POPULARITY
Við erum að nálgast miðjan Mottumars, slagorð þessa árlega átaks Krabbameinsfélagsins, gegn krabbameinum hjá körlum, þetta árið er: Ertu að grínast með þinn lífsstíl? Þar er vakin athygli á óheilbrigðum og heilbrigðum lífsvenjum sem við getum haft. Guðni Gíslason, ritstjóri Fjarðarfrétta, kom til okkar í dag og deildi sögu sinni, en hann greindist með blöðruhálskrabbamein nánast fyrir tilviljun fyrir rúmu ári. Með Guðna kom Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Í Hafnarfirði hefur börnum og ungmennum með margvíslegan vanda staðið til boða að fara í músíkmeðferð hjá Ingu Björk Ingadóttur músíkmeðferðarfræðingi. En hvað er músíkmeðferð? Inga segir að hver og einn hafi sinn eigin grunntón, takt, flæði og hraða og þegar unnið sé markvisst með tónlistina sé hún ótrúlega öflug. Meðferðin hentar vel þeim sem eigi erfitt með hefðbundna tjáningu og henti einmitt þar sem samtalsmeðferð geri það ekki. Við ræddum við Ingu Björk í þættinum og sungum með henni lag, sem hún hafði sérstaklega samið texta fyrir okkur og þáttinn. Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja sýnir um þessar mundir í Árnesi gleðileikinn Sex í sveit í leikstjórn Bjarkar Jakobsdóttur. Fyrstu sýningum hefur verið mjög vel tekið enda fjörmikil sýning og hlutverkin eru auðvitað í höndum fólks úr sveitinni, fólk sem leggur á sig að æfa hvert einasta kvöld í margar vikur eftir fullan vinnudag. Oddrún Ýr Sigurðardóttir er ein þeirra sem leikur í sýningunni, hún er líka garðyrkjubóndi í Garðyrkjustöðinni í Hrunamannahreppi, þroskaþjálfi og reiðkennari. Við heyrðum í Oddrúnu í dag. Tónlist í þættinum í dag: Við viljum lifa / Ríó Tríó (L. Alberto, texti Helgi Pétursson) Lífið er lotterí / Þrjú á palli (höf lags ókunnur, texti Jónas Árnason) Í ró / Inga Björk Ingadóttir (Inga Björk Ingadóttir) Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik Guðnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rúnar Róbertsson leysir Felix Bergsson af þennan laugardaginn. Bergsveinn Arilíusson, tónlistarmaður, var gestur í Fimmunni og sagði frá fimm stöðum sem hann hefur búið á ásamt því að tengja það við hljómsveitirnar sem hann hefur verið í. Þá tók Rúnar stöðuna á söfnun Krabbameinsfélagsins í Mottumars og talaði við Árna Reyni Alfreðsson hjá Krabbameinsfélaginu og síðar var Rannveig Grétarsdóttir hjá Eldingu á línununi vegna Páskaeggjaleitar í Viðey. Lagalisti Sóldögg - Hennar Leiðir Vinir vors og blóma - Bál (2010) Hreimur Örn Heimisson, Katla Njálsdóttir, Vinir vors og blóma - Lífið er núna. Bríet - Hann er ekki þú. Bogomil Font og Greiningardeildin - Sjóddu frekar egg. Hjálmar - Gakktu alla leið. GDRN - Þú sagðir. Emilíana Torrini - Big Jumps. Júlí Heiðar og Patri!k - Heim. Malen og Raven- Right?. T Rex - Get it on. Tom Petty - Learning To Fly.
Blöðruhálskirtilskrabbamein er algengasta krabbamein karla, 240 greinast árlega að meðaltali. Blöðruhálskirtilkrabbamein hagar sér að mörgu leiti öðruvísi en önnur krabbamein og rannsóknir benda til að allt að 80% af öllum körlum 80 ára og eldri séu með blöðruhálskirtilskrabbamein í einhverri mynd. Málþing í tilefni af Mottumars verður haldið í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð á morgun kl.16:30. Þar verður fjallað um blöðruhálskirtilskrabbamein út frá víðu sjónarhorni. Rafn Hilmarsson, þvagfæraskurðlæknir á Landspítala, verður með erindi á málþinginu undir yfirskriftinni Skimun eða ekki - meðferðarkostir - ávinningur og aukaverkanir. Rafn kom til okkar í dag og sagði frá erindi sínu og með honum kom Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Í haust mun ferðaskrifstofan VITA bjóða uppá siglingu um firði Alaska. Landslagið er stórbrotið, tignarleg fjöll með hvíta toppa, djúpgrænir regnskógar og falleg höfuðborg Juneau sem ekki er auðvelt að komast til nema fljúga þangað eða sigla. Héðinn Svarfdal Björnsson verður fararstjóri í þessari ferð fyrir Íslendinga en pláss er fyrir um 25 manns. Við heyrðum í honum í þættinum í dag. Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið. Í þetta sinn rifjaði hann upp með okkur upp frægt óveður, Hákonarhretið sem skall á í dymbilvikunni 1963 og svo skoðuðum við með honum páskaveðrið. Tónlist í þættinum: Gleðin með þér / Þuríður Sigurðardóttir (A Jaén og Helgi Pétursson) If paradise is half as nice / Amen Corner (Battisti, Fishman, Mogol) Alaska / Maggie Rogers (Doug Schadt & Maggie Rogers) Árstíðirnar þrjár/Karl Olgeirsson Orgeltríó og Kristjana Stefánsdóttir (Karl Olgeirsson ) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Tatjana Latinovic var endurkjörin formaður Kvenréttindafélags Íslands á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Fundurinn sendi einnig frá sér tvær ályktanir með hvatningu til stjórnvalda. Annars vegar um að kynjafræði skuli vera skyldufag í kennaramenntun á Íslandi og hins vegar áskorun til íslenskra stjórnvalda að sýna femíníska og pólitíska forystu og ábyrgð gagnvart mannréttindabrotum á konum. Tatjana kom i þáttinn og fræddi okkur meira um þessar tvær ályktanir. Á föstudaginn, 31.mars, stendur Krabbameinsfélagið fyrir málþingi sem ber yfirskriftina Ekki humma fram af þér heilsuna. Meðal þeirra sem taka til máls eru Sigríður Gunnarsdóttir forstöðumaður rannsókna- og skráningaseturs Krabbameinsfélagsins sem mun segja frá niðurstöðu könnunar á reynslu þeirra sem greindust með krabbamein á árunum 2015-1019 af greiningar- og meðferðarferlinu. Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og teymisstjóri hjá ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins talar einnig á málþinginu, erindi hans ber titilinn: Ástæður þess að karlmenn humma fram af sér heilsuna. Sigríður og Þorri komu í þáttinn í dag. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins sagði hann spítalasögu, sögu Charité spítalans í Berlín sem er sagður einn sá besti í Evrópu. Magnús kynnti sér spítalann af eigin raun á dögunum og meðan hann dvaldi á Charité þá hugsaði hann meðal annars um dans, en almenn dansiðkun hefur snarminnkað í hinum vestræna heimi. Dansstaðir eru varla til lengur, diskótekin horfin úr flestum borgum og dansiðkun, ein af frumþörfum mannsins, fer hverfandi. Hvers vegna og hvað kom í staðinn? Tónlist í þættinum í dag Sjaddi Mollo / South River Band (Ólafur Þórðarson og Magnús R. Einarsson) Ástarorð / Ragga Gröndal (Ragga Gröndal) Mississippi / The Cactus Blossoms (Torrey) Quinteto Fuga / El Cambá UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Í Spegli kvöldsins verður fjallað um nýútkomna skýrslu um aðlögun að loftslagsbreytingum. Þá ræðum við um það hvernig eigi að ræða við börn um stríðsátök, líkt og þau sem geysa nú í Úkraínu. Milli átta og níu hundruð íslenskir karlar greinast með krabbamein árlega. Algengasta meinið er krabbi í blöðruhálskirtli. En karlarnir eru dáltíð tregir að leita til læknis jafnvel þó þá gruni að ekki sé allt með felldu. Þessu vill Krabbameinsfélagið breyta nú þegar Mottumars er byrjaður. Helstu atriði frétta: Fimm fórust í árás rússneska hersins á sjónvarpsturn sem stendur nærri minnisvarða um fórnarlömb helfararinnar í Kænugarði. Nærri 700.000 hafa flúið land frá upphafi innrásar. Mannréttindasérfræðingur segir stöðuna í Rússlandi, vegna innrásar í Úkraínu, vera lok alls þess sem frjálslyndir Rússar hafi trúað á varðandi evrópsk gildi í landinu. Forsætisráðherra segir ljóst að hingað komi fólk á flótta undan stríðinu í Úkraínu. Ísland ætli að svara því kalli. Þegar hafa um 20 manns sótt um hæli hér síðan átökin brutust út. Fjármálaráðherra segir stríðið geta valdið verðhækkunum og dregið úr landsframleiðslu hér á landi. Um 130 þúsund manns hafa greinst hér á landi með covid 19 frá því að fyrsta smitið greindist hér á landi fyrir 2 árum síðan. Reiknað er með að faraldurinn nái hámarki sínu eftir um 2-3 vikur. Fylgni er á milli frelsis í skemmtanalífi og tilkynntra nauðgana. Átak er hafið um að fylgjast með að allt sé í lagi á djamminu. Lengri umfjöllun: Samfélög þurfa að laga sig að loftslagsbreytingum og grípa til tafarlausra aðgerða. Tíðari þurrkar með tilheyrandi gróðureldum og öfgafyllra veðurfar er veruleiki sem fólk þarf að búa sig undir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu vinnuhóps milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem kom út í gær. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) gefur á nokkurra ára fresti út matskýrslur þar sem vísindaleg þekking á loftslagsbreytingum er dregin saman með megináherslu á breytingar af mannavöldum. Verkinu er skipt niður á þrjá vinnuhópa og skoðar sá fyrsti orsakir og umfang loftslagsbreytinga. Annar hópurinn, sem hér er fjallað um, skoðar afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélög og til hvaða úrræða megi grípa til að aðlagast breytingunum. Þriðji hópurinn skoðar síðan hvernig hægt er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Skýrsla vinnuhóps 1, í sjöttu matskýrslunni, kom út í ágúst. Bjarni Rúnarsson ræddi við Önnu Huldu Ólafsdóttur, forstöðumann skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands. Á

Ekkert lát er á átökunum í Úkraínu en í gær funduðu sendinefndir Rússa og Úkraínumanna í Hvíta-Rússlandi, þar sem Úkraínumenn kröfðust vopnahlés án tafar. Við heyrðum í Karli Þormóðssyni, sem býr ásamt eiginkonu sinni í austurhluta landsins í borginni Zhaporozhye þar sem meirihluti fólks eru Rússar. Við ræddum við Karl þar sem hann var staðsettur í loftvarnarbyrgi heimilisins, en þangað hafa þau þurft að flýja nokkrum sinnum á dag. Mottumars hófst í dag en eins og flestir vita er það árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum í körlum. Við töluðum við Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagins, um átakið og stöðu krabbameinsskimana. Stríð hefur margvísleg áhrif, þar á meðal á netöryggi. Talið er að Rússar gætu ráðist á netinnviði ríkja Atlantshafsbandalagsins ef þau dragast í meira mæli inn í átökin og við ræddum við Guðmund Arnar Sigmundsson, forstjóra íslensku netöryggissveitarinnar CERT-IS, um netárásir og stafrænan hluta stríðsins. Formaður flóttamannanefndar segir að stjórnvöld hér og annars staðar verði að taka ákvörðun fljótt um hvernig bregðast eigi við straumi flóttamanna frá Úkraínu, en um hálf milljón manna er á flótta vegna átakanna. Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, kom til okkar og við fórum yfir stefnu stjórnvalda í þessum efnum og átökin í Úkraínu. Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur ákveðið að ekkert íslenskt knattspyrnulandslið leiki við landslið frá Rússlandi meðan á hernaði Rússa stendur. Þá muni landslið Íslands ekki leika á heimavelli Hvíta-Rússlands. Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, var á línunni upp hjá okkur og ræddi þessa ákvörðun. Hún var endurkjörin formaður á aðalfundi um síðustu helgi og við ræddum því einnig hvað tekur við hjá henni næstu mánuðina. Guðmundur Jóhannsson fræddi okkur um heim tækninnar og rakti m.a. kosti og galla Airtags. Tónlist: Mannakorn - Einhvers staðar, einhvern tíma aftur. Lana Del Rey - Video Games. Eddie Vedder - Brother the cloud. Magnús Þór Sigmundsson - Blue Jean Queen. Sálin hans Jóns míns - Getur verið. Fleetwood Mac - Everywhere. Red Hot Chili Peppers - Black summer

Fyrir skemmstu var haldið Félagsráðgjafaþing 2022, í þetta sinn var aðaláherslan lögð á ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna sem tóku gildi í ársbyrjun. Nýju lögin miða að því að tryggja börnum og aðstandendum þeirra snemmtækan og samþættan stuðning þvert á kerfi. Við fengum Steinunni Bergmann, formann Félagsráðgjafafélags Íslands, til að koma í þáttinn og segja okkur frá þessu og hvað hlutverk félagsráðgjafa verður í kjölfar þessara nýju laga og hvernig verður reynt að tryggja öryggi fyrir börn sem búa við erfiðar aðstæður. Ný rannsókn Krabbameinsfélagsins leiddi í ljós að margir karlar sem síðar greindust með krabbamein drógu það að leita til læknis þó þeir fyndu fyrir einkennum sem bentu til vanheilsu. Slagorð Mottumars í ár er?- Þú ert eldri en þú heldur?og byggir á því sem margir karlar geta líklega tekið undir, það að upplifa að þeir séu enn það ungir að þeir þurfi ekki gefa heilsufarinu sérstaklega gaum. Mottumars hefst á morgun og nú eins og áður eru sokkar til sölu til að styðja rannsóknir á krabbameini karla. Þær komu í þáttinn í dag þær Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins og Bergþóra Guðnadóttir, frá Farmers Market, hönnuður mottumarssokkanna í ár. Lesandi vikunnar í þetta sinn var leik- og tónlistarkonan Steiney Skúladóttir. Hún hefur verið að leika í gamanþáttunum Kanarí sem hafa verið á RÚV undanfarnar vikur og þessa dagana stendur hún í ströngu, en hún tekur nú þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins með Reykjavíkurdætrum. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Fram og til baka 13.mars 2021 Umsjón Felix Bergsson Lag dagsins - söngvakeppnin, Daði Freyr og Gagnamagnið, Hvað með það? Fimman - Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttur - fimm tölvuleikir Shining force 2 frá 1991 World of warcraft 2005 Dragonage 2010 Masseffect 2012 Hellblade 2017 Umfjöllun / viðtal - Mottumars, Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins Fréttagetraun - sigurvegari Guðmann Elísson

Estamos apenas en Marzo del 2021 y con mucho que compartir. Si bien abarcamos varios temas, vale la pena escuchar este episodio donde hablamos sobre las restricciones del Covid, los terremotos que están separando a Islandia, de las posibles erupciones volcánicas. También de conseguir empleo como extranjero, cambiarse el nombre, seguirse capacitando. Y del cambio de gobierno que sucederá en Septiembre. En qué se nos fue el dinero este mes, porque la vida cuesta. Y del proyecto del mes de Marzo llamado Mottumars. En este episodio les hablo de las actualizaciones que han sucedido en Islandia y en mi vida. Desgloce por minuto: 00:35 Tomamos temas como el Covid, las restricciones. 9:46 Los terremotos que se están originando y que pueden causar una o varias erupciones volcánicas en Islandia. 23:52 Sobre conseguir empleo en Islandia 31:24 Cambiarse el nombre. 35:40 Seguirse capacitando, estudiando islandés 37:12 El nuevo cambio de gobierno. 38:15 Organizaciones sin fines de lucro 47:30 En qué se nos ha ido el ingreso este mes Los links que les prometí en el podcast: Actualizaciones del Covid Cámara en vivo del volcán Noticias del terremoto Lista específica de cada uno de los sismos Página donde se publican los empleos Iceland Writers Retreat Organización no lucrativa para apoyar a familias que pierden durante el embarazo Organización no lucrativa que ayuda a los que han perdido a alguien Organización para recaudar fondos para la investigación del cáncer en los hombres Equipo de rescatistas Apóyame y recibe descuentos exclusivos a cambio
Mottumars er hafinn, árverknisátak Krabbameinsfélagsins um krabbamein í körlum. Í Mottumars er aflað fjár fyrir fræðslu og mikilvægum stuðningi við karla sem glíma við krabbamein og fjölskyldur þeirra. Í ár er endurvakin Mottukeppnin, með henni sýna karlar samstöðu með því að keppa um fallegasta yfirvaraskeggið, eða ?mottuna?. Þriðji hver karlmaður getur því miður reiknað með að greinast með krabbamein á lífsleiðinni og hinir tveir eru feður, bræður, synir og vinir. Við fengum Ásgeir R. Helgason sálfræðing og lýðheilsufræðing til að segja okkur frá upplifun karla við krabbameinsgreiningu og hvaða þætti lífsins slík greining snertir. Oddsskarð eða austfirsku alparnir, eins og skíðasvæðið milli Eskifjarðar og Norðfjarðar er oft kallað, er virkilega skemmtilegt skíðasvæði að margra. Þetta er sá tími ársins þegar landsmenn taka fram skíðin og framundan eru páskarnir þar sem margir vilja fara í skíðaferðir. Páskafjör verður í Oddskarði og við slógum á þráðinn austur og töluðum við Ásdísi Sigurðardóttur, forstöðumann skíðasvæðisins í Oddskarði, í þættinum. Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni á Spáni í dag. Í korti dagsins greinir frá mótmælum og óeirðum sem hafa skekið spænskar borgir undanfarinn hálfan mánuð. Mótmælin hófust þegar rappari var handtekinn fyrir að yrkja níð um lögregluna, móðga konungsfjölskylduna og lofsama dæmda hryðjuverkamenn, en nú hafa þau snúist að mestu uppí óeirðir vegna hraklegrar stöðu ungs fólks, en atvinnuleysi mælist 40% meðal þess. Í seinni hluta pistilsins segir af Jóhanni Karli fyrrum Spánarkonungi, en hann er umvafinn hneykslismálum vegna skattsvika og framhjáhalds. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ólafur Schram undirbýr þessa dagana útgáfu Barnabarnabókarinnar sem er nokkurs konar minningabók sem ætlað er að tengja kynslóðir saman. Ólafur, eða Óli eins og hann er jafnan kallaður, kíkti til okkar í morgunkaffi og sagði okkur meira frá þessu forvitnilega verkefni. Nú er mars mánuður nýhafinn og það þýðir hjá Krabbameinsfélaginu að Mottumars er farinn af stað. Mottumars er árlegt átak í baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. Í ár er Mottukeppnin endurvakin. Með henni sýna karlar samstöðu og hægt er að heita á ættingja, vini og vinnufélaga. Björn Teitsson er kynningastjóri Krabbameinsfélagsins og hann kom til okkar og sagði okkur nánar frá átakinu ár og fyrir hverju er verið að safna. Við slógum á þráðinn til Önnu Maríu Flygenring formanns Geitfjárfélags Íslands, en hún hefur lýst yfir mikilli furðu og vonbrigðum með umsögn frá Matvælasjóði sem fylgdi höfnun styrkumsóknar er varðaði geitfjár afurðir. Hún segir umsögnina lýsa fádæma fordómum og dragi verulega úr væntingum um að geitfjárrækt eigi sér framtíð hér á landi. Jörð skelfur á Reykjanesskaga og hefur gert óvenju lengi að þessu sinni eða í viku. Ýmsar sviðsmyndir hafa verið settar fram eftir því hvað vísindamenn lesa úr tölulegum staðreyndum úr mælum hverju sinni. En ekkert vitum við svo um framvindu mála. Nú er jafnvel farið að tala um að gos gæti hafist... eða ekki. Við hringdum í einn reyndasta jarðskjálftasérfræðing þjóðarinnar, Ragnar Stefánsson, Ragnar skjálfta, sem þrátt fyrir að vera kominn á eftirlaun fylgist vel með. Og Guðmundur Jóhannsson kom svo og hressti upp á tækniþekkingu okkar í sínu hálfs mánaðarlega tæknihorni þar sem hann ræddi m.a. jarðskjálftamæla og hljómgæði á Spotify. Tónlist: Sálin hans Jóns míns - Hjá þér. R.E.M. - Find the river. Celeste - Love is back. Emilíana Torrini - Blame it on the sun. Mezzoforte - This is the night. Red Hot Chili Peppers - Road trippin. Scorpions - Wind of change.

Hver man ekki eftir Píku-Pælingum sem slógu í gegn í Legvarpinu á sínum tíma?! Í tilefni af Mottumars ætla ljósmæðranemarnir Stefanía og Sunna og skipta um gír og gægjast yfir í karlaklefann. Þar tekur enginn annar en Lárus Jón Björnsson eða Lalli, vel á móti þeim. Lalli er sjúkraþjálfari sem hefur sérhæft sig í neðanbeltisvandamálum karla. Hann heldur úti Facebook- og instagram-reikningnum Neðanbeltis-Karlaheilsa þar sem nálgast má stórskemmtilega fræðslupistla. Í þættinum segir Lalli frá vegferð sinni inní neðanbeltis-bransann og fræðir um karlaheilsu, helstu einkenni frá neðanbeltissvæði karla, mögulegar orsakir, meðferð og hvert hægt er að leita með slíkan vanda. Þátturinn er hlaðinn sprenghlægilegum sögum og gríni svo hér er í raun á ferðinni eitt stórt og bráðsmitandi hláturskast. Hlustið, hlægið, fræðist! Upphafsstef: Stefanía Helga Sigurðardóttir
Mottudagurinn er í dag, en hann er hluti af átakinu Mottumars sem er árlegt verkefni Krabbameinsfélagsins, sem er í senn vitundarvakning um krabbamein hjá körlum og fjáröflun fyrir félagið. Í ár er áherslan á gildi hreyfingar sem forvörn gegn krabbameinum. Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins var á línunni. Fleiri lönd hafa nú fylgt í fótspor Dana og lokað skólum og stofnunum næstu vikurnar. Þeirra á meðan eru Norðmenn, en þar ganga menn langt og loka fleiru, m.a. líkamsræktarstöðvum, sundlaugum og snyrtistofum svo eitthvað sé nefnt. Atli Steinn Guðmundsson í Osló var á línunni og sagði okkur meira af viðbrögðum í Noregi. Örvænting greip um sig í kauphöllum heimsins þegar Bandaríkjaforseti bannaði flug frá Evrópu til landsins. Fjármálaráðherra segir ákvörðun Trumps reiðarslag fyrir íslenskt efnahagslíf. Virði Icelandair lækkaði um tæp 23 prósent í gær. Kórónuveiran hefur gríðarleg áhrif á efnahag um allan heim. Við heyrðum í Jóni Bjarka Bentssyni, aðalhagfræðingi Íslandsbanka. Við heyrðum í Snorra Sigurðssyni í Kína fyrir mánuði síðan en hann var þá í 30 daga sóttkví á heimili sínu í Peking. Síðan þá hefur margt breyst og smit af völdum Covid-19 í rénun í Kína. Við hringdum aftur í Snorra í morgun og heyrðum hvernig staðan er núna, en smitum í Kína hefur fækkað gríðarlega og lífið mjakast hægt en örugglega í átt að því sem áður var. Freyr Gígja Gunnarsson opnaði svo Hégómavísindahornið vinsæla og sagði okkur fregnir úr heimi þeirra ríku og frægu, þar sem Tom Hanks, Harry Prins og fleiri komu við sögu. Tónlist: Sigrún Stella - Sideways. Freya Ridings - Love is fire. Hipsumhaps - Bleik ský. A-ha - Cry wolf. Bruce Springsteen - Hello sunshine. Lay Low - Little by little. Jamiroquai - Cosmic Girl. OMAM - Soothsayer. Grafík - Þúsund sinnum segðu já.

Mottumars er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. Mottumars er í senn vitundarvakning um krabbamein hjá körlum og fjáröflun fyrir félagið. Í ár er lögð áhersla á gildi hreyfingar sem forvörn gegn krabbameinum. Rannsóknir sýna að reglubundin hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum auk þess sem hreyfing er til góðs fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein. Við fengum í þáttinn þau Höllu Þorvaldsdóttur framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins og Braga Guðmundsson, en hann þekkir krabbamein af eigin raun. Í Borgarbókasafninu Gerðubergi í kvöld mun G. Pétur Matthíasson forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinna fjalla um heimilaskipti sem hann hefur átt í, Danmörku, París, Berlín, Bordeaux og í Argentínu. Ræði kostina við þessa tegund ferðalaga, hvað ber að hafa í huga og fleira. Einnig mun hann segja frá reynslu sinni af þessu í gegnum árin. Hvernig þetta fyrirkomulag gefur manni aðra sýn á staðinn sem heimsóttur er, sýn sem maður fær ekki á hóteli. Kostnaðinn og sparnaðinn, samskipti við hinn aðilann, fyrir, á meðan og ekki síður á eftir. G. Pétur kom í þáttinn og sagði frá. Póstkortið sem við fengum frá Magnúsi R. Einarssyni frá Spáni í dag segir af afar sérkennilegri og fornri hefð sem er alltaf viðhaldið á öskudaginn á Spáni og tíðkast hvergi annars staðar nema í fyrrum nýlendum Spánar í Ameríku. Að gefa þjórfé tíðkast ekki að ráði hjá Spánverjum og það er talið bruðl að gefa meira en nokkra smáaura. Í lok pistilsins sagði Magnús frá kynnum sínum af litlum bæ út í sveit fyrir sunnan Alicante. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Kórónaveira, kjaraviðræður og kjarakaup á netinu í dag. Hvað eiga borgarbúar að gera við sorpið sm hleðst upp? Hvaða lag vinnur Söngvakeppnina?Mottumars er að hefjast.
Þann 10. apríl næstkomandi verður þjóðaratkvæðagreiðsla í Mið-Ameríkuríkinu Belís. Þá greiða Belísbúar atkvæði um það hvort skjóta eigi langri og erfiðri landamæradeilu við Gvatemala til alþjóðadómstólsins í Haag. Mikið liggur undir; stór landsvæði í Belís. Það ríkir því mikil spenna í Belís. Freyr Eyjólfsson er staddur við landamærin. Við heyrðum í honum. - Líkur eru á að 9 af hverjum 10 störfum í landinu breytist ýmist mikið eða lítið, eða verði hreinlega ekki til innan einhverra ára eða mjög fárra áratuga. Hvort sem sú spá rætist nákvæmlega eða ekki er ljóst að miklar breytingar eru fram undan í atvinnuháttum. Fjórða iðnbyltingin er hafin. En hvernig eigum við að taka þessu? Ægir Már Þórisson, forstjóri upplýsingatæknifyrirtækisins Advania, ræddi breytingarnar framundan. - Óvissa ríkir í réttarkerfinu eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að rangt hefði verið staðið að skipan dómara við Landsrétt. Landsréttur hefur lagt niður störf í bili og stjórnarandstaðan vill dómsmálaráðherra frá. Við fórum yfir stöðu málsins með Einari Gauti Steingrímssyni, hæstaréttarlögmanni, eftir átta fréttirnar. Hann telur að afsögn dómsmálaráðherra gæti auðveldað úrvinnslu málsins. - Marsmánuður hefur undanfarin ár einkennst af fræðslu um krabbamein hjá körlum og átakið Mottumars hefur leitt til ákveðinnar vitundarvakningar hvað það varðar. Á morgun verður haldið á Akureyri málþing með fyrirlestrum og fræðslu um einkenni krabbameina hjá körlum. Ágúst Ólafsson ræddi við Regínu Ólafsdóttur sálfræðing, og Katrínu Ösp Jónsdóttur hjúkrunarfræðing, en báðar starfa þær hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. - Tónlist: Sonny Clark - Softly as in a morning sunrise.
Mottumars hefst á morgun með opnum ljósmyndasýningunnar Meiri Menn í Kringlunni, á Glerártorgi, í Reykjanesbæ, á Selfossi og Ísafirði. Á sýningunni deila 8 karlmenn víðs vegar af landinu reynslu sinni af krabbameini líkt og konur gerðu í Bleiku slaufunni 2018. Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsinskom í þáttinn og með henni var Þráinn Þorvaldsson, sem hefur verið að glíma við blöðruhálskirtilskrabbamein, en hann deildi sögu sinni með okkur. „Komdu sæl, getur verið að þú hafir verið á hótelinu Club Romantica á Mallorca árið 1976?“ Friðgeir Einarsson fór til Mallorca síðastliðið haust að leita að konu sem hann þekkir ekki neitt. Friðgeir keypti þrjú ljósmyndaalbúm á útimarkaði í Brussel fyrir rúmum tíu árum og nú hefur hann samið leikrit um leit sína að eiganda albúmanna og það verður frumsýnt í kvöld. Við fengum Friðgeir til okkar í þáttinn, ásamt Snorra Helgasyni, sem stendur með honum á sviðinu í Borgarleikhúsinu. Í dag fluttum við fimmta pistil Kontóristans, þar sem Steinar Þór Ólafsson fjallar um vinnumenningu eins og hann hefur gert undanfarna fimmtudaga í Mannlega þættinum. Í hugvekju vikunnar fjallaði Steinar um fjarvinnu. Tapas í hádeginu og ströndin eftir vinnu eða pollurinn á Akureyri í stað Sílikondalsins í Bandaríkjunum. Virkar þetta? Því velti Kontóristinn fyrir sér í dag. UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG MARGRÉT BLÖNDAL
Váfuglinn í þetta sinn er helgaður vitundarvakningarátökum og fallegustu helgistund í lífi sérhvers manns, fermingunni. Við skoðum Mottumars og athugum hvort læknastéttin sé raunverulega eitthvað með puttana í þessu átaki. Við förum yfir þá dægradvöl sem stendur Íslendingum til boða nú þegar tekur að vora en pössum okkur samt rækilega á þessum hættulega "carnie" frá Bournmouth. Menn segja að hann sé flinkur með butterfly-kutann. Að lokum fjöllum við um hina guðdómlegu íslensku fermingarveislu með öllum sínum rækjusalötum og aspasréttum. Er kannski kominn tími til að endurnýja heitin?
Eitt af því sem fram hefur komið í Mottumars er rannsókn sem sýnir tilfinningalega einangrun karlmanna. Þannig er einn af hverjum 5 karlmönnum yfir 50 ára aldri tilfinningalega einangraður og yfirgnæfandi meirihluti hinna sem hafa einhvern að deila með erfiðum tilfinningum, gera það aðeins með maka sínum. Þau Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, og Guðmundur Pálsson, hönnuður svokallaðs Karlaklefa komu í þáttinn og sögðu frekar frá þessu. Alþjóðlegi hamingjudagurinn var í fyrradag. Dagurinn var fyrst haldinn að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna árið 2013 með það að markmiði að vekja athygli á hamingju og vellíðan sem mikilvægu markmiði fyrir einstaklinga og stjórnvöld um heim allan. Lísa Páls brá sér á Háskólatorgið í gær og spurði hvort fólk væri hamingjusamt, þeir fyrstu voru enskumælandi námsmenn. Það er ekki víst að margir þekki nafn Elfars Smára Sverrissonar, en hann var engu að síður í teymi sem fékk óskarsverðlaun fyrir tölvubrellur í kvikmyndinni Blade Runner 2049. Hann er ekki enn orðinn þrítugur en hefur unnið við fjölda stórmynda eftir að hann lauk námi í Svíþjóð. Hann býr í Montreal í dag þar sem hann stundar vinnu sína, við slógum á þráðinn til Elfars Smára í þættinum. Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson