Place in Atyrau, Kazakhstan
POPULARITY
Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handtekinn. Lögreglan trúði yfirlýsingum morðingjans, sem sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði, og handtók og handjárnaði helsærða námsmanninn sem lést á staðnum. Mette Frederiksen hefur myndað nýja mið-vinstri stjórn í Danmörku. Stjórnin hefur lofað miklum útgjöldum og skattalækkunum við misjafnlega hrifningu hagfræðinga.
Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Sjötti maðurinn er nú kominn í loftið. Í þættinum setjast þeir Ögmundur Árni, Mikael Máni og Gunnar Bjartur niður og gera upp nýafstaðið tímabil í körfuboltanum af sinni alkunnu snilld. Farið er yfir helstu hápunkta og dramatíkina sem einkenndi veturinn, auk þess sem strákarnir veita sín eigin verðlaun fyrir tímabilið og rýna í það sem stóð upp úr hjá liðunum.Auk þess að horfa til baka hleypa þeir hlustendum í ferðalag fram í tímann og spá í spilin fyrir næsta vetur. Mikil eftirvænting ríkir fyrir sumrinu og ræða þeir ítarlega hvernig leikmannamarkaðurinn muni þróast á næstu mánuðum, hvaða hræringar séu líklegar og hvaða lið gætu styrkt sig mest fyrir komandi átök.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og LykilsSamstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.Hér heimsækir þú Körfuna
Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó mæta til leiks í hljóðverið. Það er af nógu að taka enda úrslitakeppni Bónus-deildanna í hámarki. Farið er yfir ótrúlegan viðsnúning í undanúrslitum karla og kvenna þar sem Stjarnan og Grindavík hafa bæði misst niður 2-0 forystu í 2-2 gegn Tindastóli og Njarðvík. Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi oddaleiki, en þrír af fjórum undanúrslitum deildanna ráðast í hreinum úrslitaleikjum sem undirstrikar þá gífurlegu spennu sem ríkir þessa dagana.Auk ítarlegrar yfirferðar um gang mála á vellinum er rýnt í málin utan hans. Strákarnir gagnrýna aðgang blaðamanna að leikjum, taka góða dýfu í dómaraumræðuna og fara yfir skuggahliðar stemningsinnar, þar á meðal átök stuðningsmanna á bílastæðinu í Garðabæ. Þátturinn er þó ekki eingöngu helgaður íþróttum því sveitastjórnarkosningar ber á góma, Jónfrí kynnir nýja lagið sitt „Djúpfalsað efni“ og slúðurhornið er á sínum stað þar sem farið er yfir það sem er að gerast bak við tjöldin í boltanum.Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.
Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp helgina í handboltanum. Afhverju eru ÍR að ráðast í þjálfarabreytingar á kvennaliðinu? Valur er komið í úrslit í kvennaboltanum meðan það er allt í járnum í einvígi ÍBV og Hauka. HSÍ fer nýjar leiðir í blaðamannafundum. Mikil spenna í umspili hjá stelpunum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
Við munum heyra í Benedikti Hjartarsyni prófessor í almennri bókemenntafræði og meningarfærði við háskóla íslands, en hann gaf nýverið út bókina Gáttir, heimsbókmenntir á Íslandi 1913-1943. Í Gáttum hugar Benedikt að áhrifum heimsbókmenntanna á íslenskt menningarlíf á fullveldis árunum. Mikil áhersla var lögð á að byggja upp íslenska nútímamenningu og liður í því verkefni var að kynna nýjustu strauma alþjóðlegra bókmennta fyrir íslensku lesendum. Soffía Auður Birgisdóttir rýnir í ljóðabókina Söngur tímafuglsins og fleiri ljóð, eftir Ægi Þór Jähnke. En við hefjum þáttinn á því að hverfa aftur til 11.aldar með Hauki Þorgeirssyni.
ÍA er spáð fjórða sæti Bestu deildarinnar af sérfræðingum Fótbolta.net. Það styttist í sumarið en við fengum Elfu Björk og Brynjólf Þór, stuðningsfólk ÍA, í spjall til að ræða komandi keppnistímabil hjá sínum mönnum.
Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt allan sólarhringinn allt árið um kring, sinnir áætlunarflugi innanlands og síðast en ekki síst sinnir það fjölbreyttum leiguflugsverkefnum með Twin Otter flugvélum í krefjandi aðstæðum á Grænlandi. Arnar ræðir vítt og breitt um um flugmálin, innanlandsflugið, útboðsmálin og rekstrarumhverfi fyrir lítið flugfélag eins og Norlandair. Einnig er farið yfir þær aðstæður sem sköpuðust 26. febrúar síðastliðinn þegar margar þotur lentu á Reykjavíkurflugvelli og fyrir vikið varð völlurinn ekki nothæfur um tíma fyrir sjúkra- og áætlunarflug. Áhugavert spjall þar sem hlustendur fá örlitla innsýn í rekstur Norlandair. Viðtalið var tekið upp í lok mars inni í F-27 flugvél Landhelgisgæslunnar á Flugsafni Íslands á Akureyri.
Fimmtudagur 12. febrúar Framsókn, reynsluboltar, Salka, strandminjar og íslenskan Nýs formanns Framsóknarflokksins, sem kosinn verður um helgina, bíður það erfiða verkefni að reisa flokkinn við til fylgis við nýja tíma. Flokkurinn er í kreppu og mælist með lágt fylgi. Af er sem áður var í þeim efnum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur fer yfir samtímann og sögu flokksins í spjalli við Björn Þorláks. Erna Bjarnadóttir, Guðmundur Þ. Ragnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir Sigurjóns Magnúsar í þættinum að þessu sinni. Stjórnmálin, lífeyrir, kynslóðir og margt fleira bar á góma. Lífsreynsla þeirra leynir sér ekki. Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við Gunnar Smára. Mikil söguleg verðmæti glatast þar sem strandminjar verða eyðileggingunni að bráð á hverju ári. Eyþór Eðvarðsson, sem er einlægur áhugamaður um varðveislustrtrandminja settist niður með Sigurjóni Magnúsi. Tilefnið var hvernig hafið hefur leikið Reynisfjöru. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur ræðir stöðu íslenskunnar í samtali við Björn Þorláks. Deilur sveitarstjórnarfulltrúa á Vopnafirði ber á góma í því samhengi, læsi barna og fleira.
Áhrif tollastríðsins sem geisað hefur á alþjóðavettvangi hafa ekki verið mjög mikil á íslensk fyrirtæki heilt yfir. Þó er það misjafnt segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Mikil og vaxandi óvissa í heimshagkerfinu þýði að stjórnvöld verði að styrkja samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Landeigendur og ábúendur á þriðja tug jarða í Húnaþingi hafa bundist samtökum um að hafna áformum Landsnets um lagningu Holtavörðuheiðarlínu 3 um þeirra lönd. Hagsmunasamtök þessara landeigenda voru stofnuð nýlega og þeirra mótmæli snúa að þeim aðalvalkosti sem Landsnet vill fara, sem er svokölluð byggðaleið. Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins settu spurningarmerki við samkomulag sem mennta- og barnamálaráðherra gerði við félags- og húsnæðismálaráðherra, um að hún tæki að sér uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir eldra fólk. Forsætisráðherra viðurkenndi að þetta væri óvenjuleg ráðstöfun en slíkt væri stundum nauðsynlegt til að hreyfa við hlutunum.
Fimmtudagur 18. desember ESB eða ekki, Reynsluboltar, list, trú, Sjálfstæðisflokkurinn og íslenskan Magnús Skjöld fyrir hönd Evrópuhreyfingarinnar sem vill inngöngu Íslands í ESB og Haraldur Ólafsson Heimssýn sem berst gegn inngöngu í ESB ræða kosti og galla aðildar Íslendinga að ESB. Björn Þorláks stýrir rökræðunni.Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður eru reynsluboltar vikunnar og ræða fréttir vikunnar, þjóðmál, menningu, árið 2025 og jólin. Píratar verða ekki til eftir nokkur ár, segir Björn Leví. Björn Þorláks ræðir við þau. Byltingunni hefur verið frestað vegna skorts á ríkisfjármagni. Listamaðurinn Almar Steinn Atlason opnar sýningu í Gluggagallaríinu Stétt. Gunnar Smári ræðir við hann.Mikil umræða hefur verið á árinu 2025 um hvort stjórnmálahreyfingar hafa gengið til góðs. Vilhjálmur Bjarnason, fyrrum þingmaður, ste ig fram fyrir nokkrum mánuðum og ræddi pólitísk hrossakaup og menningarlausan Sjálfstæðisflokk nú orðið í samtali við Björn Þorláks. Við endurflytjun það. Muhammed Emin Kizilkaya, doktorsnemi í félagsfræði við Háskóla Íslands og meðlimur í Félagi Horizon, sr. Matthildur Bjarnadóttir, prestur í Vídalínskirkju og MA í trúarbragðafræði og sr. Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Vídalínskirkju og doktor í nýjatestamentisfræðum ræða við Gunnar Smára um kristni og Islam á Íslandi, fordóma milli trúarbragða og hvernig skapa megi frið og sátt í samfélaginu. Viðtalið er endurflutt. Á árinu sem er að líða höfum við sinnt íslenskri tungu í nokkrum mæli. Þórarinn Eldjárn þjóðskáld gefur nokkur hollráð um það hvernig við komum í veg fyrir að missa íslenskuna úr huga og hjarta. Björn Þorláks ræddi við hann, við endurflytjum viðtalið.
Þriðjudagur 2. desember Ríkið styrkir Viðskiptaráð, fjölmiðlar, Úkraína og rafmagnsþörf Kristján Þórður Snæbjarnarson þingmaður Samfylkingarinnar ræðir við Sigurjón Magnús um framlög ríkisins til áróðursmaskína fyrirtækja- og fjármagnseigenda. Jón Trausti Reynisson blaðamaður á Heimildinni og Ólafur Arnarson, blaðamaður á DV ræða ástandið í fjölmiðlaheiminum og blaðamennskuna í kjölfar skertrar fréttaþjónustu. Björn Þorláks spyr þá hvort þeir eigi von á róttækri innspýtingu fyrir blaðamennskuna í vikunni þegar Logi Einarsson ráðherra sýnir á spilin. Hilmar Þór Hilmarsson fer yfir stöðuna í friðarviðræðum um Úkraínu í samtali við Gunnar Smára, hversu langt er á milli aðila og ólíklegt sé að það bil verði brúað. Þá er líklegast að stríðið haldi áfram þar til Rússar telja sig hafa náð markmiðum sínum. Mikil stemmning virðist fyrir stórauknum virkjanaframkvæmdum á sama tíma og 13 prósent orkunnar eru munaðarlaus vegna bilunar hjá Norðuráli. Andrés Skúlason náttúruverndarsinni og Snorri Hallgrímsson, varaformaður ungra umhverfissinna, ræða stöðu umhverfismála í samtali við Björn Þorláks.
Þórarinn ræðir við Þorstein Víglundsson, fyrrum ráðherra og núverandi forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf.Rætt er um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar en Þorsteinn hefur verið opinberlega gagnrýninn á þá stefnubreytingu sem ríkisstjórnin hefur tekið með honum. Hann telur það óeðlilegt hvernig forgangsröðun sveitarfélaga hefur verið gagnvart úthlutunum lóða og segir að opinber afskipti letji almennt húsnæðismarkaðinn.Einnig er rætt um gjaldeyrismál, Evrópusambandið og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.- Afhverju fá óhagnaðardrifin félög forgang að lóðum?- Myndi evran bjarga húsnæðismarkaðnum?- Mun leiga hækka á Íslandi?Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón FiskhúsiðDrifa.isPalssonfasteignasala.isHeitirpottar.isHrafnadalur.isHarðfiskur (kynningartilboð):500g - 7.500 ISK1 kg - 14.000/kg - Heimsent2 Kg - 13.000/kg - Heimsent4 kg - 12.000/kg - HeimsentPantið á Hrafnadalur@proton.me
Bjarni Mark íþróttasálfræðingur og Gunnar Birgisson yngri flokka þjálfari til tæplega 20 ára ræða yngri flokka starf hjá börnum og ungmennum. Mikil umræða hefur verið um framkomu foreldra á hliðarlínunni á fótboltamótum. Hefur hún batnað með árunum með aukinni fræðslu?
Það var til eilífðar - þangað til það var ekki lengur - þannig mætti ef til vill snara titli bókarinnar It was forever - until it was no more, bók um síðustu ár Sovétríkjanna, eftir rússnesk-bandaríska félagsfræðinginn Alexei Yurchak. Rússneski stjórnarandstæðingurinn Vladimir Kara-Murza segir titilinn lýsa því fullkomlega, hvernig breytingar á rússnesku stjórnskipulagi ganga fyrir sig. Hafrannsóknastofnun kynnti í síðustu viku nýja ráðgjöf um loðnuveiðar og leggur til að afli á vertíðinni verði ekki meiri en 43.766 tonn. Hlutur íslenskra skipa verður þar enn minni, því taka þarf tillit til samninga við Færeyjar, Noreg og Grænland, og þá standa eftir rúm 33 þúsund tonn. Spilafíkn er ekki afþreying sem hefur farið úr böndunum heldur langvinnur sjúkdómur, segir Ingunn Hansdóttir framkvæmdastjóri meðferðarsviðs hjá SÁÁ í grein í Læknablaðinu. Þrátt fyrir það hafi lítið verið fjallað um hana sem heilbrigðisvanda. Rétt eins og skjólstæðingar séu spurðir um áfengisnotkun, nikótínneyslu og hreyfingu, ætti að spyrja um fjárhættuspil. Mikil skömm fylgi því að hafa ekki stjórn á spilamennsku og fæstir nefni vandann þótt hann sé til staðar.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Tómas Þór, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke fara yfir allt það helsta í boltanum. Meðal annars er hitað upp fyrir lokaumferðina í Bestu fyrir tvískiptinguna.
Helgi sagði betur frá hvað fyrirlesturinn gekk út á sem hann fór á í Denver, Colarado. Hjálmar vonaði til þess að Helgi myndi lenda í veseni í tollinum í Bandaríkjunum. Helgi segir að Denver sé eins og Köben Ameríku. Hjálmar vill að Helgi lesi inn kvennlegar útvarpsauglýsingar.IG helgijean & hjalmarorn110Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe´a!Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!
Mikil gosmóða og gasmengun hefur legið yfir stórum hluta landsins í dag og undanfarna daga og hún liggur líka yfir Speglinum. Þótt yfirstandandi eldgos á Sundhnúksgígaröðinni standi betur undir lýsingunni „óttalegur ræfill“ en gosið sem mætur jarðvísindamaður gaf þá einkunn fyrir fjórum árum, þá er mengunin frá því töluvert meiri, víðförlari og þaulsætnari en áður hefur sést frá gosstöðvunum á Reykjanesskaganum. Því er spurt: Eru aðstæður á gosstöðvum eða samsetning kvikunnar eitthvað öðru vísi en í fyrri gosum, eða eru það eingöngu ytri aðstæður sem valda þessu? Katrín Agla Tómasdóttir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands kann svör við því. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hana. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Stjórnmál Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis Þórunn ræðir þinglokin þar sem mikið mæddi á henni, ákvörðun um að ljúka viðræðum um veiðigjaldafrumvarp og stöðu sína sem forseti þingsins, nú þegar minnihlutinn hefur lýst yfir tortryggni í hennar garð og jafnvel vantrausti. Efnahagsmál Agnar Tómas Möller, sérfræðingur á fjármálamarkaði Agnar ræðir efnahagsmál og bendir á þá staðreynd að bæði langtíma- og skammtímavextir á skuldabréfamarkaði bendi til þess að hvorki verðbólga né almennir vextir muni lækka á næstunni. Hann gagnrýnir ómarkvissa fjármögnun ríkissjóðs sem hann segir vinna gegn lækkun vaxta og verðbólgu. Stjórnmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Sigmundur gagnrýnir ríkisstjórnina vegna heimsóknar Ulriku Von Leyen nýverið og boðar harða andstöðu við hverskyns áform um frekari nálgun við ESB. Sjávarútvegur/strandveiðar Sigurjón Þórðarson, formaður Atvinnuveganefndar Alþingis og Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssamband. Þeir rökræða þá stöðu sem upp er komin í strandveiðum. Lofað hafði verið veiðidögum í júlí og ágúst en ljóst að það loforð verður ekki efnt og að veiðunum er lokið. Mikil vonbrigði segja smábátasjómenn.
Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (15% afsláttur á takktakk.is með kóðanum SB15).Hannes Hólmsteinn Gissurarson er kominn á eftirlaun. Það þýðir frjáls hugsun og frjáls tjáning. Ekki það að hann sé nýbyrjaður á slíku. Í gegnum árin hefur Hannes verið bæði utangarðsmaður í háskólanum og svo innanbúðarmaður hjá æðsta valdinu. Mikil sérstaða hér.Í þessum þætti segir Hannes okkur frá muninum á hægri og vinstri mönnum, hvers vegna hægri menn lesa ekki bækur, Jón Ásgeir vs. Davíð Oddsson, útlendingastefna Íslands og margt annað.
Á morgun verða mót tónlistar og gervigreindar rannsökuð í Salnum í Kópavogi, þegar Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands og prófessor í tónlist við Háskólann í Sussex verður með erindi í viðburðarröð sem heitir Menning á miðvikudögum í Kópavogi. Á viðburðinum fer hann yfir sögu gervigreindar í tónlist og fer yfir helstu uppgötvanir og þróanir á þessu sviði – og hann ætlar að kíkja við hjá okkur í dag og spjalla um samband gervigreindar og tónlistar. Notkun kannabisefna í lækningaskyni er umræða sem skýtur upp kollinum af og til og hvort leyfa beri slíka notkun. Reyndar eru tvö lyf sem innihalda kannabis þegar í notkun hér á landi, að sögn Steinunnar Þórðardóttur formanns Læknafélags Íslands. Hún segir að efnið dugi fyrst og fremst til að minnka ýmis einkenni og verki, en síður til lækninga - en varast skuli að slá það út af borðinu. Mikil gróska er í kannabisrannsóknum, meðal annars er verið að rannsaka áhrif kannabis á fólk með alzheimer. Við ræðum þetta við Steinunni í dag. Við fáum að heyra pistil frá Esther Jónsdóttur umhverfisstjórnmálafræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Og undir lok þáttar endurflytjum við viðtal við Önnu Soffíu Víkingsdóttur, doktor í félagsfræði, um rannsóknir hennar á ofbeldismenningu í íþróttum. Tónlist í þættinum í dag: LÚPÍNA - Lúpínu bossa nova. Bon Iver - S P E Y S I DE.
Hlustaðu í fullri lengd (100mín) inni á www.patreon.com/skodanabraedurStyrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (kóðinn SB15 fyrir 15% afslátt á takktakk.is)Guðni Gunnarsson lífsþjálfi snýr aftur í þáttinn.Guðni er mín stærsta fyrirmynd og hefur kennt mér magnaða hluti. Mikil blessun að fá hann til þess að deila visku sinni hérna með okkur. Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Njótið þáttarins!
https://solvitryggva.is/ Mikil umræða hefur skapast um körfuboltaliðið Aþenu og þær þjálfunaraðferðir sem þar eru notaðar. En í allri umræðunni í samfélaginu hefur lítið sem ekkert heyrst frá stelpunum sjálfum. Hér stíga þær fram og segja söguna alla eins og hún blasir við þeim. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com/
Aftakaveður gengur yfir allt Ísland. Veðurstofa Íslands hefur gefið út rauða viðvörun sem nær yfir allt landið nema hluta Vestfjarða, þar sem appelsínugul viðvörun er í gildi. Veðrið gengur heldur niður seint í kvöld og nótt, en magnast svo aftur með morgninum og verður enn verra á fimmtudag, gangi spár eftir. Mikil úrkoma fylgir óveðrinu, sem eykur hættu á skriðuföllum. Björgunarsveitir höfðu þegar farið í tugi útkalla þegar þátturinn var sendur út en ekkert meiriháttar tjón hafði þá orðið á mannvirkjum og engin slys á fólki. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Runólf Þórhallsson, sviðsstjóra Almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, Halldór Kristinsson björgunarsveitarmann á Snæfellsnesi, Hlyn Snorrason yfirlögregluþjón á Vestfjörðum, Jóhannes Sigfússon aðstoðaryfirlögregluþjón á Akureyri og Birtu Líf Kristinsdóttur veðurfræðing á Veðurstofu Íslands. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
4. orkupakkinn er við það að sprengja norsku stjórnina og það hriktir í stjórnarsamstarfi Verkamannaflokksins og Miðflokksins; Verkföll kennara vofa yfir um mánaðamótin og ekkert miðar áfram í deilunni., Mikil samskipti voru milli þeirra sem byggðu græna, stóra vöruhúsið við Álfabakka og starfsmanna borgarinnar í aðdraganda framkvæmdarinnar. Þau samskipti snerust þó að mjög litlu leyti um útlit og stærð hússins eða hugsanleg áhrif þess á íbúa við Árskóga 7, heldur fyrst og fremst hvort stórfyrirtækið Hagar, sem ætlar að leigja húsið undir sína starfsemi, fengi nægilega mörg bílastæði.
Þingmenn mættu til starfa á Alþingi í morgun í fyrsta skipti frá því að ríkisstjórnin sprakk. Eitt mál var á dagskrá - umræða um þingrofstillögu forsætisráðherra. Eftir ræðuhöldin fóru kjörnir fulltrúar hver til síns heima, flestir til að undirbúa sig fyrir komandi átök og koma sér á framfæri við flokksapparötin í þeirri von að fá ásættanlegt sæti á framboðslista. Ræður þeirra sem tóku til máls báru þess glöggt merki að kosningabaráttan er hafin. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Í síðustu kosningum var þingmannaveltan hafi verið töluverð. Þegar kosið var 2021 settust 25 nýir þingmenn á Alþingi og 2017 voru nýju þingmennirnir 19 og 31 árið á undan. Talið er að tíu flokkar bjóði fram í kosningunum 30. nóvember, þeir átta sem eiga sæti á þingi og tveir til viðbótar - Sósíalistaflokkur Íslands og Lýðræðisflokkurinn. Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands segir breytingar á þingheimi hafa verið töluverðar og verði það líklega líka næst - Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. 1,1 milljarður Jarðarbúa býr við sára fátækt, örbirgð svo mikla að viðkomandi er ómögulegt að draga fram lífið án utanaðkomandi aðstoðar. Tæplega hálfur milljarður þessa örbjarga fólks býr á átakasvæðum, þar sem ýmist ríkir hreint stríðsástand eða mannskæðar árásir og vopnuð átök eru daglegt brauð. Og nær sex hundruð milljónir eru á barnsaldri, yngri en átján ára. Verst er ástandið í Afríku sunnan Sahara og í Suður-Asíu. Þetta eru meginniðurstöður árlegrar úttektar Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna og Fátæktar- og þróunarrannsóknastofu Oxfordháskóla á fátækt í heiminum. Ævar Örn Jósespsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Doc, Hjálmar og Gunni Birgis á föstudegi. Mikil gleði.
Talið var að 25 hefðu verið í íshellaskoðun á Breiðamerkurjökli þegar ishrun varð. Bandarískt par varð undir ísnum, karlinn lést og konan slasaðist illa en er ekki í lífshættu. Búið var að gera grein fyrir 23 í gær og var leit því haldið áfram en í dag kom í ljós að það voru 23 í ferðinni ekki 25. Lögreglan segir að skráning og utanumhald hafi ekki verið nákvæmt og upplýsingar um fjölda misvísandi. Rætt við Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúa Landsbjargar og Vilhjálm Árnason varamann formanns stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs og formann Þingvallanefndar um hvernig öryggi ferðamanna verði helst tryggt. Mikil þensla og kvikusöfnun við Öskju undanfarin þrjú ár eru skýr merki um að þar geti aftur farið að gjósa. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri hjá Veðurstofunni segir hins vegar ómögulegt að segja til um hversu langt sé í slíkt gos. Visindamenn þekki þolmörk Öskju ekki vel því engar mælingar á landrisi séu til fyrr en eftir að síðast gaus í Öskju. Hann á þó ekki von á stórum atburðum þarna í bráð.
Við ætlum að tala um gervigreind og þá sérstaklega Chat GPT. Þessi tækni sem á íslensku hefur verið kölluð spunagreind, er á fleygiferð og er nú aðgengileg öllum sem vilja. En hvernig getur almenningur nýtt sér þetta tól sem best í daglegum störfum? Er það þegar að gerast hér á landi og ættu t.d. vinnustaðir að tileinka sér chatGPT nú þegar og þjálfa starfsfólk sitt í að nota þessa tækni? Og hversu víða nýtist þessi tækni? Við kennslu í grunnskólum? Við almenn skrifstofustörf? Hjá ríkisstofnunum? Fjölmiðlum? Í heilbrigðiskerfinu? Sverrir Heiðar Davíðsson hugbúnaðarverkfræðingur og sérfræðingur í gervigreind hefur kennt námskeið hjá Endurmenntun um hagnýtar gervigreindarlausnir og starfar sem leiðtogi í hagnýtingu gervigreindar hjá Orkuveitunni. Hann ætlar að ræða við okkur. Mikil snjóþyngsli, snjóflóðahætta og rýmingar hafa undanfarnar vikur haft áhrif á líf fólks á Norður- og Austurlandi. Við ræðum við Hildi Þórisdóttur, oddvita Austurlistans í Múlaþingi, hún býr á Seyðisfirði og óttast að bærinn breytist hreinlega í sumarhúsabyggð verði ekki ráðist í að grafa göng undir Fjarðarheiði á næstu árum. Marsmánuður var mildur á höfuðborgarsvæðinu en Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, telur að veturinn sé enn ekki búinn fyrir norðan og austan. Á morgun kemur út handbók loftslagsaktivistans, Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, ræðir hana við okkur, hverjar eru birtingarmyndir loftslagsaðgerða hér og hvernig verður fólk að (betri) loftslagsaktivistum. Tónlist: GEORGE MICHAEL & ELTON JOHN - Don't Let The Sun Go Down On Me. FRANK SINATRA - I've Got You Under My Skin. KÁRI - Into The Blue. BUDDY HOLLY - That'll Be The Day.
21. febrúar 2024 Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands fagnar mörgu í heildarsýn í málefnum útlendinga og hælisleitenda en setur spurningarmerki til dæmis við breytingar á viðmiðum um fjölskyldusameiningu, styttingu dvalarleyfa og áform um lokuð búsetuúrræði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana. Mikil eldsumbrot hafa verið á Reykjanesskaga síðustu misseri og ár. Eldgos, neðansjávargos, eru líka vel þekkt á hafsbotninum á Reykjaneshrygg, út af skaganum og Reykjanesi sjálfu, og Eldey, ein stærsta súlubyggð heims, varð til í einu slíku. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur, sem hefur lengi rannsakað Reykjaneshrygginn, fræðir Ragnhildi Thorlacius og hlustendur um hann. Möguleikar Úkraínumanna til að herja á rússneska innrásarliðið frá sjó aukast talsvert þegar þeir fá í hendur tíu orrustubáta og fleiri hergögn, sem Svíar færðu þeim að gjöf. Andvirði þeirra er 7,1 milljarður sænskra króna, hátt í 95 milljarðar íslenskir. Pål Jonsson varnarmálaráðherra greindi frá gjöfinni á fundi með fréttamönnum í Stokkhólmi. Hann sagði að sænski herinn hefði séð um að velja hergögnin sem send yrðu til Úkraínu. Ásgeir Tómasson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Mikil umræða um sniðgöngu um þessar mundir í tengslum við framferði Ísraelshers á gaza undanfarnar vikur. Stuðningsfólk Palestínu hér á landi hefur reynt að beita þrýstingi á fólk, fyrirtæki og stofnanir til að sniðganga Ísrael eða þá sem styðja árásir ísraelska hersins á Gaza. Þessi krafa nær inn á nánast öll svið samfélagsins: menntakerfið, íþróttir og menningu. Við tileinkum Lestina í dag hugtakinu sniðganga. Við fáum sjónarhorn frá Kristínu Sveinsdóttur, Ásgeiri Brynjari Torfasyni, Tómasi Þór Þórðarsyni, Oddnýju Eir Ævarsdóttur og Boris Grebenschikov.
Mikil umræða um sniðgöngu um þessar mundir í tengslum við framferði Ísraelshers á gaza undanfarnar vikur. Stuðningsfólk Palestínu hér á landi hefur reynt að beita þrýstingi á fólk, fyrirtæki og stofnanir til að sniðganga Ísrael eða þá sem styðja árásir ísraelska hersins á Gaza. Þessi krafa nær inn á nánast öll svið samfélagsins: menntakerfið, íþróttir og menningu. Við tileinkum Lestina í dag hugtakinu sniðganga. Við fáum sjónarhorn frá Kristínu Sveinsdóttur, Ásgeiri Brynjari Torfasyni, Tómasi Þór Þórðarsyni, Oddnýju Eir Ævarsdóttur og Boris Grebenschikov.
Um helgina var Start dæmt úr leik í umspilinu um að komast upp í efstu deild í Noregi. Bjarni Mark Duffield er leikmaður Start og ræddi hann við Fótbolta.net í dag. Bjarni fór yfir ástæðuna fyrir því af hverju Start var dæmt úr leik. Heimavöllur liðsins var frosinn og tekin var ákvörðun að kveikja ekki á hitanum undir vellinum til að spara pening. Völlurinn var ekki leikhæfur og liðið dæmt úr leik. Hann segir að hljóðið í mönnum hjá félaginu sé ekki gott, talar um mikla reiði og mikinn pirring.
Á síðustu dögum hefur verið greint frá því að fjórir reynslumiklir leikmenn væru horfnir á brott úr leikmannahópi Fjölnis. Það eru þeir Hans Viktor Guðmundsson, Guðmundur Þór Júlíusson, Bjarni Gunnarsson og Dofri Snorrason. Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, ræddi brotthvarf leikmannanna í viðtali í dag. Mikil reynsla er farinn úr hópnum en Úlfur hefur ekki áhyggjur. Úlfur ræddi einnig um tímabil Fjölnis, tímann sem þjálfari hjá Fjölni, Extra völlinn og eftirminnilegt viðtal þar sem hann talaði um Aftureldingu.
BBC hefur gert þriggja þátta röð um bresk stjórnmál frá 2016. Mikil upplausn hefur ríkt og fimm forsætisráðherrar hafa verið á sex árum. Laura Kuenssberg, sem var stjórnmálaritstjóri BBC á þessum tíma, fer í gegnum atburðarásina og nefnir þættina State of Chaos sem þýða sem Ríki í ringulreið eða Upplausnarástand. Kuenssberg ræðir við fjölda fólks og dregur upp mynd af því sem gerðist og ekki síður hvað var að gerast á bak við tjöldin. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu þessa þætti í Heimsglugga vikunnar.
BBC hefur gert þriggja þátta röð um bresk stjórnmál frá 2016. Mikil upplausn hefur ríkt og fimm forsætisráðherrar hafa verið á sex árum. Laura Kuenssberg, sem var stjórnmálaritstjóri BBC á þessum tíma, fer í gegnum atburðarásina og nefnir þættina State of Chaos sem þýða sem Ríki í ringulreið eða Upplausnarástand. Kuenssberg ræðir við fjölda fólks og dregur upp mynd af því sem gerðist og ekki síður hvað var að gerast á bak við tjöldin. Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu þessa þætti í Heimsglugga vikunnar.
Allir mættir og það í stúdíóið! Jardarnir brattir og flottir með ykkur í Nóa Síríus stúdíóinu hjá Podcaststöðinni! Haldiði að strákarnir hafi ekki skellt sér á Saffran fyrir þátt. Mikil gleði, mikil veisla. Vel nærðir að fara yfir AFC East og NFC East til að fullkomna upphitunina. Allt saman með BOLA - Léttöl! Gaman að segja frá því að Arena Gaming mun sjá til þess að NFL á Íslandi eigi sér heimavöll en þá er um að gera að skella sér á Arena að horfa á leiki í vetur! Alla sunnudaga! Já takk! Ekki væri verra að henda í eitt stykki seðil á Lengjunni! Fyrir leik eða með leikinn í beinni! Gerir leikinn skemmtilegri!
Doc, A.I. og Keli án landamæra.
Spegillinn 8. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra segir að Ísland verði að standa við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Mengunarkvótar í skipaflutningum séu hluti af heildarmyndinni og komi ekki á óvart. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana. Ítalskir bankar þurfa að greiða 40 prósenta hvalrekaskatt og hlutabréf í þeim hafa hríðfallið eftir að ríkisstjórnin samþykkti álögurnar í gærkvöld. Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor segir hægt að leggja slíka skatta á íslenska banka en frekar eigi að horfa til þess kerfisbundinna vandamál sem tengjast fiskveiðikerfinu og smæð íslenska hagkerfisins. Karitas M. Bjarkadóttir talaði við hann. Margrét Steinarsdóttir, fulltrúi í mansalsteymi í Bjarkarhlíð segir mikilvægt að þolendum mansals sé veittur stuðningur, hvort sem þeir séu hælisleitendur eða ekki. Hún tekur undir að það geti verið skaðlegt fyrir fórnarlömb mansals að svipta þau félagslegum stuðningi á borð við húsnæði. Valur Grettisson tók saman. ------------------- Mengunarkvótar Evrópusambandsins á sjóflutninga - sem eiga líka við á Evrópska efnahagssvæðinu - koma Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra ekki á óvart. Hún segir ekki hægt að líkja þeim við álögur á flug. Ísland verði að taka skref til að standa við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Þórdísi. Vöruútflutningur frá Kína hefur ekki verið minni en um þessar mundir frá því að kóvíd-farsóttin brast á. Innflutningur hefur einnig dregist umtalsvert saman. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í Nick Marsh viðskiptafréttamanni BBC í Singapúr, Shehzad Qazi, sérfræðingi í kínverskum efnahagsmálum Mikil deigla er í lofthreinsigeiranum nú um stundir segir Stefanía Garðarsdóttir rannsóknastjóri hjá SINTEF orkurannsóknum í Noregi Í Texas á að reisa mikla lofthreinsiverksmiðju á ólíuvinnslusvæði og geyma koltvísýring á vökvaformi þar til fæst leyfi til að dæla honum niður í berg. Ragnhildur Thorlacius tók saman og talaði við Stefaníu. Gautelfur, flæðir yfir bakka sína og vegum í Suður-Svíþjóð og suðurhluta Noregs hefur verið lokað vegna óveðursins Hans sem hefur hringsnúist yfir Skandinavíu. Gísli Kristjánsson fréttaritari í Noregi, segir aðeins hafa dregið úr regni en veðrið sé óvenjulegt á hásumri.
Mikil költaðdáun fylgir bandarísku neðanjarðarrokksveitinni The Replacements sem tók drjúgan þátt í að kollvarpa tónlistarlandslagi níunda áratugarins. Haukur Viðar teflir fram þessari plötu hennar frá 1984 sem hápunkti meðfram því sem hann og félagar hans grennslast ærlega fyrir um áhrif þessarar merkissveitar.
Innviðaráðherra segir viðbúið að finna verði nýtt húsnæði fyrir allt að 3 þúsund hælisleitendur á næstu misserum. Hann mælti í dag fyrir frumvarpi um að hægt verði að nota húsnæði sem ekki er ætlað til búsetu. Guðmundur Felix Grétarsson er nú á sterkum sterakúr til að geta haldið handleggjunum. Líkaminn gerði sig líklegan til að hafna útlimunum sem hann fékk grædda á sig fyrir tveimur árum. Þjóðskjalavörður segir enga hættu á að aðgengi almennings og fræðafólks að gögnum Borgarskjalasafns versni við flutning þeirra yfir í Þjóðskjalasafnið. Yfir fimmtíu hitamet hafa fallið á Spáni síðustu sólarhringa. Óvenju heitt er á Íberíuskaga miðað við árstíma. Íslenska karlalandsliðið í handbolta er öruggt með sæti á EM á næsta ári. ----- Seinni hluti ársþings ASÍ hófst í morgun. Fyrri hluti þingsins í október endaði í upplausn þar sem fulltrúar gengu út af þinginu og tveir frambjóðendur til forseta ASÍ drógu framboð sitt til baka á seinustu stundu. Mikil átök voru í forystu verkalýðshreyfingarinnar. Kristján Þórður Snæbjarnarson tók við sem forseti ASÍ í ágúst en hann hyggst ekki gefa kost á sér áfram og lætur hann af embætti að þingi loknu. Á morgun verður kosið í forystu sambandsins og miðstjórn. Bjarni Rúnarsson ræðir við Kristján Þórð. Meirihluti borgarstjórnar ákvað á dögunum að Borgarskjalasafni yrði lokað og Þjóðskjalasafni falinn allur safnkostur þess og framtíðarstarfsemi. Í þessari viku ákvað meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs svo að fylgja þessu fordæmi. Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, segir lög kveða á um að það sé sveitarfélaganna að ákveða, hvort þau varðveiti sín skjöl sjálf eða feli Þjóðskjalasafninu það verkefni. Þar eru nú þegar varðveittir einir 45 hillukílómetrar af gögnum. Héraðsskjalasöfn landsins geyma um 20 hillukílómetra til viðbótar og þar af er um helmingurinn, 10 hillukílómetrar, varðveittur á Borgarskjalasafninu. Hrefna segir Þjóðskjalasafnið vel fært um að taka við þeim. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Hrefnu. Íbúum á sunnanverðu landinu hnykkti við, mörgum hverjum, þegar þeir litu út í morgun og sáu alhvíta jörð. Á snjómyndum á Facebook mátti sjá þykkt lag á bílum, útigrillum og trjám og runnum sem voru byrjuð að bruma. Einn birti mynd af snjóhrúgu og velti fyrir sér hvort vetrardekkin hans lægju þar undir. Smálægð sem fór yfir landið í gær og nótt olli ofankomunni, sem ekki hefur mælst jafn mikil á þessum árstíma síðan árið 1999. Á vef Veðurstofunnar sagði í hugleiðingu veðurfræðings í morgun að snjókoma eða slydda væri á sunnanverðu landinu með takmörkuðu eða lélegu skyggni og
Innviðaráðherra segir viðbúið að finna verði nýtt húsnæði fyrir allt að 3 þúsund hælisleitendur á næstu misserum. Hann mælti í dag fyrir frumvarpi um að hægt verði að nota húsnæði sem ekki er ætlað til búsetu. Guðmundur Felix Grétarsson er nú á sterkum sterakúr til að geta haldið handleggjunum. Líkaminn gerði sig líklegan til að hafna útlimunum sem hann fékk grædda á sig fyrir tveimur árum. Þjóðskjalavörður segir enga hættu á að aðgengi almennings og fræðafólks að gögnum Borgarskjalasafns versni við flutning þeirra yfir í Þjóðskjalasafnið. Yfir fimmtíu hitamet hafa fallið á Spáni síðustu sólarhringa. Óvenju heitt er á Íberíuskaga miðað við árstíma. Íslenska karlalandsliðið í handbolta er öruggt með sæti á EM á næsta ári. ----- Seinni hluti ársþings ASÍ hófst í morgun. Fyrri hluti þingsins í október endaði í upplausn þar sem fulltrúar gengu út af þinginu og tveir frambjóðendur til forseta ASÍ drógu framboð sitt til baka á seinustu stundu. Mikil átök voru í forystu verkalýðshreyfingarinnar. Kristján Þórður Snæbjarnarson tók við sem forseti ASÍ í ágúst en hann hyggst ekki gefa kost á sér áfram og lætur hann af embætti að þingi loknu. Á morgun verður kosið í forystu sambandsins og miðstjórn. Bjarni Rúnarsson ræðir við Kristján Þórð. Meirihluti borgarstjórnar ákvað á dögunum að Borgarskjalasafni yrði lokað og Þjóðskjalasafni falinn allur safnkostur þess og framtíðarstarfsemi. Í þessari viku ákvað meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs svo að fylgja þessu fordæmi. Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, segir lög kveða á um að það sé sveitarfélaganna að ákveða, hvort þau varðveiti sín skjöl sjálf eða feli Þjóðskjalasafninu það verkefni. Þar eru nú þegar varðveittir einir 45 hillukílómetrar af gögnum. Héraðsskjalasöfn landsins geyma um 20 hillukílómetra til viðbótar og þar af er um helmingurinn, 10 hillukílómetrar, varðveittur á Borgarskjalasafninu. Hrefna segir Þjóðskjalasafnið vel fært um að taka við þeim. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Hrefnu. Íbúum á sunnanverðu landinu hnykkti við, mörgum hverjum, þegar þeir litu út í morgun og sáu alhvíta jörð. Á snjómyndum á Facebook mátti sjá þykkt lag á bílum, útigrillum og trjám og runnum sem voru byrjuð að bruma. Einn birti mynd af snjóhrúgu og velti fyrir sér hvort vetrardekkin hans lægju þar undir. Smálægð sem fór yfir landið í gær og nótt olli ofankomunni, sem ekki hefur mælst jafn mikil á þessum árstíma síðan árið 1999. Á vef Veðurstofunnar sagði í hugleiðingu veðurfræðings í morgun að snjókoma eða slydda væri á sunnanverðu landinu með takmörkuðu eða lélegu skyggni og
Rætt er við norska fluggreinandann Hans Jörgen Elnæs um stöðu og horfur á evrópskum flugmarkaði og einkum stöðu íslensku flugfélaganna Icelandair og Play. Tekjur þeirra og sætanýting hefur verið afar góð síðustu mánuði og íslensku félögin hafa líkt og fleiri verið að auka verulega framboð á ferðum og kynna nýja áfangastaði. Hans Jörgen segir allt útlit fyrir að eftirspurnin eftir flugi á Atlantshafinu verði umfram framboð flugfélaganna yfir háannatímann í sumar. Farið er yfir þann öra vöxt sem félögin standa bæði í þessa mánuðina og fjallað um mögulegar hættur framundan í rekstri flugfélaganna og í ferðaþjónustunni hérlendis. Viðtalið var tekið upp um miðjan apríl.
Spegillinn 31. mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Um 300 manns fá ekki að fara heim til sín í nótt vegan rýminga á Austfjörðum. Á bilinu 70-80 snjóflóð hafa fallið þar síðustu daga. Mikil úrkoma hefur verið og spáð er rigningu fram yfir hádegi á morgun. Ásta Hlín Magnúsdóttir sgði frá og talaði við Minney Siguðardóttur ofanflóðasérfræðing hjá Veðurstofunni. Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Brynjari Joensen Creed, rúmlega fimmtugum karlmanni, fyrir gróf kynferðisbrot gegn fimm stúlkum á grunnskólaaldri. Bæturnar til þeirra voru jafnframt hækkaðar. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Tvö tilfelli hafa komið upp í sumarbúðum fatlaðra í Reykjadal, þar sem efast er um að öryggi skjólstæðinga hafi verið tryggt. Stella Sverrisdóttir, móðir fatlaðrar stúlku, er ósátt við forsvarsmenn búðanna eftir að grunur kviknaði um að dóttir hennar hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Valur Grettisson ræddi við hana. Kjaraviðræður Kennarasambands Íslands og Samtaka íslenskra sveitarfélaga standa enn yfir. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins segir að samflot með BSRB og BHM hafi gengið vel hvað varðar sameiginlega hagsmuni opinberra starfsmanna, en nokkrir þættir standi út af. Alma Ómarsdóttir talaði við hann. Ár er í dag frá því að Rússar hörfuðu frá bænum Bucha í Úkraínu. Þeir unnu þar hrikaleg grimmdarverk gegn íbúunum. Dagný Hulda Erlendsdóttir sagði frá. Donald Trump verður birt ákæra í New York á þriðjudag, fyrstum fyrrverandi forsetum Bandaríkjanna. Ásgeir Tómasson sagði frá. Síðasta tölublað Fréttablaðsins kom út í morgun eftir 22 ára útgáfu. Hátt í hundrað manns misstu vinnuna. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Valgerði A. Jóhannsdóttur lektor um stöðuna á fjölmiðlamarkaði. Tollvernd og upprunamerkingar matvæla voru efstar á baugi meðal fulltrúa bænda sem ræddu stöðu landbúnaðar og matvælaframleiðslu nýafstöðnu á Búnaðarþingi. Bjarni Rúnarsson ræddi við Gunnar Þorgeirsson, formann Bændasamtaka Íslands.
Spegillinn 31. mars 2023 Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Um 300 manns fá ekki að fara heim til sín í nótt vegan rýminga á Austfjörðum. Á bilinu 70-80 snjóflóð hafa fallið þar síðustu daga. Mikil úrkoma hefur verið og spáð er rigningu fram yfir hádegi á morgun. Ásta Hlín Magnúsdóttir sgði frá og talaði við Minney Siguðardóttur ofanflóðasérfræðing hjá Veðurstofunni. Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Brynjari Joensen Creed, rúmlega fimmtugum karlmanni, fyrir gróf kynferðisbrot gegn fimm stúlkum á grunnskólaaldri. Bæturnar til þeirra voru jafnframt hækkaðar. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Tvö tilfelli hafa komið upp í sumarbúðum fatlaðra í Reykjadal, þar sem efast er um að öryggi skjólstæðinga hafi verið tryggt. Stella Sverrisdóttir, móðir fatlaðrar stúlku, er ósátt við forsvarsmenn búðanna eftir að grunur kviknaði um að dóttir hennar hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Valur Grettisson ræddi við hana. Kjaraviðræður Kennarasambands Íslands og Samtaka íslenskra sveitarfélaga standa enn yfir. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins segir að samflot með BSRB og BHM hafi gengið vel hvað varðar sameiginlega hagsmuni opinberra starfsmanna, en nokkrir þættir standi út af. Alma Ómarsdóttir talaði við hann. Ár er í dag frá því að Rússar hörfuðu frá bænum Bucha í Úkraínu. Þeir unnu þar hrikaleg grimmdarverk gegn íbúunum. Dagný Hulda Erlendsdóttir sagði frá. Donald Trump verður birt ákæra í New York á þriðjudag, fyrstum fyrrverandi forsetum Bandaríkjanna. Ásgeir Tómasson sagði frá. Síðasta tölublað Fréttablaðsins kom út í morgun eftir 22 ára útgáfu. Hátt í hundrað manns misstu vinnuna. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Valgerði A. Jóhannsdóttur lektor um stöðuna á fjölmiðlamarkaði. Tollvernd og upprunamerkingar matvæla voru efstar á baugi meðal fulltrúa bænda sem ræddu stöðu landbúnaðar og matvælaframleiðslu nýafstöðnu á Búnaðarþingi. Bjarni Rúnarsson ræddi við Gunnar Þorgeirsson, formann Bændasamtaka Íslands.
Tveir í einni viku! Valur og Matti á yfirvinnukaupi að koma þáttum í loftið fyrir Jardana sína! Allt saman tekið upp í Nóa Síríus stúdíóinu hjá Podcaststöðinni! Mikil gleði og mikið glens! Sérstaklega með BOLA - TUDDI! Léttöl auðvitað! Alltaf nóg um að vera í NFL!
Í ólgusjó hækkun stýrivaxta, verkföll daglegt brauð og nú verkbann, þá róa Spekingar á miðin. Mikil óvissa framundan en það eina sem er víst, er að Spekingar eru mættir. Slúðrið var allt mjög óljóst hjá Matta, TayTay hornið vafasamt, Topp 3 skyndibitakeðjur, menn óvissir í Myndir Þú Fyrir Smá Aur og To Eat or Not To Eat kom verulega á óvart. Allt fyrir ykkur kæru hlustendur. Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Gull Lite.
Allir saman komnir í Nóa Síríus stúdíóið hjá Podcaststöðinni. Mikil vinátta. BOLI - TUDDI. Þeir renna ljúft niður við öll tilefni. Léttöl. Keiluhöllin! Heimavöllur NFL! Jarda tilboðið er gjörsamt hax þegar maður hefur augun á stóra skjánnum! Altis! Útsalan byrjar 2 jan! Allt að 70% útsala. Vera taktísk/ur1
Mikil gleði og mikil vinátta eftir að þriðji í aðventu rann yfir landann. Allt saman tekið upp í Nóa Síríus stúdíóinu hjá Podcaststöðinni. BOLI-TUDDI! Bola leikur framundan á miðlunum okkar! Fylgisti með! Léttöl! Keiluhöllin - Egilshöll! Geggjuð leikvika framundan og því um að gera að skella sér á laugardaginn OG sunnudaginn og horfa á leikina sem framundan eru! Vængir, kaldur og góður félagsskapur. Þarf ekki að flækja þetta!
You need your managers. But they need you too. That's especially true for a first-timer. As your company grows, it's perfectly natural to promote employees from within, rather than seek more experienced outsiders. But you have to make sure your newly-minted manager has the guidance they need to succeed. Today, an expert stops by to […] The post MBA1943 Guest Teacher – Mikil Taylor – How to Support a First-Time Manager appeared first on The $100 MBA.