Spjöllum saman um morð og mannshvörf!
Fjölskylda Johnny hafði ekki heyrt í honum í nokkra daga og voru orðin áhyggjufull, svo lögregla var send heim til hans til að framkalla velferðarskoðun. Hann fannst látinn heima hjá sér, og þar sem fjölskyldan bjó langt í burtu þá fengu þau símtal þess efnis að hann hefði látist af völdum náttúrulegra orsaka. Stuttu seinna fer kærasta hans að sækja nokkra muni á heimilið þegar hún kemur auga á hræðilegan vettvang, og fjölskyldan fer að efa það að andlát hans hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Við mælum með að skoða myndir á samfélagsmiðlum frá málinu samhliða hlustun til að átta sig á alvarleika málsins. www.pardus.is/mordskurinn
Hin 19 ára Tyarra lét Aaron kærasta sinn vita að hún ætlaði aðeins að skreppa út - hún sagðist ætla vera í burtu í um klukkutíma. Hún kom þó ekki til með að skila sér heim. Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Þrjár góðar vinkonur bjuggu saman í Napa Valley, í Kaliforníu. Á hrekkjavöku árið 2004 voru þær ekki með neitt sérstakt planað, og voru komnar í háttinn nokkuð snemma. Stuttu eftir miðnætti vaknaði ein þeirra við einhver hljóð koma úr bílskúrnum, sem hún taldi vera köttinn og spáði lítið í það. Það sem hún vissi ekki var að á aðeins fjórum mínútum áttu vinkonur hennar eftir að verða fyrir hræðilegri árás. Yfir 190 þættir aðgengilegir á pardus fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði! www.pardus.is/mordskurinn
Kirstin Blaise Lobato var 18 ára gömul þegar hún var handtekin í heimabæ sínum fyrir morðið á Duran Bailey. Þetta kom að öllum fannst eins og þruma úr heiðskíru lofti og þegar fleiri upplýsingar komu fram þá benti allt til þess að Kirstin væri bara ekkert eins sek og lögreglan vildi halda fram. Framundan var þó margra ára ferli. Þátturinn er í boði Define The Line Sport kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt á www.definetheline.is Komdu í áskrift fyrir meira efni! www.pardus.is/mordskurinn
Atif og vinur hans Sebastian voru í heimsókn hjá fjölskyldu Atif, en eitt kvöldið fóru þeir meðal annars út að borða, í kvikmyndahús og ætluðu að kíkja á klúbbinn en hann var lokaður svo þeir fóru heim. Heima tók á móti þeim hryllingur, þar sem einhver hafði komið inn á heimilið og myrt meðlimi Rafay fjölskyldunnar. www.pardus.is/mordskurinn
Eddie Cole var ungur farin að sýna af sér vafasama hegðun - eitthvað sem í seinni tíð útskýrist af gjörðum móður hans í hans garð. Hann var ungur þegar hann hóf afbrotarferil sinn og í mörg mörg ár komst hann upp með gjörðir sínar Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt inná www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Sonya hafði farið út með vinkonu sinni eitt kvöld, en skilaði sér aldrei heim. Hún var tilkynnt týnd, og ekki leið á löngu þar til vitni kom auga á lík hennar. Rannsókn var hafin og nokkrir einstaklingar komu til greina, en það kom öllum í opna skjöldu þegar kona steig fram sem vitni með þær upplýsingar sem hún sá þetta örlagaríka kvöld. Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum og það var glæný lína að droppa!
Árið 1964 var hinum tæplega tveggja sólarhringa gamla Paul Fronczak rænt af fæðingardeild spítala í Chicago. Við tók tveggja ára tími þar sem enginn vissi hvað hefði orðið af litla drengnum en kom þó loksins að því að Paul litli fannst. Eða svo hélt fólk allavega, í marga áratugi.
Hin 5 ára Kamarie Holland bjó alfarið á pabba sínum í Georgíu, en móðir hennar hafði misst forræði yfir henni. Hún var samt að reyna að taka sig á, og einn daginn ákvað pabbi Kamarie að gefa mömmu hennar séns til að eyða tíma með dóttur sinni, séns sem varð til þess að hann fékk aldrei að sjá hana aftur. www.pardus.is/mordskurinn www.definetheline.is
Hin 19 ára Lizette hafði nýlega flutt á nýjan stað en þó ekki átt í neinum vandræðum að koma sér inn í samfélagið. Hún kom til með að kynnast strák sem varð að aðeins meira en bara vini, strák sem að flestir töldu að myndi reynast henni vel. Annað átti eftir að koma á daginn Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Þátturinn er í boði Define The Line, en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum! Á pardus finnið þið áskriftarleiðina okkar sem inniheldur yfir 180 þætti fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði!
Hin unga móðir, Bonnie Haim hafði verið föst í klóm Michael, eiginmanns síns og barnsföður allt þeirra samband. Sambandið litaðist af mikilli stjórnun að hálfu Michaels sem og ofbeldi og var hún árið 1993 loksins búin að finna kjarkinn til að fara frá honum. Það kom þó ekki til með að takast. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Þann 10. júlí árið 1998 eignaðist hin 16 ára Shanara einkadóttur sína. Hún var stressuð en einnig spennt fyrir komandi móðurhlutverki, hlutverki sem hana hafði dreymt um síðustu mánuði en því var fljótt hrifsað af henni því þann sama dag var 8 klukkutíma gömlu dóttur hennar rænt af spítalanum. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum!
Robert Gleason var farsæll húðflúrari á sínum yngri árum en það var ekki starfsferill sem hann átti eftir að fylgja út lífið. Á einhverjum tímapunkti tók Robert ákvarðanir sem áttu eftir að umturna lífi hans töluvert. Og að lokum koma honum innan veggja fangelsis. Það átti þó ekki eftir að halda honum frá afbrotum og kom hann til með að fremja hin alvarlegustu brot innan veggja fangelsis. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Matthew var einstakur karakter sem hafði frá ungum aldri haft mikinn áhuga á náttúrunni. Hann eyddi ófáum stundum utandyra þar sem hann fylgdist með nágrönnum sínum og kom að lokum til með að koma líkum fórnarlamba sinna fyrir í holóttu tré. Ekki nóg með það, þá var heimili hans fyllt laufblöðum, af ástæðu sem við komum líklegast aldrei til með að vita. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum. Við erum með áskriftarleið í boði inni á pardus, en þar er hægt að hlusta á yfir 180 þætti fyrir aðeins 1.390kr. á mánuði!
Þegar AJ fæddist var honum komið í öruggar hendur fósturmóður sinnar sem sinnti hlutverki sínu með sóma allt þar til hún neyddist til að láta hann í hendur blóðforeldra sinna, þar sem hún hafði vonast til að hann yrði öruggur. Svo var þó ekki raunin. Saga AJ Freund er skelfileg frá upphafi til enda - hún hefði hinsvegar ekki þurft að vera svona skelfileg hefði hann bara fengið að njóta vafans og yfirvöld hefðu sinnt sínu starfi betur. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Gary kynntist ástinni sinni Oliviu, en hún var einstæð móðir og tók hann vel á móti litla Arthur inn í líf sitt. Samband þeirra var stormasamt, og einkenndist af drykkju og miklu ofbeldi af hálfu Oliviu. Fjölskylda hans vonaðist til þess að hann myndi losa sig við hana fyrir fullt og allt, en það gerðist ekki og endaði líf hans á hörmulegan hátt. Blóðfaðir Arthur fékk fullt forræði yfir syni sínum sem hann hafði ekki kært sig um að vera í kringum öll þessi ár, og með tilkomu nýrrar kærustu varð líf Arthur hreint út sagt helvíti. Með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com
Serena McKay fór í partý eitt laugardagskvöld árið 2017, eitthvað sem hún hafði gert nóg af enda lítið annað að gera um helgar í bænum sem hún bjó í. Serena átti aldrei eftir að skila sér heim eftir partýið. Serena fannst látin rétt við húsið sem hún hafði síðast sést í. Þátturinn er í boði Define The Line Sport, með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com áskrifarleið www.pardus.is/mordskurinn
Molly og Colt voru að rúnta með kunningja sínum, Conn, þegar hann fór að æsa í lögreglu sem endaði með eftirför. Conn keyrði út úr Wilson, OK, í áttina að Overbrook, OK, en einhversstaðar á leiðinni stoppaði bíllinn og Conn fór heim. Vinir Molly og Colt fengu símtöl þar sem þau báðu um að láta sækja sig, en enginn gat fundið út hvar þau voru niðurkomin. Þessi símtöl og skilaboð til vina áttu eftir að ganga alla nóttina og þrátt fyrir ótal leitir þá gat enginn fundið út hvar þau voru, og til dagsins í dag veit enginn hvað raunverulega kom fyrir þau. Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt af öllum vörum frá Define The Line Sport! Inni á www.pardus.is/mordskurinn getið þið skráð ykkur í áskrift fyrir 1390kr á mánuði og fengið fjóra nýja þætti mánaðarlega ásamt aðgangi að yfir 170 þáttum!
Jill var ein hamingjusöm kona, börnin orðin fullorðin, eyddi mestum tíma sínum í að sinna sjálfboðastarfi og ferðast um heimin með sínum heittelskaða eiginmanni og naut lífsins. Það var einmitt eftir eitt fríið með eiginmanninum sem að hún var ein heima í algjörri slökun þegar eiginmaður hennar tók eftir undarlegum hreyfingum á öryggismyndarvélum heimilisins. Áhyggjur hans urðu til þess að sonur þeirra hjóna fór heim þar sem hann kom að móður sinni látinni. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com áskriftarleið www.pardus.is/mordskurinn
Larissa kynntist Tim í háskóla, en hún var að læra lífefnafræði og hann að læra hjúkrun. Þau smullu strax saman og komu til með að eignast tvö börn og mynda fullkomna fjölskyldu. Larissa opnaði síðar meir sína eigin rannsóknarstofu á meðan Tim sá að mestu um börnin, og eftir það fór allt niður á við. Þau ákváðu að skilja, og Tim vildi vissulega fá sinn part úr skilnaðinum þar sem hann hafði hugsað um börnin og því ekki getað unnið jafn mikið, en Larissa vildi bara eiga sitt, allt sem hún hafði unnið að. Þessi ágreiningur átti eftir að enda með harmleik. www.definethelinesport.com -> með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum! www.pardus.is/mordskurinn -> komdu í áskrift! yfir 170 þættir aðgengilegir strax við skráningu!
Daniel Brophy var ofboðslega vel liðinn matreiðslumeistari, hafði kennt við matreiðsluskóla til margra ára og vel virtur innan sinnar starfsgreinar. Hann hafði búið sér til rólegt líf, var í hjónabandi, sinnti garðyrkju og sinnti hænunum sínum sem og hundi. Það var því mikið áfall fyrir allt hans fólk, fjölskyldu vini og nemendur þegar hann var myrtur inn í kennslustofunni sinni einn laugardagsmorgun. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn Morðskúrinn veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com áskriftarleið www.pardus.is/mordskurinn
Charity Bennett, móðir Paris og Ellu, var í vinnunni á meðan börnin voru í góðum höndum hjá barnapíunni, að hún hélt. Það sem hún vissi ekki var að Paris hefði sannfært barnapíuna um að fara fyrr heim, enda Ella sofnuð, og það næsta sem gerðist var að Charity fékk heimsókn lögreglu í vinnuna þar sem harmleikur hafði átt sér stað á heimilinu, harmleikur sem hana grunaði aldrei að gæti verið raunveruleiki. Þátturinn er í boði Define The Line Sport, kóðinn morðskúrinn veitir ykkur 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Á www.pardus.is/mordskurinn er að finna yfir 170 þætti sem eru aðgengilegir fyrir aðeins 1.390kr. á mánuði!
Hin unga móðir, Piang frá Myanmar ákvað að taka málin í sínar eigin hendur þegar hún átti lítið á milli handanna og alls ekki nóg til að sjá fyrir ungum syni sínum. Hún kom sér með aðstoð starfsmannaleigu til Singapore þar sem hún kom til með að fá starf sem heimilisstarfsmaður fjölskyldu. Hún var þó grunlaus um hvernig næstu mánuðir í lífi hennar yrðu og jafnfram þeir síðustu. Kóðinn MORÐSKÚRINN veitir 15% afslátt inn á www.definethelinesport.com áskriftarleið www.pardus.is/mordskurinn
Árið 1996 hvarf hin 18 ára Sarah Spiers úr miðbæ Claremont en hún hafði verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim. Ekkert bólaði á rannsókninni og um sex mánuðum síðar hvarf önnur stelpa frá sama svæði, og voru bæjarbúar að upplifa sama áfallið aftur. Rannsókn var á fullu þar sem þeir báðar áttu það sameiginlegt að hafa verið á djamminu og ætlað að taka leigubíl heim, og lögreglan fór að velta því fyrir sér hvernig einstaklingurinn væri að nálgast fórnarlömbin sín. Ári seinna, hvarf svo þriðja stelpan sem setti samfélagið á hliðina. Komdu í áskrift: www.pardus.is/mordskurinn Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com
Mark Essex var frá Emporia í Kansas, hafði átt dásamlega góða æsku, lítið fundið fyrir kynþáttahatri og leit á lífið jákvæðum augum. Þegar hann skráði sig í herinn þá breyttist sýn hans á lífinu, enda varð hann fyrir mikilli mismunun, miklum rasisma og var ekki tekið eins og þeim sem voru hvítir. Þetta bjó til mikla reiði innra með Mark sem og sorg og tók hann afdrifaríkar ákvarðanir eftir röð atvika. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Á aðfangadag árið 2008 var Ortega stórfjölskyldan að fagna saman jólunum þegar jólasveinn mætti börnunum til mikillar ánægju. Það átti þó ekki eftir að líða mínúta þar til jólasveinninn hóf að skjóta hvern fjölskyldumeðlim á fætur öðrum, og voru líf ansi marga breytt þessi jólin. Þátturinn er í boði Define The Line, en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Áskriftin okkar inniheldur yfir 160 þætti - komdu og vertu með á www.pardus.is/mordskurinn
Betsy Aardsma var ný byrjuð nám sitt í Penn State háskólanum, skynsöm og klár stelpa með miklar væntingar til sjálfs síns. Það var þess vegna sem hún ákvað að eyða þakkagjörðarhátíðinni inn á bókasafni í stað þess að fara heim til fjölskyldu sinnar yfir skólafríið. Betsy kom til með að vera myrt inn á bókasafni skólans, þar sem margir sátu á meðan ráðist var á hana en enginn var var við neitt. Þátturinn er í boði Define The Line Sport kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Grace og Sarah áttu eitt sameiginlegt, þær féllu fyrir sama manninum, og létust báðar við dularfullar kringumstæður inni á heimilinu sínu. www.pardus.is/mordskurinn 15% afsláttur af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com með kóðanum morðskúrinn
Rob Knox var 18 ára upprennandi leikari, hafði fengið sitt fyrsta stóra hlutverk og átti framtíðina ansi bjarta fyrir sér. Eitt föstudagskvöld í maí mánuð fór hann ásamt vinum út á lífið og lenti þar í útistöðum við ungan mann. Maðurinn gaf í skyn að frekari vandræði yrðu framundan og viku síðar, stóð hann við loforðið. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com
Adam Strong hafði nýverið fengið nágranna sem voru kannski aðeins afskiptasamari en þeir fyrri sem hann hafði átt, því í kringum jólin 2017 tóku þau ákvörðun um að heyra í pípara eftir að hafa reynt að ræða við Adam án árangurs, en það hafði verið vesen með lagnirnar í húsinu frá því að þau fluttu inn. Það sem píparinn fann var eitthvað sem enginn hefði getað gert ráð fyrir, og í kjölfarið fengu tvær fjölskyldur svör við því hvað raunverulega varð um ástvini þeirra. Áskrift kostar 1.390 kr.- á mánuði og inniheldur: ‼️ Engar auglýsingar ‼️ 4-5 mál á mánuði ‼️ Auka umræðuþátt um mál líðandi stundar ‼️ Allt eldra efni aðgengilegt Hægt að skrá sig hér: www.pardus.is/mordskurinn Þátturinn er í boði Define The Line Sport, en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum
Það sem átti að vera rómantískur rúntur hjá Carla Walker og kærasta hennar eitt febrúar kvöld árið 1974, varð að einhverju allt, allt öðru. Ráðist hafði verið á unga parið og Carla horfið í kjölfarið og eftir fjögurra daga leit fannst hún látin. Við tók tugi ára þar sem engin svör var að fá, það var ekki fyrr en að nútímatækni var til staðar og röð ótrúlegar tilviljana sem að mál hennar loksins leystist. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com
Linda taldi niður dagana í brúðkaupið sitt með Mats, en áður stóri dagurinn kom þá hvarf hún skyndilega. Hún hafði eytt deginum með unnusta sínum og farið svo út að skemmta sér um kvöldið en skilaði sér aldrei heim. Leit að henni skilaði engum árangri fyrr en að unnustinn hennar hvarf einnig, og þegar hann að lokum fannst þá fengu rannsakendur góða hugmynd um hvað hefði komið fyrir. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt!
Það var mikið áfall eina nótt í maí mánuð árið 2007, þegar Maggie Haines hljóp af heimili sínu til nágranna sinna og óskaði eftir aðstoð lögreglu. Þegar lögreglu loksins bar að kom í ljós að þrír af fjórum meðlimum Haines fjölskyldunar höfðu verið myrt, stungin til bana inn á heimili þeirra. Rannsókn málsins var vandasöm en ekki voru til staðar mikil sönnunargögn sem beindu lögreglu í átt að gerandanum - ekki fyrr en þeim barst loksins símtal. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com
Arnold og Ruby höfðu verið úti að skemmta sér og að kvöldi loknu ætluðu þau að sækja dóttur sína í pössun, en þar sem þau voru verulega ölvuð var ákveðið að það myndu sækja hana daginn eftir. Litla frænka Ruby ákvað að slást í för með þeim heim en þau komust aldrei á leiðarenda, því á leiðinni lentu þau í bílslysi. Litla frænkan rankar við sér í bílnum og sér að Ruby er að troða sér út úr bílnum, en Arnold er hvergi sjáanlegur, og áður en hún veit af þá er Ruby búin að skella hurðinni og eftir situr hún föst í bílnum sem er hvolfi. Það sem frænkan vissi þó ekki var að þetta yrði í síðasta skipti sem hún myndi sjá þau á lífi því Arnold og Ruby hurfu sporlaust og tók það nokkra mánuði að finna þau. Með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Inni á www.pardus.is/mordskurinn er hægt að finna yfir 160 þætti í áskrift!
Bartholomew fjölskyldan var stór, samanstóð af hjónunum Clifford og Heather og börnum þeirra sjö. Fjölskyldan var alla tíð talin hamingjusöm og hjónaband Cliffords og Heathers með þeim betri, þau voru miklir vinir og samheldin. Það var því eins og þruma úr heiðskíru lofti þegar Clifford tók skelfilega ákvörðun eina nótt í september mánuð árið 1971. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Með kóðanum "morðskúrinn" fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu fleiri þætti? Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Sydney Powell, dóttir Brendu og Steve, hafði lengi vel gengið vel í skólanum og enginn hafði áhyggjur af henni fyrr en Steve reyndi einn daginn að greiða skólagjöldin hennar en gat ekki skráð sig í skólagáttina. Hann spurði dóttur sína ítrekað út í það en fékk fá svör. Steve ákvað að heyra í skólanum, og komust þau hjónin að því að Sydney hafði í raun verið vikið úr skóla, það var samt sem áður ekki það hræðilegasta sem gerðist þann dag, því sama dag hafði óboðinn aðili brotist inn á heimilið þeirra og myrt Brendu. Steve var þakklátur fyrir það að dóttir sín Sydney hefði lifað árásina af, eða allt þar til hann komst að sannleikanum. Þátturinn er í boði Define the Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt! Komdu í áskrift -> www.pardus.is/mordskurinn Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn
Archie átti mjög langa og mjög grófa ofbeldissögu að baki en allt leit út fyrir að hann myndi snúa við blaðinu þegar hann eignaðist sitt fyrsta barn. Svo var reyndar ekki og ástandið átti bara eftir að versna þegar sonur hans lést í skelfilegu slysi kornungur. Archie ætlaði sér að gera allt hvað hann gat til að fá son til baka. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com
Donna Scrivo hafði nýverið misst eiginmann sinn, en eftir það ákvað hún að taka að sér umönnun á 29 ára syni sínum þar sem hún taldi hann ekki hæfan til að sjá um sig sjálfur. Það var svo árið 2014 sem Ramsay, sonur hennar, hvarf sporlaust og leitaði áhyggjufull Donna til lögreglunnar. Rannsókn átti eftir að leiða í ljós hræðilegan atburð sem reynt var að hylma yfir. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Áskriftin okkar inniheldur yfir 150 þætti og kostar aðeins 1.390kr.- á mánuði, en hægt er að nálgast hana á www.pardus.is/mordskurinn Samfélagsmiðlar @mordskurinn
Douglas Cleaves eða Doug var 25 ára gamall þegar hann lenti í skelfulegu vinnuslysi sem hafði gríðarleg áhrif á hans líf. Með jákvæðnina að vopni ætlaði hann þó að aðlagast nýjum raunveruleika því hann átti lítinn son sem treysti á hann. Doug fékk þó ekki tækifæri til þess. Þátturinn er í boði Define The Line Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com
Þann 25. nóvember 2022 mætti lögreglumaður að heimili Winek fjölskyldunnar í þeim erindagjörðum að ná tali af barnabarni Mark og Sharie. Hún og móðir hennar Brooke voru ekki viðstaddar, en voru beðnar um að koma heim til að ræða við lögreglumanninn á meðan hann beið eftir þeim. Enginn vissi hvaða vandræði barnabarnið var búið að koma sér í svo Brooke dreif sig heim með dóttur sína. Stuttu síðar fékk neyðarlínan tilkynningu um að eldur væri í íbúðarhúsnæði í Riverside, og enginn átti eftir að komast yfir það sem hafði gerst. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Yfir 150 þættir aðgengilegir inni á www.pardus.is/mordskurinn fyrir aðeins 1.390kr.- á mánuði!
Hin gullfallega Alyssa var 17 ára gömul þegar hún ásamt vinkonu sinni fóru til að hitta mann með þeim tilgangi að versla sér lyfið Percocet. Maðurinn átti hinsvegar ekki eftir að selja þeim það lyf heldur töflur sem innihéldu Fentanýl. Þetta átti eftir að hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com
Catherine Hoggle var gift þriggja barna móðir sem hafði lengi vel verið að stríða við andlega heilsu, en ástandið var orðið svo slæmt að hún gat ekki lengur verið ein í kringum börnin sín. Hún var því undir stöðugu eftirliti og hjálpuðust vinir og vandamenn að við að passa að hún væri aldrei ein með þeim. Að lokum þurfti svo að gefa henni traust enda var þetta ekki framtíðarplan, og þegar það kom loksins að því að leyfa henni að vera einni með Jacob þá hvarf hann. Daginn eftir hvarf svo Sarah, og enginn veit hvað varð um börnin. Með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Áskriftarleiðin okkar kostar 1.390kr.- og inniheldur yfir 150 þætti! www.pardus.is/mordskurinn
Harvey Glatman var mjög ungur þegar hann var farinn að bera merki um að hann yrði sjálfsagt ekki eins og flestir. Foreldrar hans höfðu leitað aðstoðar vegna vanda sem hann sýndi en læknirinn hafði sannfært um að hegðun sem hann sýndi af sér myndi vaxa af honum. Svo var aldeilis ekki, Harvey var ungur farinn að áreita konur og komst svo miklu miklu lengra en hann hefði átt að geta. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn www.facebook.com/mordskurinn www.instagram.com/mordskurinn
Hin 73 ára Annie og 71 árs Robert höfðu verið gift lengi og áttu fallegt samband, fallega fjölskyldu og voru einnig mjög auðug, en Robert hafði stundað mikil viðskipti í gegnum tíðina og Annie var virk í samfélaginu. Robert hafði hins vegar lennt í því leiðinlega veseni að þurfa að höfða málsókn á hendur 12 aðila vegna vangreiddra skulda, en það fór í gegn og lífið hélt áfram. Robert mætti svo heim einn daginn og tók eftir því að konan hans var horfin, og ekki leið á löngu þar til honum barst bréf, bréf sem gerði honum það ljóst að Annie hafði verið rænt. Yfir 150 áskriftarþættir eru inni á www.pardus.is/mordskurinn en þú getur hlustað fyrir aðeins 1.390 kr.- á mánuði! Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum inni á www.definethelinesport.com Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum @mordskurinn
Árið 2009 fór kona nokkur í gönguferð með hundinn sinn í eyðimörk í úthverfum Albuquerque. Það sem átti að vera góður göngutúr breyttist fljótt í uppgötvun á líkamsleifum. Í kjölfarið kom í ljós að 11 lík voru grafin þar, allt ungar konur sem höfðu verið myrtar nokkrum árum áður. Við tók erfitt verkefni að bera kennsl á líkamsleifarnar sem og finna hver ætti sök á máli. Þátturinn er í boði Define The Line kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Áskriftarleiðin okkar er á 1.390kr.- á mánuði og inniheldur yfir 140 þætti! Vertu með: www.pardus.is/mordskurinn Með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum hjá Define The Line Sport
Í september mánuð 2006 ákvað hin fjögurra barna móðir Joan að fara út að skokka, eins og hún hafði gert margsinnis áður, en þetta skipti átti eftir að verða hið síðasta. Joan fannst látin tvem dögum síðar, hafði verið myrt. Í kjölfar rannsóknar á morðinu á Joan fóru að koma fleiri upplýsingar í ljós og fleiri mál sem tengdist lífssýni sem hafði fundist á vettvangi. Umrædd mál höfðu áður verið rannsökuð án árangurs en nú átti það eftir að breytast. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% af slátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Warren Barnes var góðvinur bæjarbúa í Grand Junction, en hann var heimilislaus og eyddu ófáum stundum í að spjalla við þá sem urðu á vegi hans. Það var svo árið 2021 sem hann hvarf, og hafði búðareigandi og vinkona hans strax áhyggjur af honum enda var hann vanur að mæta til hennar daglega. Þann sama dag hafði orðið óhapp í bænum, þegar hinn 19 ára Brian Cohee missti bílinn sinn út í vatn og var það mikið sjokk þegar lögreglan komst að því að þessir tveir atburðir tengdust. Þátturinn er í boði Define The Line, en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum.
Barbara Weaver, áður Miller, var þrítug fimm barna móðir og Amish. Hún hafði tileinkað lífi sínu eiginmanninum sínum sem og börnum og naut ekki neins eins og hún naut þess að vera móðir. Hún var því miður gift manni sem ekki mat hana eins og hann hefði átt að gera og þegar hugurinn hans fór að reika tók hann það út á eiginkonu sinni. Niðurstaðan varð fimm móðurlaus börn. Þátturinn er í boði Define The Line Sport Kóðinn "morðskúrinn" veitir 15% afslátt af öllum vörum inn á www.definethelinesport.com Viltu koma í áskrift? www.pardus.is/mordskurinn
Suzy var fasteignasali og þann 28. júlí árið 1986 fór hún að hitta mögulegan kúnna að nafni Mr. Kipper við fasteign á Shorrolds Roud í Fulham. Hún hinsvegar skilaði sér aldrei aftur í vinnuna og í kjölfarið var haft samband við lögreglu. Enginn hafði heyrt í henni þennan dag en nokkur vitni stigu fram og sögðust hafa séð hana með óþekktum manni, manni sem lögreglan telur sig vita hver er. Þátturinn er í boði Define The Line Sport en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum!