POPULARITY
Staðan á Gaza og aðgerðir Evrópusambandsins var umræðuefni á ráðherrafundi EES ríkjanna í Brussel í dag, þar sem Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB var meðal þátttakenda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í þessum fundi; hún segir það ánægjulegt að aðildarríki ESB séu að ná samstöðu um harðari aðgerðir gagnvart Ísrael. Viljayfirlýsing um nánara samstarf á sviði utanríkis og öryggismála var einnig staðfest á þessum fundi. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Þorgerði Katrínu í Brussel í dag. Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti í dag um 0,25 prósentustig, úr 7,75 prósent í 7,5. Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri segir að verðbólgan þurfi að hjaðna í sumar til að hægt verði að halda vaxtalækkunarferlinu áfram. Horfur í efnahagsmálum séu góðar en óvissa á alþjóðamörkuðum út af tollastríði gæti sett strik í reikninginn. Menningarferðaþjónusta er nú í fyrsta sinn formlega skilgreind sem hluti af ferðamálastefnu stjórnvalda enda er menning talin afar mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu og ferðamenn sem hingað koma njóta íslenskrar menningar með ýmsum hætti um allt land.
Fulltrúar ríkisstjórnarinnar hétu því í dag að eyða þeirri óvissu sem Grindvíkingar hafa búið við síðustu vikur og mánuði og gera þeim kleift að tryggja sér húsnæði til framtíðar – skemmri, millilangrar eða varanlegrar framtíðar, eins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra orðaði það. Hvernig það verður gert liggur ekki endanlega fyrir, en stefnt er að því að leggja fram lagafrumvarp þar að lútandi í næsta mánuði og brúa bilið þangað til með því að bæta í þau bráðabirgða- eða skammtímaúrræði sem þegar hefur verið gripið til og hækka hvort tveggja húsnæðis- og launastyrki. Langtímaúrræðin eru öllu flóknari við að eiga enda að mörgu að hyggja, eins og Þórdís greinir frá í stuttu máli. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tekur í sama streng, en heyra má brot úr viðtölum Höskuldar Kára Schram, fréttamanns, við ráðherrana í upphafi þáttar. Lungi þáttarins er hins vegar lagður undir ítarlegt viðtal sem Ævar Örn Jósepsson tók við Fannar Jónasson, bæjarstjóra Grindavíkur í beinni útsendingu. Þar fara þeir yfir víðan völl; boðaðar aðgerðir stjórnvalda, vilja íbúa - eða tregðu - til að flytja aftur til Grindavíkur þegar og ef aðstæður leyfa, aðstæður til atvinnurekstrar og rekstrar bæjarfélagsins í því óvissuástandi sem nú ríkir og fleira. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Íbúar á Gaza nærast aðallega á vatni og brauði, segir Gréta Gunnarsdóttir yfirmaður sendiskrifstofu Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna - UNWRA í New York. Horfur eru á UNWRA geti héðan í frá aðeins dreift einum lítra af vatni til hvers flóttamanns á Gaza. 80 prósent íbúanna eru á vergangi. Í úttekt Ríkisendurskoðunar um Fangelsismálastofnun voru gerðar alvarlegar athugasemdir við illa farinn og heilsuspillandi húsakost á Litla-Hrauni, ónóga mönnun til að tryggja öryggi fanga og fangavarða og fulla nýtingu afplánunarrýma, sem meðal annars hefur leitt til þess að refsingar hátt í þrjú hundruð dæmdra brotamanna féllu niður. Alvarlegustu athugasemdirnar lúta flestar að málum á könnu dómsmálaráðuneytisins. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra. Bretar hafa enn ekki gefist upp á að losa sig við hælisleitendur með því að senda þá til Rúanda, þrátt fyrir að hæstiréttur landsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að lögum samkvæmt megi ekki senda þá þangað. Á föstudaginn var Repúblikaninn George Santos rekinn af Bandaríkjaþingi í skugga fjölda ásakana um lygar, fjármálamisferli og fleira. Hann gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm. Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Hljóðmaður var Kári Guðmundsson.

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair fer yfir stöðu félagsins eftir öflugt uppgjör 3. ársfjórðungs og horfurnar framundan. Icelandair skilaði yfir 11 milljörðum króna í hagnað eftir skatta á 3. ársfjórðungi og bókunarstaða í farþegafluginu er góð. Fraktstarfsemin gengur hins vegar illa og áskorun verður að snúa þeim rekstri á réttan kjöl. Þá blasa við ýmsar kostnaðarhækkanir og áskoranir í rekstrarumhverfinu auk þess sem innleiðing nýs Airbus flota er á döfinni á næstu misserum sem verður stórt verkefni.
Hægja þarf á áformum um byggingu þjóðarhallar í Laugardal vegna ástandsins í efnahagsmálum. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra á Alþingi. Höskuldur Kári Schram tók saman. Samfylkingin mælist stærsti flokkur landsins í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup þriðja mánuðinn í röð, með 28 prósenta fylgi. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir sagði frá. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs segir eignarhald borgarinnar í Ljósleiðaranum vekja spurningar í ljósi stærðar félagsins. Alexander Kristjánsson sagði frá. Engar sérstakar reglur gilda um uppflettingar í lyfjaávísanagátt þrátt fyrir að gögn þar teljist viðkvæmar persónuupplýsingar. Landlæknir íhugar breytingar. Benedikt Sigurðsson tók saman. Auka á stuðning við ungt fólk sem á erfitt með að vera á vinnumarkaði. Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK segir dæmin sanna að með réttum stuðningi geti fólk sinnt vinnu á ný. Alma Ómarsdóttir talaði við hana og Pál Ásgeir Guðmundsson forstöðumann hjá SA. ------------- Deilt var um það í borgarstjórn hvort skýra mætti fjárhagsvanda borgarinnar með kostnaði vegna þjónustu við fatlað fólk þegar fyrsta umræða um ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir 2022 fór fram. . Halli A- hlutans í fyrra var 15,6 milljarðar króna. Spilað var úr ræðum Dags B. Eggertssonar, Hildar Björnsdóttur og Einars Þorsteinssonar. Ragnhildur Thorlacius tók saman. KJjaraviðræður BSRB og sveitarfélaga annarra en Reykjavíkur eru í hnút. Helsti ásteytingarsteinninn er krafa BSRB um hækkanir sem gildi frá áramótum líkt og samið var um við SGS. Sveitarfélög segjast hafa staðið við samninga að fullu. Horfur eru á verkföllum BSRB félaga. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB. Evrópusambandið ætlar að krefja stærstu netfyrirtæki og samfélagsmiðla heims, um strangari reglur um persónuvernd og eftirlit með ólöglegu efni á miðlunum, þær verða að líkindum einnig teknar upp hér á landi. Björn Malmquist sagði frá. Spegillinn 5. maí Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Kormákur Marðarson Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir og Annalísa Hermannsdóttir.

Formaður Vinstri grænna segir að flokksmenn þurfi að ræða þá miklu fylgislækkun sem nýr þjóðarpúls Gallups sýnir. Flokkurinn hefur tapað meira en þriðjungi fylgis frá síðustu kosningum. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við Katrínu Jakobsdóttur. Fimmtán prósent grunnskólanema segjast hafa orðið fyrir einelti í fyrra, samkvæmt skólapúlsi sem lagður er fyrir nemendur árlega. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla furðar sig á því að margir skólar vilji ekki birta niðurstöðurnar. Arnar Björnsson talaði við Arnar Sævarsson. Norðlendingar eru ósáttir við úthlutanir úr framkvæmdastjóri ferðamannastaða. Verkefnastjóri samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi óttast að innviðir norðan- og austanlands séu ekki tilbúnir fyrir þann fjölda ferðamanna sem von er á í sumar. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við Kristínu Garðarsdóttur. Umræða og deilur um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar eru stormur í vatnsglasi, segir fjármálaráðherra. Hann segir von á miklum halla á ríkissjóði og slæmt ef ráðherrar séu að auka á hallann. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við Bjarna Benediktsson. ---------------------- Meiðyrðamál hafa verið á milli tannanna á fólki síðustu daga. Í vikunni féllu dómar í tveimur meiðyrðamálum sem vöktu talsverða athygli fólks. Annars vegar hér á landi í máli Ingólfs Þórarinssonar gegn Sindra Þór Sigríðarsyni og hins vegar í máli sem fékk öllu meiri athygli, máli Johnnys Depp gegn Amber Heard en hún höfðaði einnig mótsókn gegn honum. Báðir dómarnir þykja óvenjulegir og hafa komið mörgum á óvart. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Hildi Fjólu Antonsdóttur, réttarfélagsfræðing. Horfur eru á að komur erlendra ferðamanna í sumar verði á við það sem var árið 2019, fyrir faraldur. Á meðan honum stóð lögðust margir Íslendingar í ferðalög innanlands enda ekki hægt um vik að fara annað. Á stundum vakna spurningar um hvar megi fara um og hversu ríkur almannarétturinn er, hann tryggir fólki til dæmis að það megi ganga um óræktað land. Geta orðið árekstrar þar sem talið er að það þurfi að stjórna því hve margir fara um vinsæla staði til að verja þá. Það er búist við fjölmörgum útlendingum en hvað um ferðalög okkar innanlands, breyttust venjurnar til frambúðar í kóvíd og dró úr ferðaþorsta til útlanda. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóra.

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, þingfréttaritari RÚV um vikuna á Alþingi. Rætt um söluna á hlutabréfum í Íslandsbanka, fylgistap ríkisstjórnarinnar og önnur mál sem rædd voru á þingi í vikunni. Vikulegt ferðaspjall við Kristján Sigurjónsson, ritstjóra Túrista.is. Rætt um horfur í ferðaþjónustu en Ísland er eitt af þeim löndum þar sem batinn í ferðaþjónustu ætlar að verða hvað hraðastur. Þó eru uppi raddir umað ófriður og verðbólga muni hafa kælandi áhrif á ferðaþjónustu í heiminum. Sagt frá Medoc-maraþoninu þar, sem er ef til vill meira fyrir sælkera heldur en hlaupara. Kynhlutlaust mál. Umræða um það hvernig kyn og félagslegar hugmyndi rum kyn endurspeglast í tungumálinu hefur orðið háværari á undanförnum árum. Guðrún Þórhallsdóttir, dósent í íslenskri málfræði og Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslensku ræddu kynhlutlaust mál í tilefni af málþingi sem haldið verður í Veröld á morgun. Tónlist: Bye Bye Blackbird, Etta Jones. Sunny Road, Emilíana Torrini. Vorvísa, Hallbjörg Bjarnadóttir. Someone New, Laufey Umsjón: Þórunn Elísabet Bogadóttir Sigríður Halldórsdóttir

Heilbrigðisráðherra segir að reglugerð um að skylda farþega frá áhættusvæðum í sóttkví á sóttkvíarhótel hafi verið sett í góðri trú. Staðfesti landsréttur niðurstöðu hérðasdóms um að lagastoð skorti verði brugðist við því. Sárafáir þeirra sem komu til landsins með flugi í dag fóru á sóttkvíarhótel, segir yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli. Karlmaður sem ákvað að fara heim til sín og kona sem ákvað að fara á sóttkvíarhótel gefa sömu skýringuna, það hafi verið þægilegast. Lögfræðinga greinir á um hvort úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur sýni brotalamir í sóttvarnarlögum. Reglugerð heilbrigðisráðherra hafi hins vegar skort lagastoð. Eldfjallafræðingur segir líklegt að nýtt gosskeið sé hafið á Reykjanesskaga. Gosið nú muni að líkindum standa í langan tíma en ekki sé þó líklegt að hraun renni yfir Suðurstrandarveg fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. Nemendur í Fossvogsskóla geta snúið aftur til náms í Korpuskóla á morgun. Viðgerðir hafa staðið yfir í Korpuskóla um páskana eftir að rakaskemmdir komu þar í ljós. Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum segir að sýkingarmáttur breska veiruafbrigðisins sem gangi hér nú sé meiri en eldri afbrigða og því þurfi hertar aðgerðir til að sporna við ástandinu. Ef það sé ekki gert aukist líkur á hópsmiti hér á landi. Hann vonar að stjórnmálamenn byggi traustari lagastoð undir aðgerðirnar. Bergljót Baldursdóttir talaði við Magnús. Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir að ef hraun nái að flæða yfir Suðurstrandarveg verði það ekki fyrr en í fyrsla lagi á næsta ári. Hann segir líklegt að hafið sé nýtt gosskeið á Reykjanesskaga. Horfur sé á að gosið nú mun standa yfir í langan tíma. Hann segir að nýja gosið sé meira og minna hrein viðbót við gosið í Geldinadölum. Því megi segja að það sé verið að tvöfalda framleiðnina. Arnar Páll Hauksson talaði við Þorvald Þórðarson. Boris Johnson forsætisráðherra Breta kynnti í gær 2. stig í afléttingu Covid-19 takmarkana, sem verður 12. apríl. Ferðamöguleikar Breta utanlands í sumar eru þó enn óljósir og stærsta spurningin er, eftir sem áður, hvort og þá hvernig bólusetningarvottorð verði gerð að skyldu. Sigrún Davíðsdóttir sagi frá.

Einhugur er í velferðarnefnd Alþingis um að ráðast þurfi í rannsókn á málefnum Arnarholts, en ekki um hver á að annast hana. Tekist er á um sóttvarnaraðgerðir og tveir stjórnarþingmenn fara fremstir í flokki gagnrýnenda á ríkisstjórnina. Þá hefur verið tekist á um samgöngur og hjúkrunarheimili og málaferli vegna brota ráðherra á jafnréttislögum. Þetta er á meðal þess sem hefur gerst í stjórnmálunum hér á landi undanfarna daga, en Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður fór yfir þingstörfin. Öll þekkjum við nafn Guðjóns Samúelssonar húsameistara og hans helstu verk. Ég nefni bara aðalbyggingu Háskóla Íslands, Landspítalann við Hringbraut, Þjóðleikhúsið, Héraðsskólann á Laugarvatni, Akureyrarkirkju og Hallgrímskirkju. Listinn er langur. Guðjón afkastaði furðulega miklu á rúmlega 30 ára starfsferli og mannfélagið nýtur verka hans í starfi og leik. Pétur H. Ármannsson arkitekt hefur skrifað mikla bók um Guðjón og hann kom á Morgunvaktina. Og svo eru það ferðamálin. Á dögunum bárust bæði slæmar fréttir og góðar. Horfur eru á að ferðaþjónusta í heiminum taki seinna við sér en áður var vonað. Hér heima reiknar Seðlabankinn með að færri heimsæki Ísland á nýju ári en talið var í ágúst og sömu sögu er að segja frá Bandaríkjunum. Þar í landi var hins vegar tilkynnt að Max þoturnar frá Boeing væru orðnar öruggar. Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, ræddi þessi mál og önnur ferðamál. Tónlist: If we fall in love tonight - Rod Stewart Stay with me - Sam Smith

Á dögunum kom fyrsta uppskera ársins á útiræktuðu íslensku grænmeti í verslanir. Af því tilefni var rætt við Gunnar Þorgeirsson, garðyrkjubónda að Ártanga í Grímsnesi sem jafnframt er formaður bæði Samtaka garðyrkjubænda og Bændasamtaka Íslands. Uppskeran var fáeinum dögum seinna á ferðinni en vanalega vegna næturfrosts í vor en horfur fyrir framhaldið eru góðar og útlit fyrir metuppskeru í ár. Gunnar segir mikinn hug í garðyrkjubændum og að mörg gróðurhús hafi verið reist á síðustu mánuðum og framleiðslan þar með aukin en hlutfall innlendrar framleiðslu er um 30% af öllu því grænmeti sem landsmenn neyta. Í Heimsglugga dagsins fór Bogi Ágústsson yfir nýlega skýrslu um fólksfjölgun í heiminum á komandi áratugum. Því er spáð að fólki fjölgi enn hægar en áður hafði verið reiknað með. Horfur eru á að fólki muni víða fækka, t.d. í Japan og Ítalíu. Bogi ræddi einnig um efnahags- og stjórnmál í Bandaríkjunum. Covid-19 hefur haft mjög neikvæð áhrif á efnahag landsins sem og á stöðu og vinsældir Trumps forseta. Að endingu minntist Bogi danska tónskáldsins Bent Fabricius-Bjerre sem lést fyrr í vikunni 95 ára að aldri og var titillag Matador-þáttanna leikið að spjallinu loknu. Hafa tígrisdýr komið til Íslands? Hvort vinnu í slag tígrisdýr eða ljón? Vera Illugadóttir svaraði þessum spurningum og fleirum en hún fjallaði vítt og breitt um tígrisdýr í tilefni af alþjóðlegum degi tígrisdýra í gær. Tónlist: Hreðavatnsvalsinn - Svavar Lárusson, Defending Jacob - Ólafur Arnalds, Matador - Bent Fabricius-Bjerre og LiveStrings, Alleycat - Bent Fabricius-Bjerre Tiger - Abba.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að höfða mál fyrir dómstólum til að fá ógiltan úrskurð Kærunefndar jafnréttismála, sem taldi ráðherrann hafa brotið lög við ráðningu ráðuneytisstjóra. Seðlabankinn hefur samið við bankana um stuðningslán til lítilla og meðalstórra fyrirtækja vegna Covid-faraldursins. Það vekur áhyggjur að fjármálaráðherra lýsi yfir að loforð sem stjórnvöld hafi gefið í tengslum við lífskjarasamninginn séu í raun marklaus, segir forseti Alþýðusambandsins. Sambandið vill fund með stjórnvöldum um samninginn. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gerir ráð fyrir að staðfest kórónuveirusmit í heiminum nái tíu milljónum í næstu viku. Stofna á ferðaábyrgðasjóð til endurgreiða pakkaferðir sem féllu niður vegna COVID 19. Þetta kemur fram í nýju frumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Horfur eru á að Ísland losni af gráum lista alþjóðlegra samtaka sem berjast gegn peningaþvætti í október. Rætt var við framkvæmdastjóri Landverndar og prófessor sem stýrði mati á áhrifum loftslagsaðgerða stjórnvalda um forsendur nýrrar aðgerðaáætlunar . Arnhildur Hálfdánardóttir talaði við Auði Önnu Mangúsdóttur og Brynhildi Davíðsdóttur. Í skrifstofum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel hefur COVID-19 veiran skyggt á Brexit. Fátt áþreifanlegt hefur hafst upp úr samningaviðræðum Breta við Evrópusambandið, sem staðið hafa síðan í byrjun mars, um framtíðarviðskiptasamband. Í síðustu viðræðulotu virðist þó hafa náðst sameiginlegur skilningur sem hægt verður að byggja á. En nýr samningur ætti að taka gildi um áramótinn og tíminn til að klára viðræðurnar er naumur. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.

Ekki er meirihlutastuðningur á Alþingi við frumvarp ferðamálaráðherra, um að ferðaskrifstofur megi endurgreiða aflýstar ferðir með inneignarnótu í stað peninga. Þetta segir ráðherrann sjálfur. Grunsemdir um meiriháttar fjárdrátt í máli tveggja systra með heilabilun vöknuðu þegar þeim voru skipaðir lögráðamenn fyrir þremur árum. Starfsemi Landspítala raskast minna í sumar en undanfarin sumur. Forstjóri spítalans segir að betur gangi að fá fólk til afleysinga nú en áður. Hersýningu í París í tilefni þjóðhátíðardags Frakklands 14. júlí hefur verið aflýst vegna COVID-19. Sýningin hefur ekki fallið niður frá því í síðari heimsstyrjöldinni. Vont kólesteról hefur aukist verulega í blóði íbúa í Asíu en lækkað í blóði Vesturlandabúa. Þetta sýna niðurstöður mjög umfangsmikillar rannsóknar. sem birt var í vísindatímaritinu Nature í dag. Mest hefur það lækkað í blóði Belga og Íslendinga. Reiknistofu bankanna tókst að hrinda árás á tölvukerfi fyrirtækisins. Forstjórinn segir að árásinni hafi ekki verið beint sérstaklega gegn Reiknistofunni.

Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu svarta spá Evrópusambandsins um efnahagsþróun á árinu. Spáð er samdrætti og auknu atvinnuleysi. Þá ræddu þeir stöðuna í bandarískum stjórnmálum þar sem kosningar verða í haust. Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata, hefur forskot á Donald Trump forseta, en forsetinn var einnig undir í könnunum fyrir kosningarnar 2016 svo úrslit eru auðvitað hvergi ráðin. Sjötíu og fimm ár eru um þessar mundir frá því að Þjóðverjar gáfust upp fyrir bandamönnum í síðari heimsstyrjöldinni og lönd sem þeir höfðu hertekið urðu frjáls að nýju. Þess er minnst þessa dagana.

Umsjón: Pálmi Jónasson Horfur eru á að atvinnuleysi verði 13% í apríl og 12% í maí. Ef það gengur eftir yrði það langmesta atvinnuleysi sem mælst hefur. Penninn sagði í dag upp 90 starfsmönnum. Rúmlega 900 manns í 22 fyrirtækjum misstu vinnuna í hópuppsögnum í mars og rúmlega 25 þúsund hafa þurft að taka á sig skert starfshlutfall. Bókunarstaða hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum í sumar er herfileg og ljóst að ferðamannasumarið í ár er farið forgörðum. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Álverið í Straumsvík er nefnt í umfjöllun Financial Times sem álbræðsla sem gæti verið lokað í kreppu áliðnaðarins í heiminum. Kona á tíræðisaldri segist skilja þá ákvörðun stjórnenda Hrafnistu að setja á heimsóknabann. Dóttir hennar vonar að varnarveggurinn sem reistur hefur verið í kringum íbúa haldi. Venjulega hittast þær oft í viku en nú tala þær saman á Messenger. Fánar voru dregnir í hálfa stöng á Ítalíu til minningar um þá sem COVID-19 hefur dregið til dauða.

Í þættinum ræða Arnar I. Jónsson og Sveinn Þórarinsson um þróun í rekstri Icelandair undanfarin ár. Þeir velta fyrir sér verðlagningu félagins, áskorunum í rekstri og líta inn í framtíðina.
Horfur er á að á næstunni verðir settar upp yfir 150 hleðslustöðvar víðs vegar um landið. Þetta er niðurstaðan eftir að stjórnvöld auglýstu styrki til að koma upp hleðslustöðvum. Alls bárust umsóknir um að setja upp hraðhleðslustöðvar fyrir tæpa 2 milljarða króna. Tilkynnt verður um miðjan október hverjir fá styrki. Arnar Páll Hauksson. „Fyrsta árið var svolítið skrítið, það vantaði svolítið inn í tilveruna.“ Svona lýsir Jóhann Gunnarsson, þeim tímamótum að hætta að vinna. Þetta vandist með tímanum og hann þakkar það ekki síst þátttöku í Körlum í skúrum, verkefni á vegum Rauða krossins. Skúrinn er við Helluhraun í Hafnarfirði og þangað geta karlar á öllum aldri komið og sinnt ýmsum verkefnum. Arnhildur Hálfdánardóttir hitti Jóhann í skúrnum. Elizabeth Warren er einna líklegust til að mæta Donald Trump í forsetakosningunum á næsta ári. Trump kallar hana iðulega indjánann eða Pókahontas eftir amerísku frumbyggjakonunni frá sautjándu öld sem öðlaðist heimsfrægð í túlkun Disney í teiknimynd frá 1995. Pálmi Jónasson segir frá.
Veggjöld eiga að skila um sextíu milljörðum til samgöngubóta á höfuðborgarsvæðinu næstu fimmtán ár. Innheimtar yrðu tvö til sex hundruð krónur fyrir hverja ferð um stofnæðar borgarinnar. Magnús Geir Eyjólfsson segir frá. Stjórn Dómstólasýslunnar ítrekaði í dag fyrri yfirlýsingar um að mikilvægt sé að fjölga dómurum við Landsrétt. Talið er að rekja megi tvö óhöpp í hringtorgum á Vesturlandsvegi til þess að malbikið verður sérstaklega hált í bleytu. Birkir Hrafn Jóakimsson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni segir að ástæðan sé steinefni sem flutt var inn frá Noregi. Hætt er að nota það nú. Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að gera stjórnsýsluúttekt á embætti Ríkislögreglustjóra. Í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra er ákvörðun Ríkisendurskoðunar um þetta fagnað. Breska ríkisstjórnin hyggst áfrýja niðurstöðu skosks áfrýjunardómstóls um að hlé á störfum breska þingsins til 14. október, sé ólöglegt. Þess er krafist að þingið verði kallað aftur til starfa. Guðmundur Björn Þorbjörnsson segir frá. Reiknivillan í inntökuprófunum í læknadeild í vor, sem varð til þess að fimm nemendur sem áður höfðu ekki verið meðal 55 efstu í prófinu komust inn, hafði áhrif á einkunn 29 umsækjenda. Forseti læknadeildar Háskóla Íslands, segir að þegar línum var bætt við excel skjal, sem notað var til að halda utan um einkunnagjöfina, hafi villa komið upp í formúlu. Tímamótadómur féll í héraðsdómi í Haag í Hollandi í dag þegar læknir var sýknaður af ákæru um manndráp eftir að hafa gefið 74 ára gömlum sjúklingi banvænan lyfjakokteil. Guðmundur Björn Þorbjörnsson segir frá. Þótt John Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, hafi verið sagður arkitektinn að norðurslóðastefnu landsins, er ekki líklegt að brotthvarf hans breyti þeirri stefnu mikið. Þetta er mat Alberts Jónssonar, fyrrverandi sendiherra Íslands vestanhafs. Stígur Helgason ræddi við Albert og einnig heyrist brot úr viðtali Einars Þorsteinssonar við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta í Kastljósi. Horfur eru á að ris úr dýfu sem ferðaþjónustan er í eftir magalendinguna í mars þegar WOW air varð gjaldþrota fari hægt af stað. Greiningardeild Arionbanka spáir því að ferðamönnum fjölgi um 2% á næsta ári og að störf í ferðaþjónustu verði um tveimur þúsundum færri undir lok árs en á sama tíma í fyrra. Rætt við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um horfurnar. Læknar og hjúkrunarfræðingar á átta heilsugæslustöðvum í Svíþjóð eru sakaðir um að hafa ýkt heilsufarsvanda skjólstæðinga sinna í þeim tilgangi að svíkja út fé. K
John Bolton, sem í vikunni var rekinn sem þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, er mikill áhugamaður um norðurslóðir - sumir segja að hann hafi verið einn af arkitektum norðurslóðastefnu Bandaríkjanna. En nú er hann hættur, og þá vaknar sú spurning hvort brotthvarf hans hafi áhrif á áhuga og umsvif Bandaríkjanna hér um slóðir. Fyrrverandi sendiherra Íslands vestanhafs telur það ólíklegt. Stígur Helgason segir frá og talar við Albert Jónsson. Horfur eru á að ris úr dýfu sem ferðaþjónustan er í eftir magalendinguna í mars þegar WOW air varð gjaldþrota fari hægt af stað. Greiningardeild Arionbanka spáir því að ferðamönnum fjölgi um 2% á næsta ári og að störf í ferðaþjónustu verði um tveimur þúsundum færri undir lok árs en á sama tíma í fyrra. Kyrrsetning MAX-véla Icelandair þýði að umsvif félagsins verði svipuð á næsta ári og á þessu. Hvort fjölgun ferðamanna verður meiri ráðist að miklu leyti af því hvort hér taki á loft nýtt flugfélag. María Sigrún Hilmarsdóttir talar við Jóhannes Þór Skúlason. Læknar og hjúkrunarfræðingar á átta heilsugæslustöðvum í Svíþjóð eru sakaðir um að hafa ýkt heilsufarsvanda skjólstæðinga sinna í þeim tilgangi að svíkja út peninga. Svindlið virðist vel skipulagt og umfangsmikið. Kári Gylfason í Gautaborg tekur við. Kári Gylfason segir frá.
Þátturinn hófst á spjalli við Frey Eyjólfsson sem að þessu sinni var staddur í Panama. Hann sagði frá forsetakosningum sem fram fara í landinu í maí en síðustu tveir forsetar hafa blandað eigin viðskiptum og vafstri saman við opinberan rekstur. Mikil spilling hefur einkennt þjóðlífið í Panama en stjórnvöld leggja allt kapp á að kosningarnar fari vel fram. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur greiningar Íslandsbanka, fór yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum. Hann segir mikla óvissu ríkja, einkum vegna yfirstandandi kjaraviðræðna. Að mati Jóns Bjarka hefur of mikið verið gert úr líklegum áhrifum hugsanlegs þrots Wow air á efnahagskerfið, þegar hafi verið tekið tillit til nokkurs samdráttar í umsvifum félagsins í hagspám. Vera Illugadóttir sagði frá Zusönu Caputovu sem allt bendir til að verði kjörin forseti Slóvakíu í síðari umferð forsetakosninganna í landinu á laugardag. Hún hefur ekki reynslu af pólitík en hefur barist gegn spillingu með ýmsum hætti og nýtur hylli meðal samlandanna. Ferðamenn sem koma til Íslands með skemmtiferðaskipum eyða að jafnaði um 18 þúsund krónum í hverri höfn. Ný skýrsla um efnahagsleg áhrif skemmtiferðaskipa sýnir þetta. Á síðasta ári voru bein áhrif 9 milljarðar króna og óbeinn ávinningur um 16 milljarðar. Ágúst Ólafsson, fréttamaður á Akureyri ræddi þessi mál við Pétur Ólafsson, hafnarstjóra á Akureyri og formann Cruise Iceland, sem eru samtök hafna og sveitarfélaga sem taka á móti skemmtiferðaskipum. Tónlist: Alltid inom mig - Josefin Nilsson og Totta Naslund Basin street blues - Duke Ellington og Johnny Hodges
Hrefna Friðriksdóttir prófessor HÍ: Segir frá drögum að breytingum á barnalögum er snúa að skiptri búsetu barna og eins viðamiklum breytingum á fyrirkomulagi meðlagsgreiðslna. Hákon Ásgeirson Umhverfisstofnun og Anna Sigríður Valdimarsdóttir Landgræðslunni: Akstur á hálendi Íslands og áhrif utanvegaaksturs á gróður og jarðveg. Friðrik Páll: Horfur í olíu- og gasframleiðslu heimsins. Framleiðslan er enn mikil og vaxandi, þótt vitað sé að skipta verði út jarðefnaeldsneyti fyrir kolefnislausa orkugjafa.
Fjármálaráðherra segir að svo virðist sem sum fyrirtæki í ríkiseigu hafi ekki tekið tillit til tilmæla ráðuneytisins um hóflega launastefnu. Tæplega 100 börn hafa látist í Kongó vegna ebólu-smits frá því að faraldur braust út í landinu í ágúst í fyrra. Faraldurinn er nú orðinn næstskæðasti ebólufaraldur sögunnar. Janúarumferð á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri en í ár. Þetta sýna mælingar Vegagerðarinnar. Í nýjustu mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs um ástandið á húsnæðismarkaði kemur fram að leiguverð hafi í fyrra hækkað meira en íbúðaverð og laun miðað við árið áður. Það hefur ekki gerst frá því 2013. Arnar Páll Hauksson ræðir við Unu Jónsdóttur hjá Íbúðalánasjóði. Theresa May forsætisráðherra Breta ávarpaði þingið í dag til að tilkynna hver staðan í Brexit-viðræðunum væri. Þó May nefndi ýmsa fundi er staðreyndin sú að hún hefur engu áorkað um að breyta útgöngusamningnum við Evrópusambandið. Sigrún Davíðsdóttir ræðir Brexit-horfur og breska pólitík. Tugir hvítabjarna halda litlu bæjarfélagi í rússneska eyjaklasanum Novaja Semlja í Norður-Íshafi í heljargreipum. Dýravistfræðingur á Náttúrufræðistofnun telur líklegra að íbúar verði fluttir á brott en að birnirnir verði skotnir. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Guðmund A. Guðmundsson, dýravistfræðing. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Helgi Gunnlaugsson prófessor í félagsfræði: Samnorræn rannsókn um fíkniefnasölu á netinu. Gísli Steinar Ingólfsson hjá EMC rannsóknum: Kynslóðarannsóknin. Munurinn á aldamótakynslóðinni og þeim sem eldri eru. Friðrik Páll Jónsson: Horfur í efnahagsmálum heimsins á árinu.
Við beindum athyglinni sérstaklega að Miðausturlöndum, stríði í Sýrlandi og Jemen, og stöðu fólks við þær aðstæður - ekki síst barna. Héðinn Halldórsson hefur undanfarin ár starfað á þessum slóðum fyrir alþjóðlegu hjálpar- og mannúðarsamtökin UNICEF og Save the Children eða Barnaheill. Síðast í Líbanon. Héðinn og Bogi Ágústsson komu í þáttinn og ræddu stöðu mála í Sýrlandi og Jemen. - Hún er dálítið hástemmd yfirskriftin á nýrri menntastefnu Reykjavíkurborgar til ársins 2030: „Látum draumana rætast.“ Stefnunni er skipt í fimm meginþætti: Félagsfærni, sjálfsefling, læsi, sköpun og heilbrigði. En hvað svo? Við spurðum Skúla Helgason, borgarfulltrúa, formann skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar. Hann lýsti áherslum í nýrri menntastefnu og þeim verkefnum sem framundan eru. - Við fjölluðum líka um athyglisverða ljósameðferð gegn lamandi síþreytu, svefntruflunum og þunglyndi sem hrjáir marga krabbameinssjúklinga. Heiðdís Valdimarsdóttir, prófessor við sálfræðisvið Háskólans í Reykjavík, leiðir rannsóknir á áhrifum dægursveiflu lífsklukkunnar á líkamlegt og andlegt ástand. Komið hefur í ljós að bæta má líðan með ljósi. Heiðdís kom á Morgunvaktina ásamt samstarfskonu sinni, Birnu Baldursdóttur, lektor, sem vinnur að þessum rannsóknum. - Tónlist: Tómas R Einarsson og Sigríður Thorlacius - Morgunn; Bubbi - Talað við gluggann; Stuðmenn - Bráðum kemur betri tíð.