Podcasts about barnah

  • 10PODCASTS
  • 18EPISODES
  • 1h 8mAVG DURATION
  • ?INFREQUENT EPISODES
  • Oct 24, 2023LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about barnah

Latest podcast episodes about barnah

Al Dia. Terres de l’Ebre
Al Dia Terres de l'Ebre (24-10-23)

Al Dia. Terres de l’Ebre

Play Episode Listen Later Oct 24, 2023 108:01

A l'Al Dia Terres de l'Ebre, en el programa d'este dimarts 24 d'octubre de 2023 hem començat el programa amb el repàs a l'actualitat dels nostres municipis i, després, a l'espai de l'Entrevista, avui hem parlat dels 40 anys del Parc Natural del Delta de l'Ebre. Just este divendres es celebra l'acte institucional d'este 40è aniversari i avui hem parlat amb Francesc Vidal, director del Parc Natural del què han suposat estos 40 anys per al delta de l'Ebre. A la segona hora, els hem parlat de les darreres descobertes al jaciment de Sant Jaume d'Alcanar amb l'arqueòloga Carme Saorín. A l'espai d'Educació avui hem abordat la polèmica per la posada en marxa dels Barnahús amb Albert Font, vicepresident del Col·legi d'Educadores i Educadors Socials de Catalunya.

delta col catalunya parc natural sant jaume barnah al dia terres
Spegillinn
Skuldir aukast í bygginggeiranum og Bretar draga úr loftslagsaðgerðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023 9:49

Hægari sala fasteigna hefur valdið því að skuldir byggingageirans við bankana hafa aukist um 68 milljarða króna síðustu tólf mánuði. Það er ekki áhyggjuefni enn sem komið er, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Volodymyr Zelenskí forseti Úkraínu vill að Rússar verði sviptir neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þeir hafi gert ráðið gagnslaust með beitingu neitunarvaldsins. Barnahús metur öll tilvik sem barnaverndarnefndir senda til hennar vegna mögulegra kynferðisbrota barna, segir Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Sum mál eigi ekki heima í Barnahúsi. Matvælastofnun boðar afléttingu á tímabundnu banni við hvalveiðum Hvals 8, að uppfylltum skilyrðum. Það er allt uppávið í uppsjávarfiski og gósentíð segir Hjörvar Ólafsson, skipstjóri á Berki, sem landaði 1.700 tonnum af síld í Neskaupstað í fyrrinótt eftir rúmlega sólarhrings veiðiferð. NIðurrif Íslandsbankahússins á Kirkjusandi verður boðið út á næstu vikum. Margt þarf að gera til að tryggja að myglugró berist ekki víða, það þarf að huga að vindátt og mögulega væta húsið segir Kjartan Smári Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða. -------------- Forsætisráðherra Bretlands segist ætla að milda aðgerðir til að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 og fylgja raunsærri nálgun en hingað til. Ákvörðun hans mælist misjafnlega fyrir. Þar á meðal er forseti neðri málstofu þingsins sagður ævareiður. Krakkar og klám, unglingar og kynlíf, þetta eru óþægileg umræðuefni og vandræðaleg. Við viljum eðlilega leyfa börnum að vera börn sem lengst og hlífa þeim. En við viljum kannski líka hlífa okkur við tilhugsuninni og samtalinu. Kristín Blöndal Ragnarsdóttir veitir forstöðu verkefni Hafnarfjarðarbæjar um kynja- og kynfræðslu og kennir í Lækjaskóla. Spegillinn hitti Kristínu og spurði hana hvað krakkar, bæði börn og unglingar sæju á netinu. Mikill styr hefur staðið um sameiningaráform Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra um framhaldsskólana á Akureyri. Karli Frímannssyni, skólameistara MA líst fremur illa á sameining en Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari í VMA telur að einn og öflgur skóli væri til bóta. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

sum hj vma krist barna stj fors sigr draga akureyri helgason umsj ingibj matv margt ragnarsd mikill bretlands hafnarfjar birgisd sameinu anna krist bretar neskaupsta barnah
Spegillinn
Skuldir aukast í bygginggeiranum og Bretar draga úr loftslagsaðgerðum

Spegillinn

Play Episode Listen Later Sep 20, 2023

Morgunútvarpið
20. okt. - Míuverðlaun, efni, aldurstakmörk, nektarmyndir og Naglinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021

Míuverðlaunin eru verðlaun sem heiðra þau sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Þær Þórunn Eva G. Pálsdóttir og Fríða Björk Arnardóttir komu til okkar í morgunkaffi til að segja okkur meira, en þær vita allt um málið. Talið er að um 10 milljónir efna bætist við á hverju ári í hóp efna sem skaðleg eru fólki og rannsóknir taka sinn tíma, svo niðurstöður liggja ekki alltaf strax fyrir. Það leiðir til þess að stjórnvöld ná ekki að setja reglur til að takmarka eða banna framleiðslu og notkun þeirra nógu tímalega. Í hádeginu í dag er opinn fyrirlestur um skaðleg efni á heimilinu á vegum Umhverfisstofnunar og við fengum Bergdísi Björk Bæringsdóttur, sérfræðing á sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar til að segja okkur aðeins af þessu. Við veltum fyrir okkur aldurstakmörkunum á kvikmyndum, en athygli vekur að íslenska kvikmyndin Leynilögga sem frumsýnd er í þessari viku, er í boði annars vegar fyrir 12 ára og eldri og hins vegar 16 ára og eldri. Í hverju liggur munurinn og hverjar eru reglurnar? Er regluverkið hér það sama og erlendis eða annað? Hallgrímur Kristinsson formaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kom til okkar og fræddi okkur um þetta. Í sjónvarpþættinum Kveik í gærkvöldi á RÚV kom fram að nærri 60 prósent stelpna í 10. bekk hafa verið beðnar um að senda af sér nektarmynd eða ögrandi mynd og rúm 30 prósent hafa þegar gert það. Í þættinum var talað við tvær grunnskólastúlkur sem seldu af sér kynferðislegar myndir og notaðar nærbuxur í fyrrasumar, þá 13 ára. Mörgum er brugðið eftir umfjöllunina og foreldar vilja vita hvernig bregðast á við og fræða börn sín, af öllum kynjum. Foreldrar hafa verndarskyldu gagnvart börnum, en vankunnátta og skortur á þekkingu kemur oft í veg fyrir að hún skili sér. Til að ræða þessi mál kom til okkar Margrét K. Magnúsdóttir forstöðumaður Barnahúss. Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, einnig þekkt sem Ragga Nagli, er einn þekktasti heilsu ráðgjafi landsins. Hún er þó ekki búsett á Íslandi, heldur í Danmörku, en er stödd á landinu um þessar mundir og við gripum því tækifærið og fengum hana í heimsókn í smá heilsuspjall að hausti. Tónlist: Geiri Sæm og Hunangstunglið - Er ást í tunglinu? GDRN - Næsta líf. Lorde - Mood ring. Adele - Easy on me. Gugusar - Röddin í klettunum. U2 - Pride in the name of love. Dua Lipa - Love again. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Lenny Kravitz - Let love rule. Lón - Earthquake.

er bj rv earthquakes magn tali danm margr hallgr kveik kristinsson bergd eva g arnard efni ragnhildur foreldrar herbert gu barnah umhverfisstofnunar
Morgunútvarpið
20. okt. - Míuverðlaun, efni, aldurstakmörk, nektarmyndir og Naglinn

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Oct 20, 2021 130:00

Míuverðlaunin eru verðlaun sem heiðra þau sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Þær Þórunn Eva G. Pálsdóttir og Fríða Björk Arnardóttir komu til okkar í morgunkaffi til að segja okkur meira, en þær vita allt um málið. Talið er að um 10 milljónir efna bætist við á hverju ári í hóp efna sem skaðleg eru fólki og rannsóknir taka sinn tíma, svo niðurstöður liggja ekki alltaf strax fyrir. Það leiðir til þess að stjórnvöld ná ekki að setja reglur til að takmarka eða banna framleiðslu og notkun þeirra nógu tímalega. Í hádeginu í dag er opinn fyrirlestur um skaðleg efni á heimilinu á vegum Umhverfisstofnunar og við fengum Bergdísi Björk Bæringsdóttur, sérfræðing á sviði efna, eftirlits og veiðistjórnunar til að segja okkur aðeins af þessu. Við veltum fyrir okkur aldurstakmörkunum á kvikmyndum, en athygli vekur að íslenska kvikmyndin Leynilögga sem frumsýnd er í þessari viku, er í boði annars vegar fyrir 12 ára og eldri og hins vegar 16 ára og eldri. Í hverju liggur munurinn og hverjar eru reglurnar? Er regluverkið hér það sama og erlendis eða annað? Hallgrímur Kristinsson formaður Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði kom til okkar og fræddi okkur um þetta. Í sjónvarpþættinum Kveik í gærkvöldi á RÚV kom fram að nærri 60 prósent stelpna í 10. bekk hafa verið beðnar um að senda af sér nektarmynd eða ögrandi mynd og rúm 30 prósent hafa þegar gert það. Í þættinum var talað við tvær grunnskólastúlkur sem seldu af sér kynferðislegar myndir og notaðar nærbuxur í fyrrasumar, þá 13 ára. Mörgum er brugðið eftir umfjöllunina og foreldar vilja vita hvernig bregðast á við og fræða börn sín, af öllum kynjum. Foreldrar hafa verndarskyldu gagnvart börnum, en vankunnátta og skortur á þekkingu kemur oft í veg fyrir að hún skili sér. Til að ræða þessi mál kom til okkar Margrét K. Magnúsdóttir forstöðumaður Barnahúss. Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, einnig þekkt sem Ragga Nagli, er einn þekktasti heilsu ráðgjafi landsins. Hún er þó ekki búsett á Íslandi, heldur í Danmörku, en er stödd á landinu um þessar mundir og við gripum því tækifærið og fengum hana í heimsókn í smá heilsuspjall að hausti. Tónlist: Geiri Sæm og Hunangstunglið - Er ást í tunglinu? GDRN - Næsta líf. Lorde - Mood ring. Adele - Easy on me. Gugusar - Röddin í klettunum. U2 - Pride in the name of love. Dua Lipa - Love again. Herbert Guðmundsson - Með stjörnunum. Lenny Kravitz - Let love rule. Lón - Earthquake.

er bj rv earthquakes magn tali danm margr hallgr kveik kristinsson bergd arnard efni ragnhildur foreldrar herbert gu barnah umhverfisstofnunar
Góðan morgun Føroyar
Flytið øll eiturevni úr barnahædd

Góðan morgun Føroyar

Play Episode Listen Later Sep 18, 2020 15:49

barnah
Koma svo!
Koma svo! - Verndum þau

Koma svo!

Play Episode Listen Later Mar 21, 2020 83:20

Í tuttugasta og níunda þætti Koma svo! er rætt við Þorbjörgu Sveinsdóttur sálfræðing, sem starfar í Barnahúsi og hefur mikla reynslu af barnaverndarmálum. Hún, ásamt Ólöfu Ástu Farestveit uppeldis- og afbrotafræðing, skrifaði bókina "Verndum þau" sem fjallar um skyldur og ábyrgð þeirra sem starfa með börnum og unglingum. Í bókinni eru lesendur upplýstir um eðli og birtingarmyndir ofbeldis og vanrækslu, ferli mála af því tagi hjá barnaverndaryfirvöldum og innan dómskerfisins. 

koma sveinsd barnah
Morgunvaktin
Stígum inn í 21. öldina í heilbrigðismálum árið 2020

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 29, 2020

Samtök iðnaðarins tileinka nýhafið ár nýsköpun og hvetja til hennar með ýmsum hætti. En það er líka þörf á hefðbundnum framkvæmdum þar sem notast er við vörubíla, gröfur og krana. Á nýafstöðnu Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins kom fram að tíu opinberir aðilar ætla að framkvæma fyrir samtals 132 milljarða á árinu. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræddi þessi mál. Hann sagði enn mikla uppsafnaða þörf fyrir viðhald á innviðum, og tilefni til að spýta í lófana nú þegar hægst hefur á hagkerfinu. Í síðustu viku veitti Félag kvenna í atvinnulífinu þremur konum viðurkenningu fyrir að hafa verið öðrum konum hvatning og fyrirmynd. Anna Stefánsdóttir hlaut sérstaka þakkarviðurkenningu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnandi en hún var um árabil hjúkrunarforstjóri á Landspítalnum. Anna ræddi um störf sín í gegnum tíðina, skipulag heilbrigðiskerfisins, nýjan Landspítala og núverandi vinnu, en hún er starfandi forstjóri á Reykjalundi. Nýtt útibú Barnahúss á Akureyri hefur staðist væntingar um stórbætta þjónustu við börn utan höfuðborgarsvæðisins og fjölskyldur þeirra. Það opnaði 1. apríl á síðasta ári og síðan þá hafa hátt í 100 meðferðarviðtöl verið tekin þar, tvö könnunarviðtöl og tólf skýrslutökur fyrir dómi. Úlla Árdal fréttamaður á Akureyri ræddi við Vilborgu Þórarinsdóttur, forstöðumann barnaverndar hjá fjölskyldusviði Akureyrarbæjar, um starfsemi Barnahúss. Tónlist: I love you like a red red rose - Eva Cassidy, It doesn't matter anymore - Eva Cassidy.

Morgunvaktin
Stígum inn í 21. öldina í heilbrigðismálum árið 2020

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Jan 29, 2020 130:00

Límónutréð
Jafnrétti kynjanna og virðingasess í barnahópnum - Þórdís Þórðardóttir

Límónutréð

Play Episode Listen Later Nov 1, 2019 37:58

Þórdís Þórðardóttir dósent í uppeldis-og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir frá rannsóknum sínum síðustu ár. Hún hefur skoðað jafnrétti kynjanna frá ólíku sjónarhornum.

menntav jafnr barnah
Morgunútvarpið
Hitabylgja, mjaldrar, Kátt á Klambra, persónuvernd og málfar

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Jul 25, 2019 130:00

Hitabylgja hefur verið í Evrópu sl. daga og hitinn víða farið í 40 gráður og yfir og hitamet slegin. Okkar maður Sigmar Guðmundsson er staddur í Frakklandi og við slógum á þráðinn til hans og heyrðum hvernig aðstæður eru þar um slóðir. Systurnar Litla-Grá og Litla-Hvít, mjaldrarnir sem komu til Vestmannaeyja fyrir rúmum mánuði, komu úr sóttkví á föstudag. Beðið er með að flytja þá í kvíarnar í Klettsvík þar til þeir hafa jafnað sig betur eftir ferðalagið frá Kína. Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Þekkingaseturs Vestmannaeyja, var á línunni. Barnahátíðin Kátt á Klambra er framundan næsta sunnudag en þetta er í fjórða sinn sem hátíðin fer fram. Þær Valdís Helga Þorgeirsdóttir og Hildur Soffía Vignisdóttir kíktu til okkar og sögðu okkur meira af gleðinni. Facebook má ekki nota upplýsingarnar sem notendur hafa sett á samfélagsmiðilinn kjósi þeir að hætta. Erfitt getur þó verið fyrir miðilinn að hlýta því. Við ræddum breyttan veruleika fyrirtækja eftir að nýju persónuverndarlögin tóku gildi við Hólmar Örn Finnson, ráðgjafa og kennara í persónarverndarrétti við Háskólann á Bifröst. Anna Sigríður Þráinsdóttir mætti í málfarshornið og ræddi íslenskt mál, m.a. beygingu nafnanna Litla-Grá og Litla-Hvít. Tónlist: Spilverk þjóðanna - Lazy Daisy. Macy Gray - I try. Asia - Heat of the moment. Taylor Swift - You need to calm down. Amy Winehouse - Tears dry on their own. Góði úlfurinn - Græða peninginn. Gísli - Tidal wave. Birgir Steinn - Alive. Jónas Sig - Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá. Michael Kiwanuka - Money (ft. Tom Misch).

taylor swift tidal vald tom misch evr okkar frakklandi bifr anna sigr erfitt vestmannaeyja barnah asia heat
VIÐ VILJUM VITA - Hlaðvarp Barnaverndarstofu
Viðtal við Paolu Cardenas sálfræðing og fjölskylduráðgjafa í Barnahúsi

VIÐ VILJUM VITA - Hlaðvarp Barnaverndarstofu

Play Episode Listen Later Jul 1, 2019 35:54

4. Þáttur - Hlaðvarp Barnaverndarstofu "Við viljum vita" heimsækir aftur Barnahús og ræðir að þessu sinni við Paolu Cardenas sálfræðing og fjölskylduráðgjafa.

VIÐ VILJUM VITA - Hlaðvarp Barnaverndarstofu
Viðtal við Ólöfu Ástu Farestveit forstöðumann Barnahúss

VIÐ VILJUM VITA - Hlaðvarp Barnaverndarstofu

Play Episode Listen Later Apr 30, 2019 48:44

2. Þáttur - Hlaðvarp Barnaverndarstofu "Við viljum vita" heimsækir Barnahús og ræðir við Ólöfu Ástu Farestveit forstöðumann

forst hla barnah
Spegillinn
Spegillinn 1. apríl 2019

Spegillinn

Play Episode Listen Later Apr 1, 2019 30:00

Spegillinn 1. apríl 2019 Umsjón: Kristján Sigurjónsson Tæknimaður: Mark Eldred Samningafundur í kjaradeilu Eflingar, VR og fleiri félaga og Samtaka atvinnulífsins sem hófst snemma í morgun stendur enn hjá ríkissáttasemjara. Fyrir fram var búist við að í dag kæmi ljós hvort aðilar væru að ná samningi eða ekki. Stóra samningnefnd Eflingar kom í hús til sáttasemjara rétt fyrir klukkan sex sem og forseti ASÍ. Arnar Páll Hauksson talar beint frá Ríkissáttasemjara. Ólíklegt er að eitthvað fáist upp í allar kröfur í þrotabú WOW air segir annar skiptastjóra félagsins. Opnað verður fyrir kröfur í búið á miðvikudag. Íslendingar halda fullum foræðum yfir orkuauðlindum sínum með tilkomu þriðja orkupakkans, segir forsætisráðherra. Hún hafnar gagnrýni formanns Miðflokksins sem heldur öðru fram. Abdelaziz Bouteflika, forseti Alsírs, hyggst láta af embætti á næstu dögum, áður en skipunartími hans rennur út. Hann hefur verið við völd frá árinu 1999. Breska þingið kýs í kvöld um leiðbeinandi en ekki lagalega bindandi tillögur sem hafa tekið dagskrárvaldið af forsætisráðherra í baráttu við Brexit og sundrung í eigin flokki. 33 bandarískir foreldrar hafa verið ákærðir fyrir að borga svindlurum stórfé í því skyni að koma börnum sínum í bestu háskóla landsins. Útibú frá Barnahúsi var opnað á Akureyri í dag. Þar verður tekið á móti börnum sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi eða öðru ofbeldi og þeim veitt áfallameðferð. Vorboðarnir flykkjast til landsins og nú er lundinn kominn en til hans sást í Grímsey um helgina. Lengri Umfjöllun: Í kvöld greiðir breska þingið í annað skiptið atkvæði um leiðbeinandi, ekki lagalega bindandi tillögur um Brexit-leiðir, þar á meðal varanleg aðild að tollabandalagi. Theresa May forsætisráðherra á í mesta basli með framvinduna, er á móti tollabandalagi, vill fresta fjórðu atkvæðagreiðslunnar um sinn útgöngusamning. Atkvæðagreiðslan í dag sýnir að forsætisráðherra hefur misst dagskrárvaldið í þinginu og flokkur hennar á góðri leið með að klofna. Sigrún Davíðsdóttir segir frá. Óhætt er að fullyrða að fá mál á liðnum árum hafi vakið önnur eins viðbrögð og áhuga hjá bandarískum almenningi og háskólaskandallinn svokallaði. Allt bendir til þess að vel efnaðir foreldrar eða forráðamenn hundraða ungmenna hafi mútað eða borgað vel skipulögðum hópi manna með ítök í virtum háskólum vestanhafs stórfé til að koma afkvæmum sínum að í skólunum. Eftir sitja ungmenni sem verðskulduðu miklu frekar skólavist, en taumlaus metnaður og græðgi annarra rændi þau tækifærinu. Fjölmiðlar vestra hafa undanfarna

Samfélagið
Götuheiti. Velferð barna. Frakkland

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 4, 2018 65:00

Ármann Jakobsson prófessor: Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar hafnaði tillögum nafnanefndar um ný götuheiti á lóð Landspítala við Hringbraut. Af vþí tilefni er rætt við Ármann sem situr í nafnanefnd um nafngiftir nýrra gatna í Reykjavík. Heiða Björg Pálmadóttir settur forstjóri Barnaverndarstofu og Páll Ólafsson sviðsstjóri hjá Barnaverndarstofu: Rætt um málefni barna en næstu daga er haldin í Reykjavík norræn ráðstefna um velferð barna með þátttöku fjölda sérfræðinga frá ýmsum löndum. Um leið er fagnað 20 ára afmæli Barnahúss í Reykjavík sem hefur verið fyrirmynd viðlíka húsa í mörgum löndum. Friðrik Páll: Emmanuel Macron, forseti Frakklands, stendur í ströngu um þessar mundir. Fylgi hefur minnkað og nú hefur Nicolas Hulot, vinsælasti ráðherra stjórnarinnar, sagt af sér, kveðst ekki geta lengur logið að sjálfum sér.

R1918
Það vantar tilfinnanlega mæður og annað kvenfólk

R1918

Play Episode Listen Later Mar 14, 2018

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Sólveig Gabriela Brodman, 10 ára nemandi í Laugarnesskóla, úr grein sem birtist í Morgunblaðinu 20. nóvember 1918. Greinin fjallar um börnin sem dvöldu á Barnahælinu sem var sett upp í Spænsku veikinni í Barnaskóla Reykjavíkur og er jafnframt beiðni um aðstoð við þau. Enginn er skrifaður fyrir greininni en Vilhjálmur Finsen var ritstjóri Morgunblaðsins á þessum tíma. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

rv reykjav sigur vilhj eldj enginn morgunbla listah vantar finsen reykv landsb barnah greinin
R1918
Hún hafði aldrei séð nokkurn hlut jafn fagran

R1918

Play Episode Listen Later Mar 11, 2018

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Tómas Oddur Guðnason er 11 ára nemandi í Melaskóla. Í þessum þætti les hann úr grein sem birtist í Morgunblaðinu 29. nóvember 1918 og fjallaði um Barnahælið sem sett var upp í Barnaskóla Reykjavíkur í spænsku veikinni. Enginn er skrifaður fyrir greininni en ritstjóri blaðsins á þessum tíma var Vilhjálmur Finsen. Þess má geta að John Fenger sem minnst er á í greininni var heildsali og stórkaupsmaður og var jafnframt ráðsmaður á hælinu. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

R1918
Látið ekki bregðast að gleðja litlu Barnahælisbörnin

R1918

Play Episode Listen Later Mar 7, 2018

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Ásdís Gunnarsdóttir, 10 ára nemandi í Varmárskóla, úr grein sem birtist í Morgunblaðinu 19. nóvember 1918. Greinin fjallar um Barnahælið sem var sett upp í Spænsku veikinni í Barnaskóla Reykjavíkur en samkvæmt fréttinni voru börnin þar sextán talsins, níu drengir og sjö stúlkur, það yngsta þriggja daga gamalt en það elsta níu ára. Samkvæmt fréttum náðu vel flest barnanna sem dvöldu á Barnahælinu aftur heilsu. Enginn er skrifaður fyrir greininni en Vilhjálmur Finsen var ritstjóri Morgunblaðsins á þessum tíma. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

rv reykjav sigur varm ekki vilhj gunnarsd eldj enginn morgunbla listah samkv finsen reykv landsb greinin barnah