POPULARITY
Mannlegi þátturinn var áfram á heilsunótunum í dag. Hildur M. Jónsdóttir heilsuráðgjafi kom í þáttinn í dag, en hún glímdi í áratugi við gigtarsjúkdóma, bólgusjúkdóma og mikla verki og hún segir að það hafi tekið um 20 ára rannsóknarvinnu að koma sjálfri sér til heilsu á ný. Hildur kallar eftir nýrri nálgun innan heilbrigðiskerfisins og við heyrðum hennar sögu í dag. Georg Lúðvíksson sérfræðingur í heimilisfjármálum var svo hjá okkur í dag með Fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn fjallaði hann um það að öðlast fjárhagslegt frelsi og reyna að komast úr hamstrahjólinu. Svo var lesandi vikunnar auðvitað á sínum stað og í þetta sinn var það Björg Björnsdóttir, safnstjóri í Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum og ljóðskáld. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfund: Hundagerðið e. Sofi Oksanen Skiptidagar e. Guðrúnu Nordal 90 sýni úr minni mínu e. Halldóru Thoroddsen Blóðhófnir e. Gerði Kristnýju Moldin heit e. Birgittu Björgu Guðmarsdóttur Tónlist í þættinum í dag Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) Borgartún / Snorri Helgason (Snorri Helgason) Gjöf / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Við lítum í heimsókn til Evu Rúnar Snorradóttur, rithöfundar og sviðslistakonu, í þætti dagsins. Eva Rún var að gefa út Eldri konur, sína fyrstu skáldsögu, en áður hefur Eva Rún gefið skáldverkið Óskilamuni og þrjár ljóðabækur. Eldri konur fjallar um konu með þráhyggju fyrir eldri konum. Aðalpersónan rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsáranna gegnum frásagnir af konum sem hafa heltekið hana. Bókina byggir Eva Rún að einhverju leyti á eigin reynslu. Arndís Björk Ásgeirsdóttir rýnir í tónleika Nordic Affect sem fóru fram í Mengi þann 18.nóvember, og óperugalatónleika Norðuróps sem fóru fram þann 16.nóvember í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Jarðljós, tíundu ljóðabók Gerðar Kristnýjar.
Gítarleikarinn að austan og Dúkkulísan Gréta Sigurjónsdóttir hefur marga fjöruna sopið og hún er gestur í fimmu dagsins. Hún talar um áhrifavalda sína í tónlistinni og spjallið fer víða, allt frá Suzi Quatro til Tomma Tomm og Halla Reynis. Í síðari hluta þáttarins upplýsir Gerður Kristný hverjir hljóta tilnefningar til Menntaverðlaunanna í ár en 5. október er alþjóðlegur dagur kennarans. lagalisti: Frelsarans slóð - Bubbi Morthens If you can't give me love - Suzi Quatro Rósamál - Haraldur Reynisson aðgangur bannaður - Erla og Gréta Þú sagðir - GDRN Better Together - Jack Johnson Kenndu mér að kyssa rétt - Raggi Bjarna og Ellen I like to teach the world to sing - New Seekers Fuck City - Daði Freyr Söngur lúsmýsins - úr Eltum veðrið Refur - Svavar Knútur Taste - Sabrine Carpenter Flugvélar - Nýdönsk 7 ár síðan - María Bóel Put the record on - Corinne Bayle Ray
Í dag verður dregin upp svipmynd af skáldi sem nýverið hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins, Gerði Kristnýju. Gerður Kristný ólst upp í Háaleitishverfinu og stefndi á að verða myndlistarmaður eða jafnvel barnaskólakennari þegar hún yrði stór. Barnaskólakennari sem gæfi út barnabækur. Því frá unga aldri hafði hún gaman að því að semja vísur og sögur. Gerður lærði frönsku og bókmenntafræði við Háskóla Íslands og síðar nám í hagnýtri fjölmiðlun við sama skóla og árið 1994 gaf Gerður út sína fyrstu ljóðabók, Ísfrétt. Hún var ritstjóri Mannlífs í 6 ár og hlaut 2005 Blaðamannaverðlaun fyrir bókina Myndin af pabba - Saga Thelmu. Gerður hefur starfað sem rithöfundur í fullu starfi frá 2004 og skrifar hún jöfnum höndum fyrir börn og fullorðna og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir.
Í dag er Kennaradagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og þá verður tilkynnt um hverjir eru tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna í ár. Árlega er óskað eftir hugmyndum að tilnefningum frá almenningi og er verðlaunað fyrir fjóra flokka: Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, framúrskarandi kennari, framúrskarandi þróunarverkefni og framúrskarandi iðn- eða verkmenntun. Gerður Kristný rihöfundur og ljóðskáld er formaður nefndar um Íslensku menntaverðlaunin og hún kom í þáttinn í dag og greindi frá því í beinni útsendingu hverjar tilnefningarnar í ár eru. Nýja íslenska heimildamyndin Konungur fjallanna var sýnd í kvikmyndahúsum í september og svo hér á RÚV í sjónvarpinu 24. september þar sem hún fékk mikið áhorf. Í myndinni er fylgst með Kristni Guðnasyni fjallkóngi og gangnamönnum í leitum á Landmannaafrétti. Í myndinni er gefin raunsönn mynd af leitum og samspili manna, dýra og náttúru. Fjallkóngurinn sjálfur, Kristinn kom í spjall í þáttinn í dag. Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert, hér á landi var fyrst haldið upp á hann árið 1996. Í ár verður dagskrá í Bíó Paradís, sem sagt næsta þriðjudag kl.14 , þar sem haldin verða ávörp, fyrirlestrar og skemmtiatriði. Við fengum Orra Hilmarsson, formann dagsins hér á landi í viðtal í dag. Tónlist í þættinum í dag: Fly Me to the Moon / Hljómar (Hljóðritað í Útvarpssal Skúlagötu 4, þann 9. október 1963. Upptaka gerð fyrir óskalagaþáttinn Lög unga fólksins, fyrst heyrist Einar Júlíusson, þáverandi söngvari, kynna alla hljómsveitina.) Hey love / Marína Ósk (Marína Ósk Þórólfsdóttir) Snert hörpu mína /Edda Heiðrún (Atli Heimir Sveinsson og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Miss Chatelaine / KD Lang (KD Lang og Ben Mink) Mississippi / The Cactus Blossoms (Torrey) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

I hope you are loving this mini series! Here is our final episode for the series - part two in hearing from our guest experts on the show. Here is our guest list: 1. Rachel Miklya, RDN, LD, CPT Follow @strengthinnutritionllc Listen to Rachel on the show in episode 118. Energy for Life! Work with Rachel 2. Kim Duffy , RDN, LD, CPT Follow @strengthinnutritionllc Listen to Kim on the show in episode 118. Energy for Life! Work with Kim 3. Krista Beck, RD Follow @dietitian.krista Listen to Kristn on the show in episode 126. Breaking Free: Intuitive Eating as the Antidote to Diet Culture Work with Krista 4. Jacquelyn Ehmer, RD2Be Follow @gentlegutnutrition Listen to Jacquelyn on the show in episode 125. Gentle Gut Nutrition Work with Jacquelyn 5. Shannon Costello, RDN, LDN Follow @plantbased.and.intuitive Listen to Shannon on the show in episode 79. Why Do I Keep Falling Off Track? Work with Shannon 6. Dianna Goldman, chef, blogger, food photographer Follow @beantownkitchen Listen to Dianna on the show in episode 58. Vegan-licious! Making Vegan Cuisine Work for You! Follow for more great recipes! 7. Keisha Banks-Thornton, MPH, RD Follow @locddietitian Listen to Keisha on the show in episode 92. Easy Meals for Busy Nights! Check out her Delish! cookies 8. Anne Cundiff, RD Follow @anneelizabethrd Listen to Anne on the show in episode 86. Meal Planning 101: The must-haves for the week & more! Connect with Anne on her site/podcast
Gyða Hjartardóttir, félagsráðgjafi kom til okkar í dag, en hún er umsjónar- og ábyrgðaraðili Samvinnu eftir skilnað (SES), sem er heimasíða og verkefni, í rauninni gagnreynt safn þekkingar, verkfæra og námsefnis fyrir foreldra og fagfólk. Um er að ræða stafrænan vef með námsefni sem er ætlað til að hjálpa foreldrum við að takast á við breytingar og áskoranir sem eru algengar í kjölfar skilnaðar eða sambúðarslita. Gyða sagði okkur frá niðurstöðum rannsókna á því hvernig kerfið hefur virkað fyrir þau sem hafa nýtt sér það og svo sagði hún okkur líka frá málþingi um SES, þar sem verða m.a. kynnt til sögunnar ný námskeið fyrir börn. https://samvinnaeftirskilnad.is/ Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn lagði Guðjón vinkilinn að sumardeginum fyrsta. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Steingerður Steinarsdóttir, verkefna- og ritstjóri hjá Samhjálp. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Steingerður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Líkaminn geymir allt e. Bessel Van der Kolk í þýðingu Hugrúnar Hrannar Kristjánsdóttur og Arnþórs Jónssonar Sjáið okkur dansa e. Leilu Slimani. Urta e. Gerði Kristnýju Mark Twain, Halldór Laxness, John Irwing, Margaret Atwood, Ernest Hemingway og Oscar Wilde. Tónlist í þættinum í dag: Með fulla lest / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson og Jónas Friðrik) Body and Soul / Manhattan Transfer (Green, Heyman, Eyton & Sour) This is another day / Take 6 (Andraé Crouch) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Í þættinum er rætt við ljóðskáldið og rithöfundinn Gerði Kristnýju um ljóðabókina Urtu, sem hún sendi frá sér árið 2022. Einnig ber eftirlætisskáld á góma sem og verkefnin framundan. Gerður les tvo hluta bókarinnar af fimm: Kona hugsar til manns síns og Kona segir frá vorkomu. Í síðari hluta þáttarins er svo rætt við ljóðskáldin Anton Helga Jónsson og Sunnu Dís Másdóttur um ljóðalífið í landinu á síðasta ári, ljóðabækur sem vöktu athygli þeirra fyrir yrkisefni og myndmál. Einnig rætt um umfjöllun um ljóð, ljóðaupplestur og fleira.

"Ekki virðist þurfa mörg rök eða sannanir til að sýna hinum menntaða heimi að Ísland er ekki með öllu úr tengslum við hann og því ekki barbaraland" - þannig hljóma upphafsorð bókar sem var skrifuð á latínu af Jóni Þorkelssyni snemma á 18. öld og ber titilinn Sýnisbók þess að Ísland er ekki barbaraland, heldur land bókmennta og menningar. Sýnisbókin er nú loks komin út í íslenskri þýðingu Sigurðar Péturssonar, fyrrum lektors í grísku og latínu, en Hjalti Snær Ægisson bjó hana til prentunar. Hjalti segir okkur nánar af ritinu hér rétt á eftir. Og það verður meira um bókmenntir í þætti dagsins, því Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í nýlega ljóðabók Gerðar Kristnýjar, Urtu, og rithöfundarnir Pedro Gunnlaugur Garcia og Örvar Smárason setjast niður og ræða sín á milli um nýútkomin ritverk sín, skáldsöguna Lungu, og smásagnasafnið Svefngrímuna. Loks fáum við rýni frá Nínu Hjálmarsdóttur um sýningu andspyrnulistahópsins Pussy Riot, sem fram fór á stóra sviði Þjóðleikhússins síðastliðið föstudagskvöld. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

I mars i år vart Kristent Ressurssenter lansert for å styrke ei kristen verkelegheitsforståing om familie og born, kjønn og seksualitet. Truls Olufsen-Mehus er prosjektleiar og fortel at grunnen til at senteret har starta opp er at ein med ein kristen ståstad og med eit kristent alternativ ynskjer å stå opp i ei mengde av samfunnsutfordringa ein i dag står ovanfor. Olufsen-Mehus ser at det er ein form for motkultur å skulle stå for desse verdiane idag, men at ein i ressurssenteret har fått med personer som allereie har fått ei stemme i debatten og klarer å bli relevante i media. Høyr meir i intervjuet med Truls Olufsen-Mehus.
Í síðustu viku opnaði sýning Tilraun-æðarrækt, í Svavarssafni á Höfn í Hornafirði. Þetta er stór og þverfagleg sýning um sjálfbært sambýli æðarfugla og manna. Sýningin var 3 ár í smíðum og var upphaflega var sett upp í Norræna húsinu í vor. Sýningin sem nú hefur flogið á Höfn, er með öðru sniði þar í bæ, dreifir sér um allan bæinn og þar að auki hefur hún fengið áhugaverða viðbót, sem eru verk eftir einn helst fuglalistamann landsins, Höskuld Björnsson. Við ræðum við einn aðstandenda sýningarinnar, Hönnu Dís Whitehead, í þætti dagsins. Næstkomandi miðvikudagskvöld verða upphafstónleikar vetrartónleikaraðar kammerhópsins Nordic Affect í Mengi við Óðinsgötu. Yfirskrift tónleikanna er Ísfrétt og þar munu endalok ástarsambands koma við sögu, með frumflutningi á nýju tónverki Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur við ljóð úr fyrstu ljóðabókar Gerðar Kristnýjar, Ísfrétt. Tónskáldið Ingibjörg Ýr verður gestur Víðsjár hér á eftir og segir okkur frá tilurð tónverksins, sem hún vann upp úr 11 ljóðum úr bókinni. Og í dag flytur tónskáldið Þráinn Hjálmarsson sinn fyrsta pistil um samtímatónlist. Þar tekur hann fyrir afbygginguna á snillingnum og þróunina sem orðið hefur í samtímatónlistarsenunni undanfarin ár í átt að samfélagslegri þátttökulist. - Samtíminn og nýja snilligáfan í pistli Þráins Hjálmarssonar í seinni hluta þáttar hér á eftir. En við byrjum í leikhúsinu. Hið stórfenglega ævintýri um missi, eftir Grímu Kristjánsdóttur, var frumsýnt á fjölum Tjarnarbíós síðastliðinn föstudag. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í verkið.

Á Ljósmyndasafni Reykjavíkur stendur nú yfir sýning undir yfirskriftinni Landvörður. Það er sýning á ljósmyndum Jessicu Auer, listakonu sem búsett er á Seyðisfirði og hefur síðustu ár unnið markvisst að myndrænni skrásetningu á áhrifum fjöldaferðamennsku á íslenskt landslag og samfélag. Í dag munu Félagar í Landvarðafélagi Íslands veita innsýn í heim landvarða með erindum á Ljósmyndasafninu. Þær Nína Aradóttir, formaður Landvarðafélags Íslands, og Júlía Björnsdóttir, landvörður í Öskju, munu fjalla um mikilvægi náttúrutúlkunar þegar kemur að náttúruvernd. Víðsjá heimsótti sýninguna og heyrði nánar af viðburðinum og starfi þeirra Júlíu og Nínu sem landverðir. Á laugardag fer fram viðburður í Hörpu undir yfirskriftinni Dagur á mörkum veruleika og ímyndunar í heimi Tove Jansson. Flestir þekkja Jansson sem höfund Múmínálfanna, en hún var stórbrotin persóna og mikill listamaður. Líf hennar og ævistarf kveikir allskyns vangaveltur og spurningar sem verða reifaðar með fjölbreyttum hópi gesta í Hörpu. Gerður Kristný skipulagði dagskrána og hún verður gestur okkar í þætti dagsins ásamt séra Sigríði Guðmarsdóttur, sem tekur þátt í málstofu sem kallast Andspænis halastjörnunni: Trú, fagurfræði og heimspeki í múmíndal Skáldið Örn Elvar Arnarsson flytur okkur sinn annan pistil, sem að þessu sinni snertir á byggingu sem hann tengist sterkum böndum, bensínstöð sem er við það að hverfa úr borgarlandslaginu. Á þriðjudag var borinn til grafar Erlingur Jónsson myndhöggvari, fæddur árið 1930 á Vatnsleysuströnd. Erlingur starfaði að list sinni áratugum saman, meðal annars í Noregi og Reykjanesbæ en fyrst, um miðja 20. öldina, starfaði hann sem nemandi og aðstoðarmaður Sigurjóns Ólafssonar. Í þætti sem var fluttur hér á Rás1 árið 2010 sem hét ?Erlingur minn, hvað ertu nú að gera?? sagði Erlingur frá fyrstu upplifun sinni af myndlistinni og hugmyndinni um rými í henni. Við heyrum þessa lýsingu í þætti dagsins. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Gestir Felix Bergssonar í Fram og til baka eru þau Gerður Kristný rithöfundur, sem kemur í fimmu og Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri. Gerður Kristný talar um fimm vörður á lífsleiðinni sem hafa mótað hana og haft á hana áhrif. Þetta er allt frá uppgötvun hennar á barnsaldri um bækur og lestur yfir í ferðalög og skemmtilegt fólk á bókakynningum erlendis. Magnús Geir talar um leikstjóra og leikhússtjóraferilinn allt frá Gamanleikhúsinu yfir í Þjóðleikhús. Þar kennir sannarlega margra grasa og margar sýningar koma við sögu í skemmtilegu spjalli.

?Leikurinn blundar í okkur öllum,? segir nýr handhafi Guðmunduverðlaunanna í myndlist sem afhent voru fyrir nokkrum vikum, myndlistarverðlaun sem stofnuð voru af Erró árið 1997 til minningar um móðursystur sína, Guðmundu S. Kristinsdóttur frá Miðengi. Þetta er í 22. sinn sem þau eru veitt og í ár var það Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir myndlistarkona sem tók við þeim. Í listsköpun sinni fæst Ingunn við ýmsa miðla eins og málverk, vefnað og innsetningar þar sem þátttaka áhorfanda leikur gjarnan hlutverk. Framundan er einkasýning í Listasafni Íslands nú í maí og samstarfssýning með Þórdísi Jóhannesdóttur í Sláturhúsinu, Menningarmiðstöð Fljótdalshéraðs á Egilsstöðum sem opnar í júlí, svo eitthvað sé nefnt. Við förum í göngutúr með Ingunni Fjólu hér síðar og röbbum um myndlist. Ásta Soffía Þorgeirsdóttir harmonikkuleikari og Ásbjörg Jónsdóttir tónskáld kynntust í listaháskólanum fyrir áratug síðan og fengu strax áhuga á því að starfa saman. Nokkrum árum, meira tónlistarnámi og hellingi af ljóðalestri síðar, hafa tónlistarkonurnar leitt saman krafta sína í samstarfi við Sölva Kolbeinsson saxafónleikara og Heiðu Árnadóttur sönkonu. Hópurinn heldur tónleika og gefur út nýja plötu laugardaginn næstkomandi sem er innblásinn af ljóðum Gerðar Kristnýjar og Ingibjargar Haraldsdóttur. Þær Ásta og Ásbjörg verða gestir Víðsjár í dag. En við byrjum í Feneyjum. Nína Hjálmarsdóttir fjallar um þau verk sem stóðu upp úr að hennar mati á Feneyjartvíæringnum. Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Halla Harðardóttir

Lacy talks with Kristn Trimble, a unit supervisor at the TDCJ Parole Division who participated in the daily morning check-ins over Zoom during all 10 weeks of the 2022 Get Fit Challenge. Struck by Kristn's motivation to “show up” and challenge herself physically, Lacy wondered what brought her to this point, how she stays motivated and how she used the Get Fit daily workouts and the Wondr Health program to make lifestyle changes around eating and movement. Her “fits and starts” and initial frustrations are relatable. And Kristn's enthusiasm for how she feels in her body is infectious.Learn more about Wondr Health and apply to participate yourself through this link.Take part in our Virtual Fitness classes ! Join fitness instructors Jewell Smith, Mackenzie McIntyre & Chris Young! The Get Fit Texas platform will be our home for the calendar for now. Login and go to the calendar tab on the left side of the page. Participate in future wellness webinars through the ERS Wellness Events page.
Tónlistarhátíðin WindWorks fer fram dagana 13.-20. mars í Byggðasafni Hafnarfjarðar en það er tónlistarhátíð helguð blásturshljóðfærum. Flytjendur verða m.a. Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari, Ármann Helgason, Helga Björg Arnardóttir og Grímur Helgason klarinettleikarar en hjarta hátíðarinnar verður Aulos Flute Ensemble. Rætt verður við þær Karen Karólínudóttur, flautuleikara og Pamelu De Sensi listrænan stjórnanda Windworks hátíðarinnar. Í Ásmundarsal þenja um þessar mundir þrjár listakonur út hugtökin myndlist, handverk og hönnun. Þær Guðlaugar Míu Eyþórsdóttur, Hönnu Dísar Whitehead og Steinunnar Önnudóttur, kalla samsýningu sína Í öðru húsi. Við lítum inn í Ásmundarsal og ræðum við þær Guðlaugu Míu, Steinunni og Hönnu. Sögur af mönnum dýrum og öðrum þáttum náttúrunnar vitna um það að Íslendingar fyrri alda báru skynbragð á það að gjörðir þeirra höfðu áhrif á umhverfi þeirra. Þetta segir Dalrún Kaldakvísl sagnfræðingur, sem heldur áfram pistlaröð sinni um samband Íslendinga fyrri alda við náttúruna. Í dag fjallar Dalrún um viðhorf manna til náttúrunnar, eins og þau koma fyrir í þjóðsögum Jóns Árnasonar. En við byrjum þáttinn á ljóðalestri. Það er ekki á hverjum degi sem þættinum berast ný ljóð á upptöku en það er einmitt tilfellið í dag. Ljóðið var frumflutt síðastliðinn sunnudag í Veröld húsi Vigdísar á fjörutíu ára afmæli Kvennaframboðsins. Ljóðið kallast Víðátta og er eftir Gerði Kristnýju. Með þessu ljóði þakkaði hún Kvennalistakonum fyrir atlætið og uppeldið, kraftinn og kynngin. Umsjón: Halla Harðardóttir og Jóhannes Ólafsson.

Þessi þáttur er tileinkaður barna - og ungmennabókum og í þættinum reifa 4 börn jafnmargar bækur. Það eru þau Skarphéðinn Óli, Bergrún Björk, Kamilla Inga og Ronja. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri spjallar einnig um nokkrar bækur við Önnu Margréti.Bækurnar sem voru til umfjöllunar eru Mr. Einsam eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, Rauð viðvörun - Jólin eru á leiðinni eftir Sigrúnu Eldjárn, Nornaseiður eftir Gunnar Theodór Eggertsson, Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason, Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur, Meira pönk, meiri hamingja eftir Gerði Kristnýju, Nú er nóg komið eftir Hildi Knútsdóttur og Þórdísi Gísladóttur og Álfheimar eftir Ármann Jakobsson. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður fór yfir stjórnmálin á árinu. Þingkosningar, talninguna í Norðvestur-kjördæmi og myndun ríkisstjórnar. Þingmálin sem ekki náðust í gegn og óvenju stutt þing þar sem fjárlögin voru afgreidd á styttri tíma en yfirleitt er. Gerður Kristný rithöfundur sagði frá menningarlífinu á árinu sem er að líða, skemmtilegum uppákomum sem sitja eftir í minningunni, svo sem bókmennta- og kvikmyndahátíðum í haust. Raddir kvenna voru áberandi á árinu og eins kom upp enn eitt málið sem snýr að slæmum aðbúnaði barna. Gerður Kristný ber þá von í brjósti að vel verði tekið á móti börnum á flótta á Íslandi á komandi ári. Tónlist: Ástrós - Bubbi, Bríet og GDRN Let it be - Bítlarnir Ég ætla að brosa - Nýdönsk Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.
Optimistic Food group, eða bjartsýna matarfélagið, er nýsköpunar- og frumkvöðlafyrirtæki í matvælavinnslu þar sem unnið er að gerð vegan matvæla sem komið geta í stað kjöts, en eiga að höfða samt bæði til þeirra sem aðhyllast veganisma og þeirra sem hafa smekk fyrir kjötvörum. Fyrir helgi settu framleiðendurnir bjartsýnu svokallað Happyroni á markað þegar hægt var að panta pizzu með slíku áleggi. Haraldur Hugosson er einn þeirra sem stendur að baki fyrirtækinu og hann kíkti til mín í morgunkaffi og sagði okkur frá möguleikunum á því að fá kjötætur til skipta yfir í t.d. Happyroni í stað Pepperoni. Í Kveik í kvöld verður m.a. fjallað um offitu barna og þróun hennar, en m.a. eru vísbendingar um að offita barna hafi aukist í Covid heimsfaraldrinum. Málið er á margan hátt viðkvæmt, en fagaðilar telja mikilvægt að bregðast við með afgerandi hætti. Tryggvi Helgason barnalæknir þekkir vel til og hann settist í spjall hjá okkur um þessi mál. Frestur til að skila inn lögum í Söngvakeppnina 2022 rennur út á miðnætti annað kvöld. Við fengum Rúnar Frey Gíslason verkefnastjóra hjá RÚV til að líta við og segja okkur frá fyrirkomulaginu og hvernig keppninni verður háttað í vetur. Í dag er Kennaradagurinn og tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna voru kynntar í beinni útsendingu hér hjá okkur eftir áttafréttirnar. Verðlaunahátíðin sjálf verður svo í beinni útsendingu á RÚV þann 10. nóvember nk. Þar verða veitt verðlaun til framúrskarandi kennara, skóla, þróunarverkefna og hvatningarverðlaun. Gerður Kristný skáld, sem er formaður viðurkenningaráðs verðlaunanna kom til okkar og opinberaði tilnefningarnar. Sævar Helgi Bragason kom svo til okkar í Vísindahornið sitt og sagði okkur sitthvað áhugavert og skemmtilegt úr heimi vísindanna, m.a. af fljúgndi furðuhlut sem margir sáu á himni fyrir skemmstu. Tónlist: Thin Jim and the Castaways - Confessions. Jónas Sig - Milda hjartað. Flott - Þegar ég verð 36. Dua Lipa - Love again. Sigurður Guðmundsson - Orðin mín. Sting - Brand new day. Sálin hans Jóns míns - Getur verið. Emilíana Torrini - Speed of dark. Dimma - Almyrkvi.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var rithöfundurinn Gerður Kristný. Hún hlaut á dögunum Fjöruverðlaunin fyrir bókina Iðunn og afi pönk. Það eru langt því frá einu verðlaunin sem hafa fallið henni í skaut á farsælum ferli, þar sem hún hefur sent frá sér ljóðabækur, skáldsögur, smásögur, barnabækur, viðtalsbók og ferðasögu, svo eitthvað sé nefnt. Við ræddum við Gerði um heima og geima, lífið og tilveruna í þætti dagsins. Sigurlaug Margrét var auðvitað á sínum stað með matarspjallið í þættinum. Steinunn Birna Ragnarsdóttir, óperustjóri var gestur hennar í dag. Hún kom færandi hendi, kalda tómatsúpu að katalónskum hætti og það sem hún kallaði guacamús, sem er sambland af guacamole og hummus. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Dagur Norðurlanda verður að vanda haldinn hátíðlegur þann 23. mars nk. Að þessu sinni fagnar Norræna ráðherranefndin fimmtíu ára afmæli og af því tilefni verður efnt til fimm umræðufunda þar sem rætt er hverju Norðurlöndin hafa áorkað í sameiningu. Tekin verða fyrir fimm málefni sem formennskuland ársins, Finnland, leggur áherslu á en það eru norrænar lausnar á sviði jafnréttis, stjórnsýsluhindrana, hringrásarhagkerfis, tjáningarfrelsis og menningar og málefni menningar verður í brennidepli hér á landi og Norræna húsið og Norræna félagið bjóða til pallborðsumræðu. Hrannar B. Arnarson, formaður Norræna félagsins, kom í þáttinn í dag. Ullarþon er nýsköpunar- og hugmyndasamkeppni haldin á netinu til að ýta undir nýsköpun og vöruþróun, auka verðmæti ullarinnar og þá sérstaklega verðminnstu ullarflokkanna. Íslenska ullin er auðlind sem býður upp á áhugaverða möguleika, til dæmis að vinna ull við mismunandi hitastig og mismunandi rakastig breytir henni talsvert. Því verður forvitnilegt að sjá hvort jafnvel verði fundnar upp einhverjar nýjar aðferðir til að vinna vörur úr ull og jafnvel hvort ullin fá einhver ný hlutverk. Textílmiðstöð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands halda Ullarþonið dagana 25. - 29. mars nk.og til að segja okkur meira frá því og ullinni kom til okkar Hulda Birna Baldursdóttir verkefnastjórí Ullarþonsins fyrir Nýsköpunarmiðstöð. Stóra upplestrarkeppnin fór fram á Ströndum, eins og annars staðar á landinu, og var haldin á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði. Kristín okkar Einarsdóttir fór á keppnina og ræddi við Aðalbjörgu Óskarsdóttur kennara, Þórð Helgason fulltrúa Radda og sigurvegara keppninnar Kristjönu Kríu Lovísu Bjarnadóttur sem las sigurljóðið Veislu eftir Gerði Kristnýju. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Þáttur um listmálarann og rithöfundinn Tove Jansson og glimu hennar við Múmíndal og myndlistina. Umsjón: Gerður Kristný.
Ljósið endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess hefur, líkt og svo margir aðrir, þurft að gera miklar breytingar á starfsemi sinni í Covid faraldrinum. Þar hefur reynt á styrk og útsjónarsemi starfsfólks Ljóssins sem hefur fundið nýjar leiðir til að hlúa að viðkvæmum skjólstæðingum sínum. Ljósablaðið er t.d. nýkomið út og er í fyrsta sinn rafrænt, Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, Markaðs- og kynningarstjóri Ljóssins kíkti til okkar í spjall og sagði okkur meira. Við töluðum um íslenskt mál við Önnu Sigríði Þráinsdóttur og í dag voru jólasveinar á dagskrá. Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, var á línunni hjá okkur en tilslakanir á sóttvarnarráðstöfunum hafa í för með sér breytingar á íþróttastarfi næstu vikunnar. Ljóst er að einhvers misskilnings hefur gætt með það hverjir nákvæmlega mega æfa og Lárus fór yfir þetta með okkur og sagði okkur frá því hvernig honum líst á framhaldið. Gerður Kristný er afkastamikill rithöfundur og skrifar jafnt skáldsögur fyrir börn sem fullorðna í bland við ljóðabækur. Hún hlaut Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir skemmstu og nú er hennar nýjasta verk tilnefnt til Fjöruverðlaunanna. Það er bókin um Iðunni og afa pönk sem Halldór Baldursson myndskreytti og þau Gerður ætla að komu til okkar í spjall eftir átta fréttir. Uppistandshópurinn VHS ætlar að leggja sitt til til að gleðja þjóðina með því að bjóða upp á ókeypis jólasýningu um helgina. Þar ætla þau að gleðjast og grínast með jólahefðir m.a. Stefán Ingvar Vigfússon kom til okkar og sagði okkur meira, m.a. af ristabrauðsáti á aðfangadagskvöld. Tónlist: Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson - Desemberkveðja. Kristín Sesselja - Earthquake. Halli og Laddi - Leppur, Skrekkur og Leiðindaskjóða. Gunnar Ólason ofl. - Komdu um jólin. Ramones - Blitzkrieg bop. Queen - Thank God its Christmas. Arlo Parks - Green Eyes.
Við hófum þáttinn í dag, eins og alla mánudaga og fimmtudaga undanfarið, á því að senda út upphafið á upplýsingafundi Almannavarna. Þátturinn er því aðeins styttri, eða sem því nemur. Við hringdum til Noregs og heyrðum í Hörpu Björt Eggertsdóttur, en hún er með vefverslun þar í landi, þar sem hún selur til dæmis íslenskan jólamat og sælgæti og margt fleira, t.d. íslenskt laufabrauð. Covid-19 hefur auðvitað sett strik í reikninginn hjá þeim eins og flestum, enda gerði ástandið það að verkum að erfiðara var að senda ýmsar vörur frá Íslandi til Noregs. Þau vildu þó endilega sjá hvað hægt væri að gera og buðu Íslendingum í Noregi upp á að nefna hvers þau sakna mest frá Íslandi og reyndu að verða sér út um það. Sem sagt Harpa Björt og íslenska vefverslunin dadda.no í Noregi í þættinum í dag. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Halldór Baldursson teiknari. Flestir ættu að þekkja teikningarnar eftir hann, en skopmyndir eftir hann birtast auðvitað reglulega í Fréttablaðinu og Viðskiptablaðinu, hann myndskreytir nýjustu bók Gerðar Kristnýar, Iðunn og afi pönk og hann myndskreytir einnig nýjustu bókina um Fíusól, og er meðhöfundur ásamt Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. En hvað les hann sjálfur? Við fengum að vita allt um það hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Spegillinn 16. nóvember 2020 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Árangurinn við þróun bóluefnis gegn Covid hjá lyfjafyritækinu Moderna er mjög mikilvægur segir prófessor í ónæmisfræði. Íslenskur vísindamaður sem vann að þróun bóluefnisins segir að vinnan eigi eftir að hafa áhrif í framtíðinni við þróun bóluefna gegn öðrum smitsjúkdómum. Vindhraði í fellibylnum Iota er kominn yfir sjötíu metra á sekúndu. Hann nær landi í Mið-Ameríku seinna í kvöld. Íslensk yfirvöld eru komin vel áleiðis að uppfylla tilmæli GRECO samtakanna, sem berjast gegn spillingu, en það er munur á frammistöðu forsætisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins í þessum efnum. Gerður Kristný rithöfundur fékk verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og Félag ljóðaunnenda á Austurlandi hlaut sérstaka viðurkenningu á Degi íslenskrar tungu. Formaður Náttúruverndarsamtaka Austurlands telur ekkert liggja á að úthluta eldissvæðum í Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði áður en skipulag haf- og strandsvæða á Austfjörðum liggur fyrir. Lengri umfjöllun: Gerður Kristný rithöfundur fékk í dag verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á Degi íslenskrar tungu. Í þakkarræðu sinni vék Gerður Kristný meðal annars að nýyrðasmíði Jónasar, covid og jólabókaflóðinu. Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus í íslenskri málfræði fékk Jónasarverðlaunin fyrir tveimur árum. Hann skrifar mikið um tungumálið og birti pistil í dag á netinu í tilefni dagsins. Lífvænleiki íslenskunnar. Þar segir hann að að íslenskan standi á margan hátt vel þrátt fyri að ýmsar ytri aðstæður séu henni óhagstæðar um þessar mundir. Kristján Sigurjónsson talar við Eirík. GRECO er skammstöfun fyrir samtök ríkja innan Evrópuráðsins sem berjast gegn spillingu. Fimmta úttekt samtakanna um aðgerðir á Íslandi gegn spillingu er yfirstandandi og eftirfylgniskýrsla hefur nú verið birt. Það er enn nokkuð verk að vinna, einkum í málefnum á könnu dómsmálaráðuneytisins. Íslensk yfirvöld hafa nú 18 mánuði til að uppfylla GRECO-tilmælin. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Gripið var til talsverðra sóttvarnaaðgerða þegar svokölluð svínaflensa herjaði á heimsbyggðina fyrir 11 árum. Hér á landi er talið að 50 til 60 þúsund manns hafi smitast. Tveir létust af völdum flensunnar og að öllum líkindum sá þriðji sem lést í heimahúsi. Svínainflúensan skaut upp kollinum vorið 2009 og breiddist út um heimsbyggðina. Þetta var fyrir 11 árum og sjálfsagt margir búnir að gleyma henni. Í upphafi var ljóst að þessi inflúensa lagðist á tiltölulega ungt fólk. Í byrjun maí 2009 voru staðfest smit komin í um 5 þúsund í 30 löndum. Meðala
Í Sumarbókinni er brugðið upp svipmyndum frá sumardvöl stúlkunnar Soffíu á eyju í finnska skerjagarðinum ásamt ömmu sinni og pabba. Persónurnar í bókinni eru byggðar á móður Jansson, bróður hennar og bróðurdóttur, en sjálf dvaldi Tove Jansson mikið í skerjagarðinum. Sumarbókin er ein þekktasta skáldsaga hennar fyrir utan bækurnar um Múmínálfana, en hún skrifaði einnig smásögur sem margar byggðu á hennar eigin ævi og reynslu. Gestir þáttarins eru rithöfundarnir Gerður Kristný og Áslaug Jónsdóttir. Umsjón: Auður Aðalsteinsdóttir.
Kristín segir frá því þegar hún samdi kammeróperu við ljóð Gerðar Kristnýar.
Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir er ung baráttukona fyrir jafnrétti sem fannst vanta upp á kynjafræðslu í grunn- og framhaldsskólum. Hún ákvað að gera eitthvað í málinu og fór að halda fyrirlestra í grunn- og framhaldskólum sem kallast Af hverju er ég femínisti - fræðslufyrirlestur um jafnrétti. Stefanía mætti til okkar í hljóðverið á Akureyri og sagði okkur frá þessu verkefni sínu. Uppistand nýtur sívaxandi vinsælda og sífellt fleiri spreyta sig á því sviði. Nokkrir uppistandandarar á uppleið ætla á morgun að bjóða upp á nýtt grín í tilefni nýs ár og lofa því að þeir sem missi af verði bæði skammdegisþunglyndir og önugir út áratuginn, svo það borgar sig greinilega að mæta. Þær Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir og Lóa Björk Björnsdóttir kíktu til okkar í spjall. Edda Þórarinsdóttir hefur þjónað leiklistargyðjunni í áratugi, bæði sem leikkona og leikstjóri og dregur ekkert af. Nú er hún hluti af leikhúslistakvennahópi 50 plús sem gert hefur samstarfsamning við Þjóðleikhúsið í vetur og þessa dagana sýnir hún leikverkið Dansandi ljóð byggt á ljóðum Gerðar Kristnýjar og tónlist Fabúlu. Edda sagði okkur frá spennandi leikhúsverkefnum. Frumvarp Alþingis um vernd uppljóstrara er mikilvægt framfaraskref í íslenskum rétti. Það verður það stærsta í að vernda starfsmenn fyrirtækja og stofnanna sem stíga fram með upplýsingar sem annars væru háðar þagnarskyldu verði frumvarpið samþykkt. Þetta segir Halldóra Þorsteinsdóttir, lektor í lagadeild Háskólans í Reykjavík, í grein í tímaritinu Lögréttu. Hún var gestur Morgunútvarpins og sagði okkur meira af þessu. Svo mætti Anna Sigríður Þráinsdóttir í sitt vikulega málfarshorn og ræddi bros. Tónlist: Fríða Dís - Baristublús. Bryan Ferry - Slave to love. Bogomil Font og Flís - Veðurfræðingar. Haim - Hallelujah. Fabúla - Hljóðskraf. KK og Magnús Eiríksson - Vindur. Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson - Annað haust. Jónas Sig - Baráttusöngur uppreisnarklansins á skítadreifurunum. Khruangbin - Texas Sun (ft. Leon Bridges).
Í Víðsjá í dag er meðal annars hugað að Myrkum músíkdögum sem hefjast um helgina. Gunnar Karel Másson, listrænn stjórnandi hátíðarinnar, kemur í heimsókn en hún verður sett á laugardag og stendur í viku með tónleikahaldi víða um borgina. Myrkir músíkdagar eiga 40 ára afmæli í ár en hátíðin var fyrst haldin árið 1980. Tveir meðlimir úr polka-hljómsveitunum Geirfuglunum og Skárr'en ekkert koma í heimsókn, en hljómsveitirnar halda polkaball í Iðnó annað kvöld í tilefni af bóndadegi. Snæbjörn Brynjarsdóttir fjallar í dag um verkið Dansandi ljóð sem sýnt er í Þjóðleikhúskjallaranum um þessar mundir en um er að ræða leikgerð sem Edda Þórarinsdóttir byggir á ljóðatextum eftir Gerði Kristnýju, úr bókunum Ísfrétt, Launkofa, Höggstað og Ströndum. Að sýningunni stendur hópurinn Leikhúslistakonur 50+. Og Gunnar Þorri Pétursson flytur þriðja pistil sinn í pistlaröðinni Varsjá þar sem hann fer austur á bóginn og horfir aftur í tímann. Yfirskrift pistilsins í dag er ,,Dimmraddaður bogi" og fjallar um rússneska skáldið Osip Mandelshtam.
It's The Mike Wagner show with Canadian singer Kristen Karma and her guest Marianne Hanna with her releases "I Wonder Why", "Dear John" and more plus how she got started and also opened up for AKON, DJ Lady Starlight and worked with Lady Gaga at a VIP event! --- This episode is sponsored by · Anchor: The easiest way to make a podcast. https://anchor.fm/app --- Send in a voice message: https://anchor.fm/themikewagnershow/message Support this podcast: https://anchor.fm/themikewagnershow/support
Gerður Kristný rithöfundur og Bryndís Loftsdóttir hjá Félag íslenskra bókaútgefenda urðu vinkonur í leikskóla. Síðar á lífsleiðinni stunduðu þær Kaffibarinn grimmt með ginhlaup í poka og þóttust vera frægar til að smygla sér fram fyrir röðina. Ljóðskáldið Gerður Kristný sendi frá sér nýja ljóðabók fyrir þessi jól en sú nefnist Heimskaut og er níunda ljóðabók höfundar. Í bókinni í fer ljóðmælandi í heimskautaferðir í blíðri og óblíðri náttúrunni og segir frá sögulegum atburðum. Einn af hennar dyggustu lesendum, yfirlesari, stuðningskona og vinkona í gegnum tíðina er Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Þær kynntust fyrst á leikskólanum Álftaborg þar sem þær léku sér í mömmó með foringja leikskólans, henni Gunnu, sem réð öllu í mömmuhorninu. Bryndís flutti í Fellahverfið svo þær misstu sambandið í grunnskóla en fundu hvor aðra á unglingsárunum.
Í Víðsjá dagsins verður rætt við Daníel Bjarnason tónskáld um tónverk hans From Space I saw Earth sem frumflutt verður í Los Angels 24. október. Verkið er samið fyrir fílharmoníusveitina í Los Angeles í tilefni að hundrað ára afmæli hennar en þrír núlifandi aðalhljómsveitarstjórar sveitarinnar munu stjórna flutningi þess, þeir Gustavo Dudamel, Esa Pekka Salonen og Zubin Mehta. Tilvist rostunga á Íslandi á forsögulegum tíma og hvarf þeirra um og upp úr landnámi hefur löngum valdið fræðimönnum heilabrotum. Hilmar J. Malmquist, líffræðingur og forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, og Bjarni F. Einarsson, fornleifafræðingur og forstöðumaður Fornleifafræðistofunnar, munu á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða á morgun greina frá nýbirtum niðurstöðum fjölþjóðlegrar rannsóknar á rostungum við Íslands strendur á forsögulegum tíma og fram yfir landnám, sem Náttúruminjasafn Íslands fór fyrir. Hilmar verður gestur Víðsjár í dag. Bók vikunnar á Rás 1 er Sálumessa eftir Gerði Kristnýju en hlustendur Víðsjá heyra Gerði segja frá bókinni í þætti dagsins og lesa úr henni. Snæbjörn Brynjarsson, annar tveggja leiklistargagnrýnenda Víðsjár, segir hlustenum frá upplifun sinni á sýningunni Shakespeare verður ástfanginn í Þjóðleikhúsinu. Umsjón Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson.
Á hverju ári á degi barnabókarinnar er ný íslensk smásaga frumflutt samtímis í öllum grunnskólum landsins. IBBY samtökin á Íslandi skipuleggja þennan viðburð en það eru rúmlega 40.000 grunnskólanemar sem hlýða á söguna. Höfundur smásögunnar flytur hana í útvarpinu á Rás 1 svo landsmenn allir geta einnig fylgst með. Tilgangurinn er að fagna degi barnabókarinnar með notalegri sögustund og vekja um leið athygli á sameiningarmætti skáldskaparins. Með því að flytja söguna fyrir mörg þúsund lesendur í einu er mögulegt að skapa bókmenntaumræðu sem nær til samfélagsins alls. Í ar mætti Gerður Kristný galvösk í þáttinn með glænýja sögu og las í beinni útsendingu.