POPULARITY
Tað gongur á 55.-instjúgunda ári síðani 74 ára gamli gjáarmaðurin Jákup Matras, sum býr í Havn, fór at arbeiða hjá SEV, og hann arbeiðir har framvegis. Í hesum seinna partinum hitta vit Jákup fyrst á Eiðisverkinum, sum hann var við at byggja miðskeiðis í áttatiárunum. Alt vatnið úr áunum heilt frá Selatrað og norður á Gjáarskarð kemur í Eiðisvatn, og rennur síðani oman á Eiðisverkið, har vatnturbinurnar gera streym út á netið hjá SEV. Har og aðra staðni hjá SEV arbeiðir Jákup við stýringum. Fyrr var hann linjumaður um veturin og arbeiddi við stýringum um summarið, Men hesi síðstu mongu árini hevur hann mest arbeitt við at montera stýringar til motorar, koblingar og annað. Jákup Matras hevur arbeitt nógv í útoyggjum. Og longu sum lærlingur varð hann í 1968 sendur til Fugloyar at leggja elektrisitetið inn til húsarhaldini í oynni. Hann fekk eisini konu burtur úr hesum túrinum, og hann og Masa av Kirkju hava verið gift í mong ár. Á túrinum í Fugloy greiðir Jákup frá nógvum serligum minnium hesi mongu árini hjá SEV. Jákup fór til skips sum 14 ára gamal, men einaferð teir komu aftur segði mamman honum, at hann hevði figið lærupláss í Havn sum elektrikari. Og hann tók av. "Mamma man hava havt varðhugan av at eg hevði hug og hevni til hetta, tí hon rakti væl", sigur Jákup Matras. Og hugurin til elarbeiðið er framvegis líka góður. Vit koyra eisini ein túr til Hattarvíkar, har Jákup kendi øll fólkini í bygdini og minnist hvørja einastu innlegging. -Mær hevur altíð dámt væl hjá SEV. Eitt skifti, tá nógvir elektrikarar fóru til Norra at arbeiða, umhugsaði eg tað eisini. Men ábyrgdarkenslan fyri SEV gjørdi, at eg bleiv verandi her og tað eri eg glaður fyri. Og teir flestu eru komnir heimaftur úr Norra, sigu Jákup Matras.
Rætt er við Jóhann Óskar Borgþórsson flugstjóra hjá Play og fyrrverandi yfirflugstjóra félagsins, um hans merkilegan feril, starfið og breytingar framundan hjá Play. Eftir meira en áratug sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair tók Jóhann Óskar stökkið árið 2017, sagði upp störfum og réð sig sem flugstjóra til Wow sem fór síðan í gjaldþrot tæpum tveimur árum síðar. Eftir það tók við ævintýri á framandi slóðum, en þegar Play hóf flugrekstur var Jóhann Óskar ráðinn flugstjóri og síðar yfirflugstjóri hjá félaginu og hefur tekið þátt í að byggja upp flugrekstur félagsins sem hann segir hafa verið einstakt afrek og gefandi vinna. Fyrr á þessu ári hætti hann sem yfirflugstjóri og er nú farinn að sinna stéttarfélagsmálum fyrir ÍFF íslenska flugstéttarfélagið, þar sem hann segir alla vinna af heilindum að bættum hag félagsmanna og segir gagnrýni á félagið oft ómaklega.
Þingmenn mættu til starfa á Alþingi í morgun í fyrsta skipti frá því að ríkisstjórnin sprakk. Eitt mál var á dagskrá - umræða um þingrofstillögu forsætisráðherra. Eftir ræðuhöldin fóru kjörnir fulltrúar hver til síns heima, flestir til að undirbúa sig fyrir komandi átök og koma sér á framfæri við flokksapparötin í þeirri von að fá ásættanlegt sæti á framboðslista. Ræður þeirra sem tóku til máls báru þess glöggt merki að kosningabaráttan er hafin. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Í síðustu kosningum var þingmannaveltan hafi verið töluverð. Þegar kosið var 2021 settust 25 nýir þingmenn á Alþingi og 2017 voru nýju þingmennirnir 19 og 31 árið á undan. Talið er að tíu flokkar bjóði fram í kosningunum 30. nóvember, þeir átta sem eiga sæti á þingi og tveir til viðbótar - Sósíalistaflokkur Íslands og Lýðræðisflokkurinn. Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands segir breytingar á þingheimi hafa verið töluverðar og verði það líklega líka næst - Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. 1,1 milljarður Jarðarbúa býr við sára fátækt, örbirgð svo mikla að viðkomandi er ómögulegt að draga fram lífið án utanaðkomandi aðstoðar. Tæplega hálfur milljarður þessa örbjarga fólks býr á átakasvæðum, þar sem ýmist ríkir hreint stríðsástand eða mannskæðar árásir og vopnuð átök eru daglegt brauð. Og nær sex hundruð milljónir eru á barnsaldri, yngri en átján ára. Verst er ástandið í Afríku sunnan Sahara og í Suður-Asíu. Þetta eru meginniðurstöður árlegrar úttektar Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna og Fátæktar- og þróunarrannsóknastofu Oxfordháskóla á fátækt í heiminum. Ævar Örn Jósespsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Fyrstu leikirnir í Bestu deild kvenna eftir að deildinni var skipt fóru fram í kvöld. Fyrr í dag komu þjálfararnir Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson við á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna í deildinni, lið fyrir lið. Það er mikil spenna í titilbaráttunni og á hinum enda töflunnar er þriggja liða barátta í baráttunni um að halda sér uppi. Einnig var aðeins snert á Lengjudeild kvenna og ævintýri FHL í þættinum.
Indverjar náðu þeim merka áfanga fyrr á þessu ári að verða fjölmennasta þjóð heims. Og það er ekkert smá umstang þegar fjölmennasta ríki heims gengur til kosninga, eins og var raunin nú í vor. Enda tóku kosningarnar margar vikur. Fyrr í vetur fjallaði Guðrún Hálfdánardóttir um Indland í Heimskviðum, svolítið til að gefa innsýn inn í í hvaða umhverfi þessar umfangsmiklu kosningar fara fram. Mörg af efnuðustu löndum heims keppast við að koma á viðskiptum við Indland enda hvergi í heiminum jafn mikill hagvöxtur og þar. Land þar sem upplýsingaóreiða og um leið hatursorðræða í garð minnihlutahópa fær að blómstra og dafna í skugga þjóðernisflokks hindúa. Þá ætlum að huga að fortíðinni og fornminjum, nánar tiltekið hálsmeni úr skíragulli sem fannst í jörðu í Warvíkurskíri í Bretlandi fyrir um fjórum árum. Gullmenið er merkt Hinriki áttunda Englandskonungi og fyrstu eiginkonu hans, hinni spænskættuðu Katrínu af Aragorn. Þau voru gift í yfir tuttugu ár og skilnaður þeirra var afdrifaríkur fyrir breska menningarsögu. Sérfræðingar hjá Þjóðminjasafni Bretlands, British Museum, hafa legið yfir þessum dýrgrip síðan hann fannst og hafa nú rakið uppruna hans til hátíðahalda sem Hinrik áttundi hélt í febrúar annað hvort 1520, eða 1521. Það ríkti svo mikil leynd yfir rannsókninni að Rachel King, sérfræðingurinn sem stjórnaði henni mátti ekki einu sinni segja eiginmanni sínum af þessu. Það var Björn Malmquist sem fjallaði um þetta.
Við ætlum að vera í Danmörku í SumarHeimskviðum dagsins og ætlum að byrja í Kristjaníu. Þetta er umfjöllin frá því í desember þegar Hallgrímur Indriðason fór með okkur á Pusherstræti. Fyrr á þessu ári var kannabissölu hætt alfarið í fríríkinu, en þessi umfjöllun var unnin í aðdraganda þess. Annað stórt fréttamál frá Danmörku var í vor þegar við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu byggingu Børsen brenna í fréttum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur undanfarin ár, eða þar áður lagt leið okkar í kauphöll landsins. En bygginguna hafa flest sem hafa rölt um stræti Kaupmannahafnar séð. Hún skar sig úr, ekki síst vegna drekaturnspíru sem teygði sig upp af húsþakinu, en er nú hruninn. Oddur Þórðarson vann umfjöllun um Børsen.
Sem forsætisráðherra Íslands, sem er eitt af af tólf stofnríkjum Atlantshafsbandalagsins, þá er ég gríðarlega ánægður að fá að sækja fyrsta fundinn þar sem öll Norðurlöndin eru viðstödd þar sem Svíþjóð sækir fundinn með leiðtoga sínum í fyrsta sinn eftir að aðild þeirra varð viðurkennd fyrir ekki svo löngu síðan, sagði Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í ávarpi sínu á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins (NATO) rétt í þessu.
Fyrr í júní hóf göngu sína í danska ríkissjónvarpinu, DR, heimildaþáttaröð sem nefnist Sexisme i musikbranchen, sexismi í tónlistarbransanum. Þættirnir gera grein fyrir þeim mikla kynjahalla sem ríkt hefur í dönsku tónlistarlífi um árabil, með vísan til rannsóknar á stöðu kvenna í geiranum sem birt var 2022. En auk þess að greina frá sláandi tölfræði, er í þáttunum rætt við ýmsa sérfræðinga og fjöldan allan af dönskum tónlistarkonum sem segja frá reynslu sinni úr bransanum. Við hringjum til Kaupmannahafnar til að reyna að átta okkur betur á umtalinu sem þættirnir hafa vakið upp á síðkastið. Sævar Andri Sigurðarson, tónlistarmaður og pistlahöfundur Lestarinnar, veltir fyrir sér yfirstandandi kántrí-tískubylgju. Jonathan Zenti er ítalskur og starfar við hlaðvarpsþáttagerð. Lóa hitti hann á Audio Storytelling Festival í Róm í vor og ræddi við hann um þættina Meat, frá árinu 2018. Þættirnir fjalla um líkama, hver á þá, sambönd okkar við okkar eigin líkama og líkama annarra. Lagalisti: Astrid Sonne - Do you wanna Mija Milovic - CPH ML Buch - Teen (af Fleshy EP 2017) Post Malone, Blake Shelton - Pour Me A Drink Shaboozey – A Bar Song Eagles – Take It Easy Bob Dylan, Johnny Cash – Girl from the North Country Lil Nas X – Old Town Road Beyoncé - Texas Hold'em
Fyrr í mánuðinum var lofthreinsiverið Mammoth sem svissneska fyrirtækið Climeworks starfrækir ræst við virkjun Orku náttúrunnar á Hellisheiði. Þar verður innan skamms hægt að fanga allt að 36 þúsund tonn af koltvísýringi á ári úr andrúmsloftinu sem svo er dælt niður í jörðina þar sem hann binst við berglög. Þar kemur Carbfix til skjalanna sem býr yfir tækni sem gerir það kleift. Við ætlum að ræða þetta við Ólaf Elínarson samskiptastjóra Carbfix. Í sumar útnefnir Skógræktarfélag Reykjavíkur hverfistré Reykjavíkur, í öllum tíu hverfum borgarinnar og hefur óskað eftir tilnefningum frá íbúum og áhugafólki. Við ætlum að tala um trén í borgarlandinu við Auði Kjartansdóttur framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur. Við heyrum málfarsmínútu og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir til okkar í Vísindaspjall.
Við ætlum að fjalla um húsnæðismál og íbúðaþróun - Anna María Bogadóttir, arkitekt og menningarfræðingur, er hluti af hópi sem kallast Híbýlaauður - ég hitti hana á Hönnunarmars um daginn, við skoðuðum lególíkön af ýmsum blokkum, gömlum og nýjum, sem hafði verið raðað á langborð og ræddum stefnur og strauma í hönnun og byggingu fjölbýlishúsa, meðal annars hvort eldhúsglugginn væri að hverfa. Við fræðumst um íslensk hundanöfn að fornu og nýju. Emily Lethbridge rannsóknardósent við Árnastofnun tók sig til og rannsakaði þessi mál í kjölfar þess að fjölskylda hennar fékk sér hund sem þurfti að finna nafn á. Málfarsmínúta úr smiðju Önnu Sigríðar Þráinsdóttur, málfarsráðunautar - hafast og hefjast. Pistill frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi - sálfræðileg fjarlægð og útlit húsa. Tónlist: Beatles, The - All you need is love. ÁSGEIR TRAUSTI - Nú hann blæs.
Hvaða áhrif hefur það þegar fólk byggir sér sumarbústað úti í móa, í kjörlendi lóu, spóa og jaðrakans? Hvað þá þúsundir sumarbústaða? Á undanförnum tveimur áratugum hefur sumarbústöðum á Íslandi fjölgað úr um 10 þúsund í 15 þúsund og það eru 7000 til viðbótar á skipulagi. Aldís Erna Pálsdóttir nýdoktor í líffræði hefur árum saman rannsakað hvernig mófuglar bregðast við þegar búsvæðum þeirra er raskað með þessum hætti og er aðalhöfundur fræðigreinar sem birtist á dögunum í tímaritinu Animal Conservation. Við fáum pistil frá ungum umhverfissinna á eftir. Það er Stefán Örn Snæbjörnsson sem flytur okkur hann. Málfarsmínútan verður á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur og í lok þáttar ætlum við að grúska aðeins í safni RÚV. Við rifjum upp brot úr viðtali sem Hanna G. Sigurðardóttir tók í þættinum Fyrr og nú í apríl árið 2012. Þá talaði Hanna við Rannveigu Ásgeirsdóttur sem var þerna á Gullfossi í rúman áratug, frá árinu 1962. Tónlist: Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund). MUGISON - Murr Murr. HJÁLMAR - Áttu vinur augnablik. Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms - Sumarauki (Gullfoss með glæstum brag).
Trúpoddurin Special við Cochren Í dag er Kristfest í Nesvík. Fyrr í dag vitjaðu Bjarta og Sjúrður Michael og Leah á teirra hotelli og tosaðu við tey um teirra tónleik, og hvat gevur teimum íblástur.
Fyrstu ferð kann vera so nógv. Tað kann vera fyrstu ferð tú mussast, ert ávirkað ella fyrstu ferð tú ert saman við onkrum. Tí kendist tað upplagt at velja hetta evni í ár, sigur Bjørt Lind, næstforkvinna í felagskapinum Kyn, sum skipar fyri viku sex. Hesa vikuna fara 14 seksualundirvísarar at vitja næmingar sum ganga á fyrsta ári á miðnámi fyri at siga teimum um evni, sum eru viðkomandi, tá tú ert í aldrinum, har sex verður aktuelt. Fyrr var tað flóvisligt at tosa um sex, men hvussu er við teimum ungu í dag?
Nýtt skrifstofuhúsnæði Alþingis, Smiðjan, sem hönnuð er af Studio Granda, hefur vakið nokkuð umtal upp á síðkastið. Sér í lagi sjónsteypan og vír, sem eru áberandi í byggingunni. Við mælum okkur mót við Óskar Örn Arnórsson, arkitekt og skoðum húsið. Þórdís Nadia Semichat pistlahöfundur veltir fyrir sér tískufyrirbæri sem á rætur að rekja til Bandarískra kvenna af mexíkóskum uppruna. Fyrr í þessum mánuði bárust fréttir af því að bandaríska veftímaritið Pitchfork, sem um tæplega þriggja áratuga skeið hefur ötullega sinnt umfjöllun um nýja tónlist, myndi sameinast lífstílstímaritinu GQ. Sameiningin hefur verið umdeild meðal tónlistargrúskara en við fáum einn slíkan, Árna Matthíasson, til að rýna í fréttirnar með okkur. Lagalisti: Murders - John Frusciante BELLA - BREESE Lalo Guerrero - Marihuana boogie Cypress Hill - Latin Lingo SadGirl - Active & Attractive The Flaming Lips - Race For The Prize Sonic Youth - Nevermind (What Was It Anyway) Sufjan Stevens - Decatur, or, a round of applause for your Step-mother Radiohead - Idioteque
Spegillinn 28. júní 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríksins ítrekar þá skoðun sína að útboðið á hlut ríkisins í Íslandsbanka í fyrra hafi verið eitt farsælasta hlutafjárútboð Íslandssögunnar. Hvorki skýrsla Fjármálaeftirlitsins né Ríkisendurskoðunar breyti því. Pétur Magnússon ræddi við hann . Orkuveita Reykjavíkur vill kanna kosti þess að reisa allt að 400 megavatta vindorkuver á þremur stöðum við Hellisheiði. Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni, segir að myllurnar gætu orðið 20, hver og ein um 200 metra há. Öllum níu starfsmönnum Flugakademíunnar í Reykjanesbæ hefur verið sagt upp. Jón Björgvin Stefánsson stjórnarformaður Keilis segir óvíst um rekstur akademíunnar til framtíðar. Matur og drykkur hefur hækkað um tólf prósent á tólf mánuðum og ekki tímabært að fagna að mati Katrínar Ólafsdóttur hagfræðings þó að verðbólga mælist undir 9 prósentum í fyrsta skipti í 12 mánuði. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir talaði við hana. Fyrr í dag var tilkynnt að skrifstofu Réttindagæslumanns fatlaðs fólks hefði verið lokað vegna manneklu en það var síðar dregið til baka. Steinar Örn Steinarsson, formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins segir álagið á starfsfók embættisins óbærilegt. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman. Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur kært E. Jean Carroll fyrir ærumeiðingar. Rúmur mánuður er síðan kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að Trump hefði brotið kynferðislega gegn henni. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir sagði frá. Heyrist í E. Jean Carroll. Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara telur að tryggja skuldurum réttarvernd og að ekki sé hægt að selja eignir á nauðungaruppboði fyrir brot af markaðsvirði. Frétt um að einbýlishús ungs manns í Reykjanesbæ hafi verið selt ofan af honum fyrir þrjár milljónir króna á nauðungaruppboði hjá sýslumanni hefur vakið hörð viðbrögð. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana. Veðurviðvaranir eru í gildi í fjórtán ríkjum í sunnanverðum Bandaríkjunum vegna hitabylgju. Yfir 75 milljónir íbúa verða fyrir barðinu á hitasvækjunni. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í Mareya Villarreal fréttamanni og konu á götu í Chicago. Sigur Þýska þjóðernisflokksins í héraðskosningum í Thüringen um síðustu helgi þykir marka tímamót í sögu þessa öfga-hægriflokks sem verið hefur áberandi í þýskum stjórmmálum undanfarin ár. Flokkurinn mælist stærri en Jafnaðarmannaflokkur Olofs Sch

Hekla Magnúsdóttir byrjaði níu ára gömul að læra á selló en þegar hún kynntist þeramíni á unglinsaldri þá var ekki aftur snúið. Síðan þá hefur þetta forláta hljóðfæri verið henni stöðugur innblástur og uppspretta sköpunar. Hekla fékk viðurkenningu úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara þann 16. júní síðastliðinn, en sjóðurinn heiðrar árlega tónlistarfólk með fjárframlagi. Síðasta plata Heklu kom út í fyrra og kallast hún Xiuxiuejar, sem þýðir að hvísla á katalónsku. Við ætlum að kynnast Heklu betur í þætti dagsins og hennar einstaka hljóðheimi. Þýski myndlistarmaðurinn Anselm Kiefer hefur ítrekað reynt að lesa þessa bók Finnegans Wake. Fyrr í þessum mánuði opnaði samnefnd sýning Kiefers í White Cube Bermondsey í London sem má segja að sé óður til bókarinnar og efni hennar og texti er alltumlykjandi. Auk þess sem hann vísar í æsku sína og leikfangasmíði í rústum heimilis fjölskyldu hans. Salurinn í White Cube er algjör geimur og nú er eins og sprengja hafi lent í honum. Steinsteypubrot eru á víð og dreif, innan um gaddavír og annað brak. Það ásamt öðrum innsetningum, skúlptúrum og málverkum á sýningunni kann að gefa af sér hamfarakenndan blæ, fullan af eyðileggingu en Kiefer segir að þarna sjái hann aðeins upphaf. Þetta á sér rætur í hans eigið upphaf, Kiefer er fæddur árið 1945 á lokametrum síðari heimsstyrjaldarinnar í Donaueschingen, fallegum bæ í svartaskógi í suður Þýskalandi. Við ræðum við Margréti Tryggvadóttur formann rithöfundasambandsins sem nýlega gerði sér ferð í White Cube. Og við höldum áfram ferð okkar með Guju Dögg Hauksdóttur arkitekt um Frakkland, í þetta sinn fer hún meðal annars til Rúðuborgar og dáist þar að formfagurri dómkirkjunni og til fjalls Mikjáls erkiengils, þar sem hún klífur snarbrattar tröppur virkisveggjanna.

Í þetta sinnið var hinn opni vettvangur frímínútnanna nýttur undir pælingar um tónlistargagnrýni. Hvað er hún, hvernig er hún og hvaða tilgangi þjónar hún? Ágætlega var mannað í setti þar sem fóru tveir tónlistarmenn og einn tónlistargagnrýnandi, gersamlega hokinn af reynslu.
Fyrr á öldum þótti enginn maður með mönnum nema hann væri hlutgengur í glímu. Smalar tóku eina bröndótta sér til hita, glímt var eftir kirkjuferðir og í landlegum vermanna. Glíman telst til þjóðlegra fangbragða en af þeim eru þekktar um 150 tegundir um víða veröld. Glíman sker sig úr öllum öðrum fangbrögðum á þrennan hátt: Upprétt staða, stígandinn og svo níð. Um helgina fór fram 112. Íslandsglíman og keppt var um Grettisbeltið í karlaflokki og Freyjumenið í kvennaflokki en sigurvegararnir hlutu sæmdarheitin Glímukóngur og Glímudrottning Íslands. Margrét Rún Rúnarsdóttir formaður Glímusambands Íslands kom í viðtal í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni skúffuskáldi og þjóðfræðiáhugamanni úr Flóanum. Í dag lagði Guðjón vinkilinn að skýrslum. Að lokum var það lesandi vikunnar, í þetta sinn er það Margrét Bjarnadóttir. Hún er danshöfundur og listakona. Hún vinnur jöfnum höndum með dans- og performanslist, ljósmyndir, myndbandsverk, glerverk, teikningar og skrif. Hún, til dæmis, vann nýlega með Ragnari Kjartanssyni og tónlistarmanninum Bryce Dessner sýninguna No Tomorrow, sem hlaut Grímuverðlaun og ferðaðist víða um heim. Margrét samdi sviðshreyfingar fyrir nýjustu tónleikaferð Bjarkar Guðmundsdóttur, Cornucopia. En við fengum auðvitað að heyra hvaða bækur Margrét hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Bækurnar sem Margrét talaðu um voru: Getting Lost, Staðurinn og fleiri bækur eftir Annie Ernaux Líkaminn geymir allt e. Bessel Van Der Kolk My Phantoms e. Gwendoline Riley Tónlist í þættinum í dag: Gamla Kvíabryggja / Sigurður Ólafsson (Svavar Benediktsson og Guðmundur Guðmundarson) Sigtryggur vann / Hinn íslenski þursaflokkur (Egill Ólafsson) Autum leaves / Hljómsveit Björns R. Einarssonar (Joseph Kosma) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Doc, A.I. og Jói Kíró eftir skemmtilega helgi í boltanum.
Spegillinn 27. janúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Fimm hafa verið ákærðir fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna fjögurra barna sem slösuðust í hoppukastala á Akureyri fyrir átján mánuðum. Forseti bæjarstjórnar á Akureyri er meðal sakborninga, samkvæmt heimildum fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ólöf Rún Erlendsdóttir sagði frá. Starfsgreinasambandið bættist síðdegis í hóp þeirra félaga sem gagnrýna ákvörðun ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Fyrr í dag sendu BHM, BSRB og Kennarasambandið út yfirlýsingu þess efnis. Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur áhyggjur af fordæminu sem fylgir ákvörðun ríkissáttasemjara. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, hefur áhyggjur af því hvaða áhrif miðlunartillagan hefur á komandi kjaraviðræður kennara. Andri Yrkill Valsson tók saman. Evrópusambandið framlengdi í dag viðskiptarefsingar sínar gagnvart Rússlandi um sex mánuði til viðbótar. Refsingarnar ná allt aftur til ársins 2014, þegar Rússar innlimuðu Krímskaga. Jóhanna Sigurðardóttir, sem var heiðruð af Kvenréttindafélagi Íslands í dag, segir baráttuna ganga of hægt þó hún sé bjartsýn fyrir hönd unga fólksins. Kvenréttindafélag Íslands fagnaði 116 ára afmæli sínu í Iðnó í dag og heiðraði þrjár félagskonur fyrir framlag sitt til kvenréttinda og femínískrar baráttu jafnt hér á landi sem og á heimsvísu, þær Esther Guðmundsdóttur, Kristínu Ástgeirsdóttur og Jóhönnu. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hana. Alþjóðalögreglan Interpol lýsir eftir singapúrskri konu á sextugsaldri sem var dæmd fyrir prófsvindl í borgríkinu. Hún var dæmd ásamt þremur öðrum konum sem allar sitja inni vegna málsins. Róbert Jóhannsson tók saman. Breytingar á alþjóðasamningi um verndun votlendis farfugla sem Ísland er aðili að felur medal annars i sér að banna skuli veidar a gragæsum. Bændur eru uggandi yfir þessu, enda gæsir ekki sérlega velkomnar á túnum og ökrum. Bjarni Rúnarsson sagði frá og talaði við Sigurð Á Þráinsson sérfræðing hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Forsætisráðherra Svíþjóðar segir stöðu Svía í öryggis- og alþjóðamálum þá alvarlegustu frá síðari heimsstyrjöldinni. Kári Gylfason sagði frá. Eldri borgurum fjölgar víða um heim. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti árið 2020 að lýsa árin 2021 til '30 áratug heilbrigðrar öldrunar. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Nýverið bárust fregnir af því að bókabíllinn muni aka sína síðustu ferð undir lok þessa árs. Þegar bílnum verður lagt í hinsta sinn mun 53 ára sögu þessa menningarfyrirbærist ljúka, endalok sem lestrarhestar og nostalgískar sálir eflaust syrgja. Ástæðan er viðbragð við hárri niðurskurðarkröfu borgarinnar, en bókabíllinn er fyrir löngu komin til ára sinna og kostar skv borgarbókaverði hátt í 100 milljónir að endurnýja hann. Við lítum inn í bílinn í þætti dagsins. Fyrr í þessum mánuði kom ljóðsaga Bergþóru Snæbjörnsdóttur, Allt sem rennur, út hjá Benedikt forlagi. Á morgun er svo útgáfudagur nýrrar skáldsögu eftir Kristínu Eiríksdóttur, sem ber titilinn Tól. Þær Bergþóra og Kristín lásu yfir handritin hjá hvor annarri og settust niður til að ræða ritferlið, heimildavinnu og mörk skáldskapar og veruleika sín á milli. Við fáum að vera fluga á vegg í því samtali undir lok þáttar. Í Borgarleikhúsinu standa nú yfir sýningar á uppsetningu Leikfélags Akureyrar á Hamingjudögum eftir Samuel Becketts. Það er Harpa Arnardóttir sem leikstýrir uppsetningu á verkinu sem talið er eitt höfuðverka Becketts. Eva Halldóra Guðmundsdóttir segir frá sinni upplifun. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Eftir áralanga baráttu úti í samfélaginu fyrir bættum kjörum lífeyrisþega og gegn fátækt ákvað Guðmundur Ingi Kristinsson að freista þess að komast á þing og komast þannig í aðstöðu til að hafa bein áhrif á mál. Nú hefur Guðmundur Ingi setið á þingi fyrir Flokk fólksins í fimm ár og talað þar máli þeirra sem standa höllum fæti í samfélaginu. Guðmundur Ingi var gestur okkar í þættinum og ræddi um þingið og stjórnmálin, lífið og tilveruna. Á morgun kveðjum við sumarið og fögnum vetrinum þegar fyrsti vetrardagur gengur í garð. Þá hefst gormánuður, því næst kemur ýlir, svo mörsugur, þorri, góa og að lokum einmánuður. Þetta eru vetrarmánuðirnir samkvæmt gamla norræna tímatalinu, þegar árstíðirnar voru aðeins tvær: Vetur og sumar. Fyrr á tímum, og jafnvel enn í dag, rýndi fólk í aðstæður á svokölluðum merkidögum, líkt og fyrsta vetrardag, og spáði þannig fyrir um komandi veðurfar. Við fjölluðum um alþýðulegar veðurspár og slógum á þráðinn til þjóðfræðingsins Eiríks Valdimarssonar á Hólmavík en Eiríkur er sérlegur áhugamaður um veður að fornu og nýju. Við héldum okkur á vetrarlegum nótum. Nú þegar kólnar í veðri ganga mörg okkar frá útivistardótinu upp í hillu, kúrum okkur undir teppi með kakóbolla í hönd og bíðum eftir að birti á ný. En svo eru það þau sem láta kuldann ekkert stoppa sig og stunda útivist allan ársins hring. En hvað þarf að hafa í huga áður en byrjað er að stunda útivist að vetri til? Við ræddum það við Valgerði Húnbogadóttur leiðsögumann. Umsjónarmenn: Björn Þór Sigbjörnsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.

Fyrr í þessum mánuði kom nýjasta afsprengi píanóleikarans Víkings Heiðars Ólafsson út hjá Deutsche Gramophone. Frá því upptökur Víkings á píanóverkum Philip Glass komu út hjá þessari virtustu plötuútgáfu heims árið 2017 hefur ferill Víkings náð sífellt hærri hæðum. Í dag er píanistinn á sífelldri ferð og flugi og hann meðal virtustu og vinsælustu píanóleikara í heiminum. Víkingur hefur unnið náið með nokkrum af þekktustu tónskáldum samtímans, og nýjasta platan hans, sem ber titilinn From Afar, er vitnisburður um fleiri en eitt slíkt samtal. Platan er tvöföld, á henni leikur hann safn stuttra verka úr ólíkum áttum og frá ólíkum tímum. Þau vefur hann saman í eina heild, og úr verður eins konar svipmynd af listamanninum sjálfum. Víkingur Heiðar Ólafsson kemur í hljóðstofu Víðsjár í dag, segir okkur af plötunni From afar, frá kynnum sínum af ungverska tónskáldinu György Kurtág, lífi hins annasama konsertpíanista og leitinni að litum og ljóðum í tónlist. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Fyrsti viðmælandi þáttarins var Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, sem talaði um vonda veðrið um helgina og tjónið vegna þess en það varð einna mest á Reyðarfirði þar sem m.a. braggi frá stríðsárunum eyðilagðis. Ásta S. Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, ræddi um fjárhagsstöðu fólks og áhrif verðbólgu og vaxtahækkana á hana. Margir voru í vandræðum með að ná endum saman áður en syrta fór í álinn og líklegt að það fjölgi í þeim hópi. Eldgosið í Meradölum var styttra en spáð var við upphaf þess, það stóð í tæpar þrjár vikur. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur fjallaði um gosið og gosbeltin á Reykjanesskaga. Fyrr á árinu sameinuðust Stykkishólmur og Helgafellssveit í eitt sveitarfélag og nú þarf bæjarstjórn að velja nýja sveitarfélaginu nafn. 72 tillögur bárust og örnefnanefnd mælir með nokkrum en enn er óvíst hvað verður fyrir valinu. Þórsnesþing kemur til greina. Rætt var við Hrafnhildi Hallvarðsdóttur, forseta bæjarstjórnar og skólameistara Framhaldsskóla Snæfellinga, um nafnaleitina og starfið í skólanum. Tónlist: Kata rokkar - Erla Þorsteinsdóttir, Konni rokkar - Alfreð Clausen og Baldur Georgsson, More than you know - Silvía Þórðardóttir og Steingrímur Karl Teague, Rose garden - Lynn Anderson, Is this the way to Amarillo - Tony Christie. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Fyrr í þessum mánuði var sagt frá því að viðkoma rjúpu hefði verið slök sumstaðar á landinu en útlitið í vor þótti býsna gott. Ólafur Karl Nielsen vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun hefur rannsakað stöðu rjúpnastofnsins og horfur og kemur með nýjustu fréttir. Hrafnhildur Sigmarsdóttir ráðgjafi á Stígamótum var kölluð kolklikkuðkunta á kommentakerfinu eftir að hafa skrifað grein um kynferðisofbeldi. Hún ákvað að í stað þess að leiða þetta hjá sér, að skrifa aðra grein og orðræðu- og atferlisgreina niðrandi upphrópanir og dónaskap sem er svo algengur á samfélagsmiðlum. Ruslarabb Páll Líndal umhverfissálfræðingur með pistil.

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson og Snærós Sindradóttir Það er langt síðan við höfum rætt kórónuveirufaraldurinn í þessum þætti og mörg eflaust fegin því - en nú þegar frá líður faraldri er spurningum velt upp, þar á meðal siðferðilegum, sem snúa að því hvernig tókst til að bregðast við og hvort gera hefði mátt breytingar til batnaðar. Í dag hefst tveggja daga málþing í Bergen í Noregi um siðferði í faröldrum. Þar heldur Vilhjálmur Árnason, prófessor í heimspeki, erindi og við ræddum við hann í byrjun þáttar. Aukin kvikusöfnun hefur verið skammt norðvestan Þorbjarnar og þar mælist nú töluvert meiri þensla en um mánaðamót. Við ræddum þessi mál við Kristínu Jónsdóttur, hópstjóra náttúruvár hjá Veðurstofunni. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, sagði í viðtali við Fréttablaðið í gær að engin samkeppni væri meðal íslenskra banka varðandi notkun kreditkorta erlendis - og að fákeppni bankanna bitni á korthöfum. Við ræddum um fákeppni á íslenskum bankamarkaði við Þórólf Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Húsnæðismálin voru efst á blaði í nánast öllum sveitarfélögum fyrir nýliðnar sveitastjórnarkosningar. Framsókn gekk afar vel í kosningunum og eru víða að mynda nýja meirihluta í sveitarstjórnum landsins. Húsnæðismálin eru jafnframt á forræði Framsóknarflokksins á landsvísu en það er Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra sem heldur á þeim spilum. Hann var gestur okkar upp úr klukkan átta. Fyrr í þessari viku fjölluðum við á fræðilegu nótunum um hvaða þýðingu það hefði að Svíar og Finnar hafi nú sótt um inngöngu í Atlantshafsbandalagið, eða Nató. Með umsókninni lýkur áratugalöngu hlutleysi þessara landa í heimsdeilunum en formaður Samtaka hernaðarandstæðinga er afskaplega mótfallinn því að slík ákvörðun, stór sem hún er, hafi verið tekin án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu í löndunum. Við Íslendingar þekkjum þetta enda var innganga Íslands í Nató með svipuðum hætti, þ.e. ákvörðuð af stjórnmálamönnum árið 1949. Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga ræddi þessi mál við okkur í þætti dagsins. Sviðslistahópurinn Fullorðið fólk setur um þessar mundir upp verkið Stelpur og strákar. Leikstjóri verksins, Annalísa Hermannsdóttir og leikkona þess, Björk Guðmundsdóttir, komu til okkar og sögðu frá tilurð þessa spennandi leikverks. Tónlist: Björk - Venus as a Boy Robyn - Dancing on my own Cornelia Jakobs - Hold me Closer Erlend Oye & Hjálmar - Fence Me In Retro Stefson - Qween Fleetwood Mac - Rhiannon

Fyrr í þessari viku ræddum við í Lestinni við Konráð Darra Birgisson, eða Kid Krono eins og hann kallar sig. En það vakti athygli að þessi 17 ára menntaskólanemi er einn höfunda lagsins Louie Bags á væntanlegri plötu Kanye West, Donda 2. Lýsing hans á aðkomunni að laginu vakti athygli mína, vikulega sendir hann lúppur, litlar melódíur eða lagabúta, sem hann hefur búið til á stóran lista af pródúserum, í von um að þeir nota melódíurnar í sína takta, sem þeir senda svo á frægari pródúsera sem koma þeim svo að lokum til stjarnanna. Arnar Ingi Ingason, lagasmiður og pródúsent, kemur við og útskýrir lagasmíðaiðnaðinn í hip-hop heiminum. Við heimsækjum sýningarrýmið Open úti á Granda, en um helgina fer þar fram útsala á myndlist, allt á að seljast á miklum afslætti á sýningu sem mögulega er um leið krítík á söluvöruvæðingu íslensks myndlistarlífs Ásgeir H. Ingólfsson flytur seinni pistil sinn frá kvikmyndahátíðinni í Berlín sem fór fram í síðasta mánuði. Hann rýnir í Svissnesku myndina Órói sem fjallar um rússneska anarkistann og kortagerðamanninn Kropotkin og sv tvær austurevrópskar myndir, Kjörbúðin og Verkalýðshetjur.

Fyrr í dag lék karlalandslið Íslands í handknattleik við lið Svarfellinga, sigraði með 10 mörkum í síðasta leik sínum í milliriðli evrópumótsins. Þrátt fyrir fjölda kóvidsmita hefur hið unga og efnilega landslið heillað þjóðina og langt síðan að íslendingar hafa verið jafn spenntir fyrir stórmóti í handbolta. Í upphafi aldarinnar var handboltinn hins vegar vinsælasta íþróttin, svo vinsæl að ein tegund tónlistar var kennd við hann. Við kynnum okkur fyrirbærið Handboltarokk í Lest dagsins Listakonan Sunneva Ása Weisshappel veitir sjaldan viðtöl en hún mætir um borð í Lestina í dag og ræðir við Hlédísi Maren Guðmundsdóttur um myndlist á tímum pólitísks rétttrúnaðar, heimspeki, boxamenningu, sviðsetta góðmennsku og margt fleira. Nú á sunnudag eru 50 ár liðin frá sunnudeginum blóðuga, Bloody Sunday, þar sem breskir hermenn skutu fjölda óbreyttra borgara til bana í kröfugöngu í Derry í Norður-Írlandi. Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur fór af því tilefni til Norður Írlands ásamt dagskrárgerðarmanninum Gunnari Hanssyni og tók viðtöl, meðal annars við aðstandendur hinna látnu.

Fyrr í mánuðinum var tilkynnt að veitingastaðurinn Dill hlyti Michelin-stjörnu annað árið í röð. Staðurinn varð árið 2017 fyrsta íslenska veitingahúsið til að hljóta þessa miklu viðurkenningu, missti hana reyndar í eitt ár 2019 en hefur endurheimt hana og rígheldur í stjörnuna. Gunnar Karl Gíslason, stofnandi og yfirkokkur á veitingastaðnum Dill, sest um borð í Lestina og spjallar um Nýja norræna eldhúsið, um það hvernig veiking íslensku krónunnar leiddi til nýsköpunar í eldhúsinu, um frosna dumplings og Mark Lanegan.
Haustsöfnun Barnaheilla hófst í gær og er ætlunin að safna fé til þróunarverkefnis Barnaheilla í Sierra Leone sem leggur áherslu á vernd stúlkna á flótta. Guðrún Helga Jóhannsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Barnaheilla er stödd í Sierra Leone og við freistuðum þess að hringja í hana og heyra meira af þessu verkefni. Fyrr í vikunni samþykkti ríkisstjórnin að taka á móti allt að 120 afgönskum flóttamönnum til landsins í ljósi ástandsins þar í landi. Rauði krossinn mun hafa veg og vanda að móttöku fólksins eins og venja er en samtökin héldu jafnframt fund í gærkvöldi fyrir afgangskt fólk sem búsett er hér á landi til að fara betur yfir stöðuna. Áshildur Linnet, teymisstjóri hjá Rauða krossinum, kíkti til okkar upp úr hálf átta. Um helgina fagnar Menningarhúsið Hof á Akureyri 10 plús 1 árs afmæli sínu. Boðið verður upp á alls konar viðburði í húsinu alla helgina og á sunnudaginn verður sérstök hátíðardagskrá í tilefni afmælisins. Við fengum til okkar viðburðastjórann Kristínu Sóleyju Björnsdóttur og forvitnuðumst um hvað verður á boðstólnum í Hofi um helgina. Við renndum yfir fréttir vikunnar eins og venjan er hér á föstudögum. Blaðamennirnir Snorri Másson og Ingunn Lára Kristjánsdóttir komu til okkar upp úr átta, sögðu okkur hvað var helst að frétta og greindu stöðuna í samfélaginu með sínu nefi. Nú eru leikhús landsins byrjuð að kynna komandi leikár og mikil spenna í loftinu, enda hafa sviðslistirnar búið við miklar takmarkanir síðustu 18 mánuði. Í Þjóðleikhúsinu verður fyrsta frumsýningin á stóra sviðinu ný leikgerð af frægustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir sjálfan Shakespeare, og þar er ætlunin að bjóða ungu fólki að fylla salinn fyrstu sýningarnar. Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri kíktiu til okkar og sagði okkur nánar frá þessu höfðinglega boði sem og leikárinu framundan. Tónlist: Tómas Welding - Here they come Leon Bridges - Stream The Moldy Peaches - Anyone Else but You Gus Gus - Polyesterday Pláhnetan - Funheitur (Geimdiskó) Prins Póló - Líf ertu að grínast Cyber - Heiti king Lizzo - Rumors ft. Cardy B Stevie Nicks - Edge of Seventeen
Skráningu í Síminn Cyclathon hjólreiðakeppnina lýkur innan viku en keppnin er í fyrsta sinn haldin undir merkjum Símans en var áður undir merkjum flugfélagsins Wow. Þetta er í níunda sinn sem keppnin fer fram og verður hún haldin í júní og er hringvegurinn hjólaður. Magnús Ragnarsson, annar stofnenda keppninnar, sagði okkur af fyrirkomulaginu í ár. Á morgun alþjóðlegur dagur nakinnar garðyrkju, en þá er garðyrkju áhugafólk hvatt til að vinda sér í garðverkin, án klæða. Við veltum fyrir okkur hvort dagurinn er haldinn hátíðlegur hér á Íslandi og hvort við megum eiga von á léttklæddu fólki í vorverkum á morgun? Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur kíkti til okkar og ræddi þetta aðeins, a.m.k. vorverkin þ.e.a.s. Fyrr í vikunni birtist opið bréf til Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra í Fréttablaðinu þar sem Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, formaður MATVÍS, skorar á ráðherra, fyrir hönd allra iðnfélaga á Íslandi, að hleypa fulltrúum iðnaðarmanna að borðinu þegar ákvarðanir um framtíð iðngreina eru teknar. Nýlega var ákveðið að breyta starfsnámi án þess að iðnfélögin kæmu að og ábyrgðin af starfsnámi verður í ágúst færð yfir á skólana, í stað þess að nemendur þurfi sjálfir að komast á samning. Iðnaðarmenn óttast að þetta muni gengisfella námið. Þau Óskar og Margrét Arnardóttir, formaður Félags íslenskra rafvirkja, komu til okkar og ræddu þetta mál. Fréttir vikunnar voru að norðan að þessu sinni. Gígja Hólmgeirsdóttir fékk til sín þau Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdarstjóra Markaðsstofu Norðurlands og Jón Helga Björnsson, forstjóra heilbrigðisstofnunar Norðurlands, til að ræða það sem stóð upp úr í fréttum vikunnar. Pepsi Max deildir karla- og kvenna í knattspyrnu eru að hefjast. Karlarnir byrja leik í kvöld en konurnar á þriðjudag. Til að spá í spilin fyrir komandi knattspyrnusumar fengum við til okkar Mist Rúnarsdóttur, sem er ein þeirra sem heldur úti hlaðvarpsþættinum Heimavöllurinn og Valtý Björn Valtýsson, íþróttafréttamann, sem líka heldur úti hlaðvarpsþætti, þættinum Mín skoðun, auk þess að starfa hjá Viaplay. Tónlist: Mannakorn - Braggablús. Adele - When we were young. Elíza Newman - Fagradalsfjall (youre so pretty). Kaleo - Vor í Vaglaskógi. Vök - Lost in the weekend. Hall and Oates - Say it isnt so. Peter Gabriel - Slegdehammer.
Bogi Ágústsson og Sigmar Guðmundsson ræddu ýmislegt varðandi kórónuveiruna, efnahagsleg áhrif og viðbrögð hlutabréfmarkaða sem hækkuðu óvænt í gær vegna frétta um að hugsanlega væri styttra í lyf sem gagnast gegn COVID-19 en talið var. Þetta gerist þrátt fyrir skuggalegar efnahagstölur frá Bandaríkjunum þar sem lengsta hagvaxtartímabili sögunnar hafi lokið mjög bratt. Lyfið nefnist remdesivir og prófanir á 1100 sjúklingum í Bandaríkjunum benda til þess að þeim sem hafa veikst af COVID-19 og fengið remdesivir batni 31% hraðar en þeim sem fengu lyfleysu. Breska viðskiptablaðið Financial Times ályktar að mun fleiri hafi látist af völdum COVID-19 en opinberar tölur segi. Financial Times hefur rýnt í tölur um látna í 14 ríkjum og telur að sennilega hafi 60% fleiri látist en opinberar tölur segja. Þetta gera blaðamenn Financial Times einfaldlega með því að bera saman hversu margir létust að jafnaði í þessum 14 löndum á árunum 2015-2019 og hversu margir hafa dáið í ár. New York Times hefur gert svipað í sjö ríkjum í Bandaríkjunum og komist að því að um 50% fleiri hafi dáið í ár en búast hefði mátt við samkvæmt meðaltali síðustu fimm ára. Bill Gates, stofnandi tölvufyrirtækisins Microsoft, sagði í viðtali við Financial Times meðal annars að efnahagsáfallið nú væri líklega versta höggið í sögunni, verra en kreppan mikla á fjórða áratug 20. aldar. Hann telur einnig að heimsbyggðin öll verði ekki söm fyrr en búið verður að bólusetja næstum allt mannkyn.
45 dögum fyrir forsetakosningarnar 2016, sama dag og hún mældist með 1% fylgi, varð Halla Tómasdóttir forseti í eigin lífi. Sama morgun og fyrstu kappræður forsetaframbjóðenda áttu sér stað mælist Halla með 2,5% fylgi en skilyrði fyrir þáttöku í kappræðunum var nákvæmlega 2,5% fylgi. Þetta þykir ansi áhugavert í ljósi þess að lokaniðurstöður kosninganna skiluðu Höllu 2. sæti í forsetaframboði með tæplega 30% atkvæða. Í dag er Halla búsett í New York og er forstjóri The B-Team, stofnað af Richard Branson og með stjórnarmenn á borð við Ariönnu Huffington. Fyrr á ferlinum starfaði hún við mannauðsmál og stjórnun hjá ekki minni fyrirtækjum en Pepsi og Mars í Bandraíkjunum, kom að uppbyggingu Háskólans í Reykjavík, var framkvæmdastjóri viðskiptaráðs, stofnaði Auði Capital og hefur tekið virkan þátt í samtölum um loftlagsmál og jafnrétti í heimunum.