POPULARITY
Siggi Gunnars stýrði Popplandi dagsins. Hann fjallaði um Söngvakeppnina 2025, spilaði nýja tónlist, tók á móti póstkortum og opnaði fyrir símann. Þá gerðu þau Arnar Eggert og Andrea Jónsdóttir upp plötu vikunnar, Ég á móti mér með Izleifi. Spiluð lög: 12.40 til 14.00 Friðrik Dór Jónsson - Aftur ung (Dansaðu við mig). GÓSS - Eitt Lag Enn. BRIMKLÓ - Eitt Lag Enn. PROPELLERHEADS & SHIRLEY BASSEY - History Repeating. Ezra Collective & Olivia Dean - No Ones Watching Me. Olivia Dean - Dive. THE KINKS - Sunny Afternoon. Lola Young - Messy. FUN & JANELLE MONÁE - We Are Young. Bía - Norðurljós. EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON - Norðurljós. Maggie Rogers- In The Living Room. *Umfjöllun um Plötu vikunnar* Izleifur - Andvaka. Coldplay - ALL MY LOVE. 14.00 til 16.00 Árný Margrét - Day Old Thoughts. Bill Withers - Lovely Day. Ágúst - Eins og þú. ÍRAFÁR - Fáum Aldrei Nóg. Morgan Wallen - Love Somebody. SAM FENDER - Getting started. Þorvaldur Halldórsson - Á sjó. LEONARD COHEN - Suzanne. Lady Gaga & Bruno Mars - Die With A Smile. Birnir - Spurningar (ft. Páll Óskar). Isadóra Bjarkardóttir Barney - Stærra. Snorri Helgason - Borgartún. BIRGO - Ég flýg í storminn. Regína Ósk - Þér Við Hlið. Gracie Abrams - That's So True. NOAH AND THE WHALE - L.I.F.E.G.O.E.S.O.N.. Spacestation - Í draumalandinu. Retro Stefson - Kimba. Rogers, Maggie - Don't Forget Me.
Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera að venju. Við hringjum í Inga Þór Steinþórsson körfuboltagúrú um úrslitaeinvígin sem eru í gangi og spyrjum um gang mála hjá honum. Björgvin Þór Rúnarsson handboltagúrú er svo á línunni og við ræðum um einvígi Aftureldingar og FH og einnig um evrópukeppnina hjá Val. Umfjöllun um Bestu-deildina er á sínum stað sem og bikarinn en í dag var dregið í 8-liða úrslit karla og kvenna. Enski boltinn er búinn og til hamingju Man.City aðdáendur með ykkar lið. Þetta og margt fleira er í þætti dagsins. Takk BK-kjúklingur, Marpól og Slysalogmenn.is
Við ætlum að forvitnast um réttarhöld sem nú fara fram yfir Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og nú aftur forsetaframbjóðanda. Málið snýst um greiðslur til klámmyndaleikkonunnar sem kallar sig sig Stormy Daniels sem voru greiddar til að tryggja að hún segði ekki opinberlega frá sambandi sínu við forsetann fyrrverandi í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Og hvaðan greiðslurnar komu þegar upp var staðið. Við tölum um þetta mál við Friðjón R. Friðjónsson sem er sérstakur áhugamaður um bandarísk stjórnmál og hefur fylgst grannt með. Svo ræðum við neytendamál við Bryndísi Pétursdóttur framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Umfjöllunarefnið er forsíðuefni nýjasta tölublaðs Neytendablaðsins þar sem fjallað er um litarefni í matvælum sem sum geta verið óholl - sérstaklega börnum. Við fáum svo umhverfispistil í lok þáttar frá Esther Jónsdóttur hjá Ungum umhverfissinnum.
Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirberg er gestur Heilsuvarpsins. Eirberg selja vörur sem efla heilsu, auka lífsgæði, auðvelda störf og daglegt líf. Undir þeim hatti eru ALTRA hlaupaskór sem og Vivo barefoot skór. Umfjöllunarefni þáttarins er hvernig skór eru bestir í hlaup, göngur sem og daglegt líf. Mjög fróðlegur þáttur fyrir alla sem vilja gefa fótunum sínum alla ást sem þeir eiga skilið með hágæðaskóm. @eirberg Heilsuvarpið er í boði Nettó og Now á Íslandi @nowiceland @netto.is
Kynheilbrigði og fjölbreyttur taugaþroski er yfirskriftin á árlegri vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar sem haldin verður á fimmtudag og föstudag á Hótel Nordica. Umfjöllunarefnið er kynheilbrigði frá bensku til fullorðinsára og hvernig hægt er að mæta betur fjölbreyttum taugaþroska barna og skoðuð verður staðan og þjónustan í þessum málaflokki og fleira. María Jónsdóttir, félagsráðgjafi á Ráðgjafar- og greiningarstöð, kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um það sem þarna fer fram. Hin árlegi Alþjóða hláturdagur verður haldinn 5. maí næstkomandi við þvottalaugarnar í Laugardal með það að markmiði að vekja athygli á hlátri, gæðum hláturs og finna hina barnslegu leikgleði sem svo mörg okkar eiga til að gleyma í alvarleika lífsins. Við ræddum við Finnboga Þorkel Jónsson, hláturjógaleiðbeinanda og eiganda Gleðismiðjunnar, í þættinum. Finnbogi fræddi okkur um sögu hláturjóga og ávinningin og kenndi okkur í beinni útsendingu hlátursláttuvélina, sem er æfing til að koma af stað hlátri. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í veðurspjallið. Hlýnun jarðar veldur því að tilvikum ókyrrðar fer fjölgandi. Umfjöllun var um málið í BBC um helgina og Einar fræddi okkur um ókyrðina sem hefur aukist með hlýnun loftslagsins.Svo voru það sólskinsmælingar í Reykjavík og fjöldi sólarstunda. Apríl er að ljúka og mars var sérlega sólríkur suðvestanlands. Er aprílsólarmetið í Reykjavík að falla? Svo fór Einar að lokum aðeins yfir veðurspána framundan. Tónlist í þættinum í dag: S.O.S. Ást í neyð / Hljómsveit Magnúsar Ingimarsson (Moroder & Holm, texti Ómar Ragnarsson) Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson) Build Me Up Buttercup / The Foundations (Mike D'Abo & Tony Macaulay) Fjórir kátir þrestir / Sigrún Jónsdóttir (erlent lag, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Hvernig tengjumst við stöðum og hvaða tök hafa þeir á okkur? Þetta hafa þjóðfræðingar við Háskóla Íslands rannsakað í nokkur ár í rannsóknarverkefni sem kallast aðdráttarafl arfleifðar og staðartengsl í borgarlandslagi, (ágætis tungubrjótur það). Þátttakendur í rannsókninni hafa spásserað um miðborg Reykjavíkur með upptökugleraugu á nefinu og talað um þær minningar og tilfinningar sem umhverfið, hvort sem það er hús, köttur eða gangstéttarhella vekur hjá þeim.Við ræðum við þau Ólaf Rastrick, prófessor í þjóðfræði og Snjólaugu Guðrúnu Jóhannesdóttur, doktorsnema. Við heyrum líka málfarsmínútu frá Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunauti, hún fjallar um einmitt, nákvæmlega og nefnilega. Svo ætlar Vera Illugadóttir að heiðra okkur með nærveru sinni. Umfjöllunarefni hennar er, sem fyrr, dýr og sérstaklega dýr sem hafa valdið spellvirkjum og jafnvel þurft að svara til saka fyrir óknytti.
Kæru hlustendur , þá er stóra ballið formlega hafið - Úrslitakeppnin !! Umfjöllun um leikina og staðan tekin eftir fyrsta leikdag: Valur - Höttur í boði MVA Njarðvík - Þór Þ í boði JBÓ Pípulagna Keflavík - Álftanes í boði Blue Car Rental Grindavík - Tindastóll í boði King Ingibergs Deandre Kane , Remy Martin , Kristófer Acox og allar stjörnurnar eru mættar til leiks og nóg af sögulínum sem farið er yfir á Endalínunni.
40% fimmtán ára nemenda á Íslandi búa ekki yfir grunnhæfni í lesskilningi. Þetta kemur fram í niðurstöðum úr PISA-könnuninni 2022 sem voru birtar í dag. Hvað er OECD? Hvað er PISA? Af hverju fengum við svona lága einkun í PISA? Og hverju er það að kenna? Og hverja erum við að bera okkur saman við og af hverju? Við fáum nokkra Rúvara til að taka PISA-prófið umrædda. Katrín Helga Ólafsdóttir heldur áfram að fjalla um listir og menningu nágrannaþjóða okkar á Norðurslóðum. Að þessu sinni fjallar hún um samíska tónlist. Við heyrum líka um vinsælasta lagið í Ísrael þessa stundina, Charbu Darbu með dúettnum Ness og Stilla. Umfjöllunarefnið er hefnd og hernaður. ?Í landi þar sem tónlistarmenn hafa yfirleitt nálgast átökin með skarpri greiningu, þá er óþægilegt að sjá þennan stríðsæsingasöng á toppi vinsældalistans,? skrifar blaðamaður ísraelska fréttamiðilsins Forward. Aðrir hafa gengið lengra og sagt það hvetja til þjóðarmorðs.

Hitað var upp fyrir 11.umferðina í Olís-deildinni þar sem áhugaverðir leikir fara fram í vikunni. Þá heyrðum við í Ragnari Hermannssyni, Boltablogginu sjálfu sem fór yfir landsleikina hjá kvennalandsliðinu í aðdraganda HM og það sem koma skal. Umfjöllunin um kvennalandsliðið er í boði Vogue - fyrir heimilið.
Umfjöllun hlaðvarpsins að þessu sinni tengist málþingi sem fram fór í byrjun októbermánaðar þar sem fjallað var um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferða, með sérstaka áherslu á fjöllyfjanotkun. Einn frummælenda á málþinginu var Einar Stefán Björnsson, prófessor við HÍ og lyflæknir á Landspítala. Hann fræðir hér um hvernig slík endurskoðun fer fram, talar um að þessum þætti lækninga mætti sinna í meira mæli, og hver ávinningurinn getur orðið. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Spegillinn 13.04. 2023 Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórnandi fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Slökkviliðið telur brýnt að fá auknar heimildir til að skoða íbúðarhúsnæði í útleigu. Dæmi eru um að leigjendur veigri sér við því að kvarta vegna ónógra brunavarna af ótta við að missa húsnæðið. Tveir starfshópar innviðaráðuneytisins hafa unnið að útfærslu á tillögum um úrbætur í þessum efnum síðan í apríl 2022. Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri Vogs og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir að á hverjum degi innritist tveir einstaklingar til meðferðar vegna ópíóíðafíknar og að fólkið sem ánetjist slíkum lyfjum sé yngra nú en áður hafi þekkst. Íslenskur læknir hefur verið sviptur réttindum til að ávísa ópíóíðalyfjum eftir að hann varð uppvís að því að ávísa morfíni og oxýkódini í kílóavís til eins sjúklings. Fimmtán starfsmönnum rússneska sendiráðsins í Ósló verður vísað úr landi fyrir njósnir á næstunni. Umfjöllun norrænu ríkisfréttamiðlanna um njósnir Rússa á Norðurlöndum hefst í næstu viku. Flestar kóngulær eru einfarar - en þó ekki allar. Fundist hafa tegundir sem teljast til svokallaðra félagskóngulóa - og lifa margar saman í sátt og samlyndi. Óvenjuvænn þorskur hefur ratað í net færeyskra sjómanna undanfarið, eftir nokkur mögur ár. Dæmi eru um að allt að 23 kílógramma þorskar hafi veiðst. ---------- Nýverið birti Umhverfisstofnun skýrslu um mat sérfræðinga sinna á ástandi 146 áfangastaða ferðafólks innan friðlýstra svæða, þar á meðal í Vatnajökulsþjóðgarði og Þjóðgarðinum á Þingvöllum. Hver staður fær heildareinkunn á bilinu 0 - 10 út frá niðurstöðum mats á fjölmörgum þáttum, og sú einkunn segir til um hvort og þá hve mikil hætta sé á að staðurinn missi verndargildi sitt. Kristín Ósk Jónasdóttir fer fyrir teymi náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun. Hún segir niðurstöðurnar bara giska jákvæðar. Náttúruvá eykst hér á landi og við því þarf að bregðast. Skortur á sérhæfðu starfsfólki verður mikil áskorun fyrir ríkisstofnanir sem sinna eftirliti og rannsóknum. Viðbótarkostnaður vegna náttúruvár nemur 8,1 milljarði frá árinu 2008.Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var 13.04., þar sem fjallað er um náttúruvá frá ýmsum sjónarhornum. Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir margt skýra aukna náttúruvá. Íbúum í Sapporo og fleiri borgum á Hokkaídó-eyju í Japan brá mörgum hverjum í brún þegar loftvarnaflautur voru þeyttar laust fyrir klukkan hálf átta að morgni fimmtudags. Þegar flauturnar þögnuðu heyrðist rödd sem skipaði fólki að leita skjóls. Ástæðan

Í byrjun þáttar var rifjað upp að fimmtíu ár eru í dag síðan landhelgi Íslands var færð út í 50 mílur. Umfjöllun Guðrúnar Hálfdánardóttur um málefni útlendinga hélt áfram. Rætt var um atvinnu- og dvalarmál við Guðmund Inga Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, og þingkonurnar Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, Helgu Völu Helgadóttur og Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur. Í Heimsglugga dagsinsins fjallaði Bogi Ágústsson m.a. um kosningabaráttu í Svíþjóð og Brasilíu og nýja vindmyllugarða í Norðursjó. 50 ár eru í dag síðan Bobby Fischer varð heimsmeistari í skák. Þá gaf Boris Spassky lokaskákina og þar með var ljóst að hann næði ekki Fischer að vinningum. Helgi Ólafsson stórmeistari rifjaði lokaskákina og aðrar upp og ræddi vítt og breitt um einvígið. Tónlist: Perhaps love - John Denver, Í landhelginni - Haukur Morthens, Autumn sun - Emilíana Torrini, Landgrunnið allt - Ómar Ragnarsson. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Umfjöllun um erlend málefni var fyrirferðarmikil í þættinum í dag. Stjórnmálasamband Íslands og Eystrasaltsríkjanna; Eistlands, Lettlands og Litháen verður í brennidepli en á morgun föstudag verður 31 ár liðið frá því að það komst á, á ný með undirritun yfirlýsingar í Höfða í Reykjavík. Í aðdraganda þess höfðu ríkin þrjú sagt sig úr sambandi Sovétríkja og Ísland viðurkennt sjálfstæði þeirra, fyrst ríkja í heiminum. Forsetar Eystrasaltsríkjanna koma til Íslands í dag ásamt mökum og sendinefndum og mikil dagskrá stendur fyrir dyrum. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, kom til okkar og ræddi Eystrasaltsríkin, söguna og samband okkar. Allt stefnir í spennandi kosningar í Svíþjóð eftir rúmar tvær vikur. Fylkingarnar tvær, sú rauða og sú bláa, mælast nánast hnífjafnar í skoðanakönnunum, en hreyfing er á fylginu innan þeirra. Við ræddum stöðuna þegar Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Framhaldsskólarnir hófust flestir í vikunni. Það átti við um Menntaskólann að Laugarvatni sem var settur í gærmorgun. Tekið var á móti nýnemum og þeim sýnd ný húsakynni fyrr í vikunni - ML er jú heimavistarskóli. Þetta var fyrsta skólasetning skólameistarans, Jónu Katrínar Hilmarsdóttur, en sagði okkur frá starfinu, lífinu og tilverunni í sveitinni fögru. Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Walk on by - Dionne Warwick Across the universe - Bítlarnir Three little birds - Bob Marley

Umfjöllun Tölvuleikjaspjallsins um Veldið Illa heldur ótrauð áfram. Í fyrri þætti (nr 106, mælum með) fórum við yfir upphaf fyrirtækisins og hvað var verið að bralla innan veggja fyrirtækisins fyrstu áratugina. Það var slatti. Í þætti vikunnar fjöllum við um ástandið frá sirka 2000 til 2010. Hvað var EA að gera sem þótti svo skítlegt að innan bransans eru þau þekkt sem Evil Empire? Slatta. Við fjöllum betur um Project Ten Dollar, "EA Spouse" málið, framkomu þeirra við starfsfólk sitt og um öll þau fyrirtæki sem EA hefur keypt og drepið yfir árin. Þau eru mörg. EA er það vont fyrirtæki að við þurfum að gera allavega einn þátt í viðbót - sem þýðir að ef ykkur finnst við gleyma einhverju sem þarf að minnast á, þá getið þið sent það á okkur og við höfum það með í næsta. Þátturinn er í boði Elko Gaming, Hringdu og Yay! Gjafakortaappsins.
Hafa íslensk stjórnmál náð jafnvægi eftir kúvendinguna frá 2008? Leita þau aftur í sama farið eða eru einhverjir hlutir varanlega breyttir? Íslenska kosningarannsóknin leitast við að svara ýmsum spurningum um kosningahegðun okkar, og nú liggja fyrir ýmsar niðurstöður eftir síðustu kosningar. Agnar Freyr Helgason, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sagði frá. Umfjöllun Morgunvaktarinnar um hamingjuna heldur áfram í dag. Í síðustu viku heyrðum við um skilgreiningar á hamingju og veltum fyrir okkur hvað við getum gert til að verða hamingjusamari. Í dag spyrjum við; hvað geta ráðamenn gert betur til að skapa okkur skilyrði til hamingjuríkrar tilveru? Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur ræddi þessi mál við okkur. Og svo er það lífið og tilveran í Hvalfjarðarsveit. Í sveitarfélaginu búa rúmlega sjö hundruð manns, ýmist í sveitinni eða þéttbýliskjarnanum Melahverfi. Þar eru Akrafjall og Skarðsheiðin, Grundartangi og Glymur, en þótt sveitarfélagið dragi nafn sitt af Hvalfirðinum er hann ekki nema hálfur innan marka þess. Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri sagði frá menningu og mannlífi í Hvalfjarðarsveit. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Walkin after midnight ? Patsy Cline Your latest trick ? Dire Straits Upp í sveit - Brimkló Láttu þér líða vel - Stjórnin

Gæti ég skaðað ófætt barnabarn mitt með því að borða þennan hamborgara er heiti á erindi sem flutt verður á Norrænu þjóðfræðiráðstefnunni í dag. Umfjöllunarefnið snýst um jurtafæði og sjálfbært, vistvænt mataræði á Íslandi og við fengum fyrirlesarann Auði Viðarsdóttur til okkar til að segja okkur meira. Sjósund nýtur vaxandi vinsælda, en það eru þó fáir sem leggjast til sunds á hafi úti og synda langar leiðir. Það ætlar Sigurgeir Svanbergsson hins vegar að gera í næsta mánuði þegar hann hyggst synda frá Vestmannaeyjum og í land. Allt er þetta gert til styrktar góðu málefni. Við fengum kappann til okkar. Staðið hefur styr um flugfélagið Play Air undanfarna viku. Tíðar fréttir hafa borist af seinkunum, afbókunum og rauðu neyðarstigi á Keflavíkuflugvelli og fólk á samfélagsmiðlum hefur spurt sig hvort óhætt sé að fljúga með flugfélaginu. Forstjóri Play, Birgir Jónsson, svaraði fyrir þetta. Alþingi verður frestað fram yfir sumarleyfi í dag en óhætt er að segja að þingmenn hafi þurft að hafa fyrir þinglokum eins og jafnan er á þessum árstíma. Hin ýmsu mál hafa verið afgreidd á færiböndum, öðrum hefur verið frestað og um einhver hefur verið samið í bakherbergjum Alþingis fjarri vökulum augum kjósenda. Þingflokksformennirnir Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn og Orri Páll Jóhannsson frá Vinstri grænum komu til okkar til að spjalla við okkur um þinglok og hvernig kaupin gerast á eyrinni, Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir hefur átt í samtölum við Samtökin 78 hér á landi til að koma á framfæri fræðslu um apabóluna en bæði heilbrigðisyfirvöld og aðrir reyna að feta þröngan stíg á milli upplýstrar umræðu og fordóma gegn samkynhneigðum karlmönnum. Hlustendur þekkja það auðvitað vel hversu alvarlegar afleiðingar það hefur að spyrða sjúkdóma saman við hinseginfólk eða aðra minnihlutahópa og í ljósi sögunnar er ljóst að umræðan er afskaplega viðkvæm. Formaður Samtakanna 78, Álfur Birkir Bjarnason, ræddi þessa viðkvæmu stöðu við okkur. Tónlist: Emilíana Torrini - Unemployed in summertime. Michael Kiwanuka - Cold little heart. Purple Disco Machine - In the dark. Hjálmar og GDRN - Upp á rönd. R.E.M. - Man on the moon.

Það styttist óðfluga í HUNDRAÐASTA þáttinn okkar og því hendum við í einn léttan þátt um áhugaverðan leik! Umfjöllunarefni vikunnar er einhvers konar bræðingur af Halo, Portal og öðrum FPS leikjum. Útkoman er Splitgate, leikur sem kemur á óvart þrátt fyrir að vera nokkur einsleitur við fyrstu sýn. Spilarar koma saman í alls kyns leikjategundum en algengasta markmiðið er að slátra hinu liðinu áður en það slátrar þér og þínum. Ólíkt öðrum fjölspilara fyrstu persónu skotleikjum þá eru leikmenn gæddir eins konar víddarbyssu eiginleikum - þú getur flakkar hornanna á milli í gegnum víddir, eða portal, sem gerir slátrunina talsvert auðveldari. Arnór Steinn og Gunnar ræða þennan leik í þaula og reyna að komast að niðurstöðu hvar hann kemst fyrir á markaðnum. Er pláss fyrir Splitgate eða er þetta annar gleymanlegur klóni? Við erum mjög forvitnir að vita hvort hlustendur hafi prófað leikinn - endilega sendið á okkur! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Sameiginleg útsending rásar 1 og rásar 2. Jón Björgvinsson, fréttaritari RÚV, hefur verið í Úkraínu undanfarna daga. Í gær ræddi hann við óbreytta borgara við landamæri landsins sem voru ekki að flýja til vesturs heldur að halda gegn straumnum til austurs til að berjast í Úkraínu. Við ætlum að ræða við Jón um stöðuna í landinu og almennt um störf hans en hann hefur farið víða á undanförnum árum, og fjallað um átök í Nagorno Karaback, Afganistan eftir valdatöku Talibana og styrjöldina í Jemen, svo fátt eitt sé nefnt. Þau sem stunda útivist hafa sum hver séð áhrif loftslagsbreytinga með eigin augum. Til dæmis hörfandi jöklar og aðrar breytingar á náttúru og veðurfari sem greina má betur með hverju árinu sem líður. Ferðafélag Íslands og Stofnun Sæmundar Fróða við Háskóla Íslands standa í kvöld fyrir viðburði fyrir fólk sem hefur áhuga á fjallamennsku en vill tryggja það að það gæti að umhverfisvernd, og sérstaklega loftslagsmálunum, þegar útivistin er stunduð. Til okkar koma Hafdís Hanna Ægisdóttir forstöðumaður stofnunar Sæmundar Fróða og Matthildur Óskarsdóttir sem hefur titilinn Loftslagsleiðtogi. Fréttir berast nú af óbreyttum borgurum sem falla í innrás Rússa í Úkraínu, að sprengjur falli á skóla og að innviðir á borð við rafmagnslínur, vatnsleiðslur og vegir séu eyðilagðir. Allt þetta er verndað af alþjóðlegum manníðarlögum, Genfarsamningunum og þremur viðbótarbókunum við þá, en Alþjóðaráð Rauða krossins er verndari þeirra, eins og Brynhildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi, benti á í grein í gær. VIð ætlum að ræða við hana um lög í stríði og starf samtakanna í átökum sem þessu. Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í Morgunvaktinni á hverjum fimmtudegi - og á því er engin undantekning í dag. Umfjöllun um innrás Rússa í Úkraínu voru fyrirferðamikil að þessu sinni. Maður vex aldrei upp úr góðri fjársjóðsleit er það nokkuð? 13. mars næstkomandi frumsýnir RÚV nýja íslenska heimildamynd um leitarverkefni sem er í gangi þar sem markmiðið er að staðsetja hið nánast goðsagnakennda kaupskip, Het Wapen Van Amsterdam sem fórst árið 1667 á Skeiðarársandi með gífurlegt magn verðmæta um borð. Hátt í 200 manns fórust í strandinu og er þetta enn í dag mannskæðasta sjóslys við Ísland fyrr og síðar. Til okkar koma Jón Ársæll Þórðarson sjónvarpsmaður og Gísli Gíslason en hann átti frumkvæðið að því að fá nokkra vel efnaða kunningja til að fjármagna þessa miklu leit. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson og Snærós Sindradóttir.

Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar Íslenskra bókmennta og Dögg Hjaltalín, útgefandi hjá Sölku, koma í heimsókn og segja frá stemningunni á bókmessunni í Frankfurt, sem lauk um liðna helgi. Gréta Sigríður Einarsdóttir fjallar um nýjasta verk Þórarins Eldjárns, smásagnasafnið Umfjöllun. Ástráður Eysteinsson bókmenntafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands verður tekinn tali um nýlegt ljóðasafn ljóðskáldsins Einars Braga sem hefur að geyma frumort ljóð skáldsins og merkar ljóðaþýðingar hans. Listahátíðin Sequences var haldin í tíunda sinn þetta árið, og var yfirskrift hátíðarinnar þetta árið Kominn tími til. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir fjallar um hátíðina í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir
Þórarinn Eldjárn gaf út nýja bók í vikunni. Bókin nefnist Umfjöllun og þar er að finna átta smásögur, bæði stuttar og langar. Þórarinn ræddi bókina og skáldskapinn á Morgunvaktinni í dag. Talið barst að hlaupum en Þórarinn er mikill hlaupari og fer yfirleitt út að hlaupa þrisvar sinnum í viku, hvort sem hann er staddur í Svarfaðardalnum eða í Reykjavík. Hann stefnir á að hlaupa hálft maraþon með Ara syni sínum fyrir 20. september en þeir deila vegalengdinni sín á milli. Stjórnmálin voru á sínum stað og mættu þau Anna María Sigurðardóttir frá Frjálslynda lýðræðisflokknum og Björgvin G. Sigurðsson frá Samfylkingu og fóru yfir kosningabaráttuna en það styttist hratt í kjördag, 25. september. Í dag er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Tilgangur dagsins er að stuðla að forvörnum sjálfsvíga og minnast þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi. Í ár er dagurinn helgaður hugtakinu Í kjölfar sjálfsvígs. Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir er ein þeirra sem kemur að undirbúningi dagsins og hún kom í þáttinn og ræddi ýmsar hliðar sjálfsvíga, ekki síst sorgina sem ekki á að sjúkdómsvæða segir Guðrún Jóna. Tónlist: Farfuglarnir í flutningi Ragnheiðar Gröndal. Í gegnum holt og hæðir - Hinn íslenski þursaflokkur. Albatross með Fleetwood Mac. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.
Hellubúar halda úti facebook hópi og senda þar hverjir öðrum fréttir og gamlar myndir og þess háttar sem fólk gerir á facebook. Í gær birtist þar óvænt frétt en Eskimo er að leita eftir ?fólki í sveitinni til að taka þátt sem aukaleikarar í erlendu verkefni á vegum Neflix.? Síðan segir ?Við leitum að karlmönnum á aldrinum 20-55 ára auk nokkurra annarra um sjötugt, með frekar villimannslegt útlit.? Morgunútvarpið hringdi í mann sem hefur verið þekktur fyrir villimannslegt útlit, sérstaklega á morgnana, en það er Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri í Rangárvallasýslu. Ætlar hann að bjóða sig fram og slá í gegn á Netflix? Í dag hefst bæjarhátíðin Kótilettan á Selfossi. Hátíðin er bæði tónlistarhátíð og mikil grillhátíð enda matarkista landsins á Suðurlandi. Kótilettan er síðar á ferðinni þetta árið vegna faraldursins en þetta er í ellefta sinn sem hún er haldin. Einar Björnsson var á línunni en hann hefur veg og vanda af hátíðinni. Patrekur Jóhannesson handboltamaður tók við silfurmerki Austurríkis við athöfn á Bessastöðum í vikunni en silfurmerkið hlýtur hann fyrir störf að íþróttamálum í Austurríki en þar var hann landsliðsþjálfari um árabil. Það var bróðir Patreks eða Patta eins og hann er kallaður sem vakti athygli á afhendingu silfurmerkisins en hann er auðvitað sjálfur Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands. Við hringdum í Patta og heyrðum um þessa upphefð. Umfjöllun um fréttir vikunnar verða á sínum stað og þau komu í morgunútvarpið Sunna Karen Sigurþórsdóttir fréttamaður á fréttastofu Stöðvar2, Vísis og Bylgjunnar og Stefán Hrafn Hagalín deildarstjóri samskiptadeildar hjá Landsspítalanum. Það var margt að ræða t.d. hina nýju metoo byltingu, greiðslu á hæsta lottóvinningi sögunnar, stöðuna á eldgosinu sem við vitum eiginlega ekki lengur hvort er eldgos, partý og hömluleysi eftir að samkomutakmörkunum var aflétt, brekkusöngur á Þjóðhátíð og svo auðvitað EM fyrir utan allt hitt sem kom við sögu. Tónlistarkonan Klara Elíasdóttir sem þekktust er fyrir veru sína í Nylon og síðar The Charlies var að senda frá sér nýtt lag. Nýja lagið er þjóðhátíðarlag. En ekki eiginlega fyrir Þjóðhátiðina í Eyjum. Klara segir að það sé kominn tími á að kona semji lag fyrir Þjóðhátíð í Eyjum enda aðeins ein kona samið Þjóðhátíðarlag í 84 ár. Með útgáfunni vill hún vekja athygli á kynjahallanum.
Ólöf Salmon Guðmundsdóttir var á línunni hjá okkur og sagði okkur frá umhverfisvænum byggingarkubbum sem hægt er að nota til húsbygginga. Stærsta húsið sem reist hefur verið úr þessum kubbum er rúmlega 500 fermetra sambýli í Hafnarfirði. Orri Páll Ormarsson hefur ritað ástarsöguna Í faðmi ljónsins. Þar er þó ekki um að ræða hefðbundna ástarsögu í þeim skilningi, en engu að síður lýsir hún mikilli ástríðu, sorg og sigrum. Umfjöllunarefnið er enska knattspyrnan og ævilangt samband höfundar við hana ásamt léttri söguskoðun. Orri Páll kíkti í heimsókn og sagði okkur meira. Við heyrðum í Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni og fórum yfir stöðuna eins og hún blasir við núna í heimsfaraldrinum. Að þessu sinni talaði hann við okkur úr sóttkví þar sem hann þarf að vera næstu daga. Í þættinum greindum við frá því hverjir verða nýir dómarar í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna og þau settust hjá okkur, Laufey Haraldsdóttir og Jóhann Alfreð Kristinsson. Tíðindamaður okkar á Spáni, Jóhann Hlíðar Harðarson, var á línunni og sagði okkur m.a. af jafnréttismálum, pilsklæddum drengjum og forpöntuðum fæðingum. Tónlist: Mugison og Ragnheiður Gröndal - Stolin stef. Hafdís Huld - Last rays of the sun. Melody Gardot og Sting - Little something. Sálin hans Jóns míns - Ekkert breytir því. Bjartmar og bergrisarnir - Negril. Harry Styles - Golden. Stephanie Mills - Never knew love like this before. Teitur Magnússon - Kyssti mig. Taylor Swift - Exile (ft. Bon Iver).
Umfjöllunarefni þáttarins í þetta skiptið er spil sem mér hefur alltaf fundist vera frekar forvitnilegt. En ekki vitað neitt um, hugsanlega gert ráð fyrir að með aldrinum þá kvikni á bridge genunum í mér. En á tímum þar sem við erum meira heima og hugsanlega að leita að fleiri hlutum til að gera, fannst mér tilvalið að forvitnast meira um bridge, hvernig það verður til og hvernig maður spilar það. Það er þó vert að taka fram að eins mikið og ég væri til í að þið hlustið, setjist svo niður og byrjið að spila eins og þið hafið aldrei gert annað þá verður það líklegast ekki tilfellið. En vonandi kveikir þetta áhuga til að prófa, athuga og skoða. Sem er auðvitað tilgangurinn eftir allt!

Umfjöllunarefni þáttarins í þetta skiptið eru umferðaljós, fyrirbæri sem hefur líklegast áhrif á líf okkar allra, að minnsta kosti flestra, hvort sem við erum akandi eða ferðumst með öðrum leiðum. Grétar Þór Ævarsson kom í heimsókn en hann vinnur hjá Reykjavíkurborg á samskiptasviði og er líklegast sá aðili á landinu sem veit hvað mest um málið. Ef þið hafið einhvertíman verið stopp á rauðu ljósi og pirrast yfir því hvað það tekur langan tíma að koma grænt, sem á líklegast við um okkur flest, er þetta þáttur sem þið megið ekki láta framhjá ykkur fara. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Fréttamál á fullveldistíma. Fjallað er um ýmis fréttamál og fréttaflutning frá fullveldistímanum með dyggri aðstoð fréttafólks og annarra málsmetandi álitsgjafa. Sjónum er beint að innlendum jafnt sem erlendum fréttum sem varpað geta ljósi á hvern og einn áratug aldarinnar 1918 - 2018, auk þess sem hugað verður að þróun fréttaflutnings og miðlun frétta á þessu tímabili. Umfjöllunarefni fyrsta þáttar eru fréttir áratugarins 2008 - 2018. Sérstaklega er hugað að fréttum um íslenska efnahagshrunið og loftslagsbreytingar af mannavöldum en einnig er litið almennt til þróunar fréttaflutnings og miðlun frétta á þessu tímabili. Gestir þáttarins eru Bergur Ebbi Benediktsson, Björn Malmquist, Fríða Björk Ingvarsdóttir og Þóra Arnórsdóttir. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.
Umfjöllunarefni annars þáttar eru fréttir áratugarins 1998 - 2010. Hugað er sérstaklega að fréttum af virkjaframkvæmdum við Kárahnjúka og hryðjuverkaárásunum á New York og Washington, 11. september 2001. Ennfremur er litið almennt til þróunar fréttaflutnings og miðlunar frétta á þessu tímabili. Gestir þáttarins eru Bergur Ebbi, Björn Malmquist, Fríða Björk Ingvarsdóttir og Þóra Arnórsdóttir. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.
Fjallað er um ýmis fréttamál og fréttaflutning frá fullveldistímanum með dyggri aðstoð fréttafólks og annarra málsmetandi álitsgjafa. Sjónum er beint að innlendum jafnt sem erlendum fréttum sem varpað geta ljósi á hvern og einn áratug aldarinnar 1918 - 2018, auk þess sem hugað verður að þróun fréttaflutnings og miðlun frétta á þessu tímabili. Umfjöllunarefni fjórða þáttar eru fréttir áratugarins 1978 - 1988. Þar verður hugað sérstaklega að fréttum af forsetakjöri Vigdísar Finnbogadóttur árið 1980 og afdrifum Kalda stríðsins sem tók nýja stefnu með leiðtogafundi Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev árið 1986 í Höfða og lauk með táknrænum hætti árið 1989 með falli Berlínarmúrsins. Ennfremur verður litið almennt til þróunar fréttaflutnings og miðlunar frétta á þessu tímabili. Gestir þáttarins eru Elísabet Jökulsdóttir, Óðinn Jónsson, Silja Bára Ómarsdóttir og Styrmir Gunnarsson. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.
Umfjöllunarefni sjötta þáttar eru fréttir áratugarins 1958 - 1968. Fjallað er almennt um fréttalandslagið en jafnframt hugað sérstaklega að tveimur ákveðnum málum. Á innlendum vettvangi bar það til tíðinda strax í upphafi áratugarins, árið 1958 að landhelgin var færð út í 12 sjómílur. Á erlendum vettvangi urðu miklar sviptingar víða um heim sem gjarnan eru kenndar við árið 1968. Í París mótmæltu stúdentar og verkafólk í blóðugum óeirðum, í Bandaríkjunum hafði réttindabarátta svartra staðið um árabil en 4. apríl var Marthin Luther King ráðinn af dögunum í Memphis. Þá naut stríðsrekstur Bandaríkjahers í Víetnam vaxandi óvinsælda og mikil umskipti urðu í stjórnmálum í Tékkóslóvakíu í janúar þetta ár þegar leiðtogar kommúnistaflokksins reyndu að koma á umbótum þar í landi. Umbótatímabilinu, hinu svokallaða vori í Prag, lauk sviplega með innrás Sovétríkjanna 21. ágúst seinna sama ár. Þó atburðirnir séu innbyrðis ólíkir þá kristallast í þeim átök íhaldsafla og þeirra sem kröfðust aukinna borgararéttinda, aukins frelsis og samfélagslegs réttlætis. Í dag eru 50 ár liðin frá þessu tíðindamikla ári, en enn sem fyrr nýtur ártalið 68' ákveðinnar sérstöðu í hugmyndasögunni, að minnsta kosti hér á Vesturlöndum. Gestir þáttarins eru Birna Þórðardóttir, Guðmundur Jónsson, Margrét Heinreksdóttir og Pétur Gunnarsson. Fréttamál á fullveldistíma. Fjallað er um ýmis fréttamál og fréttaflutning frá fullveldistímanum með dyggri aðstoð fréttafólks og annarra málsmetandi álitsgjafa. Sjónum er beint að innlendum jafnt sem erlendum fréttum sem varpað geta ljósi á hvern og einn áratug aldarinnar 1918 - 2018, auk þess sem hugað verður að þróun fréttaflutnings og miðlun frétta á þessu tímabili. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.
Umfjöllunarefni tíunda þáttar eru fréttir áratugarins 1918 - 1928. Fjallað er almennt um fréttalandslagið en jafnframt hugað sérstaklega að tveimur ákveðnum málum. 1. desember tóku Íslendingar tekið við stjórnartaumum landsins af Dönum í öllum helstu megindráttum og stofnuðu fullvalda íslenskt ríki. Þá urðu miklar sviptingar í Rússlandi á svipuðum tíma. Árið 1917 féll keisaraveldið í byltingu bolsévíka undir stjórn Vladimirs Lenín og aðeins nokkrum árum seinna, nánar tiltekið 1922 voru Sovétríkin orðin að veruleika sem áttu eftir að setja mark sitt á tuttugustu öldina svo um munaði. Gestir þáttarins eru Guðmundur Hálfdánarson, Jón Trausti Reynisson, Kristrún Heimisdóttir og Ragnheiður Kristjánsdóttir. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.
Norskur lagaprófessor segir að peningaþvættismál sem hugsanlega tengist Samherja og DNB bankanum í Noregi gæti verið það stærsta í sögu Noregs. Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja, segist hafa vikið tímabundið úr starfi, í von um að umræðan róist. Formaður Neytendasamtakanna segir að Orkuveita Reykjavíkur hafi án heimildar greitt eigendum sínum arð. Veitur segja málið byggt á misskilningi. Alþjóðasakamáladómstóllinn ætlar að láta rannsaka meinta glæpi ráðamanna í Mjanmar gegn minnihlutahópi Róhingja í landinu. Starfsfólk Ísfisks á Akranesi hefur ekki fengið laun í tvo mánuði. Fyrirtækið hefur ekki náð að endurfjármagna sig. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir þolinmæðina á þrotum. Ísland tekur við formennsku Norðurlandaráðs á næsta ári. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, var kjörin forseti ráðsins fyrir árið 2020 á Norðurlandaráðsþingi sem haldið var í Stokkhólmi í síðustu viku. Arnar Páll Hauksson talaði við Oddnýju Harðardóttur og Silju Dögg Gunnarsdóttur um samfélagsöryggi. Umræðunar byrjuðu þó með því að fjalla um Samherjamálið. Mútugreiðslur vestrænna fyrirtækja í fjarlægum heimsálfum hafa lengi verið viðloðandi. GRECO er óformlegur ríkjahópur á vegum Evrópuráðsins og hefur verið leiðandi í baráttunni gegn spillingu. Lagaramminn gegn spillingu embættismanna, hvort sem er heima eða heiman, er því víðast svipaður eða sá sami í Evrópu og þá einnig á Íslandi. Umfjöllun Kveiks um umsvif Samherja í Namibíu vekja spurningar um íslensk lög og einnig um áhrif mútgreiðslna almennt. Sigrún Davíðsdóttir segir frá.
Samgönguráðherra telur að hægt verði að fjármagna 34 milljarða Fjarðarheiðargöng með ríkisfjármögnun og notendagjöldum. Seyðfirðingar og Héraðsbúar afhentu ráðherra nú klukkan sex um eitt þúsund og átta hundruð undirskriftir með áskorun um að flýta gerð ganganna. Forsætisráðherra Danmerkur vill herða gæslu á landamærunum við Svíþjóð. Sænskur maður er í haldi, grunaður um að hafa átt þátt í sprengingu við dönsku skattstofuna í Kaupmannahöfn. Mikið fatlaður maður sem hefur búið á Grensásdeild Landspítalans í tvö ár hefur loksins verið fluttur á varanlegt heimili. Kjörsókn innflytjenda í alþingis- og sveitarstjórnarkosningum hér á landi er mun minni en þátttaka innfæddra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Háskólanum á Akureyri. Landsnet hagnaðist um tvo komma fjóra milljarða á fyrri hluta ársins. Í Speglinum er rætt um stöðu og horfur í uppbyggingu í vindorku hér á landi . Viðmælendur Ketill Sigurjónsson og Auður Anna Magnúsardóttir. Umfjöllun milljarðamæringinn Jeffrey Epstein sem braut kynferðislega á tugum eða hundruðum stúlkubarna um árabil. Páli Jónasson .
Öll þekkjum við til leitarhunda, sem t.d. eru notaðir við fíkniefnaleit eða við björgunarstörf þar sem leitað er að fólki. Færri hafa hins vegar heyrt af mygluleitarhundum, en þeir eru til líka og nú er búið að þjálfa upp einn slíkan hér á landi, Hanz að nafni. Við slógum á þráðinn til Jóhönnu Þorbjargar Magnúsdóttur hundaþjálfara og heyrðum svolítið meira af þessu. Fram kom í fréttum okkar í gær að norskir sjúkraflutningamenn þurftu að bíða í meira en 50 mínútur fyrir utan íbúð Gísla Þórs Þórarinssonar í Noregi á meðan honum blæddi út. Þeir höfðu ekki heimild til að fara inn í íbúðina fyrr en lögregla kom á vettvang. En hverjar eru reglurnar hér á Íslandi, geta komið upp aðstæður þar sem sjúkraflutningamenn standa í sömu eða svipuðum sporum? Birkir Árnason, formaður fagdeildar sjúkraflutninga, ræddi þetta við okkur. Hatari komst áfram í úrslit Eurovisionkeppninnar í gærkvöldi eins og þjóð veit. Björg Magnúsdóttir var auðvitað á staðnum og hún greip Hataramenn og fleiri er málinu tengjast að keppni lokinni og fékk viðbrögð. Við heyrðum í kátu íslensku júró fólki. Þetta lifir með manni, alltaf, er yfirskriftin á erindi Jóhönnu Ólafsdóttur og Sigfríðar Ingu Karlsdóttur á Sjónaukanum 2019, árlegri ráðstefnu heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Umfjöllunarefnið er upplifun ljósmæðra af því að hætta störfum í kjölfar alvarlegra atvika í starfi. Það byggir á rannsóknum Sigfríðar og meistaraverkefni Jóhönnu, sem kom og deildi helstu niðurstöðum með okkur. Guðmundur Jóhannsson mætti í sitt vikulega tæknihorn og ræddi m.a. öryggisgalla í WhatsApp og svo hina dularfullu deild 8200 í Ísrael. Tónlist: Stuðmenn - Ólína og ég. Bruce Springsteen - Hello sunshine. Hafdís Huld - Take me dancing. Liam Gallagher - Paper Crown. Robbie Williams - Jesus in a Camper Van. Hatari - Hatrið mun sigra. Sálin hans Jóns mín - Ekkert breytir því. Don McLean - Vincent. Alice Merton - Lash out. OMAM - Alligator. Black Keys - LoHi.
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir Mikið hvassviðri er skollið á og á Veðurstofan von á því að bæti í vind í kvöld. Veginum milli Hvolsvallar og Víkur hefur verið lokað og verður hann lokaður til morguns. Einnig verður lokað á Skeiðarársandi og í Öræfasveit. Björn Sævar Einarsson er veðurfræðingur á vakt hjá Veðurstofu Íslands lýsti veðurhorfum. Nítján flugfélög hafa kyrrsett farþegaþotur sömu gerðar og þá sem fórst í Eþíópíu í gær. Ekkert þeirra er evrópskt. Töluvert er um að farþegar Icelandair hafi samband við félagið, áhyggjufullir vegna þess að félagið notast við eins þotur og fórst í Addis Ababa í gær. Jóhann Bjarni Kolbeinsson ræddi við Jens Þórðarson , framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair Forsætisráðherra Bretlands gerir í kvöld lokatilraunina til að fá forsvarsmenn Evrópusambandsins til að breyta samningnum um Brexit, útgöngu Breta úr ESB. Þingmenn greiða atkvæði um samninginn á morgun. Ásgeir Tómasson sagði frá. Nemendum í fyrsta til fjórða bekk í grunnskólanum á Ísafirði hefur verið fundið annað húsnæði eftir að mygla fannst í skólanum í síðustu viku. Forsvarsmenn skólans bíða nú niðurstaðna um umfang myglunnar. Halla Ólafsdóttir ræddi við Guðmund Gunnarsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar 46 skiluðu í gær inn umsögn um greinargerð forsætisráðuneytisins um Staðartíma á Íslandi - stöðumat og tillögur í samráðsgátt sem var i var lokað á miðnætti. Anna Kristín Jónsdóttir sagði frá ------------ Umfjöllun um NPA: Það er frekar óljóst hvað nákvæmlega felst í starfi aðstoðarmanns í NPA, þrátt fyrir að um hálft ár sé liðið frá því lög um NPA tóku gildi og fyrstu NPA samningarnir hafi verið gerðir fyrir nokkrum árum. Starfið er óvenjulegt og vaktirnar geta verið allt að tveggja sólarhringa langar. Oftast gengur vel, en ekki alltaf. Sviðsstjóri kjaramála hjá Eflingu segir að dæmi séu um að þangað leiti niðurbrotnir aðstoðarmenn. Það eru líka dæmi um að aðstoðarmenn brjóti á notendum, NPA miðstöðin hefur kært slíkt mál til lögreglu. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Hjört Eysteinsson, framkvæmdastjóra NPA-miðstöðvarinnar, Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA miðstöðvarinnar, Sigurður Egill Ólafsson, aðstorðarmann Rúnars, Ragnar Ólason, sviðsstjóri kjaramála hjá Eflingu Brexit: Allt frá því Jeremy Corbyn var kjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins 2016 hefur afstaða hans til Ísraels og gyðinga verið stöðugt deiluefni. Þegar níu þingmenn sögðu sig úr flokknum nýlega heyrðist and-gyðinglegra afstaða leiðtogans nefnd. Flokkurinn er nú enn á ný heltekinn af þessari umræðu sem stuðningsmenn
Veistu hvað einkennir alvöru hlátur? Það vita Gummi og Vigdís ekki heldur, enda eiga þau í mestu erfiðleikum með að greina gervihlátur hvors annars. Það ætti þó ekki að koma að sök, því hláturinn lengir lífið hvort sem hann er raunverulegur eða ekki. Umfjöllunarefni þáttarins er hláturjóga og í tilefni af því kíkir Ásta Valdimarsdóttir í heimsókn, fræðir okkur um hláturjóga og kennir okkur nokkrar æfingar. Umsjónarmenn: Guðmundur Felixson og Vigdís Hafliðadóttir Stef: Bjarmi Hreinsson
Veistu hvað lélegasta kvikmynd sögunnar kostaði í framleiðslu? Svarið er of mikið. Og peningurinn kom allur úr vasa leikstjórans sem skrifaði líka myndina og ákvað að leika aðalhlutverkið. Umfjöllunarefni þáttarins þessa vikuna er the Room, en hún hefur verið kölluð Citizen Kane lélegra kvikmynda. Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur kíkir í heimsókn og fræðir okkur um myrka fortíð hins dularfulla Tommy Wiseau og segir okkur frá hefðunum sem fylgja því að horfa á myndina í bíó.