Podcasts about Steinunn

  • 69PODCASTS
  • 280EPISODES
  • 1h 16mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Apr 16, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about Steinunn

Show all podcasts related to steinunn

Latest podcast episodes about Steinunn

Poppland
Síðasta Poppland fyrir páskafrí

Poppland

Play Episode Listen Later Apr 16, 2025 195:00


Andrea Jóns og Arnar Eggert fara yfir plötu vikunnar, Brb Babe með Amor Vincit Omnia og Salóme Katrín sendir in póstkort með nýju lagi. BJARNI ARASON - Það Stendur Ekki Á Mér. EMILÍANA TORRINI - Me And Armini. NEIL DIAMOND - Sweet Caroline. Sia, Paul, Sean - Cheap thrills. THE WHITE STRIPES - Seven Nation Army. Steinunn Jónsdóttir - Stiklað á stóru. KIM CARNES - Bette Davis Eyes. Warmland - The Very End of the End (The Beginning of Something Great). THE SMASHING PUMPKINS - Bullet with Butterfly Wings. OASIS - Wonderwall. RADIOHEAD - Planet Telex. FOO FIGHTERS - This is a call. ALANIS MORISSETTE - You oughta know. PULP - Disco 2000. Nýdönsk - Fyrsta skiptið. Amor Vincit Omnia - Do You. AMY WINEHOUSE - Back To Black. Ágúst Þór Brynjarsson - Eins og þú. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir - Barnagælur. KALEO, KALEO - Glass House (Live - Aldrei fór ég suður 2014). MUGISON - Gúanóstelpan (Live - Aldrei fór ég suður 2014). HELGI BJÖRNS & STÓRSVEIT VESTFJARÐA - Halló ég elska þig (Live - Aldrei fór ég suður 2014). ÍRAFÁR - Fingur. Salóme Katrín - Always and forever. PULP - Common People '96. SIGRID - A Driver Saved My Night. Sigur Rós - Hoppipolla. Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík. Daði Freyr Pétursson - I don't wanna talk. GORILLAZ - Feel Good Inc.. Amor Vincit Omnia - Amor Vincit Omnia. Ragnheiður Gröndal & Jesus Christ Superstar Tribute - I Don't Know How To Love Him (Stúdíó 12 - 27.03.2015). ACE OF BASE - All That She Wants. Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Allt í lagi. HIPSUMHAPS - Góðir hlutir gerast hææægt. Mono Town - The Wolf. ETTA JAMES - I Just Want To Make Love To You. BONNIE TYLER - Total eclipse of the heart. KALEO - Glass House (Live - Aldrei fór ég suður 2014). MUGISON - Gúanóstelpan (Live - Aldrei fór ég suður 2014). Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir - Barnagælur. HELGI BJÖRNS & STÓRSVEIT VESTFJARÐA - Halló ég elska þig (Live - Aldrei fór ég suður 2014). KALEO - Glass House (Live - Aldrei fór ég suður 2014). Moses Hightower - Bílalest út úr bænum. RAGGI BJARNA OG MILLJÓNAMÆRINGARNIR - Smells Like Teen Spirit. THE SMASHING PUMPKINS - Bullet with Butterfly Wings. OASIS - Wonderwall. RADIOHEAD - Planet Telex. FOO FIGHTERS - This is a call. ALANIS MORISSETTE - You oughta know. PULP - Disco 2000. BLUR - Country House. Emmsjé Gauti, Króli - 10 Þúsund. GUS GUS - Ladyshave. THE SOURCE ft. CANDY STATON - You Got The Love (New Voyager Radio Edit). VALDIMAR - Yfirgefinn. Wilder, M., MATTHEW WILDER - Break My Stride (80). Wuh Oh, Ellis-Bextor, Sophie - Hypnotized (bonus track wav). Snorri Helgason - Ein alveg. Lizzo - Still Bad. Mugison, Rúna Esradóttir - Gúanó stelpan.

kr sia hj asta upp something great kaleo sigur r katr fyrir butterfly wings fyrsta ragnhei steinunn andrea j oasis wonderwall gorillaz feel good inc mugison pulp disco stikla emmsj gauti steinunn j kim carnes bette davis eyes ace of base all that she wants poppland
Mannlegi þátturinn
Þættir um Arnar og Bjarka, gengið til Rómar og veðurspjallið með Einari

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 1, 2025 49:32


Við forvitnuðumst í dag um nýja sjónvarpsþáttaröð sem kallast A&B og er saga tvíburanna Arnars og Bjarka Gunnlaugssona. Þeir vöktu fljótt mikla athygli fyrir mikla hæfileika á knattspyrnuvellinum á Skaganum. Þeir fóru ungir í atvinnumennskuna, léku með landsliðinu og saga þeirra þar er rakin í þáttunum. Þeim er svo fylgt eftir í gegnum viðskiptaævintýri eftir atvinnumennskuna og hvernig þeir fundu báðir aftur fótboltann og nú er til dæmis Arnar orðinn landsliðsþjálfari hjá karlalandsliðinu. Þetta er saga drengja sem upplifa drauma sína, en lenda líka í hremmingum innan sem utan vallar. Gunnlaugur Jónsson, umsjónarmaður, handritshöfundur og framleiðandi þáttanna, kom í þáttinn ásamt Arnari, öðrum bróðurnum. Steinunn Harðardóttir leiðsögukona hefur í 12 ár farið í pílagrímsgöngur áleiðis til Rómar en á miðöldum gengu fjölmargir íslenskir pílagrímar til Rómar. Einn þeirra var Nikulás ábóti á Munkaþverá í Eyjafirði en hann fór til Noregs og Danmerkur og gekk þaðan til Rómar og svo alla leið til Jerúsalem. Hann skrifaði leiðarvísi fyrir aðra pílagríma árið 1153-4, „Leiðarvísir og borgarskipan“ er sá eini sinnar tegundar frá þessum tíma sem hefur varðveist í Evrópu. Þegar Steinunn kom til Rómar síðasta haust stóðu yfir miklar viðgerðir á borginni vegna Heilags árs hátíðarhöldum sem hófust á jólum 2024 og standa út allt þetta ár. Heilög ár eru haldin af kaþólsku kirkjunni á 25 ára fresti. Steinunn kom í þáttinn og sagði okkur nánar frá. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það er hafið nýtt eldgos suðaustur af Þorbirni við Grindavík, því fór Einar aðeins yfir stöðuna, til dæmis hvað varðar gasdreifingu. Svo gerði hann aðeins upp veturinn, en með mars lauk veðurstofuvetrinum. Einar talaði svo að lokum um mikla hita sem nú geysa á fjarlægum slóðum, s.s. sunnarlega í Bandaríkjunum, í Kákasus og á Tælandi og merkilegt marsveður sem Madrídingar og Spánverjar hafa upplifað. Tónlist í þættinum í dag: Ég skal bíða þín / Helgi Björnsson (Michel Legrande, texti Hjördís Morthens) April in Paris / Count Basie orchestra (Vernon Duke) Creepin' in / Dolly Parton og Norah Jones (Lee Alexander) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Segðu mér
Jóhanna Lind Guðmundsdóttir og Steinunn Dögg Steinsen

Segðu mér

Play Episode Listen Later Mar 4, 2025 40:37


Mæðurnar Jóhanna Lind og Steinunn Dögg segja frá þeirri reynslu að missa börn.

Stuff You Missed in History Class
Jón Arason, Last Catholic Bishop of Iceland

Stuff You Missed in History Class

Play Episode Listen Later Jan 27, 2025 43:48 Transcription Available


Jón Arason was the last Catholic bishop in Iceland before it became a Lutheran country. His story involves a lot of gory details in this story including a pretty gruesome beheading. Research: Buck, Thomas. “An Icelandic Martyr: Jón Arason.” Studies: An Irish Quarterly Review, vol. 46, no. 182, 1957, pp. 213–22. JSTOR, http://www.jstor.org/stable/30103574. Accessed 8 Jan. 2025. Cunningham, Jack. “Jón Arason, ‘the last Icelander’ and the Coming of the Reformation to Iceland,” Reformation & Renaissance Review, 11:3, 245-273, DOI: 10.1558/rrr.v11i3.245.” Gunnarsson, Gisli. “Question: Is it really true that all Icelanders are descended from Jón Arason, the last Catholic bishop of Iceland, who was executed in 1550?” The Islandic Web of Science. 3/5/2005. https://www.why.is/svar.php?id=4789 Ker, W.P. “JÓN ARASON.” Saga-Book, 1913-1914, Vol. 8 (1913-1914), pp. 149-171. Via JSTOR. https://www.jstor.org/stable/10.2307/48611694 Kristjánsdóttir, Steinunn. “The Dissolution of the Monastic Houses in Iceland.” Religions 15: 771. https://doi.org/10.3390/rel15070771 Oleson, Tryggvi J. “A Note on Bishop Jón Arason.” Speculum , Jul., 1954, Vol. 29, No. 3 (Jul., 1954), pp. 535-536. Via JSTOR. https://www.jstor.org/stable/2846795 Oleson, Tryggvi J. “Bishop Jón Arason 1484-1550.” Speculum , Apr., 1953, Vol. 28, No. 2 (Apr., 1953). Via JSTOR. https://www.jstor.org/stable/2849686 See omnystudio.com/listener for privacy information.

Mannlegi þátturinn
Stóra brauðtertubókin, 100. vinkillinn og Steinunn Lilja lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 4, 2024 50:00


Brauðtertan hefur fylgt okkur Íslendingum lengi og hún er borin á borð bæði á gleði- og sorgarstundum. Sagan segir að danska leikskáldið Ludwig Holmberg hafi kynnt til sögunnar samlokutertu í leikverki um aldamótin 1700 en það var svo í kringum 1940 sem samlokutertur, eða brauðtertur (smårgåstorta), urðu vinsælar í Svíþjóð og stuttu síðar í Finnlandi og svo hér á Íslandi var fjallað um brauðtertur í íslenskum tímaritum árið 1953. Brauðterta með rækjusalati er það sem flestir kalla hina klassísku brauðtertu en margir elska hangikjötsbrauðtertuna og enn aðrir skinkusalatsbrauðtertuna. Í dag er brauðtertugerð orðin að keppnisgrein á Íslandi. Friðrik V. Hraunfjörð og Erla Hlynsdóttir eru tvö af sex höfundum Stóru Brauðtertubókarinnar sem var að koma út og þau komu í brauðtertuspjall í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og þessi var sá 100. í röðinni frá honum. Guðjón Helgi fjallaði að þessu sinni um svæði sem stundum lendir í fréttum hjá okkur, borgina Karachi í Pakistan. Rætt er um fasteignaauglýsingu sem bar fyrir augu pistlahöfundar á rápi sínu um internetið, en þar eru falboðnar nokkrar lóðir við sjóinn í Karachi og auk þess var minnst á mannskætt flóð sem var á þessum slóðum fyrir fjórum árum. Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Steinunn Lilja Emilsdóttir verkefnastjóri á Ónæmisfræðideild Landspítalans. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum lífið. Tónlist í þættinum Bakkelsi / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Waterloo Sunset / The Kinks (Ray Davies) Afturábak / Moses Hightower (Magnús Trygvason Eliassen, Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson, texti Andri Ólafsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Rauða borðið
Synir Egils 3. nóv - Kosningar, kappræður, kjaradeilur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Nov 3, 2024 121:09


Sunnudagurinn 3. nóvember: Synir Egils: Kosningar, kappræður, kjaradeilur Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þær Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR, Sema Erla Serdaroglu aðjúnkt og Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt og ræða pólitík og samfélag í aðdraganda kosninga. Þeir bræður taka púlsinn á Alþingi og ræða síðan um verkföll í kosningabaráttu. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins greinir stöðuna í kjaraviðræðum.

Spegillinn
Dánaraðstoð og vaxandi losun gróðurhúsalofttegunda

Spegillinn

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 20:00


Umræðu um dánaraðstoð skýtur reglulega upp kollinum hér á landi, þingsályktunartillögur, frumvörp og skýrslur hafa litið dagsins ljós og í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöld var fjallað um Jón Grímsson sem sótti um dánaraðstoð í Washington-ríki í Bandaríkjunum. Steinunn Þórðardóttir, formaður læknafélagsins, segir að það verði ekki aftur snúið verði þetta skref tekið. Reynsla frá þeim löndum þar sem þetta hefur verið leyft sýni líka að mörkin verði sífellt óljósari. Þá megi ekki gleyma því að þetta sé eðlisbreyting á hlutverki lækna. Freyr Gígja Gunnarsson talar við Steinunni. Í nýrri skýrslu Alþjóða veðurfræðistofnunarinnar kemur fram, að þrátt fyrir mikinn þrýsting og fögur fyrirheit um að draga hratt og mikið úr losun helstu gróðurhúsalofttegunda hefur styrkur þeirra þvert á móti aukist og hefur aldrei mælst meiri en í fyrra. Reyndar hefur ekki verið jafnmikill koltvísýringur í lofthjúp Jarðar síðan fyrir þremur til fimm milljónum ára, þegar meðalhitinn var tveimur til þremur gráðum hærri en nú og yfirborð sjávar tuttugu til þrjátíu metrum hærra. Styrkur gróðurhúsalofttegunda eykst líka hraðar það sem af er þessari öld en dæmi eru um. Ævar Örn Jósepsson fjallar um þetta og nýja skýrslu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, þar sem fram kemur að gildandi aðgerðaáætlanir ríkja heims séu óravegu frá því að tryggja að hlýnun Jarðar fari ekki umfram 1,5 gráður. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Rauða borðið
Rauða borðið: Vinstrið, pólitíkin, kannabis, þjóðarmorð og rauðar heimsbókmenntir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Oct 7, 2024 277:09


Mánudagurinn 7. október Vinstrið, pólitíkin, kannabis, þjóðarmorð og rauðar heimsbókmenntir Við höldum fund með rótum Vg: Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingkona, Einar Ólafsson skáld og bókavörður, Margrét Pétursdóttir verkakona og Guðmundur Auðunsson hagfræðingur, sem öll hafa verið í Vg, ræða um stöðu vinstrisins í dag. Í Þinginu ræðir Björn Þorláks við Ólaf Harðarson stjórnmálafræðing. VG og framtíð ríkisstjórnarinnar ber þar hæst. Við ræðum hamp og kannibis við fjórar konur: Lára Bryndís Pálmadóttir hefur tekið inn cbd-olíu vegna verkja, Brynhildur Arthúrsdóttir er móðir stúlku með flogaveiki sem hefur líka notað cbd, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er aðstandandi sjúklings sem tók inn kannabisolíur og Þórunn Jónsdóttir er stofnandi og varaformaður Hampfélagsins og stendur fyrir ráðstefnu um hamp. María Lilja ræðir við mótmælendur á tímamótum sem hafa staðið vaktina með Palestínu síðasta árið. Bókmenntafræðingarnir Anna Björk Einarsdóttir og Benedikt Hjartarson eru gestaritstjórar Ritsins sem fjalla um rauða heimsbókmenntirnar. Þau segja okkur frá áhrifum þeirra á menningu og pólitík.

Vikulokin
Steinunn Þóra Árnadóttir, Sandra Hlíf Ocares, Gísli Rafn Ólafsson

Vikulokin

Play Episode Listen Later Sep 28, 2024 57:45


Gestir Vikulokanna eru Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna, Sandra Hlíf Ocares varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata. Þau ræddu meðal annars orkumál, rannsókn lögreglu í byrlunarmálinu, starfsmannaleigur, efnahagsmál og stöðuna í stjórnmálunum. Umsjónarmaður: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Rauða borðið
Synir Egils 1. sept - Pólitískt umrót, efnahagslægð, lífskjarakrísa og kjaradeilur

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 1, 2024 133:49


Sunnudagurinn 1. september Synir Egils: Pólitískt umrót, efnahagslægð, lífskjarakrísa og kjaradeilur Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Helga Vala Helgadóttir lögmaður, Helgi Seljan rannsóknarritstjóri Heimildarinnar og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og ræða fréttir vikunnar, umrót í stjórnmálum, efnahagslægð og lífskajarakrísu. Að því loknu ræða þeir bræður stöðuna í pólitíkinni og síðan koma þær Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM, Svana Helen Björnsdóttir, formaður Félags verkfræðinga og Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins og ræða stöðu kjaramála stétta með lausa samninga.

Segðu mér
Steinunn Þórarinsdóttir myndhöggvari

Segðu mér

Play Episode Listen Later Aug 21, 2024 38:47


Rauða borðið
Ungt fólk, Gaza, einmanaleiki, og Ríkisútvarpið.

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 12, 2024 239:30


Mánudagur, 12. ágúst Ungt fólk, Gaza, einmanaleiki, og Ríkisútvarpið. Ungir hafa orðið, kalla Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Björn Þorláks, umræðu með Sóleyju Lóa Smáradóttir, 17 ára, Karli Héðini Kristjánssyni og Gunnari Ásgrímssyni, 24 ára. Þau ræða hlutskipti ungra Íslendinga á tímum óvissu og hraðra breytinga. Þá kemur Magga Stína og segir okkur fréttir af Gaza. Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir hjúkrunarfræðingur og fræðikona segir okkur frá því hvernig einmanaleikinn getur drepið fólk og svipt okkur lífsgæðum. Og hvernig við getum varist honum. Í lokin kemur Guðni Tómasson menningarritstjóri Ríkisútvarpsins og ræðir stöðu stofnunarinnar.

Rauða borðið
Vikuskammtur: Vika 32

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 9, 2024 87:53


Föstudagur, 9. ágúst Vikuskammtur: Vika 32 Þau Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Björn Þorláks ræða fréttir líðandi stundar með Atla Þór Fanndal og þeim Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur sem stýra heitasta podcasti landsins; Komið Gott. Stálu Vestmannaeyingar þjóðhátíðinni? Nýr forseti, sálgreining á Elon Musk, versta sumarveður síðan 1984, afhverju virðist tískusveifla í þá átt að konur snúi aftur til heimilisstarfa? Dægurmenning og hörmungarhyggja. Mun ríkisstjórnin eyða sér sjálf í haust? Þetta og fleira verður til umræðu í Vikuskammtinum á Samstöðinni í dag.

Rauða borðið
Gos, Gaza, hrun, herleysi og ást

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 7, 2024 247:43


Miðvikudagurinn 7. ágúst: Gos, Gaza, hrun, herleysi og ást Rauða borðið snýr aftur í kvöld, eftir stutt sumarfrí. Umsjónarmenn auk Gunnars Smára Egilssonar þau Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Þorláks og Oddný Eir Ævarsdóttir. Grindvíkingarnir Jóhanna Lilja Birgisdóttir sálfræðingur og Magnús Gunnarsson trillukarl segja frá bið heimafólks eftir næstu eldsumbrotum. Magga Stína segir fréttir frá Palestínu og Ásgeir Brynjar Torfason segir okkur frá áhrifum hruns á hlutabréfamörkuðum. Í lokin ræðum við um þrjár bíómyndir um ástina.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“ Þú ert barnið hennar konunar þinnar” -#485

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jul 9, 2024 50:29


Helgi var að koma heim frá Portúgal þar sem hann og Steinunn Ólína fóru á umhverfisráðstefnu, þar lentu þau í miklum ævintýrum. Hjálmar fór í sumarbústað um helgina sem er mjög óvenjulegt fyrir hann. Steinunn Ólína segir ástæðuna fyrir því af hverju Helgi er ekki í sambandi.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Helgaspjallið
Þáttur 186 - Steinunn Þórðar / Namasteina snýr aftur um HLAUP 101 og endurhæfing eftir ofbeldi

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Jun 30, 2024 73:09


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Bpro - www.bpro.is Steinunn Þórðar eða Namasteina kom í Helgaspjallið fyrir örfáum árum, og vakti þá mikla athygli fyrir einlæga og öfluga frásögn um ofbeldissamband sem hún var þá í. Það var yndislegt að hittast aftur í þessum þætti bæði búin að vinna í eftirköstum og komin á fallegan stað í sjálfum okkur. Við ræðum þau mál en svo mál málanna, HLAUP! Ég er að gíra mig upp í að verða hlaupari eins og hún og hún tekur okkur í algjöran, alvöru og einlægan masterclass. Hlaupum saman! Hægt er að fylgjast með Steinunni á Instagram: @namasteina Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

Rauða borðið
Synir Egils: Pólitískar sveiflur vestan hafs og austan og hér líka

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 30, 2024 121:52


Synir Egils: Pólitískar sveiflur vestan hafs og austan og hér líka Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og Ögmundur Jónasson fyrrum þingmaður og ráðherra og ræða pólitík og samfélag, aldna forsetaframbjóðendur, lausn Julian Assange, veika stöðu Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og togstreitu í samfélaginu og átök. Þeir bræður munu síðan taka púlsinn á pólitíkinni.

Lestin
Menntaskóla-reunion, bækur forsetaframbjóðenda, formaður húsfélagsins

Lestin

Play Episode Listen Later May 28, 2024 55:27


Menntaskólar landsins eru í óða önn að útskrifa nemendur í massavís um þessar mundir. En það sem fylgir þessum árstíma líka fyrir sum okkar, eru útskriftarafmælin, svokölluð menntaskóla-reunion, viðburðir þar sem heilu árgöngunum er boðið á stefnumót við fortíðina. Helgi Grímur Hermannsson býr í fjölbýli og hann er formaður húsfélagsins. Hann er að velta fyrir sér mannlífi milli íbúða, nánd milli veggja. Forsetaframbjóðendur voru beðnir, af Amtsbókasafninu á Akureyri, að mæla með bók. Steinunn Ólína mælti með Passíusálmunum, Katrín Jakobsdóttir með Bréfi til Láru eftir Þórberg. Baldur Þórhallsson valdi hins vegar barnabók eftir Astrid Lindgren, Bróðir minn Ljónshjarta. En hvaða merkingu hefur þetta? Hvernig má skilja þetta? Jóhannes Ólafsson, bókmenntafræðingur og þáttastjórnandi bókmenntaþáttar Rásar 1, Bara bækur, gerir tilraun til þess að greina listann.

Spegillinn
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, íslensk tunga og skotsvæðið í Álfsnesi

Spegillinn

Play Episode Listen Later May 24, 2024 20:00


Nýlega samþykkti Alþingi áætlun í málefnum íslenskrar tungu þar sem taldar eru upp 22 aðgerðir stjórnvalda til að vernda og þróa tungumálið, og gildir áætlunin til 2026. Rætt verður við Ármann Jakobsson, formann íslenskrar málnefndar. Þá verður einnig fjallað um skotsvæðið á Álfsnesi sem verður þar næstu fjögur til fimm árin við litla hrifningu íbúa. Fyrst er þó viðtal við forsetaframbjóðanda og að þessu sinni er komið að Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur.

Ólafssynir í Undralandi
Steinunn Ólína í Undralandi

Ólafssynir í Undralandi

Play Episode Listen Later May 19, 2024 82:28


Já kæru hlustendur, það er hún Steinunn Ólína sem er gestur Undralandsins að þessu sinni. Við Ólafssynir spurðum hana spjörunum úr en nú stendur hún í framboði til embættis forseta Íslands og því var óneitanlega freistandi að fara aðeins yfir samfélagsmálin í bland við persónulegri málefni. Eigið yndislegan sunnudag kæru Undralendingar!

Bylgjan
Sprengisandur 12.5.2024 - Viðtöl þáttarins

Bylgjan

Play Episode Listen Later May 12, 2024 96:57


Kristjan Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Bryndís Haraldsdóttir og Oddný G. Harðardóttir alþingismenn um stjórnmál og Norðurlandaráð. Ingrid Kuhlman ráðgjafi og Steinunn Þórðardóttir læknir um dánaraðstoð. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra um utanríkismál og Atlanshafsbandalagið. Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Hjörtur J. Guðmundsson stjórnmálafræðingur um forsetakosningar.

Podcast með Sölva Tryggva
#267 Steinunn Ólína með Sölva Tryggva

Podcast með Sölva Tryggva

Play Episode Listen Later Apr 22, 2024 65:47


Nálgast má þáttinn í heild sinni án auglýsinga inn á; https://solvitryggva.is/ Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir á að baki magnaðan feril og lífshlaup. Í þættinum ræða Sölvi og Steinunn um sorgir, sigra, samfélagsmál, forsetaembættið og margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ Gullfoss - https://gullfoss.is/

Helgaspjallið
Þáttur 179 - Kynnumst forsetaframbjóðendum 2024: Steinunn Ólína

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Apr 21, 2024 57:09


Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Bpro - www.bpro.is Steinunn Ólína er sá forsetaframbjóðandi sem ég hef verið forvitnastur um og var ég ekki vonsvikinn í þessum þætti, þvert á móti meira segja. Jafningi, sjálfsþekking og öryggi eru eiginlega orðin sem ég tók með mér eftir þetta spjall okkar Steinunnar. Við fórum um víðan völl í þessum þætti og verð að segja, að framboð hennar þykir mér sérstaklega spennandi. Slagorðið hennar í framboði sínu er "Með hjartanu" og tel ég það eiga mjög vel við. Ég mæli með að hlusta og fá að kynnast þessari mögnuðu konu enn betur! Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Studíó-i Podcaststöðvarinnar

Flugvarpið
#74 – Lifandi saga flugsins varðveitt og kynnt - Flugsafn Íslands - Steinunn María Sveinsdóttir

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Apr 6, 2024 65:07


Rætt er við Steinunni Maríu Sveinsdóttur safnstjóra Flugsafns Íslands. Flugsafnið hefur vaxið og dafnað á síðustu árum og stór verkefni blasa við á næstunni, en safnið fagnar 25 ára afmæli í vor. Steinunn segir hér frá fjölmörgum áhugaverðum verkefnum til þessa og hvernig ætlunin er að þróa starf safnsins enn frekar í þá átt að ekki eingöngu að varðveita muni og sögu heldur einnig að opna heim flugsins fyrir þeim sem ekki þekkja. Hún segir mikinn velvilja gangavart Flugsafninu og þar fer Örninn hollvinafélagið einna fremst í flokki. Viðtalið var tekið upp á Flugsafni Íslands um borð í TF-SYN gömlu Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar.

Morgunvaktin
Passíusálmar, páskahefðir og að njóta litlu hlutanna í lífinu

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Mar 27, 2024 130:00


Páskahátíðin er fram undan og þátturinn tók að nokkru leyti mið af því. Það er orðin hefð hjá okkur að fjalla um passíusálma Hallgríms Péturssonar í aðdraganda páska og í hana höldum við í dag. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur hefur umsjón með flutningi Passíusálmanna í Hallgrímskirkju í Reykjavík á föstudaginn, föstudaginn langa. Steinunn spjallaði um þetta höfuðverk skáldsins og píslargöngu krists. Og svo voru það dönsku málefnin; Borgþór Arngrímsson sagði frá því sem er efst á baugi í Danmörku þessa dagana og rabbaði líka um danskar páskahefðir. Við ræddum líka um hamingju og vellíðan - það er sígilt umhugsunarefni en okkur datt í hug að sniðugt væri að taka með okkur vangaveltur um þau mikilvægu mál inn í páskaleyfið. Við fjölluðum um listina að kunna að njóta þess smáa; að njóta “litlu hlutanna” eins og sagt er. Ingrid Kuhlman sálfræðingur hjálpaði okkur við þetta. Tónlist: Magnús og Jóhann, Magnús Þór Sigmundsson, Jóhann Helgason Tónlistarmaður - Seinna meir. Jón Þorsteinsson, Hörður Áskelsson - Ó Jesú að mér snú. 309. Jón Þorsteinsson, Hörður Áskelsson - Ver hjá mér herra dagur óðum dvín. 426. Kitty Kallen - Little things mean a lot. Ingibjörg Þorbergs - Man ég þinn koss.

Eerie Iceland
Episode 2: Reykjavik Cathedral Ghost

Eerie Iceland

Play Episode Listen Later Jan 21, 2024 22:04


Learn all about the Reykjavik Catherdral ghost's history!  Steinunn of Sjöundá has a complicated past intertwined by forbidden love, murder, and days of unrest.  Listen to how it all unfolds and how she became an uninvited guest to events happening the the downtown church. Follow us for more... Checkout our website: Eerie Iceland  Follow us on: Instagram  Find our page on: Facebook  Sources: Episode Author & Theme Song Singer: Vanessa Terrazas Editing by: James Ede (Be Heard | Podcast Production)

Víðsjá
Harbinger lokar, Kind og Ævintýrið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 14, 2023


Gallerí Harbinger við Freyjugötu 1 lokar innan skamms eftir nær tíu ára starfsemi. Steinunn Önnudóttir segir það hafa verið gefandi en um leið lýjandi að reka galleríið meðfram öðrum störfum, og nú sé komið að því að skella í lás. Við ræðum við Steinunni í þætti dagsins. Við fáum einnig heimsókn frá Þresti Helgasyni en í sumar gangsetti hann bókaútgáfuna Kind, lítið forlag sem hefur sérstakan áhuga á bókum um myndlist, hönnun og arkitektúr, menningarsögu og hvers konar fræði og vísindi. Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í skáldsöguna Ætinvtýrið eftir Vigdísi Grímsdóttur. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Víðsjá
Harbinger lokar, Kind og Ævintýrið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 14, 2023 51:36


Gallerí Harbinger við Freyjugötu 1 lokar innan skamms eftir nær tíu ára starfsemi. Steinunn Önnudóttir segir það hafa verið gefandi en um leið lýjandi að reka galleríið meðfram öðrum störfum, og nú sé komið að því að skella í lás. Við ræðum við Steinunni í þætti dagsins. Við fáum einnig heimsókn frá Þresti Helgasyni en í sumar gangsetti hann bókaútgáfuna Kind, lítið forlag sem hefur sérstakan áhuga á bókum um myndlist, hönnun og arkitektúr, menningarsögu og hvers konar fræði og vísindi. Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í skáldsöguna Ætinvtýrið eftir Vigdísi Grímsdóttur. Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Spegillinn
Vopnahlé á Gaza og óbreyttir stýrivextir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2023


22. nóvember 2023 Samkomulag náðist í nótt milli ísraelskra stjórnvalda og Hamas samtakanna um fjögurra sólarhringa vopnahlé . Það á að ganga í gildi klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma. Þrjátíu til þrjátíu og fimm börn, helmingurinn um og undir tíu ára aldri, verða látin laus þegar Hamas samtökin á Gaza sleppa fimmtíu gíslum á morgun og næstu daga. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að mögulega hefði átt að hækka vexti en afleiðingar jarðhræringanna geti aukið þenslu - en líka dregið úr neyslu almennings og haft vond áhrif á ferðaþjónustu. Óvissan sé mikil og því hafi verið ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Læknar á landsbyggðinni lýsa margir miklu álagi og víða reynist erfitt að manna stöður. Formaður Læknafélagsins segir tímabært að stjórnvöld geri alvöru úr stefnu sinni að bæta heilbrigðisþjónustu utan borgarinnar. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson Viðmælendur: Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. Frank Gardner,fyrrverandi yfirmaður í breska hernum og nú fréttamaður hjá BBC. Peter Lerner, talsmaður Ísraelshers. Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands.

Spegillinn
Vopnahlé á Gaza og óbreyttir stýrivextir

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 22, 2023 20:00


22. nóvember 2023 Samkomulag náðist í nótt milli ísraelskra stjórnvalda og Hamas samtakanna um fjögurra sólarhringa vopnahlé . Það á að ganga í gildi klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma. Þrjátíu til þrjátíu og fimm börn, helmingurinn um og undir tíu ára aldri, verða látin laus þegar Hamas samtökin á Gaza sleppa fimmtíu gíslum á morgun og næstu daga. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að mögulega hefði átt að hækka vexti en afleiðingar jarðhræringanna geti aukið þenslu - en líka dregið úr neyslu almennings og haft vond áhrif á ferðaþjónustu. Óvissan sé mikil og því hafi verið ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Læknar á landsbyggðinni lýsa margir miklu álagi og víða reynist erfitt að manna stöður. Formaður Læknafélagsins segir tímabært að stjórnvöld geri alvöru úr stefnu sinni að bæta heilbrigðisþjónustu utan borgarinnar. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson Viðmælendur: Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. Frank Gardner,fyrrverandi yfirmaður í breska hernum og nú fréttamaður hjá BBC. Peter Lerner, talsmaður Ísraelshers. Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands.

Normið
232. Intuens - Framtíð heilsu þinnar

Normið

Play Episode Listen Later Nov 10, 2023 84:16


Þau Torfi og Steinunn eru meðstofnendur Intuens. Þetta spennandi fyrirtæki býður upp á byltingarkenndar breytingar hvað varðar heilsu og heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Hjá Intuens getur þú bókað þig í heilskanna og fengið að sjá stöðuna á þínum eigin líkama, án þess að þurfa að bíða eftir samþykki annars staðar frá.  Þegar kemur að heilsunni, þá er þekking máttur. Intuens er fyrirtæki sem nýtir sér nýjustu segulómtækni, gervigreind og tölvugreiningar frá Philips til að varpa ljósi á ýmsa kvilla og sjúkdóma.  Kynntu þér málið á intuens.is eða á intuenshealth

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Ég er ástfangin af lífinu” -#421

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Oct 30, 2023 100:58


Steinunn Ólína kíkti í heimsókn til okkar. Hún og Helgi eyddu helginni saman á Shaman serimóníu. Helgi hringdi í Ljósbrá og ræddu þau 3. vaktina og þau heimilisverk sem Hjálmar tekur að sér. IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Morgunvaktin
Framtíð læknisþjónustu, laxveiði og hagvöxtur í heiminum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 18, 2023 130:00


Framtíð læknisþjónustu á Íslandi var til umræðu í þætti dagsins. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, situr í nýjum starfshópi um málið og ræddi við okkur um áskoranir og líka tækifæri í heilbrigðisþjónustunni. Laxveiðin í sumar var tregari en veiðimenn óskuðu. Árnar voru margar hverjar vatnslitlar og laxinn almennt lítið spenntur fyrir að taka. Guðni Guðbergsson hjá Hafrannsóknastofnun ræddi um ástand og horfur í laxveiðinni - og þar er ýmislegt fleira undir en vatnsmagn í ám. Hann ræddi líka um laxeldi, lús og hnúðlaxa. Dregið hefur úr hagvexti í heiminum og útlit fyrir að enn dragi úr. Við fórum yfir þetta og ýmislegt fleira með Ásgeiri Brynjari Torfasyni, ritstjóra Vísbendingar. Umsjón höfðu Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Krauss, Alison, Plant, Robert - Your long journey. Batilangandi, Biolo, Kolosoy, Wendo - Yebisa Banganga.

Morgunvaktin
Framtíð læknisþjónustu, laxveiði og hagvöxtur í heiminum

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Oct 18, 2023


Framtíð læknisþjónustu á Íslandi var til umræðu í þætti dagsins. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, situr í nýjum starfshópi um málið og ræddi við okkur um áskoranir og líka tækifæri í heilbrigðisþjónustunni. Laxveiðin í sumar var tregari en veiðimenn óskuðu. Árnar voru margar hverjar vatnslitlar og laxinn almennt lítið spenntur fyrir að taka. Guðni Guðbergsson hjá Hafrannsóknastofnun ræddi um ástand og horfur í laxveiðinni - og þar er ýmislegt fleira undir en vatnsmagn í ám. Hann ræddi líka um laxeldi, lús og hnúðlaxa. Dregið hefur úr hagvexti í heiminum og útlit fyrir að enn dragi úr. Við fórum yfir þetta og ýmislegt fleira með Ásgeiri Brynjari Torfasyni, ritstjóra Vísbendingar. Umsjón höfðu Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir. Tónlist: Krauss, Alison, Plant, Robert - Your long journey. Batilangandi, Biolo, Kolosoy, Wendo - Yebisa Banganga.

Vikulokin
Steinunn Þóra, Guðmundur Árni og Hanna Katrín

Vikulokin

Play Episode Listen Later Sep 30, 2023


Gestir Vikulokanna eru Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna, Guðmundur Árni Stefánsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu efnahagsmál, bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks, málefni hælisleitenda og samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Vikulokin
Steinunn Þóra, Guðmundur Árni og Hanna Katrín

Vikulokin

Play Episode Listen Later Sep 30, 2023 55:00


Gestir Vikulokanna eru Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstri grænna, Guðmundur Árni Stefánsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar. Þau ræddu efnahagsmál, bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks, málefni hælisleitenda og samgöngusáttmála á höfuðborgarsvæðinu. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Víðsjá
Svipmynd af fatahönnuði, Ekki málið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 27, 2023


Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður verður gestur okkar í svipmynd dagsins. Steinunn er fædd í Reykjavík árið 1960 en bjó um árabil í Frakklandi, Ítaliu og Bandaríkjunum. Hún stundaði nám í fatahönnun í París og við Parson School of Design í New York. Eftir útskrift starfaði hún hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein, Ralph Lauren, La Perla og Gucci, en ákvað árið 2000 að flytja heim til Íslands og stofna sitt eigið merki: Steinunn. Síðan þá hefur Steinunn einnig rekið verslun í verbúðunum á Granda, þar sem hún framleiðir í takt við eftirspurn vel sniðin föt úr hágæðaefnum. Hún segist lifa í núinu þökk sé fjölfötluðum syni sem hefur kennt henni meira um lífið en allt annað, hún klæðist ull frá toppi til táar alla daga, allan ársins hring og helst bara svörtu. Meira um það í þætti dagsins. En við byrjum í leikhúsinu, Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í Ekki málið eftir Marius von Meyenburg sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.

Víðsjá
Svipmynd af fatahönnuði, Ekki málið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 27, 2023 55:00


Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður verður gestur okkar í svipmynd dagsins. Steinunn er fædd í Reykjavík árið 1960 en bjó um árabil í Frakklandi, Ítaliu og Bandaríkjunum. Hún stundaði nám í fatahönnun í París og við Parson School of Design í New York. Eftir útskrift starfaði hún hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein, Ralph Lauren, La Perla og Gucci, en ákvað árið 2000 að flytja heim til Íslands og stofna sitt eigið merki: Steinunn. Síðan þá hefur Steinunn einnig rekið verslun í verbúðunum á Granda, þar sem hún framleiðir í takt við eftirspurn vel sniðin föt úr hágæðaefnum. Hún segist lifa í núinu þökk sé fjölfötluðum syni sem hefur kennt henni meira um lífið en allt annað, hún klæðist ull frá toppi til táar alla daga, allan ársins hring og helst bara svörtu. Meira um það í þætti dagsins. En við byrjum í leikhúsinu, Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í Ekki málið eftir Marius von Meyenburg sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.

Heimsglugginn
Vestnorræn málefni og valdarán í Afríku

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Aug 31, 2023 23:48


Steinunn Þóra Árnadóttir fráfarandi formaður Vestnorræna ráðsins var gestur Heimsgluggans á Morgunvakt Rásar-1. Hún lýsti starfi ráðsins og áhuga á að efla samvinnu Færeyja, Grænlands og Íslands. Þá ræddi Bogi Ágústsson undir lokin um valdarán í Afríku sem hafa verið mörg að undanförnu. Síðast tók herinn í Gabon völdin og steypti Ali Bongo forseta af stóli. Bongo ættin hefur farið með völd í Gabon frá því 1967 og safnað miklum auðævum. Miklar olíulindir er að finna undan ströndum Gabons en tekjum af olíuvinnslu er mjög misskipt. Þá var einnig rætt um nýlegar kosningar í Simbabve sem erlendum eftirlitsmönnum ber saman um að hafi ekki verið heiðarlegar. Emmerson Mnangagwa var endurkjörinn forseti, hann varð forseti 2017 eftir valdarán.

Heimsglugginn
Vestnorræn málefni og valdarán í Afríku

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Aug 31, 2023


Steinunn Þóra Árnadóttir fráfarandi formaður Vestnorræna ráðsins var gestur Heimsgluggans á Morgunvakt Rásar-1. Hún lýsti starfi ráðsins og áhuga á að efla samvinnu Færeyja, Grænlands og Íslands. Þá ræddi Bogi Ágústsson undir lokin um valdarán í Afríku sem hafa verið mörg að undanförnu. Síðast tók herinn í Gabon völdin og steypti Ali Bongo forseta af stóli. Bongo ættin hefur farið með völd í Gabon frá því 1967 og safnað miklum auðævum. Miklar olíulindir er að finna undan ströndum Gabons en tekjum af olíuvinnslu er mjög misskipt. Þá var einnig rætt um nýlegar kosningar í Simbabve sem erlendum eftirlitsmönnum ber saman um að hafi ekki verið heiðarlegar. Emmerson Mnangagwa var endurkjörinn forseti, hann varð forseti 2017 eftir valdarán.

Sunnudagssögur
Steinunn Árnadóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later May 14, 2023


Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Steinunni Árnadóttur organista og dýravin, en hún hefur barist ötullega fyrir bættri dýravelferð og vakið athygli á slæmum tilfellum vanrækslu. Hún hefur hlotið bæði lof og hvatningu fyrir, en líka verið hótað. Hún heldur þó ótrauð áfram.

steinunn steinunni hulda g geirsd
Sunnudagssögur
Steinunn Árnadóttir

Sunnudagssögur

Play Episode Listen Later May 14, 2023 75:00


Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Steinunni Árnadóttur organista og dýravin, en hún hefur barist ötullega fyrir bættri dýravelferð og vakið athygli á slæmum tilfellum vanrækslu. Hún hefur hlotið bæði lof og hvatningu fyrir, en líka verið hótað. Hún heldur þó ótrauð áfram.

steinunn steinunni hulda g geirsd
Helgaspjallið
Þáttur 137 - Ragnhildur Steinunn um móðurmissi, móðurhlutverkið og ferilinn

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Apr 24, 2023 100:34


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið IceHerbs - www.iceherbs.is Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum Ragnhildi Steinunni þarf varla að kynna en hún hefur prýtt skjáinn okkar síðustu ár og hefur vakið sérstaklega mikla athygli þessa dagana fyrir nýja þáttaröð á Rúv sem heitir Tvíburar. Hún er sjálf tvíbura-mamma og hefur Ragnhildur yfirleitt haldið einkalífinu sínu í lágmarki fyrir almenning svo ég var sérstaklega þakklátur að hafa fengið hana til mín í einlægt spjall þar sem við förum yfir ferilinn hennar, við ræðum móðurhlutverkið, móðurmissinn sem hún upplifði aðeins sjö ára að aldri. Það var mesta ánægja að hlusta á hana og lífsgildin hennar, reynslu og starfsferil og fjölskyldulífið. Njótið vel - Hægt er að horfa á Tvíburar á mánudagskvöldum kl 20:05 á Rúv - Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar

FM957
VEISLAN - Ragnhildur Steinunn (+ Prettyboitjokkos)

FM957

Play Episode Listen Later Mar 8, 2023 86:01


Ragnhildur Steinunn, Patrik Atla og AP. Hvað meira viltu?

Karlmennskan
#113 „Réttlæti fyrir brotaþola er að geta haldið áfram að lifa í sínu samfélagi“ - Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir og Elín Björk Jóhannsdóttir

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Feb 1, 2023


Recognising Sexual Violence: Developing Pathways to Survivor-Centred Justice hét ráðstefna sem haldin var í lok október sl. af RIKK (rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands) í samstarfi við háskólana í Lundi og Osló. Rannsóknir á reynslu og hugmyndum þolenda kynferðisbrota sýna að réttlæti er mun flóknara en svo að eingöngu sé hægt að styðjast við réttarkerfið; hegningarlög og refsirétt. Auk þess má réttilega segja að réttarkerfið nái afar illa utan um kynferðisbrot eins og reynsla þolenda hefur sýnt fram á. Markmið ráðstefnunnar var að draga fram hvernig þolendamiðað réttlæti getur litið út, sem krefst þess að við endurhugsum ólík réttlætiskerfi og þróum pólitískar, félagslegar og lagalegar leiðir að réttlæti. Til þess að ræða þetta nánar spjallaði ég við Elínu Björk Jóhannsdóttur verkefnisstjóra hjá RIKK, skipuleggjanda ráðstefnunnar og Steinunni Gyðu og Guðjónsdóttur talskonu Stígamóta sem sat ráðstefnuna og hefur starfað með þolendum í rúman áratug. Á meðal spurninga sem við leitum svara við eru: Hvers vegna gengur ekki að vera með viðbragðsáætlun í skólum sem grípa má til þegar upp koma kynferðisbrot? Hvað er félagslegt réttlæti, uppbyggileg réttvísi og umbreytandi réttlæti? Hvernig geta skólar og vinnustaðir brugðist við þegar upp koma kynferðisbrot? Hvers vegna ættu gerendur að taka þátt í ábyrgðarferli og gangast við brotum sínum? Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Veganbúðin, ÖRLÖ, BM Vallá ásamt bakhjörlum Karlmennskunnar (karlmennskan.is/styrkja) bjóða upp á þennan þátt.

The Snorri Björns Podcast Show
#136 - Steinunn Sigurðardóttir

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Sep 2, 2022 106:53


Steinunn Sigurðardóttir er fremsti fatahönnuður landsins. Eftir útskrift frá Parsons í New York starfaði hún náið með Ralph Lauren og Calvin Klein. Steinunn fluttist heim og eignaðist fatlaðan dreng en lét það ekki stoppa sig frá því að lifa sínu lífi, var ráðin inn til Gucci og flaug til og frá Ítalíu við störf sín þar með Tom Ford.

Bad Dads Film Review
Cop Secret & Police Academy: The Animated Series

Bad Dads Film Review

Play Episode Listen Later Aug 19, 2022 84:30


This week's themed content sees us discussing those people whose job it is to enforce the law as we start things off with a rigorous interrogation of the Top 5 Police Officers. Will a thorough application of the rules prevent us from hearing about one dad's favourite Traffic Warden? Sidey chose Hannes Halldórsson's 2021 gay buddy action spoof COP SECRET for us to review this week and we are awfully glad he did. Whilst investigating a mysterious criminal organisation which has been breaking into Iceland's biggest institutions but apparently not stealing anything, Reykjavik's toughest police officer, the hard drinking and reckless Detective Bussi, finds his professional and personal life become intertwined when he is partnered with pansexual Super Cop, Hörður Bess. With explosives having been found at the big football match between the Iceland women's national football team and the mighty Lionesses and bizarre animal fact quoting terrorist Ricky Ferrari having abducted Bess's brother Maggi, the cops have their work cut out for them before they even have a chance to think about love.  A deeply silly film which sends up and pays homage to the likes of DIE HARD and the FAST & FURIOUS movies by taking classic Hollywood action tropes and transporting them to the mean streets of Reykjavik, the director shows just how much can be achieved on a miniscule budget (reportedly less than Halldórsson had available for a commercial video shoot) as we also get strong vehicle chases and a number of action scenes featuring a dynamic camera and well-integrated digital and practical effects. A consistently funny script which almost has the frantic pace of a NAKED GUN movie, there are some excellent supporting characters in Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir's grizzled Captain Þorgerður as well as unfortunate crew member Svavar (Steinþór Hróar Steinþórsson) who just wants a little more organisation but it is absolutely Bjorn Hlynur Haralsson who steals the show with a mega-acting performance reminiscent of Nic Cage as super villain Ricky, who speaks English with an accent somewhere between Donald Trump and Steven Seagal. My one complaint about the movie is that a story about one man's complicated feelings about his own sexuality in this kind of setting probably had the opportunity to be a bit more progressive than this actually was; it didn't seem to have anything interesting to say thematically about its premise because it's never treated very seriously like everything else but this is the only action movie I know of in which the two male leads kiss in the climactic showdown before settling down together to live happily ever after. Also worth mentioning that director Halldórsson was until recently a professional footballer and becomes the second director after legendary glove smith Peter Jackson to save a Messi penalty. Probably.  What else would you close Police week out with but a review of POLICE ACADEMY: THE ANIMATED SERIES?. Season 1, Episode 2's "Puttin' on the Dogs" sees the inept officers attempting to deal with cat burglar The Claw while supporting the new canine cadet corps and trying to avoid a**hole Captain Harris who wants them all to fail for some reason. Look, I enjoyed the Police Academy movies okay; I've seen them all and at exactly the right moments in my life to be able to enjoy the jokes in them without having to think too hard about those other staples of 80's comedies, which these movies are no doubt packed with: racism, sexism and misogyny. A rare example of a franchise that started out as a raunchy adult comedy before becoming progressively milder, does that make it more interesting? Probably not. We love to hear from our listeners! By which I mean we tolerate it. Try us on twitter @dads_film, on Facebook Bad Dads Film Review or on our website 

The Wise Fool
STEiNUNN, Fashion Designer + String Artist (Iceland)

The Wise Fool

Play Episode Listen Later Jun 27, 2022


We discussed: the benefit of making mistakes, the importance of materiality, having a child with a disability, large format polaroid, what is special about iceland, global warming, sense of touch, online sales, craftsmanship, legacy planning, value of archives, gabardine fabric, our disposable society, the values of mentors   http://www.steinunn.com   People + Places mentioned: Mary Ellen Mark - https://www.maryellenmark.com Polaroid 20x24 inch camera - https://20x24studio.com Icelandic Fashion Council (Nordic Fashion Association) - http://nordicfashionassociation.com cydwoq - https://cydwoq.com Tom Ford - https://www.tomford.com     Audio engineering by Mickey at CushAudio Services Music by Peat Biby     Supported in part by: EEA Grants from Iceland, Liechtenstein + Norway – https://eeagrants.org               And we appreciate the assistance of our partners in this project: Hunt Kastner – https://huntkastner.com Kunstsentrene i Norge – https://www.kunstsentrene.no  

The Wise Fool
STEiNUNN, Fashion Designer + String Artist (Iceland)

The Wise Fool

Play Episode Listen Later Jun 27, 2022 95:47


We discussed: the benefit of making mistakes, the importance of materiality, having a child with a disability, large format polaroid, what is special about iceland, global warming, sense of touch, online sales, craftsmanship, legacy planning, value of archives, gabardine fabric, our disposable society, the values of mentors   http://www.steinunn.com   People + Places mentioned: Mary Ellen Mark - https://www.maryellenmark.com Polaroid 20x24 inch camera - https://20x24studio.com Icelandic Fashion Council (Nordic Fashion Association) - http://nordicfashionassociation.com cydwoq - https://cydwoq.com Tom Ford - https://www.tomford.com     Audio engineering by Mickey at CushAudio Services Music by Peat Biby     Supported in part by: EEA Grants from Iceland, Liechtenstein + Norway – https://eeagrants.org               And we appreciate the assistance of our partners in this project: Hunt Kastner – https://huntkastner.com Kunstsentrene i Norge – https://www.kunstsentrene.no  

The Wise Fool
Helga Lilja Magnúsdóttir – Clothing Designer, Helicopter (Iceland)

The Wise Fool

Play Episode Listen Later Jun 13, 2022


We discussed: sexism, family names, fashion bitch, street wear, learning from failure, international recognition, being ecologically minded, tattoos, the benefits of changing, career transitions, having a foundational place to build your career   http://helicopter.love https://bahns.org http://kioskgrandi.com   People + places mentioned: STEiNUNN - http://www.steinunn.com The Coocoo's Nest - https://www.coocoosnest.is DesignMarch - https://designmarch.is Nikita - https://nikitaclothing.com     Audio engineering by Mickey at CushAudio Services Music by Peat Biby     Supported in part by: EEA Grants from Iceland, Liechtenstein + Norway – https://eeagrants.org               And we appreciate the assistance of our partners in this project: Hunt Kastner – https://huntkastner.com Kunstsentrene i Norge – https://www.kunstsentrene.no