POPULARITY
Alþjóðlegi dansdagurinn er í dag svo áhersla er lögð á lög sem fá okkur aðeins til að dilla okkur. Helgi Björns kíkti í heimsókn með nýtt lag. Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík. ÞÚ OG ÉG - Dans, Dans, Dans. Emmsjé Gauti, Króli - 10 Þúsund. Suede - Beautiful ones. TLC - No scrubs. HILDUR - I'll Walk With You. KAISER CHIEFS - Ruby. MANNAKORN - Gamli Skólinn. UNUN - Lög Unga Fólsins. STEELY DAN - Dirty Work. Snorri Helgason - Ein alveg. ARETHA FRANKLIN - Think. ÞÓRUNN ANTONÍA - Too late. Nutini, Paolo - New shoes. NANCY SINATRA - These boots are made for walking. Helgi Björnsson - Kókos og engifer. Helgi Björnsson - Lífið sem eitt sinn var. THE CARDIGANS - Sick And Tired. PLACEBO - Every you every me. ED SHEERAN - Shape of you. Ellen Kristjánsdóttir, Mannakorn - Línudans. PRINS PÓLÓ - Læda slæda. GERRY RAFFERTY - Baker Street. Geirfuglarnir - Kastað á glæ. Jungle - Back On 74. Sigríður Thorlacius & Sigurður Guðmundsson - Vindar að hausti. LANA DEL RAY - Summertime Sadness. ELASTICA - Line Up. BLACK GRAPE - Reverend Black Grape. NO DOUBT - Don't Speak. Daniil, GDRN - Hugsa oft. KIM CARNES - Bette Davis Eyes. Combs, Luke - Fast car. KÖTT GRÁ PJE og NOLEM - Aheybaró. Laufey - Silver Lining. Bryan Ferry - Don't stop the dance. PÁLL ÓSKAR - Jafnvel þó við þekkjust ekki neitt. Una Torfadóttir - Þú ert stormur (Pride lagið 2023). ALICIA KEYS & JAY-Z - Empire State Of Mind. TOPLOADER - Dancing In The Moonlight. JÓNAS SIG - Dansiði. Geirfuglarnir - Pastoral. Lizzo - Good As Hell. ELASTICA - Line Up. BLACK GRAPE - Reverend Black Grape. Í SVÖRTUM FÖTUM - Dag Sem Dimma Nátt. Unnsteinn Manuel - Lúser. GRAFÍK - Presley. BRÍET & ÁSGEIR - Venus. ELTON JOHN - Tiny Dancer.
Við sögðum í dag frá ráðstefnu sem haldin verður í Hörpu á fimmtudaginn þar sem umfjöllunarefnið verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar og tækni. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Öldrunarþjónusta á gervigreindaröld: Nýsköpun í öldrunarþjónustu og aukin lífsgæði aldraðra. Þar verður sérstaklega fjallað um hvaða áhrif gervigreindin og tæknin, eins og til dæmis róbótar, hafa á umönnun aldraðra nú og í framtíðinni. María Fjóla Harðardóttir forstjóri Hrafnistu kom í þáttinn. Í dag, eins og undanfarna mánudaga, kom Georg Lúðvíksson til okkar með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn talaði hann um heppni og óheppni þegar kemur að fjármálunum. Georg útskýrði þetta betur fyrir okkur í spjallinu. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Reynir Lyngdal leikstjóri, en hann er einn þriggja leikstjóra nýrrar þáttaraðar, Reykjavík 112, sem eru spennuþættir byggðir á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur DNA. En hann sagði okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Reynir talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Sporðdrekar e. Dag Hjartarson Múffu e. Jónas Reyni Lunga e. Pedro Gunnlaug Garcia DNA e. Yrsu Sigurðardóttur Astrid Lindgren bækurnar um Tinna og Tobba, Ástrík Michel Houellebecq Tove Jansen Tónlist í þættinum í dag: Freistingar / Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson og Bragi Valdimar Skúlason) Ryðgaður dans / Valdimar (Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson) Þú bíður (allaveganna eftir mér) / Ragnheiður Gröndal (Magnús Þór Jónsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í hverri viku bætast að meðaltali um 50-60 nýir bílar í umferðina á höfuðborgarsvæðinu og við ákváðum að forvitnast um Borgarlínuna í þættinum í dag. Framkvæmd Borgarlínunnar er skipt í 6 lotur og fyrsta lota nær frá Hamraborg í Kópavogi að Krossmýrartorgi í Reykjavík og áætlað er að hún verði fullbúin árið 2031. Atli Björn Levy tók við starfi forstöðumanns Verkefnastofu Borgarlínunnar fyrir nokkrum mánuðum. Hann er samgönguverkfræðingur og leiðir Borgarlínuverkefnið og hann kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir stöðuna. Nú stendur yfir Tannverndarvikan og til okkar í dag kom Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir tannlæknir og fyrrverandi formaður Tannlæknafélagsins. Lögð er áhersla á rétta tannhirðu, tengsl munnheilsu og andlegrar vellíðunar, forvarnir gegn verkjum og sýkingum og fleira sem Jóhanna fræddi okkur um tannheilsu í þættinum. Svo heyrðum við um verkefni á Suðurnesjum, þar sem er til dæmis kortlögð íþróttaiðkun barna með fötlun og aðgerðaráætlun með það fyrir augum að auka þáttöku þeirra og barna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Þáttaka meðal einstaklinga með fötlun í skipulögðu íþróttastarfi er ekki nema 4% og sú prósenta er jafnvel enn lægri á Suðurnesjum. Sigurður Friðrik Gunnarsson og Petra Ruth Rúnarsdóttir, svæðisfulltrúar ÍSÍ og UMFÍ á Suðurnesjum, komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá þessu. Tónlist í þættinum í dag: Kata rokkar / Björk Guðmundsdóttir og Tríó Guðmundar Ingólfssonar (Theódór Einarsson) Waterloo Sunset / The Kinks (Ray Davies) Líttu sérhvert sólarlag / Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson (Bragi Valdimar Skúlason) Ástarsæla / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Á Listasafni Ísafjarðar stendur nú yfir merkileg myndlistarsýning. Um er að ræða sögusýningu, og að öllum líkindum fyrstu einkasýningu, myndlistarkonunnar Kristínar Þorvaldsdóttur. Kristín var fædd á Ísafirði árið 1870 og fór 12 ára gömul til Kaupmannahafnar í myndlistarnám. Hún lærði líka í Þýskalandi og hugði á framhaldsnám í Róm þegar hún var kölluð heim til að annast börn systur sinnar, sem hafði látist af barnsförum. Kristín var hæfileikarík og vel menntuð og hefði vel getað orðið fyrsta íslenska konan til þess að helga sig myndlist. En eftir þennan örlagaríka atburð hætti hún alfarið að mála og lokaði verk sín ofan í læstum skúffum. Hún er því sannkölluð huldukona í íslenskri myndlist, en þær Rannveig Jónsdóttir og Guðfinna Hreiðarsdóttir, á Listasafni Ísafjarðar, hafa nú haft upp á úrvali verka hennar og sett saman sýningu Kristínu til heiðurs. Nýverið voru fjórar ljósmyndir eftir Sally Mann teknar niður af veggjum nýlistasafnsins í bænum Forth Worth í Texas, og í síðustu viku var staðfest að ljósmyndirnar væru í haldi lögreglu. Yfirtaka lögreglunnar á listaverkunum kom i kjölfar mikillar gagnrýni íhaldsafla í bænum sem segja verkin vera barnaklám. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ljósmyndir Sally Mann vekja umtal og gagnrýni. Verk hennar vöktu heitar umræður þegar þær komu fyrst fyrir sjónir almennings og hafa gert það reglulega síðan. Mann er einn virtasti ljósmyndari Bandaríkjanna, hefur sýnt verk sín í öllum helstu söfnum landsins og miklu víðar, gefið út verðlaunaðar bækur og hlotið fjölda viðurkenninga. Viðfangsefni verka hennar eru fjölbreytt en, líkamar, umbreytingaferli og landslag eru rauður þráður í verkum hennar, sem og fagurfræði ljósmyndatækni síðustu og þar síðustu aldar. Og það vill svo skemmtilega til að verk hennar eru nú til sýnis á Listasafni Íslands, á samsýningunni Nánd hversdagsins þar sem fimm alþjóðlegir ljósmyndarar eiga verk. Við hittum Einar Fal Ingólfsson við verk Mann í þætti dagsins. Við heyrum einnig leikhúsrýni, að þessu sinni rýnir Katla Ársælsdóttir í Skeljar, nýtt íslenskt verk eftir Magnús Thorlacius sem sýnt er í Ásmundarsal. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Í yfirgefnu bílaverkstæði við Skeljanes í Reykjavík hefur hópur sviðslistafólks komið sér fyrir með starfsemi undir yfirskriftinni Tóma rýmið. Þar hafa þau æfingaaðstöðu og rými til þess að prófa áfram og sýna verk á mismunandi stigum í undirbúningsferlinu. Hluti af starfsemi Tóma rýmisins felst í mánaðarlegum tilraunakvöldum, þar sem meðlimir hópsins bera á borð verk í vinnslu eða gera tilraunir í samtali við áhorfendur. Tilraunakvöld janúarmánaðar fer fram í Tóma rýminu í kvöld. Þar verður áhorfendum meðal annars boðið upp á brot úr leikverkinu Skeljar, eftir Magnús Thorlacius, og lifandi tónlistarmyndband úr smiðju systkinana Snæfríðar Sólar og Kormáks Jarls, en gestum býðst líka að skella sér í sánu við sjóinn eftir viðburðinn. Við hittum þau Snæfríði og Magnús og heyrum nánar af starfsemi Tóma rýmisins. Við ætlum líka að kynna okkur tónlistarkonuna Molly Drake sem var algjörlega óþekkt sem listakona á meðan hún lifði. Molly var bresk millistéttarhúsmóðir í litlu sveitaþorpi nálægt Birmingham þegar hún samdi nær alla sína tónlist. Hún skrifaði ljóð og lagatexta og samdi melódíur á heimilispíanóið, fyrst og fremst fyrir sjálfa sig. Molly datt aldrei í hug að gefa tónlistina sína út en þökk sé eiginmanni hennar eru til upptökur sem hann tók upp á heimili þeirra. Þessar upptökur voru gefnar út löngu eftir dauða Mollyar, þegar sonur hennar, Nick Drake, var orðinn heimsfrægur tónlistarmaður. Gauti Kristmannsson verður líka með okkur í dag og fjallar að þessu sinni um Vesturlönd í gíslingu - eða harmleik um Mið-Evrópu, tvær ritgerðir tékkneska rithöfundarins Milan Kundera, í þýðingu Friðriks Rafnssonar. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Við byrjum Lestina í dag á naflaskoðun. Við veltum fyrir okkur hlutverki Ríkisútvarpsins og Rásar 1 út frá grein sagnfræðingsins Láru Magnúsardóttur, sem birtist í Skírni á dögunum. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu kvikmynd leikstjórans Ira Sachs, Passages, sem hefur verið í sýningu í Bíó Paradís nýverið. Þöglar byltingar nefnist stutt leikverk eftir Magnús Thorlacius. Um er að ræða einþáttung sem var fyrst sýndur á faraldstímanum, en verður nú sýndur aftur á Fringe hátíðinni í Reykjavík um helgina.
Bernskubrek í Kópavogi er yfirskrift dagskrár sem Marteinn Sigurgeirsson kennsluráðgjafi og kvikmyndagerðrmaður hefur boðið til núna á fimmtudaginn. Sögur og myndefni frá fyrri tímum í bæjarlífinu verða í sviðsljósinu og þar má nefna samskipti unglinga við herinn á stríðsárunum,fimm drengi í sjávarháska,Skiptistöðina,Pönkgangu um Hamraborg og svo baráttuna milli austurbæjar og vesturbæjar. Við ræðum við Martein hér á eftir. Vinkillinn frá Guðjóni Helga Ólafssyni, okkar manni í Flóanum,fjallar í dag að stærstu leyti um gamla gríska stríðshetju, nefnilega flotaforingjann Laskarinu Bouboulinu; fyrstu konuna sem hlaut aðmírálstign, árið 1825. Lesandi vikunnar er svo eigandi veitingastaðarins Yndisauka, Kristín Ásgeirsdóttir sem er mikill bókaormur. Við fáum að vita hvaða bækur hún hefur lesið og hvaða rithöfundar hafa haft áhrif á hana. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-06-10 Cactus Blossoms, The - Mississippi. Uppáhellingarnir, Sigríður Thorlacius - Kavatína Kristínar (feat. Sigríður Thorlacius).
Svavar Knútur er nýkomin úr tónleikaferðalagi um Ástralíu og Evrópu og nú er hann lagður af stað hringinn í kringum landið með tvöfalt nýtt plötualbúm í farteskinu. Þessi tónlist er á vissan hátt 15 ára úrvinnsla sorgar segir Svavar Knútur sem var í hljóðstofu RÚV á Akureyri í beinni útsendingu í dag. Svo komu þær Áslaug Thorlacius og Björg Jóna Birgisdóttir í þáttinn til að segja okkur frá listnámi í Myndlistaskólanum í Reykjavík fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu. Áslaug er skólastjóri Myndlistaskólans og Björg fylgdi systur sinni, Lilju Dögg, í gegnum námið. Björg segir námið hafa verið valdeflandi fyrir systur sína á mörgum sviðum og hafi gríðarlega þýðingu og að það sé mannbætandi að geta boðið upp fólki með þroskaskerðingu listnám. Viðvarandi blóðsykurssveiflur yfir daginn geta verið orsök þreytu og orkuleysis, vakið upp falska svengdartilfinningu, raskað þyngdarstjórnun og valdið alvarlegum sjúkdómum á við sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum, fitulifur og hvers kyns bólgusjúkdómum sem nú þegar herja á samfélagið í auknum mæli. En við þessu geta verið einföld ráð. Ef við neytum fyrst grænmetis og annarra trefja, fitu eða próteina á undan kolvetnum virkar það eins og sía áður en sykurinn kemst út í blóðið og þar með komum við í veg fyrir óhóflega blóðsykurshækkun í líkamanum. Þetta sagði Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir á Selfossi, sem er umfram allt áhugamaður um rót vandans, þegar Helga Arnardóttir ræddi við hann á Heilsuvakt dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Sannaðu til / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur Kristinsson) Joc de doi din Banat / Virgil Muzur (Virgil Muzur) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Sigríður Thorlacius. Flest tókum við líklega fyrst eftir henni í hljómsveitinni Hjaltalín, en ferill hennar er gríðarlega fjölbreyttur. Hún hefur meðal annars sungið í tríóinu GÓSS, með Tómasi R. Einarssyni, Bógómil Font, Heiðurspiltum og Uppáhellingunum bara til að nefna nokkur verkefni. Hún hefur fengið Íslensku tónlistarverðlaunin, bæði sem rödd ársins og söngkona ársins og svona mætti lengi telja. En eins og við gerum alltaf með föstudagsgestinum þá fórum við aftur í tímann með Sigríði, á æskuslóðirnar, heyrðum hvenær söngurinn kom inn í hennar líf og förum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo kom Sigurlaug Margrét auðvitað til okkar í matarspjallið í dag. Í þetta sinn ræddum við um meðlæti, sem sagt kartöflurétti, gulrætur og fleira. Tónlist í þættinum í dag: Kossar án vara / GÓSS (Bubbi Morthens) We Have All the Time in the World / Louis Armstrong (Hal David & John Barry) Everybody's Talkin / Harry Nilson (Fred Neil) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Boðið var upp á bland í poka á síðustu Morgunvakt ársins. Sagt var frá stofnun Verslunarfélags Steingrímsfjarðar fyrir 125 árum og tíðarfari, aflabrögðum og landbúnaði á Ströndum 1898. Leikið var viðtal frá í sumar við Gísla Einarsson sjónvarpsmann um mun á landsmönnum eftir búsetu. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, talaði frá Hallormsstað um Skriðuklaustur og Gunnar Gunnarsson skáld og konu hans Franzisku. Í máli hans kom m.a. fram að bækur Gunnars hafa verið gefin út víða um heim á síðustu árum og Aðventa t.d. þýdd á Ítölsku og arabísku. Þá var leikið brot úr Áramótaskaupi Útvarpsins 1982. Smooth operator - Sade, Vetrarsól - Björgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands, Halló, halló, halló - Stuðmenn, Andar í útlegð - Mógil, Hvað ertu að gera á gamlárs? - Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius, Í löngu máli - Una Torfadóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Umsjón: Siggi Gunnars og Lovísa Rut Poppland var á Akureyri og í Reykjavík þennan föstudaginn. Siggi og Lovísa voru í heilmiklu jólaskapi, spiluðu allskonar hátíðarmúsík og plata dagsins Jól alla daga. Baggalútur - Beint upp í Breiðholt. RAGNAR BJARNASON - Er líða fer að jólum. LAUFEY & NORAH JONES - Better Than Snow. CHER - Dj Play a Christmas Song. NOAH KAHAN - Stick Season. ÁSGEIR & ÁRNÝ MARGRÉT - Part of Me. ICEGUYS - Þessi týpísku jól. ADDISON VILLA - Skál fyrir Vésteini (Jólalag Rásar 2 - 2023). Eiríkur Hauksson - Jól alla daga. Jóhanna Linnet - Gesturinn. Eyjólfur Kristjánsson - Gleðileg jól (allir saman). Erna Gunnarsdóttir - Enn jólin. Helga Möller - Heima um jólin. Eiríkur Hauksson - Jólaþankar. Laddi - Snjókorn falla. Laddi - Rokkað um jólin. Eyjólfur Kristjánsson - Vetrarsöngur. Sigrún Hjálmtýsdóttir - Stjarna. Ruth Reginalds - Jólasveinninn kemur í kvöld. Ruth Reginalds - Jólasveinninn kemur. Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson - Notalegt. Laufey, Jones, Norah - Have Yourself A Merry Little Christmas. JÓHANNA GUÐRÚN - Ætla ekki að eyða þeim ein. Swift, Taylor - Christmas Tree Farm (Old Timey Version). Stórsveit Reykjavíkur, Bogomil Font - Hinsegin jólatré. Kjalar - Jólaboð hjá tengdó. Borgardætur - Þorláksmessa. EAGLES - Please Come Home For Christmas. KK & ELLEN - Yfir Fannhvíta Jörð. COLDPLAY - Christmas Lights. Lón - 5 mínútur í jól.
Sorgin bankar oft upp á um hátíðarnar, við hugsum til þeirra sem eru horfnir á braut og heimsækjum kirkjugarðana. Sorgarmiðstöð veitir stuðning við syrgjendur og við fengum til okkar þær Ínu Ólöfu Sigurðardóttur framkæmdastjóra og Jóhönnu Maríu Eyjólfsdóttur fagstjóra Sorgarmiðstöðvar. Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar kom til okkar, og við ræddum meðal annars frekari aðgerðir stjórnvalda í Grindavík sem forsætisráðherra kynnti í gær. Þórður fór líka yfir fjárlögin og við ræddum um kaupmáttarrýrnun. Börn þurfa að hafa rödd, hvort sem rætt er um skólakerfið eða dómskerfið. Birting ítarlegra dóma á vefnum og í fjölmiðlum getur verið mjög íþyngjandi fyrir börn. Við ræddum við Salvöru Nordal umboðsmann barna í síðasta hluta þáttarins. Tónlist: Crosby, Bing - Winter wonderland. Sigurður Halldór Guðmundsson Tónlistarm., Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius - Er líða fer að jólum.

Hafnarborg fagnar í ár 40 ára afmæli og hefur af því tilefni skapað sýningu sem nefnist Gildi. Sýningarstjórinn Hólmar Hólm setur ekki upp sögulega sýningu, heldur fókusar á ákveðið tímabil og dregur fram verk tíu listamanna, sem safnið hefur eignast frá árinu 2008. Við hugum líka að bresku hljómsveitinni Madmadmad sem steig á stokk á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves nú um helgina. Sveitin sækir tónheim sinn í tónlistarstefnur áttunda áratugarins og síður saman í taktmikla tilbrigðatónlist sem nefnd hefur verið disco-noir. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í Ból nýjustu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur og Dagbjört Drífa Thorlacius, frá Sequences hátíðinni, fjallar um mikilvægi listahátíða og hvaða áhrif þær geta haft í samtímanum.

Í dag, þegar við eyðum flest öll miklum tíma, jafn vel of miklum tíma, á samfélagsmiðlum og þegar tölvupóstar og smáskilaboð eru stór hluti af samskiptum okkar þá er ein hlið á þeim samskiptum sem við gerðum tilraun til að skoða aðeins í þættinum í dag. Það eru lindistáknin, eða tjáknin, sem sagt það sem heitir Emoticons á ensku. Broskallarnir, þumalputtarnir, hjörtun og ótal fleiri. Það eru á fjórða þúsund mismunandi tjákn og ekki eru allir sammála um hvað hvert og eitt þeirra þýðir. Þar getur verið talsvert mikill munur, til dæmis á milli kynslóða. Það þýðir ekki það sama að senda hjarta eða þumalputta hjá mismunandi kynslóðum og allir þessir mismunandi broskallar þýða mismunandi hluti fyrir mismunandi fólk. Lóa Björk Björnsdóttir umsjónarkona Lestarinnar hér á Rás 1 var fulltrúi unga fólksins í þættinum í dag og fór með okkur yfir það hvort við séum jafnvel óafvitandi að senda frá okkur tákn sem tákna allt annað en við höldum. Birna G. Ásbjörnsdóttir rannsakandi við Háskóla Íslands og gestarannsakandi við Harvard Medical School, frumkvöðull og stofnandi Jörth, kom í þáttinn í dag til að tala um mikilvægi þarmaflórunnar og áhrif t.d. gervisætu af ýmsu tagi og orkudrykkju á hana. Meltingarvegurinn og þarmaflóran hafa verið þungamiðjan í menntun Birnu og rannsóknum hérlendis og erlendis í tæpa tvo áratugi. Svo kom Sævar Helgi Bragason til okkar og við ræddum sígilda spurningu sem hefur vakið ómælda forvitni frá upphafi: Er líf á öðrum hnöttum? Fjöldi sólstjarna og vetrarbrauta í alheiminum er svo mikill og með svo mörgum núllum að manni fer bókstaflega að svima. Í því samhengi er mjög ólíklegt að jörðin okkar sé eini staðurinn þar sem líf hefur myndast og þróast. Við veltum þessu fyrir okkur með Sævari Helga í þættinum, en hann hefur til dæmis skrifað bók um þetta efni. Tónlist í þættinum í dag: Í hjarta þér / Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar (Jón Múli Árnason og Jónas Árnason) Englishman in New York / Sting (Sting) Cecilia / Simon & Garfunkel (Paul Simon) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Verkið Fountain eftir Marcel Duchamp, betur þekkt sem pissuskálin, markar kaflaskil í vestrænni listasögu, og er jafnan talið vera eitt af fyrstu verkunum sem síðar voru kennd við konseptúalisma, eða hugmyndalist. Nú hefur komið í ljós að þetta höfuðverk hans er mjög líklega alls ekki eftir hann, heldur eftir vinkonu hans, þýsku dada-listakonuna Elsu von Freytag-Loringhoven. Vakið var máls á þessu í Guardian í síðustu viku en þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem listfræðingar stíga fram með þessa hugmynd, umræðan hefur verið í gangi síðan nokkru fyrir aldamót. Við kynnum okkur málið í þætti dagsins. Við heyrum við einnig af nýjustu skáldsögu furðusagnahöfundarins Alexanders Dan Vilhjálmssonar, Seiðstormi sem er hluti af Hrímlandsbókaflokk höfundar. Hrímland þykir líkjast Íslandi en í bókunum er hins vegar að finna seiðmagnsvirkjun í Öskjuhlíð, sofandi bergrisa á skolavörðuholti, eins konar fríríki í vestmannaeyjum og hinar ýmsu furðuverur úr íslenskum menningararfi. Og að lokum segir Dagbjört Drífa Thorlacius frá verki eistneska gjörningalistamannsins Johhan Rosenberg, hann sýndi nýverið verk sitt Gildrur á Sequences listahátíðinni

Við hugum að mistökum í þætti dagsins. Gerum upp tæknilega misferla sem áttu sér stað í minningarþætti Víðsjár um Guðberg Bergsson. Beinum linsunni inn á við og biðjumst afsökunar. Myndlistahátíðin Sequenses fer af stað í ellefta skipti í vikunni. Þar verður boðið upp á myndlistarsýningar, gjörninga, tónleika og kvikmyndasýningar. Á meðan hátíðinni stendur munu starfsnemar hennar koma í þáttinn vikulega og flytja okkur fréttir. Dagbjört Drífa Thorlacius og Bryn Nóel Francis ríða á vaðið í þætti dagsins en þau eru meistaranemar í listfræði við Háskóla Íslands.

Þórður Snær Júlíusson kom til okkar. Hann ræddi um skýrslu starfshóps viðskiptaráðherra um bankana sem staðfestir það sem við þó vissum; nefnilega að vaxtamunur er hér meiri en á hinum Norðurlöndunum. Já og sektina sem Samkeppniseftirlitið lagði á Samskip, 4,2 milljarða króna. Hvað gerðu skipafélögin eiginlega? Afkoma ríkissjóðs á síðasta ári var einnig til umfjöllunar. Stjórnmál og menning voru til umfjöllunar í Berlínarspjalli. Arthúr Björgvin Bollason sagði okkur meðal annars frá gróskunni í bókaútgáfu Þjóðverja, sem trúa því að bókin muni lifa af í tæknivæddum heimi. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, var gestur okkar í síðasta hluta þáttarins. Við ræddum við hana um nýafstaðna fundaröð um málefni fatlaðs fólks, hvernig horfir vinnan við innleiðingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks við henni? Tónlist: Magnús Jóhann Ragnarsson, GDRN - Morgunsól. Sigríður Thorlacius & Sönghópurinn við Tjörnina, Tómas R. Einarsson - Morgunn. The good, the bad and the ugly - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum. Íslenskt tónlistarfólk flytur lög eftir Burt Bacharach. Lögin sem hljóma í þættinum eru Þrjú hjól undir bílnum með Ómari Ragnarssyni, Ekki taka það til þín með Sigurði Guðmundssyni, Anyone Who had a Heart með Páli Óskari, Niðri í bæ með Katrínu Sigurðardóttur, Húsið með Sigríði Thorlacius, Alfie með Mjöll Hólm, Here I Am með Sólveigu Samúelsdóttur, Hrein ást með Maríu Baldursdóttur, Regn óréttlætisins með Shady Owens og Hljómum, Ég mun aldrei framar elska neinn með Kristínu Ólafsdóttur og Regndropar falla við hvert fet með Engilbert Jensen. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Hólmfríður Hafliðadóttir vann í unglingavinnunni og elskaði vinnuna sína, allt þar til hún breyttist í martröð. Hún starfaði eins og flestir unglingar við almenn garðyrkjustörf og vann sig svo upp í flokkstjórastöðu sem hún gegndi í tvö ár. Með tímanum fór hún að upplifa eitraða stemningu, þar sem meðal annars jaðarsettir hópar voru niðurlægðir og hún sjálf lögð í einelti. Komandi úr réttrúnaðarumhverfi framsækinna og fjölmenningarsinnaðra menntskælinga, eins og hún segir sjálf frá, kom henni gjörsamlega í opna skjöldu að vera skyndilega föst í ómenningu einstaklinga sem virtust ekki þurfa að bera nokkra ábyrgð á hegðun sinni. Hólmfríður er í dag sviðshöfundur og leiklistarnemi sem hefur samið ásamt félaga sínum, sviðshöfundinum Magnúsi Thorlacius, einleik sem byggir á þessari reynslu, sem sýndur verður í útileikhúsi í Kópavogi. Framtíðin er ekki óskrifað blað segir aftan á kápu sannsagnasafnsins Best fyrir sem kom út í lok maí. Þar ferðast 7 höfundar, allt nemar í ritlist, um tímann í gegnum heimaslátrun, átök við íslenska veðrið, skíðakennslu á Ítalíu, ómögulegar ástir, eftirpartí, undarlegt háttalag konu um nótt og súran kvíða samtímans. Hvenær kemur framtíðin? Hvenær er hún horfin og orðin að fortíð, útrunninn eins og mjólk í tetra pak fernu á leið í brennslu. Oft góð lengur. Við heyrum lestur úr bókinni í þættinum. Freyja Þórsdóttir verður að vanda í sínu heimspekilega landslagi í pistli dagsins. Freyja fjallar í dag um gildi sannleikans í mannlegum samskiptum og hvernig það má nota tungumálið til að bæði rýra og auðga tengsl. Leikverkið Hulið eftir Sigríði Ástu Olgeirsdóttur var frumsýnt um liðna helgi í Tjarnarbíói. Eva Halldóra Guðmundsdóttir sviðslistarrýnir segir frá sinni upplifun af uppfærslunni.

Í gær var kynnt heildarendurskoðun og aðgerðaráætlun vegna þjónustu við eldra fólk undir yfirskriftinni Gott að eldast. Þá var líka sagt frá greiningu sem KPMG vann fyrir stjórnvöld þar sem kemur fram að eldra fólk leggur mikið til samfélagsins og að það er mikilvægt að stuðla að auknu heilbrigði þessa hóps. Það er líka efnahagslega ábatasamt. Þetta er verðmætur hópur. Endurskoðunin og aðgerðaáætlunin voru unninn í samstarf stjórnvalda, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands eldri borgara. Helgi Pétursson er formaður Landssambandsins. Við heimsækjum svo framkvæmdasvæði á Seltjarnarnesi þar sem verið er að reisa svansvottaðar byggingar - og forvitnumst um hvað í því felst með Sigrúnu Melax gæðastjóra Já Verks - og sjáum líka húsið sem starfsfólkið þarna er búið er að reisa yfir sandlóu og hreiður hennar, það er óheppilega staðsett á svæðinu miðju við vegaslóða stórvirkra vinnuvéla - en allt er reynt til að sambýlið gangi upp. Fallegt. Málfarsmínúta í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur. Við fáum svo dýraspjall í lok þáttar, Magnús Thorlacius sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun kemur til okkar og segir okkur allt um sitt helsta hugðarefni, skötuselinn.

Myndlistarmaðurinn Sigurður Guðjónsson er hvað þekktastur fyrir tímatengd verk sem rannsaka manngerðar vélar og tækniminjar. Um liðna helgi opnaði hann sýninguna ?Leiðni leiðir? í Verksmiðjunni á Hjalteyri um liðna helgi, en þar hefur hann umbreytt 2000 fermetra verksmiðjurými í fjölskynjunarverk hreyfingar og hljóðs. Þetta er verk sem leikur með tíma og orku, en Sigurður vinnur út frá miðju hússins lóðrétt upp og niður þrjár hæðir og hugsar sýninguna sem einn stóran skúlptúr samofin byggingunni sjálfri. Síðast þegar við hittum Sigurð hér í Víðsjá var hann á leiðinni til Feneyja til að vera þar fulltrúi Íslands á Tvíæringnum, að þessu sinni er það Gígja Hólmgeirsdóttir sem hittir Sigurð á Hjalteyri í skjóli frá hávaðaroki innan veggja gömlu verksmiðjunnar á Hjalteyri. Leiksýningin Lónið, eftir Magnús Thorlacius, sem sýnd er um þessar mundir í Tjarnarbíó, tekur fyrir eymd mannlegrar tilveru á tímum síðkapítalískra drauma, eins og segir í leikskrá. Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins. Einnig ætlum við að rifja upp, af engu sérstöku tilefni, heimsókn sem Víðsjá átti fyrir fimm árum síðan inn í eitt fegursta hús landsins, Smiðshús á Álftanesi. Tilefni heimsóknarinnar var níræðisafmæli höfundar hússins og ábúanda þess, arkitektsins Manfreðs Vilhjálmssonar. Manfreð er einn af okkar allra bestu arkitektum, hefur hannað þekkt hús og minna þekkt hús, jafnt heimili sem og kirkjur, skóla og bókasöfn. Einnig hefur hann hannað húsgögn, leikföng og innréttingar. Hann hlaut heiðursviðurkenningu Arkitektafélags Íslands 2019. Við heyrum í Manfreð í þætti dagsins.

Í síðasta þætti lögðum við af stað í vegferð um heim eðlisfræðinnar með honum Lárusi Thorlacius. Við fórum yfir söguna, eða part af henni að minnsta kosti, hvernig eðlisfræðin myndar grunn fyrir svo margar aðrar greinar. Hugtök eðlisfræðinnar geta verið notuð til að útskýra hvernig plánetur hegða sér en einnig alveg í hina áttina, þar sem við útskýrum nánast minnstu hluti sem við þekkjum og hvernig þeir hegða sér. Í þættinum núna tölum við um planks lengdina, notagildi allra þessara tilrauna, byrjunina og endirinn og svarthol, bara svona til að hita ykkur smá upp. En í lokin á síðasta þætti vorum við byrjaðir að tala um öreindahraðla, meðal annars í Cern og þar tökum við aftur upp þráðinn, þar sem ég velti fyrir mér hvernig í ósköpunum maður tekur þessar eindir, eins og róteindir og setur þær inn í hraðalinn. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Í gegnum tíðina höfum við farið yfir alls kyns hluti, hvort sem það eru lifandi eða dauðir hlutir, kenningar eða saga. Til að mynda hef ég fengið til mín sérfræðinga um skammtafræði, svarthol og kjarnorku en að einhverju leyti er hægt að segja að ég hafi byrjað á röngum enda. Því allir þessir hlutir, og þessar vísindagreinar byggja á einhverjum grunni. Sem hefur alltaf komið fram í þáttunum sjálfum en nú fannst mér kominn tími til að fara almennilega í málið og tala um eðlisfræði. Eitthvað sem við erum enn skylduð til að læra í grunnskóla, að minnsta kosti eftir því sem ég best veit, og fram til loka framhaldsskóla stendur okkur til boða að kafa enn betur í lotukerfið og hvaða merkingar búi að baki alls sem þar er. Það getur verið að eitt af því sem fældi mig frá efninu var að ég vissi ekki almennilega hvernig ætti að tala um eðlisfræði, því ég veit ekki nóg. En svo áttaði ég mig á því að það er tilgangur þáttarins, að vita ekki neitt og eiga möguleikann á því að læra meira. Svo ég náði að sannfæra Lárus Thorlacius til að koma til mín og fræða mig um til að mynda lotukerfið, muninn á eðlis og efnafræði, öreindahraðla í Cern og til hvers við erum að þessu öllu saman. Bara svo eitthvað sé nefnt. Þar sem spjallið okkar varð mun lengra en oft vill vera, sem er kannski eðlilegt þegar svona stór svið eru undir, þá skipti ég þættinum í tvennt. Það er líka fínt að matreiða þetta þannig, sumt sem kemur fram í þáttunum er gott að heyra, hugsa svo aðeins um áður en það koma fram nýjir hlutir sem þarf svo að hugsa meira um. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Kvenheilsa er nýtt teymi innan Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og var opnað í haust. Hlutverk teymisins er að sinna sjúkdómum og heilsufarsvanda sem eingöngu eru til staðar hjá konum. Steinunn Zophoníasdóttir ljósmóðir er ein af þeim sem stendur að stofnun þessarar þjónustu og hún kom í þáttinn í dag og við ræddum við hana m.a. um breytingaskeið kvenna en það var eitt af upphafsverkefnum teymisins. Við fengum glænýjan vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Í þetta sinn bar hann vinkilinn að bíldruslum og brostnum draumum í þjóðfræðilegu samhengi. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Edda Björg Eyjólfsdóttir, leikkona og leikstjóri. Hún leikstýrir sýningunni Venus í feldi sem frumsýnd var nýlega í Tjarnarbíói og hefur fengið virkilega góða gagnrýni. En við fengum að vita hvaða bækur Edda hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Edda talaði um eftirtaldar bækur og höfunda: Útlendingurinn e. Albert Camus Eden e. Auði Övu Ólafsdóttur Loving kindness e. William R. Miller Svo nefndi hún Þórberg Þórðarson, Halldór Laxness, Búlgakoff, Isabel Allende, Gabriel Garxia Marques, Dostojevsky og Suskind. Tónlist í þættinum í dag: Okkar menn í Havana / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason og Tómas R. Einarsson) Söknuður / Roof Tops (Ómar Ragnarsson, S. Oldman & D. Penn) Augun þín blá / Sigríður Thorlacius og Uppáhellingarnir (Jón Múli og Jónas Árnasynir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Messur verða með hefðbundnum hætti þessi jólin, öfugt við síðustu tvenn þegar samkomutakmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins komu í veg fyrir messuhald. Sveinn Valgeirsson, prestur í Dómkirkjunni, spjallaði um jólamessur og trú og ýmislegt fleira. Kirkjusókn hefur ekki verið jafnmikil að undanförnu og hún var fyrir faraldur. Óveðrið síðustu daga setti allt úr skorðum í Sandgerði. Þar þurfti m.a. að slá af litlu jólin í Sandgerðisskóla. Bylgja Baldursdóttir skólastjóri sagði frá því og ófærð og fleiru í stuttu spjalli. Jólahjól með Sniglabandinu er lon og don á aðventunni. Þetta óvenjulega jólalag hefur verið mjög vinsælt síðan það kom út fyrir 35 árum. Skúli Gautason höfundur sagði hlustendum hvernig lagið varð til á sínum tíma og spjallaði um vinsældir þess. Tónlist: Hvít jól - Elly og Vilhjálmur, Hátíð í bæ - Haukur Morthens, Er líða fer að jólum - Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, Jólahjól - Sniglabandið. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Hallormsstaðaskóli lenti að sumu leyti á milli skips og bryggju þegar skipan nýrra ráðuneyta var ákveðin síðastliðið haust. Skólinn hefur metnað til þess að starfrækja námsbraut sem nýst gæti sem viðbótardiplóma á meistarastigi en að öðru leyti starfar skólinn á framhaldsskólastigi. Við forvitnuðumst frekar um þessa stöðu með símtali austur til skólameistarans, Bryndísar Fionu Ford. Skilin á milli vinnu og einkalífs eru mikilvæg en þau hafa óneitanlega orðið óskýr með ýmsum tækniframförum - og heimsfaraldurinn afmáði þau síðan með öllu fyrir mörg okkar. Steinar Þór Ólafsson, samskiptasérfræðingur, benti á það í pistli sínum í Viðskiptamogganum í gær að fyrirtæki reyni nú að leggja meiri áherslu á heilsu og vellíðan starfsfólks - því það blasi við að faraldur 21. aldarinnar verði faraldur ýmiskonar lífsstílssjúkdóma sem skilar sér í kostnaði fyrirtækja og framleiðnitapi. Lítil hrifning hefur verið meðal landsmanna með nýju landsliðstreyjuna sem Knattspyrnusambandið frumsýndi í byrjun vikunnar. Guðmundur Jörundsson, fatahönnuður, kíkti til okkar og sagði okkur sína skoðun - og hver lykillinn er að því að hanna fallega fótboltatreyju. Á föstudag eru 100 dagar síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Þó Ísland sé að einhverju leyti peð á tafli alþjóðastjórnmálanna er óhætt að segja að það peð hafi verið iðið við kolann frá innrásinni. Íslenska ríkið hefur til að mynda greitt yfir 125 milljónir króna fyrir flutning á hergögnum til notkunar í Úkraínu - fyrst og fremst skotfæri. Við ræddum utanríkismálin í tengslum við innrásina við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra. Starfshópur matvælaráðherra skilaði í gær af sér skýrslu um starfsemi við blóðtöku hryssna. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að lagaumgjörðin um blóðtöku úr fylfullum hryssum sé afar óljós og ekki viðunandi. Við ræddum þessi mál við Sigríði Björnsdóttur, yfirdýralækni í hrossasjúkdómum hjá Matvælastofnun, en hún sat einnig í starfshópnum sem sá um úttektina. Tjáningarfrelsi presta hefur verið til umræðu síðan sr. Davíð Þór Jónsson geistist fram á ritvöllinn í síðustu viku og gagnrýndi ríkisstjórnarflokkana. Í grein eftir Dr. Hjalta Hugason, prófessor emeritus í guðfræði, fjallaði hann vítt og breitt um tjáningarfrelsi presta. Við fengum Hjalta til okkar í lok þáttar. Tónlist: Bette Davis Eyes - Kim Carnes Bleikur og Blár - Friðrik Dór Fallin' - Alicia Keys Supermodel - Måneskin Ástarsæla - Júníus Meyvant Flughoppið - Purrkur Pillnikk In The Dark - Purple Disco Machine Í hjarta þér - Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar

VIð förum og hittum hættulegustu rokkhljómsveit Reykjavíkur, Skratta. Hljómsveit sem hefur verið hampað ítrekað í Lestinni og er tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir besta rokklag ársins og bestu rokkplötuna. Það er nóg að gera hjá þeim um þessar mundir en þeir munu spila á Aldrei fór ég suður um páskana og gítarleikarinn og söngvarinn Karl Torsten Ställborn sýnir myndlist sína í Gallerí Núll komandi helgi. Gunnar Ragnarsson, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í þrjár myndir sem hann sá á kvikmyndahátíðinni Stockfish. Stockfish kvkimyndahátíðin fer fram um þessar mundir í Bíó Paradís og myndirnar sem Gunnar fjallar um heita Drive My Car, Bacurau og Aquarius. Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving og Magnús Thorlacius eru á sínu þriðja og síðasta ári í Listaháskólanum. Í námi sem gengur út á tilraunir á sviði, Sviðshöfundabraut. Við spjöllum við þau um það hvernig það gekk að gera sviðslist þegar ekki mátti koma saman. Einnig ræðum við útskriftaverkin þeirra, en sýningar á þeim fara fram um helgina.

Illugi Jökulsson gluggar í ævisögu Gyðu Thorlacius frá upphafi 19. aldar

Unicef hefur selt svokallaðar sannar jólagjafir í áratug en þær verða vinsælli með hverju árinu, enda sannarlega í anda jólanna að gefa til barna sem minna mega sín í heiminum. Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, kíkti til okkar og sagði okkur hvað sé í jólapökkunum þegar fólk gefur sannar gjafir. Tíkin Líf var fyrir skemmstu útnefnd afrekshundur ársins hjá Hundaræktarfélagi Íslands, en Líf hefur sinnt björgunarstörfum frá unga aldri og er sennilega reynslumesti útkallshundur landsins um þessar mundir. Hulda heimsótti Líf ásamt eiganda hennar Guðrúnu Katrínu Jóhannsdóttur, heyrði af afrekum hennar og væntanlegum arftaka. Samkvæmt tölum Landlæknisembættisins fengu 11,3 prósent íslenskra unglingsstúlkna, á aldrinum 12-17 ára, uppáskrifað þunglyndis eða kvíðalyfjum á síðasta ári. Sú tala hefur vaxið hratt ár frá ári en aldrei verið hærri en árið 2020. Til okkar kom Björn Hjálmarsson, geðlæknir á BUGL, til að tala um þennan viðkvæma hóp og vanlíðanina sem virðist töluverð. Á föstudag greindi Stundin frá sannkölluðu plastfjalli sem íslensk endurvinnslufyrirtæki hafa komið til Svíþjóðar í endurvinnslu. Úrvinnslusjóður og Umhverfisstofnun hafa talið það með í tölum um endurvinnslu og íslensk endurvinnslufyrirtæki rukkuðu um 100 milljónir króna fyrir að koma því í réttan farveg, en ekkert gerðist. Guðlaugur Þór Þórðarson nýr umhverfis, orku- og loftslagsráðherra, kom til okkar og ræddi þessi mál. Margir kannast við leitina að Jólastjörnunni, keppni ungra söngvara sem fram fer fyrir jól ár hvert. Fjöldinn allur af bráðefnilegum söngvurum tók þátt og kom fram í áheyrnarprufum í sjónvarpi. Sigurvegarinn í ár hefur nú verið valinn og mun viðkomandi stíga á svið á stórtónleikum Björgvins Halldórssonar, Jólagestum, um komandi helgi. Jólastjarnan sjálf, Fríður París Kristjánsdóttir, kom í heimsókn. Og svo voru það íþróttir helgarinnar. Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður mætti galvaskur í sportspjall með okkur undir lok þáttar og ræddi magnaðan endasprett í formúlunni. Tónlist: Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius - Það eru jól. Silk Sonic - Smokin out the the window. Sverrir Bergmann og Elísabet Ormslev - Það koma alltaf jól. Eddie Vedder - Long way. Baggalútur og Dísa Jakobs - Styttist í það. John Mellencamp og Bruce Springsteen - Wasted days. Paul McCartney - The Christmas song.
Í vikunni kom út áhugaverð skýrsla á vegum Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins þar sem fjallað er um svæðisbundið hlutverk Akureyrar. Þar er lagt til að Akureyri verði gert að svokallaðri svæðisborg í byggðastefnu stjórnvalda. Til að útskýra þetta aðeins nánar fengum við til okkar Birgi Guðmundsson, formann starfshópsins. Við héldum áfram að hita upp fyrir kjördæmafundina sem haldnir eru hér á Rás 2. Í dag er það forystufólk flokkanna sem bjóða fram í Suðvesturkjöræmi, eða Kraganum, sem mun mætast í hljóðveri hér í Efstaleiti. Fundurinn hefst kl. 17:30 og er sendur út í beinni hér á Rás 2 og kjósendur geta tekið þátt og sent spurningar á netfangið kosning hjá ruv.is. Og til að rýna aðeins í þetta kjördæmi fengum við til okkar stjórnmálafræðinginn Evu Heiðu Önnudóttur, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Við ræddum íslenskt mál við Önnu Sigríði Þráinsdóttur málfarsráðunaut og þar var haustið í forgrunni. Haustráðstefna Advania hefst í dag og þar er margt forvitnilegt á dagskrá. Meðal gesta er t.d. breskur innbrotsþjófur, ekki tölvuhakkari, heldur raunverulegur innbrotsþjófur. Þær Þóra Tómasdóttir fjölmiðlakona og Magnea Gestrún Gestsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Advania sögðu okkur meira af þessu. Og við settum í gleðigírinn upp úr hálfníu þegar hin stórskemmtilega og hæfileikaríka Björk Jakobsdóttir leit við. Tilefnið er sýning hennar, Selmu Björnsdóttur og Sölku Sólar Eyfeld í Gaflaraleikhúsinu, Bíddu bara, þar sem þær fjalla um raunveruleika íslenskra kvenna á glettinn hátt og segjast ekkert draga undan, en ljúga töluvert. Tónlist: Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson - Hjarta mitt. Friðrik Dór - Hvílíkur dagur. The Weeknd - Take my breath. Jamiroquai - Virtual insanity. Dansiði - Jónas Sig. Holly Humberstone - The walls are way too thin. Selma Björnsdóttir - Undir stjörnum. Manic Street Preachers - A design for life.