POPULARITY
Verð á matvælum hefur hækkað í hverjum einasta mánuði frá áramótum samkvæmt verðlagseftirlit ASÍ. Nautakjöt hefur hækkað mest og í einstaka tilfellum um allt að 20 prósent á ársgrundvelli. Það eru að verða níu ár síðan meirihluti breskra kjósenda samþykkti útgöngu úr Evrópusambandinu - og rúm fimm ár síðan útgangan tók formlega gildi - en á leiðtogafundi sem haldinn var í Lundúnum í morgun var hins vegar samþykkt að taka ákveðin skref til baka - til hagsbóta fyrir breskan almenning segir Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands. Innan stjórnarandstöðunnar er hins vegar talað um uppgjöf fyrir Evrópusambandinu. Sólarorkuverum fjölgar hratt á Íslandi og segja má að sólarorkubylting sé að hefjast. Orkuverð hækkar og búnaður hefur batnað. Plötur sem fanga orkuna þurfa ekki glampandi sól og rafhlöður geta geymt orkuna til næturinnar. Fyrirtækið Alor setur þessa dagana upp sólarorkuver á nokkrum stöðum á landinu.
Fyrirtækjaeigandinn Bjarni Thor og grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson eru miklir 90's menn og þeir kíktu til Hafsteins í sérstakan 1994 vs. 1999 þátt. Hafsteinn stillti upp 12 kvikmyndum frá 1994 og setti þær á móti 12 kvikmyndum frá 1999. Strákarnir velja síðan í sameiningu einn sigurvegara í hverri lotu og komast að því í lokin hvort árið sé betra kvikmyndaár. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hvort Forrest Gump sé betri en The Green Mile, hvort Ace Ventura sé betri en Office Space og margt, margt fleira.00:00 - Intro00:12 - 1994 vs. 199907:46 - Pulp Fiction vs. Magnolia15:22 - The Shawshank Redemption vs. American Beauty21:54 - The Lion King vs. The Iron Giant28:04 - Ace Ventura vs. Office Space40:32 - Dumb and Dumber vs. Being John Malkovich53:39 - Leon vs. The Matrix1:08:01 - True Lies vs. Fight Club1:15:36 - Forrest Gump vs. The Green Mile1:25:30 - Once Were Warriors vs. The Insider1:35:01 - The Crow vs. The Sixth Sense1:39:16 - The Legends of the Fall vs. Eyes Wide Shut1:46:51 - Ed Wood vs. Sleepy Hollow1:56:18 - Almennt bíóspjall
Fyrirtæki sem taka að sér að afla upplýsinga um keppinauta eða andstæðinga í viðskiptalífinu þekkjast víða og hafa sum teygt anga sína hingað. Njósnir á vegum viðskiptamanna voru umfjöllunarefni Kveiks, hvaða áhrif hefur þáttur lögreglu í þessu á traust til hennar, hvernig er fylgst með störfum lögreglu og hvaða skorður eru við aukavinnu lögreglu. Rætt við þingmennina Vilhjálm Árnason (D) og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur (S) og Fjölni Sæmundsson formann landssambands lögreglumanna.
Á morgun standa Landssamtökin Þroskahjálp og diplómanám HÍ fyrir málþingi þar sem fatlað fólk er í aðalhlutverki. Yfirskrift málþingsins er „Hvað um okkur?“ Þar verða flutt erindi og svo fer fram óformlegt sófaspjall þar sem fólk með fötlun deilir sinni reynslu úr atvinnulífinu, menntun, aðgengismálum og bara lífinu sjálfu. Það eru hindranir og áskoranir á öllum þessum sviðum og þau sem upplifa þær daglega eru auðvitað best í því að miðla því hverjar þær eru. Hekla Björk Hólmarsdóttir og Jóhanna Brynja Ólafsdóttir komu í þáttinn og sögðu frá sinni reynslu og með þeim kom Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Fyrirtækið Livefood ehf. var stofnað í nóvember 2019 með það að markmiði að framleiða hágæða íslenska grænkera osta. Livefood festi kaup á iðnaðarhúsnæði í Hveragerði sem hefur aðgengi að jarðvarma þar sem þau rækta mikið af því hráefni sem notað er í þeirra vörur. Kartöfluostar eru sérstaða ostanna, eða ástanna, og þróunarvinna hefur staðið í langan tíma þar sem áherslan var lögð á að geta framleitt plöntuost úr íslensku hráefni. Þessa osta er hægt að rífa, sneiða, smyrja og bræða og við fengum Erlend Eiríksson ástagerðarmeistara og Ingólf Þór Tómasson, viðskiptafélaga hans til að segja okkur allt um þetta ævintýri í þættinum í dag. Tónlist í þættinum í dag: Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Toggi, Þorgrímur Haraldsson og Páll Óskar Hjálmtýsson) Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson Þusund sinnum segðu já / Our Lives og Toggi (Rúnar Þórisson, Rafn Jónsson, Helgi Björnsson og Örn Jónsson, texti Helgi Björnsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í þættinum í dag fjöllum við um vafasama viðskiptahætti svissneska fyrirtækisins Nestlé með ungbarnavörur, bæði í nútíð og fortíð. Fyrirtækið framleiðir meðal annars KitKat-súkkulaðið, Nespresso og Smarties en líka matvörur fyrir ungbörn, til dæmis þurrmjólk. Og sums staðar er sykri bætt í þurrmjólkina, og þess ekki getið á umbúðunum. Það er til dæmis gert víða í Afríku. Við rýnum í skýrsluna, „Hvernig Nestlé fær börn í lágtekjuríkjum til að ánetjast sykri.“ Svo snúum við okkur að ástinni á gervigreindaröld. Gervigreindin er heillandi og óhugnaleg á sama tíma. Gervigreindarspjallforrit hafa þróast á ógnarhraða og nú er hægt að eiga samtöl við spjallmenni og jafnvel ástarsambönd. Við heyrum sögu konu sem á í slíku sambandi í þættinum. Sænskir forritarar bjuggu til stefnumótaforrit sem heitir Baibe, þar sem hægt er að mynda ástarsamband við gervigreindina. Róbert Jóhannsson ræddi við annan stofnenda forritsins og prófessor í félagsfræði um hvort gervigreindin sé það sem koma skal þegar ástin og nándin er annars vegar.
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að fimmtudagsvenju við Boga Ágústsson um erlend málefni í Heimsglugga vikunnar. Að þessu sinni var rætt um stærsta gjaldþrot í sænskri viðskiptasögu. Northvolt átti að verða lykilfyrirtæki í sókn evrópskra bílaframleiðenda á rafbílamarkaðnum en reksturinn gekk aldrei eins og skyldi. Fyrirtækið er nú gjaldþrota og þrjú þúsund manns í Skellefteå í Norður-Svíþjóð hafa misst vinnuna. Úkraínumenn hafa fallist á tillögur Donalds Trumps um vopnahlé en Rússar hafa ekki svarað enn. Trump hefur hótað Rússum auknum refsiaðgerðum fallist þeir ekki á vopnahlé. Úrslit þingkosninganna á Grænlandi komu verulega á óvart, enginn bjóst við því að mið-hægriflokkurinn Demokratiit yrði stærsti flokkurinn. Jens-Frederik Nielsen, leiðtogi flokksins, reynir nú að mynda stjórn. Búist er við að hann reyni að mynda stjórn með IA, sem er lengst til vinstri í grænlenskum stjórnmálum, og hugsanlega einnig með hægriflokknum Atassut.
Strandlengja Íslands er 5000 kílómetrar að lengd og stjórnvöld hafa síðastliðin fjögur ár unnið að því að hreinsa hana með markvissum hætti. Fyrirtækjum og félagasamtökum býðst að sækja um styrk til þess að taka að sér ákveðinn hluta strandlengjunnar, ganga fjörur og tína netadræsur og annað plastrusl. Átakið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í plastmálefnum og nú er lokaár þess runnið upp. Hvernig hefur gengið? Við ætlum að ræða það við Sóleyju Bjarnadóttur, sérfræðing í Teymi hafs og vatns hjá Umhverfis- og orkustofnun. Í dag halda Stígamót upp á 35 ára afmæli, og af því tilefni er ýmislegt spennandi á döfinni: málþing, bíósýningar og ýmislegt fleira. Í dag förum við aðeins yfir þriggja og hálfs áratuga baráttu Stígamóta gegn ofbeldi, hugum jafnvel að framtíðinni í þeim málum, og fáum til okkar Drífu Snædal, talskonu Stígamóta, og Parísi Önnu Bergmann, unga baráttukonu gegn ofbeldi. Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í vísindaspjall í lok þáttar. Þar verða krúttleg dýr í fyrirrúmi, krúttleg dýr í krísu.
Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur (1klst og 40mín)Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn.Hinn eini sanni Ásgeir Kolbeins er genginn í bræðralagið. Mikill heiður. Hérna er kafað ofan í hans pælingar. Mikið talað um stjörnuspeki - enda er Ásgeir djúpur í henni þessa dagana. Njótið vel kæra bræðralag.Fyrirtækið hans Ásgeirs: wwww.orkugreining.is
Viðmælandi þáttarins er Guðmundur Hafsteinsson oftast kallaður Gummi, frumkvöðull og stjórnarformaður Icelandair. Gummi hefur starfað hjá stærstu tæknifyrirtækjum í heimi ásamt því að koma að stofnun nokkurra sprotafyrirtækja. Gummi fæddist á Húsavík árið 1975 og er alinn upp í Breiðholtinu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði BS próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og síðar MBA frá MIT í Boston í Bandaríkjunum. Eftir útskrift úr verkfræðinni stofnaði Gummi sitt fyrsta sprotafyrirtæki ásamt félögum sínum sem hét Dímon og þróaði lausnir fyrir fyrstu nettengdu farsímana upp úr aldamótum. Gummi hefur starfað sem vörustjóri hjá Google og vann þar m.a. að fyrstu farsímaútgáfunni af Google Maps og Google Voice Search sem var fyrsta raddgreiningin sem komst í almenna notkun. Hann hefur einnig starfað sem yfirvörustjóri (VP of Product) hjá fyrirtækinu Siri sem var síðan selt til Apple og er nú hluti af iPhone símunum. Árið 2012 stofnaði Gummi sprotafyrirtækið Emu sem þróaði gervigreindarþjón sem veitti notendum aðstoð í spjallþráðum. Fyrirtækið var síðan selt til Google og þróaðist að lokum í Google Assistant, sem Gummi stýrði þróun á frá upphafi. Árið 2019 flutti Gummi aftur til Íslands og starfar nú sem stjórnarformaður Icelandair og kannar heim gervigreindar þess á milli. Nú fyrir jólin 2024 kom út bókin Gummi sem fjallar um endurminningar Gumma á þessu ferðalagi um Kísildalinn. Þar má finna sýn inn í heim tækninnar síðustu áratugi og skemmtilegar sögur af því hvernig hlutirnir gerast á bak við tjöldin hjá nokkrum af stærstu og áhrifamestu fyrirtækjum heimsins. Þátturinn er kostar af Sólar, Arion og KPMG.
Fimmtudagur 19. des Öryggismál, galdur, bókaball, fyrirtækjavæðing og skrautleg skilaboð til stjórnvalda Við Rauða borðið í kvöld er umræðan lífleg og nær yfir mörg svið. Fyrstur mætir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara og ræðir um fyrirtækjavæðingu leikskólans. Valur Ingimundarson prófessor fjallar um minni áhuga stjórnvalda á norðurslóðum og breytt mat á öryggismálum og því næst ræðir Hilmar Örn Hilmarsson, Allsherjargoði um trú og tóna tilverunnar, dauðann, lífið og galdurinn í tilefni sólstöðuhátíðarinnar framundan. Sex höfundar bregða upp balli, þau Linda Vilhjálmsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Daníel Daníelsson, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Sunneva Kristín Sigurðardóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir koma að rauða borðinu á mörkum flóðs og fjöru og segja okkur frá útgáfureynslu sinni og lesa brot úr nýútkomnum bókum sínum. Nýteiknaður hvalur er leynisgestur á ballinu. Í lok þáttar safnast aktívistarnir Sigtryggur Ari Jóhannsson, Pétur Eggerz, Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, Unnur Andrea Einarsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir saman við rauða borðið og föndra jólakort með skýrum skilaboðum til raðamanna. Föndrað með föndra jólakort með skýrum skilaboðum til ráðamanna.
Fjölskyldu mál tekið fyrir í þættinum. Fyrirtæki að negla upp leikskóla fyrir starfsfólk, maður sagðist hafa fengið klamýdíu í ræktinni og hver eru helstu leitarorð þín á Pornhub árið 2024? Við dustuðum rykið af lögregludagbókinni og fórum í gegnum sannar sögur. Síðasti þáttur fyrir jól. Góða skemmtun!
Róbert Wessman mætti til Dr. Football og við ræddum boltann og business. Fyrirtæki hans Alvotech er aðalstyrktaraðili KR. Umræðan fór í KR, Alvotech, Man Utd, vín og hvaða lið við ættum að kaupa.
Sendu okkur skilaboð!Pyngjan kynnir stórmerkilegan þátt, þar sem stutt en ótrlúleg saga Sky Lagoon, er reifuð. Lónið birtist skyndilega á Kársnesinu og engu líkara en að það hafi verið reist yfir nótt en framkvæmdin átti sér þó nokkurra ára aðdraganda. Fyrirtækið er sannkölluð prentvél af bestu gerð og ætti þátturinn að ná að næra peningaheilastöðvar netbankakúrekans og rúmlega það.
Fimmtudagur 21. nóvember Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, smáfyrirtækjaskattamál, Gaza Í beina útsendingu í kvöld mæta vaskir frambjóðendur og talsmenn, þau Karl Héðinn Kristjánsson, Sósíalisti, Gísli Rafn Ólafsson, Pírati, Mörður Árnason, Samfylkingu og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd til að ræða um sjókvíeldi, eldgos og önnur eldheit kosningamál. Þau Haraldur Ólafsson hjá Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir hjá Evrópuvaktinni eru á öndverðum meiði um hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Við heyrum rökræðu þeirra á millum. Við höldum síðan áfram að ræða húsnæðiskrísuna á markvissan máta með fulltrúa Leigjendsamtakanna, Yngva Ómari Sighvatssyni sem tekur frambjóðendur nokkura flokka í próf og í dag mæta þeir Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, Grímur Grímsson, frambjóðandi Viðreisnar og Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins. Spurning dagsins er hvernig líður almenningi í samfélaginu, við spyrjum fólk á förnum vegi. Síðan segir Sigmar Vilhjálmsson, formaður Atvinnufélagsins okkur frá hvernig skattaumhverfi fyrirtækja hyglir hinum stóru á kostnað smáfyrirtækja og Benjamín Julian, verkefnastjóri Verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fræðir okkur um samkeppnina á dagvörumarkaði. Illugi Jökulsson, rithöfundur segir okkur frá allri fegurðinni sem finna má í hversdeginum en hann hefur í nokkur ár fangað lítil augnablik, glefsur úr lífum fólks og gefið út í bókinni "Rétt áðan". Í Radió Gaza koma þau saman Gígja Sara Björnsson, Valgeir Skorri Vernharðsson, Hjálmtýr Heiðdal og Snæbjörn Brynjarsson sem öll standa fyrir viðburðum á næstu vikum. Áherslurnar og aðferðirnar eru kannski ólíkar en meginstefið er það sama, mannréttindi. Að lokum heyrum við í oddvita Sósíalista í Norðvesturkjördæmi, Guðmundi Hrafni sem spjallar við Sigurjón Magnús Egilsson í Oddvitaspjalli Rauða borðsins.
Viðmælandi þáttarins er Benedikt Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf. Lauf er þekktast fyrir framúrstefnulega hjólagaffla sína, en framleiðir nú og selur malar-, götu- og fjallahjól um allan heim. Benedikt er fæddur árið 1984 og alinn upp í Grafarvoginum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk síðan BS prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í iðnaðarverkfræði frá Columbia háskóla í New York. Benedikt starfaði í eitt ár hjá Össuri við hönnun gervifóta, þar sem hann fékk hugmyndina að Lauf-gafflinum og stofnaði Lauf ásamt æskuvininum Guðbergi Björnssyni. Fyrirtækið veltir nú um 1.5 milljörðum íslenskra króna og starfa um 25 manns hjá fyrirtækinu. Lauf er þessa dagana að útvíkka vörulínu sína og stefnir þannig að því að tífalda umsvif sín á næstu árum. Þessi þáttur kostaður af Sólar og KPMG.
Viðmælandi þáttarins er Margrét Harðardóttir, Senior Vice President hjá Arggosy Real Estate Partners (AREP) þar sem hún er yfir fjáröflun og fjárfestatengslum. Fyrirtækið stýrir framtakssjóðum sem fjárfesta í ákveðnum tækifærum í fasteignum á lægra miðstigi markaðarins (e. lower middle market) og hefur nú yfir $3,5 milljarða af fasteignum í stýringu. Margrét er alin upp í Bandaríkjunum og á Íslandi, gekk í Menntaskólann í Kópavogi en lauk síðan BS í viðskiptafræði, með aukagrein í alþjóðlegum öryggis- og ágreiningsúrlausnum (e. International Security and Conflict Resolution) frá San Diego State University. Margrét starfaði áður sem framkvæmdastjóri (e. Managing Director) hjá Lateral Investment Management framtakssjóði (e. Private equity) og bar ábyrgð á vöruþróun, stefnumótun og fjáröflun en fyrirtækið var með um $800 milljónir undir stýringu en Margrét var í stofnendateymi sjóðsins. Lateral veitir vaxtarfé til fyrirtækja á miðstigum (e. middle market) með áherslu á B2B tæknifyrirtæki. Áður en hún gekk til liðs við Lateral var Margrét yfir fjárfestatengslum hjá framtakssjóði sem fjárfesti í fasteignum og vann hjá Bainbridge Capital, ráðgjafarfyrirtæki í samruna og yfirtökum (m&a) með aðsetur í La Jolla, Kaliforníu. Þátturinn er kostaður af Indó og Skaga.
Á Íslandi hefur aðeins einu stórfyrirtæki tekist að uppfylla kröfur Parísarsamkomulagsins um samdrátt í losun. Hin falla á prófinu, misilla. Þetta sýnir úttekt á vegum ráðgjafarfyrirtækisins PWC. Með ákveðnum reikniformúlum má komast að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki á Íslandi beri ábyrgð á nánast allri beinni losun Íslands - en hvað er til ráða? Hvaða gulrætur virka, hvaða prikum á að sveifla? Um þetta var fjallað á málþingi í Norræna húsinu í morgun, við heyrum í fólki sem tók þátt í málþinginu og fáum svo þær Hafdísi Hönnu Ægisdóttur, forstöðumann Sjálfbærnistofnunar HÍ, og Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttur orku- og umhverfisverkfræðing í hljóðver. Í dag ætlum við líka að velta fyrir okkur tækninni. Hvaða áhrif hafa tækin og tölvuforritin sem við umgöngumst daginn út og inn á heilsu okkar og hegðun? Gæti hún verið hollari? Gæti hún verið mannvænni? Við fáum til okkar Atla Þór Jóhannsson, stofnanda samtaka um mannvæna tækni, í heimsókn til okkar til að ræða þessi mál. Við fáum síðan pistil frá Finni Ricart Andrasyni, formanni Ungra umhverfissinna, þar sem hann fjallar um efasemdir um loftslagsaðgerðir á Íslandi.
Sendu okkur skilaboð!Kæru vinir Pyngjunnar! Þeir eru mættir aftur saman tveir á bakvið hljóðnemana þeir Addi og Iddi með sjóðheitar fréttir og laglegar umfjallanir. Alls ekki missa af þessum, hann er rosalegur!
Rætt er við Magnús Má Þórðarson framkvæmdastjóra hjá Tern systems sem sérhæfir sig í að hanna og framleiða hugbúnað fyrir stjórnun flugumferðar. Fyrirtækið hyggst nýta tækifæri í tæknibyltingu með gervigreind og hlaut nýverið 95 milljóna króna styrk úr rannsóknar- og nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins SESAR til að þróa gervigreindarlausn sem ætlað er að auka flugöryggi. Magnús Már segir hér frá þessu og ýmsum öðrum áhugaverðum verkefnum fyrirtækisins til þessa. Tern er með starfsemi í mörgum löndum og starfsmennirnir eru nærri eitt hundrað. Fyrirtækið er í dag í eigu ISAVIA ANS en þreifingar eru uppi um að fá mögulega inn nýtt eignarhald í félagið.
Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur verið í talsverðum vandræðum undanfarin ár. Fyrirtækið hafði átt áratuga sögu sem framleiðandi öruggra og góðra farþegavéla. Hvað fór eiginlega úrskeiðis? Hallgrímur Indriðason leitaði svara við því Yfir 13 þúsund manns hafa hjólað Tour de France. Fleiri en sex þúsund sem hafa komist á tind Everest. Yfir 550 hafa komist út í geim. En það innan við 300 manns hafa heimsótt öll lönd heimsins. Þau eru fjögur sem hafa heimsótt öll lönd í heiminum tvisvar. Tveir hafa komið til allra landa í heiminum í einni og sömu ferðinni, það er án þess að fara heim á milli. Daninn Torbjørn Pedersen er annar þeirra og hann er jafnframt sá eini sem hef farið til allra landa í heiminum án þess að fara með flugi. Ókunnugir eru vinir sem þú átt eftir að kynnast, var yfirskrift tíu ára heimsreisu Pedersens. Við heyrðum í Pedersen þegar takmarkinu var náð og skulum hér heyra ferðasöguna hans.
Sendu okkur skilaboð!Föstudagur er genginn í garð og það þýðir aðeins eitt kæru hlustendur, það er Ylvolgur Kalli og business. Farið varlega inn í helgina.
Það vakti mikla athygli í fyrra þegar íslenska fyrirtækið Kerecis var selt dönsku stórfyrirtæki fyrir 1,3 milljarða dollara. Ef við gerum tilraun til að reikna það í krónur þá eru það um 180 íslenskir milljarðar. Sem þykir dágott og þar með varð Kerecis fyrsta íslenska sprotafyrirtækið sem er metið á meira en milljarð Bandaríkjadala. Fyrirtækið notar þorskroð til að græða sár sem gróa seint og illa, t.d. vegna sykursýki og áverka vegna bruna og hefur tryggt sér nokkur einkaleyfi tengd aðferðum og vörum fyrirtækisins. Nýsköpunarvika hefst síðar í þessari viku og í tengslum við hana ætlar Guðmundur Fertram Sigurjónsson uppfinningamaður, stofnandi og forstjóri Kerecis að ræða meðal annars um uppgötvanir fyrirtækisins og þátt einkaleyfa í velgengni þess. Við ætlum að ræða við Guðmund Fertram á eftir um þetta. Við heyrum líka málfarsmínútu eins og jafnan á mánudögum og svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV í heimsókn og rifjar upp áhugavert efni úr safninu.
Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur verið í talsverðum vandræðum undanfarin ár. Fyrirtækið hafði átt áratuga sögu sem framleiðandi öruggra og góðra farþegavéla. Hvað fór eiginlega úrskeiðis? Hallgrímur Indriðason leitar svara við því. Körfuboltakonan Caitlin Clark er á vörum allra sem fylgjast með körfubolta í Bandarkjunum og víðar og hún er ekki einu sinni byrjuð í atvinnumennsku. Þorgils Jónsson segir okkur frá Clark.
Gleðilegan marsmánuð kæru hlustendur! Hann er fjörugur þátturinn í dag svo ekki sé meira sagt en umfjöllunar efni dagsins eru eins misjöfn og þau eru mörg, allt frá nafnabreytingum og upp í acquisitions! Eigið yndislega helgi kæru launþegar og munið að hvíla ykkur vel!
Við huguðum að Grindvíkingum í þætti dagsins. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, ræddi við okkur. Hún er ein þeirra sem fór inn í bæinn í gær til að sækja eigur sínar. Hún sagði frá erfiðu ástandi á mörgum vígstöðum, mörgum finnist sem þokist of hægt í því að leysa úr málefnum bæjarbúa. Í Berlínarspjalli sagði Arthúr Björgvin Bollason okkur meðal annars frá tíðindum sem bárust út um Þýskaland um helgina, þess efnis að eftir tvö ár er von á nýjum líftæknilyfjum við krabbameini. Fyrirtækið Biontech hefur þróað þessi nýju lyf en það var í fararbroddi við þróun bóluefnis gegn covid-19 á sínum tíma. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar rýndi í afkomu nokkurra fyrirtækja á síðasta ári, sagði frá nýju greiðslukerfi sem Seðlabankinn er með í smíðum og frá þróun á íbúðamarkaði. Tónlist: Melanie - Pebbles in the sand. Melanie - Brand new key. Melanie, Hawkins, Edwin Singers - Lay down (candles in the rain). Lindenberg, Udo - Wir ziehen in den Frieden.
Viðmælandi þáttarins er Garðar Stefánsson, meðstofnandi og forstjóri matvælafyrirtækisins GOOD GOOD. Fyrirtækið framleiðir m.a. sykurlausar sultur, sætuefni og súkkulaði- og hnetusmjör. GOOD GOOD hefur safnað um $25m+ frá fjárfestum og sækir nú fram á Bandaríkjamarkaði. Garðar er fæddur árið 1984 og ólst upp í Langholtshverfinu. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og Master gráðu í Upplifunarhagkerfinu (e. Experience Economy) frá Háskólanum í Árósum. Garðar var áður meðstofnandi og framkvæmdastjóri saltframleiðslufyrirtækisins Norður Salt og meðstofnandi Saltverks Reykjaness ehf. Þessi þáttur er í boði Arion, Icelandair og Krónunnar.
Viðmælandi þáttarins er Birgir Örn Birgisson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Domino's. Birgir er fæddur árið 1972 og ólst upp á Borgarnesi og fór síðan í Menntaskólann á Akureyri. Hann flutti til Reykjavíkur og lauk BS í hagfræði frá Háskóla Íslands og frá Pompeu Fabra Barcelona. Birgir starfaði í 10 ár sem forstjóri Domino's á Íslandi og 13 ár sem “Group Managing Director” hjá Strax en hann sat einnig í stjórn félagsins. Fyrirtækið framleiðir og dreifir aukahluti fyrir farsíma. Birgir hefur starfað sem framkvæmdastjóri Cintamani og fjárfest og setið í ýmsum stjórnum m.a. sem stjórnarformaður Billboard/Dengsa/BBI, auglýsingafyrirtækis, sem var selt til Símans núna í janúar 2024. Hann hefur einnig setið í stjórnum Domino's í Noregi, veitingastaðarins Joe & the Juice, afþreyingarfyrirtæksins Lava Show, tæknifyrirtækjanna Andes og Prógramm og leitarsjóðsins Leitar Capital Partners. Ásamt því að taka þátt í fasteignamarkaðnum í gegnum EB Invest. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion og Icelandair.
Grindavík er ekki staður sem fjölskyldur geta búið á eins og staðan er núna og líklegra að einhver ár líði frekar en mánuðir áður en það breytist, segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðvísindamaður í viðtali við Ævar Örn Jósepsson. Fyrirtækið Zephyr áætlar að byggja upp allt að 500 megavatta vindorkugarð í landi Klaustursels á Jökuldal í Múlaþingi. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræddi við Jónínu Brynjólfsdóttur, forseta sveitarstjórnar Múlaþings og Gunnar Guðna Tómasson, framkvæmdastjóra vatnsafls hjá Landsvirkjun. Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir stríðandi fylkingar fyrir botni Miðjarðarhafs hunsa alþjóðalög, traðka á Genfarsáttmálanum og brjóta mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hann og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eru sammála um að án tveggja ríkja lausnarinnar svonefndu verði ekki friður í heimshlutanum. Ásgeir Tómasson tók saman.
Viðmælandi þáttarins er Þorsteinn Baldur Friðriksson, framkvæmdastóri og meðstofnandi leikjafyrirtækisins Rocky Road en fyrirtækið þróar nú nýjan samfélagsleikjamiðil fyrir snjallsíma. Fyrirtækið hefur nú safnað um samtals 700 milljónum kr. frá innlendum og erlendum fjárfestum, þ.á.m. íslenska vísissjóðnum Crowberry Capital, Luminar Ventures og Sisu Ventures. Þorsteinn er fæddur árið 1979 og ólst upp í Vesturbænum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og síðar MBA gráðu frá Oxford háskóla í Englandi. Þorsteinn stofnaði leikjafyrirtækið Plain Vanilla árið 2010 sem gaf m.a. út vinsæla spurningaleikinn Quizup sem fór sigurför um heiminn og safnaði í um 7 ma. kr. frá erlendum fjárfestum þ.á.m. frá Sequoia fjárfestingasjóði. Fyrirtækið var síðan selt til GluMobile árið 2016. Þorsteinn stofnaði einnig leikjafyrirtækið Teatime Games, sem bjó til farsímaleiki sem nýttu nýja tækni til að gera leiki persónulegri með myndspjalli og gáfu þá m.a. út spurningaleikinn Trivia Royal. Þorsteinn vann áður í sölu- og markaðsmálum hjá fjarskiptafyrirtækinu Hive, Industria, Vodafone, TM og BT. Þorsteinn hefur setið í stjórn Icelandic Startups (Klak) og í stjórn hugbúnaðarfyrirtækjanna Oz og Sling. Þessi þáttur er í boði Arion, Icelandair og Krónunnar.
Friedrich Nietzsche er einhver alræmdasti hugsuður vestrænnar nútímasögu og alltaf virðast nýjar kynslóðir heillast af skrifum þessa þýska heimspekings, fólk verður heltekið. Nú á dögunum kom út íslensk þýðing á bókinni Andkristur frá árinu 1888, bók með ógnvænlegan titil, bók sem er skrifuð af knýjandi þörf, jafnvel heift gagnvart kristinni trú, en líka djúpu innsæi og mannskilningi. Andkristur er með því síðasta sem kom frá Nietzsche en aðeins nokkrum mánuðum síðar fékk hann taugaáfall, missti vitið, veiktist á geði. Sigríður Þorgeirsdóttir mætir í Lestina og ræðir um Jesú Krist og Andkrist Nietzsches. Við ræðum við Val Gunnarsson rithöfund sem fékk ánægjuleg skilaboð í gær, en hann fær ritlaun í fyrsta skipti, eftir einhverja tvo áratugi af ritstörfum og sjö útgefnar bækur. Nýlega var tilkynnt um þriðju hópuppsögnina í ár hjá Spotify, framleiðslu virtra hlaðvarpa hefur verið hætt, og greiðslumódeli tónlistarfólks hefur verið breytt. Fyrirtækið virðist nú gera allt til að byrja að skila hagnaði. Við ræðum við Árna Matthíasson um hagnaðarvon og hnignun Spotify.

Viðmælandi þáttarins er Guðbjörg Rist, forstjóri Atmonia. Guðbjörg er fædd árið 1989 og er alin upp í Garðabæ en síðan lá leið hennar í Menntaskólann í Hamrahlíð. Hún kláraði BS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og Master í framleiðsluverkfræði frá Chalmers University í Svíþjóð. Atmonia er nýsköpunarfyrirtæki sem er að þróa nýja og umhverfisvæna aðferð við framleiðslu á ammoníaki til notkunar í áburð og útblástursfrítt eldsneyti. Fyrirtækið er með þrjú útgefin einkaleyfi á efnahvötum og hefur safnað um 1,2 ma.kr. í styrki og 250 milljónir í fjárfestingu. Í dag telur teymið um 17 manns og stefnir með vöru á markað árið 2028. Guðbjörg hefur áður unnið hjá Promens plastfyrirtæki, í Svíþjóð, í verkefnum í verksmiðjunum þeirra vítt og breitt um Evrópu. Árið 2015 flutti hún aftur til Íslands, vann þá sjálfstætt og vann síðar sem breytingastjóri hjá Arion í Stafrænni Framtíð. Árið 2018 var Guðbjörg ráðin inn sem fyrsti starfsmaður Atmonia og tók síðan við sem forstjóri þar árið 2019. Guðbjörg er stjórnarmaður í Samtökum Sprotafyrirtækja og í stjórn Samtaka Vetnis- og rafeldisneytisfyrirtækja. Þessi þáttur er kostaður af Icelandair, Krónunni og Arion banka.
Góðir Pyngjuhálsar! Þáttur dagsins er stútfullur af tuði, fréttum og hitamálum svo ekki sé meira sagt. Fyrirtæki hafa oft í gegnum tíðina skreytt sig með stolnum fjöðrum og við viljum því hreinlega fá það á hreint í Spotify könnun hvort það komi í hlut fyrirtækja að vera einhverskonar samfélagsverðir. Gangið hratt í gegnum gleðinnar dyr um helgina, kæru hlustendur.
Helgi fékk að prufa að vinna á leikskóla þegar Hjálmar vann á leikskóla. Þegar Ljósa gleymir húsverki þá skrifar Hjálmar það niður í notes, því Ljósa er með notes í hausnum.IG: helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!
Í Heimskviðum í dag förum við víða eins og venjulega, náttúruhamfarir í Afríku, pólitík í Póllandi og fjöllum svo um verðmætasta fyrirtæki Evrópu. Íbúar Norður-Afríku máttu þola tvenns konar náttúruhamfarir á þremur dögum um síðustu helgi. Mikið manntjón varð eftir jarðskjálfta í Marokkó og flóð í Líbíu og íbúar kvarta undan því að neyðaraðstoð berist ekki nógu hratt. Bjarni Pétur ræddi við Jóhann Thoroddsen sálfræðing sem fór á vettvang jarðskjálftanna í Bam í Íran í byrjun aldarinnar og svo aftur á Haítí. Og hann þekkir vel þessa vinnu sem fer af stað þegar svona hamfarir verða, hvernig unnið er úr áföllunum og hvernig líðan fólks við þessar aðstæður. Við fjöllum um verðmætasta fyrirtækið í Evrópu. Það er danskt en er þó hvorki LEGO né Carlsberg. Það heitir Novo Nordisk og hagvöxtur danska ríkisins var á fyrri helmingi ársins keyrður áfram á þessu eina fyrirtæki. Fyrirtæki sem er metið með hærra markaðsvirði en heildarvirði danska hagkerfisins. Birta kynnti sér sögu Novo Nordisk. Svo förum við til Póllands. Vaxandi skautun og óvægin umræða um pólitíska andstæðinga einkennir kosningabaráttuna í Póllandi, þar sem þingkosningar verða haldnar fimmtánda október. Stjórnarflokkurinn, sem á pólsku kallast Lög og réttlæti, hefur verið við völd frá 2015. Nái flokkurinn aftur meirihluta, yrði það í fyrsta skipti síðan 1989, þegar kommúnistar létu af völdum í Póllandi, að sami flokkur haldi um stjórnartaumana þrjú kjörtímabil í röð. Það verður spennandi að sjá hvort það takist því skoðanakannanir benda til þess að stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Borgaravettvangur - gæti unnið nauman sigur og mögulega púslað saman meirihlutastjórn með smærri flokkum. Björn Malmquist, fréttaritari RÚV í Brussel, var í Póllandi á dögunum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Viðmælandi þáttarins er Björn Hólmþórsson, stofnandi og forstjóri Five Degrees. Björn er fæddur árið 1975 og er alinn upp á Suðurnesjunum og Hafnarfirði. Hann útskrifaðist á eðlisfræðibraut við Menntaskólann í Hamrahlíð og kláraði próf í tölvunarfræði frá HR, áður TVÍ. Hann hefur unnið við forritun hjá Fjarvangi, forritari og verkefnastjóri í hugbúnaðargerð hjá Mens Mentis en þar vann hann við gerð eignastýringakerfis og lánakerfis. Síðar fór hann til Englands og vann við hugbúnaðargerð hjá Raft International en þaðan flutti hann til Lúxemborg árið 2003 þar sem hann byrjaði í hugbúnaðargerð og varð síðar framkvæmdastjóri tæknimála (CIO) hjá Landsbankanum í Lúxemborg. Björn stofnaði fjártæknifyrirtækið Five Degrees árið 2009 sem er með skrifstofur á Íslandi, Portúgal og í Hollandi og þróar hugbúnaðarlausnir í skýið fyrir banka víðsvegar um heiminn. Árið 2018 keypti Five Degrees, íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Libra og er þ.a.l. með mikil umsvif á Íslandi. Five Degrees hefur safnað um 4,5 ma. kr. frá erlendum fjárfestum til að fjármagna vöxt félagsins á síðustu árum. Five Degrees var selt til alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækisins Topicus nú í mars 2023. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Icelandair og Arion banka.
Viðmælandi þáttarins er Ingvar Helgason, stofnandi og framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins VitroLabs Inc. Vitrolabs er nýsköpunarfyrirtæki sem þróar leður úr stofnfrumum dýra. Fyrirtækið er staðsett úti í Bandaríkjunum og hefur safnað yfir $46m frá m.a. Khosla Venures og Leanordo Dicaprio. Ingvar er fæddur árið 1980 og hóf ungur störf í tískuiðnaðinum. Eftir að hann flutti til London árið 2001 hóf hann störf hjá tískuhönnuðinum Marjan Pejoski sem er frægastur fyrir svanakjól Bjarkar og stofnaði síðan tískufyrirtækið Ostwald Helgason í Bretlandi sem hannaði og framleiddi tískuföt sem seld voru víða um heim. Eftir lokun fatamerkisins stofnaði Ingvar Vitrolabs Inc. árið 2016 sem framleiðir leður úr stofnfrumum dýra á umhverfisvænan hátt sem verður m.a. selt til tísku- og bílaframleiðanda. Þessi þáttur er í boði Krónunnar, Arion banka og Icelandair.
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um ráðningu nýs framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sameiningar fyrirtækja á borð við VÍS og Fossa sem og Regins og Eikar, niðurskurð á Karólínska spítalanum og margt fleira.
Spegillinn 9. Júní 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir Nýliðun er slök í mjög mörgum sjávarnyjategundum, segir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Þorskstofninn er þó hægt vaxandi og ýsustofninn stendur vel. Benedikt Sigurðsson talaði við hann. Margrét Gísladóttir, talsmaður Mjólkursamsölunnar, segir að fréttir af óendurunnum fernum hafa komið sér á óvart. Fyrirtækið harmi mjög hvernig fór og að þau hafi treyst verkferlum. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps fer fram á við Skipulagsstofnun að fresta ákvörðun um landnotkun vegna uppsetningar vindorkugarðs í Búrfellslundi um allt að 10 ár. Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri segir nærumhverfið ekki njóta ávinnings af virkjuninni. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir talaði við hann. Stríðandi fylkingar í Súdan hafa samþykkt sólarhrings vopnahlé frá og með morgundeginum. Ástandið í landinu er slæmt og farið að bera á skorti á aðföngum í höfuðborginni Khartoum og í Darfur-héraði. Ástrós Signýardóttir sagði frá. Héraðssaksóknari hefur fellt niður kæru á hendur Vítalíu Lazarevu. Hún var sökuð um að hafa reynt að kúga fé út úr þeim Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni. Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kemur fyrir alríkisdómstól í Flórída þar sem honum verður birt ákæra. Hún hefur enn ekki verið opinberuð en er sögð vera í sjö liðum, þar á meðal um brot á lögum um njósnir. Ásgeir Tómasson sagði frá. Það stórsér á trjám og garðagróðri á Suðvesturlandi eftir kaldan og hretviðrasaman maí. Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur telur þó ótímabært að fella þau tré sem verst urðu úti. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann.

Fjölmiðlahrun í Ameríku og fjöldamorð í Afríku eru á dagskrá í Heimskviðuþætti vikunnar. Bandarísk/kanadíska fjölmiðlafyrirtækið Vice Media er gjaldþrota og söluferlið er hafið. Þótt Vice hafi upp á síðkastið verið virt vörumerki í fréttaheiminum, fyrir sína beinskeittu vettvangsblaðamennsku kemur gjaldþrotið ekki alveg á óvart. Fyrirtækið hefur í nokkurn tíma barist í bökkum í breyttu landslagi stafrænnar fjölmiðlunar, samfélagsmiðla og auglýsinga og skuldir þess safnast upp. Jóhannes Ólafsson fjallar um hrun þessa brautryðjandi miðils og fær til sín tvo blaðamenn til að leggja mat á fjölmiðlalandslag heimsins. Sunna Valgerðardóttir fjallar um sétrúarsöfnuðinn Good News International Church í síðari hluta þáttarins og skoðar fleiri dæmi úr sögunni. Meira en 200 lík hafa nú fundist í Shakahola-skóginum í Kenía. Leiðtoginn, séra Paul Mackenzie, hefur verið handtekinn. Þau voru látin svelta sig í hel til að komast til himna á dómsdegi. Börn safnaðarmeðlima voru látin sitja meðvitundarlítil undir steikjandi Afríkusólinni til að flýta dauðaferlinu á þessu hrikalega fórnaraltari. Umsjónarmenn Heimskviða eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.

Föstudagskaffinu hefur verið sullað á borðið í þriðja skipti maí mánaðar og það er sjóðheitt þennan föstudaginn. Yngsti milljarðarmæringur vikunnar lítur dagsins ljós, launþegi vikunnar, verðbólgutips vikunnar, fréttir vikunnar og yfirferð á stofnun fyrirtækis. Við leggjum ekki meira á ykkur kæru hlustendur. Gangið hratt um gleðinnar dyr.
Áfram höldum við í heilbrigðisgeiranum en að þessu sinni er það Apótekskeðjan Lyfjaval. Fyrirtækið er þekkt fyrir sína einstaklega hentugu bílalúguþjónustu sem var algjör bylting fyrir margan viðskiptavininn. Svo kann að vera að House of SKEL komi fyrir í þessum þætti. Góða hlustun!
Spegillinn 4. maí 2023. Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Sauðfjárbændur og sveitarstjórnarfólk víða um land hafa þungar áhyggjur af slæmu ástandi girðinga á milli varnarhólfa og segja fjármagn til úrbóta af skornum skammti. Viðskiptabankarnir þrír högnuðust um rúma tuttugu milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Stjórnendur þeirra eru ánægðir með afkomuna. Óvissustig er í gildi vegna skjálftahrinu sem hófst í Mýrdalsjökli í morgun. Veginum inn að Kötlujökli hefur verið lokað Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur að skýrsla innviðaráðherra um áhrif nýrrar byggðar í Skerjafirði á rekstaröryggi Reykjavíkurflugvallar taki ekki á öllum álitamálum. Málið var rætt í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í morgun. Rúmlega helmingur Breta vill að Karl konungur þriðji og Kamilla drottning greiði sjálf allan kostnað við hátíðarhöldin þegar þau verða krýnd á laugardag Stjarnvísindamenn fylgdust nýverið með fjarlægri, dauðvona stjörnu gleypa í sig reikistjörnu. ----- Fyrirtæki á nokkurn veginn öllum sviðum kynna sína vöru og/eða þjónustu gjarnan sem græna, vistvæna, umhverfisvæna og jafnvel sjálfbæra, eða í það minnsta til þess fallna að auka sjálfbærni, án þess endilega að útlistað sé, hvað sé grænt og vistvænt við framleiðsluna, í hverju meint sjálfbærni hennar felst og hvað er á bak við þessar fullyrðingar um umhverfisvænleikann. Matthildur Sveinsdóttir, sviðsstjóri hjá Neytendastofu, flutti erindi á Loftslagsdeginum 2023, þar sem hún fjallaði um umhverfisfullyrðingar í markaðssetningu, en réttmæti þeirra er eitt af mörgu sem Neytendastofa hefur eftirlit með. Í máli hennar kom fram að 79 prósent evrópskra neytenda hafa keypt dýrari vöru en þeir í sjálfu sér hefðu þurft að kaupa, vegna þess að þeir töldu það betra fyrir umhverfið en að kaupa aðra og ódýrari vöru. Það er því eftir miklu að slægjast með slíkum merkingum fyrir framleiðendur, en geta neytendur treyst þeim? Tvö þúsund gestir verða viðstaddir þegar Karl þriðji, konungur Bretlands og samveldisríkja, og Kamilla drottning verða krýnd í Lundúnum á laugardag. Hann hefur gefið skipun um að aðhalds verði gætt í hvívetna. Gestirnir eru því mun færri en þegar móðir hans, Elísabet II, var krýnd árið 1953. Þá var átta þúsund manns boðið. Gestalistinn hefur verið birtur. Þar kennir ýmissa grasa, ef svo óvirðulega má að orði komast. Það hefur ekki síður vakið athygli hverjir eru ekki á honum. Harry prins, sonur Karls, mætir til að mynda einn. Meghan, hertogaynja af Sussex, verður eft

Rætt er við Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands um uppganginn sem nú er í fluginu eftir nokkur mögur ár. Fyrirtækin eru farin að keppa um starfsfólk, einkum í sérhæfðari störfin. Aðsókn að námi tengdu flugi minnkaði í heimsfaraldrinum og gæti dregið dilk á eftir sér. Fjallað er um byltinguna sem er að verða í orkuskiptum í fluginu og yfirvofandi kolefnisskatt á flugleiðina til landsins. Þá segir Matthías segir stuttlega frá starfi tekjustýringar Icelandair þar sem hann er forstöðumaður, en deildin náði eftirtektarverðum árangri á síðasta rekstrarári.
Spegillinn 10. febrúar 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn Útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Tuttugu og fimm eru ákærðir í tengslum við hnífaárásina á skemmtiustaðnum Bankastræti Club í Reykjavík í nóvember í fyrra. Einn þeirra er ákærður fyrir tilraun til manndráps og tíu fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru í málinu. Sólveig Klara Ragnarsdóttir sagði frá. Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur lokið rannsókn á skotárásarmálinu á Blönduósi. Kona á sextugsaldri og maður sem réðst vopnaður inn á heimili hennar létust í árásinni. Eiginmaður konunnar særðist lífshættulega. Málið er komið til héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um framhaldið. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Stéttarfélagið Efling ætlar að leita til félagsdóms vegna meintra verkfallsbrota Íslandshótela. Forsvarsmenn hótelanna þvertaka fyrir að þar séu framin verkfallsbrot og segja Eflingu heimilt að senda verkfallsverði á hótelin - en þó ekki nema tvo í einu. Alexander Kristjánsson sagði frá. Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að kínverskur loftbelgur, sem Bandaríkjaher skaut nýverið niður innan eigin lofthelgi, hafi ekki verið sérstök öryggisógn. Þingmenn hafa sumir gagnrýnt forsetann fyrir að hafa ekki brugðist fyrr við. Oddur Þórðarson sagði frá. Samlegðaráhrif af samruna Íslandsbanka og Kviku yrðu töluverð og hagræðingaraðgerðir óhjákvæmilegar, segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka. Stjórn Íslandsbanka samþykkti í gær að hefja viðræður um samruna við Kviku banka. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra bindur vonir við að sameiningarviðræður Íslandsbanka og Kviku leiði til aukinnar hagkvæmni á fjármálamarkaði, sem skili sér til neytenda. Sólveig Klara Ragnarsdóttir og Andri Yrkill Valsson tóku saman. Þá segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, að ekki sé tímabært að taka afstöðu til hugmyndarinnar um samruna bankanna. Bjarni Rúnarsson talaði við hann. Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur Alþýðusambands Íslands í neytendamálum, samsinnir því í viðtali við Ævar Örn Jósepsson, að íslensk stórfyrirtæki séu ófeimin við að lýsa því á heimasíðum sínum, stefnuyfirlýsingum og ársskýrslum, að þau sýni samfélagslega ábyrgð. Reyndin sé hins vegar önnur þegar afkomutölur þeirra eru skoðaðar á tímum síhækkandi verðlags á nauðsynjavörum og sífellt hækkandi vaxta. Framþróun á sviði gervigreindar er talin stærsta ógnin við viðskiptalíkan bandaríska tæknirisans Google. Fyrirtækið ætlar að bregðast við með útgáfu eigin gervigreindarspjallmennis. Það verður áskor
Fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa þurft að aðlagast sveiflukenndu rekstrarumhverfi á síðasta áratugnum. Ferðamannabylgja, heimsfaraldur og hvað svo? Horfurnar virðast góðar fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu en róðurinn hugsanlega þyngri fyrir þau sem selja vörur og þjónustu á innlendum markaði.Í þættinum er fjallað um stöðu verslunar og þjónustu á Íslandi. Þar spjalla saman þær Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar bankans, Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur og Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði bankans.