POPULARITY
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Freyja Jónsdóttir, dósent við lyfjafræðideild Háskóla Íslands og Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands og doktorsnemi, ræddu við okkur um ópíóða og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi. Símatími Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir veltu vöngum yfir nýjum meirihluta í Reykjavík. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er á hringferð um landið.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti en dugir það vopn í baráttunni þegar lykilástæður eru utan landssteinanna? Rætt við Katrínu Ólafsdóttur, lektor í hagfræði, Bjarna Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og Höllu Gunnarsdóttur, formann VR. Mælanleg áhrif eru á lífsgæði og atvinnulíf á Norðurlandi eftir að reglubundið flug til útlanda frá Akureyri festi sig í sessi. Rætt við Þórodd Bjarnason, prófessor við Háskóla Íslands.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Bjartmar Leósson hjólahvíslari Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins Símatími Björn Ingi Hrafnsson Miðflokksmaður Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunar Katrín Guðjónsdóttir deildarstjóri matvæladeildar Matvælastofnunar Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Haraldur Geir Hlöðversson Evrópumeistari í sjómanni 70 ára og eldri Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Símatími Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu um mismun á endurheimt fjármuna Guðmundur Benedikt Friðriksson skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Læsi á Íslandi Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands Sigríður hefur rannsakað þróun læsis á Íslandi um margra ára skeið. Rannsóknir sýna ótvírætt að læsi hefur hrakað gífurlega á síðustu árum, hvaða áhrif hefur það og hvað er til ráða? Stjórnmál/Evrópumál Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar alþingis Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Stjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um að hafa átt fullkomlega óviðeigandi samráð við ESB um tímasetningar og fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna, kallar það leynimakk og undanbrögð. Hvað er satt og rétt? Landeyjahöfn Fannar Gíslason, forstöðumaður Hafnadeildar Vegagerðarinnar Eitt umdeildasta mannvirki Íslandssögunnar er enn ekki í fullri notkun, 16 árum eftir að það var opnað. Hvað þarf í raun að gera til þess að tryggja snurðulausu starfsemi Landeyjahafnar, er það í raun og veru hægt? Atvinnulíf/skattamál Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Ný úttekt leiðir í ljós að fasteignaskattar sveitarfélaga á atvinnuhúsnæði hafa hækkað um 50% að raungildi síðustu tíu árin. Hafa stjórnmálaflokkar lagt fram raunhæfar tillögur til úrbóta í húsnæðismálum í yfirstandandi kosningabaráttu?
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Rita Diðriksen sem er af færeyskum uppruna fær ekki íslenskan ríkisborgararétt Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Símatími Haraldur Ólafsson formaður Heimssýnar og veðurfræðingur Fannar Gíslason forstöðumaður Hafnadeildar Vegagerðarinnar Helga Rut Magnúsdóttir Halfin húðlæknir hjá Útlitslækningum um mýtur á samfélagsmiðlum
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Þór Sigfússon hjá Íslenska sjávarklasanum settist niður í spjall. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, var á línunni og ræddi útspil yfirvalda í húsnæðismálum. Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði og oddviti Framsóknar og Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar, fóru yfir helstu málin sem brenna á Hafnfirðingum. Paul Hourican talar á Iceland Innovation Week og ræddi við okkur um tónlistarsköpun og sköpun yfir höfuð. Sindri Bergmann, þróunarstjóri Abler, ræddi við okkur um fyrirtækið og uppgang þess. Gummi Ben ræddi við okkur um leikinn í gær þar sem Bayern Munchen heimsótti PSG.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, settist niður með okkur og ræddi fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar. Guðmundur Kristjánsson í Brimi svaraði formanni smábátaeigenda sem dró upp dökka mynd af stórútgerðinni. Páll Magnússon og Vigdís Hauksdóttir fóru yfir stóru málin. Guðríður Helgadóttir hjá Garðyrkjuskólanum í Hveragerði var á línunni. Jói Fel, bakari leiddi okkur í sannleikann um súrdeigsbrauð. Anna Fríða Gísladóttir og Rúnar Kristmannsson frá Nóa Siríus komu með nýtt nammi. Guðmundur Viðarsson, formaður Ljósmyndarafélags Íslands og Rán Bjargardóttir, stjórnarkona í félaginu, ræddu 100 ára afmæli félagsins.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jónatan Garðarson fjölmiðlamaður um Björgvin Halldórsson Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands um brottrekstur Ragnars Freys frá Landspítalanum Símatími Halldóra Mogensen stofnmeðlimur Samtaka um mannvæna tækni um Ofur-gervigreind og borgaralaun Ragnar Jónsson lögreglufulltrúi hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu Baldur Borgþórsson fyrrverandi varaborgarfulltrúi og í öðru sæti hjá Okkar borg Unnur Arna Borgþórsdóttir annar umsjónarmanna Morðkastsins um Rex Heuermann sem hefur játað að hafa myrt sjö konur sem tengjast áralangri rannsókn lögreglu á Gilgo-raðmorðingjanum í Bandaríkjunum. Auk þess viðurkenndi hann að hafa myrt aðra konu sem hann hafði ekki verið ákærður fyrir.
Halldór Benjamín Þorbergsson, þá framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var fyrsti gestur í hlaðvarpi Þjóðmála fyrir rétt rúmum fimm árum. Hann mætir nú aftur og fjallar um íslenska hagkerfið, viðhorfið til atvinnulífsins, um traustið sem þurfti að mynda á milli atvinnurekenda og launþegahreyfinga, nýsamþykkt frumvarp sem gæti falið í sér ein mestu hagstjórnarmistök sögunnar, boðað aðlögunarferli að Evrópusambandinu og margt fleira.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra um nýja verðbólgumælingu 5,45 en mældist 5,2% í lok febrúar. Símatími Friðjón Friðjónsson um sjálfkeyrandi bíla Jón Gunnarsson fyrrverandi dómsmálaráðherra (2021-23) um meinta Hamas-liða á Höfðatorgi Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu um könnun sem sýnir gervigreindina ekki ógna starfsöryggi Bubbi Morthens og Ásgeir Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður um nýja heimildarmynd um Bubba Morthens
Sunnudagurinn 22. mars Synir Egils: Stýrivextir, kjarasamningar, átök og Sjálfstæðisflokkurinn Fyrst koma Halla Gunnarsdóttir formaður VR, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og Þorsteinn Víglundsson forstjóri BM. Vallár og formaður Samtaka iðnaðarins koma til okkar í fyrri hluta þáttarins. Efnahagsmálin verða í forgrunni, og er víst að þessir fínu gestir okkar hafa margt um það að segja. Hvers vegna sökkvum alltaf í sama vesenið. Sama hvaða fólk stýrir landinu og hvað fólk er í stafni hjá launafólki og atvinnurekendum. Guðrún Hafsteinsdóttir kemur vel nestuð frá flokkstjórnarfundi Sjálfstæðisflokksins. Víst er að flokkkurinn eigi mikið undir hvern til tekst nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.
Gestir Vikulokanna eru Magnús Árni Skjöld Magnússon prófessor í stjórnmálafræði og formaður Evrópuhreyfingarinnar. Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður VG og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Þau ræddu meðal annars efnahagsmál, Evrópusambandsmál og boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Meginvextir Seðlabankans voru hækkaðir úr 7,25% í 7,50% í dag og einhugur ríkti innan peningastefnunefndar að vaxtahækkun væri nauðsynleg. Það ræðst á næstu 167 dögum hvort forsendur kjarasamninga haldist og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, viðurkennir að hann hafi meiri áhyggjur en áður af forsenduákvæði kjarasamninga. Hann vill þó ekki spá um hvort stefni í harða kjarabaráttu í haust. Yfirlýsing um samstarf Íslands og Evrópusambandsins var staðfest í dag í Brüssel af þeim Þorgerði Katrínu Gunnardóttur, utanríkisráðherrra, og Kaju Kallas, utanríkismálastjóra ESB. Undirritun yfirlýsingarinnar hafði verið frestað í nóvember út af ákvörðun ESB um verndaraðgerðir vegna málmblendis. Þorgerður Katrín hitti embættismenn hjá NATO í morgun og átti einnig fund með framkvæmdastjóra viðskipta hjá ESB um undanþágur vegna losunarheimilda í ETS kerfinu. Það er flókið en ekki ómögulegt að fá undanþágur eða sérlausnir þegar ríki gerir samning við Evrópusambandið. Þetta sagði Gunnar Pétursson, prófessor í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík, í erindi sem hann hélt á Akureyri í dag. Hann segir eðlilegt að mörgum þyki erfitt að skilja hvað felist í að fara í viðræður um aðild að ESB. Umræðan geti verið óskýr.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Lukka Pálsdóttir stofnandi Greenfit um heilsufarstékk og munnúða-vítamín Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins Símatími Ólafur Margeirssson hagfræðingur um vextahækkun Seðlabankans Rósa Líf Darradóttir læknir og formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi Pétur Gautur myndlistarmaður Atli Stefán Yngvason framtíðarstjóri Mílu og einn stjórnenda Tæknivarpsins um Starlink sem auglýsir nú á Facebook háhraðanet
Enn sér ekki fyrir endann á hryðjuverkamálinu svokallaða eftir að Hæstiréttur ómerkti sýknudóm Landsréttar og sendi málið þangað aftur. Ómögulegt er að segja til um það hvenær endanleg niðurstaða fæst um hvort tveir Íslendingar hafi verið að skipuleggja hryðjuverk eða ekki. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir málið við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing. Hver kjarnorkuafvopnunarsamningur stórveldanna af öðrum hefur fallið úr gildi undanfarin misseri, sá síðasti, START-samningurinn hinn nýrri, í byrjun febrúar. Þá er bara einn eftir, sá fyrsti og víðtækasti, um takmörkun og í raun bann við frekari útbreiðslu kjarnavopna og minnkun kjarnorkuvopnabúra heimsins eftir því sem kostur er. Nú boða Frakkar stækkun eigin kjarnavopnabúrs - til að auka öryggi Evrópubúa. Þýðir þetta að fyrsti og síðasti gildandi kjarnavopnasamningurinn sé líka í hættu? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Guttorm Þorsteinsson, formann Samtaka hernaðarandstæðinga. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Alþjóðamál/Íran Kjartan Orri Þórsson sérfræðingur ræðir sögu Írans og afskipti heimsvelda af innanríkismálum sem hafa verið tíð og afdrifarík síðustu 120 árin a.m.k. Utanríkismál Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræðir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Efnahags- og atvinnumál Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins ræðir sýn sína á framtíð íslensks iðnaðar og atvinnulífs.
Júdókempa, garðyrkjufræðingur á sjötugsaldri og þrítugur Íslendingur sem nýverið var dæmdur fyrir tilraun til manndráps eru meðal sex sakborninga sem ákærðir eru fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og ræna af honum ævisparnaðinum. Martraðir eftir árásina halda vöku fyrir manninum. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. „Ég held að flestum Bandaríkjaforsetum frá írönsku byltingunni hafi langað til að ráðast inn í Íran en enginn verið nógu vitlaus til að gera það þangað til núna," segir Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga meðal annars, aðspurður um líklegar ástæður ólöglegra árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Árásir þeirra síðastnefndu á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjum þeirra ættu að vekja Íslendinga til umhugsunar. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Guttorm. Stríðsrekstur hefur oft verið réttlættur með vísan til trúar og vilja guðs og virðist slík réttlæting lifa góðu lífi vestanhafs, ef marka má flóð tilkynninga undanfarna daga um málflutning bandarískra herforingja sem vísa til dómsdags og endaloka heims til að brýna hermenn í stríði við Íran. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræddi við okkur um ástandið í þjóðfélaginu og Iðnþingið. Guðlaug Sigfúsdóttir og sonur hennar Sebastian búa í Bahrain. Þau voru með okkur á Messenger og ræddu hvernig lífið hefur breyst síðustu daga. Þröstur Guðnason, varaformaður Heilsuvonar og Helgi Örn Viggósson, hugbúnaðarsérfræðingur ræddu við okkur um samtökin Heilsuvon og þeirra baráttu. Gauti Einarsson ræddi við okkur um sína baráttu við fíkn og gallana við kerfið. Eva Laufey kíkti í heimsókn. KK
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Helgi Steinar Gunnlaugsson, sérfræðingur í málefnum Kína og blaðamaður á Viðskiptablaðinu um kínverska nýárið og ár eldhestsins Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Bryndís Haraldsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins um stjórnarfrumvarp sem á að festa bætur almannatrygginga (elli- og örorkubætur) við launavísitölu. Símatími Líf Magneudóttir oddviti Vinstri Grænna og formaður stýrihóps um breytingar á leikskólakerfi borgarinnar Jóhannes Þór SKúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunar um spilavíti Arnar S Gunnarsson öryggisstjóri OK um þriðjung tölva á Íslandi styðjast ennþá við Windows 10 og eru þá berskjaldaðar fyrir tölvuárásum Erla Gerður Sveinsdóttir heimilislæknir og einn fremsti sérfræðingur okkar í meðferð offitu Björgvin Þór Rúnarsson framkvæmdastjóri Nordic Live Events um risa golfsýningu í Laugardalshöll 7. og 8. mars nk
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur frá Hreyfilausnum ræddi áhugavert námskeið fyrir fólk sem glímir við langvinna verki. Aron Bjarnason, framkvæmdastjóri Filmís sem rekur Hver ertu Og Pétur H Halldórsson formaður Samtaka rafverktaka (SART) og varaformaður Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins, ræddu stafræn vinnustaðaskírteini. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri Sýnar og Hannes Óli Ágústsson, leikari fóru yfir fréttir vikunnar. Sigurður K. Kolbeinsson, forstjóri Kólumbus ævintýraferða, settist niður með okkur. Friðjón B. Gunnarsson, formaður íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur, ræddi við okkur um minningarleik fyrir Patrek Frey Sveinsson. Siggi Royal og Alda Björk Larsen frá Royal ræddu vítt og breitt um Royal búðing. Birna María Másdóttir, markaðsstjóri Nóa Siríus, kom með nýtt nafn.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur um gengi Íslendinga á EM í handknattleik Bjarni Benediktsson nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Símatími Eliza Reid rithöfundur og fyrrverandi forsetafrú Björn Kristjánsson FÍB um Teslu Y bíla Sveinn Ólafsson eðlisfræðingur vísindamaður hjá Háskóla Íslands um verðmæta jarðmálma á Grænlandi Birgir Guðmundsson prófessor í fjölmiðlafræði og stjórnmálafræðingur Gísli Örn Garðarson Ormstungu
Áhrif tollastríðsins sem geisað hefur á alþjóðavettvangi hafa ekki verið mjög mikil á íslensk fyrirtæki heilt yfir. Þó er það misjafnt segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Mikil og vaxandi óvissa í heimshagkerfinu þýði að stjórnvöld verði að styrkja samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Landeigendur og ábúendur á þriðja tug jarða í Húnaþingi hafa bundist samtökum um að hafna áformum Landsnets um lagningu Holtavörðuheiðarlínu 3 um þeirra lönd. Hagsmunasamtök þessara landeigenda voru stofnuð nýlega og þeirra mótmæli snúa að þeim aðalvalkosti sem Landsnet vill fara, sem er svokölluð byggðaleið. Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins settu spurningarmerki við samkomulag sem mennta- og barnamálaráðherra gerði við félags- og húsnæðismálaráðherra, um að hún tæki að sér uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir eldra fólk. Forsætisráðherra viðurkenndi að þetta væri óvenjuleg ráðstöfun en slíkt væri stundum nauðsynlegt til að hreyfa við hlutunum.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Ólöf Embla Einarsdóttir, rekstrarstjóri Straumlindar, ræddi við okkur um rekstur raforkusala. Dönskukennarinn Simon Cramer Larsen býður sig fram sem formaður Félags framhaldsskólakennara. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, ræddu ferðaþjónustuna og framtíðarhorfur. Sara Rut Arnardóttir, listrænn stjórnandi Improv Ísland, fór yfir undarlegt mál sem tengist samkomuhúsinu Bifröst á Sauðárkróki. Stefán Atli og Atli Már ræddu framtíðina í gervigreind og nýtt verkefni sem heitir Litla kríli. Jóhann Atli Jóhannsson og Andri Geir Jónasson eru stofnendur Eignar sem er nýtt sprotafyrirtæki sem gagnast fólki í fasteignaviðskiptum. Sigrún Valsdóttir og Kolbrún Tómasdóttir settust niður með okkur og ræddu bókina Systir mín sem enginn sér.
Gestir þáttarins voru þeir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags Íslenskra bifreiðaeigenda. Þeir ræddu meðal annars um lög um kílómetragjald sem tóku gildi um áramótin og áhrif þess á neytendur og ferðaþjónustuna.
Efnismikil skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík fyrir þrjátíu árum leit dagsins ljós í gær; hún varpar meðal annars ljósi á hvernig sveitarfélög á þessum tíma voru mörg hver vanbúin til að verjast stórhættulegum ofanflóðum. Það var til að mynda vitað að á tíu stöðum, þar sem snjóflóðahætta var viðvarandi, var aðeins á einum stað þar sem eftirlit var fullnægjandi; Ísafirði. Hættumöt sem voru gerð gátu oft og tíðum orðið að pólitísku þrætuepli og fámennustu sveitarfélögin höfðu ekki fjárhagslegt bolmagn til að reisa varnarmannvirki. En hvernig er staðan í dag? Sögulegt segir á vef utanríkisráðuneytisins um samkomulag sem Ísland, Noregur, Bretland og Færeyjar hafa gert um skiptingu og stjórn á veiðum á makríl. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir tvennt við það að athuga að segja samkomulagið sögulegt. Áður hafi verið gert hlutasamkomulag þótt Ísland eigi nú í fyrsta sinn þátt í slíku. Í annan stað þá hafi það verið viðurkennt frá 2010 að Ísland sé strandríki í makríl og það tekið þátt í viðræðum um hvernig beri að skipta þessum deilistofni. Einn afdrifaríkasti leiðtogafundur Evrópusambandsins í langan tíma hefst á fimmtudaginn, þar sem tekin verður ákvörðun um fjárhagslegan stuðning við Úkraínu næstu árin. Enn er verið að semja um skilyrði þess að nýta frysta fjármuni rússneska seðlabankans til að setja saman risastórt lán - og það er nánast útilokað að öll aðildarríki bandalagsins samþykki þennan ráðahag.
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Stjórnmál Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknar Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingar Þau ræða helstu mál í þinglok, árangur ríkisstjórnar á þessu ári, Samgöngumál Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra Eyjólfur svarar gagnrýni á nýja samgönguáætlun, forgang í jarðgangnagerð og fleira sem hans málaflokki tengist. EES - samningurinn Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins Árni sem gegnir stöðu yfirlögfræðings Marels auk formennsku í SI fer yfir EES samninginn og mikilvægi hans fyrir Ísland - er óhætt að skipta honum út líkt og heyrst hefur, gæti annarskonar fríverslunarsamningar dugað íslenskum útflutningi jafn vel eins og heyrst hefur á undanförnum dögum. Stjórnmál/borgarmál Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sviptingar eru í borgarmálunum og fylgi á fleygiferð, nýr vinstriflokkur boðaður undir forystu Sönnu en Sjálfstæðisflokkurinn rís hvað hæst í könnunum. Þær Sanna og Hildur ræða málin.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Tina Paic sérfræðingur í skattamálum hjá KPMG Law Skafti Harðarson formaður Samtaka skattgreiðenda Símatími Jón Pétur Zimsen þingmaður og fyrrverandi skólastjóri um einkunir í bókstöfum eða tölustöfum Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar um bílamarkaðinn og afnám vörugjalda á rafbíla og hækkun vörugjalda á jarðefniseldsneytisbíla Hrefna Sigurjónsdóttir verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá um mikilvægi reykskynjara Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður og ráðgjafi hjá Tónlistarmiðstöð um dag íslenskrar tónlistar
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, fór yfir skattahækkanir sveitarfélaganna síðustu ár. Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, forstöðumaður og verkfræðingur hjá Icelandair, fór yfir skatta og gjöld í þágu umhverfismála þegar kemur að flugrekstri. Torfi Jóhannesson, ráðgjafi og stofnandi Nordic Insights, ræddi við okkur um fæðuöryggi. Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi um hlutverk fjölmiðlanefndar og hvort hlaðvörp séu fjölmiðill. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, ræddi við okkur um jafnréttismál. Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum, ræddi stækkun í Smáralind. Arinbjörn Hauksson frá Elko mætti í Græjuhornið.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um stöðuna í hagkerfinu og á vinnumarkaði, þörfina á lægri vöxtum, skattastefnu stjórnvalda og viðhorf til verðmætasköpunar, hættuna sem skapast með öryrkjagildru og tengingu almannatrygginga við launavísitölu, samskiptin við samtök launþegar, meinta óeiningu innan SA og margt fleira.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um verndartolla ESB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um verndartolla ESB Símatími Steinunn Þórðardóttir öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands um rannsókn frá Ástralíu um að yngra fólk en áður er að greinast með minnisglöp líklega vegna samfélagsmiðla og skjánotkunar Stefán Einar Stefánsson um myndband sem er í dreifingu á Tik Tok Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðslokksins um verndartolla ESB Lára Zulima Ómarsdóttir fyrrverandi fréttamaður og almannatengill um frétta-sjónvarpsstöðina NFS sem fór í loftið fyrir 20 árum Skúli Bragi Geirdal varaþingmaður Framsóknarflokksins og sviðsstjóri hjá Netvís netöryggismiðstöðvarinnar um netöryggi barna
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Fjármálamarkaður Agnar Tómas Möller og Kristinn Máni Þorfinnsson Agnar og Kristinn ræða vaxtadóm Hæstaréttar, áhrif hans á lánakjör til almennings og horfur í vaxtamálum til framtíðar en stýrivextir verða ákveðnir í þessari viku. Stjórnmál Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir alþingismaður Kolbrún ræðir innleiðing sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, nýjan stýrihóp um baráttu gegn fátæk sem hún veitir forstöðu og stöðu Flokks fólksins í ríkisstjórninni. Evrópumál Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi ráðherra Dagbjört Hákonardóttir, alþingismaður Af hverju eru Evruvextir ekki á Íslandi? Myndu þeir breyta einhverju fyrir almenning, t.d. í húsnæðismálum? Er EES samningurinn í uppnámi vegna þess að Íslendingar fá ekki undaþágu frá verndaraðgerðum gagnvart innflutningi á kísilmálmi. Er marklaust að tala um frekari nálgun við ESB sem stendur. Dagur íslenskunnar Halldór Benjamín Þorbergsson, stjórnarformaður Almannaróms Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms Halldór og Lilja fara yfir baráttuna fyrir íslenskunni í stafrænum heimi en þar er Almannarómur miðstöðin sem heldur utanum máltækniverkefni Íslendinga.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Hanna Birna Kristjánsdóttir ræddi við okkur um heimsþing kvenleiðtoga sem fer fram í Hörpu eftir helgi. Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, settist niður með okkur. Hans Steinar Bjarnason hjá SOS barnaþorpum og Hjördís Guðmundsdóttir hjá Almannavörnum fóru yfir fréttirnar. Geimverusérfræðingurinn Gunnar Dan kíkti í spjall um geimverur og nýju bókina UFO101. Brynja Dan ræddi við okkur um afsláttardaginn 11.11. Álfrún Gísladóttir, leikkona og höfundur verksins Dead Air, spjallaði við okkur. Leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson ræddi við okkur nýja bíómynd og Áramótaskaupið. Róbert Aron og Adam Helgason frá Brixton kíktu með ljúffengan mat.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni, settist niður með okkur og ræddi hagræðingu, eða skort á henni, í Reykjavíkurborg. Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, ræddi þingsályktunartillögu um öryggis- og varnarmál. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar ræddu við okkur um óveðursský í íslensku samfélagi. Páll Höskuldsson flutti til Noregs fyrir 16 árum síðan og bar saman lífsgæði þar og á Íslandi. Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, stjórnarformaður DRM-LND og Sesselja Katrín Hauksdóttir, eigandi DRM-LND settust niður með okkur. Sævar Kristinsson og Karl G. Friðriksson voru að gefa út bókina Síungir karlmenn.
Bítið á Bylgjunni með Heimi, Lilju og Ómari. Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, ræddi við okkur um borgarhönnunarstefnu Reykjavíkurborgar. Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku, fór yfir vatnsnotkun Íslendinga og hætturnar sem steðja að vatnsveitum landsins. Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, fór vítt og breitt yfir stöðuna í ferðaþjónustunni. Óskar Einarsson, tónlistarstjóri Lindakirkju og séra Guðmundur Karl Brynjarsson ræddu við okkur um aukna kirkjusókn og söfnun fyrir lyftu. Páll Pálsson, fasteignasali fór yfir lán og fasteignamarkaðinn. Eva Sigurðardóttir frá Jól í skókassa kíkti á okkur.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar um falsfrétt Daily Mail um hvort íslenska ferðabólan sé sprungin Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna um dóm Hæstaréttar í vaxtamálinu Símatími Mummi Týr Þórarinsson fyrrverandi forstjóri Götusmiðjunnar Runólfur Ólafsson, Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda varðandi löggildingu ökumæla í einkabílum Hjörtur J. Guðmundsson sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur um mýtuna um lægra matarverð ESB Erla Símonardóttir stofnandi og framkvæmdsatjóri Bella Books um gervigreindina í bókhaldi
Alma Hafsteinsdóttir er spilafíklaráðgjafi, með B.S í sálfræði, viðskiptafræðingur og spilafíkill í bata. Hún situr í stjórn Samtaka Áhugafólks um spilafíkn sem vilja umræðu um spilakassarekstur Háskóla Íslands, og lokun spilakassa. Spilafíkn fylgir mikil skömm svo fólk ræðir ekki vandann opinberlega og þær alvarlegu samfélagsleg, efnahagslegu og heilsufarslegu afleiðingar sem hljótast af þessari fíkn. Við töluðum um spilafíkn, spilakassa, veðmálasíður og margt fleira tengt þessu útbreidda vandamáli sem því miður virðist færast í aukana. Styrktaraðili Heilsuvarpsins er NOW á Íslandi @nowiceland
Gestir Vikulokanna eru Líf Magneudóttir borgarfulltrúi VG, Pétur Óskarsson formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og Ragnar Þór Ingólfsson þingmaður Flokks fólksins. Þau ræddu meðal annars friðarviðræður á Gaza, gjaldþrot Play og áhrif þess á ferðaþjónustuna og þjóðarbúið, tillögur um breytingar á leikskólastarfi í Reykjavík og stýrivexti. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Við sóttum ársfund Samtaka atvinnulífsins (SA) sem haldinn var í dag og förum yfir allt það helsta í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Rætt er við Jón Ólaf Halldórsson, formann SA, Andrés Magnússon, fulltrúa ritstjóra á Morgunblaðinu, Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, og Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra hjá Bláa lóninu.
Gestir þáttarins voru Björn Jón Bragason, kennari og sagnfræðingur, Davíð Þór Jónsson, prestur, og Halldóra Mogensen, fyrrverandi þingmaður og stofnandi Samtaka um mannvæna tækni. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Óhætt er að segja að orðaskipti Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, og Þorbjargar Þorvaldsdóttur, verkefnastýru hjá Samtökunum 78, í Kastljósinu í gær hafi kallað fram sterk viðbrögð. Biskup, Landlæknir, atvinnuvegaráðherra og þingmenn eru í hópi þeirra sem hafa blandað sér í umræðuna á samfélagsmiðlum. Það eru vonbrigði að hefja nýtt fiskveiðiár með tíu þúsund tonna niðurskurði í þorskafla. Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir þetta jafnast á við þorskveiði fimm skuttogara. Hann segir fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af þorskstofninum og ekki síður hvort rétt sé staðið að rannsóknum. Borgarstjóri kannast ekki við stirt starfsumhverfi á skrifstofu sinni. Tveir aðstoðarmenn hafa látið af störfum á fyrstu sex mánuðum hennar í embætti. Sá þriðji tók til starfa í dag.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Viltu finna milljarð Skoðanapistill Gunnar Pétur Haraldsson viðskiptafræðingur Vésteinn Örn Pétursson um Gufunesmálið Símatími Sigríður Mogensen - sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur um veðrið Sigurjón Þórðarson þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar um uppsagnir tengdum sjávarútvegnum
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir 7,5% vexti vera háa, en vonar að vaxtastefna bankans leiði til minni verðbólgu og þannig lægri vaxta. Fasteignaverð er hátt og hann veltir því fyrir sér hvort rétt sé að seljendur slái af verðinu. Sleggjan á vextina hefur ekki enn verið dregin fram, segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Verði ekki breytt um kúrs gera SA ráð fyrir að vextirnir haldist óbreyttir fram á næsta ár. Börn sem hírast í tjaldbúðum á rústum dreymir um venjulegt líf, herbergið sitt og dótið. Rosalia Bollen talsmaður UNICEF á Gaza segir að miklu skipti að börnin sem líða skort og hafa orðið fyrir síendurteknum áföllum fái andlegan stuðning.
Öll viðtölin úr þætti dagsins ásamt símatíma: Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Bliku og Veðurvaktinni Hanna Birna Valdimarsdóttir formaður og Hugrún Vignisdóttir varaformaður Samtaka um Pots á Íslandi Símatími Freyr Ólafsson framkvæmdastjóri Parka Fjölnir Sæmundsson formaður Landssambands lögreglumanna Magnús Rannver Rafnsson verkfræðingur um Reynisfjöru út frá verkfræði Hólmfríður Kristjánsdóttir íbúi í Breiðholti
Gestir Vikulokana eru Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi ráðherra og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingar.
Nýjasta útgáfan af lista Trumps yfir verndartolla á innflutningi varnings frá hátt í eitt hundrað ríkjum til Bandaríkjanna var birt að kvöldi 31. júlí. Í flestum tilvikum hækkuðu tollarnir nokkuð frá því sem áður hafði verið tilkynnt og Ísland er þar ekki undanskilið. Tíu prósenta tollur var lagður á íslenskan innflutning til Bandaríkjanna í apríl, en það er lágmarkstollur á innflutning þangað. Hvorutveggja íslensk stjórnvöld og íslensk fyrirtæki gerðu því skóna að þar með væri málið afgreitt. Trump leggur jú áherslu á að tolla varning frá ríkjum sem selja meira til Bandaríkjanna en þau kaupa af þeim, en þessu er öfugt farið hér. Þess vegna kom það á óvart að tollar á íslenskan varning eiga samkvæmt þessum nýja lista að hækka úr 10 prósentum í 15 prósent. En hvað er til ráða? Og hvers vegna hlaupa kaupahéðnar heimsins enn upp til handa og fóta við hverja tilkynningu Trumps, sem þó skiptir um skoðun oftar en tölu verður á komið? Ævar Örn Jósepsson spurði Gylfa Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands um þetta. Einnig er rætt við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kormákur Marðarson
Leiðtogar ríkja í Atlantshafsbandalaginu koma saman á fundi í Haag í Hollandi í næstu viku. Við blasa erfið verkefni; stríðið í Úkraínu hefur geisað í þrjú ár og ógnin frá Rússlandi er mikil. Innan bandalagsins hefur verið tekist á um framlög ríkja til varnarmála og Donald Trump forseti Bandaríkjanna verið óspar á gagnrýni á önnur aðildarríki sem verði að leggja meira til öryggis- og varnarmála. Sóknaráætlun landshluta er eitthvað sem við heyrum oft í fréttum en færri vita sennilega hvað er. Sama er með orðið uppbyggingarsjóður sem styður við verkefni sem falla að sóknaráætlun. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE. Hún er ein af átta framkvæmdastjórum landshlutasamtaka sveitarfélaga sem sýsla reglulega með málefni í sóknaráætlun. Móðir fimm ára stúlku sem steyptist út í útbrotum á andliti og endaði upp á barnaspítala eftir að hafa gengið með spöng frá Temu í nokkrar klukkustundir segir mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir hættunni sem geti fylgt vörunum. Vottanir séu til af ástæðu og afleiðingar geti verið alvarlegar. Umhverfisstofnun hefur marg oft varað við vörum frá kínverskum netsölutorgum en það virðist hafa lítl áhrif á Íslenska neytendur. Dæmi eru um að vörunar innihaldi hundrað sinnum hærra magn af eiturefnum en löglegt er.
Gestir Vikulokanna eru Jón Ólafur Halldórsson formaður Samtaka atvinnulífsins, Arna Lára Jónsdóttir þingmaður Samfylkingarinnar og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna. Þau ræddu meðal annars verðbólgu og vaxtamál, kílómetragjöld, nýtt fasteignamat, Íslandsbankasölu og samrunaviðræður á bankamarkaði. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Gestir Vikulokanna eru Njáll Trausti Friðbertsson úr Sjálfstæðisflokknum, Eiríkur Björn Björgvinsson frá Viðreisn og Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings og varaþingmaður Framsóknarflokksins. Þau ræddu meðal annars um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar, auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sjókvíaeldi á Austfjörðum, rekstrarerfiðleika kísilverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík og umfjöllun Kastljóss um stórfelldan gagnastuld lögreglumanna frá embætti sérstaks saksóknara. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson Tæknimaður: Þráinn Steinsson
Eyjólfur Árni Rafnsson hefur verið formaður Samtaka atvinnulífsins (SA) í átta ár Hann mun láta af störfum á aðalfundi samtakanna í næstu viku. Í nýjum þætti Þjóðmála fer Eyjólfur Árni yfir þessi ár sem hafa að margra mati þótt róstursöm, kosti og galla vinnumarkaðsmódelsins hér á landi og hvort raunhæft sé að færa sig nær skandinavíska módelinu, samskiptin við verkalýðshreyfinguna, hvort að þeir kjarasamningar sem hafa verði undirritaðir á liðnum árum styðjist við raunhæfa framleiðni, um umræðu um frjálst markaðshagkerfi, hlutverk hins opinbera og margt fleira.