Hlaðvarp Lyfjastofnunar

Follow Hlaðvarp Lyfjastofnunar
Share on
Copy link to clipboard

Fjallað um lyf og lyfjanotkun frá ýmsum sjónarhóli

Lyfjastofnun


    • Nov 11, 2024 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 21m AVG DURATION
    • 34 EPISODES


    Search for episodes from Hlaðvarp Lyfjastofnunar with a specific topic:

    Latest episodes from Hlaðvarp Lyfjastofnunar

    34. Hugtakið lyf - Viðar Guðjohnsen

    Play Episode Listen Later Nov 11, 2024 28:40


    Þótt flestir telji sig vita hvað lyf er, skiptir skilgreining hugtaksins miklu mál. Það getur til að mynda komið við sögu í sakamálum og einnig þegar verið er að greina á milli fæðubótarefna og lyfja. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og sérfræðingur hjá Lyfjastofnun rýndi í hugtakið lyf í ritgerð sinnitil ML gráðu í lögfræði við Háskólann á Bifröst í vor. Hann segir frá í þessum þætti hlaðvarpsins. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    33. ADHD lyf í stórum skömmtum - Vilhjálmur Hjálmarsson; sérfræðingar hjá Lyfjastofnun

    Play Episode Listen Later May 27, 2024 35:16


    Umræða um lyfjameðferð við ADHD kemur nokkuð reglulega upp, nú síðast með þeim upplýsingum að um fimmtungur ávísana á ADHD lyf sé upp á stærri skammta en ráðlagðir eru samkvæmt þeim rannsóknum sem markaðsleyfi byggja á. Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar er rætt um þessi mál við Vilhjálm Hjálmarsson, formann ADHD samtakanna, og Guðrúnu Stefánsdóttur og Guðrúnu Selmu Steinarsdóttur, sérfræðinga hjá Lyfjastofnun sem m.a. sinna vinnslu aukaverkanatilkynninga. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    32. Lyfjaendurskoðun - Einar Stefán Björnsson

    Play Episode Listen Later Nov 16, 2023 21:35


    Umfjöllun hlaðvarpsins að þessu sinni tengist málþingi sem fram fór í byrjun októbermánaðar þar sem fjallað var um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferða, með sérstaka áherslu á fjöllyfjanotkun. Einn frummælenda á málþinginu var Einar Stefán Björnsson, prófessor við HÍ og lyflæknir á Landspítala. Hann fræðir hér um hvernig slík endurskoðun fer fram, talar um að þessum þætti lækninga mætti sinna í meira mæli, og hver ávinningurinn getur orðið. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    31. Um heiti lyfja - Brynjar Örvarsson

    Play Episode Listen Later Sep 20, 2023 23:52


    Hvernig eru heiti lyfja valin, eru einhver viðmið sem þarf að fara eftir ? Þessum og fleiri spurningum er beint til Brynjars Örvarssonar, lyfjafræðings og sérfræðings hjá Lyfjastofnun. Hann hefur um árabil setið í nefnd hjá Lyfjastofnun Evrópu þar sem fjallað er um tillögur að lyfjaheitum. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    30. Að ferðast með lyf - Viðar Guðjohnsen

    Play Episode Listen Later Jul 6, 2023 17:31


    Ákveðnar reglur gilda þegar ferðast er með lyf milli landa. Þær eru að einhverju marki mismunandi eftir löndum og heimssvæðum. Gott er að glöggva sig á þessum reglum áður en haldið er af stað, ferðalangar gætu þurft að gera grein fyrir lyfjunum sem þeir hafa meðferðis ef til tollskoðunar kemur. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og eftirlitsmaður hjá Lyfjastofnun fer yfir helstu reglur sem gilda á þessu sviði. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    29. Lyf við sumartengdu ofnæmi - Erla Hlín Henrysdóttir

    Play Episode Listen Later Jun 12, 2023 14:13


    Í þessum þætti í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar er fjallað um lyf við sumartengdu ofnæmi, ofnæmi vegna frjókorna og skordýrabita. Erla Hlín Henrysdóttir, lyfjafræðingur í samskiptadeild Lyfjastofnunar, segir frá því að ýmis lyf sem geta slegið á óþægindi vegna þessa séu í boði, þar á meðal lausasölulyf. Hún hvetur fólk til að afla sér upplýsinga um lyf áður en notkun þeirra hefst. Benda má á lyfjafræðinga og lyfjatækna apótekanna, og fylgiseðla sem finna má á lyf.is. Grein um sumartengt ofnæmi má lesa á vefnum lyfjastofnun.is. Umsjón hlaðvarps: Hanna G. Sigurðardóttir

    28. Að þiggja ódýrari valkost í stað ávísaðs lyfs - Ólöf Þórhallsdóttir

    Play Episode Listen Later Feb 8, 2023 14:09


    Oft er hægt að draga úr lyfjakostnaði með því að velja ódýrara sambærilegt lyf. Lyfjastofnun raðar lyfjum í svokallaða skiptiskrá og þar eru flokkuð saman sambærileg lyf í sama viðmiðunarverðflokki, sem þó geta verið á mismunandi verði. Þetta er það sem um ræðir þegar sjúklingum er boðið samheitalyf í apóteki, þ.e. sama lyf frá öðrum framleiðanda. Þá er um ódýrari valkost að ræða en lyfið sem læknirinn ávísaði. Í hlaðvarpsþættinum fræðir Ólöf Þórhallsdóttir, lyfjafræðingur og sviðsstjóri Umsókna- og samskiptasviðs Lyfjastofnunar, um frumlyf og samheitalyf, hvernig ódýrari valkostur verkar á sama hátt og ávísaða lyfið, og hvernig slíkur valkostur kemur bæði sjúklingnum og samfélaginu til góða. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    oft ums rari umsj lyfjastofnun
    27. Lyf fyrir lítil börn í Afríku - Sveinbjörn Gizurarson

    Play Episode Listen Later Dec 21, 2022 15:08


    Sveinbjörn Gizurarson prófessor í lyfjafræði segir frá verkefni sem hann hefur unnið að síðustu sex ár, við að þróa nýtt lyfjaform malaríulyfs, og koma á fót lyfjaverksmiðju í Malaví. -Þessi saga fylgdi óvænt með sem bónus þegar rætt var við Sveinbjörn um líftæknilyfshliðstæður í síðasta hlaðvarpsþætti. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    26. Líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður - Páll Þór Ingvarsson og Sveinbjörn Gizurarson

    Play Episode Listen Later Nov 9, 2022 40:19


    Í þessum þætti er fjallað um líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður. Töluverður munur er á líftæknilyfjum (e. biologics) og eldri hefðbundnum lyfjum. Þau síðarnefndu eru efnasmíðuð sem kallað er, líftæknilyfin framleidd með aðstoð lífvera. Líftæknilyfshliðstæður (biosimilars) eru síðan nokkurs konar samheitalyf líftæknilyfja. -Rætt er við Pál Þór Ingvarsson lektor og Sveinbjörn Gizurarson prófessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    25. Aðgerðir Lyfjastofnunar til að sporna gegn lyfjaskorti - Rúna Hauksdóttir Hvannberg

    Play Episode Listen Later Oct 14, 2022 14:36


    Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir frá þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í til að sporna gegn lyfjaskorti, og undirstrikar að eitt af hlutverkum stofnunarinnar samkvæmt lyfjalögum er að sinna eftirliti með framboði lyfja. Meðal þess sem eflt hefur verið er lyfjaskortsteymið, en það miðlar upplýsingum um fyrirsjáanlegan skort á vef stofnunarinnar og leitar lausna til að draga úr áhrifum skorts. Ýmis konar einföldun vegna skráningarferla hefur komið til, og til skoðunar er hvernig rafrænar lausnir geta orðið til að draga úr líkum á lyfjaskorti. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    24. Lyf, ferðalög og sól - Jana Rós Reynisdóttir

    Play Episode Listen Later Jun 16, 2022 13:08


    Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar verður rætt um lyf í sumartengdu samhengi. Lyf meðferðis á ferðalögum til annarra landa annars vegar, lyf og sólarljós hins vegar. Hvað má t.d. taka lyf með sér til langs tíma á ferðalögum til útlanda, og síðan er vakin athygli á því að sum lyf geta valdið húðútbrotum ef sá sem þau notar er óvarinn fyrir sólarljósi. -Jana Rós Reynisdóttir er deildarstjóri samskiptadeildar Lyfjastofnunar fer yfir það helsta í þessum málum í þættinum. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    23. Ópíóíðar - Magnús Karl Magnússon og Sigríður Zoëga

    Play Episode Listen Later Mar 15, 2022 41:21


    Í byrjun árs var í fjölmiðlum fjallað um misnotkun ópíóíð-lyfja hérlendis, um svipað leyti og margir landsmenn horfðu á sjónvarpsþáttaserínuna Dopesick. Sú þáttaröðrekur sögu ópíóíðafaraldursins í Bandaríkjunum sem rekja má til vafasamrar markaðssetningar framleiðandans Purdue Pharma á lyfinu Oxycontin. Í þessum hlaðvarpsþætti er fjallað um ópíóíða. Hvers konar lyf eru þetta, hvernig verka þau á líkamann, hvað gerir að verkum að þau slá svo mjög á sársauka og eru jafn ávanabindandi og raun ber vitni. Rætt er við Magnús Karl Magnússon prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og Sigríði Zoëga, sérfræðing í hjúkrun á verkjamiðstöð Landspítala. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    22. Hvernig er metið hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar ? – Hrefna Guðmundsdóttir

    Play Episode Listen Later Jan 19, 2022 27:13


    Til að lyf og bóluefni komist á markað þurfa lyfjafyrirtæki að senda gögn úr rannsóknum sem lyfjayfirvöld yfirfara. Í Evrópu fer sú vinna fram á vettvangi Lyfjastofnunar Evrópu, meginvinnan í ýmsum sérfræðinganefndum. Í þessum hlaðvarpsþætti er sagt frá vinnu og verklagi í þeim helstu, með verkefnin sem snúa að COVID-19 faraldrinum sérstaklega í huga; hvernig unnið er að því að meta hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar. Sérfræðingar Lyfjastofnunar taka þátt í starfi þessara nefnda. Einn þeirra, Hrefna Guðmundsdóttir yfirlæknir Lyfjastofnunar, segir hér frá starfi þriggja nefnda, m.a. sérfræðinganefndinni sem ráðleggur með hvaða hætti skal rannsaka lyf og bóluefni hjá börnum. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    21. Saga bólusetninga á Íslandi - Haraldur Briem

    Play Episode Listen Later Dec 17, 2021 28:20


    Fjallað er um sögu bólusetninga á Íslandi, bólusetningar barna fyrst og fremst. Byrjað er á að rifja upp upphafið að þeirri byltingu í lýðheilsumálum sem kúabólusetningin var, framtak frumkvöðulsins Edwards Jenner. Síðan rakið hvenær byrjað var að bólusetja gegn helstu smitsjúkdómum á Íslandi, í frásögn Haraldar Briem fyrrverandi sóttvarnalæknis. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    20. COVID-19: Örvunarbólusetningar - Björn Rúnar Lúðvíksson

    Play Episode Listen Later Nov 24, 2021 19:48


    Rætt er við Björn Rúnar Lúðvíksson yfirlækni á ónæmisfræðideild Landspítalans og prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands. Björn Rúnar skýrir hvers vegna örvunarskammtur til viðbótar við fullbólusetningu er mikilvægur, hvaða rannsóknir liggja fyrir um áhrif örvunarskammts, og hverjar niðurstöður þeirra eru. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    19. COVID-19: Bólusetning barna og unglinga 12-15 ára – umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Aug 27, 2021 21:46


    Rætt við Valtý Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalækni um hvað rannsóknir segja um bólusetningu þessa aldurshóps, um aukaverkanir bæði algengar og sjaldgæfari, hugsanlegar áhyggjur foreldra, og mat á því hvort kostir bólusetningar vegi þyngra en mögulegir ókostir.

    18. Meira um bóluefni gegn COVID-19 - umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Jun 18, 2021 38:47


    Nú er tæplega hálft ár síðan fyrsta bóluefnið gegn COVID-19 fékk íslenskt markaðsleyfi, sem og frá bólusetningarátakinu sem hófst nokkrum dögum síðar. Við ætlum því að nýju að ræða um bóluefnin í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar, þau bóluefni sem hafa verið notuð hérlendis. Um með hvaða hætti þeim er ætlað að ræsa ónæmiskerfið til varna, um virkni þeirra, og hugsanlegar aukaverkanir sem þeim geta fylgt. -Rætt er við Ingileif Jónsdóttur, prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, og deildarstjóra hjá Íslenskri erfðagreiningu í smit- og bólgusjúkdómum.

    17. þáttur Bóluefni gegn COVID-19 - umsjón Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Dec 15, 2020 23:55


    Fjallað um þróun bóluefna gegn COVID-19. Hvernig öllum ferlum hefur verið flýtt, þar á meðal matsferlum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), og rætt um áhyggjur fólks af hinni hröðu framvindu. Þá er sagt frá hvernig þeim bóluefnum sem hafa komið við sögu hjá EMA fram til þessa er ætlað að verka í líkamanum til að kalla fram ónæmi gegn sjúkdómnum. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra Lyfjastofnunar, og Kolbein Guðmundsson yfirlækni stofnunarinnar.

    16. Lyf á meðgöngu og við brjóstagjöf - umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Oct 6, 2020 13:18


    Þegar kona verður barnshafandi er að mörgu að hyggja í því sem snýr að heilsufari. Eitt af því er lyfjanotkun, hvað er óhætt og hvað þarf að varast í þeim efnum. Því eins og segir á vef heilsugæslunnar berast flest lyf sem mælast í blóði móður, í gegnum fylgjuna til fóstursins. -Rætt er við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, teymisstjóra í matsdeild Lyfjastofnunar, og einn helsta sérfræðing stofnunarinnar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    15. Klínískar lyfjarannsóknir - hvernig fara þær fram ? - Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Jun 16, 2020 32:56


    Nú á tímum Covid-19 faraldursins heyrist oftar en áður talað um klínískar rannsóknir á lyfjum og bóluefnum, rannsóknir sem ýmist eru að hefjast eða þegar hafnar. En hvað eru klínískar lyfjarannsóknir, hvernig fara þær fram, hverjir taka þátt í þeim, hvernig er eftirliti með þeim háttað ? –Í þessum hlaðvarpsþætti Lyfjastofnunar útskýra tveir af sérfræðingum stofnunarinnar, þeir Kolbeinn Guðmundsson yfirlæknir og Hjalti Kristinsson deildarstjóri lyfjaöryggisdeildar, í hverju þessar rannsóknir felast, og hversu mikilvægur þáttur þær eru í því sem snýr að öryggi lyfja áður en þau eru sett á markað. –Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    14. Verkefni Lyfjastofnunar á tímum COVID-19 - umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Apr 17, 2020 29:45


    Á tímum COVID-19 hefur starfsemi Lyfjastofnunar að stærstum hluta snúist um verkefni sem tengjast heimsfaraldrinum. Hér er rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra um hvernig unnið hefur verið að því að tryggja lyfjabirgðir í landinu og koma í veg fyrir skort vegna hamsturs. Þá er rætt við Kolbein Guðmundsson lækni og sérfræðing hjá Lyfjastofnun um samvinnu lyfjastofnana í Evrópu við að flýta fyrir rannsóknum og þróun lyfja og bóluefnis við sjúkdómnum.

    13. Lyfjaskortur - ástæður og úrræði - umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Jan 20, 2020 23:34


    Síðustu misseri hefur í auknum mæli verið fjallað um lyfjaskort í fjölmiðlum enda hefur vandi vegna lyfjaskorts farið vaxandi. -Lengi var viðtekinn skilningur hér heima sá, að lyfjaskorts yrði sérstaklega vart á Íslandi og einangrun væri um að kenna en svo er ekki; lyfjaskortur er alþjóðlegt vandamál. Hér er rætt við Hjalta Kristinsson deildarstjóra lyfjaöryggisdeildar Lyfjastofnunar. Talað erum ástæður lyfjaskorts, hvort skortur tengist ákveðnum lyfjaflokkum, til hvaða úrræða Lyfjastofnun hefur gripið, og samvinnu lyfjastofnana í Evrópu til að takast á við vanda vegna lyfjaskorts.

    12. Aukaverkanatilkynningar - umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Nov 28, 2019 16:01


    Aukaverkanatilkynningar veita miklivægar upplýsingar um verkun og öryggi lyfja. Rætt við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, einn helsta sérfræðing Lyfjastofnunar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. M.a. fjallað um hvernig tilkynningar um aukaverkanir eru unnar og meðhöndlaðar, hverju slíkar tilkynningar skila, og spurt hvort ekki séu til nein lyf sem eru án aukaverkana.

    11. Sýklalyfjaónæmi - umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Nov 21, 2019 13:13


    Dagana 18. -24. nóvember 2019 stendur yfir alþjóðleg vitundarvika um sýklalyfjaónæmi og skynsamlega notkun sýklalyfja. -Rætt við Kolbein Guðmundsson, yfirlækni Lyfjastofnunar um hvernig sýklalyf verka, og hvernig ónæmi gegn sýklalyfjum getur orðið til.

    10. Insúlín - alþjóðlegur dagur sykursýki - umsj. Hanna G. sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Nov 14, 2019 13:54


    Þann 14. nóvember er árlega haldinn alþjóðlegur dagur sykursýki til að vekja athygli á sjúkdómnum. Sykursýki stafar af ójafnvægi í insúlínbúskap líkamans, eða jafnvel algjörum skorti á insúlíni. Úr því þarf að bæta með lyfjagjöf. -Rætt við Hrefnu Guðmundsdóttur lyflækni og sérfræðing hjá Lyfjastofnun.

    sigur dagur umsj lyfjastofnun
    9. - Hlutverk Lyfjastofnunar - umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Nov 1, 2019 15:57


    Þegar þetta hlaðvarp fer í loftið eru nákvæmlega 19 ár frá því að Lyfjastofnun hóf starfsemi. Af því tilefni er fjallað um hlutverk og starfsemi stofnunarinnar. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar, sem segir frá ýmsum áskorunum í starfinu svo sem lyfjaskorti, eftirliti með lækningalækjum og Brexit. Einnig eru nefndar til sögunnar systur tvær frá Sjanghæ !

    8. Netverslun með lyf – umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Oct 3, 2019 20:15


    Verslun og viðskipti á netinu færast í vöxt, og lyf eru seld þar eins og hver annar varningur. Og þó - því lyf eru ekki eins og hver annar varningur að því leyti að um framleiðslu þeirra, dreifingu og geymslu gilda strangari reglur en um flestar aðrar vörur. Allt er það með öryggi notandans í huga, því afleiðingar af notkun lyfs sem ekki hefur fengið vottun lyfjayfirvalda um ítrustu kröfur, geta verið alvarlegar. Ríki heims hafa því víðast hvar sett skýrar reglur um sölu lyfja gegnum netið. Á EES svæðinu hefur þannig verið innleitt sameiginlegt kennimerki fyrir netapótek, til að aðstoða neytendur við að beina viðskiptum sínum til lögmætra vefverslana með lyf. Kennimerkinu er ætlað að fyrirbyggja að ólögleg og fölsuð lyf fari í dreifingu til almennings. –Rætt við Sindra Kristjánsson, lögfræðing hjá Lyfjastofnun.

    7. Samheitalyf – þau lúta sömu gæðakröfum og frumlyf - umsjón Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Aug 30, 2019 15:56


    Hefur þér verið boðið samheitalyf í apóteki og þú verið á báðum áttum ? Hér er skýrt hvað samheitalyf eru og að hvaða leyti þau eru frábrugðin frumlyfinu sem þau eru byggð á. –Rætt við Rúnar Guðlaugsson lyfjafræðing, sérfræðing á upplýsingadeild Lyfjastofnunar.

    6. Fylgiseðlar lyfja - uppáhaldslesningin þín ? - umsjón Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Jul 26, 2019 11:24


    Öllum lyfjum sem eru á markaði fylgja upplýsingar fyrir notendur. Í pakkningum lyfja eru þannig prentaðir fylgiseðlar á blaði, en fylgiseðla má líka nálgast rafrænt á serlyfjaskra.is -En hvaða upplýsingar geymir fylgiseðillinn ? Jana Rós Reynisdóttir deildarstjóri hjá Lyfjastofnun fer yfir það og segir litla dæmisögu sem sýnir hve mikilvægt er að lesa fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið.

    sigur umsj lyfjastofnun
    5. Lyf við biti lúsmýs, geitungastungum og frjókornaofnæmi - umsjón Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Jul 5, 2019 9:53


    Fjallað er um sumartengt ofnæmi og lyf við því. Lúsmý og viðbrögð við biti þess eru sérstaklega í sviðljósinu að gefnu tilefni, en einnig koma við sögu geitungar og frjókorn. -Rætt við Kolbein Guðmundsson, yfirlækni Lyfjastofnunar.

    4. Varasöm lyf í blóði ökumanna - umsjón Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Jun 11, 2019 28:15


    Rætt við Adam Erik Bauer réttarefnafræðing og verkefnastjóra á Rannsóknastofu HÍ í lyfja- og eiturefnafræði. Hann hefur tekið saman niðurstöður rannsókna síðustu sex ára á blóðsýnum ökumanna sem reynst hafa verið undir áhrifum lyfja í akstri. Fjölgun slíkra tilvika er ógnvænleg.

    3. Lyfjaskortur er alþjóðlegt vandamál - umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later May 28, 2019 13:01


    Umræða um lyfjaskort hefur verið talsvert áberandi í íslenskum fjölmiðlum síðustu misseri. Spurt hefur verið um ástæður og úrræði, og stundum látið að því liggja að um séríslenskan vanda sé að ræða. -Hér er rætt við Cathrine Klerck, teymisstjóra lyfjaskortsteymis hjá norsku lyfjastofnuninni, NOMA. Í máli hennar kemur fram að um alþjóðlegan vanda er að ræða.

    2. Lyfjaskil og förgun lyfja - umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Apr 11, 2019 13:05


    Fjallað um mikilvægi þess að skila afgangslyfjum til förgunar, og hverjir sjá um að taka á móti þeim og eyða. Einnig vangaveltur um hvort skilalyf geti eða hafi hugsanlega ratað á svarta markaðinn. Rætt við Brynhildi Briem deildarstjóra á eftirlitssviði Lyfjastofnunar.

    1. Bóluefni - umsjón Hanna G. Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Mar 27, 2019 15:55


    Hlaðvarp Lyfjastofnunar kynnt í samtali við Jönu Rós Reynisdóttur deildarstjóra upplýsingadeildar, og rætt við Hrefnu Guðmundsdóttur lyflækni og sérfræðing á Lyfjastofnun um bóluefni.

    sigur hla umsj lyfjastofnun

    Claim Hlaðvarp Lyfjastofnunar

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel