Menn og málefni Fimleikafélags Hafnarfjarðar eru krufin til mergjar í hlaðvarpsþáttum sem enginn málsmetandi knattspyrnuunnandi má missa af. Þáttastjórnendur fara ofan í kjölinn á brýnustu málum félagsins hverju sinni í bland við að baða sig upp úr fortíðarljóma fyrrum daga. Umsjón með dagskrágerð…
Fróði Kristins og Árni Freyr Guðna by Fimleikafélagið
Til hamingju með daginn kæru FH-ingar! FH er í dag 95 ára og við efnum til stórveislu í Kaplakrika í allan dag. Evrópuleikir í handbolta og skipstjóri FH-liðsins, Sigursteinn Arndal, kom á pylsubarinn fyrir fyrsta hanagal í dag. Njótið og sjáumst í Kaplakrika í dag.
Árni Stefán kom á pylsubarinn og við ræddum Tottenham, handboltaliðin hjá FH og margt margt fleira. Við þökkum Pylsubarnum, Atlantsolíu og Auði dóttur kviku fyrir samstarfið. Sjáumst á Oktoberfest !
Jakob Martin og Einar Örn komu á Pylsubarinn og ræddu handbolta, fótbolta, Evrópu, Aron Pálmars, Shellmótið í Vestmannaeyjum og margt fleira. Það er nóg framundan hjá okkur FH-ingum um helgina! Njótið!
Atli og Tryggvi Rafnssynir komu á pylsubarinn og fóru yfir viðan völl! Sögur af okkar besta manni Fidda, yfirferð yfir karla og kvennaliðin í handbolta og draumalið bræðranna var meðal umræðu. Síðast en ekki síst var fyrirsætuferill okkar allra gerð góð skil! Njótið..
Tvíburaturnarnir Fannar Freyr og Árni Freyr mættu á pylsubarinn eftir æfingu á Litla Hrauni og í Breiðholtinu. Umræðuefni dagsins var handbolti. Íslands, deildar og meistarar meistaranna hefja leik gegn Fram í Kaplakrika á fimmtudag klukkan 19.30 Við grillum fyrir leik, höfum gaman í tjaldinu og sköpum frábæra stemmningu fyrir besta lið landsins í Krikanum. Njótið !
Krissi og Orri Þórðar mættu á pylsubarinn í dag. Farið var um víðan völl og heimsmálin rædd frá öðrum vinklum! Eru 10km hans Krissa stolið efni frá Tóta Kenýa?
Bjössi og Böddi mættu á Pulsubarinn og tóku létt spjall um stórleik kvöldsins!
Framtíðin: Benjamin Bæring, Ragnar Halldór og Úlfar Kriss by Fimleikafélagið
Fannar Freyr x Jón Ásbjörns x Sverrir Smára by Fimleikafélagið
Einar Baldvin og Pétur Hrafn by Fimleikafélagið
Ísak Óli og Sindri Kristinn by Fimleikafélagið
Steinar Steph & Tómas Meyer by Fimleikafélagið
Framsóknarmennirnir Ágúst Bjarni og Sigurjón komu í spjall til að fara yfir allt sem viðkemur leik FH og Breiðabliks.
Þær Aldís og Andrea litu til Jóns Páls í upphitun fyrir FH - Tindastóll í þeirri lang bestu. Ljósmynd: JGGsport // Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Hörður Magnússon, sá markahæsti, mætti og ræddi uppáhalds markið sitt, eftirminnilegustu leikina, bestu samherjana og margt margt fleira.
Í þessari seríu fær Orri til sín þá leikmenn sem hafa náð þeim undraverða árángri að skora yfir 100 mörk fyrir FH. Í þessum þætti ræðir Orri við Atla Viðar Björnsson um árin í FH, uppáhalds markið, eftirminnilegustu leikina, bestu samherjana, landsleikina og margt fleira.
Í þessari seríu fær Orri til sín þá leikmenn sem hafa náð þeim undraverða árángri að skora yfir 100 mörk fyrir FH. Fyrsti gestur er Steven Lennon sem nýverið lagði skóna á hilluna.
Nýráðinn aðstoðarþjálfari okkar FH-inga mætti á Pylsubarinn í stutt spjall um nýja starfið.
Landsliðskonan Guðný Árnadóttir, leikmaður AC MIlan kom í spjall til okkar í tilefni undanúrslita bikarsins þar sem hún fór yfir árin í FH og veru sína á Ítalíu.
Sísí & Sunneva [Upphitun fyrir FH - Fylkir] by Fimleikafélagið
Davíð Þór Viðarsson rifjaði upp glæstan bikarmeistaratitil FH árið 2007 og nefndi mikilvægi þess að liðið finni áfram fyrir þessum magnaða stuðningi áhorfenda sem hefur verið í síðustu leikjum.
Aðstoðarþjálfarinn okkar, Sigurvin Ólafsson, settist niður á Pylsubarnum með Orra Frey og fór yfir ferilinn og markmiðin hjá FH
Okkar menn Logi Hrafn og Jóhann Ægir settust niður í örstutt spjall eftir sigurinn gegn ÍR í kvöld.
Eiður Smári Guðjohnsen, nýr þjálfari FH settist niður með Orra Frey og fór yfir það hvað er í vændum á hans stjórnartíð. Eiður rifjaði einnig eina markið sem hann hefur skorað gegn FH.
Til að hita upp fyrir leikinn gegn Leikni Reykjavík dugar ekki minna en að fá ritstjóra stærsta knattspynuvef landsins. Sjálfan Elvar Geir Magnússon.
Ingvar Viktors fer yfir söguna [Viðhafnarútgáfa] by Fimleikafélagið
Afreksþjálfarinn og legendið Jóhann Birnir mætti til Orra Freys til að fara yfir störf sín hjá FH, ferilinn og leikinn gegn Keflavík.
Upphitun [FH-Valur] // Orri Freyr x Jóhann Már Helgason by Fimleikafélagið
Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Kristjánsson ferskir.
Vuk og Máni settust niður með Jóni Páli og Jóni Má og fóru yfir endurkomusigurinn gegn Frömurum í kvöld.
Er FH orðið að stórveldi að mati sagnfræðinga? Hverskonar bjór væri Fram? Stefán Pálsson, sagnfræðingur, bjóráhugamaður en fyrst og fremst Framari, var gestur hjá Orra Frey sem hitaði upp fyrsta næstu viðureign FH í Bestu deild karla.
Tómas Þór, yfirmaður enskrar knattspyrnu á íslandi og stuðningsmaður Víkings kíkti í spjall til Orra Freys þar sem þeir fóru yfir leik FH og Víkings.
Þegar það eru fimm dagar í mót mættu þeir Beggi og Emil á Pylsubarinn til Jóns Más og fóru yfir málin.
Haustþáttur // Doddason Bræður & Árni Guðna by Fimleikafélagið
Hitað upp fyrir leik karlaliðsins gegn Leikni og leik kvennaliðsins gegn HK.
FH og Rosenborg mætast í Kaplakrika á fimmtudag kl. 19.00. Senterarnir Lúlli Arnars og Jón Erling Ragnarsson komu í upphitun til Jóns Páls og Krissa og ræddu m.a. um ógleymanlega kvöldstund í Vínarborg 2013, Evrópuleik gegn Barcelona 1990 og að sjálfsögðu möguleika FH gegn Rosenborg í komandi átökum.
Það er komið að RISA leik hjá okkar stelpum, undanúrslit í mjólkurbikarnum gegn Þrótti Reykjavík. Pétur Hrafn Friðriksson, sérfræðingur og þjálfari og Sigríður Guðmundsdóttir, knattspyrnukempa og meðlimur í meistaraflokksráði fóru yfir allt sem þarf að vita fyrir leikinn.
Evrópuyfirferð // Atli Guðna & Biggi Jó [FH vs. Sligo Rovers] by Fimleikafélagið
Eggert Gunnþór fer yfir ferilinn allt frá upphafsárunum á Austfjörðum, út í hinn stóra heim og svo til Hafnarfjarðar.
FH - KA. Sunnudag, 27. Júní, Klukkan 16:00
Bræðurnir Ásgeir Brynjar og Fannar Freyr Guðmundssynir í upphitun fyrir leikinn gegn Stjörnunni.
Einar Andri Einarsson, Jói Skagfjörð og Sigurgeir Árni!
Bikarinn er fer af stað 1. júní í Krikanum þegar FH mæta Þór/KA.
Það er risaleikur í Lengjunni þegar FH mæta Knattspyrnufélagi Reykjavíkur.
Það er alvöru leikur í kvöld gegn Leikni R á Domus Nova vellinum.