Podcasts about millj

  • 44PODCASTS
  • 169EPISODES
  • 1h 16mAVG DURATION
  • 1EPISODE EVERY OTHER WEEK
  • May 23, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about millj

Latest podcast episodes about millj

Mannlegi þátturinn
Karl Olgeirsson föstudagsgestur og óvenjulegar samsetningar í matarspjallinu

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 23, 2025 53:00

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Karl Olgeirsson tónlistarmaður. Hann hóf nýlega störf sem organisti í Ástjarnarkirkju og þar stofnaði hann kirkjukór. Hann hefur samið tónlist nánast frá því hann fékk hljóðfæri fyrst í hendurnar. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hlíðunum, til Svíþjóðar og aftur heim og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagins í dag. En hann er í nýju hlutverki á morgun þegar hann er aðalsöngvarinn í dagskrá þar sem flutt verða bestu lög Steely Dan og Donald Fagen í Hörpu. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti héldum við svo áfram að skoða skrýtnar og óvenjulegar samsetningar á mat og fórum í gegnum nokkra tölvupósta frá hlustendum þess efnis. Og svo skoðuðum við hvort þessar breytingar í veðrinu hafi áhrif á matarval okkar. Tónlist í þættinum í dag: Smells Like Teen Spirit / Raggi Bjarna og Milljónamæringarnir (Kurt Cobain, Dave Grohl og Krist Novoselic) Gríptu draum / Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson (Karl Olgeirsson) I.G.Y. / Karl Olgeirsson og Reykjvik Tribute Orchestra (Donald Fagen) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Jóhannes Haukur föstudagsgestur, matarspjall um skrýtnar samsetningar

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 16, 2025 52:34

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson. Hann hefur mikið látið að sér kveða eftir að hann útskrifaðist úr leiklistarskólanum, bæði í leikhúsi og fyrir framan myndavélina þar sem hann hefur leikið margvísleg hlutverk. En svo fyrir rúmum tíu árum fékk hann fyrsta hlutverk sitt í erlendu kvikmyndaverkefni og þá fór boltinn að rúlla. Í dag flýgur hann heimshornanna á milli og leikur í gríðarstórum kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum, Game of Thrones, Succession, nýjustu ofurhetjumyndinni um Captain America og nú er hann að leika í kvikmynd um He-Man, eða Garp eins og hann kallaðist á íslensku. Við fórum með Jóhannesi aftur á æskuslóðirnar, en hann ólst að hluta til upp í Færeyjum og brunuðum svo með honum í gegnum lífið til dagsins í dag. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti tókum við framhaldsumræðu um af makkarónur með hangikjöti og kokteilsósa og pítusósa með pizzum og aðrar skrýtnar, eða að minnsta kosti óvenjulegar samsetningar á mat. Ef þið lumið á sögum af slíku, samsetningu á mat sem er kannski þekkt í einhverjum fjölskyldum, eða í einhverjum landshlutum, en gætu þótt sérkennilegar annars staðar, þá endilega sendið okkur á mannlegi@ruv.is. Tónlist í þættinum í dag: Pabbi vill mambó / Páll Óskar og Milljónamæringarnir (Al Hoffman, Bix Reichner, Dick Manning, textahöfundur ókunnur) Hvað er ástin? / GDRN (Friðrik Dór Jónsson og Jón Jónsson) Rólegur kúreki / Bríet (Bríet Ísis Elfar og Pálmi Ragnar Ásgeirsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

FM957
TRAFFÍKIN #BEST OF VIKA MILLJÓN

FM957

Play Episode Listen Later May 12, 2025 57:23

Spegillinn
Umdeildar þjálfunaraðferðir, kosið í Kanada og íslenska birkið

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 28, 2025 20:00

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs fer hörðum orðum um aðferðir sem körfuboltaþjálfarinn Brynjar Karl Sigurðsson hefur beitt í sinni þjálfun. Brynjar segir álitið vera eina af ástæðum þess að hann er í forsetaframboði hjá ÍSÍ, og kallar það nornaveiðar. Milljónir Kanadamanna kjósa í kosningum sem eru sagðar þær mikilvægustu í sögu landsins - en snúast ekki aðeins um ástandið í Kanada heldur um yfirlýsingar grannans í suðri. Íslenska birkið vex hægt og er ræktun þess ekki endilega besta leiðin til að binda kolefni en skógrækt snýst um fleira.

Mannlegi þátturinn
Viltu finna milljón, trérennismíði og Spánarpóstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Apr 9, 2025 52:52

Við héldum áfram að skoða heimilisfjármálin í dag og skoðuðum í dag þætti sem hafa verið í sýningu á Stöð 2 og kallast Viltu finna milljón. Þar taka þrjú pör, eða þrjár fjölskyldur, þátt í að taka í gegn heimilisbókhaldið, þau fá ýmis verkefni og áskoranir með það að markmiði að bæta fjárhag sinn og að búa til venjur til framtíðar þegar kemur að fjármálunum. Í upphafi skoða þau til dæmis tekjur heimilisins og útgjöld og að lokum, eftir fimm mánuði er farið yfir stöðuna og hvaða árangri þau hafa náð í að bæta stöðu heimilisins. Hrefna Björk Sverrisdóttir og Grétar Halldórsson sömdu samnefnda bók og Hrefna, sem er annar stjórnandi þáttanna, kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þáttunum og hversu miklu er hægt að breyta á tiltölulega skömmum tíma. Félag trérennismiða á Íslandi fagnar í ár 30 ára afmæli og heldur af því tilefni sérstakan listviðburð í samstarfi við Hönnun & Handverk (H&H) að Eiðistorgi. Í aprílmánuði mun félagið taka yfir sýningarrými Handverks og hönnunar. Þar munu félagar setja upp fullbúna vinnustofu þar sem þeir vinna svo að trérenniverkum á staðnum og fólk getur komið og skoðað handverkið þegar það verður til. Edda Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar, og Andri Snær Þorvaldsson, formaður Félags trérennismiða á Íslandi komu í þáttinn. Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Magnús er núna staddur á Spáni þar sem hann bjó um hríð fyrir nokkrum árum. Hann segir okkur frá þeirr góðu tíð sem ríkir á Spáni þar sem hagvöxtur er sá mesti í Evrópu. Sem þykir merkilegt því þar stjórna sósíalistar sem hingað til hafa ekki verið taldir snjallir i kapitalisma. Hann segir aðallega frá Alicante, borginni sem hann bjó í á sínum tíma og þykir ennþá vænt um. Tónlist í þættinum í dag: Verðbólgan / Brimkló (Björgvin Halldórsson, texti Kjartan Heiðberg) Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Þórður Árnason, texti Þórður Árnason) Augun mín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Jennifer Juniper / Donovan (Donovan) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Stundin
Tuð blessi Ísland #10: Milljón dollara spurningin um varnarsamning Íslands

Stundin

Play Episode Listen Later Mar 5, 2025

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að ákveðnu marki skiljanlegt þegar Trump segi að Evrópa þurfi að gera betur en það sé ótrúlegt að sjá hvað er að gerast í heiminum. „Erum við að horfa upp á umpólun í alþjóðakerfinu?“ segir hann. Þó telji hann matið í Washingtonborg enn það að varnir á Íslandi séu mikilvægar fyrir varnir Bandaríkjanna sjálfra. Það þurfi hins vegar að horfa víðar og hugsa um hvernig við ætlum að verja okkur. „Við höfum verið verst Evrópuríkja þegar kemur að því að sinna okkar eigin vörnum.“

Fußball – meinsportpodcast.de
Hinze und sein Milljöh | 287

Fußball – meinsportpodcast.de

Play Episode Listen Later Dec 11, 2024 57:55

In der aktuellen Podcastepisode geht die Reise zum RSV Eintracht nach Stahnsdorf. Der Verein wurde am 2. August 1949 als TSG Einheit Teltow-Kleinmachnow gegründet und nannte sich später BSG Elektronik Teltow. 1998 wurde daraus der Regionale Sportverein Eintracht 1949. Die Fußballer spielten jahrzehntelang lediglich auf Kreisebene. In der COVID-19-Saison 2019/20 schafften die Stahnsdorfer den Durchmarsch in die Fußball-Oberliga Nordost. Dort gelang in der Nordstaffel zweimal der 5. Platz. In der aktuellen Saison spielt der RSV erstmals in der Südstaffel und belegt aktuell den 3. Platz. Der sportliche Aufstieg trägt die Handschrift von Cheftrainer Patrick Hinze, der als Nachwuchsspieler mit Hertha BSC ...Du möchtest deinen Podcast auch kostenlos hosten und damit Geld verdienen? Dann schaue auf www.kostenlos-hosten.de und informiere dich. Dort erhältst du alle Informationen zu unseren kostenlosen Podcast-Hosting-Angeboten. kostenlos-hosten.de ist ein Produkt der Podcastbude.Gern unterstützen wir dich bei deiner Podcast-Produktion.

Podcast Orange – meinsportpodcast.de

PODCAST ORANGE
Hinze und sein Milljöh | 287

PODCAST ORANGE

Play Episode Listen Later Dec 11, 2024 57:55

In der aktuellen Podcastepisode geht die Reise zum RSV Eintracht nach Stahnsdorf. Der Verein wurde am 2. August 1949 als TSG Einheit Teltow-Kleinmachnow gegründet und nannte sich später BSG Elektronik Teltow. 1998 wurde daraus der Regionale Sportverein Eintracht 1949. Die Fußballer spielten jahrzehntelang lediglich auf Kreisebene. In der COVID-19-Saison 2019/20 schafften die Stahnsdorfer den Durchmarsch in die Fußball-Oberliga Nordost. Dort gelang den Brandenburgern in der Nordstaffel zweimal der 5. Platz. In der aktuellen Saison spielt der RSV erstmals in der Südstaffel und belegt aktuell den 3. Platz. Der sportliche Aufstieg trägt die Handschrift von Cheftrainer Patrick Hinze, der als Nachwuchsspieler mit Hertha BSC Deutscher Meister wurde. Im Podcast berichtet der Cheftrainer über seinen sportlichen Werdegang und die Perspektive seines Vereins.

Mannlegi þátturinn
Ástvaldur Zenki Traustason föstudagsgestur og hyggematarspjall

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 15, 2024 53:18

Ástvaldur Zenki Traustason tónlistarmaður, prestur og kennari hjá Zen á Íslandi var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hefur iðkað Zen hugleiðslu undir handleiðslu bandarísks Zen meistara síðan árið 1998 og hlotið þjálfun meðal annars í Japan. Ástvaldur nam tónlist í FÍH og í bandaríska tónlistarskólanum Berklee College of Music og rak um tíma tónlistarskólann Tónheima. Hann starfar einnig sem organisti og kórstjóri í Bessastaðakirkju. Við fórum með honum aftur í tímann í Dalina, þar sem hann var hjá ömmu sinni og afa á sumrin, hann sagði okkur frá áhugaverðri reynslu sem hann varð fyrir ungur að aldri, sem kallaðist svo á við það þegar hann hóf að stunda Zen hugleiðslu. Við ræddum tónlistarferil hans og samband hans við Ragnar Bjarnason og hann talaði meðal annars um núvitund og frið föstudagspjallinu í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti sem var auðvitað á sínum stað í dag. Í svona veðri, gulri og appelsínugulri viðvörun, ákváðum við að tala um „huggu mat“ eða „hyggemad“ og að hafa það kósi. Að mati Sigurlaugar er best að djúpsteikja matinn á svona dögum og hún sagði meðal annars frá djúpsteiktum rækjum og þrísteiktum kartöflum. Tónlist í þættinum Sólóður / Milljónamæringarnir og Bjarni Arason (Ástvaldur Traustason, texti Stefán Hilmarsson) Just One of Those Things / Ragnar Bjarnason Hljómsveit Ástvaldar Traustasonar (Cole Porter) Víst ertu Jesús kóngur klár / Ástvaldur Traustason (höf. ókunnur) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Jósep baksérfræðingur og þáttaröð um læsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Nov 7, 2024 50:00

Margir þjást af bakverkjum í stuttan eða langan tíma og brjósklos er frekar algengur kvilli svo maður tali ekki um þursabit eða hekseskudd. Oft er erfitt að finna útúr bakverkjum því þeir geta verið margvíslegir og einstaklingsbundir. Jósep Ó. Blöndal skurðlæknir einn af stofnendum háls- og bakdeildar Franciskuspítala, kom í þáttinn og fræddi okkur um bakverki, greiningu þeirra og meðhöndlun í ljósi reynslu aldanna og vísindanna. Hann fræddi okkur um algengustu orsakir bakverkja, nýjustu rannsóknir og fyrirbyggjandi æfingar. Þáttaröðin Læsi sem er á dagskrá á sunnudögum hér á Rás 1 í umsjón Guðrúnar Hálfdánardóttur hefur vakið mikla athygli og næsta á sunnudag fer í loftið fjórði þáttur þar sem fjallað verður um aðgerðir í skólamálum og mikilvægi þess að beita gagnreyndum aðferðum. Í þáttunum er rætt við skólastjórnendur, kennara, sérfræðinga í læsi, foreldra o.fl. á Höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi, Akranesi og Reykjanesi. Guðrún kom í þáttinn og sagði okkur frá þáttaröðinni og við heyrðum brot úr næsta þætti þar sem Guðrún talaði við Freyju Birgisdóttur, sviðsstjóra matssviðs Miðstöðvar menntunar og skólaþróunar. Tónlist í þættinum Núna / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson) Er of seint að fá sér kaffi núna? / Prins Póló (Svavar Pétur Eysteinsson) Marsbúa chacha / Bogomil Font og Milljónamæringarnir (Sigtryggur Baldursson og Sigurður Jónsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Heimsendir
#137 Lífið á Íslandi - Raunhagkerfið

Heimsendir

Play Episode Listen Later Nov 2, 2024 13:38

Hlustið í heild á www.patreon.com/heimsendirLöndun í Grindavík. Heimavinnandi húsfaðir í Hlíðunum. Milljón á mánuði. Og Kamala Harris í vandræðum. Allt þetta og meira í þessum flæðiþætti (sumir kalla það gas). Njótið vel!

Mannlegi þátturinn
Slagdagurinn okkar, fræðsla ekki hræðsla og kaffi og kólestról

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 31, 2024 54:25

Hár blóðþrýstingur getur farið leynt og afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Á laugardaginn er Slagdagurinn okkar og af því tilefni verður boðið uppá ókeypis blóðþrýstingsmælingu og ráðgjöf í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri. Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla og Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, taugasérfræðingur, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans, komu í þáttinn og fræddu okkur um til dæmis merkin sem við verðum að vera vakandi um, sem gætu bent til þess að slag sé hafið, en þau eru S.L.A.G.: Sjóntruflanir, Lömun útlima, Andlitslömun og Glatað mál. Ef þessi merki eiga við hjá okkur skiptir öllu máli að hringja strax í 112 því hver mínúta er mikilvæg í að lágmarka afleiðingar heilablóðfalls. Ofbeldi virðist vera að færast í aukana hjá ungu fólki og veldur áhyggjum, hverjar eru orsakirnar og hvernig getum við brugðist við? Við fengum Soffíu Ámundadóttur, verkefnastjóra Menntafléttunnar og kennara, og Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, leikskólakennara í þáttinn í dag. En þær fræddu okkur um málstofu á vegum Menntafléttunnar sem ber yfirskriftina Ræðum um ofbeldi og lausnir.Soffía hefur rannsakað og fjallað um ofbeldi nemenda í meistararitgerð sinni og Arnrún María rekur eigið fyrirtæki, Samtalið fræðsla ekki hræðsla þar sem hún leggur áherslu á samtalið við börn, sem sagt að fræða en ekki hræða. Í lok þáttar glugguðum við í grein í norska ríkisútvarisins NRK, sem fjallar um hvernig kaffidrykkja getur haft áhrif á kólestrólmagn eða blóðfitu. Það er ekki sama hvernig kaffi við drekkum og hversu mikið af því. En olía í kaffi getur leitt til hækkaðs kólestrólmagns í líkamanum. Tónlist í þættinum Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) Kaffi til Brasilíu / Stephan Hilmarz og Milljónamæringarnir (Hillard & Miles, texti Stefán Hilmarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

100% Berlin
Heinrich Zille: Wer war der legendäre Pinselheinrich?

100% Berlin

Play Episode Listen Later Oct 31, 2024 5:19

Pinselheinrich. Das war der Spitzname für Heinrich Zille, einen der berühmtesten Grafiker und Maler aus Berlin. Nachts war er immer in Kneipen und Bordellen unterwegs, immer auf der Suche nach Geschichten aus dem echten Leben, aus dem Milljöh. Aber wie sahen seine Zeichnungen denn genau aus? Wer ist die „Lutschliese“ aus seinem Buch „Hurengespräche“? Und was waren die legendären Zille-Bälle? Tim Koschwitz und Lydia Mikiforow erzählen in dieser Folge die spannende Lebensgeschichte dieses Berliner Originals. Folge 265 des rbb 88.8-Podcasts "100 % Berlin".

Tölvuleikjaspjallið
222. Star Citizen - 700 milljónir í fjármögnun en ekki kominn út

Tölvuleikjaspjallið

Play Episode Listen Later Oct 30, 2024 44:23

Það er margt sem gerist á tíu árum. Tré vaxa, leikjatölvukynslóðir hefjast og klárast og leikir - oftast allavega - koma út. Star Citizen var kynntur árið 2012 og átti að koma út 2014. Hann er ekki enn kominn út. Búið er að safna um 700 milljón dollurum fyrir framleiðsluna á Kickstarter. Aftur: Leikurinn Er Ekki Kominn Út. Arnór Steinn og Gunnar ræða þetta áhugaverða verkefni í þætti vikunnar. Eigum við að prófa Star Citizen og gera þátt? Endilega segið okkur! Þátturinn er í boði Elko Gaming.

Lestin
Oasis miðasölurugl, upplýsingaóreiða árið 1813, draugagangur

Lestin

Play Episode Listen Later Sep 18, 2024 55:19

Undir lok síðasta mánaðar fengu allir unglingar næntísins sameiginlega raðfullnægingu þegar tilkynnt var að þekktustu villingar tjallapoppsins, Oasis, ætluðu að koma aftur saman á nokkrum tónleikum á Bretlandseyjum næsta sumar. Milljónir næntísunglinga hrúguðust inn á vefsíðu miðasölurisans Ticketmaster snemma morguns þann 31. Ágúst og vonuðust til að kaupa miða á rúmlega 11 þúsund krónur, en það var auglýst verð á ódýrustu miðum. En hjá flestum fór það öðruvísi en áætlað var. Við heyrum um síkvikt verðlag, dynamic pricing, á tónleikamiðum og fleiri hlutum. Haukur Már Helgason veltir fyrir sér hugtakinu upplýsingaóreiða í pistlaröð í Lestinni. Í fyrsta pistlinum fer hann aftur til ársins 1813 og veltir fyrir sér fréttabanni og ólöglegum brandara. Við förum í heimsókn í Bíó Paradís og ræðum við starfsfólk þar, sem hefur orðið vart við draugagang í húsinu. Lausnin er auðvitað að halda miðilsfund. Það verður gert annað kvöld og um leið verður heimildamyndin The Gullspang Miracle frumsýnd. Myndin segir sögu tveggja systra sem komast í kynni við konu sem lítur alveg eins út og systir þeirra sem lést mörgum áratugum fyrr.

Fram og til baka
Andri Snær Magnason og ljóðin

Fram og til baka

Play Episode Listen Later Jul 13, 2024 114:00

Fimma dagsins snerist um ljóð enda viðmælandinn enginn annar en Andri Snær Magnason. Tilefnið er 25 ára afmælisútgáfa á Sögunni um bláa hnöttinn. Andri Snær sagði af fimm ljóðum sem höfðu djúp áhrif á hann og þar kenndi margra grasa. Ljóðin eru eftir Stein Steinarr, Þórð Helgason, Maríu Bjarnadóttur, Þorvald Þorsteinsson og Ísak Harðarson. Þemað í tónlistinni var veislan og tók lagalistinn mið af því en hann var svona: Ríó Tríó - Veislan á Hóli Emilíana Torrini - Let's keep dancing Megas - Manni endist varla ævin Radiohead - Everthing in its right place Baggalútur - Allir eru að fara í kántrí Viking Giant Show - Party at the White House Prince - 1999 Sabrina Carpenter - Please Please Please U2 - Party Girl Dua Lipa - Houdini Eminem - Houdini Steve Miller Band - Abracadabra Salsakommúnan og Bogomil Font - Í minni skel Mezzoforte - Garden Party Bryan Ferry - It's my party Rebekka Blöndal og Moses Hightower - Hvað þú vilt Milljónamæringarnir, Stefán Hilmarsson, Anna Mjöll - Svimi svimi svitabað

Sterakastið
#120: Milljón

Sterakastið

Play Episode Listen Later May 22, 2024 64:35

Milljón topic á milljón sek. Can they break the world record? All over the place type shi CF, ChatGPTo, banter & nutrition talk. Wzup wit it Takk fyrir að hlusta

Samfélagið
Nýjunar í siglingatækni, loftmengun í Reykjavík og stimpilklukka

Samfélagið

Play Episode Listen Later May 17, 2024 59:12

Við ætlum að forvitnast um nýja tækni í siglingum og hvernig hægt er að minnka eldsneytisnotkun og þar með útblástur og tryggja betur öryggi á sjó. Karl Birgir Björnsson er einn stofnenda og framkvæmdastjóri íslenska sprotafyrirtækisins Hefring Marine, sem sérhæfir sig í slíkum lausnum en Karl fékk sérstaka viðurkenningu Sjávarklasans í gær fyrir árangur með nýsköpunarfyrirtæki. Í vikunni fór fram málþing í ráðhúsi Reykjavíkur þar sem sérfræðingar fóru yfir stöðuna hvað varðar loftmengun í Reykjavík. Milljónir deyja á heimsvísu á hverju ári af völdum loftmengunar og tugir hér á landi. Og á höfuðborgarsvæðinu gengur illa að uppræta hana. Samfélagið var á málþinginu. Við heyrum líka eina málfarsmínútu.

Ein Pæling
#300 Andrea Sigurðardóttir - Ríkisstjórnin þurfi að vera í næstu seríu Viltu finna milljón

Ein Pæling

Play Episode Listen Later Mar 30, 2024 22:14

Þórarinn ræðir við Andreu Sigurðardóttur um ýmis mál og eftirfarandi spurningum svarað:Hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins?Afhverju virðist HMS ekki taka góðar ákvarðanir?Hvernig verður lágri fæðingartíðni snúið við?Hvað er hægt að gera í leikskólamálum?Áhrif áforma Sigurðar Inga um þrengri leigulög á leigjendur.Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

Heimsendir
#114 Milljón á mánuði?

Heimsendir

Play Episode Listen Later Feb 27, 2024 5:41

Hlustið á þáttinn í heild sinni á: https://www.patreon.com/heimsendirNýr sjálfshjálparþáttur frá Heimsendi. Þessi fjallar um aðferðafræði þess að verða ríkur, milljón á mánuði eða mánuð á milljón, jafnvægi milli vinnu og persónulegs lífs og margt fleira.

Tveir Fellar
#112 Ásmundur Ari - Græddi 13 milljónir á einum degi

Tveir Fellar

Play Episode Listen Later Feb 23, 2024 86:47

Ásmundur Ari day trading snillingur mætti til okkar og tala um við okkur hvernig maður byrjar í þessu öllusaman og hvernig hann græddi 13 milljónir á einum degi. --- Send in a voice message: https://podcasters.spotify.com/pod/show/tveirfellar/message

Pyngjan
Föstudagskaffið: Ríkisstarfsfólk ferðast fyrir 10 milljónir á dag

Pyngjan

Play Episode Listen Later Sep 15, 2023 53:43

Já kæru hlustendur, Titill þáttarins segir allt sem segja þarf. Við þurfum aðhald og það er nákvæmlega það sem við veitum hér í dag. Ekki missa af mínútu.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
“Hvað myndir þú gera við 100 milljónir?” -#406

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Sep 7, 2023 10:53

Helgi tók þátt í hvalveiði mótmælunum nú á dögunum. Hjálmar væri til í að taka námslán ef það væri í boði. Helgi gerði símaat í Össur með splunkunýju gríni.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is! IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

Frjálsar hendur
Marco Polo hittir Kublai Khan

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later May 21, 2023 52:00

Umsjónarmaður heldur áfram að glugga í bókina Milljónin sem segir frá ferðum Marco Polo og föður hans, ásamt frænda þeirra til Kína. Þeir eru komnir til Kína og hitta stórkhaninn Kublai Khan, sem var frá Mongólíu og sonarsonur Genghis Khan. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Frjálsar hendur
Marco Polo hittir Kublai Khan

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later May 21, 2023

Umsjónarmaður heldur áfram að glugga í bókina Milljónin sem segir frá ferðum Marco Polo og föður hans, ásamt frænda þeirra til Kína. Þeir eru komnir til Kína og hitta stórkhaninn Kublai Khan, sem var frá Mongólíu og sonarsonur Genghis Khan. Umsjón: Illugi Jökulsson.

Umræðan
Netsvik - Dæmi um að fólk tapi tugum milljóna

Umræðan

Play Episode Listen Later Mar 29, 2023 26:23

Netsvik hafa sótt verulega í sig veðrið að undanförnu og eru dæmi um að tugir milljóna hafi verið sviknir út úr einstaklingum og fyrirtækjum. Viðbragð við netsvikum er orðinn hluti af daglegri starfsemi Landsbankans.Í þættinum ræðir Karítas Ríkharðsdóttir við Brynju Maríu Ólafsdóttur, sérfræðing í regluvörslu, og Arinbjörn Ólafsson, framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs, um netsvik og varnir og viðbrögð við þeim.

tapi kar millj landsbankans
Rheinpegel
Düsseldorfs Milljö (Rheinpegel-Longread)

Rheinpegel

Play Episode Listen Later Feb 18, 2023 15:49

Was ist Düsseldorfs Milljö, wie es in einem Karnevalsschlager besungen wird? Was macht die Stadt aus, was vereint die Düsseldorferinnen und Düsseldorfer? Darum geht's in dieser Bonus-Episode des Rheinpegel-Podcasts. Der Longread zum Wochenende.

Pyngjan
Föstudagskaffið: 700 milljónir kjúklinga verða Ofurskálinni að bráð

Pyngjan

Play Episode Listen Later Feb 10, 2023 54:11

Það er lærvolgt í dag kaffið og bakkelsið hefur aldrei verið sætara. Það er farið um víðan völl í Föstudags kaffi dagsins en þar ber þá helst að nefna Ofurskálina sem fer fram n.k. sunnudag. Auk þess ræðum við stýrivaxtahækkun, trúðadíl vikunnar á fasteignavefnum, dýrustu tölvuleikir heims, hvert peningur ríkisins fer og svo margt fleira. Gleðilegan föstudag kæru hlustendur.

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars
"Hann skuldaði 28 milljónir í appinu!" -#347

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

Play Episode Listen Later Jan 23, 2023 60:40

Hjálmar og Helgi tala saman um Tenerife og Pál Óskar. Gréta Thunberg var handtekin. Ef þú selur illa og ert í silfur pallíettu onesie þá er það sérstæklega vandræðalegt. Ég er heitast kjötið á Grinder hérna og ég er 52 ára gamall.Þættina má finna inni í áskrift á pardus.is!IG: helgijean & hjalmarorn110 Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!

WDR ZeitZeichen
Heinrich Zille, Zeichner und Fotograf (Geburtstag, 10.01.1858)

WDR ZeitZeichen

Play Episode Listen Later Jan 9, 2023 14:59

Berlin zu Beginn des 20. Jahrhunderts: Das Leben der einfachen Leute ist geprägt von Arbeit und Armut, Krankheit, Suff und Prügelei. Und Heinrich Zille fängt dieses "Milljöh" in eindringlichen Zeichnungen ein - liebevoll, schonungslos, sozialkritisch. Autoren: Veronika Bock und Ulrich Biermann Von Ulrich Biermann ; Bock Veronika.

Dr. Football
Vikulok Dr. Football - Hvað er best að gera fyrir 200 milljónir? Pep treystir bekknum, Arteta ekki

Dr. Football

Play Episode Listen Later Jan 6, 2023 63:45

Doc, Ponzan og Keli á föstudegi.

Spegillinn
24 sleppt úr haldi, svartur föstudagur og kjaravviðræður VR og SÍ

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 25, 2022

Umsjón: Ásgeir Tómasson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir Tuttugu og fjórum hefur verið sleppt úr haldi í tengslum við rannsókn á hnífaárás á skemmtistaðnum Bankastræti Club í miðborg Reykjavíkur í síðustu viku. Þrír eru í haldi eftir að hafa kastað bensín- og reyksprengjum inn í heimahús. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá og talaði við Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjón. Talsvert ber á svindli í kringum afsláttardaga verslana um þessar mundir. Formaður Neytendasamtakanna biður fólk að vera á varðbergi. Þung umferð hefur verið á höfuðborgarsvæðinu, á svörtum föstudegi. Árekstrar skipta tugum. Hafdís Helga Helgadóttir sagði frá og talaði við Árna Friðleifsson lögreglumann um það sem hann kallaði svartan föstudag í umferðinni. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir kjarasamninga snúast um fleira en launahækkun og brýnt sé að stemma stigu við verðbólgu. VR hefur slitið kjaraviðræðum og segir tilboð Samtaka atvinnulífsins ekki ná utan um þær kostnaðarhækkanir sem heimilin hafa tekið á sig. Halldór Benjamín segir að samninganefndirnar hittist að nýju á þriðjudaginn kemur. Kristín Sigurðardóttir talaði við Halldór Benjamín. Milljónir íbúa víða í Úkraínu, þar á meðal í höfuðborginni Kyiv eða Kænugarði, eru enn án rafmagns, vatns og hita, eftir stórfellda eldflaugaárás Rússa í fyrradag. Í Kherson borg, í suðurhluta landsins, hafa sjúkrahús verið tæmd vegna stórskotaliðsárása Rússa. Björn Malmquist sagði frá. Matvælastofnun hefur sektað fiskeldisfyrirtækið Arnarlax um hundrað og tuttugu milljónir króna fyrir brot gegn tilkynningarskyldu þegar gat kom á kví í Arnarfirði í fyrrasumar. Þetta er langhæsta sekt sem stofnunin hefur ákveðið. Fyrirtækið hyggst leita til dómstóla. Alexander Kristjánsson talaði við Kjartan Ólafsson og Hrönn Jörundsdóttur Þrjár ásakanir á hendur Dominic Raab, dómsmálaráðherra Bretlands, um eineltistilburði eru til rannsóknar í forsætisráðuneyti landsins. Hann ber af sér sakir og fagnar rannsókninni. Að minnsta kosti fjögur létust og ellefu særðust í skotárásum á tvo skóla í borginni Aracruz í suðausturhluta Brasilíu í dag. Landsréttur mildaði í dag dóm yfir Dumitri Calin, sem dæmdur var í þriggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í febrúar fyrir manndráp af gáleysi í Vindakór í Kópavogi í fyrra. Maður lést eftir að hafa dregist með bíl Calins. Landsréttur mildaði refsingu hans í tvö ár. Þremur leikjum er lokið á HM karla í fótbolta í dag. Íran vann tvö-núll sigur á Wales í fyrsta

Spegillinn
24 sleppt úr haldi, svartur föstudagur og kjaravviðræður VR og SÍ

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 25, 2022 30:00

Hlaðvarp Kjarnans
Tæknivarpið - Inniskórnir hans Steve Jobs seldust fyrir 27 milljónir

Hlaðvarp Kjarnans

Play Episode Listen Later Nov 19, 2022 72:19

Nýjustu fregnir af Twitter sem er auðvitað alelda, en við getum ekki hætt að fylgjast með. Rafeyriskauphöllinn FTX sprakk eftir áhlaup og talið er að 10 milljarðar USD hafi gufað upp. Atli byrjaði að prófa Arc-vafrann en fór svo að gera eitthvað annað af viti. Atli prófar Bose Quiet Comfort Earbuds II sem eru víst best í virkri hljóðeinangrun samkvæmt óháðum aðila. Þessi þáttur er í boði Origo sem er halda opinn fyrirlestur um gagnaöryggi miðvkudaginn 30.nóv. Frítt inn: https://www.origo.is/vidburdir/gagnaoryggi Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir

Tæknivarpið
Inniskórnir hans Steve Jobs seldust fyrir 27 milljónir

Englandsdrottning látin

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 8, 2022

Elísabet Englandsdrottning er látin, hún var 96 ára og ríkti lengur en nokkur þjóðhöfðingi Englands. Heyrist í Huw Edwards, fréttaþul BBC. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir frá Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra tekur undir með formanni BHM um að skynsamlegt sé að hefja viðræður vegna komandi kjarasamninga sem fyrst. Hann er bjartsýnn á viðræðurnar fram undan en yfir 300 kjarasamningar eru lausir á næstunni. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttur talaði við hann. Um þúsund jarð skjálftar hafa mælst við Grímsey frá því í nótt. Virknin hefur verið stöðug í allan dag. Sigríður Kristjánsdóttir náttúruvársérfræðingur segir þetta hefðbundna virkni. Urður Örlygsdóttir tók saman. Leiðsögumenn með hreindýraveiðum lögðu til um miðjan ágúst að öll veiði yrði stöðvuð á einu helsta veiðisvæði hreindýra vegna þess hve fá dýr finnast á svæðinu. Ekki var orðið við því og nú leggja leiðsögumenn til að nær enginn kvóti verði þar á næsta ári. Rúnar Snær Reynisson sagði frá og talaði við Jón Hávarð Jónsson formann leiðsögumanna. -------------- Milljörðum dollara verður varið til að styrkja varnir Úkraínu og grannríkjanna. Þúsundir almennra borgara hafa fallið í stríðinu við innrásarlið Rússa. Ásgeir Tómasson sagði frá. Heyrist í Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Igor Konashenkov, talsmaður varnarmálaráðuneytis Rússlands og Rosemary DiCarlo, aðstoðaraðalframkvæmdastjóri hjá Sameinuðu þjóðunum. Áhugi á landeldi hefur aukist mjög og það talið geta leyst helstu umhverfisvandamálin sem af sjóeldinu stafa en það hefur ekki gengið vandræðalaust. Hér eru í undirbúningi stór verkefni í landeldi. Í nýútkominni skýrslu Hafrannsóknastofnunar er fjallað um lax á landi. Leó Alexander Guðmundsson, líffræðingur og höfundur skýrslunnar, segir að álíka magn af fiski sé úr eldi og veitt er úr hafinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann. Norðmenn búast við að gúrku- og tóamatakrísa verði skollin á í landinu þegar fyrir jól. Eigendur gróðurhúsa hafa ekki efni á að kynda hús sín og hafa þar ljós. Þessu veldur himinhátt orkuverð. Gísli Kristjánsson sagði frá. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Spegillinn
Englandsdrottning látin

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 8, 2022 9:32

Vikulok Dr. Football - Gibbs White á 45 milljónir punda? Jú ekkert mál

Dr. Football

Play Episode Listen Later Aug 19, 2022 75:37

Doc, AI og Keli á föstudegi

Pyngjan
Föstudagskaffið: Margt það fína er framleitt í Kína og það vita Gummi og Lína

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jul 22, 2022 46:47

Í Föstudagskaffi dagsins er m.a. tekið á stóra máli líðandi fréttaviku en það er hið margrómaða gleraugnamál. Svo er góðvinur þáttarins, Elon Musk búinn að koma sér í vandræði sem fyrr og Evrópu sambandið hækkar vexti í fyrsta sinn í 11 ár. Ásamt þessu brá nokkrum liðum fyrir í þætti dagsins og þar ber helst að nefna Milljónamæringur vikunnar, Fyllibytta vikunnar og Deep into Skemman sem er nýr liður sem eflaust er kominn til að vera. Góða helgi!Þátturinn er í boði: Baka Baka - https://www.bakabaka.is/Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/kort-og-greidslur/aukakronurLavazza - https://www.lavazza.is/Skruf

Pyngjan
Föstudagskaffið: Allir Norðmenn eru milljónamæringar

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jul 8, 2022 46:54

Gleðilegt föstudagskaffi kæru hlustendur. Í þætti dagsins er norski olíusjóðurinn m.a. ræddur gaumgæfilega og í ljós kemur að þetta er stærsti þjóðarsjóður heims. Ingvi fer yfir uppruna Lavazza og svarar spurningunni afhverju enginn sé stúrinn frá Túrin og svo að sjálfsögðu endum við á milljónamæringi vikunnar sem er stórmögnuð saga af stofnanda Costco sem vann sig upp frá því að raða ofan í poka fyrir viðskiptavini og upp á topp.Þátturinn er í boði: Baka BakaLandsbankansLavazzaSkruf

Pyngjan
Föstudagskaffið: Búlgörsk vinkona Ásdísar Ránar á bak og burt með $4B

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jun 10, 2022 45:13

Föstudagskaffið er vægast sagt í heitara lagi þennan morguninn en þátturinn er stútfullur af spjalli og pælingum. Ingvi fer yfir top 3 verstu Crypto svindl sögunnar sem eru vægast sagt áhugaverð. Gunnars, sem allir hlustendur Pyngjunnar ættu að kannast við, var nýlega selt til Kaupfélags Skagfirðinga sem verður gert nánari skil í þætti dagsins. Milljónamæringur vikunnar er á sínum stað og einnig Neytendahorn Arnars svo þið sjáið að þátturinn dagsins ætti ekki að valda nokkurri lifandi manneskju vonbrigðum. Góða helgi!

Pyngjan
Föstudagskaffið: Netbankakúrekarnir leggjast á ráðin

Pyngjan

Play Episode Listen Later Jun 3, 2022 32:23

Föstudagskaffið sullast út um allt borð þennan morguninn en meðal umræðuefna er frekari greining á morgunkornaumræðunni úr síðasta þætti, en okkur áskotnuðust sölutölur á íslenska markaðnum frá ónefndum die hard aðdáanda. Niðurstöður á útboði Ölgerðarinnar koma einnig við sögu ásamt tilkynningu fyrir næsta ársreikningaþátt Pyngjunnar. Svo er Milljónamæringur vikunnar á sínum stað svo þið sjáið það að föstudagskaffi dagsins er stútfullt af kaffi og bakkelsi.

Heimskviður
94 | Danir útvista fangelsun og milljónir íbúa Afríku án rafmagns

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jan 29, 2022

Undir lok síðasta árs gerðu dönsk yfirvöld samkomulag við yfirvöld í Kósóvó um að leigja rými fyrir hundruði fanga frá Danmörku og fjárfesta um leið í grænni orkuþróun í Kósóvó. Engir fangaflutningar eru hafnir enn og málið ekki farið mjög hátt en það vekur upp stórar og flóknar spurningar um samvinnu Evrópuríkja, valdaójafnvægi og innflytjendamál. Er danska ríkið að útvista sínum vandamálum til annars ríkis eða hagnast allir? Jóhannes Ólafsson segir okkur frá þessu áhugaverða máli og ræðir bæði við Magneu Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðing og sérfræðing í jafnréttismálum og Guðmund Inga Þóroddsson, formann Afstöðu, félags fanga. Um 600 milljónir Afríkumanna, fleiri en búa í tíu fjölmennustu Evrópuríkjunum, eru án rafmagns. Það hefur fjölgað í þessum hópi um tæplega tuttugu prósent frá aldamótum, þrátt fyrir allar þær tækniframfarir sem orðið hafa á þessum tíma. Orkuskipti í flestum afríkuríkjunum ganga hægt en þau sem búa vel, hafa á síðustu mánuðum tekið fram úr Íslandi þegar kemur að raforkuframleiðslu með jarðvarma. En þrátt fyrir fjölbreyttar grænar auðlindir eiga sum ríkjanna, eins og Suður-Afríka, erfitt með að tryggja íbúum rafmagn en þar er það nær allt framleitt með kolum. Þróuðustu afríkuríkin hafa komist á þann stall, með því að framleiða óhreina orku og mikið af henni, og nýta aðallega til þess kol og mengandi jarðefnaeldsneyti. Kolafíklar, eru stærstu ríkin eins og til dæmis Suður-Afrika kölluð, og afvötnun gengur bæði hægt og illa, Við förum til eins helsta kolaríkis heims, í fylgd Bjarna Péturs Jónssonar. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.

Heimskviður
94 | Danir útvista fangelsun og milljónir íbúa Afríku án rafmagns

Heimskviður

Play Episode Listen Later Jan 29, 2022 41:21

The Snorri Björns Podcast Show
#102 Ragnar Jónasson - Milljóna bóka rithöfundurinn í bankageiranum

The Snorri Björns Podcast Show

Play Episode Listen Later Sep 22, 2021 88:45

Ragnar Jónasson labbaði inn í bókaforlag 17 ára gamall bauðst til að þýða Agöthu Christie bækurnar vinsælu. Næstu 15 ár, í gegnum lögfræðinám, störf sem fréttamaður og lögræðingur Kaupþings þýddi hann bækur á hliðarlínunni en það var ekki fyrr en í fjármálahruninu 2008 sem Ragnar, bankastarfsmaðurinn, staldraði við og ákvað að reyna á bókakskrifin. Sú ákvörðun bar ávöxt: 1. sæti í Frakklandi, 1. sæti í Bretlandi, 1. sæti í Þýskalandi, 3 bækur samtímis á top 10 listanum í Þýskalandi og 2 milljónir eintaka seld. Ekki eins og hann hafi hætt aðalstarfi sínu í Arion banka heldur gefur hann sér tíma á hverjum einasta degi til að skrifa bækur eftir vinnu. Við ræðum leiðina að skrifunum, störfin hans áður, núverandi störf og m.a. vinnu hans með Controlant, viðskiptamódelið á bakvið bókasölu og hvernig fótboltaleikur í Skotlandi kom Ragnari á kortið.

Karlmennskan
#49 „Það er búið að þagga niður milljón svona mál“ - Pétur Marteinsson fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður í knattspyrnu

Karlmennskan

Play Episode Listen Later Sep 8, 2021

„Við vitum að yfir 10% kvenna er nauðgað og yfir 30% lenda í kynferðisofbeldi sem hefur áhrif á þær til framtíðar [...] samt erum við ekki tilbúnir til að trúa þolendum.“ segir Pétur Marteinsson fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður í knattspyrnu. Í kjölfar frásagna af þöggun KSÍ um ofbeldisbrot leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, afsagnar formannsins, afsagnar stjórnar og brotthvarf framkvæmdastjórans (allavega tímabundið) hefur verið töluverð umræða um eitraða íþróttamenningu, skaðlega karlmennsku og klefamenningu. Á síðustu dögum hefur þó meira farið fyrir skoðanapistlum miðaldra karlmanna, löglærðra manna, og annars málsmetandi fólks sem gefa í skyn að þolendur sem stigið hafa fram séu ótrúverðugir og í raun hafi ekki verið tilefni til afsagnar formanns og stjórnar KSÍ. Vararíkissaksóknari, sem aðstoðar ríkissaksóknara æðsta handhafa ákæruvalds í landinu, virðist deila þeim viðhorfum að brotaþolar sem stigið hafa fram séu ótrúverðugir. Þótt vararíkissaksóknari hafi sjálfur útskýrt læk og share, á facebook-pistli sem var síður en svo þolendavænn, sem stuðning við tjáningafrelsið. Síðustu vikuna hef ég óskað eftir samtali við fyrrverandi formann KSÍ, landsliðsþjálfarann og nokkra karlkyns einstaklinga sem eru fyrrverandi knattspyrnumenn eða starfa við umfjöllun um fótbolta. Enginn sem ég leitaði til gaf kost á sér í spjall við mig, nema Pétur Marteinsson sem þó var aðeins tvístígandi. Í 49. hlaðvarpsþætti Karlmennskunnar veltum við því fyrir okkur hvers vegna svo margir þora ekki að tjá sig eða forðast umræðuna um ofbeldi, fáum innsýn fyrrverandi atvinnumanns í knattspyrnu í klefamenninguna, karlasamstöðuna og forréttindi. Snertum á því hvernig umræðan sem hverfist núna um KSÍ og fótboltamenn er útbreiddur samfélagslegur vandi sem byltingar kvenna undanfarin ár hafi svo sannarlega varpað ljósi á og að karlar sem þráast við breytingunum muni tapa. Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Intro/outro: Futuregrapher Þátturinn er tekinn upp í stúdíó Macland og er í boði Veganbúðarinnar og The Body Shop.