Podcasts about grikklandi

  • 22PODCASTS
  • 71EPISODES
  • 1h 9mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Mar 18, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about grikklandi

Latest podcast episodes about grikklandi

Mín skoðun
995.þáttur. Mín skoðun.18032025

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Mar 18, 2025 113:04

Heil og sæl. Í þætti dagsins eru fjórir viðmælendur. Kristinn Kærnested ræðir við mig um íslenska landsliðið í fótbolta sem mætir Kosóvó, við tölum líka um Liverpool, íslenska boltann og svo er ein Krummasaga tengd Val. Einar Jónsson gerir upp landsleikina gegn Grikklandi í handboltanum og svo tölum við um Olísdeildina en næst síðasta umferðin fer fram á morgun. Kristinn Albertsson er nýr formaður KKÍ og við tölum um kjörið, útlendingamál í körfuboltanum, VÍS bikarinn og spurningin hvort einhverjar breytingar verði á næstunni með nýjum formanni. Svanhvít er svo á línunni og við tölum um Ísland-Kosóvó og hvernig Arnar stillir væntanlega upp og svo er það slúðrið í boltanum. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

Handkastið
Skyldusigur í Grikklandi og meintur föðurlandssvikari að taka við Haukum!

Handkastið

Play Episode Listen Later Mar 12, 2025 62:56

Skyldusigur í Grikklandi og meintur föðurlandssvikari að taka við Haukum! by Handkastið

taka grikklandi haukum
Mín skoðun
993.þáttur. Mín skoðun.11032025

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Mar 11, 2025 85:20

Í þætti dagsins heyri fyrst í Þórhalli Dan og við ræðum um meistaradeildina í fótbolta, enska boltann og svo um leikmannamál á Íslandi margt í kringum það. Einar Jónsson þjálfari Fram í handbolta er svo á línunni og við tölum um Olísdeildir karla og kvenna og svo landsliðið sem mætir Grikklandi á morgun í undankeppni EM. Einar spáir í úrslit leiksins. Svanhvít er svo á línunni og við förum yfir Bónusdeildina í körfubolta og spennuna þar, meistaradeildina, evrópudeildina og svo góður slúðurpakki. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

Mín skoðun
992.þáttur. Mín skoðun.07032025

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Mar 7, 2025 93:52

Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Haraldi Hróðmarssyni þjálfara Grindavíkur og við tölum um enska boltann, meistaradeildina, evrópudeildina og Grindavík ásamt fleiru. Einar Jónsson er spjalli um Olísdeildina í handbolta og við tölum einnig um landsliðið sem er að fara að mæta Grikklandi í undankeppni EM og svo leikmanna-og þjálfaramál. Svanhvít er svo á línunni og við förum í Bónusdeildina í körfubolta sem og í enska boltann um helgina. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

bk heil grindav grikklandi
Mín skoðun
991.þáttur. Mín skoðun.04032025

Mín skoðun

Play Episode Listen Later Mar 4, 2025 89:36

Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kærnested og við tölum aðeins um Bestu deildina sem hefst eftir mánuð sem og meistaradeildina. Einar Jónsson ræðir við mig um Olísdeildina og að sjálfsögðu bikarkeppni um síðustu helgi sem og landsliðið sem mætir Grikklandi síðar í mánuðinum. Ein Krummasaga fylgir svo með. Svanhvít er svo á línunni og við tölum um Bónusdeildina og þá miklu spennu sem þar er og við spáum í leikina í meistaradeildinni í vikunni og svo einhverjar slúður fréttir. Takk fyrir að hlusta og takk BK-kjúklingur fyrir að vera með okkur. 

bk takk bestu grikklandi
Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
95 - Föníka, fyrsta verslunarveldi fornaldar

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later Oct 25, 2024 85:06

Í þættinum í dag komu Ólafur og Andri saman til að tala hið forna samfélag Föníkumanna við botn Miðjarðarhafs, en gullöld þeirra var á tímabilinu 1000-800 f.kr. Föníkumenn voru fólk sem bjó á því svæði sem í dag er Líbanon. Deilt er um hvort kalla megi Föníka "þjóð" og samheldið menningarsamfélag, eða samansafn borgríkja. Mjög fáar skriflegar heimildir eru til um Föníka, og mest er til í frásögnum nágranna þeirra, en það voru einmitt grískir sagnaritarar sem gáfu okkur nafnið Fönikía eða Föníka, Föníkar og Fönikíumenn.Föníkar voru ein mesta verslunarþjóð fornaldarinnar. Þeir sigldu um Miðjarðarhafið og stofnuðu nýlendur á Spáni, Grikklandi, Ítalíu og í Norður-Afríku. Afsprengi Föníku var nýlendan Karþagó sem átti eftir að stofna egið nýlendu- og verslunarveldi á Miðjarðarhafinu. Menning þeirra var æfaförn, og nær aftur til bronsaldar, en hún leið undir lok undir Rómarveldi á síðustu öldum fyrir kristburð.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | soguskodun@gmail.comEinnig á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Þú veist að ég er stemmingsmaður” -#505

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Sep 17, 2024 46:35

Helgi gerði næstum því milljón króna samning um daginn, en hann hefur verið að halda utan um steggjaveislur heima hjá sér. Hjálmar er nýkominn heim frá Grikklandi þar sem fólk var í sjokki yfir því að hann væri 51 árs. Strákarnir hringdu í Þórunni Elvu til að fá staðfest hvort að Hjálmar sé í raun og veru stemmingsmaður. IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!

str hj helgi grikklandi
Lestin
Kapítalískt raunsæi (í bókaklúbbi), grísk menning

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 9, 2024 58:29

Hvað er að gerast í grískri menningu? Hvaða tónlist eru Grikkir að dansa við, hvaða bækur eru þeir að lesa, og hvað finnst þeim um nýjustu bíómyndina frá Yorgos Lanthimos? Við hringjum í Auði Ýr Sigurðardóttur sem er í Þessaloniki í norður Grikklandi og forvitnumst um gríska dægurmenningu. Við förum og hittum bókaklúbbinn Bók í dós, sem var að enda við lesa bókina Capitalist Realism: Is there no alternative? eftir breska heimspekinginn og menningarrýninn Mark Fisher. Kapítalískt raunsæi er hugtak yfir það að kapítalisminn er ekki einungis eina efnahagskerfð í heiminum, heldur er óhugsandi að ímynda sér að nokkuð annað gæti komið í staðinn. Bókin er stutt ritgerð en full af flóknum hugtökum og frönskum heimspekingum. Inn á milli fléttar Fisher inn pælingar úr bíómyndum og sjónvarpsþáttum sem auðveldara er að skilja. En hún er einhvers konar ákall til vinstrisins, að hætta að velta fyrir sér sögunni og liðnum atburðum og fara að ímynda sér nýja möguleika.

Stundin
Eitt og annað: Deilan um marmarastytturnar

Stundin

Play Episode Listen Later Jul 7, 2024

Grikkir og Danir hafa árum saman deilt um grískar marmarastyttur sem voru fluttar frá Grikklandi til Danmerkur fyrir 340 árum. Grikkir vilja fá stytturnar til baka en Danir vilja ekki láta þær af hendi.

Skoðanabræður
#315 Rætur vestrænnar menningar (þáttur frá Grikklandi hinu forna)

Skoðanabræður

Play Episode Listen Later May 24, 2024 19:31

Að þessu sinni eru bræðurnir staddir í vöggu vestrænnar siðmenningar, hafa varið mánuðum í að undirbúa umfjöllun um staðinn og segja nú gjörið svo vel, eftir að hafa heimsótt helstu staði í persónu. En óttist ekki að hér sé vísað til staða sem þið ekki þekkið eða til manna sem þið ekki þekkið! Þetta er kjörinn vettvangur fyrir byrjendur til þess að skyggnast inn í helstu atriði í forngrískri menningu, hvort sem það er heimspeki, listir, göfugar íþróttir eða einfaldlega sjálf fegurðin.

forna grikklandi
Handkastið
FH-ingar vankaðir eftir fyrsta höggið - Valsmenn nálgast fyrirheitnalandið

Handkastið

Play Episode Listen Later May 19, 2024 60:46

Afturelding leiðir í baráttunni við FH um Íslandsmeistaratitilinn og Valsmenn eru í góðri stöðu fyrir seinni úrslitaleikinn í Grikklandi næstu helgi.

Handkastið
Landsleikirnir í Grikklandi slógu engin áhorfsmet og HSÍ kveður Kempa?

Handkastið

Play Episode Listen Later Mar 18, 2024 60:30

Þátturinn um allt og ekkert. Landsliðsumræða - Olís-deild karla - Olís-deild kvenna og miklu meira til. Hvert fer Bjarni Ófeigur? Hvert fer Skarphéðinn Ívar? Hvert fer Ólafur Ægir? Skolphreinsun Ásgeirs fékk frí í vikunni og ætlar að nýta sér styttingu vinnuvikunnar. Á sama tíma var að koma út nýr BodyFuel drykkur - sem Sérfræðingurinn segir vera þann besta hingað til.

Spegillinn
Skaftárhlaup, bankaskýrsla, regnbogatröppur skemmdar, loðdýrarækt

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 29, 2023 9:41

Rennsli eykst enn í Skaftá, en hægt hefur á aukningunni. Búið er að loka Hólaskjóli - hálendismiðstöðinni. Enn er óljóst úr hvorum Skaftárkatli hleypur. Rætt var við Áróru Bryndísi Ásgeirsdóttir sem starfar í Hólaskjóli og Þorstein Þorsteinsson, sérfræðing í jöklarannsóknum á Veðurstofunni. Vaxtamunur hefur ekki minnkað þrátt fyrir bætta afkomu og minni rekstrarkostnað bankanna. Gjaldskrár eru óskýrar og oft óljóst fyrir hvað fólk er að borga. Skógareldarnir í Grikklandi eru þeir mestu innan Evrópusambandsins frá aldamótum. Regnbogatröppur á Akureyri voru spreyjaðar svartar í nótt. Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem skemmdarverk hafa verið unnin á regnbogaskreyttum gönguleiðum. Linda Björk Pálsdóttir forvarna- og félagsmálaráðgjafi hjá Akureyrarbæ telur hugsanlegt að innblástur af verknaðinum hafi verið fenginn af svipuðu skemmdarverki á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Svifryksmengun er alvarlegasta heilsufarsógnin sem steðjar að jarðarbúum segir í nýrri skýrslu um ástand loftslagsmála í heiminum. Ef dregið yrði úr henni sem næmi markmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar lengdi það ævi þeirra um 2,3 ár að meðaltali. Viðskiptabankarnir þrír hafa heilt yfir náð fram verulegri hagræðingu í starfsemi sinni og arðsemi bankanna er núna almennt nokkuð hærri en hjá bönkum af svipaðri stærðargráðu á öðrum Norðurlöndunum. Og vaxtamunur bankanna er mun meiri hér en þar. Erfitt getur verið fyrir neytendur að átta sig á hvaða þjónustu þeir eru að kaupa. Þetta eru meginniðurstöður starfshóps sem Lilja Alferðsdóttir viðskiptaráðherra skipaði fyrir ári, til að skoða um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna sem sat í starfshópinum. Fuglaflensa hefur komið hart niður á loðdýrabúum í Finnlandi. Hennar hefur orðið vart á um 25 búum og þegar er búið að lóga öllum dýrum á þeim, meira en 120 þúsund minkum og refum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Einar Eðvald Einarsson á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Hann er formaður loðdýradeildar Bændasamtakanna. Einar hefur ekki miklar áhyggjur af fuglaflensa berist í loðdýr hér, aðstæður á búunum séu aðrar. Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Spegillinn
Skaftárhlaup, bankaskýrsla, regnbogatröppur skemmdar, loðdýrarækt

Spegillinn

Play Episode Listen Later Aug 29, 2023

Tveir Fellar
#67 Frikki.R Vol. 2

Tveir Fellar

Play Episode Listen Later Aug 16, 2023 108:10

Frikki er mættur aftur og við spjöllum um allskonar skemtilega hluti. Hvernig var að búa í Grikklandi, hvernig hann var næstum því stunginn, trúabrögð og af hverju hann er að flytja til Portúgal. --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/tveirfellar/message

port hvernig grikklandi
Morgunvaktin
Sáttargreiðsla Íslandsbanka í alþjóðlegum samanburði

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 28, 2023

Við veltum fyrir okkur siðferði og siðfræði í þættinum í dag, í tengslum við viðbrögð við skýrslu um söluna á Íslandsbanka. Við tölum um viðbrögðin hjá stjórnmálunum, og hjá fjármálakerfinu, og veltum því fyrir okkur hvort og þá hvað hafi breyst eftir hrun. Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir, prófessor í heimspeki og hagnýtri siðfræði, var gestur þáttarins og við ræddum um viðbrögðin í stjórnmálum og fjármálakerfinu við málinu og veltum því fyrir okkur hvort, og þá hvað, hafi breyst eftir hrun. Íslandsbanki greiðir tæplega 1,2 milljarða króna í sektargreiðslu vegna málsins. Hvernig er það í samanburði við sektir banka í löndunum í kringum okkur? Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum setti upphæðina í samhengi. Ásgeir Brynjar ræddi líka um verðbólgu og stöðu mála eftir kosningar í Grikklandi. Á næstkomandi laugardag leggja 176 hjólreiðakappar af stað frá Bilbao á Spáni og stefna til Parísar. Þekktasta og stærsta hjólreiðakeppni heims, Tour de France, er að hefjast. Þetta er í 110. sinn sem fremstu hjólreiðamenn heims þreyta þessa miklu þolraun, og afmælisár hennar að auki, því í ár eru 120 ár frá fyrstu Tour de France-keppninni 1903. En fyrstu túrarnir í upphafi tuttugustu aldar voru nokkuð ólíkir því fjölmenna sjónarspili sem við þekkjum nú. Við fjölluðum um sögu Tour de France. Tónlist: Litla sæta ljúfan góða - Hljómsveit Ingimars Eydal Birds Go Die Out Of Sight - Peter One Tour de France - Ellen Ten Damme Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

tour de france hvernig hlj brynjar litla brynjarsd legum grikklandi vera illugad brynjar torfason
Morgunvaktin
Sáttargreiðsla Íslandsbanka í alþjóðlegum samanburði

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 28, 2023 130:00

Íslandsbankasalan, hvalveiðibann, uppgjör Loftslagsráðs

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 23, 2023 9:40

Spegillinn 23. Júní 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks, segir Íslandsbanka viðurkenna lögbrot með samningi um sáttagreiðslu við fjármálaeftirlitið. Arndís Anna. K. Gunnarsdóttir, varamaður Pírata í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, segir að velta verði við hverjum steini vegna bankasölunnar. Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við þau og Benedikt Sigurðsson ræddi við Birnu Einarsdóttur bankastjóra. Stjórn bankans kveðst bera fullt traust til bankastjóra. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir skýra og ótvíræða lagaheimild vera fyrir því að takmarka hvalveiðar við ákveðinn tíma. Stefán Vagn Stefánsson, formaður atvinnuveganefndar og þingmaður Framsóknar, telur mikilvægt að nefndin verði upplýst um stöðu mála. Rebekka Líf Ingadóttir tók saman. Að minnsta kosti 350 Pakistanar voru í fiskibátnum sem sökk úti fyrir Grikklandi í síðustu viku. Hugsanlegt er talið að allt að 750 manns hafi verið í bátnum. Tvær listakonur fengu 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að nota verk annars listamanns í sköpun sína. Þær voru sakfelldar fyrir hylmingu en sýknaðar af ákæru um brot gegn höfundarrétti. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Starfshópur matvælaráðherra um strokulaxa vill stofna sérstaka rannsóknarnefnd og veita Matvælastofnun heimild til að telja laxa upp úr kvíum, vakni grunur um strok. Arnhildur Hálfdánardóttir sagði frá og talaði við Jón Kaldal, talsmann Íslenska náttúruverndarsjóðsins, og Sigurgeir Bárðarson, lögfræðing hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Dómar yfir sakborningum í saltdreifaramálinu svonefnda voru mildaðir í Landsrétti í dag. Þeir sem þyngsta refsingu hlut fá tíu ára fangelsisdóm í stað tólf. Í uppgjöri Loftslagsráðs, sem birt var á dögunum, segir að við blasi, að aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum hafi ekki skilað tilætluðum árangri, markviss loftslagsstefna með tímasettum og mælanlegum markmiðum liggi enn ekki fyrir og ljóst að Ísland muni ekki ná að uppfylla skuldbindingar sínar og fyrirheit um samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030, að óbreyttu. Ævar Örn Jósepsson ræddi málið við Halldór Þorgeirsson, formann Loftslagsráðs.

Spegillinn
Íslandsbankasalan, hvalveiðibann, uppgjör Loftslagsráðs

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jun 23, 2023

Betri helmingurinn með Ása
#110 - Gummi Tóta & Guðbjörg

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Jun 15, 2023 100:29

Fótbolta og tónlistarmaðurinn Guðmundur Þórarinsson eða Gummi Tóta eins og hann er betur þekktur mætti til mín í virkilega skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri helmingi verkfræðingnum Guðbjörgu Ósk Einarsdóttur.Gummi hefur verið atvinnumaður í fótbolta undanfarin tíu ár og hefur spilað víða á sínum ferli og meðal annars unnið titla með liði sínu New York City en spilar hann í dag í Grikklandi. Ásamt því að vera fótboltamaður er Gummi einnig áberandi í popp menningu Íslands en hefur hann samið hvern slagarann á fætur öðrum og fáir íslendingar sem ekki geta tekið undir lagið hans Sumargleðin.Guðbjörg er Njarðvíkingur í húð og hár og eins og margir sem koma þaðan er körfubolti stór hluti af hennar uppvaxtarárum, hún sagði þó skilið við körfuna og er hún í dag í fjarnámi í Verkefnastjórnun eftir að hafa klárað viðskiptaverkfræði.Gummi og Guðbjörg kynntust eins og margir í nútíma samfélagi í gegnum samfélagsmiðla en það náði þó aldrei neitt langt fyrsta árið. Ári síðar hittust þau á tómum Keflarvíkurflugvelli í Covid hámarki sem hlaut bara að vera einhver að segja þeim að þau ættu að gera eitthvað meira úr þessu og hafa þau verið saman allar götur síðan og eiga í dag saman eina litla stelpu.Í þættinum ræddum við meðal annars um lífið í fótboltanum, hvernig það er að búa í Grikklandi, hvernig það er fyrir Guðbjörgu að koma sér inn í lífið á Krít, rómantíkina, húmorinn og margt fleira ásamt því að heyra fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð, þar á meðal þegar Guðbjörg var illa á sig komin á Brooklyn bridge.Þátturinn er í boði:Góu - http://www.goa.is/RÓ-CBD - https://www.rocbd.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

Morgunvaktin
Innganga Finna í NATO framhald stefnu frá stríðslokum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 14, 2023

Baldur Þórhallsson prófessor í stjórnmálafræði var gestur Morgunvaktarinnar. Baldur ræddi málefni Atlantshafsbandalagsins, en hann gaf nýverið út grein um utanríkisstefnu Finnlands og inngöngu landsins í bandalagið. Það er uppsveifla í Grikklandi miðað við stöðuna þar undanfarin ár. Þar er hagvöxtur og lág verðbólga, en reyndar svolítið atvinnuleysi. Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum ræddi við Morgunvaktina frá Grikklandi. Hrund Ásgeirsdóttir var nýverið ráðin í starf skólastjóra Öxarfjarðarskóla, en hún hefur starfað lengi við skólann og auk þess verið skólastjóri í grunnskóla Raufarhafnar. Hrund er líka bóndi og rekur ferðaþjónustu. Hrund sagði frá skólastarfinu og lífinu í Öxarfirði. Tónlist: Summertime - Charlie Parker Sunny Road - Emilíana Torrini Nothing Brings Me Down - Emilíana Torrini Love Child - Júníus Meyvant Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

nato baldur finna finnlands hrund grikklandi vera illugad brynjar torfason
Morgunvaktin
Innganga Finna í NATO framhald stefnu frá stríðslokum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jun 14, 2023 130:00

Sjóðir hersins að tæmast, hæfi fjármálaráðherra og bitlausar þvinganir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 3, 2023 8:30

Svæðisforingi Hjálpræðishersins segir að svo geti farið að hætt verði að bjóða upp á heitan mat í hádeginu. Þeim sem leita til hersins hefur fjölgað mikið undanfarna mánuði og sjóðirnir eru að tæmast. Arnar Björnsson talaði við Hjördísi Kristinsdóttur. Nauðsynlegt er að bjóða upp á sólarhringsþjónustu fyrir heimilislausar konur, til að minnka líkur á að þær verði fyrir ofbeldi. Ekkert úrræði er til fyrir heimilislausar konur sem eru í neyslu yfir daginn. Alma Ómarsdóttir talaði við Halldóru Dýrleifar- Gunnarsdóttur Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh var í dag dæmdur í líftíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Hann framdi ódæðisverkin þegar upp hafði komist um umfangsmikinn fjárdrátt. Alexander Kristjánsson sagði frá. Þúsundir mótmæltu vanrækslu lestarfyrirtækis í Grikklandi í dag. Að minnsta kosti fimmtíu og sjö fórust í lestarslysi á miðvikudag. ----------------------------------- Fjármálaráðherra segir ríkisendurskoðanda hafa verið skýran um að ekki væri tilefni til að draga hæfi ráðherra í efa við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Með hvaða hætti var reglum stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi fullnægt þegar félag í eigu föður fjármálaráðherra keypti hlut í Íslandsbanka? Hlut sem ríkið seldi honum. Þetta er ein þeirra spurninga sem umboðsmaður alþingis krefur fjármálaráðherra svara við í bréfi sem hann sendi Bjarna Benediktssyni í gær og væntir svara í lok mánaðar. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman. Efnahagsþvinganir hafa ekki bitið eins fast á Rússa eins og til var ætlast frá því að innrás þeirra í Úkraínu hófst. NATÓ-ríkin hafa ekki undan í vopnaframleiðslu sinni, segir sérfræðingur í fjármálum. Bjarni Rúnarsson talaði við Ásgeir Brynjar Torfason. Jónas Gahr Störe, forsætisráðherra Noregs, hefur beðist afsökunar á því að mannréttindi séu brotin á hópi Sama í landinu. Vindorkuver var reist í óleyfi á beitilöndum þeirra. Þar með höfðu aðgerðasinnar úr röðum Sama betur eftir vikulöng og hávær mótmæli við ráðuneyti í Ósló. Ríkisstjórnin lofar nú bót og betrun. Gísli Kristjánsson sagði frá.

Spegillinn
Sjóðir hersins að tæmast, hæfi fjármálaráðherra og bitlausar þvinganir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 3, 2023

Borgarskjalasafn lagt niður, Samfylkingin eykur fylgi og vindorkuver

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 2, 2023

Spegillinn 02.03. 2023 Borgarráð samþykkti í dag að leggja niður Borgarskjalasafn og hefja viðræður við Þjóðskjalasafn um sameiginlega vörslu gagna. Borgarstjóri telur að breytingin eigi eftir að auka aðgengi að skjölum. Samfylkingin mælist með mest fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup, annan mánuðinn í röð. Stuðningur við ríkisstjórnina dvínar og hefur ekki mælst minni. Nýsamþykkt endurskoðuð þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland er stefnulaust plagg. Þetta segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra. Starfsmenn grísku járnbrautanna segja að vanræksla stjórnvalda hafi átt þátt í lestarslysinu í Grikklandi í gærmorgun þar sem 47 manns fórust. Þeir lögðu niður störf í dag í mótmælaskyni. Færð á vegum er óvenjugóð miðað við árstíma segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur Vegagerðarinnar og nær allir vegir færir. ----------------------------------------------------------- TIKTOK, - kínverska samskiptaforritið sem hefur fengið ungt fólk um allan heim til að stíga samhæfð dansspor á víðavangi og gera upphlaup í matvöruverslunum hefur átt undir högg að sækja síðustu daga. En á sama tíma og bandarísk og evrópsk stjórnvöld og fjölmiðlar banna starfsfólki sínu að nota forritið á vinnusímum verður tiktok opinber samfélagsmiðill Eurovision-keppninnar. Á þriðja tug vindorkuvera eru til skoðunar hjá Orkustofnun, verkefnissstjórn rammaáætlunar og fjórum faghópum sem undir hana heyra. Jón Ásgeir Kalmansson siðfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands fer fyrir hópnum sem hefur það hlutverk að meta virkjunarkosti með tilliti til áhrifa þeirra á samfélagið, félagslega velferð íbúa, samfélagslega fjölbreytni, samskipti, samstöðu, virkni og margt fleira. Á Vestfjörðum mætti spara raforku sem nemur tíu til tólf megavöttum ef þar fyndist heitt vatn í jörðu sem dygði til að leysa af hólmi rafkyntar hitaveitur. Orkubústjóri Orkubús Vestfjarða segir þetta fljótteknustu raforkuvirkjun sem völ er á í fjórðungnum. Með vorinu hefst jarðhitaleit á Ísafirði og Patreksfirði. Umsjónarmaður Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður Jón Þór Helgason Stjórnandi fréttaútsendingar Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

tiktok eurovision gallup lagt umsj ingibj vestfj vestfjar grikklandi borgarstj vegager patreksfir einar sveinbj
Spegillinn
Borgarskjalasafn lagt niður, Samfylkingin eykur fylgi og vindorkuver

Spegillinn

Play Episode Listen Later Mar 2, 2023 9:15

#88 - Andrea Röfn & Arnór Ingvi

Betri helmingurinn með Ása

Play Episode Listen Later Jan 4, 2023 87:28

Fótbolta og landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason mætti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum betri helmingi fyrirsætunni og bloggaranum Andreu Röfn Jónasdóttur.Arnór Ingvi hefur verið atvinnumaður í fótbolta síðan 2012 og spilað hjá liðum víðsvegar um heiminn meðal annars í Boston, Noregi, Grikklandi, Austurríki og Svíþjóð þar sem hann spilar nú með félaginu Norrköpping. Ásamt þessu spilar hann með íslenska landsliðinu og skoraði meðal annars markið sem tryggði Íslandi leikinn á móti Englandi í 16 liða úrslitum EM 2016.Andrea hefur verið áberandi hér á landi í mörg ár fyrir störf sín sem fyrirsæta og er hún einnig partur af vinsælu bloggsíðunni Trendnet þar sem hún skrifar mikið um tísku. Þá hefur hún einnig hannað og gefið út sína eigin skólínu, JoDis by Andrea með danska skóframleiðandanum JoDis, sem vægast sagt hafa slegið í gegn og hefur hún alls hannað sjö línur.Arnór og Andrea kynntust í gegnum sameiginlegann vin í desember 2016 á Fredreksen og kom Arnór heim eftir þennan hitting og sagði við mömmu sína að hann væri búinn að finna réttu stelpuna en var hún mætt í mat hjá tengdó 1. janúar svo hlutirnir gerðust ansi hratt og eru þau í dag gift með tvö börn.Í þættinum ræddum við meðal annars lífið í atvinnumennskunni og hvernig það er að flytja fjölskiduna reglulega milli landa, hönnunina á skónum og hvernig það kom til, landsliðið, rómantíkina og margt fleira ásamt því að heyra margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal þegar Andrea var næstum búinn að senda Arnór í keppnisferð þegar hún var að eiga.Þátturinn er í boði:Bestseller.is - https://bestseller.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Smitten  - https://smittendating.com/

Víðsjá
Rakel McMahon, Huldumál, Natasha S., Kjallarakabarett

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 18, 2022

Miðvikudagskvöldið 19. október, mun kammerkórinn Aurora frumflytja 10 ný sönglög við ljóð þjóðskáldsins Huldu á tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík. Lögin samdi jazzsöngkonan og tónskáldið Una Stefánsdóttir, sem vildi með þessum nýju tónsmíðum gefa ljóðum Huldu nýtt líf. Þær Una Stefánsdóttir og Sigríður Soffía Hafliðadóttir, kórstjóri kammerkórsins Aurora verða gestir Víðsjár í dag. Á sýningunni No pretending í Gallerí Þulu sýnir Rakel McMahon 70 ný verk sem, alveg óvart, röðuðust upp á vegg eins og Tarot spil. Útgangspunkturinn var þó aldrei að vísa í heim spádómsspila, heldur einmitt að vísa ekki í neitt, heldur leyfa teikningunum að koma ósjálfráðu flæði, án ritskoðunar og efasemda. Verkin eru þó, kannski líka óvart, full af vísunum, í listasöguna, heim trúarbragða og tákna og einnig líf listakonunnar. Verkin eru smágerð því þau eru ekki unnin á vinnustofu, heldur hér og þar, í Reykjavík og á Grikklandi, uppí rúmi eða við eldhúsborðið. Við ræðum við Rakel Mcmahon í þætti dagsins. Á föstudagskvöldum í vetur verður slegið upp kabarettveislu í Þjóðleikhúskjallaranum, þar sem ýmsir hópar munu taka yfir sviðið. Nína Hjálmarsdóttir fór á kjallarakabarett um liðna helgi og segir frá þeirri reynslu í þætti dagsins. En við byrjum á bókmenntunum. Í Gær hlaut Natasha S. Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Máltaka á stríðstímum. Hún flytur þakkarræðuna í þætti dagsins.

Víðsjá
Rakel McMahon, Huldumál, Natasha S., Kjallarakabarett

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 18, 2022 55:00

52 - Innrásin á Kýpur 1974

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later Jun 29, 2022 78:46

Í júlí árið 1974 gerðu Tyrkir innrás í Kýpur og hefur hernám þeirra á norðurhluta eyjarinnar staðið yfir í 47 ár. Innrásin er mjög umdeild og hefur verið harðlega gagnrýnd af alþjóðasamfélaginu. Tyrkir segjast hafa verið að vernda tyrnkeska minnilutan á eyjunni, sem hafði verið ofsóttur af Grikkjum, en kýpríska þjóðvarðliðið, stutt af herforingjastjórn Grikkja, hafði skömmu áður framið valdarán með það fyrir marki að sameina eyjuna Grikklandi.Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn sögu Grikklands, Tyrklands og Kýpur á 20. öld og skoða aðdraganda innrásar Tyrkja á Kýpur. 

grikklandi tyrklands
Fotbolti.net
Heimavöllurinn: Kemur alltaf einhver kona til að hleypa vindlareyknum út

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Feb 19, 2022

Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þær Ingunn Haraldsdóttir og Katrín Ómarsdóttir. Ingunn er nýkomin heim úr atvinnumennsku í Grikklandi og Katrín er orðin aðstoðarþjálfari Hauka. Stelpurnar okkar byrja á sigri í fyrsta leik á She Believes Cup og Dagný setti þar hraðamarkamet. Árið 2022 erum við enn að verða vitni að ótrúlegum atvikum en Þróttarar fengu engan bikar afhentan kvöldið sem þær urðu Reykjavíkurmeistarar. Slíkar uppákomur og ýmislegt annað hefur orðið til þess að Ingunn, Katrín og vaskur hópur fólk eru að endurvekja Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna og gestirnir segja frá þeim.

Spegillinn
25. janúar 2022. Fárviðri, sóttvarnir og Úkraína

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 25, 2022 9:21

Björgunarsveitir hafa sinnt hátt í 100 verkefnum vegna vestanstorms sem nú gengur yfir landið. Á suðvesturhorninu rifnuðu tré rifnuðu upp með rótum og þakklæðningar og -plötur fuku af húsum. Nú rétt fyrir fréttir var bæði Hellisheiði og Þrengslum lokað vegna veðurs. Bjarni Pétur Jónsson tók saman. Talað við Davíð Má Bjarnason hjá Landsbjörg og Sólveig Klara Ragnarsdóttir ræddi við Einar Daníelsson í aðgerðastjórn björgunarsveitanna á Höfuðborgarsvæðinu. Flugfreyjum var dæmt í vil í Félagsdómi í dag. Icelandair bar að fara eftir starfsaldri þegar fyrirtækið afturkallaði uppsagnir í fyrrasumar. Nýjar sóttvarnareglur liðka mjög fyrir skólastarfi, Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs Akureyar segir eðlilegt að skólafólk taki þátt í að ná hjarðónæmi í samfélaginu. Þorgerður laufey Diðriksdóttir, formaður félags grunnskólakennara segir að stór hópur sé settur í hættu. Hermenn voru kallaðir út í Grikklandi til að aðstoða bílstjóra sem lentu í vandræðum vegna snjóa. Alþjóðaflugvöllurinn í Istanbúl í Tyrklandi lokaðist í sólarhring vegna fannfergis. Ásgeir Tómasson sagði frá. ------ Liðsafnaður Rússa við landamæri Úkraínu síðustu vikur hefur allt annan brag og tilgang en hann hafði í fyrravor segir Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra í Rússlandi. Albert hefur ekki trú á að Rússar hætti á innrás. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hann. Bjarni Benediktsson fjármála og efnahagsráðherra flutti á Alþingi í dag munnlega skýrslu um efnahagsaðgerðir vegna heimsfaraldursins. Bjarni Rúnarsson tók saman umræður á Alþingi. Heyrist í Bjarna Benediktssyni (D), Loga Einarssyni (S), Jakobi Frímanni Magnússyni (F), Birni Leví Gunnarssyni (P), Sigmari Guðmundssyni (C) og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni (M). Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Spegillinn
25. janúar 2022. Fárviðri, sóttvarnir og Úkraína

Spegillinn

Play Episode Listen Later Jan 25, 2022

Að snerta internetið 2, íslensk listahátíð í Aþenu, Jónas Hallgrímsson

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 16, 2021 53:59

Í dag er dagur íslenskrar tungu, og þar með afmælisdagur Jónasar Hallgrímssonar. Á degi sem þessum er vert að ræða stöðu tungumálsins, en eins að minnast skáldsins og það gerði dagskrárgerðarmaðurinn Bergsteinn Sigurðsson fyrir nokkrum árum síðan svo eftir var tekið. Við skellum okkur til Aþenu í Grikklandi og heyrum í tveimur af skipuleggjendum listahátíðarinnar Head to head sem lauk um helgina en fjöldi íslenskra listamanna sýndi þar verk sín eða kom fram. Skýið, gervihnettir, 5g, þráðlaust. Í hugum okkar er internetið svo loftkennt og óefnislegt. En í raun og veru er það bara ein stór flækja af snúrum, þráðum, strengjum, köplum, sendum, tölvum. Í gær lögðum við af stað í leiðangur að finna internetið, og í dag höldum við áfram að reynda að sjá það með eigin augum og athuga hvort við getum snert það. Í gær var það ljósleiðaranetið innanlands, en nú leitum við uppi sæstrenginn sem tengir íslenska internetið við umheiminn.

Lestin
Að snerta internetið 2, íslensk listahátíð í Aþenu, Jónas Hallgrímsson

Lestin

Play Episode Listen Later Nov 16, 2021

Í dag er dagur íslenskrar tungu, og þar með afmælisdagur Jónasar Hallgrímssonar. Á degi sem þessum er vert að ræða stöðu tungumálsins, en eins að minnast skáldsins og það gerði dagskrárgerðarmaðurinn Bergsteinn Sigurðsson fyrir nokkrum árum síðan svo eftir var tekið. Við skellum okkur til Aþenu í Grikklandi og heyrum í tveimur af skipuleggjendum listahátíðarinnar Head to head sem lauk um helgina en fjöldi íslenskra listamanna sýndi þar verk sín eða kom fram. Skýið, gervihnettir, 5g, þráðlaust. Í hugum okkar er internetið svo loftkennt og óefnislegt. En í raun og veru er það bara ein stór flækja af snúrum, þráðum, strengjum, köplum, sendum, tölvum. Í gær lögðum við af stað í leiðangur að finna internetið, og í dag höldum við áfram að reynda að sjá það með eigin augum og athuga hvort við getum snert það. Í gær var það ljósleiðaranetið innanlands, en nú leitum við uppi sæstrenginn sem tengir íslenska internetið við umheiminn.

Fotbolti.net
Davíð Snorri: Þegar dugnaðurinn er á hreinu þá koma gæðin líka

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Nov 8, 2021

Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins valdi í síðustu viku hóp fyrir tvo leiki sem framundan eru. Ísland mætir Liectenstein næsta föstudag og Grikklandi þriðjudaginn 16. nóvember. Báðir leikirnir eru liður í undankeppni EM 2023. Davíð var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddi um komandi leiki og riðil Íslands.

Hlaðvarp Kjarnans
Raddir margbreytileikans – „Þetta á eftir að gerast, ég vil vera þarna þegar þetta gerist“

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Oct 12, 2021 81:02

Í þessum þætti er rætt við Árdísi Kristínu Ingvarsdóttur sem skilgreinir sig sem félagsfræðing með mannfræðilegan bakgrunn. Árdís segir frá lífi sínu, hvað leiddi til þess að hún ákvað að hefja mannfræðinám og áföllum sem hún varð fyrir á meðan náminu stóð. Þá segir hún einnig frá upplifun sinni sem mannfræðinemi á vettvangi en hún varði 16 mánuðum í Grikklandi á árunum 2014-2015, auk átta mánaða viðveru árið 2012, fyrir doktorsverkefni sitt í félagsfræði. Raddir marg­breyt­i­­leik­ans er mann­fræð­i­hlað­varp þar sem rætt verður við íslenska mann­fræð­inga um það sem þeir eru að rann­saka. Einnig verður rætt við erlenda fræð­i­­menn þegar færi gefst. Umsjón­­ar­­fólk hlað­varps­ins eru Hólm­­fríður María Ragn­hild­­ar­dótt­ir, Krist­ján Þór Sig­­urðs­­son og Sandra Smára­dótt­­ir.

Morgunútvarpið
3. ágúst-Skógareldar, sóttvarnir, Ólympíuleikar, Hinsegin dagar, tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 3, 2021 130:00

Skógareldar geisa í Tyrklandi, ferðafólk hefur neyðst til að forða sér frá vinsælum áfangastöðum við ströndina og mannfall hefur orðið. Slökkviliðsmenn berjast enn við skógarelda á sjö stöðum í Tyrklandi en tekist hefur að slökkva 120 elda. Þá hafa eldar líka geisað í Grikklandi en þar er fordæmalaus hitabylgja. Vilhjálmur Egilsson, fyrrum alþingismaður og rektor, dvelur í Tyrklandi ásamt konu sinni um þessar mundir og er staddur við Eyjahafið í borginni Didim. Við hringdum í Vilhjálm og spurðum frétta. Metfjöldi Covid smita hefur greinst undanfarna daga, en fjöldi smitaðra hefur verið bólusettur. Meirihlutinn virðist ekki verða mikið veikur og því virðist sem bólusetningarnar haldi. Þá er spurning hvort talning á smitum sé rétta leiðin í næstu aðgerðum sóttvarnayfirvalda gegn faraldrinum? Við tókum stöðuna á staðgengli sóttvarnarlæknis, Kamillu Sigríði Jósefsdóttur. Við hringdum til Japans og tókum stöðuna á Ólympíuleikunum með Einar Erni Jónssyni íþróttafréttamanni. Í dag hefjast Hinsegin dagar sem standa yfir í viku. Gleðigangan hefur verið stór partur, og í raun hápunktur, Hinsegin daga. En í ár verður ekkert af henni frekar en í fyrra vegna samkomutakmarkanna. En það verður samt nóg um að vera og við hringdum í Ragnar Veigar Guðmundsson sem er í stjórn Hinsegin daga. Tæknihornið snéri aftur eftir sumarfrí í dag þegar Guðmundur Jóhannsson mætti til okkar og ræddi djúpfalsanir, morgunkornssjálfsala og snjallsápuskammtara. Tónlist: Vilhjálmur Vilhjálmsson - Tölum saman. Sade - Flower of the universe. Svavar Knútur og Irish Mythen - Hope and fortune. Friðrik Dór - Hvílíkur dagur. Harry Styles - Sign of the times. Grafík - Þúsund sinnum segðu já. Elín Ey - Ljósið. Blur - Song 2. Manic Street Preachers - Orwellian. Prins Póló - Niðri á strönd. Unnsteinn Manúel - Lúser.

Morgunútvarpið
3. ágúst-Skógareldar, sóttvarnir, Ólympíuleikar, Hinsegin dagar, tækni

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Aug 3, 2021

Álag ekkert nýtt í leikskólunum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 28, 2021 130:00

Í fyrra var ákveðið að hætta að senda flóttafólk, sem hlotið hefur alþjóðlega vernd í Grikklandi, aftur þangað héðan frá Íslandi. Nú hefur þeirri ákvörðun verið snúið og tugir manna ýmist farnir til Grikklands eða verða sendir þangað. Fjölmörg mannréttindasamtök og stofnanir hafa bent á að ástandið þar sé afskaplega slæmt, og óþol heimamanna gagnvart flóttafólki hafi aukist. Guðríður Lára Þrastardóttir lögfræðingur hjá Rauða krossinum, ræddi við okkur. COVID-Smit sem tengjast leikskólanum Jörfa í Bústaðahverfi í Reykjavík eru orðin yfir hundrað talsins og því er hópsýkingin orðin með þeim stærri sem komið hafa upp í faraldrinum hér á landi. Stór hluti starfsmanna er smitaður og rúmlega tuttugu börn. Leikskólakennarar hafa lýst yfir áhyggjum af því að vera ekki framar í bólusetningarröðinni og eru orðnir mjög þreyttir á ástandinu. Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla, fór yfir þessi mál. Hún hefur sjálfsagt ekki farið framhjá neinum, öll athyglin sem Húsavík hefur fengið í kringum Óskarsverðlaunahátíðina. Myndbandið með laginu Husavik-My Hometown, sem var tilnefnt til Óskarðsverðlauna, hefur nú farið um allan heim og fengið gríðarlegt áhorf. En nú er spurning hvernig Húsvíkingar ætla að notfæra sér þessa athygli og hvort hún muni skila ferðamönnum til Húsavíkur í sumar. Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, var gestur Ágústs Ólafssonar, fréttamanns á Akureyri. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Þórhildur Þorkelsdóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Silly love songs - Wings Live and let die - Paul McCartney and Wings Magnolia - Laufey Lín Jónsdóttir

Morgunvaktin
Álag ekkert nýtt í leikskólunum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 28, 2021

Vonast til að Ísland sendi 6 til 8 á Ólympíuleika í sumar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 6, 2021 130:00

Dominospitsastaðirnir voru á dögunum seldir fyrir tæpa þrjá milljarða króna, eftir því sem fregnir herma. Nýr eigandi er að eignast keðjuna í þriðja sinn og að þessu sinni eru meðeigendurnir umsvifamiklir fjárfestar og athafnamenn. Þórður Snær Júlíusson sagði okkur frá þessum nýjustu vendingum í pitsubransanum í spjalli um efnahag og samfélag. Afkoma Bláa lónsins og framtíðarhorfur nýsköpunarfyrirtækja voru einnig á dagskrá. Frá falli Berlínarmúrsins hafa kanslarar Þýskalands verið ýmist úr Jafnaðarmannaflokknum eða Kristilega demókrataflokknum. Kristilegir raunar í 23 ár af þeim um það bil 30 sem liðin eru. Nú er því hins vegar spáð að Græningi verði kanslari. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir pólitíska landslagið í Þýskalandi í Berlínarspjalli dagsins. Og svo er það sagan; 125 ár eru í dag síðan Ólympíuleikarnir - hinir endurvöktu - hófust í Aþenu í Grikklandi. Fyrstu nútíma-Ólympíuleikarnir voru sumsé settir 6. apríl 1896. Keppt var í 42 íþróttagreinum, 241 íþróttamaður tók þátt - bara karlar. Af þessu tilefni spjölluðum við um Ólympíuleikana í þættinum í dag, bæði um þessa fyrstu og þá sem í hönd fara austur í Tokyo í sumar. Til okkar komu Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Andri Stefánsson, sviðsstjóri afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Þrír litlir krossar - Brimkló

tokyo bj af berl sn sumar arth sigbj umsj fyrstu grikklandi bollason jafna brimkl
Morgunvaktin
Vonast til að Ísland sendi 6 til 8 á Ólympíuleika í sumar

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 6, 2021

Tæplega 80 milljónir á flótta í heiminum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 22, 2020 130:00

Nokkrir af helstu bönkum heims hafa orðið uppvísir að því að þvætta hagnað af allskyns glæpastarfsemi, jafnvel áratugum saman. Þetta sýna skjöl sem lekið var úr bandaríska fjármálaeftirlitinu og fjölmiðlar hafa unnið fréttir úr. Svarta hagkerfið í heiminum er risastórt og virðist fást þrifist í góðu skjóli löglegra og, fram til þessa, virtra bankastofnana. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, dró upp mynd af þessu í vikulegu spjalli um efnahag og samfélag. Hann ræddi líka stuttlega um útboð Icelandair. Egypsk fjölskylda er í felum til að fresta brottflutningi frá Íslandi. Flóttamannabúðir í Grikklandi brunnu til grunna fyrir skömmu og til stendur að hverfa frá Dylfinnarreglugerðinni. Allt hefur þetta vakið upp enn á ný umræðu um málefni fólks á flótta. Hversu margir eru á flótta í heiminum, hvar er þetta fólk og hvers vegna lagðist það á flótta? Ásdís Ólafsdóttir yfirmaður stafrænna miðla hjá samtökunum International Crisis Group fór yfir flóttamannamálin með okkur á Morgunvaktinni. Þjóðverjum hefur gengið betur en mörgum Evrópuþjóðum að halda kórónuveirunni í skefjum. Tilfellum hefur fjölgað þar að undanförnu en ekki nærri eins mikið og víða um álfuna. Þýskir gleðjast auðvitað yfir þessu og gremjast um leið yfir að fá ekki að fara á völlinn en áhorfendabann er í fótboltanum. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir þessi mál og önnur í Þýskalandsspjalli. Tónlist: Take my love with you - Bonnie Raitt

Morgunvaktin
Tæplega 80 milljónir á flótta í heiminum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Sep 22, 2020

Spegillinn 11. september 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 11, 2020 30:00

Reglur um heimkomusmitgát reyndust óljósar og brögð að því að þær séu brotnar, segir sóttvarnalæknir í minnisblaði til heilbrigðisráðherra. Ráðherra hefur fallist á tillögur um óbreytt fyrirkomulag sóttvarna á landamærum næstu vikur. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Mótmæli svokallaðra gulvestunga hefjast að nýju í París og fleiri borgum í Frakklandi á morgun. Ásgeir Tómasson sagði frá. Eigendur Hrísey Seafood hafa fest kaup á húsnæði í eyjunni og undirbúa að hefja þar fiskverkun á ný. Ágúst Ólafsson ræddi við SIgurð Jóelsson eigenda Hrísey Seafood. Á næstunni verður ráðist í mat á hvort raunhæft sé að koma pálmatrjám fyrir í Vogabyggð, en tillaga þess efnis vann í samkeppni um útilistaverk fyrir hátt í tveimur árum. Ámundi Brynjólfsson, stjórnandi framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg segir að málið hafi ekki verið í forgangi hjá borginni. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við hann. ---- Ekki er fylgst með því í hverja fangar hringja úr fangelsum landsins vegna persónuverndarsjónarmiða. Anna Kristín Newston, sviðsstjóri hjá Fangelsismálastofnun segir að hægt sé að grípa inn í ef upplýsingar liggi fyrir um að ekki megi vera samskipti við brotaþola. Þær upplýsingar liggi ekki alltaf fyrir. Nýtt lagafrumvarp í breska þinginu brýtur útgöngusamning Breta við ESB og er pólitískt deiluefni, ekki síst í stjórnarflokknum. Þúsundir flóttamanna misstu það skjól sem þeir þó höfðu þegar Moria-búðirnar á grísku eyjunni Lesbos brunnu í vikunni. Moria-búðirnar voru stærstu flóttamannabúðirnar í Grikklandi og löngu yfirfullar. í Hver sem eldsupptökin voru eru allir þeir sem í búðunum voru í enn verri stöðu en áður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Þórunni Ólafsdóttur. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar fréttahluta: Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir

Spegillinn
Spegillinn 11. september 2020

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 11, 2020

Samfélagið
Dýrahald. Flóttamannabúðir. Vinnan

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 15, 2020 55:00

Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur: Fjallað er um dýrahald, sérstaklega á stórum villtum og jafnvel sjaldgæfum dýrum, eins og sjá má í hinum vinsælu þáttum Tiger King. Hvernig er það löglegt og forsvaranlegt að halda stór kattardýr í útrýmingarhættu í þéttbýli á vesturlöndum? Héðinn Halldórsson upplýsingafulltrúi Alþjóða heilbrigðismálastofunarinnar: Flóttafólk í flottamannabúðum er berkjaldaður hópur. Enn er lítið um smit í búðum í Grikklandi og Sýrlandi en óttast er að það eigi eftir að breytast. Héðinn segir frá veikum innviðum og stöðunni í þessum búðum. Steinar Þór Ólafsson, íþróttafræðingur og markaðsstjóri: Vinnustaðamenning fyrir og eftir Covid-19. Rætt um heimavinnu, umgengnisreglur í vinnurými, opin rými og fleira í þeim dúr.

Samfélagið
Dýrahald. Flóttamannabúðir. Vinnan

Samfélagið

Play Episode Listen Later Apr 15, 2020

Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýravistfræðingur: Fjallað er um dýrahald, sérstaklega á stórum villtum og jafnvel sjaldgæfum dýrum, eins og sjá má í hinum vinsælu þáttum Tiger King. Hvernig er það löglegt og forsvaranlegt að halda stór kattardýr í útrýmingarhættu í þéttbýli á vesturlöndum? Héðinn Halldórsson upplýsingafulltrúi Alþjóða heilbrigðismálastofunarinnar: Flóttafólk í flottamannabúðum er berkjaldaður hópur. Enn er lítið um smit í búðum í Grikklandi og Sýrlandi en óttast er að það eigi eftir að breytast. Héðinn segir frá veikum innviðum og stöðunni í þessum búðum. Steinar Þór Ólafsson, íþróttafræðingur og markaðsstjóri: Vinnustaðamenning fyrir og eftir Covid-19. Rætt um heimavinnu, umgengnisreglur í vinnurými, opin rými og fleira í þeim dúr.

Spegillinn
Efling boðar fleiri verkföll

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 21, 2020 30:00

Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá öðrum sveitarfélögum en Reykjavík greiða atkvæði um verkföll eftir helgi. Einnig verða greidd atkvæði um samúðarverkföll á einkareknum skólum í Reykjavík. Flóttafólk er oft á hrakhólum og mætir fordómum og hatri í Grikklandi. Þetta kemur fram í ákvörðun Útlendingastofnunar um að senda hjón frá Írak og fjögur börn þeirra aftur til Grikklands. Framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækis viðurkennir að skip á vegum þess hafi brotið tilkynningaskyldu og verið með of marga farþega um borð þegar Landhelgisgæslan hafði afskipti af því í gærkvöld. Hann er þó ósáttur við vinnubrögð Gæslunnar. Samtökin Amnesty International fara fram á að Bandaríkin falli frá ákærum á hendur Julian Assange um njósnir og önnur afbrot. Hann á yfir höfði sér allt að 175 ára fangelsi verði hann sakfelldur vestanhafs. Sverrir Jónsson, formaður samninganefndar ríkisins, segist hafa raunhæfar væntingar um að samningar takist við BSRB félögin á næstu tveimur vikum eða áður en verkföll hefjast. Hann segir að góður gangur sé í viðræðunum og breið samstaða sé um það sem mestu máli skipti, um styttingu vinnutímans. Hann segir að miðað við stöðuna í viðræðunum sjái hann ekki tilefni til svo harkalegra aðgerða. Arnar Páll talaði við Sverri. Útlit er fyrir að loðnuvertíðin bregðist annað árið í röð með tilheyrandi tapi fyrir sjávarbyggðir og þjóðarbúið. Yfirgnæfandi líkur eru á því að Hafrannsóknastofnun ráðleggi ekki veiðar. Fjallað verður um þennan duttlungafulla fisk í Speglinum. Kristján Sigurjónsson talaði við Guðmund Óskarsson hjá Hafrannsóknastofnun. Norskar rafveitur hafa fundið út að arðbært er að flytja rafmagn út til Skotlands um sveran sæstreng. Beðið er eftir grænu ljósi frá yfirvöldum. En strengurinn á sér marga andstæðinga sem segja að aukin alþjóðleg samkeppni um orkuna leiði af sér hærra verð til neytenda. Gísli Kristjánsson sagði frá.

Spegillinn
Efling boðar fleiri verkföll

Spegillinn

Play Episode Listen Later Feb 21, 2020

Grikkland, samstaða á Vestfjörðum, Ugla, fjallganga og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 21, 2019 130:00

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, fjölmiðlamaður á Hringbraut, og Bjarni Svanur Friðsteinsson, tökumaður, eru nýkomnir frá Grikklandi þar sem hann skoðaði aðbúnað flóttamanna sem flúið hafa til landsins í von um betra líf í Evrópu. Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir á Facebook-síðu sinni það vera vonbrigði að samstaða íbúa fyrir vestan sé ekki sambærileg og fyrir austan. Sameiningar sveitarfélaga eigi að vera yfirlýsing um að þau ætli að taka slaginn saman og snúa vörn í sókn. Hann hafi búist við breyttu viðhorfi milli bæjanna í byggðalaginu þegar hann flutti til baka frá því að hann ólst þar upp. Ein af hundrað mest hvetjandi og áhrifamestu konum heims að mati BBC er Ugla Stefánía Kristjönudóttir Jónsdóttir, formaður Trans Íslands. Hún starfar við kvikmyndaverkefnið My Genderation í Bretlandi og hjá samtökunum All about trans, sem hafa að markmiði að skapa jákvæðari ímynd transfólks í fjölmiðlum. Tómasz Þór Veruson setti sér það markmið í upphafi árs að ganga 1322 km, sem jafngildir hringveginum, í fjallgöngum á árinu. Hann hefur nú lokið við það markmið þótt enn sé október. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Tómasz setur sér svipað markmið því í fyrra gekk hann 1000 km í fjallgöngum á einu ári. Við fórum yfir þróttir helgarinnar.

Morgunútvarpið
Grikkland, samstaða á Vestfjörðum, Ugla, fjallganga og sport

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 21, 2019

"Hvar eru þingmennirnir sem eiga að gæta hagsmuna okkar?"

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 8, 2019 130:00

Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, um niðurfærslu eigna tveggja sjóða Gamma en stjórnendur leita enn fullnægjandi skýringa á ofmati á stöðu sjóðanna. Þórður Snær fólk líka yfir fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu sem hefur "kólnað" nokkuð frá því sem var fyrir fáeinum misserum. Húsnæðislánamarkaðurinn var líka til umfjöllunar en lífeyrissjóðir hafa þrengt lánsskilyrði sín. Mikill vöxtur hefur verið í slíkum lánveitingum að undanaförnu en þær virðast komnar að þolmörkum. Þá var rætt um vexti en lækkanir Seðlabankans á meginvöxtum hafa ekki skilað sér í betri kjörum látakenda hjá bönkunum. Eftir heimsókn í flóttamannabúðir í Grikklandi hefur innanríkisráðherra Þýskalands kúvent í afstöðu sinni til móttöku hælisleitenda. Hann boðar nú að Þjóðverjar taki við fjórða hverjum flóttamanni sem kemur til Evrópu. Áður varaði hann mjög við að Þýskalandi tæki fólki á flótta opnum örmum. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá þessu í Berlínarspjalli dagsins. Hann sagði líka frá umræðum um styttingu vinnuvikunnar í Þýskalandi en rannsóknir þar í landi sýna að 40 stunda vinnuvika hefur skaðleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu fólks. "Hvar eru þingmennirnir sem eiga að gæta hagsmuna okkar?" spyr Magnús Magnússon, ristjóri Skessuhorns, í nýjasta leiðara sínum í blaðinu sem fjallar um fyrirhugaðar samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Rætt var við Magnús sem furðar sig á að hvorki Sundabraut né tvöföldun Vesturlandsvegar séu á dagskrá en þær framkvæmdir skipti öllu fyrir fólk á vesturlandi sem sæki vinnu og skóla í vesturhluta Reykjavíkur. Hann furðar sig líka á þögn stjórnmálamanna í landshlutanum; þingmanna og sveitarstjórnarfólks. Tónlist: White Room - Cream, Kuko, Kuko Dzeguzite - Marija Naumova og Normunds Rutulis.

Morgunvaktin
"Hvar eru þingmennirnir sem eiga að gæta hagsmuna okkar?"

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 8, 2019

Límónutréð
European Early Childhood Education Research Association - EECERA

Límónutréð

Play Episode Listen Later Sep 26, 2019 30:57

Í þættinum segja Jóhanna Einarsdóttir og Kristín Karlsdóttir okkur frá samtökunum European Early Childhood Education Research Association, og hvaða hlutverkum þær gegna innan samtakanna. Einnig tölum við um árlega ráðstefnu á vegum samtakanna sem haldin erí Þessalóníku á Grikklandi að þessu sinni. Jóhanna Einarsdóttir, Kristín Karlsdóttir, Hrönn Pálmadóttir og Sara Margrét Ólafsdóttir sögðu okkur stuttlega frá því sem þær ætla að kynna á ráðstefnunni.

Límónutréð
Samtal í Grikklandi

Límónutréð

Play Episode Listen Later Sep 26, 2019 40:39

Við í Límónutrénu tókum hljóðnemann með okkur til Grikklands og töluðum við nokkra íslendinga sem voru á ráðstefnu EECERA. Upptökurnar voru því miður ekki alveg nógu góðar en samtalið var svo áhugavert og skemmtilegt að við ákváðum að leyfa ykkur að hlusta. Vonandi njótið þið þrátt fyrir lélegt hljóð á köflum. Við erum að læra meira á tæknina með hverjum deginum

vil samtal uppt grikklandi
Fílalag
End Of The World – Dramatískt, loðið, hættulegt

Fílalag

Play Episode Listen Later Aug 30, 2019 42:18

Aphrodite’s Child – End of the World Í fyrsta skipti í Fílalag er það grískt. Og grískt skal það vera með allri þeirri hnausþykku drjúpandi olíu sem því fylgir. Aphrodite’s Child er hugsanlega frægasta rokksveit sem komið hefur frá Grikklandi og halelúja, ó áfram kristmenn krossmenn, hvað hún gaf hann góðann. Það nær í raun […]

Hemmi frændi
Hemmi fer á Þingvelli

Hemmi frændi

Play Episode Listen Later Jun 2, 2019 80:24

Sjötti þáttur Hemma frænda er tekin upp á Þingvöllum í þetta skiptið og fáum við að heyra ferðasögur af Grikklandi frá Elísabetu Ýr og Einari. Það var víst mikið af ævintýrum og allt morandi í kínverskum ferðamönnum. Bjarni fær að tuða smá í þættinum. #freethelegs

Hlaðvarp Kjarnans
Samtal við samfélagið – Karlmennska í Grikklandi

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later May 27, 2019 42:58

Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Árdísi Kristínu Ingvarsdóttir en hún varði doktorsritgerð sína í félagsfræði þann 23. maí 2019. Ritgerðin ber heitið “Border Masculinities: Emergent Subjectivities through humanity, mortality and mobility” en hún byggir á umfangsmikilli vettvangsrannsókn Árdísar á lífi karlmanna í Aþenu. Þær Sigrún ræða um niðurstöður doktorsrannsóknarinnar, en einnig um lífið í Aþenu, mismunandi hugmyndir um karlmennsku, og gildi þess að vera hluti af því samfélagi sem fræðafólk er að reyna að skilja.

Hemmi frændi
Hemmi fer til Grikklands

Hemmi frændi

Play Episode Listen Later May 26, 2019 59:58

Hemminn tvístrast í þessum fimmta þætti Hemma frænda. Einar er farinn á vit ævintýranna í Grikklandi á meðan Bjarni er heima að bora í nefið. Hemmi hringir í Einar og fær allt helsta skúbbið, auglýsingarnar eru á sínum stað, spurt verður almúgann um hvaða ofurkrafta hann myndi vilja og annar hluti útvarpsleikritsins: "Ástir og álfelgur" er fluttur.

90 mínútur
90 mínútur með Ögmundi Kristinssyni

90 mínútur

Play Episode Listen Later May 24, 2019

Ögmundur Kristinsson hefur verið einn besti markvörður Íslands síðustu ár, hann hefur á fimm ára atvinnumannaferli leikið í Danmörku, Svíþjóð, Hollandi og nú Grikklandi. Ögmundur átti frábæra tíma í Grikklandi í vetur og er eftirsóttur biti. Hann hefur upplifað erfiða tíma á ferlinum líkt og flestir sem fara í atvinnumennsku, hann ræðir um allt sem hefur gengið á.

Lestin
Hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, USEE STUDIO, Simone de Beauvoir

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 6, 2019 55:00

Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, bónda á Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp. Sigurjón hóf hljómplötusöfnun um miðja síðustu öld, hann andaðist árið 2017 og skildi eftir sig merkilegt safn hljómplatna, alls um það bil 7000 plötur, sem nú hefur verið afhent Landsbókasafni Íslands. Af því tilefni verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í dag sýning sem helguð er safni Sigurjóns, komið verður við í Þjóðarbókhlöðunni í þætti dagsins og rætt við Ólaf Engilbertsson og Bryndísi Vilbergsdóttur. Halla Hákonardóttir og Helga Björg Kjerúlf eru hönnuðirnir á bakvið USEE STUDIO en hönnunarstofan sendi nýverið frá sér fatalínuna Egaleo. Línan er þróuð og unnin út frá róttækum sjálfbærum sjónarmiðum, til að mynda er megin efniviður flíkanna gamlir efnalagerar og rekjanlegur lífrænn bómull. Þær Halla og Helga framleiddu línuna í Grikklandi, en Aþena hefur að geyma ríka textíl- og fata- framleiðslusögu sem hefur orðð undir eftir að evrópsk framleiðsla fluttist að mestu til Suðaustur-Asíu, vegna ódýrs vinnuafls þar. Þær Halla og Helga segja hlustendum Lestarinnar nánar frá fatalínunni Egaleo í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í þættinum í dag um kvikmyndirnar Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttir, þýsku nornamyndina Hakazussa eftir Lukas Feigelfeld, og Transit eftir Christian Petzold, en tvær síðarnefndu myndirnar eru sýndar á Þýskum kvikmyndadögum sem nú standa yfir í BíóParadís. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum um franska heimspekinginn Simone de Beauvoir og bók hennar, Pyrrhos og Kíneas, sem var hennar fyrsta heimspekiverk, kom út árið 1944, Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýddi ritið á íslensku, og kom þýðing hennar út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags á síðasta ári. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Mannlegi þátturinn
Á Svalbarða, Indriði Aðalsteinsson og Ásgeir Ásgeirsson

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 2, 2018 55:00

Við heyrðum í Arnari Inga Gunnarssyni fyrr í sumar, áður en hann fór með hóp Íslendinga í gönguferð um Svalbarða, 60 kílómetra leið um hreindýra- og ísbjarnarslóðir. Arnar Ingi kom í þáttinn í dag, ásamt ásamt Markúsi Karli Torfasyni, sem var í gönguhópnum, og sögðu frá þessari áhugaverðu reynslu. Síðasta þriðjudag heyrðum við Kristínu Einarsdóttur ræða við Indriða Aðalsteinsson bónda á Skjaldfönn um sauðfé og ýmislegt sem sauðfjárbúskap viðkemur, en þeirra spjalli var ekki lokið, þau áttu ýmislegt eftir órætt. Við heyrðum það í þættinum í dag. Gítarleikarinn Ásgeir Ásgeirsson heldur áfram ferðalagi sínu með Íslenska þjóðlagið um framandi lönd á nýjum geisladisk sem er annar í röðinni Travelling through cultures, Icelandic folksongs. Í þetta skipti vinnur Ásgeir með búlgarskri hljómsveit leidda af hljómsveitarstjóranum Borislav Zgurovski. Margir frábærir listamenn eru gestir á plötunni meðal annars frá Indlandi, Austurríki, Grikklandi og Íslandi. Ásgeir kom í þáttinn með tvö framandi strengjahljóðfæri í farteskinu. Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Morgunútvarpið
Skógareldar, heimaslátrun, Þingvellir og tæknispjall

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 25, 2018 130:00

Mannskæðir skógareldar geisa nú í Grikklandi og Svíar hafa barist við skógarelda víða um Svíþjóð dögum og vikum saman. Þeir hafa þurft að fá hjálp frá öðrum þjóðum við að ráða niðurlögum þeirra. Við heyrðum í Birgi Finnssyni, aðstoðarslökkviliðsstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, um það hvernig slökkvistarfi í skógareldum er háttað, við hvaða aðstæður skógareldar kvikna og hvenær þeir fara úr böndunum. Formaður Landssambands sauðfjárbænda var í viðtali hjá okkur í gær og lýsti áhyggjum af stöðu greinarinnar. Bændur leita nú ýmissa leiða til að auka verðmæti afurða sinna, og er ein þeirra að selja beint frá býli. Matís bauð nýlega upp á námskeið fyrir bændur um möguleika tengda nýsköpun í landbúnaði, sölu og dreifingu afurða úr heimaslátrun. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís, kom til okkar. Undanfarin misseri hefur staðið yfir endurskoðun stefnumörkunar þjóðgarðsins á Þingvöllum. Þingvallanefnd leggur nú fram tillögu að endurskoðaðri stefnumörkun til kynningar, en stefnt er að því að ný stefnumörkun verði samþykkt á haustmánuðum. Einar Sæmundssen þjóðgarðsvörður kom til okkar og ræddi þessi mál. Guðmundur Jóhannsson tæknigúru kíkti í sína vikulegu heimsókn með helstu fréttir úr tækniheiminum. Tónlist: The Cranberries - Linger. Amy Winehouse - Back to black. Amabadama - Óráð. Christopher Cross - Ride like the wind. Sálin hans Jóns míns - Aldrei liðið betur. James Taylor - Fire and rain. Jón Jónsson & Friðrik Dór - Á sama tíma, á sama stað. First Aid Kit - Silver lining. Elín Sif - Make you feel better. Pearl Jam - Daughter. Arcade Fire - Put your money on me. Billy Idol - Hot in the city.

mat forma gu sl sv amy winehouse back aldrei trun undanfarin grikklandi landssambands
Hlaðvarp Kjarnans
Mannfræðihlaðvarpið – Viðtal við Árdísi Kristínu Ingvarsdóttur

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Jul 13, 2018 62:20

Í þessu sjöunda hlaðvarpi er rætt við Árdísi Kristínu Ingvarsdóttur, mann- og félagsfræðing. Árdís hefur einkum stundað rannsóknir á Grikklandi á stöðu flóttamanna sem hafa komið þangað vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum og einnig frá Afríku. Hún hefur einkum fókuserað á það sem hún kallar verðandi karlmennsku og kynverund karla frá öðrum menningarheimum. Hér er spjallað um vettvangsreynslu og rannsóknir hennar á Grikklandi. Þetta er Skype viðtal, þar sem Árdís er stödd á Grikklandi, sem bitnar á hljómgæðum. Kjarn­inn í sam­­­­­­­­­­­­­starfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þús­undir hljóð­­­­­­­­­­­­­bóka í sím­­­­­­­­­­­­­anum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.­­­­­­­­­­­­­storyt­el.is/kjarn­inn og byrja að njóta. Storyt­el.is, þús­undir hljóð­­­­­­­­­­­­­bóka í sím­­­­­­­­­­­­­anum þín­­­­­­­­­­­­­um.

Spegillinn
Spegillinn 30.apríl 2018

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 30, 2018 30:00

Formaður velferðarnefndar vill að Bragi Guðbrandsson hætti strax við framboð til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Hann njóti ekki lengur trausts. Félgasmálaráðherra vill bíða niðurstöðu óháðrar úttektar á afskiptum Braga af barnaverndarmáli. Fyrri ljósbogaofn kísilvers PCC á Bakka verður settur í gang í kvöld. Tekist hefur að leysa ýmis vandamál sem komið hafa upp síðustu daga og tafið fyrir gangsetningu. Tollar á fjölmargar tegundir matvöru frá Evrópusambandinu verða lækkaðir eða afnumdir á morgun. Formaður Félags atvinnurekenda segir að neytendur muni finna vel fyrir breytingunum. Efling, VR og Verkalýðsfélags Akraness munu krefjast þess í komandi kjarasamningum að lög verði sett til að tryggja réttindi leigjenda. Eftir margra ára þrengingar sjást loksins vísbendingar um efnahagsbata í Grikklandi, að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París. Breskir ráðherrar komast sjaldnast upp með að greina þinginu rangt frá og ,,óvart" er engin afsökun eins og Amber Rudd fyrrum innanríkisráðherra fékk að reyna. Votlendissjóður var formlega stofnaður á Bessastöðum í dag. Fyrsta verkefni sjóðsins verður að endurheimta votlendi í Fjarðabyggð. Ráðherra fyrir velferðarnefnd. Arnhildur Hálfdánardóttir segirf rá og ræðir við Halldóru Mogensen og Ásmund Einar Daðason. Afsögn Amber Rudd innanríkisráðherra Bretlands. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Votlendissjóður stofnaður. Arnar Páll ræðir við Ásbjörn Björgvinsson framkvæmdastjóra sjóðsins.

Váfuglinn
Grískt sumar á Skólavörðustíg

Váfuglinn

Play Episode Listen Later May 18, 2017 46:15

Gyros, Pizzur, Skólavörðustígur og NES Classic. Hvað eiga þessir hlutir sameiginlegt? Líklega fátt. Stefán ræðir um flóttamenn, ferðamál á Grikklandi og gyros. Staða pizzastaða á landinu er yfirfarin og Skólavörðustígurinn er krufinn til mergjar í nýjum föstum lið. Að lokum ræða Stefán og Arnaldur retro-nördisma og NES Classic.

Fotbolti.net
Hvaða 23 leikmenn fara með Frakklands?

Fotbolti.net

Play Episode Listen Later Apr 3, 2016

Íslenska landsliðið var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær eins og oft áður. Rætt var um hvaða 23 leikmenn verða í lokahópnum sem fer til Frakklands og litið á landsleikinn gegn Grikklandi sem var síðasta þriðjudag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu málin og spjölluðu einnig við Magnús Már Einarsson sem var á leiknum í Aþenu.