Podcasts about hildi kn

  • 6PODCASTS
  • 19EPISODES
  • 52mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Mar 20, 2023LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about hildi kn

Latest podcast episodes about hildi kn

Lestin
ChatGPT talar íslensku, ástin í Last of Us, lygar um Pompidou

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 20, 2023 55:00

Uppvakningaþættirnir Last of Us hafa notið mikilla vinsælda undanfarna mánuði, þættir sem byggja á samnefndum tölvuleik sem gerist 20 árum eftir heimsslit verða vegna óhugnalegrar farsóttar sem breytir fólki í blóðþyrsta zombía. Jóhannes Ólafsson ræðir við Hildi Knútsdóttur, rithöfund, og Baldvin Albertsson, hjá Vitar games um ástina í Last of Us. Kristlín Dís Ingilínardóttir er stödd á ferðalagi og hún sendi okkur pistil frá gömlu heimaborg sinni, París. Hún segir okkur frá kynnum sínum af Pompidou safninu. Mun gervigreind bjarga íslenskunni? Í Grósku í dag fór fram kynningarfundurinn 'Framtíðin svarar á íslensku'. Lestin kíkti á svæðið og ræddi við Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur, framkvæmdarstjóra Almannaróms og Angelu Jiang, vörustjóra hjá OpenAi. Við fáum að heyra hvernig það kom til að íslenska varð annað tungumálið sem spjallmennið ChatGPT lærði, á eftir ensku.

Lestin
ChatGPT talar íslensku, ástin í Last of Us, lygar um Pompidou

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 20, 2023

Uppvakningaþættirnir Last of Us hafa notið mikilla vinsælda undanfarna mánuði, þættir sem byggja á samnefndum tölvuleik sem gerist 20 árum eftir heimsslit verða vegna óhugnalegrar farsóttar sem breytir fólki í blóðþyrsta zombía. Jóhannes Ólafsson ræðir við Hildi Knútsdóttur, rithöfund, og Baldvin Albertsson, hjá Vitar games um ástina í Last of Us. Kristlín Dís Ingilínardóttir er stödd á ferðalagi og hún sendi okkur pistil frá gömlu heimaborg sinni, París. Hún segir okkur frá kynnum sínum af Pompidou safninu. Mun gervigreind bjarga íslenskunni? Í Grósku í dag fór fram kynningarfundurinn 'Framtíðin svarar á íslensku'. Lestin kíkti á svæðið og ræddi við Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur, framkvæmdarstjóra Almannaróms og Angelu Jiang, vörustjóra hjá OpenAi. Við fáum að heyra hvernig það kom til að íslenska varð annað tungumálið sem spjallmennið ChatGPT lærði, á eftir ensku.

Skúffuskáld
Barna- og ungmennabækur; Akam, ég og Annika, Bannað að eyðileggja, Meira pönk, meiri hamingja, Nú er nóg komið, Álfheimar, Nornaseiður, Rauð viðvörun, Mr. Einsam

Skúffuskáld

Play Episode Listen Later Jan 23, 2022 73:18

Þessi þáttur er tileinkaður barna - og ungmennabókum og í þættinum reifa 4 börn jafnmargar bækur.  Það eru þau Skarphéðinn Óli, Bergrún Björk, Kamilla Inga og Ronja. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri spjallar einnig um nokkrar bækur við Önnu Margréti.Bækurnar sem voru til umfjöllunar eru Mr. Einsam eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, Rauð viðvörun - Jólin eru á leiðinni eftir Sigrúnu Eldjárn, Nornaseiður eftir Gunnar Theodór Eggertsson, Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason, Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur, Meira pönk, meiri hamingja eftir Gerði Kristnýju, Nú er nóg komið eftir Hildi Knútsdóttur og Þórdísi Gísladóttur og Álfheimar eftir Ármann Jakobsson. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

Skúffuskáld
Olía, Merking, Myrkrið á milli stjarnanna, Drottningin, Reykjavík og Skrímsli

Skúffuskáld

Play Episode Listen Later Nov 22, 2021 68:23

Gyða og Anna Margrét spjalla um nokkrar nýútkomnar bækur í þættinum. Þær spjalla um þrjár bækur fyrir börn og þrjár nýútkomnar skáldsögur. Bækurnar sem eiga heiðurssess í þættinum eru:Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu ÓlafsdótturSkrímslaleikur eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Guettler og Rakel HelmsdalDrottningin sem kunni allt nema... eftir Gunnar Helgason og Rán FlyeringOlía eftir SvikaskáldMerking eftir Fríðu ÍsbergMyrkrið á milli stjarnanna eftir Hildi Knútsdóttur.Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.

gy reykjav margr skrif tryggvad lindu gunnar helgason hildi kn
Hlaðvarp Borgarbókasafnsins
Hrekkjavökuganga Borgarbókasafnsins 2020

Hlaðvarp Borgarbókasafnsins

Play Episode Listen Later Oct 30, 2020 37:21

Aðstæður í samfélaginu gera að verkum að ekki er hægt að fagna hrekkjavökunni með hefðbundnum hætti í ár. Borgarbókasafnið býður fjölskyldum því upp á hrekkjavökugaman í formi rafrænnar bókmenntagöngu sem hægt er að fara saman, hvar og hvenær sem er. Sunna Dís Másdóttir les úr skuggalegum, draugalegum, já og stundum hreint út sagt hryllilegum bókum íslenskra barna- og unglingabókahöfunda.Lesið er úr eftirfarandi bókum: Bölvun Múmíunnar eftir Ármann JakobssonDrauga-Dísa eftir Gunnar Theodór EggertssonDúkka eftir Gerði KristnýjuEitthvað illt á leiðinni er, ritstjóri Markús Már Efraím. Höfundar sögunnar: Ronja Björk Bjarnadóttir og Matthea Júlíusdóttir Skóladraugurinn eftir Ingu Mekkín Beck Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur

lesi efra bjarnad hrekkjav borgarb sunna d hildi kn
Orð um bækur
Orð um ljóð og ljóðabók, sögur í núinu og í framtíðinni

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Dec 14, 2019 55:52

Í þættinum heyrist brot úr upptöku frá Ljóði og með því í Gröndalshúsi þann 11. desember 2019. Þar heyrist í ljóðskáldunum Þórdísi Gísladóttur, Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, Melkorku Ólafsdóttur, Brynju Hjálmsdóttur,Fríðu Ísberg og Ástu Fanneyju Sigurðardóttur. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir segir frá fyrstu skáldsögu Braga Páls Sigurðarsonar, Austur, og lesin eru brot úr textanum. Þá er í þættinum rætt við Þórdísi Gísladóttur um bækur hennar Mislæg gatnamót sem er ljóðabók og barnabókina Randalín, Mundi og leyndarmálið og við Hildi Knútsdóttur um nýja skáldsögu hennar Nornina. Lesari: Jóhannes Ólafsson

lj randal sigur mundi inni ragnhei framt misl austur leifsd hildi kn
Orð um bækur
Orð um ljóð og ljóðabók, sögur í núinu og í framtíðinni

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Dec 14, 2019

Bók vikunnar

Fjallað um skáldsöguna Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur sem er bók vikunnar. Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir. Viðmælendur í þættinum eru Helga Birgisdóttir doktorsnemi íslenskum barnabókmenntum og íslenskukennari við Tækniskólann og Hildur Yr Ísberg bókmenntafræðingur og íslenskukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð

lj sigur umsj fjalla menntask hamrahl hildi kn
Víðsjá
Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Harpa Árnadóttir, Hildur Knútsdóttir, og Roc

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 22, 2019 53:30

Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur var að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu sem nefnist Svínshöfuð. Bergþóra er fædd árið 1985 en hefur nú þegar vakið töluverða athygli fyrir skrif sín, bók hennar, Flórída, frá árið 2017, var til dæmis tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna á sínum tíma. Bergþóra verður gestur Víðsjár í dag.    Hverfisgallerí við Hverfisgötu verður heimsótt og rætt við Hörpu Árnadóttur myndlistarkonu sem þar sýnir verk sín á sýningu sem hún kallar Djúpalogn. Bók vikunnar að þessu sinni er skáldsagan Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur, sem kom út í fyrra. Hlustendur heyra í höfundinum í þætti dagsins.     Og Snæbjörn Brynjarsson leikhúsrýnir fjallar í dag um leikverkið Rocky! eftir danska höfundinn Tue Biering, sem frumsýnt var í Tjarnarbíói  á föstudag, nýlegt ádeiluverk sem vakti töluverða athygli á síðasta ári fyrir að taka með frumlegum hætti á erfiðu málefni.   Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.

dj berg gu sv sn lj eir harpa umsj hlustendur brynjarsson hverfisg tjarnarb hildur kn hildi kn
Lestin
Loftslagsmál, Vienna, verðleikasamfélagið, Lissabon

Lestin

Play Episode Listen Later Apr 2, 2019 52:59

Húsið brennur en við höldum bara áfram að slá blettinn. Umræðan um loftslagsbreytingar hefur varla breyst í gegnum árin en hún er flókin og full af örvæntingu og kvíða. En það glittir í sólstafi við sjóndeildarhringinn. “Veröld sem var,“ skrifaði Stefan Zweig. “Veröld sem verður,“ segir sænski aðgerðarsinninn Greta Thunberg. Lína langsokkur holdi klædd, tilbúin til þess að taka í lurginn á fullorðna fólkinu sem er bara forpokað og þykist gera eitthvað en situr í raun aðgerðarlaust. Í Lestinni í dag verður fjallað um nýja dögun loftslagsaðgerða og rætt við Hildi Knútsdóttur, rithöfund, einnig verður spurt hvort breyttir tímar komi með skrópandi krökkum og hvort þetta sé mögulega allt of seint? Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson Lissabon-borg, alræmt glæpagengi, höfuðlagsfræði og bókina Flights eftir pólska rithöfundinn og aðgerðarsinnann Olgu Tokarczuk, en hún hlaut hin Alþjóðlegu Man Booker verðlaun árið 2018. Lestin fer einnig tæp fjörutíu ár aftur í tímann og nemur staðar í Vínarborg, við sögu í þættinum í dag kemur frægt lag sem hafði mikil áhrif og kennt er við þá borg. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um hugmyndina um verðleikasamfélagið.

Víðsjá
Hliðræn snjókorn, Ljónið, Hönnunarsafnið, Blekfjelagið og Fullveldið

Víðsjá

Play Episode Listen Later Nov 29, 2018 55:00

Við lítum inn á sýningu í Bismút galleríi við Hverfisgötu, en þar sýnir Atli Bollason silkislæður með mynstri sem hann vinnur upp úr snjókornum af sjónvarpsskjá. Steinunn Inga Óttarsdóttir rýnir í skáldsöguna Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur Við sláum á þráðinn til Hönnunarsafnsins, sem setur upp forvitnilega sýningu á Instagram í tilefni af fullveldisafmæli þjóðarinnar. Blekfjelagið, félag ritlistarnema við Háskóla Íslands, hefur undanfarin ár lesið inn örsögur í Víðsjá í aðdraganda jólanna. Í dag verður hefðin tekin upp að nýju og að þessu sinni eru það Anna Björg Siggeirsdóttir, Þórunn Júlíusdóttir og Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir sem lesa einnar mínutu langa sögu hver. En við byrjum á fullveldinu. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Orð um bækur
Orð um barnabækur, fyrst og fremst þó ungmennabækur

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Nov 17, 2018

Barna- og ungmennabækur eru umfjöllunarefni þáttarins. Rætt er við Helgu Birgisdóttur bókkmenntafræðing um það sem hæst ber í útgáfunni árið 2018 og skoða í samhengi útgáfunni síðustu ár sem og umræðunnar um dvínandi lestur barna og ungmenna. Þá er í þættinulm rætt við rithöfundana Hildi Knútsdóttur og Ragnheiði Eyjólfsdóttur um skáldsögur þeirra Ljónið eftir Hildi og Rotturnar eftir Ragnheiði.

Play Episode Listen Later Nov 17, 2018 51:26

Barna- og ungmennabækur eru umfjöllunarefni þáttarins. Rætt er við Helgu Birgisdóttur bókkmenntafræðing um það sem hæst ber í útgáfunni árið 2018 og skoða í samhengi útgáfunni síðustu ár sem og umræðunnar um dvínandi lestur barna og ungmenna. Þá er í þættinulm rætt við rithöfundana Hildi Knútsdóttur og Ragnheiði Eyjólfsdóttur um skáldsögur þeirra Ljónið eftir Hildi og Rotturnar eftir Ragnheiði.

Orð um bækur
Orð um yndislestur ungmenna... á ensku

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Mar 3, 2018 55:00

Í bókmenntaþættinum Orð um bækur er rætt um skort á íslenskum bókum fyrir ungmenni. Rætt er við nemendur í Hagaskóla um lestur þeirra á bókum, við Hildi Knútsdóttur rithöfund og Ingibjörgu Ösp Óttarsdóttur og Sunnu Björk Þórarinsdóttur bókaverði í Borgarbókasafni Reykjavíkur. Umsjónarmaður er Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir. Tæknimaður er Georg Magnússon.

reykjav umsj ingibj borgarb hagask hildi kn
Orð um bækur
Orð um yndislestur ungmenna... á ensku

Orð um bækur

Play Episode Listen Later Mar 3, 2018

Í bókmenntaþættinum Orð um bækur er rætt um skort á íslenskum bókum fyrir ungmenni. Rætt er við nemendur í Hagaskóla um lestur þeirra á bókum, við Hildi Knútsdóttur rithöfund og Ingibjörgu Ösp Óttarsdóttur og Sunnu Björk Þórarinsdóttur bókaverði í Borgarbókasafni Reykjavíkur. Umsjónarmaður er Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir. Tæknimaður er Georg Magnússon.

reykjav umsj ingibj borgarb hagask hildi kn
Hlaðvarp Borgarbókasafnsins
Jólabarnabókaspjallið - Þáttur 3

Hlaðvarp Borgarbókasafnsins

Play Episode Listen Later Feb 23, 2018 25:44

Við fengum tvo lestrarhesta til viðbótar í heimsókn í hlaðvarpið um daginn og Sunna spjallaði við þær um bækurnar sem þær völdu sér fyrir jól. Við röbbum líka um jólagjafabækur, laumulestur á kvöldin og dagbækur. Tobba, verkefnastjóri barnastarfs, leit líka í heimsókn og spjallaði um bækur skrifaðar í dagbókarstíl, Önnu Frank og krúsípúsí fuglasteikur, meðal annars. Í þættinum koma fram:Lilja Karen SigurðardóttirRagnheiður Eyja ÓlafsdóttirSunna Dís MásdóttirÞorbjörg KarlsdóttirSpjallað er um eftirfarandi bækur:Kvöldsögur fyrir uppreisnagjarnar stelpur e. Elenu Favilli og Francescu CavalloDagbók Kidda klaufa: furðulegt ferðalag e. Jeff Kinney Dagbók drápskattar e. Önnu FineDagbók Ólafíu Arndísar e. Kristjönu FriðbjörnsdótturÁ puttanum með pabba e. Kolbrúnu Önnu BjörnsdótturDagbók prinsessu e. Meg CabotÉg sakna þín e. Peter Pohl og Kinnu Gieth Peð á plánetunni Jörð e. Olgu Guðrúnu ÁrnadótturDoddi - Bók sannleikans! e. Þórdísi Gísladóttur og Hildi Knútsdóttur Hljóðmaður: Ingi Þórisson

Hlaðvarp Borgarbókasafnsins
Út og Suður - Suðurland

Hlaðvarp Borgarbókasafnsins

Play Episode Listen Later Jun 21, 2017 45:20

Í þættinum Út og Suður koma fram: Björn Unnar Valsson, verkefnastjóriIngibjörg Ösp Óttarsdóttir, deildarbókavörður Ólöf Sverrisdóttir, verkefnastjóriSunna Dís Másdóttir, verkefnastjóriSpjallað er um eftirfarandi bækur: Blátt blóð: Í leit að kátu sæði eftir Oddnýju Eir ÆvarsdótturSkegg Raspútíns eftir Guðrúnu Evu MínervudótturGuð hins smáa eftir Arundhati RoyVetrarhörkur eftir Hildi KnútsdótturGaldrastafir og græn augu eftir Önnu Heiðu PálsdótturOrmhildarsaga eftir Þórey Mjallhvíti H. ÓmarsdótturEineygði kötturinn kisi og hnakkarnir eftir Hugleik DagssonGóða ferð og góða hlustun!Hljóðmaður: Ingi Þórisson

bj gu hei eir ingi hlj sverrisd oddn evu m mjallhv hildi kn