Skúffuskáld

Follow Skúffuskáld
Share on
Copy link to clipboard

Í þáttunum ræðir Anna Margrét Ólafsdóttir við rithöfunda um allt mögulegt sem tengist því að skrifa og skálda. Sjónum verður aðallega beint að því hvernig það er að stíga fyrstu skrefin sem rithöfundur og hvernig ferlið við ritun bóka, ljóða og sagna er.

Lubbi Peace


    • Mar 31, 2023 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 1h 4m AVG DURATION
    • 35 EPISODES


    Search for episodes from Skúffuskáld with a specific topic:

    Latest episodes from Skúffuskáld

    Sjófugl, Guli kafbáturinn, Reykjavík og Eden

    Play Episode Listen Later Mar 31, 2023 117:25


    Þàtturinn er tileinkaður nýjum bókum og voru það Gyða Sigfinnsdóttir og Anna Margrét Ólafsdóttir sem ræddu fjórar skáldsögur. Guðjón Helgi Ólafsson var alveg sérstakur gestur þáttarins en hann er mikill bókaunnandi og þá einna helst bóka eftir Jón Kalman.Til umfjöllunar voru glæpasögurnar Sjófugl eftir Egil Ólafsson, Guli kafbáturinn eftir Jón Kalman Stefánsson, Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur og Reykjavík eftir Ragnar Jónasson og Katrínu Jakobsdóttur.  Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookVangaveltur og ábendingar eru velkomnar á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com

    Sigríður Hagalín

    Play Episode Listen Later Jan 22, 2023 35:58


    Sigríður Hagalín er viðmælandi þáttarins en hún gaf út sína fyrstu bók árið 2016. Það var bókin Eyland sem vakti mikla athygli en síðan þá hafa komið út þrjár skáldsögur eftir Sigríði. Það eru bækurnar Hið heilaga orð, Eldarnir og nú fyrir jólin bókin Hamingja þessa heims. Í þættinum ræða Gyða og Sigríður m.a. um Ólöfu ríku, drauma og svo margt margt fleira. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldum og bókaunnendunum í kringum ykkur!Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace?Sendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    gy muni sigr hagal skrif
    Guðrún Brjánsdóttir

    Play Episode Listen Later Jan 9, 2023 39:57


    Guðrún Brjánsdóttir er viðmælandi þáttarins að þessu sinni. Hún hefur gefið út ljóðabókina Skollaeyru og nóvelluna Sjálfstýringu. Í þessum þætti spjallar hún við Gyðu, m.a. um  það að vera skúffuskáld og hvernig það er að reyna fyrir sér sem höfundur. Sagan sigraði í samkeppni Forlagsins Nýjar raddir 2020.Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldum og bókaunnendunum í kringum ykkur!Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace?Sendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    Elísabet Thoroddsen

    Play Episode Listen Later Dec 15, 2022 35:05


    Elísabet Thoroddsen er viðmælandi minn í þessum þætti. Í samstarfi við Bókabeituna gaf hún út sína fyrstu skáldsögu fyrir stuttu. Það er bókin Allt er svart í myrkrinu og var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmenna. Elísabet lærði kvikmyndagerð og hefur lengi skrifað fyrir skúffuna. Hún fór í rithóp og eftir það fóru hjólin að snúast hratt. Þetta og svo margt fleira ræddum við í þættinum.Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace? Sendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    allt sabet thoroddsen
    Saknaðarilmur, Drepsvart hraun og Kyrrþey

    Play Episode Listen Later Dec 9, 2022 40:15


    Þàtturinn er tileinkaður nýútkomnum bókum, en við Gyða Sigfinnsdóttir ræddum nokkrar skáldsögur í jólabókaflóðinu.Til umfjöllunar voru glæpasögurnar Kyrrþey eftir Arnald Indriðason, Drepsvart hraun eftir Lilju Sigurðardóttur. Auk þeirra ræddum við Saknaðarilm eftir Elísabetu Jökulsdóttur.Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookVangaveltur og ábendingar eru velkomnar á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com

    gy auk sakna
    Kikka og Bókasamlagið

    Play Episode Listen Later Aug 1, 2022 54:16


    Kristlaug María Sigurðardóttir er betur þekkt sem Kikka. Kikka er leikskólakennari, rithöfundur og eigandi Bókasamlagsins. Hún er nokkuð viss um að hún sé með ADHD en hún hefur afkastað ótrúlega miklu og hikar ekki við að ráðast í verkefni sem heilla hana; eins og t.d. Bókasamlagið.Kikka fékk eintóm nei þegar hún vildi gefa út Ávaxtakörfuna; hjá bókaútgáfu og leikhúsum en hún lætur ekki menn í áhrifastöðum segja sér hvað virkar og hvað ekki. Hún treystir á sig sjálfa og gerir það sem hún trúir á. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldunum og bókaunnendunum í kringum ykkur!Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    Barna- og ungmennabækur; Akam, ég og Annika, Bannað að eyðileggja, Meira pönk, meiri hamingja, Nú er nóg komið, Álfheimar, Nornaseiður, Rauð viðvörun, Mr. Einsam

    Play Episode Listen Later Jan 23, 2022 73:18


    Þessi þáttur er tileinkaður barna - og ungmennabókum og í þættinum reifa 4 börn jafnmargar bækur.  Það eru þau Skarphéðinn Óli, Bergrún Björk, Kamilla Inga og Ronja. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri spjallar einnig um nokkrar bækur við Önnu Margréti.Bækurnar sem voru til umfjöllunar eru Mr. Einsam eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, Rauð viðvörun - Jólin eru á leiðinni eftir Sigrúnu Eldjárn, Nornaseiður eftir Gunnar Theodór Eggertsson, Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason, Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur, Meira pönk, meiri hamingja eftir Gerði Kristnýju, Nú er nóg komið eftir Hildi Knútsdóttur og Þórdísi Gísladóttur og Álfheimar eftir Ármann Jakobsson. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    Ljóðabókaspjall; Ég brotna 100% niður, Menn sem elska menn, Tanntaka, Álfheimar og Koma jól?

    Play Episode Listen Later Dec 21, 2021 63:01


    Þátturinn er tileinkaður ljóðabókum sem komu út fyrir jólin og hún Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við spjölluðum um bækurnar.Að þessu sinni spjölluðum við um nokkrar ljóðabækur en það voru bækurnar Ég brotna 100% niður eftir Eydísi Blöndal, Menn sem elska menn eftir Hauk Ingvarsson, Tanntaka eftir Þórdísi Helgadóttur, Álfheimar eftir Brynjar Jóhannesson og bókina Koma jól? eftir Hallgrím Helgason og myndskreyting var í höndum Ránar Flyering. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    gy koma menn helgason hallgr helgad elska eyd skrif flyering
    Valgerður Ólafsdóttir

    Play Episode Listen Later Dec 9, 2021 67:24


    Valgerður Ólafsdóttir veltir því fyrir sér að sækja um aðild að Rithöfundasambandi Íslands en hún hefur gefið út kennslubók í sálfræði og bókin Konan hans Sverris kom út fyrir skemmstu.Konan hans Sverris er saga konu sem fer úr ofbeldisfullu hjónabandi. Sagan er skrifuð sem bréf til eiginmannsins og hvernig eftirsjá samtvinnast þrautseigju og styrk þegar fram líða stundir.Valgerður segir frá sögunni, ferlinu við að skrifa hana og spjallar um lífið og tilveruna. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldunum og bókaunnendunum í kringum ykkur!Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace?Sendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    Olía, Merking, Myrkrið á milli stjarnanna, Drottningin, Reykjavík og Skrímsli

    Play Episode Listen Later Nov 22, 2021 68:23


    Gyða og Anna Margrét spjalla um nokkrar nýútkomnar bækur í þættinum. Þær spjalla um þrjár bækur fyrir börn og þrjár nýútkomnar skáldsögur. Bækurnar sem eiga heiðurssess í þættinum eru:Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu ÓlafsdótturSkrímslaleikur eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Guettler og Rakel HelmsdalDrottningin sem kunni allt nema... eftir Gunnar Helgason og Rán FlyeringOlía eftir SvikaskáldMerking eftir Fríðu ÍsbergMyrkrið á milli stjarnanna eftir Hildi Knútsdóttur.Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    gy reykjav margr tryggvad skrif lindu gunnar helgason hildi kn
    Katrín Sif og Klemenz Bjarki

    Play Episode Listen Later Sep 13, 2021 51:55


    Á ferð minni um landið í sumar var upptökutækið með í för sem kom að góðum notum þegar ég stoppaði á Dalvík. Þar fór ég í heimsókn í Menningarhúsið Berg þar sem hægt er að fara á kaffihús, næla sér í bók í bókasafninu og njóta listar í listasalnum. Í Bergi hitti ég rithöfundana og skúffuskáldin Katrínu Sif og Klemenz Bjarka sem spjölluðu við mig um skrifin og margt fleira. Villtasti draumur þeirra er að lifa af skrifunum einum saman og það var gaman að heyra af afrekum þeirra, verkum í vinnslu og hvernig er að tengja þetta allt við daglegt líf. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldunum og bókaunnendunum í kringum ykkur!Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace?Sendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    berg muni sif katr bjarki skrif dalv bergi klemenz
    Hlín Agnarsdóttir

    Play Episode Listen Later Aug 22, 2021 83:51


    Hlín Agnarsdóttir vílaði það ekki fyrir sér að keyra Reykjanesbrautina til að koma til mín í viðtal. Hún bjó einu sinni í Keflavík þegar hún vann sem ritstjóri en list, sköpun og tjáning eru sannarlega hennar ær og kýr. Hlín hefur skrifað mikið, gefið út, leikstýrt og lifað og hrærst í öllu sem því tengist.  Salka Valka hafði gífurleg áhrif á hana og hún kýs að lesa efni sem reynir á hana frekar en afþreyingu. Hlín hefur aðallega kennt leikritaskrif í ritlistarnámi Háskóla Íslands og finnst gífurlega mikilvægt að auka víðsýni nemenda.  Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldunum og bókaunnendunum í kringum ykkur!Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace?Sendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    Tryggvi Pétur Brynjarsson

    Play Episode Listen Later Aug 15, 2021 73:24


    Tryggvi Pétur Brynjarsson skrifar alltaf þegar laus stund gefst og hefur gefið út tvær bækur á Amazon. Hann kom til mín í Stúdíó Lubba Peace og sagði mér frá litríkri ævi sinni, hvernig var að gefa út bók sjálfur og hvernig það er að vera alveg einn við allt ferlið að gefa út bók. Hann ræddi um íslenskuna sem er honum hugleikin, lífið í Bandaríkjunum og hvernig var að koma aftur heim. Tryggvi vinnur að nýrri bók og heldur ótrauður áfram við að skrifa, lesa og læra.Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace?Sendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    amazon hann bandar tryggvi skrif brynjarsson
    Kristín Ómarsdóttir

    Play Episode Listen Later Aug 8, 2021 77:03


    Kristín Ómarsdóttir kom til mín í Stúdíó Lubba Peace og ræddi um sköpun, að skrifa, lifa og lesa. Hún sagði frá ópraktískum njósnum, innblæstri, dularfullu starfi og svo mörgu fleiru. Fyrsta bókin kom út eftir Kristínu þegar hún var aðeins 19 ára gömul og hún hefur verið óstöðvandi síðan. Spjallið fer um víðan völl; um ritdóma, gagnrýni, lestur, sjónvarpsáhorf,  rútínu og praktík. Undir lokin tekur Kristín að sér hlutverk spyrils og gefur góð ráð.Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace?Sendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    Björn Halldórsson

    Play Episode Listen Later Aug 1, 2021 73:23


    Björn Halldórsson er viðmælandi minn í þessum fyrsta þætti í þáttaröð númer tvö!Eftir Björn hafa komið út tvær bækur og hann lifir og hrærist í skrifum og bókum. Bókin STOL kom út í febrúar 2021 og hann sagði frá ferlinu við að skrifa bókina og að hann ætlaði alls ekki að skrifa þessa bók. Björn segir m.a. frá námi sem hann sótti í bókmenntum og ritlist og hvernig það var að koma heim og skrifa á íslensku. Opinskátt samtal um skrif, bækur, lestur og margt fleira.Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace? Sendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    Hestar & ljóð í sumarlestur

    Play Episode Listen Later Jun 24, 2021 53:32


    Í þessum tuttugasta þætti, og jafnframt síðasta í þessari fyrstu þáttaröð, ræða Gyða og Anna Margrét um ljóðabækur og bókina Hesta eftir Rán Flyering og Hjörleif Hjartarson. Bækurnar eru allar upplagðar í sumarlesturinn og myndu sóma sér vel í ferðalagi eða á teppi í lautarferð.Ljóðabækurnar sem þær ræða um eru bækurnar Spegilsjónir eftir Guðrúnu Hannesdóttur, Les birki eftir Kari Ósk Grétudóttur, Havana eftir Maríu Ramos og loks ljóðasafn Kristínar Ómarsdóttur. Skúffuskáld á Instagram og FacebookLubbi PeaceSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    ramos gu havana hj krist gy lj hesta skrif hjartarson hannesd flyering
    Eldarnir, Fjarvera þín er myrkur, Bölvun múmíunnar, Yfir bænum heima og (M)Ein

    Play Episode Listen Later Apr 28, 2021 43:41


    Þátturinn er tileinkaður bókum sem komu út fyrir jólin og hún Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín í spjall.Að þessu sinni spjölluðum við um Eldana eftir Sigríði Hagalín, Fjarvera þín er myrkur eftir Jón Kalman, Bölvun múmíunnar eftir Ármann Jakobsson, Yfir bænum heima eftir Kristínu Steinsdóttur og (M)Ein eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur.Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    krist gy kalman sigr jakobsson yfir myrkur heima unnar hagal skrif bragad steinsd
    Lilja Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Feb 16, 2021 83:13


    Lilja Sigurðardóttir er glaður glæpasagnaritari sem sekkur sér ofan í viðfangsefnin sem hún skrifar um. Fyrsta bókin eftir hana kom út árið 2009 og síðan þá hefur hún verið óstöðvandi enda er hún kannski næsti Dan Brown. Lilja kom til mín í Lubba Peace og sagði mér frá vinnudeginum og hvað felst í því að skrifa góða glæpasögu.Hún ætlar að koma í Lubba Peace og vera með glæpasagnanámskeið í mars. Hér fyrir neðan eru hlekkir á frekari upplýsingar og skráningareyðublað:Nánari upplýsingar um námskeiðSkráningareyðublaðSkúffuskáld á Instagram og FacebookLubbi PeaceSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    Sigurjón Kjartansson

    Play Episode Listen Later Feb 3, 2021 68:22


    Sigurjón Kjartansson hefur verið partur af íslenskri menningu í mörg ár með sínu framlagi í gríni og þungarokki. Hann og Jón Gnarr mynda Tvíhöfða, þeir færðu okkur Fóstbræður ásamt fleirum, Sigurjón er í hljómsveitinni HAM og svo skrifar hann sjónvarpshandrit. Hann tók á móti mér í RKV studios og sagði mér frá handritsgerð og ferlinu við það að skrifa fyrir sjónvarp.Skúffuskáld á Instagram og FacebookLubbi PeaceSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    107 Reykjavík, Strendingar og Váboðar

    Play Episode Listen Later Dec 20, 2020 39:49


    Bókaspjall Önnu Margrétar og Gyðu heldur áfram.Að þessu sinni ræddum við saman um þrjár mjög ólíkar bækur, en það voru bækurnar; 107 Reykjavík eftir Auði Jónsdóttur og Birnu Önnu Björnsdóttur, Strendingar eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur og Váboðar eftir Ófeig Sigurðsson. Ýtið á nafn bókanna til að fá frekari upplýsingar.Handritasamkeppni Forlagsins - Íslensku barnabókaverðlaunin:https://www.forlagid.is/um-utgafuna/islensku-barnabokaverdlaunin/Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    Barnabækur

    Play Episode Listen Later Dec 10, 2020 63:45


    Í þessum þætti er spjallað um nokkrar barnabækur sem koma út fyrir jólin.Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við ræddum um fjórar barnabækur; Hetja eftir Björk Jakobsdóttur, Barnaræninginn eftir Gunnar Helgason, Iðunn og afi pönk eftir Gerði Kristnýju og Töfralandið eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur.Í lok þáttarins má heyra spjall við Bergrúnu Björk og Skarphéðinn Óla um bækurnar sem þau lásu. Ýtið á nafn bókanna til að fá frekari upplýsingar.Handritasamkeppni Forlagsins - Íslensku barnabókaverðlaunin:https://www.forlagid.is/um-utgafuna/islensku-barnabokaverdlaunin/Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.Forlagið styrkti gerð þáttarins.

    bar bj gy barnab jakobsd bergr skrif skarph kristn gunnar helgason
    Auður Ava Ólafsdóttir

    Play Episode Listen Later Nov 16, 2020 100:46


    Auður Ava Ólafsdóttir sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu árið 1998 - bókina Upphækkuð jörð og nú fyrir nokkrum dögum kom út bókin Dýralíf en það er jafnframt sjöunda skáldsagan sem kemur út eftir hana. Auður Ava er einnig textahöfundur hljómsveitarinnar Milkywhale, hún hefur skrifað nokkur leikrit, smásögur, ljóð og dansverk. Auður Ava er gestur Skúffuskálda og hafði frá mörgu kynngimögnuðu að segja!Handritasamkeppni Forlagsins - Nýjar raddir:https://www.forlagid.is/nyjar-raddir-handritarsamkeppni-forlagsins/Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.Forlagið styrkti gerð þáttarins

    benedikt upph skrif
    Ljóðabókaspjall

    Play Episode Listen Later Nov 13, 2020 60:57


    Í þessum þætti er aftur talað um bækur sem koma út fyrir jólin, að þessu sinni ljóðabækur.Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við ræddum um fimm nýjar ljóðabækur; Fjölskyldulíf á jörðinni eftir Dag Hjartarson, Þagnarbindindi eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur, Við skjótum títuprjónum eftir Hallgrím Helgason, Hetjusögur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur og Guðrúnarkviða eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur. Ýtið á nafn bókanna til að fá frekari upplýsingar.Handritasamkeppni Forlagsins - Nýjar raddir:https://www.forlagid.is/nyjar-raddir-handritarsamkeppni-forlagsins/Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.Forlagið styrkti gerð þáttarins.

    Aprílsólarkuldi, Dauði skógar og Gata mæðranna

    Play Episode Listen Later Nov 3, 2020 55:40


    Þessi þáttur er frábrugðinn þeim sem á undan hafa komið en hér er spjallað um bækur. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við ræddum um þrjár nýjar bækur; Gata mæðranna eftir Kristínu Marju Baldursdóttur, Aprílsólarkuldi eftir Elísabetu Jökulsdóttur og bókina Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson. Ýtið á nafn bókanna til að fá frekari upplýsingar.Handritasamkeppni Forlagsins - Nýjar raddir:https://www.forlagid.is/nyjar-raddir-handritarsamkeppni-forlagsins/Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.Forlagið styrkti gerð þáttarins.

    Gerður Kristný

    Play Episode Listen Later Oct 22, 2020 85:31


    Gerður Kristný hefur skrifað ljóð, barnasögur, viðtalsbók, ferðasögur og skáldsögur. Hún hefur fengið viðurkenningar og verðlaun fyrir verk sín, t.a.m. Blaðamannaverðlaun Íslands og Bókmenntaverðlaun Íslands. Gerður Kristný hefur ferðast víða vegna starfs síns en kýs að vinna heima í forstofuherberginu. Hún byrjaði ung að skrifa og titlaði sig snemma sem skáld. Og Limbódrottningu. Í þættinum setti hún alþjóðlegan dag Skúffuskálda, 21. október. Setjið það endilega í dagatölin ykkar!Handritasamkeppni Forlagsins - Nýjar raddir:https://www.forlagid.is/nyjar-raddir-handritarsamkeppni-forlagsins/Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.Forlagið og Bókakaffið Selfossi og Ármúla styrktu gerð þáttarins.

    bla selfossi skrif kristn setji
    Bergrún Íris Sævarsdóttir

    Play Episode Listen Later Oct 7, 2020 80:57


    Bergrún Íris Sævarsdóttir er búin að upplifa uppskerutíma að undanförnu fyrir verk sín og vinnu. Hún er m.a. handhafi Fjöruverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Fyrst og fremst er hún barnabókahöfundur og myndhöfundur sem auðgar líf barna um allt land. Hún elskar að heyra sögur af börnum sem gleyma sér í bók og geta jafnvel ekki farið að sofa fyrr en bókin er búin. Bergrún Íris fær endalausar hugmyndir, meira að segja hugmyndir um blóðugt efni sem er ekki ætlað börnum.Handritasamkeppni Forlagsins - Nýjar raddir:https://www.forlagid.is/nyjar-raddir-handritarsamkeppni-forlagsins/Skúffuskáld á InstagramSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur. Forlagið og Bókakaffið Selfossi og Ármúla styrktu gerð þáttarins.

    fj fyrst bergr selfossi skrif
    Auður Haralds

    Play Episode Listen Later Sep 26, 2020 49:54


    Hvunndagshetjan er fyrsta bók Auðar Haralds en hún kom út árið 1979. Auður skrifaði fleiri bækur eftir það, greinar og þýddi bækur. Hún talaði um það hvers vegna hún byrjaði að skrifa, hvernig hún fékk útgáfusamning og hún talaði um Elías, sem hún fékk á endanum nóg af. Auður talaði auðvitað líka um lestur og bækur.Bókaútgáfan Sæmundur og Bókakaffið á Selfossi og Ármúla styrkja gerð þáttarins. InstagramSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    elas ung haralds selfossi skrif
    Jón Kalman Stefánsson

    Play Episode Listen Later Sep 13, 2020 77:01


    Jón Kalman Stefánsson kom til mín í Stúdíó Lubba Peace og ræddi um upphafið að ferlinum, þegar hann byrjaði að skrifa og hvernig þessi knýjandi þörf til að skapa hefur tekið völdin. Hann ræðir einnig um lestur, hvernig bækurnar verða til og hvað hefur áhrif á hann. ,,Að skrifa fyrir mig er eins og hjartað sem slær og blóðið sem rennur og ég skrifa. Þetta er allt eitt og hið sama." - Jón Kalman StefánssonInstagramSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

    hann kalman stef skrif
    Steinunn Sigurðardóttir

    Play Episode Listen Later Jul 29, 2020 65:26


    Fyrsta bók Steinunnar Sigurðardóttur kom út árið 1969, ljóðabókin Sífellur. Hún fagnaði því 50 ára rithöfundaafmæli árið 2019 en hún er einn ástsælasti rithöfundur Íslendinga. Hún bauð mér í kaffi á heimili hennar og Þorsteins Hauksonar, eiginmanns hennar. Við ræddum um upphafið að ferlinum, óvægna gagnrýni, hvernig hún vinnur eftir eigin stuði og svo margt fleira.Munið að gerast áskrifendur og 5 stjörnur eru auðvitað vel þegnar :-)InstagramSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og pælingar.

    muni fyrsta skrif steinunn sigur
    Björk Jakobsdóttir, Gunnar Helgason og Óli Gunnar

    Play Episode Play 28 sec Highlight Listen Later Jun 7, 2020 81:51


    Þessi þáttur er tekinn upp í Hafnafirði hjá yndislegri og afar skapandi fjölskyldu. Hjónin Björk Jakobsdóttir og Gunnar Helgason tóku á móti mér ásamt Óla Gunnari syni þeirra. Við ræddum aðeins um fjölskyldulífið, hvernig hægt er að hafa ofan í sig og á sem listamenn, hverju þarf að breyta á íslenskum bókamarkaði og þau koma með mörg ráð til höfunda sem eru gulls ígildi. Munið að gerast áskrifendur og 5 stjörnur eru auðvitað vel þegnar :-)InstagramSendið póst á netfangið skuffuskald@gmail.com með ábendingar og pælingar.

    bj hj muni jakobsd skrif gunnari gunnar helgason
    Yrsa Þöll Gylfadóttir

    Play Episode Listen Later May 3, 2020 56:43


    Yrsa Þöll Gylfadóttir rithöfundur hefur skrifað tvær bækur - Tregðulögmálið og Móðurlífið blönduð tækni. Hún er að skrifa skáldsögu sem kemur út á þessu ári, auk tveggja léttlestra bóka sem koma út hjá Bókabeitunni. Við spjölluðum um skrifin, að lesa, að samtvinna fjölskyldulíf og rithöfundastörf og margt fleira skemmtilegt.

    treg yrsa gylfad skrif
    Guðrún Eva Mínervudóttir

    Play Episode Listen Later Mar 20, 2020 71:28


    Guðrún Eva og Anna Margrét fara ofan í kjölinn á því að skrifa bók og skálda sögur. Með ilmandi kakói frá Guatemala og í kósý herbergi Guðrúnar gerast litlir töfrar og samtalið verður innilegt og gott. Meðal þess sem ber á góma er innsæi, berskjöldun, hröð orka og hæg orka, ferli þess að skrifa bók og margt fleira.

    Sigga Dögg

    Play Episode Listen Later Jan 14, 2020 56:17


    Sigga Dögg talar um bækurnar sínar fjórar, Kjaftað um kynlíf, Á rúmstokknum, KynVera og nýjustu bókina Daði. Hún les stutt brot úr bókunum og fjallar svo um skrifin, framtíðina, notaða smokka í krukku og margt fleira. Hún segir einnig frá því hvernig hún nær alveg að sökkva sér ofan í það að skrifa og lopafötin sem hún klæðist á meðan!

    skrif sigga d
    Dagný Maggýjar

    Play Episode Listen Later Dec 9, 2019 47:47


    Dagný Maggýjar ræddi við Önnu Margréti í þessum þætti.Hún hefur gefið út tvær bækur upp á sitt einsdæmi og í þættinum ræðir hún um ferlið við að gefa út sjálf. Einnig ræða þær um bækurnar tvær; Brunann í Skildi og Á heimsenda, en báðar bækurnar fjalla um raunverulega atburði. Þá les Dagný upp valin textabrot úr bókunum tveim.

    Vigdís Gríms og skapandi skrif

    Play Episode Listen Later Nov 29, 2019 49:13


    Í fyrsta þætti verður rætt við Vigdísi Grímsdóttur rithöfund og nemendur sem sátu námskeið hjá henni í Skapandi skrifum. Einnig má heyra nemendur lesa upp valið efni af námskeiðinu. Vigdís Grímsdóttir er einn af ástsælustu rithöfundum Íslands og hana þarf vart að kynna. Hún hefur m.a. skrifað skáldsögur, ljóð og barnabók. Hún hefur fengið margar viðurkenningar fyrir verk sín og skáldsagan Grandavegur 7 tryggði henni íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1994.

    Claim Skúffuskáld

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel