Podcasts about landsb

  • 15PODCASTS
  • 227EPISODES
  • 53mAVG DURATION
  • 1MONTHLY NEW EPISODE
  • Mar 6, 2025LATEST

POPULARITY

20172018201920202021202220232024

Best podcasts about landsb

Latest podcast episodes about landsb

Víðsjá
Darraðarljóð á 75 ára afmæli, 60 kílóa þríleikurinn, bókamarkaðurinn

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 6, 2025 55:12

Í kvöld og annað kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 75 ára afmæli sitt með stapp-uppseldum tónleikum í Eldborg, þar sem öllu verður tjaldað til. Meðal verka á efnisskránni er 60 ára gamalt tónverk Jóns Leifs, Darraðarljóð. Verkið er skrifað fyrir nokkuð stóra hljómsveit og kór, er gífurlega krefjandi og hefur aldrei verið flutt áður. Víðsjá leit við á lokaæfingu í Hörpu í morgun og hitti þar framkvæmdastjóra SÍ, okkar góða Guðna Tómasson, Hildi Ploder Vigfúsdóttur, forvörð á Landsbókasafni og Svanhildi Óskarsdóttur, rannsóknarprófessor við Árnastofnun, til að forvitnast um verkið og tilefnið. Við lítum líka inn á bókamarkaðinn í Holtagörðum og Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um sextíu kílóa þríleik Hallgríms Helgasonar. En Víðsjá hefst á tilnefningum til Myndlistarverðlaunanna fyrir árið 2024. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Grátur steinanna, ástarbréf og List í ljósi

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 13, 2025 55:26

Ástin mun svífa yfir vötnum í þætti dagsins. Á morgun er dagur heilags Valentínusar og af því tilefni hefur Kvennasögusafnið boðað Dag ástarbréfsins, í Landsbókasafninu á degi ástarinnar, í samstarfi við Ástarsögufélagið, Ástarrannsóknarfélagið og fleiri. Þar mun fara fram fjölbreytt dagskrá, þar sem meðal annars verða sýnd ástarbréf úr safnkosti og flutt örerindi um ástarbréf. Meðal þeirra sem flytja erindi er Guðrún Friðriksdóttir, þjóðfræðingur og meðlimur í ástarsögufélaginu og hún verður gestur okkar í dag. Segir okkur frá sínum hugmyndum um ástarbréf og les eitt slíkt fyrir okkur. Einnig munu Lóa Björk Björnsdóttir og Baldur Örlygsson. starfsmenn hér í Ríkisútvarpinu segja okkur sína skoðun á þessu fyrirbæri, ástarbréfinu. Það er ekki til rómantískari byrjun á febrúarmorgni í Reykjavík en að bjóða sér í heimsókn hjá ungu pari sem sérhæfir sig í flutningi á barokktónlist frá Ítalíu. "Sólveig er ástin mín, en svo kemur lútan", sagði lútuleikarinn Sergio Coto Blanco, sem undirbýr ásamt hörpuleikaranum Sólveigu Thoroddsen og sópransöngkonunni Ievu Sumeja tónleika sem þau flytja í Einarssafni á sunnudag og nefna Grátandi steinar. Við fáum útskýringu á nafngiftinni hér síðar, en á efnisskránni eru meðal annars sönglög eftir tvær stórmerkilegar konur, þær Barböru Strozzi og Fransescu Caccini, sem voru meðal mikilvægustu barokktónskálda á Ítalíu upp úr aldamótunum 1600. En við hefjum þáttinn á fréttum frá menningarvígi Austurlands, Seyðisfirði. Víðsjá sló á þráðinn til Sesselíu Hlínar Jónasardóttur, en hún var í mörg ár ein af hvatamanneskjunum á bak við Lunga, Listahátíð ungs fólks á Austfjörðum, en stendur líka að baki annari menningarveislu sem hefst á morgun og kallast List í ljósi. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Eerie Iceland
Encore: The Fire Priest & Laki Volcano

Eerie Iceland

Play Episode Listen Later Jan 27, 2025 28:17

We are taking a little break getting geared up for Season 2 folks!  To get you ready, Ann re-shares her personal favorite episode about the famed Fire Priest & Laki Volcano... Uncover the fiery mysteries of Iceland's tumultuous past in this episode as we delve into the eruption of the Laki volcano! Join us as we explore the harrowing events of 1783 when the Mother Nature unleashed its fury, spewing forth lava, toxic gases around the world, forever altering the landscape and people's lives.  Learn about the captivating legend of the Fire Priest, a man said to possess supernatural abilities and a profound connection to the volatile forces that shaped Iceland's history. Like what you hear?  Give us 5 Stars!  And follow us for more...  Checkout our website: Eerie Iceland Follow us on: Instagram Find our page on: Facebook  Sources: Researcher: David Geir Jonasson – (Vik Expeditions) Source 1 Source 2 Source 3 Source 4 Source 5 Source 6 Eldrit sr. Jóns Steingrímssonar. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn (Lbs) MS 1552 4to f. 1r. Favorite Icelandic Books Episode by: Ann Irene Peters (Iceland Wedding Planner) Editing by: James Ede (Be Heard | Podcast Production)

Mannlegi þátturinn
Skynjun og skynörvun, heimilisbókhaldið og Valgerður biskupsfrú

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Oct 24, 2024 53:50

Við leitumst við að stunda líkamsrækt og hreyfingu til að halda líkamanum við, halda vöðvunum við, en skynfærin geta gleymst. Við fræddumst í dag um skynjun og skynfærin okkar. Berglind Indriðadóttir, iðjuþjálfi, stendur fyrir námskeiðinu Skynjun og skynörvun - leiðir að betri líðan notenda öldrunarþjónustu þar sem hún kennir leiðir til að halda skynfærunum við. Berglind fjallar um leiðir til þess að flétta örvun fyrir skynfærin inn í daglegar athafnir. Berglind var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það hvernig við getum örvað skynjun okkar og skynfærin. Georg Lúðvíksson er sérfræðingur í heimilisfjármálum og stofnandi Meniga sem sérhæfir sig í persónulegum fjármálum. Georg hefur haldið ógrynni námskeiða um mikilvægi þess að hafa fjármálin á hreinu og fjallað um heimilisbókhald, hvernig hægt er að halda eyðslunni í skefjum, borgað niður skuldir, hvernig lán á að taka osfrv. Við heyrðum í Georgi í dag, þegar heimilisbókhaldið hefur sjaldan skipt meira máli, enda hefur allt hækkað og vextir eru háir. Þegar Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú (1771-1856) var borin til grafar voru þau orð látin falla að hún hefði verið í „öllu tilliti merkiskona“. Hún safnaði miklum auði, stóð í viðskiptum og var ein ríkasta kona Íslands á sínum tíma. Halldóra Kristinsdóttir starfar sem sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns sagði okkur nánar frá lífshlaupi Valgerðar í þættinum. Tónlistin í þættinum Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens) Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson) Let's keep dancing / Emilíana Torrini (Emillíana Torrini og Simon Byrt) Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Eerie Iceland
Episode 8: Laki Volcano + The Fire Priest

Eerie Iceland

Play Episode Listen Later Feb 26, 2024 27:49

Uncover the fiery mysteries of Iceland's tumultuous past in this episode as we delve into the eruption of the Laki volcano! Join us as we explore the harrowing events of 1783 when the Mother Nature unleashed its fury, spewing forth lava, toxic gases around the world, forever altering the landscape and people's lives.  Learn about the captivating legend of the Fire Priest, a man said to possess supernatural abilities and a profound connection to the volatile forces that shaped Iceland's history. Like what you hear?  Give us 5 Stars!  And follow us for more...  Checkout our website: Eerie Iceland Follow us on: Instagram Find our page on: Facebook  Sources: Researcher: David Geir Jonasson – (Vik Expeditions) Source 1 Source 2 Source 3 Source 4 Source 5 Source 6 Eldrit sr. Jóns Steingrímssonar. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn (Lbs) MS 1552 4to f. 1r. Favorite Icelandic Books Episode by: Ann Irene Peters (Iceland Wedding Planner) Editing by: James Ede (Be Heard | Podcast Production)

Mannlegi þátturinn
Róbert Arnfinnsson, Ástarsögufélagið og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 16, 2023 50:00

Í dag hefði stórleikarinn Róbert Arnfinnsson orðið 100 ára og í tilefni þess fengum við Sigríði Jónsdóttur, sérfræðing í leikminjasafni Landsbókasafnsins, til þess að koma til okkar en bókasafnið varðveitir einkaskjalasafn Róberts sem er stórmerkilegt og eitt af stærstu einkaskjalasöfnum safnsins. Sigríður rifjaði upp með okkur feril Róberts, en hann lék ríflega 200 hlutverk á leiksviði og ennþá fleiri í útvarpi og við fengum að heyra stutt brot úr ferli hans úr uppsetningu Þjóðleikhússins á Grikkjanum Zorba frá árinu 1971 og svo heyrðum við hann syngja lagið Herra Sellófan úr söngleiknum Chicago, upptöku frá vetrinum 1984-85 úr Þjóðleikhúsinu. Hið nýstofnaða Ástarsögufélag vill standa að eflingu ástarsögunnar í sinni fjölbreyttustu mynd og koma til móts við þá fjölmörgu lesendur sem þrá að lesa meira um ástina. Félagið verður með örástargjörning á Menningarnótt þar sem nokkrir meðlimir félagsins munu aðstoða gesti og gangandi á Óðinstorgi við að skrifa ástarskilaboð. Brynja Sif Skúladóttir er formaður félagsins og við töluðum við hana í dag. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Þjóðhátíðin fór vel fram segir Magnús í póstkortinu að þessu sinni, en finnst hann vera orðinn aðeins of gamall og of mikill morgunhani fyrir hátíð sem er haldin að mestu fyrir og eftir miðnætti í þrjá daga. En hann hlakkar til haustsins þegar fer að dimma því þá getur hann farið að sinna einu áhugamáli sínu sem er stjörnuskoðun. Í seinni hluta póstkortsins fer hann í smá ferðalag með hlustendur um óravíddir geimsins. Tónlist í þættinum: Ég fann ást / KK (Kristján Kristjánsson) Sellófan / Róbert Arnfinnsson (John Kander og Flosi Ólafsson) Love me tender / Elvis Presley (George R. Poulton, Ken Darby, Vera Matson & Elvis Presley) Love is in the air / Robin Williams og Cristine Baranski (Stephen Sondheim) I Say A Little Prayer / Aretha Franklin (Burt Bacharach & Hal David) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Mannlegi þátturinn
Róbert Arnfinnsson, Ástarsögufélagið og póstkort frá Magnúsi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later Aug 16, 2023

Svipmynd af Bergþóru Snæbjörnsdóttur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 7, 2023 55:00

Bergþóra Snæbjörnsdóttir ætlaði sér aldrei að verða rithöfundur. Hún lærði sálfræði, ritlist og hagnýta menningarmiðlun áður en hún fann með sjálfri sér að skapandi ritsmíðar væru kannski ágætis vinna. Hún vann nýverið Maístjörnuna, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands, fyrir ljóðsöguna Allt sem rennur. Bergþóra kom geisandi fram á ritvöllinn með ljóðsögunni Flórída árið 2017, verk sem vakti mikla athygli og var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og Maístjörnunnar. Áður hafði Bergþóra gefið út ljóðabókina Daloon dagar sem kom út árið 2011 og prósasafnið Dagar undrabarnsins eru á enda. Fyrsta skáldsaga Bergþóru, Svínshöfuð, sem kom út árið 2019, hreppti Fjöruverðlaunin og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, auk þess sem hún var valin besta skáldsaga ársins af bóksölum. Bergþóra Snæbjörnsdóttir er fædd árið 1985 og ólst upp við Úlfljótsvatn í Grafningi. Í dag er hún tveggja barna móðir í Reykjavík sem stefnir á að gefa út sína aðra skáldsögu undir lok þessa árs. Við kynnumst Bergþóru betur í þætti dagsins.

Víðsjá
Svipmynd af Bergþóru Snæbjörnsdóttur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 7, 2023

Svipmynd af rektor Listaháskóla Íslands, Maístjarnan

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 26, 2023 51:08

Kristín Eysteinsdóttir hefur verið ráðin nýr rektor Listaháskóla Íslands. Kristín er auðvitað þjóðkunn kona. Eftir stuttan tónlistarferil fór hún í nám í dramatúrgíu til Árósa, tók svo meistaragráðu í leikstjórn í London og starfaði um árabil sem fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið. Hún tók við starfi Borgarleikhússtjóra 2014 og stýrði leikhúsinu við góðan orðstír, sýningar slógu aðsóknarmet og sópuðu til sín verðlaunum. Hún lét af störfum þar 2020 áður en hennar öðru tímabili þar lauk, til að einbeita sér að öðrum verkefnum. Hún var ráðin prófessor og fagstjóri við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands í ágúst 2022 og hefur nú verið ráðin rektor skólans. Við ætlum að kynnast Kristínu betur í þætti dagsins, fá að heyra af hennar leið í lífinu og listinni, fá að vita afhverju hún sótti um stöðu rektors og hver hennar sýn á skapandi greinar eru. En við hefjum þáttinn á því að heyra af tilnefningum til Maístjörnunnar, ljóðaverðlaunum sem eru veitt af Rithöfundasambandi Íslands og Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni í maí ár hvert.

Víðsjá
Svipmynd af rektor Listaháskóla Íslands, Maístjarnan

Víðsjá

Play Episode Listen Later Apr 26, 2023

Nostalgía , verkamannalög, Sýning um SÁL og Turner verðlaunin

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 27, 2022 54:55

SÁL skólinn er merkileg stofnun, leiklistarskóli stofnaður og rekinn af nemendunum sjálfum. Honum var komið á fót haustið 1972, og starfsemi hans spannaði þrjú ár. SÁL stendur fyrir samtök áhugafólks um leiklistarnám. Þar fór mikið hugsjónastarf og barátta leiklistarnemenda fyrir opinberum stuðningi, sem náði lendingu með tilkomu Leiklistarskóla Íslands árið 1975. Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá stofnun skólans hefur Leikminjasafnið blásið til sýningar í Landsbókasafninu og þangað förum við í þætti dagsins. Rithöfundurinn María Elísabet Bragadóttir vakti mikla athygli með smásagnasafninu Herbergi í öðrum heimi, sem kom út hjá Unu útgáfuhúsi árið 2020, og hefur sömuleiðis fengið mikið lof fyrir Sápufuglinn, sem kom út hjá sama forlagi síðasta vor. María Elísabet er með háskólagráðu í heimspeki og hefur síðustu ár skrifað og flutt pistla um ýmis málefni á fjölbreyttum vettvangi. Í lok þáttar færir hún okkur hugleiðingu um nostalgíu. Við skoðum líka hvaða listamenn eru tilnefndir til Turner verðlaunanna en að þessu sinni eru það fjórar myndlistarkonur frá ólíkum hornum breska samveldisins. Sýning á verkum þeirra var opnuð í Tate safninu í Liverpool í síðustu viku. Frá verkamannaborginni á Bretlandseyjum færum við okkur yfir hafið og til verkamanna í smáborgum Bandaríkjanna. Tónlistarkonan Jelena Tjír-ítsj flytur okkur pistil um stéttarbaráttulög 20. aldar og skoðar fyrirbærið "company towns" eða fyrirtækjabæi í því samhengi. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Víðsjá
Nostalgía , verkamannalög, Sýning um SÁL og Turner verðlaunin

Víðsjá

Play Episode Listen Later Oct 27, 2022

Sifjuð
Af martröðum og morgunsárum // Orð sem áttu aldrei að verða til

Sifjuð

Play Episode Listen Later Jun 3, 2022 19:19

Í þættinum er dregin fram eiginleg merking orða sem við notum í daglegu en veltum ekki endilega nánar fyrir okkur, fjallað er um tilhneigingu okkar til að túlka upp á nýtt hvar skiptingin í orði er og að lokum er litið á orð sem hefðu ekki orðið til ef túlkun okkar hefði ekki flækst fyrir. ////////////////  Ari Páll Kristinsson, Halldóra Jónsdóttir og Steinþór Steingrímsson (ritstjórar). (2016). Málið. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://malid.is/ /// Ásgeir Blöndal Magnússon. (1989). Íslensk orðsifjabók. Mál og menning. /// Bragi Halldórsson, Knútur S. Hafsteinsson og Ólafur Oddsson. (2005). Ormurinn langi. Bjartur. /// Campbell, Lyle. 2012. Historical Linguistics. An Introduction. 3. útg. Edinburgh University Press. /// Egill Helgason. (2019, 7. des.). Á slóðum Braga Kristjónssonar. dv.is. Sótt af https://www.dv.is/eyjan/2019/12/7/slodum-braga-kristjonssonar/?fbclid=IwAR3ts0H3SuLFFF58bi2nlL0gFn8iJ5QjuHvmh5HnCdXhtTUouaUJz1AH-fw /// Guðrún Kvaran. (2010, 29. nóv.). Af hverju segjum við ‘í morgunsárið‘? Sótt af https://www.visindavefur.is/svar.php?id=57236 /// Guðrún Helgadóttir. (1974). Jón Oddur og Jón Bjarni. Vaka-Helgafell. /// Harper, Douglas (ritstjóri). (2001). Online Etymology Dictionary. Sótt af https://www.etymonline.com/ /// Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn o. fl. Án ártals. Tímarit.is. Sótt af https://timarit.is/

Mannlegi þátturinn
Geðlestin, Lærðu að elska sjálfa/n þig og Haukur Ingvarsson lesandi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 23, 2022 50:00

Öflug geðrækt frá unga aldri út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur. Geðlestin er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og er styrkt af félags- og heilbrigðisráðuneytunum. Heimsóttir eru efri bekkir grunnskóla og framhaldsskóla á öllu landinu. Tónlistarmaðurinn MC Gauti, Gauti Þeyr Másson hefur verið partur af lestinni undanfarnar 5 vikur og við heyrðum í honum í dag. Þerapían - Lærðu að elska þig, er einstaklingsmiðuð þjálfun og uppbygging fyrir einstaklinga sem vilja lifa stórkostlegu lífi, segir Kristjana Jenný markþjálfi og hér er ekki um nokkura vikna verkefni um að ræða heldur 9-11 mánuði.Um er að ræða samtalsmeðferð sem er blanda af fróðleik, æfingum og verkefnum þar sem meðal annars eru kenndar aðferðir sem stuðla að jákvæðara hugarfari og sjálfsmati, aukinni meðvitund, sjálfsöryggi og hugrekki og betri tengingu við sjálfa/n þig og innsæið. Kristjana Jenny kom til okkar á eftir. Og lesandi vikunnar var Haukur Ingvarsson rithöfundur og bókmenntafræðingur en hann hlaut einmitt Maístjörnuna, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafnsins, fyrir bók sína Menn sem elska menn nú á dögunum.

Mannlegi þátturinn
Geðlestin, Lærðu að elska sjálfa/n þig og Haukur Ingvarsson lesandi

Mannlegi þátturinn

Play Episode Listen Later May 23, 2022

Spegillinn
24. nóvember. Sviptingar í sænskri pólitík. Vandræði vefsafns.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 24, 2021 10:35

Embætti landlæknis lítur rannsókn á andlátum sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja alvarlegum augum. Lögreglan á Suðurnesjum telur að ætla megi að dauðsföllin hafi borið að með saknæmum hætti. Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið og er það merki um að hlaup sé í vændum. Vísindaráð almannavarna fundaði um stöðuna síðdegis. Lengri umfjallanir (Frá 11. mínútu) Magdalena Andersson, sem tók við embætti forsætisráðherra Svíþjóðar í morgun, baðst lausnar síðdegis, eftir að Umhverfisflokkurinn sleit ríkisstjórnarsamstarfinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi stöðuna í sænskri pólitík við Kára Gylfason, fréttaritara okkar í Gautaborg. Samfélagsmiðlar standa í vegi fyrir því að Landsbókasafnið geti fullkomlega uppfyllt skyldur sínar. Hætt er við að komandi kynslóðir geti ekki kynnt sér skrif áa sinna á kommentakerfum. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Kristinn Sigurðsson, yfirmann stafrænna verkefna og þróunar á Landsbókasafninu. Ræða Borisar Johnsons forsætisráðherra Bretlands á þingi iðnrekenda vekur umræður um leiðtogahæfileika hans. Sigrún Davíðsdóttir rýnir í ræðu Johnsons og viðbrögðin við henni.

Spegillinn
24. nóvember. Sviptingar í sænskri pólitík. Vandræði vefsafns.

Spegillinn

Play Episode Listen Later Nov 24, 2021

Embætti landlæknis lítur rannsókn á andlátum sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja alvarlegum augum. Lögreglan á Suðurnesjum telur að ætla megi að dauðsföllin hafi borið að með saknæmum hætti. Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið og er það merki um að hlaup sé í vændum. Vísindaráð almannavarna fundaði um stöðuna síðdegis. Lengri umfjallanir (Frá 11. mínútu) Magdalena Andersson, sem tók við embætti forsætisráðherra Svíþjóðar í morgun, baðst lausnar síðdegis, eftir að Umhverfisflokkurinn sleit ríkisstjórnarsamstarfinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi stöðuna í sænskri pólitík við Kára Gylfason, fréttaritara okkar í Gautaborg. Samfélagsmiðlar standa í vegi fyrir því að Landsbókasafnið geti fullkomlega uppfyllt skyldur sínar. Hætt er við að komandi kynslóðir geti ekki kynnt sér skrif áa sinna á kommentakerfum. Arnhildur Hálfdánardóttir ræddi við Kristinn Sigurðsson, yfirmann stafrænna verkefna og þróunar á Landsbókasafninu. Ræða Borisar Johnsons forsætisráðherra Bretlands á þingi iðnrekenda vekur umræður um leiðtogahæfileika hans. Sigrún Davíðsdóttir rýnir í ræðu Johnsons og viðbrögðin við henni.

Víðsjá
Sigurhæðir, Maístjarnan og Y gallerí

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 9, 2021 52:28

Víðsjá 9. Júní 2021 Víðsjá hugar í dag að Maístjörnunni, ljóðaverðlaunum sem Landsbókasafn Íslands og Rithöfundasambandið standa að. Verðlaunin voru afhent í gær við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðu. Í Víðsjá dagsins verður rætt við verðlaunahafann Höllu Þorlaugu Óskarsdóttur og hlustendur heyra einnig ávarp sem hún flutti við afhendinguna. Einnig verður haldið í Hamraborgina á Kópavogi en þar hóf starfsemi í yfirgefinni bensínstöð nýtt gallerí um síðustu helgi. Galleríið heitir Y og í Víðsjá dagsins verður rætt við Sigurð Atla Sigurðsson einn af aðstandendum gallerísins og Unu Björg Magnúsdóttur sem er fyrst allra til að sína verk sín í þessu óvenjulega galleríi. Gígja Hólmgeirsdóttir heimsækir einnig Sigurhæðir, hús skáldsins Matthíasar Jochumssonar á Akureyri, sem nú hefur gengið í gegnum endurbætur og ræðir þar við Kristínu Þóru Kjartansdóttur frá Flóru menningarhúsi sem nýlega gekk frá leigusamningi við Akureyrarbæ til næstu fjögurra ára. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson. Mynd: www.rsi.is

Víðsjá
Sigurhæðir, Maístjarnan og Y gallerí

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 9, 2021

Kórónuveiran

Sifjuð

Play Episode Listen Later Apr 9, 2021 19:01

Í þættinum er fjallað um orð tengd kórónuveirunni; veiruna sjálfa, sjúkdóminn sem hún veldur og ástandið í samfélaginu. ////////////////  Heimildir: Ari Páll Kristinsson, Halldóra Jónsdóttir og Steinþór Steingrímsson (ritstjórar). (2016). Málið. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://malid.is/ /// Atli Týr Ægisson (ritstjóri). 2017. Orðabókin.is. Sótt af http://ordabokin.is/ /// Ásgeir Blöndal Magnússon. (1989). Íslensk orðsifjabók. Reykjavík: Mál og menning. /// Biblían. Matteusarguðspjall 4:1-11. /// Eiríkur Rögnvaldsson. 7. apríl 2020. Í páskainnkaupunum í gær fór ég... Sótt af https://www.facebook.com/eirikurr/posts/10157413307823871 /// Harper, Douglas (ritstjóri). (2001). Online Etymology Dictionary. Sótt af https://www.etymonline.com/ /// Hoad, T. F. (1990). The Oxford Library of Words and Phrases. Í T. F. Hoad (ritstjóri), Word Origins: 3. bindi. London: Guild Publishing. /// Jón G. Friðjónsson. (1993). Mergur málsins. Reykjavík: Örn og Örlygur. /// Jónas Jónassen. (1884). Lækningabók handa alþýðu á Íslandi. Reykjavík: prentuð hjá Sigm. Guðmundssyni. /// Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn o. fl. Án ártals. Tímarit.is. Sótt af https://timarit.is/ /// Ólafur Ragnarsson, Sverrir Jakobsson og Margrét Guðmundsdóttir (ritsjórar). (2000). Íslenskt þjóðsagnasafn: 3. bindi. Reykjavík: Vaka-Helgafell. /// Þórdís Úlfarsdóttir (aðalritstjóri). (2011). ISLEX. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://islex.arnastofnun.is/is/

Sifjuð
Dýr

Sifjuð

Play Episode Listen Later Mar 7, 2021 14:35

Í þættinum rýnir Halla í dýraorð og dýraorðtök ásamt því að fjalla almennt um hvernig dýr geta komið fram í máli. //////////////// Ari Páll Kristinsson, Halldóra Jónsdóttir og Steinþór Steingrímsson (ritstjórar). (2016). Málið. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://malid.is/ /// Ásgeir Blöndal Magnússon. (1989). Íslensk orðsifjabók. Reykjavík: Mál og menning. /// Harper, Douglas (ritstjóri). (2001). Online Etymology Dictionary. Sótt af https://www.etymonline.com/ /// Hoad, T. F. (1990). The Oxford Library of Words and Phrases. Í T. F. Hoad (ritstjóri), Word Origins: 3. bindi. London: Guild Publishing. /// Jón G. Friðjónsson. (1993). Mergur málsins. Reykjavík: Örn og Örlygur. ///Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn o. fl. Tímarit.is. Sótt af https://timarit.is/ /// Mattsson, Christian (aðalritstjóri). Svenska Akademiens ordbok. Stokkhólmur: Svenska Akademien. Sótt af https://www.saob.se/ /// Snara. Sótt af https://snara.is/ ///Svavar Sigmundsson. (2009). Orðasmíð Jónasar Hallgrímssonar. Í Bjarni E. Guðleifsson (ritsjóri), Heimaslóð: 9. hefti. Árbók hreppanna í Möðruvallarklaustursprestakalli (bls. 39-42). Akureyri. /// Sölvi Sveinsson. (2004). Saga orðanna.  Reykjavík: Iðunn. /// Þórdís Úlfarsdóttir (aðalritstjóri). (2011). ISLEX. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://islex.arnastofnun.is/is/

Lestin
Konsúlat, töfrastrákur, hljóðtenging og gamall geisladiskur

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 4, 2021 53:36

Við skilum inn 14 ára gömlum heimabrenndum geisladisk í hljóð- og myndsafn Landsbókasafns Ísland. Við hittum þar Bryndísi Vilbergsdóttur sem starfar við það að leita uppi alla tónlist sem kemur út á landinu, bæði á efnislegu og stafrænu formi, og skrásetja í hljóðsafnið. Og talandi um nýja íslenska tónlist. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í sjöundu plötu Konsúlat, en hann segir þessa síkadelísku rafsveit vera eitt best geymda leyndarmál íslenskrar raftónlistar. Julius Pollux flytur okkur pistil í Lestinni á fimmtudegi um hljóðmenningu heimsins og að þessu sinni veltir hann fyrir sér hvernig fólk tengist í gegnum hljóð, hvort sem það eru ASMR-hljóðupptökur, fagnaðarlæti eða klósettferðir nágranna í hljóðbærum fjölbýlishúsum. Og við heyrum af nýjustu vandræðinum í galdraheimi Harry Potter þar sem skoðanir höfundar á transfólki þvælast nú fyrir tölvuleikjaframleiðendum.

Lestin
Konsúlat, töfrastrákur, hljóðtenging og gamall geisladiskur

Lestin

Play Episode Listen Later Mar 4, 2021

Við skilum inn 14 ára gömlum heimabrenndum geisladisk í hljóð- og myndsafn Landsbókasafns Ísland. Við hittum þar Bryndísi Vilbergsdóttur sem starfar við það að leita uppi alla tónlist sem kemur út á landinu, bæði á efnislegu og stafrænu formi, og skrásetja í hljóðsafnið. Og talandi um nýja íslenska tónlist. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í sjöundu plötu Konsúlat, en hann segir þessa síkadelísku rafsveit vera eitt best geymda leyndarmál íslenskrar raftónlistar. Julius Pollux flytur okkur pistil í Lestinni á fimmtudegi um hljóðmenningu heimsins og að þessu sinni veltir hann fyrir sér hvernig fólk tengist í gegnum hljóð, hvort sem það eru ASMR-hljóðupptökur, fagnaðarlæti eða klósettferðir nágranna í hljóðbærum fjölbýlishúsum. Og við heyrum af nýjustu vandræðinum í galdraheimi Harry Potter þar sem skoðanir höfundar á transfólki þvælast nú fyrir tölvuleikjaframleiðendum.

Sifjuð
Orðatabú-sjálfsfróun

Sifjuð

Play Episode Listen Later Feb 28, 2021 12:14

Í fyrsta tabúþætti hlaðvarpsins er fjallað um orð sem notuð eru yfir sjálfsfróun í íslensku, skandinavísku og ensku. ////////////////  Ari Páll Kristinsson, Halldóra Jónsdóttir og Steinþór Steingrímsson (ritstjórar). (2016). Málið. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://malid.is/ /// Ásgeir Blöndal Magnússon. (1989). Íslensk orðsifjabók. Reykjavík: Mál og menning. /// Biblían. Fyrsta Mósebók 38:1-11. /// Halldóra Jónsdóttir og Þórdís Úlfarsdóttir (ritstjórar). (2013). Íslensk nútímamálsorðabók. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://islenskordabok.arnastofnun.is/ /// Harper, Douglas (ritstjóri). (2001). Online Etymology Dictionary. Sótt af https://www.etymonline.com/ /// Hoad, T. F. (1990). The Oxford Library of Words and Phrases. Í T. F. Hoad (ritstjóri), Word Origins: 3. bindi. London: Guild Publishing. /// Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn o. fl. Tímarit.is. Sótt af https://timarit.is/ /// Mattsson, Christian (aðalritstjóri). Svenska Akademiens ordbok. Stokkhólmur: Svenska Akademien. Sótt af https://www.saob.se/ /// Pfeifer, Wolfgang (ritstjóri). (1995). Etymologisches Wörterbuch des Deutschen. München: dtv Verlagsgesellschaft. /// Sjis, Nicoline van der (aðalritstjóri). (2010). Etymologiebank. Sótt af http://www.etymologiebank.nl/ ///  Snara. Sótt af https://snara.is/ /// Þórdís Úlfarsdóttir (aðalritstjóri). (2011). ISLEX. Reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Sótt af https://islex.arnastofnun.is/is/

Samfélagið
Kvef og heilsugæsla. Handrit og konur. Plast og fjölskyldan.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 9, 2020 55:00

Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslu höfuðb.svæðisins: Rætt við Óskar um seinni bylgu kórónaveirunnar, kvefið sem hefru fengið meiri athygli en áður í ljósi covid. Einnig er rætt um þróun í leghálsskimunum. Arnheiður Steinþórsdóttir MA nemi í sagnfræði: Arnheiður hefur verið að vinna að skráningu á handritum kvenna hér í handritasafni Landsbókasafns í sumar á vegum Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Verkefninu er ætlað að gera þátt kvenna í handritamenningu síðari alda sýnilegri. Snæbjörn Helgi Emilsson og Eyrún Péturdóttir: Vikulegt samtal við fjölskylduna sem reynir að lifa plastlausan september.

stein sn plast einnig konur eyr arnhei landsb heilsug
Samfélagið
Kvef og heilsugæsla. Handrit og konur. Plast og fjölskyldan.

Samfélagið

Play Episode Listen Later Sep 9, 2020

Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslu höfuðb.svæðisins: Rætt við Óskar um seinni bylgu kórónaveirunnar, kvefið sem hefru fengið meiri athygli en áður í ljósi covid. Einnig er rætt um þróun í leghálsskimunum. Arnheiður Steinþórsdóttir MA nemi í sagnfræði: Arnheiður hefur verið að vinna að skráningu á handritum kvenna hér í handritasafni Landsbókasafns í sumar á vegum Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Verkefninu er ætlað að gera þátt kvenna í handritamenningu síðari alda sýnilegri. Snæbjörn Helgi Emilsson og Eyrún Péturdóttir: Vikulegt samtal við fjölskylduna sem reynir að lifa plastlausan september.

stein sn plast einnig konur eyr arnhei landsb heilsug
Víðsjá
Lengsta ástarbréfið, Þorvaldur Þorsteinsson, Ekkert er sorglegra en ma

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 2, 2020 53:39

Í Víðsjá dagsins verður rætt við Tónskáldið Friðrik Margrétar-Guðmundsson og leikstjórann og textahöfundurinn Adolf Smára Unnarsson, en þeir frumsýna samtímaóperuna Ekkert er sorglegra en manneskjan í Tjarnarbíó á sunnudag. Einnig verður litið inn á yfirlitssýningu á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar sem opnaði nýverið á Listasafninu á Akureyri, en Þorvaldur var afkastamikill listamaður og kennari sem nýtti sér flesta miðla í listsköpun. Einnig verður fjallað um lengsta íslenska ástarbréfið sem vitað er um. Bréfið, sem varðveitt er að Kvennasögusafninu á Landsbókasafni Íslands, er 4 metrar að lengd og var skrifað af ungum Íslendingi í Kaupmannahöfn fyrir 120 árum síðan. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Víðsjá
Lengsta ástarbréfið, Þorvaldur Þorsteinsson, Ekkert er sorglegra en ma

Víðsjá

Play Episode Listen Later Sep 2, 2020

Í Víðsjá dagsins verður rætt við Tónskáldið Friðrik Margrétar-Guðmundsson og leikstjórann og textahöfundurinn Adolf Smára Unnarsson, en þeir frumsýna samtímaóperuna Ekkert er sorglegra en manneskjan í Tjarnarbíó á sunnudag. Einnig verður litið inn á yfirlitssýningu á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar sem opnaði nýverið á Listasafninu á Akureyri, en Þorvaldur var afkastamikill listamaður og kennari sem nýtti sér flesta miðla í listsköpun. Einnig verður fjallað um lengsta íslenska ástarbréfið sem vitað er um. Bréfið, sem varðveitt er að Kvennasögusafninu á Landsbókasafni Íslands, er 4 metrar að lengd og var skrifað af ungum Íslendingi í Kaupmannahöfn fyrir 120 árum síðan. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Víðsjá
Rilke, Bjargey, My Dark Vanessa og Maístjarnan

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 27, 2020 53:36

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Benedikt Hjartarson bókmenntafræðing sem þýtt hefur skáldsöguna Minnisblöð Malte Laurids Brigge eftir Rainer Maria Rilke. Bókin kom fyrst út árið 1910 og var eina skáldsaga Rilkes, sem var eitt af fremstu ljóðskáldum Evrópu á 20. öld. Benedikt segir frá þessari merku bók og þessu merka skáldi í Víðsjá í dag en þýðing hans kemur út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags í næsta mánuði. Einnig verður slegið á þráðinn til Seyðisfjarðar en í Skaftfelli er Bjargey Ólafsdóttir að sýna verk sín þessa dagana. Ljósmyndasýningu sína kallar Bjargey Tíru en hún fer í framhaldinu einnig á Neskaupsstað. Björn Þór Vilhjálmsson fjallar um My Dark Vanessa eftir Kate Elizabeth Russell sem út kom í síðasta mánuði og hefur þegar vakið mikla athygli fyrir umfjöllun sína um kynferðisofbeldi og margflókna stöðu fórnarlambsins. Og Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafns, verða afhent í dag, hlustendur Víðsjár heyra í nýjum verðlaunahafa í þættinum í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.

Víðsjá
Rilke, Bjargey, My Dark Vanessa og Maístjarnan

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 27, 2020

Florian Schneider úr Kraftwerk, lýðræði og maístjarnan

Víðsjá

Play Episode Listen Later May 7, 2020 55:00

Víðsjá í dag er að mestu leyti tileinkuð þýsku hljómsveitinni Kraftwerk en annar stofnenda hennar, Florian Schneider, andaðist í síðustu viku, 73ja ára að aldri. Hljómsveitin var stofnuð í Düsseldorf árið 1970, hún var frumkvöðull á sviði raftónlistar og er án ef ein áhrifamesta hljómsveit allra tíma. Á árunum 1974-1981 sendi hljómsveitin frá sér plötur sem höfðu áhrif á tónlistarfólk í fjölmörgum greinum, syntapoppi, hipphoppi, teknói, ambíent-tónlist og nýbylgju, svo nokkuð sé nefnt. Hermann Stefánsson rithöfundur veltir í pistli dagsins fyrir sér þversögnum lýðræðis. Einnig verður greint frá tilnefningum til Maístjörnunnar, ljóðabókaverðlauna Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands - Háskólasafns, en tilkynnt verður í Gunnarshúsi í dag hvaða bækur eru tilnefndar fyrir árið 2019, verðlaunin verða síðan afhent í fjórða sinn síðar í mánuðinum. Og hlustendur heyra að venju ljóð fyrir þjóð. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði
18 - Hugleiðingar um kórónavírusinn

Crymogæa - Hlaðvarp um sagnfræði

Play Episode Listen Later Apr 8, 2020 44:47

Crymogæu fannst ekki annað hægt en að hlýða ákalli Landsbókasafns Íslands og annarra um að skrásetja hugleiðingar okkar um kórónavíruskrísuna vorið 2020, enda þegar ljóst að við erum að upplifa sögulega tíma. Þátturinn var tekinn upp í gegnum netið þann 22.03.2020.

ingar landsb
Víðsjá
Ljóð fyrir þjóð hefst, Heimildsöfnun Landsbókasafns, það smáa og Plág

Víðsjá

Play Episode Listen Later Mar 19, 2020 55:00

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Jón Ólaf Ísberg sagnfræðing um sögu veirufræðinnar og það hvernig forfeður okkar lærðu um það allra smæsta í lífríkinu, veirur og bakteríur. Farið verður í heimsókn í galtóma Þjóðarbókhlöðu en Handritasafn Landsbókasafnsins hvetur nú fólk til að skrásetja og halda utan um minningar og persónulegar heimildir um COVID-19 og senda safninu. Rætt verður við Braga Þorgrím Ólafsson sem er fagstjóri handritasafns Landsbókasafnsins. Hermann Stefánsson rithöfundur fjallar í dag að gefnu tilefni um skáldsöguna Pláguna eftir franska rithöfundinn Albert Camus. Bókin kom út árið 1947 og segir frá farsótt sem leggst á alsírsku borgina Oran snemma á síðustu öld, fjallar um það hvernig samfélag glímir við farsóttir, segir frá hugrekki einstaklinga, ofsatrú, uppgjöf, múgæsingu og endurlausn. Og hlustendur fá að heyra ljóð fyrir þjóð, Ilmur Kristjánsdóttir les Sólstöðuþulu eftir Ólöfu Sigurðardóttur frá Hlöðum. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Víðsjá
Medúsa, Sirra og Selma, Stjörnur og stórveldi og heimsendir

Víðsjá

Play Episode Listen Later Feb 5, 2020 55:00

Í Víðsjá í dag verður meðal annars komið við í Þjóðarbókhlöðunni og skoðuð sýning sem opnuð var á fimmtudag en þar má nú skoða útgáfur listahópsins Medúsu sem nú eru orðnar hluti af bókverkasafni Landsbókasafnsins. Súrrealistahópurinn Medúsa var stofnaður af nokkrum nemendum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í árslok 1979, var starfandi í sjö ár og gaf á þeim tíma út ljóðabækur, hljóðsnældur, smásögur, póstkort, veggspjöld og bæklinga svo nokkuð sé nefnt. Auk þess sem hópurinn stóð fyrir ljóðaupplestrum, tónleikum og gjörningum og rak galleríið Skruggubúð við Suðurgötu í tvö ár. Ólafur J. Engilbertsson, einn af meðlimum Medúsu og sýningarstjóri, verður tekinn tali í Víðsjá í dag. Einnig verður hugað að silfurbergi og myndlist sem er innblásin af því, en myndlistarkonurnar Sirra Sigrún Sigurðardóttir og Selma Hreggviðsdóttir hafa verið með hugann við silfurberg að undanförnu og sýna nú verk sín á sýningunni Ljósvaki /Æther 1.0.1 í Berg Contemporary gallerí við Klapparstíg. Björn Þór Vilhjálmsson bókmenntagagnrýnandi rýnir í dag í bókina Stjörnur og stórveldi á leiksviðum Reykjavíkur 1925-1965 eftir Jón Viðar Jónsson, en Jón hlaut á dögunum Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir þetta verk í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Í bókinni beitir Jón nýstárlegum aðferðum til að varpa ljósi á merkan kafla í íslenskri leiklistarsögu, segir sögu allra helstu leikara tímabilsins, greinir frá sigrum þeirra og ósigrum jafnframt því sem hann gerir valdabaráttunni að tjaldabaki ítarleg skil. Og Björn Þorsteinsson prófessor í heimspeki glímir á miðvikudögum í Víðsjá í febrúar, í upphafi nýs áratugar, við spurninguna: Hvað nú? Björn fjallar í pistlum sínum um heimsendi eða enda veraldarinnar, og spyr: Hvað eigum við að gera á meðan við bíðum? Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Fríhöfnin
Úr þjóðarkviku: Jón Árnason

Fríhöfnin

Play Episode Listen Later Dec 24, 2019

Þáttur í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara og landsbókavarðar. Viðmælendur: Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingu, Hólmfríður K. Gunnarsdóttir skyldmenni Jóns Árnasonar, Bragi Þorgrímur Ólafsson, fagstjóri á Landsbókasafni Íslands, háskólabókasafni. Lesari: Kristján Guðjónsson. Umsjón: Ólína Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur.

Víðsjá
Svanafólkið, Skrauthvörf, Opening Ceremony og Fræ sem frjógva

Víðsjá

Play Episode Listen Later Dec 17, 2019 55:00

Í Víðsjá í dag rýnir Gauti Kristmannsson í skáldsöguna Svanafólkið eftir Kristínu Ómarsdóttur. Flutt verður tónverkið Skrauthvörf, sem frumflutt var á Tónlistarhátíð Rásar 1 - Orðin hljóð - sem fram fór í Norðurljósasal Hörpu í lok nóvembermánaðar. Verkið er samstarfsverkefni Kjartans Holms og Jóhannesar Ólafssonar, Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Strokkvartettinn Siggi flytja. María Kristjánsdóttir fjallar í dag um leikverkið Opening Ceremony, sem nýtt sviðslistafyrirtæki, Reykjavik Ensemble, frumsýndi í Tjarnarbíói í síðustu viku. Og bók vikunnar að þessu sinni er ljóðabókin Fræ sem frjóvga myrkrið eftir Evu Rún Snorradóttur en Eva hlaut Maístjörnuna, viðurkenningu Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafnsins, fyrir þessa bók fyrr á þessu ári. Hlustendur heyra í Evu í Víðsjá í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Orð um bækur
Síðustu réttarhöld Franz Kafkas

Orð um bækur

Play Episode Listen Later May 25, 2019

Í bókmenntaþættinum Orð um bækur er fjallað um málaferli um handrit Franz Kafkas. Rithöfundurinn Franz Kafka lést langt um aldur fram árið 1924 og bað vin sinn að brenna öll skjöl sín. Í stað þess að brenna handritin, undirbjó Max Brod þau til útgáfu og starfaði alla ævi að því að kynna og upphefja skáldskap vinar síns. Þegar Brod lést komust handritin í hendur ritara hans, Esther Hoffe, og svo dóttur hennar Evu, allt þar til Landsbókasafn Ísraels krafðist yfirráða yfir skjölunum. Í þættinum er sagt frá vinskap Kafkas og Brods og baráttunni um handritin. Umsjónarmaður er Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir og lesari með henni er Jóhannes Ólafsson.

Orð um bækur
Síðustu réttarhöld Franz Kafkas

Orð um bækur

Play Episode Listen Later May 25, 2019 50:47

Morgunvaktin
Sæstrengur til Bretlands er ekki ný hugmynd

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Apr 23, 2019 130:00

Samtökin Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs hafa verið starfrækt í 22 ár. Á morgun hefst vorátak samtakanna þegar þau leiða 1.100 ungmenni út í náttúruna til þess að gróðursetja 2.000 tré við Krýsuvík, Vífilfell og víðar á Suðurnesjum. Samtökin leggja áherslu á að nýta lífrænan áburð í uppgræðslu landsins, t.a.m. hrossatað. Björn Guðbrandur Jónsson, framkvæmdastjóri samtakanna kom á Morgunvaktina og sagði okkur frá samtökunum, uppgræðslu liðinna ára og átakinu sem hefst á morgun. Það eru nokkur ár síðan menn fóru að velta fyrir sér lagningu sæstrengs frá Íslandi til Bretlands. Þáverandi forsætisráðherrar Íslands og Bretlands, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og David Cameron ræddu þessi mál af miklum áhuga þegar sá síðarnefndi heimsótti Ísland árið 2015. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á lagningu slíks strengs benda til þess að það myndi kosta 800 til 1.100 milljarða króna. Lagning sæstrengs til Bretlands og sala á raforku héðan til meginlands Evrópu er nokkuð fyrirferðamikil í umræðunni um 3. orkupakkann þrátt fyrir að ekki sé minnst á sæstreng í 3. orkupakkanum. Arthúr Björgvin Bollason kom víða við í Berlínarspjalli sínu. Hann talaði um auknar vinsældir leiðtoga Græningja og flokksins almennt. Þær vinsældir virðast vera á kostnað jafnaðarmanna. Þá gætir óánægju á meðal kvenna innan kaþólsku kirkjunnar með áhrifaleysi (sem hefur varað í u.þ.b. 2.000 ár). Kirkjan hefur ákveðið að koma til móts við þessa óánægju með því að tryggja þeim 30% stjórnunarstaða innan kirkjunnar. Þær fá þó ekki að gerast prestar. Þá minntist Arthúr á nýja kenningu um að við getum notað tré og skóga til þess að losna við streitu. Það sé vænlegra en að nota skógana til þess að hlaupa eða hjóla í gegnum þá. Og nú er uppskerutími spergilsins í Þýskalandi. Það gleður okkar mann í Þýskalandi sem er mikill aspasunnandi. Í dag verður opnuð sýning á Landsbókasafninu í tilefni 100 ára skáldaafmælis Halldórs Laxness, en fyrsta skáldsaga hans, Barn náttúrunnar, kom út árið 1919. Sýningin ber yfirskriftina „Að vera kjur eða fara burt?“ Hólmfríður Matthíasdóttir, útgefandi hjá Forlaginu og Auður Jónsdóttir, rithöfundur og barnabarn Halldórs komu á Morgunvaktina og sögðu frá sýningunni. Þær sögðu að Halldór ætti eilíft erindi við íslenska þjóð, nú væri unnið að því að gefa út bækur hans með nútímastafsetningu til þess að gera hann aðgengilegri yngra fólki. Bækur Laxness seljast mjög vel á ensku og ferðamenn sem sækja landið heim leitast eftir því að kaupa verk hans í bókabúðum.

Lestin
Hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, USEE STUDIO, Simone de Beauvoir

Lestin

Play Episode Listen Later Feb 6, 2019 55:00

Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, bónda á Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp. Sigurjón hóf hljómplötusöfnun um miðja síðustu öld, hann andaðist árið 2017 og skildi eftir sig merkilegt safn hljómplatna, alls um það bil 7000 plötur, sem nú hefur verið afhent Landsbókasafni Íslands. Af því tilefni verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í dag sýning sem helguð er safni Sigurjóns, komið verður við í Þjóðarbókhlöðunni í þætti dagsins og rætt við Ólaf Engilbertsson og Bryndísi Vilbergsdóttur. Halla Hákonardóttir og Helga Björg Kjerúlf eru hönnuðirnir á bakvið USEE STUDIO en hönnunarstofan sendi nýverið frá sér fatalínuna Egaleo. Línan er þróuð og unnin út frá róttækum sjálfbærum sjónarmiðum, til að mynda er megin efniviður flíkanna gamlir efnalagerar og rekjanlegur lífrænn bómull. Þær Halla og Helga framleiddu línuna í Grikklandi, en Aþena hefur að geyma ríka textíl- og fata- framleiðslusögu sem hefur orðð undir eftir að evrópsk framleiðsla fluttist að mestu til Suðaustur-Asíu, vegna ódýrs vinnuafls þar. Þær Halla og Helga segja hlustendum Lestarinnar nánar frá fatalínunni Egaleo í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í þættinum í dag um kvikmyndirnar Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttir, þýsku nornamyndina Hakazussa eftir Lukas Feigelfeld, og Transit eftir Christian Petzold, en tvær síðarnefndu myndirnar eru sýndar á Þýskum kvikmyndadögum sem nú standa yfir í BíóParadís. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum um franska heimspekinginn Simone de Beauvoir og bók hennar, Pyrrhos og Kíneas, sem var hennar fyrsta heimspekiverk, kom út árið 1944, Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýddi ritið á íslensku, og kom þýðing hennar út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags á síðasta ári. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson

Frjálsar hendur
Minningar frá ofanverðri 19. öld

Frjálsar hendur

Play Episode Listen Later Oct 14, 2018 50:23

Þykkur pakki barst til Landsbókasafnsins um miðja síðustu öld frá Árna Frímanni Kristinssyni sem innihélt endurminningar föður hans, Kristins Kristinssonar, sem flutti til Kanada. Hann skrifaði minningar sínar um bernskuna á Íslandi.

Morgunútvarpið
Bókasöfn, Svartlyng, Budz Challenge, kokkar, fréttir og Freyr

Morgunútvarpið

Play Episode Listen Later Sep 7, 2018 130:00

Hinn árlegi bókasafnsdagur er í dag, en tilgangur dagsins er að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í nútímasamfélagi, auk þess sem hann er hátíðardagur starfsfólks bókasafna. En hver er staða bókasafnsins í tæknivæddu nútímasamfélaginu? Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar bókasafns- og upplýsingafræðingur á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni var á línunni hjá okkur. Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri kemur líka til okkar, en hann leikstýrir glænýju íslensku leikverki í Tjarnarbíói í vetur, Svartlyng. Verkið er innblásið og samið eftir baráttu Bergs Þórs og fjölskyldu hans gegn íslenska kerfinu í tengslum við uppreisn æru-málið og #höfumhátt. Bergur heimsótti Morgunútvarpið og sagði okkur meira frá. Í gærkvöldi lenti hér á landi hópur Dana og Norðmanna sem ætlar að keppa í svokallaðri Budz Team Challenge keppni sem fram fer á Laugum í Sælingsdal um helgina. Birgir Konráðsson Boot Camp þjálfari , sem búsettur er í Danmörku, hefur umsjón með hópnum og hann var á línunni og sagði okkur um hvað þetta snýst allt saman. Fréttir vikunnar voru á sínum stað, en gestir okkar í dag voru þau Fanney Birna Jónsdóttir og Árni Helgason. Kokkar í kokkalandsliðinu mótmæla samningum við fyrirtæki sem framleiða lax í opnu sjókvíaeldi. Segja það ógn við villta laxa- og silungastofna landsins og hafa slæm umhverfisáhrif. Ylfa Helgadóttir hefur sagt sig úr kokklandsliðinu ásamt 13 öðrum kokkum vegna málsins. Hún var á línunni. Freyr Gígja Gunnarsson mætti í sitt vikulega hégómavísindahorn og kom víða við í yfirferð sinni um helstu Hollywood fréttir. Tónlist: Hjaltalín - Þú komst við hjartað í mér. Portishead - Glory Box. GDNR - Hvað ef (ft. Auður). Earth, Wind and Fire - September. Green Day - Wake me up when September ends. Bryan Adams - Run to you. Friðrik Dór - Segir ekki neitt. Pixies - Here comes your man.

Víðsjá
Myndlist móður og dóttur, heimsókn á Gljúfrastein, 200 ára landsbókasa

Víðsjá

Play Episode Listen Later Aug 28, 2018 55:00

Í Listasal Mosfellsbæjar stendur nú yfir sýning að verkum mæðgnanna Jóníar Jónsdóttur og Sigurlínu Jóhannsdóttur, sem kallast Frá móður til dóttur - frá dóttur til móður. Við hittum mæðgurnar við listaverkin sem öll voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna, og fáum að heyra af áhrifum þeirra á hvor aðra. Við gluggum einnig í bók vikunnar sem að þessu sinni er skáldsagan Okkar á milli eftir írsku skáldkonuna Sally Rooney í þýðingu Bjarna Jónssonar. Og í tilefni dagsins ætlum við að senda Landsbókasafninu kveðju en það fagnar í dag 200 ára afmæli. Við heyrum brot úr tveimur eldri viðtölum, við Ingibjörgu Steinunni Sverrisdóttur, landsbókavörð, og Finnboga Guðmundsson fyrrverandi landsbókavörð. En við byrjum á að velta fyrir okkur huggulegri heimsókn á Gljúfrastein. Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Víðsjá
Tvöfalt afmæli, Bókverk, Modiano og Forystu-Flekkur

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jun 6, 2018 55:00

Við heimsækjum Hafnarborg, en þar var um helgina opnuð afmælissýningin 35/30, þar sem sýnd eru valin verk úr safni Hafnarborgar. Við ræðum við forstöðukonuna og sýningarstjórann Ágústu Kristófersdóttur. Við heyrum lestur Sigurðar Pálssonar úr bókinnni Svo þú týnist ekki í hverfinu hérna eftir Patrick Modiano. Sigurður þýddi bókina en hún er nú bók vikunnar á Rás 1. Rætt er við Unnar Örn, annan sýningarstjóra sýningarinnar Bókverk í Safnahúsinu, þar sem sýnd eru bókverk úr safnkosti Landsbókasafnsins. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík. Forystu-Flekkur heitir bók sem kom fyrst út árið 1950 þar sem safnað var saman sögum af dýrum. Nú hefur hún verið endurútgefin og útgefandinn Bjarni Harðarson bóksali er gestur þáttarins.   Umsjónarmenn: Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Guðni Tómasson

Morgunvaktin
Tungan, bækurnar og stafræn framtíð

Morgunvaktin

Play Episode Listen Later Feb 12, 2018 130:00

Eftir fréttir af veðri, ófærð og mokstri var haldið til Bretlands. Nú velta menn því fyrir sér hvort ríkisstjórnin falli í haust þegar greidd verða atkvæði um Brexit - samkomulagið við Evrópusambandið. Sigrún Davíðsdóttir ræddi þetta. Hún sagði líka frá valdaskiptum í Sinn Fein, hneyksli sem skekur Oxfam og lélegum húsakosti Breta. Landsbókasafnið - Háskólabókasafn fagnar tveggja alda afmæli á þessu ári. Miklar breytingar hafa orðið auðvitað á bóka- og skjalavörslu á þessu langa tímabili og þeim stofnunum sem sinnt hafa þessum hlutverkum. Þá verður ekki annað sagt en að við lifum á miklum breytingatímum, ör tækniþróun hefur breytt allri upplýsingamiðlun og varðveislu gagna. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, Landsbókavörður, lýsti verkefnum safnsins og framtíðarsýn. Hver er Kim Yo - jong? Yngri systir leiðtoga Norður-Kóreu fer fyrir sendinefnd Norður-Kóreumanna á vetrarólympíuleikunum í Suður-Kóreu og hefur vakið mikla athygli. Kim Yo - jong hefur á fáum árum orðið ein valdamesta kona og er talin hafa mikil áhrif á bróður sinn bak við tjöldin. Vera Illugadóttir sagði frá Kim Yo-jong. Bill Evans og Stan Getz fluttu lagið Melinda. Er þýski Jafnaðarmannaflokkurinn í upplausn? Martin Schulz hefur hrakist úr forystusveitinni og tekur ekki sæti í nýrri ríkisstjórn Angelu Merkel. Ágúst Þór Árnason, háskólakennari, þekkir vel til í þýskum stjórnmálum. Hann lýsti Andreu Nahles, nýjum leiðtoga Jafnaðarmanna, og stöðunni í þýskum stjórnmálum. Keith Jarrett og Charlie Haden luku þættinum á laginu Don't ever leave me.

Víðsjá
Myrkrarverk, Jón Kalman, forseti Íslands, Piltur og stúlka

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 11, 2018 55:00

Rætt er við Má Jónsson sagnfræðing um Pilt og stúlku eftir Jón Toroddsen en skáldsagan var nýverið endurútgefin. Kjarvalstaðir eru sóttir heim en þar er verið að undirbúa sýninguna Myrkrarverk þar sem sex ólíkir listamenn takast á einhvern hátt við þjóðsögur, ævintýra- og huliðsheima. Markús Þór Andrésson sýningarstjóri segir frá efnistökum listamannanna. Jón Kalman Stefánsson segir frá skáldsögu sinni Himnaríki og helvíti sem er bók vikunnar á Rás1. Gripið er niður í ávarp forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, sem hann flytur í dag á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni á setningu 200 ára afmælishátíðar safnsins. Umsjónarmenn þáttarins eru Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.

Víðsjá
Himnaríki og helvíti, Gerðuberg, 200 ára Landsbókasafn og Undirferli

Víðsjá

Play Episode Listen Later Jan 10, 2018 55:00

Rætt er við Egil Heiðar Anton Pálsson, leikstjóra sýningarinnar Himnaríki og helvíti sem byggð er á þríleik Jóns Kalmanns (Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins), en sýningin verður frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins annað kvöld. Kristbergur Pétursson segir frá sýningu sinni Utan þjónustusvæðis, sem nú stendur yfir í Gerðubergi. Einnig er rætt við Ingibjörgu Steinunni Sverrisdóttur, landsbókavörð, en Landsbókasafn -Háskólasafn fagnar 200 ára afmæli á árinu. Steinunn Inga Óttarsdóttir rýnir í Undirferli, skáldsögu Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur. Umsjónarmenn þáttarins eru: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.