Umsjón: Pétur Grétarsson.
Í síðasta Hátalaranum heyrast brot úr nokkrum fyrri þáttum. Í upphafi hljóma nokkur dæmi um tónlistina sem opnað hefur þáttinn, en síðan er brugðið upp viðtalsbrotum af handahófi. Albert Finnbogason, Víkingur Heiðar, Curver Thoroddsen, Kristín Björk Kristjánsdóttir , Árni Óskarsson, Jón Marinó Jónsson, Stína Ágústsdóttir og Mugison koma þar við sögu. Takk fyrir að hlusta.

Sigurður Flosason segir frá nýrri plötu sinnia - Blásýra, sem var að koma út með lögum og textum eftir Sigurð í flutningi nokkurra okkar fremstu söngvara. Einnig talar Arnljótur Sigurðsson við Gunnar Grímsson um hljómsveitina Jóa á Hakanum og aðferðir til að fanga augnablikið í tónlist.

Sverrir Guðjónsson söngvari og raddlistamaður er gestur þáttarins. Hann segir frá ferlinum, söngferlinum sem hófst þegar hann var barn og hvernig hann fann kontratenórröddina. Einnig spjallar hann við Pétur um nýja plötu sína - Rökkursöngva sem var að koma út á tvöfaldri vínýlplötu. Tónlistin í þættinum er eftir Emil Thoroddsen, Jón Leifs, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, Áskel Másson, Karólínu Eiríksdóttur og Oliver Kentish.

Agnar Már Magnússon píanóleikari er gestur þáttarins og segir frá nýrri plötu sinni sem geymir íslensk þjóðlög í nýjum útsetningum Agnars fyrir píanótríó og brasssveit. Hann segir frá aðferðum sínum við að setja saman plötuna Mór, sem er sjálfstætt framhald plötunnar Láð sem kom út rárið 2007. Einnig eru leikin nóvemberlög nokkurra frönskumælandi söngvaskálda og höfunda í þættinum.

Hörtur Ingvi Jóhannsson píanóleikari er í óða önn að safna saman eigin tónsmíðum fyrir píanó, sem saman ná yfir allar tóntegundirnar. Einnig hljóma í þættinum nokkur nóvemberlög úr ýmsum áttum. Í lok þáttar syngur Jelena Ciric nýtt lag af plötu sinni Shelters One sem kemur út nk föstudag.

Í þættinum er leikin nýútkomin tónlist úr ýmsum áttum. Píanóleikarinn Daniil Trifonov spilar tónlist eftir Sergei Prokofiev en systurnar Katia og Marielle Labeque spila tónlist eftir Philip Glass. Einnig hljóma baráttusöngvar úr safni Ninu Simone, Stevie Wonder og Pete Seeger. Arnljótur Sigurðsson segir frá svissneska dúettinum Yello og fjallar um fyrirbærið “furðupopp“, en í lok þáttar er hugað að list píanistans Keith Jarrett sem nýlega greindi frá þvi að líkast til væri ferli hans lokið.

Gestir þáttarins eru þeir Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Elíassen og Steingrímur Teague, en þeir mynda kjarnann í hljómsveitinni Móses Hightower, sem var að senda frá sér nýja plötu sem þegar er farin að vekja mikla athygli, enda ekki síður velheppnuð lög og textar á henni en fyrri plötum hljómsveitarinnar. Tilurð tónlistarinnar er umfjöllunarefni þáttarins sem og annað sem ber á góma þegar tónlistarfólk er heimsótt á vettvang sköpunarinnar. Einnig hljóma í þættinum nýjar tónlistarútgáfur með bandaríska söngvaskáldinu Sam Amidon og þýska baritóninum Florian Boesch.

Kontrabassaleikarinn og tónsmiðurinn Bára Gísladóttir var að gefa út plötuna Hiber, þar sem hún spilar sjálf nýja tónlist sína fyrir bassa. Bára er gestur Hátalarans og spjallar um tónlistina vítt og breitt - hvað um hana verður og hvaðan hún kemur. Einnig er hugað að haustlitum í músík með Johnny Hartman, Elísabetu Erlingsdóttur, Matta Kallio, Jóni Nordal og hljómsveitinni Eik.

Arnljótur Sigurðsson er gestur þáttarins og bregður á fóninn nokkrum tóndæmum sem tengjast ljóst og leynt auglýsingum í fjölmiðlum og/eða vínartónlist. Einnig er fléttuð saman tónlistarleg perlufesti með listafólki frá Færeyjum, Frakklandi, Pólandi og Bandaríkjunum.

Gestur þáttarins er Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari sem hefur nýlokið tíu ára verkefni þar sem hann tileinkar sér tónlist fjarlægra slóða- frá Búlgaríu til Tyrklands og Grikklands og alla leið til Íran. Hann hefur á þessari vegferð kynnst tónlistarfólki frá þessum löndum, fólki sem hefur lagt hönd á plóginn og tekið þátt í hljóðritunum á þremur plötum sem komið hafa út síðastliðin þrjú ár og eru nú fáanlegar einar sér eða saman og jafnvel í pakka með nótna og kennslubók um tónlistina sem verður til þegar íslenska þjóðlagið fer á svona flakk.

Gestur þáttarins er Gyða Valtýsdóttir sem segir frá nýrri plötu sinni, Epicycle II, væntanlegu og langþráðu tónleikahaldi og enduruppröðun tilverunnar. Ýmislegt fleira ber á góma eins og vegan trítlar. Ekki má heldur gleyma allri fínu músíkinni sem hljómar í þættinum líka, en hún er fengin að láni úr stjörnumerki vináttunnar.

Malí, Brasilía og Íran eru áfangastastaðir í hugarflugi þáttarins. Gestur dagsins er Arnljótur Sigurðsson, sem bregður á fóninn tónlist sem tengist upptökustjóranum og bassaleikaranum Bill Laswell og verkum hans frá níunda áratugnum. Meðal annars er spekúlerað í því hvernig tónlist eldist.

Hátalarinn tekur kúfinn af splunkunýjum plötubúnkanum og bregður á fóninn tónlist úr ýmsum áttum. Meðal listafólks er Gregory Porter, Gyða Valtýsdóttir, Jonas Kaufmann, Ásgeir Ásgeirsson, Bill Frisell, Kristjana og Svavar Knútur, Kronos kvartettinn og Agnar Már Magnússon.

Gestur þáttarins er Hafdís Bjarnadóttir gítarleikari og tónskáld. Hún segir frá nýrri plötu sinni - Lighthouse, sem unnin er í samvinnu við Parallex tríóið frá Noregi. Einnig ræðir Hafdís tónlistarferil sinn og hvernig hún rataði þangað sem hún er stödd í músíkinni og hvernig ástand og horfur eru í tónlistarlífinu þessa dagana.

Í þættinum er rætt við Sigurð Flosason og Hauk Gröndal um ólík verkefni þeirra á Jazzhátíð Reykjavíkur sem hefst nk laugardag. Tónlistin í þættinum er tengd verkefnum þeirra auk þess sem fleiri dæmi hljóma um sitthvað af því sem er að vænta á þessari 30 ára tónlistarhátíð sem stendur í átta daga að þessu sinni.

Tónlist píanóleikarans og tónskáldsins Bunitu Marcus hljómar í þættinum og gluggað er í nýlegt viðtal við hana þar sem hún lýsir sambandi sínu við Morton Feldman, sem var leiðbeinandi hennar á níunda áratugnum. Einnig hljómar tónlist eftir Jo Kondo, Ellen Fullman, Theresu Wong, Pauline Oliveros og Jesper Pedersen í þættinum sem er óvenju hljóðlátur að þessu sinni.

Þau eru mörg leyndarmálin sem hafa verið gerð skil í tónlist. Í þessum þætti hljóma nokkur þeirra. Kunnugleg rússnesk píanóhugleiðing og laumuleg kvikmyndatónlist í kapp við plöntulíf og mismunandi sjónarhorn munnhörpu og fransks horns. Og undir lokin er hugað að leyndarmálum spunans. Philip Glass, Stevie Wonder, Jaco Pastorius, Ahmad Jamal, Bítlarnir, The Miracles, Art Ensemble of Chicago og fleiri koma við sögu.

Gömul og ný lög úr ýmsum áttum mynda syrpur sem vekja spurningar um uppruna, ártöl, fólkið á bak við tónlistina og ýmislegt fleira. Hátalarinn á frídegi verslunarmanna gefur hlustendum vísbendingar í músíkölskum spurningaleik.

Skoski gítarleikarinn Sean Shibe (frbr: Sjon Sjíbe) hefur vakið mikla athygli fyrir túlkun sína á lútu- og sembaltónlist eftir Jóhann Sebastían Bæjarfógeta. En hann er jafnvígur á rafgítarana og spilar einnig tónlist eftir David Lang, Steve Reich og marga fleiri. Dæmi um það hljóma í þættinum. Breski píanistinn, tónskáldið og hljómsveitarstjórinn Thomas Adés er einn afkastamesti tónlistarmaður dagsins í dag. Nýr konsert hans fyrir píanó og hljómsveit virðist ætla að verða vinsælasta verkið á alþjóðlegum hljómsveitarpöllum klassískrar tónlistar næstu misserin. Í þættinum hljómar kafli úr þessum konserti auk fleiri tóndæma um list Tómasar Adés.

Halldór Smárason tónsmiður og píanóleikari heimsækir þáttinn og segir frá tónlistinni sem hann var að gefa út á plötunni STARA, en ameríska útgáfan Sono Luminus gekk í það verk með Halldóri. Meðal flytjenda er strokkvartettinn Siggi, en við heyrum líka í þættinum af söngelskri fjölskyldu og hvernig íslensku sönglögin fléttast inn í vefnað nýrrar tónlistar.

Arnljótur Sigurðsson bregður á fóninn nokkrum tóndæmum reggítónlistarmanna frá Jamaica, sem allir eiga það sameiginlegt að vera miklir áhugamenn um kúrekamyndir og persónur og leikendur þeirra. Öfund kemur líka til tals í tengslum við aðra tónlist þáttarins.