POPULARITY
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni kemur að norðan, söngkonan og hjúkrunarfræðingurinn Inga Eydal. Inga hefur verið að syngja frá blautu barnsbeini, dóttir Ingimars Eydal tónlistarmanns og Ástu Sigurðardóttir, en Ásta samdi fjölmarga dægurlagatexta við lög sem hljómsveit Ingimars flutti hér á árum áður. Inga söng með hljómsveit föður síns, rak sína eigin hljómsveit um tíma auk þess að starfa sem hjúkrunarfræðingur. Árið 2020 gaf hún út bók sem vakti mikla athygli, Konan sem datt upp stigann, saga af kulnun. Inga hefur í kjölfar útgáfu bókarinnar haldið fjölmarga fyrirlestra um þessa reynslu sína af kulnun og hefur einnig veitt ráðgjöf og stuðning við einstaklinga meðal annars vegna kulnunar, langvarandi veikinda og streitu. Við fórum með Ingu aftur í tímann á æskuheimilið og fetuðum okkur í gegnum lífið til dagsins í dag. Matarspjallið var svo sent út frá þremur stöðum í dag, Reykjavík, Akureyri, þar sem Guðrún var, og Laxárdal hvar Sigurlaug Margrét var. Við ræddum um ítalskan mat, þ.e. þegar hann kom fyrst til landsins, pasta og pizzur. Tónlist í þættinum í dag: Hvítur Stormsveipur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Finnur Eydal) Gömul saga / Atlantic kvartettinn og Helena Eyjólfs (Livingstone, texti Jón Sigurðsson) Í fyrsta sinn ég sá þig / Inga Eydal (Birger Sjöberg, Magnús Ásgeirsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Grétar Örvarsson. Hann þekkja auðvitað flestir úr hljómsveitinni Stjórninni þar sem hann og Sigga Beinteins hafa sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar, til dæmis í Eurovision og mun víðar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar á Höfn í Hornafirði, þar sem hann ólst upp á heimili ömmu sinnar og afa. Hann sagði til dæmis sögur af því þegar heimilið breyttist í fæðingarheimili, því amma hans var ljósmóðir og svo þegar hann byrjaði að spila fyrir dansi fimmtán ára á hótelinu á Höfn. Við fórum á handahlaupum með honum í gegnum lífið til dagsins í dag en hann stendur fyrir tónleikum eftir viku í Salnum í Kópavogi undir nafninu Sunnanvindur - eftirlætislög Íslendinga. Sigurlaug Margrét var svo auðvitað með okkur í matarspjallinu og í dag, í upphafi sumars, töluðum við um kjúklingarétt með sólþurrkuðum tómötum, og hægeldaðan lambabóg úr smiðju Yotam Ottolenghi. Tónlist í þættinum í dag: Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imre Kálmán, texti Jón Sigurðsson) Eina nótt (láttu mjúkra lokka flóð) / Grétar Örvarsson (Kris Kristofferson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Sumarlag / Stjórnin (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona. Síðan hún útskrifaðist sem leikkona hefur hún leikið fjölda hlutverka bæði á sviði og fyrir framan myndavélina og ávallt hefur hennar frammistaða vakið eftirtekt. En svo er það sýningin sem hún bjó til, Á rauðu ljósi, þar sem hún er ein á sviðinu í Þjóðleikhúskjallaranum og fjallar um eigin reynslu, af stressi, streitu og því að keyra sig í þrot. Þar fjallar hún á bráðfyndinn hátt um þessa erfiðu reynslu, en einnig af slíkri einlægni að það snertir virkilega við áhorfendum og nú er hún farin að flytja einnig erindi um þessa reynslu. Við fengum Kristínu auðvitað til að segja okkur aðeins frá því hvernig þessi sýning hefur sprungið út og svo fórum við auðvitað með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar, í Skotlandi, Englandi og Hlíðunum og röktum okkur svo í gegnum lífið til dagsins í dag. Sigurlaug Margrét var svo með okkur í matarspjallinu í beinni útsendingu frá suður Evrópu. Hún sagði okkur frá litlum sveitamörkuðum og frönskum kartöflum í þetta sinn. Tónlist í þættinum í dag: Vor í Vaglaskógi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk) Freedom / Wham (George Michael) I Wanna Dance With Somebody / Whitney Houston (George Merrill & Shannon Rubicam) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Silja Bára R. Ómarsdóttir, nýkjörinn rektor Háskóla Íslands. Silja á langan akademískan feril að baki í stjórnmálafræði og alþjóðastjórnmálum. Flestir þekkja hana sem sérfræðing í bandarískum stjórnmálum og alþjóðamálum og er hún tíður gestur í fjölmiðlum fyrir kosningar úti í heimi. Silja tók BA próf og MA gráðu í Bandaríkjunum en þegar hún var í doktorsnámi í Californiu gerðist alvarlegt atvik í hennar lífi sem hafði mikil áhrif á hana og varð til þess að hún flutti til Íslands og seinkaði doktorsgráðunni sem hún tók þó síðar á Írlandi. Silja sagði okkur frá því og öðru sem hefur mótað hana eins og uppvextinum í Ólafsfirði, bókum sem hún las í æsku og kennslu sem hún segist hafa mikla ánægju af. Hún sagði okkur líka hvernig hún vill sjá Háskóla Íslands fyrir sér sem næsti rektor, en hún tekur við embættinu 1.júlí næstkomandi. Svo var það matarspjallið, Sigurlaug Margrét var stödd við landamæri Spánar og Frakklands og hún ákvað því að tala um matvöruverslanir þar og erlendis yfir höfuð. Á ferðalögum getur verið mjög gaman og að minnsta kosti áhugavert að fara í matvöruverslanir og sjá aðrar vörur en við erum vön hér úti í búð. Sem sagt matvöruverslanir erlendis í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Heim í Búðardal / Ðe lónlí bú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Purple Rain / Prince (Prince) Just a Girl / No Doubt (Gwen Stefani & Tom Dumont) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var Hildur Vala Einarsdóttir tónlistarkona. Það er óhætt að segja að henni hafi skotið skyndilega upp á íslenska stjörnuhimininn árið 2005 í annari þáttaröð af söngvakeppninni Idol-stjörnuleit, en hún sigraði þá keppni 23 ára að aldri. En síðan eru liðin mörg ár og í dag sinnir Hildur Vala söngkennslu við Tónlistarskóla FÍH, sinnir eigin tónsmíðum og syngur víða á tónleikum. Við forum með Hildi Völu aftur í tímann og forvitnuðumst um hennar rætur og hvernig tónlistin kom til hennar og svo fórum við á handahlaupum til dagsins í dag. Í matarspjalli dagsins töluðum við svo um grænmeti sem janvel einhverjir forðast, rósakál og fennel. Rósakálið hefur þó komið sterkt inn síðustu ár eftir parað við beikon. En hvað dettur okkur í hug þegar fennel berst í tal? Sigurlaug Margrét var með þóttafullan svip því hún er talsvert andsnúin annarri tegundinni. Rósakáli þá eða Fennel? Það kemur í ljós matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Betri tíð / Hildur Vala Einarsdóttir (Valgeir Guðjónsson og Þórður Árnason) Oddaflug / Hildur Vala Einarsdóttir (Hildur Vala Einarsdóttir) For once in my life / Stevie Wonder (Ron Miller & Orlando Murden) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Flestum þykir nú gott súkkulaði og sætabrauð og föstudagsgesturinn okkar í dag, hreinlega lifir af því að búa til þetta tvennt fyrir sína kúnna. Viðkomandi er bakari og hefur sérhæft sig í súkkulaðinu og ber jafnvel titilinn súkkulaðimeistari. Hafliði Ragnarsson var föstudagsgesturinn okkar en bakaríið hans er Mosfellsbakarí og var stofnað af foreldrum hans og föðurbróður 1982 og eftir að Hafliði heim frá námi í Danmörku og Frakklandi tók hann við framleiðslustjórn og hóf að framleiða eðalsúkkulaði undir eigin nafni HR konfekt. Við kynntumst Hafliða betur í þættinum, fórum með honum aftur í tímann í sveitina fyrir austan og vestur á Patreksfjörð, frægðardraumana, trommuleikinn og svo auðvitað súkkulaðið. Matarspjallið var ekki á sömu sætu nótunum því eftir að við kvöddum Hafliða tók Sigurlaug Margrét við, ströng á svip, því við flettum í gegnum litlar bækur sem okkur bárust, um þýskan mat. Schnitzel, Pretzel, Currywurst, Bratwurst og fleira í þýsku matarspjalli í dag. Tónlist í þættinum í dag: Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson) Careless Memories / Duran Duran (Andy Taylor, John Taylor, Nick Rhodes, Roger Taylor og Simon le Bon) Does Your Mother Know / ABBA (Benny Andersson og Björn Ulvaeus) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Vala Höskuldsdóttir. Hún er söngkona og lagahöfundur og annar helmingur Hljómsveitarinnar Evu, hinn helmingurinn er Sigríður Eir Zophoníasardóttir. Auk tónlistarinnar hefur Vala unnið sem ráðgjafi, leikkona, leiklistarkennari, hér í útvarpinu og ýmislegt fleira. Vala er að norðan og við fórum með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar á Eyrinni á Akureyri og fórum svo á handahlaupum í gegnum tíðina til dagsins í dag. Vala er að eigin sögn mikið tilfinningablóm og hún glímir og við ræddum meðal annars við hana um stórar tilfinningar tengdar jólunum og það að horfast í augu við þær. Hún segist vera loksins byrjuð að samþykkja það að jólaskapið sé alls konar og eftir að hún hætti að streitast á móti tilfinningunum þá losnaði um stíflu og hún hefur varla hætt að hlægja síðan. Svo var það matarspjallið, þar sem meirihluti þáttakenda var norðan heiða, en Sigurlaug Margrét var ásamt Guðrúnu í hljóðveri RÚV á Akureyri. Við ræddum meðal annars um soðbrauð og kæfu, sem þær gæddu sér á undir spjallinu. Tónlist í þættinum: Það er allt í lagi að leggja sig á daginn / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir, Sigríður Eir Zophoníasardóttir, Sveinbjörn Thorarensen og Ívar Pétur Kjartansson) Thank You / half.alive (Brett Kramer, J.Tyler Johnson, James Alan, Joshua William Taylor, Michael Coleman) Both Sides Now / Joni Mitchell (Joni Mitchell) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgesturinn okkar í þetta sinn var gítarleikarinn og tónskáldið Guðmundur Pétursson. Hann var að senda frá sér glænýja LP plötu og á henni er t.d. lagið sem hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir, Wandering beings en það er einmitt heiti plötunnar. Við ræddum við Guðmund um tónlistina og upphafið með gítarinn og þegar hann varð frægur á einni nóttu eftir að hafa komið 14 ára fram í kosningarsjónvarpinu á RÚV. Hann sagði okkur til dæmis frá því hvað tónlistin spilar stórt hlutverk í hans lífi, en hann telur að um það bil 90% af því sem fram fer í höfði hans sé tónlistartengt. Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað og frú Sigurlaug Margrét dró fram fyrstu matreiðslubók Jamie Oliver, Kokkur án klæða. Við fórum aðeins yfir hans feril, skoðuðum nokkrar uppskriftir og svo ræddum við aðeins um mandarínur í lokin. Tónlist í þættinum: Taktu til við að tvista / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson) Wandering Beings / Guðmundur Pétursson (Guðmundur Pétursson) Battery Brain / Guðmundur Pétursson (Guðmundur Pétursson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og leikstjórinn Hilmir Snær Guðnason. Hann hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum og hann byrjaði að leikstýra í leikhúsum ungur að aldri. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í miðbænum og vesturbænum. Við röktum ættir hans í báða ættliði til Vestfjarða og fórum svo með honum á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og að lokum sagði hann okkur frá leikritinu Óskaland sem hann var að leikstýra á stóra sviði Borgarleikhússins. Það var færeyskt matarspjall í þættinum í dag, Sigurlaug Margrét kom með færeyska matreiðslubók, en hún smakkaði í fyrsta skipti færeyskar grindarbollur í síðustu viku sem vöktu áhuga hennar á færeyskri matargerð. Hún er að ýmsu leyti lík þeirri íslensku en líka að ýmsu leyti ólík. Tónlist í þættinum Óskaland / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) Budapest / George Ezra (Joel Pott & George Ezra Barnett) Texas Hold'em / Beyoncé (Atia "Ink" Boggs, Beyoncé, Brian Bates, Elizabeth Lowell Boland, Megan Bülow, Nate Ferraro & Raphael Saadiq) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru tveir, leik- og tónlistarkonurnar Elín Hall og Katla Njáls. Þær leika aðalhlutverkin í kvikmyndinni Ljósbrot sem hefur fengið frábærar viðtökur, var frumsýnd á Cannes, hefur verið valin á fjölda virtra kvikmyndahátíða og er í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Þær hafa báðar leikið talsvert, bæði á sviði og fyrir framan myndavélarnar, og svo eru þær líka báðar tónlistarkonur og hafa stofnað dúettinn Mammaðín. Við spjölluðum við þær um lífið og tilveruna, leiklistina og tónlistina og reynsluna af því að leika saman í kvikmyndinni Ljósbrot og lífsreynsluna af því að vera á rauða dreglinum og frumsýna hana í Cannes. Í matarspjalli dagsins var Sigurlaug Margrét með áhugaverða matreiðslubók í farteskinu. Það er ekki hægt að segja að hollustan sé í fyrirrúmi í téðri bók, þar sem uppskriftir af uppáhaldsmat eins frægasta tónlistarmanns sögunnar, Elvis Presley, er safnað saman. Tónlist í þættinum: Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) California Dreamin / The Mamas & The Papas (John Phillips & Michelle Phillips) Mammaðín / Frekjukast (Dagný Kristjánsdóttir, Elín Sif Halldórsdóttir, Jóhannes Damian Patreksson, Katla Njálsdóttir og Kristján Jóhann Jónsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er tónlistarmaðurinn og þingmaðurinn Jakob Frímann Magnússon Stuðmaður með meiru. Jakob stígur fram á Listahátíð í Reykjavík hinn 8. júní næstkomandi. Þá verður flutt hið dularfulla og splunkunýja spádómsverk Future Forecast af hljómsveitinni Jack Magnet Science sem skipuð er einvalaliði tónlistarmanna. Auk alls sem hann hefur gert í tónlistinni hefur hann gert margt á sviði menningarmála, verið menningarfulltrúi sendiráðs Íslands í London og menningarráðunautur utanríkisráðuneytisins, miðborgarstjóri Reykjavíkur og margt fleira. Við fáum Jakob til að fara með okkur aftur í æskuárin, á Akureyri og í Hlíðunum. Við stiklum svo á stóru með honum í gegnum lífið til dagsins í dag, með viðkomu meðal annars í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Los Angeles. Í matarspjallinu í dag kemur Sigurlaug Margrét eins og venjulega til okkar og við ætlum að tala um pönnukökubakstur. Við veltum fyrir okkur hvernig er best að komast hjá því að pönnukökurnar festist við pönnuna. Hvað er best að setja á pönnukökurnar, hvað er best að bera fram með þeim og svo framvegis. Pönnsuspjall! Tónlist í þættinum í dag: Hvílík þjóð / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon) Old Jack Magnet / Jack Magnet (Jakob Frímann Magnússon og John Lang) Extra Polation / Jack Magnet Science (Jack Magnet Science) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Bjarni Snæbjörnsson. Hann hefur leikið og sungið víða á sviði frá útskrift úr leiklistarnámi, en svo vakti hann sérstaka athygli þegar hann samdi söngleikinn Góðan daginn faggi, sem sýndur var í Þjóðleikhúskjallaranum. Í sýningingunni rifjaði Bjarni upp æskuna og glímu sína við að koma út úr skápnum og horfast í augu við það hver hann var, baráttu við fordóma, ekki síst sína eigin. Sýningin varð gríðarlega vinsæl, var sýnd næstum 150 sinnum, ekki bara í Þjóðleikhúsinu heldur víða um landið. Og nú er nýkomin út bókin Mennska eftir Bjarna og hann hefur hleypt af stokkunum samnefndu hlaðvarpi. Við fórum auðvitað aftur í tímann með honum, eins og við gerum alltaf með föstudagsgestinum, enda er æska hans nátengd því sem hann hefur verið að fjalla um í sínum verkum. Bjarni sagði okkur meðal annars frá dvöl sinni í Ástralíu, námsárunum í leiklistarskólanum og því hvernig hann sættist að lokum við sjálfan sig. Svo kom Sigurlaug Margrét í matarspjallið. Við skoðuðum með henni sænska matreiðslubók sem heitir Salt og sumar og svo tökum við aðeins upp þráðinn frá síðasta matarspjalli, eftir viðbrögð frá hlustendum við því sem þar kom fram. Fiskisúpa, saffran og birkirúnstykki komu við sögu. Tónlist í þættinum í dag: Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) To Be Free / Emilíana Torrini (E.G. White og Emilíana Torrini) Hello / Adele (Adele Adkins & Greg Kurstin) UMSJÓN GUNNAR HANSSON
HARA systur frá Hveragerði komu sáu og næstum því sigrðu X Factor keppnina árið 2007. Þær lentu í öðru sæti eftir spennandi einvígi við Jogvan Hansen, sem þær höfðu reyndar nokkrum mánuðum áður skráð til leiks ásamt sér. Systurnar urðu á skömmum tíma gríðarlega vinsælar og í kjölfarið gáfu þær út plötu og voru bókaðar út um allt land. En það hefur ekki mikið heyrst til þeirra undanfarin ár. Hvar eru þær í dag og hvað hefur á daga þeirra drifið? Við tókum vel á móti Hara systrum, Rakel og Hildi Magnúsdætrum í dag og fórum með þeim yfir þessa miklu reynslu sem keppnin var, æskuárin í Hveragerði, aðdraganda þess að þær skráðu sig í keppnina sem breytti lífi þeirra, skuggahliðar þess að slá í gegn svona snögglega og svo hvað þær hafa verið að gera undanfarið. Matarspjallið var svo á sínum stað og í dag var ítalskt þema þar sem leikkonan Sophia Lauren var í aðalhlutverki, en Sigurlaug Margrét keypti matreiðslubók fyrir 15 árum þar sem Sophia deilir uppskriftum sínum og sögum á bak við þær og okkur skilst að Sigurlaug hafi prófað að matreiða hverja einustu þeirra. Tónlist í þættinum í dag: Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson) Hvernig veit ég? / Hara systur (Hildur Magnúsdóttir og texti Rakel Magnúsdóttir) Framtíðin / Hara systur (Pernille Rosendahl, Jonas Struck, Emil Jörgensen og texti Rakel Magnúsdóttir og Hildur Magnúsdóttir) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra var föstudagsgesturinn Mannlega þáttarins að þessu sinni. Hún hefur verið alþingismaður Norðausturkjördæmis síðan 2013 fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð. Hún var bæjarfulltrúi í Ólafsfirði, kennari og náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Ólafsfjarðar og síðar við Menntaskólann á Tröllaskaga. Við fræddumst um rætur Bjarkeyjar, æskuslóðirnar og ferðalagið í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjall og í dag flettum við í bókinni Unga fólkið og eldhússtörfin og könnuðum hvað má enn læra af bókinni og svo hvað er kannski orðið úrelt. Tónlist í þættinum Nei eða já / Stjórnin (Grétar Örvarsson, Friðrik Karlsson og Stefán Hilmarsson) Eltu mig uppi / Sálin hans Jóns míns (Guðmundur Jónsson og Stefán Hilmarsson) Sóley / Björgvin Halldórsson og Katla María (Gunnar Þórðarson og Sigrún Toby Herman) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var Heimir Már Pétursson fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Heimir hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2023 fyrir ítarlega og vandaða umfjöllun um kjaramál. Heimir hefur unnið sem blaðamaður hjá Þjóðviljanum, Bændablaðinu, Helgarblaðinu og Norðurlandi. Hann á einnig tónlistarferil og hefur verið textahöfundur. En við auðvitað förum aftur í tímann með Heimi Má, fáum hann til að segja okkur frá æskuslóðunum á Ísafirði, tónlistinni, námsárunum og fleiru á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið, Sigurlaug Margrét var í þetta sinn stödd í Kraká í Póllandi og hún talaði auðvitað um Prins Polo en líka dumplings, snitzel, súrar gúrkur, berlínarbollur og pretzel. Og svo sagði hún frá heimsókn sinni í safnið í Auscwitz. Tónlist í þættinum: Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Verard, Rocco Granata, texti Jóhanna Erlings Gissurardóttir) Democracy / Leonard Cohen (Leonard Cohen & Jeff Fisher) Tíminn líður / Hnotubrjótar (Heimir Már Pétursson og Þór Eldon) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Um páskana verður sýnd í sjónvarpinu heimildarmyndin Tónskáldið Gunnar Þórðarson. Þetta er ný heimildarmynd í tveimur hlutum eftir Ágúst Guðmundsson og Jón Þór Hannesson um ævintýralegan feril Gunnars Þórðarsonar. Gunnar Þórðarson hefur fengist við margs konar dægurtónlist, allt frá lögum í anda Bítlanna til diskótónlistar og undir lok ferilsins fóru eyru hans að opnast fyrir sígildri tónlist og óperan hans Ragnheiður sló í gegn ekki síður en sönglög hans sem mörg hver eru löngu orðin sígild meðal þjóðarinnar. Ágúst Guðmundsson var í hljóðveri RÚVAK á Akureyri og sagði okkur frá tilurð myndarinnar og auðvitað frá ferli Gunnars. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins hélt Magnús áfram að kvarta undan flugstöðvum, en hann er nú nýkominn úr ferð til þriggja landa og í gegnum fjórar flugstöðvar. Af þeim fjórum þótti honum sú í Noregi erfiðust. Hann rekur upphaf leiðinda á flugstöðvum til ellefta septembers 2001 en eftir árásina á tvíburaturnna í Bandaríkjunum þann dag var allt eftirlit á flugvöllum hert um heilan helling út um allan heim. Hann sagði líka frá hefndarstríðinu sem hófst eftir árásina en í því fórust fjórar og hálf milljónir. Svo var það páskamatarspjall. Sigurlaug Margrét var auðvitað með okkur og við skoðuðum páskamatinn, pásklamb og hamborgarhrygg og morgunmatinn um páskana. Tónlist í þættinum: Manitoba / Gunnar Þórðarsson (Gunnar Þórðarsson) Þakka þér fyrir / Stefán Hilmarsson (Gunnar Þórðarsson-Stefán Hilmarsson) Egg head / Al Stewart (Cecil Payne & Daniel Mendelssohn) Páskaegg / Ingibjörg Þorbergs og hljómsveit Carls Billich (Ingibjörg Þorbergs) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sigríður Margrét Oddsdóttir, hún er í dag framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, áður var hún meðal annars framkvæmdasjtóri Skjás miðla, forstjóri Já.is og forstjóri Lyfju. Í starfi sínu hefur hún auðvitað staðið í ströngu undanfarið í samningamálum, eins og komið hefur fram í fréttum síðustu mánaða. En við byrjuðum auðvitað á því að skyggnast með Sigríði aftur í tímann á æskuslóðirnar á Skagaströnd og í Njarðvík, Verslunarskólanámið, háskólanámið á Akureyri og þannig fórum við með henni á handahlaupum í gegnum tímann til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið. Sigurlaug Margrét, besti vinur bragðlaukanna, kom og við ræddum pylsur. Pylsa er ekki bara pylsa. Það eru til talsvert margar útgáfur af pylsum og þá erum við bara að tala um íslenskar útgáfur, auðvitað eru ótal fleiri út um allan heim og sitt sýnist hverjum. Pylsur og pulsur í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum: Núna / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson) Close To Me / The Cure (Robert Smith) Himnasmiður / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson) UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var fjölmiðlamaðurinn Sindri Sindrason. Hann hefur unnið allan sinn feril á Stöð 2, í fréttunum, margvíslegri þáttagerð og á 35 ára afmælisdeginum rættist ósk sem hafði fylgt honum frá því hann var mjög ungur, hann fékk að vera aðallesari í kvöldfréttunum og það hefur hann verið síðan. Við fórum með Sindra aftur í tímann, á æskuslóðirnar, til Austur-Evrópu og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið. Sigurlaug Margrét, besti vinur bragðlaukanna, fór í óvissuferð á Food and fun hátíðinni sem hófst í gærkvöldi og við fengum að heyra af því í spjalli dagsins. Tónlist í þættinum: Easy on me / Adele (Adele Adkins & Greg Kurstin) Hold On / Noah Reid (Noah Reid) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Edda Andrésdóttir fjölmiðlakona og rithöfundur var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Fjölmiðlaferill Eddu hófst þegar hún varð blaðamaður á Vísi 1972. Eftir það ritstýrði hún meðal annars tímaritinu Hús og híbýli, vann í útvarpi og við dagskrárgerð á RÚV þar sem hún starfaði einnig sem fréttamaður og fréttalesari. Árið 1990 hóf hún störf á Stöð 2 og var í fjölbreyttum verkefnum, gert viðtals- og skemmtiþætti og verið gestgjafi Kryddsíldarinnar en fyrst og fremst var hún á skjáum landsmanna á kvöldmatartíma að segja þeim fréttir. Við áttum skemmtilegt spjall við Eddu til dæmis um hennar reynslu af því að fara til Vestmannaeyja beint í kjölfar þess að gosið hófst, þegar hún var að stíga sín fyrstu skref í blaðamennsku. Besti vinur bragðlaukanna Sigurlaug Margrét er stödd á Spáni í sérstakri rannsóknarferð þar sem hún kynnir sér það helsta í mat og drykk og það er árstími púrrulauks og vorlauksins, Sigurlaug sagði okkur frá því hvernig er gott að matreiða þá á á grillinu. Tónlist í þættinum (föstudag) Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ) Eyjan mín í bláum sæ / Árni Johnsen (Árni Johnsen) Time is on my side / Rolling Stones (Rolling Stones) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Óttar Guðmundsson geðlæknir og rithöfundur var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur, blaðagreinar og hefur verið fastur penni hér og þar í fjölmiðlaheiminum. Hann hefur auðvitað lengi látið sig geðheilbrigðismál varða, vímuefnamálin og transmálin, en hann hlaut hlaut heiðursmerki Samtakanna 78 árið 2012. Óttar hefur stundum verið umdeildur en alltaf óhræddur við að viðra skoðanir sínar. Við fórum með Óttari aftur í tímann á æskuslóðirnar, drauma hans um að verða knattspyrnumaður og leikari. Hvernig það atvikaðist að hann fór í læknisfræðina, áhugi hans á Þýskalandi og þýskri menningu og áhuga hans grúsk hans í dag til dæmis um 19.aldar skáldið Sigurð Breiðfjörð. Það var um nóg að tala við Óttar í þættinum í dag. Svo var það auðvitað matarspjallið. Sigurlaug Margrét talaði þar um vonina, vonina um vorið sé að koma og það hvernig matarplönin geta breyst eftir veðrinu og árstíðunum. Salat og léttari matur í matarspjallinu. Tónlist í þættinum í dag: Þrek og tár / Haukur Morthens og Erla Þorsteinsd. (Otto Lindblad og Guðmundur Guðmundsson) Einskonar eftirmáli / Jóhanna V. Þórhallsdóttir (Jóhanna Þórhallsdóttir og Guðmundur Sigurðsson) Eitt lítið kaffitár / Jóhanna V. Þórhallsdóttir (Catulo Castillo og Sveinbjörn I. Baldvinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Gestur þáttarins er Andrea Ýr Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Gestur þáttarins er Sigurður Helgi Pálmason. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Gestur þáttarins er Unnsteinn Manúel Stefánsson. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan Sigríður Thorlacius. Flest tókum við líklega fyrst eftir henni í hljómsveitinni Hjaltalín, en ferill hennar er gríðarlega fjölbreyttur. Hún hefur meðal annars sungið í tríóinu GÓSS, með Tómasi R. Einarssyni, Bógómil Font, Heiðurspiltum og Uppáhellingunum bara til að nefna nokkur verkefni. Hún hefur fengið Íslensku tónlistarverðlaunin, bæði sem rödd ársins og söngkona ársins og svona mætti lengi telja. En eins og við gerum alltaf með föstudagsgestinum þá fórum við aftur í tímann með Sigríði, á æskuslóðirnar, heyrðum hvenær söngurinn kom inn í hennar líf og förum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo kom Sigurlaug Margrét auðvitað til okkar í matarspjallið í dag. Í þetta sinn ræddum við um meðlæti, sem sagt kartöflurétti, gulrætur og fleira. Tónlist í þættinum í dag: Kossar án vara / GÓSS (Bubbi Morthens) We Have All the Time in the World / Louis Armstrong (Hal David & John Barry) Everybody's Talkin / Harry Nilson (Fred Neil) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Linda Blöndal frétta- og fjölmiðlakona. Hún lærði stjórnmálafræði og hefur unnið í fjölmiðlum í á þriðja áratug, hún byrjaði á Bylgjunni en færði sig svo yfir á Rás 2 rétt fyrir aldamótin í Morgunútvarpið var einnig í Síðdegisútvarpinu og fleiri þáttum. Hún færði sig svo yfir í fréttirnar og hefur verið fréttakona hér á RÚV, á Stöð 2 og svo á Hringbraut, áður en hún kom aftur á fréttastofu RÚV. Við fórum með Lindu aftur í tímann og fengum hana til að segja okkur frá æskuárunum í Breiðholtinu og í Æfinga- og tilraunaskólanum. Svo sagði hún okkur frá tengslum sínum við eyjuna Möltu og þegar hún fór í kosningaeftirlit til Tadsjikistan og að lokum sagði hún áhugaverðar sögur úr fréttamennskunni. Svo var það auðvitað matarspjallið, Sigurlaug Margrét kom til okkar og í þetta sinn töluðum við um ísskáps- og búrhreinsun. Þegar við búum til mat úr því sem er til í eldhúsinu, sem getur oft orðið glettilega gott. Stundum er það eini valkosturinn, til dæmis ef gesti ber óvænt að garði. Tónlist í þættinum í dag: Ég fann þig / Björgvin Halldórsson (Bandarískt þjóðlag, Jón Sigurðsson) I Walk the Line / Johnny Cash (Johnny Cash & Burt Bacharach) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgesturinn Mannlega þáttarins í þetta sinn var hin þjóðkunna leikkona Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Katla hefur komið víða við á leiklistarferli sínum, í sjónvarpsþáttum, á leiksviði, í kvikmyndum og áramótaskaupum og svo er hún í vinsælli hljómsveit, Heimilistónum, hvar hún leikur á píanó og semur lög og texta. Þessa dagana leikur hún meðal annars aðalhlutverkið í leikritinu Með guð í vasanum í Borgarleikhúsinu og hún leikur eitt af aðalhlutverkunum í nýjum sjónvarpsþáttum, Kennarastofan, hjá Sjónvarpi Símans. Við fórum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hlíðunum og í Kópavogi, hún talaði um leiklistarskólanámið og svo hvernig ferillinn hefur þróast í þættinum í dag. Sigurlaug Margrét kom svo í fyrsta matarspjall ársins og í dag ákváðum við að tala um, og taka til, 13 hluti sem eru ómissandi í eldhúsinu í tilefni þess að það er þrettándinn á morgun. Við gerðum lista hvert um sig og bárum þá saman í beinni útsendingu auðvitað og það var helst einn hlutur sem vakti ólíkar skoðanir hjá okkur. Tónlist í þættinum í dag: Anda inn / Heimilistónar (Katla Margrét Þorgeirsdóttir) Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger og Þórarinn Guðnason) Here Comes the Sun / Nina Simone (George Harrison) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og nú tónlistarmaðurinn Arnmundur Ernst Backman Björnsson. Leiklistin er honum í blóð borin, hann hóf ungur að leika og það talsvert mikið, bæði á sviði og fyrir framan myndavélar. Og eftir leiklistarnám og hefur hann haldið áfram að leika í fjölda verkefna á sviðsfjölum og skjánum. Nú í vor söðlaði Arnmundur um og hóf sólóferil í tónlist og gaf út sitt fyrsta lag. Við fórum með Arnmundi aftur í tímann á æskuslóðirnar á Bráðræðisholtinu og norður til Dalvíkur og svo fórum við á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Í matarspjalli dagsins ræddi Sigurlaug Margrét við okkur um eftirrétti. Og þá helst eftirrétti tengda gömlum og góðum minningum og nostalgíu. Niðursuðudósir komu talsvert við sögu. Tónlist í þættinum í dag: Litla lagið / Sigrún Harðardóttir (erl. Lag, texti Ómar Ragnarson) Gangi þér allt að sólu / Arnmundur (Arnmundur Ernst Backman Björnsson) Won?t get fooled again / The Who (Pete Townshend) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Ólöf Kolbrún Harðardóttir óperusöngkona og skólastjóri Söngskólans í Reykjavík hefur átt langan og farsælan feril. Hún lærði söng bæði hér heima og í Austurríki og eftir námið hóf hún kennslu ásamt því að koma víða fram og syngja inn á plötur. Ólöf Kolbrún er einn af brautryðjendum innan íslenska tónlistarheimsins, hún var meðal annars í hópi þeirra sem kom að stofnun Íslensku óperunnar og hefur um árabil kennt við Söngskólann í Reykjavík þar sem hún gegnir nú starfi skólastjóra, en skólinn heldur upp á 50 ára afmæli sitt í Langholtskirkju á sunnudaginn. Ólöf Kolbrún var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir kom svo í matarspjallið í dag. Í þetta sinn vorum við á marakóskum slóðum og þar munu meðal annars maríneraðar sítrónur komu við sögu. Tónlist í þættinum Rock Calypso í réttunum / Haukur Morthens (Fischer og Jón Sigurðsson) Ég veit / Eivör Pálsdóttir (Eivör Pálsdóttir) Íslands lag (Heyrið vella á heiðum hveri) / Garðar Cortes og Kór Langholtskirkju (Björgvin Guðmundsson og Grímur Thomsen) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Hann hefur verið í fjölmörgum hljómsveitum í gegnum tíðina, Exodus, Pax Vobis, Geira Sæm og Hungangstunglinu, Tweety og svo auðvitað Todmobile. Hann hefur samið tónlist fyrir söngleiki, þrisvar samið lög sem hafa keppt fyrir Íslands hönd í Eurovision og er nú tónlistarstjóri hjá Menningarfélagi Akureyrar og framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðulands. Við fórum með Þorvaldi í dag aftur í tímann, könnuðum upphafið í Árbænum og brunuðum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Framundan eru 35 ára afmælistónleikar Todmobile þar sem þrjár af stærstu stjörnum níunda áratugarins stíga á stokk með hljómsveitinni í Hörpu og svo sagði Þorvaldur okkur einnig frá 30 ára afmælisdagskrá Sinfóníuhljómsveitarinnar. Sigurlaug Margrét mætti svo til okkar í matarspjall dagsins og enn vorum við að tala um Campbells súpur. Sigurður Þorri Gunnarsson, sem kom öllu þessu súputali af stað hjá okkur fyrir tveimur vikum, var aftur með okkur ogið skoðum uppskriftir sem við höfum fengið sendar frá hlustendum og fleira. Tónlist í þættinum Stelpurokk / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Andrea Gylfadóttir) Brúðkaupsvísur / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson og Vigfús frá Leirulæk) The Riddle / Nik Kershaw & Todmobile (Nik Kershaw) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Viktoría Hermannsdóttir. Hún hefur auðvitað gert fjölbreytt efni fyrir útvarp og sjónvarp talsvert lengi og hún er einstaklega fundvís á áhugaverða viðmælendur og áhugaverðar sögur fólks. Nú á sunnudaginn hefur önnur þáttaröð heimildarþáttanna Hvunndagshetjur göngu sína í sjónvarpinu. Í þáttunum eru sagðar einstakar sögur fólks sem hefur látið gott af sér leiða á óeigingjarnan hátt í gegnum starf sitt eða daglegt líf. Við fengum Viktoríu til að segja okkur aðeins frá nýju þáttunum og auðvitað líka til að segja okkur frá sjálfri sér, eins og venjan er með föstudagsgesti í þættinum. Svo var það auðvitað matarspjallið, Sigurlaug Margrét Jónas kemur til okkar í dag og við héldum áfram að velta Campbells súpum fyrir okkur, eftir að þær komu upp í matarspjallinu í síðustu viku með Sigurði Þorra Gunnarssyni. Þessar dósasúpur eru nefnilega notaðar á mjög margvíslegan hátt í alls konar uppskriftir og matargerð. Tónlist í þættinum Ekkert þras / Egill Ólafsson, Lay Low, Högni Egilsson og Moses Hightower (Egill Ólafsson) Jive Talkin? / Bee Gees (Barry Gibb, Maurice Gibb & Robin Gibb) Upside Down / Diana Ross (Bernard Edwards & Nile Rodgers) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Sigurður Þorri Gunnarsson, eða Siggi Gunn. Hann ættu hlustendur að þekkja til dæmis þar sem hann var kynnir á Söngvakeppninni í ár og svo sendi hann líka sjónvarpsinnslög frá sjálfri keppninin. Hann var kynnir á stórtónleikum Rásar 2 sem voru í beinni útsendingu í sjónvarpinu á Menningarnótt og svo var hann einnig spyrill í sjónvarpsþáttunum Með á nótunum. Hann lærði fjölmiðlafræði í Verkmenntaskólanum á Akureyri, lærði útvarpsmennsku í Sunderland og var lengi útvarpsmaður á K100. Hann er nú kominn á Rás 2 í Popplandið og Félagsheimilið, auk þess að vera tónlistarstjóri Rásar 2. En við fengum að kynnast Sigga betur í þættinum í dag, fórum aftur í æskuna og uppeldið fyrir norðan og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, sneri aftur í þáttinn og Siggi Gunn, föstudagsgestur, var með okkur áfram í matarspjallinu í dag. Við fengum að vita hvað er hans uppáhaldsmatur og hvað eru hans sérréttir í eldhúsinu. Tónlist í þætti dagsins: Hæ hó / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson og Vilhjálmur Vilhjálmsson) I Wish I Knew (how it would be to be free) / Nina Simone (Richard Lamb & Billy Taylor) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Föstudagsgestirnir okkar í dag voru þær Erna Þórarinsdóttir og Eva Ásrún Albertsdóttir söngkonur sem byrjuðu ferilinn í heimabænum sínum, Akureyri, sungu með hljómsveitinni Hver og mynduðu svo sönghópinn Erna - Eva - Erna ásamt Ernu Gunnarsdóttur og síðar voru þær partur af Brunaliðinu fræga. Þær Erna og Eva voru t.d. kallaðar ríkisraddirnar þar sem þær rödduðu nánast allt sem kom út í fjölda mörg ár, á gríðarlega mörgum hljómplötum, voru bakraddir í tónlistarþáttum í sjónvarpi og svo auðvitað í Söngvakeppni sjónvarpsins. Þær fóru líka nokkrum sinnum út sem bakraddir í sjálfa Eurovisionkeppnina. Í dag hafa þær báðar áhuga á andlegri líðan og meðferð, Erna menntaði sig í sálgæslu og vinnur meðal annars á Landspítalanum. Eva hefur nýlokið meistaranámi í því sem kallað er RIM, eða Regenerating Images in Memory, aðferð við að hjálpa fólki meðal annars við að takast á við erfiðar tilfinningar, minningar, áföll og vanlíðan. Í matarspjalli dagsins sögðum við skilið við hollustuna og töluðum um nammi, sælgæti. Þetta átti að vera spjall eingöngu um íslenskt nammi í þetta sinn, en það fór nú ekki alveg þannig. Sigurlaug Margrét hafði auðvitað sterkar skoðanir á þessu eins og öllu í matarspjallinu. Tónlist í þættinum í dag: Funheitur / Pláhnetan (Friðrik Sturluson og Stefán Hilmarsson) Leiðarljós / Snörunar (Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson) Fyrir utan gluggann minn / Snörurnar (Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Föstudagsgesturinn okkar var Ævar Þór Benediktsson leikari og rithöfundur en hann hefur náð að afreka heilmikið á báðum sviðum þótt aðeins séu liðin 12 ár frá því hann útskrifaðist frá Listaháskólanum. Hann leikur í þáttaröðinni Arfurinn minn sem verður sýnd í Sjónvarpi Símans yfir páskana en þar leikur hann son aðalsöguhetjunnar sem Laddi leikur. Í matarspjalli dagsins fór Sigurlaug Margrét yfir hvers konar veisluborð sómir sér vel í hvaða veislu sem er og hvaða veitingar eru hagkvæmar. Tónlist í þættinum í dag: Hossa Hossa / Amabadama (Salka Sól, Steinunn Jónsdóttir og Magnús Jónsson) Ég lifi í draumi / Hildur Vala (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Gestur þáttarins er Hildur Hákonardóttir, veflistamaður og rithöfundur. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Gestur þáttarins er Hildur Hákonardóttir, veflistamaður og rithöfundur. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Arnrún María Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri, segir frá Lausnahringnum sem varð til í lýðræðislegu samstarfi kennara og barna í leikskólanum Brákarborg. Aðferðirnar byggjast meðal annars á að leitað sé að lausnum sem börn og fullorðnir geta notað saman til að leysa vandamál. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Hildur Hermóðsdóttir rifjar upp þegar í ágúst 1970 Þingeyingar tóku til sinna ráða eftir áralanga baráttu gegn fyrirhuguðri stórvirkjun í Laxá og sprengdu upp stíflu sem virkjunaraðilar höfðu reist í Miðkvísl og notuðu til þess dýnamít í eigu virkjunnarinnar. Hildur skrifar bók um föður sinn Hermóð í Árnesi og hans baráttu fyrir verndun Laxár og Mývatns. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Álfur er formaður samtakanna 78 og landvörður í Vatnajökulsþjóðgarðinum. ásamt manni sínum. Við tölum og mannréttindiog hálendið, fordóma og hvenrig það gengur að leiða saman ólíka hópa og kynslóðir hinsegin fólks. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

Ninna Sif er prestur í Hveragerði og var einnig formaður prestafélags Íslands. Hún vissi snemma að hún vildi verða prestur en það tók þó nokkurn tíma því hún hætti í miðju námi, efaðist að það hentaði henni. Ninna Sif talar um kirkjuna í nútímasamfélagi og þá gleði að búa í Hveragerði. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

Maður vill að líf hans, þótt hans líf hafi bara verið inn í mér, þýði eitthvað segir Hólmfríður Anna um soninn sem hún missti á 34.viku meðgöngu. Eftir áfallið ákvað hún að læra sálgæslu, þegar hún áttaði sig á hve margir lenda í erfiðum áföllum og hvaða áhrif það getur haft á fólk og samfélagið allt. Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.