POPULARITY
Fjölmennasta skátafélag landsins Hraunbúar Hafnarfirði fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir og félagsforinginn Bjarni Freyr Þórðarsson segir að aðalatriðið í skátastarfinu snúist um að undirbúa fólk fyrir lífið. Skátastarfið snúist ekki um bikara og medalíur heldur veganesti út í lífið, sjálfsbjargarviðleitni og að efla sjálfstæða einstaklinga og leiðtoga. Við ræddum við Bjarna og Hörpu Hrönn Grétarsdóttur sveitaforingi, í dag. Það er ríkt í okkur að vilja láta gott af okkur leiða, en það eru ekki allir sem vita hvernig á að snúa sér þegar að því kemur. Eins getur verið snúið að ganga ekki of nærri sér á þeirri vegferð. Sigurborg Kr. Hannesdóttir sagði okkur í dag frá sinni reynslu, en hún hefur sjálf upplifað að ganga of nærri sér á slíkri vegferð og nú vill hún leiðbeina fólki í svipuðum sporum með því að nota þeirra eigin sögu, á netnámskeiði sem hún kallar Sagan af þér að breyta heiminum. Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni og kort dagsins barst nú frá Vestmannaeyjum því Magnús er kominn heim frá Grænhöfðaeyjum. Hann sagði frá ýmsu því sem við er að eiga í Eyjum þessa dagana. Þar er tekist á um samgöngur, sem hafa verið í nokkru lamasessi vegna óveðurs í febrúar, sem og sandburðar í Landeyjahöfn. Hann sagði líka frá deilum sem hafa skapast vegna minnismerkis um gosið 1973, en um það verður haldin íbúafundur næsta föstudag. Tónlist í þættinum í dag Miðvikudagur / Þokkabót (Ingólfur Steinsson, texti Steinn Steinarr) Breaking up is Hard to Do / Neil Sedaka og Sissel Kyrkjebö (Neil Sedaka & Greenfield) Lazy Sunday / Small faces (Marriott Lane) Girl From Before / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í lok Víðsjár verður jólalag ríkisútvarpsins árið 2024 frumflutt, ásamt kynningu höfundar á laginu. Frá því í október hafa umfjallanir um bækur raðast inn í vikurnar í Víðsjá, eins og jólaskraut á tré. Bókarýnarnir okkar þrír hafa tínt upp úr jólakistlinum fjölbreyttar gjafir flóðsins og fært í samhengi og í dag veljum við úr kistlinum dýrindis gripi. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um skáldsögu Jóns Kalman, Himintungl yfir heimsins ystu brún og Sölvi Halldórsson fjallar um skáldsögu Dags Hjartarsonar, Sporðdreka. Þessa vikuna höfum við fjallað um ljóðabækur, sem eru eins og fíngerðasta og fallegasta skrautið, gripirnir sem raðast efst á tréð. Og í þessum síðasta þætti fyrir jól fær undurfögur og lítillát ljóðabók að bregða sér í hlutverk stjörnunnar á toppi trésins, það er ljóðabókin Kallfæri, eftir Guðrúnu Hannesdóttur. Bókin er tíunda ljóðabók Guðrúnar, sem hélt upp á áttræðisafmæli sitt í sumar, en gaf út sína fyrstu ljóðabók árið 2007. Guðrún heimsótti hljóðstofu Víðsjár í morgun. Með frumflutningi jólalags ríkisútvarpsins 2024 í lok þáttar óskar Víðsjá hlustendum sínum bjartra og gleðilegra jóla og þakkar samfylgdina á árinu sem er að líða. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Miðvikudagur 18. desember Fátækt, ofbeldi, ljóð, innanríki, hvað er framundan og skaðaminnkun Myndlistamaðurinn og Öryrkinn Georg Jónasson ræðir við Maríu Lilju um fátækt frá fyrstu hendi, myndlistina og allt þar á milli. Þá mæta til leiks Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sérfræðingur í stafrænu kynferðisofbeldi og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, forstýra Kvennaathvarfsins og ræða um ofbeldi í nánum samböndum. Oddný Eir og Vigdís Grímsdóttir halda áfram með ítarlegt bókaspjall. Fyrstur að borði er Bragi Ólafsson með nýja bók Innanríkið Alexíus. Þar strax í kjölfarið verður staða ljóðsins krufin mtt. Tveggja nýútkominna verka skáldkvennanna Guðrúnar Hannesdóttur, Sigurbjargar Þrastardóttur. Sigurjón M. fær til sín álitsgjafa úr ólíkum áttum til að spá fyrir um framhaldið í samfélaginu þetta eru þau Valur Grettisson, Bryndís Haraldsdóttir og Auður Alfa Ólafsdóttir. Í lokin kemur Svala Jóhannesardóttir formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun, og ræðir um velsæld áfengis- og vímuefnasjúklinga.
Fræðslumál hjá Arion banka - með Ölmu Hannesdóttur fræðslustjóra by IÐAN fræðsluetur
Kór eldri kvenna, Senjóríturnar, varð til sem afsprengi út frá Kvennakór Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og Senjóríturnar voru síðan formlega stofnaðar 2015. Þær hafa reglulega haldið tónleika, tekið þátt í kóramótum og farið í söngferðalög. Það er mikill metnaður í starfi Senjórítanna og á undanförnum árum hafa þær leitað í smiðju þekktra söngvara. Meðal þeirra sem hafa sungið með kórnum eru Raggi Bjarna heitinn, Bragi Valdimar Skúlason í Baggalúti og Bubbi Morthens. Kórinn lagði af stað í enn eina kórferðina fyrir helgi og þær eru komnar til Norður-Írlands á kóramót. Við hittum þær á lokaæfingunni hér heima í Digraneskirkju og það var mikil stemmning og tilhlökkun í hópnum. Rætt var við Unni Ragnars, Ragnheiði Sigurðardóttur, Hildi Bjarnadóttur, Sigrúnu Klöru Hannesdóttur, Silju Aðalsteinsdóttur, Ágota Joó og Vilberg Viggósson. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fjallaði að þessu sinni um breytingar á högum fólks þegar nútíminn ríður í hlað, við fengum tilvitnun frá rithöfundinum Helga Valtýssyni og rætt var um neftóbaksfræði sem svo eru kölluð; eða þjóðlegan fróðleik og reyndum að átta okkur aðeins á hvað hugtakið felur í sér. Og að lokum var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Jens Pétur Kjærnested, íslenskufræðingur og íslenskukennari. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Jens Pétur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: The Empusium (A Health Resort Horror Story) e. Olgu Tokarczuk Grief is the Thing with Feathers e. Max Porter Os Meses os Dias, Um a Um. (Mánuður, Dagar, hver á eftir öðrum) e. Eugénio de Andrade Undir Eplatrénu e. Olav H. Hauge Skýin eru skuggar e. Jon Fosse Gleðileikurinn guðdómlegi e. Dante Alighieri og ævisögu Dante sem heitir Dante: a Life e. Alessandro Barbero Dantes Bone´s e. Gay Raffa þýðingar (og endurútgáfur) Guðbergs Bergssonar á bókmenntum spænskumælandi landa Ingibjörg Haralds og þýðingar hennar úr rússnesku Friðrik Rafnsson og Milan Kundera Pétur Gunnars og Madame Bovary Mánasteinn e. Sjón Tónlistin í þættinum Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Peter Callander og Geoff Stevens, texti Iðunn Steinsdóttir) Orðin mín / Senjóríturnar (Bragi Valdimar Skúlason) I'm a Believer / The Monkees (Neil Diamond) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þriðjudagurinn 3. september Hnífaburður, Bandaríkin, Færeyjar, Sjálfstæðisflokkur og vinstrið Sólveig Guðrún Hannesdóttir rektor MR ræðir hnífaburð ungmenna, Guðmundur Hálfdánarson prófessor ræðir forsetakosningar í Bandaríkjunum og Carl-Jóhan Jensen rithöfundur segir fréttir frá Færeyjum. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður og Jón Kristinn Snæhólm stjórnmálafræðingur ræða um stöðu Sjálfstæðisflokksins og Einar Már Jónsson prófessor við Sorbonne segir sögu vinstrisins frá stríðslokum að okkar tímum.
Lagnir, þær eru þarna, þjóna sínum tilgangi svo lítið beri á, en svo kemur eitthvað upp á sem beinir sjónum okkar að þessum földu en nauðsynlegu innviðum - hvort sem það eru skemmdir á heitavatnslögnum vegna jarðhræringa, akkeri sem rústaði kaldavatnslögn Vestmannaeyinga eða skólplagnirnar sem víða á landinu skila skólpinu óhreinsuðu út í sjó. Snæbjörn R. Rafnsson, pípulagningameistari, hefur brennandi áhuga á lögnum, lagnakerfum og sögu þeirra. Hann er gestur Samfélagsins. Við ætlum að ræða um nýtingu Listasafns Íslands í kennslu en kennarar allra skólastiga og allra skóla fá bráðlega tækifæri til að hittast reglulega á safninu og kanna hvernig hægt er að nýta það og fjársjóði þess sem efnivið í kennslu og safnahúsin þrjú sem námsvettvang. Ingibjörg Hannesdóttir verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Listasafni Íslands kemur til okkar að ræða þetta verkefni. Neytendaspjall. Rætt við Einar Bjarna Einarsson, lögfræðing hjá Neytendasamtökunum, um skrópgjöld og mætingarskyldu en Neytendasamtökin hafa lengi gert athugasemdir við skilmála fyrirtækja sem þeim finnst ganga of hart fram í þessu.

The new episode of Out There features the exhibition series The Wheel I - V, represented by Kristín Dagmar Jóhannesdóttir curator of “THE WHEEL V: All is Well”, the last and final iteration of the annual series, and Haraldur Jónsson visual artist and chairman of the exhibition committee of the Reykjavík Association of Sculptors. Becky and Tinna get to know the Association's origin story and past projects. More recently “All is Well” was selected as the Group Show of the Year at the Icelandic Art Prize. The final edition of The Wheel took place in postcodes 101, 102 and 107 in Reykjavík. Eight artists exhibited works in public space, all of whom are members of the Sculpture Association, and Swedish artist Ulrika Sparre, the exhibition's honorary international artist. Artists in The Wheel V included: Emma Heiðarsdóttir, Finnur Arnar, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Ragnheiður Gestsdóttir, Sean Patrick O'Brien, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Ulrika Sparre and Wiola Ujazdowska.
Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Forsætisráðherra segir að niðurstaða umboðsmanns Alþingis um samráðsleysi við rafvopnavæðingu lögreglunnar hafi ekki áhrif á stöðu dómsmálaráðherra, en er enn þeirrar skoðunar að málið hefði átt að vera rætt í ríkisstjórn áður en það var lögfest. Alma Ómarsdóttir talaði við Katrínu Jakobsdóttur. Íslensk erfðagreining braut ekki persónuverndarlög í rannsókn á kórónuveirunni. Héraðsdómur gagnrýnir Persónuvernd fyrir að hafa ekki rannsakað málið nægilega. Kristín Sigurðardóttir sagði frá. Pólverjar verða fyrstir þjóða til að senda herþotur til Úkraínu. Framlagið kemur eftir að forseti Úkraínu óskaði eftir aukinni aðstoð frá Vesturlöndum. Hugrún Hannesdóttir Diego sagði frá. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Örnu McClure, yfirlögfræðings Samherja, um að fella rannsókn á hendur henni niður. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá. Virkjanastopp blasir við á Íslandi en sveitarfélög hafa eitt af öðru ákveðið að hætta skipulagsvinnu við nýjar virkjanir. Sveitarstjóri segir að ávinningurinn skili sér ekki til nærsamfélagsins. Alexander Kristjánsson sagði frá og talaði við Harald Þór Jónsson. Lengri umfjallanir: Ákvörðun Evrópusambandsins um að flytja málefni Evrópska efnahagssvæðisins til framkvæmdastjórnar ESB hefur haft jákvæðar afleiðingar, en felur einnig í sér áskoranir fyrir EFTA ríkin þrjú, Ísland, Noreg og Lichtenstein, sem eru hluti af innri markaði Evrópusambandsins. Þetta segir Árni Páll Árnason, stjórnarmaður í eftirlitsstofnun EFTA sem fylgist með framkvæmd samningsins um evrópska efnahagssvæðið. Björn Malmquist talaði við Árna Pál Árnason. Ísland sker sig úr þegar litið er til Norðurlanda í nýrri skýrslu OECD um áhrif heimsfaraldursins á vinnumarkað. Hér á landi varð krísan krappari og varði lengur. Atvinnuleysi jókst hraðar á Norðurlöndunum í heimsfaraldrinum en í flestum öðrum Evrópulöndum, sérstaklega á Íslandi. Í skýrslunni kemur fram að skellurinn var harðari og batatíminn lengri hér en hjá öðrum Norðurlöndum. Endurreisn efnahagsins á Norðurlöndum var hraðari en að meðaltali í OECD-löndum að Íslandi undanskildu. Huginn Freyr Þorsteinsson, stjórnarformaður Vinnumálastofnunar segir umfang ferðaiðnaðarins vera aðalástæðu þess. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hann. Lagt er til í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir matvælaráðuneytið, að ríkið greiði árlega hálfan milljarð króna til að styrkja kornrækt á Íslandi. Einnig á að kanna fýsileika þess að koma á fót kornsamlagi, sem kaupir og selur korn frá bændum, og á mark

Í þættinum segir Guðrún Hannesdóttir frá nýrri ljóðabók sinni Fingramál og les nokkur ljóð úr bókinni. Upptakan gerð í fögnuði í tilefni útgáfu bókarinnar í bókabúð pennans Eymundsson á Laugavegi 24. nóvember. Þá er í þættinum rætt við Hermann Stefánsson um nýja skáldsögu hans Millibilsmaður þar sem segir frá langafa Hermanns, lækninu og skipulagsmanninum Guðmundi Hannessyni, nefndur Jannes G. Jannesson í bókinni og þátttöku hans í bæjarlífi Reykjavíkur þegar fínasta dægradvölin er fundir með framliðnum, helsta deilumálið sambandið við Danmörku og samanburðarmælingar á líkömum fólks líklegasta aðferðin til að efla hreysti og heilsu þjóða. Umsjónarmaður: Jórunn Sigurðardóttir

Ævistarf tengir saman efni þáttarins, auk þess sem Noregur tengir viðmælendur þáttarins sterkt saman. Við byrjum í heimsókn hjá skógarbóndanum Hrefnu Jóhannesdóttur á Silfrastöðum í Skagafirði, en Hrefna ákvað snemma að gera skógræktina að sínu ævistarfi. Því næst kynnumst við organistanum og kórstjórnandanum Torvald Gjerde sem stendur nú á tímamótum eftir að hafa starfað sem organisti við Egilsstaðakirkju í rúm 20 ár. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Vífill Karlsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi sagði frá nýrri könnun sem hann vann ásamt Sigurborgu Kr. Hannesdóttur. Í henni var metið hvaða aðdráttarafl hin ýmsu ólíku samfélög á landsbyggðinni byggju yfir. Áherslan var á að skoða fámenn einangruð samfélög en þau síðan borin saman við fjölmenn samfélög á jaðri höfuðborgarsvæðisins og/eða fjölmenn, fjarlægari og e.t.v. einangraðri samfélög. Í ljós kom að íbúar vítt og breitt um landið hafa ólíkar óskir og þarfir og þess vegna eru samfélögin mjög ólík. Íbúar fámennari og einangraðri samfélaga leggja meira upp úr aðgengi að þáttum eins og fjölbreyttri náttúru og friðsæld á meðan gæði grunnskóla, leikskóla og unglingastarfs toga meira í íbúa á jaðri höfuðborgarsvæðisins. Sigrún Davíðsdóttir fór yfir það helsta varðandi kórónuveirufaraldurinn í Bretlandi, handritastuld og flutning stórfyrirtækisins Shell. Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fjallaði um stöðuna á Bandaríkjaþingi, stöðu Joes Bidens Bandaríkjaforseta og um leið stöðu fyrrverandi forseta landsins, Donalds Trumps. Tónlist: Frostrósir - Diddú og Terem Veldu stjörnu - Ellen Kristjánsdóttir og John Grant Land Of Hope and Dreams - Bruce Springsteen. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Guðrún Hálfdánardóttir.

I am very excited to be back with season 3 of the Make Books Travel podcast. I took a two-month break from recording, one of which I spent on the road, in Europe. I actually had in-person meetings again, and drinks, and dinners, meeting publishers in Amsterdam, at the Frankfurt Book Fair, and in Paris. It was amazing! Today's guest, Stella Soffia Jóhannesdóttir, had the pleasure of hosting one of the few in-person fellowships of this year, back in September, in her capacity as director of the Reykjavík International Literary Festival. Besides this role, she is also acquisitions editor for Storytel in Iceland. I did some homework in preparation for my interview with Stella, and found that Storytel currently has 1.7 million subscribers in 25 markets with around 700,000 titles globally. Those numbers are quite mind-boggling! Stella's book recommendations: - Cemetery of the Sea by Aslak Nore (Aschehoug, Norway; forthcoming in English with MacLehose Press) - The Mark by Fríða Ísberg (Forlagið, Iceland; not yet sold to an English language publisher to date as far as we can tell) - The Snow Sister by Maja Lunde (Kagge, Norway; not yet sold to an English language publisher to date as far as we can tell) About Stella: Stella Soffía Jóhannesdóttir is the director of the Reykjavík International Literary Festival and acquisitions editor for Storytel in Iceland. Prior to working for Storytel, Stella worked in acquisitions for Forlagið. Stella was a part of the team that organized Iceland, Guest of Honour at the Frankfurt Book Fair in 2011 and she has been working for the Reykjavík International Literary Festival since 2009. She lives in Reykjavík, Iceland. Further show notes: - Translation subsidies and travel grants from Iceland: https://www.islit.is/en/grants/ - General information about the fellowship program of the Reykjavík International Literary Festival: https://bokmenntahatid.is/en/reykjavik-fellowship-program-2021/ - Christmas Book Catalogue: bokatidindi.is
Við fengum til okkar Bryndísi Jónu Jónsdóttur aðjúnkt á Menntavísindasviði HÍ, doktorsnemi og núvitundarkennari. Hún talaði um núvitund og hvernig það getur hjálpað okkur til dæmis þegar kemur að uppeldi barnanna okkar. Sem sagt bæði með því að ástunda núvitund sjálf og með því að styðja við núvitund barnanna. Krakkar í 2.-4. bekk á Austurlandi eiga von á skemmtilegri heimsókn því barnaóperusýningin Fuglabjargið fer um Austurland. Það er loks komið að þessu ferðalagi eftir nokkrar frestanir útaf Covid-19. Verkið fjallar um Skrúð, litla eyju við minni Fáskrúðsfjarðar, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir tónskáld verksins, var á línunni í þættinum í dag, en hún er upprunalega frá Fellabæ á Egilsstöðum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Anna Kristín Hannesdóttir, bókasafnsfræðingur á bókasafni Menntavísindasviðs HÍ. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Auk þess flutti hún tvö ljóð sem hún sendi inn í ljóðakeppni Húsfreyjunnar 2018, en annað þeirra sigraði keppnina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Alzheimersamtökin standa fyrir málþingi í tilefni af alþjóðlegum Alzheimerdegi sem er einmitt í dag 21.september 2021. Yfirskrift málþingsins er ?Af hverju ég?? Erfðir ? Rannsóknir ? Greining. Fjallað verður um heilabilun frá mörgum sjónarhornum. Við fengum til okkar í þáttinn þær Sigurbjörgu Hannesdóttur fræðslustjóra Alzheimersamtakanna og Ragnheiði Ríkharðsdóttur formann samtakanna, til þess að segja okkur frá þessu málþingi og því hvað er efst á baugi í dag á alþjóðlega Alzheimerdeginum. Þær miklu tæknilegu umbreytingar sem nú þegar eru farnar að hafa áhrif á daglegt líf okkar munu veita fólki á vinnumarkaði sem og atvinnurekendum ný og spennandi tækifæri. Hinum svokölluðu giggurum fer stöðugt fjölgandi, fólki sem tekur að sér verkefni í takmarkaðan tíma en hverfur svo á vit nýrra viðfangsefna. Eðli starfa og vinnustaða er að gjörbreytast og samband starfsfólks og vinnustaðar mun verða með allt öðrum hætti en áður. Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir kom í þáttinn í dag, en hún er önnur höfunda nýrrar bókar, Völundarhús tækifæranna, sem fjallar um þetta efni en Árelía hefur sérhæft sig í vinnumarkaðsmálum. Bjarni Páll Vilhjálmsson rekur hestamiðstöðina Saltvík í nágrenni Húsavíkur ásamt fjölskyldu sinni. Þaðan hafa verið farnar lengri og styttri hestaferðir árum saman en í sumar ákvað Bjarni að takast á hendur hvorki meira né minna en 57 daga ferð með viðkomu á Ströndum. Þar hitti Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, Bjarna og fékk hann til að segja frá þessari miklu ferð. UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Í þessum tuttugasta þætti, og jafnframt síðasta í þessari fyrstu þáttaröð, ræða Gyða og Anna Margrét um ljóðabækur og bókina Hesta eftir Rán Flyering og Hjörleif Hjartarson. Bækurnar eru allar upplagðar í sumarlesturinn og myndu sóma sér vel í ferðalagi eða á teppi í lautarferð.Ljóðabækurnar sem þær ræða um eru bækurnar Spegilsjónir eftir Guðrúnu Hannesdóttur, Les birki eftir Kari Ósk Grétudóttur, Havana eftir Maríu Ramos og loks ljóðasafn Kristínar Ómarsdóttur. Skúffuskáld á Instagram og FacebookLubbi PeaceSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.
Nú þegar fleiri mega koma saman þá opnast dyrnar fyrir ýmislegt sem ekki hefur verið hægt að gera í talsverðan tíma. Til dæmis hafa húsfundir í húsfélögum að miklu leyti setið á hakanum, en nú eru húsfélög um allt land að vakna úr dvala og víða eru fyrirhugaðar eru framkvæmdir sem mikilvægt er að standa vel að. Við fengum Tinnu Andrésdóttur lögfræðing hjá Húseigendafélaginu til þess að fara aðeins yfir það helsta sem hafa þarf í huga en félagið er að fá mörg mál inn á borð til sín þessa dagana vegna galla á verkum verktaka og galla í fasteignakaupum þar sem hraðinn er mikill núna á fasteignamarkaðnum. Það er sannkölluð sumarbyrjun þegar sumarblómin eru komin á Austurvöll sem alltaf skartar sínu fegursta á þjóðhátíðardaginn 17.júní. Karen Hauksdóttir er skrúðgarðyrkjufræðingur og aðstoðarverkstjóri í hverfastöðinni við Fiskislóð. Hún og starfsfólk hennar hafa verið á fullu við að gróðursetja í beðin við Austurvöll og víðs vegar um borgina, en það eru í kringum 180 tegundir og yrki. Í fyrra var það hvítur litur sem var allsráðandi, við hringdum í Karen og spurðum hvaða litur varð fyrir valinu í ár. Á laugardaginn var ný gönguleið milli Stokkseyrar, Eyrarbakka og Þorlákshafnar formlega opnuð. Leiðin kallast Vitaleiðin og dregur nafn sitt að vitunum þremur, Selvogsvita og Knarrarósvita sem marka upphaf og enda leiðarinnar og svo Hafnarnesvita í Þorlákshöfn. Margrét Blöndal var við vígsluna og fylgdist með þegar klippt var á borðann. Hún talaði við Dagnýju Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Suðrulands, Gunnhildi Hrólfsdóttur og Sigrúnu Klöru Hannesdóttur úr stjórn Vitafélagins, Gísla H. Halldórsson bæjarstjóra Árborgar og Gest. Þór Kristjánsson forseta bæjarstjórnar Ölfuss. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Hreinn Óskarsson, skógræktinni: Stjórnvöld vilja taka svokallaðri Bonn-áskorun í þeim tilgangi að auka landgæði, efla jarðvegsauðlindina og styrkja byggð í landinu. Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, innanhúsarkitekt og lýsingahönnuður: um mikilvægi góðrar lýsingar í mannvirkjum fyrir heilsuna Eva B. Sólan Hannesdóttir, lögfræðingur hjá Umhverfisstofnun: um þyrluumferð í friðlandi Hornastranda

Í Víðsjá í dag verður hugað að sýningunni Haukur og Lilja, tveggja manna leikverki eftir Elísabetu Jökulsdóttur sem frumsýnt verður á fimmtudagskvöld í Ásmundarsal við Freyjugötu. Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um skáldsöguna Dyrnar eftir ungverska rithöfundinn Mögdu Szabó sem kom út í íslenskri þýðingu Guðrúnar Hannesdóttur á síðasta ári. Guðrún hlaut íslensku þýðingaverðlaunin fyrir verkið fyrr á þessu ári. Einnig verður í Víðsjá í dag fjallað um skáldsöguna Nickel-strákarnir eftir bandaríska rithöfundinn Colson Whitehead en hún kemur út á næstu dögum í íslenskri þýðingu Árna Óskarssonar. Whitehead fékk Pulitzer-verðlaunin á síðasta ári fyrir þetta verk sem byggt er á sögu raunverulegs skóla sem var starfræktur í Florida í rúma öld og mótaði líf þúsunda barna. Og í sjónrýni-pistli dagsins fer Ólöf Gerður Sigfúsdóttir á sýningu spænsk-íslenska listamannatvíeykisins Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar ?Töfrafundur ? áratug síðar?, sem nú stendur yfir í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar. Sýningin fjallar um stjórnarskrármálið svokallaða, og hreyfir við áhorfandanum á afar áhrifaríkan hátt með því að færa flókin pólitísk álitamál yfir á hið listræna svið og út til almennings.

"Geðvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnandi syrpunnar er hjúkrunarfræðingurinn dr. Helga Sif Friðjónsdóttir. Geðhjúkrunarfræðingar á Landspítala ræddu í fyrsta þætti Geðvarpsins samskipti í víðu samhengi, ásamt því að segja stuttlega frá bakgrunni sínum. Í þessum öðrum þætti er bráðafasi geðhjúkrunar hins vegar í aðalhlutverki. Í þættinum koma til liðs við Helgu Sif geðhjúkrunarfræðingarnir Ína Rós Jóhannesdóttir deildarstjóri móttökugeðdeildar, Jóhanna G. Þórisdóttir deildarstjóri bráðageðdeildar og og Guðfinna Betty Hilmarsdóttir aðstoðardeildarstjóri bráðageðdeildar. Það er Guðfinna Betty sem leiðir samtalið í þessum þætti.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi upptöku er Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala.SIMPLECASThttps://landspitalihladvarp.simplecast.com/episodes/gedvarpid-02
Fjóla Signý Hannesdóttir frjálsíþróttakona er mætt til okkar í spjall. Við förum hér um víðan völl og ræðum meðal annars um íþróttir, hugarfar sigurvegarans, vefjagigt, mikilvægi svefns, áföll og áfallavinnu, æskuna og mikilvægi þess að finna það að maður skipti máli. Í viðtalinu lýsir Fjóla meðal annars hvernig frjálsar íþróttir í raun veru breyttu lífi hennar til hins betra á nánast einu augnabliki
Í öðrum þætti spjallar Alma við Harald Ara Karlsson um líf hans og störf. Síðan fáum við að heyra stutt viðtal við hjónin frá Vesturhúsum þau Magnús Guðmundsson og Jórunni Hannesdóttur sem tekið var á árunum 1953/1954 af Vestmannaeyja félaginu Heimaklettur.
Að gefnu tilefni verður í Víðsjá í dag rifjuð upp tilkoma einhvers frægasta kvikmyndadúós allra tíma, félaganna og erkióvinanna Tomma og Jenna. Farið verður í heimsókn til Guðrúnar Hannesdóttur rithöfundar sem tók við Íslensku þýðingaverðlaununum á Gljúfrasteini á laugardag, fyrir þýðingu sína á skáldsögunni Dyrnar eftir ungverska rithöfundinn Mögdu Szabó. Það var Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sem afhenti verðlaunin en alls voru sjö bækur tilnefndar að þessu sinni. Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár fjallar í dag um leikritið Sölumaður deyr sem Borgarleikhúsið frumsýndi um helgina í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Og tónlistarhornið heyrandi nær verður á sínum stað í Víðsjá á mánudegi. Að þessu sinni tekur Arnljótur Sigurðsson tvö lög tvisvar fyrir, fer í kúrekaleik með Andy Warhol og fylgir hlustendum á slóðir frumbyggja Norður-Ameríku.

Grjónagrautur er einfaldur matur, bara hrísgrjón soðin í mjólk, samt sem áður flækist þetta ferli fyrir svo mörgum. Hann tengir okkur við jólin, grenjandi svöng börn, fjölskyldur, mömmur, ömmur, hefðir og hatur. Í þættinum er rætt um fyrirbrigðið grjónagraut og skoðuð eru áhrif hans á tilfinningar og tengsl manna. Umsjón hefur Aðalbjörg Árnadóttir Viðmælendur eru: Sólveig Ólafsdóttir, sagnfræðingur, Saga Sólrún Hannesdóttir, Hannes Óli Ágústsson, Jón Gunnar Ólafsson, Oddný Helgadóttir, Kristín Ólína Kristjánsdóttir, Unnur Skúladóttir, Ástbjörg Rut Jónsdóttir, Þóra Árnadóttir, Beinta K. Clothier, Baerbel Schwarz og Gunvor Reynberg.

Víðsjá er í dag, eins og aðra fimmtudaga á aðventunni, helguð nýjum bókum. Rithöfundar koma í heimsókn, ræða málin og lesa úr verkum sínum. Á meðal gesta í þættinum í dag eru Guðrún Hannesdóttir, Ófeigur Sigurðsson, Þóra Karítas Árnadóttir og Þórdís Gísladóttir. Bókarýnin verður á sínum stað, Gauti Kristmannsson bókmenntagagnrýnandi þáttarins fjallar í dag um skáldsöguna Strendinga: Fjölskyldulíf í sjö töktum eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson

Fjallað um bók vikunnar, Dyrna eftir ungverska rithöfundinn Madga Szabo, í þýðingu Guðrúnar Hannesdóttur. Umsjón: Auður Aðalsteinsdóttir.

Víðsjá minnist í dag Jóhanns Hjálmarssonar skálds og gagnrýnanda en hann andaðist í síðustu viku, áttatíu og eins árs að aldri. Jóhann gaf á sínum tíma út átján ljóðabækur, sú fyrsta, Aungull í tímann, kom út árið 1956, þegar Jóhann var aðeins sautján ára gamall. Jóhann var mikilvirkur ljóðaþýðandi og starfaði sem menningarblaðamaður á Morgunblaðinu áratugum saman. Hlustendur heyra brot úr viðtölum við Jóhann í þættinum í dag, auk upplestra, en einnig er rætt við rithöfundinn Jón Kalman Stefánsson um höfundarverk Jóhanns. Einnig verður í þættinum í dag farið í Hamraborgina í Kópavogi þar sem gallerí Midpunkt er til húsa. Í galleríinu hafa þau Ragnheiður Sigurðardóttir og Snæbjörn Brynjarsson síðastliðin tvö ár miðað að því að færa listina nær fólkinu, nær hversdagsleikanum. Rætt verður við Ragnheiði um rekstur listrýmis í Kópavogi og sýningin Secret Services, leyniþjónustan, skoðuð, en þetta er fyrsta einkasýning Rúnars Arnar Jóhönnu- og Marínóssonar. Og bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni kemur frá Ungverjalandi. Það er skáldsagan Dyrnar eftir ungverska rithöfundinn Mögdu Szabó sem kom út fyrr á þessu ári í íslenskri þýðingu Guðrúnar Hannesdóttur. Þetta er óvenjuleg og áleitin saga um samband tveggja kvenna, bók sem vakti gríðarlega athygli þegar hún kom fyrst út árið 1987, hefur verið þýdd á mörg tungumál, og hlotið verðskuldað lof og verðlaun. Bókin var meðal annars kjörin ein af tíu bestu bókum ársins 2015 af bandaríska stórblaðinu The New York Times. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson

Sólborg Guðbrandsdóttir hefur haldið fyrirlestra í skólum um allt land sem hún kallar fávitafræðslu. Í þeim, eins og á Instagram síðunni Fávitar, sem er með rúmlega 30 þúsund fylgjendur, hefur hún talað við nemendur á unglingastigi um kyn- og kynlífsfræðslu, frætt þau um kynhneigð, getnaðarvarnir, óléttu, blæðingar, kynsjúkdóma, mörk, lög um kynferðisofbeldi og margt fleira. Hún segir að unglingarnir hafi ótal spurningar sem þau fá ekki svör við um þessi mikilvægu málefni. Nú er komin út bókin Fávitar, þar sem Sólborg leitast við að svara fjölda spurninga frá íslenskum ungmennum, hún kom til okkar í dag og sagði okkur meira frá þessu. Saga formæðra þinna er líka sagan þín, er heiti á námskeiði helgað sögum formæðra í umsjón Sigurborgar Kr. Hannesdóttur og Sigurbjargar Karlsdóttur. Hver og einn þátttakandi velur sér sögu einnar formóður til að vinna með og byggir á þeirri þekkingu sem hann hefur um hana. Sumir hafa litla vitneskju um líf formóðurinnar, aðrir mikla. Ef efniviðurinn er lítill, fá þáttakendur hjálp við að finna upplýsingar um aðstæður kvenna í sambærilegri stöðu og þeim er leiðbeint í að nálgast slíkar upplýsingar. Sigurbjörg Karlsdóttir var í símaviðtali í þættinum í dag. Sum börn eru orkideur og önnur eru túnfíflar. Þessi líking er stundum notuð í barnageðlækningum og foreldrum líkt við garðyrkjumenn eða smiði. Á heilsuvaktinni í dag fjöllum við um geðheilsu barna og ungmenna ekki síst þeirra sem stundum eru nefnd gleymda fólkið. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Önnu Maríu Jónsdóttur, barna og unglingageðlækni í Heilsuvaktinni í dag. UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Í þættinum er rætt við Guðrúnu Hannesdóttur ljóðskáld um ljóðbók hennar Spegilsjónir sem kom út síðsumars hjá bókaútgáfunni partus. guðrún les nokkur ljóð úr bókinni, „lúðurhljómur“; „leiðarvísir“; „afsökunarbréf til Jónasar“; „hér“ og titilljóðið „ spegilsjónir“. Einnig er sagt frá tilnefningum Svía til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020 sem eru skáldsagan W eftir Steve Sem-Sandberg sem fjallar um fótgönguliðann Woyseck sem árið 1821 varð ástkonu sinni að bana og síðar dæmdur til að hálshöggvast.Enn þann dga í dag eru réttarskjöl þessa máls aðgengileg og þau notfærði Steve Sem-Sandberg sér við gerð skáldsögu sinnar líkt og þýska leikritaskáldið Georg Büchner gerði við skrif leikrits síns Woyzeck tvö hundruð árum fyrr. Sagt er frá þessum viðamikla þætti fótgönguliðans Woyzecks í mennningarsögunni, einkum þó bók Steves Sem-Sandbergs. Hin bókin sem Svír tilnefna er í raun tvær bækur, tvöföld ljóðabók ljóðskáldsins Johann Jönson marginalia/exterminalia.Í þættinum er rætt við Eirík Örn Norðdahl ljóðskáld sem þekkir vel til sænskrar ljóðlistar og aukin heldur Johan Jönsson. Lesin eru brot úr báðum þessum verkum sem Svíar tilnefna. Lesari: Jóhannes Ólafsson

Í þættinum er rætt við Guðrúnu Hannesdóttur ljóðskáld um skáldsöguna Dyrnar eftir ungversku skáldkonuna Magda Szabó (1917-2007) sem er nýkomin út hjá dimmu í þýðingu Guðrúnar. Einnig rætt við Ísak Harðarson en þýðing hans á annars vegar skáldsögunni Elda björn eftir Mikael Niemi og hinsvegar Sumarbókinni eftir Tove Janson komu nýlega út hjá Forlaginu.

Í þættinum er rætt við Guðrúnu Hannesdóttur sem nú hefur þýtt tvær bækur um Dinnu. Þetta eru bækurnar Hamingjudagar og Hjartað mitt skoppar og skellihlær eftir Rose Lagercrantz með teikningum eftir Evu Eriksson. Þá er endurflutt umfjöllun um bókina Ráðuneyti æðstu hamingju eftir Arundhati Roy sem var áður á dagskrá fyrir réttum tveimur árum og rætt við Árna Óskarsson þýðanda bókarinnar. Einnig rætt við Steinunni Sigurðardóttur skáld en bók hennar Ein á forsetavakt sem kom upphaflega út árið 1988 hefur nú verið endurútgefin í tilefni að níutíu ára afmæli Vigdísar. Að lokum flytur Sigurlín Bjarney Gísladóttir ljóð sitt Arfur. Umsjón: Jórunn Sigurðardóttir.

Hönnunarmars er stærsta hátíð Reykjavíkurborgar á þessum árstíma. Mikill fjöldi viðburða fer fram, og fjöldi erlendra þáttakenda og gesta skiptir hundruðum svo eitthvað sé nefnt. Nú hefur hins vegar verið ákveðið, í ljósi aðstæðna, að fresta hátíðinni fram í júní. Við heyrðum í Höllu Helgadóttur framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar og spurðum hvernig maður fer að því að færa til jafn viðamikla dagskrá. Mette Frederikssen forsætisráðherra Danmerkur tilkynnti á blaðamannafundi í gærkvöldi að allt skólastarf í landinu yrði lagt niður í hálfan mánuð og að mikill meirihluti ríkisstarfsmanna yrði heima. Söfn og menningarstofnanir loka jafnframt. Útbreiðsla Covid-19 hefur aukist hratt í Danmörku síðustu daga og danska ríkisstjórnin vill bregðast við með afgerandi hætti. Þá er samkomubann á alla viðburði þar sem reikna má með fleiri en 100 manns. Þórhallur Jónsson býr og starfar í Kaupmannahöfn og hann var á línunni. Alma Möller landlæknir sat fyrir svörum hjá okkur í síðustu viku og í gær var Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir í Síðdegisútvarpinu í sama hlutverki. Í dag fengum við svo til okkar Víði Reynisson yfirlögregluþjón hjá embætti Ríkislögreglustjóra og hann svaraði spurningum hlustenda. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, var á línunni hjá okkur en bandalagið hefur látið kanna meðal almennings hversu mikið fólk veit í raun og veru um kjör öryrkja. Út úr því komu forvitnilegar niðurstöður sem við heyrðum af í þættinum. Áætlað er að á Íslandi séu um 5000 manns með heilabilun og Alzheimer samtökin standa nú fyrir átaksverkefni og vitundarvakningu undir nafninu Heilavinir þar sem markmiðið er að safna 5000 vinum, eða a.m.k. einum fyrir hvern þann sem er greindur. Sigurbjörg Hannesdóttir fræðslustjóri Alzheimersamtakanna var á línunni og sagði okkur meira um Heilavini og þeirra hlutverk. Anna Sigríður Þráinsdóttir ræddi íslenskt mál að venju og að þessu sinni voru peningar til umræðu. Tónlist: Sigurður Guðmundsson - Þitt auga. Klassart - Linda. Valdimar og Helgi Júlíus - Þú ert mín. Sváfnir Sig - Fer sem fer. Sting - Brand new day. Guðmundur R og Bubbi - Perla. Oscar Leone - Take the seasons. Daði og Gagnamagnið - Think about things.

Það er áætlað að á Íslandi séu um 5000 manns með heilabilun Alzheimersamtökin eru með fræðsluverkefni varðandi heilabilun og erum að virkja alla landsmenn til að vinna markvisst í að mæta þörfum fólks með heilabilun og aðstandendum þeirra. Með þessu fræðsluverkefni er áætlunin einnig að minnka fordóma sem fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra mæta í samfélaginu og auka fræðslu og vitund fólks um heilabilunarsjúkdóma. Við heyrðum í Sigubjörgu Hannesdóttur, fræðslustjóra Alzheimersamtakanna og verkefnastjóra Heilavina í þættinum í dag, hægt er að fá fræðslu og skrá sig sem heilavin á www.heilavinur.is. Við heyrðum í Ingu Dagnýju Eydal í þættinum, en það er nýútkomin bók eftir hana sem heitir Konan sem datt upp stigann. Þar fjallar hún á opinskáan og einlægan hátt um þær afleiðingar sem hún glímdi við eftir að hafa veikst af of mikilli streitu og ekki getað stundað fasta vinnu síðan hún hætti í erilsömu starfi sem hjúkrunarfræðingur. Árið 2019 kom út hjá Vestfirska forlaginu bókin Er það hafið eða fjöllin? um Flateyri og fólkið þar, eftir þjóðfræðinginn Sæbjörgu Freyju Gísladóttur. Sæbjörg kom í heimsókn í Hveravík á Selströnd til að selja húsráðendum þar Kalksalt en Sæbjörg og eiginmaður hennar Eyvindur Atli Ásmundsson eiga og reka samnefnt fyrirtæki. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, ræddi við Sæbjörgu um kalksaltið, snjóflóðin á Flateyir og Súgandafirði og bókina. UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Heiða Björg er tónlistarkona og múskiþerapisti og hún segjst vinna alltaf í lausnum og ali börnin sín þannig upp.

Halla Margrét lýsir því brosandi þegar trúðurinn hennar fæddist, hún segir að ZA-RA sé stjórnsöm en vilji eins og flestir tilheyra og vera með. Halla Margrét lék í trúðasýngunni um Dauðasyndirnar sjö í Borgarleikhúsinu en sýningin sló í gegn. Halla Margrét segir einnig frá í þættinum þegar hún fékk brjóstakrabbamein sem skorið var í burtu og hún tók þá ákvörðun að fara óhefðbundnar leiðir til lækningar og lýsir öllu þviferðalagi. Hún fór í meistarnám í ritlist, er að gefa út sína aðra ljóðabók og heldur námskeið í skapandi skrifum ásatm Soffíu Bjarnadóttur.

Gestur þáttarins er Telma Huld Jóhannesdóttir leikkona, en hún hefur leikið í myndum á borð við webcam og Eden. Umsjón: Tómas Valgeirsson.
Nýverið var opnuð kortasjá um aftökur á Íslandi á slóðinni dhd.hi.is. Kortasjáin er afrakstur verkefnisins Dysjar hinna dæmdu en markmið þess er að leita upplýsinga um þá einstaklinga sem teknir voru af lífi hérlendis tímabilið 1550–1830. Kortasjáin sýnir nöfn þeirra 248 einstaklinga sem þá voru dæmdir til dauða en einnig heimabæi þeirra, aftökustaði, kyn, aldur, brot og dóma. Við ræddum við þrjá aðstandendur verkefnisins, þau Sigrúnu Hannesdóttur, Ómar Val Jónasson og Steinunni Kristjánsdóttur.
Hvað verður til þess að ungur lögfræðingur í Reykjavík ákveður að sækja um sveitarstjórastöðu á Norðurlandi vestra.Alexandra Jóhannesdóttir sveitarstjóri á Skagaströnd tók þá ákvörðun, fékk starfið og fluttist norður. Hún segir okkur frá störfum sveitarstjóra og hvernig hún kann við sig á Norðurlandi vestra.
Stefán Árnason þjálfari KA, Arnar Þór Fylkissin og Patrekur Stefánsson leikmenn Akureyrar Handboltafélags og Ágústa Kristinsdóttir og Hulda Björg Hannesdóttir leikmenn Þór/KA í knattspyrnu eru gestir Skúla Braga að þessu sinni. Stefán Árnason stýrði liði KA í handbolta til sigurs í fyrsta leik liðsins í Olís deildinni og það í stórleiknum um bæinn á móti Akureyri. Montrétturinn þessa dagana liggur því hjá KA mönnum. Arnar Þór Fylkissin og Patrekur Stefánsson ungir leikmenn Akureyrar Handboltafélags mættu þá einnig í settið til að ræða tímabilið sem er framundan. „Deildin er náttúrlega unreal núna. Hún hefur aldrei verið betri!“ Þór/KA spilaði einn stærsta leik sem spilaður hefur verið á Þórsvellinum, þegar að þær mættu stórliði Vfl Wolfsburg í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þær Ágústa Kristinsdóttir og Hulda Björg Hannesdóttir mættu því í lok þáttar til þess að ræða aðdragandann. „Eins og flestir vita þá sitjum við í vörutalningum, seljum klósettpappír og annað til þess að fá að spila þessa leiki, sem er náttúrlega bara galið. En mér finnst ótrúlega gaman hversu margir eru að stíga upp og hjálpa okkur.“
Haukur Ingvarsson verðlaunaljóðskáld er uppalinn í Hafnarfirði þar sem hann hlaut bókmenntauppeldi frá gamalli nágrannakonu sinni. Hauki er afar umhugað um náttúruvernd en í ljóðabók hans Vistarverur, sem hlaut rífandi viðtökur í síðasta jólabókaflóði, dregur hann upp dystópíska mynd af framtíðarsamfélagi þar sem stutt er á milli hláturs og hryllings. Hann á tvo unga syni og segir að hann grípi stundum skelfing þegar hann leyfir sér að velta fyrir sér hvaða framtíð bíði þeirra. Hann er að leggja lokahönd á doktorsverkefni sitt um áhrif bandaríska skáldsagnahöfundarins William Faulkner á Íslandi og segist trúa á ævintýrin. Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona fór í íþróttakennaranám eftir að hún útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík. Hún er forfallinn ABBA aðdáandi og tók nýlega lagið á sviði í ABBA safninu í Stokkhólmi fyrir engan nema sjálfa sig og gáttaðan starfsmann safnsins. Hún er miðjubarn, ljóðskáld og gjörningalistamaður og er um þessar mundir að setja saman ritlistarnámskeið fyrir áhugasama byrjendur í skapandi skrifum. Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir

Reykjavík síðdegis, fimmtudaginn 20. júní 2019. Viðmælendur dagsins: Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri hjá Íslandsbanka, um hvort sé skynsamlegra að leigja eða kaupa. Inga Lóa Hannesdóttir, kennari, og Guðrún Hafsteinsdóttir um erfiðleika við að komast í iðnnám. Páll Winker, fangelsismálastjóri, um ný lög um kynrænt sjálfræði. Tryggvi Hjaltason, yfirmaður greiningadeildar CCP, um stórbætt lífsgæði við það eitt að flytja út á land. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, um stöðu veitingahúsa og hótela hér á landi. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus um mannanafnalög. Líneik Anna Sævarsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, um auðkennaþjófnað.
Ferðahandbókin Lonely Planet, sem er ein sú vinsælasta í heimi, hefur valið norðurstrandaleið inn á topp tíu lista yfir áhugaverða áfangastaði. Norðurstrandaleið verður opnuð í næsta mánuði, en um er að ræða tæplega 900 km langa ferðamannaleið sem nær frá Hvammstanga að Bakkafirði og fer í gegnum 17 sveitafélög. Arnheiður Jóhannsdóttir, framvkæmdastjóri markaðsstofu Norðurlands, sagði okkur frá þessu. Guðmundur Jóhannsson mætti í tæknispjall á öðrum tíma en vanalega, en hann fjallaði m.a. um Minecraft og snjallhátalara frá Ikea. Við fengum systur í heimsókn. Ja... ekki eiginlegar systur en félaga í félaginu /sys/tur sem er félag stelpna í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. Í dag taka þær á móti um þúsund stelpum úr 9. bekk, hér í Reykjavík og í gær tóku 200 stelpur þátt á Akureyri. Hugrún Hannesdóttir, formaður /sys/tra, og Þórunn Hilda Jónasdóttir, viðburðastjóri HR, kíktu til okkar. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir koma til greina að segja upp nýundirrituðum kjarasamningi við SA vegna vanefnda. Í yfirlýsingu Eflingar segir að hópuppsagnir hótelstjórans Árna Vals Sólonssonar á launakjörum starfsfólks sín í framhaldi af lífskjarasamningnum, séu blaut tuska í andlit félagsmanna Eflingar sem hafi samið í góðri trú. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, ræddi þetta við okkur. Við heyrðum í Gylfa Ásmundssyni, formanni Bílstjórafélags Akureyrar. Hann segir að verði nýtt frumvarp að lögum verði ómögulegt að framfleyta sér af leigubílaakstri fyrir norðan. Samkvæmt frumvarpinu verður akstur leigubifreiða gefinn frjáls en það liggur nú í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Tónlist: Grafík - Komdu út. Utangarðsmenn - Kyrrlátt kvöld. Mark Ronson og Lykke Li - Late night feelings. Haukur Morthens - Kaupakonan hans Gísla í Gröf. Auður - Ósofinn (ft. GKR). Cell 7 - City lights. Fine young cannibals - I'm not the man I used to be. Lifun - Hörku, djöfuls, fanta ást. Stevie Wonder - Yester-Me, Yester-You, Yesterday. Faith no more - Easy. Lily Allen - Not fair.
Efni Lestarinnar í dag: Undanfarna daga hafa tónlistarfjölmiðlar um allan heim verið að gera upp árið og birta lista yfir þær plötur og útgáfur sem hafa staðið upp úr á árinu 2018. Í Lestinni í dag verður rennt yfir árslistana og skoðað hvaða plötur og listamenn skjóta upp kollinum hvað víðast, bestu poppplötur ársins 2018. Í þættinum í dag verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum einhverra hluta vegna að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Sigurbjörgu Þrastardóttur rithöfundi, hún velur bók og rökstyður val sitt. Áslaug Torfadóttir fjallar um bresk-bandarísku sjónvarpsþættina Little Drummer Girl sem byggja á samnefndri skáldsögu eftir breska rithöfundinn John le Carré, og hlotið hafa góðar viðtökur. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
Í þættinum er flett í allmörgum ný og nýlega útkomnum ljóðabókum m.a. Ellefta snert af yfirsýn eftir Ísak Harðarson, lesið brot úr einu ljóðanna;Að ljóði muntu verða eftir Steinunni Sigurðardóttur. Það heyrsist í Steinunni svara spurningu Soffíu Auðar Birgisdóttur bókmenntafræðings um það hvort þessi bók sé persónulegasta ljóðabók Steinunnar. Steinunn les ljóðið Kínversk tvenna. Einnig minnst á nýtt úrval ljóða Sigurðar Pálssonar og Inngvar E. Sigurðsson les ljóðið Húsið mitt sem er í bókinni. Þá er stuttlega sagt frá ljóðabókinni Sálumessa eftir Gerði Kristnýju og lesið brot úr bálknum. Í þættinum einnig rætt við Arngunni Árnadóttur klarinettuleikara og rithöfund um nýja ljóðabók hennar Ský til að gleyma og við Guðrúnu Hannesdóttur um nýja ljóðabók hennar Af þessum heimi. Báðar lesa þær nokkur ljóð úr bókum sínum.

Við lítum inn á sýninguna Skúlptúr/Skúlptúr í Gerðarsafni í Kópavogi og hittum þar fyrir Klöru Þórhallsdóttur sýningarstjóra og listakonuna Áslaugu Írisi Katrínu Friðjónsdóttur. Mæðgurnar Anna Þóra Steinþórsdóttir og Erna Kanema verða einnig gestir þáttarins. Þær segja frá heimildarmyndinni Söngur Kanemu sem hlaut fyrstu verðlaun á heimildarmyndahátíðinni Skjaldborg í sumar, og sem verður frumsýnd á morgun í Bíó Paradis. Og við kynnum til leiks nýjan pistlahöfund Víðsjár, Ragnar Ísleif Bragason. Hann flytur okkur pistil dagsins, sem að þessu sinni er saga af litlum strák. Guðrún Hannesdóttir, skáld og bókasafnsfræðingur, segir okkur frá Salamöndrustríðunum eftir Karel Capek í þýðingu Jóhannesar úr Kötlum. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Nanna Katrín Hannesdóttir, BA nemi í heimspeki, úr bréfi sem Þórunn Ástríður Björnsdóttir, þá búsett á Tjarnargötu 8.b sendi móður sinni Kristrúnu Eyjólfsdóttur, húsfreyju í Gröf. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Fyrirlestur sem Guðbjörg R. Jóhannesdóttir flutti á ráðstefnunni Pálsvaka 2018, laugardaginn 21. apríl 2018.
Efni Lestarinnar: Á dögunum var fjallað um dauða rokksins Í Lestinni. Nú hafa þrjár stelpur sparkað svo fast í líkið að það rumskar svo um munar, það er bresk-íslenska hljómsveitin Dream Wife sem á dögunum gaf út sína fyrstu breiðskífu sem er samnefnd sveitinni. Platan hefur komið þeim á forsíðu breska blaðsins NME, sem segir að hljómsveitin sé ein þeirra sveita sem muni „eiga“ árið 2018. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Dream Wife í Lestinni í dag. Og hraðlestin verður á sínum stað á föstudegi. Á meðal gesta í henni verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, Jón Ólafsson heimspekingur, Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri, ofurhetjan She-Ra, Gunnar Theodór Eggertsson, og rithöfundarnir Halldór Armand Ásgeirsson og Soffía Bjarnadóttir. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson