Umræðan

Follow Umræðan
Share on
Copy link to clipboard

Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu Landsbankans, birtist fjölbreytt umfjöllun um efnahagsmál, fjármál einstaklinga, og fleira.

Landsbankinn


    • Mar 14, 2025 LATEST EPISODE
    • infrequent NEW EPISODES
    • 28m AVG DURATION
    • 66 EPISODES


    Search for episodes from Umræðan with a specific topic:

    Latest episodes from Umræðan

    Pallborð

    Play Episode Listen Later Mar 14, 2025 25:49


    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviðaFundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

    samtaka komum
    Lilja Teitur Kashif

    Play Episode Listen Later Mar 14, 2025 20:43


    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviðaFundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

    Ingólfur Bender

    Play Episode Listen Later Mar 14, 2025 11:26


    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviðaFundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

    Lilja Björk Einarsdóttir

    Play Episode Listen Later Mar 14, 2025 11:07


    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviðaFundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

    Teitur Samuelsen

    Play Episode Listen Later Mar 14, 2025 25:31


    Komum hreyfingu á hlutina - fjármögnun og uppbygging innviðaFundur Landsbankans og Samtaka iðnaðarins um fjármögnun og uppbyggingu innviða var haldinn í Norðurljósasal Hörpu 13. mars 2025.

    Verðbólga þokast niður og vextir lækka

    Play Episode Listen Later Feb 6, 2025 20:26


    Verðbólga hefur hjaðnað á síðustu mánuðum og vextir þokast niður á við. Viðnámsþróttur hagkerfisins virðist samt þó nokkur og segja má að hagkerfið stefni í átt að mjúkri lendingu. Óvissa í heimshagkerfinu hefur þó magnast á síðustu vikum og Ísland er í viðkvæmri stöðu gagnvart hnökrum á alþjóðaviðskiptum.Hagfræðingar greiningardeildar bankans stikla á stóru um efnahagsmál í nýjasta þætti Umræðunnar.

    umr hagfr
    Vextir þokast niður í takt við væntingar

    Play Episode Listen Later Nov 22, 2024 21:22


    Stýrivextir voru lækkaðir um 0,5 prósentustig á miðvikudaginn og peningastefnunefnd hittist ekki aftur fyrr en í febrúar. Ef verðbólga hjaðnar í takt við spár má gera ráð fyrir að raunvextir hækki um heilt prósentustig á næstu þremur mánuðum. Áfram er verðbólga þó langt yfir markmiði og vextir himinháir, og ýmsir óvissþættir kunna að setja strik í reikninginn.Hagfræðingar í Greiningardeild Landsbankans stikla á stóru um stöðuna í efnahagsmálum í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.

    Það helsta úr nýrri hagspá

    Play Episode Listen Later Oct 17, 2024 27:36


    Horfurnar eru nokkuð bjartar, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans, þrátt fyrir lítils háttar samdrátt á þessu ári. Með hjaðnandi verðbólgu og auknum slaka á vinnumarkaði skapast svigrúm til áframhaldandi vaxtalækkana sem blása lífi í hagkerfið.Hagfræðingar Greiningardeildar bankans ræða hagspána í nýjasta þætti Umræðunnar.

    umr landsbankans hagfr
    Hæg kólnun og harður tónn

    Play Episode Listen Later Aug 23, 2024 23:34


    Eftir heilt ár af óbreyttu vaxtastigi virðist enn bið eftir að hægt verði að slaka á aðhaldinu. Verðbólga færðist lítillega í aukana í sumar, íbúðaverð hefur haldið áfram að hækka og kortavelta landsmanna hefur aukist milli ára að raunvirði. Staðan er snúin og væntingar um verðbólguþróunina eru enn langt yfir markmiði.Þetta er á meðal þess sem er til umræðu í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.

    Þarftu að endurfjármagna?

    Play Episode Play 40 sec Highlight Listen Later Jun 12, 2024 24:32


    Fjölmargir lántakendur standa frammi fyrir því að fastir vextir á íbúðalánum þeirra eru að losna og horfa fram á að taka ákvörðun um hvað skuli gera næst. Í þætti Umræðunnar förum við yfir stöðuna, hvernig endurfjármögnun virkar og kynnum nýja lausn í appinu sem gerir endurfjármögnun þægilegri.

    Aukin verðbólga og 4% samdráttur

    Play Episode Listen Later Jun 4, 2024 19:17


    Verðbólga var umfram spár í maí og jókst milli mánaða. Hagkerfið dróst saman um 4% á fyrsta ársfjórðungi og þar með varð samdráttur í fyrsta sinn síðan í byrjun árs 2021.Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir, Hjalti Óskarsson og Una Jónsdóttir ræða stöðuna í efnahagsmálum í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.

    Þrautseigt hagkerfi við háa vexti

    Play Episode Play 15 sec Highlight Listen Later May 3, 2024 23:10


    Hagfræðideild spáir því í nýrri hagspá að enn sé þó nokkur bið eftir fyrstu vaxtalækkun. Verðbólgan hjaðni smám saman á næstu árum og efnahagsumsvif aukist eftir því sem vextir lækka.Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir, Hjalti Óskarsson og Una Jónsdóttir ræða hagspána í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar. 

    Lengist biðin eftir vaxtalækkun?

    Play Episode Listen Later Mar 21, 2024 21:18


    Seðlabankinn hélt vöxtum óbreyttum á miðvikudag og sló harðari tón en búist var við. Markaðsaðilar gerðu flestir ráð fyrir að vaxtalækkunarferli gæti hafist í maí, en lengist biðin kannski fram í haust? Hvað þarf að gerast áður en hægt verður að slaka á taumhaldinu?

    Stormasamt stjórnmálaár og varkár vaxtalækkun

    Play Episode Listen Later Feb 15, 2024 31:59


    James Ashley, forstöðumaður markaða og stefnumála í Goldman Sachs, er gestur í nýjasta þætti Umræðunnar. Hann ræðir efnahagshorfur í heiminum, óvissuþætti í tengslum við komandi kosningar í Bandaríkjunum og ólgu í alþjóðastjórnmálum.Karítas Ríkharðsdóttir, sérfræðingur í Samskiptum, stýrir þættinum og með henni er Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur.

    Vaxtalækkun ólíkleg þótt verðbólga hjaðni

    Play Episode Listen Later Feb 2, 2024 21:25


    Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vöxtum verði haldið óbreyttum í næstu viku. Þótt verðbólguhorfur hafi batnað stígi peningastefnunefnd varlega til jarðar, ekki síst í ljósi óvissu í tengslum við náttúruhamfarir og kjaraviðræður.Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson ræða meðal annars vaxta- og verðbólguhorfur í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.

    umr hjalti landsbankans hagfr
    Íbúðaverð á uppleið en hægir á hagvexti

    Play Episode Listen Later Dec 8, 2023 18:12


    Verðbólguhorfur hafa versnað lítillega á síðustu vikum. Seðlabankinn hefur haldið stýrivöxtum óbreyttum í vetur, íbúðaverð er aftur á uppleið en hagvöxtur er mun minni en í upphafi árs. Hagfræðideildin ræðir þetta og fleira í nýjasta hlaðvarpsþættinum.

    aver hagfr
    Spjall um spá: Hagkerfi í leit að jafnvægi

    Play Episode Listen Later Oct 19, 2023 20:17


    Hófstilltur hagvöxtur, háir vextir og hjaðnandi verðbólga. Þetta er á meðal þess sem einkennir efnahaginn næstu ár, samkvæmt nýrri hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Í nýjasta þætti Umræðunnar ræða hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson efnahagshorfurnar og fara yfir það helsta úr spánni. 

    leit umr spjall hjalti landsbankans hagfr
    Rými til bætinga í fjármálum ungs fólks

    Play Episode Listen Later Jun 27, 2023 34:02


    Fjármál ungs fólks hafa verið sérstaklega til umfjöllunar hjá fræðsludeild Landsbankans að undanförnu.Helgi Teitur Helgason, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbankans, og Guðrún H. Bjarnadóttir, sérfræðingur í viðskiptalausnum, ræða við Karítas Ríkharðsdóttur um hvað gögn bankans segja um fjárhagsstöðu ungs fólks.Meðal annars kemur fram að nokkuð sé um að ungt fólk geymi háar fjárhæðir á veltureikningum og að ungir karlar fjárfesti í hlutabréfum í meiri mæli en ungar konur. Þá eru ungar konur síður skráðar einar fyrir fasteignalánum.

    Hagvöxtur, spenna á vinnumarkaði og þrálát verðbólga

    Play Episode Listen Later Jun 13, 2023 15:10


    Fjölgun ferðamanna og aukin einkaneysla eru á meðal þeirra þátta sem halda uppi hagvexti. Laun hafa hækkað, enda spenna á vinnumarkaði og skortur á starfsfólki. Þrátt fyrir háa vexti kyndir kröftug eftirspurn undir verðbólgu, sem þó vonandi er á niðurleið.Hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson spjalla um þetta og ýmislegt fleira í nýjasta þætti Umræðunnar.

    Nýtt hús Landsbankans - Frá samkeppnistillögu til vinnustaðar

    Play Episode Listen Later May 16, 2023 36:16


    Landsbankinn bauð fólki nýlega í fyrsta sinn í nýtt húsnæði sitt við Reykjastræti á viðburði í tengslum við HönnunarMars. Viðburðirnir voru vel sóttir og ljóst að mikill áhugi er á hönnun og virkni hússins.Í þættinum ræðir Karítas Ríkharðsdóttir við Halldóru Vífilsdóttur, framkvæmdastjóra arkitektastofunnar Nordic og verkefnastjóra nýbyggingarinnar, Helga Mar Hallgrímsson arkitekt hjá Nordic og Jonas Toft Lehmann, arkitekt og partner hjá dönsku arkitektastofunni CF Möller, um hugmyndafræði hússins frá samkeppnistillögu að raunverulegum vinnustað, áskoranir og árangur.

    nordic kar halld landsbankans landsbankinn
    Hagspá 2023-2025: Góðar hagvaxtarhorfur þótt hægi á

    Play Episode Listen Later Apr 25, 2023 22:38


    Útlit er fyrir ágætis hagvöxt næstu ár þótt hægi á hagkerfinu, samkvæmt nýrri hagspá Hagfræðideildar. Ferðamönnum fjölgar og einkaneysla eykst áfram, en allt í skugga þrálátrar verðbólgu. Vextir hækka áfram og byrja ekki að lækka fyrr en á næsta ári.Hagspáin er til umræðu í nýjasta hlaðvarpsþættinum þar sem Una Jónsdóttir, Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson fara yfir helstu atriðin.

    Netsvik - Dæmi um að fólk tapi tugum milljóna

    Play Episode Listen Later Mar 29, 2023 26:23


    Netsvik hafa sótt verulega í sig veðrið að undanförnu og eru dæmi um að tugir milljóna hafi verið sviknir út úr einstaklingum og fyrirtækjum. Viðbragð við netsvikum er orðinn hluti af daglegri starfsemi Landsbankans.Í þættinum ræðir Karítas Ríkharðsdóttir við Brynju Maríu Ólafsdóttur, sérfræðing í regluvörslu, og Arinbjörn Ólafsson, framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs, um netsvik og varnir og viðbrögð við þeim.

    tapi kar millj landsbankans
    Stýrivaxtaspá og versnandi verðbólguhorfur

    Play Episode Listen Later Mar 17, 2023 21:45


    Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,75 prósentustiga hækkun stýrivaxta í næstu viku. Verðbólguhorfur versnuðu í febrúar, verðbólgan er almennari en áður og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur aukist. Þrátt fyrir að meginvextir bankans hafi hækkað úr 0,75% í 6,5% á tæpum tveimur árum virðast þeir síður en svo hafa dregið allan þrótt úr hagkerfinu.Í þættinum ræða hagfræðingarnir Una Jónsdóttir og Hildur Margrét Jóhannsdóttir stýrivaxtaspána og stikla á stóru um stöðuna í hagkerfinu.

    landsbankans hagfr
    Hvert fara stýrivextir og hvað er að gerast á íbúðamarkaði?

    Play Episode Play 16 sec Highlight Listen Later Feb 3, 2023 24:37


    Peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku og kynnir fyrstu stýrivaxtaákvörðun ársins miðvikudaginn 8. febrúar. Verðbólgan hefur hjaðnað hægar en búist var við og samsetning hennar hefur breyst á síðustu mánuðum. Fasteignamarkaðurinn fer kólnandi og ýmis merki eru um kröftuga íbúðauppbyggingu. Kann að vera að verið sé að byggja of mikið? Í þættinum spá hagfræðingarnir Una Jónsdóttir, Ari Skúlason og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fyrir um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, ræða verðbólguna, launahækkanir, fasteignamarkaðinn og fleira.

    Verslun og þjónusta: Ferðaþjónusta á flugi en vaxta- og verðhækkanir bíta fast

    Play Episode Listen Later Dec 8, 2022 19:27


    Fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa þurft að aðlagast sveiflukenndu rekstrarumhverfi á síðasta áratugnum. Ferðamannabylgja, heimsfaraldur og hvað svo? Horfurnar virðast góðar fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu en róðurinn hugsanlega þyngri fyrir þau sem selja vörur og þjónustu á innlendum markaði.Í þættinum er fjallað um stöðu verslunar og þjónustu á Íslandi. Þar spjalla saman þær Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar bankans, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði bankans.

    Hækkandi stýrivextir og ábyrgð fjármálageirans gagnvart loftslagsvandanum

    Play Episode Listen Later Nov 24, 2022 34:38


    Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í gær, enda hafa verðbólguhorfur versnað lítillega á síðustu vikum. Hvað þýðir að kjölfesta verðbólguvæntinga hafi veikst og hvenær getur Seðlabankinn slakað á taumhaldinu? Hvernig getur fjármálageirinn brugðist við loftslagsvandanum og hver er ábyrgð hans?Þetta er á meðal þess sem farið er yfir í nýjasta hlaðvarpsþættinum. Þátturinn er tvískiptur, fyrst ræða hagfræðingarnir Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir stýrivexti, verðbólgu og fleira. Í seinni hluta þáttarins kemur Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sjálfbærnistjóri bankans, og ræðir við Hildi Margréti og Ara um sjálfbærni í fjármálageiranum og samfélagslegar fjárfestingar.

    Kólnandi íbúðamarkaður og breytt lánaumhverfi

    Play Episode Listen Later Nov 3, 2022 21:48


    Íbúðamarkaður fer kólnandi, eftirspurnin hefur róast og margt bendir til kröftugrar íbúðauppbyggingar. Vextir hafa hækkað, greiðslubyrði eykst og verðtryggð íbúðalán ryðja sér til rúms á ný. Þetta er á meðal viðfangsefna nýjasta hlaðvarpsþáttarins. Una Jónsdóttir, forstöðumaður Hagfræðideildarinnar, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Jónas R. Stefánsson, sérfræðingur á Einstaklingssviði bankans, taka stöðuna á íbúðamarkaði.

    stef hagfr
    Hagspáin – hver er staðan og hvert stefnum við?

    Play Episode Listen Later Oct 21, 2022 22:26


    Hagfræðideildin kynnti nýja þjóðhags- og verðbólguspá í Hörpu 19. október sl. og hlaðvarpið er að þessu sinni tileinkað henni.Una Jónsdóttir, Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fara yfir það helsta úr spánni; hagvöxtinn, verðbólguna, ferðamenn, kaupmátt, óvissuna og fleira. Þau ræða það hvað hefur gerst á síðustu mánuðum og hvernig má búast við að hagkerfið þróist á næstu árum.

    Vaxtahækkanir á enda?

    Play Episode Listen Later Oct 6, 2022 28:05


    Seðlabankinn kynnti í gær níundu stýrivaxtahækkunina í röð frá því í maí á síðasta ári. Stýrivextir hækka um 0,25% og standa nú í 5,75%. Hvernig slær stýrivaxtahækkun á verðbólgu, hvenær verður hægt að slaka á taumhaldinu og af hverju skipta verðbólguvæntingar máli?Þetta er á meðal þess sem Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingar hjá Landsbankanum, ræða í nýjum hlaðvarpsþætti. Þau koma líka inn á kaupmáttarrýrnun í aðdraganda kjaraviðræðna og þróun á íbúðamarkaði. Þá horfa þau út í heim og tala um verðbólgu og vaxtaákvarðanir erlendis og fjaðrafok í Bretlandi eftir að nýr forsætisráðherra boðaði mestu skattalækkanir í 50 ár.

    Ekki nóg að huga bara að fjárhagnum

    Play Episode Listen Later Sep 28, 2022 23:04


    Það er ekki lengur nóg fyrir fjármálafyrirtæki  að huga eingöngu að fjárhagslegum þáttum og birta aðeins upplýsingar um fjárhagslega þætti. Samfélagið ætlast til þess að þau hafi jákvæð samfélagsleg áhrif og þessi þáttur í upplýsingagjöfinni er ekki síður mikilvægur að mati Tjeerd Krumpelman alþjóðasviðsstjóra í sjálfbærni hjá hollenska bankanum ABN AMRO sem er gestur hlaðvarpsins.Tjeerd annast m.a. sjálfbærniráðgjöf hjá ABN AMRO sem er í fararbroddi fjármálafyrirtækja í sjálfbærni og hefur verið leiðandi í að meta áhrif af lánum og fjárfestingum bankans (e. impact assessment). Þannig geti  bankinn í senn unnið að sjálfbærni og minnkað áhættu til langs tíma.Hann ræðir við Aðalheiði Snæbjarnardóttur, sjálfbærnistjóra Landsbankans og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjá bankanum.

    Staðan versnar áður en hún batnar - James Ashley frá Goldman Sachs

    Play Episode Play 25 sec Highlight Listen Later Sep 7, 2022 34:58


    Verðbólgan er erfið viðureignar. Seðlabankar heims hækka vexti og víða er hætta á samdrætti. Við fengum til okkar góðan gest, James Ashley frá eignastýringu Goldman Sachs og ræddum við hann um horfur á markaði og efnahagsmálin í alþjóðlegu samhengi.Ashley er forstöðumaður stefnumála og ráðgjafalausna fyrir Evrópu, Miðausturlönd, Afríku og Asíu hjá eignastýringu Goldman Sachs. Hann ræðir við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfæðudeildar og Rún Ingvarsdóttur, sérfræðing í samskiptamálum hjà bankanum.

    Hvaða áhrif hefur stýrivaxtahækkun?

    Play Episode Listen Later Aug 24, 2022 23:34


    Hvað þýðir það að stýrivextir hækki og hvaða áhrif hefur það á fólkið í landinu? Hvernig hafa vaxtahækkanir áhrif á verðbólgu og af hverju fer kaupmáttur lækkandi? Hvernig er staðan í löndunum í kringum okkur og hver er reynslan af því að lækka vexti í mikilli verðbólgu?Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson og Ari Skúlason, hagfræðingar hjá Landsbankanum, við Rún Ingvarsdóttur sérfræðing á samfélagssviði bankans, um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans, vinnumarkaðinn, verðbólguhorfur og þróun efnhagslífsins.  

    Hagvöxtur í skugga verðbólgu

    Play Episode Listen Later May 19, 2022 21:56


    Í hlaðvarpinu ræðum við um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Almennt má segja að útlitið sé bjart og gert er ráð fyrir 5,1% hagvexti í ár sem er drifinn áfram af fjölgun ferðamanna. Búist er við metfjölda ferðamanna í lok spátímabilsins. Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn muni bregðast við meiri og þrálátari verðbólgu með því að hækka vexti verulega, áður en hægt verður að lækka vexti á nýjan leik. Það flækir stöðuna talsvert að kjarasamningar eru lausir, á sama tíma og verðbólgudraugurinn herjar á landann.

    skugga landsbankans hagfr almennt
    Af hverju eru stýrivextir að hækka?

    Play Episode Listen Later May 5, 2022 23:53


    Af hverju er Seðlabankinn að hækka vexti um heilt prósentustig og hvaða áhrif hefur það á efnahagslífið og fólkið í landinu? Af hverju tekur Seðlabankinn þetta stóra skref núna og hvernig lítur framhaldið út varðandi verðbólgu og efnahagsþróun? Í hlaðvarpinu ræða Gústaf Steingrímsson hagfræðingur hjá Landsbankanum, Ægir Örn Gunnarsson sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum og Rún Ingvarsdóttir sérfræðingur á Samfélagssviði hjá bankanum, um efnahagsmál og þróunina á fjármálamörkuðum.

    Íbúðauppbygging á tímum verðhækkana. Hvert stefnum við?

    Play Episode Listen Later Apr 7, 2022 18:33


    Í hlaðvarpinu ræðum við um þróunina á fasteignamarkaði og íbúðauppbyggingu á tímum mikilla verðhækkana. Markaðurinn kallar á hagkvæmara og sjálfbærara húsnæði, hvatinn til uppbyggingar hefur sjaldan verið meiri en hvað gerist ef að eftirspurnin hættir skyndilega? Áhrifin af hækkandi húsnæðisverði og óvissa úti í heimi veldur hárri verðbólgu, vextir hækka, og er til nægt húsnæði fyrir aukinn fólksflutning?Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur bankans og sérfræðingur í fasteignamarkaðinum, og Dóra Gunnarsdóttir viðskiptastjóri Mannvirkjafjármögnunar, ræða málin ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum.

    Hækkandi fasteignaverð og salan á Íslandsbanka

    Play Episode Listen Later Mar 24, 2022 26:07


    Í hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hækkandi fasteignaverð og fleira. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum og Una Jónsdóttir forstöðumaður Hagfræðideildar taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.

    Efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu

    Play Episode Listen Later Mar 10, 2022 26:42


    Í hlaðvarpinu ræðum við um efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu, viðskiptaþvinganir og þróunina á hlutabréfamarkaði hér heima og erlendis. Mikil óvissa ríkir, sveiflur á mörkuðum, olíuverð er  í hæstu hæðum og verðbólguhorfur versna. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, og hagfræðingarnir Ari Skúlason og Gústaf Steingrímsson taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.

    Efnahagshorfur og stýrivaxtahækkun

    Play Episode Listen Later Feb 10, 2022 29:41


    Í hlaðvarpinu er fjallað um þróunina á hlutabréfamarkaði, verðbólgu hér heima og erlendis og  stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands um 0.75 prósentustig. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Gústaf Steingrímsson hagfræðingur, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.

    Hækkandi fasteignaverð og yfirvofandi vaxtahækkanir í BNA

    Play Episode Listen Later Jan 27, 2022 27:00


    Í hlaðvarpinu er rætt um þróunina á fjármálamörkuðum erlendis og hér heima, áhrif vaxtahækkana í Bandaríkjunum, hækkandi fasteignaverð, atvinnumarkaðinn og efnahagshorfur. Ægir Örn Gunnarsson, sérfræðingur í verðbréfaviðskiptum hjá Landsbankanum, dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar og Una Jónsdóttir, okkar helsti sérfræðingur um fasteignamarkaðinn, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í samskiptamálum hjá bankanum.

    Áhrif Ómíkron og nýtt fjárlagafrumvarp

    Play Episode Listen Later Dec 2, 2021 27:02


    Í hlaðvarpinu fjöllum við um áhrif nýs afbrigðis af kórónuveirunni á fjármálamarkaði, nýtt fjárlagafrumvarp, nýjar upplýsingar um hagvöxt og fleira. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum og dr. Daníel Svavarsson forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs- og  samskiptadeild bankans.

    Góð uppgjör og loftslagsráðstefnan í Glasgow

    Play Episode Listen Later Nov 4, 2021 31:39


    Í hlaðvarpinu fjöllum við um lofstlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow og hlutverk fjármálageirans í baráttunni við loftslagsbreytingar. Auk þess tölum við um þróunina á fjármálamörkuðum, góð uppgjör hérlendis og erlendis og fleira. Ari Skúlason, hagfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans, og Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs- og samskiptadeild bankans.

    glasgow marka auk sveinn ingvarsd sameinu landsbankans hagfr loftslagsr
    Ný þjóðhagsspá: Kröftugur efnahagsbati hafinn

    Play Episode Listen Later Oct 21, 2021 39:49


    Í hlaðvarpinu er ítarlega fjallað um nýja þjóðhagsspá Hagfræðdeildar Landsbankans. Efnahagsbatinn er hafinn af fullum krafti og horfur eru á kröftugum hagvexti 2021 og 2022. Ferðaþjónustan er vöknuð úr dvala, horfur eru á sérstaklega góðri loðnuvertíð og atvinnuleysi heldur áfram að minnka. Töluverðar áskoranir eru í ríkisfjármálum og kröftugur efnahagsbati og þrálát verðbólga munu knýja á um töluverða hækkun stýrivaxta, áður en aðstæður skapast til að lækka þá á nýjan leik.Una Jónsdóttir, sérfræðingur í fasteignamarkaðnum og Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.

    fer marka ingvarsd landsbankans hagfr
    Jákvæð tíðindi af sjávarútvegi og ferðaþjónustu

    Play Episode Listen Later Oct 14, 2021 32:53


    Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og ferðaþjónustuna. Meðal annars er komið inn á nýja verðbólguspá Hagfræðideildar, áhrif síðustu stýrivaxtahækkunar, hækkandi bensínverð og álverð, minnkandi atvinnuleysi og áhrif góðrar loðnuvertíðar á hagvöxt.Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans, Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum og Gústaf Steingrímsson, sérfræðingur í Hagfræðideild taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.

    Efnahagshorfur og hækkun fasteignaverðs

    Play Episode Listen Later Oct 1, 2021 34:22


    Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og fasteignamarkaðinn. Meðal annars er komið inn á mikið líf á innlendum hlutabréfamarkaði, hækkandi fasteignaverð sem drífur verðbólguna áfram, breytt neyslumynstur ferðamanna og að Hagfræðideild bankans geri ráð fyrir hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig við næstu stýrivaxtaákvörðun. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, Una Jónsdóttir einn okkar helsti sérfræðingur í fasteignamarkaðnum og Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.

    Markaðsumræðan: Ítarleg umfjöllun um nýja þjóðhagsspá

    Play Episode Listen Later May 27, 2021 32:14


    Í hlaðvarpinu er farið yfir nýja þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar 2021-2023. Gert er ráð fyrir að efnahagsbatinn hefjist fyrr en áður var spáð og að landsframleiðslan vaxi um tæp 5% á árinu. Góður gangur í bólusetningum, bæði innanlands og í helstu viðskiptalöndum, bendir til þess að ferðaþjónustan taki fyrr við sér en áður var reiknað með.

    marka umfj llun hagfr sumr
    Markaðsumræðan: Hvað er að gerast á fasteignamarkaði?

    Play Episode Listen Later Apr 29, 2021 30:11


    Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum. M.a. er rætt um verðbólguhorfur og aukna bjartsýni vegna bólusetninga. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans og einn helsti sérfræðingur okkar um fasteignamarkaðinn, ræðir ítarlega um þróunina á þeim markaði. Hún bendir á að eftirspurn sé ekki sama og þörf. Íbúðaþörf hafi í raun dregist saman þótt eftirspurn sé mikil og verð hækki. Varasamt sé að byggja inn í eftirspurn sem jókst skyndilega og skynsamlegt væri að horfa í gegnum skammtímasveiflur og byggja í takt við langtímaþörf.

    hva er marka landsbankans hagfr sumr
    Markaðsumræðan: Efnahagshorfur, vaxtahækkanir í BNA og aukinn áhugi á hlutabréfum

    Play Episode Listen Later Mar 19, 2021 36:26


    Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum í stuttu máli. Rætt er við Dr. Daníel Svavarsson og Gústaf Steingrímsson frá Hagfræðideild Landsbankans, um horfur í þjóðarbúskapnum á þessu ári. Einnig er farið yfir hvernig árinu 2020 lauk miðað við upphaflegar spár. Við ræðum hækkandi vexti í Bandaríkjunum og hugsanleg áhrif á alþjóðavettvangi. Að lokum skoðum við aukinn áhuga almennings á fjárfestingu í hlutabréfum.

    marka bandar einnig steingr hugi landsbankans hagfr sumr
    Hvernig á að byrja að spara og fjárfesta?

    Play Episode Listen Later Feb 19, 2021 32:44


    Hvenær og hvernig er best að byrja að spara eða fjárfesta? Hvar liggja tækifærin? Hvernig er hægt að fá betri ávöxtun og meta áhættuna? Elín Dóra Halldórsdóttir, viðskiptastjóri Eignastýringar Landsbankans, ræðir við Ægi Örn Gunnarsson, starfandi forstöðumann Eignastýringar og Guðnýju Erlu Guðnadóttur, sjóðstjóra hjá Landsbréfum.

    Markaðsumræðan: Salan á Íslandsbanka, Gamestop og verðbréfamarkaðurinn

    Play Episode Listen Later Feb 4, 2021 50:36


    Í þættinum er farið yfir sölu ríkisins á Íslandsbanka og muninn á stóru bönkunum þremur. Auk þess er farið yfir þróun mála í Bandaríkjum hvað varðar Gamestop og svipuð fyrirtæki. Þórunn Björk Steingrímsdóttir verðbréfamiðlari hjá Landsbankanum kíkir í heimsókn og ræðir um markaðinn og hennar vegferð í heim verðbréfamiðlara.

    Markaðsumræðan: Af hverju hækkuðu hlutabréf og fasteignir í heimsfaraldri?

    Play Episode Listen Later Jan 14, 2021 42:59


    Í þættinum er fjallað um hlutabréfa-, skuldabréfa og gjaldeyrismarkaðinn á árinu 2020. Rætt er um það sem mörgum kann að koma spánskt fyrir sjónir, að hlutabréfamarkaðir hækkuðu í miðjum heimsfaraldri. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans og einn helsti sérfræðingur okkar um fasteignamarkaðinn ræðir þróunina á þeim markaði á árinu 2020 og horfurnar.

    marka hverju landsbankans hagfr sumr
    Markaðsumræðan: Fjármálamarkaðir, vinnumarkaðurinn og ríkisfjármál.

    Play Episode Listen Later Dec 16, 2020 45:21


    Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum. Einnig er farið yfir þróunina í nýskráningum í Bandaríkjanum þar sem sérstaklega er litið til eins fyrirtækis með íslenska tengingu. Auk þess er rætt við Ara Skúlason frá Hagfræðideild Landsbankans um stöðuna á íslenska vinnumarkaðnum og ríkisfjármál.

    marka bandar auk einnig landsbankans hagfr sumr

    Claim Umræðan

    In order to claim this podcast we'll send an email to with a verification link. Simply click the link and you will be able to edit tags, request a refresh, and other features to take control of your podcast page!

    Claim Cancel