gagnrýni stjórnarandstöðunnar vegna þess hvernig haldið var á málinu.

Við höldum áfram að tala um Eimreiðina, Kolkrabbann og bláu höndina. Hallgrímur Helgason rithöfundur kynntist bláu höndinni og skrifaði um hana. Við ræðum kjarabaráttu kennara við Elna Katrín Jónsdóttir fyrrum formann Hins íslenska kennarafélags, Magnús Þór Jónsson formann Kennarasambandsins og Sigurð Pétursson sagnfræðing og handritshöfundar Endurgjöf, heimildarmynd um kennaraverkföllin undir lok síðustu aldar. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir okkur frá Microsoft-klúður ríkisins og Sigríður Dúa Goldsworthy frá morðunum í Dillonshúsi. Í lokin kemur Lóa Björk Björnsdóttir frá Lestinni á rás eitt að Rauða borðinu, reynir að taka viðtal á sama tíma og við tökum viðtal við hana.
Spegillinn 8. September 2023 Umsjón: Ásgeir T Ómasson Tæknimður: Mark Eldred Stórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Áformað er að hýsa sextíu til sjötíu umsækjendur um alþjóðlega vernd á Hótel Glymi í Hvalfjarðarsveit í haust. Pétur Magnússon sagði frá og talaði við Gísla Davíð Karlsson. Aðeins þrjú af tíu stærstu sveitarfélögum landsins svöruðu spurningalista sem mennta- og barnamálaráðuneytið sendi til að afla upplýsinga um raka- og mygluskemmdir í grunn- og leikskólum. Eftirfylgni og ítrekanir ráðuneytisins dugðu ekki til. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Fulltrúi Flokks fólksins í borgarráði óttast gjaldþrot Reykjavíkurborgar bregðist meirihlutinn ekki við versnandi fjárhag. Árshlutareikningur borgarinnar var 13 milljörðum lakari en áætlarnir gerðu ráð fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn segir rekstur borgarinnar fara stigversnandi. Urður Örlygsdóttir sagði frá og talaði við Kalbrúnu Baldursdóttur. Litlar lirfur sem nærast á birkiþélu hafa fundist á tveimur stöðum. Allt lítur út fyrir að náttúrulegur óvinur þessa skæða sníkjudýrs sé búinn að nema hér land. Valgerður Gréta Gröndal tók saman. Talað var við Brynju Hrafnkelsdóttur skógfræðing í Samfélaginu í nærmynd. Ár er liðið frá því að Elísabet Bretlandsdrottning lést og Karl konungur tók við. Ragnheiður Elín Clausen, annar stofnenda Hins íslenska Royalistafélags, segir Karl hafa staðið sig vel í nýju hlutverki, þvert á það sem gagnrýnendur hans spáðu fyrir um. Erla María Davíðsdóttir talaði við hana. Lítill árangur er talinn nást á ársfundi G20 ríkjanna á Indlandi. Ásgeir Tómasson tók saman. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætlar í vetur að leggja fram frumvarp um greiðslu sanngirnisbóta til fólks sem dvaldi á vistheimilum á vegum ríkisins. Haukur Holm ræddi við hana. Norðmenn kjósa sér nýjar sveitarstjórnir á mánudaginn. Útlit er fyrir að gömul vígi vinstrimanna falli hægrisinnuðum andstæðingum þeirra í skaut. Gísli Kristjánsson sagði frá. Ragnhildur Thorlacíus ræddi við Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing um hamfaraveður víða um heim af völdum annars vegar loftslagsbreytinga og hins vegar El Nino veðurkerfisins.

Flosi hefur oft sagt að hægt sé að gera nær allt áhugavert, nema mögulega landbúnaðarsögu Albaníu. Þetta er svona göngugrína (e. running gag) sem hlustendur þekkja ágætlega. Í hverjum þætti fá styrktaraðilar á Patreon að velja um þrjú umfjöllunarefni. Hið hlutskarpasta verður svo tekið fyrir í einum þætti. Það er Flosi sem sér um að koma með tillögur að þætti. Hins vegar er frestunarárátta hans stundum svo alvarleg að Baldur þarf rækilega að minna hann á. Síðast er þetta átti sér stað setti Baldur honum þá afarkosti að vera tilbúinn á tíma með efnið, ellegar myndi Baldur velja þrjú efni og yrði Flosi að hlíta niðurstöðunni. Flosi brást og því gátu hlustendur valið um eftirtalin þrjú atriði: 1. Saga vatnshelds klæðnaðar. 2. Gláka. 3. Landbúnaðarsaga Albaníu. Er skemmst frá því að segja að númer þrjú vann með yfirburðum. Hægt er að saka Flosa um margt, enda breyskur maður með afbrigðum en hugleysi býr hann þó ekki yfir. Því brást hann vel við þessari áskorun og þátturinn fjallar um sögu Albaníu með fókus á landbúnað. Tókst Flosa að gera efnið áhugavert? Dæmið sjálf. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Spegillinn 2. Júní 2013 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ríkislögreglustjóri keypti skotvopn og skotfæri fyrir 185 milljónir króna vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins. Annar búnaður kostaði 150 milljónir til viðbótar. Benedikt Sigurðsson ræddi við Runólf Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjón. Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir jákvætt að færri noti reiðufé í viðskiptum sínum þó hann vilji ekki að notkun þess leggist alfarið af. Hins vegar eigi það eftir að gerast einn daginn og annað taka við. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við hann. Óttast er að tugir hafi látist í lestarslysi á Indlandi í dag. Minnst tvö hundruð slösuðust. Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir karlmanni vegna rannsóknar á andláti konu á Selfossi í apríl. Starfshópur á vegum félagsmálaráðherra vill að skoðað verði hvort tilefni sé til þess að láta eltihrella og þá sem ítrekað hafa rofið nálgunarbann til að sæta rafrænu eftirliti. Starfshópurinn telur þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis ómarkvissa. Valur Grettisson sagði frá. Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir félaga Rafiðnaðarsambandsins sem starfa hjá Landsneti hefst í næstu viku. Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir verður í eldlínunni með þýska liðinu Wolfsburg sem mætir Barcelona í úrslitaleik meistaradeildarinnar í fótbolta á morgun. Sveindís segir að pressan sé öll á Barcelona og að hún ætli að njóta þess að spila á stærsta sviðinu. Björn Malmquist talaði við hana. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vonast til þess að afkoma ríkissjóðs á þessu ári verði betri en fram kom í fyrri efnahagsspám. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann. Atlantshafsbandlagið eykur þrýsting á Tyrki að hleypa Svíum í Evrópusambandið. Ásgeir Tómasson sagði frá. Þverfaglegur starfshópur starfar á vegum Umhverfisstofnunar með það að leiðarljósi að veita faglega ráðgjöf um áhrif umhverfis á heilsu fólks. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ragnhildi Guðrúnu Finnbjörnsdóttur, verkefnisstjóra hópsins.

Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældarsviðs Barna- og fjölskyldustofu og Elísabet Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur hjá Barna og fjölskyldustofu spjölluðu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur og Önnu Mjöll Guðmundsdóttur frá Fyrstu fimm - hagsmunafélagi foreldra og fagaðila um barnvænna samfélag. „Hvað á að gera þegar barn byrjar að eiga í vanda?“ er meðal þess sem Barna- og fjölskyldustofa einblínir á að leysa úr. Unnið er hörðum höndum að því að skapa vettvang þar sem tengiliður barns í nærumhverfi þess geti leyst úr vanda barnsins með samvinnu við foreldra og eftir atvikum annarra fagaðila með íhlutun eins fljótt og verða má. Stefnan með farsældarlögunum er að taka snemma á málunum og láta hlutina, sem hefur svo lengi verið talað um að þurfi að gera, gerast.Nú þegar er byrjað að útskrifa fjölmarga tengiliði farsældar í sérstöku viðbótardiplómanámi hjá HÍ og styrkja þá í komandi hlutverki. Hins vegar er fyrirséð að innleiðingin, sem nú er á öðru ári, muni taka tíma en kappkostað er við að innleiða stefnuna sem hraðast því það er gríðarlegur sálfræðilegur, efnahagslegur og samfélagslegur kostnaður sem hlýst af vanlíðan barns sem ekki fær tilhlýðilegan stuðning og aðstoð.Margt hefur breyst við tilkomu nýrrar stofnunar Barna- og fjölskyldustofu þar sem farsældarlögin eru rauði þráðurinn og samkvæmt Páli og Elísabetu felst það aðallega í því að stofnunin hefur beinna og skýrara þjónustuhlutverk við samfélagið.Það var því ákaflega áhugavert að heyra Elísabetu og Pál segja okkur frá starfi sínu og gott að heyra að þar fer fólk sem er samhljóma okkur í þessu hlaðvarpi almennt og vill gera kröfu um virðingarríka framkomu við börn, stuðning við þau og foreldra þeirra um leið og vandi byrjar og gerir sér jafnframt grein fyrir að margt er enn óunnið og verður það sjálfsagt alltaf en að það er ekki afsökun fyrir að gera ekki okkar besta fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
Spegillinn föstudaginn 24. Mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar ásakanir á hendur yfirlögregluþjóni hjá embættinu um kynferðislega áreitni. Maðurinn hefur lengi starfað sem lögreglumaður, meðal annars í kynferðisbrotadeild. Litlar upplýsingar fengust um málið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en heimildir fréttastofu herma að kvartanir hafi borist eftir viðburð hjá starfsfólki lögreglunnar. Margrét Kristín Pálsdóttir, staðgengill Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra, segir í skriflegu svari til fréttastofu að embættið tjái sig ekki um málefni einstaka starfsmanna. Hins vegar sé málum af þessu tagi alltaf tekið alvarlega. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að nýbyggingu við Ásabraut í Garðabæ á fimmta tímanum í dag. Nokkrir iðnaðarmenn voru að störfum inni í byggingunni þegar eldur kom upp en þeir komust alllir út af sjálfsdáðum - og ómeiddir. Gaskútar voru á þaki hússins og vitað er til þess að að minnsta kosti tveir hafi sprungið. Guðmundur Guðjónsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, var með fyrstu mönnum á vettvang. Hann segir að mikil hætta hafi verið á ferðum en slökkvistarf er nú á lokametrunum. Þórir Ingi Þorsteinsson býr í grennd við húsið og náði myndbandi af því þegar einn af gaskútunum sprakk. Þórdís Arnljótsdóttir ræddi við hann og Guðmund varðstjóra. Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri hefur boðað hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, bæði landeigendur, lögreglu, almannavarnir og fleiri, til samráðs í næstu viku til að ræða öryggismál í kjölfar banaslyss við Glym í Hvalfirði í vikunni. Arnar Björnsson ræddi við hann. Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, telur að um fimm milljarðar króna hafi tapast í þjóðhagslegu samhengi eftir skerðingu á raforku síðasta vetur vegna takmarkana á byggðalínu. Uppbyggingaráform séu þar af leiðandi gríðarlega mikilvæg. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við hann. Aldrei hafa fleiri bækur orðið fyrir barðinu á ritskoðunartilburðum í Bandaríkjunum. Athyglin beinist einkum að barnabókum -- þar sem vegast á tjáningarfrelsi og ásakanir um pólitíska innrætingu.Alexander Kristjánsson tók saman. Fresta hefur orðið fyrstu opinberu heimsókn Karls Bretakonungs og Kamillu drottningar til útlanda, það er Frakklands, um óákveðinn tíma. Slæmt ástand er í landinu vegna mótmælaaðgerða að undanförnu. Yfir milljón landsmanna andæfði því í gær að Frakklandsfo

Duperrault hjónin bjuggu í Wisconsin ásamt þremur börnum sínum. Þar er veturinn afar kaldur og þau hafði lengi dreymt um að fara í ferðalag á hlýjar slóðir á þeim tíma. Sumarið 1961 höfðu þau safnað fyrir draumaferðinni: Siglingu frá Florida til Bahamaeyja. Þau leigðu bát og fengu Julian Harvey til að stjórna fleyinu. Eiginkona Harvey kom einnig með og ætlaði að sjá um matreiðslu. Þetta átti að verða mikil skemmtiferð og var það framan af. Hins vegar breyttist hún í hreinræktaða martröð og hrylling. Hin 11 ára gamla Terry Jo Duperrault upplifði það að verða skyndilega munaðarleysingi og við tóku hræðilegir sólarhringar þar sem hún flaut alein langt úti á hafi, án vatns né matar. Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
Í dag rifjuðum við upp þátt sem var fyrst á dagskrá rétt eftir áramótin 2022, en Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir stjórnaði þættinum ásamt Gunnari og þann dag var Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur og verkfræðingur föstudagsgestur Mannlega þáttarins. Hana þarf nú vart að kynna, enda hefur hún verið einn allra vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar í um tvo áratugi. Bækur eftir hana hafa verið þýddar á yfir 30 tungumál og hafa komið út í yfir 100 löndum. Yrsa hefur þrisvar sinnum hreppt Blóðdropann, verðlaun Hins íslenska glæpafélags, nú síðast fyrir bókina Bráðin sem kom út 2020. Nýjasta bók hennar, er Gættu þinna handa, en þegar viðtalið fór fram þá var hún nýbúin að gefa út bókina Lok, lok og læs. Bækur eftir Yrsu hafa gjarnan verið í mörgum jólapökkum þessi jólin. Við fengum Yrsu til að segja okkur frá því hvar hún er fædd og uppalin, frá ferðalaginu í gegnum lífið til dagsins í dag og því hvenær hún byrjaði að skrifa. Í matarspjalli dagsins fengum við svo föstudagsgestinn, Yrsu Sigurðardóttur, til að sitja áfram með okkur og Sigurlaugu Margréti. Þá fengum við að vita hvað er hennar uppáhaldsmatur, hvort hún sé mikill kokkur og þá hvaða rétti henni þykir skemmtilegast að elda. Auk þess forvitnuðumst við um mat í skáldsögunum hennar og meira að segja um notkun á gulls í mat. Þátturinn byrjar lagi sem Yrsa valdi, þetta er hljómsveitin Unun með lagið Lög unga fólksins. Tónlist í þætti dagsins: Lög unga fólksins / Unun (Þór Eldon og Gunnar Lárus Hjálmarsson) The Only Living Boy in New York / Simon & Garfunkel (Paul Simon) Flottur jakki / Ragnar Bjarnason (Thomas og Kristján Hreinsson) UMSJÓN ÞORGERÐUR ÁSA AÐALSTEINSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Spegillinn 6. desember 2022 Kjaraviðræður halda áfram á morgun. Forystufólk VR, Landssambands verzlunarmanna og iðnaðarmanna ætla að funda með SA á morgun. Formaður Loftslagsráðs vill ekki útiloka vindmyllur sem orkugjafa. Það skipti máli hvar þeim er fundinn staður. Bílar sem menga meira lækka í verði um áramót ef nýtt frumvarp verður að veruleika. Umhverfisvænni bílar hækka í verði. Blaut tuska í andlitið á almenningi, segir formaður Rafbílasambands Íslands. Lestarstjórar í Bretlandi hafa boðað verkfall frá aðfangadegi til þriðja í jólum. Stjórnvöld saka þá um að hafa tekið jólin í gíslingu. Ekki eru vísbendingar um að launakostnaður hins opinbera hafi aukist vegna styttri vinnutíma ríkisstarfsmanna. Hins vegar eru merki um að þjónustu stofnana hafi hrakað en óvíst hvort það tengist styttingunni. Spánverjar eru úr leik á HM eftir tap gegn Marakó í vítaspyrnukeppni. ----- Skammatímasamningar endurspegla óstöðugleika í efnahagsumhverfinu og minna á samninga sem gerðir voru á áttunda og níunda áratug síðustu aldar, segir Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, vinnumarkaðsfræðingur og dósent við Háskóla Íslands. Með samningi félaga Starfsgreinasambandsins um helgina var gefið merki sem seinni samningar munu miðast við Hrina verkfalla er hafin í Bretlandi. Útlit er fyrir að hún standi fram yfir áramót. Fólk krefst launahækkana til að mæta síhækkandi verðlagi á nauðsynjavörum, svo ekki sé minnst á rafmagn og hita. Vinnustöðvun lestarstjóra veldur fólki mestum áhyggjum. Halda utan um langstökkskeppni drengja, kaupa inn fyrir sjoppuna á körfuboltamóti, selja varning fyrir björgunarsveitina, taka sæti í stjórn skátafélagsins eða skúra gólfið eftir árshátíð í íþróttahúsinu í bænum. Fjöldi fólks tekur þátt í sjálfboðastarfi af ýmsum toga án þess að þiggja krónu fyrir. Framtak sjálfboðaliðans er mikilvægara en við gerum okkur alltaf grein fyrir og samkeppni um tíma og athygli fólks verður sífellt harðari. Þetta var meðal þess sem velt var upp á ráðstefnunni Alveg sjálfsagt sem haldin var í gær, á alþjóðlegum degi sjálfboðaliða. Meðal frummælenda voru Viðar Halldórsson og Steinunn Hrafnsdóttir, bæði prófessorar á félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Um þrjátíu prósent Íslendinga taka þátt í sjálfboðaliðastarfi af einhverju tagi. Umsjón: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

On this one Corey and Allec join Joe in the first half of the episode to talk about their experience at the Team Associated race at Trackside. Then Joey comes in late and the guys talk about some local racing and some RC news Big thanks to Corey for making all of the Ran Out of Talent merch. you can get it at pwrmerch.com Also big thanks to Brad Sandvig for making our intro. You can find his soundcloud here https://soundcloud.com/bradley-sandvig
Undanfarna tvo daga hefur lestrarkennsla verið mikið rædd í kjölfarið á færslu Ilmar Kristjánsdóttur leikkonu á Facebook, þar gagnrýndi hún sérstaklega áherslu á hraðlestur í lestrarkennslu. Þessi færsla vakti gríðarlega athygli og umræðu og í kjölfarið kom Ilmur í viðtal hingað í Mannlega þáttinn á þriðjudaginn. Í gær voru svo tvö viðtöl hér á Rás 1 um þetta mál, Hermundur Sigmundsson prófessor kom á Morgunvaktina í gærmorgun og Svava Þórhildur Hjaltalín, lestrarkennari í Vestmannaeyjum, var í Samfélaginu í gær. Við fengum í dag Freyju Birgisdóttur, dósent í þroskasálfræði við Háskóla Íslands, til þess að fara með okkur í ljósi umræðunnar aðeins betur í þetta kerfi sem notast er við í lestrarkennslu og hvað felst í hugtakinu lesfimi. Við fjölluðum svo um áhugavert meistaraverkefni í næringarfræði við Háskóla Íslands en næringarfræðingurinn Guðmundur Gaukur Vigfússon komst að því að hefðbundin umönnun á Íslandi er ófullnægjandi fyrir eldra fólk sem útskrifast af spítala með áhættu fyrir vannæringu. Dæmi eru um að fólk sé jafnvel svo vannært eftir að heim er komið að það sé undir hungurmörkum og greinileg tengsl eru á milli endurinnlagna á spítala hjá þeim hópi sem léttist eftir heimkomu. Hins vegar getur fjölþátta næringarmeðferð yfir sex mánuði dregið úr algengi vannæringar ásamt því að hafa jákvæð áhrif á næringarástand aldraðra. Guðmundur Gaukur kom í þáttinn í dag. Svo heyrðum við í Jóhanni Steindórssyni, grenjaskyttu á Breiðdalsvík, en hann hefur safnað hreindýrshornum í nærri tvo áratugi, sem sagt hornum sem hreindýrin fella árlega. Hann hefur nú byggt úr hornunum sem hann hefur safnað rúmlega tveggja metra hátt jólatré sem er um 300 kíló að þyngd. Við fengum Jóhann til að segja okkur aðeins frá þessu og því að vera refaskytta. TÓNLIST Í ÞÆTTINUM Í rökkurró / Helena Eyjólfsdóttir (Nevins, Nevins, Dunn og Jón Sigurðsson) You Turn Me On, I am a Radio / Joni Mitchell (Joni Mitchell) Þrjú tonn af sandi / Haukar (Winfield, Blackwell og Þorsteinn Eggertsson) Enginn Veit / Sigrún Harðardóttir og Oríon (Lennon & McCartney og Eysteinn Jónasson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Í spjalli um efnahag og samfélag fjallaði Þórður Snær Júlíusson meðal annars um verðlækkun íslenskra hlutabréfa, bólumyndun á húsnæðismarkaði og yfirvofandi vaxthækkanir á óverðtryggðum húsnæðislánum. Aukinn skattur á orkuframleiðslu og fiskeldi í Noregi var einnig til umræðu. Milljón flóttamenn hafa komið til Þýskalands það sem af er ári. Langflestir frá Úkraínu en einnig frá Afganistan, Pakistan og Sýrlandi. Arthúr Björgvin Bollason fjallaði meðal annars um vaxandi áhyggjur þýskra yfirvalda af stöðinni en örðugt er að útvega öllum húsnæði og vinnu. Arthúr sagði líka frá rithöfundinum og rannsóknarblaðamanninum Gunter Wallraff sem varð áttræður á dögunum. Hann varð frægur á sínum tíma fyrir bók sem hann skrifaði og afhjúpaði ómannúðlega meðferð og framkomu gagnvart innflytjendum í Þýskalandi á árunum eftir síðari heimsstyrjöld. Við þurfum að taka miklu betur á móti fólki sem sest hér að en við gerum nú. Það segir Berglind Ásgeirsdóttir, fyrrverandi sendiherra, sem telur íslenskt samfélag fara á mis við mikið við að hvetja ekki og hjálpa nýjum Íslendingum að taka virkan þátt í lífinu og tilverunni í landinu. Það á að nýta mannauðinn, segir hún. Berglind hefur helgað sig málefninu að undanförnu og hélt um það erindi nýverið á fundi Hins íslenska þjóðvinafélags. Hún er bjartsýn á að hlutirnir færist til betri vegar. Tónlist: Þrek og tár - Haukur Morthens og Erla Þorsteinsdóttir, Ó hve glöð ég er - Elly Vilhjálms, Vagg og velta - Erla Þorsteinsdóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Andréssynir, þeir Axel Óskar og Jökull ræddu við Sæbjörn Steinke en þeir eru staddir á Íslandi í fríi. Axel er leikmaður Örebro í Svíþjóð og Jökull er leikmaður Reading á Englandi. Þeir fóru yfir liðið tímabil og Axel um byrjunina á tímabilinu með Örebro. Axel segir frá því að hann hafi komið Jökli úr því að leika sér með sverð og í að standa milli stanganna í markinu. Er möguleiki á því að Jökull fari til Örebro?
Hvað gerir þú þegar draugar fortíðar byrja að berja þig í alvörunni? Indie leikurinn Trek to Yomi hefur verið umdeildur frá útgáfudegi. Hann er með einstakt lúkk sem virðist ekki hafa verið gert áður. Hins vegar eru ekki allir á eitt um hvort það sé góður hlutur eður ei. Arnór Steinn og Gunnar eru allavega ósammála um leikinn í þessum þætti - eitthvað sem gerist ALDREI. Við ræðum söguna, bardagakerfið, lúkkið og margt, margt fleira. Hvor fílaði leikinn meira? Er Trek to Yomi í þínu safni? Hvað finnst þér? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Hringdu.
Flestum er okkur kennt að það sé ljótt að ljúga. Hins vegar eru margir sammála um að lífið getur verið torfæra og sjálfsagt að fólk bjargi sér eins vel og það getur, svo lengi sem það bókstaflega skaði ekki annað fólk. Ólöf Sölvadóttir beitti lyginni óspart sér í hag. Henni til varnar má þó benda á að hún hafði ekki fengið góða vöggugjöf. Ólöf var dvergur og fædd á 19. öld, þegar eitt mesta harðæri sem Ísland hafði kynnst, síðan í Móðuharðindunum, dundi yfir þjóðina og hrakti marga úr landi að freista gæfunnar annars staðar. Saga Ólafar er mögnuð. Auðvitað má segja að það sem hún gerði hafi, stranglega tekið, verið rangt. Þó er ekki hægt annað en dást að þeirri staðfestu og sjálfsbjargarviðleitni sem einkenndi þessa einstöku konu. Hér finnið þið Draugana á Patreon. Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
In this episode of the How To Money podcast, Kate Campbell chats to Douglas Morris, the CEO of Sharesight, a digital portfolio management platform.We talk about the less exciting but very important part of investing, the portfolio management and admin side of things, and cover off on what new investors need to be aware of and keep track of after they buy their first investment.We also discuss the difference between HINs, TFNs and account numbers, how can investors keep track of their portfolios overall performance and ways to make our lives easier as investors come tax time.Sharesight: sharesight.com/auShow Notes: howtomoney.online/how-to-money-podcastHTM Website: howtomoney.onlineHTM Instagram: @HowToMoneyAUSPlease send any questions, feedback, or episode suggestions through to us at howtomoneyaus@gmail.com and if you enjoyed the episode we'd be thrilled if you left us a review on Apple Podcasts or Spotify. Just a reminder that everything we cover in this podcast is financial education only, we are not giving you any advice. If you do want advice please seek out a qualified and competent professional, and do some research. Remember it's your money - take control!Episode Recorded: 17/03/2022
Bob Ezrin hefur verið maðurinn á bak við tjöldin við upptökur margra sígildra platna, þar á meðal og bara svo við nefnum eitthvað þá sat hann við mixerinn og stýrði REC takkanum þegar plöturnar „Billion Dollar Babies“ með Alice Cooper, „The Wall“ með Pink Floyd og auðvitað „Destroyer“ með KISS voru hljóðritaðar. Ferill hans er ótrúlega fjölbreyttur og spannar allt frá Andrea Bocelli til Deftones, í gegnum Deep Purple, Peter Gabriel, Rod Stewart og Lou Reed svo eitthvað sé nefnt. Þá er Ezrin mikill mannvinur og hefur beitt sér mikið í gegnum tíðina fyrir ýmislegu góðgerðastarfi víðs vegar um heiminn. Bob Ezrin heitir fullu nafni Robert Allan Ezrin og fæddist í Toronto, Kanada þann 25.mars 1949, hann er því nokkuð nýorðinn 73 ára og því ætlum við að fagna hér. Hins vegar spannar hinn fjölbreytti ferill hans yfir 50 ár og í þessum þætti kíkjum við s.s aðeins á það sem hann hefur brallað í gegnum árin og af nógu er að taka þar. See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Upp komst um hlaðvarpsnjósnir handritshöfunda Midsomer þáttanna þegar tvær miðaldra áhugakonur um galdra og hlaðvarpsþáttagerð skutu upp kollinum í nýjasta þætti Herra Barnaby. Nú við Lóa og Móa látum þetta ekki á okkur fá né hinar ýmsu veirur sem herja á okkur. Hins vegar tökum við á öllum helstu deilumálum samtímans og reynum að gera okkur upp skoðanir á þeim. Veigarnar eru af dýrari kantinum hér í stúdíóinu, verst er þó að sleepy time teið virðist hafa svæft þáttastjórnendur í beinni þannig við getum ekki borið ábyrgð á lokamínútum þáttarins -- bonne nuit
Spegillinn 26. janúar 2022 Umsjón: Bjarni Rúnarsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar frétta: Valgerður Þorsteinsdóttir. Sóttvarnalæknir segir hægt að sleppa veirunni lausri því afleiðingar smita séu miklu minni en áður. Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir áhættu tekna, en ávinningurinn verði þess virði. Hingað og ekki lengra, meirihluti og minnihluti verða að taka höndum saman og tryggja 350 þúsund króna laun skatta- og skerðingarlaus. Þetta sagði Tómas A. Tómasson á Alþingi síðdegis í umræðu um tillögu Flokks fólksins . Handboltalandsliðið vann stórsigur á Svartfellingum í dag og liggur nú á bæn um að Danir vinni Frakka í kvöld svo liðið komist í undanúrslit. Þingmenn á ítalska þinginu hafa enn ekki komið sér saman um hver verði næsti forseti landsins. Þriðja atkvæðagreiðslan fór fram í dag. Fjórir af hverjum tíu skiluðu auðu. Lengri umfjöllun: Á miðnætti tóku gildi nýjar reglur um sóttkví. Nú þurfa eingöngu þeir sem eru útsettir á heimili sínu að fara í sóttkví. Sem fyrr varir sóttkví í fimm daga og PCR-próf þarf til að losna. Þríbólusettir fara hins vegar eingöngu í smitgát sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi. Hins vegar þurfa þeir sem eru útsettir fyrir smiti utan heimilis ekki að fara sóttkví heldur að viðhafa smitgát. Ekki er þörf á sýnatöku lengur til að losna úr smitgát og börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát nema smit sé inni á heimili. Bjarni Rúnarsson ræddi við Magnús Gottfreðsson, lækni og prófessor í smitsjúkdómum. Um fjórðungur þeirra sem hefja nám í íslenskum framhaldsskólum hefur ekki lokið því fjórum árum síðar. Brotthvarf hér er nokkuð mikið í alþjóðlegu samhengi segir Helgi Eiríkur Eyjólfsson, annar höfunda nýrrar skýrslu þar sem efnahagslegur og félagslegur bakgrunnur þeirra sem hverfa frá námi er kannaður og brotthvarfið talið sýna ójöfn tækifæri fólks. Nú er það svo að nærri allir skrá sig í framhaldsskóla eftir grunnskólann. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Helga og Kolbein Stefánsson Mjög er umdeilt hvort Norðmenn hafi gert rétt í að bjóða fulltrúum Talibana frá Afganistan viðræðna í Osló. Er þetta viðurkenning á stjórn ofbeldismanna? Er þessum mönnum treystandi? Núna eru þeir farnir heim tómhentir en á kostnað norska ríkisins ? en reikna má með framhaldi á viðræðum. Gísli Kristjánsson fjallar um heimsókn Talibana.

Guðni Jónsson gaf út 42 fornsögur nánast á ljóshraða á 5. og 6. áratugnum og á undan honum gerði Sigurður Kristjánsson bóksali Íslendingasögur að þjóðareign. En hversu mikilvægar eru þær í þjóðarsálinni, hve lengi hafa þær verið vinsælar og hver er þáttur bóksala í Bankastræti í vinsældum þeirra? Er Ármann nógu háfleygur til að hafa samið heiti þáttarins upp úr sér? Hvað varð um Torfa sögu Valbrandssonar? Var aðdáendaspuni til á 19. öld? Hvað varð um Sverris sögu sem Ármann samdi níu ára? Ármann og Gunnlaugur ræða þetta allt og eins hvort stafsetning fornrita sé „nördismi“ eða hvort svarta, rauða eða brúna bandið sé best.
Einar Vilhjálmsson er einn mesti íþróttamaður sem Íslendingar hafa átt. Hann var íþróttamaður ársins árið '83 '85 og '88 og árið 1985 var hann stigahæsti frjálsíþróttamaður heims þvert á allar frjálsíþróttagreinar. Keppnisferill Einars spannar um 220 mót í 22 löndum og hafnaði hann á verðlaunapalli á 200 þeirra. Við fáum góðar sögur af ferlinum og einnig heimspekilega sýn Einars á lífið um eflingu hins megnuga sjálfs, að spyrja sig og aðra af hverju, hvers vegna er ég að þessu, hvernig er hægt að bæta sig, hvernig hann byggði upp eldmóð fyrir hvert kast (undir gríðarlegri pressu) og að sjálfsöðu hvernig það er að vera eldri bróðir Simma Vill.
Neyðarfundur Atlantshafsbandalagsins NATÓ ákvað í dag að halda áfram stuðningi við stjórnvöld í Afganistan við að finna pólítiska lausn á ástandinu þar. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnar því að atvinnuleysi sé komið niður í 6%. Hins vegar sé ljóst að atvinnuleysið sé enn allt of mikið. Hann hefur áhyggjur af því að langtímaatvinnuleysi skjóti rótum hér. Byrjað er að bólusetja börn á aldrinum 12-15 ára hérlendis. Börn verða að mæta í fylgd með fullorðnum til að fá bólusetningu. Nýliðinn júlímánuður var hlýjasti mánuður á jörðu frá upphafi mælinga.
Spegillinn 9. júní 2021 Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Stjórnendur Landspítalans leysa aðeins hluta vanda bráðamóttökunnar með fleiri legurýmum, segir yfirlæknir. Stærsti hluti vandans sitji eftir. Rætt við Runólf Pálsson yfirlækni á Landspítalanum Thor Aspelund líftölfræðiprófessor segir jafnmarga vera fylgjandi opinberum og blönduðum rekstri í heilbrigðiskerfinu samkvæmt könnun BSRB. Hins vegar taldi BSRB sömu könnun sýna meirihluta andvígan auknum einkarekstri. Maður sem löðrungaði Frakklandsforseta í gær á yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn opinberum embættismanni. Kórónuveirusmitum og innlögnum á sjúkrahús fer fjölgandi í Bretlandi á ný. Átta Bretar af hverjum tíu eru komnir með mótefni gegn veirunni. Lengra efni: Tölvuglæpir eru vaxandi vandamál hér á landi og víða um heim en lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum og Ástralíu greindu frá því í gær að þau hefðu snúið á glæpagengi með aðstoð tölvutækninnar. Bergljót Baldursdóttir ræðir við Theódór R Gíslason, tæknistjóra hjá tölvuöryggisfyrirtækinu Syndis um ANOM, nýja appið sem lögregluyfirvöld plötuðu glæpamenn til að nota og um hvernig bregðast eigi við tölvuglæpum. Orkumálastjóri segir að stjórnsýsla raforkumála sé ekki að virka. Afar slæmt sé að þriðji áfangi rammáætlunar verði ekki afgreiddur fyrir þinglok. Arnar Páll Hauksson, ræðir við Guðna A Jóhannesson, orkumálastjóra og Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar um þriðja áfanga rammaáætlunar
Fimmtíu mega koma saman frá og með morgundeginum og 200 á lista- og íþróttaviðburðum. Opnunartími kráa og veitingastaða verður lengdur en vertar hefðu viljað ganga lengra. Engin tilfelli inflúensu hafa greinst hér á landi í ár og hún hefur heldur ekki náð sér á strik á heimsvísu, segir yfirlæknir smitsjúkdómalækninga á Landspítala. Hins vegar hafa greinst hér óvenjulega mörg tilfelli af veiru sem veldur heilahimnubólgu. Sóttvarnalæknir Svíþjóðar óttast að hið breska og bráðsmitandi afbrigði kórónuveirunnar verði alls ráðandi í Evrópu innan hálfs mánaðar. Flugvirkjar hjá Landhelgisgæslunni segja að landamæraverkefni Landhelgisgæslunnar geti verið í uppnámi. Samkvæmt úrskurði gerðardóms um nýjan kjarasamning Þeim sé ekki skylt að vinna erlendis nema um það sé sérstaklega samið. Samkomubann verður rýmra frá og með morgundeginum því þá mega koma saman fimmtíu í einu í stað tuttugu. Alls mega hundrað og fimmtíu manns vera saman í rými í skólum og eins metra reglan leysir tveggja metra regluna af hólmi. Þá mega allt að tvö hundruð manns vera á viðburðum eins og íþróttaviðburðum. Áhorfendur verða að vera skráðir í sæti og einn metri verður að vera milli óskyldra. Almennt gildir þó áfram tveggja metra reglan og grímuskylda verður óbreytt. Skólastarf í framhaldsskólum kemst í nánast eðlilegt horf við breytingu á sóttvarnarreglum. Miklar breytingar verða á félagslífi nemenda og því fagna þeir ákaft. Faraldurinn hefur þó þau áhrif að einhverjir framhaldsskólanemar munu seinka námi eða hætta jafnvel alveg. Þá sjá íþróttafélög fram á auknar tekjur og stuðning með því að fá að taka á móti áhorfendum. Kristín Sigurðardóttir Talar við Steinunni Björnsdóttur, Kristinn Þorsteinsson og Önnur Sóleyju Stefánsdóttur. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að sækja um ráðningarstyrki til að skapa ný störf og draga úr atvinnuleysi. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að ýmis fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar séu að skoða þetta úrræði. Ráðningarstyrkjum fjölgaði eftir bankahrunið og voru tæplega 1900 árið 2012. Arnar Páll Hauksson segir frá og talar við Jóhannes Skúlason og Aldísi Hafsteinsdóttur.
Ég hef haft efasemdir um að heilbrigðisyfirvöld geti sótt rökstuðning í sóttvarnalög fyrir öllum sínum aðgerðum – óháð því hversu skynsamlegar þær kunna að vera. Í besta falli eru yfirvöld komin á bjargbrún hins lögmæta. Rauði þráðurinn í hugmyndabaráttu okkar hægrimanna er mannhelgi einstaklingsins. Við lítum svo á að andlegt og efnahagslegt frelsi sé frumréttur hvers og eins.
Allir verkferlar voru þverbrotnir þegar smit kom upp hjá áhöfn togarans Júlíusar Geirmundssonar. Þetta segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga. Málið hljóti að verða skoðað af eftirlitsaðilum eða lögreglu. Þórhildur Þorkelsdóttir talaði við hann. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Ekkert er vitað um hvernig myndi leggjast á sjúklinga að vera á sama tíma með inflúensu og Covid-19, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Hins vegar sé hægt að ávísa lyfjum við inflúensu sem ekki eru til við Covid. Alma Möller, landlæknir segir mikilvægt að viðkvæmir láti bólusetja sig. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir bæta þurfi upplýsingamiðlun. Valgeir Örn Ragnarsson tók saman. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra draga verði lærdóm af ruglingi sem skapaðist í vikunni milli reglugerðar, og tilmæla um íþróttaiðkun og opnun líkamsræktarstöðva. Íslendingar þurfa að halda áfram að vanda sig gífurlega í sóttvörnum, að minnsta kosti næstu sex vikurnar. Þetta segir Kári Stefánson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Útgöngubanni hefur verið lýst yfir í Aþenu vegna fjölgunar kórónuveirusmita. Útgöngubann í París og fleiri borgum í Frakklandi hefur verið framlengt. Ásgeir Tómasson sagði frá. Meirilhuti bæjarráðs Hafnarfjarðar hefur samþykkt að taka tilboði félags, sem er að stærstum hluta í eigu lífeyrissjóða, í rúmlega fimmtán prósenta eignarhlut bæjarins í HS Veitum. ---- Ruglingur og óþreyja vegna sóttvarnaaðgerða, tilmæla sóttvarnalækna og reglugerða ráðherra. Hver er ábyrgð stjórnvalda. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Helgu Völu Helgadóttur þingmann Samfylkingar og Ólaf Þór Gunnarsson þingmann VG. Daninn Jack Eriksson sem fór í skíðaferð til Ischgl í Austurríki smitaði að minnsta kosti níu manns eftir heimkomuna. Þrátt fyrir viðvörun fá íslenskum heilbrigðisyfirvöldum liðu fimm dagar þar til Danir settu skíðabæinn á bannlista. Arnar Páll Hauksson segir frá uppruna smita í Danmörku og viðbrögðum stjórnvalda. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Ragnar Gunnarsson.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir segir tímaspursmál hvenær faraldurinn berst yfir í eldra fólk og viðkvæma hópa. Nýgengi innanlandssmita er nálægt 200 samkvæmt nýjustu tölum. Þrír eru í öndunarvél á gjörgæslu með covid-19. Ingvar Þór Björnsson sagði frá, Bjarni Rúnarsson tók saman. Ekki er tímabært að loka grunnskólum og senda nemendur heim þrátt fyrir vaxandi fjölda smita í samfélaginu. Þetta segir Þorsteinn Sæberg, formaður Skólastjórafélags Íslands. Hátt í hundrað börn á aldrinum 6 til 17 ára eru nú í einangrun. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður félags Grunnskólakennara segir miklu skipta að halda daglega rútínu. Höskuldur Kári Schram ræddi við þau. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki ætla að að eyða tíma sínum í rafrænar kappræður við Joe Biden forsetaefni Demókrata. Guðmundi Guðlaugssyni, sem sat saklaus í einangrun í tíu daga vorið 2010, voru í sumar dæmdar 5,6 milljónir í bætur fyrir tekjutap. Fleiri bótamál hans á hendur ríkinu upp á tugi milljóna eru nú fyrir dómi. Stígur Helgason sagði frá. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vissi ekki af því að nafn hans væri að finna á umdeildum undirskriftalista þar sem hvatt er til þess að sóttvarnaaðgerðir í heiminum verði mildaðar. Rúmenar og Íslendingar eigast í kvöld við á Laugardalsvelli í umspili um sæti á EM karla í fótbolta. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segir frá byrjunarliði Íslendinga. ------------- Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands segir að kennurum sé mörgum ekki rótt vegna þess hve erfitt er að koma við sóttvörnum í kennslu. Svo virðist sem tengsl séu milli vanlíðunar og þess hvort fólk hefur stjórn á aðstæðum sínum í vinnu. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ragnar. Tæplega 15 þúsund færri starfsmenn fyrirtækja sem tengjast ferðaþjónustu fengu greidd laun í ágúst en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni fækkaði þeim sem fengu greidd laun í flestum atvinnugreinum. Hins vegar fjölgar mest í opinbera geiranum eða um rúmlega sex þúsund. Arnar Páll Hauksson ræddi við Kristínu Arnórsdóttur sérfræðing á Hagstofunni. Í Noregi er því spáð að heimsfaraldurinn vegna kórónuveirunni marki endalokin á rekstri fríhafna á helstu flugvöllum landsins. Að fók fái aldrei aftur að kaupa áfengi á niðursettu verði eftir að það stígur út úr millilandaflugvélum. Gísli Kristjánsson útskýrir málið. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
Forsendunefnd vegna Lífskjarasamningsins komst ekki að niðurstöðu í dag. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist gera þá kröfu til viðsemjenda sinna að þeir sýni sveigjanleika þegar allt hafi breyst eins og raunin sé nú. Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða tveimur systkinum samtals rúmlega tvær milljónir króna, auk vaxta, í miskabætur vegna mistaka á Landspítalanum sem urðu til þess að faðir þeirra lést árið 2014. Miðflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun MMR, en fylgi Samfylkingarinnar dalar. Björgunarskipið Alan Kurdi er á leið til hafnar í Frakklandi með á annað hundrað manns sem var bjargað undan ströndum Líbíu um síðustu helgi. Það ræðst væntanlega á morgun hver niðurstaða forsendunefndar kjarasamninga verður. Ekki er vilji innan verkalýðshreyfingarinnar að rifta samningum. Það myndi þýða að ekkert yrði úr boðuðum launahækkunum um áramótin. Hins vegar eru blikur á lofti að atvinnurekendur segi upp samningum. Þeir hafa ítrekað bent á að ekki sé innistæða fyrir boðuðum launahækkunum. Staðreyndin sé að forsendur kjarasamninga Lífskjarasamningsins séu brostnar miðað við það efnahagsástand sem ríkti þegar samningar voru undirritaðir í apríl í fyrra. Þorsteinn Víglundsson fyrrverandi þingmaður Viðreisnar og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins benti á þessa staðreynd í grein í Fréttablaðinu í dag. Arnar Páll Hauksson talaði við Þorstein Víglundsson. Í gær greindust 57 ný kórónuveirusmit, tekin voru rúmlega fimm þúsund sýni og um hemingur þeirra sem greindust var í sóttkví. Reyndar er það svo að á fimmta þúsund eru komnir í sóttkví. Tveir eru á sjúkrahúsi með COVID-19 eins og verið hefur síðustu daga. Frá því í lok síðustu viku hefur á þriðja hundrað smita greinst. Þessi fjöldi smitaðra í gær kemur ekki óvart? Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Víði Reynisson. Norska flugfélagið Norwegian er enn á ný nær gjaldþrota og peningar sem ríkið lagði til í vor á þrotum. Því er unnið að björgun félagsins fyrir veturinn. Helst eru bundnar vonir við að norska ríkið kaupi hlut í félaginu. Gísli Kristjánsson sagði frá.
Sóttvarnalæknir segir í höndum stjórnvalda að taka ákvörðun um framtíð sýnatöku á landamærum. Hann boðar tillögur um breytingar á sýnatöku Íslendinga við heimkomu frá útlöndum. Mývetningar og íbúar í Dalabyggð eru reiðir vegna verðhækkana í verslunum Samkaupa í sinni heimabyggð. Forstjóri Samkaupa segist skilja reiðina en segir reksturinn þurfa að vera sjálfbæran. Kerlingarfjöll voru friðlýst í dag. Friðlýsta svæðið er um þrjú hundruð og fimmtíu ferkílómetrar. Friðlýsingar hafa verið tíðar það sem af er þessu ári. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fari fram í haust. Aukin spenna er hér á landi vegna komu ferðamanna til landsins eftir að önnur bylgja veirunnar fór af stað og raddir þeirra sem vilja loka landinu fyrir ferðamönnum eru háværari. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, benti á á fundi Almannavarna í dag að ef aðgerðir eru hertar á landamærum sé hægt að slaka meira á innanlands og öfugt. Það sé stjórnvalda að taka ákvörðun. Bergljót Baldursdóttir tók saman. Heyrist í Þórólfi Guðnasyni, Kára Stefánssyni, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og Gylfa Zoega. Það greindust aðeins 2 smit innanlands í gær og 2 á landamærunum. Það eru 114 einstaklingar í einangrun og þar af 3 á spítala og 938 eru í sóttkví. Veiran skaut hressilega upp kollinum um daginn en smitum hefur fækkað síðustu daga. Hins vegar er ljóst að við eigum eftir að kljást við COVID í langan tíma. Það kom fram á almannavarnafundinum í dag og hefur reyndar gert áður að það eru stjórnvöld sem taka lokaákvörðun þegar kemur að takmörkunum í tengslum við kórónuveiruna. Ef ákvörðun verður tekin um að slaka á á landamærunum verður að herða aðgerðir innanlands og öfugt. Arnar Páll Hauksson talaði við Helgu Völu Helgadóttur og Óla Björn Kárason.