POPULARITY
Við forvitnuðumst í dag um nýja sjónvarpsþáttaröð sem kallast A&B og er saga tvíburanna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona. Þeir vöktu fljótt mikla athygli fyrir mikla hæfileika á knattspyrnuvellinum á Skaganum. Þeir fóru ungir í atvinnumennskuna, léku með landsliðinu og saga þeirra þar er rakin í þáttunum. Þeim er svo fylgt eftir í gegnum viðskiptaævintýri eftir atvinnumennskuna og hvernig þeir fundu báðir aftur fótboltann og nú er til dæmis Arnar orðinn landsliðsþjálfari hjá karlalandsliðinu. Þetta er saga drengja sem upplifa drauma sína, en lenda líka í hremmingum innan sem utan vallar. Gunnlaugur Jónsson, umsjónarmaður, handritshöfundur og framleiðandi þáttanna, kom í þáttinn ásamt Arnari, öðrum bróðurnum. Steinunn Harðardóttir leiðsögukona hefur í 12 ár farið í pílagrímsgöngur áleiðis til Rómar en á miðöldum gengu fjölmargir íslenskir pílagrímar til Rómar. Einn þeirra var Nikulás ábóti á Munkaþverá í Eyjafirði en hann fór til Noregs og Danmerkur og gekk þaðan til Rómar og svo alla leið til Jerúsalem. Hann skrifaði leiðarvísi fyrir aðra pílagríma árið 1153-4, „Leiðarvísir og borgarskipan“ er sá eini sinnar tegundar frá þessum tíma sem hefur varðveist í Evrópu. Þegar Steinunn kom til Rómar síðasta haust stóðu yfir miklar viðgerðir á borginni vegna Heilags árs hátíðarhöldum sem hófust á jólum 2024 og standa út allt þetta ár. Heilög ár eru haldin af kaþólsku kirkjunni á 25 ára fresti. Steinunn kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það er hafið nýtt eldgos suðaustur af Þorbirni við Grindavík, því fór Einar aðeins yfir stöðuna, til dæmis hvað varðar gasdreifingu. Svo gerði hann aðeins upp veturinn, en með mars lauk veðurstofuvetrinum. Einar talaði svo að lokum um mikla hita sem nú geysa á fjarlægum slóðum, s.s. sunnarlega í Bandaríkjunum, í Kákasus og á Tælandi og merkilegt marsveður sem Madrídingar og Spánverjar hafa upplifað. Tónlist í þættinum í dag: Ég skal bíða þín / Helgi Björnsson (Michel Legrande, texti Hjördís Morthens) April in Paris / Count Basie orchestra (Vernon Duke) Creepin' in / Dolly Parton og Norah Jones (Lee Alexander) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Það er óhætt að segja að fyrsti landsliðsgluggi Arnars Gunnlaugsson hafi ekki farið eins og vonast var eftir. Strákarnir okkar töpuðu báðum leikjum sínum gegn Kosóvó og eru þeir fallnir í C-deild Þjóðadeildarinnar. Það var ekki margt jákvætt hægt að taka úr þessum leikjum. Haraldur Örn Haraldsson og Valur Gunnarsson settust niður í hljóðveri Fótbolta.net og fóru yfir verkefnið ásamt Guðmundi Aðalsteini.
Sigurbjörn Hreiðarsson er gestur Helga og Kela í Íþróttavikunni.
Doc, Jói Már og Baldvín Már bíða spenntir eftir fyrsta leik Arnars
Elvar Geir Magnússon ræddi við Arnar Gunnlaugsson á Laugardalsvelli strax eftir að Arnar hafði opinberað val á sínum fyrsta landsliðshóp. Það er kominn nýr fyrirliði í íslenska landsliðinu, Orri Steinn Óskarsson. Sveigjanleiki er orð sem verður áberandi í landsliðsþjálfaratíð Arnars. Arnar ræddi um valið, frammistöðu okkar fremstu leikmanna að undanförnu, leikina framundan gegn Kosóvó og fleira.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 8. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Það eru 28 dagar í Bestu deildina og farið er yfir helstu fréttir og viðbrögðin eftir ótímabæru spánna. Frammistaða Hákonar í Meistaradeildinni og komandi landsliðsval Arnars eru meðal umræðuefna. Kristján Atli, talsmaður Liverpool á Íslandi, sest við enska hringborðið og opinberar val á úrvalsliði annars þriðjungs. Skoðuð er staðan í deildinni miðað við spár og fjallað um Meistaradeildina.
Í fyrsta þætti Pod blessi Ísland, í umsjá Aðalsteins Kjartanssonar og Arnars Þórs Ingólfssonar, blaðamanna Heimildarinnar, er farið yfir nýjustu vendingar í stjórnmálum og rýnt í líklegar ríkisstjórnir út frá nýrri þingsætaspá Heimildarinnar og Dr. Baldurs Héðinssonar. Var það taktísk snilld hjá Viðreisn að setja Jón Gnarr í 2. sæti? Munu Egilsstaðabúar hætta við að kjósa Samfylkinguna af því að Dagur B. er á lista í Reykjavík? Er Ragnar Þór Ingólfsson hægrimaður? Við fáum ferðasögu Aðalsteins frá Þingvöllum og frásögn af blaðamannafundi þar sem hann lagði óvænta spurningu fyrir Volodimír Selenskí um áframhaldandi viðskipti Íslendinga við Rússa eftir innrás Pútíns í Úkraínu. Í lok þáttar er svo farið stuttlega yfir nýja bók Steingríms J. Sigfússonar, sem fjalla um alla snillingana sem hann kynntist í stjórnmálum. En svo droppar hann líka nokkrum sprengjum. Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins Póló
Arnar Jónsson leikari lítur við til að ræða ljóð í þætti dagsins, en hann ætlar að fara yfir ævi sína í ljóðum í Landnámssetrinu í Borgarnesi um næstu og þarnæstu helgi. Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í tvenna tónleika, tríótónleika á vegum kammermúsíkklúbbsins og fyrstu tónleika grænu raðarinnar hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, og Katla Ársælsdóttir rýnir í Sýslumann dauðans eftir Birni Jón Sigurðsson sem frumsýnt var nýverið. Og Víðsjá lítur einnig inn á æfingu hjá Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Vansæld, einmanaleiki og aukin harka eykst enn meðal ungs fólks og hvorki skýring né lausn í sjónmáli. Tekist var á um orsakir og afleiðingar þess í vikunni auk máls Yazans og fjölskyldu, sem lyktaði með frestun brottvísunar og áframhaldandi málsmeðferð. Þá var rætt um sitjandi ríkisstjórn og komandi kosningar, með viðkomu í áformum Arnars Þórs, Maríu Rutar og Emblu á vettvangi stjórnmála.
Leikjaplanið fyrir næsta tímabil er komið út og af því tilefni heimsóttum við Lúlla Arnars á skrifstofur Verdi Travel til að fara yfir fótboltaferðir næsta vetur, þann bransa almennt og bara fótboltann almennt. Enginn á landinu með meiri reynslu í þeim bransa. Verdi Travel er komið með ferðir á alla heimaleiki fram að áramótum en Kop.is verður með fararstjórn í tveimur þeirra, Aston Villa (nóv) og Ipswich (janúnar). Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Verdi Travel / Jói Útherji / Ögurverk ehf / Done
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Arnar Jónsson. Hann er fæddur á Akureyri, útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikshússins 1964 og hefur síðan fleytt rjómann af karlhlutverkum leikbókmenntanna, hlutverkin nálgast 200 á sviði og stór hluti þeirra aðalhlutverk auk sjónvarps- og kvikmyndahlutverka. Arnar er nú, einu sinni sem oftar, í miðri frumsýningatörn fyrir jólasýningu Þjóðleikhússins, Edda, í leikstjórn sonar hans Þorleifs. Eins og það sé ekki nóg þá er líka að koma út tvöföld vínilplata með ljóðalestri Arnars. Það var því um nóg að tala við Arnar í dag, við fórum aftur í æskuna fyrir norðan og á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og fengum meira að segja ljóðalestur í beinni. Svo var það matarspjallið, við töluðum í þetta sinn um Pálínuboð sem sniðugt er að halda saman til dæmis með vinnufélögunum. Og svo töluðum við líka um hluta af brauðsneiðinni, eða brauðinu sem er umdeildur, skorpuna. Tónlist í þættinum í dag: Jólasveinninn minn / Elly Vilhjálms (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Þorláksmessukvöld / Ragnhildur Gísladóttir (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson) Bjart er yfir Betlehem / KK og Ellen Kristjáns (höf.lags óþekktur, texti Ingólfur Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Í dag er Arnar þrítugur og í tilefni af því fékk hann sinn eigin þátt. Tékkiði svo á @auratal.is á instagram og Tiktok og gefið Arnari follow í afmælisgjöf.
Búið er að framlengja ráðningarsamninginn við Jens Stoltenberg sem framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og því er hægt að hætta bollaleggingum um hver tekur við af honum í bili. Bogi Ágústsson fór yfir málið í Heimsglugga vikunnar. Hann ræddi einnig um Skotland, um lýðveldissinna og sjálfstæðissinna þar, og um óánægju Orkneyinga sem vilja endurnýja tengsl við Norðurlöndin. Múlaþing varð til þegar fjögur sveitarfélög á Austurlandi sameinuðust fyrir nokkrum árum. Þá var farin nýstárleg leið í stjórnskipun og öll gömlu sveitarfélögin fengu heimastjórn. Eva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði hefur skoðað hvernig til hefur tekist. Hún var gestur Morgunvaktarinnar. Í kvöld verða þrjú ný útilistaverk Arnars Ásgeirssonar myndlistarmanns formlega vígð í svonefndu Goðahverfi í miðborg Reykjavíkur. Arnar og Sigurður Trausti Traustason deildarstjóri safneignar og rannsókna á Listasafni Reykjavíkur sögðu frá. Tónlist: Ljúfa líf - Ellen Kristjánsdóttir og KK Sumarást - Helena Eyjólfsdóttir In The Summertime - Mungo Jerry Þjóðvegurinn - Elín Eyþórsdóttir og Pétur Ben Umsjón: Vera Illugadóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Aktuell spielt Arnar Freyr Arnarsson seine bislang beste Saison im MT-Trikot. Und der 27-Jährige weiß bereits, was er nach seiner Handball-Karriere machen will: Als Farmer mitten in der Natur an der isländischen Ostküste leben. In seine Heimat reist der Kreisläufer schon jetzt am liebsten in den Urlaub. Dies und mehr verrät der Model-Athlet in der aktuellen Ausgabe des „Fulle Power-Podcasts“. Im Gespräch mit Moderator Patrick Schuhmacher geht es um Arnars erfolgreiche EM-Quali und die Erfolgsaussichten Islands bei der Euro im kommenden Jahr in Deutschland. Arnar erzählt, wie wohl er und seine Familie sich in Deutschland fühlen, was die Arnarssons in und um Melsungen gern erleben und was er an der deutschen Mentalität schätzt und was weniger…
Birna Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Korpúlfa, félags eldri borgara í Grafarvogi, fór yfir starfsemi félagsins en það fagnar 25 ára afmæli nú í apríl. Félagsstarfið er í miklum blóma og byggir að mestu á starfi sjálfboðaliða. Borgþór Arngrímsson fór yfir það helsta í dönsku þjóðlífi, meðal annars hugmyndir um að fá Helle Thorning-Schmidt til að sækjast eftir embætti yfirborgarstjóra Kaupmannahafnar. Með hækkandi sól færist enn meira líf í starfsemi Tívolísins í höfuðborginni og Bakken nýtur mikilla vinsælda. Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, sagði frá stöðu mála varðandi ráðningu nýs landsliðsþjálfara í knattspyrnu karla. Eftirmaður Arnars Þórs Viðarssonar hefur ekki verið ráðinn en KSÍ horfir einkum til útlanda við valið. Tónlist: Kata rokkar - Jóhanna Þórhallsdóttir Till then - Hljómsveit Ingimars Eydal, 'Round midnight - Sarah Vaughan, Sveitin milli sanda - Hljómsveit Svavars Gests, Angelique - Dario Campeotto. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

Heil og sæl. Í dag er nóg um að tala. Svanvhít Valtýsd. og Kristinn Hjartarson eru viðmælendur og við spjöllum um Björgvin Pál og Kristján Örn, brottrekstur Arnars Þórs Viðarssonar sem landsliðþjálfara. Hver verður næsti þjálfari landsliðsins. Körfuboltinn hér heima kemur við sögu og svo enski boltinn, þýski boltinn og sá ítalski ásamt mjólkurbikarnum hér heima og ýmsu fleiru. Njótið helgarinnar.
Ísland fór ekki vel af stað í undankeppni EM 2024 í gær þar sem liðið tapaði 3-0 fyrir Bosníu í Senica. Leikurinn var ekki góður hjá íslenska liðinu, bara alls ekki. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu til Svíþjóðar í dag og spjölluðu við Einar Guðnason, fyrrum aðstoðarþjálfara Víkings, um vonbrigðin í gær. Farið var yfir uppstillinguna á liðinu, frammistöðu liðsins í leiknum og framtíð Arnars Þórs Viðarssonar sem landsliðsþjálfara ásamt mörgu fleiru. Þetta var einn af úrslitaleikjunum í þessari undankeppni og sárt að hafa tapað honum eins og við gerðum.
Www.pardus.is/einpaelingÞórarinn ræðir enn á ný við Arnar Þór Jónsson. Að þessu sinni er rætt um hugmyndir Arnars um nýjar átakalínur stjórnmálanna, skólamál, tjáningarfrelsi, lýðskrum og fleira.
Arnar Grétarsson, þjálfari okkar í fótboltanum, settist í Toggastofu eftir matarbita í Fjósinu. Trúlega hefði þetta geta verið fimm tíma spjall enda ekkert eðlilega gaman að tala um fótbolta við Arnar. Hann er hafsjór af fróðleik og metnaðurinn hreinlega lekur af honum. Hann vill gera allt til að vinna. Og hér er klukkutímaspjall um hvernig við förum upp í hæstu hæðir á ný. Leiðin þangað er grýtt en Arnar hefur skýra sýn um það hvernig hann vill gera hlutina. Jóhann Alfreð forfallaðist á síðustu stundu vegna Gettu Betur sem hefst innan tíðar en við Breki mættum í Toggastofu til að fara yfir hlutina með Arnari sem gerði fjögurra ára samning í nóvember. Við þökkum vinnuveitendum okkar kærlega fyrir skilninginn á sérverkefnum fyrir Val. Arnar er margreyndur landsliðs- og atvinnumaður í knattspyrnu, lék með liðum eins og Glasgow Rangers, AEK Athens, KSC Lokeren og á 72 leiki með A landsliði Íslands. Eftir að knattspyrnuferlinum lauk tók Arnar við sem tæknilegur ráðgjafi hjá AEK Athens í Grikklandi og síðar sem yfirmaður knattspyrnumála hjá ClubBrugge í Belgíu. Þjálfaraferill Arnars hófst hjá Breiðablik og síðar tók hann við liði Roeselari í Belgíu áður en hann tók við stjórnartaumum hjá KA. Við Vængjamenn erum spenntir fyrir komandi tímum með Arnar í brúnni og vonum að þið séuð það líka. Í seinni hlutanum fórum við örstutt yfir komandi bikarviku í körfuboltanum, okkar menn í landsliðinu og svo Evrópukeppnina í handboltanum þar sem verður spilað alla þriðjudaga í febrúar.
Þáttur dagsins er óundirbúinn og fjallar um iðnaðinn. Það er óhætt að segja að hafsjór sé á milli þeirra Arons og Arnars þegar kemur að iðnaðinum enda hefur Aron starfað í geiranum en Arnar varla haldið á hamri en er þó nokkuð lunkinn við að smíða vopn! Þátturinn er í boði: Eiríksson Brasserie - https://brasserie.is/ Dominos - https://www.dominos.is/ Coolbet merch - https://coolbetmerch.com/ Víking Lite lime léttöl
596.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum við Þórhallur Dan um víðan völl. Svarbréf formanns KSÍ frá okkur varðandi samning Arnars Þórs Viðarssonar er komið. Við förum yfir málið. Mjólkurbikarinn er til umfjöllunar sem og Lengjudeildin og Víkingur í forkeppni meistaradeildarinnar. Fréttir og slúður er svo á sínum stað. Njótið.
Þó að karlar séu með geirvörtur og mjólkurkirtla líkt og konur þá tíðkast það ekki að þeir gefi börnum sínum brjóst. Mjólkandi maður, Milking man, nefnist útskriftarverkefni Jón Sölva Walderhaug frá lIstaháskóla íslands, en þar gerði hann tilraun til að virkja mjólkurframleiðslu í brjóstum sínum. Ungur íslenskur fatahönnuður selur hönnun sína í yfir 50 hátískuverslunum, merkið sem áður hét Arnar Már Jónsson, breytti á dögunum um nafn, og kallast nú Ranra. Hönnuðirnir leggja höfuðáherslu á sjálfbærni og lita flíkurnar með íslenskum plöntum, er það er nánast óheyrt í heimi hátískunnar. Fötin eru gerð til að klæðast úti, en eru ekki eiginleg útivistarföt að sögn Arnars, en fatamerkið sló í gegn þegar Covid skall á og útivistarföt urðu að tískuvöru. Berglind Rós Magnúsdóttir heldur áfram að fjalla um hlutverk framhaldsskólanna í að viðhalda stéttaskiptingu í íslensku samfélagi, að þessu sinni tekur hún tvær dæmisögur.

Arnar Þór Ingólfsson, fréttamaður hjá Kjarnanum, fór á dögunum í fréttaferð til Póllands til að milja sögum af vettvangi, frá flóttafólki frá Úkraínu og sjálfboðaliðum sem leggja sitt af mörkum til að taka vel á móti þeim. Við heyrum áhugaverða ferðasögu Arnars Þórs í þættinum. Þeir Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands og Alexander Vucic, forseti Serbíu, gleðjast þessa dagana. Síðastliðna helgi fengu þeir báðir endurnýjað umboð til áframhaldandi setu í embætti eftir kosningar í heimalöndum sínum. Þeir eiga margt sameiginlegt, til dæmis í stjórnarháttum og í samskiptum við stjórnvöld í Rússlandi. Birta og Guðmundur Björn skoða sögu þeirra Orbans og Vucic. Heismkviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.

Í þessum fyrsta þætti Ólafssona í Undralandi er uppruni og saga þeirra Arons og Arnars rakin en þeir hafa marga fjöruna sopið saman. Arnar kemur Aroni að óvörum og uppljóstrar djúpu leyndarmáli sem hann hefur reynt að hylma yfir um nokkurt skeið. Að lokum kemur Aron með einhvern fánýtasta fróðleik sem festur hefur verið á bandvídd.
Þegar þriðjudagsklukkurnar hringja, þá er komin ný Pyngja í boði Arnars og Ingva! Í þætti dagsins er boðið upp á tvo ársreikninga af dýrari gerðinni. Gerður í Blush hefur séð tímana tvenna, þrátt fyrir ungan aldur og það má með sanni segja að hún sé fullkomin skilgreining á HSHD (Hugsjónakona sem hlær í dag). Eigendur Sóma virðast einnig hlægja alla leið í bankan ár eftir ár enda full ástæða til þegar smurðar eru 12.000 samlokur á dag ofan í kolvetnissjúkan landann. Ferlega myndarlegar pyngjur þessa vikuna!Blush - 7:55Sómi - 38:11
Í þessum þætti átti ég virkilega skemmtilegt og áhugavert spjall við listahjónin Arnar Dan Kristjánsson og Sigríði Soffíu Hafliðadóttur, eða Siggu Soffíu eins og hún er yfirleitt kölluð.Arnar útskrifaðist frá Leiklistadeild LHÍ árið 2013 og hefur leikið í hinum ýmsu verkum á fjölum leikhúsanna, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Honum er margt til lista lagt en ásamt því að vera leikari stofnaði hann á sínum tíma veitingastaðinn Reykjavík Chips ásamt æskuvinunum og nú síðast bjó hann til og framleiddi spilið “Hvað í pabbanum ertu að gera” sem fór í sölu á síðasta ári.Sigga Soffía er söngkona með BA gráðu í skapandi tónlistarmiðlun en hún útskrifaðist árið 2015 frá LHÍ og er hún í dag kórstjóri fjölda kóra á Íslandi, meðal annars hjá tónlistaskólanum Domus vox.Arnar og Sigga kynntust í listaháskólanum þar sem þau voru bæði í námi en segja þau skemmtilega frá því í þættinum þegar Arnar náði að heilla hana í Halloweenpartýi á vegum skólans. Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og eiga þau í dag saman tvo stráka og er lítil dama væntanleg núna í mars. Í þættinum ræddum við um allt milli himins og jarðar, þar á meðal ræddum við heilsu & hamfarakvíða, ófáar bónorðstilraunir Arnars, hvatvísi sem getur þó oft skilað sér í góðum hugmyndum, mannvagninn, ásamt því að þau sögðu mér margar skemmtilegar sögur úr þeirra sambandstíð þar á meðal eina geggjaða sögu af því þegar Arnar ruglaðist aðeins á herbergjum á deit tímabili þeirra.Aha.is - https://aha.isBlush.is - https://blush.is/Bagel 'n' Co - https://https://www.bagelnco.is/
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 4. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Bjarni Guðjónsson, framkvæmdastjóri KR, er gestur. Rætt er um landsleikinn gegn Rúmeníu og komandi leiki. Fréttamannafundur Arnars Þórs Viðarssonar var í beinni. Þá er rætt um íslenska boltann og Magnús Valur Böðvarsson var á línunni.
FH og Rosenborg mætast í Kaplakrika á fimmtudag kl. 19.00. Senterarnir Lúlli Arnars og Jón Erling Ragnarsson komu í upphitun til Jóns Páls og Krissa og ræddu m.a. um ógleymanlega kvöldstund í Vínarborg 2013, Evrópuleik gegn Barcelona 1990 og að sjálfsögðu möguleika FH gegn Rosenborg í komandi átökum.
Kvikmyndagerðarmaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn, Arnar Freyr Tómasson, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir eitthvað geggjað eða eitthvað glatað. Í þættinum ræða þeir meðal annars leikstjóra sem þeim finnst vera glataðir, geggjuð byrjunaratriði, hvernig þeim fannst Katla, hversu flottur leikari Hugh Jackman er, nýju stuttmyndina hans Arnars sem hann er að leggja lokahönd á og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.
Af hverju eru Scarpa skór reimaðir alla leið undir tábergið? Hversu öruggur þarftu að vera? Er kenningin hans Arnars sönn að allir sem eiga mannbrodda eigi líka Scarpa skó? Hversu margir úr grunnskólanum þínum fóru úr fangelsi? Hvað þarf að ryksuga heimilið sitt oft? Hver er Lalli letisuga? Hvað er spítt vinátta? Fangelsi, náttúruböð, heitir gaurar, einelti, B5 og fleiri mál eru tekin fyrir í þessum þætti af Podkastalanum.
Í þessum þætti höldum við upp á alþjóðlega kannabisreykingadagin nema við gerum það viku of seint. Hvort er betra, spliffa og vídjó eða hasskaka og skríða inn á bað? Við förum í allar áttir, ræðum kannabis og kryfjum risa skandal úr fortíð Arnars og Gauta sem tengist því hvaða ömurlega munch Arnar keypti fyrir Gauta þegar hann var of freðinn til að þora inn í sjoppu í Breiðholtinu? Þessi þáttur er bannaður öllum yngri en 22,5 árs svo það er það á ykkar ábyrgð ef krakkarnir ykkar taka þátt í Jeezy Cup einn daginn.
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. ágúst. Tómas Þór Þórðarson var sendur í sóttkví rétt fyrir þátt eftir frægt morgunverðahlaðborð á Hótel Rangá en Elvar Geir Magnússon fékk góða menn í hljóðverið! Runólfur Trausti íþróttafréttamaður á Vísi og Rafn Markús Vilbergsson, fyrrum þjálfari Njarðvíkur, voru með við hringborðið og farið var yfir vikuna í íslenska boltanum. Tómas Þór var svo á línunni. Pepsi Max-deildin, Lengjudeildin og Evrópuleikir íslenskra liða voru til umfjöllunar.
Söng- og leikkonan Salka Sól talar af einlægni um erfiðleika sína og Arnars eiginmanns hennar við að geta barn og hvaða áhrif það hafði á hana og sambandið. Umfjöllunarefnið tengist síðasta þætti Kviknar, þar sem meðal annars var fjallað um frjósemi, ófrjósemi og getnað.
Í glænýjum þætti bregðum við aðeins út af vananum og dettum í bókagírinn og rennum yfir nokkrar spennandi hlaupabækur sem eru á boðstólnum. Af því tilefni fengum við rithöfundinn Arnar Pétursson til að segja okkur frá Hlaupabókinni sem hann er að gefa út og förum einnig yfir uppáhalds hlaupabækurnar hans Arnars. Þar sem það eru nú einnig að koma áramót spurðum við Arnar út í hlaupaárið 2019 og hvaða markmið hann verður með á nýju ári. SPENNANDI. Þið megið ALLS EKKI missa af þessum þætti ef þið þurfið að fá góðar hlaupabóka hugmyndir og smá hlaupa innblástur rétt yfir hátíðarnar og bara hvenær sem er!
Kristjana Arnars, íþróttafréttakona ásamt fleiru kíkir við í Seigluna og segir okkur hvernig upplifunin er að stíga inná svæði sem er mest megnis karllægt. Þú vilt ekki missa af þessum þætti!
Á meðan Einar er í Bandaríkjunum hefur Arnar „leikaravinur“ Hauksson leyst hann af hólmi. Arnar fær lítið að koma orðum að í þættinum vegna munnræpu úr Bjarna en þeir ná þó að ræða draumaspuna, Rambo, tyrkneska sjónvarpsþætti, Stewart Lee og heimspekilegar tilvistarpælingar. Restin af þættinum fer í leikina „Arnar giskar“ og „Bjarni! Hvort myndirðu frekar?“ sem voru nánast fundnir upp á staðnum.
Uppi á Höfða, fyrir utan gamalt verkstæði, kúra tveir sólstólar undir skilti sem á stendur Studio Sol. Þar mætti ætla að fyrir innan sé að finna sólbekki - sérlega gerðarlegar brúnkuvélar - en í staðinn er þar sápa. Bleik, útskorin, í neti. Það verk listamannsins Arnars Ásgeirssonar en sýning á verkum hans stendur yfir í Studio Sol, sem er ekki sólbaðsstofa heldur listagallerí. Við tökum lestina upp á Höfða í þættinum í dag. Listhópurinn Hlökk kíkti til okkar í stúdíóið en hópurinn blæs til útgáfuhófs í Mengi á föstudaginn. Tilefnið er platan Hulduhljóð sem skartar samruna ýmissa listgreina sem þær stöllur Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Lilja María Ásmundsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir ætla að segja okkur betur frá. Þá lítur lestin einnig inn á við þar sem nýjir þáttastjórnendur spyrja sig - hvað er gott útvarp? Þau Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson, lestarstjórar fyrri tíma svara þeirri spurningu.

Ungmennafélagsandinn er til á spreybrúsum. Þeir sem eru fúlir verða allt aðrir við eina gusu. Næsta Unglingalandsmót UMFÍ fer fram 1. - 4. ágúst nk. á Höfn í Hornafirði. Mótin hafa verið haldin frá árinu 1992. Jóhanna Íris Ingólfsdóttir einn mótshaldara frá ungmennasambandinu Úlfljóti, var á línunni. Brotið var blað í sögu rafíþrótta um helgina þegar verðlaunafé í heimsmeistaramóti tölvuleiksins Fortnite sló met og fór nærri fjórum milljörðum íslenskra króna. Sigurvegarinn fékk samtals 367 milljónir króna, sem er meira en sigur á tennismótinu Wimbeldon gaf. Ólafur Þór Jóelsson, framkvæmdastjóri kvikmyndahúsa Senu og fyrrum þáttastjórnandi sjónvarpsþáttanna GameTíVí, kom til okkar og ræddi leikinn og hundruð milljóna króna verðlaunafé heimsmeistaramótsins. Margir muna eftir Björgvini Arnari Atlasyni, litla drengnum sem barðist hetjulega fyrir lífi sínu, en lést aðeins sex ára gamall árið 2013 úr sjaldgæfum sjúkdómi. Móðir hans Ásdís Arna Gottskálksdóttir hefur haldið minningu hans á lofti og m.a. stofnað góðgerðarfélagið Bumbuloní sem selur kort sem teikningar Björgvins heitins prýða. Ásdís Arna hleypur í minningu Björgvins Arnars og til styrktar Bumbuloní, í Reykjavíkurmaraþoninu og hún kíkti til okkar og deildi sinni sögu. Ungt fólk á landsbyggðinni hefur dregist aftur úr ungmennum þéttbýlisins. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar skýrslu Nordregio, stofnunar um norrænar byggðarannsóknir sem kynnt var norrænu ráðherranefndinni fyrir skemmstu, en skýrslan fjallar um aukna hættu á að ungmenni í dreifbýli verði hornreka í samfélaginu, falli úr skóla og þrói með sér andleg vandamál. Anna Karlsdóttir, verkefnastjóri og einn skýrsluhöfunda, var á línunni. Sævar Helgi Bragason fræddi okkur um sitthvað forvitnlegt úr heimi vísindanna, m.a. tunglferðir og hugsanlegan árekstur smástirna og jarðarinnar. Tónlist: Jón Ólafsson - Þegar þú finnur til. KK og Maggi Eiríks - Vindur. Wilco og Feist - You and I. Michael Kiwanuka - Money (ft. Tom Misch). Jón Jónsson og Friðrik Dór - Á sama tíma, á sama stað. Sting - I cant stop thinking about you. Dikta - Hope for the best. Miley Cyrus - Malibu. St. Paul and the Broken bones - Apollo. Will Smith - Miami.
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við Ásmund Arnarsson þjálfara Fjölnis sem situr í 2. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og topplið Þórs. Liðið mætast í toppbaráttuslag á laugardaginn. Í þættinum ræddi hann til að mynda brottrekstur sinn frá Fram, tímabundið starf sitt hjá ÍBV og þá var einnig rætt um Ágúst Gylfason þjálfara Breiðabliks í Pepsi Max-deild karla en þeir félagar þjálfuðu Fjölnisliðið saman
Fótboltasumarið er komið á fulla ferð og eru bæði stelpurnar og strákarnir búin með fyrsta hluta sinna móta. Því þótti Arnari tilvalið að fá svoltið af fótboltafólki í spjall. Í Kaffi Krúsar stúdíóinu þetta fallega júníkvöld komu til okkar Már Ingólfur Másson, kennari, sagnfræðingur, vallarþulur og stuðningsmaður Selfoss til áratuga, Eva Lind Elíasdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna og Ingi Rafn Ingibergsson leikmaður meistaraflokks karla og starfsmaður knattspyrnudeildar. Auðvitað var farið yfir byrjun beggja liða og horft í bollann og spáð í framtíðina. Vinna strákarnir 2. deildina, verða stelpurar bikarmeistarar. Viðmælendur Arnars vildu ekki útiloka neitt. Upphafsstef: Sælan, Skítamórall Lokalag: Sumargleðin, Doctor Victor, Ingó Veðurguð & Gummi Tóta
Björg og Gísli Marteinn buðu góðan daginn á þessum fallega laugardegi þegar styttist í páskana. Barnamenningarhátíð stendur yfir sem var að sjálfsögðu rædd í þaula og barnalag dagsins sett á fóninn, Söngur dýranna í Týról með Stuðmönnum. Gestir dagsins voru þær Sólveig Arnarsdóttir leikkona sem fékk í vikunni fastráðningu við Volksbühne leikhúsið í Þýskalandi og Fanney Birna Jónsdóttir fjölmiðlakona og umsjónarmaður Silfursins í Sjónvarpinu.

Umboðsmaður Alþingis telur að svar Seðlabanka Íslands til Þorsteins Más Baldvinssonar, þegar hann óskaði eftir því að stjórnvaldssekt bankans yrði afturkölluð, hafi ekki verið í samræmi við lög. Þorsteinn Már segir álitið gríðarlegan áfellisdóm yfir starfsfólki seðlabankans. Fjármálaráðherra styður ekki tillögur Alþýðusambandsins um að tekin verði upp hátekjuskattur. Hann óttast að fjögurra þrepa skattkerfi leiði til hærri skatta á meðaltekjur. Aldraðir sem fá aðeins brot af ellífeyrisgreiðslum fá sérstakan viðbútarstuðning samkvæmt frumvarpi sem félagsmálaráðherra ætlar að leggja fram á Alþingi. Innan nokkurra ára má vænta mikilla breytinga í meðferð Parkinson-sjúklinga. Hægt verður að taka frumur úr sjúklingunum, endurforrita þær sem stofnfrumur og græða þær í heila þeirra. Þetta er mat heilaskurðlæknis sem náði að draga mjög úr parkinson-einkennum apa sem hann meðhöndlaði með þessari aðferð. Mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar sími 9 ára stúlku sprakk þegar hann var í hleðslu í nótt. Alþýðusambandið telur nauðsynlegt að óhagnaðardrifin húsnæðisfélög byggi 6000 íbúðir á næstu tíu árum sem kosti 60 til 70 milljarða króna. Jafnframt verði reistar 1800 leiguíbúðir í almenna húsnæðiskerfinu. Arnar Páll talar við Ragnar Þór Ingólfsson. Eftir fjögur til fimm ár ætti að vera hægt að græða stofnfrumur í heila Parkinson-sjúklinga og minnka einkenni þeirra verulega. Þetta er mat Arnars Ástráðssonar, heila- og taugaskurðlæknis, sem starfar bæði við háskólann í Árósum og Harvard-háskóla í Boston. Fyrir þremur árum græddi hann stofnfrumur í heila macaca-apa með góðum árangri, Parkinson-einkenni apans hurfu nánast. Spegillinn hitti Arnar á Læknadögum og spurði hvort í náinni framtíð verði hægt að lækna Parkinson-sjúkdóminn Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, var drepinn í Kongó árið 1961. Í nýrri heimildarmynd, sem frumsýnd verður á Sundance á morgun, segir að flugmaður hafi viðurkennt morðið. Dauðasveit frá Suður-Afríku ruddi úr vegi þeim sem börðust fyrir sjálfstæði Afríkuríkja og vildi tryggja áframhaldandi yfirráð hvíta kynstofnsins yfir auðlindum Afríku. Pálmi Jónasson segir frá.
Gestur þáttarins er Dr. Arnar Eggert Thoroddsen, poppfræðingur. Dr. Arnar Eggert mun verja ritgerð sína og ná sér í löglegt Dr. í haust. Arnar er þekktur fyrir opin huga þegar það kemur að tónlist, allt frá svartasta dauðarokki yfir í bjartasta gleðipopp og R og B. Á lista Arnars eru öll lögin frá sama ári, 1994. Árið þar sem hann og tveit félagar fóri til wales og unnu þar á sveitahóteli og horfðu á MTV í 5 tommu sjónvarpi.

Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson settist niður með Podcasti karfan.is á dögunum og ræddi um heima og geima. Arnar sem hefur komið víða við á sínum ferli, allt frá Höfn í Hornafirði til Aarhus í Danmörku hefur frá ýmsu að segja. Arnar er nýráðinn þjálfari Stjörnunnar í Garðabæ og er fyrrum aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla. Hann er gestur þáttarins að þessu sinni. Umsjón: Ólafur Þór og Davíð Eldur Efnisyfirlit: 1:00 - Körfuboltinn byrjar á Kleppjárnsreykjum 6:10 - Spilaði eitt ár í efstu deild sem leikmaður 7:40 - Flutningar til Danmerkur 12:50 - Arnar tekur við Svendborg 21:00 - Viðskilnaðurinn við A-landsliðið 24:15 - Eurobasket ævintýrin 29:00 - Eurobasket 2017, vonbrigði? 31:50 - Undankeppni HM hingað til og leikirnir framundan 44:00 - Arnar tekur við Stjörnunni 49:30 - Skoðun Arnars á fjölgun erlendra leikmanna 51:30 - Hverju má búast við af Stjörnunni í vetur?
Ég hitti Arnar í hádegismat fyrir nokkrum vikum og hann sagði mér söguna af því þegar hann hljóp maraþon undir þremur klukkutímum, sama ár og hann tók 200kg í réttstöðulyftu. Sagan af þessu afreki hreyfði mikið við mér og kveikti undir miklum hlaupaáhuga hjá mér. Svo miklum að ég ákvað að búa til þrjá sérstaka hlaupaþætti á podcastinu. Arnar er toppmaður, lögfræðimenntaður með konu og börn og eitt stykki járnhaus sem hann notar til að takast á við áskoranir sem mig hryllir við að hugsa um. Þó stefnan sé ekki að hlaupa í sumar eða í þessu lífi þá veistu alveg að þú getur bætt þig á ýmsum vígvöllum lífsins og dæmisögurnar hans Arnars eru kjörið spark í rassinn.
Efni Lestarinnar í dag: Arnar Heiðmars, myndasöguhöfundur og ritstjóri, opnaði fyrr í mánuðinum myndasögusýninguna Here and Back Again í Grófinni. Lestin skyggnist inn í hugarheim Arnars í þætti dagsins. Hljómsveitin World Narcosis hefur vakið mikla athygli í jaðarsenu landsins seinustu árin. Kim Kelley, ritstýra tónlistarveitunnar Noisy, lýsti tónlist bandsins sem ófyrirsjáanlegri blöndu af öfgakenndu þungarokki og hældi þeim óspart fyrir framsæknar lagasmíðar. Sveitin var að gefa út aðra breiðskífu sína í fullri lengd, nefnist hún Lyruljóra. Þórður Ingi Jónsson heimsækir liðsmenn World Narcosis að gefnu tilefni í þætti dagsins. Áslaug Torfadóttir fjallar um rómantísku uppvakninga-sjónvarpsþáttaröðin I Zombie. Og Sigrún Alba Sigurðardóttir menningarfræðingur og lektor við Listaháskóla Íslands heldur áfram að tala um ljóðrænt rými stórborgarinnar, hún staðsetur sig í Kaupmannahöfn og talar um borgina út frá persónulegri reynslu og blandar saman við kenningar borgarfræða. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson