Podcasts about spjall

  • 63PODCASTS
  • 325EPISODES
  • 1h 26mAVG DURATION
  • 1WEEKLY EPISODE
  • Oct 1, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024


Best podcasts about spjall

Latest podcast episodes about spjall

FM957
Brennslan - 1. október 2025

FM957

Play Episode Listen Later Oct 1, 2025 93:45


Október gengin í garð! Við smökkum kynlífssúkkulaði frá Losta í beinni og forvitnumst um það. Leynigestur vikunnar úr efstu hillu. Spjall við leynigest og hann settur í yfirheyrslu. Klara Einars fer yfir Jólatónleikana, Komdu um jólin. Tilgangslausir hlutir sem við notum í daglegu lífi. Þetta og meira til.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Rúnar Guðbrands

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 27, 2025 157:41


Laugardagur 27. september Helgi-spjall: Rúnar Guðbrands Rúnar Guðbrandsson leikari, leikstjóri og sviðslistamaður ræðir spennandi leikhús og minna spennandi, pólitíska list, trúnna á að við getum breytt heiminum, öryggi æskunnar og óróa unglingsáranna, föðurmissi og annað sem hefur mótað hann sem manneskju og listamann.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Anna Rún

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 20, 2025 139:55


Laugardagur 20. september Helgi-spjall: Anna Rún Anna Rún Tryggvadóttir myndlistarkona segir okkur frá hugmyndum sínum og lífi, leit sinni að röddinni og haldi í lífinu, kyrrðinni hjá ömmu, rótinu við skilnað og átökunum í listinni.

Spjallið
#127 Haust spjallþáttur með Línu og Sollu!

Spjallið

Play Episode Listen Later Sep 15, 2025 76:09


Þátturinn er í boði Krónunnar, Maarud, Nóa Síríus og Fjarþjálfun.is.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Helen Ólafsdóttir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 13, 2025 178:33


Laugardagur 13. september Helgi-spjall: Helen Ólafsdóttir Helen María Ólafsdóttir öryggissérfræðingur segir okkur frá vondum stöðum sem hún hefur ratað á, góðu fólki og sterkri fjölskyldu, stríðsátökum, hvernig mannskepnan bregst við gagnvart hryllingi, ástinni og voninni um að heimurinn skáni.

Rauða borðið
Laugardagur 6. september - Helgi-spjall: Lára Pálsdóttir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Sep 6, 2025 140:40


Laugardagur 6. september Helgi-spjall: Lára Pálsdóttir Lára Pálsdóttir félagsráðgjafi segir frá fólkinu sínu, Jesús ömmu sinnar og sósíalisma afa, frá þolinmæði mömmu sinnar og alkóhólisma föðurs, frá uppreisnum sínum sem unglingur, ást á bókum, æskulýðsskóla í Sovét, sárum missi og að fá að fæðast á ný.

Bíóblaður
#323 Bíóspjall með Benjamín Fannari

Bíóblaður

Play Episode Listen Later Sep 3, 2025 104:40


Benjamín Fannar útskrifaðist sem leikari árið 2020 frá Kvikmyndaskóla Íslands og þrátt fyrir hæga leiklistarbyrjun þá stefnir hann ótrauður á leiklistarframa. Benjamín kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá náminu og leiklistardraumum. Í þættinum ræða þeir einnig sjónvarpsseríuna The Boys, rithöfundinn Stephen King, Game of Thrones, Harry Potter, Jim Carrey myndir og margt fleira.00:00 - Intro00:15 - Bíóblaður spurningaspil er jólagjöfin í ár03:25 - Benjamín og leiklistin09:21 - Benjamín hefur leikið Jesú13:19 - Draumahlutverk15:50 - Jim Carrey20:09 - Grínmyndir25:14 - Streymisveitur, Plex og videoleigur30:12 - Blockbusters35:35 - Prisoners40:30 - Marvel og DC53:40 - Nýlegar bíóferðir59:17 - Harry Potter1:07:15 - Sjónvarpsseríur1:24:59 - Game of Thrones og Stephen King

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Jónsdóttir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 30, 2025 104:57


Laugardagur 30. ágúst Helgi-spjall: Guðrún Jónsdóttir Guðrún Jónsdóttir, fyrrum talskona Stígamóta, fagnar dómi mannréttindadómstólsins og lýsir baráttunni á bak við þann sigur, segir frá æsku sinni og uppruna, foreldrum sínum og hvaða áhrif þeir höfðu á líf hennar og persónuleika, dásemd þriðja æviskeiðsins og hvernig þeim lyndir saman, náttúrubarninu og baráttukonunni sem búa saman innra með Guðrúnu.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Jón Kalman

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 23, 2025 143:24


Laugardagur 23. ágúst Helgi-spjall: Jón Kalman Jón Kalman Stefánsson rithöfundur sest við Rauða borðið og leyfir hlustendum að kynnast sér og spegla sig í sér, uppruna, uppvexti og leit hans að sjálfum sér sem höfundi og manneskju.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Snærós Sindradóttir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 16, 2025 70:40


Laugardagur 16. ágúst Helgi-spjall: Snærós Sindradóttir Snærós Sindradóttir, listfræðingur og fjölmiðlakona ræðir við Maríu Lilju um lífið og tilveruna, pólitík, VG, menningarverðmæti, erfitt fólk, sjálfið, stíl og elegans, vinalegt hægrafólk og hefnd nördanna í skemmtilegu og einlægu samtali.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Hilmir Snær

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Aug 9, 2025 109:59


Laugardagur 9. ágúst Helgi-spjall: Hilmir Snær Hilmir Snær Guðnason leikari segir frá sér, æskunni, leikhúsinu, listinni, drykkju, sigrum, háska og hamingju.

Rauða borðið
Laugardagur 26. júlí Helgi-spjall: Mugison

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jul 26, 2025 165:51


Örn Guðmundsson aka Mugison kemur að Rauða borðinu og segir sköpunarsögu sína, hvernig hann varð til sem manneskja og listamaður. Og hann er með gítarinn með sér og tekur nokkur lög þar sem við á í frásögninni.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Páll Óskar

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jul 10, 2025 145:33


Fimmtudagur 10. júlí Helgi-spjall: Páll Óskar Páll Óskar Hjálmtýsson segir okkur frá No Borders-tónleikunum sem hann ætlar að syngja á, frá leið sinni út úr skápnum, frá baráttusögu sinni, listinni og ástinni sem hefur heltekið hann.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Þóra Karítas

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jul 1, 2025 90:30


Laugardagur 28. júní Helgispjall: Þóra Karítas Þóra Karítas Árnadóttir, leikkona, höfundur og framleiðandi, segir Oddnýju Eir frá lífi sínu og list.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Þórarinn Tyrfingsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 29, 2025 130:47


Laugardagur 25. Helgi-spjall: Þórarinn Tyrfingsson Þórarinn Tyrfingsson læknir segir okkur baráttusögu sína, frá æsku sinni og uppruna, hvað var það sem mótaði hann, lyfti og skaðaði.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Daníel Magnússon

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 21, 2025 121:53


Laugardagur 21. júní Helgi-spjall: Daníel Magnússon Daníel Magnússon myndlistarmaður, vélstjóri og stólasmiður ræðir um listina, dugnaðinn og drykkjuna, foreldra sína og annað venjulegt fólk sem hefur mótað hann.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Gnarr

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 14, 2025 199:30


Laugardagur 14. júní Helgi-spjall: Gnarr Jón Gnarr segir okkur frá föður sínum og móður, frá föðurnum á himnum, húmor og pólitík, hugrekki sínu og hugsunarleysi, tímanum þegar hann tapaði sér og gildi þess að tala ekki of mikið um hlutina.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Drífa

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jun 7, 2025 138:14


Laugardagur 7. júní Helgi-spjall: Drífa Drífa Snædal, talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, VG og Kvennaathvarfsins segir okkur frá baráttunni, hinu persónulega í pólitíkinni og pólitíkinni í hinu persónulega, frá æsku og uppruna og hversu lengi hún var að finna sig og hvað hún vildi taka sér fyrir hendur. Og um sósíalismann sem hún drakk í sig með móðurmjólkinni.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Jósep Blöndal

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 31, 2025 176:44


Laugardagur 31. maí Helgi-spjall: Jósep Blöndal Jósep Blöndal, læknir segir frá lífi sínu og ákvörðunum teknum af rælni og ræðir um líf sitt, ástir og æsku, tónlistina, fíknina og fjölskyldulífið en líka um læknisfræðina, hlustunina, heilahvelin, næringafræðina, heilbrigðiskerfið, einkavæðinguna og uppbygginguna á einstakri verkja-meðferð í Hólminum, hvernig tókst að byggja hana upp með teymisvinnu og nýstárlegri nálgun og verja hana fyrir arðsemishugmyndafræðinni.

Losti
Sara Lind, Tik Tok event, þetta eða hitt, hot or not..

Losti

Play Episode Listen Later May 27, 2025 68:32


Spjall við Söru Lind Annþórsdóttur um Tik Tok viðburðinn með Ásthildi, ást & kynlífsfík og fleira.. við fórum einnig yfir skemmtileg Insta Poll úr Losta story og hvað er eiginlega að vera góð/góður í rúminu??Takk fyrir að hlusta! Fylgið okkur á IG: @losti.isKíkið í heimsókn í búðina!Borgartún 3 & losti.is Sendu okkur línu!

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 25, 2025 115:41


Laugardagur 24. maí Helgi-spjall: Ásdís Thoroddsen Ásdís Thoroddsen, kvikmyndagerðarmaður segir Oddnýju Eir frá lífi sínu og list.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Andri Snær

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 17, 2025 129:45


Laugardagur 17. maí Helgi-spjall: Andri Snær Andri Snær Magnason rithöfundur segir frá nýjustu ævintýrum sínum í Himalajafjöllum og Feneyjum og fer yfir feril sinn sem rithöfundur og aðgerðarsinni.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 10, 2025 104:06


Laugardagur 10. maí Helgi-spjall: Pétur Þorsteinsson Í Helgispjalli Ruða borðsins er Pétur Þorsteinsson prestur óháða safnaðarins, sem stendur á tímamótum. Á sunnudag messar hann yfir sóknarbörnum sínum í síðasta skipti, hann kallar það lífslokamessu. Pétur hefur lengi verið þekktur fyrir petrískuna en með gamansömum hætti hefur hann fundið upp nýyrði og gefið út, orð sem gjarnan snúa upp á tunguna. En hver er manneskjan á bak við tunguna og húmorinn? Björn Þorláks reynir að komast undir yfirborðið.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: GVA

Rauða borðið

Play Episode Listen Later May 3, 2025 100:21


Laugardagur 3. maí Helgi-spjall: GVA Gunnar V. Andrésson ræðir um æsku sína og uppruna og samfélagið sem hann skráði sem ljósmyndari í rúma hálfa öld, en stór sýning með myndum hans sem blaðaljósmyndari verður opnuð í Ljósmyndasafninu í dag.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Heiða Björg

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 26, 2025 73:31


Laugardagur 26, apríl Helgi-spjall: Heiða Björg Heiða Björg Hilmisdóttir, Borgarstjóri mætir á persónulegu nótunum í Helgi-spjall hjá Maríu Lilju. Skemmtilegt samtal um sveitastúlku sem verður að Borgarstjóra, áskoranir móður langveiks barns, næringarfræði, grænt gímald, flóttafólk og hlutverk borgarinnar í friðarumleitunum í veröldinni.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ólöf Arnalds

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Apr 5, 2025 68:24


Laugardagur 5. apríl Helgi-spjall: Ólöf Arnalds Ólöf Arnalds, söngvaskáld, kemur í helgi-spjall og segir frá ástinni á tónlistinni og á öllu hinu, ræðir um sönginn, sorgina, gleðina og samruna skynsviðanna.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Gyrðir Elíasson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 30, 2025 105:27


Laugardagur 29. mars Helgi-spjall: Gyrðir Elíasson Gyrðir Elíasson, rithöfundur, skáld, myndlistarmaður og þýðandi ræðir um líf sitt og köllun í skáldskap og listum en líka í einmanaleika og jaðartilvist, um vináttutengslin við textann og náttúruna.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 22, 2025 100:09


Laugardagur 22. mars Helgi-spjall: Heimir Björn Janusarson Heimir Björn Janusarson umsjónarmaður í Hólavallakirkjugarði er gestur í Helgi-spjallsins þessa vikuna. Heimir Björn kann margar sögur úr garðinum. Í spjalllinu segir hann Sigurjóni Magnúsi Egilssyni nokkrar ómetanlegar sögur.

Rauða borðið
Helgi-spjall 15. mars: Dagur B. Eggertsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 15, 2025 65:17


Dagur B. Eggertsson þingmaður og fyrrum borgarstjóri er gestur Helgi-spjallsins þessa vikuna. Dagur ræðir uppvöxtinn, læknavísindin, pólitíkina, borgina og persónuleg mál við Björn Þorláksson.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Héðinn Unnsteinsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 8, 2025 82:27


Laugardagur 8. mars Helgi-spjall: Héðinn Unnsteinsson Héðinn Unnsteinsson, rithöfundur og ráðgjafi segir okkur frá lífi sínu í punktinum og utan hans, í skáldskap og samveru, einveru og rannsóknum á geði, kerfum, erfðum, áföllum, framsýni, frumefnum, næveru.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Mar 1, 2025 185:33


Laugardagur 1. mars Helgi-spjall: Pétur Gunnarsson Pétur Gunnarsson rekur ferð sína um hugmyndir og heimsmyndir, hugsjónir sem hafa risið og hnigið, byltingar sem blómstruðu eða koðnuðu niður og aðrar sem runnu sitt skeið og reynir að skilja stöðu heimsins í dag, sem er kannski háskalegri en nokkurn tíma um daga Péturs.

Tölvuleikjaspjallið
235. Mario Con 2025! - spjall við Adam og Þóri hjá Next Level Gaming

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Feb 22, 2025 40:33


Bætum upp fyrir þáttaleysið í vikunni með þessum hérna!Arnór Steinn ferðaðist í Next Level Gaming í Egilshöllinni og spjallaði við Þóri og Adam.Mario Con 2025 verður haldið í NLG vikuna 10.-16. mars og er þétt pökkuð dagskrá. Adam segir okkur meira frá því.Spjöllum líka um hvernig gengur í NLG og fleira skemmtilegt! Þátturinn er í boði Elko Gaming.

Rauða borðið
Helgi-spjall 15. febrúar: Þórhildur Þorleifsdóttir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 15, 2025 184:56


Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og fyrrum þingkona ræðir um lífið og leikhúsið, uppvöxt og þroska, feminisma, pólitík, átök og sigra.

Rauða borðið
Helgi-spjall 8. febrúar: Sigurður Gylfi Magnússon

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Feb 8, 2025 122:32


Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðingur segir okkur frá lífi sínu í einsögufræðum og ást, eldmóði, átökum, skáldskap og skynjun, frá hundalílfi og hamskiptum.

Flugvarpið
#100 – Hæðir og lægðir í fluginu - spjall við formann FÍA í tilefni dagsins – Jón Þór Þorvaldsson

Flugvarpið

Play Episode Listen Later Jan 26, 2025 79:25


Rætt er við Jón Þór Þorvaldsson flugstjóra og formann í Félagi íslenskara atvinnuflugmanna í tilefni af þætti númer 100. Farið er vítt og breitt yfir sviðið og meðal annnars spjallað um stéttarfélagið, kjarasamninga framundan, Reykjavíkurflugvöll, pólitík og almennt um hæðir og lægðir í flugiðnaðinum. Jón Þór var nýtekinn við embætti formanns þegar ósköpin dundu yfir flugheiminn vegna kóvid faraldurs í ársbyrjun 2020 og þegar Flugvarpið hóf göngu sína í október það ár var Jón Þór fyrsti gesturinn. Það var því viðeigandi að bjóða honum aftur í spjall núna rúmlega fjórum árum síðar og fara aðeins yfir málin.

reykjav fari spjall tilefni formann
Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Skafti Steinólfsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 25, 2025 102:07


Laugardagur 25. janúar Helgi-spjall: Stefán Skafti Steinólfsson Stefán Skafti Steinólfsson, Dalamaður, ræðir um uppvöxt, feðraveldi, stóriðjustörf sín, náttúruna og afahlutverkið.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Pétur Guðjónsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 18, 2025 115:09


Laugardagur 18. janúar Helgi-spjall: Pétur Guðjónsson Pétur Guðjónsson húmanisti, rithöfundur, stofnandi Flokks mannsins og maðurinn sem tók Fidel Castro í bakaríið á sínum tíma, er gestur Björns Þorláks í Helgi-spjallinu þessa vikuna. Pétur ræðir lífssögu og viðhorf, slys í bernsku sem breytti hugmyndum hans og námskeiðin sem hann heldur enn og standa almenningi opin.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-Spjall: Ragna Sigrún Sveinsdóttir

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 11, 2025 82:03


Laugardagur 11. janúar Helgi-Spjall: Ragna Sigrún Sveinsdóttir Ragna Sigrún Sveinsdóttir, leiðsögumaður og lektor emerita segir okkur frá pælingum sínum um keltnesk áhrif á Íslandi og um allan heim, hún hefur um árabil ferðast um landið og heiminn og séð ólík upprunaeinkenni birtast í tengslum við skipulag, ástríðu, listir og stríð ... Hún bjó lengi í París og segir okkur frá lífinu þar og á Víkingavatni í æsku, frá áhrifavöldum lífs síns, rannsóknum á þróun tungumála og vináttunnar.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Þorvaldur Kristinsson

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Jan 4, 2025 132:56


Laugardagur 4. janúar Helgi-spjall: Þorvaldur Kristinsson Þorvaldur Kristinsson bókmenntafræðingur, ritstjóri, þýðandi, rithöfundur og baráttumaður segir frá lífshlaupi sínu í gegnum listir og réttlætisbaráttu.

Rauða borðið
Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðmundur í Afstöðu

Rauða borðið

Play Episode Listen Later Dec 21, 2024 134:40


Laugardagur 21. desember Helgi-spjall: Guðmundur í Afstöðu Guðmundur Ingi Þórodsson formaður Afstöðu, félags fanga, segir frá æsku sinni og uppruna, refilsstigum og beinum brautum, fordómum og ungum dómum.

Lestin
Úkraínskir flóttamenn á Ásbrú, Natassja Kinski, RIFF-spjall

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 26, 2024 54:26


Lestin í dag er tileinkuð alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst í dag. Hin Úkraínska Anastasiia Bortuali þurfti að hætta í kvikmyndanámi í Pétursborg þegar innrás Rússa hófst í febrúar 2022. Fyrir tilviljun endaði hún sem flóttamaður á Íslandi. Hún byrjaði að skrásetja líf fólksins í kringum sig á Ásbrú á snjallsímann sinn og nú frumsýnir hún heimildamyndina Temporary Shelter, Tímabundið skjól. Við fáum Anastasiiu í heimsókn. Við fáum líka heimsókn frá tveimur ungum kvikmyndagerðarmönnum sem sýna stuttmyndir á RIFF í ár. Tumi Björnsson og Salvör Bergmann ræða um gott og slæmt kvikmyndanám, Tiktok-kvikmyndagerð og stuttmyndir sem listform. Pólsk-þýska leikkonan Natassja Kinski er einn af heiðursgestum RIFF í ár. Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur segir frá þessari virtu leikkonu.

Kvíðakastið
77. Spjall eftir sumarið

Kvíðakastið

Play Episode Listen Later Aug 6, 2024 37:07


Þátturinn er í boði World Class og Reykjavík Foto! Léttur þáttur þar sem við spyrjum hvort annað óvæntra spurninga.

Heimsglugginn
Af 214 ára færeyskri peysu og sjóráni breska flotans

Heimsglugginn

Play Episode Listen Later Mar 7, 2024 23:39


Spjall Þórunnar Elísabetar Bogadóttur og Eyrúnar Magnúsdóttur við Boga Ágústsson hófst á sagnfræðilegum nótum. Fyrir nokkrum dögum var opnuð póstsending í þjóðskjalasafni Breta 214 árum eftir að pósturinn var sendur frá Færeyjum til Kaupmannahafnar. Pósturinn komst ekki alla leið því Anne-Marie, skipið sem flutti póstinn, var hertekið af breska flotanum. Farmur Anne-Marie hefur líklega verið boðinn upp og áhöfn herskipsins fengið andvirðið en póstsendingin var eftir í Lundúnum. Þegar pósturinn var lok opnaður kom í ljós handprjónuð peysa sem var stíluð á viðtakanda í Kaupmannahöfn, ýmislegt annað var í póstinum þar á meðal seðlar og mynt. Kosið verður í Portúgal um helgina og Bogi ræddi við Einar Loga Vignisson um stjórnmálastöðuna í landinu. Að lokum ræddi Bogi andstöðu margra í Austur-Evrópu við að Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, verði næsti framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins.

Endalínan
210. Þáttur - Beint frá Brons, El Classico og Goðsagna spjall

Endalínan

Play Episode Listen Later Dec 9, 2023 97:58


Kæru hlustendur! Endalínan að lenda örlítið seinna en vanalega eftir brjálað stuð á Brons, takk fyrir okkur Brons og sérstakar þakkir til Loga og Magga fyrir að koma til okkar í spjall fyrir leik, spjallið er klippt inn í þáttinn. Takk til allra sem mættu á Brons, takk fyrir hlýju orðin og stuðninginn! Við ræddum el classico og fórum í létt power ranking á deildinni. Takk fyrir stuðninginn Brons, Viking Lite (Léttöl), Cintamani, Soho, Fisk- og Kjötbúð Reykjanes, Macland, Miðherji og Bónus!

Sterakastið
#112: Giftast mömmu?

Sterakastið

Play Episode Listen Later Dec 6, 2023 82:17


Classic Sterakast. Spjall um allt og ekkert, tilvalið fyrir langa rúntinn þinn til Kef að sækja kærustann þinn eða fyrir langa göngutúrinn með hundinn þinn. Njóttu!

Heilsuvarpid
#86 Helgi Ómars - öryggi í samböndum og allskonar spjall

Heilsuvarpid

Play Episode Listen Later Oct 20, 2023 60:13


Sameiginlegur þáttur Helga og Röggu fyrir bæði Helgaspjallið og Heilsuvarpið. Við töluðum um allt og allskonar tengt samböndum, að setja mörk, og meira að segja pólitík. Sjálfseflingarnámskeiðið er 20. og 21. október Skráning raggaoghelgi@gmail.com Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @nowiceland @netto.is

Umræðan
Spjall um spá: Hagkerfi í leit að jafnvægi

Umræðan

Play Episode Listen Later Oct 19, 2023 20:17


Hófstilltur hagvöxtur, háir vextir og hjaðnandi verðbólga. Þetta er á meðal þess sem einkennir efnahaginn næstu ár, samkvæmt nýrri hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Í nýjasta þætti Umræðunnar ræða hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson efnahagshorfurnar og fara yfir það helsta úr spánni. 

leit umr spjall hjalti hagfr landsbankans
Teboðið
#206 Lærum íslensku x Tinna Talmeinafræðingur

Teboðið

Play Episode Listen Later Sep 27, 2023 72:45


Nú verða sumir glaðir!  Við erum loksins aðeins að fara athuga málþroskann og íslensku kunnáttuna hjá okkur vinkonunum og það var enginn betri til að fá í þáttinn fyrir nákvæmlega það heldur hún Tinna Talmeinafræðingur! Tinna vinnur sem talmeinafræðingur hjá Trappa og eins og hún segir sjálf frá er hún með málþroska á heilanum!  Tinna er betur þekkt sem Babbl og Spjall á samfélagsmiðlum, þannig endilega chekkið á henni. Miðasala á Teboðið x Beautyklúbburinn LIVE SHOW

Sterakastið
#106: Grænt fólk

Sterakastið

Play Episode Listen Later May 29, 2023 63:29


Spjall um allt og ekki neitt, just how you like it.

Helgaspjallið
Þáttur 122 - Spjall, jóla & áramóta kveðja frá mér til ykkar

Helgaspjallið

Play Episode Listen Later Dec 31, 2022 25:01


Þátturinn er í boði: Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - IceHerbs - www.iceherbs.is Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl Mín orð til ykkar inní nýja árið. Takk fyrir samfylgdina, takk fyrir hlustanirnar og skilaboðin. Hlakka til að gera fleiri og fræðandi þætti fyrir ykkur á nýju ári. Endalaust ást og þakklæti - Ykkar Helgi