POPULARITY
María Pálsdóttir leikkona hefur svo sannarlega látið að sér kveða hér á Akureyri síðan hún flutti aftur þangað fyrir nokkrum árum. Hún opnaði Hælið, setur um sögu berklanna á Íslandi sem hefur hlotið mikla athygli enda fróðleg og áhrifarík sýning. Hún kom á fót Fiðringi, hæfileikakeppni grunnskólanna á Akureyri í ætt við Skrekk fyrir sunnan og í gærkvöldi kepptu níu grunnskólar til úrslita í Hofi. Nú síðast hefur hún sett á stofn fargufu á Akureyri sem hún kalla Sánuvagn Mæju. María sagði okkur frá þessu öllu í þættinum í dag. Garðeigendur eru byrjaðir að huga að garðinum og víða er fólk að hreinsa til eftir veturinn. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur kom til okkar í dag og fór yfir vorverkin og sagði okkur líka frá 140 ára afmæli Garðyrkjufélags Íslands, en hún er einmitt formaður félagsins. Fyrir aldarfjórðungi, í júnímánuði árið 2000, riðu yfir Suðurland öflugir jarðfskjálftar sem skildu eftir sig djúp spor í minni þeirra sem upplifðu þá. Sveitarfélagið Rangárþing ytra stendur að verkefninu „Skjálftasögur“ með það að markmiði að safna saman persónulegum sögum af þessum stóra atburði og hvetja fólk sem upplifði skjálftana til að deila reynslu sinni, en sveitarfélagið vill nú tryggja að þessar mikilvægu frásagnir verði skrásettar. Ösp Viðarsdóttir, markaðs- og kynningafulltrúi Rangárþings ytra sagði okkur betur frá þessu verkefni, en hægt er að senda inn sögur á heimasíðu sveitarfélagsins: www.ry.is Tónlist í þættinum í dag: Ævilagið / Hljómsveitin Eva (Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasardóttir) Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríkisson) Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson) Tíu dropar af sól / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlasons) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Vinstri ríkisstjórn þriggja flokka undir forsæti Kristrúnar Frostadóttur minnir æ meira á aðra vinstri stjórn – ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna á árunum 2009 til 2013. Þá lögðu Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon til atlögu við atvinnulífið og millistéttina. Skattar voru hækkaðir og haft í hótunum við undirstöðuatvinnugreinar landsins. Hugmyndafræði vinstri manna hefur því ekkert breyst. Hún byggir á þeirri trú að ríkissjóður sé að „kasta frá sér tekjum“ ef skattar eru ekki hækkaðir. Ekki sé verið að „nýta tekjutækifæri ríkisins“ og ríkissjóður sé að „afsala sér tekjum“ ef skattar og gjöld eru lækkuð.
Miðvikudagur 9. apríl Stjórnarandstaða, tollastríð, reynsluboltar, dauðastríð, óþekktur þingmaður, vá og ópera Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, ræðir um tolla og efnahagsstefnu Trump við Gunnar Smára. Reynsluboltarnir koma í spjall við Sigurjón Magnús: Bolli Héðinsson, hagfræðingur Einar Kárason rithöfundur Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur og fyrrum þingkona. Mest bar á umræðunni um veiðigjöld útgerðarinnar. Og auðvitað Donald Trump. Fyrsta langreyðurin sem Hvalur hf. skaut eftir að veiðar hófust á ný, eftir tímabundna stöðvun, háði 35 mínútna dauðastríð. María Lilja fær til sín þær Rósu Líf Darradóttur, lækni og formann samtaka um dýravelferð og stjórnarkonu Hvalavina auk Valgerðar Árnadóttur, nema í stjórnmálafræði og talskonu Hvalavina sem eru á einu máli um að ekki sé mögulegt að veiða stórhveli með mannúðlegum hætti. Óþekkti þingmaðurinn í þessari viku er Guðmundur Ari Sigurjónsson. Hver er hann? Hverjar eru hans persónulegu hliðar, hvað leynist bak við yfirborðið? Hvernig fékk hann örið á andlitinu? Björn Þorláks ræðir við nýjan þingmann á Alþingi. Þorgerður María Þorbjarnardóttir, jarðfræðingur og Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi ræða um véfengingu Frosta Sigurjónssonar og fleiri um vá sem steðjar að okkur vegna hlýnunar jarðar af manna völdum. Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Hanna Dóra Sturludóttir söngkona segja okkur frá Brím, nýrri íslenskri óperu sem tekur á heitri umræðu um kúltúrbörn.Er Sjálfstæðisflokkurinn að missa það? Þannig spyr einn af þingmönnum ríkisstjórnarinnar, Sigurjón Þórðarson sem ræðir um grímulaust málþóf minnihlutans, fýlu, frekju og eignarhald í spjalli við Björn Þorláks. Friðrik Margrétar-Guðmundsson tónskáld og Hanna Dóra Sturludóttir söngkona segja okkur frá Brím, nýrri íslenskri óperu sem tekur á heitri umræðu um kúltúrbörn.
Sjónvarpsþættirnir Adolescence á Netflix hafa náð metáhorfi um allan heim og vakið athygli á slæmri líðan og stöðu ungmenna í dag. Þættirnir sýna fram á að þau eru ekki hólpin innilokuð í herbergjum sínum fyrir framan skjá, því þar getur umræða til dæmis kvenhaturshópa á borð við INCEL hugmyndafræðina rutt sér inn í hugarheim ungmenna og haft mikil áhrif á tjáskipti þeirra heimssýn. Við fræddumst í þættinum um INCEL hugmyndafræðina, upphaf hennar og hversu áhrifamikil hún er að verða og ræddum í því samhengi um líðan íslenskra ungmenna og hvernig er tekið á stöðunni í skólakerfinu hér á landi og ekki síst inni á heimilunum. Við fengum Bjarka Þór Gröndfeldt stjórnmálasálfræðing, sem hefur rannsakað og skrifað um Incel hreyfinguna, og Soffíu Ámundadóttur sem er kennari og knattspyrnuþjálfari til fjölmargra ára. Lions hreyfingin hóf í dag sölu á Rauðu fjöðrinni, við helstu verslunarkjarna landsins og víðar til styrktar Píeta samtökunum og fovarnarverkefnis þeirra fyrir ungt fólk. En samtökin ætla að bjóða öllum framhaldsskólanemum á landinu upp á fræðslu um mikilvægi geðræktar og geðheilbrigðis. Áhersla er lögð á mikilvægi þess að styðja við geðheilsu ungs fólks og að vekja með þeim von og kenna þeim bjargráð þegar lífið virðist erfið áskorun. Ellen Calmon framkvæmdastýra Píeta samtakanna og Geirþrúður Fanney Bogadóttir, fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi, komu í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum í dag: Viltu vitrast / Samaris (Jófríður Ákadóttir, Þórður Kári Steinþórsson, texti Steingrímur Thorsteinsson) Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson) Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst Haraldsson) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Með skipulegum hætti hafa andstæðingar viðskiptafrelsis reynt að grafa undan athafnamönnum með ágætum árangri, ekki aðeins í sjávarútvegi heldur einnig í öðrum greinum. Þeir hafa sáð fræjum tortryggni gagnvart þeim sem stunda atvinnurekstur, gert þá sem hagnast á viðskiptum að skotspæni og táknmyndum hins illa. Skiptir engu hvort um er að ræða dugnaðarforka sem byggt hafa upp glæsileg fyrirtæki í sjávarútvegi eða iðnaðarmenn sem hafa byrjað með tvær hendur tómar en með elju og útsjónarsemi komið á fót traustum og arðsömum fyrirtækjum. Ekki einu sinni litlir sjálfstæðir atvinnurekendur – bakbein frjálsra viðskipta – fá að vera í friði líkt og Samfylkingin hefur sérstaklega hótað. Tilraun ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, 2009 til 2013, til að knésetja íslenskan sjávarútveg var þáttur í áralangri baráttu vinstri manna gegn frjálsu viðskiptalífi. Margir atorkusamir atvinnurekendur skildu ekki og skilja ekki enn að þegar búið er að koma böndum á „sægreifana“ kemur röðin næst að þeim. Í barnslegu sakleysi sátu þeir þegjandi hjá og nokkrir glöddust yfir því að nú skyldi útgerðin látin „borga“. Nú ætlar vinstri stjórn Kristrúnar Frostadóttur að leggja aftur til atlögðu við atvinnulífið. Nú er ferðaþjónustan í skotlínunni ásamt sjávarútvegi. Sú hætta er raunveruleg að dregið verði úr samkeppnishæfni tveggja mikilvægustu útflutningsgreina okkar, sem eru í harðri alþjóðlegri samkeppni, með ofursköttum. Til skamms tíma munu tekjur ríkisins líklega aukast en til lengri tíma lækka vegna minni umsvifa, lakari afkomu og fækkun starfa. Afleiðingin verður lakari lífskjör okkar allra.
Akureyrarklínikin er fyrst sinnar tegundar í heiminum sem rekin er af hinum opinbera en um er að ræða samstarfsverkefni Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sem þekkingar– og ráðgjafamiðstöð fyrir ME sjúkdóminn og eftirstöðvar Covid 19. Akureyrarklínikin samanstendur af þverfaglegu teymi lækna, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, iðjuþjálfa og hjúkrunarfræðings. Teyminu er ætlað að sinna ME sjúklingum á landsvísu, bæði í staðarviðtölum en einnig fjarviðtölum. Bati getur verið mjög hægur og í sumum tilfellum lítill sem enginn. Það þarf frekari vitundarvakningu um eðli sjúkdómsins, meðferð og batahorfur. Ingunn Eir Eyjólfsdóttir og Lilja Sif Þórisdóttir, félagsráðgjafar, sögðu okkur meira frá í þættinum í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisbókhaldi, kom til okkar í dag með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn fræddi hann okkur efni sem er mörgum hugleikið, húsnæðislánin. Þetta eru yfirleitt stærstu lánin sem fólk tekur á ævinni og lánaumhverfi á Íslandi er talsvert flókið, því var áhugavert að fá útskýringar á mannamáli um það sem hafa ber í huga varðandi val á láni. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Jón Knútur Ásmundsson, skrifstofumaður á Reyðarfirði, starfsmaður Austurbrúar, ljóðskáld og hundaeigandi. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Jón talaði um eftirfarandi bækur og höfunda Fólkið í kjallaranum e. Auði Jónsdóttur Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur Norwegian Wood og Novelist as a Vocation e. Haruki Murakami On Writing e. Stephen King Aðlögun e. Þórdísi Gísladóttur. Innanríkið – Alexíus e. Braga Ólafsson. Teiknimyndabækur æsku hans, Svalur og Valur, Tinni og fleiri Bloggarar, blaðamenn og pistlahöfundar um aldamótin, til dæmis Karl Th. Birgisson, Illugi Jökulsson og Egill Helgason. Tónlist í þætti dagsins: Alltígóðulagi / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson) Money / Pink Floyd (Roger Waters) Borgarfjarðarminning / Stefán Helgi Stefánsson og Davíð Ólafsson (Óli H. Þórðarson, texti Böðvar Guðmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
We are taking a little break getting geared up for Season 2 folks! To get you ready, Ann re-shares her personal favorite episode about the famed Fire Priest & Laki Volcano... Uncover the fiery mysteries of Iceland's tumultuous past in this episode as we delve into the eruption of the Laki volcano! Join us as we explore the harrowing events of 1783 when the Mother Nature unleashed its fury, spewing forth lava, toxic gases around the world, forever altering the landscape and people's lives. Learn about the captivating legend of the Fire Priest, a man said to possess supernatural abilities and a profound connection to the volatile forces that shaped Iceland's history. Like what you hear? Give us 5 Stars! And follow us for more... Checkout our website: Eerie Iceland Follow us on: Instagram Find our page on: Facebook Sources: Researcher: David Geir Jonasson – (Vik Expeditions) Source 1 Source 2 Source 3 Source 4 Source 5 Source 6 Eldrit sr. Jóns Steingrímssonar. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn (Lbs) MS 1552 4to f. 1r. Favorite Icelandic Books Episode by: Ann Irene Peters (Iceland Wedding Planner) Editing by: James Ede (Be Heard | Podcast Production)
Andrés Ingi Jónsson, fráfarandi þingmaður Pírata, Freyja Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, og Hafsteinn Birgir Einarsson, stjórnmálafræðingur, voru gestir Vikulokanna laugardaginn 7. desember. Þau ræddu meðal annars um niðurstöður nýafstaðinna Alþingiskosninga og stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Auk þess þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, starfandi matvælaráðherra, að veita hvalveiðileyfi til fimm ára. Umsjón: Alma Ómarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Sunnudagurinn 24. nóvember: Synir Egils: Pólitík, kosningar, sviptingar og umturnun Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og pólitíkina. Að þessi sinni koma þau Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi, Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir upplýsingafulltrúi ræða fréttir vikunnar og stöðuna í pólitíkinni. Þeir bræður fara líka yfir stjórnmálin og fá síðan Boga Ágústsson fréttamann og Ólaf Þ. Harðarson prófessor til að fara yfir liðnar og komandi kosningar.
Flestir Íslendingar eru að einhverju leyti hjátrúarfullir og þekkja þetta helsta að forðast að ganga undir stiga og berja í tré og segja 7-9-13. Nú er komin út ný bók hjátrú; Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar konur. Hér er fjallað um hjátrú af ýmsum toga, innlenda, erlenda, gamalgróna og nýja. Þjóðháttafræðingurinn Símon Jón Jóhannsson er höfundur bókarinnar og hann kom í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni og vinkill dagsins fjallar um mismunandi nálgun manneskjunnar á að „lenda í“ hinum ýmsu aðstæðum, hvernig sum okkar eru bara kærulaus og lenda í þessu og hinu og hvernig önnur segjast bara hafa „lent í“ ýmsu, en hafa í raun stefnt að því ljóst og leynt. Örlítið er fjallað um írska þjóðtrú í því samhengi og dæmi eru tekin af tveimur mönnum sem hafa mismunandi tengingar við eyjur í Atlantshafi. Báðir eru þeir dugnaðarforkar og jafn merkilegir, annar er svolítið frægur en hinn ekki. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ástrós Hind Rúnarsdóttir, bókmenntafræðingur og sviðslistakona. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum Hvað kostar hamingjan? / Nýdönsk og Sinfó (Ólafur Hólm, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson) For the good times / The Little Willies (Kris Kristofferson) Suma daga / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Teaque, Magnús Trygvason Elíasen og Daníel Friðrik Böðvarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Mánudagurinn 11. nóvember Pólitíkin, fátækt, þöggun og vinstrið Við byrjum á umræðu um stöðuna í pólitíkinni. Drífa Snædal talskona Stígamóta, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins greina stöðuna. Verður fátækt kosningamál? Ætti fátæk að vera kosningamál? Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, Vilborg Oddsdóttir félagráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Laufey Líndal Ólafsdóttir formaður Pepp samtaka fólks í fátækt ræða stöðuna. Jóhann Hauksson blaðamaður ræðir mál Jóns Gunnarssonar, sem sakar Heimildina um alvarleg óheilindi, er til umræðu. Í lokin kemur Steingrímur J. Sigfússon og ræðir um stöðu Vg og vinstrisins.
Við lítum inn á sýningu á verkum Steingríms Eyfjörð í Gallerí Listval. Sýningin kallast 1978 og á henni vinnur Steingrímur með avant-garde tímabilið í íslenskri listasögu. Verkin sjálf eru hugleiðingar um tímabilið 1957-1980 en upphaf tímabilsins miðar hann við komu Dieter Roth til landsins og endalok þess miðar hann við upphaf markaðsvæðingar á myndlist. Við heyrum einnig af nýrri plötu söngvaskáldsins Lauru Marling, Patterns in Repeat. Einlæga plötu sem fjallar um móðurhlutverkið og hin síendurteknu mynstur sem við manneskjurnar festum okkur í. Og Sölvi Halldórsson rýnir í Skrípið eftir Ófeig Sigurðsson.
Brauðtertan hefur fylgt okkur Íslendingum lengi og hún er borin á borð bæði á gleði- og sorgarstundum. Sagan segir að danska leikskáldið Ludwig Holmberg hafi kynnt til sögunnar samlokutertu í leikverki um aldamótin 1700 en það var svo í kringum 1940 sem samlokutertur, eða brauðtertur (smårgåstorta), urðu vinsælar í Svíþjóð og stuttu síðar í Finnlandi og svo hér á Íslandi var fjallað um brauðtertur í íslenskum tímaritum árið 1953. Brauðterta með rækjusalati er það sem flestir kalla hina klassísku brauðtertu en margir elska hangikjötsbrauðtertuna og enn aðrir skinkusalatsbrauðtertuna. Í dag er brauðtertugerð orðin að keppnisgrein á Íslandi. Friðrik V. Hraunfjörð og Erla Hlynsdóttir eru tvö af sex höfundum Stóru Brauðtertubókarinnar sem var að koma út og þau komu í brauðtertuspjall í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og þessi var sá 100. í röðinni frá honum. Guðjón Helgi fjallaði að þessu sinni um svæði sem stundum lendir í fréttum hjá okkur, borgina Karachi í Pakistan. Rætt er um fasteignaauglýsingu sem bar fyrir augu pistlahöfundar á rápi sínu um internetið, en þar eru falboðnar nokkrar lóðir við sjóinn í Karachi og auk þess var minnst á mannskætt flóð sem var á þessum slóðum fyrir fjórum árum. Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Steinunn Lilja Emilsdóttir verkefnastjóri á Ónæmisfræðideild Landspítalans. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum lífið. Tónlist í þættinum Bakkelsi / Baggalútur (Bragi Valdimar Skúlason) Waterloo Sunset / The Kinks (Ray Davies) Afturábak / Moses Hightower (Magnús Trygvason Eliassen, Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson, texti Andri Ólafsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og leikstjórinn Hilmir Snær Guðnason. Hann hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum og hann byrjaði að leikstýra í leikhúsum ungur að aldri. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í miðbænum og vesturbænum. Við röktum ættir hans í báða ættliði til Vestfjarða og fórum svo með honum á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og að lokum sagði hann okkur frá leikritinu Óskaland sem hann var að leikstýra á stóra sviði Borgarleikhússins. Það var færeyskt matarspjall í þættinum í dag, Sigurlaug Margrét kom með færeyska matreiðslubók, en hún smakkaði í fyrsta skipti færeyskar grindarbollur í síðustu viku sem vöktu áhuga hennar á færeyskri matargerð. Hún er að ýmsu leyti lík þeirri íslensku en líka að ýmsu leyti ólík. Tónlist í þættinum Óskaland / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) Budapest / George Ezra (Joel Pott & George Ezra Barnett) Texas Hold'em / Beyoncé (Atia "Ink" Boggs, Beyoncé, Brian Bates, Elizabeth Lowell Boland, Megan Bülow, Nate Ferraro & Raphael Saadiq) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Hár blóðþrýstingur getur farið leynt og afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Á laugardaginn er Slagdagurinn okkar og af því tilefni verður boðið uppá ókeypis blóðþrýstingsmælingu og ráðgjöf í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri. Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla og Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, taugasérfræðingur, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans, komu í þáttinn og fræddu okkur um til dæmis merkin sem við verðum að vera vakandi um, sem gætu bent til þess að slag sé hafið, en þau eru S.L.A.G.: Sjóntruflanir, Lömun útlima, Andlitslömun og Glatað mál. Ef þessi merki eiga við hjá okkur skiptir öllu máli að hringja strax í 112 því hver mínúta er mikilvæg í að lágmarka afleiðingar heilablóðfalls. Ofbeldi virðist vera að færast í aukana hjá ungu fólki og veldur áhyggjum, hverjar eru orsakirnar og hvernig getum við brugðist við? Við fengum Soffíu Ámundadóttur, verkefnastjóra Menntafléttunnar og kennara, og Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, leikskólakennara í þáttinn í dag. En þær fræddu okkur um málstofu á vegum Menntafléttunnar sem ber yfirskriftina Ræðum um ofbeldi og lausnir.Soffía hefur rannsakað og fjallað um ofbeldi nemenda í meistararitgerð sinni og Arnrún María rekur eigið fyrirtæki, Samtalið fræðsla ekki hræðsla þar sem hún leggur áherslu á samtalið við börn, sem sagt að fræða en ekki hræða. Í lok þáttar glugguðum við í grein í norska ríkisútvarisins NRK, sem fjallar um hvernig kaffidrykkja getur haft áhrif á kólestrólmagn eða blóðfitu. Það er ekki sama hvernig kaffi við drekkum og hversu mikið af því. En olía í kaffi getur leitt til hækkaðs kólestrólmagns í líkamanum. Tónlist í þættinum Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) Kaffi til Brasilíu / Stephan Hilmarz og Milljónamæringarnir (Hillard & Miles, texti Stefán Hilmarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Í fyrsta þætti Pod blessi Ísland, í umsjá Aðalsteins Kjartanssonar og Arnars Þórs Ingólfssonar, blaðamanna Heimildarinnar, er farið yfir nýjustu vendingar í stjórnmálum og rýnt í líklegar ríkisstjórnir út frá nýrri þingsætaspá Heimildarinnar og Dr. Baldurs Héðinssonar. Var það taktísk snilld hjá Viðreisn að setja Jón Gnarr í 2. sæti? Munu Egilsstaðabúar hætta við að kjósa Samfylkinguna af því að Dagur B. er á lista í Reykjavík? Er Ragnar Þór Ingólfsson hægrimaður? Við fáum ferðasögu Aðalsteins frá Þingvöllum og frásögn af blaðamannafundi þar sem hann lagði óvænta spurningu fyrir Volodimír Selenskí um áframhaldandi viðskipti Íslendinga við Rússa eftir innrás Pútíns í Úkraínu. Í lok þáttar er svo farið stuttlega yfir nýja bók Steingríms J. Sigfússonar, sem fjalla um alla snillingana sem hann kynntist í stjórnmálum. En svo droppar hann líka nokkrum sprengjum. Þemalag þáttarins er Grætur í Hljóði eftir Prins Póló
Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í næstu viku. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem árlegur menningarviðburður barna og unglinga. Þarna verða sýndar alþjóðlegar verðlaunamyndir fyrir alla fjölskylduna og opnunarmynd hátíðarinnar í ár er ævintýra og fantasíumyndin Flow, sem vann dómnefndar og áhorfendaverðlaun á Annecy teiknimynda hátíðinni í ár. Myndin er án tals og hefur verið kölluð ein byltingarkenndasta teiknimyndin síðan Bambi kom út. Lísa Björg Attensperger, stjórnandi hátíðarinnar og Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradís komu í þáttinn. Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn fjallaði að þessu sinni um fráveitumannvirki, sem eru pistlahöfundi hugleikin nú í þíðunni, hann velti fyrir sér ýmsum tæknihugtökum og bregðum á leik með samanburði á slíkum fyrirbærum milli þjóða sem hafa marga eða fáa íbúa á ferkílómeter. Að lokum kom svolítil tilvitnun í Innansveitarkróníku Halldórs Laxness. Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Stefán Halldórsson, félagsfræðingur, rekstrarhagfræðingur og ættfræðigrúskari. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Stefán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi, e. Þú ringlaði karlmaður – tilraun til kerfisuppfærslu e. Bernskubók e. Sigurð Pálsson Það liðna er ekki draumur e.Theodor Kallifatides Staðurinn e. Annie Ernaux Veröld sem var e. Stefan Zweig Söknuður e. Matthías Johannessen Þríleikurinn Gangvirkið (1955), Seiður og hélog (1977), Drekar og smáfuglar (1983) e. Ólaf Jóhann Sigurðsson Tónlist í þættinum í dag: Stundum / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen og Steingrímur Karl Teague) Grýla / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson, texti Pétur Gunnarsson) Oh Happy Day / Edwin Hawkins Singers (Edwin Hawkins) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Þriðjudagurinn 24. september Freki karlinn, aðgerðarleysi í loftlagsmálum, Brasilía, innanlandsflug, Sýslumaður dauðans og ull Við hefjum þáttinn á umræðu um karla með Bjarna Karlssyni; Bergsteinn Sigurðsson blaðamaður, Atli Þór Fanndal starfsmaður Pírata og Páll Baldvin Baldvinsson leikstjóri ræða karlmennsku og einkum freka karlinn. Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands., Auður Önnu Magnúsdóttir fyrrum framkvæmdastjóri Landverndar, Guðmundur Steingrímsson doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði og Þorbjörg María Þorbjarnardóttir formaður Landverndar gagnrýna aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftlagsmálum. Luciano Dutra segir okkur frá pólitíkinni í Brasilíu og Ólína Freysteinsdóttir íbúi á Akureyri frá hækkun á innanlandsflugi. Við ræðum leikritið Sýslumaður dauðans við höfundinn Birni Jón Sigurðsson, leikstjórann Stefán Jónsson, aðalleikarann Harald Ara Stefánsson og leikhússtjórann Brynhildi Guðjónsdóttur. Og í lokin segir Hulda Brynjólfsdóttir bóndi og eigandi Uppspuna okkur frá ullarvikunni.
Þátturinn er í boði: Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið! Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla Bpro - www.bpro.is Kristjana Steingrímsdóttir, betur þekkt sem Jana Steingríms og þekkt á samfélagsmiðlum undir @janast er heilsuþjálfari, jóga kennari og kokkur en næring er hennar besta fag og er maturinn hennar töfrum líkast, bæði fyrir augun, ilm og bragð. Jana er ein af stofnendum Happ sem við munum eflaust mörg eftir og er Happ enn í blússandi í Lúxemborg. Við förum um víðan öll, en það sem ég tók mest úr þessu spjalli var þekking hennar og ástríða um að borða regnbogann og nýta mat sem næringu og grunn að góðri heilsu og gera það skemmtilega! Ég mæli svo innilega með að hlusta á þessa stórkostlegu konu og fylgja henni á samfélagsmiðlum og njóta þar líka! Þið finnið Jönu á Instagram undir @janast Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
Við ætlum að forvitnast um hugmyndir um orkuframleiðslu í geimnum. Þetta hljómar dálítið eins og vísindaskáldskapur en slíkar hugmyndir hafa verið uppi í hálfa öld. Og nú hefur íslenska loftslagsfyrirtækið Transition Labs gert samstarfssamning við breska fyrirtækið Space Solar sem hefur hannað sólarorkuver sem staðsett verða á sporbaug um jörðu. Þar mundu þau virkja geisla sólarinnar og miðla orkunni til jarðar með útvarpsbylgjum. Kjartan Örn Ólafsson framkvæmdastjóri Transition Labs segir okkur meira. Guðlaug Steingrímsdóttir, kaupmaður í söluturninum Skalla við Hraunbæ í Árbæjarhverfi í Reykjavík, bauð öllum sem vildu upp á ís úr vél í gær í tilefni af fjörutíu ára starfsafmæli sínu - við ræðum við hana um þessi tímamót, sjoppurekstur og það hvað einkennir sjoppuna Skalla sem á sér meira en hálfrar aldar sögu. Við heyrum málfarsmínútu, og svo fræðumst við um fjölskyldulíf þeirra Jóns og Söru, sem nýlega fluttust í Hafnarfjörðinn. Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður og dýravinur, hefur kynnst þessu álftapari vel og aðstoðað þau við að koma ungum á legg. Hann kemur til okkar í lok þáttar. Tónlist: GDRN - Ævilangt. KLASSART - Landamæri. Una Torfadóttir, Sigurður Halldór Guðmundsson Tónlistarm. - Þetta líf er allt í læ.
Steingrímur Karl Teague er söngvari, djazzpíanisti, lagahöfundur og bókmenntafræðingur, sem ólst upp á Seltjarnarnesi með viðkomu í Bandaríkjunum. Hann er hvað þekktastur fyrir að vera einn af meðlimum hljómsveitarinnar Moses Hightower, sem setti alveg nýjan tón í íslenska tónlistarflóru árið 2010 með plötunni Búum til börn. Sálarskotinn fönk hljóðheimurinn í bland við hrífandi íslenska texta hefur svo þróast áfram á fjórum plötum, nú síðast Lyftutónlist sem kom út 2020. Steingrímur hefur auk þess spilað og sungið með fjöldanum öllum af tónlistarfólki í gegnum árin, þar á meðal Of Monsters and Men og Uppáhellingunum sem einmitt gáfu út plötuna Tempó Primo. Árið 2021 gaf Steingrímur út plötuna More Than You Know með söngkonunni Silvu Þórðardóttur þar sem dúóið útsetur og leikur sér með fræga djazzstandarda.
Málverkasýningin Lingering Space hefur staðið opin í Listval frá 16. mars en þar sýnir Steingrímur Gauti Ingólfsson óhlutbundin málverk sem skoða samspil sköpunar, egósins og andlegs þroska með innsæið að leiðarljósi. Við kíkjum í Listval í þættinum. Hildigunnur Sverrisdóttir verður einnig með okkur í þættinum en í dag beinir hún sjónum að facebookhópnum Arkitektúruppreisnin á Íslandi; byggjum fallegt aftur - en þar gjarnan fram hitaumræður um stöðu byggingalistar á Íslandi. Einngi kynnum við okkur listasýningu í Bandaríkjunum þar sem stór hópur listamanna frá Norðurlöndunum veltir fyrir sér stöðu landslagsmálverksins á tímum loftslagsbreytinga. Sigurður Ámundason er þeirra á meðal og er gestur okkar í dag.
Ásrún Magnúsdóttir og Forward Youth Company frumsýna verkið Eftirpartí í Tjarnarbíói á fimmtudag. Verkið semur hún líkt og svo oft áður, í samstarfi við dansara verksins, en verk Ásrúnar miða að því að teygja á ríkjandi hefðum innan dansins t.d með því að vinna með fólki sem vanalega dansar ekki, ásamt því að beina sjónum að röddum og líkömum sem komast vanalega ekki upp á svið. Við hittum Ásrúnu tvo meðlimi Forward Youth Company í þætti dagsins. Einnig hugum við að myndlistasýningunni Draumadoc úr smiðju Steingríms Dúa Mássonar, kvikmyndagerðarmanns. Sýningu sem opin er á Facbook og er unnin upp úr draumum Steingríms. Og Jakub Stachowiak, rithöfundur, heldur áfram pistlaröðinni Hjartabrostnar borgir þar sem hann segir frá ferðalagi sem hann hélt í síðasta sumar til Rómar að skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg.
Ellen Calmon var ráðin verkefnisstýra Húsnæðisteymis Grindavíkurbæjar sl.desember en verkefnið var áætlað í 6 mánuði. Í upphafi snerist vinnan um að koma fólki í bráðabirgðarskjól en nú er verið að vinna að varanlegri lausnum í húsnæðismálunum. Ellen og hennar teymi hefur það verk með höndum að halda utan um og aðstoða það fólk sem er húsnæðislaust. Ellen kom til okkar í dag og fór með okkur yfir stöðuna. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni, í þetta sinn fjallaði vinkillinn um ótímabæra framkvæmdagleði á svikavori, en líka um ábrysti og hvernig þeir eru hanteraðir. Þá er fjallað um óhefðbundnar aðferðir við að vinna ýmis verk og hvernig sumar þeirra eiga uppruna sinn á einum stað og einni stundu auk þess sem nefnd eru ýmis dæmi um slíkt; en sum hver lýsa rósrauðum bjarma fortíðar og eru ekki til eftirbreytni í nútímanum. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Sunna Kristín Hilmarsdóttir verkefnastjóri hjá samskiptasviði Háskólans í Reykjavík. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sunna talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: I am Glad My Mom Died e. Jennette McCurdy Tól e. Kristínu Eiríksdóttur Þagnarbindindi e. Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur Kláði e. Fríðu Ísberg svo talaði hún um Guðrúnu Evu Mínervudóttur Tónlist í þættinum: Daydream / Doris Day (John Sebastian) Answer me, my love / Silva Þórðardóttir og Steingrímur Karl Teague (Gerhard Winkler, Fred Rauch og Carl Sigman) Lazy Sunday / Small Faces (Lane & Marriot) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Við forvitnuðumst í dag um nýja próteingjafa á borð við skordýr og örþörunga, en markmiðið með því að nýta þá er að minnka umhverfisáhrif, draga úr sóun, vatnsnotkun og kolefnisspori í framleiðslu á matvörum fyrir fólk og fóðri fyrir dýr. Margrét Geirsdóttir, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá Matís, kemur í þáttinn og sagði okkur frá því hver þróunin er í þessum málum, meðal annars frá framleiðslu og nýtingu á skordýrapróteini, einfrumupróteini og örþörungum. Marche hérað er eitt best geymda leyndarmál Ítalíu segja margir. Þetta rólega og strjálbýla hérað liggur á milli Adríahafsins og öllu þekktari eru nágrannahéruð þess, Toskana og Umbria. Sumir segja að Marche sé eins og Toskana var fyrir 50 árum síðan, hrátt en undurfallegt. Ágústa Sigrún Ágústsdóttir mannauðsstjóri og leiðsögumaður kom til okkar í dag en þetta svæði er í miklu uppáhaldi hjá henni og hún heldur úti ferðasíðunni Flandrr.is. Tónlist í þættinum: Háa c / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Daníel Friðrik Böðvarsson, Magnús Trygvason Eliassen og Steingrímur Teague) Ölduslóð / Svavar Knútur (Svavar Knútur) Scenes from an Italian Restaurant / Billy Joel (Billy Joel) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Uncover the fiery mysteries of Iceland's tumultuous past in this episode as we delve into the eruption of the Laki volcano! Join us as we explore the harrowing events of 1783 when the Mother Nature unleashed its fury, spewing forth lava, toxic gases around the world, forever altering the landscape and people's lives. Learn about the captivating legend of the Fire Priest, a man said to possess supernatural abilities and a profound connection to the volatile forces that shaped Iceland's history. Like what you hear? Give us 5 Stars! And follow us for more... Checkout our website: Eerie Iceland Follow us on: Instagram Find our page on: Facebook Sources: Researcher: David Geir Jonasson – (Vik Expeditions) Source 1 Source 2 Source 3 Source 4 Source 5 Source 6 Eldrit sr. Jóns Steingrímssonar. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn (Lbs) MS 1552 4to f. 1r. Favorite Icelandic Books Episode by: Ann Irene Peters (Iceland Wedding Planner) Editing by: James Ede (Be Heard | Podcast Production)
Er ég einn um að finnast eins og það sé smá vor í lofti? Það er að minnsta kosti bjartara yfir og andleg líðan þjóðarinnar vonandi á uppleið í samhengi við það. En hvort sem það er sól, snjór, rok eða rigning höldum við áfram með þú veist betur og í þetta skipti er líftækni undir. Ég vil byrja á því að benda á að einn af fyrstu þáttum af Þú veist betur fjallaði um erfðir, í þeim þætti fór ég og hitti á Kára Stefánsson þar sem hann fór yfir þetta allt saman með mér. Hugarefni okkar er auðvitað tengt erfðum en er á sama tíma svo miklu meira. Gestur þáttarins er Eiríkur Steingrímsson sem hefur verið í bransanum lengi, veit meira en flest og ég er ekki frá því að eftir samtal okkar hafi ég verið þokkalega sannfærður um að viðfangsefni þáttarins er nátengt því hvernig við horfum til framtíðar. Við ætlum að fara yfir sögu þessarar greinar, hvernig samkvæmisdans erfðafræði og líftækni er ásamt því auðvitað að horfa til framtíðar og hvað gæti verið handan við hornið.
Fylgst var með eldgosinu sem hófst á Reykjanesskaga rétt upp úr klukkan sex í morgun og greint frá nýjustu upplýsingum. Ítarlega var fjallað um gosið í fréttatímum. Í Heimsglugganum fjallaði Bogi Ágústsson m.a. um loftrýmiseftirlit Norðmanna við Ísland þessar vikurnar. Stjórnmál á Norður-Írlandi voru einnig til umfjöllunar. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, sagði frá breytingum á starfsemi félagsins og Ragnheiður Jóna Jónsdóttir, stofnandi Hannesarholt talaði um Hannes Hafstein. Tónlist: Liebestraum - Igor Levit, Spettur - Karlakór Eyjafjarðar, Kvæðið um litlu hjónin - Tríó Guðmundar Steingrímssonar.
Einkenni kulnunar og einnig hin súrrealíska veröld belgíska listmálarans Magritte voru mikill innblástur við gerð leikverksins Vaðlaheiðagöng sem frumsýnt verður á næstunni í Borgarleikhúsinu. Leikhópurinn Verkfræðingarnir standa að uppfærslunni. Við ræðum við tvo meðlimi hópsins þau Karl Ágúst Þorbergsson og Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur í þætti dagsins. Við hugum einnig að berskjöldun og náum tali af Nönnu Hlín Halldórsdóttur, heimspekingi, um grein sem hún skrifaði um hugtakið og birti í tímaritinu Hug nú á dögunum og svo fáum við að heyra hvað Soffíu Auði Birgisdóttur fannst um bókina Dúnstúlkan í Þokunni eftir Bjarna Bjarnasson. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir
Niðurskurður samkeppnissjóða Vísinda- og tækniráðs nemur rúmum milljarði á árinu, samkvæmt fjárlögum. Vísindafólk hefur mótmælt þessu og jafnvel talað um að þetta jafngildi hópuppsögn á ungum vísindamönnum því færri fái tækifæri til að stunda rannsóknir. Erna Magnúsdóttir dósent og Eiríkur Steingrímsson prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands ræddu þetta. Kjósa þarf milli tveggja efstu frambjóðenda til forseta í Finnlandi, en fyrri lotu kosninga lauk í gær án þess að einn frambjóðandi fengi afgerandi kosningu. Helga Hilmisdóttir rannsóknardósent hjá Árnastofnun fór yfir finnsku forsetakosningarnar með okkur. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, var gestur okkar í síðasta hluta þáttarins. Við forvitnuðumst um stöðu atvinnuleysis í fyrra og útlitið fyrir þetta ár, og töluðum líka um stöðu Grindvíkinga. Umsjón: Þórunn Elísabet Bogadóttir og Eyrún Magnúsdóttir. Tónlist: Mitchell, Joni - Carey. Asa Trio - Cold Feet. Sigríður Thorlacius - Svefnljóð (Ef sofnað ég get ekki síðkvöldum á). Stewart, Dave, Jagger, Mick - Old habits die hard.
Í þessum mánuði kynnumst við fólkinu sem stendur fyrir aftan myndavélina í kvikmynda og sjónvarpsbransanum. Fólkið sem vinnur mest og sér til þess að efnið skil sér til áhorfandans en fær minnsta hólið fyrir því það sést aldrei sjálft á skjánum. Í þessum þætti ræðir Andri Freyr Viðarsson við Steingrím Jón Þórðarson sem hefur fært okkur Sjálfstætt fólk, Bílasport, Sporðaköst, Hver ertu?, Paradísarheimt, Veisluna og miklu fleira.
Boðið var upp á bland í poka á síðustu Morgunvakt ársins. Sagt var frá stofnun Verslunarfélags Steingrímsfjarðar fyrir 125 árum og tíðarfari, aflabrögðum og landbúnaði á Ströndum 1898. Leikið var viðtal frá í sumar við Gísla Einarsson sjónvarpsmann um mun á landsmönnum eftir búsetu. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, talaði frá Hallormsstað um Skriðuklaustur og Gunnar Gunnarsson skáld og konu hans Franzisku. Í máli hans kom m.a. fram að bækur Gunnars hafa verið gefin út víða um heim á síðustu árum og Aðventa t.d. þýdd á Ítölsku og arabísku. Þá var leikið brot úr Áramótaskaupi Útvarpsins 1982. Smooth operator - Sade, Vetrarsól - Björgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands, Halló, halló, halló - Stuðmenn, Andar í útlegð - Mógil, Hvað ertu að gera á gamlárs? - Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius, Í löngu máli - Una Torfadóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Boðið var upp á bland í poka á síðustu Morgunvakt ársins. Sagt var frá stofnun Verslunarfélags Steingrímsfjarðar fyrir 125 árum og tíðarfari, aflabrögðum og landbúnaði á Ströndum 1898. Leikið var viðtal frá í sumar við Gísla Einarsson sjónvarpsmann um mun á landsmönnum eftir búsetu. Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, talaði frá Hallormsstað um Skriðuklaustur og Gunnar Gunnarsson skáld og konu hans Franzisku. Í máli hans kom m.a. fram að bækur Gunnars hafa verið gefin út víða um heim á síðustu árum og Aðventa t.d. þýdd á Ítölsku og arabísku. Þá var leikið brot úr Áramótaskaupi Útvarpsins 1982. Smooth operator - Sade, Vetrarsól - Björgvin Halldórsson og Sinfóníuhljómsveit Íslands, Halló, halló, halló - Stuðmenn, Andar í útlegð - Mógil, Hvað ertu að gera á gamlárs? - Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius, Í löngu máli - Una Torfadóttir. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Við ætlum að tala um stærsta dýr jarðar í Samfélaginu í dag, það er vitaskuld steypireyður. Nú er ýmislegt sem bendir til þess að sú tegund sé sumstaðar að ná sér á nokkurt strik eftir djúpa lægð vegna ofveiði á árum áður. Ný rannsókn á Steypireyðum við Seychelles eyjar í Indlandshafi bendir til þess að þar sé þeim að fjölga. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur ætlar að segja okkur allt um steypireyðar. Svo kemur til okkar doktorsnemi í umhverfisfræði, Guðmundur Steingrímsson en í dag birtist í spilara RÚV þáttaröðin Jæja, sem hann hefur gert um umhverfismál. Guðmundur er líka að pakka fyrir ferð á loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna - COP28 í Dubai. Hann segir okkur frá öllu þessu. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kemur svo til okkar í lok þáttar í málfarsspjall. Við ætlum að velta fyrir okkur spurningunni um hver, ef einhver, ákveður hvaða orð við notum - í framhaldi af samkeppni um hýryrði sem Samtökin ?78 stóðu fyrir en niðurstöðurnar voru kynntar á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember síðastliðinn.
Við ætlum að tala um stærsta dýr jarðar í Samfélaginu í dag, það er vitaskuld steypireyður. Nú er ýmislegt sem bendir til þess að sú tegund sé sumstaðar að ná sér á nokkurt strik eftir djúpa lægð vegna ofveiði á árum áður. Ný rannsókn á Steypireyðum við Seychelles eyjar í Indlandshafi bendir til þess að þar sé þeim að fjölga. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur ætlar að segja okkur allt um steypireyðar. Svo kemur til okkar doktorsnemi í umhverfisfræði, Guðmundur Steingrímsson en í dag birtist í spilara RÚV þáttaröðin Jæja, sem hann hefur gert um umhverfismál. Guðmundur er líka að pakka fyrir ferð á loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna - COP28 í Dubai. Hann segir okkur frá öllu þessu. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kemur svo til okkar í lok þáttar í málfarsspjall. Við ætlum að velta fyrir okkur spurningunni um hver, ef einhver, ákveður hvaða orð við notum - í framhaldi af samkeppni um hýryrði sem Samtökin ?78 stóðu fyrir en niðurstöðurnar voru kynntar á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember síðastliðinn.
Við byrjum niðri í Laugardal þar sem við röltum í vindi og örlítilli snjókomu um íþróttasvæði Þróttar með vallarverðinum Isaac Kwateng, 28 ára Ganamanni. Isaac, sem hefur spilað fótolta með SR, varaliði Þróttar, og verið virkur í starfi félagsins nokkur undanfarin ár, verður að öllu óbreyttu sendur úr landi á mánudag. Við fáum að kíkja í heimsókn í hljóðver glænýrrar hljómsveitar. Hljómsveitin Hreyfing er skipuð þeim Elíasi Geir Óskarssyni (úr Inspector Spacetime) og Baldri Skúlasyni (úr Sameheads) og á fyrstu plötu þeirra herma þeir eftir völdum augnablikum úr danstónlistarsögunni Í dag hefst kvikmyndahátíðin Pigeon International Film Festival, sem fer fram núna um helgina. Júlía Margrét Einarsdóttir ræddi við Steingrím Rúnar Guðmundsson, Denna, sem er einn skipuleggjenda hátíðarinnar.
Við byrjum niðri í Laugardal þar sem við röltum í vindi og örlítilli snjókomu um íþróttasvæði Þróttar með vallarverðinum Isaac Kwateng, 28 ára Ganamanni. Isaac, sem hefur spilað fótolta með SR, varaliði Þróttar, og verið virkur í starfi félagsins nokkur undanfarin ár, verður að öllu óbreyttu sendur úr landi á mánudag. Við fáum að kíkja í heimsókn í hljóðver glænýrrar hljómsveitar. Hljómsveitin Hreyfing er skipuð þeim Elíasi Geir Óskarssyni (úr Inspector Spacetime) og Baldri Skúlasyni (úr Sameheads) og á fyrstu plötu þeirra herma þeir eftir völdum augnablikum úr danstónlistarsögunni Í dag hefst kvikmyndahátíðin Pigeon International Film Festival, sem fer fram núna um helgina. Júlía Margrét Einarsdóttir ræddi við Steingrím Rúnar Guðmundsson, Denna, sem er einn skipuleggjenda hátíðarinnar.
Ævar Sigmar Hjartarson Formaður húsfélags í húsi við Hvaleyrarbraut, sem brann í gær, segist sjálfur ítrekað hafa bent bæjaryfirvöldum á að ólögmæt búseta væri í húsinu. Leigusalar virðast fela fyrir nágrönnum sínum að þeir leigi út rými í atvinnuhúsnæði til búsetu. Landmæraverðir í Sádi-Arabíu fremja fjöldamorð á flóttafólki frá Eþíópíu sem reynir að komast inn í landið, samkvæmt nýrri skýrslu Mannréttindavaktarinnar. Um 850 er enn saknað eftir mikla gróðurelda á Havaí. Eldarnir eru þeir mannskæðustu í Bandaríkjunum í meira en öld. Staðfest er að 114 hafa látist. Bandaríkjaforseti sækir eyjarnar heim í dag. Grænþörungar í vatnsbóli Skagamanna ollu að öllum líkindum óbragði af drykkjarvatni þar. Vatnsbólið hefur verið hreinsað. Steingrímur Örn Ingólfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Kvarna sem selur sorpkvarnir segir eftirspurn og áhuga á kvörnunum hafa aukist merkjanlega eftir að nýtt flokkunarkerfi var tekið í gagnið á höfuðborgarsvæðinu. Jón Trausti Kárason forstöðumaður vatns og fráveitu hjá Veitum segir veitukerfið ekki í stakk búið til þess að taka á móti lífrænum úrgangi. Neyðarástand ríkir í húsnæðismálum Háskólans á Hólum, segir Hólmfríður Sveinsdóttir rektor. *** Í byrjun árs í fyrra er talið að tæplega tvö þúsund hafi búið í ósamþykktu atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Líklegt er að þeir séu mun fleiri í dag. Stefnt er að því að breyta regluverki svo fólk geti tímabundið skráð lögheimili sitt í atvinnuhúsnæði. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Regínu Valdimarsdóttur, teymisstjóra á brunavarnasvið Húsnæðis -og mannvirkjastofunar. Miðað við nýútkomna tölfræði Hagstofunnar má gera ráð fyrir að rúm 60% þeirra sem hefja nám á framhaldsskólastigi núna ljúki því innan sex ára. Það er í það minnsta raunin með þá sem hófu nám haustið 2017. Nú er byrjað að greina sérstaklega hvort innflytjendur klára framhaldsskólann. Þá kemur í ljós að tæp 67% þeirra sem fluttu til landsins fyrir sjö ára aldur, og byrjuðu í framhaldsskóla luku náminu, en aðeins tæp 37% þeir sem fluttu til landsins sjö ára eða eldri. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Stellu Blöndal dósent við HÍ. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, var hrærður þegar hann þakkaði Dönum á þeirra eigin tungu fyrir að ætla að gefa Úkraínuher nítján F-16 orrustuþotur. Jafnframt taka Danir að sér að þjálfa úkraínska flugmenn, flugvirkja og starfslið til að þjónusta þoturnar. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Fréttaútsendingu stjórnaði Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
Ævar Sigmar Hjartarson Formaður húsfélags í húsi við Hvaleyrarbraut, sem brann í gær, segist sjálfur ítrekað hafa bent bæjaryfirvöldum á að ólögmæt búseta væri í húsinu. Leigusalar virðast fela fyrir nágrönnum sínum að þeir leigi út rými í atvinnuhúsnæði til búsetu. Landmæraverðir í Sádi-Arabíu fremja fjöldamorð á flóttafólki frá Eþíópíu sem reynir að komast inn í landið, samkvæmt nýrri skýrslu Mannréttindavaktarinnar. Um 850 er enn saknað eftir mikla gróðurelda á Havaí. Eldarnir eru þeir mannskæðustu í Bandaríkjunum í meira en öld. Staðfest er að 114 hafa látist. Bandaríkjaforseti sækir eyjarnar heim í dag. Grænþörungar í vatnsbóli Skagamanna ollu að öllum líkindum óbragði af drykkjarvatni þar. Vatnsbólið hefur verið hreinsað. Steingrímur Örn Ingólfsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Kvarna sem selur sorpkvarnir segir eftirspurn og áhuga á kvörnunum hafa aukist merkjanlega eftir að nýtt flokkunarkerfi var tekið í gagnið á höfuðborgarsvæðinu. Jón Trausti Kárason forstöðumaður vatns og fráveitu hjá Veitum segir veitukerfið ekki í stakk búið til þess að taka á móti lífrænum úrgangi. Neyðarástand ríkir í húsnæðismálum Háskólans á Hólum, segir Hólmfríður Sveinsdóttir rektor. *** Í byrjun árs í fyrra er talið að tæplega tvö þúsund hafi búið í ósamþykktu atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Líklegt er að þeir séu mun fleiri í dag. Stefnt er að því að breyta regluverki svo fólk geti tímabundið skráð lögheimili sitt í atvinnuhúsnæði. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Regínu Valdimarsdóttur, teymisstjóra á brunavarnasvið Húsnæðis -og mannvirkjastofunar. Miðað við nýútkomna tölfræði Hagstofunnar má gera ráð fyrir að rúm 60% þeirra sem hefja nám á framhaldsskólastigi núna ljúki því innan sex ára. Það er í það minnsta raunin með þá sem hófu nám haustið 2017. Nú er byrjað að greina sérstaklega hvort innflytjendur klára framhaldsskólann. Þá kemur í ljós að tæp 67% þeirra sem fluttu til landsins fyrir sjö ára aldur, og byrjuðu í framhaldsskóla luku náminu, en aðeins tæp 37% þeir sem fluttu til landsins sjö ára eða eldri. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Stellu Blöndal dósent við HÍ. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, var hrærður þegar hann þakkaði Dönum á þeirra eigin tungu fyrir að ætla að gefa Úkraínuher nítján F-16 orrustuþotur. Jafnframt taka Danir að sér að þjálfa úkraínska flugmenn, flugvirkja og starfslið til að þjónusta þoturnar. Ásgeir Tómasson sagði frá. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Fréttaútsendingu stjórnaði Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
Í þættinum er fjallað um sýningarverk sem Sifjuð tók þátt í að setja upp á HönnunarMars í samstarfi við Elínu Örnu Ringsted (https://handverk.cargo.site/Elin-Arna-Ringsted-Halla-Hauksdottir). Um er að ræða samansafn textílverka sem, hvert og eitt, er túlkun á íslensku orði; uppruna þess, þeirri hugmynd sem liggur því að baki og þar með eiginlegri merkingu þess. Í þættinum er fjallað um orðin sem verkin byggja á (bara, hvenær, alveg, ég og þú og hljóð) og viðtal tekið við Elínu Örnu sem lýsir samstarfinu og hönnunarferlinu. Þá er stutt viðtal tekið við Höllu Helgadóttur, framkvæmdastýru Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, sem útskýrir þá tvímerkingu sem fólgin er í nafninu HönnunarMars. //////////////// Ari Páll Kristinsson, Halldóra Jónsdóttir og Steinþór Steingrímsson (ritstjórar). (2016). Málið. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://malid.is/ /// Ásgeir Blöndal Magnússon. (1989). Íslensk orðsifjabók. Reykjavík: Mál og menning. /// Halldóra Jónsdóttir og Þórdís Úlfarsdóttir (ritstjórar). (2013). Íslensk nútímamálsorðabók. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://islenskordabok.arnastofnun.is/ /// Harper, Douglas (ritstjóri). (2001). Online Etymology Dictionary. Sótt af https://www.etymonline.com/ /// Jón Hilmar Jónsson (aðalritstjóri). (2006). Íslenskt orðanet. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af http://ordanet.is/ /// Mattsson, Christian (aðalritstjóri). Svenska Akademiens ordbok. Stokkhólmur: Svenska Akademien. Sótt af https://www.saob.se/ /// Þórdís Úlfarsdóttir (aðalritstjóri). (2011). ISLEX. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://islex.arnastofnun.is/is/ /// Elín Arna Ringsted og Halla Helgadóttir
Spegillinn 21. Apríl 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Lögreglan hefur lokið yfirheyrslum yfir fjórum mönnum, sem voru handteknir eftir að karlmaður á þrítugsaldri lést eftir stunguárás í Hafnarfirði í gærkvöld. Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim, en verið er að fara yfir rannsóknargögn. Alma Ómarsdóttir ræddi við Grím Grímsson yfirlögregluþjón. Héraðssaksóknari hefur hætt rannsókn á máli Vítalíu Lazarevu gegn þeim Þórði Má Jóhannessyni, Ara Edwald og Hreggviði Jónssyni. Hún kærði þremenningana fyrir að brjóta á sér kynferðislega í heitum potti í sumarbústað haustið 2020. Málið vakti mikla athygli eftir að Vítalía sagði frá því í hlaðvarpsþættinum Eigin konur í byrjun árs í fyrra. Brenna þurfti tæplega 17 milljónum lítra af olíu í fyrra í loðnuvinnslum landsins umfram það sem hefði þurft að gera, vegna skorts á rafmagni. Samtals brenndu verksmiðjurnar 24 milljónum olíulítra í fyrra. Benedikt Sigurðsson sagði frá og talaði við Jóhann Pétur Andersen, framkvæmdastjóra Félags fiskimjölsframleiðdenda. Á morgun verða kafarar á vegum eigenda flutningaskipsins Wilson Skaw fengnir til að skoða skemmdirnar á skrokki þess. Eins stendur til að dæla olíu úr skipinu og yfir í varðskipið Freyju. Um borð eru um 195 tonn af olíu. Búnaður til þess var fluttur norður í dag. Skipið liggur í Steingrímsfirði á Ströndum. Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi úrskurð dómsmálaráðuneytisins um að synja dæmdum kynferðisafbrotamanni að afplána refsingu sína í gegnum samfélagsþjónustu. Valur Grettisson tók saman. Dominic Raab, aðstoðar-forsætisráðherra og dómsmálaráðherra Bretlands, sagði af sér í dag eftir að skýrsla var birt þar sem fram kom að hann hefði sýnt undirmönnum sínum ógnandi tilburði og óviðeigandi hegðun á fundum meðan hann var dómsmála- og utanríkisráðherra. Ásgeir Tómasson sagði frá. 69 ára karlmaður var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í París í Frakklandi fyrir sprengjuárás í bænahúsi gyðinga í borginni árið 1980. Maðurinn er af líbönsku og kanadísku bergi brotinn og er háskólaprófessor í Kanada. Róbert Jóhannsson sagði frá. Hægt er að tala íslensku við gervigreindina GPT-4 í gegnum raddappið Emblu. Embla er app sem fólk getur talað við. Isak Regal sagði frá og talaði við Kötlu Ásgeirsdóttur og gervigreindina. Vísindamenn á vegum Ráðgjafarmiðstöðar landbúnaðarins og Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum vinna að því að finna verndandi arfgerð gegn riðu í sauðfé auk Karólínu Elísabetardóttur, bónda og rithö
Spegillinn 21. Apríl 2023 Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Mark Eldred Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir Lögreglan hefur lokið yfirheyrslum yfir fjórum mönnum, sem voru handteknir eftir að karlmaður á þrítugsaldri lést eftir stunguárás í Hafnarfirði í gærkvöld. Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim, en verið er að fara yfir rannsóknargögn. Alma Ómarsdóttir ræddi við Grím Grímsson yfirlögregluþjón. Héraðssaksóknari hefur hætt rannsókn á máli Vítalíu Lazarevu gegn þeim Þórði Má Jóhannessyni, Ara Edwald og Hreggviði Jónssyni. Hún kærði þremenningana fyrir að brjóta á sér kynferðislega í heitum potti í sumarbústað haustið 2020. Málið vakti mikla athygli eftir að Vítalía sagði frá því í hlaðvarpsþættinum Eigin konur í byrjun árs í fyrra. Brenna þurfti tæplega 17 milljónum lítra af olíu í fyrra í loðnuvinnslum landsins umfram það sem hefði þurft að gera, vegna skorts á rafmagni. Samtals brenndu verksmiðjurnar 24 milljónum olíulítra í fyrra. Benedikt Sigurðsson sagði frá og talaði við Jóhann Pétur Andersen, framkvæmdastjóra Félags fiskimjölsframleiðdenda. Á morgun verða kafarar á vegum eigenda flutningaskipsins Wilson Skaw fengnir til að skoða skemmdirnar á skrokki þess. Eins stendur til að dæla olíu úr skipinu og yfir í varðskipið Freyju. Um borð eru um 195 tonn af olíu. Búnaður til þess var fluttur norður í dag. Skipið liggur í Steingrímsfirði á Ströndum. Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi úrskurð dómsmálaráðuneytisins um að synja dæmdum kynferðisafbrotamanni að afplána refsingu sína í gegnum samfélagsþjónustu. Valur Grettisson tók saman. Dominic Raab, aðstoðar-forsætisráðherra og dómsmálaráðherra Bretlands, sagði af sér í dag eftir að skýrsla var birt þar sem fram kom að hann hefði sýnt undirmönnum sínum ógnandi tilburði og óviðeigandi hegðun á fundum meðan hann var dómsmála- og utanríkisráðherra. Ásgeir Tómasson sagði frá. 69 ára karlmaður var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í París í Frakklandi fyrir sprengjuárás í bænahúsi gyðinga í borginni árið 1980. Maðurinn er af líbönsku og kanadísku bergi brotinn og er háskólaprófessor í Kanada. Róbert Jóhannsson sagði frá. Hægt er að tala íslensku við gervigreindina GPT-4 í gegnum raddappið Emblu. Embla er app sem fólk getur talað við. Isak Regal sagði frá og talaði við Kötlu Ásgeirsdóttur og gervigreindina. Vísindamenn á vegum Ráðgjafarmiðstöðar landbúnaðarins og Tilraunastöðvar Háskóla Íslands á Keldum vinna að því að finna verndandi arfgerð gegn riðu í sauðfé auk Karólínu Elísabetardóttur, bónda og rithö
Í þættinum er fjallað um kínverska læknislist, og hvers vegna hún er að ýmsu leyti jafn hátt skrifuð og hin vestrænu læknavísindi í Kína. Á kínverskum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum finnast tvenns konar lyfjageymslur, bæði fyrir vestræn lyf og kínversk. Þar ríkir ekki sama skipting og við eigum að venjast í hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar. Kínversku jurtalækningarnar, taiji-æfingar, nuddmeðferðir og nálastunga hafa sinn sess sem annar af tveimur helstu möguleikum fyrir meðferðir á hvers kyns sjúkleika. Höfundur pistilsins er Steingrímur Þorbjarnarson sem einnig les upp.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í gær, enda hafa verðbólguhorfur versnað lítillega á síðustu vikum. Hvað þýðir að kjölfesta verðbólguvæntinga hafi veikst og hvenær getur Seðlabankinn slakað á taumhaldinu? Hvernig getur fjármálageirinn brugðist við loftslagsvandanum og hver er ábyrgð hans?Þetta er á meðal þess sem farið er yfir í nýjasta hlaðvarpsþættinum. Þátturinn er tvískiptur, fyrst ræða hagfræðingarnir Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir stýrivexti, verðbólgu og fleira. Í seinni hluta þáttarins kemur Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sjálfbærnistjóri bankans, og ræðir við Hildi Margréti og Ara um sjálfbærni í fjármálageiranum og samfélagslegar fjárfestingar.
Kína er oft og tíðum nefnt land drekans. Teikningar af kínverska drekanum hafa sín sérkenni þar sem hann hlykkjast langur og skrautlegur um himinhvolfið. Segja má að í Kína sé bókstaflega allt tengt drekanum, landið, hafið, náttúruöflin og þjóðin. Því er ekki um einn dreka að ræða, heldur marga, og þeir skiptast í mismunandi flokka. Þannig finnast tilvísanir milli raunverulegra aðstæðna og eiginleika þessara dreka hvarvetna. Höfundur pistilsins er Steingrímur Þorbjarnarson sem einnig les upp.
Þriðji og síðasti þátturinn upp úr ferðabók Englendingsins Shepherds frá 1862. Hann er nú á ferð um suðurhluta Stranda, Steingrímsfjörð, Ísafjarðardjúp og endar á því að fara upp á Drangajökul. Lýsingar Shepherds á fólkinu í landinu, en ekki síður náttúrunni eru ólíkar þeim sem birst hafa áður í Íslandslýsingum, hvort heldur Íslendinga sjálfra eða útlendinga. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þriðji og síðasti þátturinn upp úr ferðabók Englendingsins Shepherds frá 1862. Hann er nú á ferð um suðurhluta Stranda, Steingrímsfjörð, Ísafjarðardjúp og endar á því að fara upp á Drangajökul. Lýsingar Shepherds á fólkinu í landinu, en ekki síður náttúrunni eru ólíkar þeim sem birst hafa áður í Íslandslýsingum, hvort heldur Íslendinga sjálfra eða útlendinga. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hagfræðideildin kynnti nýja þjóðhags- og verðbólguspá í Hörpu 19. október sl. og hlaðvarpið er að þessu sinni tileinkað henni.Una Jónsdóttir, Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir fara yfir það helsta úr spánni; hagvöxtinn, verðbólguna, ferðamenn, kaupmátt, óvissuna og fleira. Þau ræða það hvað hefur gerst á síðustu mánuðum og hvernig má búast við að hagkerfið þróist á næstu árum.
Seðlabankinn kynnti í gær níundu stýrivaxtahækkunina í röð frá því í maí á síðasta ári. Stýrivextir hækka um 0,25% og standa nú í 5,75%. Hvernig slær stýrivaxtahækkun á verðbólgu, hvenær verður hægt að slaka á taumhaldinu og af hverju skipta verðbólguvæntingar máli?Þetta er á meðal þess sem Ari Skúlason, Gústaf Steingrímsson og Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingar hjá Landsbankanum, ræða í nýjum hlaðvarpsþætti. Þau koma líka inn á kaupmáttarrýrnun í aðdraganda kjaraviðræðna og þróun á íbúðamarkaði. Þá horfa þau út í heim og tala um verðbólgu og vaxtaákvarðanir erlendis og fjaðrafok í Bretlandi eftir að nýr forsætisráðherra boðaði mestu skattalækkanir í 50 ár.