POPULARITY
Intervista all’attrice Jasmine Trinca che ci racconta "Maria Montessori - La nouvelle femme" film fortemente biografico di cui è protagonista assieme a Leïla Bekhti, diretto da Léa Todorov.Il cinema sul cinema, apriamo con il regista francese Cédric Kahn per parlare del suo "Making of" film presentato alla Venezia nel 2023 con Denis Podalydès e Jonathan Cohen.Con la regista Cristina Comencini parliamo di cosa significa crescere con una figura paterna di grande rilievo e ovviamente del suo bellissimo e autobiografico "Il tempo che ci vuole", con Fabrizio Gifuni e Romana Maggiora Vergano.Abbiamo incontrato e intervistato la misteriosa regista Leikiè per parlare del suo "Pap Music", film di animazione con Luca Ward e Rudy Zerbi.Viaggio nella Ferrara cinematografica, dallo “Spazio Antonioni” dedicato a uno dei padri della cinematografia moderna, al Ferrara Film Festival appena concluso che ha premiato per la sua carriera l’attrice e modella Carol Alt.Torna al cinema la saga dei Transformers. Chiara Pizzimenti ha visto per noi "Transformers One", film di animazione diretto da Josh Cooley, con Chris Hemsworth e Scarlett Johansson.
Innkastið eftir 2. umferð Bestu deildarinnar. Það er besti sportbar landsins (samkvæmt Reykjavík Grapevine), Ölver í Glæsibæ, sem býður upp á þáttinn. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp alla leiki umferðarinnar. Hlíðarendi nötrar strax eftir fyrsta hliðarspor, Viktor Jóns sökkti HK, FH sótti öll stigin norður, Breiðablik með yfirburði gegn Vestra og Framarar tóku á móti Íslandsmeisturunum.
Snemma í þættinum var umfjöllun um Guðrúnu Á. Símonar. 36 ár eru í dag síðan hún lést og á laugardaginn, 24. febrúar, var öld síðan hún fæddist. Leikið var brot úr viðtali Jökuls Jakobssonar við Guðrúnu frá 1971. Dregið hefur úr sölu rafbíla. Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, rekur samdráttinn til hærra verðs á rafbílum sem stafar af breyttu ívilnanakerfi stjórnvalda. Egill fór yfir sjónarmið sín í spjalli. Borgþór Arngrímsson fór yfir eitt og annað danskt eins og hann gerir á Morgunvaktinni annan hvern miðvikudag. Ásahreppur hefur boðið sveitarfélögunum Rangarþingi ytra og Rangárþingi eystra til skrafs og ráðagerða um sameiningu. Valtýr Valtýsson sveitarstjóri spjallaði um sameningarmál og Ásahrepp. Hlustið góðu vinir - Sigrún Hjálmtýsdóttir, Love is all - Deanna Durbin, Kötturinn Kikki - Guðrún Á. Símonar, Mvundula Madzi - Lucky Stars Band, Middelsmand Bunker - C.V. Jörgensen.
Hlustendum voru færð nýjustu tíðindi af eldgosinu í og við Grindavík. Endurleikið var ávarp forseta frá í gærkvöldi. Leikið var brot úr viðtali við Þóru Sigfríði Einarsdóttur sálfræðing frá 14. nóvember. Tónlist: Il postino - Gunnar Gunnarsson, Stúlkan mín - Gunnar Gunnarsson, Anja - Pétur Östlund, Orða vant - Gunnar Gunnarsson, Upptíningur - Stórsveit Reykjavíkur, Blítt er undir björkunum - Gunnar Gunnarsson, Misty - Gunnar Gunnarsson.
Boðið var upp á bland í poka á síðustu Morgunvakt ársins. Sagt var frá stofnun Verslunarfélags Steingrímsfjarðar fyrir 125 árum og tíðarfari, aflabrögðum og landbúnaði á Ströndum 1898. Leikið var viðtal frá í sumar við Gísla Einarsson sjónvarpsmann um mun á landsmönnum eftir búsetu. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, talaði frá Hallormsstað um Skriðuklaustur og Gunnar Gunnarsson skáld og konu hans Franzisku. Í máli hans kom m.a. fram að bækur Gunnars hafa verið gefin út víða um heim á síðustu árum og Aðventa t.d. þýdd á Ítölsku og arabísku. Þá var leikið brot úr Áramótaskaupi Útvarpsins 1982. Smooth operator - Sade, Vetrarsól - Björgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands, Halló, halló, halló - Stuðmenn, Andar í útlegð - Mógil, Hvað ertu að gera á gamlárs? - Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius, Í löngu máli - Una Torfadóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Aukasendingin fékk leikmann íslenska landsliðsins Hilmar Smára Henningsson í spjall um yngri landsliðin, verkefnin með a landsliðinu, Haukana, hvernig það var að fara ungur út til stórliðs Valencia, afhverju hann hafi ákveðið að ganga til liðs við Eisbaren Bremerhaven í Þýskalandi fyrir komandi tímabil og hvað hann haldi að gerist á næsta tímabili í Subway deildinni.Undir lok upptökunnar velur Hilmar Smári í tvö úrvalsbyrjunarlið. Það fyrra eru bestu leikmenn sem hann hefur spilað við á ferlinum og í hitt velur hann byrjunarlið bestu íslensku leikmanna Subway deildarinnar.Tekið er fram að upptakan fór fram þriðjudag 15. ágúst fyrir leik Íslands gegn Búlgaríu í forkeppni Ólympíuleikanna.Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils og Subway.
Það er oft djúpt á upplýsingum þegar peningar eru annars vegar og það jafnvel opinberir peningar. Og fyrir kemur að þótt bundið sé í lög að tiltekið ferli eigi að vera gagnsætt þá er það bara alls ekki svo. Henry Alexander Henrysson, doktor í heimspeki og siðfræðingur, ræddi við okkur um fjármál og gagnsæi. Leiðtogar NATO-ríkja hittast í Vilnius á morgun. Björn Malmquist fréttamaður er kominn til borgarinnar. Hann fór yfir það sem búist er við að leiðtogarnir ræði. Hann spilaði líka brot úr viðtali sínu við Petró Porosjenkó, fyrrverandi Úkraínuforseta, sem hann rakst á á götu í Brussel á dögunum. Kerecis var stofnað á Ísafirði fyrir fimmtán árum eða svo, og selt fyrir helgi dönsku fyrirtæki á 175 milljarða. Stofnandi og forstjóri Kerecis, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, var gestur Morgunvaktarinnar 1. nóvember 2018. Leikið var viðtal við hann um starfsemi Kerecis. Tónlist: Ort í sandinn - Helga Möller Crown Calypso - Ronnie Butler Gin & Coconut Water - Blink Blake Dear Lord - Kenny Garret Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Vera Illugadóttir.

Doc, AI the legend og Gaflarinn á mánudegi.
Hinn 4. júní árið 1983 vann Atli Eðvaldsson ótrúlegt afrek, því þann dag skoraði hann öll fimm mörk Fortuna Düsseldorf í 5-1 sigri liðsins á Eintracht Frankfurt í efstu deild Þýskalands í fótbolta. Strax daginn eftir skoraði svo Atli sigurmark Íslands í 1-0 sigri á Möltu í undankeppni EM á Laugardalsvelli og toppaði þar með hreint ótrúlegan sólarhring á sínum ferli. Atli rifjaði upp þennan magnaða sólarhring í áður ófluttu viðtali við RÚV sem tekið var vorið 2016. Aðrir viðmælendur eru Pétur Ormslev, Samúel Örn Erlingsson, Skapti Hallgrímsson og Sif Atladóttir. Þar sem hin óvenjulega staða kom upp að það væri landsleikur degi eftir deildarleik tókst KSÍ að útvega litla flugvél til að sækja Atla og Pétur Ormslev sem báðir léku með Fortuna Düsseldorf. Með í þessa för fóru svo blaðamennirnir Skapti Hallgrímsson fyrir Morgunblaðið, Samúel Örn Erlingsson fyrir NT og Friðþjófur Helgason ljósmyndari DV auk Helga Daníelssonar sem var formaður landsliðsnefndar KSÍ. Atli varð fyrsti erlendi leikmaðurinn til að skora fimm mörk í einum deildarleik í efstu deild Þýskalands. Síðan þá hafa aðeins tveir aðrir leikið það eftir. Pólski markahrókurinn Robert Lewandowski skoraði öll mörkin í 5-1 sigri Bayern á Wolfsburg í september 2015. Serbneski framherjinn Luka Jovic skoraði svo fimm mörk í 7-1 sigri Eintracht Frankfurt á Fortuna Düsseldorf í október 2018. Þar áttust semsagt sömu lið og þegar Atli skoraði mörkin sín fimm árið 1983. Hvorki Lewandowski né Jovic, eða þess þá heldur Gerd Müller, Jupp Heynckes, Jürgen Klinsmann eða þeir Þjóðverjar skoruðu einhvern tímann fimm mörk í deildarleik í Þýskalandi, tókst að spila landsleik daginn eftir eins og Atli gerði í júní 1983. Dagskrárgerð: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.

Líklegt er að meginvextir Seðlabankans verði hækkaðir enn eina ferðina á vaxtaákvörðunardegi á morgun. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir stöðuna í efnahagsmálum og spár greiningardeilda. Hann spjallaði líka um fyrirhugaðar samrunaviðræður Kviku og Íslandsbanka og afkomu Icelandair sem tapaði rúmum 800 milljónum á síðasta ári en það er mun betri afkoma en undanfarin ár. Grímuskyldu í almenningassamgöngum í Þýskalandi var aflétt á dögunum við mikinn fögnuð flestra Þjóðverja. Arthúr Björgvin Bollason sagði frá því í Berlínarspjalli. Hann sagði líka frá kosningum til fylkisstjórnar Berlínar á sunnudaginn en þær þarf að endurteka vegna klúðurs þegar kosið var 2021. Dægurlagasöngvarinn Udo Lindenberg og rapparinn Apache 207 komu líka við sögu en þeir eiga vinsælasta lagið í Þýskalandi þessa dagana. Leikið var brot úr viðtalsþætti Jökuls Jakobssonar, Gatan mín, frá 1971. Hann gekk um götur Keflavíkur með Gunnari Eyjólfssyni leikara. Tónlist: Bel Ami - Helena Eyjólfsdóttir, Just like that - Bonnie Raitt, Ágústín - Sigrún Jónsdóttir, Komet - Udo Lindenberg og Apache 207, Litli vin - Anna Kristín Arngrímsdóttir, Hún var með dimmblá augu - Hilmir Snær Guðnason. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Ísland lék tvo vináttuleiki í janúar, fyrri leikurinn var gegn Eistlandi og sá seinni var gegn Svíþjóð. Leikið var í Portúgal, fyrri leikurinn endaði með jafntefli en seinni leikurinn tapaðist. Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson ræddi við Sæbjörn Steinke og voru leikirnir gerðir upp. Rætt var um leikkerfi, leikmenn sem heilluðu, seinni vítaspyrnuna gegn Eistlandi og ýmislegt annað. Arnar segir að það sé ekkert leyndarmál að einhverjir í þessum hópi komi til greina í næstu landsleiki. Þegar líður á viðtalið er Arnar spurður út í marsverkefnið þar sem alvaran hefst, fyrsti leikur í undankeppni EM er gegn Bosníu á útivelli. Gæti Albert Guðmundsson verið með í því verkefni?
Dominykas Milka ræðir við Davíð Baldursson ritstjóra Körfunnar um væntingar fyrir næsta tímabili í Subway deildinni, góðan árangur landsliðs Íslands og mikilvæga leiki sem framundan eru hjá þeim á næstu mánuðum og margt fleira. Þá er borgaralegt próf lagt fyrir Dominykas við tilefni þess að hann var að kaupa sér sína fyrstu fasteign á Íslandi.Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils og Subway.
555.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag ræðum við Þórhallur Dan um íslenska boltann, karla og kvenna. Leiki gærkvöldsins, og leiki kvöldsins. Meistaradeildin er til umfjöllunar en Man.City og R.Madrid mætast í kvöld, handboltinn er á sínum stað og svo körfuboltinn. Þetta og margt fleira. Njótið
Það er úrslitakeppni - Það er stutt á milli leikja - Það er alvöru harka - Það er að fyllast í húsunum ! Það þýðir að Endalínan kemur saman oftar og að sjálfsögðu vorum við mættir í WhiteFox stofuna í gærkvöldi til að gera upp Leiki # 2 í öllum seríunum í 8 liða úrslitunum. Sami taktur og síðast - Hver var lykill sigurliðsins ? Hvað þarf tapliðið helst að bæta ? Hvernig spáum við í framhaldið ? Það vantar sko alls ekkert umræðuefnin , geggjuð tilþrif , óvænt úrslit , rifrildi og pungsláttur , alltof mörg 3ja stiga skot og umdeildir dómar. Endalínan fer í öll stóru atriðin að venju ásamt föstum liðum - allt í boði WhiteFox , Viking Lite ( léttöl ) , Cintamani og KefRestaurant&DiamondSuites
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í kvöld og tóku upp sinn þrítugasta og sjötta þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir leikina í 15.umferð í Olísdeild karla ásamt því að fara yfir 16- og 8-liða úrslit í Coca Cola bikar karla og kvenna. Þá fóru þeir yfir málefni Selfyssinga en sögur herma að handknattleiksdeildin sé á bjarmi gjaldþrots. Samkvæmt heimildum skulda þeir um 30 milljónir og hafa tilkynnt leikmönnum að þeim sé frjálst að finna sér ný lið á næstu leiktíð. Að lokum fóru þeir yfir leikina sem eru framundan hjá kvennalandsliðinu en þær spila tvö leiki gegn Tyrklandi í næstu viku. Þáttastjórnendur furðuðu sig á því að það sé ekki pláss fyrir Karen Knútsdóttur í liðinu að þessu sinni en hún er ekki valin vegna þess að hún hafði skoðanir á sóknarleik liðsins.
Erik, Rökkvi og Hinrik fara yfir frestuðu leikina og fyrri helming tímabilsins í nýjustu útgáfunni af Þristinum.Það kom inn nýr liður hjá Erik sem heitir "Hver vinnur í slag" og þar að auki eru þeir með lið fyrri hluta umferðarirnnar og margt fleira í þætti dagsins.Umsjón: Erik, Rökkvi og HinrikPodcast Körfunnar er í boði Lykils, Subway og Kristalls.
Þátturinn er í boði Tannsmíðastofunnar Tríton SF.Styrktarsíða okkar: https://patreon.com/arnorogandri/Subscribe-ið á Apple Podcasts & Spotify. Twitter: @ArnorOgAndri Instagram: @ArnorOgAndriRaedaFantasy Facebook: Arnór & Andri Ræða Fantasy Í dag ræðum við: -Hvernig gengur hingað til í Double Gameweek 26 -Topplistinn: Barnes staðgenglar -Förum yfir liðin okkar fyrir Gameweek 27 þar sem Man City og Southampton eiga tvo leiki -Lítum yfir plön fyrir Blank Gameweek 29
Þátturinn er í boði Tannsmíðastofunnar Tríton SF.Vefverslun: https://www.etsy.com/shop/aogafplmerch/ Styrktarsíða: https://patreon.com/arnorogandri/Subscribe-ið á Apple Podcasts & Spotify. Twitter: @ArnorOgAndri Instagram: @ArnorOgAndriRaedaFantasy Facebook: Arnór & Andri Ræða FantasyYouTube: Arnór Og Andri Ræða Fantasy Í dag ræðum við: -Hvernig okkur gekk í Double Gameweek 25 -Andri er með topplista -Arnór er á free hit -Förum yfir liðin okkar fyrir hina stóru Double Gameweek 26
Í þættinum í dag fórum við yfir 3.umferðina í Olísdeild karla og Atli Rúnar Steinþórsson var á sínum stað með okkur að vanda.
Stabile Typen wie die Gemischte Tüte machen auch mal 8 Wochen Sommerpause - genug Eier geschaukelt, ran ans Mikro! Der kleine Jan berichtet von Spässken an der Ostsee, und Fabi erklärt, wie Frikandeln zusammengekloppt werden - danach sagen wir kurz "Tach Netflix!“. Zwischen Feuer und Flamme für "Cobra Kai" und vollkommener Verwirrung wegen "I’m thinking of ending things" ist alles dabei. Und dann gehts ab - die lange Wartezeit seit der letzten Folge belohnen wir mit nem besonderen Gast: Marko Herbener! Das Gesicht, Gehirn und die Fingernägel der Florida Tabledance Bar in Duisburg lässt uns in seine heiligen Hallen und steht Rede und Antwort zu seiner Reise vom Kistenschlepper zum (fast) Millionär..!! Es geht um fleissige Arbeit, clevere Expansion und Ehrlichkeit im Umgang mit Gästen - und ausserdem um mit Bert in Dolce & Gabbana durch Pattaya ziehen, Strippen für den guten Zweck und die wichtigste Frage: warum zum Teufel eigentlich Duisburg??? Drei Jungs in der Nacktbar - wegen zu viel Testopower für die Ohren haben wir wieder ne Kamera mitlaufen lassen! Ihr wollt Markos perfekt abgestimmtes Outfit oder die Florida Bar mal von innen sehen? Dann schnell ab zu YouTube! Vielleicht gibt es sogar ein wenig nackte Haut! Unzensiert! In diesem Schlagabtausch der blöden Sprüche ist unsere Spotify Playlist fast ein bissken vergessen worden - aber die is immer noch voll mit mehr als 150 Stunden Hits…Hits….Hits!!! Jetzt neu! Noch mehr Hits! Und elektronisch! Ran an die Geräte, geniesst dat Leben! Liebe, F+J
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Farið var yfir leiki helgarinnar í 2. og 3. deild. Áfram halda vandræði Völsungs og Bondhornið var kynnt til leiks
Ég kvaðst á við fjandann. 3. þáttur. Haukur Ingvarsson fjallar um ævi og störf Steins Steinarrs. Í þættinum er verkið Dvalið hjá djúpu vatni í forgrunni en þar er á ferðinni nokkurs konar frumgerð ljóðaflokksins Tíminn og vatnið. Leikið er brot af viðtali sem Gylfi Gröndal átti við Ásthildi Björnsdóttur ekkju skáldsins, reifað er efni greinar sem Eysteinn Þorvaldsson skrifaði um Stein Steinarr og skáldsagnapersónuna Ólaf Kárason úr verki Halldórs Laxness. Að auki er rætt við Kristínu Þórarinsdóttur sem birti á vordögum grein um Tímann og vatn- sem byggði á BA-ritgerð hennar. Kristín hefur haft aðgang að ýmsum persónulegum gögnum um Stein vegna fjölskyldutengsla við Ásthildi ekkju hans. Í þættinum hljómar lestur Steins á Tímanum og vatninu auk tónlistar eftir Chopin.

Það er tíðindamikil helgi að baki í Evrópufótboltanum. Enski boltinn er að vanda í aðalhlutverki í þættinum en Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Magnús Már Einarsson fóru yfir allt það helsta. Meðal efnis: Leikið fyrir luktum dyrum, United á réttri leið, Gilmour magnaður, Henderson og Henderson, markverðir í stuði, Real Madrid núllar út El Clasico og KA leit skelfilega út.
Leikið verður um Ofurskálina LIV á sunndudaginn. Af því tilefni komu Birgir Þór Björnsson og Gunnar Ormslev til Spekinga og gera henni góð skil ásamt því að fara yfir NFL tímabilið. Birgir Þór hefur farið á kostum í vetur með Tíu Jarda hreyfingunni en Tíu Jardarnir verða með gleðskap ásamt Einherjum í Keiluhöllinni fyrir og með leiknum. Pub Quiz og með´því á boðstólnum og byrja herlegheitin kl. 22:00. Þá verður Matthías Tim úr TJ hreyfingunni með Pub Quiz á Aski Taproom á Egilsstöðum laugardaginn 1. febrúar kl. 21:00. Gunnar Ormslev þekkir leikinn inn út enda mun hann lýsa leiknum á Stöð 2 Sport og afgreiða það með sóma eins og aðrar íþróttalýsingar hans.
Ísland og Tyrkland mætast í undankeppni EM í fótbolta karla klukkan fimm í dag. Leikið verður á Ali Sami Yen leikvanginum í Istanbul - fjölmennustu borg Evrópu. Tyrkland er að stofni til ævafornt; þar bjó fólk á fornsteinöld, þegar maðurinn sem tegund var að verða til, og í gegnum aldirnar - þúsaldirnar - hefur þróast þar fjölbreytt samfélag. Við notum tilefnið sem leikur í dag er og fjöllum um Tyrkland. Gestur þáttarins var Sema Erla Serdar sem á tyrkneskan föður og þekkir vel sögu lands og þjóðar. Hún segist oft hafa rekist á mikla fordóma gagnvart Tyrkjum, bæði hér á landi og annars staðar, þrátt fyrir mikla og langa sögu auðugrar menningar. Þeir fordómar séu oft á tíðum tengdir mikilli vankunnáttu, eins og títt er um fordóma. Siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu eru tvö meginþemu Heilbrigðisþings sem haldið verður á morgun. Í kynningu segir að heilbrigðisráðherra ætli sér að leggja þingsályktunartillögu um þetta tvennt; siðferðileg gildi og forgangsröðun fyrir Alþingi á komandi vorþingi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra var gestur Morgunvaktarinnar. Við ræddum auk þess við hana um deilurnar á Reykjalundi, deilur sjúkraþjálfara og Sjúkratrygginga Íslands og umfjöllun Kveiks um fiskveiðar og aðra starfsemi Samherja í Namibíu. Svo slógum við á létta strengi og fjölluðum um limrur - þennan tvö hundruð ára gamla enska braghátt. Ragnar Ingi Aðalsteinsson skólamaður, skáld og fræðimaður - bragfræðidoktorinn, eins og hann var titlaður í Morgunblaðinu á sjötugsafmælinu sínu fyrir fimm árum - hefur tekið saman safn snjöllustu, fyndnustu og furðulegustu limranna, hann sagði hlustendum frá limrum og fór með nokkrar. Tónlist: Eftir sundið - Tómas R. Einarsson

Í þættinum fáum við góðan gest til okkar. Damir Muminovic leikmaður Breiðabliks talar um sinn feril og fer yfir leiki helgarinnar með okkur í Enska boltanum.
Í þættinum fáum við til okkar mjög skemmtilegan gest. Guðmundur Þór Júlíusson leikmaður HK og einn af dáðustu sonum 112 mætti og fór yfir leiki helgarinnar í Enska Boltanum og meira til.
Þeir Frikki Mæk og Hebbi fá til sín þá Jóhann Inga markmannsþjálfara og Matthías Árna. Þeir fara yfir HK leikinn hjá stelpunum og leikinn á móti stjörnunni hjá körlunum. Ræða um U-liðs leikinn á móti Gróttu og Binni tekinn í viðtal fljótlega eftir leik.
Atli Magnússon framkvæmdarstjóri Arnarskóla: Arnarskóli í Kópavogi heimsóttur í þættinum, þar er aldrei sumarfrí, nema börn og foreldrar vilji það, því mörgum nemendunum skólans þykir gott að hafa reglu í lífinu. Skólinn er fyrir börn með þroskafrávik og einhverfu. Unnur Dís Skaptadóttir og Kristín Loftsdóttir mannfræðingar HÍ: Þær segja frá rannsóknarvettvangnum "Hreyfanleiki og þverþjóðleiki". Þar er ekki síst hugað að innflytjendum og hreyfanleika til og frá Íslandi. Guðrún Línberg Guðjónsdóttir: Málfarsmínútan - Gullaldartregi: Sú trú fólks að á einhverjum tímapunkti í fortíðinni hafi tungumálið verið fullkomið hefur verið kölluð gullaldartregi. Edda Olgudóttir: Í vísindaspjalli ræðir Edda um breyttar greiningar á einhverfu.
Þeir Addi, Sibbi og Jakob fara yfir síðustu leiki hjá kvenna- og karlaliðinu. Slúðurhornið, allar sögurnar og leikmannamál. Harðfiskurinn hans Búa og pilot-inn hans Tóta. Luxorleikmenn og margt fleira.
Þeir Arnaldur, Sigurbjörn og Jakob leikmenn KÁ fara yfir síðustu leiki mfl. karla og kvenna, Mikið slúðrað, Vilko vöfflur og Heimir Hallgríms. Wilfred Bony og Lúxor leikmenn leikjana valdir. Skemmtileg hlustun með kaffibollanum og Vilko Vöfflum.
Tómas Þór Þórðarson er mættur inn í teymi Innkastsins og var með í að kryfja fjórðu umferð deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már voru á sínum stað en þeir fjórir fóru yfir alla leikina. Í tilefni af komu Tómasar var þátturinn í lengra lagi að þessu sinni! Rætt var um Gary Martin, agavesen FH-inga, óvænt tap KR í Grindavík, sífelldar breytingar Pedro, búðarferðir leikmanna, tifandi tímasprengju í liði Fram og ýmislegt fleira. Getur ÍA orðið Íslandsmeistari?
Leikið var óútgefið lag með Sigurði Bjólu auk þess sem hann ræddi við stjórnanda um lífið og listina. Meðal annarra tónlistflytjenda í þættinum voru t.d. Alan Parsons Project, Gentle Giant, Brimkló, Joni Mitchell, Tori Amos, Wilson Pickett og Þeyr.

Njótið leiksins. Tekið upp á dollunni
Morgunvaktin hófst á Lundúnaspjalli Sigrúnar Davíðsdóttur sem byrjaði á að tala um fótbolta en England leikur sinn fyrsta leik á HM í Rússlandi í dag, gegn Túnis. Englendingar gera óvenju litlar kröfur til liðsins síns að þessu sinni enda leikmenn almennt ungir og lítt reyndir. Enn er fjallað um tap Englendinga gegn Íslendingum á EM í Frakklandi 2016 í breskum fjölmiðlum í tengslum við alla umfjöllun um liðið. Sigrún sagði líka frá atkvæðagreiðslu um Brexit-frumvörp í breska þinginu nýverið en May forsætisráðherra er sökuð um að hafa blekkt þingmenn til fylgilags við sig í málunum. Þá sagði hún frá nýrri yfirlýsingu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um að tölvuleikjaánetjun verði eftirleiðis flokkuð sem geðsjúkdómur. Í tilefni var þjóðhátíðardeginum í gær og þess að hundrað ár eru liðin frá því að Ísland fékk fullveldi ræddi Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur um fullveldið og lýðveldið, hugtökin og söguna að baki. Gunnar Þór hefur verið við rannsóknir á sjálfstæðisbaráttunni og síðar á árinu kemur út bók eftir hann um fullveldið. Hann lýsti m.a. hinu danska samfélagi sem hér var fram til 1918 og sagði frá þeim mönnum sem helst komu að samningunum við Dani um fullveldi Íslands. Grímur Jón Sigurðsson var á línunni frá Volgograd í Rússlandi en hann og Guðmundur Björn Þorbjörnsson fylgjast með HM í fótbolta fyrir Rás 1 auk þess að gera hlaðvarpsþættina Gerska ævintýrið. Leikið var stutt brot úr nýjasta þættinum. Jón Sigurður Eyjólfsson, rithöfundur og blaðamaður, sem búsettur er í Andalúsíu á Spáni sagði frá stöðunni í stjórnmálunum í landinu en þar urðu ríkisstjórnarskipti í byrjun mánaðar eftir að spænska þingið samþykkti vantraust á Mariano Rajoy forsætisráðherra vegna spillingar og fjármálamisferlis innan flokks hans, Lýðflokksins. Nýi forsætisráðherrann, Pedro Sanches, þykir hörkutól en stjórn hans hefur aðeins 84 af 350 þingsætum. Heldur er búist við að kosið verið á Spáni fyrr en síðar. Aðeins var spjallað um fótbolta í lokin en Spánverjar gerðu jafntefli við Portúgal í fyrsta leik sínum á HM í ár. Vera Illugadóttir sagði frá lausn í áralangri hatrammri baráttu lýðveldisins Makedóníu og Grikklands um nafnið Makedónía. Forsætisráðherrar ríkjanna undirrituðu um helgina samkomulag um að lýðveldið taki upp nafnið Norður-Makedónía. Tónlist: Band on the run - Paul McCartney. Let 'em in - Paul McCartney.
Þátturinn hófst á spjalli um heimsfréttir og vináttuleik Íslands og Gana. Minnst var Árna Scheving, jazztónlistarmanns, sem hefði orðið 80 ára í dag. Leikið var lag hans The Rivers í flutningi Útlendingahersveitarinnar. - Samkomulag flokkanna um frestun þingstarfa náðist í gærkvöld. Umdeilt mál sem kom seint fram - um lækkun á veiðigjöldum, var helsta átakamálið undir lokin. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði frá því að frumvarp um lækkun veiðigjalda hefði verið dregið til baka. Þátttaka í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki reynir töluvert á umburðarlyndi og hollustu félaga í Vinstrihreyfingunni-grænu framboði - nú síðast þetta veiðigjaldamál. Katrín ræddi stjórnarsamstarfið og áherslur Vinstri-grænna. Hún ætlar að sækja leiðtogafund NATO-ríkja, fyrst andstæðinga NATO-aðildar á stóli forsætisráðherra. - Aðildarfélög alþjóðasamtaka flugfélaga, IATA, sendu frá sér ályktun í vikunni. Þar er skorað á yfirvöld að fara varlega í einkavæðingu flughafna. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista.is, ræddi ferðamálin eftir 8-fréttirnar. - Leikárið var gott í Borgarleikhúsinu. Aðsókn var góð, dómar ágætir og sýningar og listamenn hússins fengu tíu verðlaun á Grímu-verðlaunahátíðinni á þriðjudag. Kristín Eysteinsdóttir leikhússtjóri hefur ástæðu til að gleðjast. Hún var gestur Morgunvaktarinnar. Þættinum lauk á laginu Taktu mig úr Rocky Horror Show.
Arnþór Ari Atlason, miðjumaður Breiðabliks, og Ágúst Stefánsson hjá KA TV voru á meðal viðmælenda í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu á laugardaginn.
Evrópu-Innkastið er með aukaþátt þessa vikuna enda nóg um að vera. Leikið var í ensku úrvalsdeildinni núna í miðri viku en þar bar hæst stórleikur Chelsea og Manchester City. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fóru yfir umræðuna í þessum aukaþætti.
Guðmundur Steinarsson, sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net, fór yfir 18. umferðina í Pepsi-deildinni í dag. Umferðin hefst í dag með tveimur leikjum. Guðmundur ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um komandi leiki og er hægt að heyra spjallið í spilaranum hér að ofan. Einnig er rætt aðeins um íslenska landsliðið og ferðalag þess til Úkraínu.
Það var líf og fjör í Pepsi-deildinni í gær en þá fóru fram fimm leikir í 12. umferð deildarinnar. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson voru á leikjunum í gær og ræddu þá í hljóðvarpsþættinum Innkastið sem heyra má í spilaranum hér að ofan.
Í þáttinn mættu þau Árni Bergmann rithöfundur og fyrrum blaðamaður og ritstjóri og Sigrún Alba Sigurðardóttir menningarfræðingur og kennari við listaháskóla Íslands og ræddu um bókina Óbærilegur léttleiki tilverunnar eftir Milan Kundera í þýðingu Friðriks Rafnssonar. Leikið var brot úr lestri Leifs Haukssonar úr bókinni og einnig leikið brot úr viðtali við þýðandann Friðrik Rafnsson. Umsjónarmaður: Jórunn Sigurðardóttir.